GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 23:07 Page 1
Grafarholtsblaðið 5. tbl. 11. árg. 2022 maí
Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal
FAGNA NÝ FA ÝJJUM VIÐSKIPTA AV VINU UM
Kosið í Dalskóla og Ingunnarskóla Í kosningunum á laugardag verður kosið á tveimur stöðum í Grafarholti og Úlfarsárdal. Í Grafarholti verður kjörstaður í Dalskóla og hinn verður í Ingunnarskóla. Kosið verður um 23 borgarfulltrúa og opna kjörstaðir kl. 09.00 að morgni laugardags og lokað verður fyrir kosningu kl.
22.00 á laugardagskvöld. Alls eru ellefu framboðslistar í boði fyrir kjósendur þannig að úr nógu er að velja. Alls verður kosið á 23 kjörstöðum á laugardaginn og eru það sömu kjörstaðir og voru í gangi í alþingiskosningunum í september sl. Allir kjörstðir eru aðgengilegir fötluðu fólki.
Hólmar Björn Sigþórsson Löggiltur fasteignasali
Sími: 893 3276 | holmar@helgafellfasteignasa g g la.is
R Reykjavík kj ík se em virkar i k fyrir f i Grafarh G f holt h Sundabraut strax Við viljum að borgin standi við gerða samninga um Sundabraut og hefji framkvæmdir strax. xdreykjavik.is
Íþróttir fyrir alla Við viljum bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar í Grafarholti-Úlfarsárdal og efla Fram í því skyni. Bæta þarf aðgengi við sundlaugina og íþróttamannvirki Fram.
Eldri E borgara kjarni Við nustuV munum bygg ja þjón miðstöð m fyrir eldri borga ara í Grafarholti G -Úlfarsárdal o og úthluta ló óðum undir fjölbýlishúss eldri borgara í tengslum við h hana. b
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 22:36 Page 2
2
Grafarholtsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: gv@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Grafarholtsblaðsins: gv@skrautas.is / abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - gv@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Grafarholtsblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás.
Gleðilegt sumar Eins og svo oft áður lætur sumarið bíða eftir sér og margir bíða óþolinmóðir eftir betra og hlýrra veðri. Samkvæmt dagatalinu er um hálfur mánuður liðinn af sumri og gróður er óðum að taka við sér. Þegar þessar línur eru skrifaðar er líklegt að sumarið hefjist fyrir alvöru um komndi helgi þegar spáð er hlýindum og allt að 15 stiga hita. Það eru kosningar framundan. Kosningabaráttan hefur verið afskaplega litlaus og lítið farið fyrir frambjóðendum. Alltaf hafa þó frambjóðendur mikla trú á hverfablöðum okkar og senda okkur margar greinar sem við verðum að sjálfsögðu að birta hvort sem lesendur hafa áhuga á pólitík eða ekki. Kosningar eru jú aðeins á fjögurra ára fresti yfirleitt. Það verður spennandi að sjá hvort núverandi meirihluti í Reykjavík heldur velli eða hvort hann fellur í öðrum kosningunum í röð. Það verður líka spennandi að sjá hvort Viðreisn hjálpar núverandi meirihluta aftur til valda. Það verður líka mjög spennandi að fylgjast með framgangi Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins og reyndar allra annarra flokka. Margir flokkanna og frambjóðendur eru duglegir við að auglýsa í blöðum okkar og forsvarsmenn flokkanna, sem og margra fyrirtækja, gera sér grein fyrir því að hverfablöðin eru mjög mikið lesin og því ákjósanlegur vettvangur fyrir þá sem vilja koma sínum málum á framfæri við lesendur. Fyrir mjög mörgum árum voru margir spekingar sem spáðu því að prentmiðlar væru á grafarbakkanum og að samfélagsmiðlar væru að taka öll völd. Tíminn hefur afsannað þessar spár. Prentmiðlar sem fara varlega í reksturinn og vanda sig og eru heiðarlegir eiga mjög góða möguleika á bjartri framtíð til margra ára. Við vonum að nýhafið sumar verði okkur öllum gott og lesendum óskum við gleðilegs sumars. Stefán Kristjánsson
gv@skrautas.is
Grafarholtsblaðið
Fréttir
Björn Gíslason skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 14. maí:
Íþróttaðstaða í heimsklassa – sjálfsögð mannréttindi barna Íþrótta- og æskulýðsmál hafa lengi átt hug minn allan. Þegar ég hætti í slökkviliðinu árið 2016 gafst enn frekari tími til þess að sinna þessari ástríðu minni. Það var því stór stund þegar nýr og glæsilegur knattspyrnuvöllur var vígður í Árbænum - mínu heimahverfi sumarið 2018. Sömu sælutilfinningu upplifði ég sama ár þegar sérstök rafíþróttadeild hóf starfsemi sína í Árbænum.
þar sem aðstaðan annar hvergi nærri þeim fjölda sem í hana sækir. Það gengur ekki að efnilegt íþróttafólk úr þessum hverfum og fleirum í Reykjavík, þurfi að fara bæjarenda á milli, eða í nágrannasveitarfélög til að stunda íþrótt sína. Ekki þarf að fjölyrða um samfélagslega gagnsemi íþrótta og hreyfingar. Uppbygging íþróttainnviða er fjárfesting sem skilar sér í bættri andlegri og líkamlegri heilsu borgarbúa, með tilheyrandi sparnaði fyrir heilbrigðiskerfið. Viðunandi íþróttaaðstaða er einfaldlega þjóðhagslega hagkvæm framkvæmd.
Ég þekki hversu jákvæð áhrif íþróttaog tómstundastarf hefur á börn og ungmenni. Hreyfing og íþróttir eru nefnilega stór þáttur í heilbrigðum uppvexti. Rétt eins og skólagangan sjálf. Íþróttamannvirki eru þess vegna mikilvægir innviðir, alveg eins og skólahúsnæði eða vegakerfið. Innviðum hefur almennt ekki verið sinnt sem skyldi í stjórnartíð vinstri meirihlutans sem stjórnað hefur í Reykjavík – með örstuttum hléum – í tæp þrjátíu ár, og dugar í þeim efnum að nefna viðvarandi viðhaldsleysi á skólahúsnæði og öðrum fasteignum á vegum borgarinnar. Þótt aðstaða sumra íþróttafélaga sé til fyrirmyndar, er það þó svo að önnur hverfi hafa fallið langt á eftir. Samanburður við nágrannasveitarfélögin er okkur heldur ekki hagfelldur. Kópavogur er með fleiri yfirbyggða knattspyrnuvelli í fullri stærð en Reykjavík.
Það eru sjálfsögð mannréttindi barna að geta gengið að fyrsta flokks íþróttainnviðum innan sinna hverfa. Við eigum að tryggja börnum jafnt aðgengi að Björn Gíslason borgarfullttrúi Sjálfstæðis- íþróttaaðstöðu, óháð búsetu. Sjálfstæðisflokkurinn vill ráðast flokksins í Reykjavík. í stórfellt átak í uppbyggingu íþróttaaðstöðu í Reykjavík, og Uppbygging íþróttainnviða er fjártryggja viðunandi aðstöðu í öllum festing sem skilar sér hverfum. Þannig sinnum við þörfum Íþróttaaðstaða í mörgum borgarhverfallra – afreksfólks og þeirra sem stunda um er hreinlega óboðleg og hefur verið hreyfingu á sínum forsendum. leyft að drabbast niður. Nægir þar að nefna Laugardalinn – þar sem löngu er orðið tímabært að byggja fullnægjandi íþróttahús fyrir íþróttafélögin og skólana. Sama gildir um vesturbæinn,
Höfundur er borgarfulltrúi og skipar 5. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík.
bf fo o.is 7^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][
W[d5W[d#^h
BG
BG
S VO
SV
T T UÐ ÞJ Ó N US
TA
OT TUÐ ÞJÓNUS
TA
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GA AT TA) · 200 2 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 8.5.2022 23:42 Page 3
Fáum öflugan Framara í borgarstjórn. Helgi Áss Grétarsson mun berjast fyrir hagsmunum Úlfarsárdals og Grafarholts.
Sá gamli kann þetta ennþá. Mynd tekin 22. apríl 2022.
Eitt sinn Framari, ávallt Framari. Mynd tekin sumarið 1990.
Veljum XD laugardaginn 14. maí
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 8.5.2022 23:40 Page 4
4
Fréttir
Rauntímamæling biðlista
Grafarholtsblaðið
- eftir Mörtu Guðjónsdóttur sem skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins Viðreisn, Samfylking, Píratar og Vinstri græn gerðu með sér meirihlutasáttmála um stjórn borgarinnar fyrir kjörtímabilið 2018-2022. Þar segir m.a. að brúa eigi bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Sú brúarsmíð hefur farið í handaskolum eins og best sést á biðlistum mörg hundruð barna sem ekki fá inni á leikskólum borgarinnar. Þannig hefur staðan verið á kjörtímabilinu og þannig er hún enn, þegar því er að ljúka. Markmiðið var skýrt: Að tryggja öllum börnum frá 12 mánaða aldri leikskólavist á þessu kjörtímabili. Enn er langt í land að þetta markmið náist og þegar börn fá loks leikskólavist, oft eftir langa bið, er alls ekki tryggt að þau fái inni á leikskóla síns eigin hverfis. Sú algenga staðreynd rímar illa við það slagorð borgaryfirvalda, að borgarbúar eigi að hafa aðgengi að allri nærþjónustu í sínu hverfi.
Frosið Mælaborð Þá segir í sama sáttmála að auka eigi enn frekar gagnsæi í stjórnsýslunni og því verði sem fyrst lokið með m.a. Mælaborði Reykjavíkur, enda verði þar að finna helstu tölulegar upplýsingar um þjónustu borgarinnar við borgarbúa. En Mælaborðið hefur því miður verið frosið nánast allt kjörtímabilið og þar því litlar upplýsangar að fá. Þar er t.d. hvergi að finna upplýsingar um biðlista eftir leikskólavist, né þá heldur hvernig þeir styttast eða lengjast eftir atvikum, frá degi til dags, þannig að foreldrar geti fylgst með nákvæmlega hvar börnin þeirra eru í röðinni. Slíkar upplýsingar hljóta samt að vera afar þýðingarmiklar fyrir foreldra, því þær eru mikilvægar vísbendingar um það hvort foreldrar þurfi þá sjálf að grípa til mjög tímabundinna, eða langvarandi ráðstafana. Það gagnast foreldrum lítið, að slíkur listi sé lagður fram, einungis
tvisar til þrisvar á ári, í skóla- og frístundaráði,til upplýsingar fyrir kjörna fulltrúa. Mikilvægar upplýsinga Leikskólavist barna lýtur að mikilvægri grunnþjónustu við borgarbúa. Það er því sjálfsögð krafa að upplýsingar um slíka þjónustu séu ítarlegar, aðgengilegar og oft uppfærðar. Til að auka gagnsæi og gera stjórnsýsluna skilvirkari að þessu leyti lagði ég til í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur, í fyrra að upplýsingar um laus leikskólarými og stöðu biðlistans verði settar í Mælaborðið á vef Reykjavíkurborgar og hann þá gerður nothæfur fyrir borgarbúa. Þar komi fram aðgengilegar, sundurgreindar og auðskiljanlegar upplýsingar eftir leikskólum og hverfum, um stöðu biðlista og laus leikskólarými. Ennfremur að þessar upplýsingar verði
uppfærðar um leið og breytingar verða. Markmiðið með tillögunni er að sjálfsögðu að auðvelda foreldrum aðgengi að upplýsingum, og gera stjórnsýsluna gagnsærri og skilvirkari. Slíkt fyrirkomulag myndi spara foreldrum tíma og mikla fyrirhöfn, og draga úr álagi leikskólanna og skóla- og frístundasviðs. Marta Guðjónsdóttir. Tillaga mín og örlög hennar En hvað skyldi hafa orðið um þessa tillögu mína? Jú, afgreiðslu hennar var fyrst frestað. Hún var síðan tekin fyrir, þremur mánuðum síðar og afgreidd með eftirfarandi hætti: „Skólaog frístundaráð leggur til að tillögunni um upplýsingar um leikskólarými verði vísað til starfshóps um Mælaborð borgarbúa á vegum fjármála- og áhættustýringarsviðs borgarinnar.“ Við þessa þulu er því að bæta að síðan hefur ekkert heyrst frá tillögunni né
starfshópnum. Ekkert hefur því verið gert í málinu. Það er löngu orðið tímabært að Reykjavíkurborg tileinki sér nútímalegri vinnubrögð sem tryggi skilvirkari, gagnvirkari og persónulegri þjónustu og upplýsingargjöf til borgarbúa. Höfundur:Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og skipar 4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokks-ins fyrir borgarstjórnarkosningarnar
Borgarlína - klárum dæmið! - eftir Birki Ingibjartsson sem er í 8. sæti á lista Samfylkingarinnar Undirbúningur við gerð Borgarlínunnar er á fullri ferð. Alþjóðlegt hönnunarteymi á vegum Vegagerðarinnar og Betri samgangna ohf. vinnur að hönnun göturýmis Borgarlínunnar. Innan skipulagsog samgöngudeilda Reykjavíkur eru til skoðunar þær breytingar á skipulagi og samgöngum sem Borgarlínan kallar á. Samhliða er verið að skilgreina hvernig við tryggjum gæði þeirra borgarrýma og gatna sem Borgarlínan liggur um. Samkvæmt áætlun munu framkvæmdir við fyrstu lotu Borgarlínunnar hefjast strax á næsta ári. Með Borgarlínunni munu skapast nýjar tengingar milli hverfa, borgarhluta og til annara sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Tengingar sem eru á forsendum gangandi og hjólandi vegfarenda og þar sem
almenningssamgöngur eru í forgrunni. Til verða nýir möguleikar til að ferðast um borgina með fjölbreyttum hætti sem styttir vegalengdir fyrir borgarbúa og dregur úr hlutdeild einkabílsins í ferðum þeirra - hvort sem fólk kýs í auknum mæli að labba, hjóla eða treysta á Borgarlínuna. Á næstu fjórum árum mun Borgarlínan og framkvæmdir henni tengdar vera mikið til umfjöllunar. Það sama gildir um allar helstu ákvarðanir sem teknar verða um það hvernig kerfið mun virka fyrir notendur þess. Í mörgum tilvikum verður tekist á um hvernig borgarumhverfi við mótum með þeim framkvæmdum og innviðauppbyggingu sem felast í verkefninu. Skiptir þar máli að setja upplifun borgarbúa í forgrunn en velja um leið lausnir sem horfa til framtíðar og stuðla að umhverfisvænu
borgarumhverfi. Við verðum að taka frá meira pláss fyrir gróður, grænar áherslur og mannlífið. Áætlað er að íbúum á höfuðborgarsvæðinu muni fjölga um 70.000 manns á næstu 15 árum. Breyttar ferðavenjur innan borgarinnar eru lykilatriði í að tryggja að samgöngur muni einfaldlega virka með auknum íbúafjölda á svæðinu. Eru breyttar ferðavenjur um leið lykilatriði í að tryggja að við getum staðið við alþjóðlegar loftslagsskuldbindingar okkar. Borgarlínan er eina raunhæfa lausnin til að þau markmið gangi eftir. Í ljósi mikilvægi verkefnisins verðum við að standa vörð um kjarna Borgarlínunnar í allri þeirri ákvarðanatöku sem framundan er. Mikill metnaður hefur verið settur í undirbúning Borgarlínunnar á liðnum árum en nú er
komið að því að ákveða útfærsluna. Þann 14. maí næstkomandi verður gengið til borgarstjórnarkosninga. Þar skiptir máli að til starfa í borgarstjórn veljist fólk og flokkar sem til að byrja með hafa trú á Borgarlínunni. Að hafa skilning á umfangi verkefnisins og þeim tækifærum sem því fylgir er ekki síður mikilvægt. Við í Samfylkingunni vitum að því fylgir mikil ábyrgð að móta umhverfi borgarinnar. Við munum gæta þess að hvergi verði slegið af þeim gæðum sem Borgarlínan þarf að hafa eða kröfum okkar um gott og heilnæmt umhverfi fyrir fólkið í borginni. Birkir Ingibjartsson, arkitekt og verkefnastjóri hjá borgarskipulagi
Birkir Ingibjartsson. Reykjavíkur Skipar 8. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar
Dalslaug, fyrirmynd annarra hverfa - eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur
Það hefur verið gaman að fylgjast með uppbyggingu á Dalslaug ásamt Borgarbókasafninu í Úlfarsársdal, sú uppbyggingin er fyrirmynd fyrir önnur hverfi. Viðreisn vill tengja fleiri bókasöfn borgarinnar við starfsemi sundlauga og þjónustumiðstöðva og með því lengja opnunartíma eins og hefur reynst svo vel í Úlfarsárdal. Bókasöfn eru svo mikið meira en bara bókasöfn þau eru samkomustaður hverfisins líkt og heiti potturinn og því þurfum við að gera þau enn aðgengilegri. Nýir tímar í Árbænum Í Árbænum er margt fram undan og þarf að finna nýjan samastað fyrir bókasafnið og á nýjum stað viljum við í Viðreisn að við að það verði menningarhús líkt og í Úlfarsárdal með lengri opnunartíma og enn frekari samkomustaður í hverfinu. Viðreisn vill líka gera Rofabæinn að borgargötu en það mun gera það að verkum að hún mun njóta forgangs við endurhönnun og fegrun sem almenningsrými sem og að vera umferðaræð fyrir alla ferðamáta. Við sem höfum búið í Árbænum lengi vitum hvað Rofabærinn er okkur mikilvægur og við verðum að leyfa götunni að verða eins fögur og hún getur. Tengjum hverfin betur með alls konar samgöngnum Við ætlum að tryggja raunverulegt valfrelsi í samgöngum . Við viljum hraða uppbyggingu Borgarlínu og fjölga deilibílum og umhverfisvænum samgönguvalkostum. Við styðjum Sundabraut sem styttir leiðir fyrir alla samgöngumáta. Með þéttari byggð í hverfum og góðum, fjölbreytum samgöngum á milli hverfa, verða til sterkari hverfiskjarnar með nærþjónustu og sjálfbær og lifandi hverfi. Öruggt ævikvöld í þínu hverfi Við í Viðreisn viljum líka tryggja góða þjónustu fyrir aldrað fólk, sem byggir á virkni þeirra og þátttöku. Við viljum tryggja einstaklingum dvöl í öryggi heimilis síns eins lengi og hægt er. En til að það sé raunhæft, þá þarf líka að tryggja góða þjónustu heim. Það þarf að tryggja aðgengi, hjálpartæki, endurhæfingu, hreyfingu, fæði og afbragðs stuðningsþjónustu og heimahjúkrun. Sértaklega þarf að efla kvöld- og helgarþjónustu og sveigjanlega Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. dagvistun. Þarna viljum við styðja við fjölbreytni og sveigjanleika, t.d. í rekstrarformi þjónustunnar sem aldrað fólk fær og í fæði sem aldrað fólk getur keypt heim. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6.5.2022 13:45 Page 5
xsreykjavik.is
! ! %! % &%$$#"! ! $%$ ! ! $ ! ! ! ! ! % ! ! $$#$$%! ! ! "%$
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 16:54 Page 6
6
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Hverfið hlýtur að fá að vaxa! - Stefán Pálsson í 2. sæti hjá VG í Reykjavík
Sagnfræðingurinn og fótboltaáhugamaðurinn Stefán skipar annað sæti á framboðslista Vinstri grænna í Reykjavík og er í harðri baráttu um sæti í borgarstjórn. Grafarholtsblaðið tók Stefán tali í kosningabaráttunni. - Hvaðan ertu úr bænum? „Ég er Reykvíkingur í húð og hár, þótt ég reyni að halda til haga örlitlum tengslum vestur á Ísafjörð og svo er ég að sjálfsögðu tengdasonur Norðfjarðar. Ég bý í Hlíðunum og þarf því að umbera það að yngri sonurinn sé Valsari sem hangir öllum stundum á Hlíðarenda. Sjálfur ólst ég hins vegar upp í Vesturbænum og fór bæði í Melaskóla og Hagaskóla. Engu að síður varð ég Framari, sem skýrist af því að afi minn, Haraldur Steinþórsson fyrrum formaður Fram, fór snemma að taka mig með á völlinn. Þá varð ekki aftur snúið.“ - Hefurðu alltaf haft áhuga á borgarmálunum? „Satt að segja hefur ég verið virkur í pólitík frá táningsaldri en sá sjálfan mig aldrei í hlutverki frambjóðenda, hvað þá í sveitarstjórnarmálum. En viðhorfin breytast með tímanum. Maður fær aðra sýn á málin eftir að hafa komið börnum í gegnum skólakerfið og íþróttastarf. Undanfarin ár hef ég svo verið mikið í að stýra sögugöngum um Reykjavík þvera og endilanga. Í tengslum við þá vinnu hef ég grafið djúpt ofan í sögu borgarinnar og áttað mig sífellt betur á því hversu vænt mér þykir um hana. Ég held líka að skilningur á sögunni sé góður bakgrunnur fyrir störf að borgarmálum. Við getum lært mikið af fortíðinni, bæði því sem lukkast og það sem betur hefði mátt fara.“ - Hvað sér ykkar framboð fyrir sér í húsnæðismálum? „Húsnæðismálin eru stóra málið um þessar mundir, enda slegist um hverja íbúð og leiguverð rýkur upp úr öllu valdi. Við í Vinstri grænum teljum að trúin á að frjálsi markaðurinn muni einn og sér leysa málin hafi beðið skipbrot. Borgin á að þora að stíga með
beinum hætti inn í málaflokkinn og ekki að hika við að byggja sjálf. Fyrirmyndirnar má víða finna, svo sem í Helsinki og Vínarborg. Við höfum kallað verkefni þetta Reykjavíkurbústaði, þar sem ætlunin er að tryggja hagkvæmt leiguhúsnæði fyrir almenning í eigu Reykjavíkur.“ - Hvað annað setjið þið á oddinn? „Umhverfismálin eru sá málaflokkur sem verður að umlykja öll önnur mál. Okkar hreyfing hefur alla tíð verið í fararbroddi í umhverfismálum og verðum það áfram. Loftslagsmálin eru í öndvegi og sveitarfélög hafa mikla möguleika á að beita sér í þeim. Við viljum kolefnishlutlausa Reykjavík og í því skyni þarf að flýta fyrir orkuskiptum og gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti fyrir okkur öll. Borgarlínuverkefnið er einn stærsti áfanginn á þeirri leið. Annað mál sem mér finnst mikilvægt að nefna er að borgin komi að stofnun Vísindaveraldar, þar sem börn á öllum aldri geta fræðst um vísindi- og tækni á lifandi hátt. Við þekkjum miðstöðvar af þessu tagi erlendis frá og vitum að þetta væri frábært framlag til menntakerfisins og skemmtileg afþreying fyrir fjölskyldur. Ég sæi Keldnaholtið fyrir mér sem góða Stefán Pálsson skipar 2. sæti á lista VG í Reykjavík. staðsetningu fyrir Vísindaveröldina.“ - Hvernig líður Framaranum að sjá félagið sitt á nýjum stað? „Það er stórkostlegt fyrir okkur Framara um alla borg að sjá félagið okkar eignast glæsilegt og verðugt heimili á fallegum stað. Ég átti sæti í aðalstjórn Fram á sínum tíma þegar samþykkt var að byggja upp ný heimkynni í yngsta hverfi borgarinnar. Sú ákvörðun var ekki einföld en hárrétt þótt alltof langan tíma hafi tekið að hrinda henni í framkvæmd. Sagan segir okkur að frá stofnun hefur Fram
þorað að flytjast til í takt við vöxt Reykjavíkur. Við erum alltaf þar sem hlutirnir gerast! Innviðirnir í Úlfarsárdal með íþróttasvæðinu, sundlauginni og bókasafninu munu nýtast enn betur ef hverfinu verður leyft að vaxa enn frekar á næstu árum. Það hlýtur að verða niðurstaðan.“
Atvinnumöguleikar í austurhluta Reykjavíkurborgar Spennandi atvinnutækifæri - sálfræðingur í skólaþjónustu Austurmiðstöð, sameinuð þjónustumiðstöð Árbæjar, Grafarholts, Grafarvogs og Kjalarness, auglýsir lausa til umsóknar stöðu sálfræðings við skólaþjónustu. Leitað er eftir metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með einlægan áhuga á þjónustu við börn og fjölskyldur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Í boði er vinna með metnaðarfullum hópi annarra fagmanna að málefnum barna, skóla og fjölskyldna sem og þátttaka í sameiginlegu verkefni velferðarsviðs og skólaog frístundasviðs, Betri borg fyrir börn.
Austurmiðstöð sumarstörf í þjónustu við fatlað fólk Austurmiðstöð, sameinuð þjónustumiðstöð Árbæjar, Grafarholts, Grafarvogs og Kjalarness, óskar eftir hressu og jákvæðu starfsfólki í fjölbreytt og skemmtileg störf í sumar með möguleika á áframhaldandi starfi. Starfshlutfall er eftir samkomulagi. Um er að ræða störf í þjónustu við fatlað fólk og börn. Störfin eru á heimilum fyrir fatlað fólk, skammtímadvölum og dagþjónustum. Markmið starfanna er að gera einstaklingum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni og ábyrgð Ráðgjöf til foreldra og starfsfólks skóla vegna nemenda. Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum og unglingum. Námskeiðahald fyrir foreldra, börn og starfsmenn skóla. Þverfaglegt starf á þjónustumiðstöð og við samstarfsstofnanir (s.s. heilsugæslu, barnavernd o.fl).
Einstaklingsmiðuð og sveigjanleg aðstoð við allar athafnir daglegs lífs Hvatning og stuðningur til félagslegrar virkni Matseld og þrif
Hæfniskröfur
Menntunar- og hæfnikröfur
Löggilding til að starfa sem sálfræðingur. Þekking á þroska og þroskafrávikum barna. Reynsla af sálfræðilegri greiningu og ráðgjöf vegna barna er æskileg. Áhugi á þróun sálfræðiþjónustu og þverfaglegs starfs. Þekking á eða PMTO menntun er kostur. Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, frumkvæði og leikni í mannlegum samskiptum. Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum. Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Umsóknir berist í gegnum vef Reykjavíkurborgar á www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Sólrún Guðmundsdóttir deildarstjóri í síma 411-1400 eða tölvupósti hulda.solrun.gudmundsdottir@reykjavik.is
Menntun sem nýtist í starfi Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum Æskilegt er að hafa náð 18/20 ára aldri Íslenskukunnátta Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Umsóknir berist í gegnum vef Reykjavíkurborgar https://jobs.50skills.com/reykjavik/is/13627 Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigmar Þór Ármannsson mannauðsráðgjafi í 411-1716 og tölvupóst sigmar.thor.armannsson@reykjavik.is.
Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 17:03 Page 7
Stefán Pálsson Í borgina! Verið velkomin í kosningakaffi í VG Portið Bankastræti 2 á kjördag frá 12-17 Vantar þig skutl á kjörstað? Hringdu þá í síma 893-7861
Kynnið ykkur stefnuna Read the manifesto Przeczytaj deklarację programu
x22.vg.is
14. maí
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 21:56 Page 8
8
ÚTF FARARSTO OF FA ÍSLANDS www.utforin.is Auðbbrekku 1, Kópavogi Sólarhringsvakt: 5811 3300 & 565 5892 Komum til aðstandenda og ræ æðum skipulag sé þess óskað
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Öflugri úthverfi - eftir Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokks
Sverrir Einarsson S: 896 8242
Jóhanna Eiríksdóttir
Jón G. Bjarnason S: 793 4455
ÚTF FARARSTOF FA AH HAFNARFJARÐAR www.utfararstofa.is Doffrahellu 9b, Hafnarfirði
Sjálfstæðisflokkurinn vill að borgin verði endurskipulögð á forsendum hverfanna – á grundvelli sérstöðu þeirra og styrkleika. Borgarhverfi verði skipulögð með það fyrir augum að unnt verði að nálgast helstu verslun og þjónustu í 15 mínútna göngufæri. Forsenda 15 mínútna hverfa er blönduð byggð hvar íbúðarhúsnæði, vinnustaðir og þjónusta eru í nálægð hvert við annað. Fjölgun vinnustaða í austurhluta borgarinnar mun ýta undir þessa þróun og hafa jákvæð áhrif á samgöngur í borginni. Leitum ekki langt yfir skammt Reykjavík stendur á tímamótum spennandi umrótstímum sem kalla munu á breytingar. Við lærðum margt tímum heimsfaraldurs og samkomutakmarkana. Fleiri þurftu að reiða sig á nærumhverfið til að þjóna daglegum þörfum. Borgarhverfin urðu áður óþekkt þungamiðja í hversdagslegu lífi fólks. Aukinn fjöldi fólks sinnti störfum og námi frá heimili sínu. Vafalaust verður aukin fjarvinna og fjarnám varanleg afleiðing heimsfaraldurs. Starfsmenn munu verja fleiri vinnudögum innan hverfa. Námsmenn munu verja fleiri námsstundum innan hverfa. Frekari forsendur skapast fyrir fjölbreytta hverfisþjónustu – fólk mun síður vilja sækja langt yfir skammt.
Hildur Björnsdóttir.
Aukin uppbygging innan úthverfa Borgarskipulag hefur órjúfanleg áhrif á lífsgæði. Það er samofið lýðheilsu og fjölbreyttum félagslegum þáttum. Með 15 mínútna hverfum má stytta ferðatíma og bæta lýðheilsu - gera fleirum kleift að sinna erindum gangandi eða hjólandi. Með lifandi nærþjónustu má ýta undir samskipti ólíkra þjóðfélagshópa - draga úr einsemd og félagslegri einangrun – skapa lifandi umhverfi þar sem fólk mætist og þekkist. En svo efla megi úthverfin og skapa auknar forsendur fyrir meiri þjónustu, þarf að veita aukið svigrúm til uppbyggingar innan hverfa sem hafa til þess svigrúm. Mikilvægt er að öll uppbygging fari fram í góðri sátt við íbúa og umhverfi.
Miðbær í öllum hverfum Víða um borg standa hverfiskjarnar og mega margir þeirra muna fífil sinn fegurri. Sjálfstæðisflokkurinn vill glæða kjarnana fyrra lífi með því að virkja einkaframtak og bæta skipulag. Borgin veiti atvinnurekendum sem hefja starfsemi í auðum hverfiskjörnum, styrki sem samsvara niðurfellingu opinberra gjalda í tvö ár. Þannig má skapa aukið mannlíf innan hverfa, efla nærþjónustu og einfalda daglegt líf íbúanna – tryggja öllum hverfum sinn eigin miðbæ.
Reykjavík þar sem fólki líður vel Sjálfstæðisflokkurinn vill Reykjavík sem býður frelsi og val. Fjölbreytta borg fyrir fjölbreytt fólk. Reykjavík sem mætir alls kyns þörfum. Sjálfbær hverfi með öflugri nærþjónustu. Borgarskipulag sem stuðlar að samskiptum. Reykjavík sem bannar minna og leyfir meira – styður við framtakssemi og fagnar hugmyndaauðgi. Borg sem setur þjónustu við fólk í forgrunn. Reykjavík þar sem fólki líður vel. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Sinna þarf málefnum Grafarholts og Úlfarsárdals - eftir Kjartan Magnússon Ágætu Grafhyltingar og Úlfdælingar! Ég hvet ykkur til að taka þátt í borgarstjórnarkosningum á laugardaginn og styðja það framboð, sem líklegast er til að vinna að málefnum Grafarholts og Úlfarsárdals, sem og Reykjavíkurborgar í heild. Núverandi borgarstjórnarmeirihluti er áhugalítill um málefni Grafarholts og Úlfarsárdals enda mæta þessi hverfi oft afgangi hjá honum.
Íbúabyggð verði í fyrirrúmi á M-22 reitnum. Leggja þarf ríka áherslu á græn svæði og góða íþrótta- og leikaðstöðu barna og unglinga. Bæta þarf þrif og fylgja eftir kröfum um góða umgengni og frágang á byggingarlóðum í Úlfarsárdal. Endurbæta þarf svæðið við Kirkjustétt og lagfæra lóð frístundaheimilisins Stjörnulands við Ingunnarskóla.
Sjálfstæðisflokkurinn mun sem fyrr leggja áherslu á að vinna fyrir öll hverfi borgarinnar. Við munum ekki gleyma eystri hverfunum heldur leggja áherslu á að þjóna íbúum þeirra sem best.
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t ffor.is .
VIÐ ÞJÓNUM ALL AN SÓL AR HR INGIN N
Tuga milljarða tafaskattur Vinstri meirihlutinn hefur með ýmsum hætti lagst gegn framkvæmdum, sem eru til þess fallnar að greiða fyrir umferð og auka umferðaröryggi í Reykjavík. Nefna má aðgerðir Samfylkingarinnar og fylgiflokka hennar til að spilla Sundabrautarverkefninu. Einnig neikvætt viðhorf vinstri stjórnarinnar til úrbóta á umferðarþungum gatnamótum í borginni, t.d. gatnamótum Miklubrautar-Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar-Bústaðavegar. Sýnt hefur verið fram á að kostnaður reykvískra heimila vegna óþarfra umferðartafa vinstri flokkanna nemur tugum milljarða króna árlega. Þessi tafaskattur leggst almennt mun þyngra á íbúa eystri hverfa en þá sem búa vestar í borginni. Greið og örugg umferð - XD Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á greiða umferð og umferðaröryggi, óháð fararmáta. Reykjavíkurborg á að standa við gerða samninga um Sundabraut og greiða fyrir lausn verkefnisins í stað þess að standa í vegi fyrir því eins og núverandi borgarstjóri
Kjartan Magnússon. hefur gert. Ráðast þarf í alvöru umbætur á fjölförnum gatnamótum í borginni, sem greiða fyrir umferð og auka umferðaröryggi. Almennt þarf að bæta umferðartengingar við GrafarholtÚlfarsárdal. Einnig þarf að auka umferðaröryggi og -flæði við gatnamót Víkurvegar, Reynisvatnsvegar og Þúsaldar annars vegar og Þúsaldar og Vínlandsleiðar hins vegar. Eflum þjónustu í hverfunum – XD Sjálfstæðisflokkurinn vill auka samráð við íbúa vegna þróunar byggðar. Standa þarf við loforð um uppbyggingu í Úlfarsárdal og Grafarholti svo hverfin verði sjálfbær varðandi margvíslega þjónustu, t.d. verslanir, kaffihús og æskulýðsstarfsemi. Samhliða stækkun Úlfarsárdals verði hugað að eflingu innviða, t.d. fjölgun leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Að sjálfsögðu á að heimila rekstur stórrar lágverðsverslunar við Bauhaus.
Íþróttir fyrir alla - XD Sjálfstæðisflokkurinn vill efla hverfisíþróttafélagið Fram og stuðla að því að það geti staðið fyrir enn kröftugra og fjölbreytilegra íþróttastarfi í Grafarholti og Úlfarsárdal. Bæta þarf samgönguþjónustu við börn og unglinga í íþróttastarfi, t.d. með betri strætisvagnasamgöngum og hjólaleiðum. Þá þarf að fjölga bílastæðum við sundlaugina og íþróttamannvirki Fram í Úlfarsárdal. Betri snjómokstur - XD Snjóruðningur og -hreinsun voru óviðunandi í Grafarholti og Úlfarsárdal í vetur. Sjálfstæðisflokkurinn heitir því að bæta skipulag og stjórnun snjóruðnings í borginni. Einnig verður að bæta sorphirðu, umhirðu grenndargáma og almenn þrif í hverfinu. Eldri borgara kjarni - XD Byggja þarf þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara í Grafarholti-Úlfarsárdal og úthluta lóðum undir fjölbýlishús eldri íbúa í tengslum við hana. Efla þarf frístundastarf eldri borgara í hverfinu og kanna m.a. möguleika á golfaðstöðu fyrir þá við Úlfarsá. Kjartan Magnússon er í þriðja sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6.5.2022 14:21 Page 9
Alllt fy yrir v vorv verk kin Lavor Predator 180 Digital háþrýstidæla Mótor 2500W Þrýstingur: 180 bör Vansflæði: 510 l/kls
7189.995 .996 996 Áður
2 20
%
20
%
kr.
MOWER CJ20G G
AFMÆLLISAFSLÁTTUR
20
%
33 356
AFMÆLISAFSLÁTTUR
Sláttuvél m/drifi, Briggs&Stratton mótor, rúmtak 150C CC, skurðarvíddd 51cm 20‘‘ Safnpooki að aftan 65L, hliðaarútskilun. Skurððhæð mm/8
AFMÆLISAFSLÁTTUR
r 995
5
20 0
%
Kalibe er ferðagasgrill g
2 20
%
AFMÆLISAFS SLÁTTUR
r 3.695
A AFMÆLISAFSLÁTTUR
2329.995 2 23.9 996 9 29 995 95
en FBC310
ð
Sláttuorf: 1cylinderr lloftkældur mótor. 0,7 kW Rúmtak 31CC, Stærð 0, ben ensíntanks 0,65 L
Greinakl 180mm
f
1
Á Áður
25.35 25 56
695
Grask 5kg Graskorn
Kalliber Silv ver II gassgrill
2.155 2.155
Blák ákorn 7kgg
3.45 45 55
2.3 385
on! i s i v Euro stilboð li afmæ
Áðður 31.6 695 kr.
Meisteer Ruslapoki PopUpp 160litr
k kr kr.
20
%
3 breennarar, (9 kW) Grillfflötur 54x41,5cm
Pretull ggreinaklippur
1.1 .15 59
38 8.7 9 6 48.495 Áðurr
AFMÆLISAFSLÁTTUR
kr.
Grasklippur 330mm
1.795 795
Greinaklipppur 480mm Ø= =22m mm Hnjápúði fyrir garðin
895
Truper p ð ggarðverkefæri 4 í settii
Strákústur 30 30cm
955 55
2 355
1.995 5 Garðverkfærassett Klórra, skófla og greinnaklippu
Öflugar hjólbörur 90 lítraa
9 596 9.596
3 116 3.116 6
Áður 3.895 3 895 kr.
20
%
Stök garðverkfæri Verð ffrá kr. 425
20
13 325
%
A AFMÆLISAFSLÁTTUR
AFMÆLISAFSLÁTTUR
a flöt
1 Garðhansk Flow Flower
Hjólbörur 80L
6 795
PREMIUM M
T
195
9 Kantskkeri
2 190 2.1 1 M
1. 5
Weber staurasteypa
1. 5
2
Vörumyndir sýna ekki endilega lægsta verð
Þyyngd: 15kg
1.085 085 Truper
bs
Stu
SENDUM M UM M LAND ALLLT LAN T!
www. ww.murb budin din.is
Go ott verrð ffyyrir alla í
20ár
2002 – 2022
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 21:40 Page 10
10
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Er ekki bara best að leyfa Bónusverslun við Bauhaus? - eftir Helga Áss Grétarsson sem skipar 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
Borgarskipulag verður að feta ákveðið einstigi eigi það að virka sem skyldi. Auðvitað á að taka mið af kraumandi potti hugmynda um hvernig borg geti þróast á farsælan hátt, en háleitar hugsjónir um framtíðina mega ekki vera slíkar að það hindri fólk í að láta hversdaginn ganga upp. Sitjandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur hefur því miður fallið í þá gryfju að etja einstökum hópum í borginni upp hver á móti öðrum eftir því hvernig þeir kjósa að haga sínu lífi. Oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík nefndi þetta einhvern tíma menningarstríð. Það er réttnefni. Skipulagssaga Grafarholts rifjuð upp Á opnum íbúafundi í Úlfarsárdal hinn 16. febrúar sl. var borgarstjóri spurður út í skort á matvöruverslunum í Grafarholti og Úlfarsárdal en viðkomandi fyrirspyrjandi vildi helst verslun í hverfið þar sem íbúar gætu labbað til og frá. Í svari borgarstjóra rifjaði hann m.a. upp skipulagssaga Grafarholts, en R-listinn skipulagði það hverfi, og vísaði hann til þess að „...það var gert ráð fyrir hverfiskjarna inn í miðju [en] síðan fyrir eiginlega pennaglöp í aðalskipulaginu þá höfðu menn ekki áttað sig á því að það var í
raun óbeint leyfilegt að vera með búð í jaðri hverfisins“. Þessi handvömm í skipulagi gerðu að verkum að í jaðri Grafarholts (Þjóðhildarstígsreiturinn, þar sem Krónan og KFC eru meðal annars) hefur um langt árabil verið starfræktur fremur smár verslunarkjarni. Eftir að sá kjarni hóf starfsemi sína reyndist útilokað að koma á fullnægjandi atvinnu- og verslunarrekstri í gang í miðju hverfisins við Kirkjustétt. Útilokað hefur því verið að miðjusetja verslunarstarfsemina í Grafarholti sjálfu. Hvað sagði borgarstjóri um Bónus í Bauhaus? Svo sem rakið var í grein minni í fjórða og síðasta tbl. Grafarholtsblaðsins (apríl 2022) þá er í gildandi skipulagi eingöngu gert ráð fyrir fremur litlu húsnæði fyrir matvöruverslun í Úlfarsárdal og ólíklegt að þar rísi upp verslun öflugrar matvörukeðju. Í því samhengi er upplýsandi að á áðurnefndum íbúafundi lýsti einn fundargesta því að hann færi núna í Garðabæ til að versla í matinn og kom furðu sinni á framfæri á því að Bónus væri ekki leyft að starfa næst Bauhaus
en bæði fyrirtækin hafa óskað eftir slíkri skipulagsbreytingu. Um þetta atriði sagði borgarstjóri m.a. „ef við viljum verslunina inn í hverfinu þá eigum við að fara varlega að leyfa hana í útjaðri hverfisins vegna þess að þetta vinnur hvað gegn öðru“. Því næst ræddi borgarstjóra um þá hugmynd að lítil verslunarhúsnæði inn í hverfum væri nú til dags eftirsóknarverð og mögulega sæju matvörukveðjur sóknarfæri þar, t.d. hefði Bónus komið lítilli matvöruverslun á fót í Skipholti.
verið að tala um hverfi sem hefur töluvert fleiri íbúa ásamt því að mun meira af ferðamönnum dveljast þar tímabundið. Það er því eins og bera saman epli og appelsínu að bera saman rekstrarskilyrði lítillar lágvöruverslunar í Skipholti annars vegar og í Úlfarsárdal hins vegar. Spurningunni sem þarf að svara Sá sem heldur hér á penna er að starfa í stjórnmálum til að leysa raunveruleg vandamál sem venjulegt fólk upplifir á hverjum degi. Fordómar gagnvart notkun einkaökutækja – þegar enginn annar raunhæfur valkostur er fyrir hendi - eiga ekki að girða fyrir það að skipulagi sé breytt og stórri Bónusverslun sé leyft að hefja göngu sína í nálægð við Bauhaus. Bílastæðin þar eru næg og breyting á skipulagi í þessa veru er eina nærtæka leiðin til að slá margar flugur í einu höggi.
Helgi Áss Grétarsson skipar 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarEinmitt það já. kosningum. Er það virkilega svo að verslunar- verslunar í Úlfars-árdal? reksturinn í Skip-holti sé samanAugljóst má vera að í Skipholti er burðarhæfur við rekstur lágvöru-
Það ætti því að vera best að leyfa Bónus-verslun við Bauhaus. Helgi Áss skipar 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar sem haldnar verða 14. maí 2022.
PROOPTIK.IS
2 FYRIR 1 af margskiptum glerjum
FRÍ LING SJÓNMÆ P VIÐ KAU UM Á GLERJ
SÍMI: 5 700 900
KÍKTU VIÐ OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! PROOPTIK - SPÖNGINNI
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 15:44 Page 21
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 7.5.2022 11:25 Page 12
12
Mataruppskriftir
Pönnusteikt lúða með kartöflum og tómötum í sinnepssósu
Pönnusteikt lúða með steiktum kartöflum og tómötum í sinnepsrjóma. Prófaði að elda þennan líka dásamlega lúðurétt sem birtist á youtube og ég verð að segja að hann kítlar gjörsamlega bragðlaukana og er alveg meiriháttar. Fyrir 4 700 gr. Lúða, roðflett og skorin í hæfileg stykki eða steikur. 8-10 smáar kartöflur með hýðinu. 1,5 bolli kirsuberjatómatar skornir til helminga. ½ bolli grænar ólífur
1 dós sýrður rjómi 4 msk. heilkorna dijon sinnep Salt og pipar eftir smekk
saman. Sítrónupipar
Bætið klettasalatinu saman við kartöflurnar, ólífurnar og tómatana og hristið vel saman.
Olía til steikingar Ólífuolía 1 - 2 msk. smjör
Bætið sýrða rjómanum sinnepinusaman við. Takið til hliðar.
4 hvítlauksrif, kramin
Ferskt blóðberg Aðferð Setjið kartöflur í pott, saltið og sjóðið í 10 mínútur.
Heilar olífur og tómatar skornir helminga og bætið þessu á pönnuna.
og
Takið roðið af lúðunni, skerið í mátuleg stykki, pennslið með olífuolíu, kryddið hana með sjávarsalti, hvítum pipar og strónupipar
Góð skvetta af sítrónusafa
Síðan eru kartöflurnar skornar í fjóra hluta og þær steiktar á pönnu í olíu. Saltið og piprið eftir smekk.
1 poki klettasalat
Grafarholtsblaðið
til
Steikið í stutta stund og hristið vel
Steikið lúðuna á báðum hliðum á pönnu. Bætið þá á pönnuna smjörinu, krömdum hvítlauk og blóðberginu. Bætið svo góðri skvettu af sítrónusafa yfir á pönnuna nokkurn veginn í lok steikingar. Hristið saman og ausið aðeins yfir lúðustykkin. Setið kartöflunar og tómatana í sinnepsrjómanum út á lúðuna og berið fram Verði ykkur að góðu!
Grafarholtsblaðið Ritstjórn/Auglýsingar Sími 698-2844 / 699-1322
Lúðurétturinn sem við kynnum hér er svo sannarlega þess virði að prófa hann því rétturinn er einfaldur og sérlega góður.
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 7.5.2022 11:43 Page 13
13
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Hvað ætlar þitt barn að gera í sumar? Í Myndlistaskólanum í Reykjavík er hafin skráning á sumarnámskeið fyrir börn sem haldin verða í júní og ágúst.
Börnin njóta sín vel á námskeiðum hjá Myndlistarskólanum.
Listaverk barnanna eru skemmtileg og glæsileg.
#$#" %
$ # #% % # % $
%
%
%
%%%$#" % # $ #%
Í JL-húsinu, Hringbraut 121 er boðið upp á námskeið fyrir þrjá aldurshópa; sex til níu ára, tíu til tólf ára og þrettán til sextán ára. Í útibúi skólans á Korpúlfsstöðum er boðið upp á námskeið fyrir tvo aldurshópa; sex til níu ára og tíu til tólf ára.
Í sumar ver ur starfsemii frístundaheimila fyrir börn úr 1. - 4. bekk í:
Dagskráin er fjölbreytt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Námskeiðin eru ýmist kennd fyrir eða eftir hádegi og standa í eina viku, að undanskildu einu tveggja vikna námskeiði í keramiki. Unnin eru fjölbreytt verkefni, bæði tvívíð og þrívíð og börnin kynnast margvíslegu efni og aðferðum. Auk þess er farið í vettvangsferðir og jafnvel unnið utandyra þegar veður leyfir. Meðal þess sem í boði er má nefna námskeiðin Skrímslasmiðju, Ævintýri og upplifun, Náttúru og fjöru, Jurtaliti og náttúru, List og vísindi, Teikningu og grafík, Leirmótun og rennslu, Myndlist og bókagerð, Ljósmyndun og Manga teikningu. hefjast námskeiðin Fyrstu mánudaginn 13. júní. Skráning stendur yfir á heimasíðu skólans, www.mir.is
Brosbæ í Engjaskóla
Simba sæffaara í Hamraskóla
Fjósi vi Sæmundarskóla
Stjörnuland vi Ingunnarskóla
Hvergilandi í Borgaskóla
Tígrisbæ vi Rimaskóla
Kastala í Húsaskóla
Töfrasel vi Árbæjarskóla
Regnbogalandi í Foldaskóla
Ví isel í Selásskóla
Sumarstarfi fi byggir á áralangri reynslu og alllir starfs fsmenn hafa fa starfa fa me börrnnum í fr frístundaahheim milum. Ger er og dagskrá fyrir hverrjja viku ku sem byggir á fr frjálsuum leik, hreyffiingu, útiveru, skapaanndi starfi fi, smi j jum, emadögum fer um og msum ævint rum n í nærumhverfi finu og o um borrgina sem mi ast vi aldurshópinn. Áhersla er lög á a virk rkja börrnin til ákvar anaattöku um hina msu ætti t starfs s fsins. Vi dagskrárger er reynt a hafa fa mismunanddi dagskrá a fyrir fy mila var andi börnin úr 3. og 4. bekk t.d. til ess a fa ólíka aldurshópa og samstarf milli fr frístundaheim farra í lengri fe fer ir og fá meira kreffjjandi vi fa fangsefn fni. Allarr náánnari uppl singar er a fi finna á htt ttps:// //fr fristund.is/
Allir sta ir opnir: 9. júní - 10. júní 13. júní - 16. júní 20. júní 24. júní 27. júní - 1. júlí 4. júlí 8. júlí
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur
Töfrasel: 2 ágúst 5. ágúst 2.
Allir sta ir opnir: 8. 8 ágúst - 12. ágúst ú t - 19 út 19. áágúst 155. áágúst
Uppl. í síma 698-2844
$#" % # $ #% $# % " % % %
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 7.5.2022 12:00 Page 14
14
VILTU SELJA FA FASTEIGN? A
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Austurheiðar - hin nýja Heiðmörk - eftir Söru Björgu Sigurðardóttur varaborgarfulltrúa sem skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar
Hólmar Björn Sigþórsson S Löggiltur gg faste eignasali g
Sími: 893 3276 | holmar@helgafellfasteignasala.is g g
Í borginni eru margir staðir til að næra sál og líkama. Mörgum finnst gott að ganga, finna lyktina af náttúrunni og njóta útsýnis. Öðrum finnst skemmtilegra að hjóla, vera í síbreytilegu umhverfi innan borgarmarkanna, hjóla meðfram sjónum með vindinn í fangið, upplifa sólsetur með sjávarlykt eða horfa á borgina vakna í hversdagsleikann í upphafi vinnuviku. Á síðustu tíu árum
hefur orðið umbreyting á ferðavenjum borgarbúa eftir mikla uppbyggingu á innviðum hjólastíga og með tilkomu rafhjóla. Á síðasta kjörtímabili var tekin pólitísk ákvörðun í ráðhúsinu, undir forystu Samfylkingar, að forgangsraða fjármunum í hjólreiðainnviði fyrir fjölbreytta vistvæna ferðamáta, fyrst með hjólreiðaáætlun 2015-2020 og svo var samþykkt ný hjólreiðaáætlun sem gildir fyrir árin 2021-2025. Tröppu þrek upp Svarthöfða Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal eru mjög heppnir með stígakerfið í jaðri byggðar við upphaf Austurheiðar sem tengir þá við Grafarvog bæði að sunnan og norðan. Þaðan er stutt í frábæra strandstíga meðfram sjónum en núna er geggjaður strandstígur komin fyrir Gufuneshöfða er án vafa einn fallegasti stígur borgarinnar. Aðgreindur stígur gangandi og hjólandi var byggður upp Svarthöfða og tekinn í notkun í lok síðasta árs, þannig geta vaskir tekið gott tröppuþrek eða hjólaklifur upp Svarthöfða og notið útsýnis yfir borgina.
VELKOMIN Í URÐARAPÓTEK Okkar metnaður er að veita ávallt faglega og góða þjónustu
Hlökkum til að sjá þig! Vínlandsleið 16
Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00
Grafarholti urdarapotek.is
Útsýnispallur á toppi Úlfarsfells Útsýnispallur á Stórahnjúki á toppi Úlfarsfells í Mosfellsbæ er vinsæll áfangastaður fyrir göngu-, hjóla- og hlaupahópa en Neyðarlínan, RÚV og Vodafone stóðu saman að byggingu pallsins en fjórum fræðsluskiltum hefur verið komið fyrir á honum. Á þeim má sjá öll þau örnefni sem blasa við. Á pallinum er einnig afdrep þar sem fólk getur sest niður. Útsýnið af Úlfarsfelli yfir höfuðborgarsvæðið og Faxaflóa er stórbrotið en fjölmargar leiðir eru upp á 296 metra hátt fellið. Austurheiðar - Hin nýja Heiðmörk Reykvíkinga Við í Samfylkingunni viljum efla Austurheiðar með markvissari hætti sem fjölbreytt og aðgengilegt útivistarsvæði fyrir borgarbúa á öllum aldri með ólík áhugamál sem gætu notið útivistar og náttúru án þess að ganga á gjafir náttúrunnar. Við sjáum fyrir okkar hópa eins og hestafólk,
fjalla hjólreiðamenn, göngu og utanvegahlaup jafnvel vetraríþróttir eins og gönguskíði. Mikilvægt er að ákvarða og skilgreina legu helstu vegtenginga og göngu-, hjóla og reiðleiða um svæðið, styrkja tengingu byggðar við útivistarsvæði og aðliggjandi svæða eins og Rauðavatn þannig að hægt verði að stunda fjölbreytta útivist allt árið um kring. Fjárfesting í sterkari og sjálfbærari hverfum Samfylkingin hefur sterka og skýra framtíðarsýn á þróun hverfa borgarinnar. Við viljum forgangsraða fjármagni í þau hverfi sem fyrir eru og nýta þá innviði sem búið er að fjárfesta í með áframhaldandi uppbyggingu í
Sara Björg Sigurðardóttir er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar og skipar 7. sæti á lista flokksins. stað þess að þenja byggðina út strax með nýrri uppbyggingu. Við viljum fjárfesta þar sem fólk býr en ekki þar sem enginn býr. Gerum Austurheiðar að nýju Heiðmörk Reykvíkinga og setjum X við S þann 14. maí 2022. Höfundur er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, búsett í Breiðholti og skipar 7. sæti á lista Samfylkingar fyrir borgarstjórnarkosningarnar 14. maí 2022.
Grafarholtsblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími 698-2844
Sími 577 1770
Lumar þú á frétt úr hverfinu? - Grafarholtsblaðið er á skrautas.is
Ef þú lesandi góður lumar á góðri frétt eða hugmynd að efni í Grafarholtssblaðið þá hafðu endilega samband við okkur. Við tökum glöð á móti tillögum að efni í blaðið og allar ábendingar eru vel þegnar. Ef þeir sem hafa samband við okkur óska nafnleyndar þá verðum við að sjálfsögðu við því. Hægt er að hafa samband við okkur í síma 698-2844 eða 699-1322 og einnig er hægt að senda okkur tölvupóst á gv@skrautas.is Öll Grafarholtssblöð, mörg ár aftur í tímann, er hægt að sjá á tölvutæku formi og fletta blöðunum á www.skrautas.is
Við tökum við ábendingum um efni í blaðið í símum 698-2844 eða 699-1322 og á ghb@skrautas.is
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 00:38 Page 15
15
Grafarholtsblaðið Reykjavíkurborg hefur á liðnu kjörtímabili stóraukið framlög til velferðarmála, sett sér bæði lýðheilsustefnu og velferðarstefnu. Við höfum lagt áherslu á geðheilsu og öflugan stuðning við börn og fjölskyldur í vanda en líka að stuðla að aukinni vellíðan íbúa almennt. Stuðningsþjónusta hefur verið efld en hun veitir fjölmörgum m.a börnum tækifæri til að taka þátt í frístundum, stykja sig og sína hæfileika. Halda þarf áfram á þessari braut, hækka frístundastyrkinn og fjárfesta í innviðum í gömlum hverfum þannig að umgjörð um mikilvæga þjónustu við börn og fjölskyldur verði betri og öruggari. Það ætlar Samfylkingin áfram að gera, Úlfarsárdalur og Grafarholt eru sannarlega hverfi sem eru að eflast og styrkjast. Aðstaða til íþróttaiðkunar, sundlaug og bókasafn er hér til fyrirmyndar. Börn og fjölskyldur Ein stærsta aðgerð aðgerðaáætlunar gegn sára fátækt var að tryggja börnum
Barnaborgin
Fréttir
- eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur sem skipar 2. sætið á lista Samfylkingarinnar notenda fjárhagsaðstoðar gjaldfrjálsa, leikskóla og dvöl á frístundaheimili auk skólamáltíða. Áður höfðum við lækkað greiðslur þannig að barnmargar fjölskyldur greiða nú aðeins námsgjald fyrir eitt barn og fæðisgjald fyrir tvö börn, þvert á skólastig óháð barnafjölda. Námsgögn eru nú afhent í skólunum, unglingar fá spjaldtölvur og þar geta börn nálgast túrvörur. Á þessu ári er verið að innleiða breytt verklag í þjónustu við börn sem þurfa aukinn
Kjósum Sjálfstæðisflokkinn 14. maí og tryggjum að hinn baráttuglaði Helgi Ásss nái kjöri í borgarstjórn
stuðning um alla borg, það felur í sér þverfaglegan stuðning sem veittur er hratt og vel í umhverfi barnanna. Fjárframlög til skóla hafa verið hækkuð og eru nú einnig ákvörðuð út frá félagslegri samsetningu hverfis þannig að þar sem áskoranir eru meiri sé til fjármagn til að mæta þeim. Reykjavík er á réttri leið Ég er því stolt af þeim skrefum sem við í meirihluta borgarstjórnar höfum tekið á þessu kjörtímabili til að stuðla að velferð reykvíkinga en það er
mikilvægt að halda áfram. Minn draumur er að á Islandi þróist velferðarsamfélag sem styður hratt og vel við fólk sem þarf stuðning. Þar er Reykjavík mikilvægur hlekkur og óendanlega mikilvægt að henni sé stýrt af fólki sem aðhyllist jöfnuð og jafnrétti. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar, skipar 2. sæti á lista flokksins í Reykjavík
Heiða Björg Hilmisdóttir er í 2. sæti Samfylkingar fyrir kosningarnar 14. maí.
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 7.5.2022 12:23 Page 16
BOLTA TATILBOÐ Á ÖLLUM LEIKJUM Í BEINNI
12” PIZZA M. 2. ÁLEGGJUM 1.990 KR.
PIZZA& SHAKE 3.790 KR.
VENJULEGIR KJÚKLINGAVVÆNGIR 10 STK. / 20 STK. 1.490 KR. / 2.490 KR.
EÐLA MEÐ NACHOS 1.590 KR.
GOS MEÐ ÁFYLLINGGU 290 KR.
STÓR Á KRANA 990 KR.
– SPENNANDI VIÐBURÐIR Í HVERJUM MÁNUÐI –
ALLTTAF GAMA A N OG ALLLTTAF GOTT VEÐÐUR Fylgstu með dagskránni á Facebooksíðu Keiluhallarinnar. facebook.com/keiluhollin Bókaðu borð tímanlega á kei e luhollin@keiluhollin.is
-LONG SING-A
P Ö B B Q UI Z ME Ð HJÁLMARI & HELGA
Hörður og Pétur úr Bandmönnum halda h uppi upppi p stuði ogg s temninggu á sinn i einstaka i hátt. át
STÓR ÓR S K E MM T IL E G T FÓTBOLTTAA-QUIZ FÓ HJÖRVVAARS HAFLIÐA
N GUÐRÚ ÁR NÝ
DDJ. J. ÓÓRA RA ÚLÍÍAA
PÖBB QUIZ
NEI. HÆTTU NÚ ALVEG VILLI NAGLBÍTUR
HEIMTÖÖKUTILBOÐ SHAKE&PIZZA
EIN, TVVÆ ÆR OG FRÍ PIZZA EF ÞÚ SÆKIR
EINN, TVEIR OG FRÍÍRR SHAKE EF ÞÚ SÆKIR
EIN PIZZA OG SVO ÖNNUR Á 1.000 KR.
– BORGAR EKKI FYRIR ÓDÝRUSTU PIZZUNA
– GILDIR EKKI AF ÁFENGUM SHAKE-UM
KAUPIR PIZZU AF MAATTSEÐLI OG BÆTIR ANNARRI VIÐ Á 1.000 KR. – BORGAR F YRIR DÝRARI PIZZUNA
shakepizza.is
# shakeandpizza