Skip to main content

Grafarvogsblaðið 11. tbl. 2025

Page 1

GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2025 11:12 PM Page 1

Grafarvogsblaðið 11. tbl. 36. árg. 2025 nóvember

Ódýri ísinn

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

]Xjk\`^eX$ jXc Xe el _m\i]`

Hressandi útivist í jólaskógi

Spöngin 11 He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` 112 Reykjavík H b^ *,* -*-* Sími 575 8585 ;Vm *,* -*-+

Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

www.bilavidgerdir.is

Þjónustuaðili

lll#[b\#^h

- sjá bls. 23

Lyf á lægra verði! Leggjum áherslu á mjög góða þjónustu Gott vöruúrval Hægt að panta lyf á www.rimaapotek.is og í síma 577‑5300

Spönginni Grafarvogi

Einkarekið apótek


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/18/2025 11:00 AM Page 2

2

GV

Fréttir

Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@skrautas.is Ritstjórn og auglýsingar: Símar 698-2844 og 699-1322. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 - 699-1322 - gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi.

Lýsum upp skammdegið og það lengi Dimmasti tími ársins er að ganga í garð og fullrar birtu gætir ekki orðið dag hvern nema í nokkra klukkutíma. Þessi tími reynist mörgum erfiður og margir eiga um sárt að binda. Í mesta skammdeginu er gott að reyna að horfa á björtu hliðarnar og njóta þess sem hægt er. Eftir tíu daga gengur aðventan í garð með öllum sínum ljóma og boðskap. Á vef Árnastofnunar stendur eftirfarandi: ,,Aðventa er annað heiti á jólaföstu. Hún hefst fjórða sunnudag fyrir jóladag og stendur því í fjórar vikur. Orðið aðventa hefur verið notað í málinu að minnsta kosti frá því á 14. öld og er tökuorð úr latínu adventus í merkingunni 'tilkoma'.” Ein er sú leið sem fólk er að grípa æ fyrr til en það er að henda jólaseríum á hús sín og nágrenni. Það er vel til fundið og um að gera að setja séríurnar snemma upp og taka þær mjög seint niður og helst ekki fyrr en í mars. Í gamla daga var fólk að ná í jólaseríur og skraut í geymsluna að morgni Þorláksmessu. Og jólatréð var skreytt á Þorláksmessunni og oft entist fólki ekki dagurinn og kvöldið til skreytinga. Var nóttin fyrir aðfangadag oft í styttra lagi. Í dag eru breyttir tímar. Dæmi eru um fólk sem skreytir jólatré sitt í lok nóvember og ekkert við það að athuga nema síður sé. Við eigum að gera það sem okkur langar til að gera í aðdraganda aðventunnar og þegar dimmasti og drungalegasti tími ársins gengur yfir. Og alltaf er gott að líta á björtu hliðarnar. Í dag er ekki nema mánuður í að daginn taki að lengja á ný. Það er gott í drunganum og dimmunni að ylja sér við þá tilhugsun. Og nú er að skella á okkur svartur föstudagur og fleira sem hleypir öllu í loft upp í verslnum landsins og lýðurinn verslar af sér afturendann eins og enginn verði morgundagurinn. En margir gera góð kaup og ekkert nema gott um það að segja svo lengi sem innistæða er fyrir kaupunum. Stefán Kristjánsson

gv@skrautas.is

Setið lengur en góðu hófi gegnir - eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks Núverandi meirihluti í Reykjavík hefur setið lengur en góðu hófi gegnir og við blasir stjórnleysi, vanhugsuð verkefni og rekstur sem stenst ekki áætlanir. Í aðdraganda kosninga er svo lögð fram óraunhæf fjárhagsáætlun, „kosningaáætlun“, þar sem forsendur standast einfaldlega ekki. Það sér það hver borgarbúi að hér er verið að fegra stöðuna fremur en að horfast í augu við veruleikann sem við blasir.

Þetta mun taka langan tíma, þar sem allt deiliskipulagsferlið og fjölmargar samþykktir eru enn eftir. Í ljósi reynslunnar er erfitt að sjá hvers vegna borgarbúar ættu að treysta þessum meirihluta fyrir verkefni af þessari stærðargráðu. Reykjavík rekin eins og tilraunastofa Á Höfðabakka stendur borgin svo í vanhugsaðri tilraun til að þrengja eina helstu umferðaræð borgarinnar án þess að heildargreining liggi fyrir. Útkoman verður meiri tafir, hærri kostnaður og verri þjónusta.

Stenst hvorki veður né vind Þegar litið er á stóru málin í borginni sést sama mynstrið alls staðar þar sem hugmyndafræði um bíllausan lífsstíl er látin ráða för í stað almennrar skynsemi. Í Keldnalandi á að reisa 12 þúsund manna hverfi þar sem 62% heimila geta ekki átt bíl. Bílastæði verða í miðlægum gjaldskyldum húsum, í allt að sjö mínútna göngufjarlægð frá heimilum. Og borgarlínan verður tilbúin sex árum eftir að fólk flytur inn. Verktakar hafa þegar lýst yfir áhugaleysi. Þetta er ekki borgarskipulag, þetta er tilraun sem stenst hvorki veður né vind. Óljóst og áhættusamt Í Úlfarsárdal á að byggja 4.000 nýjar íbúðir sem hluta af húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar, ætlaðar ungu fólki og fyrstu kaupendum. Samt liggja engar

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. skýrar forsendur fyrir um þjónustu, samgöngur eða skólamál. Verktakar segja verkefnið óljóst og áhættusamt og borgin bætir ofan á það allt saman með því að efna til hugmyndasamkeppni um skipulagið, sem einungis hækkar verð og lengir byggingartíma. Þegar bráðvantar íbúðir er það hið versta sem hægt er að gera.

VISSIR ÞÚ?

Samnefnarinn er skýr; Reykjavík hefur verið rekin eins og tilraunastofa í allt of langan tíma og borgarbúar borga brúsann dýru verði. Það er ekkert óeðlilegt að gefa stjórnmálamönnum frí þegar þeir hafa setið svona lengi og skilað svona litlu. Borgarbúar eiga betra skilið. Við í Sjálfstæðisflokknum viljum skynsamlegt skipulag, ábyrga fjármálastjórn og þjónustu sem virkar. Nú er komið að vaktaskiptum! Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/14/2025 5:12 PM Page 3

<;:98:76:8567:4732/.6,8: +**78: ;96: )(8)'56,: 2: /2*73&7**787: %$: /2*)3.8: ;96: #'"878 :;96:9,!)' 3 3 :.') !, #(8);267678: ,!!8('',!$78: 8 : % %3( : 78' : : /%86 * ' ; : '53, : 76 98/98$,: 98 : *2)7* $6 8 : ,9*9: %$: : /* ! ! 78'53, 7 6 (*85!: *% '85)',!$: %$: ! 6: !! !: ': 87: )37 7: 9,!)'73 37 )7;)9'!,!$ :45$,! 7:%$:$567 : 8'.!) 6,: 98: 9,'': ;9)': ) 9!!7! ,: ! / $$,!$78) 56 $$ $ 6, 9 3&7 23 8 : 47 78: )9;: !.'2;7 7*9$78: 2/.6,8: %$ $: 87;.8)3787! , )'76)9'!,!$:)7; ;9,!7)' : 8)',: 7!$,!! ! : 7;78,!! : / 6 6 8: : : & */89 9 ''78: 2/.6,8: )9; 9!'7: /56,: 9,! !)'73*,!$ ;: %$: & *)3 * ; : 33,: )39;;,8: 8,8: 76 :,!!7!: 9 3&7 .') !,6:98:;96:4 2:/9)'7:)9;: 98 , 7 23 8:/ 6 8: : :2: 9)' 8 ;96: 7**9$8,:) ! !: ,8:/%8$,!7:%$:)"*78*7$ ) 9)' 8 : 8 $$6 : 4(8: 9,;,*,: 2: 49)) : 9,! !)'737: 98 ,: : **3%;,!!: )'76 8 8,8: 87;'26,!7


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/14/2025 7:56 PM Page 4

4

GV

Mataruppskriftir

Dásamleg vetrarsúpa - frábær réttur sem vert er að prófa Það er svo sannarleg þess virði að prófa vetrarsúpuna sem við bjóðum upp á að þessu sinni. 1-2 msk. Ólífuolía. 1 laukur (smátt saxaður). 2–3 hvítlauksrif (pressuð eða söxuð). 2 gulrætur (sneiddar smátt). 1 meðalstór sæt kartafla (í litlum bitum). 1 dós niðursoðnir tómatar (eða 2 ferskir, skornir). 1 msk. fersk basilika (smátt söxuð). 1 msk. fersk steinselja (smátt söxuð). 1 tsk. þurrkað timjan. 1 dós hvítar baunir eða linsubaunir (valfrjálst). 1 lítri grænmetissoð (eða vatn + kraftur). Salt og pipar eftir smekk

Handfylli af spínati eða grænkáli (í lokin). Hitið ólífuolíu í potti og steikið lauk og hvítlauk í um 2 mínútur eða þar til laukurinn er orðinn glær. Bætið við gulrótum og sætri kartöflu, steikið í aðrar 2–3 mínútur. Hellið tómötum og grænmetissoði út í ásamt linsubaununum (ef þær eru ósoðnar). Láta sjóða í 15–20 mínútur, eða þar til grænmetið er mjúkt og baunirnar soðnar. Ef þú notar soðnar tilbúnar baunir bætið þeim þá út í, í lokin ásamt ferskum kryddjurtum og spínati. Smakkið til með salti og pipar. Verði ykkur að góðu. Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is www.instagram.com/janast

Vetrarsúpan er sérlega góð og við skorum á lesendur að prófa.

Spönginni Grafarvogi

Máta t ðu í verslun unum u okkar k Sæktu u á Kefl f av fla víkurffllugvelli Kringlan Glæsibær Gr Grand dii Spöngin Keflavíkurfl efflav ku fllu ugv vö ölllu ur wwwey ww ww w..ey ye esland.is

Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 5/2/2025 6:39 PM Page 7

Stærrðin skiptir ek kki máli

Breiðhöfða 13

Á Nesdekki Brreiðhöf iðhöfða ð 13 finnur þú eitt fullkomnasta hjólbarðaverkstæ æði landsins þar sem fag gmenn okkar þjónusta b bíla af öllum stærðum og gerðum. Bókaðu tíma á nesdekk.is

Skannaðu QR kóðann til að bóka tíma á netinu

Skoðaðu u úrvalið o og bókaðu tíma í dekkjas skipti á ne esdekk.is Breiðhöfði 13

110 Reykjavík 590 2080

Stæ ærðin skiptir ekki máli á Breiðhöfffð ða 13.

nesdekk.iis / 561 4200


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/14/2025 8:31 PM Page 6

6

Fréttir

GV

Fiskréttirnir í Öldunni eru sérlega girnilegir og bragðgóðir.

Þessar verður ,,Allt sem við bjóðum upp þú að lesa! á er vandlega valið” Vinirnir Páll og Haraldur stíga ölduna saman í Öldunni - fisk- og sælkeraverslun í Spönginni.

SÁ BESTI

Þessa bók verða allir knattspyrnuunnendur að eiga ‐ og lesa!

HVENÆR HAFA BÆNDUR MÖK? Bráðskemmtilegar sögur úr skólastarfinu. Já, og hvenær skyldu nú bændur hafa mök? Svarið er að sjálf‐ sögðu í bókinni ‐ eins og svo mörg önnur!!!

DAUÐAFÆRI Á HVERRI SÍÐU! Ómissandi bækur á öllum ,,knattspyrnu‐ heimilum”. Þú tæklar þig í geg‐ num þær og skorar auðvitað þrennu!

Bókaútgáfan Hólar holabok.is / holar@holabok.is

- Aldan - fisk og sælkeraverslun hefur opnað í Spönginni Fiskverslunin Hafið er hætt í Spönginni en í sama húsnæði hefur verið opnuð ný fiskverslun, Aldan fisk- og sælkeraverslun. Páll Pálsson er eigandi Öldunnar ásamt matreiðslumeistaranum Haraldi. Við hittum Pál á dögunum og báðum hann um að gara grein fyrir sér ‘i upphafi. ,,Ég heiti Páll Pálson og hef alla tíð, búið í Hafnarfirði. Fiskurinn hefur alltaf verið stór hluti af lífi fjölskyldunnar minnar. Langafi minn starfaði við að selja fisk úr hjólbörum í Reykjavík. Pabbi, nafni minn var farsæll skipstjóri og bróðir minn stofnaði Hafið Fiskverslun. Það má því með sanni segja að ég hafi alist upp með sterkar tengingar við sjávarútveginn og að fiskurinn er í blóðinu.” - Segðu okkur aðeins frá tilurð þess að þú ákvaðst að opna þessa sælkerafiskverslun hér í Spönginni. ,,Ég hef starfað hjá bróður mínum síðustu tuttugu árin og rekið Hafið í Spönginni í um áratug. Það hefur lengi blundað í mér að gera eitthvað mitt eigið, og nú fannst mér loksins rétti tíminn til að stíga það skref. Með mér í þetta nýja ævintýri er Haraldur vinur minn sem er matreiðslumaður að mennt með mikla og fjölbreytta reynslu úr veitinga- og matreiðslugeiranum. Hann þekkir bransann út og inn, og saman deilum við ástríðunni fyrir góðum mat og ferskum fiski. Okkur langaði að skapa sælkeraverslun sem sérhæfir sig í fiski og öllu því sem honum fylgir, hvort sem það er meðlæti, sósur eða hráefni sem gerir fiskréttinn fullkominn. Draumurinn okkar er að byggja upp fiskverslun á traustum grunni, þar sem persónuleg þjónusta og gæði eru í fyrirrúmi, verslun þar sem hver og einn viðskiptavinur fær að upplifa að hann skipti raunverulega máli. Eins og tíðkaðist hér áður hjá kaupmanninum á horninu.”

- Þú hefur rekið fiskbúð áður og þekkir þennan bransa vel, hvað er það sem skiptir sköpun í rekstri sem þessum? ,,Þjónustan er algjört lykilatriði í þessum bransa, það skiptir öllu máli að viðskiptavinirnir finni að þeim sé sinnt af fagmennsku. Svo þarf auðvitað hráefnið að vera í hæsta gæðaflokki, á heimsmælikvarða. Ef þessi tvö atriði eru í lagi, góð þjónusta og frábært hráefni, þá á þetta einfaldlega ekki að geta klikkað.” - Hvað ætlar þú að gera öðruvísi núna? ,,Við ætlum að byggja á þeim góða grunni sem þegar hefur verið lagður, en um leið þróa okkur áfram. Markmiðið er að halda áfram að bjóða upp á fyrsta flokks fisk og spennandi fiskrétti – en líka að bæta stöðugt við nýjum hugmyndum og sælkeravörum sem henta vel með. Við viljum skapa verslun þar sem fólk fær innblástur í eldhúsið, ekki bara hráefnið sjálft, heldur líka hugmyndir að nýjum bragðsamsetningum og réttum.” - Hverjar eru helstu áherslur þínar í vöruúrvali? ,,Áherslan er á ferskleika, gæði og fjölbreytni. Við viljum bjóða upp á það besta í fiski og allt sem gerir fiskréttinn fullkominn – frá hráefninu sjálfu til meðlætis og krydds.” - Þar sem Aldan flokkast undir sælkeraverslun er áhugavert að vita hvað þýðir að vera sælkeraverslun? ,,Fyrir mér snýst sælkeraverslun ekki bara um að selja góðar vörur, heldur um upplifunina í heild. Við viljum skapa stað þar sem fólk finnur innblástur, fær ráðleggingar og finnur fyrir ástríðunni okkar fyrir góðum mat. Allt sem við bjóðum upp á er vandlega valið, hvort sem það er fiskurinn, meðlætið eða sósurnar.

