



![]()




4. tbl. 15. árg. 2026 apríl - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal

Sjó úr Fram í landsliðshópum
- sjá bls. 6

VISSIR ÞÚ?
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir
ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00



Spönginni
Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is
Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.
Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322.
Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánssongv@skrautas.is
Prentun: Landsprent ehf.
Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir.
Dreifing: Póstdreifing.
Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.
Það hanga ekki allir á netinu
Í blaðinu að þessu sinni eru kosningarnar fyrirferða-miklar og margir frambjóðendur hafa falast eftir birt-ingum á greinum í okkar blöðum. Við þessum beiðnum höfum við orðið í öllum tilfellum.
Frambjóðendur flokkanna eru misjafnlega duglegir að hafa samband við okkur. Mestur áhugi fyrir hverfablöðum okkar er meðal frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins og frambjóðendur Miðflokksins eru einnig áhugasamir og telja hverfablöðin góðan vettvang til að koma skoðunum sínum á framfæri við kjósendur.
Það vekur furðu að ekki heyrist frá sumum flokkunum og þeir láta sem blöðin séu ekki til. Það er auðvitað þeirra mál en ekki okkar.
Talandi um hverfablöðin. Í fyrra voru gefin út sjö hverfablöð í Reykjavík. Um mitt árið í fyrra var útgáfu fjögurra hverfablaða hætt. Eftir standa blöðin okkar þrjú, Grafarvogsblaðið, Árbæjarblaðið og Grafarholtsblaðið.
Til þessa hefur útgáfa blaðanna gengið vel. Fyrirtæki átta sig enn á því að það hanga ekki allir á netinu og fólk vill fá sitt hverfablað.
Skilningsleysi opinberra aðila er hins vegar algjört. Sem dæmi um það er að ríkið styrkir einkarekna fjölmiðla. Borgin hefur veitt okkar blöðum lítinn styrk í gegnum árin. Þegar ríkið greiðir út styrkinn til okkar dregur það styrkinn frá borginni frá. Þetta er auðvitað meira en glórulaust og þegar farið er fram á að þessu verði breytt er það viðurkennt að þetta mætti betur fara en ekkert gert í málinu.
Ríki og Reykjavíkurborg eru mjög léleg þegar kemur að því að auglýsa í blöðunum. Erfiðlega gengur að ná sambandi við aðila, sérstaklega hjá borginni. Í Kópavogi, Mosfellsbæ og Garðabæ eru hverfablöðin til dæmis löðrandi í auglýsingum frá viðkomandi yfirvöldum.
Stefán Kristjánsson
Það er ekki tilviljun hvernig bílastæðamálum er háttað í nýjum hverfum Reykjavíkur. Sú þróun á sér skýra stoð í Aðalskipulagi Reykjavíkur, þar sem gert er ráð fyrir að bílastæðakröfur taki mið af staðsetningu og þéttleika byggðar og geti verið lægri en áður tíðkaðist. Þetta er meðvituð stefna sem birtist í nýjum uppbyggingarsvæðum þar sem færri bílastæði eru skipulögð en lengi var venjan.
Á sama tíma liggur fyrir að bílaeign hér á landi er með því hæsta sem þekkist. Fjöldi bifreiða á hvern íbúa er mjög hár og raunveruleikinn sá að flest heimili eiga bíl og mörg fleiri en einn. Þessi staðreynd hefur ekki breyst þrátt fyrir stefnumörkun á skipulagsstigi og bendir til þess að eftirspurn eftir bílastæðum sé áfram raunveruleg og viðvarandi, óháð því hvaða væntingar eru settar fram.
Samhliða þessu er verið að byggja upp og fyrirhugað að byggja ný hverfi, til dæmis í Keldnalandi, á þéttingarreitum í efri byggðum og á Höfðanum, þar sem ekki er gert ráð fyrir sambærilegu aðgengi að bílastæðum. Í slíkum verkefnum virðist gert ráð fyrir breyttri hegðun íbúa án þess að forsendur fyrir þeirri breytingu séu til staðar. Það er einfaldlega gengið út frá því að fólk muni breyta lífsstíl sínum en án þess að raunhæfir valkostir séu til staðar.
Skortstefna í bílastæðamálum Reikningsdæmið er einfalt og gengur ekki upp. Ef færri bílastæði eru

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
skipulögð en eftirspurn stendur til, skapast skortur. Afleiðingarnar eru fyrirsjáanlegar. Bílar hverfa ekki, þeir leita annað. Álag færist yfir í nærliggjandi götur og hverfi þar sem innviðir voru ekki hannaðir fyrir slíkt álag. Vandinn leysist því ekki heldur flyst til. Þá skapast einnig aukið álag á umferð, meiri leit að stæðum, meiri tími sem fer í að finna bílastæði og þar með aukin mengun og óþarfa akstur.
Samhliða þessu blasir við önnur þróun sem erfitt er að horfa fram hjá. Borgaryfirvöld hafa á sama tíma
markvisst dregið úr fjölda bílastæða með því að umbreyta stæðum með blómakerum og svokölluðum kleinuhringjum. Þannig er ekki aðeins verið að takmarka framboð í nýjum hverfum heldur rýra þau gæði sem áður voru fyrir hendi. Þetta er ekki tilviljun heldur stefna sem hefur raunveruleg áhrif á daglegt líf fólks.
Slík nálgun býr til vítahring. Minna framboð leiðir ekki sjálfkrafa til minni eftirspurnar heldur til meiri þrýstings. Íbúar neyðast til að leggja lengra frá heimili sínu, nýta götur sem ekki voru hannaðar fyrir slíkt eða keppa um takmörkuð gæði sem áður voru sjálfsögð. Þetta dregur úr lífsgæðum og skapar ónauðsynlegan núning í daglegu lífi.
Hér í úthverfum blasir þetta sérstaklega við. Þetta eru ekki miðborgarsvæði þar sem allt er í göngufæri heldur hverfi þar sem daglegt líf krefst þess að fólk komist leiðar sinnar með einföldum hætti. Að skipuleggja slík svæði með færri bílastæðum en raunveruleg notkun gefur tilefni til er ekki framsýni heldur misræmi sem mun óhjákvæmilega koma fram í daglegu lífi íbúa í efri byggðum. Slíkt misræmi getur jafnframt haft áhrif á verðmæti eigna, aðdráttarafl hverfa og traust til skipulagsyfirvalda.
Skipulag þarf að byggja á raunveruleikanum, ekki forsendum sem ganga ekki upp. Björn Gíslason borgarfulltrúi


- eftir Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Samkvæmt mælingum Vegagerð—arinnar eykst umferð ár frá ári - það finnum við öll á eigin skinni. Árið 2019 var áætlað að tæplega níu milljónum klukkustunda yrði sóað í umferðartafir innan höfuðborgarinnar árlega. Umferðartafir á annatíma höfðu aukist um nærri 50% á örfáum árum. Þessar tafir samsvöruðu um 40 klukkustundum – eða heilli vinnuviku - á hvern höfuðborgarbúa árlega.
Undanfarið hefur ástandið einungis versnað enda engar teljandi samgöngubætur átt sér stað í Reykjavík síðustu tvo áratugi. Sjálfstæðisflokkurinn vill greiða fyrir umferð svo fólk komist hraðar á milli staða enda lífsgæðamál fyrir fólkið í Reykjavík.
Tryggja þarf frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur og láta af stjórnlyndi í garð borgaranna. Stokkum spilin!
Sjálfstæðisflokkurinn vill stokka spilin og forgangsraða verkefnum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins uppá nýtt. Tryggja þarf að brýnustu og arðbærustu verkefni sáttmálans njóti forgangs. Flýta þarf mislægum gatnamótum við Sprengisand, Miklubrautargöngum og innleiðingu snjallra ljósastýringa. Samhliða þarf að afturkalla þrengingar við Höfðabakka, bæta umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum og tryggja nauðsynlegt viðhald á samgönguinnviðum borgarinnar.
Við teljum meirihlutann í Reykjavík hafa siglt Borgarlínu í strand og viljum endurskoða verkefnið frá grunni. Innleitt verði nýtt hagkvæmt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að almennri umferð. Markmiðið verði að gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti fyrir fleiri. Ferðir verði tíðari, biðskýli betri, þjónustan öflugri og dregið úr áherslu á miðjusetningu sérakreina. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar yfirvofandi þrengingum á almennri umferð, svo sem á Suðurlandsbraut eða Gullinbrú.
Breytt bílastæðastefna Sjálfstæðisflokkurinn hyggst kollvarpa bílastæðastefnu borgarinnar svo hún mæti betur þörfum íbúa og
atvinnulífs. Við viljum fella brott reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og tryggja aukinn sveigjanleika. Við viljum jafnframt vinda ofan af breytingum á bílastæðagjöldum í miðborg sem leiddu til þess að gjaldsvæði voru stækkuð, gjaldskrár voru hækkaðar og gjaldskyldutími lengdur. Hefur gjaldskyldan orðið að íþyngjandi miðborgarskatti sem fælir landsmenn frá því að sækja verslun og þjónustu á þetta öfluga markaðssvæði. Sundabraut án tafar

Hildur Björnsdóttir.
Fjölbreyttar þarfir og frjálsir valkostir
Sjálfstæðisflokkurinn vill hefja uppbyggingu Sundabrautar strax enda þjóðhagslega arðbær samgönguframkvæmd og mikilvæg tenging fyrir fjölmörg hverfi í Reykjavík. Brautin mun efla Reykjavík sem höfuðborg allra landsmanna, styrkja samkeppnishæfni borgarinnar og stöðu almannavarna. Útfærslu þarf að vinna í sátt við íbúa og atvinnulíf en Sjálfstæðisflokk-urinn aðhyllist gangalausnir.
Sjálfstæðisflokkurinn vill skapa borg sem virkar fyrir fólk og fyrirtæki. Höfuðborg, þar sem fólk getur leitað hamingjunnar á eigin forsendum. Borg sem byggir á frjálsum valkostum – og býður lífsgæðin sem felast í greiðum samgöngum. Borg þar sem níu milljón klukkustundum er ekki sólundað í umferðartafir - heldur varið í verðmætasköpun og gæðastundir. Samgönguvandann þarf að leysa með hraði – það er lífsgæðamál fyrir okkur öll.
Hildur Björnsdóttir. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.



Málin rædd í Metabolica. Þar mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri. Vertu á undan sumrinu:
Þegar fyrstu vorboðarnir minna á sig og daginn fer að lengja, fyllast margir nýrri orku. Við förum að huga að útivist, sumarbústöðum og fjallgöngum. En oft gerist það að við bíðum þar til sólin er farin að skína hátt á lofti með að huga að eigin heilsu – og þá getur brekkan virtst dálítið brött.
Hjá okkur í Metabolic Reykjavík trúum við því að besta leiðin til að njóta sumarsins sé að leggja grunninn strax í dag. Ekki með boðum og bönnum eða öfgafullu „átaki“, heldur með því að byggja upp styrk og þol sem þjónar þér í raunverulegu lífi.
Meira en bara æfingastöð Margir tengja orðið „Metabolic“ við mikla ákefð og svita, og jú, við fáum púlsinn vissulega upp! En eftir 15 ár í bransanum veit ég að lykillinn að árangrinum sem lifir með þér, er jafnvægi. Í stöðinni okkar við
liðugur og verkjalaus. Markmiðið er

að þú gangir út af æfingu með meiri orku en þú komst með inn. Af hverju að byrja núna? Það er algeng mýta að við þurfum að vera „komin í form“ áður en við
● Vekja líkamann af dvala: Byggja upp grunnstyrk sem verndar liðamót og bakið þegar garðverkin eða gönguferðirnar byrja.
● Auka orkuna jafnt og þétt: Það tekur líkamann nokkrar vikur að aðlagast nýjum venjum. Með því að byrja strax ertu komin með blússandi orku þegar útilegutímabilið hefst.
● Finna samfélagið: Grafarvogurinn er frábært hverfi og í Metabolic myndast dýrmætur vinskapur. Það er miklu auðveldara að mæta þegar þú veist að það er beðið eftir þér með bros á vör.
Þjálfun fyrir raunverulegt fólk
Við vitum að lífið er áskorun. Milli vinnu, skutls og heimilisreksturs getur verið erfitt að forgangsraða sjálfum sér. Þess vegna leggjum við áherslu á skilvirkar æfingar þar sem hver mínúta telur. Hjá okkur er engin dómharka – bara hvatning,

Stórhöfða leggjum við áherslu á að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur. Við sameinum kraftinn úr styrktarþjálfun og mýktina sem líkaminn þarf á að halda til að vera
mætum í skipulagða þjálfun.
Raunveruleikinn er sá að við mætum einmitt til að byggja okkur upp með aðstoð þjálfara! Með því að byrja núna, áður en sumarfríin skella á, nærðu að:

Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.
fagmennska og hlýja.
Við hjálpum þér að fínstilla væntingarnar. Stundum er sigurinn fólginn í því að mæta og hreyfa sig aðeins, þótt nóttin hafi verið erfið eða vinnudagurinn langur. Það er þessi samfella sem skilar árangri til lengri tíma.
Vertu velkomin í hópinn Ég hvet þig til að nýta vorið í að fjárfesta í þér. Ekki vegna þess að þú „þurfir“ að breyta þér, heldur vegna þess að þú átt skilið að líða vel, finna styrkinn og hafa orku í allt það skemmtilega sem sumarið ber í skauti sér.
Kíktu við hjá okkur á Stórhöfðanum, prófaðu tvær vikur frítt! Og finndu muninn á líkama og sál. Við hlökkum til að taka á móti þér!
Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

Framarar eru stoltir af því að eiga sjö stelpur í æfingahópum yngri landsliða Íslands í handknattleik U16, U18 og U20 kvenna, æfingar fara fram 6.-12. apríl. Þær sem voru valdar frá Fram að þessu sinni eru: U-16 kvenna Anna Bára Hjaltadóttir, FRAM. Bjartey Hanna Gísladóttir, FRAM. Brynja Sif Gísladóttir, FRAM. Freyja Sveinbjörnsdóttir, FRAM.
Þjálfarar: Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson.
U-18 kvenna Katla Kristín Hrafnkelsdóttir, FRAM. Þjálfarar: Grétar Áki Andersen og Sólveig Lára Kjærnested.
U-20 kvenna
Dagmar Guðrún Pálsdóttir, FRAM. Sara Rún Gísladóttir, FRAM. Þjálfari: Halldór Stefán Haraldsson

sjö sem eru í landsliðshópum i handknattleik.
VISSIR ÞÚ?
KEILA ER LEIKIN AF 120.000.000 MANNS Í YFIR 90 LÖNDUM.
KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR.
ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

























































































































































Þú færð allt fyrir vorverkin hjá Múrbúðinni:
Vorið hefur loks bankað upp á og þá er gott að geta fundið allt fyrir vorverkin á einum stað.
Meira úrval af blómapottum sem nota má inni og úti
Blómapottarnir hjá Múrbúðinni hafa notið mikilla vinsælda og í ár hefur
úrvalið verið aukið mikið. Ný sending er komin af vinsælu portúgölsku
leirpottunum, sem hafa slegið í gegn hér á Íslandi og má búast við að þeir seljist fljótt upp.
Áburður og grasfræ – á lægra verði
Múrbúðin leitast við að bjóða alltaf lægsta verðið á áburði og grasfræi. Hvort sem þig vantar Blákorn, Graskorn eða grasfræ þá getur ferð í Múrbúðina marg borgað sig. Þú færð

Sláttuvélarnar eru mættar í Múrbúðina á ótrúlega hagstæðu verði.

líka mjög sniðuga áburðar- og frædreifara hjá Múrbúðinni.
Mosatætari og mosaeyðir – Lykillinn að fallegri grasflöt Múrbúðin byrjaði að selja mosatætara fyrir nokkrum árum.
Mosatætararnir hafa notið mikilla vinsælda enda er ekkert verkfæri betra til að hreinsa mosa úr grasflötum. Til að koma í veg fyrir að mosi nái sér á strik þá býður Múrbúðin uppá Growell Trippel M sem dregur verulega úr vexti mosa í grasflötum og styrkir grasvöxtin.
Pallahreinsir sem gerir kraftaverk og nú líka helluhreinsir
Þau sem hafa prófað pallahreinsinn frá Hagmans nota ekkert annað til að hreinsa pallinn hjá sér. Hagmans pallahreinsirinn er einfaldur í notkun og mjög áhrifaríkur. Margir vita að það er
best að hreinsa pallinn þegar það er rigning eða úði. Ástæðan er sú að það þarf að bleyta pallinn áður en pallahreinsir er borinn á hann. Það er því sniðugt að hreinsa pallinn þegar það rignir svo hann sé tilbúinn fyrir pallaolíu þegar það styttir upp. Þú færð auðvita úrvals sænska pallaolíu í Múrbúðinni.
Múrbúðin býður nú einnig uppá nýtt efni frá Growell, en það hreinsiefni fyrir stéttar og steypta fleti. Auðvelt er að bera efnið á. Einungis þarf að tengja garðslöngu við brúsann og skrúfa frá. Brúsinn er með innbyggðum úðara þannig að það er auðvelt og fljótlegt að bera helluhreinsinn á. Hvort sem þú ert að hreinsa pallinn, hellulögnina eða steypta innkeyrslu þá er gott að nota öfluga háþrýstidælu með pallabursta, sem auðvita fæst hjá Múrbúðinni.
Garðverkfæri á ótrúlega hagstæðu verði Á vorin þarf oft að endurnýja garðverkfæri og tæki. Múrbúðin hefur um árabil boðið garðverkfæri á ótrúlega hagstæðu verði. Það er sama hvort þú þarft nýja sláttuvél, sláttuorf, hekklippur, hjólbörur nú eða bara strákúst, þá er ólíklegt að þú finnir garðverkfæri á hagstæðara verði en hjá Múrbúðinni.
Komdu í Múrbúðina og undirbúðu vorverkin!
Það er óhætt að mæla með ferð í Múrbúðina, þar finnur þú allt sem þú þarft fyrir vorverkin og með réttu tækjunum verður garðvinna bæði skemmtileg og árangursrík og garðurinn þinn enn fallegri í sumar.

,,Miðflokkurinn vill að skipulag í Höllum verði unnið í víðtæku samráði við íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal og að byggingarmagn verði hóflegt. Áhersla verði lögð á gott umferðarskipulag og næg bílastæði fyrir íbúa,“ segir Ari Edwald efsti maður á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Ari segir að áform meirihluta borgarstjórnar um allt að fjögur þúsund íbúða byggð í Höllum í Úlfarsárdal séu út í hött. ,,Þar yrði um algera ofurþéttingu að ræða enda var aðeins gert ráð fyrir um 1.100 íbúðum á svæðinu í fyrra skipulagi. Til samanburðar má geta þess að í öllu Árbæjarhverfi eru um 4.500 íbúðir og um átta þúsund í Grafarvogi. Með svo þéttri byggð yrði umferð og bílastæðamálum í Grafarholti og Úlfarsárdal stefnt í fullkomið uppnám.“
Víðtæk reynsla
Ari á fjölbreyttan starfsferil að baki og hefur komið að stjórnun og rekstri margra fyrirtækja og stofnana. Að loknu námi gegndi hann starfi aðstoðarmanns dómsmálaráðherra og sjávarútvegsráðherra og öðlaðist þannig mikla reynslu af stjórnsýslu. Síðar gegndi hann starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífins, 365 miðla, Mjólkursamsölunnar og Ísey útflutnings. Hann hefur einnig sinnt ritstörfum og var á sínum tíma ritstjóri Stúdentablaðsins og seinna Viðskiptablaðsins. Ari segir að í öllum þessum störfum hafi hann öðlast dýrmæta reynslu, sem muni nýtast vel í borgarstjórn. ,,Þessi ólíku störf áttu það sameiginlegt að þau snerust um mikilvæga hagsmuni. Rík krafa var gerð um árangur og oft þurfti að ráðast í miklar breytingar til að bæta rekstur og þjónustu. Þá skipti öllu máli að standa rétt að slíkum breytingum og oft þurfti að sætta andstæð sjónarmið. Rekstur Reykjavíkurborgar er erfiður og ekki verður undan því vikist að ráðast í miklar umbætur, t.d. í fjármálum, samgöngumálum og skólamálum. Ég býð mig fram í þetta umbótastarf og tel að reynsla mín úr atvinnulífi, félagsmálum og stjórnsýslu muni gagnast vel í þeirri vinnu,“ segir Ari.
Enga ofurþéttingu Miðflokkurinn hyggst knýja fram breytingar í skipulagsmálum og samgöngumálum í Reykjavík sem eru í miklum ólestri að sögn Ara. ,,Mörg undanfarin ár hafa Samfylkingin og aðrir vinstri flokkar fylgt stefnu ofurþéttingar í skipulagsmálum, sem hefur haft ýmsar slæmar afleiðingar víða í borginni. Græna gímaldið í Breiðholti er ein birtingarmynd þessarar stefnu og nú virðist röðin vera komin að Grafarholti og Úlfarsárdal.
Samhliða ofurþéttingarstefnunni er þrengt að fjölskyldubílnum sem langflestir Reykvíkingar velja til að komast leiðar sinnar um borgina. Bílastæðum er markvisst fækkað í

Í flestum hverfum borgarinnar eru starfræktar stórverslanir með miklu vöruúrvali og lágu verði en slíka verslun er ekki að finna í Grafarholti-Úlfarsárdal. Að sögn Ara vill Miðflokkurinn bæta úr þessu, t.d. með því að breyta aðalskipulagi til að heimila rekstur stórrar matvöruverslunar á Bauhaus-reitnum.
grónum hverfum og ný hverfi eru skipulögð með allt of fáum bílastæðum til að gera fólki erfiðara fyrir að eiga bíl.“
Gegn borgarlínuskatti
Miðflokkurinn tekur eindregna afstöðu gegn svokallaðri borgarlínu en vill þess í stað efla núverandi strætókerfi að sögn Ara. ,,Borgarlínan mun kosta hundruð milljarða króna, arðsemi hennar er neikvæð og ávinningurinn í besta falli óljós. Þá er a.m.k. hálfur áratugur í að hún verði að veruleika. Mun hagkvæmara og fljótlegra er að efla núverandi strætókerfi með ýmsum hætti, t.d. lagningu fleiri strætóakreina og að veita strætó sjálfvirkan forgang á umferðarljósum.
Íslendingar borga nú þegar einhver hæstu gjöld á bíla sem þekkjast í heiminum. Samt eru hugmyndir um að leggja á nýjan skatt, sem á að fjármagna þessa dýru borgarlínu. Þessi skattur mun líklega leggjast þyngst á íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals og annarra eystri hverfa Reykjavíkur. Frekari skattpíning er það síðasta sem Reykvíkingar þurfa og því hafnar Miðflokkurinn alfarið slíkum borgar-
línuskatti,“ segir Ari. Heimgreiðslur eru sanngirnismál Ari hefur mikinn áhuga á skólamálum og segir að þar þurfi að taka til hendi. ,,Íslendingar reka eitt dýrasta grunnskólakerfi í heimi en námsárangur er samt langt frá því að vera viðunandi. Við verðum að ná meiri árangri og þá verður ekki hjá því komist að gera breytingar á skipulagi skólastarfsins. Bekkir eru nú mjög blandaðir og mestallur tími margra kennara fer í að hjálpa verst stöddu nemendunum. Það getur þýtt að miðlungsnemendur fái ekki þá þjónustu sem þeir þurfa, hvað þá afburðanemendur. Þessu þarf að breyta og tryggja að allir fái viðeigandi kennslu.
Við í Miðflokknum viljum takast á við leikskólavandann með fjölbreytilegum lausnum. Borgin á ekki að hafna fyrirtækjareknum leikskólum eins og vinstri meirihlutinn hefur gert, heldur taka þeim fagnandi. Þá á að efla dagforeldrakerfið og taka upp heimgreiðslur til foreldra. Heimgreiðslur eru sanngirnismál enda auka þær valfrelsi foreldra á viðkvæmu aldursskeiði barnsins og létta á almenna leikskólakerfinu.“
Knatthús Fram Greinilegt er að Ari er kunnugur málefnum Grafarholts og Úlfarsárdals og nefnir hann dæmi um það sem betur megi fara í þessum hverfum. ,,Borgarstjórn hefur því miður vanrækt þessi hverfi eins og raunar fleiri úthverfi. Borgin dró t.d. lengi lappirnar við uppbyggingu íþróttamannvirkja í hverfinu. Nú er glæsilegt íþróttahús risið en hvergi bólar á knatthúsinu þrátt fyrir að framkvæmdum við það hafi átt að vera lokið árið 2020 samkvæmt samningi Fram og Reykjavíkurborgar. Miðflokkurinn vill hraða framkvæmdum við knatthúsið ásamt áhaldahúsi og stefna að því að þau verði tekin í notkun árið 2028.“
Stórverslun á Bauhaus-reit Í flestum hverfum borgarinnar eru starfræktar stórverslanir með miklu vöruúrvali og lágu verði en slíka verslun er ekki að finna í GrafarholtiÚlfarsárdal. Að sögn Ara vill Miðflokkurinn bæta úr þessu, t.d. með því að breyta aðalskipulagi til að heimila rekstur stórrar matvöruverslunar á Bauhaus-reit (M9c), eins og lóðarhafi hefur hug á.
Minnka þarf umferðartafir Ari vill ráðast í aðgerðir til að bæta umferðarflæði og auka umferðaröryggi í Grafarholti og Úlfarsárdal. ,,Á ákveðnum gatnamótum myndast óeðlilega miklar stíflur, sem valda óþörfum umferðartöfum. Gera þarf úrbætur á gatnamótum VíkurvegarÞúsaldar-Reynisvatnsvegar í þessu skyni og þar gæti tvöfalt hringtorg t.d. hentað vel. Einnig þarf að gera umbætur á gatnamótum ÞúsaldarVínlandsleiðar og Úlfarsbrautar-Urðarbrunns svo eitthvað sé nefnt,“ segir Ari. Ari nefnir einnig að ráðast þurfi í átak við frágangsmál í Úlfarsárdal. ,,Til dæmis þarf að gera auknar kröfur til verktaka um frágang á byggingarlóðum inni í hverfinu. Þá þarf borgin einnig að standa við sitt. Til dæmis hefur hún ekki enn lokið við göngustíg, sem liggur frá Framhúsinu við Úlfarsbraut, upp að Urðarbrunni 100, þrátt fyrir að hverfið verði tuttugu ára gamalt á þessu ári. Þarna þarf borgin að hysja upp um sig buxurnar og við í Miðflokknum munum sjá til þess að það verði gert, komumst við í stöðu til þess eftir kosningar,“ segir Ari Edwald að lokum.

Vinningstillaga í hugmyndaleit vegna rammaskipulagsgerðar á svæði Halla og nágrennis í Úlfarsárdal var kynnt á opnum kynningarfundi borgarstjóra um húsnæðismál á dögunum. Hugmyndasamkeppnin er eitt af fyrstu skrefum til að þróa framtíðarsýn fyrir skipulagsvinnu í Höllum.
Arkitektastofan Nordic Office of Architecture í samstarfi við Eflu og dönsku landslagsarkitektastofuna SLA báru sigur úr bítum með tillöguna Hallar – samfélag við hlíðarrætur. Í tillögunni er lögð rík áhersla á að setja náttúruna í forgrunn við mótun alls umhverfisins.
Markmið skipulagstillögunnar er að leggja grunn að öflugu og eftirsóknarverðu hverfi sem styrkir nærumhverfið og bætir lífsgæði þeirra sem búa, starfa og sækja svæðið. Áhersla er lögð á samspil byggðar og náttúru, uppbyggingu sem styður við virkan lífsstíl og sterka samfélagsheild.
Ný hverfismiðja og sterk tenging við nærumhverfi
Gert er ráð fyrir nýrri hverfismiðju með fjölbreyttri starfsemi, þjónustu og stofnunum. Almenningsrými í náttúrulegu umhverfi verða lykilþættir í uppbyggingu svæðisins og ætlað er að skapa aðstæður þar sem fólk kýs að búa og starfa allt árið um kring.
Í Höllum er gert ráð fyrir tveimur skólahverfum sem geta einnig þjónað nýrri byggð við Leirtjörn. Skólarnir verða staðsettir miðsvæðis í svokölluðum grænum geira sem liggur í gegnum byggðina og tengist útivistar-


og náttúrusvæðum í kring. Í tillögunni er lögð megináhersla á vistvæna ferðamáta, svo sem göngu og hjólreiðar, þar sem íbúar geta notið náttúrunnar á leið sinni milli staða. Almenningssamgöngur fá forgang með skilgreindum almenningssamgönguási.
Umferð akandi tekur mið af öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, með öruggum þverunum og hraðalækkandi aðgerðum. Þá er gert ráð fyrir að allt svæðið sé innan tíu mínútna göngu frá almenningssamgönguási.
Hugmyndaleit og næstu skref
Hugmyndaleitin fól í sér mótun rammaskipulags þar sem kallað var eftir skýrri framtíðarsýn fyrir svæðið. Horft var til þátta á borð við
landnotkunar, byggðamynsturs, þéttleika, íbúðasamsetningar, innviða og tenginga við nærliggjandi hverfi og náttúru.
Leitað var til arkitektastofa með reynslu af þróun nýrra hverfa og rammaskipulagsgerðar í Reykjavík. Þátttakendur í hugmyndaleitinni voru Teiknistofan Stika, FOJAB arkitekter og Nordic Office of Architecture. Í framhaldinu verður gerður þjónustusamningur við vinningstillöguhafa um áframhaldandi þróun rammaskipulagsins og gerð deiliskipulags fyrir hluta svæðisins. Á næstu vikum er stefnt að samráði við íbúa og aðra hagsmunaaðila þar sem tækifæri gefst til að koma með athugasemdir til frekari mótunar á tillögunni.





5 ára þekkingu og r ið erum með 2 V
þjónustu við húsfélög og r
ekstrar
yrirspurnum hra erið okkar svarar f Þjónustuv
4800 eða á netspjal - glega; í síma 585 og örug
t að senda póst á thjonust innig er hæg E
erum þér tilboð! yrðu í okkur og við g He

Er vandamál í þínu húsfélagi?
Hafðu samband við okkur!














Hinn 20. mars síðastliðinn var vinningstillaga vegna skipulagsgerðar á svæði Halla og nágrennis í Úlfarsárdal kynnt. Lagt er til að 47-50 íbúðir verði á hverjum hektora, samtals 3.500-3.750 íbúðir. Skipulagssvæði tillögunnar þekur að mestu Halla (M22) og Leirtjörn III (M28).
Fyrirhuguð lega borgarlínu mun skipta hinu nýja hverfi í tvennt. Hverfiskjarni, með verslunum og þjónustu, eiga að vera sem næst „anddyri“ hverfisins, nálægt Skyggnistorgi/Skyggnisbraut. Týpur af íbúðahúsnæði verða samtals fimm í hverfinu, mest íbúðir í fjölbýlishúsum.
Útspil í kosningabaráttu Líta má á tillöguflutninginn sem útspil Samfylkingarinnar og fylgihnetta þess flokks í meirihluta borgarstjórnar í aðdraganda borgarstjórnarkosninga þar eð langt er þangað til að íbúar og aðrir hagsmunaaðilar geti sett fram sín sjónarmið í formlegu skipulagsferli.
Eigi að síður er ástæða til að hvetja alla íbúa og hagsmunaaðila að kynna sér tillöguna og hafa áhrif á hvernig þróa eigi Úlfarsárdalinn til lengri framtíðar.
Í þessu samhengi er ástæða til að rekja í stuttu máli sögu þess


skipulagsreits sem vísað hefur til sem M22 en sú saga markar hverjar væntingar nágranna hafa verið um þróun skipulags á svæðinu.


















Upphaflega skipulagið frá 2006 og tillögur frá 2020 Á M22 átti samkvæmt skipulagi frá árinu 2006 að rísa blönduð byggð sérbýlis- og fjölbýlishúsa, samtals um 550 íbúðir. Eftir efnahagshrunið haustið 2008 hægðist á allri uppbyggingu í Úlfarsárdalnum. Haustið 2020 var lögð fram tillaga um breytt skipulag á svæðinu, engin íbúðabyggð, eingöngu atvinnustarfsemi, þar með talið bifreiðaverkstæði. Sú tillaga fékk ekki hljómgrunn á meðal hagsmunaaðila í Úlfarsárdal og lögðu borgaryfirvöld hana til hliðar. Þess í stað er almennur texti um þetta þróunarsvæði í gildandi aðalskipulagi, blönduð byggð ásamt tilheyrandi þjónustu og þrifalegri atvinnustarfsemi. Lokaorð Ég ítreka hvatningu mína til íbúa og annarra hagsmunaaðila að kynna sér vel fyrirliggjandi verðlaunatillögu um þróun Halla og nágrennis og koma sínum sjónarmiðum að sem fyrst. Að mínu mati leiðir óbreytt tillaga til of mikillar þéttingar íbúðabyggðar og er til þess fallin að skerða aðra hagsmuni um of.
Höfundur er varaborgarfulltrúi og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.






verk Öl Ö kf kfæri





















og slá Sláttu á r u rf




















Frábært ú l m


rðverkfæ f ga a
æru rva






















r háþrý Lavo ýstidælur














l Color Ú g og v rex má a vi















yl- og ha a



















ga Sérfræð úrefnum r í m a







G lla r a Gott verð fyri lltaf! a, a


- frábær uppskrift sem vert er að prófa
Hér kemur ein extra ljúffeng súpuuppskrift eftir stórsteikur páskanna.
Hráefni (4–6 skammtar)
2 msk. ólífuolía.
1 laukur, saxaður.
1 púrrulaukur, sneiddur.
2 hvítlauksrif, smátt söxuð.
300 gr. grasker (butternut eða annað), teningar.
2 gulrætur, sneiddar.
1 stór sæt kartafla, teningar.
1 paprika (appelsínugul eða rauð), teningar.
1 dós (400 gr.) niðursoðnir tómatar.
1 lítri kjúklingasoð (eða grænmetissoð)( kraftur og vatn).
2 kjúklingabringur, skornar í bita.
1 tsk. paprikuduft.
½ tsk. cumin.
½ tsk. timían eða rósmarín.
Salt og pipar eftir smekk.
Auka sem ég mæli alveg með:
1 dl. rauðar linsubaunir (gera súpuna þykkari og próteinríkari).
Handfylli ferskt grænt í lokin.
Safi úr ½ sítrónu til að fríska upp á bragðið.
Aðferð Hitaðu olíu í stórum potti. Mýktu lauk og púrrulauk í 3–4 mínútur. Bættu hvítlauk út í síðustu mínútuna. Settu kjúklingabitana út í, kryddaðu og brúnaðu létt. Settu grasker, gulrætur, sæta kartöflu og papriku í pottinn. Hrærið saman.
Helltu niðursoðnum tómötum og soði yfir. Bættu linsubaunum út í ef þú ætlar að nota þær. Láttu malla í 20–25 mínútur þar til allt er mjúkt. Bættu babyleaves / spínati / grænkáli út í síðustu 2–3 mínúturnar. Smakkaðu til með salti, pipar og smá sítrónusafa. Næringar + Prótein úr kjúklingi og linsubaunum. Beta-karótín úr graskeri, gulrótum og sætum kartöflum.
Trefjar sem styðja meltingu. Súpan er fullkomin sem máltíð í hádeginu eða léttur kvöldmatur.
Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast

Spönginni Grafarvogi






Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar Þekking og áratuga reynsla
eftir Brynjar Níelsson, frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Við borgarbúar höfum þurft að þola ýmislegt síðustu áratugina. Á grundvelli pólitískrar hugmyndafræði meirihlutans hefur okkur verið gert erfitt að komast á milli staða. Ofurþétting byggðar hefur verið knúin fram í andstöðu við flesta borgarbúa. Þrengt hefur verið að umferð einkabílsins með dýrum aðgerðum og samgöngubætur verið látnar sitja á hakanum.
Leikskólinn hefur siglt í strand af því að meirihlutinn hefur verið fastur í úreltri hugmyndafræði. Hefur verið komið í veg fyrir að fyrirtæki og einkaaðilar geti rekið dagvistun fyrir yngstu börnin og leikskóla, sem hefur skaðað mjög hagmsmuni foreldra og atvinnulífsins. Borgin rekur dýrasta grunnskóla í OECD en námsárangur verður lakari með hverju árinu.
Að auki hefur tekist að svæla mörg fyrirtæki úr borginni vegna hærri



fasteignaskatta og skorti á skipulögðum lóðum fyrir atvinnuhúsnæði. Borgin hefur einnig vanrækt að skipuleggja lóðir svo hægt sé að byggja fjárhagslega viðráðanlegar íbúðir fyrir ungt fólk. Það hefur valdið húsnæðiskreppu og verið ein helsta ástæða verðbólgu og hærri vaxta, sem allir landsmenn þurfa að þola. Önnur mikilvæg þjónusta eins og snjómokstur, viðhald gatna og sorphirða nær ekki einu sinni slöku meðallagi.
Verst af öllu er kannski slæleg fjármálastjórn sem hefur leitt til þess að rekstur borgarinnar er ekki sjálfbær. Afleiðingin er sú að mjólka hefur þurft fyrirtæki í eigu borgarinnar með óhóflegum arðgreiðslum, sem mun skaða fyrirtækin til lengri tíma.
Svokölluð Borgarlína hefur verið mjög til umræðu án þess að skýrt hafi verið fyrir borgarbúum hvað í henni felst. Hún snýr ekki eingöngu að því að
bæta almenningsamgöngur, eins og sumir kunna að halda, heldur er hún hluti af verulega breyttu skipulagi borgararinnar með áherslu á ofurþéttingu byggðar og útrýmingu einkabílsins í borginni. Borgarlínuhugmyndir meirihlutans muni kosta hærri fjárhæðir en við höfum nokkurn tíma séð og rekstur hennar ósjálfbær. Borgarlínuhugmyndir núverandi meirihluta mun valda óbætanlegu tjóni fyrir borgarbúa.
Sjálfstæðisflokkurinn er skýr í andstöðu sinni við Borgarlínuna, þótt sumir haldi öðru fram. Það breytir því ekki að sjálfstæðismönnum er mjög í mun að bæta almenningssamgöngur og flýta fyrir mikilvægustu samgöngubótunum samkvæmt samgöngusáttmálanum, sem mun verða til verulegra hagsbóta fyrir borgarbúa og aðra sama hvaða samgöngumáta hver og einn kýs.

Í þessu sambandi eru raunsæi og skynsemi lykilorðin. Sjálfstæðisflokkurinn gengur samhentur til komandi borgarstjórnarkosninga. Á framboðslista flokksins er
fjölbreyttur hópur með víðtæka reynslu. Því fólki er vel treystandi til að laga það sem aflaga hefur farið síðustu áratugina. Og sem meira er, það kann að hlusta.

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:
Að hlaupa með hundinum sínum er meira en bara líkamsrækt. Þetta er frábær leið til að styrkja tengslin ykkar á meðan þið hreyfið ykkur saman. Hvort sem þið farið út í ferska loftið, njótið útiverunnar eða eigið einfaldlega góða stund saman, þá er þetta gefandi fyrir bæði mann og hund. En áður en lagt er af stað er gott að undirbúa sig aðeins, því það gerir upplifunina bæði öruggari og skemmtilegri.
Er hundurinn þinn tilbúinn að hlaupa? Áður en þú reimar á þig hlaupaskóna er mikilvægt að huga að líkamlegu ástandi hundsins.
Aldur: Ekki er mælt með löngum hlaupum fyrir hvolpa sem eru enn að vaxa eða eldri hunda með liðavandamál.
Tegund: Sumar tegundir, eins og stuttlappa hundar, þola síður mikla áreynslu. Aðrar tegundir, eins og retrieverar og fjárhundar, eru oft náttúrulega hreyfanlegri.

Heilsa: Gott er að ganga úr skugga um að hundurinn sé ekki með vandamál í mjöðmum, liðum eða hjarta. Fljótlegt tékk hjá dýralækni getur verið góð hugmynd áður en byrjað er.
Áhugi: Ekki eru allir hundar sjálfkrafa spenntir fyrir því að hlaupa. Sumir þurfa rólega aðlögun, þolinmæði og jafnvel nokkra nammobita til að fá áhuga.
Veldu rétt umhverfi
Það skiptir miklu máli hvar þið hlaupið. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga: Í borginni eða á gangstéttum: Hafðu hundinn við hliðina á þér, helst þeim megin sem snýr frá umferð, til öryggis. Í garði eða á öruggum stíg: Ef reglur á svæðinu leyfa má hundurinn hlaupa
örlítið á undan, svo lengi sem hann heldur athyglinni á þér.
Virðið reglur á svæðinu: Á sumum stöðum þarf hundurinn alltaf að vera í taumi. Kynntu þér reglurnar áður en þið leggið af stað.
Athugaðu truflanir: Hjól, skokkarar

og aðrir hundar geta auðveldlega tekið athygli hundsins. Hann þarf að læra að fylgja þér þrátt fyrir spennandi áreiti.
Að læra að hlaupa saman
Það þarf smá æfingu að læra að hlaupa saman. Best er að byrja rólega og kenna hundinum grunninn:
• Byrjið á röskum göngutúrum til að venjast hraðanum.
• Kennið góða staðsetningu, til dæmis vinstra megin, við hliðina á þér eða örlítið á undan, eftir því hvað er öruggast.
• Verðlaunið góða hegðun með hrósi eða litlu nammi þegar hundurinn hleypur rólega við hliðina á þér. Þannig byggirðu upp jákvæða tengingu við hlaupin.
Nauðsynlegur búnaður fyrir þægileg hlaup Réttur búnaður getur skipt miklu máli. Fyrir meiri þægindi og öryggi getur verið sniðugt að nota hlaupagerði um mittið og teygjanlegan taum sem er hannaður fyrir hunda. Slíkur búnaður hentar vel í göngur, skokk eða gönguferðir utandyra með hundinum. Stillanlegt belti með endurskinsröndum eykur sýnileika og teygjutaumur hjálpar til við að dempa snögg tog. Á sumum beltum fylgja einnig litlir vasar eða hólf sem henta vel fyrir síma, vatnsflösku eða nammi. Það einfaldar allt og gerir útiveruna þægilegri.
Skipulagðu fyrstu hlaupatúrana vel Eins og með alla nýja hreyfingu er lykillinn að árangri að fara rólega af stað. Þannig minnkarðu líkur á meiðslum eða því að áhuginn detti niður hjá ykkur báðum. • Byrjið á stuttum vegalengdum og hóflegum hraða.
• Fylgstu vel með hundinum. Mikil mæði, hægari hraði eða áhugaleysi þýðir að það sé kominn tími á hvíld.
• Hafðu alltaf vatn með fyrir bæði þig og hundinn.
Svona heldurðu þessu skemmtilegu
• Breyttu stundum um leið svo hundurinn haldi forvitni og áhuga.
• Bættu við leikpásum eða leyfðu honum að þefa aðeins, það skiptir hann máli.
• Vertu sveigjanleg/ur, suma daga er góður göngutúr alveg nóg.
• Hafðu þetta jákvætt, þetta snýst ekki um afrek heldur að eiga góða stund saman.
Að hlaupa sem lið Að hlaupa með hundinum sínum er meira en bara hreyfing. Þetta er sérstök samverustund þar sem þið vinnið saman sem lið. Með góðum undirbúningi, því að hlusta á hundinn og virða hans hraða getið þið byggt upp dýrmætar minningar, eitt skref og eina loppu í einu.

