ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 18.1.2022 10:26 Page 1
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Árbæjarblaðið 1. tbl. 20. árg. 2022 janúar
Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477
www.bilavidgerdir.is
Þjónustuaðili
Fréttablað íbúa í Árbæ og Norðlingaholti
bffo o.is 7^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][
W[d5W[d#^h
BG
BG
S VO
SV
T T UÐ ÞJ Ó N US
TA
OT TUÐ ÞJÓNUS
TA
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GA AT TA) · 200 2 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is
s. 5 11 53 00
Frænkur á fleygiferð Frænkurnar Malín Erla Brynjólfsdóttir og Alexandra Árný Grétarsdóttir voru að nýta snjóinn sem lét sjá sig á dögunum ásamt fleiri krökkum í Árbænum. Sjá nánar á bls. 14. ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir
Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki
Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844
,,Mahoný’’
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 18.1.2022 13:26 Page 2
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Leiðhamrar 39 - símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir og Einar Ásgeirsson. Dreifing: Póstdreifing. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Norðlingaholti og Úlfarsárdal.
Gleðilegt ár Það reynir víða á þolrifin þessa dagana. Veiran er að gera alla vitlausa og það gengur hratt á lager þolinmæð-innar hjá fólki. Þegar þetta er skrifað er farið að bera á tilburðum hjá Þórólfi að losa um samgöngutakmarkanir og finnst mörgum það full bratt eftir aðeins nokkra daga þar sem ekki mega fleiri en 10 koma saman. En eins og áður þá treystum við Þórólfi. Eða hvað? Það er farið að bera á vantrausti í hans garð, nokkuð sem sá maður á ekki skilið. Það hafa sprottið upp margir sérfræðingarnir á síðustu vikum og mánuðum sem allt þykjast vita. Og fjöldi manns neitar að mæta í bólusetningu þrátt fyrir að helstu sérfræðingar okkar allir mæli eindregið með því að almenningur láti bólusetja sig. Staðan varðandi veiruna hefur ekki verið svona jákvæð í langan tíma og allt útlit er fyrir að framundan séu mun bjartari tímar. Allt útlit er fyrir að tilkynnt verði um slaknir á samkomutakmörkunum fljótlega og þá er vonandi stutt í að allir hlutir fari að verða eðlilegir á ný. Mikilvægt er þó að allir passi sig og noti spritt og grímur sem aldrei fyr. Veiran hefur sett allt á annan endann unanfarið. Þorrablótin hafa fokið út í veður og vind og öllum stærstu blótunum verið frestað eða þeim aflýst. Við vitum hins vegar um nokkra hópa sem hafa ákveðið að breyta Þorrablótum í Góublót og hyggjast halda blót í febrúar. Það skiptir kannski ekki öllu máli hvenær þetta ljúfmeti sem þorramaturinn er er borðaður. Aðalatriðið er að halda í hefðina og að allir sem áhuga hafa fái þorramatinn sinn. Árið 2022 byrjar ágætlega og vonandi verður þetta ár gott í alla staði. Ef veirufjandinn er loksins á undanhaldi og allt kemst fljótlega í gott lag verður þetta gott ár svo framarlega sem nýtt afbrigði veirunnar skýtur ekki upp kollinum. Við sem gefum út Árbæjarblaðið sendum lesendum óskir um gleðilegt ár og þökkum fyrir liðin ár. Stefán Kristjánsson
abl@skrautas.is
Atgangurinn gegn einkabílnum heldur áfram hjá meirihluta borgarstjórnar.
Fækka á bílastæðum um 3000 í Reykjavík - eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Öll berum við virðingu fyrir náttúrunni, og stundum óttablandna virðingu, þegar jarðskjálftar, eldgos, verðurofsi og snjóflóð, minna okkur á ægivald hennar. Okkur er flestum eiginlegt að vilja vernda náttúruna, hamla umhverfisspjöllum og fyrir mörgum er það hrein ástríða að stunda trjárækt og að hlúa að margvíslegum gróðri jarðar. Reykjavíkurborg setti sér loftslagsmarkmið með samþykkt loftslagsáætlunar á vormánuðum 2021. Sú áætlun nær yfir tímabilið 2021-2025. Einn galli þessarar annars ágætu áætlunar felst í því að fækka bílastæðum í Reykjavík um 2% á ári eða 10% á fimm árum. Það á með öðrum orðum að leggja niður 600 bílastæði í borginni á ári, eða 3000 stæði á tímabilinu í heild. Þegar höfð er í huga fólksfjölgun Reykvíkinga á næstu fimm árum er ljóst að raunfækkun bílastæða verður mun meiri. Með þessari ráðstöfun á augljóslega að þrengja mjög að nýtingu fólksbíla í borginni og þvinga þannig borgarbúa til að losa sig við bílinn sinn, sem mörgum er reyndar bráðnauðsynlegur við núverandi aðstæður. Borgaryfirvöldum standa til boða ýmsar nærtækari og áhrifameiri úrlausnir gegn umferðar-
mengun en þvingunaraðgerðir af þessu tagi. Þessi yfirgengilega bílastæðafækkun
er enn ein þvingunaraðferð borgaryfirvalda sem haldið er uppi í því skini að fá borgarbúa til að láta af þeim ferðamáta sem þeir kjósa helst. Forræðishyggja borgaryfirvalda virðist engan endi ætla að taka og hún er byggð á löngu úreltum sjónarmiðum. Við sem búum í austurhluta borgarinnar þurfum sennilega mest á því að halda að bílastæðum sé ekki fækkað þar sem flest okkar stunda sína atvinnu og skóla, eða sækja sína þjónustu, í vestari hluta borgarinnar.
Samkvæmt ferðakönnun sem gerð var sumarið 2021 ferðast tæplega 80% Reykvíkinga með fólksbíl til og frá vinnu, og fæstir þeirra eiga varla annan kost. Rétt er að geta þess að rafbílar eru nú um 50% af seldum nýjum bílum í dag. Því má leiða að því líkum að bíllinn verði einn umhverfisvænsti ferðakostur Björn Gíslason borgarfullttrúi Sjálfstæðis- fólks. Björn Gíslson flokksins í Reykjavík.
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 17.1.2022 18:27 Page 3
SHAKE&PIZZA GÓÐANN DAGINN HEIMTÖÖKUTILBOÐ SHAKE&PIZZA
s ha k e p i z z a . is
ÞAÐ ER GALLOPIÐ HJÁ OKKUR & SPILUM Á ANNARRI HVERRI BRAUT FYLGSTU MEÐ DAGSKRÁNNI Á FACEBOOK.COM/KEILUHOL H LIN
# s h a k e a n d p i z za
BOLTA TATILBOÐ Á ÖLLUM LEIKJUM Í BEINNI 12” PIZZA MEÐ 2. ÁLEGGJUM 1.990 KR.
PIZZA & SHAKE 3.790 KR.
VENJULEGIR KJÚKLINGAVVÆNGIR 10 STK. / 20 STK.
1.490 KR. / 22.490 KR.
EÐLA MEÐ E NACHOS 1.590 KR.
STÓR Á KRANA 990 KR.
GOS MEÐ ÁFYLLINGU 290 KR.
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 17.1.2022 20:55 Page 4
4
Mataruppskriftir
Árbæjarblaðið
Veganúar :
Hver vill prófa! Fyrir þá sem ætla að að taka janúar föstum tökum og vilja prófa vegan eða plöntumiðað fæði þá eru hér nokkrar uppskriftir af góðum og hollum réttum sem hægt er að styðjast við.
4 bollar af grænmetissoði.
Hér er einn frábær þeytingur sem nærir hár, húð og neglur. Stjörnur eins og Reese Witherspoon og Kerry Washington fá sér þennan á hverjum morgni. Þetta er stór uppskrift sem nægir fyrir tvo eða hægt að geyma helming til næsta morguns.
1 bolli niðurskornar gulrætur.
1 lárviðarlauf. 1 bolli laukur ( saxaður).
3 bollar niðurskornir sveppir. 4 stk. hvítlauksrif, pressuð. 1 tsk. paprikuduft (smoked paprika eða venjulegt paprikuduft).
Þeytingur fyrir tvo: 1 tsk. þurrkað timian. 2 höfuð romaine salat. 1 tsk. þurrkað oregano. 2 lúkur Spínat. 2 msk. tómat paste. 1 sellerí stilkur. 1 tsk. sjávarsalt. 1 pera. 1 bolli glutenlaust hafamjöl. 1 epli. ¼ bolli fínsöxuð steinselja til skauts. 1 banani. 1 sítróna ( skerið börkin af).
Hitið ofnin í 190 gráður og setjið smjöpappír í eldfast mót. Setjið baunirnar í sigti og skolið vel.
Bauna og grænmetishleifur.
½ bolli Kókosvatn. Allt sett í blandara og þeytt í silkimjúkan þeyting. Hellið í glas og njótið! Bauna og grænmetishleifur fyrir 4-6 1 ½ bolli brúnar eða grænar baunir.
Setjið baunirnar, grænmetissoðið og lárviðarlaufið í pott og sjóðið þar til suðan kemur upp. Lækkið hitann og leyfið að malla í 15-20 mínútur, þar til baunirnar verða mjúkar. Á meðan baunirnar sjóða undirbúðu grænmetið. Ef þið eigið ceramic non stick pönnu notið hana við að steikja laukinn, gulræturnar
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is
s. 5 11 53 00
og sveppina. Reynið að nota enga olíu setjið frekar smá vatn út á til að grænmetið festist ekki við pönnuna. Hrærið öðru hvoru í á meðan steikist í um það bil 6 mínútur eða þar til laukurinn verður mjúkur. Bætið hvítlauk, paprikudufti, timian, oregano, tómat paste og sjávarsalti og leyfið að malla og blandast vel í 1-2 mínútur, takið þá til hliðar.
Sósa:
½ tsk. hvítlauksduft.
¼ bolli tómat paste.
½ tsk. laukduft.
2 msk. hlynsýróp.
¼ tsk. sjávarsalt. Pískað saman í skál og borið fram með baunahleifinum. Verði ykkur að góðu.
1 msk. sítrónusafa. 1 msk. vatn.
Þegar baunirnar eru soðnar sigtið þær og takið lárviðlaufið frá. Setjið haframjölið í matvinnsluvél og malið þar til það verður fínt. Bætið þá baununum og grænmetinu út í og blandið áfram varlega þar til allt blandast vel. Haldið samt aðeins í grófleikann. Mótið hleif og setjið í eldfasta mótið með smjörpappír. Bakið í ofni í 45-50 mínútur eða þar til hleifurinn verður fallega brúnn á köntunum. Leyfið að standa í 10-15 mínútur áður en hann er skorinn niður í sneiðar. Setjið steinseljuna yfir og berið fram með sósunni og góðu salati.
Girnilegur og meinhollur þeytingur
ÚTFARARSTOFA ÍS SLANDS www.utforin.is AUÐBREKKA 1,, KÓPAVOGI
Síðan
Sólarhringsvakt: 581 3300 & 896 8242
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útffarar sé þess óskað
Jóhanna Eiríksdóttir
Alúð
Sverrir Ein narsson
Virðing
Traust
Jón G. Bjarnason
Reynsla
ÚTFARARSTOFA HA FNARFJARÐAR www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
1996
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 16.1.2022 14:13 Page 5
AL LV VÖR RU ÚTS SAL LA 1 15
%
vorr SMT CO 0 EC
AF
00W W, 160 bör 45 m m/túrbóstút) 0 L/klst. ár sttillingar: mjúk d. viðður), mið (t.d ) og hörð (t.d. ypa)).
20
11.0 036
%
35.441
15
Áður 13.7 13 7 795 kr.
AF
15
%
%
Verðð áður 41.695 41 695
AF
Rafhlöðuborvvéél PSCS 11 -20V Getur noottað allt að 13mm breiðaa bora b - 35Nm
AF
11.0 0
Áður 12.9 12 9 99 95 kr.
Hleðsluskrúfvél PSC CS 11-12V 22Nm
15
15
Sverðsög PRCS 10--20V 2Ah Sagar flest efni - Sttillanlegt slag
%
% AF
AF
50
%
Áður 17.995 17 995
Áður
Áð r Áður
15
%
AF
AF
Áð Áður
Áður
kr. k
30
40
%
Áður 9.585 9 585 kr.
AF
25 5
% AF
20
Va
Áður
6.396 6.3
25
20
20
Áður
Áður krr.
kr.
%
20
17.4 .497
40
% AF
A AF
2 25
%
LED ljam mpi 30W m 3 mttr snúru m.
11.996 1 996
4.7 728
Áður 14.995 14 995 kr.
%
Áðuur krr.. 244.995 4 995
%
AF
vinnuljós 30W m/ hleðsslubatterí
r.
AF
25 5
%
Áður 7.880 7 880 kr.
30
20
Hrærivél Drive-HM-120 H Driv 1200W 00W. 40-60 ltr.
% AF
20
% AF
11.134 14 845 14.845 Áður
kr.
2 1955 1.646 Áður krr.. 2.195 8 6955 3,7 ltrr. 6.521 Áður krr.. 8.695 0,9 ltrr..
Colorex Vagans PRO St A innimálning St. i i ál i 9L
9.097 Áður 12.995 12 995 kr.
3.000
2,7 ltrr.. Áður krr.. 4.285 4 285
Reykjavík
Kletthálsi 7.
Opið virka daga kl. 8-18, la augard. 10-16
Hafnarfjörður
Selhellu 6.
Opið virka daga kl. 8-18, la augard. 10-16
Reykjanesbær
Fuglavík 18.
Opið virka daga kl. 8-18, la augard. 10-14
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.m murbudin.is
7.516 9 395 9.395
14L 44x30x17cm
www ww.m .murbudin din.is
Áður 12.995 12 995 kr.
25 Glærir plas
SENDUM M UM LAND ALLLT LAND T!
9.746 %
Colorex Projekt 10, 10 lítrar (Málarahvítt)
kr.
LED ljóskastari 30W
Áður kr.
1. 6 Áður
AF
AF
1
m. Y-
AQUA 25 baðmálning st. A, 10 líítrar
art ar
Guo or o
AF
%
11.
.
770W 150cm
Áðuur 11 11.475 475 kr.
AF
LED ljóskastari á standi, 2X20W
3.88
16 6.7
9.180 23
%
AF
Guoren n
LED lhleðslukastari l 20W W
Frábær bir i ta t
krr.
%
8.147 47
Áður 16.585 6 585 kr. k
Fyrirvari um prentvillurr..
20
3.998 7 995 7.995
15.18.196 8 995 8.995
%
AF
LuTTool fjölnota sög /hjakktæki/juðari. 300W.
Keramik Eleement TFC 19E snúnings hitablásari 2 kw
LuTool n/við/járn sög 6000W
11..610 0
28W 60cm
AF
Olíufylltur rafmagnsoofn 2500W Verð nú
kr.
%
AF
Áðður 8.695 kr.
10 0.140 11 929 11.929
7.1 18.355 03552 8.35 8
15
%
7.391 7 391 1
15.29 96
Olíufylltuur rafmagnnsofn 2000W Verð nú
Pro slípirokk 125m mm 950W
30
AF
Fjölnota tækii PMTS 10-20V V 5.000-19.0000 rpm
11.19 96
Lavor Predator 180 Digital háþ þrýstidæla Mótoor 2500W Þrýsttingur: 180 bör Vanssflæði: 510 l/kls
3.146
15
AF
%
Áður krr.. 13.995 13 995
rð áðður 38.995 38 995
%
20 0
Lavor Pro Ruddy 1200S ryk/blautsugaa 1200W 20 lítra
r krr. 1.689 1 689 1. 1 919 20L 44x30x25cm 1.40 00 Áður krr.. 1.919 2 329 28L 44x30x32,5cm 1.747 Áður krr.. 2.329
AF
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 16.1.2022 23:20 Page 6
6
Fréttir
Árbæjarblaðið
Leysum umferðarvandann í Reykjavík - eftir Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúa Í Reykjavík hefur umferðarhnútum fjölgað og bílaraðir í biðstöðu hafa sífellt verið að lengjast, dag frá degi, í tólf ár. Þessi þróun leggur stöðugt þyngri tímaskatt á borgarbúa og eykur umferðarmengun að sama skapi. Hún dregur einnig úr umferðaröryggi. Flestir gera sér grein fyrir þessari óheillaþróun. En ýmsum hættir jafnframt til að telja hana nánast óhjákvæmilega, skella skuldinni alfarið á fjölgun fjölskyldubíla og sumir líta svo á að eina leiðin út úr þessum ógöngum felist í hugmyndum borgaryfirvalda um Borgarlínu.
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t ffor.is .
VIÐ ÞJÓNUM ALL AN SÓL AR HR INGIN N
Þetta er allt saman rangt. Þessi þróun er ekki óhjákvæmileg, þó svo að fjölskyldubílum fjölgi. Megin ástæðan fyrir þyngri umferð síðastliðin þrjú kjörtímabil er röng samgöngustefna borgaryfirvalda. Það er einnig alrangt að núverandi hugmyndir borgaryfirvalda um Borgarlínu muni leysa umferðarvandann. Þær munu, þvert á móti, stórauka hann og líklega hafa í för með sér neyðarástand í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu á allra næstu árum þar sem Borgarlínu er ætlað að taka akreinar frá annarri umferð. Úrlausnir Lítum aðeins á nokkur úrlausnaratriði sem myndu draga verulega úr þessum vanda og jafnvel leysa hann nánast alfarið: Sundabraut myndi dreifa umferðinni í borginni á mikilvægan hátt
Marta Guðjónsdóttir. og draga mjög úr þeirri umferð sem nú fer um Árúnsbrekkuna. Ef gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar og á Miklubraut yrðu mislæg myndi það greiða gríðarlega fyrir umferðarflæði Miklubrautar, sem er megin umferðarás bogarinnar í vestur og austur. Slík umferðarmannvirki þurfa alls ekki að vera fyrirferðarmikil, en þau myndu auka mjög umferðaröryggi þar sem nú er einna mest umferðarslysatíðni á landinu. Nærtækar lausnir Þær ljósastýringar sem notast er við í Reykjavík byggja á áratuga gamalli,
löngu úreltri tækni. Athuganir hafa leitt í ljós að nútíma ljósastýringar, snjallvæðing, sem nýta nýjustu tölvutækni í umferðarstýringu, myndu að öllum líkindum minnka biðraðir ökutækja um meira en helming en flæði almenningssamgangna myndi líklega aukast um 20%. Þetta er því ein nærtækasta og fljótvirkasta úrlausnin við umferðarvandanum. Það ætti svo að vera nokkuð ljóst að umferðarflæði Miklubrautar eykst umtalsvert við þær einföldu breytingar, að fækka umferðarfösum um tvo við gatnamót Miklubrautar og Lönguhlíðar með því að banna þar vinstri beyjur af Miklubraut og yfir akgreinar gagnstæðrar umferðar, og með undirgöngum eða brú fyrir gangandi og hjólandi umferð þar sem nú eru tvær ljósastýrðar gangbrautir, við Stakkahlíð og Klambratún. Loks má geta þess að við sjálfstæðismenn í borgarstjórn höfum lagt til að borgaryfirvöld beiti sér fyrir sveigjanlegri tímasetningum á mætingum nemenda og starfsmanna við skóla og stofnanir. Slíkar sveiganlegar tímasetningar yrðu þá liður í því að draga úr umferðareppum á álagstímum. Af öllu þessu ætti að vera nokkuð ljóst að það er vel hægt að leysa umferðarvandann í Reykjavik. Vilji er allt sem þarf. En hann hefur því miður ekki verið fyrir hendi hjá borgaryfirvöldum síðast liðin þrjú kjörtímabil. Höfundur: Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 16.1.2022 23:23 Page 7
HEERR ERRA AKV VÖLD Ö FFY Y YLKISS
JANÚAR
21
V
rr
Á ERK
F #"! ! "
PPB
MARS
13
.
Ky " !
á sk
"
!
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 17.1.2022 13:49 Page 8
8
Fréttir
Árbæjarblaðið
Einar Ágústsson íbúi í Árbæ:
Kærir tæmingu lónsins Einar Ágústsson íbúi í Árbæ hefur kært framkvæmd Orkuveitu Reykjavíkur að tæma með varanlegum hætti stíflulón ofan Árbæjarstíflu í árslok 2020. Sem kunnugt er vöknuðu Árbæingar upp við vondan draum einn daginn þegar framið hafð verið skemmdarverk á Árbæjarlóni. Öllu vatni verið hleypt úr lóninu og eftir stóð opið sárið. Hér á eftir birtum við nokkra kafla úr kærunni: Í upphafi segir svo: ,,Umrætt lón var tæmt fyrirvaralaust, án samráðs við íbúa á svæðinu og í andstöðu við fyrirliggjandi deiliskipulag án þess að lögboðin leyfi til þessarar framkvæmdar hafi legið fyrir. Lón þetta hefur verið andlit Elliðaár-
dals í að minnsta kosti 100 ár eða frá því að Árbæjarstífla var byggð árið 1921. Bendir margt til þess að lón hafi verið þar í einhverri mynd áður en Árbæjarstífla var byggð og að það lón hafi síðan verið stækkað með stíflunni. Liggur þannig fyrir að á svæðinu er flatlendi og að við gerð stíflunnar voru sprengd stór skörð í kletta til að hleypa vatni að stíflunni en ummerki um þetta sjást ofan stíflunnar nú eftir að hleypt hafi verið úr henni. Alkunna er að stíflum er valinn staður í útjaðri vatnasvæða þar sem vatn safnast saman á flatlendi og þau náttúrulegu vötn stækkuð með myndun lóns. Er því líklegt að um sé að ræða spjöll á landslagi og náttúru sem verið hefur á svæðinu í hundruðir ára. Þessi tæming lónsins hafði veruleg
Árbæjarlón fyrir tæmingu. áhrif á landslag stærsta útivistasvæðis Reykjavíkur og um leið veruleg áhrif á nærumhverfi tugþúsunda íbúa í Reykjavík en að Elliðaárdalnum liggja Árbæjarhverfi, Breiðholtshverfi auk Ártúnsholts og Norðlingaholts. Íbúar þessara hverfa eru vel á fjórða tug þúsunda en auk þess sækja svæðið tugþúsundir annarra íbúa Reykjavíkur. Um er að ræða ákvörðun um að tæma og fjarlægja þannig með varanlegum hætti lón sem var um 20.000 fm. að stærð. Ljóst er að þetta hefu mikil áhrif á landslag svæðisins og umhverfi borgarar sem þar búa en lónið hafði mikið aðdáttarafl og skartaði fjölbreyttu fuglalífi sem sem setti mikinn svip á Elliðaárdalinn sem dregur til sín um 50 þúsund gesti ár hvert. Kemur almenn afstaða til lónsins og mikilvægi þess sem hluti af landslagi Elliðaárdals meðal annars fram í skipulagsgreinargerð sem fylgdi tillögu að endurskoðun deiliskipulags Elliðaárdals sem samþykkt var 15.12.2020.” Síðar segir í kærunni: ,,Fjarlæging lónsins án deiliskipulagsbreytingar er andstöðu við lög og gildandi deiliskipulag, bæði það sem tók gildi í desember 2020 og eldra deiliskipulagi enda hefur
andi minnisblaði borgarlögmanns sem var á þá leið að tæming lónsins væri ekki í andstöðu við gildandi deiliskipulag og ekki þyrfti framkvæmdaleyfi fyrir henni. Þessi niðurstaða er í andstöðu við skýr skipulagslög, gildandi deiliskipulag, deiliskipulagsuppdrætti og framangreind álit skipulagsfulltrúa Reykjavíkur og skipulagsstofnunar. Niðurstaðan er jafnframt í andstöðu við skýr ákvæði laga sem mæla fyrir um það að ekki megi fara út í framkvæmdir sem þessar nema að fyrir liggi framkvæmdarleyfi eða eftir atvikum byggingarleyfi, sbr. það sem nánar verður fjallað um síðar. “ Og enn segir í kærunni: ,,Í minnisblaði frá skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar sem fundaði með stýrihópnum fyrir hönd skipulagsyfirvalda var tekið bent á að tæming lónsins væri í andstöðu við gildandi deiliskipulag. Þar segir að ekki sé hægt að túlka gildandi deiliskipulag Elliðaárdals öðruvísi en svo að það sé gert ráð fyrir ákveðnu vatnsyfirborði stíflulónsins fyrir ofan Árbæjarstíflu líkt og verið hefur í áranna rás. Síðan segir í minnisblaðinu: „Lónið hefur afgerandi áhrif á ásýnd og upplifun af svæðinu og er hluti af því
og erlendar vefsíður sem fjalla um útivistarmöguleika í Reykjavík en í þessu sambandi má benda á það að fagurt fuglalíf á Reykjavíkurtjörn blasir við á forsíðu Reykjavíkurborgar, https://borginokkar.is/forsida. Náttúrufegurð og fuglalíf sem þetta gerir öll svæði fegurri og eykur ánægju þeirra sem þessi svæði sækja. Njóta þessi svæði því mikilla vinsælda um allan heim og njóta ríkrar verndar fyrir hverskonar breytingum eða spjöllum. Það að Orkuveita Reykjavíkur hafi tekið sér það vald að eyða þessu andliti og sérkenni Elliðaárdals og breyta þannig varanlegu landslagi dalsins, umhverfi borgaranna og vinsælasta útivistarsvæði Reykjavíkur er fullkomlega óásættanlegt. Auk þess er þetta í algerri andstöðu við gildandi lög og meginsjónarmið um skipulag borga varðandi breytingar á landslagi og mannvirkjum.” Í lok kærunnar segir Einar meðal annars: ,,Eftir stendur svæðið eins og flakandi sár og horfa vegfarendur ofan í þær vatnsrásir sem sprengdar voru og gráan stífluvegginn sem stendur óvarinn eftir að lónið er farið. Fuglalíf ofan við stífluna er nú nánast ekkert í stað þess
Skemmdarverkið staðreynd og lónið tómt. lónið á skipulagsuppdráttum áratugum saman. Fjarlæging lónsins hefur mætt harðri andstöðu íbúa á svæðinu og var töluvert fjallað um málið í fjölmiðlum. Skipaður var stýrihópur af Reykjavíkurborg sem átti m.a. að fjalla um tæmingu lónsins og voru vonir bundnar við það að niðurstaða hans yrði á þann veg að hætt yrði við tæminguna. Svo var hins vegar ekki, sbr. meðf. skýrslu stýrihópsins þar sem að gengið var langt í því að verja ákvörðun OR þrátt fyrir að ljóst væri að tæming lónsins væri skýrt brot gegn gildandi deiliskipulagi og að bent hafi verið á það bæði af skipulagsfulltrúanum í Reykjavík og skipulagsstofnun. Byggði stýrihópurinn fyrst og fremst hvað þetta varðaði á fyrirliggj-
menningarlandslagi sem orðið hefur til í dalnum í góðum takti við náttúru og lífríki svæðisins. Það er því erfitt að sjá að tæming lónsins til frambúðar sé í samræmi við gildandi deiliskipulag Elliðaárdals né nýlega auglýsta endurskoðun á deiliskipulagi svæðisins.“ Það er því ljóst að ekki er bara verið að fjalla fjarlæginu lóns sem var stó hluti af landslagi Elliðaársdals heldur jafnframt þann hluta dalsins sem hefur verið miðpunktur og helsta sérkenni svæðisins í 100 ár. Er það ekki að ástæðulausu enda var um mjög fallegt lón að ræða sem speglaði nærumhverfi sitt og himinn auk þess sem það skartaði fjölbreyttu fuglalífi sem fólk sótti í auk þess sem lónið hefur prýtt forsíður kynningarbæklinga Reykjavíkurborgar
sem áður var þegar lónið var fullt af fjölbreyttu fuglalífi. Öllum þeim sem fara á svæðið dag og kynna sér ástand þess má vera ljóst að sú breyting sem gerð hefur verið á landslagi Elliðaárdalsins með því að fjarlægja lónið var ekkert annað en skemmdarverk á svæðinu. Ég geri þá kröfu að skipulagsyfirvöld sinni þeirri skyldu sinni samkvæmt lögum að gæta að hagsmunum borgarana og verndi umhverfi þeirra fyrir ólögmætum breytingum. Á þeim grundvelli ber að koma Árbæjarstíflulóni án tafar í það horf sem það hefur verið í a.m.k. 100 ár og það á að vera í samkvæmt gildandi deiliskipulagi.”
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 30/04/21 22:10 Page 9
GJAFAKORT HREYFINGAR Gefðu þeim sem þér þykir vænt um dásamlegt dekur eða heilsurækt hjá Hreyfingu
HREYFING
ÁLFHEIMAR 74
104 REYKJAVÍK
HREYFING.IS
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 17.1.2022 18:12 Page 10
10
Árbæjarblaðið
Ffréttir
Fuglum hefur snarfækkað á lóninu eftir skemmdarverk Orkuveitunnar.
Sérálit Björns Gíslasonar vegna skýrslu meirihluta stýrihóps um Elliðaárdal:
OR hefur ekkert með svæðið að gera Í tilefni af því að lögð hefur verið fram kæra vegna tæmingar á Árbæjarlóni birtum við hér kafla úr séráliti Björns Gíslasonar formanns Fylkis og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Í upphafi segir Björn: ,,Ég vill byrja á því upplýsa um að ég er sammála ýmsu sem kemur fram í skýrslu meirihluta stýrihópsins en ég get hins vegar á engan hátt fellt mig við niðurstöður þeirrar skýrslu varðandi það að hleypt hafi verið úr stíflulóninu við Árbæjarstíflu og hvernig var að því staðið. Það er mín skoðun að með því að taka ákvörðun um að hleypa úr lóninu með varanlegum hætti og eyða þannig því lóni sem verið hefur fyrir ofan stífluna í a.m.k. 100 ár án nauðsynlegra skipulagsbreytinga eða leyfa og án nokkurs samráðs við íbúa á svæðinu þá hafi verið brotið gróflega gegn lögum og rétti íbúa á svæðinu og í raun allra íbúa Reykjavíkur. Þessi afstaða mín byggist á eftirfarandi rökstuðningi. Það að hleypa úr umræddu lóni er aðgerð sem hafði veruleg áhrif á landslag stærsta útivistasvæðis Reykjavíkur og nærumhverfi tugþúsunda íbúa í Reykjavík en að Elliðaárdalnum liggja Árbæjarhverfi, Breiðholtshverfi auk Ártúnsholts og Norðlingaholts. Íbúar þessara hverfa eru vel á fjórða tug þúsunda en auk þess sækja svæðið þúsundir annarra íbúa Reykjavíkur. Um er að ræða ákvörðun um að eyða með varanlegum hætti lóni sem er um 20.000 fm að stærð. Augljóst er hve mikil áhrif þetta hefur á landslag og umhverfi auk þess sem lónið skartaði fjölbreyttu fuglalífi sem dró til sín tugþúsundir borgara ár hvert.”
Sýnum hvert öðru tillitssemi
www.itr.is
Og síðar segir í séráliti Björns: ,,Það er því ljóst að ekki er bara verið að fjalla um stóran hluta af landslagi Elliðaársdalsins heldur jafnframt þann hluta sem hefur verið miðpunktur og ásýnd svæðisins í 100 ár. Var um mjög fallegt lón að ræða sem speglaði nærumhverfi sitt og himinn auk þess sem það skartaði fjölbreyttu fuglalífi sem fólk sótti í auk þess sem lónið hefur prýtt forsíður kynningarbæklinga Reykjavíkurborgar og erlendar vefsíður sem fjalla um útivistarmöguleika í Reykjavík. Það að nokkrir starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur hafi tekið sér það vald og heimildir að eyða þessu svæði Elliðaárdals og breyta þannig varanlegu landslagi dalsins og upplifun borgaranna af þessu vinsælasta útivistarsvæði og skilja eftir flakandi sár er fullkomlega óboðlegt að mati undirritaðs. Auk þess er þetta í algerri andstöðu við lög og meginsjónarmið um skipulag borga varðandi breytingar á landslagi og mann virkjum.” Loks segir í séráliti Björns: ,,Í þessu sambandi þá vil ég sérstak-
lega mótmæla því sem kemur fram í skýrslu meirihluta stýrihópsins að áin renni nú í sínum gamla farvegi. Það er rangt enda augljóst að áin rennur nú í farvegi eftir sprengingar sem gerðar voru við smíði stíflunnar auk þess sem að ekkert liggur fyrir um það hver farvegur árinnar var áður en að virkjunin var reist. Framangreindum skyldum samkvæmt lögum var ekki sinnt heldur voru lög þverbrotin við þá einhliða og gerræðilegu ákvörðun og framkvæmd OR að tæma lónið fyrirvaralaust og varanlega án samráðs við yfirvöld eða íbúa. Eftir stendur svæðið eins og flakandi sár og horfa vegfarendur ofan í þær fleyguðu manngerðu vatnsrásir sem að ofan er lýst og gráan stífluvegg. Fuglalíf ofan við stífluna er nú nánast ekkert í stað þess sem áður var en þá var lónið fullt af fjölbreyttu fuglalífi. Öllum þeim sem fara á svæðið í dag og kynna sér ástand þess og bera það saman við myndir af því lóni sem þar var áður má vera ljóst að unnið hefur verið skemmdarverk á svæðinu með því að hleypa úr lóninu. Til viðbótar framangreindum lögbrotum þá var tæming lónsins síðast en ekki síst brot gegn þeirri mikilvægu reglu allrar stjórnsýslu að gæta meðalhófs enda liggur fyrir að unnt var að koma til móts við þá aðila sem höfðu gert kröfur um endurskoðun á stöðu lónsins vegna mengunar og fiskgengdar en um leið að halda sig innan deiliskipulags. Þetta var þannig hægt að gera með því að hætta árlegum skiptingum á milli sumar- og vetrarstöðu á yfirborði lónsins og með því að liðka fyrir fiskgegnd í kvíslinni sunnan megin svo dæmi séu tekin. Það er mín skoðun að það eigi án tafar að leiðrétta þá ólögmætu framkvæmd að tæma Árbæjarlónið og að yfirborði lónsins verði aftur komið í það horf sem það á að vera samkvæmt deiliskipulagi og það hefur verið í meira en hundrað
ár. Í framhaldi verði það skoðað í samræmi við lög og í samráði við íbúa í aðliggjandi hverfum og aðra Reykvíkinga svo og þá hagsmunahópa sem eiga hagsmuna að gæta á svæðinu, þ.á.m. stangveiðimenn, Hollvinasamtökin, náttúruvernd, Hafrannsóknarstofnun og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hver eigi að vera næstu skref varðandi mótun svæðisins til framtíðar. Eins þarf að huga að því hvaða áhrif tæming 20.000 fm lóns sem staðið hefur þétt við byggð í a.m.k. 100 ár hafi á vatnsbúskap svæðisins en bent hefur verið á að breytingar á vatnsbúskap svæða getur haft alvarleg áhrif á nærliggjandi svæði. Það gerðist t.d. á Siglufirði þegar snjóvarnargarðar voru byggðir fyrir ofan bæinn sem breyttu vatnsfarvegi með þeim afleiðingum að hús sigu, garðar þornuðu upp og lagnir eyðilögðust. Ef slíkt gerðist á svæðunum í kring þá mundi það hafa í för með sér milljarða tjón á eignum íbúa og Reykjavíkurborgar sem OR bæri mögulega skaðabótaábyrgð á. Ég tel það jafnframt að framkvæmdin eigi að eiga sér stað undir stjórn Reykjavíkurborgar sem eiganda svæðisins en ekki OR enda eru skipulagsmál sem þessi langt utan verksviðs OR, þ.e. að móta umhverfi Reykvíkinga og sýsla með skipulagsmál íbúa. Hvað það atriði varðar þá tel ég það jafnframt ljóst af öllum gögnum málsins að OR hefur ekkert með þetta svæði að gera enda er það Orka Náttúrunnar ehf. sem hafði þarna starfsemi og hefur þau leyfi sem deilt er um. Er aðkoma OR því undir öllum kringumstæðum ólögmæt og utan þess starfssviðs. Eins ber að líta til þess að starfsemi á umræddu svæði var alfarið hætt árið 2014 og hefði því átt fyrir löngu að vera búið að skila svæðinu til eiganda síns Reykjavíkurborgar. Með vísan til þessa og í samræmi við ofanritað er það niðurstaða mín að færa beri lónið í sitt upprunalega horf skv. deiliskipulagi nú þegar.”
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 17.1.2022 18:14 Page 11
Enn betri þjónusta í Hraunbænum Við höfum aukið afköstin í Endurvinnslumóttökunni Hraunbæ 123 með fleiri talningavélum, rúmbetri móttöku og lengri opnunartíma. kr. Greiddar eru 18 a n u g in fyrir ein
Plötur til sölu með 60% afslætti Upplýsingar í síma 698-2844
Opnunartíminn okkar er: Virkir dagar 9-18 Helgar 12-16.30
– gefðu okkur tækifæri! Endurvinnslumóttakan Hraunbæ 123 . 110 Reykjavík
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 03/12/21 17:02 Page 17
Lengri afgreiðslu tími 10-20
Smáratorg Skeifan Spöng Fiskislóð - Grandi + ½½ê©Ú êÄ ɟ + £Ä ÚĈÚ ¬ Mosfellsbær Langholt - Akureyri Selfoss Fitjar - Reykjanesbæ
Almennur afgreiðslutími Mán – Fim 11:00 – 19:00 Fös – Sun 10:00 – 19:00
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 18.1.2022 14:26 Page 13
13
Fréttir
Árbæjarblaðið
Milljónir í súginn, sem gætu farið í æskulýðsstarf - dapurleg staðreynd og Grænir skátar vilja gera betur, segir framkvæmdastjóri Grænna skáta „Okkar takmark er að öllum dósum og flöskum verði skilað til endurvinnslu. Grænir skátar reka skilasstaði á höfuðborgarsvæðinu og hagnaðurinn af því starfi er mikilvægur fyrir uppbyggingu á fjölbreyttu æskulýðsstarfi. Staðreyndin er hins vegar sú að umbúðir með skilagjaldi fyrir nærri tvö hundruð milljónir króna voru urðaðar
hjá Sorpu í fyrra. Þetta er dapurleg staðreynd og við viljum breyta þessu öllum til góða, ekki síst umhverfinu,“ segir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Grænna skáta. Á undanförnum árum hafa Grænir skátar byggt upp 120 skilastaði á höfuðborgarsvæðinu fyrir dósir og
flöskur með skilagjaldi. Auk þess bjóða þeir upp á sérþjónustu fyrir húsfélög og fyrirtæki þar sem umræddar umbúðir eru sóttar reglulega gegn sanngjarnri þóknun. Grænir skátar reka einnig móttökustöð fyrir Endurvinnsluna í Hraunbæ 123 sem er opin alla daga vikunnar og greiddar eru 18 kr. fyrir eininguna. Þeir fjármunir sem safnast eru notaðir til þess að standa straum af rekstri Grænna skáta, til að standa straum af ýmis konar æskulýðsstarfi sem skátarnir standa fyrir og til að borga fólki með skerta starfsgetu fyrir vel unnin störf en 35 starfsmenn starfa hjá Grænum skátum í gegnum átakið ,,Atvinna með stuðning“. Í nýlegri rannsókn sem var gerð á sorpi borgarbúa kom í ljós að misbrestur sé á því að borgarbúar skili inn umbúðum með skilagjaldi. Var reiknað út að frá því árð 2012 hafi slíkum umbúðum verið hent og eytt í Sorpu fyrir rúman milljarð króna.
Það er einfalt og þægilegt að koma með flöskur og dósir til Grænna skáta.
Söfnunargámarnir frá Grænum skátum eru víða.
Er hleðslu ukerfi rafbíla a haussverkur í húsffélaginu?
Bílastuð Eignaumsjónar - þrjár þjónustuleiðir þ í boði:
Kristinn segir að tilgangurinn með starfsemi Grænna skáta sé þríþættur. Með þessu verkefni vilja skátar efla vitund þjóðarinnar um mikilvægi flokkunar og endurvinnslu og hins vegar að afla fjár sem kemur æskulýðsstarfi ungs fólks til góða. Einnig bendir hann á að þetta verkefni hafi skapað hópi fólks með skerta starfsgetu vinnu. „Við viljum hvetja alla til þess að gera betur og ganga í lið með okkur í Grænum skátum og láta það heyra sögunni til að við köstum í ruslið umbúðum með skilagjaldi“, segir Kristinn.
umsjjon.is
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is
Graænir skátar í Hraunbæ.
Grænir skátar við Hörpuna
s. 5 11 53 00
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 18.1.2022 10:53 Page 14
14
Gamla myndin
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)
Árbæjarblaðið 587-9500 Höfðabakka 3
Árbæjarblaðið
:9654653210251/.-,.+5*4),.5('&&5%,$5%#3!0 5 /0),!%200265#5 400,6,3.,.3 5 35#5 621 20-,5%26504,),..5%#3!0 04,) 6+54.5 26 ** !*5%,$5 /0),65 35 ,.-2!* 00 5 #3!0 04,),..5!,362$,5 /0),65 5 6)5 /0),!5!) 6 $ 5 4,65 6.5 20-,126!! .+5 $ . 4/.,!! .5 35! 5 6 3,5 ..265 662! .5!415!) 62$,5!,3 6126)504,)!,.! 5 4!!51 534*252$5 %466,65 %466,!! .5!) 62$,5 2..2$5126)25 ,.-2!* 0! 555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555 !1/.-5 .5 23.34,6!! .
Nýttu hvert einasta snjókorn Katrín Jónína Björgvinsdóttir ljósmyndari Árbæjarblaðsins brá undir sig betri fætinum á dögunum og hitti nokkra hressa krakka sem voru að renna sér í snjónum í brekkunni fyrir neðan Árbæjarkirkju. Margir Árbæingar hafa leikið sér í umræddri brekku þegar aðstæður hafa verið góðar og nóg af snjónum. Vetur konungur hefur verið rólegur hvað snjóinn varðar og ekki hafa verið mörg tæifæri fyrir krakkana að taka fram sleðana og renna sér. Krakkarnir sem Katrín hitti voru að nýta síðustu snjókornin í hlákunni en vonandi fá þessir hressu krakkar fleiri tækifæri í brekkunni í vetur.
Systkinin Mikael og Eva Natalí.
Vinkonurnar Katla Dís Guðmundsdóttir, Katrín Þóra Bjarmadóttir og Júlía Björk Sverrisdóttir.
Rúnar Steinn Arnarsson Long.
Sunneva Kristín Diego Arnórsdóttir.
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 17.1.2022 11:52 Page 15
15
Fréttir
Árbæjarblaðið
Fréttamolar frá kirkjustarfinu Helgihald í Árbæjarkirkju Gleðilegt ár kæra safnaðarfólk og takk fyrir allt það liðna. Staðan á faraldrinum er sú að almennt safnaðarstarf þá hvort heldur það er barna/unglinga eða fullorðinsstarf hefur legið niðri. Ljóst er að helgihald færist aftur inn á streymið. Þegar þetta er skrifað hafa samkomutakmörk verið hert í 10 manns. Viljum við benda á að allar upplýsingar um starfið verður eins og fyrr að finna á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is og á fésbókar- og Instagramsíðu kirkjunnar. Kirkjan lokar ekki. Hún er opnin virka daga frá 10.00-15.00. Hægt er sem fyrr að hringja og panta viðtal hjá prestum og djákna. Tökum höndum saman (eða þannig) með heilbrigðisyfirvöldum að vinna bug á þessari óværu sem fyrst þannig að ,,eðlilegt” líf komist á sem fyrst. Höldum fjarlægð þannig að við getum nálgast hvort annað sem fyrst.
Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is
Andvana ár - eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn Samfélagið allt á eyjunni hélt niðri í sér andanum eftir að orðrómur barst handan fjalla og Atlantsála að hún breiddi úr sér eins og eldur í sinu að vori. Hún hlífði engu. Hún hafði verið þarna á sveimi, ósýnileg svo vikum skipti og beið átekta að stinga sér niður í farangri ferðalanga sem komu til landsins. Hún færðist nær og nær. Óttaslegnar manneskjur tóku sig til og földu sig á bak við þykk stofugluggatjöld. Pírðu augu út um glugga heimila sinna einhverjir þá þegar sýktir og einangraðir, aðrir ekki og enn aðrir höfðu ekki hugmynd um það og héldu niðri í sér andanum. Hún sogaði til sín allan þrótt og bragðskyn og gleypti drauma og væntingar manna. Hún kjammsaði á því sem hún nærðist á og spýtti út úr sér eins og hverjum öðrum hráka sem manneskjur hrösuðu um. Ættingjar og vinir, skóla- og vinnufélagar tóku sig til við að Zoomast fyrir framan blákaldan skjá heima og þjást sjálft orðið sem rímar við ást. Myrkrið og taglhnýtingar þess unnu sitt verk. Boruðu sig inn í vitund samfélagsins og lamaði. Þykkir steyptir og einangraðir veggir, tvö- eða þrefalt glerið og þykkar gardínur komu ekki í veg fyrir að vera mögulega sett í sóttkví eða til einangrunarvistar. Sett til hliðar frá öðrum manneskjum í lengri eða styttri tíma. Einsemdin nagaði ekki aðeins neglur heldur og gleðina og setti samfélagið í strimla með kóða og tilheyrandi bið í angistar röð. Djúpt utan úr myrkrinu heyrist hjáróma söngur. ,,Eru ekki allir sexý.” Textinn hér að framan er eins og upphaf á skáldsögu eftir Bandaríska hryllingssagnahöfundinn Stephen
King. Svo mjög sem hann er góður að leiða huga lesenda sinna á holóttum og bugðóttum vegi myrkurs og hryllings þá segir mér hugur að jafnvel hann hafi
sr. Þór Hauksson. ekki haft hugmyndaflug til að skálda það sem gengið hefur yfir heimsbyggðina í tæp tvö ár. Einstaka hlé komið til að ná andanum sem gaf af sér bjartsýni um að allt yrði eins og það var áður en jafn óðum hrifsað úr höndum eins og leikfangi af ómálga barni.
Einstaka bók hef ég lesið eftir framangreindan höfund Stephen King og þá ekki fyrir svefninn heldur hábjörtum degi með öll ljós kveikt. Það eitt að alast upp í stórum systkinahópi næst yngstur getur verið ágætt, hef ekki samanburð við annað. Eldri systkini eiga það til að finna auman blett hjá yngri systkinum eins og myrkfælni. Hugsað til baka kemur það vel á vondan því ég hef verið talsmaður þess að það sé í lagi að hræða börn upp að vissu marki. Þannig háttaði til á einu af mínum æskuheimilum að geymsla heimilisins var staðsett niðri í kjallara. Til að komast þangað þurfti að feta sig niður brattan dimman stiga í daufri birtu og við tók langur dimmur gangur með mörgum harðlokuðum geymslum sitt til hvorar handar. Ungur hugur var duglegur að troðfylla það sem bak við dyr geymslunar lá af margskonar óhugnaði. Reyndar átti það líka við um rúmið mitt eða það sem dvaldist undir því í myrkrinu. Í mörg ár fór ég ekki úr rúmi nema með höfuðið á undan til að skoða gaumgæfilega það sem þar gæti leynst, áður en fætur námu við gólf. Svo mér yrði ekki hrifsað í hyldýpi myrkurs. Það getur nefnilega allt gerst. Um árið sendi Illugi Jökulsson blaðamaður frá sér smásöguna; ef mig brestur ekki minnið, ,,Afmælið.” Sagan segir frá börnum í afmælinu sem fóru í feluleik. Eitt barnið faldi sig svo vel að það
fannst aldrei. Bara ef það væri svo að við gætum falið okkur fyrir Covid19 fyrir aftan þykk gluggatjöld og veiran myndi aldrei finna okkur. Ég hef ekki nefnt þennan möguleika við Kára klára. Hann hefði einfaldlega svarað því til að ég væri illa gefin að leiða hugann að þessu. Hryllingshrollurinn sem lék um mig á stundum náði mér svo að ég var nær ,,andvana” svona á pari við gaurinn í ármamótaskaupunum tveimur síðustu sem hélt niðri í sér andanum svo að hann smitaðist ekki af Covid19. Þegar ég lenti í því óláni að vera að sendast eftir einhverju í geymsluna kallaði hugur minn fram allt það versta sem gæti gerst. Ég trúi varla að ég segi þetta upphátt og setji á prent. Í kjölfars ills kemur eitthvað gott. Sagan hefur kennt okkur það. Það leiðir hugann að þeim veruleika sem við stöndum frammi fyrir í dag á Covid tímum. Ef einhverjum hefði dottið í hug að segja í marsmánuði 2020 að Covidið stæði enn yfir núna tæpum tveim-
ur árum seinna hefði ég sagt viðkomandi að fá sér svefnsófa af bestu og dýrustu gerð og fá sér áskrift af öllum hugsanlegum streymisveitum heims. Okkur er tamt að segja í byrjun árs: ,,Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.” Í dag segist - Gleðilegt ár og muldrað fyrir munni sögnina ,,vonandi.” Yfirleitt horfum við til nýs árs með sína auðu hvítu blaðsíðu letrað á forsíðu: ,,Von og bjartsýni” Í dag leyfum við okkur varla að láta hugann hvarfla þangað hvað þá þau mörgu sem hefja árið haldin smitskömm. Ekki veit ég hvort hljómsveitin Þursaflokkurinn hafi verið Nostradamus 20. aldar þegar þeir sögðu í einu laga sinna að raunveruleikinn væri trunta. Raunveruleikinn í dag og síðustu tæp tvö ár hefur verið svolítið þannig - Trunta – Raunveruleikinn er sá að veiran; skömmin sú, yfirfærir eigin skömm yfir á okkur sem höfum ekki gert annað en að draga andan, já og kennt okkur Íslendingum að standa í röð. Það er eitthvað eða er það ekki? Nýárskveðja, Þór Hauksson
ÁB 2022.qxp_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 17.1.2022 18:23 Page 16
Höldum í heffð ðirnar