Árbæjarblaðið 4. tbl. 10. árg. 2012 apríl
Fréttablað íbúa í Árbæ og Norðlingaholti
Svanlaug mætt á sinn stað
Ódýrar og góðar snyrtivörur
Grafarholtsblaðið
Álftin Svanlaug er búin að koma sér vel fyrir í hólmanum við Elliðaárstífluna og unir hag sínum vel, stolt og ánægð mð sig. # ÁB mynd Björn Ingvarsson
ÚPPS!
Tími til að smyrja og yfirfara bílinn!
Komdu til okkar að Tangarhöfða 8. Viðurkennd þjónusta fyrir allar tegundir bíla!
Bæjarflöt 10 - Sími 567-8686 www.kar.is
Alltmilli
himins og jarðar =PS[\ NLMH& LRRP OLUKH
Tjónaskoðun - hringdu og við mætum
Bílamálun & réttingar
Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 115 – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 arbapotek@internet.is Arbaejarapotek.is
Álftin er búin að gera sér hreiður og liggur stolt á eggjum sínum í hólmanum ofan við Elliðaárstífluna. Ekki er vitað til að álftin beri sérstakt nafn en við og Björn Ingvarsson, áhugaljósmyndari sem tók myndina, leggjum til að hún verði nefnd Svanlaug. Áratuga löng hefð er fyrir varpi álfta á þessum stað og margir íbúar í Árbæjarhverfi og útivistarfólk í Elliðaárdalnum veita álftahjónunum og ungum þeirra reglulega athygli. Í fyrra kom parið upp fjórum ungum en einn þeirra lifði ekki af sumarið. Við munum fylgjast með gangi mála hjá Svanlaugu og Svani í sumar.
Grafarholtsblaðið, fréttablað Grafarholts og Úlfarsárdals, kemur nú út í annað skipti og fylgir blaðið Árbæjarblaðinu. Sjá bls. 9 til 12
BLS.17 3 BLS.
Sérfræðingar í bílum
:¤RQ\T LM }ZRHó LY M [ I¤R\Y O ZN NU LóH HUUHó ZLT ô NL[\Y Ztó HM
590 2000 :[HUNHYO`S\Y ¶ 9L`RQH]xR 6WPó HSSH ]PYRH KHNH RS ¶ ZxTHY!
Þjónustan á aðeins við Stór Reykjavíkurvæðið
Opið p
lá l ní xtalausrá Vissa a v r é þ Nýttu 12 mánuði f fáðu allt að stercard eða látt. eða Mataðgreiððsluafs 10% s
virka i k da daga d ga 8 – 17 laugardaga laugarda ga 9 – 13
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Höfðabakki 3 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingastjóri: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir. solveig@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 og 113 (660 fyrirtæki).
Hvar verður leikið? Það styttist í knattspyrnuvertíðina en margir bíða óvenju spenntir eftir tímabilinu að þessu sinni enda er lið Fylkis líklegt til góðra verka í sumar. Enn eru stúkumálin ekki komin á hreint en þó hefur Knattspyrnusamband Íslands sent Fylkismönnum lista yfir þau skilyrði sem félagið þarf að uppfylla ef Fylkir á að fá leyfi til að leika heimaleiki sína í Árbænum í sumar. Það verður að teljast líklegt að Fylkismönnum takist að uppfylla skilyrði KSÍ en þó er það alls ekki víst. Enn eru blikur á lofti og það þarf að vinna hratt í málinu ef leikheimild á Fylkisvöll á að fá grænt ljós hjá KSÍ. Vonandi leysist þetta mál á farsælan hátt hjá Fylki og það sem allra fyrst. Óvissan er ekki góð og það þurfa að nást fram úrslit í þessu máli sem allra fyrst. Á dögunum voru stofnuð Hollvinasamtök Elliðaárdals í húsi Orkuveitunnar í dalnum. Mjög góð mæting var á fundinn sem sýnir að fjölda fólks er síður en svo sama um þá útivistarparadís sem Elliðaárdalurinn er og hefur verið. Mörgu er ábótavant í dalnum og víða hægt að taka til hendinni. Um dalinn rennur gjöful laxveiðiá sem er afar viðkvæm svo ekki sé meira sagt. Á löngu tímabili gengu menn mjög illa um Elliðaárnar og munaði ekki miklu að gert væri útaf við fiskistofna hennar. Laxveiði hrundi í ánum en í kjölfar afar nauðsynlegra aðgerða hefur veiði tekið við sér á ný og er það vel. Er nú svo komið að eftirspurn eftir laxveiðileyfum er hvergi meiri en í Elliðaánum og slagurinn um leyfin nánast verið til vandræða fyrir Stangaveiðifélg Reykjavíkur. Hefur Stangaveiðifélagið orðið að grípa til þess ráðs að breyta úthlurunarreglum sínum varðndi árnar. Fyrir laxveiðisumarið 2013 fara nöfn allra veiðimanna í pott og umsóknir óþarfar. Síðan verður dregið úr pottinum líkt og gert er þegar hreindýrin okkar eru annars vegar. Talandi um SVFR þá flutti félagið nýlega starfsemi sína í hús Orkuveitunnar í næsta nágrenni gamla Orkustöðvarhússins og má segja að félagið, sem stofnað var á bökkum Elliðaánna sé nú komið heim eftir langa fjarveru frá ánum.
Hátt í hundrað manns mættu á stofnfund Hollvinasamtaka Elliðaárdalsins.
Fjölmenni á stofnun Hollvinasamtaka Elliðaárdals
Fimmtudagskvöldið 12. apríl sl. voru formlega stofnuð Hollvinasamtök Elliðaárdalsins að viðstöddum hátt í 90 manns. Fundurinn var haldinn á viðeigandi stað, þ.e. í félagsheimili OR í Elliðaárdal. Stemmningin á fundinum var mjög góð og samstaðan um mestu náttúruperlu Reykvíkinga var áþreifanleg. Aðdragandi þessa stofnfundar var sá að á haustdögum efndu hverfisráð Breiðholts og hverfisráð Árbæjar til fjölmenns fundar um málefni dalsins. Niðurstaða þess fundar var að þörf væri á að stofna til félags um Elliðaárdalinn. Fundurinn hófst á afar skemmtilegu erindi Stefáns Pálssonar sem fór um víðan völl í söguágripi um dalinn. „Allt frá ósum til Elliðavatns“. Næstur í röðinni var svo Björn Axelsson frá skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar og
StefánKristjánsson,ritstjóriÁrbæjarblaðsins
abl@skrautas.is Spáð í spilin á stofnfundinum.
Árbæingur sem rakti fyrir fundarmönnum drög að framtíðar skipulagi eins og það lítur út í dag. Að erindum loknum var svo hafist handa við að fara yfir og breyta drögum að lögum fyrir félagið sem, að lokinni yfirferð Láru S. Baldursdóttur, verkefnisstjóra hverfisverkefna í Breiðholti voru samþykkt og félagið var formlega stofnað með dynjandi lófaklappi. Formaður hverfisráðs Breiðholts, Lárus R. Haraldsson og formaður hverfisráðs Árbæjar, Þorleifur Gunnlaugsson stigu að því loknu í pontu, óskuðu viðstöddum til hamingju og færðu hinu nýstofnaða félagi 50.000.- króna styrk frá hvoru hverfisráði fyrir sig, samtals 100.000.- krónur til að ýta félaginu úr vör. Einnig færðu þeir fundarmönnum þær fréttir að lénið www.ellidaardalur.is hefði verið tekið frá
fyrir félagið. Síðasta verk fundarmanna var að kjósa fyrstu stjórn Hollvinasamtaka Elliðaárdalsins en hana skipa: Alda M. Magnúsdóttir, Anna Sif Jónsdóttir, Guðbrandur Benediktsson, Guðrún Ágústdóttir, Guðrún Theódórsdóttir, Halldór Páll Gíslason og Stefán Pálsson. Varamenn eru: Erla Þórðardóttir og Kristján Hreinsson. Skoðunarmenn reikninga eru: Vilhjálmur Þ. Kjartansson og Konráð Þórisson. Félagsgjald Hollvinasamtaka Elliðaárdals verður 1.000.- á ári. Heillaóskir bárust svo í lok fundar frá systursamtökunum „Líf í Fossvogsdal“. Röggsamur fundarstjóri fundarins, Guðný Gerður Gunnarsdóttir, borgarminjavörður sleit svo fundi rétt upp úr kl. 22. Stjórn mun nú skipta með sér verkum og fyrsti fundur stjórnar mun verða boðaður á allra næstu dögum.
ALLAR PIZZUR Á MATSEÐLI Á 1.490 KR. EF ÞÚ SÆKIR
SUMARGLEÐI
FÖÐURLANDIÐ AUGLÝSINGASTOFA
BÆJARLIND p HRAUNBÆ p GRENSÁSVEGI p MOSFELLSBÆR
4
Matur
Árbæjarblaðið
Flatbrauð, hörpuskel og skyr/ostakaka - að hætti Gyðu og Jóns Hjónin Gyða Kristmannsdóttir og Jón Ríkharð Kristjánsson, Þingvaði 17, eru matgoggar okkar að þessu sinni. Vkð skorum á lesendur okkar að prófa girnilegar uppskriftir þeirra.
Sjóðið eggin í 8 mínútur og sneiðið. Hrærið majones, sýrðan rjóma saman við smá hunang og dill. Leggið fyrst eggin á brauðteningana, þá reyktan lax og loks slettu af sósu ofan á.
Forréttur: Heimabakað flatbrauð með reyktum laxi og eggi Innihald 50 gr. hveiti. 150 gr. heilhveiti. 1 msk. smjör/Olifu olía. 125 ml. vatn volgt. 1 tsk. salt. 1 bréf reyktur lax. 2-3 egg. 1 msk. majones. 1 msk. sýrður rjómi. Smá hunang og dill eftir smekk.
Tricolore spagetti með hörpuskel eða risarækjum Þessi pastaréttur er í miklu uppáhaldi og er fljótlegur góður og tilkomumikill. Ef þið hafið innihaldið tilbúið fyrirfram er þessi réttur nákvæmlega 14 mínútur í eldun. Þetta er svo borið fram með góðu salati og brauði.
Setjið hveiti, heilhveiti, smjör/olíu, salt og vatn í stóra skál. Hnoðið saman með höndunum (má nota hrærivél). Látið standa í 15-20 mínútur. Fletjið út í þunna flekki og steikið á heitri pönnu (ca 1 mínútu á hlið). Skerið flatbrauðið í fallega teninga og setjð álegg á.
Innihald 2 msk. Smjör. 2 msk. Ólífuolía. 2 msk. Kraminn hvítlaukur. 1 tsk. Þurkað basil. 1 1/2 tsk. Steytt fennel fræ. 500 gr. hörpuskel, skorin í tvennt ef hún er stór. 450 gr. gott spagetti helst ,,tricolore” eða þrílitt. 2/3 bolli nýrifinn parmesan ostur. 2/3 bolli hvítvín. 2 sítrónur.
Matgæðingarnir Gyða Kristmannsdóttir og Jón Ríkharð Kristjánsson. 2 msk. truffluolía. 3-4 msk. ferskt basil, rifið. Salt og pipar. Byrjið á að koma upp suðu á miklu vatni og elda spagetti samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Bræðið smjörið með olíunni yfir miðlungshita. Setjið hvítlauk, basil og fennel útí og steikið í 1 mín. hvítlaukurinn á ekki að dökkna. Bætið skelfiskinum og eða risarækjum saman við og steikið í 2-4 mín eftir stærð. Hellið hvítvíninu yfir og sjóðið í 1 mín. Hellið vatninu af pastanu og dreifið trufflu olíunni yfir. Hellið innihaldi pönnunnar yfir það líka ásamt parmesan ostinum
ÁB-mynd PS
Arna Hrönn og Konráð næstu matgæðingar Gyða Kristmannsdóttir og Jón Ríkharð Kristjánsson, Þingvaði 17, skora á Örnu Hrönn Aradóttur og Konráð Gylfason, Búðavaði 13, að koma með uppskriftir í næsta blað. Við birtum gómsætar uppskriftir þeirra í næsta Árbæjarblaði í maí. og blandið vel. Saltið og piprið eftir smekk.
Hádegismatur Alla virka daga frá kl. 11-14
Sjá nánar á Rthai.is Rthai.is - S: 578-7274 - Lynghálsi 4
Sett á stórt fat og rifnu basil stráð yfir. Sítrónurnar skornar í tvennt og komið fyrir á fatinu innan um spagettíið. Berið fram extra parmesan með svo hver og einn geti bætt út hjá sér. Eftirréttur Skyr/osta kaka Innihald 1 pk. LU kanil kex. Má bæta við 1-2 lúkum af muldu Nóa kropp ef menn vilja meiri sætindi. 100 gr. smjör/smjörlíki. 3 msk. af bláberjahlaupi eða sultu. 1 peli Milda rjómalíki. 200 gr. rjómaostur. 1 dós KEA Vanillu skyr. Fersk bláber. 2-3 msk. flórsykur. 1 tsk. vanillusykur. Botn Myljið kexið smátt (og Nóa kropp) . Bræðið smjörið og blandið saman við kex mulning. Setjið í botninn á nokkuð stóru fatið og þrístið aðeins niður. Á að vera ca 0,5-1 cm þykkt. Setjið inn í ísskáp meðan fylling er búin til. Fylling Þeytið rjómalíki, mýkið rjómaost (hita aðeins) og blandið hvoru tveggja saman við skyrið ásamt flórsykri og vanillusykri. Hrærið með sleif þar til þetta er vel blandað saman. Takið fatið með botninum úr ísskápnum og smyrið bláberjahlaupinu ofan á harðnað kexið . Hellið rjómalíki/skyr/osta blöndunni yfir. Notið hníf til að annað til að gera yfirborð blöndunnar alveg slétt. Setjið í kæli í ca 30 mínútur. Dreifa bláberjum fallega yfir áður en kakan er borin fram. Verði ykkur að góðu, Gyða og Jón
<VgÂVijccV d\ \VgÂVed`^ <{bVÄ_ cjhiVc ][ WÅÂjg \VgÂZ^\ZcYjb { ] [jÂWdg\Vghk¨Â^cj Ä_ cjhij k^ h [cjc \VgÂV g\Vc\h bZ ikZ^bjg b^hbjcVcY^ aZ^Âjb! <VgÂVijccj d\ <VgÂVed`V#
<VgYVijccVc#^h
<VgYVed`^cc#^h
6aaVg c{cVg^ jeeaÅh^c\Vg {
\VgYVijccVc#^h! \VgYVed`^cc#^h
<VgYVijccVc#^h
d\ h bV <VgÂV g\Vc\jg <VgÂVed`^cc#^h
*(* '*&%
Ã_ cjhiV [ng^g \g¨cV [^c\jg Ï ed`Vcc b{ Z^c\ c\j [VgV \VgÂV g\Vc\jg ;naa^ i WZ^Âc^ { lll#\VgYVed`^cc#^h ZÂV ]g^c\^ h bV *(* '*'% d\ ed`^cc kZgÂjg h iijg# Ã_ cjhiVc \^aY^g { ] [jÂWdg\Vghk¨Â^cj#
'&#,-) bV\\^5&'d\(#^h$%)#&'
<VgÂVijccVc Zg ')% a igV ijccV hZb Ä eVciVg {
<VgÂVed`^cc Zg [ng^g \VgÂV g\Vc\# ÃZ^g Zgj hZaY^g * hi`#
\VgYVijccVc#^h! [naa^g i WZ^Âc^ d\ ijccVc kZgÂjg hZcY i^a Ä c# eV``V d\ Zgj ]^gÂ^c\ d\ b ii `j\_ aY ed`VccV ^cc^[Va^c kZgÂ^# à eVciVg ed`VcV { \VgYVed`^cc#^h! d\ [¨g Ä{ hZcYV ]Z^b# = c Zg adhj { ikZ\\_V k^`cV [gZhi^ [g{ Veg a i^a d`i WZg#
Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2500 • soludeild@gamar.is • www.gamar.is
6
Fréttir
Tökum að okkur skeytingar við öll tækifæri
Árbæjarblaðið
Fjöldi fólks tók þátt í páskaeggjaleitinni og börnin kepptu í húllahopp. Júlíus Vífill stjórnaði svo öllu saman.
Páskaeggjaleit
Brúðavendi, skírnarskreytingar og útfaraskreytingar
Árleg páskaeggjaleit fór fram við gömlu rafstöðina í Elliðaárdal laugardaginn 7. apríl eða laugardaginn fyrir páska. Þetta er árlegur viðburður Sjálfstæðisfélaganna í Árbæ og Breiðholti. Júlíus Vífill Ingarsson borgarfulltrúi startaði leitinni sem fór þannig fram að börn, pabbar og mömmur og afar og ömmur leituðu að fagurlega skreyttum hænueggjum sem höfðu verið falin og þegar þeim er skilað fá þau páskaegg í staðinn. Mikill fjöldi tók þátt leitinni en að henni lokinni fór fram húllahoppkeppni sem vakti mikla lukku meðal barnanna.
Árbæjarblóm Ykkar búð í yfir 20 ár Árbæjarblóm - Hraunbæ 102e - Sími 567-3111
b bfo.is fo.is 7 7^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][ ^[gZ^ÂVkZg`hi¨Â^ ;g^Âg^`h ÓaV[hhdcVg Z][
W[d5W[d#^h W[d5W[d#^h
BG
BG
S VO
SV
T T UÐ ÞJ Ó N US
TA
OT TUÐ ÞJÓNUS
TA
Stúkan séð frá vestri
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN (GRÆN GATA) GA AT TA) · 200 KÓPAVOGI KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
Skilyrði KSÍ fyrir heimaleikjum Fylkis á Fylkisvelli í sumar:
270 sæti og áætlun samþykkt fyrir 15. júlí ,,Nú höfum við fengið það á hreint hjá KSÍ hvað við þurfum að gera til að bjarga heimaleikjunum í Árbæinn í sumar. Vonandi verður af því en það er alls ekki öruggt,” segir Björn Gíslason formaður Fylkis í samtali við Árbæjarblaðið. KSÍ hefur sent Fylki bréf þar sem félaginu er heimilað að leika heimaleiki
Gleðilegt l ðilegt ár ár... r... .. ... Velkomin
...ÞÖKKUM LIÐIÐ
ANDLITSDEKUR AUGNMEÐFERÐ
HANDSNYRTING GELNEGLUR
FÓTSNYR RTING GEL Á TÆR TÆR
TATTOO AUGU/VVARIR/BRÚNIR
GÖTUN BRÚNKA
SPRAUTTA Í HRUKKUR VARASTTÆKKUN MEÐ COLLAGEN
sína á Fylkisvelli að uppfylltum skilyrðum. Bréfið frá KSÍ fer hér á eftir: ,,Á fundi stjórnar KSÍ þann 8. mars sl. var samþykkt að heimila Fylkisvöll sem leikvang í Pepsi-deild karla keppnistímabilið 2012 að því gefnu að tilteknum skilyrðum verði fullnægt. Fylkir fær heimild til að leika á Fylkisvelli keppnistímabilið 2012 verði eftirfarandi skilyrðum fullnægt innan gefinna tímamarka: 1) sett verði upp a.m.k. 270 aðskilin sæti í núverandi áhorfendastæðum fyrir fyrsta heimaleik þann 6. maí 2012. Heildarfjöldi sæta á vellinum verði því að lágmarki 830 í upphafi tímabils 2012. 2) fyrir keppnistímabilið 2013 verði skilyrðum um sætafjölda skv. mannvirkjaákvæðum leyfiskerfis KSÍ fullnægt. 3) fyrir liggi samþykkt áætlun um framkvæmdir á áhorfendaaðstöðu þannig að skilyrðum mannvirkjareglugerðar KSÍ verði fullnægt sem fyrst. Áætlun liggi fyrir í síðasta lagi 15. júlí 2012. Verði skilyrði 1) ekki fullnægt innan tilskilinna tímamarka verður leyfi ekki gefið út á Fylkisvöll fyrir keppnistímabilið 2012.
málið var til meðferðar í ráðinu. Bókun Hverfisráðs Árbæjar sl. mánudag var svohljóðandi. ,,Hverfisráð Árbæjar skorar á borgarráð að sjá til þess að bætt verði áhorfendaaðstaða við aðal knattspyrnuvöll Fylkis og gerðar aðrar þær ráðstafanir í samstarfi við félagið og KSÍ að tryggt verði að Fylkir spili heimaleiki sína í Árbænum.” Bókunin var eins og áður sagði samþykkt samhljóða. Björn Gíslason segir skilyrðin vissulega ströng og mikil vinna sé framundan við að uppfylla þau. Við vonum það besta en það er alls ekki gefið að Fylkir spili heimaleiki sína á Fylkisvelli í sumar.” segir Björn.
Bókun í Hverfisráði TRIM FORM SLIM IN HARMONY
THALASSO
HLJÓÐBYLGJUR ÖFLUG ANDLIT/HRUKKUMEÐFERÐ CELLULITE/SOGÆÐA FYRIR LÍKAMA
IPL HÁREYÐING ÆÐASLIT BÓLUMEÐF.
Greifynjan f snyrtistofa f HRAUNBÆ 102 - SÍMI 587 9310/862 62 3310 - OPIÐ 08-20 08 20 - GREIFYNJAN.IS GREIFYNJAN IS - GREIFYNJAN G @GREIFYNJAN.IS
Á fundi Hverfisráðs Árbæjar sl. mánudag var fjallað um málið og eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða. Tekið skal fram að Björn Gíslason, formaður Fylkis, vék af fundi á meðan
Björn Gíslason formaður Fylkis.
SÍA • jl.is • JÓNSSON & LE’MACKS
Nú getur þú keypt í matinn fyrir Aukakrónur
Krónan er orðin samstarfsaðili Aukakróna. Nú er hægt að safna Aukakrónum og kaupa í matinn fyrir Aukakrónur í verslunum Krónunnar um land allt.
Farðu á landsbankinn.is eða hringdu í síma 410 4000 og byrjaðu að safna Aukakrónum.
Landsbankinn
landsbankinn.is
410 4000
8
Fréttir
Árbæjarblaðið
Kristín Arngrímsdóttir við eitt verka sinna.
ÁB-mynd PS
Starfsmaður óskast Óskum eftir vönum bifvélavirkja sem unnið getur sjálfstætt Allar nánari upplýsingar eru gefnar í síma 896-5202
Bæjarflöt 13 & Skemmuvegur 16 440-8000 - bvr@bvr.is
Glæsileg mynd eftir Kristínu Arngrímsdóttur.
Ævintýralegur stigagangur á bókasafninu
Veggirnir í stigaganginum á bókasafninu skarta nú líflegum myndum; af apa sem spilar á fiðluna sína, stelpu sem er berfætt af því hún hefur svo gaman af því að hlaupa berfætt í grasinu , blómlegri ömmu sem fer á stökki eftir hrafni sem hefur stolið blásól úr garðinum hennar. Ofar í stigaganginum er öll
R ÐU TA RS NÝ
BOLTINN Í BEINNI ALLTAF BOLTATILBOÐ
OPNUNARTÍMI: MÁN. - FÖS. 11 - 23, LAU. 12 - 23, SUN 14 - 22 OPNUM HÁLFTÍMA FYRIR LEIKI Höfðabakki 1 / 110 Reykjavík / Sími 568 8889
ÁB-mynd PS
HAPPY HOUR ALLA DAGA
2 FYRIR 1 FRÁ KL.16 TIL KL.19
hersingin áköf að komast í fyrirheitna landið sem er bókasafnið og hrafninn sem hefur nú ákveðið að haga sér vel er kominn með rós í gogginn sem hann ætlar að færa bókaverðinum. Myndirnar eru úr bókunum Arngrímur apaskott og fiðlan og Arngrímur apaskott og hrafninn eftir Kristínu Arngrímsdóttur sem hún les. Kristín sem sjálf myndskreytti veggina er myndlistarmaður og starfar sem bókavörður í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur en í Ársafni einn dag í viku. Þessar tvær sögur um Arngrím apaskott eru fyrstu bækurnar sem Kristín bæði skrifar og myndskreytir og komu út árin 2009 og 2010. Áður hefur hún myndskreytt ýmsar bækur, en meðal þeirra eru: Kötturinn og kölski, Nýju fötin keisarans, Grámann í Garðshorni, Bakkabræður og margar aðrar bækur, kennslubækur, ljóðabækur o.fl. Þessi frumraun hefur gengið vel því fyrir fyrstu bókina Arngrímur apaskott og fiðlan hlaut hún Fjöruverðlaunin sem eru bókmenntaverðlaun kvenna og Vorvindaviðurkenningu IBBY árið 2010. Seinni bókin var tilnefnd á heiðurslista aðþjóðlegu IBBY-samtakanna árið 2012 og mun Kristín taka á móti viðurkenningunni á alþjóðaráðstefnu IBBY í London í haust. „Heiðurslisti IBBY-samtakanna er lykilþáttur í því starfi samtakanna að stuðla að alþjóðlegum skilningi með hjálp barnabóka og þykir miklu máli skipta að þær bækur sem á hann veljast séu dæmi um það sem best gerist í barnabókaútgáfu á landinu.“ (Börn og menning, 2.tbl. 2011). Kristín afhjúpar myndirnar formlega þann 17. apríl og les úr bókunum. Sunnudaginn 22. apríl kl. 14:00 mun hún svo lesa aftur úr bókunum í opinni sögustund á safninu. Gestir fá glæný bókamerki sem Kristín hefur gert með myndum úr bókunum. Nú koma allir á bókasafnið að skoða stigaganginn. Sjón er sögu ríkari.
Grafarholtsblaðið 2. tbl. 1. árg. 2012 apríl - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal
Hreiðurgerð í holtinu Vorboðinn ljúfi er kominn í holtið og hvarvetna má sjá fugla í hreiðurgerð. Vandað er til verka og hver grein er sett á sinn stað til að búa ungviðinu sem best skjól. Það sama á við um mannfólkið í Grafarholti sem býr sig undir komu sumarsins og hlúir að umhverfi sínu. Við viljum líka búa ungviðinu okkar sem best í haginn. En það sem helst einkennir íbúasamsetningu hverfisins er ungt barnafólk. Börn á aldrinum 0-12 ára eru rúmlega fjórðungur íbúa á meðan meðaltalið fyrir Reykjavík er um 17%. En hvað felst í því? Hvaða kröfur geta íbúar gert til uppbyggingar í hverfinu? Í raun er hægt að halda því fram að Grafarholt sé ennþá í hreiðurgerð nú tólf árum eftir að það byrjaði að byggjast upp. Það hefur að vísu margt áunnist síðustu ár. Tvær glæsilegar skólabyggingar hafa t.d. verið byggðar í Grafarholti, Ingunnarskóli sem var fullbyggður árið 2005 og Sæmundarskóli sem var tilbúinn haustið 2011. Hverfið státar af metnaðarfullu starfi í þremur leikskólum, tveimur frístundaheimilum og öflugri félagsmiðstöð. Íbúar hafa komið sér upp matjurtargörðum og skammt frá er hægt að veiða
í Reynisvatni. Þar að auki hafa íbúar aðgang að ómengaðri náttúru og gönguleiðir í og kringum hverfið eru afar fjölbreyttar. Það er hins vegar ýmislegt sem ennþá vantar svo þjónustan í holtinu verði með sama hætti og boðið er uppá í öðrum hverfum. Um árabil hafa börn og ungmenni í hverfinu t.a.m. þurft að sækja hluta af íþróttaiðkun sinni í Framheimilið í Safamýri vegna aðstöðuleysis. Og enn þurfa börn og ungmenni sem ferðast þangað í strætó að skipta um vagn í Ártúnsholti til að komast á leiðarenda. Íbúasamtök Grafarholts sem stofnuð voru árið 2008 hafa frá upphafi einbeitt sér að því íbúar í hverfinu fái sömu þjónustu og boðið er uppá í öðrum hverfum borgarinnar fá. Samtökin hafa t.d. barist fyrir að uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í Úlfarsárdal verði hraðað. Þau hafa beitt sér fyrir bættri aðstöðu fyrir börn og ungmenni í Leirdal, sem er eitt helsta íþrótta -og útivistarsvæði Grafarholts og fyrir því að almenningsamgöngur verði bættar.
áunnist. Borgin hefur sett upp aðstöðu í Leirdal og búið er að koma upp gervigrasvelli í Úlfarsárdal og bráðabirgðahúsnæði. En mörg verkefni liggja enn fyrir og stóra spurningin er hvenær verður hreiðrið fullbúið? Við fáum vonandi einhver svör við því laugardaginn 5. maí n.k. þegar íbúa-og aðalfundur Íbúasamtaka Grafarholts verður haldinn í Ingunnarskóla kl. 14. Þar ætlar Jón Gnarr borgarstjóri að halda erindi um framtíðarsýn borgarinnar fyrir Grafarholt. Þá mæta forsvarsmenn Fram og segja frá uppbyggingunni í Úlfarsárdal. Íbúasamtök Grafarholts hvetja íbúa til að mæta á fundinn og láta rödd sína heyrast. Við bendum íbúum í Grafarholti jafnframt á að samtökin eru með heimasíðuna www.grafarholt.com og Facebooksíðu sem nefnist ,,Ég er íbúi í Grafarholti“. Þá er hægt að senda samtökunum erindi og ábendingar á netfangið: grafarholt@grafarholt.com Gleðilegt sumar, Berghildur Erla Bernharðsdóttir, formaður Íbúasamtaka Grafaholts
Berghildur Erla Bernharðsdóttir.
Sumarleikur Og frá haustbyrjun 2011 hefur ýmislegt
Tapas barsins og San Miguel 10. júní 10 0. ap apríl p íl ttil pr il 12. 12 2. jún jjú n ní
Óla B Óla Ól Barcelona Ba arcelona rrccel rce elllona elo elona onnaa
Fylltu F yll ll u út þátttökuseðil áttt ttt kus ðil á Tapas Tap barnum b um ba og þú þú gætir gætir unnið unnið flugmiða lugmið ða fyrir fyrir tvo vo Barcelona til Ba arcelona rcelona með m Iceland Iceland Express Exp Expre presss
RESTA RESTAURANTSTAUR RANT ANT T- BAR T V stu gö u 3B Vesturgötu B | 101 Reykjav í Reykjavík Sím S mi 551 2344 444 | www w www.tapas.is apas.is pas.is Sími
10
Fréttir
Grafarholtsblaðið
Þessar voru frekar hressar.
Þrusustuð á árshátíðinni og allir skemmtu sér vel.
ÁrshátíðIngunnarskólaogFókus
Töffarar.
Nú standa árshátíðir yfir á vinnustöðum og skólum um allt land. Þann 15. mars var árshátíð Ingunnarskóla og félagsmiðstöðvarinnar Fókus haldin í Ingunnarskóla og skemmtu unglingarnir sér konunglega. Þar komu þau saman í sínu fínasta pússi, borðuðu dýrindis kvöldverð, horfðu á frábær skemmtiatriði og dönsuðu svo af sér skóna. Hljómsveitin Dikta byrjaði ballið og svo tók dj Sveppi við. Myndirnar tala sínu máli.
Hressar vinkonur að borða saman góðan mat.
Framhlaupiðásumardaginnfyrsta Framhlaupið verður haldið á sumardaginn fyrsta. Hægt verður að velja um tvær vegalengdir 3 og 7,6 kílómetra. Hlaupaleiðin er mjög skemmtileg þar sem farið verður að Rauðavatni og þeir sem velja lengri vegalengdina fara hringinn í kringum vatnið. Hlaupið er opið fyrir alla og getur hver og einn farið á sínum hraða, gengið, skokkað eða hlaupið. Skráning hefst kl. 9:30 í Ingunnarskóla en hlaupið verður ræst klukkan 10:00. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin i karla og kvennaflokki, öll börn fá viðurkenningarskjal. Það er skokk- og gönguhópur Fram í Grafarholti sem sér um hlaupið en hann hefur verið starfandi síðan árið 2010. Í hópnum er boðið uppá fjölbreyttar æfingar í yndislegu umhverfi undir leiðsögn menntaðra þjálfara. Við hvetjum alla til þess að reima á sig skóna og mæta í Framhlaupið á sumardaginn fyrsta og mæta á æfingar hjá Skokk- og gönguhópi Fram. Nánari upplýsingar er að finna hjá Maju Petu Hlöðversdóttur s: 696-1988 og á netinu undir www.skokkhopur.blog.is, Facebook: Skokkhópur Grafarholts, www.fram.is eða á Skrifstofu Fram í Grafarholti s: 5878800. Æfingar skokkhópsins eru fjórum sinnum í viku, á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl: 17:30 og laugardögum kl: 9:00. Mæting við aðalinngang Ingunnarskóla (sunnan megin).
Frekar voru þeir hressir þessir.
Frábær gjöffyrir veiðimenn ogkonur Gröfumnöfnveiðimannaáboxin Uppl.áwww.Krafla.is(698-2844)
Skokkhópurinn eftir góða æfingu.
Fram-bingóogvöfflukaffiíIngunnarskóla Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Fram heldur Fram-bingó og verður með vöfflukaffi í Ingunnarskóla á sumardaginn fyrsta. Bingóið og vöfflukaffið eru hluti af hátíðahöldum íbúanna í Grafarholti á sumardaginn
fyrsta. Hin árlegu hátíðahöld hefjast við Ingunnarskóla kl. 10:00 með Framhlaupinu. Kl. 12:30 verður farin skrúðganga frá Sæmundarskóla að Guðríðarkirkju. Kl. 13:00 verður helgistund í kikrkjunni og að henni lokinni
kl. 13:30 fer fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í gang. Krítað verður á kirkjustétt, dýrablessun í Guðríðarkirkju, hoppukastali og leiktæki fyrir börnin auk Fram-bingósins og vöfflukaffisins sem hefst kl. 13:30 í Ingunnarskóla.
11
Fréttir
Grafarholtsblaðið
21 ungmenni frá Fram í unglingalandsliðum Íslands í handbolta:
Frábær staða hjá Fram Eins og undanfarin ár kallaði HSÍ saman yngri landslið sín til æfinga og keppni á vormánuðum. Eins og svo oft áttum við Framarar fulltrúa í þessum hópum og erum við auðvitað stolt af því. Fulltrúar Fram að þessu sinni eru hér að neðan en samtals eru þetta 21 ungmenni í 5 landsliðs hópum. u-16 ára landslið karla Einar Guðmundsson landsliðsþjálfari u-16 ára landsliðs karla valdi úrtakshóp u-16 ára landsliðs karla sem æfði í Digranesi 2-4 apríl. Í hópnum voru eftirfarandi leikmenn frá FRAM: Daníel Þór Guðmundsson, Arnar Freyr Arnarson, Arnór Aðalsteinsson og Ragnar Þór Kjartansson. u-16 ára landslið kvenna Díana Guðjónsdóttir og Unnur Sigmarsdóttir landsliðsþjálfarar völdu úrtakshóp u-16 ára landsliðs kvenna. Í hópnum voru eftirfarandi leikmenn frá FRAM: Anna Guðrún Þorsteinsdóttir, Guðrún Jenný Sigurðardóttir, Hafdís Lilja Torfadóttir og Ragnheiður Júlí-
usdóttir. u-18 ára landslið kvenna Fram átti sjö fulltrúa í u-18 ára landsliði kvenna sem kom saman til æfinga 2.-4. apríl. Leiðbeinendur liðsins eru Inga Fríða Tryggvadóttir og Halldór Harri Kristjánsson. Í hópnum voru eftirfarandi leikmenn frá FRAM : Hildur Gunnarsdóttir, Elva Þóra Arnardóttir, Hafdís Iura, Hekla Rún Ámundadóttir, Íris Krístin Smith, Karólína Vilborg Torfadóttir og Kristín Helgadóttir. u-18 ára landslið karla Fjórir Framarar voru í undirbúningshópi Heimis Ríkarðssonar landsliðsþjálfara u-18 ára landsliðs karla fyrir undankeppni EM í Tyrklandi sem fram fór 13.-15. apríl. Framararnir fjórir í undirbúningshópnum voru: Arnar Freyr Dagbjartsson, Ármann Árnason, Arnar Snær Magnússon og Stefán Darri Þórsson. U-20 ára landslið kvenna Karen Ösp Guðbjartsdóttir var
U-18 landsliðsmennirnir Stefán Darri Þórsson, Ármann Árnason og Arnar Freyr Dagbjartsson. valin í úrtakshóp u-20 ára landsliðs kvenna sem kom saman til æfinga 19.-25. mars. Karen varð því miður að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla. Íslenska liðið hélt til Tyrklands og lék þar í undankeppni EM.
Því miður tókst stúlkunum ekki að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. U-20 ára landslið karla Einn Framari, Garðar Sigurjónsson var valinn í hóp u-20 ára landsliðs karla sem lék í undan-
keppni EM hér á landi um páskana. Liðið var í riðli með Bosníu og Eistlandi og og gerði sér lítið fyrir og tryggði sér sæti í lokakeppninni sem leikin verður í Tyrklandi í sumar.
12
Fréttir
Fermingarbörn í Guðríðarkirkju í Grafarholti Ferming 22. apríl kl. 11 Alda Karen Jónsdóttir Alexandra Mist Halldórsdóttir Anton Örn Bóasson Aron Máni Þórhallsson Aron Örn Heimisson Bjarni Rósar Gunnlaugsson Guðrún Valmundsdóttir Hanna Dís Elvarsdóttir Hanna Lísa Rafnsdóttir Hólmfríður María Böðvarsdóttir Karen Anna Birgisdóttir Kristmundur Ari Gíslason Sigurður Valmundsson Sólveig Lilja Gunnarsdóttir Sveinn Valmundsson Vilborg Rós Vilhjálmsdóttir Þórdís Birgitta Einarsdóttir Ferming 29. apríl kl. 11 Aníta Sól Valdimarsdóttir Gabríel Máni Teitsson Hlífar Arnar Hlífarsson Magnús Ólíver Axelsson Ólafía Auður Erlendsdóttir Perla Njarðardóttir Ragnheiður R. Steingrímsdóttir Sigurbjörg Ýr Snorradóttir Sigþór Reynir Björgvinsson Sólveig Þorsteinsdóttir Sturla Páll Gunnarsson Ferming 6. maí 2012 kl. 11 Daníel Snær Guðjónsson Egill Hlér Guðjónsson Elísabet Mjöll Guðjónsdóttir Ferming 27. maí kl. 11 Alex Frank Salters Arndís Hafþórsdóttir Aron Már Atlason Ásta Margrét Einarsdóttir Dagný Dröfn Magnúsdóttir Guðbjörn Atli Kristinsson Helgi Valentin Arnarson Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir Jóna Dís Þorleifsdóttir Viktor Andri Kárason Þorsteinn Orri Garðarsson Ganga til spurninga í Grafarholti en fermast annars staðar Aðalheiður Þorvaldsdóttir María Líf Reynisdóttir
Grafarholtsblaðið
Auglýsingar og ritstjórn
Sími: 587-9500
Grafarholtsblaðið
Dýrablessun, hvað er það? - fyrst og fremst til að þakka fyrir gæludýrið sem veitir okkur svo mikla ánægju og gleði Guðríðarkirkja býður nú til dýrablessunar í þriðja sinn í tengslum við hátíðarhöldin á sumardaginn fyrsta. Kirkjuna prýða tveir garðar austan og vestanmegin við kirkjuskipið. Hægt er að ganga inn í annan þeirra, Liljugarðinn og sitja þar við tjörnina á sólríkum sumardegi. Það er einmitt þar sem dýrin í Grafarholti og Úlfarsárdal koma með eigendum sínum á sumardaginn fyrsta til blessunar. En hvað er dýrablessun? Dýrablessun í kristnum kirkjum er venjulega tengd minningu heilags Frans frá Assísí, sem var mikill dýravinur samkvæmt helgisögnum. Messudagur Frans er 4. október og eru dýrablessanir gjarnan haldnar nálægt þeim degi víða um heim. En október er oft kaldur og votviðrasamur mánuður á Íslandi. Þess vegna datt okkur í Guðríðarkirkju í staðinn í hug að prófa dýrablessun um leið og við fögnum sumrinu. Hún er mjög einföld. Presturinn fer með bæn heilags Frans í upphafi, strýkur síðan hverju dýri og segir: „Mönnum og skepnum hjálpar
þú Drottinn. (Sálm. 36:7)“ Svo nefnir hún nafn kanínunnar eða kattarins og biður Guð um að blessa þau. Dýrablessunin er fyrst og fremst til að þakka fyrir gæludýrið sem veitir okkur svo mikla ánægju og gleði og fela það Guði með sérstökum hætti. Gæludýr skipta miklu máli í nútímasamfélagi og sambandið á milli manneskju og dýrs getur verið mjög sérstakt. Dýr geta verið miklir persónuleikar og þau sýna eigendum sínum ótakmarkaða ástúð og athygli. Dýrunum okkar er alveg sama hvort við gegnum háum stöðum í samfélaginu eða látum lítið bera á okkur. Það vill fá mat og umhyggju og allt sem við gefum þeim fáum við þúsundfalt til baka. Dýr ná stundum sambandi við okkur þegar mannleg orð duga skammt. Dýr eru góðir förunautar. Og þess vegna er svo gleðilegt að geta gefið þessum frábæru einstaklingum stund og stað í kirkjunni þar sem við fögnum því að þau eru til og felum framtíð þeirra góðu afli sem vakir yfir okkur. Í Jobsbók Biblíunnar
Tíkin Berta er tíu ára og hefur veitt eigendum sínum mikla hamingju og blessun. Hver veit nema hún mæti til Sigríðar á sumardaginn fyrsta. stendur að skepnurnar, fuglarnir, villidýrin og fiskar hafsins muni kenna mönnunum að þekkja Guð. Og margt má af dýrunum læra, líka trúarlífið. Í fyrra blessaði ég kanínurnar Kalla, Blúndu og Elvis, köttinn Lopa, hamstrana Máneyju og Hnoðra og hundana Artan, Keono, Tinnu Ósk, Seru, Lukku, Rex og Tóbý. Alltaf er líf og fjör í Liljugarði Guðríðarkirkju á sumardaginn fyrsta. Það er gaman að sjá hvað gæludýrin í hverfinu eru fjölbreytt og falleg og hvað eigendunum þykir vænt um þau. Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur Guðríðarkirkju
Sigríður Guðmarsdóttir, prestur Guðríðarkirkju.
sóknar-
Æringjasögur og myndir úr sögubíl - Borgarbókasafns Reykjavíkur Árið 2010 sömdu allir hópar sem andi börn bjuggu. Sýningin opnaði svo komu í sögubílinn Æringja sameigin- í Foldasafni 29. og 30. september lega sögu. Eftir árið hófst svo undir- síðastliðið ár. búningur fyrir sýningu þar sem umsjónSýningin opnar núna í Ársafni í amaður fékk elstu börn grunnskóla eða upphafi barnamenningarhátíðar 17. apbörn úr unglingadeildum grunnskól- ríl og stendur fram á sumar. anna til að teikna myndir við Æringjasögurnar sem samdar voru af leikskólaÍ þessu hverfi er það; börnunum. Ártúnsskóli sem teiknaði myndir við Sýningin opnaði í Aðalsafni borgar- sögur barnanna á Kvarnaborg og skólabókasafnsins 29. apríl 2011. Síðan var seli Ártúnsskóla. ákveðið að hafa þetta farandsýningu og Ingunnarskóli sem teiknaði myndir sýna hana í þeim hverfum sem viðkom- við sögur frá Maríuborg og Geislabaug. Börn úr Ingunnarskóla teiknuðu myndir við sögur frá Maríuborg og Geislabaug.
Gleðilegt sumar! Sumarið er frábær tími. Njóttu þess vel en mundu að hugsa vel um húðina.
13
Fréttir
Árbæjarblaðið
110 Reykjavík:
Teddi og Heiða voru allt í öllu Árbæjarblaðið heimsótti hjónin Arnheiði Árnadóttur og Theódór Óskarsson í Glæsibæ 1 á dögunum. Þau eru bæði Reykvíkingar og hafa búið lengi hér í Árbænum og sett svip sinn á mannlífið hér enda bæði mjög virk í félagslífinu, þekktust sem Heiða og Teddi. Íþróttir eru eitt af áhugamálum þeirra og hefur Fylkir notið
góðs af því. Heiða ólst upp í Sogamýrinni, Sogabletti 13. Hún lagði stund á skíðamennsku hjá Ármanni í Jósepsdalnum. Þar var mikil skíðaparadís og þegar skálinn kom voru útilegur í Jósepsdal fastur liður í tilverunni. Hún keppti mikið og var í fremstu röð. Það var hópur fólks sem æfði skíði
Hjónin Arnheiður Árnadóttir og Theódór Óskarsson á dögunum þegar Árbæjarblaðið leit til þeirra. ÁB-mynd Enar Ásgeirsson
Fjölskyldan í Glæsibæ 1.
Þorleifur hættir í Hverfisráðinu
,,Já, ég skýrði frá þessu á fundi hverfisráðsins í hádeginu á mánudag og frá þessu var gengið í borgarstjórn í gær. Þetta á nú ekki að koma á óvart,” segir Þorleifur Gunnlaugsson, VG, en hann er hættur sem formaður Hverfisráðs Árbæjar. ,,Ég kynnti þessar fyrirætlanir mínar á stofnfundi íbúasamtakanna fyrir nokkru og hef viðrað þær áður í borgarstjórn og náttúrulega í hverfisráðinu. Ástæðan fyrir því að ég hef dregið að segja af mér voru annarsvegar þær að ég vildi ekki „rugga bátnum“ fyrir nýafstaðnar íbúakosningar og svo vildi ég klára það sem lagt var upp með varðandi stofnun Hollvinasamtaka Elliðárdalsins en þau urðu að veruleika með bravör á fimmtudaginn var,” sagði Þorleifur. - Hverjar eru ástæðurnar fyrir því að þú hættir? ,,Það hefur alltaf legið fyrir að ég ætlaði ekki að verma sæti í hverfisráði Árbæjar lengi. Ég hef mikinn áhuga á nándarlýðræði og hverfavæðingu borgarinar. Að íbúarnir fái ákveðin sjálfsákvörðunarrétt yfir málefnum tengdum nærumhverfinu. Hverfisráð, kosin af íbúunum ættu að mínu mati að axla þarna stórt hlutverk. Að íbúi annars hverfis sitji í hverfisráði er passar ekki við þessa hugsun en ég bý í Vesturbæ.” - Af hverju tókst þú þetta þá að þér? ,,Í upphafi þessa kjörtímabils bauð meirihluti borgarstjórnar, minnihlutanum formennsku í fjórum af tíu hverfisráðum borgarinnar. VG bauðst formennska í Árbæ og önnur hverfi komu ekki til greina. Félagar mínir færðu það á tal við mig að ég tæki þetta að mér, þar sem ég er fyrsti varaborgarfulltrúi en ég þverneitaði með þeim rökum að ég byggi hinum megin í bænum og þetta færi algerlega gegn þeirri hverfanálgun sem ég aðhylltist. Niðurstaðan varð samt sem áður sú að ég tók þetta að mér tímabundið. Það var með þeim rökum að ég sat þá í stjórnkerfisnefnd og hún hefði miklu hlutverki að gegna í þeim lýðræðisbreytingum sem framboð okkar aðhylltist. Einnig var ljóstað formenn hverfisráða myndu gegna mikilvægu hlutverki við mótun þeirra breytinga. Á þessum tíma taldi ég að róttækar breytingar í lýðræðisátt og valdamikil hverfisráð væru skammt undan og þá yrði hlutverki mínu lokið en nú tveimur árum síðar hefur fátt gerst annað en tilraunin í Breiðholti sem er góðra gjalda verð en þar
hefur hverfisráðið þó lítið vægi. Svo er náttúrulega það að ég á ekki lengur sæti í stjórnkerfisnefnd og formenn hverfisráðanna hafa aldrei, á þessu kjörtímabili verið kallaðir til samráðs um stjórnkerfisbreytingar í borginni.” - Ertu með þessu að segja að lýðræðistilraunirnar hafi misheppnast? ,,Alls ekki. Ég held að þetta sé allt að mjakast í rétta átt en það gæti líka farið í hina. Vefirnir „Betri Reykjavík“ og „Borgarlandið“ þar sem íbúarnir geta sett
Þorleifur Gunnlaugsson. mál á dagskrá eða sett inn ábendingar um það sem betur má fara eru framfaraspor. Rafrænu íbúakosningarnar voru góð lýðræðisæfing þó svo ekki hafi verið um miklar fjárhæðir að tefla. Rafrænar kosningar eru það sem koma skal og mikilvægt að borgarbúar temji sér tæknina og brjóti ísinn hvað þessa einföldu kosninganálgun varðar. Tilraunin í Breiðholti þar sem hverfistjórn beitir þverfaglegum aðferðum um samvinnu stofnana og alla nærþjónustu á einum stað er líka skref í rétta átt. Hugmyndir um aukið vægi íbúanna í gegnum þeirra eigin hverfistjórnir eru ekki dottnar uppfyrir og þær eru nú til umræðu í starfshópi borgarráðs. Þessi umræða þarf hinsvegar að ná betur til íbúana og í því samhengi vil ég skora á íbúasamtökin að beita sér í þá veru. Mínu hlutverki í hverfisráði Árbæjar er hinsvegar lokið og ég vil taka það fram að samstarfið í ráðinu hefur verið með eindæmum gott, þar er valin maður í hverjum rúmi. Kjörnir fulltrúar í ráðinu og áheyrnafulltrúar íbúasamtakanna hafa verið einhuga um að verja hagsmuni hverfisins, sinnt því starfi af dugnaði og án þess að láta flokkslínur eða annarlega hagsmuni trufla sín störf,” segir Þorleifur.
hjá Ármanni og viss kjarni þar átti nánast sitt annað heimili í Jósepsdalnum. Var þar um hverja helgi og á stórhátíðum. Svo var Heiða líka í handboltanum. Þá var æft og keppt á Hálogalandi svo ekki var langt að fara. Ármannsstelpurnar stóðu sig vel og urðu Reykjavíkurmeistarar a.m.k einu sinni. Æskuheimili Tedda var Laugavegur 17. Hann gekk í Val 1945 og æfði fótbolta. 1946 stofnaði hann Íþróttafélag drengja og þar voru frjálsar íþróttir aðalviðfangsefnið. Teddi æfði auk þess bæði box og glímu. Leiðir þeirra Heiðu og Tedda lágu saman í Jósepsdalnum. Þau hófu búskap á Rauðalæk. Keyptu, ásamt öðru pari, hæð í húsi og útbjuggu þar tvær íbúðir. Börnin urðu þrjú. Tvær stelpur og drengur. Þegar að því kom að það varð of þröngt um þau
á Rauðalæknum var ekki um marga kosti að velja. Þau stefndu á einbýlishús en slíkar lóðir lágu ekki á lausu og voru ekki fyrir hvern sem var. Útkoman var svo Árbærinn. Þar fengu þau lóð og byggðu sér raðhús að Hraunbæ 57. Síðar keyptu þau Glæsibæ 1. Þegar þau fluttu í Árbæjarhverfið um 1965 var Framfarafélagið sá vettvangur sem íbúarnir gátu beitt kröftum sínum til framgangs góðum málum í hverfinu. Framfarafélagið sinnti unglingastarfinu vel og þar kom Teddi mjög við sögu. Lenti það á hans herðum að vinna að undirbúningi stofnunar íþróttafélags í hverfinu. Undirbúningsfundur félagsstofnunarinnar var haldinn á heimili þeirra hjóna snemma vors 1967, en félagið var ,sem kunnugt er, stofnað formlega 28. maí 1967 og fagnar því 45 ára afmæli sínu nú í vor. Starfsemi
félagsins fór hægt af stað og lá við að það lognaðist út af en 1969 var blásið í glæðurnar og þar var Teddi að verki. Af miklum eldmóði kom hann starfseminni í gang og var um tíma formaður. Þannig fór að fyrstu árin var hann mikið í þjálfun á yngri flokkum og eitt af furðum þessa heims var hvað bíllinn hans gat rúmað marga stráka. En Heiða sinnti þjálfun í handboltanum. Fyrsti titillinn sem vannst í nafni félagsins var þegar stelpurnar í 3. flokki urðu Reykjavíkurmeistarar 1971 og var Heiða þjálfari þeirra. Teddi er vélsmiður, og átti hlut í og rak Vélsmiðjuna Kvarða. Heiða vann lengst af sem skrifstofustjóri Tækniskóla Íslands. Enn má telja nokkuð öruggt að þau Teddi og Heiða mæti á heimaleiki og hvetji sína menn. G. Ásg.
14
Árbæjarblaðið
Fréttir
Árshátíð unglingadeildar Árbæjarskóla og Tíunnar:
Foreldrar nemenda þjónuðu til borðs Hin árlega árshátíð unglingadeildar fór fram miðvikudaginn 14. mars sl. Undirbúningur árshátíðarinnar stóð í nokkra daga og hönnuðu nemendur m.a. bekkjarbúninga sem þeir klæddust á árshátíðardaginn. Skondnir karakterar sáust á ferð um skólann m.a. rómverskir riddarar, strumpar, klappstýrur, Batman og ýmsar aðrar ofurhetjur. Árshátíðardagurinn hófst á bekkjarleikjum þar sem keppt var í ýmsum áhugaverðum og sjaldgæfum íþróttum t.d. blöðruuppblæstri, húllakeppni, kóngulóargöngu, langstökki aftur á bak og þannig mætti lengi telja. Um kvöldið viku grímubúningarnir fyrir sparifötunum og mættu nemendur prúðbúnir til kvöldverðar á hátíðarsal skólans.
daga að skreyta salinn og leggja á borð. Foreldrar nemenda sáu um þjónustuna þetta kvöld og um matinn sá matreiðslumeistari skólans. Margt var til gamans gert á borðhaldinu, úrslit í Tíukjörinu voru kunngerð, skemmtiatriði Tíunnar og kennara ásamt hinu ómissandi kennaragríni úr smiðju nemenda. Að borðhaldi loknu var stiginn dans og rútur biðu síðan nemenda fyrir utan skólann og fluttu þá „dansþreytta“ heim að lokinni skemmtilegri kvöldstund.
Prúðbúnar stúlkur. Þessar skólasystur skemmtu sér vel. Þjónustan var í góðu lagi enda í höndum foreldra nemenda.
Þegar um svo stóran viðburð er að ræða í skólastarfinu er gott að eiga góða að. Íþróttafélagið Fylkir lagði skólanum til borð, stóla og borðbúnað, Árbæjarkirkja lánaði einnig borðbúnað og foreldrar nemenda þjónuðu til borðs eins og fyrr sagði. Kann skólinn þessu góða fólki bestu þakkir fyrir þeirra framlag.
Á góðri stundu – allir ánægðir með matinn.
Nemendur og kennarar höfðu unnið hörðum höndum að því undanfarna
10. GP Skemmti sér konunglega sem sleikipinnar.
Brosmildir nemendur í 8. KJ.
Glæsilegir búningar.
Á sinni fyrstu árshátíð í Árbæjarskóla.
Rómverjarnir í 8. ÁS.
ALLIR ÚT AÐ HJÓLA
MEÐ
Áheitasöfnun fyrir Partille Stelpurnar í 5. fl. kvenna í handbolta ganga í hús í Árbæjarhverfi þessa dagana og biðja íbúa um að heita á sig. Þær hyggjast hlaupa með bolta frá Þingvöllum að Hádegismóum þann 1. maí.
Foreldrar biðja alla um að taka vel á móti þessum duglegu stúlkum, og helst að hafa trú á þeim og styrkja til ferðarinnar. Árbæjarblaðið mun fylgjast með þeim og færa fréttir af gengi þeirra, bæði
í þessu hlaupi og ekki síður frá ferð þeirra til Gautaborgar, en peningarnir sem safnast verða notaðir til að komast á eitt stærst handboltamót í heimi, Partille, sem haldið er í Gautaborg, 2-7 júlí.
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja N MVN t TLJQUVN VN t USBV TU PH GBHMFH ¢KØOVTUB t È SB SFZOTMB
Bíldshöfða 12 · 110 110 RVK RVK · 577 1515 · www.skorri.is www.skorri.is
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGE RAFGEYMUM YMUM
Árbæingar taka vonandi vel á móti stelpunum í 5. flokki Fylkis sem eru að ganga í hús þessa dagana.
15
Fréttir
Árbæjarblaðið
Dokkurnar hittast vikulega með prjónana Klúbburinn Árdokkurnar, er hópur kvenna sem hittist vikulega á bókasafni Árbæjar (Ársafni), var formlega stofnaður 25. janúar 2011. Sigurbjörg bókasafnsfræðingur hjá safninu heldur utan um starfið, býður upp á kaffi eða te, finnur til bókatitla og nýjustu prjónablöðin. Prjónaklúbburinn byrjaði á rólegum nótunum en fyrsta árið sem klúbburinn var auglýstur á safninu var það aðeins María og jafnvel ein til viðbótar sem mættu. Einn daginn mætti Erla handavinnukennari og sundkennari sem margir Árbæingar þekkja vel. Henni fannst heldur fámennt en var sagt að búið væri að gefast upp á klúbbnum út af lélegri mætingu. Erla var ekki sátt við þá niðurstöðu og ákvað því að auglýsa í Árbæjarlaug sem gaf góðan árangur þar sem viku seinna mættu tólf konur. Konurnar eru mjög ánægðar með hversu vel er tekið á móti þeim og er dekrað við þær í skvísuhorninu eins og Þorkell deildarbókavörður kallar það. Síðastliðið haust
var stillt upp listaverkum eftir þær í sýningarskáp. Listaverkin vöktu mikla athygli á safninu. Árdokkurnar vilja endilega að fleiri mæti með þeim á þriðjudögum kl. 13 og eigi með þeim góða stund þar sem þær ræða saman um allt og ekkert, drekka kaffi, prjóna, skoða blöð, hlægja en fyrst og fremst hafa gaman að. Á safninu er einnig barnastarf og þá er lesklúbbur, fyrir fólk á öllum aldri, konur og karla, starfandi sem hittist alltaf fyrsta miðvikudag í mánuði kl 16:15. "Lesklúbburinn fer aldrei heim fyrr en safninu lokar um sjö, það er svo gaman hjá okkur" sagði Fríða sem er einnig í prjónaklúbbnum. Starfsfólk á Ársafninu er búið að vera að byggja upp fjölbreytni í blöðum og tímaritum til að laða fólk að. Til dæmis er mikið af útskurðarblöðum sem gaman er að flétta en annars eru þau opin fyrir öllu og eru nýjar hugmyndir kærkomnar sem og starfsemi fleiri klúbba. "Auðvitað er alltaf hægt að setjast hérna niður, fá sér kaffisopa og kíkja í blöðin eða bara
Hafdís Þórólfsdóttir, Erla Frederiksen og Helga Sigurðardóttir koma hingað og tala saman. Við lítum alltaf á okkur sem hverfissafn og viljum endilega fá íbúa í hverfinu til að líta á þetta sem gott afdrep í amstri dagsins til að geta hittst og rætt saman" sagði Sigurbjörg að lokum. Ársafn Hraunbæ 119 er opið mánudaga til föstudaga kl. 11- 19 og sunnudaga kl. 12-16.
Þóra A. Guðmundsdóttir, Gróa Einarsdóttir og Laulau Birgisdóttir.
María H. Kristinsdóttir og Sigríður Finnbogadóttir. Glæsilegur hópur kvenna í prjónaklúbbnum Árdokkunum í bókasafni Árbæjar.
Valgerður Tómasdóttir og Ragnhildur Haraldsdóttir.
Sýnishorn af því nýjasta sem þessar listakonar hafa prjó-
Fríða Magnúsdóttir og Halla Soffía Jónasdóttir.
Sólveig Möller og Eygló Árnadóttir.
Sigurbjörg Björnsdóttir bókasafnsfræðingur.
Margrét Guðmundsdóttir og Halldóra Hákonardóttir.
16
Legsteinar og fylgihlutir
Fréttir
Árbæjarblaðið
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og fría pökkun á legsteinum sem fara út á land Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is
Rúnar Geirmundsson
Sigurður Rúnarsson
Elís Rúnarsson
Þorbergur Þórðarson
Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990
Frá Árbæjarlaug.
Árbæjarlaug, heilsulind í Elliðaárdalnum
Það er gott að búa í Árbæjarhverfi. Hverfið er vel afmarkað, ólíkt flestum öðrum úthverfum borgarinnar og vel tengt aðalgatnakerfinu og helstu samgönguæðum út úr borginni. Skipulag Árbæjarhverfisins miðast í aðalatriðum við aðgreiningu umferðar bíla og gangandi fólks og þar er því gott að ala upp börn. Stutt er í Elliðaárdalinn, eitt fallegasta útivistarsvæði borgarinnar sem teygir sig frá Elliðavogi allt til Heiðmerkur. Vel er séð fyrir þjónustu við íbúa. Í hverfinu eru góðir leik- og grunnskólar svo og frambærilegar verslanir. Haldið er uppi góðu safnaðarstarfi og kraftmikil starfsemi íþróttafélagsins Fylkis setur svip sinn á hverfið. Allt þetta þjappar saman íbúunum og ekki er laust við að í Árbæjarhverfi sé eins konar þorpsbragur. Þá er ótalin perla hverfisins, Árbæjarlaug, einn glæsilegasti sundstaður borg-
arinnar. Hvað er betra en að hefja daginn með öflugum sundspretti í Árbæjarlaug, eiga notalega stund í heitu pottunum í góðum félagsskap þar sem allt milli himins og jarðar er til umræðu. Rannsóknir sýna að einungis 15 mín. hreyfing á dag getur aukið lífslíkur fólks um a.m.k. 3 ár og hvatt er til þess að fólk hreyfi sig í a.m.k. 30 mín. á dag. Það er skynsamlegt að gera sund að föstu atriði í rútínu dagsins því að fátt er betra en að hreyfa sig í volgu vatni. Því er stórkostlegt að njóta þess sem laugin hefur upp á að bjóða, stórbrotið umhverfi og glæsilegt mannvirki. Kostir útilaugarinnar eru ótvíræðir hvort sem um er á góðviðrisdegi að sumri til eða frostköldum vetrardegi. Alltaf er jafn gott að heimsækja Árbæjarlaug og vinalegt starfsfólk hennar. Umhverfi laugarinnar er frábært. Gróðursæll reitur umlykur bygginguna
þegar horft er til austurs og stórkostlegt útsýni er úr lauginni niður allan Elliðaárdalinn. Hið innra er Árbæjarlaug ekki síður vel heppnað mannvirki með þessum glæsilega glerkúpli yfir innilauginni þar sem árið um kring er gott er að leika við börn og barnabörn eða láta sig bara dreyma eins síns liðs. Að klæða sig í útiklefa eftir góðan sundsprett og hvíld í heitu pottunum er upplifun út af fyrir sig. Gerð og fyrirkomulag útiklefanna í Árbæjarlaug er frábært og hvergi betra hér á landi og þótt víða væri leitað. Það eru forréttindi að hafa þessa heilsulind í hverfinu og ástæða til að hvetja Árbæinga til að nýta sér aðstöðuna og hafa jafnframt í huga að heilbrigð sál býr í hraustum líkama. Gylfi Guðjónsson Félagi í Rótarýklúbbnum Reykjavík-Árbær.
Fákur á 90 ára afmæli í ár
Eðalbón Ný bónstöð í Árbæ Jeppar: 8000 kr. Fólksbílar: 6000 kr. Við sækjum bílinn og skilum þér að kostnaðarlausu
Pantaðu tíma í síma 848-5792
Í ár á hestamannafélagið Fákur 90 ára afmæli. Því verður mikið um að vera á næstunni hjá félaginu í tilefni tímamótanna. Má þar að nefna Landsmót hestamanna sem fram fer í sumar á félagssvæði Fáks. Á sumardaginn fyrsta ætlar Fákur að bjóða til ,,Opins dags” frá kl. 13:00 16:00 á félagsvæði Fáks. Þar verður borgarbúum boðið að kynna sér starfsemina á svæðinu. Reiðskóli Reykjavíkur og Faxaból munu bjóða börnum á hestbak þar sem teymt verður undir þeim og skólarnir munu einnig kynna starfsemi sína. Heppnir krakkar geta unnið sér inn þátttökurétt á reiðnámskeiði í sumar með þátttöku í spurningakeppni.
Reiðskólarnir á svæðinu hafa starfað til margra ára og alið upp margan hestamanninn á metnaðarfullum námsekeiðum fyrir börn og unglinga þar sem kennd er almenn reiðmennska og umgengni við hesta. Einnig verða nokkur hesthús á svæðinu opin fyrir gestum og gangandi þar sem fólk getur séð nútíma aðbúnað hjá hestum og mönnum. Á sama tíma verður Firmakeppni Fáks haldin en þar keppa almennir félagsmenn sín á milli í tölti, allt frá barnaflokki upp í fullorðinsflokk á hestum sínum. Í Félagsheimi Fáks verður boðið upp á afmæliskaffi ásamt meðlæti á sama tíma.
Kátir krakkar á fallegum hesti.
17
Fréttir
Árbæjarblaðið
Youtube-klúbburinn var vinsæll.
Klúbbastarf í Víðiseli
Í frístundarheimilinu Víðisel voru að fara af stað nýir klúbbar sem krakkarnir hafa val um að fara í. T.d. verkstæði þar sem krakkarnir fá að taka í sundur gömul raftæki eins og tölvur, vídeótæki og útvörp. Svo er það skákklúbburinn þar sem krakkarnir hittast og tefla og læra ýmislegt um skák. Svo er Youtube-klúbburinn, þar er farið inn á Youtube og horft á fyndin myndbönd eða tónlistarmyndbönd. Eins og sjá má á myndunum skemmta krakkarnir sér mjög vel hvort sem þau völdu sér klúbb til að fara í eða bara vera í kósi í Víðiseli.
Hér er skrúfað af miklum móð.
Heiðarborg á grænni grein Núna er grænn apríl hjá Reykjavíkurborg og af því tilefni viljum við í Heiðarborg segja frá því að við erum skóli á grænni grein. Við höfum verið að vinna með þemað ,,úrgangur og átthagar”. Þá höfum við verið að æfa okkur í að flokka ruslið og svo höfum við farið í ferðir um nánasta umhverfi í þeim tilgangi að skoða hvar börn og starfsfólk eiga heima og hvað við sjáum í kringum okkur. Við viljum minna nágranna okkar á að henda aldrei rusli á götuna en við höfum svolítið tekið eftir rusli á götum í ferðum okkar um umhverfið. Að lokum viljum við segja þetta; ,,Við í Heiðarborg verndum náttúruna og virðum umhverfið því við eigum bara eina jörð.” (Frétt frá Heiðarborg)
Krakkarnir á Heiðarborg.
Þjónusta í þínu hverfi MÁLNINGARÞJÓNUSTA MÁLNINGARÞJÓNUSTA S Sími ími 8 891 91 9 9890 890 m alarar@simnet.is malarar@simnet.is
Látið garðyrkjumenn okkar nostra við garðinn þinn
Hrólfur Hrólfur Ingi Ingi Skagfjörð Skagfjörð málari málari
Löggiltur rafvertktaki Sími 699-7756
VALUR H ELGASON
ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 ^^^ Z[PÅH PZ
18
Fréttir
Árbæjarblaðið
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson
Áratuga reynsla Íslenskar og vistvænar líkkistur Sverrir Einarsson
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 Allan sólarhringinn
Kristín Ingólfsdóttir
Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Gamla myndin - Hverjir eru þetta? Hér er gamla myndin og er tekin í árdaga Árbæjarhverfis. Við þekkjum nokkra en alls ekki alla og biðjum um hjálp ykkar. Vinsamlegast sendið nöfnin á saga@fylkir.com þó ekki væri nema eitt.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Öll blöðin eru á skrautas.is Enn og aftur viljum við minna lesendur okkar á að það er hægt að nálgast öll tölublöð Árbæjarblaðsins á netinu.
Bílamálun & Réttingar
Breidd 9,9 cm - Hæð 3,0 cm
Bæjarflöt 10 - Sími: 567-8686
Slóðin er www.skrautas.is og þá kemur upp síða þar sem hægt er að lesa öll blöðin undanfarin ár og að auki Grafarvogsblaðið en sömu útgefendur eru að blöðunum. Rétt er að vekja athygli auglýsenda á þessu einnig en töluvert er um að fólk fari inn á skrautas.is og fletti blöðunum okkar þar.
B
Headrush frá
Færð tvö á verði eins!
Foldatorginu Hverafold 1-3
Opið Mán-fös 9-18 Lau 10-14
Tímapantanir í síma
5676330
H! ar að T A jað i byr fleir ið. m á e u Er bóka ámsk tun t é l f
19
Árbæjarblaðið
Fréttir
,,Ég er eins og ég er” - á menningarvöku í Ártúnsskóla Hin árlega menningarvaka 7. bekkjar var haldin í skólanum fimmtudaginn 15. mars. Dagskráin að þessu sinni bar heitið ,,Ég er eins og ég er" en þar fluttu nemendur lög Páls Óskars sem búið er að setja upp í lítið ævintýri. Allur ágóði sýningarinnar rann til barnahjálparsamtakanna UNICEF. Sýningin ,,Ég er eins og ég er” er söngleikur sem fjallar um einelti við lög Páls Óskars. Þess má geta að krakkarnir fengu leyfi hjá Páli Óskari til þess að nota lögin hans.
Mikill fjöldi Árbæinga lagði leið sína á bingóið og margir unnu glæsilega vinninga eins og sjá má. ÁB-myndir Einar Ásgeirsson
Söngkonur framtíðarinnar.
Troðfullt á Stórbingói Troðfullt var út úr dyrum á Stórbingói Fylkis sem fór fram í Fylkishöllinni fyrir páskana. Bingóið fór fram á efri hæðinni í Fylkisheimilinu og er greinilegt að færa verður bingóið í aðalsalinn á næsta ári, svo mikil er aðsóknin.
Þessir drengir stóðu sig vel.
Annars fór bingóið mjög vel fram og margir fóru til síns heima að því loknu með glæsilega vinninga.
Fréttamolar frá kirkjustarfinu
Molar úr starfi Árbæjarkirkju Starfið sem af er vetrar hefur einkennst að vexti og miklum fjörleika. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá hversu mjög börnin og unglingarnir hafa verið duglegir við að sækja starf kirkjunnar í vetur. Foreldramorgnar í Norðlingaholti og Árbæjarkirkju hafa vaxið með auknum fjölda mæðra og feðra með börnin sín sem sækja starfið. Það er margt framundan í starfi kirkjunnar áður en að sumarið leggst á vitund og útivera vonandi sólríkra daga tekur við ásamt því að sækja kirkjuna heim á sunnudagsmorgni á fallegum sumardegi. Kirkjan fer ekki í sumarleyfi.
Sunnudaginn 22. apríl kl. 11.00 mun guðfræðineminn Fritz Már Jörgensson prédika í guðsþjónustunni. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Kirkjukór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Krisztinar Kalló Szklenár organista og kórstjóra. Messuþjónar sunnudagsins lesa ritningar dagsins. Aðalfundur safnaðarins 29. apríl Sunnudaginn 29. april í kjölfarið á guðsþjónustunni kl. 11.00 er boðað til aðalsafnaðarfundar safnaðarins. Allir safnaðarmeðlimir eiga rétt til setu á þeim fundi. Venjuleg aðalfundarstörf. Sunnudagaskólinn kl. 11.00 Útvarpsguðsþjónusta Sunnudaginn 6. maí Útvarpsguðsþjónusta kl. 11.00. sr. Þór Hauksson þjónar og prédikar Kirkjukór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Krisztine Kalló Szklenár organista og kórstjóra. Messuþjónar sunnudagsins lesa ritningalestra. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnðarheimili kirkjunnar.
Fjölskylduguðsþjónusta 13. maí Vorhátíð Árbæjarsafnaðar Sunnudaginn 13. maí verður vorhátíð sunnudagaskólans. Hátíðin hefst kl. 11.00 en þá verður slegið upp fjölskylduguðsþjónustu með þátttöku einhverra iðkenda íþróttafélagsins Fylkis. Eftir samveruna verður boðið upp á grillaðar pylsur og meðlæti. Uppstigningadagur 17. maí 2012 - Dagur aldraðra í Árbæjarkirkju Fimmtudaginn 17. maí nk. Uppstigningadag er eins og endranær hátíðarstund í Árbæjarkirkju. Dagurinn hefst með Hátíðarguðsþjónustu kl. 14.00 (ath.breyttan messutíma) - Prestar kirkjunnar sr. Þór Hauksson og sr. Jón Helgi Þórarinsson þjóna fyrir altari. Í guðsþjónustunni mun stórsveitin ,,Öðlingar” spila létt lög. Sveitin er skipuð tónlistarmönnum sem hafa áralanga reynslu. Kirkjukór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Krisztinar Kalló Szklenár organista og kórstjóra. Eldri borgarar lesa ritningalestra. Eftir guðsþjónustuna býður kirkjugesta margrómað hátíðarkaffi í boði Soroptimistakvenna í safnaðarheimili kirkjunnar. Handavinnusýning Opna hússins starfs eldri borgara í söfnuðinum. Safnaðarferð 20. maí á bóndabæ Sunnudaginn 20. maí ætlum við í Árbæjarkirkju að leggja land undir fót og fara saman í sveitaferð. Ferðinni er heitið í Bjarteyjarsand í Hvalfirði. Á Bjarteyjarsandi er rekið stórt sauðfjárbú auk þess sem hestar, hundar, kanínur og hænur bæjarins fara ekki fram hjá neinum. Á Bjarteyjarsandi er líka handverksmarkaður og þar er að finna fjölbreytt handverk sem framleitt er af heimamönnum. Grillaðar verða pylsur og skoðað Hernámssetrið að Hlöðum sem opnar einmitt daginn áður. Því ættu allir aldurshópar að finna eitthvað við sitt hæfi og því er um að gera að taka daginn frá. Lagt verður að stað frá Árbæjarkirkju kl. 10:30 og kostnaði við ferðina er stillt í hóf krónur 1000 fyrir fullorðna. Frítt fyrir börnin. Skráning og nánari upplýsingar fer fram á netfanginu ingunn@arbaejarkirkja.is Hátíðarguðsþjónusta 27. maí - Hvítasunnudagur Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.00. sr. Jón Helgi Þórarinsson þjónar og prédikar. Kirkjukórinn leiðir hátíðarsöng undir stjorn Kristine K. Szklenár. www.arbaejarkirkja.is
OS SAMLOKUOSTUR Í SNEIÐUM 1198 KR.KG VERÐ ÁÐUR VERÐ Á ÐUR 1498 1498 KR.KG KR. KG 300 KR. KR. VERÐLÆKKUN VERÐLÆKKUN 300
YUM YUM 70 GR NÚÐLUBOX
479 KR.
TILBOÐ: 6 BOX FYRIR VERÐ Á 5 BOXUM
95
398 39 9E8 @G# @G# E@ @
@G# @ G# 9H 9H
PRINCE POLO 6 STK.FYRIR VERÐ Á 5
11998 998 @ @G# G# &&% @<# % @<#
698 69 9E8 @G# @G# E@ @
998 9@@G# 98 G# E E@ @ ÞARF Þ ARF A AÐEINS ÐEINS A AÐ ÐH HITA ITA H HEIMA EIMA !
39 398 8 @G# @ G# E@ E@
1159 59 @G# E@ @ G# E @
ÞARF AÐEINS HITA Þ ARF A ÐEINS AÐ AