Skip to main content

Arbaejarbladid 3.tbl. 2009

Page 1

Árbæjarblaðið 3. tbl. 7. árg. 2009 mars

Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti

Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 115 – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is

... ...ég ég

æfi! æfi! Árbæjarþrek • Fylkishöll Fylkisvegur 6 • Sími: 567-6471 www.threk.is / threk@threk.is

Glæsilegar konur á Konukvöldi Fylkis sem haldið var að venju í Góubyrjun í Fylkishöllinni og þótti takast mjög vel. Við segjum nánar frá Konukvöldinu í næsta blaði í apríl. ÁB-mynd EÁ

Tjónaskoðun . bílamálun . réttingar

Breidd 15,1 cm - Hæð 4,6 cm

Bæjarflöt 10 - 112 Reykjavík Sími 567 8686 info@kar.is www.kar.is Hafðu samband eða kíktu í heimsókn - Frí tjónaskoðun Vottað réttingarverkstæði - Samningar við öll tryggingarfélög

takt Gsm

Glæsileg flugubox fyrir veiðimenn Frá 15 til 26 flugur í boxi Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Sjá nánar á Krafla.is - Sími 698-2844

Pantið tíma í síma 511–1551 Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3

2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingastjóri: Þorvarður Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 (660 fyrirtæki).

Styttist í vorið Það eru ekki nema nokkrir dagar í jafndægur á vori og upp frá þeim tímamótum fer dagurinn að verða lengri en nóttin. Veturinn hefur reynst mörgum erfiður og alveg er hægt að fullyrða að langt er síðan leiðinlegri vetur hefur á okkur dunið. Kreppan er ekki skemmtileg og þaðan af síður endalausar fréttir fjölmiðla af hinu og þessu tengdu kreppunni. Margir eru orðnir langþreyttir eftir jákvæðum fréttum og því var það einstaklega vel til fundið á dögunum þegar Bylgjan lagði heila viku undir jákvæðar fréttir. Mættu aðrir fjölmiðlar taka sér Bylgjuna til fyrirmyndar og þá sérstaklega síðdegisútvarp Bylgjunnar sem er til stakrar fyrirmyndar og reyndar í algjörum sérflokki. Talandi um fjölmiðla. Hlusta oft á morgnana á Útvarp Sögu. Þar ræður Sigurður G. Tómasson ríkjum og er hann án efa einn allra skemmtilegasti og fróðasti útvarpsmaður landsins. Hvet ég þá sem enn eiga útvarp og nenna að og hafa tíma til að hlusta og stilla á Sigurð morgunlangt frá klukkan níu til elefu. Framundan hljóta að vera eitthvað skárri tímar. Nú fer að hylla undir vaxtalækkun og fleira jákvætt. Von er á afgreiðslu mikilvægra mála á alþingi ef sjálfstæðismen sem ekki virðast lifa í nútimanum, láta af barnaskap sínum. Reyndar undarlegt hvernig sjálfstæðismenn hafa hagað sér á alþingi undanfarið. Á sama tíma og þjóðin bíður banhungruð eftir aðgerðum í kreppunni og hefur reyndar beðið eftir slíkum aðgerðum mánuðum saman, beita þingmenn sjálfstæðisflokksins málþófi. Eitthvað segir mér að það eigi margt misfallegt eftir að koma í ljós áður en rannsókn lýkur á kreppunni og aðdraganda hennar. Þjóðin bíður og vonar að þeir sem hafa farið ógætilega verði látnir sæta ábyrgð. Reyndar eru þeir margir sem trúa því að ekkert muni koma út úr þessum rannsóknum en við verðum að lifa í voninni. Stefán Kristjánsson, ritstjóri Árbæjarblaðsins

abl@skrautas.is

Framkvæmdir eru í gangi við byggingu KFC matsölustaðar í Grafarholti í næsta nágrenni Nóatúns og Gullhamra. ÁB-mynd PS

KFC opnar í Grafarholtinu

Unnendur KFC kjúklingastaðarins í Grafarholti og nágrenni geta tekið gleði sína því nýr KFC matsölustaður mun opna í Grafarholtinu í sumar.

Staðurinn verður í næsta nágrenni Nóatúns og Gullhamra

Hér er mynd af iðkendum Fylkis í öllum aldursflokkum frá 7. Fl. upp í meistaraflokk. Aftari röð frá vinstri til hægri : María Kristjánsdóttir, Helga Maren Pálsdóttir, Svava Helgadóttir, Rut Ingvarsdóttir, Selma Gestsdóttir, Sandra Kristin Skúladóttir. Fremri röð frá vinstri : Erla Hrönn Gylfadóttir, Katrín Lára Garðarsdóttir, Lilja Vigdís Davíðsdóttir, Nína Björk Grétarsdóttir, Diljá Mjöll Davíðsdóttir.Tvær minnstu fremst: Birta Líf Þórarinsdóttir og Hrefna Svavarsdóttir. ÁB-Mynd EÁ

Heiður fyrir frábært starf

Fylkir hlaut kvennabikarinn fyrir árið 2008 og var hann afhentur á 63. ársþingi KSÍ. Árbæingar hafa staðið einkar vel að málum varðandi kvennaknatt-

spyrnu og eru vel að kvennabikarnum komnir. Það var Guðrún Hjartardóttir sem tók við bikarnum fyrir hönd félagsins úr hendi Geirs Þorsteinssonar,

formanns KSÍ. Þetta er mikill heiður og viðurkenning fyrir kvennaboltann, en að baki liggur mikil vinna iðkenda,foreldra, og þeirra sem stjórna og þá ekki síst þjálfaranna.

Þorir Samfylkingin að gera upp fortíð sína? Sjálfstæðismenn hafa hafið gangrýna naflaskoðun á aðdraganda bankahrunsins í svokallaðri endurreisnarnefnd flokksins undir forystu Sigurðar Arnar Ágústssonar. Öllum steinum er velt og forystan situr undir harðri gagnrýni. Þar með hefur flokkurinn tekið forystu um naflaskoðun því enginn annar stjórnmálaflokkur hefur sýnt slíka dirfsku. Í drögum að hispurslausri gagnrýni á forystu flokksins segir í inngangi: ,,Hagur þjóðarinnar hlýtur alltaf að sitja í fyrirrúmi hjá sjálfstæðismönnum og því á flokkurinn að vera óhræddur að greina mistök seinustu ára og forystumanna flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn er hafinn yfir persónur og leikendur, hann er til fyrir fólkið í landinu og fólkið í landinu þarfnast þess mjög núna að sú stefna sem flokkurinn stendur fyrir nái fram að ganga, en taki tillit til þeirrar gagnrýni sem hér er framsett. Þá mun Ísland verða fljótara en ella að ná sér á

strik. Frelsi með ábyrgð, þar sem einkaframtak, öflug samkeppni og atvinnufrelsi er í hávegum haft, mun fljótt skila dugmikilli og kjarkaðri þjóð í fremstu röð á nýjan leik.’’ Sjálfstæðismenn líta í eigin barm undir kjörorðunum ,,uppgjör og lærdómur’’. Framganga Sigurðar Arnar hefur vakið mikla athygli. Aldrei hefur íslenskur stjórnmálaflokkur horfst í augu við fortíð sína á jafn heiðarlegan hátt. En ólíkt hafast hinir pólitísku flokkar að, því auðvitað hljóta þeir allir að líta í eigin barm um eigin fortíð. Hvernig stendur til dæmis á því að auðhringar urðu alls ráðandi bak við luktar dyr og kúguðu stjórnvöld? Hvernig stendur á því að auðhringar og eigendur bankanna eignuðust alla einkarekna fjölmiðla sem pukrunarlaust mærðu útrásina, lofuðu fjárglæframenn og börðu á réttbærum yfirvöldum - hvort heldur áttu í hlut fjármálaeftirlit, saksóknarar eða lögregla?

Borgarnesræðan markaði bandalagið með Baugi Fyrst kemur til skoðunar bandalag Baugs og Samfylkingarinnar. Með Borgarnesræðu hófust nornaveiðar sem ekki eiga sinn líka í íslenskri sögu. Ingibjörg Sólrún brá sér í larfa Gróu frá Leiti á útmánuðum 2003. Nokkrum dögum eftir ræðuna í Borgarnesi hóf Fréttablaðið árásir á Davíð Oddsson með fundargerð úr Baugi sem sönnunargagn! Því var pukrunarlaust haldið fram að Davíð hefði staðið á bak við innrás lögreglu í Baug þegar sannleikurinn var sá að Jón Gerald Sullenberger hafði kært fóstbróðir sinn, Jón Ásgeir Jóhannesson, til lögreglu. Enginn mátti vita af eignarhaldi Baugs á Fréttablaðinu en tveimur árum síðar hafði auðhringurinn eignast alla helstu fjölmiðla landsins; 26 að tölu og sett blaðamenn þeirra í óþolandi stöðu. Samfylkingin veitti Baugi pólitískt skjól til þess að verjast rannsókn og saksókn réttbærra yfirvalda á sukki og

svínaríi Baugs. Samfylkingin háði harða baráttu gegn eignarhaldi auðmanna yfir fjölmiðlum. Og svo þegar Alþingi hafði samþykkt að koma böndum á auðmenn, þá kom forseti Íslands og afnám lögin - og steig að því loknu upp í einkaþotu Baugs. Carl J. Gränz. Þetta er dapurleg staðreynd. Þorir Samfylkingin að horfast í augu við fortíðina? Samfylkingin og forseti Íslands gengu í bandalag með forstokkuðum auðhring með leynifélög út og suður brjótandi lög og reglur samfélagsins.

Og þegar lögmæt yfirvöld gripu til aðgerða þá hvæstu Baugsmiðlarnir og her lögfræðinga barði á pasturlitlum saksóknurum og geðlitlum dómurum. Saksóknarinn heimsfrægi Eva Joly kannaðist við allt þetta í frábæru viðtali í Silfri Egils. Hún hafði tekist á við hvítflibbaglæpamenn sem siguðu her lögfræðinga á hendur henni og fjárfestu grimmt í fjölmiðlum til þess að ófrægja hana. Hún var ein á móti sextíu. Man einhver eftir lögfræðingastóði Baugs? Hvergi í siðuðum vestrænum samfélögum hefur pólitískur flokkur unnið leynt og ljóst með auðhring gegn réttbærum yfirvöldum líkt og Samfylkingin hefur í sex ár unnið með Baugi. Fróðlegt væri að vita hvort heilög Jóhanna hafi skýrt Evu Joly frá bandalagi Baugs og Samfylkingar? Er Samfylkingin reiðubúin að gera upp þessa fortíð sína? Carl J. Gränz

ÁGÆTU ÁRBÆINGAR! Ég bý að áralangri reynslu í stjórnmálum sem borgarfulltrúi, alþingismaður og ráðherra. Ég hef ávallt fylgt þeirri sannfæringu að stjórnmálamaður eigi að takast á við og leysa þau verkefni sem við er að glíma hverju sinni. Þannig vil ég vinna mitt starf. Ég vil láta verkin tala. Á 20 mánuðum sem heilbrigðisráðherra var mitt meginverkefni að bæta íslenska heilbrigðisþjónustu en mín beið það erfiða verkefni að hagræða í heilbrigðisþjónustunni og gæta um leið hagsmuna notendanna, fólksins í landinu. Sem heilbrigðisráðherra tókst mér að koma mörgum góðum málum í höfn: DSumarstarfsemi sjúkrastofnana samræmd þannig að ekki kom til alræmdra sumarlokana DKoma í veg fyrir næturvist sjúklinga á göngum Landspítala DEyða biðlistum á Landspítala eftir varanlegri vist á öldrunarstofnunum DStuðla að löngu tímabærum umbótum á rekstri BUGL DStuðla að því að rekstur Landspítala var nánast í jafnvægi á síðasta ári DSpara 1,5 milljarða í útgjöldum vegna lyfja og lækka lyfjakostnað sjúklinga DGera samkomulag við borgarstjóra um sameiningu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu í Reykjavík Sem leiðtogi Reykvíkinga mun ég setja hagsmuni borgarbúa í fyrsta sæti. Reykvíkingar hafa orðið verst úti í hremmingum undanfarinna mánaða og atvinnuleysi er hér einna mest. Nú skiptir máli að setja atvinnumál og fjármál heimilanna í fyrsta sæti. Ég vil halda áfram að láta verkin tala. Ég býð mig fram til áframhaldandi forystu í Reykjavík! Guðlaugur Þór Þórðarson, 1. þingmaður í Reykjavík norður

Ármúla 18 STÉTT MEÐ STÉTT

108 Reykjavík sími 568 www.gudlaugurthor.is Samstaða um endurreisn Ármúla 18 4876 108 Reykjavíkgth@gudlaugurthor.is sími 568 4876 gth@gudlaugurthor.is www.gudlaugurthor.is

4

Matur

Árbæjarblaðið

Grilluð gæs fyrir fjóra með góðri kartöflumús - að hætti Ingveldar og Jóns Kristins

Hjónin Ingveldur Gyða Kristinsdóttir og Jón Kristinn Jónsson eru matgæðingar Árbæjarblaðsins að þessu sinni. Þau elda oft villibráð og uppskrift þeirra hér er vel þess virði að prófa.

2 mínútur á seinni hliðinni. Takið hana þá af og pakkið hverju flaki inn í álpappír og látið standa við stofuhita í a.m.k. 15 mín. Rétt áður en gæsin er borin fram eru flökin tekin úr álpappírnum og þversneidd

Skora á Rósu og Sigurjón Ingveldur Gyða Kristinsdóttir og Jón Kristinn Jónsson, Grundarási 17, skora á Rósu Harðardóttur og Sigurjón Ingvarsson, Viðarási 71, að koma með uppskriftir í næsta matarþátt Árbæjarblaðsins. Við birtum gómsætar uppskriftir þeirra í næsta blaði sem kemur út í apríl.

Matgæðingarnir Ingveldur Gyða og Jón Kristinn ásamt dætrum sínum.

Framtíðin er eftir

Mér var kennt að allir gætu siglt í góðu veðri, ekki reyndi á sjómennskuna fyrr en á móti blési. Ég held að þetta séu orð að sönnu, það er í mótlætinu sem manngerðin kemur í ljós, það er þá sem reynir á. Þetta á við um okkur sem einstaklinga en ekki síður á þetta við um þjóðfélagið allt. Við Íslendingar höfum orðið fyrir miklu fjárhagslegu áfalli, fjármálakerfið hrundi og öll efnahagsstarfsemin hefur bögglast og beyglast. Nauðsynlegt er að við gerum okkur grein fyrir því hvað fór úrskeiðis og að tryggja að þeir sem kunna að hafa brotið lög verði látnir svara fyrir gerðir sínar. Ég er lítið hrifinn af þeirri ríkisstjórn sem nú situr en það er rétt að fagna því sem vel er gert. Ég held að ráðning Evu Joly sé jákvætt skref í átt til þess að skapa meira traust í samfélaginu. Án trausts verður allt uppbyggingarstarf svo miklu erfiðara.

ekki bara atvinnuleysið, við fjölda heimila blasir ekkert annað en gjaldþrot og missir húsnæðis. Jafnframt vofir sú hætta yfir að fyrirtæki sem nú virðast í þokkalegum rekstri missi fótanna ef kreppan dýpkar enn frekar. Við höfum vitan-

Illugi Gunnarsson, sem býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, skrifar:

Aðalatriðið er núna hvernig við ætlum að vinna okkur úr vandanum, hvernig ætlum við að skapa þau rúmlega 20.000 störf sem við þurfum til þess að koma okkur út úr atvinnuleysinu sem nú blasir við. Og það er

lega áhyggjur af orðspori okkar sem þjóðar, bæði erlendis en ekki síður hér heima. Ef við missum trúna á okkur sjálf, getu okkar og hæfileika, þá höfum við glatað miklu meiru en bara fjármálakerfinu. Auðvitað hefur orðspor okkar beðið hnekki, framhjá því verður ekki horft. En mín skoðun er sú að við verðum, þegar upp er staðið, ekki aðalega dæmd af því hvernig þessi ósköp bar að. Ég held að þyngra muni vega hvernig við bregðumst við, hvernig við leysum þann vanda sem nú er við að glíma. Við verðum metin af því hvernig okkur tekst að sigla í mótbyr og stór-

í c.a. 3 mm sneiðar.

ÁB-mynd PS

sjó. Ég hef þá sannfæringu að þjóðin okkar búi yfir öllum þeim hæfleikum og getu sem þarf til að reisa efnahagslífið við og koma málum okkar aftur haganlega fyrir. Við þurfum að sameinast um, hvert og eitt og þjóðin öll, að ræða saman og kalla eftir lausnum alls staðar að. Við megum ekki láta flokkadrætti og mismunandi pólitískar skoðanir eða hagsmuni ráða því á hvern er hlustað eða á hverjum er tekið mark. Við erum fámenn þjóð og við höfum ekki efni á neinu öðru en því að hlusta á hvort annað og tala saman. Þannig köllum við fram hugmyndir, þannig nýtum við þekkingu og frumkvæði. Stjórnmála- og embættismenn eru ágætir, en þeir jafnast aldrei á við allt það vit og afl sem býr með þjóðinni. Þau rúmlega 20.000 störf sem við þurfum verða ekki til á teikniborðum í ráðuneytum, sama hversu vel þar er unnið. Gefum þjóðinni olnbogarými til athafna og virkjum það afl sem býr með henni. Þá eigum við tækifæri til þess að leysa vandann. Illugi Gunnarsson

Hráefni: Sósan: Tími - 1 klst. 4 Gæsaflök. Caj P's grillsósa. Sætt sinnep. Timian eða villibráðarkrydd. Sósa: 3 skallott laukar. Smjör. Rauðvín, portvín eða koníak. Sveppir. Soð eða villibráðarkraftur frá Oscar. Gráðostur eða mysuostur. Bláberja eða rifsberjasulta. Rjómi. Salt og svartur pipar.

Laukarnir eru saxaðir mjög smátt og mýktir í smjörinu við vægan hita. Þegar laukurinn er orðin mjúkur er víninu bætt í og soðið niður í síróp. Þá er a.m.k.½ líter af soði bætt út í og látið malla við meðalhita. Steikið sveppina í smjöri og bætið þeim út í ásamt klípu af osti, sultu og kryddi allt eftir smekk hvers og eins. Látið þetta malla í minnst 20 mínútur og hrærið rólega í öðru hvoru. 5 -10 mínútum áður en sósan er borin fram er rjómanum bætt út í og aðeins soðið upp á henni.

Meðlæti: 2 pakkningar kartöflumús frá Þykkvabæjarkartöflum. 1 peli Rjómi. Hrásykur. Gratinostur. ½ sellerýrót. Smjör. 1 búnt fersk steinselja eða marjoram. Aðferð: Gæsin: Tími - 5 mín á grilli en allt að 30 mínútur í álpappír. Grillsósunni, sætu sinnepi og vel útilátnum skammti af timian hrært saman og gæsaflökin sett út í a.m.k. 3 tímum fyrir steikingu (ágætt að gera kvöldið áður). Lögurinn þarf að fljóta vel um gæsina og ágætt er að hreyfa hana öðru hvoru í leginum. Gæsin er síðan tekin úr leginum c.a. 15 mínútum áður en hún fer á grillið og krydduð með sörtum pipar. Hitið grillið vel upp og grillið gæsina 3 mínútur á fyrri hliðinni og

Skiptum um bremsuklossa og diska

Kartöflumúsin: Tími - 20 mínútur Setjið músina í skál og hrærið saman við hana rjóma og hrásykri eftir smekk. Smyrjið eldfast mót með olíu og jafnið músinni út í mótið. Stráið hrásykri yfir þannig að yfirborðið sé vel þakið og setjið inn í 200° heitan ofn í 15 mínútur. Takið þá músina út og stráið gratín osti yfir. Það má sleppa ostinum en hann gefur fallegt yfirbragð á músina en notið ekki of mikið af honum. Setjið músina aftur inn og bakið í 5 mín. í viðbót. Sellerýrót: Tími - 10 mínútur Skerið rótina í teninga og steikið við meðalhita í smjöri þangað til hún mýkist og léttbrúnast. Kryddið með salti, svörtum pipar og steinselju eða marjoram. Verði ykkur að góðu, Ingveldur og Jón Kristinn

69

Bónus flatkökur 5 stk 69 kr.

598 1998

ali ferskur kjúklingur

Merkt verð 998 kr./kg. 40% afsláttur 598 kr./kg.

euroshopper salthnetur 1 kg 198 kr.

Bónus hangiálegg

Merkt verð 2498 kr./kg. 20% afsláttur. 1998 kr./kg.

198

Bónus mjúkar kringlur 4 stk 198 kr.

198

1679 holta ferskar kjúklingaBringur Merkt verð 2798 kr./kg 40% afsláttur 1679 kr./kg.

198 159

359

Colgate tannkrem regular 100 ml 198 kr. Colgate ZigZag tannBursti medium 159 kr.

Bónus ferskir kjúklingaBitar Merkt verð 598 kr./kg. 40% afsláttur 359 kr./kg.

198

Bónus 3ja kornaBrauð 500g 198 kr.

523 198

Bónus BláBerja muffins 198 kr.

holta ferskur kjúklingur Merkt verð 872 kr./kg. 40% afsláttur 523 kr./kg.

399 kf nýtt kjötfars 399 kr./kg.

AFGREIÐSLUTÍMI: FIMMTUDAGUR 12.00 -18.30

6

Fréttir

Lengd: 25m

•

Árbæjarblaðið

Breidd: 12m

Sigurlið félagsmiðstöðvarinnar Ársels.

Ársel sigraði í söngkeppni Samfés Glæsilegir Árbæingar í félagsmiðstöðinni Árseli gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í Soöbgkeppni Samfés á dögunum. Stóðu krakkarnir sig

hreint frábærlega og við viljum nota tækifærið til að óska þeim til hamingju með glæsilegan árangur. Þess má svo geta að Félagsmiðstöðin Ár-

sel skipti um nafn á dögunum og heitir í dag Félagsmiðstöðin Tian.

Fjöldi gufu- og eimbaða: 1

Kæru sjálfstæðismenn. Fjöldi heitra potta: 5

Framundan eru mjög mikilvægar kosningar. Öflugur framboðslisti sjálfstæðismanna hér í Reykjavík er lykillinn að góðum árangri í vor. Ég vil hvetja ykkur til þess að taka þátt í prófkjörinu næstkomandi föstudag og laugardag og leita eftir stuðningi ykkar í 1. sæti. Byggingarár: 1994

ÁRBÆJARLAUG

I ER LAUGIN Í ÞÍNU HVERF

AFGREIÐSLUTÍMI A FGREIÐSLUTÍMI L LAUGAR AUGAR 30 – 22:30 Virka daga frá kl. 6 6:30 Helgar kl. 8:00 – 20:30

www.itr.is

ı

sími 411 5000

ILLUGI GUNNARSSON

1. SÆTI www.illugi.is

fyrst og fremst ódýr

50

43

%

%

r u t t á l afs

r u t t á l afs

9 4 13

8 9 3

kr. kg

kr. kg

r u g ó b a s í Gr korinn hrings

r i d n u l a s í Gr

A L A S T Ú AKJÖTI

N Í V S Á

40

% 8 3

%

998

899

ki Grísahinnaaðkur úrbe

ttur

s

e Grísakótil

33

%

50

%

r u t t á l s f a

afsláttur

998

349

kr. kg

kr. kg

ibs r/Spare R

el Grísasnitz

Krónan Krónan Krónan Krónan Krónan Árbæ Mosó Höfða Granda Akranesi

849

kr. kg

kr. kg

kr. kg

Grísagúlla

afsláttur

afsláttur

afsláttur

afsláttur

% 0 4

50

%

Svínarifju Krónan Krónan Breiðholti Lindir

Krónan Vestmannaeyjum

Krónan Reyðarfirði

199

kr. kg

kar

Grísaskan

Krónan Krónan Hvaleyrarbraut Reykjavíkurvegi

9

8

Fréttir

Árbæjarblaðið

Viðamiklar breytingar á verslunum Húsasmiðjunnar:

Leiðtogi verður að þora Stjórnmálamenn hljóta að hafa að markmiði að ná árangri í sínu starfi, ná fram hugsjónum sínum og vinna ötullega að velferð þjóðarinnar. Sjálfstæðismenn horfa til þess að á Íslandi þarf nú að ná tökum á efnahagsmálum, skuldum heimilanna og erfiðleikum fyrirtækjanna. Við vitum að Sjálfstæðisflokkurinn er best fallinn til að takast á við þessi verkefni og innan raða okkar flokks er mesta mannvalið og mesta þekkingin. Í þessum hópi er Guðlaugur Þór Þórðarson í fremstu víglínu góðra manna. Guðlaugur er þróttmikill, kjarkaður og fylginn sínum hugsjónum - hugsjónum sem eiga uppruna sinn í grundvallarstefnu Sjálfstæðisflokksins og hafa ávallt átt samhljóm með þjóðinni. Við sem höfum fylgst með Guðlaugi að störfum um margra ára skeið vitum að þar fer maður sem býr yfir mikilli reynslu og þekkingu. En hann hefur líka það sem mestu máli skiptir í stjórnmálum líðandi stundar: Kjark til að takast á við erfið verkefni og þor til að mæta andstæðum sjónarmiðum af festu. Þannig eru leiðtogar. Þeir verða að þora. Guðlaugur Þór Þórðarson sækist eftir 1. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hann á minn stuðning vísan. Björn Gíslason slökkviliðsmaður.

Úrlausnir í öldrunarþjónustu Öldruðum einstaklingum er að fjölga til muna í samfélaginu. Það er mjög ánægjulegt að heilbrigðiskerfið er að bæta heilbrigðisþjónustuna fyrir þann hóp einstaklinga. Staðreindin er að með betri, skilvirkari heilbrigðisþjónustu bættist lífsgæði og lengist líftími einstaklinga. Fólk er lengur virkt í starfi sem og í samfélaginu í heild. En þegar heilsan bregst þurfa einstaklingar á aðstoð okkar að halda. En hverning getum við þá aðstoðað alðraðra einstaklingana? Hvað er í boði? Ef fólk veikist alvarlega leggst það inn á sjúkrahús. Fólki batnar og útskrifast og fer síðan heim. En fyrstu dagarnir eru oftast frekar erfiðir. Sjúklingar eru en slappir og þreyttir eftir minnstu áreynslu, úthald er frekar litið eftir veikindi og lyfjagjöf. En oftast er lyfjameðferðinni haldið áfram heima eftir útskrift, sem og umbúðaskiptum á sárum. Þar kemur heimahjúkrun sterk inn til aðstoðar og til þess að fylgja þessum einstaklingum eftir með umönnum. En því miður vegna skorts á starfsfólki og fjarmagni er þessi þjónusta oft takmörkuð. Það þarf því að efla heimaþjónustuna til muna þannig að hún sé aðgengileg fyrir alla og létti undir með heilbirgðiskerfinu. Öryggi skiptir mestu máli fyrir einstaklinga á batavegi og fjölskyldur þeirra. Grazyna María.

Fréttir

Árbæjarblaðið

Timburmiðstöð opnuð og ráðgjafarþjónusta aukin

Fjör á öskudeginum.

Leikskólinn Blásalir nýtur návistar við óspillta náttúruna

Leikskólinn Blásalir er einn af leikskólunum í Árbæjarhverfinu. Hann var formlega opnaður í ágúst 2000 og er því á níunda starfsári. Frá upphafi hefur Margrét Elíasardóttir verið leiksskólastjóri en hún er nú í námsleyfi og við hennar starfi tók Elísabet Valgerður Magnúsdóttir. Leikskólinn er í jaðri byggðar og njóta börn og starfsfólk óspilltrar nátúrunnar eins og kostur er. Þannig er stutt í hesthúsin og móana hér í kring. Einnig er vinsælt að rölta niður á Rauðavatn eða taka göngutúr í dalinn. Það var ekki síst hin frábæra staðsetning og óþrjótandi möguleikar á útivistarsvæðum að Elísabet (Ella) og Sigrún réðust í gerð þróunarverkefnis sem þær kalla "út í bláinn". Í Blásölum dvelja að jafnaði 88 börn á aldrinum rúmlega 1 árs til 6 ára og er þeim skipt niður á fjórar deildir. Á yngri deildunum er hópastarf fjóra daga vikunnar. Í hópastarfi er unnið með ákveðið þema á hverjum tíma fyrir sig. Á eldri deildunum sem eru fyrir börn frá þriggja ára aldri er hópastarf tvisvar í viku og val tvisvar í viku. Alla föstudagmorgna hittast allar deildir í salnum þar sem við höfum

Leikið í snjónum.

sameiginlega söngstund . Í haust unnum við með haustið og náttúruna, síðan tóku jólin og kærleikurinn við og nú höfum við nýlokið við litaþema á yngri deildum og gamla tímann á þeim eldri og í tengslum við það fórum við með eldri börnin í Árbæjarsafnið og Þjóðminjasafnið. Þemavinnunni lauk síðan með árlegu þorrablóti. Í febrúar tókum við þátt í Vetrahátíð Reykjavíkurborgar og gerðum tilraunir með ljós og vatn. Með hækkandi sól byrjum við á þema sem við köllum hollt og gott en þá leggjum við áherslu á hreyfingu og útiveru. Við förum í göngutúra, í íþróttahúsið í Selásskóla og höldum íþróttadag Blásala. Því ljúkum við síðan með allsherjar ávaxtaveislu í salnum í boði Banana ehf. Í maí tekur við umferðarþema og þá ræðum við um hegðun okkar í umferðinni og förum yfir þær reglur sem gilda. Einnig erum við með hjóladag en þann dag lokum við götunni að Blásölum, krítum á götuna og búum til okkar eigin umferðargötu með tilheyrandi reglum og heimatilbúnum götuljósum. Þegar sumarið brestur á setjum við niður í matjurtargarðinn og gróðursetjum blóm . Við

höldum síðan Sumarhátíð Blásala. Á sumrin leggjum við áherslu á útiveru, þá færum við starfið að miklu leyti út og förum í stuttar og langar vettvangsferðir. Okkur í Blásölum finnst gaman að fá gesti og bjóðum við mömmu og pabba reglulega í morgunkaffi. Börnin sjá þá um að baka bollur með kaffinu. Einnig hefur skapast sú hefð að bjóða öfum og ömmum í morgunkaffi á degi íslenskrar tungu. Börnin fara þá með þulur og syngja fyrir gestina. Leikskóladagurinn var 6. febrúar en þá buðum við einnig öllum vinum okkar í heimsókn og vorum með uppákomur í salnum fyrir gestina. Við höfum fengið Margréti Ólöfu frá Árbæjakirkju til þessa að koma til okkar einu sinni í mánuði og er hún þá með samverustund í salnum þar sem hún tekur fyrir kærleik og vináttu. Við í Blásölum erum opin fyrir því að brjóta upp hverdagsleikann og erum með hinar ýmsu uppákomur eins og náttfataball, vasaljósadag, bangsadag, bókadag, grímudag og tungumáladag. Við fáum einnig til okkar leiksýningar tvisvar sinnum á ári við mikinn fögnuð barnanna.

Eins og sjá má á ofantöldu er mikið um að vera í lífi leikskólabarna á hverjum degi . Og þar sem leikskólarnir eru margir í hverfinu væri gaman ef að vinir okkar á Rauðhól í Norðlinga-

Stilltar við matarborðið.

Flottur snjókall og stoltir hönnuðir.

holti gætu verið með kynningu á sínum skóla í næsta Árbæjarblaði. Fyrir hönd okkar í Blásölum, Sigrún Axelsdóttir

Viðamiklar breytingar standa nú yfir í stærstu verslunum Húsasmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þær felast í að færa þjónustuna sem hingað til hefur verið í timburverslun Húsasmiðjunnar í Súðarvogi í opið og aðgengilegra rými í nýrri timburmiðstöð í verslun Húsasmiðjunnar í Grafarholti, auk þess sem timburráðgjöf verður einnig opnuð í versluninni í Skútuvogi. Með breytingunum verður til stærsta byggingavöru-, timbur- og garðverslun á Íslandi undir einu þaki, auk þess sem aðgengi fagmanna og almennings að ráðgjöfum Húsasmiðjunnar verður mun betra en áður. Mesta breytingin verður í Grafarholti, þangað sem á annan tug sérfræðinga og ráðgjafa sem hafa haft aðstöðu í timbursölu Húsasmiðjunar í Súðarvogi flytja starfsemi sína og munu hafa betri aðstöðu til að aðstoða viðskiptavini. Sýningarsalur nýju timburmiðstöðvarinnar býður upp á að hægt sé að sýna vörur

mun betur en áður og auka aðgengi viðskiptavina að byggingavörum og byggingalausnum. Í flestum tilvikum verður hægt að taka vöruna beint heim í stað þess að þurfa að sækja hana á lager eins og áður hefur þurft. Nýja timburmiðstöðin verður opnuð formlega þann 6. mars næstkomandi. Í verslun Húsasmiðjunnar í Skútuvogi verður einnig boðið upp á timburráðgjöf þar sem ráðgjafar bjóða upp á sérhæfða aðstoð fyrir fagmenn jafnt sem almenning. Um leið verður timbursölunni sem verið hefur í Súðarvogi lokað, en hún hefur verið starfrækt frá árinu 1956. ,,Það má segja að þetta sé með viðamestu breytingum sem Húsasmiðjan hefur ráðist í hin síðari ár. Við færum þjónustuna nær viðskiptavinunum, sem geta nú fengið aðstoð okkar færustu fagmanna í rúmgóðu verslunarrými þar sem aðgengi að vörunni er betra en áður. Um leið kveðjum við Súðarvoginn, sem hefur þjónað okkur vel í rúma hálfa öld.

Aðgengi að ráðgjöfum Húsasmiðjunnar er mun betra en áður. Logi Björnsson, forstjóri HúsasmiðjunnGrafarholtsverslunin var byggð með það ar. Húsasmiðjan og Blómaval reka nú 24 í huga að hún yrði timburmiðstöð eins og verslanir um land allt og starfsmenn eru við erum að setja upp nú og því erum við um 700 talsins. loks að fullnýta húsnæðið,’’ segir Steinn

Fermingarbörn í Árbæjarsókn 2009 Pálmasunnudagur, 5. apríl 10:30 Anita Ninna Magnúsdóttir. Helluvað 1-5, 110 Reykjavík. Anita Rut Kristjánsdóttir, Þingvað 33, 110 Reykjavík. Aron Baldvin Þórðarson. Lækjarvaði 5, 110 Reykjavík. Ásta Lilja Stefánsdóttir. Viðarás 49, 110 Reykjavík. Birgitta Gyða E. Bjarnadóttir. Hraunbæ 86, 110 Reykjavík. Bjarni Magnús Sigurðarson. Kólguvað 5, 110 Reykjavík. Björn Helgi Ómarsson. Kólguvað 13, 110 Reykjavík. Dagný Björt Benjamínsdóttir. Melbær 8, 110 Reykjavík. Elías Örn Halldórsson. Hólmavað 36b, 110 Reykjavík Erla María Einarsdóttir. Þýskalandi, Eva Björg Halldórsdóttir. Kólguvað 11, 110 Reykjavík. Fannar Snær Antonsson. Krókavaði 4, 110 Reykjavík Guðjón Þór Kristjánsson. Bjallavað 9, 110 Reykjavík. Guðni Rúnar Ólafsson. Melbær 43, 110 Reykjavík. Hinrik Atli Smárason. Helluvað 13, 110 Reykjavík Hinrik Valur Þorvaldsson. Lindarvað 10, 110 Reykjavík. Hrannar Bjarki Hreggviðsson, Lindarvað 15, 110 Reykjavík. Karen Margrét Bjarnadóttir. Krókavaði 19. 110 Reykjavík. Katrín Lind Ármannsdóttir. Krókavaði 6, 110 Reykjavík. Kristinn Thór Magnússon. Lækjarvaði 14, 110 Reykjavík. Kristín Lív Svabo Jónsdóttir. Rauðavað 5, 110 Reykjavík. Magnús Freyr Sveinsson. Viðarás 29, 110 Reykjavík. María Helga Guðjohnsen. Sólnes v/Suðurlandsv.eg Ólafur Íshólm Ólafsson. Hraunbær 111b. 110 Reykjavík. Ragnheiður Lilja Ófeigsdóttir. Silungakvísl 7, 110 Reykjavík. Ruth Tómasdóttir. Hólmavaði 2, 110 Reykjavík. Sigurður Evert Ármannsson. Krókavað 6, 110 Reykjavík. Sylvía Ósk Breiðdal Jóhannsson. Reykás 22, 110 Reykjavík. Viðar Geir Þrastarson. Þingvað 23, 110 Reykjavík Viktoría Sif Reynisdóttir. Móvaði 45, 110 Reykjavík. Þórey Aðalsteinsdóttir. Bjallavað 7,110 Reykjavík. Pálmasunnudagur 5. apríl 13.30 Ásdís Stella Þorkelsdóttir.

Reykás 4, 110 Reykjavík. Burkni Þór Bjarkarson. Vindás 4, 110 Reykjavík. Daníel Ingi Gunnarssson Grundarás 7. 110 Reykjavík. Emil Ásmundsson. Helluvað abla16, 110 Reykjavík. Emelía Rafnsdóttir. Viðárás 55, 110 Reykjavík. Gísli Þór Guðmundsson. Næfurás 9.110 Reykjavík. Guðrún Margrét Þórisdóttir. Vesturás 16.110 Reykjavík. Hörður Aron Guðmundsson. Hraunbær 140. 110 Reykjavík. Hörður Helgason. Mýrarás 6, 110 Reykjavík. Kolbrún Lind Steinarsdóttir. Viðarás 79, 110 Reykjavík Sóley Þórsdóttir. Súluhólar 4, 110 Reykjavík. Styrmir Ragnarsson. Þingási 32, 110 Reykjavík.

.

Skírdagur, 9. apríl kl. 10.30 Agnes Líf Höskuldsdóttir. Reykás 2. 110 Reykjavík. Arna Ösp Gunnarsdóttir. Reykás 37, 110 Reykjavík. Arnar Leó Ágústsson. Viðarás 39, 110 Reykjavík. Aron Þór Heimisson. Hraunbær 54, 110 Reykjavík. Berglind Ýr Einarsdóttir. 110 Reykjavík. Hraunbær 188, 110 Reykjavík. Daníel Freyr Jóhannsson. Hraunbæ 22, 110 Reykjavík. Emil Örn Kristjánsson. Viðarás 16, 110 Reykjavík. Guðrún Svava Gomez. Helluvað 1-5, 110 Reykjavík. Hákon Ingi Jónsson, Hraunbæ 196, 110 Reykjavík. Ísak Þór Sæþórsson. Hraunbær 70, 110 Reykjavík. Ívar Óli Kristjánsson. Viðarársi 16, 110 Reykjavík. Jóhann Bjarni Pétursson. Hraunbær 180, 110 Reykjavík. Knútur Magnús Björnsson. Vindás 1, 110 Reykjavík. Sigrún Kristín Lárusdóttir Bröndukvísl 6, 110 Reykjavík. Sigurður Helgason. C-tröð 1 hesthúsahvarfi, 110 Reykjavík. Sigurvin Reynisson. Hólavað 55, 110 Reykjavík. Stefán Ari Björnsson. Viðarás 12, 110 Reykjavík. Skírdagur, 9. apríl kl. 13.30 Alexander Smári Davíðsson. Hraunbær 72, 110 Reykjavík. Arnór Bjarki Þorgeirsson.

Viðarási 45, 110 Reykjavík. Atli Freyr Þorvaldsson. Álakvísl 80, 110 Reykjavík. Bjarki Lilliendahl. Vesturás 2, 110 Reykjavík. Einar Gunnlaugsson. Melbær 40, 110 Reykjavík. Elsa Björk Guðjónsdóttir. Laxakvísl 12,110 Reykjavík. Erla Hrönn Gylfadóttir. Viðarás 75, 110 Reykjavík. Heiðrún Þórarinsdóttir. Fiskakvísl 13, 110 Reykjavík. Helena Sól Ómarsdóttir. Hábær 33, 110 Reykjavík. Helena Sóley Þórarinsdóttir. Næfurás 5, 110 Reykjavík. Ida Guðný Jensen. Þverás 11a, 110 Reykjavík. Ingi Þór Aðalsteinsson. Vesturás 6, 110 Reykjavík. Jóhanna Elísa Skúladóttir. Silungakvísl 11, 110 Reykjavík. Jón Hálfdán B. Sigurðsson. Heiðarás 21, 110 Reykjavík. Laufey Þóra Borgþórsdóttir. Þingás 31, 110 Reykjavík. Magni Grétarsson. Skógárás 3, 110 Reykjavík. Ragnar Sveinn Guðlaugsson. Næfurás 4, 110 Reykjavík. Rannveig Sif Kjartansdóttir. Mýrarás 13, 110 Reykjavík. Sara Líf Magnúsdóttir. Fiskakvísl 18, 110 Reykjavík. Snæbjörn Hauksson Heiðarbær 14, 110 Reykjavík. Stefán Karel Valdimarsson. Vesturás 10, 110 Reykjavík. Sunna Sigríður Sigurðardóttir. Helluvað 3, 110 Reykjavík. Theodór Unnar Viðarsson. Heiðarás 15, 110 Reykjavík. Þórhildur Kristinsdóttir. Þingás 35,110 Reykjavík. 19. apríl kl. 10.30 Alexander Jóhann Lord. Reykás 2, 110 Reykjavík. Anna Rósa Arnarsdóttir. Árkvörn 2A, 110 Reykjavík. Arnór Guðmundsson. Hraunbær 28, 110 Reykjavík. Arnór Steinn Ívarsson. Skógarási 11, 110 Reykjavík. Bengta Katrín Þorláksdóttir. Skógárási 6, 110 Reykjavík. Birgitta Michaelsdóttir. Hraunbær 122, 110 Reykjavík. Daníel Erik Hjaltason. Kleppsvegur 20, 110 Reykjavík. Diljá Heba Petersen, Laxakvísl 17, 110 Reykjavík. Einar Benediktsson. Brúarás 4, 110 Reykjavík. Eyþór Logi Þorsteinsson.

Reykás 12, 110 Reykjavík. Guðborg Nanna Sigurðardóttir. Álakvísl 65, 110 Reykjavík. Hrafnhildur Leósdóttir. Þykkvabæ 9, 110 Reykjavík. Jón Guðmann Pálsson, Hraunbæ 34. Jón Tjörvi Leósson. Þykkvibær 9, 110 Reykjavík. Karen Þorsteinsdóttir. Hraunbær 111g, 110 Reykjavík. Pálmi Þór Karlsson. Vorsabæ 1, 110 Reykjavík. Ragnhildur Eir Stefánsdóttir. Vesturás 53, 110 Reykjavík. Rebekka Rut Petersen. Vesturás 18, 110 Reykjavík. Sandra Rós Jónasdóttir. Hraunbær 178, 110 Reykjavík. Sara Dögg Jónsdóttir. Deildarás 15, 110 Reykjavík. Sigurður Þór Haraldsson. Kleifarási 12, 110 Reykjavík. Svava Rós Guðmundsdóttir. Birtingarkvísl 62, 110 Reykjavík. Sverrir Karl Matthíasson. Kleifárási 11, 110 Reykjavík. Viktor Ingi Magnússon. Þverás 35,110 Reykjavík.

.

19. apríl kl. 13.30 Anna Elísabet Sölvadóttir. Reykás 22, 110 Reykjavík. Bergdís Sif Hjartardóttir. Þingás 30, 110 Reykjavík. Daníel Þór Gunnarsson. Álakvísl 52, 110 Reykjavík. Fróði Guðmundur Jónsson. Viðarás 57a. 110 Reykjavík. Gylfi Tryggvason. Vesturás 62, 110 Reykjavík. Harpa Stefánsdóttir. Lækjarás 3, 110 Reykjavík. Heiðrún Dóra Jónasdóttir. Reykás 21, 110 Reykjavík. Hildur Helga Jónsdóttir. Fiskakvísl 12, 110 Reykjavík. Hjörtur Hermannsson. Laxakvísl 5, 110 Reykjavík. Hreiðar Þór Heiðberg. Þingási 11, 110 Reykjavík. Jóhann Egilsson. Malarás 8, 110 Reykjavík. Kristín Kara Ragnarsdóttir. Viðarás 29a, 110 Reykjavík. Rúna Þrastardóttir. Vesturás 11, 110 Reykjavík. Snorri Geir Ríkharðsson. Viðarás 28, 110 Reykjavík. Sveinbjörg Sara Baldursdóttir Laxakvísl 21, 110 Reykjavík. Þórunn Bríet Þrastardóttir. Árkvörn 2a, 110 Reykjavík. Þórunn Þöll Einarsdóttir. Suðurási 20, 110 Reykjavík.

10

Fréttir

Árbæjarblaðið

Guðlaugur Þór Þórðarson sækist eftir 1. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna:

Reykvíkingar þurfa forystumann með áræði og þor Guðlaugur Þór Þórðarson er 1. þingmaður í Reykjavíkurkjördæmis norður og sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer nú um helgina. Guðlaugur Þór er kvæntur Ágústu Johnson framkvæmdastjóra og líkamsræktarfrömuði og eiga þau saman tvö börn en Ágústa á tvö börn frá fyrra hjónabandi. Þau hafa búið í Grafarvoginum í níu ár en hófu reyndar búskap í Laxakvíslinni í Árbænum. Guðlaugur Þór hefur langa reynslu sem stjórnmálamaður, var borgarfulltrúi í átta ár og hefur setið á Alþingi frá árinu 2003. Guðlaugur Þór var skipaður heilbrigðis- og tryggingaráðherra vorið 2007 og gegndi embætti heilbrigðisráðherra til 1. febrúar sl. Árbæjarblaðið hitti Guðlaug Þór að máli í miðri prófkjörsbaráttu. - Þú náðir góðum árangri sem heilbrigðisráðherra. Hvað er þér efst í huga? ,,Í haust undirrituðum við, ég og borgarstjórinn í Reykjavík viljayfirlýsingu um að sameina heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu í Reykjavík. Sameiningunni, sem tók gildi um síðustu áramót,

hefur verið ákaflega vel tekið. Með því að kalla eftir samstarfi stjórnenda sjúkrastofnana um sumarstarfsemi þeirra stórbættum við þjónustuna og því var ekkert rætt um alræmdar sumarlokanir í fjölmiðlum. Næturvist sjúklinga á göngum Landspítala heyrir nú sögunni til og nefna má löngu tímabærar breytingar á starfsemi BUGL í samstarfi við fagfólk. Þá komst jöfnuður á rekstur Landspítala á síðasta ári eftir áratuga hallarekstur og okkur tókst að lækka lyfjaútgjöld ríkissjóðs um1,5 milljarða króna og tryggja sjúklingum fjölmörg lyf á lægra verði en áður. Viðkvæðið var oft að "þetta væri ekki hægt". Ef einhver segir að eitthvað sé ekki hægt hætti ég að hlusta og spyr: Hvernig eigum við að gera þetta? Þannig vil ég nálgast verkefnin.’’ - Hvað finnst þér um ástandið í í atvinnumálum og málefnum heimilanna? ,,Ástandið er vissulega alvarlegt og okkur bráðliggur á. Það er mikilvægt að hjól atvinnulífsins fari að snúast á ný og að tekið verði á mikilli skuldsetningu heimilanna. Mér líst vel á hugmyndir sem ganga út á að taka þann hluta hús-

næðislána sem eru umfram fasteignamat húsnæðis og breyta í eingreiðslulán með 1-3% vöxtum. Fjölskyldurnar geta þá unnið í því að greiða hinn hluta lánanna niður. Þessar hugmyndir má lesa um á vefsvæði mínu www.gudlaugurthor.is.’’ Guðlaugur segir afar mikilvægt að leysa bankana úr viðjum ákvarðanaleysis og skriffinnsku. ,,Það þarf sem fyrst að virkja bankana í þágu atvinnulífsins og horfast í augu við þá staðreynd að afskrifa þarf lán. Það voru mistök að hleypa ekki erlendum lánadrottnum fyrr að málum, fá þá til að koma að rekstri bankannna.’’ - Hvaða lausnir sérð þú fyrir þér varðandi fyrirtæki og þúsundir atvinnulausra Reykvíkinga? ,,Verkefni þurfa að vera arðbær en mikilvægt er að ráðast í bæði mannfrek verkefni og verkefni sem spara rekstrarkostnað til lengri tíma. Ofarlega í huga eru ýmis samgönguverkefni á höfuðborgarsvæðinu og bygging Háskólasjúkrahúss sem sparað getur 3-5 milljarða á ári miðað við rekstrarkostnað Landspítala háskólasjúkrahúss í dag.’’

Guðlaugur Þór Þórðarson. - Hvað skiptir meginmáli í þessu prófkjöri? ’’Það skiptir mestu máli að sjálfstæðismenn myndi sterkan framboðslista með öflugri forystu. Ég tel mig hafa náð miklum árangri sem heilbrigðisráðherra en honum má ná með því að hafa þor til að taka nauðsynlegar ákvarðanir. Stjórnmálamaður á að takast á við og leysa þau verkefni sem við er að glíma hverju sinni, sama hversu erfið þau eru. Þannig vil ég vinna mitt starf.’’ - Hvernig nær Sjálfstæðisflokkurinn tiltrú kjósenda í kosningunum í vor? ’’Við sjálfstæðismenn gerðum mistök. Við eigum að gangast við þeim og biðjast afsökunar. Ég gerði það í Kastljósviðtali strax í ársbyrjun. Við skulum ekki gleyma því að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í ríkisstjórn í 18 ár og fengið endurtekið umboð frá kjósendum þar sem lungann af

þeim tíma hefur hann staðið að fjölmörgum umbótamálum í íslensku þjóðfélagi.’’ Hreinskiptin umræða fer nú fram innan flokksins um efnahagshrunið, orsakir og leiðir úr vandanum. ,,Í þessari umræðu er öllum steinum velt. Við viljum læra af mistökunum, sérstaklega að við skyldum gleyma gömlu góðu gildunum; að frelsi fylgir ábyrgð og stétt með stétt. Þau verðum við að hefja til virðingar á ný.’’ - Hagur borgarbúa hlýtur að vera þér ofarlega í huga? "Reykvíkingar hafa orðið verst úti í hremmingum undanfarinna mánaða. Sem leiðtogi Reykvíkinga mun ég setja hagsmuni borgarbúa 1. sæti. Við blasir erfitt verkefni sem ég er reiðubúinn til að takast á við eins og önnur verkefni á mínum stjórnmálaferli. Reykvíkingar þurfa forystumann með áræði og þor."

Við á Höfuðlausnum veitum 30% afslátt af völdum vörum frá KÉRASTASE og SÉRIE EXPERT Gjafir í kaupbæti meðan birgðir endast!

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00 lau 10:00-14:00 Pöntunarsími: 567-6330

AFGREIÐSLUTÍMI Í GRAFARHOLTI

t t ný

TIMBURMIÐSTÖÐ HÚSASMIÐJUNNAR GRAFARHOLTI

BREYTT OG BETRI VERSLUN Í GRAFARHOLTI Húsasmiðjan hefur nú tekið stórt skref í átt að bættri þjónustu við fagmenn og almenna neytendur með því að færa timbursöluna sem áður var í Súðarvogi í verslun Húsasmiðjunnar í Grafarholti. Í Timburmiðstöð Húsasmiðjunnar Grafarholti geta viðskiptavinir gengið að allri þjónustu sem Húsasmiðjan hefur upp á að bjóða undir einu þaki. Þar er að finna ráðgjöf hjá sérfræðingum með áratuga reynslu sem annast tilboðsgerð, ráðgjöf og sölu á timbri, ýmsum lausnum varðandi húsbyggingar, hurðum og gluggum, pallasmíði, bílskúrshurðum, viðhaldi og flestu öðru sem viðkemur húsbyggingum. Með þessu er öll þjónusta Húsasmiðjunnar færð nær viðskiptavininum en áður hefur þekkst og er þetta liður í því að koma til móts við breyttar þarfir neytenda. Í sýningarsal Húsasmiðjunnar Grafarholti gefur að líta úrval lausna varðandi byggingar, vegg og loftaklæðningar, uppsettar hurðir og glugga, þakrennur, bílskúrshurðir og annað sem viðkemur byggingum og viðhaldi. Grafarholtið er þó sem fyrr alhliða verslun Húsasmiðjunnar með byggingavörur, verkfæri, málningu, raftæki, búsáhöld, ljós og fleira auk Blómavals.

KLÁR FYRIR VORIÐ

RÁÐGJÖF - ALLT UNDIR EINU ÞAKI

FÁÐU RÁÐGJÖF OG TILBOÐ Í PALLINN FYRIR VORIÐ HJÁ

• TIMBURMIÐSTÖÐ • PÍPULAGNADEILD • SÉRVERKEFNADEILD • PALLURINN • BYGGINGALAUSNIR • GARÐURINN (BLÓMAVAL) • VIÐHALD

SÉRFRÆÐINGUM TIMBURMIÐSTÖÐVARINNAR.

BÍLSKÚRSHURÐAOPNARI FYLGIR ÖLLUM HÖRMANN BÍLSKÚRSHURÐUM Í MARS. GILDIR AF ÖLLUM KEYPTUM HÖRMANN BÍLSKÚRHURÐUM Í MARS. Stíhrein og vönduð hönnun

Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl.

12

Fréttir

Árbæjarblaðið

Veisla hjá Kar

Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför

Sverrir Einarsson

Hermann Jónasson

Jón G. Bjarnason

Bryndís Valbjarnardóttir

ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar

ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt

,,Ég kom inn sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins 1. júlí 2008. Fyrirtækið var stofnað fyrir um 20 árum en þá sem Bílastjarnan en síðan var tekin ákvörðun sl. haust um að breyta nafninu í Kar. Í kjölfarið var farið á fullt að hanna logo fyrir fyrirtækið sem við erum mjög ánægð með (sjá www.kar.is). Það var ekki svo erfitt að skipta um nafn, því í haust voru ákveðin tímamót hjá fyritækinu og Bílastjarnan hafði notað kt. Kar í 14 ár. Þetta var því einnig ákveðin hagræðing hjá okkur, ’’ segir Karl Jóhann Jóhannsson hjá Kar ehf. í samtali við Árbæjarblaðið en Kar ehf. var áður Bílastjarnan og er fyrirtækið staðsett við Gylfaflöt og hefur lengi verið einn mesti stuðningsaðili blaðsins.

grunnaður en þar erum við með mjög góða aðstöðu með þremur lyftum og öflugt sog þannig að engin lykt né önnur mengun berst um húsnæðið. Þegar þeirri vinnu er lokið er bíllinn unnin enn frekar fyrir sprautun. Við erum með 2 sprautuklefa og 2 þurkklefa þannig að þegar búið er að sprauta bílana þá eru þeir keyrðir áfram (í gegnum sprautuklefann) og inn í þurrkklefann. Með þessu er hægt að byrja að sprauta næsta bíl. Þegar bíllinn er tilbúinn úr þurrkun er hann settur saman, massaður og þrifinn, en við þrífum alla bíla sem fara frá okkur. Ferlið sem ég lýsti hér er hringrás í gegnum hússnæðið og þarf bílinn aldrei að fara út úr húsi eftir að hann kemur fyrst inn til okkar,’’ segir Karl Jóhann og bætir við:

- Nú hafið þið verið að breyta miklu hjá ykkur undanfarið, í hverju eru þær breytingar aðallega fólgnar? ,,Þær felast í því að við stækkuðum húsnæðið um 1.000 fermetra og höfum því stórbætt alla aðstöðu fyrir starfsfólkið. Þar má nefna alla aðstöðu á verkstæðinu, stóra og glæsilega kaffiaðstöðu, skrifstofurýmið og móttakan er öll tekin í gegn og lögðum við þar mikla áherslu á aðkoman væri góð og notaleg fyrir viðskiptavininn. Með nýja húsnæðinu höfum við skapað ákveðna hringrás fyrir bílinn sem að því ég best veit er alveg einstök í þessum bransa hér á landi en tíðkast hjá betri verkstæðum erlendis. Hringrásin virkar þannig að eftir að bill kemur til okkar er hann þrifinn, en allir bílar eru þrifnir áður en byrjað er að vinna í þeim. Þegar búið er að rétta viðkomandi bíl er hann

,,Fyrir utan þessar breytingar höfum við einnig lagfært mikið í rekstrinum og þar má m.a. nefna alla innri- og ytri ferla, samskipti við starfsfólk tryggingarfélaganna, bílaleigurnar og aðra sem við þurfum að hafa samskipti við dags daglega. Sem dæmi má nefna að núna er einn starfsmaður sem hefur það hlutverk að passa upp á að öll vikuplön sem við gerum standist áætlun, það og einnig ef einhverjir bílar þurfa að fara í gegn hjá okkur með meiri hraða en gengur og gerist að sá tími standist. Við eigum mjög auðvelt með að taka bíla hér í gegn í hraðferð því húsnæðið og hringrásin hjá okkur bíður upp á það. Sem dæmi erum við með þó nokkur fyrirtæki sem koma hingað með tjónaða bíla en geta ekki misst bílinn í langan tíma. Svona bílar fá alveg sérstaka meðferð hjá okkur og oft hefur það gerst að bílinn er tilbúinn daginn eftir.

Að sjálfsögðu fer þetta eftir umfangi tjónsins en það sem ég er að leggja áherlsu á er að við getum tekið bíla í algjöra sérmeðferð.’’ - Þið voruð með mikla veislu á dögunum- hvert var tilefnið? ,,Já, veislan heppnaðist mjög vel í alla staði og það komu um 150 manns. Tilefnið var að þær miklu breytingar sem hafa staðið yfir hjá okkur voru búnar, þó svo að við séum alltaf að vinna að betrumbótum á rekstrinum. Við settum einnig í loftið heimasíðuna okkar sama dag (www.kar.is). Þetta voru því ákveðin tímamót hjá okkur.’’ - Takið þið allar gerðir bíla eða einhverjar sérstakar tegundir umfram aðrar? ,,Já við tökum allar gerðir bíla og erum með virkilega hæfa og duglega starfsmenn hjá okkur. Það er alveg með ólíkindum hvernig sumir bílarnir eru teknir og lagaðir, bílar sem maður hefði haldið að væru gjörsamlega ónýtir. Þetta segir að þeir sem vinna hjá okkur geta tekið að sér allar tegundir bíla og einnig mjög mikið tjónaða.’’ - Ég tók eftir því að fyrirtækið var mjög snyrtilegt í alla staði í veislunni - hvernig er að haldi því við? ,,Það er gaman að segja frá því að það er mikill metnaður hjá öllum í fyrirtækinu að hafa snyrtilegt í kringum sig. Starfsmennirnir sjálfir hafa kallað á þetta sem er virkilega ánægjulegt. Hér ganga allir vel um dags daglega en við höfum einnig komið þeirri hefð á að þeir sem vinna inn í sal hætta að vinna fyrr einu sinni í viku þar sem allir taka til hendinni og þrífa,’’ sagði Karl Jóhann.

Komum heim til aðstandenda ef óskað er

Tek að mér þrif í heimahúsum Uppl. í síma 698-1316 Eigendur og gestir skemmtu sér vel í veislunni hjá Kar ehf. við Gylfaflöt.

20% afsláttur af völdum vörum frá Heilsu Vítamín frá Heilsu og Solaray 20% afsláttur Original Artic Root 20% afsláttur Udo’ s choice Omega 3 6 9, Beyond Greens ofurfæða og Probiotics gerlar 20% afsláttur ,,Nýtt’’ Vogel hálsbrjóstsykur (2 tegundir, furunálar og sólhattur) 20% afsláttur Biotta safar 20% afsláttur Gildir til 20. apríl 2009 Árbæjarapótek Hraunbæ 115 110 Reykjavík, Sími 567-4200, 567-3126, Tölvupóstur: arbapotek@internet.is

ÁB-mynd PS

Opiรฐ 11-19 alla daga Veitingastaรฐur opinn 9:30 - 18:30 www.IKEA.is

14

Fréttir

Árbæjarblaðið

Framtíðin er okkar Við getum ekki breytt fortíðinni. Það eru aðeins nútíðin og framtíðin sem eru á okkar valdi. Í vor verður gengið til kosninga, kosninga sem eru mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Tekist er á um hvort að fylgja skuli stefnu sem leiðir til aukinnar skattheimtu og aukin ríkisumsvif eða stefnu þar sem framtak og áræði einstaklinganna er virkjað til að nýtast heildinni. Það verður að gera breytingar í okkar þjóðfélagi, breytingar fyrir fólk og fyrirtæki. Það verður að afnema verðtryggingu og taka upp gjaldmiðil sem tryggir stöðugleika. Við verðum að ná þjóðarsátt um

fiskveiðistjórnina þannig að sú auðlind, eins og allar aðrar, verði nýtt í almannaþágu. Umræðu um aðild að Evrópusambandinu verður að ljúka með því að fyrir liggi hvaða kostir bjóðast eftir aðildarviðræður. Aðild að Evrópusambandinu, eða ekki, er spurning um yfirvegað og rökrænt hagsmunamat. Hvað er íslensku þjóðinni fyrir bestu í bráð og lengd? Enginn getur leyft sér að skorast undan að ræða þessi mál og taka heiðarlega afstöðu á grundvelli þjóðarhagsmuna. Ekkert annað kemur til greina. Ég legg áherslu á stefnu sem ég hef nefnt mannúðlega markaðs-

hyggju þar sem kostir markaðarins eru nýttir, en virk og öflug öryggisog velferðarkeðja, verði strengd um þjóðfélagið. Nýja Ísland verður að byggja á kostum mannúðlegrar markaðshyggju. Þar sem fólkið fær sem mest frelsi til nýsköpunar og arðsköpunar. Þar sem náttúruauðlindirnar eru nýttar í almannaþágu. Þar sem lánakjör eru með því besta sem þekkist í okkar heims-

hluta og þar sem

Jón Magnússon, sem býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, skrifar: við byggjum á réttlátu skattakerfi og víðtæku öryggisneti fyrir þá sem þurfa á aðstoð og hjálp að halda . Það er engin önnur

farsæl leið út úr vandanum. Ég gef kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer um næstu helgi. Ég sækist eftir stuðningi þínum í 3. sæti, þó eingöngu ef þú telur mig vera verðugan fulltrúa þeirra sjónarmiða sem þú telur mikilvægt að fylgt verði í íslenskum stjórnmálum. Jón Magnússon, alþingismaður.

Kæru Árbæingar Í prófkjöri okkar sjálfstæðismanna í Reykjavík sem fram fer á föstudag og á laugardag legg ég verk mín sem alþingismaður í dóm samherja minna. Ég óska eftir stuðningi í 2.-3. sæti í prófkjörinu. Þegar ég tók sæti á Alþingi árið 2003 hét ég því að vinna ötullega að málefnum, sem snerta allan þorra almennings sem er umhugað um að bæta kjör sín og búa í haginn fyrir sig og sína. Vera talsmaður almannahagsmuna en ekki sérhagsmuna og vinna í þágu sjálfstæðisstefnunnar. Á þessum forsendum hef ég unnið síðan ég var kjörinn á Alþingi fyrir um það bil 6 árum síðan. Við stjórnmálamönnum blasa nú risavaxin verkefni við endurreisn samfélagsins eftir efnahagshrunið. Við höfum verk að vinna og ég er reiðubúinn til þess að axla þá miklu ábyrgð sem í henni felst. Á síðustu vikum og mánuðum hef ég sett fram þau áherslumál og hugmyndir sem ég vil beita mér fyrir við enduruppbyggingu samfélagins til framtíðar. Þau áherslumál lúta meðal annars að: - Vernd heimilanna. - Aukinni atvinnusköpun gegn atvinnuleysi. - Endurreisn bankakerfisins. - Lausn Icesave deilunnar og lágmörkun skuldasöfnunar komandi kynslóða. - Hugmyndum um framtíð gjaldmiðilsmála utan ESB. - Samdrætti í ríkisútgjöldum.

- Lækkun vaxta. - Andstöðu við skattahækkanir. - Auknu trausti og ábyrgð í samfélaginu. Þessi áherslumál má kynna sér nánar á heimasíðu minni www.sigurdurkari.is. Ég tók mjög alvarlega það traust sem mér var sýnt í síðasta prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ég hef barist af krafti fyrir því að sjónarmið mín og Sjálfstæðisflokksins næðu fram að ganga, bæði í stjórn

Sigurður Kári Kristjánsson, sem býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, skrifar:

Arnór L. Pálsson

Ísleifur Jónsson

Frímann Andrésson

Svafar Magnússon

framkvæmdastjóri

útfararstjóri

útfararþjónusta

útfararþjónusta

R EY N S L A

•

UM HYGGJ A

•

TR AU ST

Hugrún Jónsdóttir

Guðmundur Baldvinsson

Þorsteinn Elísson

Ellert Ingason

útfararþjónusta

útfararþjónusta

útfararþjónusta

útfararþjónusta

Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is

og ekki síður nú, í stjórnarandstöðu, og látið einskis ófreistað í að standa vörð um þau í umræðum á Alþingi og úti í þjóðfélaginu. Ég hef staðið að fjölda mála með meirihluta Alþingis sem hafa horft til hagsbóta fyrir almenning í landinu. En ég hef jafnframt átt frumkvæði að fjölda þingmála og stutt frumkvæði annarra þingmanna í samræmi við þau sjónarmið sem ég stend fyrir. Er þar skemmst að minnast frumvarps sem ég samdi og samþykkt var sem lög frá Alþingi nú fyrir áramót sem greiða fyrir hvetja til málsókna Íslendinga á hendur Bretum vegna beitingar hryðjuverkalaga. Á þeim tíma sem ég hef setið á Al-

þingi hefur mér verið falin mikil ábyrgð m.a. með formennsku í menntamálanefnd þingsins, þar sem mér hafa verið fengin ánægjuleg og krefjandi verkefni, svo sem heildarendurskoðun löggjafar um skólamál. En ég tel að á síðustu 6 árum hafi ég aflað mér mikilvægrar reynslu og þekkingar til að takast á við þau vandasömu og brýnu verkefni sem nú bíða úrlausnar í kjölfar efnahagshrunsins. Ég hef fundið mikinn stuðning og velvild í minn garð undanfarnar vikur og mánuði og ekki síður við þau áherslumál sem vil beita mér fyrir við enduruppbyggingu samfélagsins á komandi árum. Sá stuðningur er mér gríðarlega mikilvægur. Samband mitt við sjálfstæðismenn, ekki síst fjölmarga ósérhlífna þátttakendur í starfi flokksins í Reykjavík, er mér ómetanlegt. Í þessu prófkjöri sæki ég fram. Ég sækist eftir því að vera í forystu Sjálfstæðisflokksins við það mikla endurreisnarverk sem framundan er í samfélaginu. Þess vegna fer ég þess á leit við Árbæinga að þeir veiti mér áframhaldandi brautargengi og atkvæði sitt í 2.-3. sæti í komandi prófkjöri okkar sjálfstæðismanna í Reykjavík Með kærri kveðju, Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður. www.sigurdurkari.is

Höldum þjóðfund Efnahagskerfið hrundi af mannavöldum því er boðað til kosninga á miðju kjörímabili. Þess vegna þarf líka að athuga undirstöðuna að öllu stjórnkerfinu. Ég hef verið þeirrar skoðunar lengi að stjórnskipunin leiði til samtyggingar stjórnmálamanna. Leiðin til að rjúfa hana er að breyta grundvallarreglunum, stjórnarskránni.

hliðina áður en svo varð. Hér ríkir sem sagt formannaræði en ekki ráðherraræði hvað þá þingræði. Þessu þarf að breyta með því að aðskilja löggjafarvaldið og framkvæmdavaldið. Ríkisstjórnin á að framkvæma það sem Alþingi ákveður. Þingið á hvorki að vera afgreiðslustofnun fyrir ríksstjórnina né formennina.

Hér á landi ríkir ráðherraræði. Það er málskrúð að kalla það þingræði. Þingið fjallar varla um nokkuð annað en það sem ráðherrarnir leggja til. Töllögunni, sem ég var fyrsti flutningsmaður að á Alþingi um afnám eftilaunaósómans, var vísað til nefndar. Þar fékk hún að dúsa heilt þing án þess að vera svo mikið sem tekin á dagskrá, vegna þess að formenn flokkanna höfðu málið á sinni könnu. Nú er málið loksins í höfn. Þjóðarkútan þurfti að fara á

Til að breyta þessu þarf að setja nýja stjórnarskrá. Stofna nýtt lýðveldi, eins og sumir orða það. Halda þarf stjórnlagaþing - þjóðfund - sem fjallar um þær leiðir sem fara má til að ná markmiðinu. Þetta er forsenda endurreisnar trausts fólkisins til þeirra sem bera ábyrgð á stjórn landsins. Þessu ætla ég að berjast fyrir komist ég á þing. Til þess að geta tekið þátt í þessari baráttu hef ég boðið mig fram í eitt af fjórum efstu sætum í prófkjöri Samfylking-

arinnar í Reykjavík. Valgerður Bjarnadóttir

Valgerður Bjarnadóttir.

3. SÆTI Í REYKJAVÍK

JÓN MAGNÚSSON Aldrei áður hefur verið jafn mikilvægt að þeir sem unna lýðræði og vilja standa vörð um réttarríkið, einstaklingsframtakið og takmarkaða skattheimtu komi til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Þess vegna er líka mikilvægt að Sjálfstæðisfólk vinni saman af eindrægni og vináttu til að ná þeim markmiðum sem sameinar okkur. Ég hef lagt höfuðáherslu á afnám verðtryggingar á lánum. Á sama tíma verðum við að vera með gjaldmiðil sem við getum treyst. Þessi mál verða að hafa forgang. Ísland framtíðar þarf að byggja á kostum mannúðlegrar markaðshyggju. Þar sem fólkið fær sem mest frelsi til nýsköpunar og arðsköpunar. Þar sem náttúruauðlindir eru nýttar í almannaþágu. Þar sem lánakjör eru með því besta sem þekkist í okkar heimshluta og þar sem við byggjum á réttlátu skattkerfi og víðtæku öryggisneti fyrir þá sem þurfa á aðstoð og hjálp að halda. Það er engin önnur farsæl leið út úr vandanum. Leið Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í boði Framsóknar er leið aukinnar skattheimtu og ríkisafskipta. Sú vegferð leiðir til versnandi lífskjara og aukins atvinnuleysis. Við skulum gera okkar besta fyrir þessar kosningar. Við skulum treysta samstöðuna og byggja upp öflugan víðsýnan Sjálfstæðisflokk til sigurs í næstu kosningum.

jonmagnusson.is

VERÐTRYGGING LÁNA VERÐI AFNUMIN Koma verður til móts við fjölskyldur með því að færa höfuðstól verðtryggðra lána til þess sem hann var 1. október s.l. og gera sambærilegar ráðstafanir vegna myntkörfulána einstaklinga. O

VEXTIR OG LÁNAKJÖR VERÐI SAMBÆRILEG OG Í NÁGRANNALÖNDUM OKKAR

Opið

T VELJUM ÍSLENSKT

T VELJUM ÍSLENSKT

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook