GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/6/2026 9:44 PM Page 1
Grafarholtsblaðið 9. tbl. 15. árg. 2026 september - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir
Starfað fyrir Fram í 25 ár - sjá bls. 4
Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki
Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844
,,Mahoný’’
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/8/2026 6:13 PM Page 2
2
Grafarholtsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is
Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.
Ófremdarástand Á meðan nýmyndaður meirihluti í Reykjavík leggst yfir rekstur borgarinnar og dregur saman í rekstrinum í hagræð-ingarskyni gefur ríkisstjórnin í sem aldrei fyrr og hækkar kílómetragjald um 16%, annað árið í röð og boðar 5,2% hækkun á opinberum gjöldum um næstu áramót. Á meðan ríkisstjórnin boðar þessar hækkanir upp á 5,2% er yfirlýst verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands 2,5%. Hvernig á að vera hægt að lækka verðbólgu í landinu þegar ríkisstjórnin gengur fram með þessum hætti? Á þessum tímum, þegar yfirlýst kosningaloforð eru einskis virði og vextir og verðbólga æða áfram er ekki skrítið að spurt sé; Hvar er sleggjan og planið? Hvar eru efndir kosningaloforða? Og síðan dundu á okkur niðurstöður PISA könnunar á dögunum. Útkoma Íslands þar var hræðileg svo ekki sé sterkar að orði kveðið. Í ljós kom að aðeins rétt rúmur helmingur barna býr yfir lágmarks hæfni þegar lesskilningur er annars vegar við fimmtán ára aldur. Um helmingur 15 ára barna skilur sem sagt ekki það sem hann les. Nákvæmt hlutfall er 56%. Fyrir áratug var þetta sama hlutfall 78%. Ef litið er til hinna svokölluðu OECD-ríkja og hinna Norðurlandanna er Ísland langt undir meðaltali og skrapar í raun botninn. Hvernig getur staðið á því að þessi staða er komin upp? Það er greinilega eitthvað mikið að hjá okkur og við erum greinilega á kolrangri braut sem við verðum að komast af sem fyrst. Hver ber ábyrgðina? Eru einhverjar líkur á að einhver axli ábyrgð á þessari hrikalegu stöðu? Ljóst er að stjórnendur menntamála á Íslandi undanfarin ár bera hér helstu ábyrgðina. Nú verður fólk sem stjórnar þessum málum að girða sig í brók og laga þessi málog ekki seinna Stefán Kristjánsson en strax
gv@skrautas.is
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Sársaukafullar en nauðsynlegar breytingar - eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Það er ekkert gleðiefni þegar fólk missir vinnuna. Á bak við hvert starf er einstaklingur og fjölskylda og því ber að ræða þær breytingar sem nú eiga sér stað hjá Reykjavíkurborg af virðingu og yfirvegun.
ári. Breytingarnar ná til 86 starfsmanna. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 fá ekki áframhaldandi starf. Þetta eru stórar og sársaukafullar ákvarðanir. Það þýðir ekkert að fegra það. En þessar 900 milljónir nema aðeins um 15% af þeirri hagræðingu sem nauðsynlegt er að ná. Það sýnir umfang verkefnisins.
En ábyrgð kjörinna fulltrúa felst líka í því að taka erfiðar ákvarðanir þegar þær eru nauðsynlegar. Staðreyndin er sú að óbreyttur rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar er ekki sjálfbær til lengri tíma. Tölurnar sýna það ágætlega. Rekstrarniðurstaða A-hlutans var neikvæð um 5,3 milljarða króna árið 2025. Veltufé frá rekstri nam 6,9% af tekjum, undir 7,5% markmiði fjármálastefnu borgarinnar. Það verður þó að halda því til haga að óvenjuhá gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga hafði veruleg áhrif á niðurstöðu ársins. Þróunin á þessu ári undirstrikar hins vegar vandann enn frekar. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2026 var rekstrarniðurstaða A-hlutans neikvæð um tæpa 4,6 milljarða króna og tæplega 1,6 milljörðum verri en áætlað hafði verið. Nettó fjármagnsgjöld voru ein og sér rúmum 1,5 milljörðum króna yfir áætlun. Þetta eru ekki tölur sem ábyrgir stjórnendur geta horft fram hjá.
Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Við getum ekki frestað nauðsynlegum ákvörðunum Fjármálaskrifstofa borgarinnar hefur metið að ná þurfi 5–6 milljarða króna hagræðingu á ári til að markmið fjármálastefnu Reykjavíkurborgar náist. Það setur þær erfiðu ákvarðanir sem nú hafa verið teknar í mikilvægt samhengi. Nýlegar breytingar á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði eiga að skila um 900 milljóna króna hagræðingu á
VISSIR ÞÚ?
Við sjálfstæðismenn höfum um árabil kallað eftir því að yfirbygging borgarinnar verði minnkuð, stjórnsýslan einfölduð og fjármunum forgangsraðað í þágu grunnþjónustunnar. Nú er verið að taka nauðsynleg skref í þá átt. Hagræðing er ekki markmið í sjálfu sér. Hún snýst ekki um að skera niður fyrir sakir niðurskurðar. Hún snýst um að skapa sjálfbæran rekstur, tryggja að hver króna skattgreiðenda nýtist betur og verja þá þjónustu sem skiptir borgarbúa mestu máli, grunnþjónustuna. Það væri auðveldara að fresta erfiðum ákvörðunum, halda áfram á sömu braut og ýta vandanum á undan sér. En það væri ekki ábyrg stjórnun. Ábyrgðin felst stundum í því að taka sársaukafullar ákvarðanir í dag til þess að tryggja sterkari fjárhag og betri grunnþjónustu á morgun. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/8/2026 6:24 PM Page 3
Ö l garðverk Öl kfæri kf
Sláttu uorf, Sláttuvélar og slá átturóbotar
Frábært úrval
! f a t l l a i erð
ærum af garðverkfæ
v u ð ó g á i Gæð
Lavor háþrý ýstidælur
Colorex r málning og v viðarvörn Úrrva val af flísum
Vín ínyl- og ha arðparket
G Gott verð fyrir alla a, alltaf!
Sérfræðinga ar í múrefnum
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/7/2026 9:43 PM Page 4
4
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Þór Björnsson hefur starfað fyrir Fram í 25 ár Á dögunum fagnaði Þór Björnsson, íþróttastjóri Fram, merkum tímamótum en þá voru liðin 25 ár frá því að hann hóf störf hjá félaginu. Á þessum aldarfjórðungi hefur Þór orðið órjúfanlegur hluti af starfi Fram. Hann gengur í öll þau fjölbreyttu verkefni sem falla til hjá félaginu og fáir þekkja starfsemi þess, sögu og fólk betur en hann. Það má því með sanni segja að Þór sé hafsjór af fróðleik þegar kemur að Fram. Á árum áður var hann leikmaður félagsins og stóð þá á milli stanganna sem markvörður í handbolta. Síðar tók hann að sér þjálfun meistaraflokka og yngri flokka félagsins.
Og snemma beygðist krókurinn. Þór fyrir miðri mynd með Framfánann.
Knattspyrnufélagið Fram óskar Þór innilega til hamingju með 25 ára starfsafmælið og þakkar honum fyrir allt sem hann hefur lagt af mörkum fyrir félagið á þessum aldarfjórðungi. Takk fyrir fyrstu 25 árin og næstu 25, Tóti! (Frétt frá Fram)
Þór var mjög góður markvörður í handboltanum með Fram til margra ára.
Þór með framtíðina í fanginu á Framleik.
Myndir: Jóhanni G. Kristinsson
Íslensk Hönnun Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar á www.Krafla.is (698-2844)
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/8/2026 6:24 PM Page 5
SA
N A M BÓKAÐU NÚÚNA Á KEILUHOLLLIN.IS
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/7/2026 10:19 PM Page 6
6
Fréttir
- eftir jafntefli í Víkinni gegn Víkingi
Framarar í öðru sæti
Grafarholtsblaðið
;9B56= 7@9 B56= 7@ 5D ( A 5D
Árangur Fram í Bestu deildinni í knattspyrnu í sumar hefur verið eftirtektarverður svo ekki sé meira sagt. Fram hefur náð frábærum árangri undir stjórn Rúnars Kristinssonar. Sem stendur, þegar hinu hefðbundna Íslandsmóti er lokið, er Fram í 2. sæti deildarinnar með 45 stig. KR er í þriðja sætinu með stigi minna en Víkingar eru efstir með átta stiga forskot á Fram. Líklegt verður að teljast að Víkingar verji Íslandsmeistaratitil sinn og landi honum á tiltölulega auðveldan hátt. Við vonumst auðvitað til þess að Fram haldi öðru sætinu þegar upp verður staðið. Lengst af í sumar hefur Fram verið í 3. sætinu á eftir KR en í síðustu umferð gerðu Framarar jafntefli við Víking í Víkinni á sama tíma og KR tapaði illa leik sínum gegn Akurnesingum á
Skipaskaga. Framundan eru síðustu fimm leikir tímabilsins hjá Fram við andstæðinga Fram í efri hluta Bestu deildarinnar. Þar verður hart barist en ef 2. sæti deildarinnar í lokin verður hlutskipti Fram verður það mikill sigur fyrir félagið. Fyrir tímabilið hlýtur það að hafa verið markmið Fram að ná 3. sæti deildarinnar og þar með þátttökurétti í Evrópukeppni. Á þeim vettvangi leynast mörg tækifæri bæði knattspyrnulega og fjárhagslega. Knattspyrnuunnendur hér heima hafa orðið vitni að því á undnaförnum árum að þátttaka í Evrópukeppni hefur skilað miklum fjármunum til þeirra félaga sem þangað hafa náð. Víkingur og Breiðablik eru dæmi um slíka
Rúnar Kristinsson. Án efa einn besti þjálfarinn í Bestu deildinni í dag og þótt víðar væri leitað. framvindu mála. Hundruð milljóna í húfi. Ef Fram næði slíkum frama yrðu það mikil tímamót í sögu félagsins og ýmsar dyr myndu opnast sem hafa verið lengi lokaðar. Framundan eru skemmtilegir og afar forvitnilegir tímar hjá Fram. Með alla okkar góðu leikmenn, frábært þjálfarateymi. sterka stjórn félagsins og bestu stuðningsmennina eru Fram flestir vegir færir. Áfram Fram!
Grafarholtsblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími 698-2844
Bókaðu tíma í sjónmælingu Þú getur bókað tíma í sjónmælingu með stuttum fyrirvara í verslunum Eyesland í Kringlunni, Glæsibæ, Spönginni, Granda og á Keflavíkurflugvelli. Sjónmæling gengur upp í gleraugnakaup séu þau gerð í framhaldinu.
Spönginni Kringlan Grandi Glæsibær Keflavíkurflugvöllur
eyesland.is
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/1/2026 11:29 PM Page 7
7
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur
Í Metabolica mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.
Besta fjárfestingin er í góðri heilsu
Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)
- ný önn að hefjast hjá Metabolic Reykjavík! Ný önn er að hefja göngu sína hjá Metabolic og spennandi tímar eru fram undan. Við höfum nýtt tímann vel í sumar í stækkun, lagfæringar og búnaðarkaup sem við búumst við að muni falla vel í kramið hjá ykkur. Þegar kemur að því að rækta líkamann og bæta lífsgæðin er ein meginregla sem stendur upp úr: Góð heilsa er alltaf besta fjárfestingin sem þú gerir fyrir sjálfa þig. Orkan sem þú notar á æfingunni skilar líklega bestu ávöxtun sem völ er á. Því þó það hljómi kannski ótrúlega, þá færðu mun meiri orku til langs tíma þegar þú ræktar líkamann reglulega. Við leggjum okkar lóð á vogarskálarnar í buddunni Okkur finnst að hreyfing eigi að vera aðgengileg, skemmtileg og raunhæfur hluti
í gildi hjá okkar áskrifendum. Ótímabundin áskrift lækkar mest Til að gera þér enn auðveldara fyrir að taka skrefið og halda stöðugleika í æfingunum, lækkum við verðið á ótímabundnum áskriftum: - Nýtt mánaðarverð: 16.990 kr. (var 20.990 kr.) Þetta þýðir að þú færð sömu gæðaþjálfunina, öfluga félagsskapinn og alla okkar sérsniðnu æfingatíma á miklu hagstæðara verði — og enn lægra verð býðst ef þú staðgreiðir árskort. af hversdagslífinu. Þess vegna viljum við koma til móts við okkar fólk og lækka öll okkar verð! Það á bæði við um nýjar áskriftir og líka samninga sem eru nú þegar
Hvers vegna Metabolic? Hjá Metabolic snýst þjálfunin ekki um óraunhæfar kröfur eða að pína líkamann, heldur um að byggja upp varanlegan styrk,
!
Grafarholtsblaðið bæta úthaldið og rækta góða heilsu á þínum forsendum. Hvort sem þú ert að snúa aftur eftir stutta pásu, vilt dýpka núverandi rútínu eða ert að stíga þín fyrstu skref í ræktinni, þá tekur hópurinn okkar vel á móti þér.
Ritstjórn/Auglýsingar - Sími 698-2844
Við meira að segja gefum þér fyrstu tvær vikurnar frítt! Skráðu þig í frípassa án allra skuldbindinga áður en þú bindur þig í áskrift. Eða komdu við hjá okkur, þó ekki væri nema til að kíkja í kaffi og færa okkur eina nýja afsökun í stóru afsökunarbókina okkar — þar sem við geymum allar fyndnustu og fáránlegustu afsakanirnar fyrir því af hverju fólk mætir ekki á æfingu! Ný önn er fullkomið tækifæri til að byrja upp á nýtt, setja sjálfa þig í forgang og fjárfesta í eigin vellíðan.
Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.
Prófaðu nýja önn með okkur – skráning í frípassa er hafin!
Spönginni
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/7/2026 11:24 AM Page 8
Tólf spor – Andlegt ferðalag
Tólf spor – Andlegt ferðalag. Tólf sporin – Andlegt ferðalag í Mosfellsbæ í vetur. Fyrsti opni spora fundur vetrarins verður 7. október kl. 19.30. Í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, Þrjú næstu miðvikudagskvöld verða opnirfundir til frekari viðkynningar. Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig.
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .
V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N
2025
Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffaasteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.
Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!
Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800
eignaumsjon.is umsjon is
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/8/2026 6:26 PM Page 9
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/9/2026 5:57 PM Page 10
10
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Lúxus lax með engifer-, lime- og hunangshjúp
karamelluseraðan hjúp má setja grillstillingu á í 1–2 mínútur í lokin. Fylgist vel með því hunangið getur brúnast hratt. 8. Látið laxinn hvíla í nokkrar mínútur áður en hann er borinn fram. 9. Toppið með miklu fersku kóríanderi, chili og ferskum lime-safa rétt áður en hann fer á borðið. Meðlæti sem passar sérstaklega vel Ég myndi bera þennan lax fram með: • Jasmín- eða basmatihrísgrjónum. • Léttu gúrku- og avókadósalati. • Edamame-baunum. • Lime- og kóríandersalati. • Eða einföldu grænu salati með sesam/lime-dressingu.
- frábær uppskrift sem vert er að prófa Þetta er einstaklega safaríkur og bragðmikill lax þar sem sæta, salta, súra og örlítið sterka bragðið blandast saman. Engifer, lime og chili gefa ferskleika en hunangið karamelliserast fallega í ofninum. Sesamfræin og kasjúhneturnar gefa svo hjúpnum dásamlegt crunch. Hráefni - Laxinn • 1 veglegt laxaflak frá sælkera og Fiskbúðinni Aldan. • Salt og nýmalaður svartur
pipar.Instragram.is • Örlítið af ólífuolíu. Engifer- og limehjúpurinn • 2–3 msk. ferskt engifer, fínt rifið. • 2 msk. tamari eða góð sojasósa. • 2 msk. ferskur lime-safi. • 1–2 msk. akasíuhunang. • 1 ferskur chili, smátt saxaður. • 1–2 msk. sesamfræ. • 2–3 kaffir-lauf, mjög fínt söxuð (má sleppa). • ½–1 dl. kasjúhnetur, gróft saxaðar
Lúxuslaxinn hennar Jönu er sannkallað lostæti. Ofan á • Góður slatti af fersku kóríander. • Lime í bátum. • Mögulega smá ferskur chili. Aðferð 1. Hitið ofninn í 200 gráður. 2. Setjið laxinn á bökunarpappír og kryddið létt með salti og pipar. Ekki nota of mikið salt þar sem tamari/sojasósan er sölt. 3. Blandið saman í skál rifnu
Spönginni Grafarvogi
engifer, tamari, lime-safa, hunangi og chili. Smakkið til. Hjúpurinn á að vera bragðmikill – saltur, sætur, ferskur og örlítið sterkur. 4. Bætið sesamfræjum og kaffirlaufum saman við. Ef blandan er mjög þykk má bæta við örlitlum lime-safa. 5. Smyrjið hjúpnum ríkulega yfir allan laxinn. Stráið síðan söxuðum kasjúhnetum yfir. 6. Setjið í ofn og bakið í um 15–20 mínútur, eftir stærð og þykkt flaksins. Laxinn á að vera safaríkur og rétt eldaður í miðjunni. 7. Fyrir fallegan, gylltan og örlítið
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana). Gott ráð Það er líka mjög gott að setja smá af hjúpnum til hliðar áður en hann fer á óeldaðan laxinn og bera hann fram sem sósu með matnum. Þá fær maður enn meira af þessu góða engifer-, lime- og hunangsbragði. Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) Jana.is - Instragram.com/Janast
,,,+*)('&%**$#"!$ "'"'! ' ( (! ! ' + *% ,,, # $ ('!+% "! +% "! !+*)('&%**$#( (!+*!+ %! !'($#%*( ,,, ! + ('!&+'% !( &+' %$ + "! + ! & !" !$ %#"! # $ ( ,,,
!+'!" !+*)('&%**"! #!" ('! !" ('
Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR
Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar
Þekking og áratuga reynsla
VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is '"+*%'$ " "',%$! ! '"(*
! ! ! '"+ +*%' $ " "',%$! ! !
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/6/2026 9:26 PM Page 11
11
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:
Sleikimottur eru snilldin ein LickiMat var upprunalega hannað í samstarfi við dýralækna til að bæta tannheilsu hunda. Sleikjuhreyfingin örvar munnvatn og losar um endorfín sem róa dýrið, og mottan hefur orðið eitt vinsælasta tólið gegn kvíða og til að hægja á áti. Marga mottur þola uppþvottavél og frysti, hentar bæði hundum og köttum. Lickimat – snilldin á sleikimottunni Hvað er svona sniðugt við Lickimat? Þetta er sleikimotta með munstri sem gerir matartímann að leik í stað þess að klárast á 10 sekúndum. Einfalt en ótrúlega áhrifaríkt fyrir bæði hunda og ketti. Afhverju að nota hana? Hún hægir á átinu, sem er frábært fyrir dýr sem gleypa matinn of hratt. Sleikihreyfingin losar líka endorfín og róar taugakerfið, fullkomið fyrir kvíðna hunda, flugeldahræðslu, bílferðir eða baðferðir eða bara til að
róa niður orkubolt-ana. Auk þess veitir hún andlega örvun og heldur leiðindum í skefjum. Hvað er sett á sleikimottuna? Allt blautt og maukkennt: blautfóður eða pate frá Dr. Clauder's og Canagan, nammi í mauki, kotasæla eða náttúruleg jógúrt án sætuefna. Tips & trikk: • Frystu mottuna í 1-2 klst. fyrir extra langvarandi skemmtun. • Festu hana á flísar/vegg með sogskálinni. • Notaðu sem róandi tól í baði eða klóasnyrtingu. • Byrjaðu á einföldu munstri, erfiðari útgáfur koma síðar. Fæst í næstu Dýrabær-verslun!
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur
Uppl. í síma 698-2844
GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/9/2026 6:00 PM Page 12
BknaTT BA T T A AR R tts p yrna