Þetta snýst um gæði, smekk og umhyggju fyrir smáatriðunum.” - Eruð þið að bjóða upp á mikið af tilbúnum fiskréttum eða leggið þið meiri áherslu á að vera með ferskan og nýjan fisk án þess að búið sé að gera eitthvað við hann? ,,Við erum með fjölbreytt úrval af fiskréttum og mikið magn af sælkeraréttum sem eru vinsælir í saumaklúbba eða í matarboðið. Ókryddaði fiskurinn selst alltaf vel en réttirnir hafa tekið fram úr í sölu þar sem þeir eru einstaklega þægilegir í eldun, eða 20 mínútur í 200 gráður.” - Er fiskneysla Íslendinga að aukast? ,,Fiskneysla Íslendinga hefur alltaf verið mikil, og við finnum fyrir því að yngri kynslóðin er alltaf að verða duglegri eða koma til okkar og fá sér fisk í matinn. Aukin gæði í réttum og brögðum hefur haft mikið að segja.” - Hver er þinn uppáhaldsfiskréttur? ,,Minn uppáhaldsréttur verð ég að segja er minn mánudagfiskur, soðin nætursöltuð ýsa, stöppuð með íslenskum kartöflum og smjöri. En ef ég vil gera extra vel við mig, þá er fyllti laxinn sá réttur sem ég fæ mér. Þar erum við með stökka rösti kartöflu undir laxinum sem er fylltur með bökuðum hvítlauk, kóríander og rjómaosti. Hann er svo toppaður með apríkósu, engifer og trönuberja pestói. Algjört lostæti!” - Eitthvað annað sem þú vilt koma á framfæri í lokin? ,,Við mælum með fiski alla daga vikunnar. Okkur hlakkar til að taka á móti ykkur í nýrri og glæsilegri verslun okkar og bjóðum viðskiptavini hjartanlega velkomna,” segir Páll Pálsson.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/14/2025 5:17 PM Page 7


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/15/2025 5:41 PM Page 8

8

GV

Fréttir

Rimaskóli á hlaupum

Fallegir og ódýrir munir eru til sölu í Fannafold.

Keramikmunir í Fannafoldinni

Uppbrot á skólastarfi og lýðheilsa eru eitthvað sem Rimaskóli þekkir vel, hvort sem það er með núvitund og jóga á þemadögum eða Rimaskólaleikunum á unglingastigi þar sem nemendur og kennarar etja kappi. Þetta árið var haldið á nýjar slóðir og ákveðið að ,,hlaupa í skarðið” og demba sér í Ólympíuhlaup ÍSÍ. Veður og vindar settu strik í reikninginn en hlaupið fór að lokum fram föstudaginn 3. október með pompi og prakt í hlýju og stilltu veðri við mikinn fögnuð nemenda og kennara sem margir hverjir voru orðnir óþreyjufullir að fá loksins að spreyta sig. Og þegar lagt var af stað var sko heldur betur hlaupið í góða veðrinu.

Lagt var upp með að nemendur á yngsta stigi hlupu tvo og hálfan kílómetra en auðvitað sættu sig fæstir við það og fór meginþorri nemenda fjóra, fimm og einn sérlega mikill dugnaðarforkur rúmlega sex kílómetra. Eldri nemendur voru þeim yngri svo aldeilis ekki síðri en þar var ýmist hlaupið fimm eða átta kílómetra. Galvaskir nemendur létu þó fyrir fram ákveðnar vegalengdir ekki stoppa sig og fóru margir hverjir vel yfir 10 kílómetra og gott betur. Afraksturinn lét ekki á sér standa en samtals tóku þátt 456 nemendur sem hlupu samanlagt 2169 kílómetra.

Sumir kennarar og starfsmenn tóku af skarið og hlupu með krökkunum en aðrir tóku á móti nemendum á tilteknum vegalengdum og hvöttu þá áfram. Þess má geta að nokkrir húmoristar í hópi kennara afhentu HLAUP bangsa fyrir hvern þann sem fram hjá fór sem sló heldur betur í gegn hjá kröftugum hlaupurunum. Kröftugir nemendur á mið- og unglingastigi höfðu orð á því að ótækt væri að hafa ekki lengri vegalengdir í boði svo stefnt er því að stækka viðburðinn á næsta ári og taka líðheilsumarkmiðin í nefið.

Jane Alexander er leikskólakennari í leikskólanum Brekkuborg í Grafarvogi. Hún er flínkur listamaður og er að selja keramikmuni á pallinum hjá sér í Fannafoldinni. ,,Ég er með stúdíó í Fannafold og þar er ég að búa til ýmislegt úr leir, oftast með Sigrúnu vinkonu minni sem er líka leikskólakennari. Núna 22. og 23. nóvember erum við með jólamarkað á pallinum og er það í fimmta skipti sem við erum með þennan markað,” segir Jane. Hún er með netfangið janealexxa@gmail.com

Jólamarkaðurinn er á dagskrá 22. og 23. nóvember.

Duglegir krakkar í Rímaskóla undirbúa sig fyrir hlaupið.

Þessir herramenn tóku vel á því og stóðu sig vel.

JÓL JÓ LAM MARK KAÐU UR U -í He eiðmö örk-

Í l k jó ól ólatré é–T Trröpp ö putré – Handv H dverksmarkaðu k k ður Íslensk – Jólasve einar – Bar nas stund í Rjóðrrinu Opið allar aðventuhelgar milli kl 121 17. Njótið fjölskyldustundar í Heiðm mörk með heitu súk kkulaði og smákökum við eldstæðið.

www.heidmorrk.is

Jólaskógurinn á Hólmsheiði – hög ggvið eigið gg g jjólatré úr ú skóginum g g g Opið aðventuh helgar frá 7.desemb ber milli kl 11-16.

Kennarar tóku á móti nemendum og hvöttu þá áfram á tilteknum stöðum.

Ungir hlauparar framtíðarinnar.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2025 2:08 PM Page 9

SVAMPBURSTA ÞVOTTUR Í ÁSKRIFT HJÁ LÖÐRI Þ Ú K A U P IR Ð G FÆ R Á S K R IF T O

5F0SL% ÁT T A

A F E IN U M

A U K A B ÍL

FRÍMIÐI

GILDIR TIL 10. DES

FRÍÞVOTTUR ÓTAKMARKAÐUR ÞVOTTUR 9.900.- Á MÁNUÐI. AÐGANGUR Í SNERTILAUSAR STÖÐVAR INNIFALINN.

Á LAMBHAGAVEGI KLIPPTU ÚT MIÐANN OG SÝNDU HANN Á LAMBHAGAVEGI


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2025 2:09 PM Page 10

10

GV

Fréttir

Ný afkastamikil svampburstastöð opnar á Lambhagavegi „Það sem ég sé sem helsta kost Löðurs er hversu stuttur biðtími er á svampburstastöðvum og góð gæði þvotta. Við getum tekið allt að 90 bíla á klukkustund og bíllinn rennur í gegnum stöðina á örfáum mínútum. Það hefur

verið algengur misskilningur að svampburstar fari illa með lakkið, en nútíma svampar sem notaðir eru hjá okkur eru gerðir úr hágæða léttum svömpum og þvegnir daglega. Hjá Löðri starfar frábært teymi starfsfólks

Nútíma svampar sem notaðir eru hjá Löðri eru gerðir úr hágæða léttum svömpum sem eru þvegnir daglega.

,,Framundan eru mánuðir þar sem götur eru skítugar og við hvetjum viðskiptavini til að renna við á svampburstastöðvum okkar á Lambhagavegi, Vesturlandsvegi, Fiskislóð og Fitjum. Þar sér starfsfólk um forþvott áður en vélar þvo bílinn vel og biðin er mjög stutt,“ segir Alfreð Ari Chiarolanzio, rekstrarstjóri Löðurs. sem leggur mikinn metnað í starfið miðið er að vernda umhverfið með Boðið er upp á tvær áskriftarleiðir þar dag hvern, sama hvernig viðrar. Fra- skynsamlegri notkun vatns og efna og sem stærri áskriftin veitir viðskipmundan eru mánuðir þar sem götur með því að koma í veg fyrir að tavinum aðgengi að öll-um bílaþvottastöðvum, svampbursta- og snertieru skítugar og við hvetjum viðskip- spilliefni berist út í náttúruna. Svampburstastöðvar Löðurs eru han- lausum stöðvum á aðeins 9.900 kr. tavini til að renna við á svampburstastöðvum okkar á Lambhagavegi, naðar til að ná stöðugum gæðaþvotti. Minni áskriftin veitir að-gengi að öllum Vesturlandsvegi, Fiskislóð og Fitjum. Þar eru notuð sérvalin efni og yfir- snertilausum stöðvum Löðurs á 6.900 Þar sér starfsfólk um forþvott áður en borðsvörn sem hjálpar lakkinu að hrin- kr. Með báðum áskriftum geta viðskipvélar þvo bílinn vel og biðin er mjög da frá sér óhreinind-um. Nútíma svam- tavinir fengið ótakmarkaðan fjölda stutt,“ segir Alfreð Ari Chiarolanzio, par tryggja að burstunin er mild en áhri- þvotta í mánuði. Ef viðskiptavinir vilja farík. Snertilausar stöðvar bjóða bæta við auka bíl í sinni áskriftarleið rekstrarstjóri Löðurs. Löður hefur verið starfandi frá árinu háþrýstiþvott með rétt stilltri efnamög- fæst hann með 50% afslætti. „Við hö2000 og þjónustað ökutæki í svamp- nun og yfirborðsvörn sem er frábær fum lagt áherslu á að veita góða þjónusbursta- og snertilausum stöðvum með leið til að halda bílum hreinum. tuupplifun á stöðvum okkar og gæða Löður var fyrsta bílaþvottastöðin á þvott fyrir bílinn. Krökkunum finnst líáherslu á umhverfis-vænni þvott. Í dag rekur fyrirtækið 11 stöðvar um land Íslandi til að bjóða viðskiptavinum ka mjög gaman að sjá froðuna og ljósin allt, átta á höfuðborgarsvæðinu, eina á bílaþvott í áskrift. Viðskiptavinir eru á svampburstastöðvum. Áskriftin hefur Fitjum í Reykjanesbæ, á Grímseyjargö- stöðugt að leita eftir einföldun í þjónus- verið vinsæll kostur hjá viðskiptatu á Akureyri og við Faxastíg í Vest- tu og þægilegu viðmóti og ánægjulegt vinum og njóta tryggir viðskiptavinir mannaeyjum. Umhverfissjónarmiðin er að geta veitt viðskipta-vinum þá up- þess að fá sjötta hvern mánuð með 50% eru rauður þráður í rekstrinum. Mark- plifun með áskriftar-þjónustunni. afslætti,“ segir Alfreð.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2025 1:35 PM Page 20


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/15/2025 8:17 PM Page 12

12

VISSIR ÞÚ?

AÐ KEILA ER LEIKIN AF 120.000.000 MANNS Í YFIR 90 LÖNDUM. KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

luþjón usta tífluþ ónusta Stíf Röra ramynd yndir Dælubíll

GV

Fréttir

Blóðsykurmælingar í boði Lionsklúbbanna Fjörgynjar Nóvembermánuður er tengdur vitund um sykursýki og varnir gegn þeim sjúkdómi. Sykursýkisvarnir eru eitt af höfuðverkefnum Lions um allan heim og eru ýmsir viðburðir því tengdu á dagskrá hjá Lionsumdæmum og klúbbum svo sem ýmis fræðsla og mælingar blóðsykurs en alþjóðlegi sykursýkisdagurinn er 14. nóvember ár hvert. Hér á landi munu Lionsklúbbar um allt land bjóða upp á blóðsykurmælingar í nóvember mánuði á sínum heima svæðum. Lionsklúbburinn Fjörgyn hóf að bjóða upp á blóðsykurmælingar árið 2012 og höfum við gert það árlega eftir það að undanskildum Covid

árunum og höfum við fengið aðstöðu í verslunarkjarnanum Bíldshöfða 20 en þar hafa Krónan, JYSK og Húsgagnahöllin veitt okkur húsaskjól fyrir þetta verkefni. Frá árinu 2017 höfum við átt í góðu samstarf við Lionsklúbbinn Fold við blóðsykurmælingarnar og höfum við ávalt skilað af okkur flestum mælingum á landsvísu. Þessi þjónusta er að öllu leiti í boði klúbbanna og höfum við átt því láni að fagna að hafa gott aðgengi að heilbrigðis starfsmanni sem hefur verið okkur til halds og trausts og veitt þeim ráðgjöf sem þess þurfa. Á þessum árum hafa klúbbfélagar mælt blóðsykur í 5455 einstaklingum sem skiptist þannig að 3198 konur he-

fur fengið mælingu og 2257 karlar, þetta er fólk á öllum aldri frá barnsaldri og yfir nírætt og kemur fólk í sumum tilfellur á staðinn þegar það veit af þessari þjónustu okkar. Þetta er verkefni er mjög góð og öflug kynning fyrir Lions hreyfinguna og veitir það okkur félögunum mikla ánægju að fá að taka þátt í þessu verkefni. Í ár bjóða Lionsklúbbarnir Fjöryn og Fold upp á blóðsykurmælingar á Bíldshöfða 20 laugardaginn 22. nóvember n.k. milli 11:00 og 16:00 og hvetjum við alla til að koma og fá mælingu hjá okkur.

VALUR HELGASON stifla.is | 896 1100 Foldarkonur við blóðsykurmælingar.

Karlar í Fjörgyn við blóðsykurmælingar.

Fyrir hönd undirbúningsnefndar, Guðmundur Helgi Gunnarsson


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/14/2025 5:21 PM Page 13


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/15/2025 8:29 PM Page 14

14

Fréttir

GV

Elín Katla Sveinbjörnsdóttir varð í fyrsta sæti í Advanced Novice.

Íslandsmet Elínar Kötlu á ísnum í Egilshöllinni Spönginni

Alþjóðlega listskautamótið Northern Lights Trophy fór fram á dögunum í Egilshöll. Mótið er haldið af Skautasambandi Íslands og listskautadeild Fjölnis, og tókst það afar vel þrátt fyrir að þörf

hefði verið fyrir fleiri sjálfboðaliða til að sinna fjölbreyttum verkefnum mótsins. Mótið er tvískipt; annars vegar alþjóðlegt mót, þar sem keppt er í Advanced Novice, Junior og Senior flokkum, og hins vegar Interclub-mót, þar sem fjölmargir íslenskir skautarar tóku þátt og stóðu sig allir vel. Í Basic Novice flokki á Interclubmótinu hafnaði Elysse Marie í öðru sæti og Maxime Hauksdóttir í þriðja sæti, glæsilegur árangur hjá þeim báðum. Ísland átti fjóra keppendur í alþjóðlega hluta mótsins. Í Junior Women keppti Sædís Heba Guðmundsdóttir. Hún endaði í 4. sæti, einungis 1,5 stigum frá þriðja sætinu. Í Advanced Novice Women kepptu Elín Katla Sveinbjörnsdóttir, Arna Dís Gísladóttir og Ylfa Rún Guðmundsdóttir. Ylfa Rún endaði í 10. sæti og Arna Dís í 9. sæti. Elín Katla sigraði keppnisflokkinn með yfirburðum,19 stigum á undan næsta keppanda. Elín Katla setti jafnframt nýtt Íslandsmet í bæði stuttu prógrammi, frjálsu prógrammi og í heildarstigum. Stigin hennar fyrir stutta prógrammið voru 42.26. Fyrra met í stuttu prógrammi átti Ísold Fönn frá árinu

2018. Stigin hennar fyrir frjálsa prógrammið voru 77.49 og heildarstigin 119.75. Þetta er í annað sinn á fáeinum vikum sem hún setur nýtt met, en nú bætti hún heildarstigametið um 10 stig. VEL HEPPNAÐ MÓT OG ÞAKKIR TIL SJÁLFBOÐALIÐA „Við erum gríðarlega stolt af íslensku skauturunum okkar sem sýndu mikinn metnað og fagmennsku á heimavelli,“ segir Svava Hróðný Jónsdóttir, formaður Skautasambands Íslands. „Þessi árangur sýnir hversu hratt íþróttin er að þróast hér á landi. Við viljum einnig færa öllum sjálfboðaliðum okkar innilegar þakkir, án þeirra hefði mótið ekki orðið svona glæsilegt.“ Northern Lights Trophy er árlegt alþjóðlegt listskautamót sem haldið er í Reykjavík. Mótið laðar til sín bæði íslenska og erlenda keppendur og veitir íslenskum skauturum dýrmæta keppnisreynslu á heimavelli. Skautasamband Íslands og listskautadeild Fjölnis þakka öllum keppendum, þjálfurum, dómurum og sjálfboðaliðum fyrir vel heppnað mót og framúrskarandi þátttöku.

Maxime Hauksdóttir varð í þriðja sæti í Basic Novice.

Fjöldi frábærra skautara tók þátt í þessari alþjóðlegu keppni. Þetta eru sigurvegarar í Junior flokki.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/16/2025 11:22 PM Page 15

15

GV

Bókakaflar

„Viðburðalítill gamantúr“

Í kaflanum um jökulhlaupið 1934 er einnig getið farar Hannesar yfir jökulinn. En þar eð borizt hefir allýtarleg frásögn Hannesar sjálfs um þessa sögulegu og sennilega einsdæma jökulför er sú frásögn birt hér í sérstökum þætti. Er það í bréfi til Vigfúsar Guðmundssonar, að Hannes segir ferðasögu þessa, óefað eftir beiðni Vigfúsar og áskorun. Segir Vigfús, að Hannes telji í bréfi sínu jökulför þessa „viðburðalítinn gamantúr,“ og Vigfús bætir við: „… En öðru máli gegnir, hvort lítt vanir ferðamenn á tveimur jafnfljótum eða kjarklítil smámenni hefðu sífellt haft „gamantúr“ í huga alla leiðina. … Hannes Jónsson segir sjálfur frá ferðinni.“ – Er þó með hans leyfi fellt úr lítilsháttar eða vikið við orðalagi á stöku stað. Kemur hér frásögn Hannesar: „Í póstferð á vesturleið var ég viðbúinn að leggja upp frá Svínafelli í Öræfum 28. marz 1934. Tvo menn hafði ég ráðið til ferðar með mér vestur á jökulinn, af því að þá var ekki um aðra leið að ræða. Voru það röskir menn, þeir Oddur Magnússon2 og Jón Stefánsson. Við lögðum ekki af stað fyrr en á laugardagsmorgun klukkan 7 sökum þess, að veðurútlit hafði ekki verið tryggilegt á jöklinum þennan dag, snjóburður og bylkóf öðruhvoru og eins tvo næstu daga – skírdag og föstudaginn langa. Héldum við inn Skaftafellsheiði að vestanverðu og urðum að krækja allt inn úr Morsárdalnum til þess að komast vestur í Jökulfellið, því að hlaupið lónaði svo langt inn á Morsáraurana. Komumst við að Rauðhellum og höfðum þá farið talsverðan krók frá vanalegri leið til Jökulfellsins. Jökulhlaupið huldi undirlendið allt, svo að við urðum að fara gegnum Bæjarstaðaskóg og skriðurnar, unz við komum að útfallinu. Gaf þar á að líta tröllslegar hamfarir og ógleymanlega hrífandi átök elds, vatns og ísa. Vatnsflaumurinn hafði spennt upp jökulröndina, brotið og var að brjóta í hana býsna mikið skarð og hafði grafið í aurinn þann feikna hyl, að þegar jökulstykkin hvert af öðru brotnuðu úr jökulbrúninni, þá sukku þau í kaf, og bólaði ekki á þeim, fyrr en tók að grynnast talsvert neðar. Held ég þó ekki of í lagt, að stykkin stærstu hafi verið um 25 metrar á hæð. Þessir litlu molar rákust svo hver á annan með braki og brestum, morruðu að meira hluta í kafi ofan eftir mesta straumnum, unz þá rak í strand til og frá á Skeiðarársandi. Eftir að við höfðum horft hugfangnir um hríð á þessi ægilegu átök, lögðum við á jökulinn skammt fyrir ofan útfallið, og var klukkan þá orðin 10. Ófærð var þar af skelsnjó í miðjan legg. Skíði hafði ég fengið lánuð í Skaftafelli og notaði þau nú til að draga á þeim dót mitt, póstinn og nestið, meðan of bratt var til þess að ganga á þeim. Héldum við nú norðvestur á jökulinn, og eftir rúmlega ½ klukkustundar gang vorum við komnir NV af Krossgilstindi, sem er norðvestan við Jökulfell. Sáum við þá Súlutind gnæfa yfir jökulbreiðuna, og var áformað að komast þangað, enda sýndist ekkert til fyrirstöðu. Veðrið var ákjósanlegt, sást varla ský á lofti, aðeins lítilsháttar skýhnoðri með élfukti á Færnesstindum nyrzt í Skaftafellsfjöllum. Þá er við höfðum gengið þrjá stundarfjórðunga á jöklinum, urðu sprungur þvert fyrir okkur, sem töfðu mjög förina. Fórum við fyrst að krækja með þeim til þess að geta hlaupið yfir þær, en urðum brátt að láta okkur lynda að klífa þær upp og ofan. Þó að sprungurnar væru þéttar og þunnir kambar milli þeirra, reyndist keldan skár en krókurinn. Snjór var í botni gjánna og broti í snjónum til hliða, svo að þetta seinfarna ferðalag ofan og upp hvað eftir annað gekk þó sæmilega. Niðri í gjánum, undir fótum okkar, urðum við

ókyrrðar og undirgangs varir, þar sem skessan skreið áfram undir jöklinum með „óvæntu urri og leiðum ropum“. Hrutu okkur þá spaugsyrði af vörum, t.d. þá er einna mest gekk á, sagði ég við Odd: „Hvers konar óvenju hljóð var þetta?“ Hann svaraði: „Ætli henni (Skeiðará) þyki ekki óþarfi, að við séum að traðka ofan á lífinu á henni.“ Eftir 1¼ klukkustundar yfirferð um gjáaklasann sýndist okkur, að honum væri lokið að mestu leyti. Vildi ég þá ekki láta fylgdarmennina fara lengra, því að nú sýndist og reyndist stutt leið og greiðfær eftir að Súlutindi. Hvíldum

með veifu heim til mín, fór ég beina leið vestur yfir Eystrafjall og kom klukkan 4 í gangnakofa (sæluhús) sem er á svonefndum Staðarhóli vestan í fjallinu. Þaðan var ekki nema tæplega 4 klukkustunda gangur heim til mín, ef ég hefði komizt venjulega leið ríðandi manna. En nú voru þar allir aurar í kafi undir hlaupinu. Hefði ferðin gengið miklu seinna og verr en nú var orðið, gat verið gott og sjálfsagt að gista í kofanum. En póstinum vildi ég koma áfram, og hann þurfti líka að fara frá Klaustrinu á páskadaginn. Dvaldist ég þar því aðeins í stundarfjórðung. En nú

Útfararþjónusta í yfir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is

VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN

!

Hannes Jónsson landpóstur ásamt eiginkonu sinni, Þórönnu Þórarinsdóttur.

við okkur þar í 15 mínútur, árnuðum svo hver öðrum fararheilla og héldum hver sína leið, en þá var klukkan eitt kort gengin í eitt. Skíðin höfðu tafið fyrir yfir gjárnar, en nú komu þau í góðar þarfir, með því að lausi snjórinn var dýpri en fyrr. En skíðamaðurinn var nú ekki útlærður í listinni, svo að ferðin gekk tæplega mikið yfir liðugan klyfjagang. Eftir tveggja klukkustunda skíðaför kom ég vestur í skarðið í Súlutindi, sem mun vera nálægt 30 metra yfir jökulinn. Hafði ég þá verið 4 klukkustundir milli fjalla fyrir utan viðstöðu. Víðsýni var hið bezta úr skarðinu. Sá ég vel til jökulhlaupsins, og sýndist það breiðast yfir mest af sandinum, austur fyrir Ingólfshöfða og vestur í Veiðiós fyrir austan Skaftárós.3 Séð hafði ég fáeinum leiftrum bregða fyrir í sólskininu; annars gerðist ekkert sögulegt. En ljósin gátu þó bent til þess, að eitthvað sögulegra kynni að vera í vændum. Nú fannst mér næstum sem ég væri kominn heim, þar sem ég þekkti hvern krók og kima, hól og hæðir eins og blettina í túninu mínu. Eftir litla dvöl við þetta dásamlega útsýni í allar áttir, – og á þeim stað þar sem litlu munaði, að ég gæti heilsað

var ekki hægt að nota skíðin lengur, því að nú varð ég að fara þvert fram úr skógarbrekkum, bröttum skriðum og þéttum klapparákum. Fór nú að versna gengið, því að í skóginum var svo mikil ófærðarbotnleysa, að mótbrekkið varð ég að skríða og þjappa snjónum undir mig. Þó að slík leið væri ekki löng, seinkaði hún þó för minni. Ekki var að óttast myrkrið, því að ekki dró ský eða skugga fyrir himinljósin, og auk þess var jökullinn nú sífellt að senda mér leifturgeisla sína, og eftir því skærari sem dagsbirtan dvínaði, og mátti nú sjá, að eldgosið var í algleymingi. Ferðina byrjaði ég með því að krækja býsna langt upp með jökulhlaupinu, nú varð ég að halda niður með því að vestanverðu. Og þannig mátti svo kalla, að ég kæmist yfir það þurrum fótum. Og árla páskadagsmorgun, klukkan 2, var ég kominn heim til mín að Núpsstað, og pósturinn komst að Kirkjubæjarklaustri í tækan tíma.“ Hannes Jónsson bætir því við frásögn sína, að sumir hafi láð sér að hafa ekki fylgdarmann alla leiðina, „og hefði það auðvitað verið skemmtilegra. En hættunnar vegna var það hégómi. Ég var alvanur að fara um þessi fjöll einn, og mörgum sinnum í 40 ár, þekki þau eins og fingur mína og hefi oft orðið að fara þau hættulegri en í þetta sinn. Sumir héldu jafnvel, að hlaupið mundi að einhverju leyti flóa fram af jöklinum, en slíkt er ósæmileg hugmynd fullvita fólki. Og aldrei kemur það fyrir. En hitt getur borið við, að gusist upp um gjár, milli fjalls og jökuls á jökulbrún. En þar er alltaf hægt að krækja fyrir.“ Þetta er þá frásögnin um jökulför Hannesar á Núpsstað. Látlaust og skemmtilega sögð, eins og verið væri í ríkisútvarpinu að segja frá skemmtiför Ferðafélags Íslands upp á Esju eða Hengil. En hér gildir að menn verða að kunna þá list að lesa milli lína og sjá og skynja hið raunverulega viðhorf. Og annað væri „ósæmilegt fullvita fólki.“

Grafarvogsblaðið Ritstjórn/Auglýsingar - Sími 698-2844


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2025 2:04 PM Page 16

16

GV

Fréttir

Ráðning Ingva Þórs og Victors mikið gleðiefni

Nú nýlega voru voru tvær ráðningar á skrifstofu knattspyrnudeildar Fjölnis þegar þeir Victor Birgisson og Ingvi Þór Marinósson voru ráðnir til starfa. Í fréttatilkynningu frá Fjölni kemur eftirfarandi fram: Það er okkur mikið gleðiefni að segja frá því að Ingvi Þór Marinósson hefur verið ráðinn viðburða- og verkefnastjóri hjá knattspyrnudeild

auk þess sem hann er þjálfari í yngri flokkum félagsins. Ingvi Þór er 112 inn að beini og er því vel þekktur innan félagsins. Við erum gríðarlega ánægð með að hafa klófest einn af okkar betri mönnum í starf innan deildarinnar. Victor Birgisson er nýr starfsmaður knattspyrnudeildar. Victor, sem er uppalinn hjá félaginu, mun koma inn í margvísleg verkefni innan knattspyr-

nudeildarinnar og mun þar aðstoða við viðburði og uppsetningu þeirra. Þar að auki mun Victor verða með ýmis sérverkefni á skrifstofu félagsins og aðstoða við daglegan resktur. Þess má geta að Victor var í starfi yfir sumarið og stóð sig með prýði. Því er mikil ánægja með að hafa tryggt okkur áframhaldandi vinnuframlag um ókomna framtíð.

Ingvi Þór Marinósson.

Victor Birgisson.

Nýir ungmennasamningar Bræðurnir Jóhannes Alem Óskarsson og Matthías Elnar Óskarsson hafa skrifað sinn fyrsta samning! Jóhannes Alem og Matthías Elnar hafa báðir alist upp í yngri flokkum félagsins og spiluðu síðastliðið tímabil með bæði 2. flokki og Vængjum Júpíters. Þar stóðu þeir sig afar vel og hafa nú skrifað undir sinn fyrsta samning við félagið - samning sem gildir til ársins 2028. Unnar Jóhannsson.

Unnar Jó aftur heim í Fjölni

Nú munu þeir taka næsta skref og ganga til liðs við æfingahóp meistaraflokks karla í vetur. Báðir eru fjöl-

hæfir leikmenn sem geta leyst fleiri en eina stöðu á vellinum. Matthías hefur aðallega spilað á miðjunni og getur tekið að sér allar stöður þar. Jóhannes er hraður kantmaður sem getur einnig spilað frammi. Þess má geta að þeir eru aðeins 17 ára gamlir. Við í Fjölni erum mjög ánægð með að hafa tryggt framtíð bræðranna hjá félaginu og bindum miklar vonir við þá á komandi árum.

Arnór Sölvi Hilmisson og Baltasar Þór Laufarsson skrifa undir sinn fyrsta samning! Arnór Sölvi og Baltasar hafa báðir spilað upp alla yngri flokka Fjölnis og skrifað nú undir sinn fyrsta samning við félagið – samning sem gildir til ársins 2028.

félagsins. Baltasar Þór er öflugur miðjumaður sem hefur verið burðarás í 3. flokki, auk þess að spila með 2. flokki í sumar og jafnvel verið í leikmannahópi meistaraflokksins. Baltasar er leiðtogi innan sem utan vallar og sannur Fjölnismaður í gegn.

Arnór Sölvi er ungur og efnilegur framherji sem hefur tekið stórstígum framförum síðustu ár og verið lykilleikmaður í 3. flokki. Hann er metnaðarfullur, vinnusamur og frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur

Við í Fjölni erum gríðarlega stolt af því að tryggja framtíð þessara efnilegu leikmanna til ársins 2028 og hlökkum til að fylgjast með þeim blómstra á næstu árum! (Frétt frá Fjölni)

Unnar Jóhannsson, betur þekktur sem Unnar Jó, er mættur aftur í Fjölnir og hefur tekið við þjálfun hjá 3. flokk karla og 8. flokk karla. Auk þess mun hann starfa sem afreksþjálfari hjá félaginu. Knattspyrnudeild Fjölnis fagnar því að fá að fá jafn öflugan Fjölnismann eins og Unnar aftur heim og er hann liður í því að styrkja það góða starf sem fer fram enn frekar.

Jóladagatal Fjölnis Sala fyrir hið árlega jólahappdrætti Fjölnis, þar sem dregið er út daglega vinninga í desember fram að jólum, er hafin! Happdrættið er mikilvæg fjáröflun fyrir félagið og frábær leið til að styðja við barna- og unglingastarf Fjölnis. Miðinn kostar 2.500 kr. og dregið er út daglega frá 1.–24. desember. Meðal vinninga eru gjafabréf frá Icelandair, Tattooasaart, Húðklíník, Next Level Gaming, Akademias, Teamsport auk margra annarra vinninga! Þeir sem vilja tryggja sér miða beint geta einnig keypt hann hér: QR kóði (get sent á þig á næstu dögum, ekki alveg

Arnór Sölvi Hilmisson og Baltasar Þór Laufarsson hafa skrifað undir sinn fyrsta samning við Fjölni.

Bræðurnir Jóhannes Alem Óskarsson og Matthías Elnar Óskarsson hafa skrifað sinn fyrsta samning við Fjölni.

Æfingar byrja aftur hjá meistaraflokkum Nú nýlega hófu meistaraflokkar knattspyrnunnar aftur æfingar eftir stutt hlé frá síðasta keppnistímabili. Báðir flokkar leika í 2. deild á næsta ári þar sem stefnan er sett upp hjá báðum kynjum. Því er mikilvægt að leggja inn vinnuna fyrir árangri næsta sumars.

Fjölniskaffi í boði 112unnar Alla laugardaga kl. 9–12 í Miðjunni, Egilshöll. Fjölniskaffi er opið fyrir alla sem tengjast Fjölni í öllum íþróttum, hvort sem það eru foreldrar, leikmenn, þjálfarar, stuðningsmenn eða fólk úr hverfinu. Komdu við, fáðu þér frítt kaffi og bakkelsi, spjallaðu við fólkið í kringum þig og njóttu stemmningarinnar. Hvort sem þú ert á leið með krakkana á æfingu eða bara á leið út í daginn, þá viljum við sjá þig.

Kaffið fer fram í Miðjunni, rýminu sem staðsett er við skrifstofu Fjölnis í Egilshöll. Áfram Fjölnir!

112an gefur mörk til yngri flokka Nú nýlega gaf stuðningsmannaklúbbur knattspyrnudeildarinnar, 112an, ný mörk til yngra flokka fyrir æfingar í Egilshöll. Hafa þau nú þegar verið tekin í notkun og slegið í gegn. Stuðningsmannaklúbburinn hefur einnig komið að því að styrkja fótboltaskólann, sem stofnaður var í haust fyrir yngstu Fjölnismeðlima auk þess að halda úti Fjölnisboltanum alla miðvikudaga, fyrir þá sem hafa áhuga á að vera áfram í fótbolta eftir yngri flokka. Þá heldur klúbburinn einnig út Fjölniskaffinu, sem er í boði fyrir allt Fjölnisfólk, á laugardögum milli 9-12 á skrifstofu félagsins í Egilshöll.

Stelpurnar í kvennaliði meistaraflokks í Fjölni hafa hafið undirbúning fyrir næsta sumar í fótboltanum.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/18/2025 11:12 AM Page 17

SA

N A M BÓKAÐU NÚÚNA Á KEILUHOLLLIN.IS


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2025 3:21 PM Page 18

18

GV

Fréttir

Árgangamót Þann 18. Október fór fram Árgangamót Fjölnis þegar yfir 230 gamlir iðkendur mættu til leiks. Keppt var í þremur flokkum, öldungardeild karla, ungliðadeild karla og kvennadeild, en 17 karlalið og 10 kvennalið voru skráð til leiks. 1996 árgangurinn sigraði öldungardeildina eftir sigur gegn 1993 í vítaspyrnukeppni, 2003 árgangurinn vann 2001 árganginn í ungliðadeildinni og kvennamegin var það 88-89 árangurinn sem bar sigur úr býtum gegn 2000-01 árganginum. Deginum var svo fagnað með lokahófi í Dalhúsum þar sem Kristmundur Axel, Daníel Alvin og Aníta héldu uppi stuðinu.

Kristmundur Axel tryllti lýðinn á lokahófinu.

Þessir unnu í flokki unglinga.

Þessar sigruðu í kvennaflokki.

Hér eru sigurvegararnir í öldungadeildinni.

Dósasöfnun fyrir styrktarsal knattspyrnudeildar Það var alvöru stemming á dögunum þegar hátt í 100 sjálfboðaliðar tóku þátt í dósasöfnun til að safna fyrir nýjum styrktarsal knattspyrnudeildarinnar í október. Hérna má sjá nokkrar mynd frá stemmingunni en iðkendur deildarinnar gengu í hús um allan Grafarvog. Wurth mótið fór fram í Egilshöll 8. Nóvember Laugardaginn 8. nóvember fór Wurth mótið fram í Egilshöll sem er alþjóðlegt mót fyrir áhugamenn. Fjölnisherramenn létu sig ekki vanta á það. Frekari upplýsingar https://footballandfun.is/

Það er alltaf líf og fjör í dósasöfnuninni.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2025 10:00 PM Page 19

6 6 6A6 A>=<;:9<8<76584735:2:6196>0/7.<8:6-26;,=+;*5<(6 '7.88<+216-26:;>&%$1+(65.8#(6>.<":=7.<8:6!6 -26,'0=<7.2:+65 8+1" :56>:+:6 6.<+1965$=.+2 !6 57<6 :=#.<++6 :731=55-+(6 <8:+69."6 57:6 :=#.<+<

:++8:77:"1=6 +3<57.5#1= !6 :2+><731=6 <2;%53,##<=

72& =#68-+;.8# !6 <==*6 =+:=3,##<=


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2025 5:08 PM Page 20

20

GV

Fréttir

Spönginni IP65 LED jólasería Takið eftir hvað vírinn er þykkur og frágangur vandaður.

Þessar verður Jólalegar jólaseríur fyrir íslenskt veðurfar þú að lesa! SÁ BESTI Þessa bók verða allir knattspyrnuunnendur að eiga ‐ og lesa!

HVENÆR HAFA BÆNDUR MÖK? Bráðskemmtilegar sögur úr skólastarfinu. Já, og hvenær skyldu nú bændur hafa mök? Svarið er að sjálf‐ sögðu í bókinni ‐ eins og svo mörg önnur!!!

DAUÐAFÆRI Á HVERRI SÍÐU! Ómissandi bækur á öllum ,,knattspyrnu‐ heimilum”. Þú tæklar þig í geg‐ num þær og skorar auðvitað þrennu!

Bókaútgáfan Hólar holabok.is / holar@holabok.is

Í dag geta allir fengið sér vandaðar og sterkar jólaseríur sem þola íslenskt veðurfar. Undanfarin ár hefur úrvalið af jólaseríum, sem áður voru eingöngu seldar til sveitarfélaga og fagaðila aukist mikið. Hér er átt við alvöru útiseríur sem eru með IP65 vottun. Vírar og allur frágangur allur eins og best verður á kosið. Perurnar eru höggþolnar þannig að þær þoli íslenskt vetrar veður. Áður fyrr voru svona vandaðar jólaseríur mjög dýrar, en í dag er hægt að fá þær á hagstæðu verði. Múrbúðin hefur lengi verið leiðandi í að bjóða hagstætt verð á jólaseríum. Undanfarin átta ár hafa þeir alltaf verið með lægsta verðið á „alvöru útiseríum“ eins og þeir segja.

Útiseríur IP44 og útiseríur IP65 – hver er munurinn Áður fyrr voru flestar útiseríur með IP44 vatnsvörn. Það þýðir að serían er varin fyrir hlutum sem eru stærri en 1mm og fyrir vatnsúða. Vírinn í þessum seríum er almennt þunnur og þolir ekki mikil átök. Í dag kaupa sífellt fleiri jólaseríur með IP65 vatnsvörn. IP65 þýðir að serían er alveg varin fyrir ryki og þolir vatnsúða undir þrýstingi. Yfirleitt eru IP65 seríur búnar til úr þykkum vír sem þolir mikil átök. IP65 seríur eru tilvaldar til að hafa uppi allt árið um kring – ef vel er gengið frá festingum. Þó IP65 jólaseríur séu með mun betri vatnsvörn in IP44 seríur, þá þola þær ekki að liggja á kafi í vatni í langan tíma. Þannig þola þær vel að vera í trjám, þakskeggi og á veggjum þar sem vatn

Hér má sjá muninn á jólalegu jólaseríunni og marglitri jólaseríu. renVelnur af þeim. Ekki er mælt með að nota du vandaðar jólaseríur frá Múrbúðinni þær t.d. niður við jörð þar sem vatn þessi jól og njóttu þeirra mörg næstu ár. getur safnast fyrir. Sama á við um samtengin. Ef þú Frá upphafi hefur Múrbúðin boðið kemst ekki hjá því að láta samtengin mun lægri verð en Íslendingar eru vanir. liggja á jörðinni, þá er sniðugt að nota Jólaseríurnar eru engin undantekning. svokallaða „krumpuhólka“ til að Kíktu á verðið, og láttu það koma þér vantsverja samtengin 100% eða notað þægilega á óvart. hlífðarbox fyrir samtengi.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/18/2025 11:13 AM Page 21


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/14/2025 8:55 PM Page 22

22

GV

Fréttir

Íbúð á annarri hæð og stæði í lokuðu bílahúsi - til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs Spönginni 11 Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir eignina Flétturimi 1, 112 Reykjavík, sem er 95.6 fm þriggja herbergja íbúð á annari hæð auk stæðis í lokuðu bílahúsi nánar tiltekið eign merkt 02-08, fastanúmer 2040132 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús, þvottahús/búr innaf eldhúsi, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sér geymsla og hjólageymsla.

Nánari lýsing: Forstofa með fataskáp og parket á gólfi. Eldhús með ljósri innréttingu, flísar á gólfi. Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, parket á gólfi. Hjónaherbergi er með fataskáp og parketi á gólfi.

Barnaherbergi er með parketi á gólfi. Þvottahús er innan íbúðar. Í sameign er sér geymsla og hjólageymsla. Stæði er í lokuðu bílahúsi og búið er að leggja bílarafmagn í bílahúsið. Stutt er í leikskóla, skóla, sundlaug og íþróttamiðstöð. Verslanir og þjónusta eru í Spönginni og golfvellir eru steinsnar frá í Grafarholti og á Korpúlfstöðum.

Eldhús með ljósri innréttingu, flísar á gólfi.

Borðstofa og stofa eru bjartar og rúmgóðar,

Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, parket á gólfi.

Stofan er björt og rúmgóð.

Sigrún Stella EinarsÁrni Þorsteinsson Ólafur Kristjánsdóttir Löggiltur fastrekstrar-hagfræðingur. son löggiltur H^\g c HiZaaV eigna-, fyrirtækja- og M.Sc. löggiltur fasteigna- fasteigna- og skipaskipasali s. 8240610:^cVghY ii^g og skipasali og löggiltur sali s. 786-1414 A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^ leigumiðlari s. 898 3459

He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` Spöngin 11 - 112 Reykjavík H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+ Sími 575 8585. Opið 10-17 mán.-föst Ingunn Þorsteinsdóttir. Nemi í löggildingu fasteignasala s. 612-0906

Anna Friðrikka Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, anna@fmg.is s: 892-8778

Óskum eftir öllum gerðum eigna á skrá, mikil eftirspurn

Seld GLÓSALIR 3-4ra HERB. - STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU 121,1 fm mjög falleg íbúð með miklu útsýni á 4. hæð í lyftuhúsi. Tvö svefnherbergi og möguleiki á því þriðja með einföldum hætti. Fallegar innréttingar og gólfefni. Suður svalir.

H b^ *,* -*-*

GYÐUFELL - 2ja HERBERGJA Góð 64,2 fm tveggja herbergja í búð á 4.hæð. Parket, flísar og dúkur á gólfum, yfirbyggðar suður svalir. Nýtt þak er á húsinu. Sérmerkt bílastæði.

DESJAMÝRI MOSFELLSBÆ 42 fm lager/geymsluhúsnæði. Húsnæðið er allt hið snyrtilegasta og er með stórum innkeyrslu og inngöngudyrum. Afgirt sameiginleg lóð með rennihliði.

RÓSARIMI - 3.HERBERGJA OG BÍLSKÚR Falleg alls 94,4 fm eign í Rósarima. Íbúðin er 72,2 fm, geymsla 5,4 fm og bílskúr 16,8 fm. Parket og flísar á gólfum og fallegar innréttingar. Svalir í suðaustur. Bílskúr er með gönguhurð.

]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]`

LJÓSHEIMAR - 4. HERB. - ÚTSÝNI 105,8 fm, 4.herbergja endaíbúð á 6.hæð. Falleg nýleg hvít innrétting í eldhúsi og nýleg gólfefni. Nýlega endurnýjað baðherbergi. Þrjú svefnherbergi. Staðsetning í hjarta Reykjavíkur.

lll#[b\#^h


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/17/2025 4:13 PM Page 23

23

GV

Fréttir

Hressandi og hátíðleg útivist í Jólaskóginum Ferð í Jólaskóginn á Hólmsheiði er orðin að fastri aðventuhefð hjá mörgum fjölskyldum og vinahópum. Enda tilvalin leið til að njóta samveru, vera úti í náttúrunni og vinna saman að hressandi og hátíðlegu verkefni. Í Jólaskóginum, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir, er hægt að fella sitt eigið jólatré. Umhverfið er fallegt og nýtur fólk útiverunnar meðan leitað er að rétta trénu. Hægt er að setjast við varðeld á staðnum, gæða sér á kakói og smákökum eða jafnvel grilla sykurpúða yfir eldinum sem eru til sölu í jólakofa Skógræktarfélagsins. Jólasveinar verða á ferli milli klukkan 13 og 14. Margar fjölskyldur koma í Jólaskóg-

inn ár eftir ár, enda hátíðlegt og skemmtileg samvinna að finna og fella sitt eigið tré. í Jólaskóginum er mest af stafafuru, sem er óðum að festa sig í sessi sem „íslenska jólatréð“. Ágóðinn af jólatrjáasölunni rennur svo beint til starfsemi þessara frjálsu félagasamtaka. Meðal annars skógræktar, landgræðslu og uppbyggingar útivistarsvæða í Heiðmörk og víðar. Jólatrén sem þarna eru seld, eru auk þess sjálfbær afurð úr útivistarskógum. Enda grisjun hluti af nauðsynlegri umhirðu vaxandi skóga. Skógræktarfélag Reykjavíkur heldur líka Jólamarkað í Heiðmörk með margskonar skemmtun og huggulegheitum.

Og svo er bara að koma jólatrénu heim og á sinn stað.

Allir góðir og glaðir á jólamarkaðnum í Heiðmörk.Og svo er bara ð koma jólatrénu hem

Jólalegar jólaseríur fyrir íslenskt veðurfar Í dag geta allir fengið sér vandaðar og sterkar jólaseríur sem þola íslenskt veðurfar. Undanfarin ár hefur úrvalið af jólaseríum, sem áður voru eingöngu seldar til sveitarfélaga og fagaðila aukist mikið. Hér er átt við alvöru útiseríur sem eru með IP65 vottun. Vírar og allur frágangur allur eins og best verður á kosið. Perurnar eru höggþolnar þannig að þær þoli íslenskt vetrar veður. Áður fyrr voru svona vandaðar jólaseríur mjög dýrar, en í dag er hægt að fá þær á hagstæðu verði.

Múrbúðin hefur lengi verið leiðandi í að bjóða hagstætt verð á jólaseríum. Undanfarin átta ár hafa þeir alltaf verið með lægsta verðið á „alvöru útiseríum“ eins og þeir segja. Útiseríur IP44 og útiseríur IP65 – hver er munurinn Áður fyrr voru flestar útiseríur með IP44 vatnsvörn. Það þýðir að serían er varin fyrir hlutum sem eru stærri en 1mm og fyrir vatnsúða. Vírinn í þessum seríum er almennt þunnur og þolir ekki mikil átök.

Hér má sjá muninn á jólalegu jólaseríunni og marglitri jólaseríu.

IP65 LED jólasería Takið eftir hvað vírinn er þykkur og frágangur vandaður. Í ekdag kaupa sífellt fleiri jólaseríur með ki að liggja á kafi í vatni í langan tíma. IP65 vatnsvörn. IP65 þýðir að serían er Þannig þola þær vel að vera í trjám, alveg varin fyrir ryki og þolir vatnsúða þakskeggi og á veggjum þar sem vatn undir þrýstingi. Yfirleitt eru IP65 seríur rennur af þeim. Ekki er mælt með að búnar til úr þykkum vír sem þolir mikil nota þær t.d. niður við jörð þar sem vatn átök. IP65 seríur eru tilvaldar til að hafa getur safnast fyrir. Sama á við um samtengin. Ef þú uppi allt árið um kring – ef vel er gengið kemst ekki hjá því að láta samtengin frá festingum. liggja á jörðinni, þá er sniðugt að nota Þó IP65 jólaseríur séu með mun betri svokallaða „krumpuhólka“ til að vatnsvörn in IP44 seríur, þá þola þær vantsverja samtengin 100% eða notað

hlífðarbox fyrir samtengi. Veldu vandaðar jólaseríur frá Múrbúðinni þessi jól og njóttu þeirra mörg næstu ár. Frá upphafi hefur Múrbúðin boðið mun lægri verð en Íslendingar eru vanir. Jólaseríurnar eru engin undantekning. Kíktu á verðið, og láttu það koma þér þægilega á óvart.


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/18/2025 11:14 AM Page 24

Jólapakki veiðimannsins á 40% afslætti

Innihald jólapakkans: Echo Lift einhenda 9 fet ‑ Echo Bravo LT fluguhjól ‑ Echo Bravo LT aukaspóla Echo flotlína ‑ 12 þekktar laxaflugur ‑ 12 þekktar silungaflugur Bókin Ofurlaxar ‑ og aðrir minni eftir Kristján Gíslason

Fullt verð á pakkanum er 101.620 krónur Jólapakkaverð 58.872 krónur með 40% afslætti Pantanir afgreiddar í síma 698‑2844 og 699‑1322


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook