Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 02:07 Page 1
Árbæjarblaðið 1.tbl.14.árg.2016janúar
FréttablaðíbúaíÁrbæogNorðlingaholti
Opiðvirka dagafrá kl.9-18.30 Laugardaga frákl.10–14 Hraunbæ 115 – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 arbapotek@internet.is Arbaejarapotek.is
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477
www.bilavidgerdir.is
Þjónustuaðili
Grafarholtsblaðið Grafarholtsblaðið, fréttablað Grafarholts og Úlfarsárdals, fylgir Árbæjarblaðinu.
Lið Fylkis sem náði frábærum árangri á Íslandsmótinu í karate. Frá vinstri: Andri Sveinsson (þjálfari), Máni Guðmundsson, Edda Óttarsdóttir, Lilja Davíðsdóttir, Katrín Björnsdóttir, Ólafur Árnason, Hekla Helgadóttir, Katla Helgadóttir, Elías Guðnason, Arnar Jónsson (þjálfari). Sjá nánar á bls. 14
b bfo.is fo.is 7^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][ 7^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][
W[d5W[d#^h W[d5W[d#^h
BG
BG
S VO
SV
T T UÐ ÞJ Ó N US
TA
OT TUÐ ÞJÓNUS
TA
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN (GRÆN GA GATA) AT TA) · 200 KÓPAVOGI KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
WWW.THREK.IS
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 12:01 Page 2
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Viðburðaríkt ár hjá Árbæjarblaðið Fylki og góður árangur Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Höfðabakki 3 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingastjóri: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir. solveig@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur og Landsprent. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 og 113 (700 fyrirtæki).
Kynslóðaskipti Íslenska landsliðið í handbolta reið ekki feitu hrossi frá Evrópumótinu í Póllandi. Strákarnir okkar komust ekki í milliriðlakeppnina og er það í fyrsta skipti í 12 ár sem íslenska landsliðið í handbolta kemst ekki upp úr riðlakeppni á stórmóti. Þetta er vitanlega hrikalega lélegur árangur og þegar svo illa gengur þarf að leita logandi ljósi að ástæðum fyrir slæmu gengi liðsins og reyna síðan að bæta strax það sem aflaga fór. Ljóst er að það eru kynslóðaskipti framundan í íslenska landsliðinu og margir leikmenn hljóta að hafa leikið sinn síðasta landsleik í Póllandi sl. þriðjudagskvöld. Við þurfum líka að skipta um þjálfara en það var átakanlegt að sjá hve illa Aron Kristjánsson réð við hlutverk sitt á EM í Póllandi. Að mínu mati var Aron þjálfari lélegasti hluti íslenska liðsins á mótinu. Hlutir sluppu fyrir horn í fyrsta leiknum gegn Noregi en í leiknum gegn Hvíta-Rússlandi fór allt úrskeiðis. Varnarleikurinn hefur aldrei verið lélegri hjá íslenska landsliðinu. Ég hef fylgst með íslenska landsliðinu frá því snemma á níunda áratugnum þegar uppgangur landsliðsins hófst og ég hef aldrei séð íslenska liðið lélegra en í leikjunum á EM gegn Hvíta-Rússlandi og Króatíu. Og líklega hefur því aldrei verið ver stjórnað en á þessu móti í Póllandi. Á ögurstundu þegar varnarleikur liðsins klikkaði algjörlega var ekkert varaplan með í farteskinu. Keyrt var á sömu vörninni allan leikinn gegn Hvít-Rússum. Reyndar voru smávægilegar breytingar gegn Króötum en ekkert gekk. Þá var þjálfari liðsins og reyndar allur varamannabekkurinn afar máttlaus og líflaus á mótinu. Engin dirfska var til staðar í ákvarðanatökum, mannskapurinn allur því miður steingeldur og stundum var eins og hreinlega vantaði áhuga til að gera góða hluti. Það að íslenska landsliðið skuli hafa tapað jafn rosalega mikilvægum leik og gegn Króatíu á fyrstu 15 mínútum leiksins er vægast sagt áhyggjuefni. Sæti í milliriðli og von um Ólympíusæti var ekki nóg til að kveikja neista í íslenska liðinu. Ekki einu sinni hjá ungum og efnilegum leikmanni eins og Aroni Pálmasyni sem var átakanlega lélegur gegn Króötum og skoraði ekki mark. Talað er um Aron sem einn af 10 bestu leikmönnum heims í dag. Ég leyfi mér að efast stórlega um það mat eins og staðan er í dag. Það eru kynslóðaskipti framundan og nú á að nota tækifærið og skipta inn mörgum ungum leikmönnum sem eru byrjaðir að lemja á dyrnar. Og leit að nýjum þjálfara hlýtur að vera hafin. Þar verður að vanda valið ekki síður en á nýjum framtíðar leikmönnum landsliðsins.
- eftir Björn Gíslason formann Fylkis Árið 2015 var viðburðaríkt ár sem einkenndist af góðum árangri félgagsins á mörgum sviðum. Eins og flestum er kunnugt stóðu framkvæmdir yfir á íþróttasal Fylkishallar þar sem meðal annars hefur verið málað og lagt nýtt gólf. Það má sérstaklega þakka sjálfboðaliðum handknattleiksdeildar sem lögðu mikið á sig við að ná að mála stóran hluta Fylkishallar. Áfram verður unnið á árinu 2016 í að ljúka því að koma salnum í gott stand svo sómi sé af. Árangur deilda á árinu var með miklum ágætum. Fylkir á lið í efstu deild í blaki, handknattleik og knattspyrnu. Jafnframt á Fylkir fjölmarga sterka iðkendur í fimleikum og karate sem keppa í fremstu röð í sínum greinum. Fimleikadeildin hefur vaxið með hverju árinu og er árangur deildarinnar góður. Meistarahópurinn náði góðum árangri á árinu og fer fyrir sem góðar fyrirmyndir fyrir aðra iðkendur í fimleikadeild. Hópur Parkour iðkenda hefur stækkað með hverju árinu og hefur starfið þar verið að eflast stöðugt. Iðkendur deildarinnar koma víða að og má nefna unga iðkendur sem ferðast reglulega milli Selfoss og Stokkseyrar til Reykjavíkur til að stunda Parkour og fimleika. Iðkendafjöldi í fimleikadeild hefur stöðugt verið að aukast en fjöldi iðkenda á árinu 2015 fór yfir 1000 einstaklinga. Grunnur að öflugu starfi deildarinnar eru góðir þjálfarar og hefur fimleikadeildin verið mjög heppinn
með góðan og metnaðarfullan hóp á árinu. Á hverju ári bætast við titlar hjá Karatedeild og fagnaði deildin níunda íslandsmeistaratitlinum í unglingaflokki á árinu. Jafnframt tryggði deildin sér 4 nýja titla á árinu 2015. Það er kraftmikið starf unnið í deildinni og verður gaman að fylgjast með deildinni í keppnum á næstunni. Meistaraflokkur kvenna í handknattleik hefur á að skipa einu efnilegasta liði landsins og er gaman að sjá að við eignuðumst fleiri A landsliðskonur á árinu þegar Thea Sturludóttir var valinn í landsliðið. Fylkir eignaðist Íslandsmeistara í 3. og 4. flokki kvenna og deildarmeistara í 4. flokki kvenna og karla. Árangurinn hefur meðal annars náðst með góðu framlagi sjálfboðaliða í stjórnun deildarinnar. Framtíðin er því mjög björt í handknattleiknum og mikilvægt að áfram verði haldið á sömu braut. Í knattspyrnudeild var gengi meistaraflokks kvenna gott og eigum við sjötta besta lið á landinu. Meistaraflokkur karla fór í gegnum þjálfaraskipti á sumrinu og endaði félagið í 8. sæti Pepsi deildar. Í yngri flokkunum varð 5. flokkur kvenna Íslandsmeistari og 5. flokkur karla sigraði N1 mótið á Akureyri. Blakdeildin heldur áfram að stækka og bætti félagið við liði í efstu deild kvenna í blaki en deildin ber heitið Mizuno. Öflugur hópur blakara tók þátt í
Viðurkenndur þjónustuaðili Toyota í nágrenni við þig - heildarþjónusta við Toyota eigendur
Öldungamótinu. Á bakvið gott starf allra deilda starfa fjölmargir sjálfboðaliðar í stjórnum, foreldraráðum, við skipulag viðburða, fjáröflunum og fleiru sem eflir starfsemi Fylkis. Án þessa frábæra starfs sjálfboðaliða væri starfsemi Fylkis ekki eins öflug og raunin var á árinu 2015.
Björn Gíslason formaður Fylkis. Við munum byggja árið 2016 á þeim góða grunni sem við höfum saman skapað á undanförnum árum. Með Fylkiskveðju, Björn Gíslason formaður aðalstjórnar Fylkis.
Hjá Arctic Trucks starfa reyndir bifvélavirkjar sem veita þér fyrsta flokks þjónustu. Almennar bílaviðgerðir Þjónustuskoðanir Ábyrgðarviðgerðir Ástandsskoðanir Smurþjónusta Hjólastillingar Hjólbarðaverkstæði SKUTLÞJÓNUSTA
StefánKristjánsson,ritstjóriÁrbæjarblaðsins
abl@skrautas.is
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | SÍMI 540 4900 | WWW.ARCTICTRUCKS.IS
GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 18/01/16 18:43 Page 3
Í myrkri og kulda er gott að hlýja sér við Beauty Angel ljósið
Kuldi eykur álag á húðina. Beauty Angel ljósið örvar bandvef í húðinni og eykur kollagenframleiðslu svo
húðin verður mýkri, rakari og fallegri. Ljósið fyllir líkamann þægilegum yl sem endist út daginn.
Fossaleyni 1 / Egilshöll - 112 Reykjavík Sími: 544-2422 www.beauty-angel.is
Beauty Angel ljósið hefur jákvæð áhrif á orku og hug og léttir þér lund í skammdeginu.
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 18/01/16 23:25 Page 4
4
Matur
Árbæjarblaðið
Laugardagsmatur Más og Margrétar - að hætti Margrétar og Más Viðars Margréti Ólafsdóttir og Már Viðar Másson, Næfurási 17, eru matgæðingar okkar að þessu sinni. Við skorum á lesendur að prófa uppskriftirnar. Grænt lasagna Við bjóðum upp á grænmetislasagna, sem hefur fylgt fjölskyldunni í 35 ár og er alltaf jafn vinsælt, sérstaklega eftir stórhátíðir, þegar steikur og annar þungur matur hefur lengi verið á borðum. Uppskriftin er fengin úr sænskri matreiðslubók sem ber heitið Annas mat eftir Anna Bergenström. Uppskriftin lagar sig að því sem til er í ísskápnum. Það má til dæmis bæta gulrótum út í tómatsósuna og eins má blanda saman spínati og brokkoli, ef það passar ísskápnum betur. Tómatsósuna má einnig krydda meira en hér er gefið upp. Það má t.d. bæta papriku- eða chilidufti út í hana undir lokin. Þá má styrkja hana með tómatþykkni, allt eftir því í hvaða skapi heimilisfólkið er þá stundina. Oftast höfum við sósuna frekar milda, en svo getur hver og einn kryddað réttinn fyrir sig, með því að setja Tabascodropa eða Tex Mexdropa ofaná réttinn, þegar hann er kominn á diskinn. Afgangar geymast vel í kæliskáp í 1-2 daga og bragðast eftir það enn betur! Þannig er
uppskriftin í sinni einföldustu mynd, og er ætluð fyrir fjóra: Tómatsósa Tveir laukar saxaðir smátt. 3 hvítlauksrif marin. 1 dós hakkaðir tómatar (eða 8 ferskir, en þá þarf að taka hýðið af þeim). 1 tsk. þurrkuð basilika eða oregano. Salt og svartur pipar eftir smekk. Laukurinn er gljáður í potti við lágan hita. Ef saxaðar gulrætur eru notaðar, eru þær gljáðar með lauknum. Þegar þetta er orðið mjúkt, er tómötum og kryddi bætt út í, og það látið malla undir loki í 10-15 mínútur. Grænmeti og ostur 250-300 gr ferskt spínat (má einnig vera frosið). 3 dl rifinn ostur, t.d. sterkur Gouda. 3 dl kotasæla. Múskat eftir smekk. Salt og svartur pipar eftir smekk. Auk þess Ca. 10 forsoðnar lasagna plötur. 2 ½ dl mjólk, sem best er að hita fyrir notkun. Suða er látin koma upp á spínatinu í léttsöltuðu vatni. Vatnið er síðan síað
Matgæðingarnir Margrét Ólafsdóttir og Már Viðar Másson, Næfurási 17. frá og spínatið saxað. Ef spínatið er frosið er gott að kreista mesta safann úr því. Grænmetið, kotasælan og tveir þriðju hlutar rifna ostsins er hrært saman, og kryddað með múskati, smá salti og pipar. Það má gjarnan vera mikið bragð frá múskatinu. Smyrjið nú eldfast mót og setjið matinn í það í lögum, þannig: Tómatsósa, lasagnaplötur, grænmeti og ostur, lasagnaplötur, tómatsósa, lasagnaplötur, grænmeti og ostur. Efst fer afgangurinn af rifna ostinum. Mjólkinni er að lokum hellt meðfram lasagnaplötunum, þannig að þær blotni vel. Bakað í 30-35 mínútur í 200 gráðu heitum ofni. Osturinn þarf þá að vera orðinn brúnn og mjólkin að mestu upp soðin. Borið fram með hrökkbrauði og
smjöri eða ljósu brauði og sallati. Kiwi parfait Á eftir getur verið gott að gæða sér á kiwi parfait úr frystinum. Í réttinn fer: 2 eggjarauður. 1 dl sykur. 2 dl rjómi. 4 kiwi ávextir, ½ til ein tsk. sítrónusafi. Þeytið saman eggjarauður og sykur.
ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir. Þeytið rjómann og hrærið hann varlega saman við. Flysjið kiwi ávextina og merjið þá síðan, annað hvort með gaffli eða í mixer, og hrærið varlega saman við. Smakkið með sítrónusafa (bragð á að vera súrt). Hellið í fallega glerskál og frystið í þrjá til fjóra tíma. Gott er að taka frauðið út úr frystinum hálftíma áður en það er borið fram í skálinni. Síðan er skálin sett aftur í frystinn með því sem eftir verður. Verði ykkur að góðu, Margrét og Már Viðar
Sigrún og Einar Ingi eru næstu matgæðingar Margréti Ólafsdóttir og Már Viðar Másson, Næfurási 17, skora á Sigrúnu Magnúsdóttur og Einar Inga Magnússon í Seiðakvísl, að vera matgæðingar í næsta mánuði. Við birtum forvitnilegar uppskriftir þeirra í fyrsta Árbæjarblaði á nýju ári sem verður dreift í febrúar.
GV 1. tbl. okt. 2015_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 14:21 Page 9
FRAMÚRSKARANDI AKSTURSUPPLIFUN ER AÐALSMERKI MAZDA
MAZDA3 FRÁ 3.190.000 KR. SKYACTIV Technology
Mazda3 er brautryðjandi á marga vegu. Framúrskarandi aksturseiginleikar Mazda halda bílnum límdum við veginn á !"#$%&'()*+,-%+.'$,$%+/(00,/%12#/$!(+$,%3$%4!11%#"%1'!/"#%-56#/#78%)"%'!(/#%9#:;#<%!/%=/!,$%3$.0>#%?(/,/%4#$$% sem vill algjöra stjórn því stýrissvörunin er frábær og viðbragðið næmt. Útlit Mazda3 þykir sérstaklega vel heppnað. Útlínur bílsins gæla við augað enda er Mazda3 smíðaður í anda KODO =@$$A$#/,$$#/%1! %,$$B631,$%!/%#?%=/!(C$0A D%'/#?+,%E0%6,2A/"%B6!++#+F0A/18% Mazda3 er sportlegur fólksbíll með spennandi akstureiginleika, háþróaðan öryggisbúnað, notendavænt upplýsinga'!/CD%!,$1+#'#%!6;1$!(+,1$G+,$0A%E0%?(/1+#%7E''1%4.0,$;,8
Komdu og reynsluaktu Mazda3
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 03:06 Page 6
6
Fréttir
Árbæjarblaðið
Tillaga um að fjarlægja úrgangsdekkjakurl af Fylkisvelli felld -- ,,Kolröng forgangsröðun,” segir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Tillaga Sjálfstæðisflokksins um að fjarlægja svart úrgangs-dekkjakurl af gervigrasvelli Fylkis og setja þess í stað gæðagras, sem stenst ýtrustu umhverfisog heilbrigðiskröfur, var felld af fulltrúum meirihlutans við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar 2016. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir málið sýna að forgangsröðun borgarstjórnarmeirihluta Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna sé kolröng. Á sama tíma og ráðist er í þrengingu Grensásvegar fyrir 170 milljónir kr., taki borgarstjórinn ekki mark á ábendingum um heilbrigði barna. Gervigrasvöllur Fylkis var lagður fyrir tíu árum og er hann það svæði sem mest er notað í þágu barna- og unglingastarfs hjá félaginu. Kurl úr úrgangsdekkjum af bílum er notað sem fyllingarefni á yfirborði vallarins og óttast margir að í kurlinu séu mengandi og jafnvel hættuleg efni sem óhollt sé að
komast í of mikla snertingu við. Hafa foreldrar barna hjá Fylki og fleiri íþróttafélögum stofnað samtök til að þrýsta á um að úrgangs-dekkjakurlinu verði sem fyrst skipt út af íþróttavöllum Reykjavíkurborgar. Ítrekuð varnaðarorð Læknafélagsins Kjartan segir að þeim fagaðilum fari sífellt fjölgandi sem vari við notkun kurlsins og hvetji eindregið til að því verði skipt út sem fyrst. ,,Í umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 25. nóvember sl. kemur fram mun eindregnari afstaða gegn því að svart úrgangsdekkjakurl verði notað sem fyllingarefni í íþróttavelli fyrir börn en birtist í eldri umsögn stofnunarinnar frá 2010. Einnig hafa ýmsir aðilar, t.d. Læknafélag Íslands, varað ítrekað við notkun úrgangs-dekkjakurls og bent á að í því séu efni sem geti verið skaðleg heilsu manna, ekki síst barna og ungmenna. Miklar umræður hafa orðið um
málið í Bandaríkjunum og fleiri löndum og þar hafa sveitarfélög þegar skipt þessum völlum út eða eru að því.“ Tillögur Sjálfstæðisflokksins Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað tekið málið upp á undanförnum árum að sögn Kjartans. Við undirbúning fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar 2016 óskuðu þeir eftir því að fjárveiting yrði samþykkt svo hægt yrði að hefjast handa við endurbætur á umræddum völlum og skipta dekkjakurlinu út. ,,Ég undirbjó málið mjög vel og lagði fram tillögur um það á vettvangi borgarráðs, íþrótta- og tómsundaráðs og skóla- og frístundaráðs. Allt kom þó fyrir ekki því niðurstaðan varð sú að vinstri meirihlutinn vildi ekki styðja málið.“ Við endanlega samþykkt fjárhagsáætlunarinnar í byrjun desember gerðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lokatilraun til að fá samþykkta fjárveit-
ingu til nauðsynlegra endurbóta á völlum sem innihalda úrgangsdekkakurl og setja þess í stað viðurkennt gæðagras og efni, sem stenst ýtrustu umhverfis- og heilbrigðiskröfur. Tillagan gerði ráð fyrir 151 milljónar króna framlagi, sem hefði dugað til að laga a.m.k. þrjá velli. Á móti lögðu sjálfstæðismenn til að hætt yrði við eftirfarandi framkvæmdir í fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir samtals 412 milljónir eða þeim frestað: Viðbygging við Grófarhús í Tryggvagötu (230 milljónir), Gröndalshús (50 milljónir), framkvæmdir í Ráðhúsinu (50 milljónir), skemma við Nauthólsveg (82 milljónir). Forgangsröðun meirihlutans Kjartan segist hafa gert ráð fyrir að ráðist yrði í endurnýjun Fylkisvallarins nú á árinu 2016 ef tillagan hefði náð fram að ganga. Óháð úrgangs-dekkjakurlinu illræmda sé ásigkomulag Fylkisvallarins orðið slæmt vegna mikillar
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. notkunar á undanförnum árum og því brýnt að endurnýja hann sem fyrst. ,,Skemmst er frá því að segja að fulltrúar borgarstjórnarmeirihlutans með Dag B. Eggertsson borgarstjóra í broddi fylkingar felldu tilögu Sjálfstæðisflokksins um að fjarlægja úrgangs-dekkjakurl af Fylkisvellinum. Á sama fundi samþykkti meirihlutinn hins vegar fjárveitingar til margra framkvæmda, sem telja má ónauðsynlegar eða a.m.k. ekki aðkallandi í samanburði við það að fjarlægja úrgangs-dekkjakurl af íþróttavöllum barna og unglinga. Auk framkvæmdanna hér að ofan má nefna þrengingu Grensásvegar en það óþurftarverk mun kosta borgarbúa a.m.k. 170 milljónir króna,“ segir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi.
Samverustundir eldri borgara Við hér hjá Árbæjarkirkju óskum ykkur gleðilegs árs og þökkum fyrir allar samverustundir á árinu 2015. Við hittumst alla miðvikudaga í kirkjunni. Við viljum minna á samverustundir á vorönn fyrir eldriborgara í hverfinu okkar. Við byrjum 13. janúar og erum með opið hús alla miðvikudaga kl: 12 – 16. Við byrjum opna húsið á kyrrðarstund í kirkjunni, síðan er borinn fram léttur hádegisverður fyrir þá sem vilja gegn vægu gjaldi. Eftir það er samvera í safnaðarheimilinu, byrjað er á leikfimi undir stjórn Öldu Maríu Ingadóttir íþróttafræðings. Eftir það er spilað, spjallað, farið í leiki og stundum fáum við heimsókn með skemmtilegu efni. Kl: 15 fáum við kaffi og með því. Með vorinu í lok starfsins verður svo farið í dagsferð og að þessu sinni verður farið í gróðrarstöðina Friðheima í Bláskógarbyggð. Það verður vel tekið á móti öllum og það eru allir hjartanlega velkomnir. Við vonumst til að sjá ykkur sem flest í kirkjunni í vetur og fram á vorið. Okkur til aðstoðar eru kirkjuverðirnir okkar: Alda María Magnúsdóttir og Arngerður Jónsdóttir. Hlakka til að sjá ykkur sem flest, Dóra Sólrún Kristinsdóttir
Dóra Sólrún Kristinsdóttir.
Fylkishöllin er allt önnur eftir að nýi dúkurinn var settur á gólf hallarinnar og veggir málaðir.
Nýr dúkur á gólf Fylkishallarinnar Ráðist var í heljarmiklar framkvæmdir á Fylkishöllinni fögru í desember sl., löngu tímabærar að flestra mati. Þann 19.desember var hafist handa við að skipta um dúk á gólfi Fylkishallarinnar, en gamli dúkurinn hafði þjónað sínum tilgangi allt frá vígslu hússins fyrir tæpum tuttugu árum. Á þessum dúk hafa m.a. nokkar kynslóðir Fylkisfólks stigið sín fyrstu skref á íþróttasviðinu og afreksfólk
sprett þar úr spori oftar en tölu verður á komið. Nýi dúkurinn er frá Altis í Hafnarfirði, fyrirtæki sem sérhæfir sig í íþróttatengdum vörum af ýmsum toga, og er hinn glæsilegasti og vandaðasti í alla staði. Talverð vinna lá í því að fjarlægja gamla dúkinn, ganga frá undirlagi og leggja svo nýja dúkinn, en enn og aftur sannaðist það að margar og iðnar
hendur vinna létt verk. Ákveðið var að láta ekki nýjan dúk nægja að þessu sinni, heldur voru veggir hallarinnar málaðir og er það samdóma álit þeirra sem séð hafa að Fylkishöllin hafi sjaldan eða aldrei verið jafn glæsileg og tignarleg. Verkið sóttist með ágætum og voru fyrstu æfingarnar á nýja gólfinu haldnar þann 4.janúar, aðeins sextán dögum eftir að hafist var handa við að rífa gamla
dúkinn upp. Ekki má gleyma því að framkvæmdirnar stóðu yfir á sama tíma og hin eina sanna hátíð ljóss og friðar, en eljusemi og dugnaður skiluðu góðu verki á frábærum tíma. Nýi dúkurinn hefur reynst afskaplega vel og er það samdóma álit iðkenda og annarra þeirra sem stigið hafa út á hallargólfið að betra gerist það varla.
Samstarfssamningur Fylkis og Krónunnar Handknattleiksdeild Fylkis og Krónan hafa gert samstarfssamning til næstu þriggja ára. Krónan mun styrkja barna og unglingastarf deildarinnar. Og munu merki Krónunnar vera framan á keppnisbúningum yngri flokka í handboltanum. Handknattleiksdeildin er gríðarlega ánægð með að Krónan hafi viljað taka þátt í þessu samstarfi og færum við þeim bestu þakkir fyrir.
Árbæjarblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími: 587-9500
Thea Imani Sturludóttir leikmaður 3. fl. kv og Aron Breki Aronson leikmaður 4. fl. kk í búningum með merki Krónunnar.
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 11:38 Page 7
Grafarholtsblaðið 1. tbl. 5. árg. 2016 janúar -
Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal
Framtíðin er björt í handboltanum hjá Fram:
Margir efnilegir leikmenn æfa með yngri landsliðunum 6 leikmenn frá handknattleiksdeild FRAM eru í æfingahópi Íslands fyrir landsliðið sem skipað er 14 ára drengjum og yngri. Nýlega var valinn æfingahópur Íslands í handbolta U-14. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi hópur æfir saman og voru tæplega 70 strákar valdir til æfinga. Við FRAMarar erum stoltir af því að eiga 6 fulltrúa í þessum flotta æfingahópi. Frá FRAM voru valdir að þessu sinni þeir Anjie Shi, Gunnar Steinn Gunnarsson, Kristján Ólafur Torfason, Leó Már Jónsson, Stefán Orri Arnalds og Sturla Már Stefánsson. Tvær frá FRAM í æfingahópi Íslands U-16 í handbolta Nýlega var valinn 25 manna æfingahópur Íslands U-16 ára í handbolta. Um var að ræða stúlkur fæddar 2000-2001 sem komu saman til æfinga undir lok síðasta árs. Auk þess lék liðið tvo leiki við unglingalandslið Grænlands. Lið Íslands vann örugga sigra í báðum leikjum; 37-21 í fyrri leiknum og 35-13 í seinni leiknum. FRAMarar eru vitanlega stoltir af því að eiga tvo fulltrúa í þessum æfingahópi en þær sem voru valdar frá FRAM að þessu sinni voru Erna Guðlaug Gunnarsdóttir og Lena Valdimarsdóttir. Til hamingju strákar og stúlkur!
Lena Valdimarsdóttir og Erna Guðlaug Gunnarsdóttir. Þær eru í æfingahópi Íslands fyrir landsliðið 16 ára og yngri.
Leó Már Jónsson og Sturla Már Stefánsson eru í æfingahópi Íslands fyrir landsliðið skipað leikmönnum 14 ára og yngri.
Þú færð gjöfina fyrir veiðimanninn hjá okkur
Grafarvogur
Dominos
Veiðibúðin Krafla Prentsmiðjan Oddi
Glæsilegar gjafir sem allir veiðimenn vilja eignast
Krónan
Veiðibúðin Krafla - Höfðabakka 3 - Sími: 587-9500
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 11:43 Page 8
8
Grafarholtsblaðið
Fréttir
Dagskráin í Guðríðarkirkju Dagskrá Guðríðarkirkju 21 janúar til 18 febrúar 2016. 21. jan til 24. janúar Fimmtudagur. Bænastund í þórðarsveig kl: 10 Kyrrðardagar í Borg Föstudagur. Kyrrðardagur í borg. Laugardagur. Kyrrðardagur í borg. Sunnudagur. Útvarpsmessa prestur sr. Karl. V.Matthíason. Sunnudagaskóli í umsjá Valla og Aldísar Jónsdóttur. 25. janúar til 31. janúar Þriðjudagur Barnakórinn 1. bekkur kl: 13:45 til 14:15 ( allir 3 skólarnir). Barnakórinn 2. til 5. bekkur 14:30 til 15:15 (Ingunnarskóli). Barnakórinn 2. til 5. bekkur 15:30 til 16:15 (Sæmundarskóli og Dalskóli). Æskulýðsfelagsfundur kl: 20.00 Miðvikudagur Foreldramorgun kl: 10. Kirkjukórsæfing kl: 20:00. Fimmtudagur Bænastund í þórðarsveig kl: 10 Kristin íhugun kl: 17:30 Sunnudagur Guðsþjónusta kl: 11 Prestur sr. Skírnir Garðarsson. Sunnudagaskóli kl: 11 í umsjá Önnu og Ásbjargar Jónsdóttur. 1. febrúar til 7. febrúar. Þriðjudagur Barnakórinn 1. bekkur kl:13:45 til 14:15 ( allir 3 skólarnir). Barnakórinn 2. til 5. bekkur 14:30 til 15:15 (Ingunnarskóli). Barnakórinn 2. til 5. bekkur 15:30 til 16:15 (Sæmundarskóli og Dalskóli). Æskulýðsfelagsfundur kl: 20.00. Miðvikudagur Foreldramorgun kl: 10.00. Félagsstarf fullorðina kl: 12.00. Byrjum á fyrirbænastund í kirkjunni síðan þorrablót. Kirkjukórsæfing kl: 20:00 Fimmtudagur Bænastund í þórðarsveig kl: 10 Kristin íhugun kl: 17:30 Laugardagur Fermingarbarnamót í Grafarvogskirkju kl: 12-14. Sunnudagur Fjölskyldumessa kl: 11.00. Prestur sr. Karl V. Matthíasson. Boðið verður upp á rjómabollur efir messu. Vikan 8. febrúar til 14. febrúar Þriðjudagur Barnakórinn 1. bekkur kl:13:45 til 14:15 ( allir 3 skólarnir) Barnakórinn 2 til 5 bekkur 14:30 til 15:15 (Ingunnarskóli) Barnakórinn 2 til 5 bekkur 15:30 til 16:15 (Sæmundarskóli og Dalskóli) Æskulýðsfelagsfundur kl: 20.00 Miðvikudagur Foreldramorgun kl: 10.00 Félagsstarf fullorðina kl: 13:10 Kirkjukórsæfing kl: 20:00 Fimmtudagur. Bænastund í þórðarsveig kl: 10.00 Kristin íhugun kl: 17:30 Sunnudagur Guðsþjónusta kl: 11.00. Prestur sr. Skírnir Garðarsson Sunnudagaskóli kl: 11.00 í umsjá Önnu og Ásbjargar Jónsdóttur. Vikan 15. febrúar til 18. febrúar. Þriðjudagur. Barnakórinn 1. bekkur kl:13:45 til 14:15 ( allir 3 skólarnir) Barnakórinn 2. til 5. bekkur 14:30 til 15:15 (Ingunnarskóli) Barnakórinn 2. til 5. bekkur 15:30 til 16:15 (Sæmundarskóli og Dalskóli). Æskulýðsfelagsfundur kl: 20.00 Miðvikudagur Foreldramorgun kl: 10.00. Félagsstarf fullorðina kl: 13:10 Kirkjukórsæfing kl: 20:00 Fimmtudagur Bænastund í þórðarsveig kl: 10.00 Kristin íhugun kl: 17:30
Fjölmenni mætti á Þretttándabrennu
Eins og jafnan þá mætti fjölmenni á þrettándabrennuna í Grafarholti þegar jólin voru kvödd þann 9. janúar. Hátíðahöldum var frestað 6. janúar vegna leiðindaveðurs og var veðrið
mun betra á laugardeginum. Kveikt var í myndarlegri brennu og margir höfðu meðferðis afganga af flugeldum og öðru eldfimu frá áramótunum. Júlíus Helgi Eyjólfssson var mættur
með myndavélina að venju en hann var auk þess brennustjóri. Myndir hans fylgja hér með og segja þær meira en mörg orð eins og venjulega.
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 11:43 Page 9
9
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Veitingarnar voru í öruggum höndum.
Þessar vinkonur mættu og skemmtu sér vel.
Sóknarpresturinn sr. Karl V. Matthíasson var að sjálfsögðu mættur.
Ungir og eldri skemmtu sér vel.
Íbúar í Grafarholti streyma að brennunni.
Júlíus Helgi Eyjólfsson tók myndirnar á þrettándabrennunni og hér er hann að kveðja jólasvein sem skömmu síðar hélt til fjalla.
Miklu var skotið upp af flugeldum og þrettándahátíðin tókst vel eins og jafnan áður.
Þessi hafði það gott í ,,stúkusætinu” hjá pabba.
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 03:07 Page 10
10
Grafarholtsblaðið
Fréttir
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)
Frábærar vörur frá Coastal Scents
sr. Karl V. Matthíasson sóknarprestur í Grafarholtssókn.
Annáll frá Guðríðarkirkju - eftir sr. Karl V. Matthíasson sóknarprest
Á þessum janúardegi er ekki úr vegi að segja: „Kæru íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal, gleðilegt ár og innilegar þakkir fyrir gamla árið. Þegar horft er til baka og litið yfir daga ársins 2015 í Guðríðarkirkju koma upp í hugskotið margar og margvíslegar myndir, ánægjulegar, sorglegar og allt þar á milli. Í þessu sambandi langar mig til minnast allra stundanna sem við í kirkjunni höfum átt með ykkur á hátíðum hennar, páskum, hvítasunnu, jólum og öðrum dögum. Allar stundirnar með fermingarbörnunum, foreldrum þeirra, foreldrum barna sem borin voru til skírnar, frábærar stundir og ferðalag með fullorðna fólkinu. Hér má líka minnast brúðkaupa, sumardagsins fyrsta, sjómannadags og uppstigningardags, hátíðarmessu við heimsókn prófastsins okkar sr. Gísla Jónassonar og vígslubiskupsins í Skálholti sr. Kristjáns Vals Ingólfssonar og upplestur okkar góða sóknarnefndarmanns Guðjóns Ólafs Jónssonar á Passíusálmum Hallgríms Péturssonar á föstudeginum langa. Þá skulu að sjálfsögðu líka meðtaldar hefðbundnar messur með kirkjukórnum okkar og fjölskyldumessur þar sem barnakór kirkjunnar hefur sungið sem og starf sunnudagaskólans. Aðrir dagar hafa verið þrungnir sorg, en þökk um leið eins og þegar snjóflóðanna í Súðavík var minnst eða þegar við sáum á eftir fólki héðan úr söfnuðinum okkar og einn daginn var minningarstund vegna fráfalls Arons Andra Hall Arnarssonar 12 ára drengs, sem varð bráðkvaddur. Þar mættu bekkjarsystkin, skólafélagar, starfsfólk skólans og aðrir sem sakna hans og syrgja. Blessuð sé minning hans og allra annarra sem við kvöddum og minntumst. Megi nævera Guðs og kærleikur umvefja öll þau sem nú eru sorgmædd. Þannig líður tíminn, en við verðum að halda áfram þá daga sem okkur eru úthlutaðir á ævivegi okkar. Stundum erum við lítil og stundum erum við stór en skylda kirkjunnar er ávallt sú að vera
til staðar og stuðnings þeim sem á þurfa að halda. Þú ert alltaf velkomin í kirkjuna til messu, bænastundar, viðtals við prest, í kirkjukórinn (ef þú getur sungið) eða annað starf sem er hér í kirkjunni.
höfum fengið fasta stöðu nýs prests í prestakallinu. Þá mun sr. Skírnir messa til jafns við sóknarprestinn, en sr. Sigurjón Árni sem hefur messað einu sinni i mánuði dregur um leið úr messum sínum.
Heimsóknir í Guðríðarkirkju skiptu þúsundum á síðasta ári og er ánægjulegt hve margir koma í messur og sækja aðra starfsemi kirkjunnar. Því er það gleðiefni að starfsfólki fjölgar. Æskulýðsfélag hefur verið stofnað og koma unglingar á aldrinum 13 til 15ára saman á þriðjudagskvöldum kl. 20:00 og er pláss fyrir fleiri. Það starf er í umsjón Berglindar Hönnudóttur og Eddu Hlífar Hlífarsdóttur, en þær koma nú nýjar til starfa. Þá hefur okkur einnig borist liðsauki við barnakóra- og sunnudagaskólastarfið, Anna Dúna Halldórsdóttir. Sem fyrr koma þær Aldís Rut Gísladóttir, guðfræðinemi og Ásbjörg Jónsdóttir tónskáld að barna- og æskulýðsstarfinu. Sr. Kristín Pálsdóttir er áður var prestur aldraðra hér í Reykjavík hefur nú umsjón með starfi eldri borgara á miðvikudögum. Og 12 spora starfið, andlegt ferðalag er á fimmtudögum í umsón Ásthildar Sigurðardóttur. Sigurbjörg Þorgrímsdóttir hefur umsjón með kyrrðarbæn á fimmtudögum kl 17:30.
Sr. Skírnir hefur verið prestur í Noregi m.a. á Svalbarða og annars staðar auk þess sem hann hefur þjónað hér á landi í all nokkur ár. Hann er með sérmenntun í hjónabandsráðgjöf. Er hann hér með boðinn velkominn í Guðríðarkirkju. Við í Guðríðarkirkju viljum að einkunnarorðin séu lífsgleði, trú von og kærleikur og við óskum þess að fagnaðarerindið um Jesú Krist boðskap hans og elsku streymi til ykkar allra frá kirkjunni. Við biðjum þess að hann leiði ykkur og styrki á hinu nýja ári 2016 gefi lífsgleði, trú von og kærleika. Verið hjartanlega velkomin í kirkjuna ykkar allra. Og fyrst að ég undirritaður skrifa þetta langar mig nú í lokin til að þakka Lovísu Guðmundsdóttur kirkjuverði fyrir mikið og gott samstarf á síðasta ári og fyrir vera alltaf tilbúna þegar á hefur þurft að halda. Takk Lovísa mín. Einnig þakka ég Sigurbjörgu Þorgrímsdóttur fyrir starf hennar með kyrrðarbænina, sr Kristínu Pálsdóttur í starfi eldri borgara, Aldísi Rut Gísladóttur fyrir umsjón með barna og æskulýðsstarfinu Ásbjörgu Jónsdóttur fyrir barankórinn og Hrönn Helgadóttur organista og kórstjóra kirkjukórsins, sem og kirkjukórnum. Aðalsteini Dalmann Októsyni, sem ég leyfi mér að kalla öldung safnaðarins þakka ég einnig innilega fyrir þann velvilja og kærleika sem hann sýnir kirkjustarfinu hér. Lions- og Kiwanisfélögum og ónefndum einstaklingum þakkar kirkjan fyrir framlag í líknarsjóð safnaðarins. Sóknarnefndinni vil ég einnig þakka fyrir mikinn áhuga og jákævð viðhorf til starfsins sem og gott samstarf á liðnu ári og hlakka ég til komandi daga að vinna áfram með öllu þessu góða fólki áfram að framgangi og þroskandi boðskap hinnar kristnu trúar. Amen.
Í svo stórum söfnuði sem prestakall okkar er hefur verið mikið álag á sóknarprestinn, allt frá stofnun þess. Nú háttar svo til að nýr, en þó reyndur prestur, Skírnir Garðarsson, er kominn til starfa með aðstöu í annarri af tveimur prestsskrifstofum kirkjunnar. Hann er héraðsprestur og fáum við notið þjónustu hans og mun því prestsþjónusta aukast við kirkjuna sem og tryggari viðvera presta. Þess vegna er nú boðið að jafnaði upp á fasta viðtalstíma prests í kirkjunni alla virka daga vikunnar frá kl 10:00 -12:00. Einnig er boðið upp á vitalstíma á þriðjudögum frá 16:00 – 18:30. Það er von okkar í kirkjunni að þetta komi ykkur öllum að góðum notum. Við erum þakklát frú Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi fyrir þessa ráðstöfun og sýndan skilning uns við
Grafarholtsblaðið Höfðabakka 3 - Sími: 587-9500
Ritstjórn og auglýsingar - sími 587-9500
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 17:34 Page 11
Ă rbĂŚ 9. tbl. okt._Ă rbĂŚ 1. tbl. JanĂşar.qxd 20/01/16 01:58 Page 12
12
FrĂŠttir
×�‹� Ї‹�
à rbÌjarblaðið
Setið å bekknum - eftir sr. Þór Hauksson
Ĺ˝ĆŒĹ?Ä‚ĆŒÄ?ſŏĂĆ?ĂĨŜĹ?Ä? Ä?ljÄ?ĆľĆŒ ĆŠÄžĹ?Ĺľ Ć?Ğž ĞŏŏĹ? ŏŽžĂĆ?Ćš Ä„ Ä?ſŏĂĆ?ĂĨŜĹ?Ä? ǀĞĹ?ŜĂ Ä‚ĹŻÄšĆľĆŒĆ?Í• ǀĞĹ?ĹŹĹ?ŜĚĂ ÄžÄ?Ä‚ Ä¨Ć‚ĆšĹŻĆľĹśÄ‚ĆŒ ƾƉƉ Ä„ ŚĞĹ?ĹľĆ?ĞŜĚĹ?ĹśĹ?Ä‚ĆŒĆŠĹŠĹżĹśĆľĆ?ĆšĆľÍ˜ ŚƾĹ?Ä‚Ć?ĂžĹ?ĆŒ ŚĂĎ Ć?ĂžÄ?ĂŜĚ Ç€Ĺ?Ä? Ć?ĆšÄ‚ĆŒÄ¨Ć?ĹľÄžĹśĹśÍ˜ ,ĆŒÄ‚ĆľĹśÄ?Ä? ĎĎϾ͕ Ć?Ĺ&#x;ĹľĹ? ϰĎĎ Ď˛ĎŽĎąĎŹ Ä‚ĆŒĆ?ĂĨŜΛÄ?Ĺ˝ĆŒĹ?Ä‚ĆŒÄ?ŽŏĂĆ?Ä‚Ä¨ĹśÍ˜Ĺ?Ć? Ç Ç Ç Í˜Ä?Ĺ˝ĆŒĹ?Ä‚ĆŒÄ?ŽŏĂĆ?Ä‚Ä¨ĹśÍ˜Ĺ?Ć?
ĂšTFARARSTOFA Ă?SLANDS
;&<=%>??&(@A(BCD"E/F0 ĂštfararĂžjĂłnusta sĂðan 1996
ALÚ� * VIR�ING *(GH;I1G J%"#&F"(%>K'.!" L"?#.2304
)6@(MMNN(9(675(68:8 Sverrir Einarsson
(+++,&#-/%0',0. ;!!"'(.C!"%$%0'F0''(
KristĂn IngĂłlfsdĂłttir
ĂšTFARARSTOFA HAFNARFJARĂ?AR !"#"$%"&'()"(*(+++,&#-"%"%.#/-",0.(*(123"%4()5)()678(9(675(68:8
Að tilheyra einhverjum eða einhverju er manneskjunni mikilvĂŚgt. Ăžað er manneskjunni mikilvĂŚgt fĂŠlagslega og andlega. Að tilheyra engu eða engum er nĂŚr ĂłmĂśgulegt ef horft er Ăşt frĂĄ ĂžvĂ að við verðum ekki til og lifum ekki Ă tĂłmarĂşmi. Við fÌðumst inn Ă Ăžennan heim og Ăžar af leiðandi tilheyrum við Ăžeim sem fÌðir okkur og klÌðir og elur Ăśnn fyrir okkur. Seinna ĂžrĂłast Ăžað Ă Ăžað að við tilheyrum eða rĂŠttara er að segja að við verðum hluti af enn stĂŚrri heild sem er samfĂŠlag fjĂślskyldu, skĂłla, vinnustaður og ef við stĂŚkkum hringinn getum við tekið inn Ăžjóðernið og klasa af Ăžjóðum. Við erum EvrĂłpumenn ekki AmerĂku- eða AsĂu menn eða Ăžriðja heims fĂłlk. Við tilheyrum ĂĄkveðnum kynÞÌtti. Við erum jarðlingar og hvort sem okkur lĂkar betur eða verr, tilheyrum við Ăžeim hĂłpi. Ăžar af leiðandi. ĂŚttum við ekki að segja að við sĂŠum EvrĂłpumenn frekar en eitthvað annað. Við getum lĂka sagt að við erum kristnir en ekki eitthvað annað ĂĄ meðan aðrir Ă samfĂŠlagi okkar segjast ekki vera kristnir heldur einhverrar annarar trĂşar eða alls ekki trĂşuð. Innan samfĂŠlags lifa margir smĂŚrri hĂłpar sem tilheyra hverju Üðru. Hafa svipaðar lĂfsskoðanir. MikilvĂŚgt er samt að hafa Ă huga að hvaða hĂłpi sem hver og einn tilheyrir Þå tilheyrum við samfĂŠlagi Ăžar sem tilbĂşnar eru leikreglur til að fara eftir. Ăžað er hverjum og einum mikilvĂŚgt að tilheyra hĂłpi til að spegla sig Ă og samsama sig við. HĂłpsĂĄlin er sterk, aldrei er
hĂşn sterkari en ĂĄ unglingsĂĄrunum Ăžar sem Ăžað er allt að ĂžvĂ lĂfsnauðsynlegt að tilheyra rĂŠtta hĂłpnum eða liðinu. SmĂĄtt og smĂĄtt rjĂĄtlast Ăžetta af okkur og við leitum meira inn ĂĄ við Ă leit af sjĂĄlfinu, en losnum aldrei við viðmiðunarhĂłpin sem auðvitað breytist með ĂĄrunum. Alltaf skal Ăžað vera svo að við mĂĄtum okkur við einhvernskonar nĂŚrhĂłp. Að finna fyrir nĂĄlĂŚgð og styrk sem við kĂśnnumst við eða viljum tilheyra er okkur nauðsynlegt frĂĄ vĂśggu til grafar. Ăžaðan fĂĄum við sjĂĄlfsmyndina. Við viljum hvort heldur við viðurkennum Ăžað eða ekki – við viljum vera Ă sigurliðinu að vera hluti af liðinu. Ef ekki lĂður okkur
Ăžað gildir um Ăžetta eins og annað að Ăžað Ăžarf ekki að fara saman – Ăžað sem er gott er ekki endilega hollt. Reyndar ĂĄ Ăžað við um svo margt Ă lĂfinu að Ăžað er allt að ĂžvĂ Ăłsanngjarnt. Ăžað verður að viðurkennast að við sĂŚkjum Ă samfĂŠlag eða innĂ hĂłp Ăłmeðvitað og eða meðvitað eða eins og mĂĄltĂŚkið segir: ,,SĂŚkja sĂŠr um lĂkirâ€? og Ăžar viljum við vera vegna Ăžess að ĂĄ einhvern Ăłskiljanlegan hĂĄtt uppfyllir sĂş vera Ăžað tĂłmarĂşm sem við finnum okkur stundum Ă að vera. Hvað er ĂŠg og hver er ĂŠg Ă nĂŚrsamfĂŠlagi manna? Ăžetta tĂłmarĂşm er Ăłtti um að vera ekkert, að ekkert liggi eftir. Vera einskis nĂ˝tur að fĂĄ ekki ĂĄheyrn
sr. Þór Hauksson. Ălla. NĂş kann einhver sem ĂĄ hlýðir halda að ĂŠg sĂŠ að tala um ,,strĂĄkana okkarâ€? Ă handboltanum ĂĄ EM PĂłllandi sem Ăžegar Ăžetta er skrifað rĂŠtt að hefja leik. Ég viðurkenni fĂşslega að ĂŠg vil kannast við Ăžað að vera hluti af samfĂŠlagi sem elur af sĂŠr einstaklinga sem Ăžessa dagana skara fram Ăşr Ă ĂĂžrĂłtt sinni og Ăžjóðarstoltið nĂĄlgast sĂłtthita. Hvert sem litið er Ă nĂŚrsamfĂŠlaginu mĂĄ sjĂĄ að Ăžað sama er að gerast með aðra. SĂłtthiti spennu hrĂslast um lĂkama og sĂĄlu og sĂłfabrĂkur betri stofa Ă samfĂŠlaginu finna fyrir ĂĄlaginu sem fylgir ĂžvĂ að vera ĂĄ hliðarlĂnunni, að sitja ĂĄ bekknum. Er ekki Þå betra að vera hluti af liðinu? Að vera Ă liðinu? Að vera innĂĄ vellinum Ăžar sem hlutirnir eru að gerast. Ăžurfa ekki standa hjĂĄ og hafa Ă raun ekkert til mĂĄlana að leggja annað en Ăžað að vona Ăžað besta. Nei, ĂŠg er ekki að tala um strĂĄkana okkar ĂĄ EM. Ég er að tala um lĂfið Ă sinni margbreytilegu myndum. LĂf Ăžar sem sigrar og Ăłsigrar koma og fara og við hĂśldum ĂĄfram að mĂŚta Ăłsigrum og fagna sigrum sem hluti af stĂŚrri liðsheild. Ăžað er gott og Ăžað er ÞÌgilegt að vera Ă liðinu sem samsinnir manni og hefur svipaðar skoðanir og maður sjĂĄlfur. En
ekki hlustað ĂĄ. Ă? nĂŚrsamfĂŠlagi heimilisins opinberum við okkar innri manneskju. Hver við erum og Ăžað gerum við Ăłhikað innan ramma ĂĄkveðins hĂłps Ă trausti Ăžess að vel verði tekið ĂĄ mĂłti og hugsun og gjĂśrðir ekki dĂŚmdar Ăşt frĂĄ ,,annarlegumâ€? sjĂłnarmiðum. M.Ăś.o. að við getum Ăłhikað opinberað veikleika okkar og styrk ĂĄn Ăžess að fyrirverða okkur fyrir Ăžað. Ăžessi inngrĂłna eigind manneskjurnar kemur furðulega fljĂłtt fram ĂĄ lĂfsskeiðinu. Að vera ofan ĂĄ og að vera valin af einhverjum Ăžeim sem við horfum upp til og viljum helst af Ăśllu lĂkjast. Ăžessi eigind dofnar með ĂĄrunum en lifir samt Ă huga og hjarta ĂĄ meðan hann starfar og hjartað slĂŚr. Ă Ăžeirri gĂśngu verðum við að hlusta, og rÌða mĂĄlin ekki aðeins við Þå sem við samsĂśmum okkur við heldur og ÞÌr manneskjur sem við teljum okkur ekki endilega eiga samleið með hvað varðar trĂş og annað Ăžað sem gĂŚti skilið okkur að. Ăžað er einu sinni svo að mennskan er Ăžað sem sameinar manneskjuna - Ăžannig getum við aldrei sagt okkur frĂĄ nĂĄunganum, en um leið megum við ekki tĂ˝na okkur sjĂĄlfum. Þór Hauksson
Vottað rĂŠttinga- og og mĂĄlningarverkstÌði Vottað mĂĄlningarverkstÌði viðgerðir er rĂŠttinga- o g mĂĄlningarverkstÌði mĂĄlningarverkstÌði vottað vottað af BĂlgreinasambandinu. BĂlgreinasambandinu. GB TjĂłna TjĂłnaviðgerðir og V ið tryggjum tryggjum hĂĄmar ksgÌði með ĂžvĂ að nota fyrsta flokks tĂŚkjabĂşnað o g efni. Við hĂĄmarksgÌði og S tyðjumst við tĂŚk niupplĂ˝singar fr amleiðanda um hvernig hvernig skuli skuli staðið að viðgerð. Styðjumst tĂŚkniupplĂ˝singar framleiðanda
TjĂłnasko oðun Við skoðum bĂlinn og undirbĂşum tjĂłnamatið sem sent er til tryggingafĂŠlaga.
RĂŠtting og mĂĄlning m efftir tir stÜðlum framleiðenda Við vinnum og notum aðeins viðurkennd efni og tĂŚkjabĂşnað sem stenst Ătrustu krĂśfur.
Framrúðuskipti Skiptum um framrúður og Ăśnnumst SjĂĄum jĂĄum um Ăśll annars konar rúðuskipti. S rúðutjĂłn jafnt lĂmdar rúður sem og aðrar, ĂĄsamt glerhreinsun ĂĄ bĂl.
BĂlaĂžvottur / djĂşphreinsun Bjóðum við upp ĂĄ almennan bĂlaĂžvott, djĂşphreinsun, bĂłn ofl.. FrĂr Ăžvottur fylgir Ăśllum viðgerðum.
MĂśssun / snyrting ĂĄ lakki Við bjóðum upp ĂĄ råðleggingar og gerum tilboð Ă lakkmĂśssun og blettanir. DekkjaĂžjĂłnusta Sparaðu tĂma. Við getum skipt um dekk ĂĄ bĂlnum ĂĄ meðan hann er Ă viðgerð.
$RAGHÉLS s 2EYKJAVÓK SÓMI NETFANG TJON TJON IS s WWW TJON IS
InnrÊttingar / åklÌði TÜkum að okkur viðgerðir å sÌtum, innrÊttingum ofl. Småviðgerðir Samhliða viðgerðum getum við skoðað åstand helstu slitflata og ÜryggisÞåtta, s.s. bremsur.
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 17:37 Page 13
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 20/01/16 03:09 Page 14
14
Frábærar vörur frá Coastal Scents
Fréttir
Árbæjarblaðið
Íslandmeistararnir á mótinu. Frá vinstri: Ólafur, Sverrir, Máni, Telma og Hekla. Ólafur og Telma kampakát með Íslandsmeistarabikarana.
Höfðabakka 3 - Sími: 587-9500
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)
Rúnar Geirmundsson
Sigurður Rúnarsson
Elís Rúnarsson
Þorbergur Þórðarson
Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990
Íslandsmeistarar í Karate
Undir lok síðasta árs fór fram Íslandsmótið í Karate í Fylkisseli. Keppt var bæði í karla og kvennaflokki og einnig eftir þyngdarflokkum og svo í opnum flokki. Keppt var í svokölluðu kumite sem er bardagi milli tveggja einstaklinga. Í karlaflokki var Ólafur Engilbert Árnason frá Fylki íslandsmeisitari í opnum flokki, en þar sigraði hann Sverri Ólaf Torfason frá ÍR í æsispennandi viðureign 3:2, en áður hafði Ólafur sigrað þáverandi Íslandmeistara, Kristján Helga Carrasco frá ÍR. Ólafur varð einnig Íslandsmeistari í -75 kg þyngdarflokknum en þar sigraði hann Sæmund Ragnarsson frá Þórshamri í úrslitum. Í -67 kg flokknum varð Máni Karl Guðmundsson frá Fylki íslandsmeistari annað árið í röð en hann sigraði Aron Ahn frá ÍR í úrslitum. Sverrir Ólafur Torfason varð Íslandsmeistari í -84 kg flokknum eftir sigur á
liðsfélaga sínum Diego Björn Valencia. Í liðakeppni vann ÍR Fylki 2:1 en aðeins tvö lið voru skráð til keppni. Fylkir fékk hinvegar flest stig á mótinu og er því Íslandsmeistari félaga í kumite en ÍR í öðru sæti. Telma Rut Frímannsdóttir frá UMFA varð Íslandsmeistari kvenna í opnum flokki. Þar vann hún Kristínu Magnúsdóttir frá Breiðabliki í úrlitum. Telma varð einnig Íslandsmeistari í +61 kg flokknum eftir að hafa unnið Katrínu Ingunn Björnsdóttir frá Fylki. Hekla Halldórsdóttir frá Fylki varð Íslandsmeistari í -61 kg flokki eftir að hafa unnið Maríu Helgu Guðmundsdóttir frá Þórshamri. Varðandi Íslandsmeistaratitill Ólafs í opnum flokki má fagna því, að sá titill er aftur kominn í Árbæinn en Fylkir vann þennan titil síðast árið 2010 þegar Ingólf-
ur Snorrason varð Íslandsmeistari, en hann vann titilinn einnig árin 1999, 2000, 2002, 2004 og 2006. Aðrir Fylkismenn sem hafa hampað þessum titli eru Andri Sveinsson árin 2007 og 2008 og Halldór Svavarsson árið 1998. Ólafur var að vonum ánægður eftir mótið og vildi koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem hafa stutt hann í karatenu og nefndi sérstaklega núverandi þjálfara sína Pétur Ragnarsson og Andra Sveinsson í því sambandi. Ólafur hefur æft karate frá 6 ára aldri og segir að það sé skemmtileg íþrótt sem leiði til aukins liðleika og styrks auk þess sem að hún auki sjálfstrauts og aga iðkenda. Í lokin má nefna að Karatesamband Íslands útnefndi Ólaf karatemann ársins og Svönu Kötlu Þorsteinsdóttir karatekonu ársins.
Söfnunarkassarnir skynja þegar þeim er nóg boðið Dósasöfnunin skiptir skáta miklu máli og stöðugt fleiri setja dósir í gjafakassana. Dósasöfnun skáta gengur vel og til að tryggja að söfnunarkassarnir yfirfyllist ekki hafa verið settir í þá skynjarar sem senda boð þegar tími er kominn á tæmingu. „Það má segja að þeir skynji þegar þeim er nóg boðið,“ segir Torfi Jóhannsson framkvæmdastjóri Grænna skáta, sem heldur utan um dósasöfnun skátanna. Tvær kynslóðir söfnunarkassa. Nýir kassar taka meira magn og nú eru komnir í þá skynjarar Tvær kynslóðir söfnunarkassa. Nýir kassar taka meira magn og nú eru komnir í þá skynjarar „Það er fátt leiðinlegra fyrir þá sem vilja gefa okkur dósir en að koma að yfirfullum kassa,“ segir Torfi og bætir við að hagræðið sé einnig töluvert. „Nú fáum við boð þegar þarf að tæma kassana og erum að fullnýta ferðirnar. Með þessu móti skila gjafadósirnar sér betur í skátastarfið,“ segir hann, en dósirnar eru helsta fjáröflun skátanna. Torfi segir þessa tækninýjung einnig öryggisatriði því einnig berist boð ef kassarnir fara á hliðina vegna veðurs
eða af öðrum ástæðum. „Við viljum hafa gámana í lagi og pláss í þeim þegar velunnarar okkar koma með dósir,“ segir Torfi sem hefur til þessa notið velvilja vegfarenda sem hafa látið vita þegar gámar hafa fyllst hraðar en tæmingarplanið gerði ráð fyrir. Skynjararnir eru framleiddir af Finnska nýsköpunarfyrirtækið Enevo sem hefur 5 ára reynslu í þróun og framleiðslu á sjálfvirkum skynjurum fyrir ruslatunnur. „Það er gaman að geta
þess að framkvæmdastjóri og hugmyndasmiðurinn af þessum skynjurum, Fredrik Kekäläinen, er gamall skáti sjálfur og hann á tvo unga skáta. Hann er mjög velviljaður þessu verkefni hjá Grænum skátum og fylgist vel með hvernig gengur,“ segir Torfi. Reynslan af þeim skynjurum sem settir hafa verið í gáma lofar góðu og hefur þetta nýja fyrirkomulag þegar skilað sér í skilvirkari umsjón og þjónustu.
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 17:37 Page 15
15
Fréttir
Árbæjarblaðið
Fréttamolar frá kirkjustarfinu FORELDRAMORGNAR ÞRIÐJUDAGA kl. 10:00 - 12:00 Í SAFNAÐARHEIMILI ÁRBÆJARKIRKJU MIÐVIKUDAGA kl. 9:30 - 11:30 í FÉLAGSMIÐSTÖÐINNI HOLTINU, NORÐLINGAHOLTI
Spjall og notaleg upplifun fyrir foreldra og börn. Boðið upp á morgunverð. Einu sinni í mánuði eru sérstakir fyrirlestrar. Framundan í foreldramorgnum er: 2. febrúar kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. UNGBARNANUDD
Hrönn Guðjónsdóttir, heilsunuddari og ungbarnanuddkennari, kennir undirstöðuatriði í ungbarnanuddi.
Að eilífu... Amen - námskeið um bænina í Árbæjarkirkju Faðirvorið eða Bæn Drottins eins og hún er oft nefnd er bænin sem Jesús kenndi fólki þegar það bað hann um að kenna sér að biðja. Þessi bæn er beðin út um allan heim af milljónum manna og hefur verið beðin í u.þ.b. 2000 ár á ýmsum tungumálum. Margir hafa lært hana utan að sem börn en lítið velt fyrir sér merkingu hennar á fullorðinsárum. En þessi bæn er mjög innihaldsrík við nánari skoðun. Hún er góð fyrirmynd annarra bæna og því tilvalin til þess að byggja bænalíf sitt á. Miðvikudaginn 3. febrúar hefst námskeið um Faðirvorið í Árbæjarkirkju. þar sem rætt verður um bæn og bænaiðkun út frá bæninni sem Jesús kenndi. Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja vita meira um Faðirvorið og bænalíf eða hafa áhuga á kristindómnum og vilja dýpka skilning sinn á kristinni trú. Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur, á miðvikudagskvöldum frá kl:19:3021:30. Það hefst 10. febrúar og lýkur 16. mars. Námskeiðið er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu/kostar 3000. krónur. Leiðbeinandi er sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Skráning fer fram á netfanginu: petrina@arbaejarkirkja.is og í gegnum síma Árbæjarkirkju: 587-2405.
"
%
!
&""
-' ) ',
*
-
"
Árbæjarblaðið er lesið á hverju heimili Mest lesni fjölmiðillinn í Árbæjarhverfi? Auglýsingarnar skila árangri í Árbæjarblaðinu
587-9500
Árbæ 9. tbl. okt._Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 19/01/16 17:39 Page 16
1000g
1.298 kr.. stk. stk
1.398 krr. 10 stk.
Bónus Súkkulaðikaka, 1000 g
GLEÐILEGAN GLEÐI LEG GAN BÓN BÓNDADAG DADAG
1.598 krr. 500 g Bláber áber,, fersk, 500 g
195 kr. stk.
798
Euro Shopper Þeytirjómi, 250 g
Calinda Jarðarber, C fersk, 400 g
kr. 400 g
1.498 kr. kg
1.098 kr. kg
798
Bónus Grísalundir Ferskar
Bónus Grísakótilettur Fersk kar
Bónus Grísahakk Ferskt
1.379 kr. kg
Bónus Beikon
598 krr. kg
kr. kg
Ali Grísabógur Ferskur
Opnunartími í Bónus: Bónus: 4mU\KHNH -PTT[\KHNH" ! ! - Z[\KHNH" ! ! 3H\NHYKHNH" ! ! :\UU\KHNH" ! ! =LYó NPSKH [PS VN TLó 24. 24. janúar LóH TLóHU IPYNóPY LUKHZ[