Skip to main content

Árbæjarblaðið 5.tbl 2022

Page 1

ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 12:34 Page 1

Árbæjarblaðið 5. tbl. 20. árg. 2022 maí

Fréttablað íbúa í Árbæ og Norðlingaholti

FAGNA NÝ FA ÝJJUM VIÐSKIPTA AV VINU UM

Hólmar Björn Sigþórsson

ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir

Löggiltur fasteignasali

Kuldi á sumardaginn fyrsta Skátafélagið Árbúar leiddu skrúðgönguna ásamt Lúðrasveit verkalýðsins þegar gengið var frá Árbæjarsafni að Sjá nánar á bls. 16 og 17 Árbúaheimilinu, Hraunbæ 123 á sumardaginn fyrsta.

Sími: 893 3276 | holmar@helgafellfasteignasa g g la.is

R Reykjavík kj ík sem virkar i k fyrir f i Árbæ Áb Sundabraut strax Við viljum að borgin standi við gerða samninga um Sundabraut og hefji framkvæmdir strax. xdreykjavik.is

Íþróttir fyrir alla Við viljum bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar í Árbæjarhverfum og efla Fylki í því skyni. Bæta þarf aðstæður til hestaíþrótta í Víðidal og samræma lóðarleigusamninga.

Umhirða og viðhald Við viljum bæta viðhald d leikskóla, íþróttamannvirkja og le eiktækja. Víða þarf að auka þriff,, grasslátt og bæta lýsingu. Við munu um standa vörð um Elliðaárdalinn..


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 22:31 Page 2

2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Leiðhamrar 39 - símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson abl@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir og Einar Ásgeirsson. Dreifing: Póstdreifing. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Norðlingaholti og Úlfarsárdal.

Gleðilegt sumar Eins og svo oft áður lætur sumarið bíða eftir sér og margir bíða óþolinmóðir eftir betra og hlýrra veðri. Samkvæmt dagatalinu er um hálfur mánuður liðinn af sumri og gróður er óðum að taka við sér. Þegar þessar línur eru skrifaðar er líklegt að sumarið hefjist fyrir alvöru um komndi helgi þegar spáð er hlýindum og allt að 15 stiga hita. Það eru kosningar framundan. Kosningabaráttan hefur verið afskaplega litlaus og lítið farið fyrir frambjóðendum. Alltaf hafa þó frambjóðendur mikla trú á hverfablöðum okkar og senda okkur margar greinar sem við verðum að sjálfsögðu að birta hvort sem lesendur hafa áhuga á pólitík eða ekki. Kosningar eru jú aðeins á fjögurra ára fresti yfirleitt. Það verður spennandi að sjá hvort núverandi meirihluti í Reykjavík heldur velli eða hvort hann fellur í öðrum kosningunum í röð. Það verður líka spennandi að sjá hvort Viðreisn hjálpar núverandi meirihluta aftur til valda. Það verður líka mjög spennandi að fylgjast með framgangi Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins og reyndar allra annarra flokka. Margir flokkanna og frambjóðendur eru duglegir við að auglýsa í blöðum okkar og forsvarsmenn flokkanna, sem og margra fyrirtækja, gera sér grein fyrir því að hverfablöðin eru mjög mikið lesin og því ákjósanlegur vettvangur fyrir þá sem vilja koma sínum málum á framfæri við lesendur. Fyrir mjög mörgum árum voru margir spekingar sem spáðu því að prentmiðlar væru á grafarbakkanum og að samfélagsmiðlar væru að taka öll völd. Tíminn hefur afsannað þessar spár. Prentmiðlar sem fara varlega í reksturinn og vanda sig og eru heiðarlegir eiga mjög góða möguleika á bjartri framtíð til margra ára. Við vonum að nýhafið sumar verði okkur öllum gott og Stefán Kristjánsson lesendum óskum við gleðilegs sumars.

abl@skrautas.is

Björn Gíslason skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 14. maí:

Íþróttaðstaða í heimsklassa – sjálfsögð mannréttindi barna aðstaðan annar hvergi nærri þeim fjölda sem í hana sækir. Það gengur ekki að efnilegt íþróttafólk úr þessum hverfum og fleirum í Reykjavík, þurfi að fara bæjarenda á milli, eða í nágrannasveitarfélög til að stunda íþrótt sína.

Íþrótta- og æskulýðsmál hafa lengi átt hug minn allan. Þegar ég hætti í slökkviliðinu árið 2016 gafst enn frekari tími til þess að sinna þessari ástríðu minni. Það var því stór stund þegar nýr og glæsilegur knattspyrnuvöllur var vígður í Árbænum - mínu heimahverfi sumarið 2018. Sömu sælutilfinningu upplifði ég sama ár þegar sérstök rafíþróttadeild hóf starfsemi sína í Árbænum.

Ekki þarf að fjölyrða um samfélagslega gagnsemi íþrótta og hreyfingar. Uppbygging íþróttainnviða er fjárfesting sem skilar sér í bættri andlegri og líkamlegri heilsu borgarbúa, með tilheyrandi sparnaði fyrir heilbrigðiskerfið. Viðunandi íþróttaaðstaða er einfaldlega þjóðhagslega hagkvæm framkvæmd.

Ég þekki hversu jákvæð áhrif íþróttaog tómstundastarf hefur á börn og ungmenni. Hreyfing og íþróttir eru nefnilega stór þáttur í heilbrigðum uppvexti. Rétt eins og skólagangan sjálf. Íþróttamannvirki eru þess vegna mikilvægir innviðir, alveg eins og skólahúsnæði eða vegakerfið. Innviðum hefur almennt ekki verið sinnt sem skyldi í stjórnartíð vinstri meirihlutans sem stjórnað hefur í Reykjavík – með örstuttum hléum – í tæp þrjátíu ár, og dugar í þeim efnum að nefna viðvarandi viðhaldsleysi á skólahúsnæði og öðrum fasteignum á vegum borgarinnar. Þótt aðstaða sumra íþróttafélaga sé til fyrirmyndar, er það þó svo að önnur hverfi hafa fallið langt á eftir. Samanburður við nágrannasveitarfélögin er okkur heldur ekki hagfelldur. Kópavogur er með fleiri yfirbyggða knattspyrnuvelli í fullri stærð en Reykjavík.

Það eru sjálfsögð mannréttindi barna að geta gengið að fyrsta flokks íþróttainnviðum innan sinna hverfa. Við eigum að tryggja börnum jafnt aðgengi að íþróttaaðstöðu, óháð búsetu. Björn Gíslason borgarfullttrúi Sjálfstæðis- Sjálfstæðisflokkurinn vill ráðast í stórfellt átak í uppbyggingu flokksins í Reykjavík. íþróttaaðstöðu í Reykjavík, og tryggja viðunandi aðstöðu í Uppbygging íþróttainnviða er fjáröllum hverfum. Þannig sinnum við festing sem skilar sér þörfum allra – afreksfólks og þeirra sem Íþróttaaðstaða í mörgum borgarhverfstunda hreyfingu á sínum forsendum. um er hreinlega óboðleg og hefur verið leyft að drabbast niður. Nægir þar að Höfundur er borgarfulltrúi og skipar nefna Laugardalinn – þar sem löngu er 5. sæti á framboðslista Sjálfstæðisorðið tímabært að byggja fullnægjandi flokksins fyrir borgarstjórnaríþróttahús fyrir íþróttafélögin og skólana. kosningarnar í Reykjavík. Sama gildir um vesturbæinn, þar sem

bf fo o.is 7^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][

W[d5W[d#^h

BG

BG

S VO

SV

T T UÐ ÞJ Ó N US

TA

OT TUÐ ÞJÓNUS

TA

SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GA AT TA) · 200 2 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 00:17 Page 3

Helgi Áss skipar 7. sæti og Jórunn Pála 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar vorið 2022.

Við viljum alvöru samtal og heiðarlegt samráð við íbúa Árbæjar og Breiðholts um framtíð Elliðaárdalsins: • • • •

Svo sem um Árbæjarlónið Hvort virkja eigi Elliðaárvirkjun aftur Ofurþéttingu byggðar í Árbæ og Breiðholti Hvort halda eigi áfram með BioDome-verkefnið

Veljum XD laugardaginn 14. maí


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 00:22 Page 4

4

Fréttir

Árbæjarblaðið

Barnaborgin Reykjavík - eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur sem skipar 2. sætið á lista Samfylkingar Stærsta aðgerðin í aðgerðaáætlun til vinna gegn því samfélagsmeini sem sárafátækt er, var að tryggja börnum notenda fjárhagsaðstoðar gjaldfrjálsa leikskóladvöl og dvöl á frístundaheimili auk skólamáltíða. Áður höfðum við lækkað greiðsluþáttöku fjölskyldna í Reykjavík þannig að barnmargar fjölskyldur greiða nú aðeins námsgjald fyrir eitt barn og fæðisgjald fyrir tvö börn, þvert á skólastig óháð barnafjölda. Námsgögn eru nú afhent í skólunum og þar geta börn nálgast túrvörur. Á þessu ári er verið að innleiða breytt verklag í þjónustu við börn sem þurfa aukinn stuðning um alla borg, það felur í sér þverfaglegan stuðning sem veittur er

hratt og vel í umhverfi barnanna. Fjárframlög til skóla hafa verið hækkuð og eru nú einnig ákvörðuð út frá félagslegri samsetningu hverfis þannig að þar sem áskoranir eru meiri sé til fjármagn til að mæta þeim. Tómstundir fyrir öll börn Öll börn eiga að geta þroskað hæfileika sína í frístundastarfi. Við þurfum að hækka frístundastyrkinn og halda áfram að efla frístundastarf um alla borg. Þar má nefna fjölgun skólahljómsveita og að skapa tækifæri til að prófa margs konar tómstundir án endurgjalds þar til sú rétta er fundin. býður börnum upp á fjölda íþróttagreinar en auk þess eru fimleikar

og margt annað aðgengilegt. Það ætti því að vera nokkuð tryggt að börn geti fundið sér íþrótt við hæfi. Með nýju alþjóðateymi Reykjavíkur er unnið markvisst að því að miðla upplýsingum um þjónustu borgarinnar til fólks sem á annað móðurmál en íslensku, þ.m.t um möguleika barna til íþrótta- og frístundaþátttöku. Verkefni sem hófst einmitt í Árbænum. Meiri Reykjavík Sú einstaka aðgerð sem best er talið að geti komið í veg fyrir fátækt barna er að aðstoða foreldra við að stunda launaða vinnu. Við höfum komið upp sérstöku Virknihúsi til að styðja notendur fjárhagsaðstoðar með það að

markmiði, á þeirra forsendum. Við settum á laggirnar sérstakt húsnæðisúrræði fyrir unga einstæða foreldra þar sem þeim býðst húsnæði og stuðningur við heimilishald og efldum stuðning við unga einstæða foreldra. Jöfnuður, jafnrétti og sjálfbærni hefur verið rauður þráður í vinnu Samfylkingarinnar í borgarstjórn. Við viljum halda áfram að byggja upp kraftmikla og nútímalega borg þar sem engin er skilinn eftir. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar, skipar 2. sæti á lista flokksins í Reykjavík

Heiða Björg Hilmisdóttir er í 2. sæti Samfylkingar fyrir kosningarnar 14. maí.

Málefni Árbæjar þurfa meiri athygli í borgarstjórn - eftir Kjartan Magnússon sem skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokks Ágæti íbúi í Árbæ, Selási, Ártúnsholti eða Norðlingaholti! Ég hvet þig til að greiða því framboði atkvæði í borgarstjórnarkosningunum, sem líklegast er til að vinna að málefnum Árbæjarhverfa og Reykjavíkurborgar í heild. Stjórnun margra mikilvægra málaflokka er ábótavant hjá borginni. Núverandi borgarstjórnarmeirihluti er áhugalítill um málefni Árbæjarhverfa enda mæta þau oft afgangi hjá honum. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu sem fyrr leggja áherslu á að vinna fyrir alla Reykvíkinga. Við munum ekki gleyma eystri hverfunum heldur leggja aukna áherslu á að þjóna íbúum þeirra sem best. Tuga milljarða tafaskattur Vinstri meirihlutinn hefur með ýmsum hætti lagst gegn framkvæmdum

í þágu greiðrar umferðar og aukins umferðaröryggis í Reykjavík. Nefna má aðgerðir Samfylkingarinnar og fylgiflokka hennar til að spilla Sundabrautarverkefninu. Einnig neikvætt viðhorf þessara flokka til úrbóta á umferðarþungum gatnamótum í borginni, t.d. gatnamótum Miklubrautar-Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar-Bústaðavegar. Þá vill meirihlutinn þrengja nokkrar mikilvægar umferðaræðar í borginni, t.d. Suðurlandsbraut. Sýnt hefur verið fram á að kostnaður reykvískra heimila vegna óþarfra umferðartafa vinstri flokkanna nemur tugum milljarða króna árlega. Þessi tafaskattur leggst almennt mun þyngra á íbúa eystri hverfa en þá sem búa vestar í borginni. Greið og örugg umferð - XD Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á greiða umferð og umferðaröryggi,

óháð fararmáta. Reykjavíkurborg á að standa við gerða samninga um Sundabraut og greiða fyrir lausn verkefnisins í stað þess að standa í vegi fyrir því eins og núverandi borgarstjóri hefur gert. Ráðast þarf í alvöru umbætur á fjölförnum gatnamótum í borginni, sem greiða fyrir umferð og auka umferðaröryggi. Bæta þarf almenningssamgöngur og efla gönguog hjólatengingar við Árbæjarhverfin. Þróun byggðar í sátt við íbúa – XD Sjálfstæðisflokkurinn vill auka samráð við íbúa vegna þróunar byggðar í Árbæ og Norðlingaholti. Leggja þarf ríka áherslu á græn svæði og góða íþrótta- og leikaðstöðu barna og unglinga. Sterkir skólar í Árbæ -XD Efla þarf skólastarf í Árbæjarhverfum og ekki gera skólatilraunir í hverfinu án samþykkis

foreldra. Íþróttir fyrir alla - XD Sjálfstæðisflokkurinn vill bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar í Árbæjarhverfum og efla hverfisíþróttafélagið Fylki í því skyni. Bregðast þarf við aukinni íþróttaástundun barna og unglinga með uppbyggingu íþróttamannvirkja hjá Fylki og stækkun Fylkissels. Bæta þarf aðstæður til hestaíþrótta í Víðidal og samræma lóðarleigusamninga þar. Umhirða og viðhald - XD Bæta þarf viðhald opinberra mannvirkja í Árbæ, ekki síst skóla og íþróttamannvirkja. Friða þarf Elliðaárdalinn og bæta aðstöðu til útivistar þar. Víða þarf að auka þrif, grasslátt og bæta lýsingu á göngustígum. Betri snjómokstur - XD Snjóruðningur og -hreinsun voru

Kjartan Magnússon. óviðunandi í Árbæjarhverfum í vetur. Sjálfstæðisflokkurinn heitir því að bæta skipulag og stjórnun snjóruðnings í borginni. Málefni eldri íbúa Úthluta þarf fleiri lóðum til byggingarfélaga eldri borgara í Reykjavík. Þannig verður þeim eldri borgurum, sem það vilja, auðveldað að komast í hentugra húsnæði. Við viljum efla frístundastarf eldri borgara í Árbæ. Kjartan Magnússon er í þriðja sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Dalslaug, fyrirmynd annarra hverfa - eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur oddvita Viðreisnar í Reykjavík Það hefur verið gaman að fylgjast með uppbyggingu á Dalslaug ásamt Borgarbókasafninu í Úlfarsársdal, sú uppbyggingin er fyrirmynd fyrir önnur hverfi. Viðreisn vill tengja fleiri

bókasöfn borgarinnar við starfsemi sundlauga og þjónustumiðstöðva og með því lengja opnunartíma eins og hefur reynst svo vel í Úlfarsárdal. Bókasöfn eru svo mikið meira en bara

bókasöfn þau eru samkomustaður hverfisins líkt og heiti potturinn og því þurfum við að gera þau enn aðgengilegri. Nýir tímar í Árbænum Í Árbænum er margt fram undan og þarf að finna nýjan samastað fyrir bókasafnið og á nýjum stað viljum við í Viðreisn að við að það verði menningarhús líkt og í Úlfarsárdal með lengri opnunartíma og enn frekari samkomustaður í hverfinu. Viðreisn vill líka gera Rofabæinn að borgargötu en það mun gera það að verkum að hún mun njóta forgangs við endurhönnun og fegrun sem almenningsrými sem og að vera umferðaræð fyrir alla

ferðamáta. Við sem höfum búið í Árbænum lengi vitum hvað Rofabærinn er okkur mikilvægur og við verðum að leyfa götunni að verða eins fögur og hún getur. Tengjum hverfin betur með alls konar samgöngnum Við ætlum að tryggja raunverulegt valfrelsi í samgöngum . Við viljum hraða uppbyggingu Borgarlínu og fjölga deilibílum og umhverfisvænum samgönguvalkostum. Við styðjum Sundabraut sem styttir leiðir fyrir alla samgöngumáta. Með þéttari byggð í hverfum og góðum, fjölbreytum samgöngum á milli hverfa, verða til sterkari hverfiskjarnar með

ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is

s. 5 11 53 00

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. nærþjónustu og sjálfbær og lifandi hverfi. Öruggt ævikvöld í þínu hverfi Við í Viðreisn viljum líka tryggja góða þjónustu fyrir aldrað fólk, sem byggir á virkni þeirra og þátttöku. Við viljum tryggja einstaklingum dvöl í öryggi heimilis síns eins lengi og hægt er. En til að það sé raunhæft, þá þarf líka að tryggja góða þjónustu heim. Það þarf að tryggja aðgengi, hjálpartæki, endurhæfingu, hreyfingu, fæði og afbragðs stuðningsþjónustu og heimahjúkrun. Sértaklega þarf að efla kvöldog helgarþjónustu og sveigjanlega dagvistun. Þarna viljum við styðja við fjölbreytni og sveigjanleika, t.d. í rekstrarformi þjónustunnar sem aldrað fólk fær og í fæði sem aldrað fólk getur keypt heim. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík


GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6.5.2022 13:45 Page 5

xsreykjavik.is

! ! %! % &%$$#"! ! $%$ ! ! $ ! ! ! ! ! % ! ! $$#$$%! ! ! "%$


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 10:24 Page 6

6

Fréttir

Árbæjarblaðið

Öflugri úthverfi - eftir Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn vill að borgin verði endurskipulögð á forsendum hverfanna – á grundvelli sérstöðu þeirra og styrkleika. Borgarhverfi verði skipulögð með það fyrir augum að unnt verði að nálgast helstu verslun og þjónustu í 15 mínútna göngufæri. Forsenda 15 mínútna hverfa er blönduð byggð hvar íbúðarhúsnæði, vinnustaðir og þjónusta eru í nálægð hvert við annað. Fjölgun vinnustaða í austurhluta borgarinnar mun ýta undir þessa þróun og hafa jákvæð áhrif á samgöngur í borginni. Leitum ekki langt yfir skammt Reykjavík stendur á tímamótum spennandi umrótstímum sem kalla munu á breytingar. Við lærðum margt tímum heimsfaraldurs og samkomutakmarkana. Fleiri þurftu að reiða sig á nærumhverfið til að þjóna daglegum þörfum. Borgarhverfin

urðu áður óþekkt þungamiðja í hversdagslegu lífi fólks. Aukinn fjöldi fólks sinnti störfum og námi frá heimili sínu. Vafalaust verður aukin fjarvinna og fjarnám varanleg afleiðing heimsfaraldurs. Starfsmenn munu verja fleiri vinnudögum innan hverfa. Námsmenn munu verja fleiri námsstundum innan hverfa. Frekari forsendur skapast fyrir fjölbreytta hverfisþjónustu – fólk mun síður vilja sækja langt yfir skammt. Miðbær í öllum hverfum Víða um borg standa hverfiskjarnar og mega margir þeirra muna fífil sinn fegurri. Sjálfstæðisflokkurinn vill glæða kjarnana fyrra lífi með því að virkja einkaframtak og bæta skipulag. Borgin veiti atvinnurekendum sem hefja starfsemi í auðum hverfiskjörnum, styrki sem samsvara

niðurfellingu opinberra gjalda í tvö ár. Þannig má skapa aukið mannlíf innan hverfa, efla nærþjónustu og einfalda daglegt líf íbúanna – tryggja öllum hverfum sinn eigin miðbæ. Aukin uppbygging innan úthverfa Borgarskipulag hefur órjúfanleg áhrif á lífsgæði. Það er samofið lýðheilsu og fjölbreyttum félagslegum þáttum. Með 15 mínútna hverfum má stytta ferðatíma og bæta lýðheilsu - gera fleirum kleift að sinna erindum gangandi eða hjólandi. Með lifandi nærþjónustu má ýta undir samskipti ólíkra þjóðfélagshópa draga úr einsemd og félagslegri einangrun – skapa lifandi umhverfi þar sem fólk mætist og þekkist. En svo efla megi úthverfin og skapa auknar forsendur fyrir meiri þjónustu, þarf að veita aukið svigrúm

til uppbyggingar innan hverfa sem hafa til þess svigrúm. Mikilvægt er að öll uppbygging fari fram í góðri sátt við íbúa og umhverfi. Hildur Björnsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Reykjavík og borgarstjóraefni flokksins. þar sem fólki líður vel Sjálfstæðisflokkurinn vill Reykjavík sem minna og leyfir meira – styður við og fagnar býður frelsi og val. Fjölbreytta borg framtakssemi fyrir fjölbreytt fólk. Reykjavík sem hugmyndaauðgi. Borg sem setur mætir alls kyns þörfum. Sjálfbær þjónustu við fólk í forgrunn. hverfi með öflugri nærþjónustu. Reykjavík þar sem fólki líður vel. Borgarskipulag sem stuðlar að Hildur Björnsdóttir, oddviti samskiptum. Reykjavík sem bannar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is

s. 5 11 53 00

Árskortin hjá Fylki eru komin í sölu og boðið er upp á fimm tegundir korta.

Árskortin komin í sölu! Árskort fyrir komandi sumar eru komin í sölu á Sportabler og Stubb appinu! Boðið verður upp á: Brons kort Silfur kort Gullkort Platinum kort Ungmenna og Foreldrakort

Nánari upplýsingar um kortin má finna á slóðinni hér að neðan! https://www.sportabler.com/shop/f ylkir/fotbolti/product/Q2x1YlNlcnZ pY2U6ODkzMQ== Öll kortin í ár verða virkjuð á Stubb þegar búið er ganga frá kaupunum á korti!

Þau ykkar sem eruð áskrifendur ættu að vera komin með kortið sitt í appið fyrir fyrsta leik, ef ekki þá vinsamlegast hafið sambandi við Elsu, elsa@fylkir.is Einnig verður listi yfir árskortshafa fyrir fyrsta leik og hægt að fá aðstoð við að virkja kortið þá!

Árbæjarblaðið Sími: 698 - 2844 / 699 - 1322


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 6.5.2022 21:19 Page 7


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 8.5.2022 21:43 Page 8

8

Fréttir

Rauntímamæling biðlista

Árbæjarblaðið

- eftir Mörtu Guðjónsdóttur sem skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins Viðreisn, Samfylking, Píratar og Vinstri græn gerðu með sér meirihlutasáttmála um stjórn borgarinnar fyrir kjörtímabilið 2018-2022. Þar segir m.a. að brúa eigi bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Sú brúarsmíð hefur farið í handaskolum eins og best sést á biðlistum mörg hundruð barna sem ekki fá inni á leikskólum borgarinnar. Þannig hefur staðan verið á kjörtímabilinu og þannig er hún enn, þegar því er að ljúka. Markmiðið var skýrt: Að tryggja öllum börnum frá 12 mánaða aldri leikskólavist á þessu kjörtímabili. Enn er langt í land að þetta markmið náist og þegar börn fá loks leikskólavist, oft eftir langa bið, er alls ekki tryggt að þau fái inni á leikskóla síns eigin hverfis. Sú algenga staðreynd rímar illa við það slagorð borgaryfirvalda, að borgarbúar eigi að hafa aðgengi að allri nærþjónustu í sínu hverfi.

Frosið Mælaborð Þá segir í sama sáttmála að auka eigi enn frekar gagnsæi í stjórnsýslunni og því verði sem fyrst lokið með m.a. Mælaborði Reykjavíkur, enda verði þar að finna helstu tölulegar upplýsingar um þjónustu borgarinnar við borgarbúa. En Mælaborðið hefur því miður verið frosið nánast allt kjörtímabilið og þar því litlar upplýsangar að fá. Þar er t.d. hvergi að finna upplýsingar um biðlista eftir leikskólavist, né þá heldur hvernig þeir styttast eða lengjast eftir atvikum, frá degi til dags, þannig að foreldrar geti fylgst með nákvæmlega hvar börnin þeirra eru í röðinni. Slíkar upplýsingar hljóta samt að vera afar þýðingarmiklar fyrir foreldra, því þær eru mikilvægar vísbendingar um það hvort foreldrar þurfi þá sjálf að grípa til mjög tímabundinna, eða langvarandi ráðstafana. Það gagnast foreldrum lítið, að slíkur listi sé lagður fram, einungis

tvisar til þrisvar á ári, í skóla- og frístundaráði,til upplýsingar fyrir kjörna fulltrúa. Mikilvægar upplýsinga Leikskólavist barna lýtur að mikilvægri grunnþjónustu við borgarbúa. Það er því sjálfsögð krafa að upplýsingar um slíka þjónustu séu ítarlegar, aðgengilegar og oft uppfærðar. Til að auka gagnsæi og gera stjórnsýsluna skilvirkari að þessu leyti lagði ég til í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur, í fyrra að upplýsingar um laus leikskólarými og stöðu biðlistans verði settar í Mælaborðið á vef Reykjavíkurborgar og hann þá gerður nothæfur fyrir borgarbúa. Þar komi fram aðgengilegar, sundurgreindar og auðskiljanlegar upplýsingar eftir leikskólum og hverfum, um stöðu biðlista og laus leikskólarými. Ennfremur að þessar upplýsingar verði

uppfærðar um leið og breytingar verða. Markmiðið með tillögunni er að sjálfsögðu að auðvelda foreldrum aðgengi að upplýsingum, og gera stjórnsýsluna gagnsærri og skilvirkari. Slíkt fyrirkomulag myndi spara foreldrum tíma og mikla fyrirhöfn, og draga úr álagi leikskólanna og skóla- og frístundasviðs. Marta Guðjónsdóttir. Tillaga mín og örlög hennar En hvað skyldi hafa orðið um þessa tillögu mína? Jú, afgreiðslu hennar var fyrst frestað. Hún var síðan tekin fyrir, þremur mánuðum síðar og afgreidd með eftirfarandi hætti: „Skólaog frístundaráð leggur til að tillögunni um upplýsingar um leikskólarými verði vísað til starfshóps um Mælaborð borgarbúa á vegum fjármála- og áhættustýringarsviðs borgarinnar.“ Við þessa þulu er því að bæta að síðan hefur ekkert heyrst frá tillögunni né

starfshópnum. Ekkert hefur því verið gert í málinu. Það er löngu orðið tímabært að Reykjavíkurborg tileinki sér nútímalegri vinnubrögð sem tryggi skilvirkari, gagnvirkari og persónulegri þjónustu og upplýsingargjöf til borgarbúa. Höfundur:Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og skipar 4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokks-ins fyrir borgarstjórnarkosningarnar

Borgarlína - klárum dæmið! - eftir Birki ingibjartsson sem skipar 8. sæti á lista Samfylkingar Undirbúningur við gerð Borgarlínunnar er á fullri ferð. Alþjóðlegt hönnunarteymi á vegum Vegagerðarinnar og Betri samgangna ohf. vinnur að hönnun göturýmis Borgarlínunnar. Innan skipulags- og samgöngudeilda Reykjavíkur eru til skoðunar þær breytingar á skipulagi og samgöngum sem Borgarlínan kallar á. Samhliða er verið að skilgreina hvernig við tryggjum gæði þeirra borgarrýma og gatna sem Borgarlínan liggur um. Samkvæmt áætlun munu framkvæmdir við fyrstu lotu Borgarlínunnar hefjast strax á næsta ári. Með Borgarlínunni munu skapast nýjar tengingar milli hverfa, borgarhluta og til annara sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Tengingar sem eru á forsendum gangandi og hjólandi

vegfarenda og þar sem almenningssamgöngur eru í forgrunni. Til verða nýir möguleikar til að ferðast um borgina með fjölbreyttum hætti sem styttir vegalengdir fyrir borgarbúa og dregur úr hlutdeild einkabílsins í ferðum þeirra - hvort sem fólk kýs í auknum mæli að labba, hjóla eða treysta á Borgarlínuna. Á næstu fjórum árum mun Borgarlínan og framkvæmdir henni tengdar vera mikið til umfjöllunar. Það sama gildir um allar helstu ákvarðanir sem teknar verða um það hvernig kerfið mun virka fyrir notendur þess. Í mörgum tilvikum verður tekist á um hvernig borgarumhverfi við mótum með þeim framkvæmdum og innviðauppbyggingu sem felast í verkefninu. Skiptir þar máli að setja

upplifun borgarbúa í forgrunn en velja um leið lausnir sem horfa til framtíðar og stuðla að umhverfisvænu borgarumhverfi. Við verðum að taka frá meira pláss fyrir gróður, grænar áherslur og mannlífið. Áætlað er að íbúum á höfuðborgarsvæðinu muni fjölga um 70.000 manns á næstu 15 árum. Breyttar ferðavenjur innan borgarinnar eru lykilatriði í að tryggja að samgöngur muni einfaldlega virka með auknum íbúafjölda á svæðinu. Eru breyttar ferðavenjur um leið lykilatriði í að tryggja að við getum staðið við alþjóðlegar loftslagsskuldbindingar okkar. Borgarlínan er eina raunhæfa lausnin til að þau markmið gangi eftir. Í ljósi mikilvægi verkefnisins verðum við að standa vörð um kjarna

FIMLEIKADEILD FYLKIS VERÐUR MEÐ Ð FIMLEIKA, LEIKJA OG PARKOUR NÁMSKEIÐ Í ALLT SUMAR. NÁMSKEIÐIÐ ER BYGGT UPP MEÐ LE EIKJUM, ÆFINGUM, FRJÁLSUM TÍMA OG ÚTIVERU ÞEGAR Þ VEÐUR LEYFIR. BÖRNIN KOMA MEÐ Ð MORGUNNESTI OG HÁDEGISNESTI. NÁMSKEIÐIÐ ER Í VIKU FRÁ KL. 9.00 15.00 GÆSLA TIL KL. 16.00 OG HÚSIÐ OPNAR KL. 08.30. Í LOK HVERS VIKU ER OLYMPÍULEIKAR OG PIZZUVEISLA OG ALLIR FÁ VIÐURKENNINGU. PARKOUR ER BYGGT UPP MEÐ PARKOUR ÆFINGUM, LEIKJUM OG FRJÁLSUM TÍMA. ÚT TIVERA MEÐ PARKOURÆFINGUM ÞEGAR VEÐUR LEYFIR. BÖRNIN KOMA MEÐ MORGUNNESTI OG HÁDEGISNESTI. PIZZUVEISLA Í LOK HVERS VIKU. VIKAN KOSTAR KR. 12.000.- OG ER FYRIR BÖRN 2016 2011. ALLT REYNDIR ÞJÁLFARAR MEÐ HÓPANA OG MEÐ YNGRI AÐSTOÐARÞJÁLFARA. FIMLEIKADEILDIN ER Í NORÐLINGAHOLTI, NORÐLINGABRAUT 12 Í STÓRU FIMLEIKAHÚS SI MEÐ ALLT TIL ALLS. STÓRRI GRYFJU, TRAMBOLÍNI OG ÖLLUM ÁHÖLDUM SEM HÆGT ER AÐ BJÓÐA UPPÁ. Í ALLT SUMAR ÆTLUM VIÐ AÐ HAFA GAMAN SAMAN OG SKEMMTA OKKUR VELL. ALLAR SKRÁNINGAR ERU Á HEIMASÍÐU FÉLAGSINS. WWW.FYLKIR.IS Vika 1. 13-17.júní (frí 17.júní) lækkað verð. Vika 2. 20-24.júní Vika 3. 27-1.júlí Vika 4. 4-8.júlí Vika 5. 11-15.júlí Vika 6 og 7 18-22.júlí og 25-29 frí húsið lokað. Vika 8. 2-5.ágúst (frí 1.ágúst) Vika 9. 8-12.ágúst Vika 10. 15 19.ágúst 15-19.ágúst Sumar 2022.

Borgarlínunnar í allri þeirri ákvarðanatöku sem framundan er. Mikill metnaður hefur verið settur í undirbúning Borgarlínunnar á liðnum árum en nú er komið að því að ákveða útfærsluna. Þann 14. maí næstkomandi verður gengið til borgarstjórnarkosninga. Þar skiptir máli að til starfa í borgarstjórn veljist fólk og flokkar sem til að byrja með hafa trú á Borgarlínunni. Að hafa skilning á umfangi verkefnisins og þeim tækifærum sem því fylgir er ekki síður mikilvægt. Við í Samfylkingunni vitum að því fylgir mikil ábyrgð að móta umhverfi borgarinnar. Við munum gæta þess að hvergi verði slegið af þeim gæðum sem Borgarlínan þarf að hafa eða kröfum okkar um gott og heilnæmt umhverfi

Birkir Ingibjartsson. fyrir fólkið í borginni. Birkir Ingibjartsson, arkitekt og verkefnastjóri hjá borgarskipulagi Reykjavíkur skipar 8. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar

Barnvænni Árbær

- eftir Einar Þorsteinsson oddvita Framsóknar Málefni barna eru mér ofarlega í huga þessa dagana þegar ég sit með nýfæddan son minn í fanginu. Sem þriggja barna faðir þekki ég áhyggjur foreldra af framtíð barna sinna vel á eigin skinni. Öll viljum við búa börnum okkar umhverfi þar sem þau geta örugg blómstrað. Hlúð að áhugamálum sínum, uppgötvað heiminn og allt sem hann hefur upp á að bjóða, þroskast og hamingjusöm leikið sér. Framsókn hefur unnið stöðugt að aukinni farsæld barna með sérstaka áherslu á það að fjárfesta í fólki undanfarin ár. Með lögum barnamálaráðherra um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna eða „farsældarlöggjöfinni” ritaði Ísland sig í sögubækurnar með nýju kerfi þar sem barnið er kjarninn og miðjan – hjarta kerfisins. Öll þjónusta skal nú koma til barnsins frekar en að börn og fjölskyldur þeirra þurfi að leita hana uppi eins og raunin hefur verið. Öflugt samstarf milli stjórnsýslustiga greiðir leið innleiðingar og flýtir því að þessir þjónustuaukar komist til skila. Það er vilji Framsóknar í Reykjavík að stýra borginni út frá hagsmunum barna. Innleiða farsældarlögin í allt starf hennar og tryggja aðgengi að snemmtækri íhlutun. Við verðum að bæta skóla borgarinnar með því að treysta grunnstoðir eins og faglegt starf, heilnæman mat og öryggi barnanna okkar. Þá viljum við leysa leikskólavandann með fjölbreyttum lausnum sem endurspegla margbreytileika fjölskyldna borgarinnar. Við viljum hlúa vel að lýðheilsu barna óháð efnahagsstöðu, hækka frístundastyrk í 75 þúsund krónur og að börn geti farið frítt Einar Þorsteinsson. í sund. Þá viljum við öfluga uppbyggingu íþróttamannvirkja í öllum hverfum borgarinnar ásamt því að efla félagsmiðstöðvar og starfsemi ungmennahúsa. Framsókn vill að Reykjavík sé barnaborg. Borg þar sem fólk vill skjóta niður föstum rótum og ala fjölskyldu. Borg þar sem öryggi barna og velferð eru trygg. Borg þar sem kvíðahnútur foreldra yfir framtíðinni er kannski aðeins minni en nú er. Er ekki kominn tími á breytingar í borginni? Höfundur eru borgarstjóraefni Framsóknar í Reykjavík


GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6.5.2022 13:51 Page 11

POWER IS NOTHING WITHOUT CONTROL

Stærs sta verks e tæði landsins í næs sta n nágr en nni

Breiðhöfða 13

Grjóthálsi 10

Nes sdekk Breiðhöfða ð 13. Eitt fullkomn nasta hjólbarða ð verkstæði landsins. Tímap pantanir á nesde ekk.is Ne esdekk Grjóthálsi 10. Engar tímapan ntanir. Þú mætir með b bílinn og ferð í röð.

Bók kaðu t íma fyrirr bílinn þinn og s k o ð a ð u dekkjjaúrvalið á nesd dekk.is Brre eiðhöfði 13 110 Reykjavík 59 5 90 2080 Tímabókun

Grjóth hálsi 10 110 Re ey e ykjavík 561 42 210 Röð

Sttærðin skiptir ekki máli á Breiðhöffð S ða 13.

561 4200 / nesdekk.is


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 17:17 Page 10

10

Fréttir

Árbæjarblaðið

Stækkum dalinn! - Stefán Pálsson í 2. sæti á framboðslista VG í Reykjavík

Sagnfræðingurinn og fótboltaáhugamaðurinn Stefán Pálsson skipar annað sætið á framboðslista Vinstri grænna í Reykjavík og stefnir ótrauður á sæti í borgarstjórn. Árbæjarblaðið tók Stefán tali í miðju kosningaatinu. - Ertu Reykvíkingur í húð og hár? „Já, fyrir utan smá ísfirska tengingu er mitt fólk meira og minna héðan af mölinni. Ég bý núna í Hlíðunum og þarf því að þola það að yngri sonurinn sé gallharður Valsari. Sjálfur ólst ég upp í Vesturbænum, en afa mínum Haraldi Steinþórssyni fyrrum formanni Fram tókst með klækjum að ala mig upp sem Framara. Ég er því enn að venja mig við tilhugsunina um að Fram og Fylkir séu orðin nágrannalið og mögulegir framtíðarerkifjendur! Bíð spenntur eftir fyrsta Derby-slagnum og þá helst í efstu deild!“ - Hvers vegna ertu að skella þér í borgarmálin núna? „Það er ágæt spurning. Ég hef verið virkur í pólitík frá táningsaldri, en sá aldrei fyrir mér að fara sjálfur í framboð. Síðustu árin hef ég hins vegar gert mikið af því að stjórna sögugöngum vítt og breitt um borgina. Í tengslum við það hef ég drukkið í mig sögu Reykjavíkur og áttað mig stöðugt betur á því hvað mér þykir vænt um borgina okkar allra. Ég held líka að skilningur á því hvernig Reykjavík hefur þróast í gegnum tíðina sé góður bakgrunnur fyrir störf að borgarmálum. Við eigum ekki að þurfa að endurtaka mistök fortíðarinnar og getum lært af því sem vel er gert.“ - Hver eru ykkar helstu áherslumál í borginni?

„Þau eru bæði stór og smá. Vinstri græn eru flokkur sem hefur frá stofnun verið leiðandi í umhverfismálum og þar eru vitaskuld risavaxnar áskoranir. Loftslagsmálin eru stærsta viðfangsefni samtímans og þar skiptir sveitarstjórnarstigið gríðarlega miklu máli. Við viljum kolefnishlutlausa Reykjavík. Við viljum flýta fyrir orkuskiptum og gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti fyrir okkur öll. Borgarlínuverkefnið er einn stærsti áfanginn á þeirri leið. Að auki er sérstakt hugðarefni okkar að borgin komi að stofnun Vísindaveraldar, þar sem börn á öllum aldri geta fræðst um vísindi- og tækni á lifandi hátt. Slíkt setur væri að okkar mati mikilvægt framlag til menntakerfisins auk þess að vera frábær afþreying fyrir fjölskyldur eins og reynslan sýnir erlendis frá.“ - En hvað með húsnæðismálin? Eru þau ekki mál málanna? „Jú, mikil ósköp! Húsnæðismálin eru klárlega það sem hvílir þyngst á kjósendum eins og við frambjóðendur verðum rækilega vör við. Þar komum við með róttæka stefnu að borðinu og bendum á að frjálsi markaðurinn hafi reynst ófær um að tryggja almenningi traust og ódýrt húsnæði. Við eigum því ekki að hika við róttækari aðgerðir, þar sem Reykjavíkurborg stígur sjálf inn á húsnæðismarkaðinn með ákveðnum hætti. Reykjavík á sjálf að byggja það sem við köllum Reykjavíkurbústaði, hagkvæmt leiguhúsnæði fyrir almenning að fyrirmynd borga eins og Helsinki og Vínar. - En eru einhver málefni sem snúa

Stefán Pálsson skipar 2. sæti á framboðslista VG í Reykjavík. sérstaklega að Árbæingum? „Ég vann í meira en áratug við fræðslumál hjá Orkuveitunni í Elliðaárdal og get með sanni sagt að dalurinn er uppáhaldssvæðið mitt í Reykjavík. Það má lengi gott bæta og við í Vinstri grænum höfum velt því upp hvort ekki megi opna hlið

Árbæjarsafns og gera safnsvæðið að hluta að stígakerfi og útivistarsvæði dalsins? Með nútímatækni er alveg óþarfi að hleypa safngestum um miðasöluhlið inn á afgirt svæði. Þess í stað væri auðvelt að selja inn í einstök hús, en gestir og gangandi gætu notið þess að

ganga um þetta frábæra svæði. Ég er sannfærður um að þetta kæmi til með að lyfta safninu, auka aðsókn og þar með fengi hverfið aðgengi að prýðilegu kaffihúsi! Þessa tillögu höfum við mátað á stjórnendum safnsins, sem eru mjög jákvæðir.“

ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is

s. 5 11 53 00


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 17:20 Page 11

Stefán Pálsson Í borgina! Verið velkomin í kosningakaffi í VG Portið Bankastræti 2 á kjördag frá 12-17 Vantar þig skutl á kjörstað? Hringdu þá í síma 893-7861

Kynnið ykkur stefnuna Read the manifesto Przeczytaj deklarację programu

x22.vg.is

14. maí


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 7.5.2022 12:41 Page 12

12

Fréttir

Árbæjarblaðið

Reykvískt rafmagn á rafmagnsbílinn? - eftir Helga Áss Grétarsson og Jórunni Pálu Jónasdóttur, frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins Elliðaárvirkjun var nánast samfleytt í rekstri frá sumrinu 1921 þar til að fallpípan hóf að leka árið 2014. Það hefur verið skoðað með reglulegu millibili hvort koma eigi virkjunin í gang á nýjan leik og hafa jafnan þrír valkostir komið til álita í þeim efnum (Skýrsla stýrihóps um Elliðaárdal, dags. 15. júní 2021, bls. 11). Einn möguleiki hefur verið að setja nýja vatnsaflsvél, endurnýja fallpípuna og nýta önnur mannvirki virkjunarinnar. Annar valkostur hefur verið að endurnýja einungis fallpípuna og reka virkjunina eins og á árum áður. Þriðja leiðin hefur verið að hætta raforkuframleiðslu til frambúðar. Síðastnefnda leiðin varð fyrir valinu í lok október 2020. Við það tækifæri var tilkynnt að Árbæjarlónið yrði tæmt til frambúðar en það er að mestu ágreiningslaust að illa hafi verið staðið að undirbúningi þeirrar ákvörðunar, sbr. grein okkar í fjórða og síðasta tbl. Árbæjarblaðsins (apríl 2022). Sem dæmi hefur ákvörðunin verið harðlega gagnrýnd fyrir skort á samráði við íbúa svæðisins áður en hún var tekin. Er ekki best að athuga hvort virkja skuli á nýjan leik? Í ljósi þess að Elliðavirkjun var starfrækt samfleytt í meira en 90 ár, og

Yfirlitsmynd yfir staðhætti við Árbæjarstíflu. Mynd úr skýrslu stýrihóps um Elliðaárdal.

Helgi Áss Grétarsson.

Jórunn Pála Jónasdóttir.

öll helstu mannvirki hennar eru enn til staðar, eru augljós rök fyrir því að hefja virkjun hennar á nýjan leik. Um þetta var fjallað í fréttatíma Stöðvar 2 hinn 28. apríl síðastliðinn en þar var m.a. vakin athygli á því að á sama tíma og landsmenn brenndu sl. vetur dísilolíu sökum skorts raforku þá „stóð Elliðaárvirkjun ónotuð“. Í þessari sömu frétt var tekið viðtal við Birkir Þór Guðmundsson, stjórnarformann Orkuvers ehf., en hann hefur lengi starfað í raforkugeiranum og hefur síðan frá aldamótum m.a. komið að uppbyggingu og reksturs töluverðs fjölda smávirkjana. Að mati Birkis hefur Orkuveitan áætlað kostnað af því að endurræsa Elliðaárvirkjun of háan, þ.e. Orkuveitan telur að endurbætur muni kosta um milljarð króna en samkvæmt grófri skoðun fyrirtækis Birkis er talið að kostnaðurinn liggi „einhversstaðar á bilinu sextíu prósent af þeirri kostnaðaráætlun“, þ.e. um 550–660 milljónir króna.

Um þetta eru án efa skiptar skoðanir. Mörgum mundi hugnast að fá lónið fyllt að nýju þar eð það skapaði litríkt umhverfi, t.d. blómstraði fuglalíf í lóninu og fyrir útivistarfólk sem gekk um lónið þótti það iðulega fagurt, svo sem vegna speglunar þess. Á hinn bóginn verður ekki fjöður dregin yfir það að flestir áhugamenn um laxveiði telja til bóta að Árbæjarlónið hafi verið tæmt. Sömu skoðunar eru þeir sem styðja þá viðleitni að færa náttúruna sem næst upprunalegu ástandi sínu, þar með talið vatnsfarvegi.

Sé mið tekið af þróun raforkuverðs sem og aukinni eftirspurn eftir raforku, m.a. vegna rafvæðingar bílaflotans, virðist óskynsamlegt að skoða það mál ekki á nýjan leik að virkja Elliðaárnar á ný. Árbæjarlónið myndi þá fyllast á ný.

Kjarni málsins Það kann að kosta fjárútlát og flækjur að hefja skoðun á því að koma Elliðaárvirkjun aftur af stað. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar ætti augljóslega að kanna málið betur. Allt er nefnilega til reiðu að tryggja borgarbúum, fyrir tiltölulega lág útgjöld, raforku úr Elliðaánum og auka þannig öryggi við afhendingu raforku í Reykjavík, m.a. fyrir sístækkandi rafbílaflota. Helgi Áss skipar 7. sæti og Jórunn Pála 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar sem haldnar verða 14. maí 2022.


GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 6.5.2022 14:21 Page 9

Alllt fy yrir v vorv verk kin Lavor Predator 180 Digital háþrýstidæla Mótor 2500W Þrýstingur: 180 bör Vansflæði: 510 l/kls

7189.995 .996 996 Áður

2 20

%

20

%

kr.

MOWER CJ20G G

AFMÆLLISAFSLÁTTUR

20

%

33 356

AFMÆLISAFSLÁTTUR

Sláttuvél m/drifi, Briggs&Stratton mótor, rúmtak 150C CC, skurðarvíddd 51cm 20‘‘ Safnpooki að aftan 65L, hliðaarútskilun. Skurððhæð mm/8

AFMÆLISAFSLÁTTUR

r 995

5

20 0

%

Kalibe er ferðagasgrill g

2 20

%

AFMÆLISAFS SLÁTTUR

r 3.695

A AFMÆLISAFSLÁTTUR

2329.995 2 23.9 996 9 29 995 95

en FBC310

ð

Sláttuorf: 1cylinderr lloftkældur mótor. 0,7 kW Rúmtak 31CC, Stærð 0, ben ensíntanks 0,65 L

Greinakl 180mm

f

1

Á Áður

25.35 25 56

695

Grask 5kg Graskorn

Kalliber Silv ver II gassgrill

2.155 2.155

Blák ákorn 7kgg

3.45 45 55

2.3 385

on! i s i v Euro stilboð li afmæ

Áðður 31.6 695 kr.

Meisteer Ruslapoki PopUpp 160litr

k kr kr.

20

%

3 breennarar, (9 kW) Grillfflötur 54x41,5cm

Pretull ggreinaklippur

1.1 .15 59

38 8.7 9 6 48.495 Áðurr

AFMÆLISAFSLÁTTUR

kr.

Grasklippur 330mm

1.795 795

Greinaklipppur 480mm Ø= =22m mm Hnjápúði fyrir garðin

895

Truper p ð ggarðverkefæri 4 í settii

Strákústur 30 30cm

955 55

2 355

1.995 5 Garðverkfærassett Klórra, skófla og greinnaklippu

Öflugar hjólbörur 90 lítraa

9 596 9.596

3 116 3.116 6

Áður 3.895 3 895 kr.

20

%

Stök garðverkfæri Verð ffrá kr. 425

20

13 325

%

A AFMÆLISAFSLÁTTUR

AFMÆLISAFSLÁTTUR

a flöt

1 Garðhansk Flow Flower

Hjólbörur 80L

6 795

PREMIUM M

T

195

9 Kantskkeri

2 190 2.1 1 M

1. 5

Weber staurasteypa

1. 5

2

Vörumyndir sýna ekki endilega lægsta verð

Þyyngd: 15kg

1.085 085 Truper

bs

Stu

SENDUM M UM M LAND ALLLT LAN T!

www. ww.murb budin din.is

Go ott verrð ffyyrir alla í

20ár

2002 – 2022


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 00:25 Page 14

14

Fréttir

Árbæjarblaðið

Útivistarperla í jaðri byggðar - eftir Söru Björgu Sigurðardóttur sem skipar 7. sæti á lista Samfylkingar

Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t ffor.is .

VIÐ ÞJÓNUM ALL AN SÓL AR HR INGIN N

Í borginni eru margir staðir til að næra sál og líkama. Mörgum finnst gott að ganga, finna lyktina af náttúrunni og njóta útsýnis. Öðrum finnst skemmtilegra að hjóla, vera í síbreytilegu umhverfi innan borgarmarkanna, hjóla meðfram sjónum með vindinn í fangið, upplifa sólsetur með sjávarlykt eða horfa á borgina vakna í hversdagsleikann í upphafi vinnuviku. Við sem búum í úthverfi vitum hversu mikil forréttindi þetta eru að geta notið náttúrunnar í jaðri byggðar en á sama tíma búa í höfuðborginni. Á síðustu tíu árum hefur orðið umbreyting á ferðavenjum borgarbúa eftir mikla uppbyggingu á innviðum hjólastíga og með tilkomu rafhjóla. Á síðasta kjörtímabili var tekin pólitísk ákvörðun í ráðhúsinu, undir forystu Samfylkingar, að forgangsraða fjármunum í hjólreiðainnviði fyrir fjölbreytta vistvæna ferðamáta, fyrst með hjólreiðaáætlun 2015-2020 og svo var samþykkt ný hjólreiðaáætlun fyrir árin 2021-2025. Tröppu þrek upp og niður Svarthöfða Íbúar í Árbæ eru mjög heppnir með aðgang að stígakerfi Elliðaárdalsins en núna eru hafnar framkvæmdir við aðgreiningu hjólastígs frá göngustíg Breiðholtsmegin ásamt nýjum brúm, meðal annars yfir ána Dimmu. Aðgreindur stígur gangandi og hjólandi var byggður upp Svarthöfða og tekinn í notkun í lok ársins þannig að vaskir geta tekið gott tröppuþrek eða hjólaklifur upp Svarthöfða og notið útsýnis yfir borgina. Stígurinn niður Rafstöðvarbrekkuna fram hjá Toppstöðinni var endurgerður. Kaldur pottur kom í Árbæjarlaug og Rauðavatnshringurinn tók stakkaskiptum, er orðinn upplýstur og gefur færi á útivist allan ársins hring – líka í svartasta skammdeginu. Frábær viðbót við útivistarperluna Árbæ. Austurheiðar - Hin nýja Heiðmörk Reykvíkinga Við í Samfylkingunni viljum efla

Austurheiðar með markvissari hætti sem fjölbreytt og aðgengilegt útivistarsvæði fyrir borgarbúa á öllum aldri með ólík áhugamál sem gætu notið útivistar og náttúru án þess að ganga á gjafir náttúrunnar. Við sjáum fyrir okkar hópa eins og hestafólk, fjalla hjólreiðamenn, göngu og utanvegahlaup jafnvel vetraríþróttir eins og gönguskíði. Mikilvægt er að ákvarða og skilgreina legu helstu vegtenginga og göngu-, hjóla og reiðleiða um svæðið, styrkja tengingu byggðar við útivistarsvæði og aðliggjandi svæða eins og Rauðavatn þannig að hægt verði að stunda fjölbreytta útivist allt árið um kring. Öflug uppbygging í þágu barna og ungmenna í hverfinu Eftir að aðstaða til að stunda fimleika kom í Norðlingaholt fjölgaði stúlkum í skipulögðu íþróttastarfi. Það skiptir miklu máli hvaða íþróttaframboð er veitt í hverfum borgarinnar þegar horft er til þátttöku beggja kynja og þarna

Sara Björg Sigurðardóttir. skilaði sér sú uppbygging í beinni fjölgun stúlkna. Á kjörtímabilinu var uppbyggingu haldið áfram með nýjum gervigrasvelli, flóðlýsingu og áhorfendastúku á Fylkissvæðinu. Í

skoðun er að byggja tengibyggingu milli áhorfendastúkunnar og Fylkisheimilis sem myndi hýsa meðal annars Borgarbókasafnið. Hugmyndin kemur úr Úlfarsárdal þar sem vel heppnuð menningarmiðstöð með bókasafni og íþróttamannvirki eru undir sama þaki og gegnir gríðarlega mikilvægu félagslegu hlutverki fyrir íbúa á öllum aldri, sérstaklega til að sporna við mestu meinsemd 21. aldar borgarsamfélagsins – einmannaleika. Fjárfesting í sterkari og sjálfbærari hverfi Samfylkingin hefur sterka og skýra framtíðarsýn á þróun hverfa borgarinnar. Við viljum forgangsraða fjármagni í þau hverfi sem fyrir eru og nýta þá innviði sem búið er að fjárfesta í með áframhaldandi uppbyggingu og fjárfestingu í stað þess að þenja byggðina út strax með nýrri uppbyggingu eins og í Keldnaholti. Sterkir hverfiskjarnar gegna þar lykilhlutverki með blandaðri byggð og fjölbreyttri þjónustu. Rofabær og Bæjarháls verða borgargötur með hverfistorgum, grenndarstöðvum, stoppistöðvum fyrir Strætó, hleðslustöðvum rafbíla og stæðum fyrir deilibíla. Þar verður sköpuð umgjörð fyrir sterkari og sjálfbærari kjarna þar sem margvísleg þjónusta er í göngu- og hjólafjarlægð, hvort sem um ræðir skóla, leikskóla, tómstundir eða græn svæði. Þess vegna er svo mikilvægt að fylgja eftir samþykktu Hverfisskipulagi fyrir Árbæinn þannig að fimmtán mínútna hverfið komist fljótt og vel í framkvæmd með minni umferð innan hverfis, betri loftgæðum og meira öryggi fyrir gangandi og hjólandi. Árbær er á réttri leið. Gerum Austurheiðar að nýju Heiðmörk Reykvíkinga og setjum X við S þann 14. maí 2022. Höfundur er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, búsett í Breiðholti og skipar 7. sæti á lista Samfylkingar fyrir borgarstjórnarkosningarnar 14. maí 2022


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 17:32 Page 15

15

Fréttir

Árbæjarblaðið

Fimmtán ára frumkvöðlar úr Startup Árbær slá í gegn Fjórmenningar úr Árbæjaskóla settu á fót fatafyrirtækið Burners. Þeir moka nú út peysum og gefa hluta hagnaðar til góðgerðarmála. „Byrjun á einhverju stóru,” segja frumkvöðlarnir. Fatafyrirtækið Burners safnaði um 150 þúsund til góðgerðamála. Fyrirtækið var stofnað af fjórum fimmtán ára strákum úr Árbæjarskóla undir handleiðslu Kristjáns Sturlu Bjarnasonar kennara í valfaginu Startup Árbær. Strákarnir hönnuðu hettupeysur og settu í forsölu í febrúar. Alls seldust 95 peysur til einstaklinga út um allt land. Helmingur af hagnað fyrirtækisins rennur til góðgerðamála. Upphafið má rekja til skólaverkefnis í Árbæjarskóla sem heitir ,,Startup Árbær“ og hefur staðið yfir nú í vetur. Strákarnir, Arngrímur Egill, Tryggvi Þór, Ísak Örn og Egill Airi, nemendur 10. bekkjar Árbæjarskóla, hafa unnið hörðum höndum í rúma 6 mánuði við að stofna fatafyrirtæki sem fékk nafnið Burners. „Mig langar að hrósa strákunum í fyrirtækinu Burners fyrir virkilega góða vinnu í valfaginu Startup Árbær.

Þeir hafa selt 95 peysur sem þeir hönnuðu sjálfir og ruku þær út eins og heitar lummur. Það er alls ekki sjálfgefið að fyrirtækin gangi svona vel enda mikil vinna á bak við svona verkefni og í mörg horn að líta. Þá felst lærdómurinn ekki síður í því að þurfa að leysa ýmis vandamál sem upp koma - s.s. leysa ágreining, virkja stjórnarmeðlimi og fleira en það hafa þeir gert mjög vel,“ Segir Kristján Sturla. „Til að gefa innsýn inn í ferlið þá þurftu þeir að stofna fyrirtæki og móta viðskiptahugmynd. Því næst þarf að gera nokkurs konar viðskiptaáætlun sem er kynnt fyrir „fjárfestunum" sem eru í þessu tilfelli skólastjórnendur. Þar byggði ég upp nokkuð stress, af ásettu ráði, svo þeir þyrftu að læra að takast á við það líka. Kynninguna leystu þeir mjög vel og höfðu stjórnendur orð á því hversu vel þeir höfðu undirbúið sig - enda hugmyndin samþykkt einróma. En þar með er ekki öll sagan sögð því þeir þurftu auðvitað að framkvæma hugmyndina í kjölfarið - klára hönnunina, finna réttu verðtilboðin, vera í samskiptum við birgja, markaðssetja og svo auðvitað ná að selja hana,“ segir Kristján Sturla.

Fjórmenningar úr Árbæjaskóla. Strákarnir hönnuðu hettupeysur og settu í forsölu í febrúar. Alls seldust 95 peysur til einstaklinga út um allt land. Markmiðið með þessu öllu saman er í rauninni ekki að græða sem mest heldur að fá hugmynd og framkvæma hana. En auðvitað, eins og í öllum fyrirtækjum, er rýnt í sölutölur í lokin og gaman að segja frá því að það seldust rúmlega 90 peysur og skilaði fyrirtækið veglegum hagnaði. Skólinn hefur ekki leyfi til að borga út hagnaðinn til nemenda og hefur því hagnaðurinn sem safnast í lokin hjá öllum hópunum, verið nýttur í góðgerðarmál sem startup hópurinn velur, uppskeruhátíð fyrir hópinn og svo hefur verið hefð að nýta það sem eftir er í gleðja samnemendur - t.d. í útskriftarferðinni eða á lokaballi. Strákarnir segja að þetta hafi verið ótrúlega krefjandi verkefni og eitt það skemmtilegasta sem þeir hafi nokkurntíma gert. „Þetta er bara byrjuninni á einhverju stóru“ segja þeir einróma um þetta spennandi frumkvöðla-


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 12:17 Page 16

16

Fréttir

Árbæjarblaðið

Það er alltaf hátíðlegt að taka fánann með sér í skrúðgöngu.

Lögreglan passaði upp á að leiðin væri greið.

Fyrsti sumardagur

Það var ágætis veður en kalt þegar efnt var til hátíðahalda í Árbænum í tilefni af sumardeginum fyrsta seint í apríl mánuði að venju. Frekar fámennt var á hátíðahöldunum og hefur veðrið án efa leikið þar stórt hlutverk. Það hefði vissulega verið gaman að sjá fleirri en ekki verður við veðurguðina ráðið.

En það er alltaf eitthvað mjög hátíðlegt við svona skrúðgöngur í gegnum hverfið. Krakkarnir skemmta sér vel enda er jafnan mikið í gangi þegar börnin eru annars vegar. Það var boðið upp á hoppukastala

Ljósmyndir Katrín J. Björgvinsdóttir

með rennibraut, grillað útilegu brauð, kúluspil og margt fleira. Inni í skátaheimilinu var boðið upp á heitar vöfflur með rjóma, pylsur og annað góðgæti.

Júlía Lóa Sigurðardóttir, Embla Líf Ragnheiðardóttir og Sigurrós Mínerva Sigurðardóttir voru að kríta.

Svo var klifurveggurinn sem er alltaf jafn vinsæll á sínum stað.

Feðginin Iðunn Karítas og Sævar Ingþórsson.

Fólk á öllum aldri mætti í skrúðgönguna.

Feðgarnir Hjörtur Smári og Anton Þórólfsson.

Lúðrasveit verkalýðsins.

Viktor Logi Gunnarsson skemmti sér vel í rennibrautinni.


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 11:54 Page 17

17

Fréttir

Árbæjarblaðið

Eva María Sigurbjörnsdóttir, Hafdís Jóna Sigurjónsdóttir og Sæbjörg Einarsdóttir.

Lúðrasveit verkalýðsins spilaði nokkur lög fyrir utan Árbúarheimilið.

Kristján Þór Kristjánsson náði á toppinn í klifrinu.

Eydís Indjana Wiuum Símonardóttir, Heiða Kristín Helgadóttir, Harpa Ivalu Gunnarsdóttir og Magnea Líf Aðalsteinsdóttir.

Jón Björn Richardsson, Ármann Guðmundsson, Arnar Bragi Guðmundsson og Guðmundur Magnússon að grilla pylsur.

Það er alltaf jafn vinsælt að grilla útilegubrauð. Mæðgurnar Fanney Hanna Valgarðsdóttir og Vilborg Bryndís Stefánsdóttir.

Daði Már Gunnarsson og Þorleifur Barri Davíðsson voru á fullu afgreiða pylsur og annað bakkelsi.

Einar Tryggvi Petersen, Elvar Gíslason, Hekla Dís OShea og Jóhann Örn Sigurðarson.


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 10.5.2022 00:22 Page 18

18

VILTU SELJA FA FASTEIGN? A

Fréttir

Árbæjarblaðið

Hólmar Björn S Sigþórsson Löggiltur gg faste eignasali g

Sími: 893 3276 | holmar@helgafellfasteignasala.is g g

Hjá Myndlistarskólanum í Reykjavík er boðið upp á mjög fjölbreytt og skemmtileg námskeið.

Hvað ætlar þitt barn að gera í sumar?

Í Myndlistaskólanum í Reykjavík er hafin skráning á sumarnámskeið fyrir börn sem haldin verða í júní og ágúst. Í JL-húsinu, Hringbraut 121 er boðið upp á námskeið fyrir þrjá aldurshópa; sex til níu ára, tíu til tólf ára og þrettán til sextán ára.

ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is

s. 5 11 53 00

Manga teikningu. Fyrstu námskeiðin

hefjast

mánudaginn 13. júní. Skráning stendur yfir á heimasíðu skólans, www.mir.is

Í útibúi skólans á Korpúlfsstöðum er boðið upp á námskeið fyrir tvo aldurshópa; sex til níu ára og tíu til tólf ára. Dagskráin er fjölbreytt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Námskeiðin eru ýmist kennd fyrir eða eftir hádegi og standa í eina viku, að undanskildu einu tveggja vikna námskeiði í keramiki. Unnin eru fjölbreytt verkefni, bæði tvívíð og þrívíð og börnin kynnast margvíslegu efni og aðferðum. Auk þess er farið í vettvangsferðir og jafnvel unnið utandyra þegar veður leyfir. Meðal þess sem í boði er má nefna námskeiðin Skrímslasmiðju, Ævintýri og upplifun, Náttúru og fjöru, Jurtaliti og náttúru, List og vísindi, Teikningu og grafík, Leirmótun og rennslu, Myndlist og bókagerð, Ljósmyndun og

Börnin una sér vel á námskeiðunum hjá Myndlistarskólanum í Reykjavík.


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 8.5.2022 22:38 Page 19

#$#" %

$ # #% % # % $

%

%

%

%%%$#" % # $ #%

Í sumar ver ur starfsemii frístundaheimila fyrir börn úr 1. - 4. bekk í:

Brosbæ í Engjaskóla

Simba sæffaara í Hamraskóla

Fjósi vi Sæmundarskóla

Stjörnuland vi Ingunnarskóla

Hvergilandi í Borgaskóla

Tígrisbæ vi Rimaskóla

Kastala í Húsaskóla

Töfrasel vi Árbæjarskóla

Regnbogalandi í Foldaskóla

Ví isel í Selásskóla

Sumarstarfi fi byggir á áralangri reynslu og alllir starfs fsmenn hafa fa starfa fa me börrnnum í fr frístundaahheim milum. Ger er dagskrá fyrir hverrjja viku ku sem byggir á fr frjálsuum leik, hreyffiingu, útiveru, skapaanndi starfi fi, smi j jum, emadögum og fer um og msum ævint rum n í nærumhverfi finu og o um borrgina sem mi ast vi aldurshópinn. Áhersla er lög á a virk rkja börrnin til ákvar anaattöku um hina msu ætti t starfs s fsins. Vi dagskrárger er reynt a hafa fa mismunanddi dagskrá a fyrir fy ólíka aldurshópa og samstarf milli fr frístundaheim mila var andi börnin úr 3. og 4. bekk t.d. til ess a fa fara r í lengri fe fer ir og fá meira kreffjjandi vi fa fangsefn fni. Allarr náánnari uppl singar er a fi finna á htt ttps:// //fr fristund.is/

Allir sta ir opnir: 9. júní - 10. júní 13. júní - 16. júní 20. júní 24. júní 27. júní - 1. júlí 4. júlí 8. júlí

Töfrasel: 2 ágúst 5. ágúst 2.

Allir sta ir opnir: 8. 8 ágúst - 12. ágúst ú t - 19 út 19. áágúst 155. áágúst

$#" % # $ #% $# % " % % %


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 10:47 Page 20

20

Fréttir

Árbæjarblaðið

ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is

s. 5 11 53 00 Byrjað er að hreinsa göturnar og mikilvægt að fólk kynni sér dagskrána á vef borgarinnar og færi bílana á hreinsunardögunum.

Götur hreinsaðar í Árbæ 9. og 16. maí:

Forhreinsun 9. maí og þvottur 16. maí Það er ekki aðeins lóan sem kemur með hækkandi sól heldur eru götusóparnir árlegur vorboði í Reykjavík. Vorhreinsun Reykjavíkurborgar hófst í ár þann 26. mars en helstu göngu- og hjólaleiðar eru í forgangi. Hreinsunin er komin vel af stað og er nú komið að húsagötum. Forsópun hófst á dögunum og nú verða viðkomandi götur síðan sópaðar og þvegnar og er þá nauðsynlegt að færa bíla. Daginn áður en íbúagötur eru þvegnar sendir Reykjavíkurborg SMS til að láta íbúa vita af þvottinum. Mikilvægt að færa bíla Mikilvægt er að bílar séu færðir úr götunni á meðan á götuþvotti stendur. Það flýtir mjög fyrir og skilar betri þrifum þegar bílar eru færðir og ekki lagt á ný fyrr en hreinsun er að fullu lokið. Þetta gildir eingöngu um almenn stæði í götunni og á borgarlandi en ekki stæði innan lóðarmarka íbúðarhúsa og fyrirtækja. Símaskilaboð send daginn fyrir götuþvott SMS er sent til íbúa daginn áður til að tryggja að allt gangi sem best fyrir sig en hefðbundnar skiltamerkingar verða enn fremur settar upp til að láta íbúa og gesti borgarinnar vita af götuþvottinum. Reykjavíkurborg sendi einnig skilaboð til fólks í fyrra og gaf það góða raun. Vonast er til þess að fólk taki vel í skilaboðin og liðki til við hreinsunina með því að færa bíla sína en það skilar hreinni og fallegri götum. Í þetta sinn verður byrjað í Hlíðum, Laugardal, Grafarvogi og Kjalarnesi. Athugið að Vegagerðin sér um rekstur og hreinsun þjóðvega í þéttbýli. Dæmi um þjóðvegi í borginni eru Kringlumýrarbraut, Miklabraut, Hringbraut, Vesturlandsvegur og Reykjanesbraut.

Árbæjarblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími 698-2844

Kjósum Sjálfstæðisflokkinn 14. maí og tryggjum að hinn baráttuglaði Helgi Ásss nái kjöri í borgarstjórn


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 15:44 Page 21


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 15:39 Page 22

22

Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105

Gamla myndin

Vorgleði Föstudaginn 20. maí kl. 18:00 Grillað lambalæri, meðlæti og eftirréttur. Dansskemmtun á eftir. Miðaverð 5.900 kr. Nánari upplýsingar og skráning á skriftstofu fyrir 13. maí. Sími 411 2730

Bikarmeistarar 2001 Myndin er tekin af nýkrýndum bikarmeisturum Fylkis árið 2001. Er þetta fyrsti stóri titilinn í sögu félagsins í knattspyrnu. Fylkismenn mættu KA í úrslitaleik og var staðan 2-2 að loknum venjulegum leiktíma en Fylkir hafði

betur 7-6 eftir dramatíska vítaspyrnukeppni. Það eru eflaust margir sem hugsa enn hlýlega til laugardagsins 29. september 2001. KGG

Atvinnumöguleikar í austurhluta Reykjavíkurborgar Spennandi atvinnutækifæri - sálfræðingur í skólaþjónustu Austurmiðstöð, sameinuð þjónustumiðstöð Árbæjar, Grafarholts, Grafarvogs og Kjalarness, auglýsir lausa til umsóknar stöðu sálfræðings við skólaþjónustu. Leitað er eftir metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með einlægan áhuga á þjónustu við börn og fjölskyldur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Í boði er vinna með metnaðarfullum hópi annarra fagmanna að málefnum barna, skóla og fjölskyldna sem og þátttaka í sameiginlegu verkefni velferðarsviðs og skólaog frístundasviðs, Betri borg fyrir börn.

Austurmiðstöð sumarstörf í þjónustu við fatlað fólk Austurmiðstöð, sameinuð þjónustumiðstöð Árbæjar, Grafarholts, Grafarvogs og Kjalarness, óskar eftir hressu og jákvæðu starfsfólki í fjölbreytt og skemmtileg störf í sumar með möguleika á áframhaldandi starfi. Starfshlutfall er eftir samkomulagi. Um er að ræða störf í þjónustu við fatlað fólk og börn. Störfin eru á heimilum fyrir fatlað fólk, skammtímadvölum og dagþjónustum. Markmið starfanna er að gera einstaklingum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð Ráðgjöf til foreldra og starfsfólks skóla vegna nemenda. Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum og unglingum. Námskeiðahald fyrir foreldra, börn og starfsmenn skóla. Þverfaglegt starf á þjónustumiðstöð og við samstarfsstofnanir (s.s. heilsugæslu, barnavernd o.fl).

Einstaklingsmiðuð og sveigjanleg aðstoð við allar athafnir daglegs lífs Hvatning og stuðningur til félagslegrar virkni Matseld og þrif

Hæfniskröfur

Menntunar- og hæfnikröfur

Löggilding til að starfa sem sálfræðingur. Þekking á þroska og þroskafrávikum barna. Reynsla af sálfræðilegri greiningu og ráðgjöf vegna barna er æskileg. Áhugi á þróun sálfræðiþjónustu og þverfaglegs starfs. Þekking á eða PMTO menntun er kostur. Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, frumkvæði og leikni í mannlegum samskiptum. Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum. Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Umsóknir berist í gegnum vef Reykjavíkurborgar á www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Sólrún Guðmundsdóttir deildarstjóri í síma 411-1400 eða tölvupósti hulda.solrun.gudmundsdottir@reykjavik.is

Menntun sem nýtist í starfi Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum Æskilegt er að hafa náð 18/20 ára aldri Íslenskukunnátta Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Umsóknir berist í gegnum vef Reykjavíkurborgar https://jobs.50skills.com/reykjavik/is/13627 Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigmar Þór Ármannsson mannauðsráðgjafi í 411-1716 og tölvupóst sigmar.thor.armannsson@reykjavik.is.

Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.


ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 9.5.2022 15:38 Page 23

23

Fréttir

Árbæjarblaðið

Fréttamolar frá kirkjustarfinu Helgihald í Árbæjarkirkju í maí og júní

Þriðjudaginn 10. maí Svefn og svefnvenjur ungabarna á foreldramorgnum Árbæjarkirkju þriðjudaginn 10. maí. Árbæjarkirkja bíður foreldrum ungabarna sem eru í fæðingarorlofi eða heimavinnandi að sækja fræðsluerindi sem tengjast ummönnun ungra barna. Þriðjudaginn 10. maí kl. 10:30 mun Ingibjörg Leifsdóttir, svefnráðgjafi, verða með fræðslu og veita ráðgjöf um svefn barna. Fræðsluerindið fer fram í safnaðarheimili Árbæjarkirkju.

Hrafnkels Karlssonar organista. sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Uppstigningardagur fimmtudaginn 26.maí kl. 14.00 Hátíðarguðsþjónusta kl.14.00. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Hrafnkels Karlssonar organista. Prestarnir og þjóna fyrir altari. Hátíðarkaffi í boði Soroptimistaklúbbs Árbæjar. Nánari upplýsingar á heimasíðu kirkjunnar þegar nær dregur.

Boðið upp á léttar veitingar

Sunnudaginn 29. maí Guðsþjónusta kl. 11.00. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Hrafnkels Karlssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari.

Sunnudaginn 15. maí Guðsþjónusta kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Hrafnkels Karlssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari.

Hvítasunnudagur 5. júní Guðsþjónusta kl. 11.00. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krizstinar K. Szklenár organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari.

Sunnudaginn 22. maí kl. 11.00 Guðsþjónusta kl. 11.00. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn

Frá og með 12. júni til loka ágúst verða sumarhelgistundir. Sumarhelgistundin er byggð upp á léttum lögum og sálmum.

Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is

Með bauga niður að hnjám - eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn ,,Mig dreymir sumarið allan veturinn. Eftir því sem nær dregur sumri verða draumarnir grænni og um síðir springa þeir út í raunveru græns hjarta. Þegar það lætur svo lítið að sjá sumarið þá hellist yfir mig depurð því þá styttist í haustið og hugurinn er sem fallandi lauf.”

mikilli einurð og ákefð því móðir jörð ,,stynur” undan þunga þess sem við köstum frá okkur meðvitað en vonandi ekki. Við viljum gleyma að við erum ekki einu lífverunar á jörðu manneskjunar.

Þannig orðaði kunningi minn eftirvæntingu sína eftir sumrinu og hann hélt áfram. ,,Ég vildi að það væri alltaf einn til tveir mánuðir í sumarið - alltaf. Að ég vakna hvern morgun og það er korter í sumar. Það er svo ljúft að hugsa til þess að sumarið er alveg að koma en ekki alveg komið því það viðheldur þeirri mynd í huga mínum sem ég held fast í að sumarið verði.” Ég hafði ekki alveg hugsað sumarkomuna eins og kunningi minn. Mynd sumarsins er skýr í mínum huga. Það sem verra er er að myndin framkallast sjaldnast eins og ég hef myndað hana í huga mér. Áður en ég veit af er tíminn útrunninn og það er komið haust og mynd sumarsins framkallast ekki. Kannski var það þetta sem kunningi minn vildi sagt hafa. Það er gott að hvíla huga og ímynda sér að sumarið með sitt hlýja geislandi bros og fer um með litaglaða kámuga fingur sem það gerir vissulega og fyllir út hvern krók og kima tilveru okkar í björtum gefandi litum. Vorið fyrstu dagana kjagar um eins og barn sem er að taka fyrstu skref sín í veröldinni, leitar jafnvægis og hrasar á leið sinni um fúnar brotnar trjágreinar í garðinum sem veturinn hefur verið að að dunda sér mánuðina á undan að brjóta í sundur í einhverju geðvonskukasti. Það ber með sér vor-ið, birtu sem bendir á ýmislegt það sem veturinn skilur eftir sig, leifar af áramótunum á pallinum sem minnir á sóðaskap manneskjunnar. ,,Plokkarar týna ruslið í glæra poka af

sr. Þór Hauksson. Það hefur hvarflað að mér þegar sumarið gengur inn um garðhliðið að loka því og læsa með hengilás og kasta lyklinum og endurtaka það á hverjum degi svona á pari við Bandaríksku myndina Groundhog Day sem margur kannast við að hafa séð um árið. Aðalpersónan leikin af Bill Murray

vaknaði dag eftir dag til sama dags. ,,Þegar sumarið loksins kemur veðurbarið þá er svo stutt í haustið,” sagði kunningi minn. Ég vil eiga sumarið í höfðinu þar sem sólin skín á daginn og það rignir að nóttu. Raunveruleikinn er allur annar oftar en ekki. Raunveruleikinn er trunta sem lætur sér fátt um finnast væntingar okkar um ,,fullkomið” sumar. Við tölum oft um ,,fullkomið sumar” en leggjum kannski ekki huga að hvað felst í ,,fullkomnu sumri” og það sem meira er og verðugt að leggja að huga, að mynd af fullkomnu sumri er ekki endilega nákvæmlega eins fyrir öðrum. Væntingar okkar og þrár eru margvíslegar sem velkjast um okkar eigin huga. Sumarfríið með fjölskyldunni eða vinum, tjaldútilegan, veiðiferðin eða sumarbústaðaferðin sem er á dagskrá í sumar er í huga brakandi sólarsamba þar sem fuglarnir syngja á annari hverri trjágrein á bjartri sumarnóttu og veröldin í allri sinni kyrrð stendur á haus í nærliggjandi vatni og þögnin. Guð minn góður þögnin gæti verið til útflutnings í fallega skreyttri flösku. Hugsið ykkur að heilu palletturnar færu með fraktflugi út í hávaðasama veröldina. Það eina sem þú þarft að gera í ærandi stórborginni er að opna flöskuna og út steymir þögnin og kyrrðin.

Um árið heyrði ég af manni sem fór í tjaldútilegu eina helgi og honum kom ekki dúr á auga. Hann kom heim með bauga niður að hnjám að eigin sögn. Kyrrðin/þögnin var ærandi hávær. Í næstu útilegu tók hann með sér sambyggt útvarpstæki (sem þá var algjört ,,möst “að eiga) sem hann kom fyrir inni í tjaldinu. Þegar tími var kominn að skríða inn í tjaldið um miðja kyrrláta sumarnóttina kveikti hann á tækinu. Um eyru hans lék unaðslegur umferðarniður sem hann hafði haft fyrir að taka upp á háannatíma á gatnamótum Kringlumýrar og Miklubrautar einhverjum dögum fyrr. Það þarf ekki að hafa orð um að hann svaf eins og ungbarn í faðmi móður í tjaldinu í skógarrjóðr-inu og vaknaði til morguns úthvíldur. Umferðaskvaldrið var fyrir löngu þagnað en bústnir fuglar sungu áfram hver ofan í annan. Aðspurður þótti honum þetta meinta hreina loft og núvitundin mega hans vegna kurla niður í göngustiga berfættra fóta. Það kann einhver að hugsa og það réttilega. Hvað var maðurinn að þvælast úti í náttúrunni í tjaldi, ef það var

honum svo mikil raun? Afhverju var hann ekki bara í sinni heimabyggð með sinn umferðanið og tilheyrandi útblástur bifreiða? Því er til að svara að stundum verðum við að gera það sem okkur er þvert um geð til þess að mæta væntingum annarra. Sumrinu getur ekki verið meira sama um væntingar okkar. Samkvæmt dagatal-inu kemur það og eða ekki. Við höfum öll væntingar til sumarsins og eigum okkar mynd í huga um hið fullkomna sumar. Einhver hugsar um fullkomið letilíf við sundlaugina eða pottinn eða bústaðinn, eða vera bara heima og rölta um næsta nágrenni. Knattspyrnumenn og konur gera sér væntingar um góða uppskeru að hausti eins og bændur þessa lands. Hverjar sem væntingar okkar eru til sumarsins þá gleðjumst við að sjá græðlinga fjölæra platna sem hafa beðið allan veturinn eftir vorinu stinga höfði upp úr mold þess fullviss að sumarið er á næsta leiti því ,,sumarið er tíminn þegar hjartað verður grænt” eins og Bubbi Mortens söng um árið. Gleðilegt sumar - Þór Hauksson

ÚTFFARARSTO OFFA ÍSLANDS www.utforin.is Auðbbrekku 1, Kópavogi Sólarhringsvakt: 5811 3300 & 565 5892 Komum til aðstandenda og ræ æðum skipulag sé þess óskað

Sverrir Einarsson S: 896 8242

Jóhanna Eiríksdóttir

Jón G. Bjarnason S: 793 4455

ÚTFFARARSTOFFA AH HAFNARFJARÐAR www.utfararstofa.is Doffrahellu 9b, Hafnarfirði


GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 7.5.2022 12:23 Page 16

BOLTA TATILBOÐ Á ÖLLUM LEIKJUM Í BEINNI

12” PIZZA M. 2. ÁLEGGJUM 1.990 KR.

PIZZA& SHAKE 3.790 KR.

VENJULEGIR KJÚKLINGAVVÆNGIR 10 STK. / 20 STK. 1.490 KR. / 2.490 KR.

EÐLA MEÐ NACHOS 1.590 KR.

GOS MEÐ ÁFYLLINGGU 290 KR.

STÓR Á KRANA 990 KR.

– SPENNANDI VIÐBURÐIR Í HVERJUM MÁNUÐI –

ALLTTAF GAMA A N OG ALLLTTAF GOTT VEÐÐUR Fylgstu með dagskránni á Facebooksíðu Keiluhallarinnar. facebook.com/keiluhollin Bókaðu borð tímanlega á kei e luhollin@keiluhollin.is

-LONG SING-A

P Ö B B Q UI Z ME Ð HJÁLMARI & HELGA

Hörður og Pétur úr Bandmönnum halda h uppi upppi p stuði ogg s temninggu á sinn i einstaka i hátt. át

STÓR ÓR S K E MM T IL E G T FÓTBOLTTAA-QUIZ FÓ HJÖRVVAARS HAFLIÐA

N GUÐRÚ ÁR NÝ

DDJ. J. ÓÓRA RA ÚLÍÍAA

PÖBB QUIZ

NEI. HÆTTU NÚ ALVEG VILLI NAGLBÍTUR

HEIMTÖÖKUTILBOÐ SHAKE&PIZZA

EIN, TVVÆ ÆR OG FRÍ PIZZA EF ÞÚ SÆKIR

EINN, TVEIR OG FRÍÍRR SHAKE EF ÞÚ SÆKIR

EIN PIZZA OG SVO ÖNNUR Á 1.000 KR.

– BORGAR EKKI FYRIR ÓDÝRUSTU PIZZUNA

– GILDIR EKKI AF ÁFENGUM SHAKE-UM

KAUPIR PIZZU AF MAATTSEÐLI OG BÆTIR ANNARRI VIÐ Á 1.000 KR. – BORGAR F YRIR DÝRARI PIZZUNA

shakepizza.is

# shakeandpizza


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook