Skip to main content

ab-2012-06

Page 1

Ár­bæj­ar­blað­ið 6. tbl. 10. árg. 2012 júní

Fréttablað íbúa í Árbæ og Norðlingaholti

Árbærinn fyllist af fólki

Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 115 – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 arbapotek@internet.is Arbaejarapotek.is

- Landsmót hestamanna hefst 25. júní í Víðidal

Ódýrar og góðar snyrtivörur

Landsmót hestamanna hefst í Víðidal í Árbænum þann 25. júní. Þá streyma tugir þúsunda hestamanna á svæðið og verður mikið um að vera. Má með sanni segja að þetta verði mesti viðburður í Árbæjarhverfi í árafjöld. Árbæjarblaðið var á ferðinni í Víðidalnum á dögunum og voru þá hestamenn í óða önn að undirbúa sig fyrir mótið. Hann Sveinn Andrésson var að viðra stóðhestinn sinn hann Magna frá Skammbeinsstöðum 3 en þeir verða þó ekki með á Landsmótinu að þessu sinni. Magni er 6 vetra undan Leikni frá Vakurstöðum.

Grafarholtsblaðið

Grafarholtsblaðið, fréttablað Grafarholts og Úlfarsárdals, kemur nú út í fjórða skipti og fylgir blaðið Árbæjarblaðinu. Sjá bls. 11 til 14

Sveinn og Magni frá Skammbeinsstöðum. Mjög glæsilegur 6 vetra stóðhestur en verður á meðal áhorfenda á Landsmótinu. ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir

ÚPPS!

Tími til að smyrja og yfirfara bílinn!

Komdu til okkar að Tangarhöfða 8. Viðurkennd þjónusta fyrir allar tegundir bíla!

Bæjarflöt 10 - Sími 567-8686 www.kar.is Þjónustan á aðeins við Stór Reykjavíkurvæðið

af sumardekkjum hjá Max1 í júní

himins og jarðar =PS[\ NLMH& LRRP OLUKH

Tjónaskoðun - hringdu og við mætum

Bílamálun & réttingar

Alltmilli

Sérfræðingar í bílum

:¤RQ\T LM }ZRHó LY M [ I¤R\Y O ZN NU LóH HUUHó ZLT ô NL[\Y Ztó HM

590 2000 :[HUNHYO`S\Y ¶ 9L`RQH]xR 6WPó HSSH ]PYRH KHNH RS ¶ ZxTHY!


2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Ár­bæj­ar­blað­ið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Höfðabakki 3 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingastjóri: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir. solveig@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 og 113 (660 fyrirtæki).

8-0 og bikarinn Knattspyrnan getur stundum verið alveg afskaplega undarleg íþrótt. Það brá mörgum Árbæingnum og reyndar fleirum á dögunum þegar af því spurðust fréttir að lið Fylkis tapaði 8-0 fyrir liði Fimleikafélags Hafnarfjarðar, FH. Já 8-0!!! Hvernig gat þetta í ósköpunum gerst? Svona tölur sjást ekki oft nú til dags í efstu deild en svona tölur geta sést ef annað liðið gefst upp of snemma upp þegar blæs ekki byrlega. Fylkisliðið átti vissulega afleitan dag gegn FH eins og lokatölurnar bera með sér. Um margan stuðningsmanninn fór hrollur þegar hugsað var til þess að næsti andstæðingur Fylkismanna eftir þennan áðurnefnda hörmungarleik var einmitt umrætt lið FH. Ég missti það reyndar út úr mér eftir 8-0 leikinn að ég vorkenndi andstæðingum Fylkis í næsta leik. Þegar lið lenda í svona hremmingum reynir fyrst á styrk þeirra í næsta leik á eftir. Það er eitt að geta akkúrat ekkert í 90 mínútur og tapa 8-0 en annað að mæta sperrtur í næsta leik með stoltið og staðfestu í farteskinu. Akkúrat það gerðu Fylkismenn gegn FH í bikarleiknum. Alveg frá fyrstu mínútu var ljóst að lærisveinar Ásmundar Arnarsonar ætluðu ekki að láta FH-inga komast upp með neinn moðreyk. Það var mikið afrek hjá Fylkismönnum að henda FH-ingum út úr bikarnum á þeirra heimavelli. Það afrek ber ekki síst að þakka þjálfaranum. Hvenær reynir á styrk þjálfarans ef ekki í næsta leik eftir að lið hans hefur nýverið gengið af leikvelli með 8-0 á bakinu. Það þarf mikinn þjálfara í að koma liði á rétt ról eftir 8-0 tap. Það þekkja þeir sem reynt hafa. Með fræknum sigri gegn FH í bikarnum og stórkostlegri baráttu og sigurvilja, hafa leikmenn Fylkis gefið tóninn fyrir komandi leiki í deildinni. Nú er þess krafist af liðinu að það mæti jafn brjálað til leiks í leikjum sumarsins og það gerði gegn FH á dögunum. Verði það niðurstaðan mega önnur lið fara að vara sig og skiptir þá engu máli hvaða lið er átt við. Vonandi nær lið Fylkis sér verulega á strik í kjölfarið á frábærum bikarsigri.

Sætir ungarnir eru mjög fallegir og stækka ört.

ÁB-myndir Björn Yngvarsson

Svanlaug og fjölskylda - á góðri leið með að koma upp fjórum ungum við Elliðaárnar

Álftin Svanlaug, sem gerði sér hreiður ásamt Svani sínum rétt ofan við stífluna í Elliðaárdal snemma sumars, ungaði út fjórum litlum álftarungum um miðjan maímánuð. Í nokkra áratugi hafa álftir verpt og komið upp ungum á þessum sama stað, útivistarfólki og íbúum til yndisauka.

Er því nú upplagt að fá sér göngutúr í dalnum og fylgjast með fjórum litlum álftarungum sem hamast við að stækka. Sé gengið stífluhringinn eiga ungarnir að blasa við og vonandi á allt eftir að ganga vel hjá Svanlaugu og fjölskyldu á næstu vikum og mánuðum sem eiga eftir að skipta sköpum varðandi framtíð

álftanna. Þegar líður að hausti og ungarnir orðnir mjög stálpaðir sýna álftir ungum sínum litla vægð og margir hafa orðið vitni að því þegar ungarnir eru beinlínis reknir að heiman og verða þá að bjarga sér sjálfir. Þessar skemmtilegu myndir tók Björn Yngvarsson.

Stef­án­Krist­jáns­son,­rit­stjóri­Ár­bæj­ar­blaðs­ins

abl@skrautas.is Svanlaug er sperrt og stolt þar sem hún spókaði sig með ungana fjóra. Vonandi gengur allt að óskum i uppeldinu.


E N N E M M / S Í A / N M 5 2 873

Á ljóshraða heim til þín

Í Árbæ liggur háhraðanet Mílu að flestum heimilum og þar með komast þau í háhraðanetsamband við umheiminn og heimilismenn geta á auðveldan hátt fengið frábæra internettengingu og stóraukinn gagnaflutningshraða sem leyfir flutning á mörgum háskerpusjónvarpsrásum samtímis og

Lífæð samskipta

bestu aðstæður til fjarvinnu.

Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi. Míla sér fjarskipta-, síma- og afþreyingarfyrirtækjum fyrir aðstöðu og dreifileiðum um net ljósleiðara og koparstrengja sem tengja byggðir landsins við umheiminn. Míla er mikilvægur hlekkur í öryggisfjarskiptum landsins á sjó, landi og lofti.

www.mila.is


4

Matur

Árbæjarblaðið

Lax, Lax, Lax, Stórlúða og creme brulee - að hætti Bryndísar og Júlíusar Hjónin Bryndís Guðrún Karlsdóttir og Júlíus Örn Ásbjörnsson, Hraunbæ 156, eru matgæðingar okkar að þessu sinni. Við skorum að venju á lesendur að prófa uppskriftirnar. Lax..lax..lax og aftur lax í forrétt Hérna er einn hrikalega einfaldur, góður og sumarlegur forréttur fyrir fjóra í tilefni þess að laxveiðitímabilið er nýhafið. Það er ekki verra ef laxinn er veiddur af einhverjum úr fjölskyldunni. Hráefni 100 gr. lax. 1 stk. skallotlaukur. 1 stk. hvítlauksgeiri. 2 msk. olífuolía. 2 tsk. maldon sjávarsalt. Nýmalaður pipar. 1 stk. ferskur ananas. 3 msk. sýrður rjómi 1/2 búnt koríander. Roð og beinhreinsið laxaflakið og skerið í litla teninga. Afhýðið skallotlauk

og hvítlauk. Pressið hvítlauk og saxið skallotlauk fínt. Blandið saman hvítlauk, skallotlauk og ólífuolíu í skál og blandið saman við laxabitana. Kryddið með sjávarsalti og nýmöluðum pipar. Skerið ananasinn í hæfilega fallega bita og setjið á diska. Dreifið laxablöndunni yfir og skreytið með sýrðum rjóma og kóríanderlaufum. Grilluð Teriyaki lúðusteik fyrir fjóra í aðalrétt Þessi réttur klikkar ekki eftir sólríkan dag í Árbænum. Ískalt hvítvín eða sódavatn og dagurinn er einfaldlega fullkomnaður. Hráefni 800 gr. stórlúðusneiðar, 4 stk. 1 dl. Tokyo teryiaki sósa frá Hot Spot (eftir smekk). 2 tómatar. 8 stk. smámaís. 8 stk. ferskur aspas. Snyrtið lúðusteikurnar og marínerið

Matgæðingarnir Bryndís Guðrún Knútsdóttir og Júlíus Örn Ásbjörnsson ásamt börnum sínum. ÁB-mynd PS upp úr sósunni í það minnsta í 30 mínútur. Ekki salta né pipra því sósan er frekar sölt. Grillið vel á báðum hliðum og snúið tvisvar sinnum á meðan grillun stendur. Gott er að pensla steikurnar með sósunni meðan grillað er. Skerið tómatana í tvennt og grillið með. Látið aspas og smámaís á grillið. Berið fram með fersku sumarsalati, fetaosti, nýbökuðu brauði og Bryndís Guðrún Knútsdóttir og Júlíus Örn Ásbjörnsson, Hraunbæ 156, pestó. skora á Elvar Örn Þórisson og Unni Björgu Stefánsdóttur, Hraunbæ 62, að koma með uppskriftir í næsta blað. Við birtum gómsætar uppskriftir þeirra Sumarsalat í næsta Árbæjarblaði í júlí.

Elvar Örn og Unnur Björg næstu matgæðingar

Hráefni Magnið af hráefninu og dressingunni

fer eftir smekk hvers og eins.

Spínat. Kasjúhnetur. Avocado. Jarðaber. Döðlur. Salatið er borið fram með fetaosti eða salat sósu sem saman stendur af: Hunangi. Balsamik edik. Rósarpipar. Creme brulee í eftirrétt

Karaoke um helgar á föstudags- og laugardagskvöldum frá kl. 10 Á sunnudögum opnum við kl. 18 fyrir matargesti

Sjá nánar á Rthai.is Rthai.is - S: 578-7274 - Lynghálsi 4

Þetta er mjög vinsæll eftirréttur á mínu heimili, borinn fram með þeyttum rjóma og góðu kaffi. Hráefni 250 ml. rjómi. 250 ml. mjólk. 1 vanillustöng. 100 gr. sykur. 4 eggjarauður. Leiðbeiningar Hitið ofninn í 150 gráður og setjið vatn í ofnskúffu. Sjóðið vanillustöngina í mjólkinni og rjómanum ásamt helmingnum af sykrinum og kælið síðan blönduna aðeins. Þeytið eggjarauðurnar létt með restinni af sykrinum. Veiðið vanillustöngina upp úr rjómablöndunni og blandið henni varlega saman við eggin. Setjið blönduna í lítil eldföst mót, raðið þeim í ofnskúffuna og bakið þar til búðingurinn er orðinn stífur. Kælið búðinginn vel í formunum, stráið sykri yfir og bræðið undir grilli eða með gasbrennara og skellið formunum aftur í kæli. Verði ykkur að góðu og gleðilegt sumar, Bryndís, Júlli, Dagur Breki, Arnór Bjarki og Júlía Katla.


5

Fréttir

Árbæjarblaðið

Ljósleiðaravæðing höfuðborgarsvæðisins:

Flest heimili í Árbæ hafa aðgang að ljósleiðarakerfi Mílu Það er ekki nóg með að Ísland sé eitt netvæddasta land í heimi, fá lönd hafa aðgang að jafn hröðum tengingum og við Íslendingar. Nú þegar hafa um 70% heimila á höfuðborgarsvæðinu, þar af flest heimili í Árbænum, aðgang að ljósleiðara eða háhraðaneti Mílu, án þess að grafa hafi þurft upp heilu hverfin. Þessu má þakka fyrirhyggju við lagnir í jörð á síðustu árum. Þetta hlutfall er mun hærra en í nágrannalöndum okkar og samfélögum sem við teljum mjög tæknivædd. Sem dæmi má nefna að öll heimili og fyrirtæki í stórboginni Tókíó tengjast koparlínum en þær línur eru ekki lengur lagðar í ný hverfi hér á landi heldur eingöngu ljósleiðari. Míla hefur til margra ára lagt lagnir fyrir ljósleiðara á hagkvæman hátt á höfuðborgarsvæðinu og víða um land þar sem jarðvinna hefur átt sér stað. Nú er hafin vinna við að blása ljósleiðaranum í fyrirliggjandi rör til þess að geta tengt heimilin beint við ljósleiðarakerfi Mílu. Ætla má að öll heimili á höfuðborgarsvæðinu verði tengd háhraðaneti Mílu fyrir lok árs 2014. Ljósleiðaravæðingin er mjög langt komin í Árbænum. Flest heimili hverfisins eiga nú möguleika á að tengjast háhraðaneti Mílu án þess að grafa hafi þurft fyrir lögnunum nema í mjög litlum mæli. Með aðgangi að háhraðanetinu fá heimilin verulega aukinn gagnaflutningshraða sem leyfir m.a. flutning á mörgum háskerpusjónvarpsrásum samtímis, frábæra internettengingu og bestu aðstæður til fjarvinnu. Sigurrós Jónsdóttir, deildarstjóri Markaðsstýringar hjá Mílu bendir íbúum Grafarvogs á að hafa samband við sín síma- og netfyrirtæki sem veita þeim aðgang að ljósleiðarakerfinu. Sigurrós segir að Míla ætli, auk höfuðborgarsvæðisins, að veita öllum heimilum frá Borgarnesi til Hvolsvallar að meðtöldum Vestmannaeyjabæ og þéttbýlisstöðum á Reykjanesskaga aðgang að háhraðaneti sínu fyrir lok ársins 2014. Þá verða um 90 þúsund heimili, eða um 75% heimila á öllu landinu með aðgang að kerfinu og þar með styrkir Ísland sig í sessi sem eitt ljósvæddasta land Evrópu. Heimasími, farsími og gagnasambönd einstaklinga og fyrirtækja fara að miklu leyti um net Mílu sem á og rekur stærsta og víðtækasta fjarskiptanet á landinu. Það nær til allra heimila, fyrirtækja og stofnana og tengir þau saman á sameiginlegt net sem síðan tengir landið við umheiminn. Nú þegar hefur íbúum víða á höfuðborgarsvæðinu verið gert kleift að

tengjast þessu kerfi í gegnum þjónustu fjarskiptafyrirtækja. ,,Með þessu skapast samkeppni á höfuðborgarsvæðinu, en kosturinn við uppfærslu Mílu er sá að lítillar jarðvinnu er þörf til að geta boðið háhraðasambönd sem fara að stærstum

hluta um ljósleiðara og eru fyllilega samkeppnishæf við aðra á sama markaði,“ segir Sigurrós sem hvetur alla þá sem sem vilja hraðar og hnökralauar tengingar að hafa samband við síma- og netfyrirtækin sem tengja þau við ljósleiðarann á einfaldan hátt.

Sigurrós Jónsdóttir,deildarstjóri Markaðsstýringar hjá Mílu.

Eirborgir Öryggisíbúðir við Fróðengi 1-11 í Grafaarvogi Notaleg þjónusta í hlýlegu og glæsilegu um mhhverfi

g legar íbúðir af ýmsum stærðum, í nálægð við Spöngina. Fallegir garðar og góð bílastæði. ileg þjónustumiðstöð með tengigangi við öryggisíbúðir Eirar verður tekin í notkun fyrri hluta ársins 2014. ggisvöktun allan sólarhringinn, tengd hjúkrunarvakt Eirar. alur og fjölþætt félagsstarf. Sjúkraþj j raþ álfun og dagdeild í nýrri þjónustumiðstöð. Í anddyr ddy i Eirar hjúkrunarheimilis eru teikningar af væntanlegri þjónustumiðstöð við Eirborgir

Búseturéttur að hluta og/eða leiga.

Aðstoðað err við val á hagstæðum búseturéttar± og/eða leiguk kjöru jö jörum. Ásta Jónsdóttir og Jóhann Þór Sigurbergsson Þegar við keyptum íbúð í Eirborgum leituðum við efftir öryggi og tryggri þjónuustu. Við teljum öryggisíbúðir eins og reknar eru af Eir vera bestu lausnina í búsetum málum eldri borgara. Þeir sem þurrfa á slíku úrrræði að halda ættu ekki draga of lengi að ffllytja í svona íbúðir. Okkk kar reynsla af þjónuustu og starfsemi Eirborga er mj mjög góð. Allt starfsfólk Eirborga fær ágætiseinkunn. Helga Mattína Einarsdóttir og Ólafur Guðnason

ÞVÍ ELDBAKAÐ ER EINFALDLEGA BETRA

Þegar við keyptum íbúð í Eirborgum sóttumst við efftir öryggi. Við vorum búin að fá vitneskju um þjónustuna sem yrði í boði. Reynsla okkkkar er mjög góð og heffur staðist væntingar. Starfsfólkið er frábært og leysir úrr öllum vanda strax.

www.rizzo.is

Sýning á íbúðum alla virka daga Vinsamlega pantið tíma í síma 522 5700 Eir hjúk krrunarheimili sk krrifst@eir.is


6

Fréttir

Árbæjarblaðið

b bfo.is fo.is 7 7^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][ ^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][

W[d5W[d#^h W[d5W[d#^h

Efri röð f.v. Valdimar Stefánsson þjálfari 4. flokks Fylkis , Ari Leifsson, og Hlífar Arnar Hlífarsson. Neðri röð f.v. Arnór Gauti Brynjólfsson, Kristján Óli Guðbjartsson og Kolbeinn Finnsson. ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir BG

BG

S VO

SV

T T UÐ ÞJ Ó N US

TA

OT TUÐ ÞJÓNUS

TA

SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN (GRÆN GATA) GA ATTA) · 200 KÓPAVOGI KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360

Þeir léku á NM höfuðborganna

Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna var haldið í Osló dagana 21-24. maí. Í síðasta Árbæjarblaði birtum við mynd af fimm þátttakendum sem allir voru í sama bekk í Árbæjarskóla. Okkur var á þeim tímapunkti ekki ljóst að fleiri íþróttagarpar í Árbæ og Grafarholti voru á leið á þetta merka mót. Við bætum úr því hér og á myndinni að ofan eru fjórir knattspyrnumenn í 4. flokki sem tóku þátt í mótinu. Þeir eru Hlífar Arnar Hlífarsson sem býr í Grafarholti, Ari Leifsson í Norðlingaholti, Kolbeinn Finnsson í Árbæ og Arnór Gauti Brynjólfsson í Árbæ. Að auki er á myndinni Kristján Óli Guðbjartsson sem einnig er í 4. flokki Fylkis.

18% FLEIRI FARÞEGAR ISAVIA

2011

2010

2010 2011

18% ÚTFLUTNINGSAUKNING / = Ð ;( / Ø : 0 ð : Ð (

REYKJAVIK GEOTHERMAL

2011 2010

15% VELTUAUKNING ÖRNINN HF.


7

Árbæjarblaðið

Fréttir

Hverfisráð og 3. flokkur kvenna gerir með sér samning Undanfarin ár hefur 3. flokkur Fylkis, kvenna í knattspyrnu átt samstarf við hverfisráð Árbæjar og þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts um þjónustusamning við hreinsun meðfram gatna í hverfinu. Í ár mun það fyrirkomulag haldast óbreytt. Hreinsunarátakið hefur falið í sér hreinsun meðfram götum svo að eftir því hefur verið tekið! Stúlkurnar munu sjá um hreinsunina að afloknu keppnisferðalagi þeirra til Spánar sem hefst í næstu viku. Á tímabilinu júní og fram í ágúst munu þær sjá um að þessar götur séu hreinar og fínar, öllum til mikillar gleði. Í stað vinnunnar sem stúlkurnar vinna mun hverfisráð Árbæjar styrkja þær um 150.000.- sem rennur í ferðasjóð þeirra. Þess má geta að við atkvæðagreiðslu um styrkinn lýsti Formaður hverfisráðs sig vanhæfan og vék af fundi á meðan atkvæði voru greidd. Samningur hverfisráðs við stúlkurnar var undirritaður á 86. Fundi hverfisráðs Árbæjar þann 6. júní s.l. Stelpurnar okkar eru að fara inn í sumarið með það í huga að gera vel í keppnisferðinni og að taka til í umhverfinu okkur hinum til mikillar gleði. Samningurinn var undirritaður fyrir hönd hverfisráðs af Marsibil Sæmundsdóttur, varaformanns hverfisráðs Árbæjar, Ásmundi Vilhjálmssyni, formanni foreldrafélags 3. flokks kvenna ásamt þeim Diljá Mjöll Aronsdóttur og Maríönnu Björk Ásmundsdóttur iðkenda í 3. flokki kvenna í knattspyrnu Fylkis.

ww

ww

w.g

w.g

am

am

ar.i

s•

ar.i

s•

Sím

i 53

Sím

i 53

52

52

510

Kraftmikill jarðvegsbætir

510

Upplagt á gangstíga og beð

Molta og kurl 21.793/05.12

Sendum heim. Búið að skirfa undir og allt klárt.

Upplýsingar í síma 535 2500 Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2500 • soludeild@gamar.is • www.gamar.is

A ERU JÁKVÆÐ AÐ ÞAÐ Þ JÁKVÆÐ TEIKN Á L LOFTI OFTI SKU A ATVINNULÍFI TVINN TVINNULÍFI Í ÍSLENSKU Fjölmörg fyrirtæk iptum við Arion bank a eru að ná fyrirtækii í viðsk viðskiptum banka eftirtek tarverðum ár angri þr átt fyrir krefjandi aðstæður eftirtektarverðum árangri þrátt aðstæður.. bankii ffagnar árangri. Arion bank agnar þessum góða ár angri. Kynntu arionbanki.is K ynntu þér málið á arionbank i.is


8

Árbæjarblaðið

Fréttir

Hverfisráð Árbæjar kom saman til fundar á dögunum en fyrir nokkru urðu mannabreytingar í ráðinu. Til að mynda tók Björn Gíslason við formennsku í ráðinu

af Þorleifi Gunnlaugssyni. Að fundi loknum hjá Hverfisráði Árbæjar á dögunum skelltu fulltrúar í ráðinu sér út í sumarblíðuna og sátu fyrir á mynd. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Björn Gíslason, formaður hverfisráðs Árbæjar, Marsibil Sæmundsdóttir, varaformaður, Sigurður Rúnarsson Beck, Margrét Guðnadóttir, Elvar Örn Þórisson frá íbúasamtökum Árbæjar, Klara Sigurbjörnsdóttir, og Carl Jóhann Gränz frá íbúasamtökum Norðlingaholts.

Stúkusöfnun aftur af stað eftir smá hlé

Nú styttist í að framkvæmdir hefjist á Fylkisvelli við nýju stúkubygginguna. Reykjavíkurborg hefur lagt til 90 milljónir vegna framkvæmdarinnar og Knattspyrnusamband Íslands 15 milljónir. ,,Það er ljóst að við Fylkisfólk verðum að safna 10 milljónum en það er kostnaðurinn við steypta palla við stúk-

una. Við höfum nú þegar safnað um sex milljónum en hlé var gert á söfnuninni um tíma. Nú er fólk á okkar vegum að fara að hringja í íbúa í Árbæ í nýja leik og við vonum að okur verði vl tekið. Það vantar herslumuninn á að þetta takist hjá okkur og vonandi gengur þetta vel,” sagði Björn Gíslason, formaður Fylkis, í samtali við Árbæjarblaðið.

Eins og áður sagði þá hefjast framkvæmdir fljótlega. Verkið varðandi steyptu pallana hefur þegar verið boðið út í svokölluðu alútboði að kröfu Reykjavíkurborgar og reiknað er með að framkvæmdir hefjist fljótlega í sumar. Fyrir öllu er að þetta stúkumál er komið í farveg og útlit fyrir farsælalausn málsins en um tíma leit málið alls

Dúkkuhús úr tré

Krítar- og tússtöflur

Þroskaleikföng

Eldhús

Vörur í búðarleikinn og eldhúsið.

Smíðaborð úr tré.

Gólfpúsl.

Fallegu leikföngin frá Melissa & Doug fást hjá okkur. Opið virka daga 13 -19, lokað laugardaga í sumar.

ekki vel út. Var staða málsins þannig um tíma að Fylkir yrði að leika heimleiki sína á Laugardalsvelli í sumar. Þeim

ósköpum hefur nú verið forðað og ljóst að Fylkir mun leika heimaleiki sína í Árbænum hér eftir sem hingað til.

Stúkubyggingin á Fylkisvelli verður glæsileg.


79 @G# 9ÓH>C

2798 27 798 KR. KR. KG

DANSKT FROSIÐ NAUTARIBEYE

1379 137 3 7@<9 @G# @ G# @<

3998 39 98 KR. KR. KG

11798 79 9@<8 @G# @G# @< 1@G# 1898 898 8 @G# @<# @<#

1898 18 9@<<8 @ @G# G# @ NORÐANFISKUR N ORÐA N FISKU R Í ÍSLENSKUR SLENSKUR L LAX AX

2598 2@G# 59 9@<<8 @G# @

KOFAREYKTUR ÚRBEINAÐUR HANGIFRAMPARTUR 1798 KR.KG KOFAREYKT ÚRBEINAÐ HANGILÆRI 2598 KR.KG.

F FROSINN ROSINN B BEINHR. EINHR M.ROÐI M ROÐI

ÏÏHA:CH@JG ;ÌC> HA:CH@JG ;ÌC>

.- `g# hi` .- `g# hi`

69 698 9+ AIG 8 @ @G# G# + AIG

298 29 98

198 198 @ @G# G# ' ' AIG# AIG#

@G# @G# &' HI@# &' HI@#


10

Fréttir

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)

Ár­bæj­ar­blað­ið 587-9500

Árbæjarblaðið

Hluti strákanna sem æfa Parkour fimleika hjá Fylki.

Parkour í mikilli sókn

Parkour er heiti yfir götufimleika en þessi ,,tegund” fimleika er mjög vinsæl meðal iðkenda hjá Fimleikadeild Fylkis. Í Parkour henda strákarnir sér í heljarstökk upp um alla veggi og húsþök. Áhættuleikarar í bíómyndum læra þetta

gjarnan en þetta er mikið notað í hasarmyndum. Einnig læra strákarnir að henda sér í kollnýs og heljarstökk án þess að meiða sig. Þann 24. maí sl. var síðasta æfing strákanna og voru þeir með sýningu af því tilefni fyrir foreldra og aðra gesti.

Parkour hefur slegið rækilega í gegn í fimleikunum hjá Fylki en alls voru 120 strákar að æfa hjá fimleikadeild Fylkis sl. vetur. Langur biðlisti var allan sl. vetur og hyggst fimleikadeildin reyna að bæta úr þessu ástandi með fleiri æfingatímum.

GLERSÝN ³ ³ ³ ³ ³ ³ ³ ³ ³ ³

Gluggaþvottur Gluggaþvottur að innan Klæðningahreinsun Ræsting Húsfélagaþjónusta Gólfbónun Teppahreinsun Steinteppahreinsun Bílastæðahreinsun Djúphreinsun gangstétta

Við sérhæfum okkur í gluggaþvotti og leggjum sérstaka áherslu á að viðhafa vönduð vinnubrögð.

Framtíðar handboltakonur í 4. flokki Fylkis.

4. flokkur kvenna deildarmeistari

Nú í lok þessa tímabils í handboltanum hjá Fylki er vert að geta þess að stelpurnar í 4. flokk urðu deildarmeistarar í keppni B-liða. Einnig spiluðu þær úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn en töpuðu með minnsta mun gegn Selfoss. Þessi frábæri efniviður framtíðarliðs Fylkis er að fara til Ungverjalands á handboltamót „Cell Cup“ í ágúst og eru stelpurnar búnar að vera duglegar í fjáröflunum undanfarið. Þær vilja því nota tækifærið og þakka öllum sem hafa styrkt þær á tímabilinu.

Gleðilegt l ðilegt ár ár... r... .. ... Velkomin

...ÞÖKKUM LIÐIÐ

ANDLITSDEKUR AUGNMEÐFERÐ

HANDSNYRTING GELNEGLUR

FÓTSNYR RTING GEL Á TTÆR ÆR

TATTOO AUGU/VVARIR/BRÚNIR

GÖTUN BRÚNKA

SPRAUTTA Í HRUKKUR VARASTTÆKKUN MEÐ COLLAGEN

TRIM FORM SLIM IN HARMONY

HLJÓÐBYLGJUR ÖFLUG ANDLIT/HRUKKUMEÐFERÐ CELLULITE/SOGÆÐA FYRIR LÍKAMA

IPL HÁREYÐING ÆÐASLIT BÓLUMEÐF.

Gerum föst verðtilboð og samninga til lengri tíma, hvort sem um er að ræða smá eða stór verkefni. Glersýn er staðsett að Smiðjuveg 4 í Kópavogi og skrifstofan að Glæsibæ 20 í Reykjavík. Fáðu tilboð í síma 663 0000 eða glersyn@glersyn.is

www.glersyn.is

THALASSO

Greifynjan f snyrtistofa f HRAUNBÆ 102 - SÍMI 587 9310/862 62 3310 - OPIÐ 08-20 20 - GREIFYNJAN.IS - GREIFYNJAN @GREIFYNJAN.IS


Grafarholtsblað­ið 4. tbl. 1. árg. 2012 júní - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal

Í frístundaheimilinu Stjörnulæandi í Grafarholti er margt um listamanninn og krakkarnir eru miklir snillingar þegar kemur að listsköpun. Stjörnulandsfossinn þeirra hefur nú verið hengdur upp í einni stærstu byggingavöruverslun landsins og verður þar til sýnis fram eftir sumri.

Stjörnulandsfoss vekur athygli

Krakkarnir í frístundaheimilinu Stjörnulandi í Grafarholti eru miklir listamenn í sér og þeir hafa líka með sér góða leiðbeinendur. Í tilefni Barnamenningarhátíðar Reykavíkur töku börnin í Stjörnulandi í Grafarholti sig til undir handleiðslu Kolbrúnar frístundaráðgjafa og listkúnstners og skópu hið fagra listaverk „Stjörnulandsfoss“. Í samstarfi við Húsasmiðjuna fékk Stjörnuland góðfúslegt leyfi til að hengja listaverkið upp í anddyri versl-

unarinnar þar sem það mun blasa við gestum og gangandi til loka ágúst en þá mun það verða fært til síns heima. Við hvetjum alla til að skoða þetta flotta verk. Krakkarnir og allir í Stjörnulandi vildu nota tækifærið og senda öllum íbúum í Grafarholti góðar sumarkveðjur. Stjörnulandsfossinn í allri sinni dýrð.

ÞVÍ ELDBAKAÐ ER EINFALDLEGA BETRA

www.rizzo.is


13

12

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Sumarskóli Fram 2012 Söfnun í Orgelsjóð Guðríðarkirkju gekk vel

Sumarskóli Fram er starfræktur í Grafarholti og Úlfarsárdal í sumar. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta hverfisins. Íþróttaskólinn fer fram í og við Ingunnarskóla en ef veður er vont þá færist námskeiðið inn í íþróttahús Ingunnarskóla. Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á gervigrasvelli FRAM í Úlfarsárdal. Í boði eru þrjú tveggja vikna námskeið og loks eitt viku námskeið: Námskeið 1 11.-22. júní Námskeið 2 25. júní-6. júlí Námskeið 3 9.-20. júlí Námskeið 4 23.-27. júlí Íþróttaskólinn Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist. Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir. Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knatt-

spyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni. Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga. Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi. Einnig er hægt að velja knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti. Boðið verður upp á gæslu í Ingunnarskóla frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:0016:30. Knattspyrnuskólinn Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri. Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 09:00-12:00, alla virka daga. Boðið er upp á gæslu í félagsheimili FRAM í Úlfarsárdal frá kl.07:45

og er það innifalið í námskeiðsgjaldinu. Skráning Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 8.000-. Námskeiðsgjald í íþróttaskóla 09:0016:00 er kr. 16.000-. Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi er kr. 16.000-. Veittur er 10 % afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: gæsla, bolur, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Nóra, skráningarkerfi fram á heimasíðu FRAM www.fram.is Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 587-8800 skrifstofa FRAM í Úlfarsárdal og 533-5600 skrifstofa FRAM Safamýri milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst: dadi@fram.is og toti@fram.is

Grafarholtsblaðið ritstjórn og auglýsingar 587-9500

Það hefur þótt góður siður á Íslandi að þakka fyrir sig. Vart hefur söfnun fyrir kirkjuorgeli í Guðríðarkirkju farið framhjá mörgum íbúum í Grafarholti eða Úlfarsárdal. Söfnunin var kynnt í Grafarholtsblaðinu og sömuleiðis var kynningarbæklingur borinn í hvert hús. Sjálfboðaliðar gengu í hús í hverfunum 30. maí og 1. júní og tóku á móti framlögum. Skemmst er frá því að segja að undirtektir voru afargóðar; flestir þekktu verkefnið og vildu leggja því lið. Margir höfðu framlög tilbúin – væntu komu okkar – og aðrir völdu upphæð á staðnum. Þá fengum við að heyra að margir vildu eiga lítinn hlut í orgelinu og spurðust fyrir um hvenær von væri á að það yrði tilbúið. Við því eigum við ekki svör en ljóst að söfnun sem þessi skiptir miklu máli fyrir framgang verksins. Eins og gengur var töluvert um að „enginn væri heima“ þegar bankað var uppá enda veður góð og fólk útivið eða enn í vinnu sinni. Engin tök voru á að halda utanum hvaða íbúðir eða hús urðu eftir af þessum sökum. Ekki er kostur á að endurtaka söfnunina og því er fólki sem ætlaði að leggja sitt að mörkum til söfnunarinnar bent á þá auðveldu leið að leggja framlög inn á bankareikning Orgelsjóðsins: K.t.: 660104-3050, banki 0114 – 115 – 380396. Markmið okkar sem að stóðum var að hvert heimili gæfi 3 – 5000 kr. en tekið skal fram að allur styrkur er þakksamlega þeginn. Þá er rétt að komi fram að öllum fyrirtækjum í hverfunum hefur verið send erindi með ósk um stuðning. Ánægjulegt er að fá pósta og kveðjur frá þeim þar sem stuðningi er heitið. Enn skal geta þess að Orgelsjóðnum hafa borist áheit og gjafir sem getið verður um eftir því sem viðkomandi aðilar óska. Saman munum við eignast fallegt kirkjuorgel í Guðríðarkirkju. Öllum þeim sem tóku þátt í söfnuninni eru hér með færðar bestu kveðjur. Níels Árni Lund, Gvendargeisla 34.

Meistaraflokkur kvenna gerir það gott í Úlfarsárdalnum Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu leikur heimaleiki sína í sumar á Framvellinum í Úlfarsárdal. Stelpurnar hafa heldur betur farið vel af stað og sitja á toppi 1. deildar eftir þrjá sigra í fyrstu þremur leikjum mótsins. Laugardaginn 19. maí. unnu stelpurnar góðan sigur á liði Völsungs frá Húsavík í Úlfarsárdalnum. Framstelpur stjórnuðu leiknum frá fyrstu mínútu og ísinn brotnaði á 18. mínútu þegar Rósa Hauksdóttir lúðraði tuðrunni inn með flottu skoti utan teigs. Dagmar Ýr Arnardóttir kom Fram í 3-0 með marki í sitthvorum hálfleiknum. Fjórða og síðasta markið skoraði Rósa Hauks aftur með hnitmiðuðu skoti utan teigs. Framsigur 4-2 varð lokaniðurstaðan. Næsti leikur Fram var gegn Grindavík í Úlfarsárdalnum. Framstelpur réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik og Grindavík komst varla yfir miðju fyrstu 25 mínútur leiksins. María Rós Arngrímsdóttir braut ísinn með laglegu marki, Bergþóra Baldurs fylgdi í kjölfarið eftir flott tilþrif í vítateig Grindvíkinga. Rósa Hauksdóttir skoraði klínu utan teigs, Áslaug Eik Ólafsdóttir og Dagmar Ýr Arnardóttir skoruðu svo sitt markið hvor áður en flautað var til leikhlés. Rósa Hauksdóttir skoraði svo sitt annað mark og sjötta mark Fram í seinni hálfleik. Lokatölur 6-2 Fram í vil.

D``Vg ea cijg [{ `¨gaZ^`hg `i jeeZaY^ k^ haZch`Vg VÂhi¨Âjg

<g ÂgVghi Â^c

Framstelpur heimsóttu svo HK/Víking í rjómablíðu í Fossvoginn laugardaginn 2. júní. Þessum tveimur liðum var spáð efstu tveimur sætunum í deildinni og ljóst að hart yrði barist. Anna Birna Þorvarðardóttir kom stelpunum yfir strax í upphafi leiks með góðu marki sem jafnframt var hennar fyrsta fyrir félagið. María Rós Arngrímsdóttir hélt svo uppteknum hætti frá síðustu leikjum og bætti við öðru marki þegar um tíu mínútur voru til leikhlés. Stelpurnar hefðu getað bættt við fleiri mörkum en allt kom fyrir ekki en góð þrjú stig í hús og sigur 2-0. Fram trónir því á toppnum í B-riðli 1. deildar kvenna að loknum þremur umferðum og engin ástæða til annars en að þetta góða gengi haldi áfram.

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Grænfáninn á leiðinni á fánastöngina á lóð Dalskóla. Það ríkti mikil gleði við afhendingu Grænfánans í Dalskóla.

Dalskóli fékk Grænfána

Það var stoltur skólastjóri, Hildur Jóhannesdóttir, sem leiddi nemendur Dalskóla að fánastöng skólans á dögunum. Tilefnið var viðtaka Grænfánans sem skólinn hlýtur fyrir frammistöðu sína í umhverfismálum. Dalskóli hefur verið skóli á grænni grein frá upphafsári skólans árið 2010. Dalskóli hlýtur viðurkenninguna ,,skóli á grænni grein” fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunar og fyrir að leggja sitt af mörkum til þess að efla og bæta umhverfismál innan skólans. Hildur sagði að krakkarnir hefðu verið miklu fljótari að læra flokkun og temja sér umhverfisvæna hugsun en fullorðna fólkið og því vel að fánanum komin. Hún minnti líka á að fáninn táknar ekki bara flokkun og endurnýtingu heldur væri vináttan mikils virði og meðvitund um að við búum öll saman á einni jörð. Undir þetta tók Orri Páll Jóhannsson, verkefnastjóri Grænfánans hjá Landvernd, um leið og hann afhenti fánann og ræddi þýðingu hans við nemendur. 1 -(( 1 5

SUMAR

UPPL SINGAVEFUR!!FYRIR!

Í"RÓTTA-OG!TîMSTUNDASTARF!ê!REYKJAVêK

6-9!çRA!SUMARFRêSTUND! Heilsdagsdvšl!’!fr’stundaheimili!vi$ fjšlbreytt!og!skemmtileg!vi$fangsefni. Skr‡ning!er!’!viku!’!senn.!

10-12!çRA!SMI#JUR!(f.'99-01) Stuttar!smi$jur!og!vi$bur$ir sem!standa!yfir!’!heilan!e$a!h‡lfan!dag. Skr‡ning!’!hverja!smi$ju!e$a!vi$bur$!fyrir!sig.

13-15!çRA!FÉLAGSMI#ST…#VASTARF Grænfáninn afhentur.

Opi$!starf!’!félagsmi$stš$vum!’!eftirmi$daginn! og!‡!kvšldin!’!sumar.!Engin!skr‡ning. !Opnunart’mi!augl%stur!‡!heimas’$um !fŽlagsmi$stš$vanna.!

ÞVÍ ELDBAKAÐ ER EINFALDLEGA BETRA

www.rizzo.is

8-12!çRA!SMê#AVELLIR!(f.'99-'03)

ALLAR!UPPL SINGAR!ç!WWW.ITR.IS/SUMAR

Reykjavíkurborg


13

12

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Sumarskóli Fram 2012 Söfnun í Orgelsjóð Guðríðarkirkju gekk vel

Sumarskóli Fram er starfræktur í Grafarholti og Úlfarsárdal í sumar. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta hverfisins. Íþróttaskólinn fer fram í og við Ingunnarskóla en ef veður er vont þá færist námskeiðið inn í íþróttahús Ingunnarskóla. Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á gervigrasvelli FRAM í Úlfarsárdal. Í boði eru þrjú tveggja vikna námskeið og loks eitt viku námskeið: Námskeið 1 11.-22. júní Námskeið 2 25. júní-6. júlí Námskeið 3 9.-20. júlí Námskeið 4 23.-27. júlí Íþróttaskólinn Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist. Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir. Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knatt-

spyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni. Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga. Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi. Einnig er hægt að velja knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti. Boðið verður upp á gæslu í Ingunnarskóla frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:0016:30. Knattspyrnuskólinn Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri. Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 09:00-12:00, alla virka daga. Boðið er upp á gæslu í félagsheimili FRAM í Úlfarsárdal frá kl.07:45

og er það innifalið í námskeiðsgjaldinu. Skráning Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 8.000-. Námskeiðsgjald í íþróttaskóla 09:0016:00 er kr. 16.000-. Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi er kr. 16.000-. Veittur er 10 % afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: gæsla, bolur, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Nóra, skráningarkerfi fram á heimasíðu FRAM www.fram.is Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 587-8800 skrifstofa FRAM í Úlfarsárdal og 533-5600 skrifstofa FRAM Safamýri milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst: dadi@fram.is og toti@fram.is

Grafarholtsblaðið ritstjórn og auglýsingar 587-9500

Það hefur þótt góður siður á Íslandi að þakka fyrir sig. Vart hefur söfnun fyrir kirkjuorgeli í Guðríðarkirkju farið framhjá mörgum íbúum í Grafarholti eða Úlfarsárdal. Söfnunin var kynnt í Grafarholtsblaðinu og sömuleiðis var kynningarbæklingur borinn í hvert hús. Sjálfboðaliðar gengu í hús í hverfunum 30. maí og 1. júní og tóku á móti framlögum. Skemmst er frá því að segja að undirtektir voru afargóðar; flestir þekktu verkefnið og vildu leggja því lið. Margir höfðu framlög tilbúin – væntu komu okkar – og aðrir völdu upphæð á staðnum. Þá fengum við að heyra að margir vildu eiga lítinn hlut í orgelinu og spurðust fyrir um hvenær von væri á að það yrði tilbúið. Við því eigum við ekki svör en ljóst að söfnun sem þessi skiptir miklu máli fyrir framgang verksins. Eins og gengur var töluvert um að „enginn væri heima“ þegar bankað var uppá enda veður góð og fólk útivið eða enn í vinnu sinni. Engin tök voru á að halda utanum hvaða íbúðir eða hús urðu eftir af þessum sökum. Ekki er kostur á að endurtaka söfnunina og því er fólki sem ætlaði að leggja sitt að mörkum til söfnunarinnar bent á þá auðveldu leið að leggja framlög inn á bankareikning Orgelsjóðsins: K.t.: 660104-3050, banki 0114 – 115 – 380396. Markmið okkar sem að stóðum var að hvert heimili gæfi 3 – 5000 kr. en tekið skal fram að allur styrkur er þakksamlega þeginn. Þá er rétt að komi fram að öllum fyrirtækjum í hverfunum hefur verið send erindi með ósk um stuðning. Ánægjulegt er að fá pósta og kveðjur frá þeim þar sem stuðningi er heitið. Enn skal geta þess að Orgelsjóðnum hafa borist áheit og gjafir sem getið verður um eftir því sem viðkomandi aðilar óska. Saman munum við eignast fallegt kirkjuorgel í Guðríðarkirkju. Öllum þeim sem tóku þátt í söfnuninni eru hér með færðar bestu kveðjur. Níels Árni Lund, Gvendargeisla 34.

Meistaraflokkur kvenna gerir það gott í Úlfarsárdalnum Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu leikur heimaleiki sína í sumar á Framvellinum í Úlfarsárdal. Stelpurnar hafa heldur betur farið vel af stað og sitja á toppi 1. deildar eftir þrjá sigra í fyrstu þremur leikjum mótsins. Laugardaginn 19. maí. unnu stelpurnar góðan sigur á liði Völsungs frá Húsavík í Úlfarsárdalnum. Framstelpur stjórnuðu leiknum frá fyrstu mínútu og ísinn brotnaði á 18. mínútu þegar Rósa Hauksdóttir lúðraði tuðrunni inn með flottu skoti utan teigs. Dagmar Ýr Arnardóttir kom Fram í 3-0 með marki í sitthvorum hálfleiknum. Fjórða og síðasta markið skoraði Rósa Hauks aftur með hnitmiðuðu skoti utan teigs. Framsigur 4-2 varð lokaniðurstaðan. Næsti leikur Fram var gegn Grindavík í Úlfarsárdalnum. Framstelpur réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik og Grindavík komst varla yfir miðju fyrstu 25 mínútur leiksins. María Rós Arngrímsdóttir braut ísinn með laglegu marki, Bergþóra Baldurs fylgdi í kjölfarið eftir flott tilþrif í vítateig Grindvíkinga. Rósa Hauksdóttir skoraði klínu utan teigs, Áslaug Eik Ólafsdóttir og Dagmar Ýr Arnardóttir skoruðu svo sitt markið hvor áður en flautað var til leikhlés. Rósa Hauksdóttir skoraði svo sitt annað mark og sjötta mark Fram í seinni hálfleik. Lokatölur 6-2 Fram í vil.

D``Vg ea cijg [{ `¨gaZ^`hg `i jeeZaY^ k^ haZch`Vg VÂhi¨Âjg

<g ÂgVghi Â^c

Framstelpur heimsóttu svo HK/Víking í rjómablíðu í Fossvoginn laugardaginn 2. júní. Þessum tveimur liðum var spáð efstu tveimur sætunum í deildinni og ljóst að hart yrði barist. Anna Birna Þorvarðardóttir kom stelpunum yfir strax í upphafi leiks með góðu marki sem jafnframt var hennar fyrsta fyrir félagið. María Rós Arngrímsdóttir hélt svo uppteknum hætti frá síðustu leikjum og bætti við öðru marki þegar um tíu mínútur voru til leikhlés. Stelpurnar hefðu getað bættt við fleiri mörkum en allt kom fyrir ekki en góð þrjú stig í hús og sigur 2-0. Fram trónir því á toppnum í B-riðli 1. deildar kvenna að loknum þremur umferðum og engin ástæða til annars en að þetta góða gengi haldi áfram.

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Grænfáninn á leiðinni á fánastöngina á lóð Dalskóla. Það ríkti mikil gleði við afhendingu Grænfánans í Dalskóla.

Dalskóli fékk Grænfána

Það var stoltur skólastjóri, Hildur Jóhannesdóttir, sem leiddi nemendur Dalskóla að fánastöng skólans á dögunum. Tilefnið var viðtaka Grænfánans sem skólinn hlýtur fyrir frammistöðu sína í umhverfismálum. Dalskóli hefur verið skóli á grænni grein frá upphafsári skólans árið 2010. Dalskóli hlýtur viðurkenninguna ,,skóli á grænni grein” fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunar og fyrir að leggja sitt af mörkum til þess að efla og bæta umhverfismál innan skólans. Hildur sagði að krakkarnir hefðu verið miklu fljótari að læra flokkun og temja sér umhverfisvæna hugsun en fullorðna fólkið og því vel að fánanum komin. Hún minnti líka á að fáninn táknar ekki bara flokkun og endurnýtingu heldur væri vináttan mikils virði og meðvitund um að við búum öll saman á einni jörð. Undir þetta tók Orri Páll Jóhannsson, verkefnastjóri Grænfánans hjá Landvernd, um leið og hann afhenti fánann og ræddi þýðingu hans við nemendur. 1 -(( 1 5

SUMAR

UPPL SINGAVEFUR!!FYRIR!

Í"RÓTTA-OG!TîMSTUNDASTARF!ê!REYKJAVêK

6-9!çRA!SUMARFRêSTUND! Heilsdagsdvšl!’!fr’stundaheimili!vi$ fjšlbreytt!og!skemmtileg!vi$fangsefni. Skr‡ning!er!’!viku!’!senn.!

10-12!çRA!SMI#JUR!(f.'99-01) Stuttar!smi$jur!og!vi$bur$ir sem!standa!yfir!’!heilan!e$a!h‡lfan!dag. Skr‡ning!’!hverja!smi$ju!e$a!vi$bur$!fyrir!sig.

13-15!çRA!FÉLAGSMI#ST…#VASTARF Grænfáninn afhentur.

Opi$!starf!’!félagsmi$stš$vum!’!eftirmi$daginn! og!‡!kvšldin!’!sumar.!Engin!skr‡ning. !Opnunart’mi!augl%stur!‡!heimas’$um !fŽlagsmi$stš$vanna.!

ÞVÍ ELDBAKAÐ ER EINFALDLEGA BETRA

www.rizzo.is

8-12!çRA!SMê#AVELLIR!(f.'99-'03)

ALLAR!UPPL SINGAR!ç!WWW.ITR.IS/SUMAR

Reykjavíkurborg


14

Gleðilegt sumar!

Fréttir

Grafarholtsblaðið

Sumarið er frábær tími. Njóttu þess vel en mundu að hugsa vel um húðina.

Jenný Magnúsdóttir tannlæknir Ég hef hafið störf á Tannlæknastofu Árbæjar, Rofabæ 23, 110 Rvk. og vinn þar ásamt Svanhvíti Sæmundsdóttur tannlækni. Tímapantanir í síma 587-5511

Hlynur Andri Valgeirsson, Hinrik Atli Smárason sem æfir fótbolta með 2. flokki Fylkis, Stígur Diljan Þórðarson, og Stefán Gísli Stefánsson. ÁB-myndiur Katrín J. Björgvinsdóttir

Knattspyrnuskóli Fylkis sumarið 2012

Óskar Breki Eiríksson og Halldór Viðar Gunnarsson.

Það var mikið líf og fjör á fyrsta degi knattspyrnuskóla Fylkis. Krakkarnir voru í yngri kantinum þennan dag þar sem þau eldri voru enn að klára sinn seinasta dag fyrir sumarfrí í grunnskólanum. Í knattspyrnuskólanum eru mjög góðir og hæfir kennarar með hnitmiðaðar æfingar og vel farið yfir öll tækniatriði. Knattspyrnuskóli Fylkis verður starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur og eru námskeiðin opin öllum iðkendum á aldrinum 6-14 ára, bæði piltum og stúlkum. Um er að ræða vikunámskeið, virka daga frá kl. 9-12. Á námskeiðunum sjálfum verður iðkendum skipt upp eftir aldri, getu og kyni þannig að allir fái verkefni við sitt hæfi. Íþróttafræðingarnir Kristján Gylfi Guðmundsson þjálfari og Fannar Gunnólfsson þjálfari hafa umsjón með skólanum og ásamt þeim eru Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir og Hinrik Atli Smárason þeim til aðstoðar. Á öllum námskeiðunum verða hinar sívinsælu knattþrautir, fótboltagolf og ýmsar keppnir. Allir iðkendur fá bol merktan knattspyrnuskóla Fylkis 2012 á sínu fyrsta námskeiði. Pulsupartý verður í lok hvers námskeiðs. Hægt er að skrá sig á heimasíðu félagsins www.fylkir.com og í Fylkishöll í síma 571-5601.

Systkinin, Bjarni Leifs Kjartansson og Tinna Bjarndís sem spilar með meistaraflokki Fylkis.

Ásgeir Þór Ásgeirsson og Þorsteinn Grétar Garðarsson.

Fjóla Rún Þorsteinsdóttir, Hrannar Ingi Arnarsson og Jón Hákon Garðarsson.

Þarft þú að losna við köngulær?

Bryndís Arna Níelsdóttir æfir fótbolta með 6. flokki Fylkis og var mjög ánægð með knattspyrnuskólann.


15

Fréttir

Árbæjarblaðið

Landsbankinn sameinar útibú Um síðustu mánaðarmót var tilkynnt um sameiningu Árbæjarútibús og Grafarholtsútibús Landsbankans. Starfsemi hins sameinaða útibús verður í Grafarholti frá og með haustinu.

Kristján þjálfari kennir þeim réttu tökin á boltanum.

Þjálfararnir, Fannar Gunnólfsson og Kristján Gylfi Guðmundsson.

Þessi breyting er liður í stefnu bankans um hagræðingu í rekstri og við sameininguna verður til stórt öflugt útibú í Grafarholti sem veitt getur viðskiptavinum víðtækari þjónustu en áður. Starfólk Árbæjarútibús mun flytjast yfir í Grafarholtsútibú og mun Þorsteinn Stefánsson stýra hinu nýja sameinað útibúi. Landsbankinn hefur starfrækt útibú í Árbæ Þorsteinn Stefánsson. samfellt frá árinu 1968 og eru þetta því nokkur tímamót en bankinn leggur mikla áherslu á að viðskiptavinir verði sem minnst varir við þessar breytingar og þjónusta skerðist eins lítið og unnt er. Landsbankinn mun því áfram sinna grunnþjónustu í Árbæ og verður afgreiðsla starfrækt á Kletthálsinum, þ.a. viðskiptavinir munu geta fengið aðstoð við greiðslu reikninga og úttekt á peningum. Útibúið á Kletthálsi verður starfrækt áfram næstu mánuði og þar verður áfram veitt öll almenn bankaþjónusta en þjónusta við fyrirtæki flyst strax í Grafarholtsútibú við Vínlandsleið 1. Við endanlega sameiningu í haust flyst síðan hin almenna bankaþjónusta að mestu leyti í Grafarholtið. Við sameininguna munu öll reikningsnúmer í Árbæjarútitbúi haldast óbreytt og verða þau áfram undir bankanúmeri 0113,en allir nýir reikningar verða undir bankanúmeri 0114. Við bjóðum ykkur velkomin í Landsbankann. Þorsteinn Stefánsson útibússtjóri

Fjöldi þátttakenda var mikill og allir skemmtu sér vel.

ÁB-myndir Katrín J. Björgvinsdóttir

L.is í nýjum búningi

Aukakrónur Þú hefur gott yfirlit um Aukakrónuviðskipti þín, síðustu færslur, afsláttarkjör og staðsetningu fyrirtækja í Aukakrónuviðskiptum á gagnvirku korti.

Hagnýtar upplýsingar Þú getur lesið fréttir á Landsbankavefnum, fengið upplýsingar um gengi gjaldmiðla og markaði.

Útibú og hraðbankar Þú getur fundið fljótt og vel staðsetningu allra útibúa og hraðbanka Landsbankans á gagnvirku korti ásamt leiðbeiningum um stystu leiðina í næsta útibú.

Nú er enn auðveldara en áður að komast í Landsbankann þegar þú ert á ferðinni. L.is farsímavefurinn er kominn í nýjan og glæsilegan búning með breyttri uppsetningu og auðveldara aðgengi.

Landsbankinn

landsbankinn.is

410 4000

Gjafakort Landsbankans Þú getur flett upp inneign þinni á Gjafakorti Landsbankans með því að slá inn síðustu átta tölurnar í númeri kortsins.

Skannaðu QR kóðann til þess að fara á L.is


16

Árbæjarblaðið

Fréttir

110 Reykjavík:

Er þetta í lagi? Í Elliðaárdalnum er búið, á undanförnum árum, að laga göngu- og hjólastíga mikið. Það er búið að malbika og setja upp lýsingu svo nú eru þeir greiðfærir öllum og nánast allan ársins hring. Í vetur var færð slík um tíma að nauðsynlegt reyndist að bera sand og möl á götur og stíga í hverfinu en nú er búið að sópa allt og mjög snyrtilegt um að litast. Hverfið er vel skipulagt og merkingar góðar svo auðvelt er að rata. En ekki er allt sem sýnist. Hér eru margar götur svokallaðir botnlangar sem merkir að aðeins er hægt að aka inn í þær frá öðrum endanum. Hinn endinn er lokaður fyrir bílaumferð. Þetta fyrirkomulag losar viðkomandi götur við gegnumstreymi bíla sem ekkert erindi eiga í götuna. Botnlangarnir eru vel merktir í bílaendann en ekkert í hinn. Fólk sem kemur fótgangandi eða hjólandi að þeim endanum verður að fara að bílaendanum til að vita hvað gatan heitir. Hverfaráði var bent á þetta fyrir nokkrum árum en ekkert hefur gerst. Þó er þetta varla mikið mál né kostnaðarsamt að upplýsa fótgangendur og hjólreiðafólk um heiti götunnar. Einhvern veginn virðist það liggja í loftinu að úr þessu verði ekki bætt. Til þess sé enginn vilji. Bílamaðurinn er ríkjandi tegund í samfélaginu og allt snýst um þarfir hans. Þetta kemur fram í umræðunni um hátt eldsneytisverð og í umræðunni um bættar almenningssamgöngur. Einkabíllinn er okkar heilaga kýr. GÁs.

Þessar kátu tátur voru að koma af æfingu í blíðunni.

Við hinn endann, sem liggur að göngustígnum er hinsvegar ekki götuheiti en aðvörun til þeirra manna sem hafa atvinnu af að rupla samborgara sína.

Göturnar eru merktar vel og rækilega í annan endann.

ÁB-myndir Einar Ásgeirsson

Þessar tæplega fertugar á fleygiferð í dalnum.

Keppa bæði á Landsmóti

Nína María og Arnór Dan eru bæði Fáksfélagar og alinn upp í Árbænum. Nína María lauk 10. bekk í Árbæjarskóla á síðasta ári og Arnór Dan byrjar í 10. bekk í Árbæjarskóla þar næsta haust. Þau hafa bæði verið í Fáki frá unga aldri og tekið þátt í æskulýðsstarfi Fáks. Bæði kepptu þau á Landsmóti hestamanna í Skagafirði á síðasta ári með góðum árangri og lentu þau þar í B-úrslitum á hestum sínum Ófeigi og Þyt. Í ár hafa þau einnig tryggt sér þátttökurétt á Landsmót, en í þetta sinn mæta þau á nýjum, ungum og efnilegum hestum. Landsmótið í ár verður haldið í hér í Reykjavík í Víðidalnum. Það skemmtilega við það fyrir þau bæði er að mótið verður nánast haldið í bakgarðinum hjá þeim og í góðu göngufæri. Landsmót hestamanna 2012, sem er einn stærsti íþróttaviðburður ársins, verður haldin á félagssvæði hestamannafélagsins Fáks í Árbænum dagana 25. júní - 1 júlí.

Nína María Hauksdóttir, Reykjavíkurmeistari í slaktaumatölti ungmenna 2012 á Ófeigi frá Syðri-Ingveldarstöðum. ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir

Allar upplýsingar um Landsmót hestamanna er hægt að skoða á heimasíðunni þeirra www.landsmot.is

Arnór Dan Kristinsson, Reykjavíkurmeistari í fjórgangi unglinga 2012 á Þyt frá Oddgeirshólum. ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir

.

Tékkland

8.395

Aðalskoðun

9.460

Frumherji

8.900

Samanburður á verðskrá aðalskoðunar bifreiða undir 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd, skv. vefsíðum fyrirtækjanna 1. mars 2012

Borgartúni

Reykjavíkurvegi

Holtagörðum

Sími 414 9900

tekkland@tekkland.is

www.tekkland.is


17

Fréttir

Árbæjarblaðið

Foreldrar læra af börnum Síðasti þátttur fjögurra landa þróunarverkefnisins „sjálfbærni í skógartengdu útinámi“ í Ártúnsskóla fór fram í grenndarskógi skólans í gær þegar nemendur í 5 bekk buðu foreldrum sínum að kynna sér hvað þau höfðu lært í verkefninu í vetur. Krakkarnir stilltu sér upp og kynnti hver nemandi einn þátt. Verkefnunum var lýst, undirbúningi og vinnulagi í útináminu. Síðan mynduðu þau hópa með foreldrum sínum og fóru með þeim í gegnum fjórar námsstöðvar þar sem þau lærðu að kljúfa við og finna efni í smjörhníf á einni stöðinni, lærðu að snyrta tré og grisja á annarri, afberkja bol á þeirri næstu og síðan að tálga til spaghettigaffal til að taka með heim og nota. Þegar allir höfðu farið

í gegnum allar stöðvarnar var boðið upp á eldbakað greinabrauð. Börn og foreldrar komu ýmisst gangandi eða hjólandi í grenndarskóginn enda er hann í jaðri byggðarinnar í Ártúninu í Elliðaárdalnum. Þetta var sérlega ánægjulegur endir á skemmtilegu samstarfsverkefni, LÍSverkefnisins, skólans og Noregs, Lettlands og Litháen en þessi verkefni munu fara í sameiginlegan verkefnabanka um „sjálfbærni í skógartengdu útinámi“ sem aðgengilegt mun verða öðrum þjóðum í Evrópu og víðar í heiminum með alþjóðlegu samstarfi á sviði fræðslu um sjálfbærni og skógartengds útináms. Texti og myndir: Ól. Oddss.

Börnin voru áhugasöm þegar kom að því að kenna foreldrunum.

Þórudagurinn Ólafur Ólafsson, útibússtjóri Íslandsbanka í Gullinbrú.

Ýlfa Proppé Einarsdóttir, útibússtjóri Íslandsbanka í Hraunbæ.

Í janúar síðastliðnum sameinaðist Íslandsbanki við Byr, og samhliða því breyttist útibú Byrs í Árbæ í útibú Íslandsbanka. Þar með er Íslandsbanki með tvö öflug útibú á Árbæjar-, Grafaholts- og Grafarvogs svæðinu, því fyrir starfrækti bankinn útibú á Gullinbrú. Bankinn veitir fyrirtækjum jafnt sem einstaklingum alhliða bankaþjónustu og þau Ýlfa Proppé Einarsdóttir útibússtjóri í Hraunbæ og Ólafur Ólafsson útibússtjóri í Gullinbrú segja að viðtökurnar á svæðinu séu góðar meðal viðskiptavina. „Við finnum mikinn meðbyr meðal einstaklinga og fyrirtækja í okkar garð hér á Árbæjar- og Grafarvogssvæðinu“ segir Ólafur. Hann segir að fjölmargir hafi komið í viðskipti síðustu mánuði enda búi bæði útibú yfir langri sögu á þessu svæði og tefli fram mjög reynslumiklum starfsmönnum sem eru þrautreyndir í bankaþjónustu. Ýlfa segir jafnframt að það skipti miklu máli að hafa sama fólkið í framlínuþjónustu, það skapi traust meðal viðskiptavina og tryggi góða þjónustu. „Margir viðskiptavinir hafa verið lengi í viðskiptum við okkur og vilja geta gengið að sínum starfmönnum með sín mál“ bætir hún við. Bankaþjónusta fyrir einstaklinga jafnt sem fyrirtækja Ólafur og Ýlfa segja bæði að viðskiptavinir útibúanna séu sambland af einstaklingum og fyrirtækjum, enda eru afar stór iðnaðar og verslunarhverfi innan svæðisins. „Við höfum lagt okkur fram við að þjónusta fyrirtæki í útibúinu okkar á Gullinbrú enda erum við með marga þætti í okkar þjónustuframboði sem henta litlum og meðalstórum fyrirtækjum sérstaklega vel.“ Þau segja einnig ánægjulegt að bankinn hafi fengið hæstu einkunn hjá einstaklingum í Íslensku ánægjuvoginni í flokki banka og fjármálafyrirtækja fyrr á árinu. „Við viljum veita topp bankaþjónustu á öllum sviðum og það er gaman að fá staðfestingu á því að við erum á réttri leið“. Mikilvægur stuðningur við samfélagið Íslandsbanki er öflugur stuðningsaðili íþróttafélaga og samfélagsverkefna í Grafarvogi og Árbæ og vill þannig styðja við samfélagið á svæðinu. „Við höfum t.d. stutt dyggilega við Skákdeild Fjölnis, en þar eru mjög efnilegir skákmenn framtíðarinnar sem hafa náð frábærum árangri í skáklistinni“ segir Ólafur og segir bankann ennfremur hafa stutt við smiðju Dagþjónustunnar við Gylfaflöt ásamt Lions og

Kiwanis nýverið. Ýlfa bætir við að Íslandsbanki hafi styrkt Fylki í Árbæ myndarlega nýlega þegar samningar voru endurnýjaðir við félagið. „Við erum mjög stolt af því að styðja Fylki og flöggum t.d. fána félagsins hér fyrir framan útibúið og reynum að kíkja á leiki þegar við getum“ segir hún ennfremur. Þá minnast þau bæði á nýlegt verkefni innan bankans sem nefnist „Við bjóðum hjálparhönd“, en starfsmenn bankans geta nú fengið einn frídag á ári til að sinna samfélags- og góðgerðarmálum. „Þetta hefur fengið góðar undirtektir og við munum hvetja okkar starfsfólk til að bjóða fram hjálparhönd til samfélagsverkefna hér á svæðinu“ segja þau bæði.

,,Við bjóðum íbúa í Grafarvogi og Árbæ velkomna í viðskipti”

Sunnudaginn 24. júní 2012, kl. 15-17 styðjum við forsetaframbjóðandann Þóru Arnórsdóttur og bjóðum ykkur |OO YHONRPLQ t Y|IÀXNDI¿ t J|UèXQXP okkar að: Heiðarási 5 Helga og Jón Viðar Rafstöðvarvegi 29 Guðrún Barbara og Guðjón Þykkvabæ 14 Jón og Margrét Þykkvabæ 16 Guðrún og Ólafur

Við þökkum þeim Ýlfu og Ólafi fyrir spjallið, en það er ljóst að Íslandsbanki leggur mikið á sig til að bjóða góða bankaþjónustu til íbúa í Árbæ og Grafarvogi.

Nú er tækifærið til að læra rétta þjálfun og næringu

100 ddaga daga 29. 10 námskeið fyrir 13-16 11.-22. 1 aga námskeið n nám ámskeiðfyrir ffy yrrir13-16 y 1 13 3-1 16 6ára ára árra18. 11 11.--2 22 2 2. júní jjúní úní • Æfingar og fræðsla • 3 tímar á dag • Næringarfræðsla fyrir foreldra

Á námskeiðinu verður kennt mikilvægustu atriðin varðandi • hvernig á að velja rétta næringu • hvernig á að þjálfa rétt fyrir sinn aldur • hvernig þú getur hámarkað árangur þinn Hugmyndafræðin við námskeiðið er byggð á The Window of • Námskeiðið hentar öllum ungmennum 13-16 ára m sem æfa íþróttirr,, eru í undirþyngd, undir eru í yfirþyngd og þeim sem • Þeim vilja byrja að æfa.

Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is

Verð kr. 15.000 Þjálfarar á námskeiðinu eru Mark Kislich styrktarþjálfari meistaraflokks KR og Selfoss í knattspyrnu og Hilmar H. Gunnarsson íþróttakennari

Skvass » Spinning » Karfa » Golfhermir » Tækjasalur » Gufubað


18

Legsteinar og fylgihlutir

Fréttir

Árbæjarblaðið

Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og fría pökkun á legsteinum sem fara út á land Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð

MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is Hér er oft mikið fjör um helgar þegar karaoke er í gangi á föstudags- og lugardagskvöldum. Þá eru viðburðir í beinni á risaskjá og allar innréttingar mjög flottar.

Stuðið er á Rakang Thai

Rúnar Geirmundsson

Sigurður Rúnarsson

Elís Rúnarsson

Þorbergur Þórðarson

Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is

Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990

,,Við erum stöðugt að koma fram með nýjungar og það nýjasta hjá okkur er karaoke á kvöldin um helgar. Það hefur verið mjög góð mæting og mikið stuð,” segir Davíð Gunnarsson en hann á og rekur veitinga- og skemmtistðinn Rakang Thai að Lynghálsi 4 ásamt eiginkonu sinni Jönyu Khunthong. Einnig er Rakang Thai með vinsælan matsölustað í Langarima í Grafarvogi. Rakang Thai í Lynghálsi er í mjög rúmu húsnæði og þar er mikið stuð í karaoke á föstudags- og laugardagskvöldum. Alla daga er boðið upp á mjög góðan tælenskan mat. Við erum alltaf með heitan mat í hádeginu á virkum dögum á sérstöku tilboðsverði og er það mjög vinsælt meðal okkar viðskiptavina. Við erum með mjög góðan matseðil í hádeginu og flottan matseðil á kvöldin um helgar og það er mjög gott að gera. Nánar er hægt að fræðast um þetta á rthai.is ,” segir Davíð. Í Lynghálsi er Rakang Thai opið alla virka daga í sumar frá kl. 11 til 15 og föstudaga og laugardögum er opið frá kl. 18 og fram eftir kvöldi. Karaoke byrjar kl. 22 á föstudags- og laugardagskvöldum en á sunnudögum er lokað. ,,Við erum með mjög skemmtilegan og rúmgóðan sal í Lynghálsinum og það hefur verið vinsælt að leigja hann fyrir til dæmis afmælisveislur eða annað veisluhald,” segir Davíð. Í Langarima er Rakang Thai með snotran matsölustð. Staðurinn er mjög vinsæll en fólk getur hringt og pantað mat þar og sótt hann skömmu síðar og tekið með heim. Í Langarima er opið alla virka daga frá kl. 11 til 21 og frá kl. 17 til 21 um helgar. Sjá nánar á Rakangthai.is

Í Rakang Thai í Lynghálsi eru húsakynnin mjög björt og skemmtileg. Þar er allt fyrsta flokks og salurinn er tilvalin fyrir veislur og annað skemmtanahald.

Rakang Thai í Lynghálsi 4 er mjög huggulegur og notalegur staður.


19

Fimleikaskóli Fylkis 2012 Heiðarborg fær fyrir börn 5 - 12 ára Grænfánann Fréttir

Árbæjarblaðið

Þann 1. júní síðastliðinn fékk leikskólinn Heiðarborg Grænfánann við hátíðlega athöfn en þann dag var jafnframt afmæli leikskólans. Athöfnin hófst með því að Arndís Árnadóttir leikskólastjóri bauð alla velkomna og börnin sem sátu í brekkunni við leikskólann tóku nokkur lög. Sungið var lag Heiðarborgar og þrjú önnur lög við góðar undirtektir. Þá tók Orri Páll Jóhannsson frá Landvernd við og afhenti umhverfisnefnd Grænfánann. Börnin fengu svo að halda á fánanum að fánastönginni og hjálpuðu til við að draga fánann að húni. Foreldrar leikskólabarna komu með veitingar og börn og fullorðnir stöldruðu við, léku og spjölluðu saman í fallegu veðri.

Fimleikadeild Fylkis mun í sumar bjóða upp á fimleikanámskeið fyrir börn frá 5 ára (2007) tIl 12 ára (2000). Námskeiðin fara fram í nýrri og glæsilegri aðstöðu fimleikadeildar Fylkis í Fylkisseli Norðlingaholti. Um er að ræða vikunámskeið þar sem hægt er að vera annað hvort hálfan daginn frá 9.00 - 12.30 eða allan daginn frá 9.00 – 16.00. Námskeið 1 ( 11. júní – 15. Júní ) Námskeið 2 ( 18. Júní – 22. Júní ) Námskeið 3 ( 25. Júní – 29. Júní ) Námskeið 4 ( 2. Júlí – 6. Júlí ) Námskeið 5 ( 9. Júlí – 13. Júlí ) Námskeið 6 ( 16. júlí – 20. Júlí ) hopp og skopp kennt á trampolín fyrir hádegi og parkoru eftir hádegi. Námskeið 7 ( 7. Ágúst – 10. Ágúst ) Námskeið 8 ( 13. Ágúst – 17. Ágúst ) Á námskeiðunum er farið í grunnatriði fimleikaþjálfunar og lagt mikið upp úr því að allir fái verkefni við hæfi. Einnig er lögð mikil áhersla á að gera starfið skemmtilegt og áhugavert fyrir þátttakendur. Starfið verður svo brotið upp með því að fara í skemmtilega leiki og styttri gönguferðir. Kennarar í fimleikaskólanum eru fimleikaþjálfarar hjá fimleikadeild Fylkis. Lögð er mikil áhersla á að þátttakendur beri virðingu fyrir eigum félagsins, kennurum og hvert öðru. Öllum á að líða vel og tekið verður hart á öllum eineltismálum sem og því ef ekki er farið eftir því sem lagt er upp með. Þátttakendur á námskeiðunum mæta með sitt eigið nesti í nestis- og matartímum. Brýnt er fyrir foreldrum að senda börnin með holt og gott nesti. Skráning á námskeiðið hófst 14. maí 2012 og eru veittir afslættir af þátttökugjaldi sé um systkini að ræða eða ef farið er á fleiri en eitt námskeið. Verð Heilsdagsnámskeið kostar 10.000 krónur Hálfsdagsnámskeið kostar 5.000 krónur Veittur er 10% systkinaafsláttur. Afsláttur 10% ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Skráning Skráning hófst 14. maí á heimasíðu félagsins og í Fylkishöll 571-5601

Börnin á Heiðarborg tóku lagið.

Börnin á Heiðarborg héldu á Grænfánnum að fánastönginni.

Þjónusta í þínu hverfi Þjónustuauglýsingar í Árbæjarblaðinu eru ódýrar og skila árangri

587-9500

Látið garðyrkjumenn okkar nostra við garðinn þinn

NÝTT- Tréperlur Mikið úrval af skartgripaefni. Leðurólar og segullásar. Erum á Facebook

www.glit.is

Löggiltur rafvertktaki Sími 699-7756

VALUR H ELGASON

ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 ^^^ Z[PÅH PZ


20

Fréttir

Árbæjarblaðið

ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Áratuga reynsla

Hermann Jónasson

Íslenskar og vistvænar líkkistur Sverrir Einarsson

Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 Allan sólarhringinn

Gamla myndin - Hverjir eru þetta?

Kristín Ingólfsdóttir

Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar

ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR

Þetta er mynd af kempum í árdaga Árbæjarhverfis sem iðkuðu fimleika í Árbæjarskóla á vegum fimleikadeildar Fylkis en tímanum var varið að mestu í fótbolta og sparkaði þá hver í annan, en lítið fór fyrir sambabolta. Við þekkjum alla nema þann sem er fyrir miðju í fremri röð, en hann mun hafa verið þjálfarinn.

Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er

Öll blöðin eru á skrautas.is Enn og aftur viljum við minna lesendur okkar á að það er hægt að nálgast öll tölublöð Árbæjarblaðsins á netinu.

Bílamálun & Réttingar

Breidd 9,9 cm - Hæð 3,0 cm

Bæjarflöt 10 - Sími: 567-8686

Slóðin er www.skrautas.is og þá kemur upp síða þar sem hægt er að lesa öll blöðin undanfarin ár og að auki Grafarvogsblaðið en sömu útgefendur eru að blöðunum. Rétt er að vekja athygli auglýsenda á þessu einnig en töluvert er um að fólk fari inn á skrautas.is og fletti blöðunum okkar þar.

Prófuð og sönnuð vörn gegn hártapi. Kemur í veg fyrir að hárið brotni of snemma. Kraftmesta blanda frá Redken af virkum efnum.

B

Markvissar lausnir fyrir allar gerðir fíngerðs og hárs sem er að þynnast.

Komdu og fáðu upplýsingar um meðferð.

Foldatorginu Hverafold 1-3

Opið Mán-fös 9-18

Tímapantanir í síma

5676330


Heilsulindir í Reykjavík

gildir fr á 1. j ún í

Nýrafgreiðslutími lauganna ÁRBÆJARLAUG

LAUGARDALSLAUG

Mánud. – fimmtud.

6:30 – 22:00

Mánud. - föstud.

6:30 – 22:00

Virka daga

17:00 – 21:00

Föstudaga

6:30 – 20:00

Helgar

8:00 – 22:00

Þriðjudaga

17:00 – 22:00

Helgar

9:00 – 18:00

Helgar

11:00 – 15:00

KLÉBERGSLAUG

SUNDHÖLLIN

BREIÐHOLTSLAUG Mánud. – fimmtud.

6:30 – 22:00

Mánud. - fimmtud.

6:30 – 22:00

Föstudaga

6:30 – 20:00

Föstudaga

6:30 – 20:00

Helgar

9:00 – 18:00

Laugardaga

8:00 – 16:00

Sunnudaga

10:00 – 18:00

F y r ir lí k a m a o g sá l

VESTURBÆJARLAUG

GRAFARVOGSLAUG Mánud. - fimmtud.

6:30 – 22:00

Mánud. - fimmtud.

6:30 – 22:00

Föstudaga

6:30 – 20:00

Föstudaga

6:30 – 20:00

Helgar

9:00 – 18:00

Helgar

9:00 – 18:00

www.itr.is

ı

sími 411 11 5000


22

Árbæjarblaðið

Fréttir

Elliðaárdalurinn - Náttúruperlan okkar

Það eru mikil forréttindi að búa nálægt Elliðaárdalnum. Árbæingar eru lánsamir hvernig til hefur tekist með Elliðaárdalinn. Hann er ekki bara mikil náttúru- og útivista perla Árbæinga heldur er hann einn fjölmennasti útivistastaður Reykvíkinga. Þess vegna þurfum við að hafa það hugfast að gæta hans og vernda fyrir ýmsum ágangi sem að honum steðjar. Rotary klúbburinn Reykjarvík Árbær hefur beitt sér fyrir samfélagsverkefnum í nærumhverfi sínu og fleiri gera það sama. OR hefur sýnt Dalnum mikla ræktarsemi og sama er að segja um SVFR. Ástæðan er einföld þetta er einstaklega fjölbreyttur dalur í útjaðri borgarinnar sem sogar til sín fólk, unga sem aldna. Náttúruperla fyrir dýralíf sem er

aðallega fuglar og fiskar, gróður sem eru tré, runnar og smáblóm og jarðfræði en í Dalnum finnast dæmi algengra jarðmyndana. Til dæmis eru Elliðadalsjarðlögin við ósa Elliðaár lýsaandi fyrir gróður og sjávarlíf fyrir mörg hundruð árum. Dalurinn er útivista perla og þar fer saman ganga, skokk, hlaup og hjólreiðar. Íþróttir s.s. fótbolti, sund og hestaíþróttir áramt veiðum, útreiðum og viðrun hunda. Allir kannast við orðatiltækið síðasti bærinn í dalnum en þetta er síðasti dalurinn í borginni og okkur ber að vernda hann og taka í fóstur. Eins og getið var áður hreinsar Rotary klúbburinn nærumhverfi sitt nálægt kirkjunni og að ánni. Hann hefur einnig hreinsað hólmann að vori ásamt að vera aðili að vatnspósti og áningastað neðan við Árbæjarkirkju og fleira mætti nefna.

Reykjavík keypti Elliðaárnar 1906 til að raflýsa og svala Reykvíkingum en árnar voru eitt sinn drykkjarból Reykjavíkur. Rafmagnsveitur Reykjavíkur höfðu veg og vanda að skógrælt í Dalnum sem hófst að alvöru 1950. Búið er að koma fyrir stígum og brautum fyrir gangandi og hjólandi og suma upplýsta og þar er útivistaaðstaða fyrir hópa auk margra upplýsingaskilta.

Rótarýklúbburinn Reykjavík Árbær við hreinsunarstörf neðan Árbæjarkirkju.

Góðar framkvæmdir eru í senn sjálfbærar og endurkræfar. Elliðaársvirkjun var þörf framkvæmd síns tíma en hennar er ekki þörf lengur. Engum dettur í hug að fjarlægja stífluna sem myndar Elliðavatn en neðri stíflan orkar tvímælis og gefur færi á að færa Dalinn í fyrri mynd. Njótum Elliðaársdalsins og þá mun okkur þykja vænt um hann. Magnús Magnússon Árbæingur

Rótarýklúbburinn við drykkjarfontinn fullgerðann.

AD Astra fyrir bráðger börn:

Hvar verður barnið þitt í sumar? Ad Astra er lítið fyrirtæki sem hefur áhuga á að efla menntun á Íslandi. Fyrirtækið leggur sig fram um að koma til móts við bráðger og námsfús börn. Frá árinu 2007 hafa verið haldin námskeið fyrir þessi börn en þá á vorin og haustin. Núna er AD Astra að fara af stað með nýtt og spennandi verkefni, sumarnámskeið fyrir

bráðger og námsfús börn á aldrinum 9-13 ára. Á þessum námskeiðum verða sett saman skemmtileg og fræðandi vikur fyrir börn. ,,Við verðum með fjölbreytt úrval námskeiða í boði og blöndum svo tómstund, hópefli, hreyfingu og skemmtun við og reynum þannig að skapa þessum börnum ógleymanlega sumarminningu. Dæmi um námskeið

sem verða í boði eru þýska, tölvuleikjagerð, kvikmyndagerð, ljósmyndun, framkoma, stærðfræði, tækni-Lego og fleira,” segja aðstandendur AD Astra. ,,Við teljum að bráðger börn séu hópur sem vil gleymast í skólakerfinu og finnst okkur mikilvægt að reyna að koma til móts við þau. Að vera bráðger eða á undan sam-

Við bjóðum vaxtagreiðsluþak yfir höfuðið Vaxtabreytingar geta valdið sveiflum í greiðslubyrði óverðtryggðra húsnæðislána. Vaxtagreiðsluþak Íslandsbanka veitir skjól ef vextir hækka. Þá jafnast greiðslubyrðin en það sem fer upp fyrir þakið bætist við höfuðstól og dreifist á lánstímann.

nemendum sínum er misþroski sem getur haft í för með sér ýmsa fylgikvilla. Bráðger börn geta þjást af miklum kvíða, haft lélegt sjálfsmat og svo er líka algengt að þessum börnum leiðist í skólanum sem getur haft mjög neikvæð áhrif á ímynd barnsins. Barn sem leiðist í skóla getur annaðhvort dregið sig í hlé og orðið skuggi á vegg eða farið að

ónáða og láta illa í kennslustundum. Með þessum námskeiðum sem við ætlum að bjóða í sumar erum við að koma til móts við þennan nemendahóp og það sem skipir líka máli, vekja fólk til umhugsunar á þessu týnda málefni.” Sjá meira á http://adastra.is/ og http://www.facebook.com/AdAstraehf

þj N ón ý us ta Íslandsbanki h hvetur vetur alla til að k kynna ynna ssér ér nánar skilmála v vaxtagreiðsluþaksins axtagreiðsluþaksins og u og taka taka þær teg tegundir undir lána ssem em í boði er eru ákvörðun ák vörðun að v vandlega andlega ath athuguðu uguðu máli. Kostir K ostir v vaxtagreiðsluþaks axtagreiðsluþaks · Dr Dregur egur úr ó óvissu vissu og v veitir eitir öryggi öryggi · Láns Lánstími tími lengis lengistt ekki · Óv ver erðtryggð lán geta geta hraðað eignam my yndun Óverðtryggð eignamyndun

Ókostir vaxtagreiðsluþaks vaxtagreiðsluþaks Ókostir axtagreiðslunnar er frestað frestað Hluta v · Hluta vaxtagreiðslunnar · Höf uðstóll hækkar hækkar ef v extir lánsins eru eru umfram umfram Höfuðstóll vextir v axtagreiðsluþakið vaxtagreiðsluþakið · Hær ri höf uðstóll hækk ar heildar vaxtakostnað lánsins Hærri höfuðstóll hækkar heildarvaxtakostnað

Allar uppl ýsingar er að finna á w ww.islandsbanki.is upplýsingar www.islandsbanki.is

Við b bjóðum jóðum góða þjónustu g óða þ þjón jónustu islandsbanki.is | Sími 440 4000

ENNEMM / SÍA / NM52730

· Léttir gr greiðslubyrði eiðslubyrði ef vextir vextir hækka hækka


Signý Kolbeinsdóttir hönnuður

UMHVERFISVOT TUÐ PRENTSMIÐJA

1.200 umhverfisvottuð kort í sátt við náttúruna

Oddi ffy yrir þig, þegar hentar, eins og þér hentar.

Oddi – umhver fisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reyk kjavík, sími 515 5000, w w w.oddi.is

Prentun Prentun frá frá A ttil il Ö


Það styttist í ævintýrið!

Landsmót hestamanna Reykjavík 2012 25.06 – 01.07 Ógleymanleg skemmtun. Bestu gæðingar landsins etja kappi og helstu kynbótastjörnur landsins koma fram. Troðfull dagskrá með landsþekktum skemmtikröftum, kvöldvökum og fjölskyldustemningu. Á keppnissvæðinu er glæsilegur barnagarður.

SM

ÓT

H E S TA

M

A

N

A

L

IC

EL

N AT I O

AND

A

LA

N

N

N

D

Miðasala á www.landsmot.is

H

OR

SE SHOW

O

F


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook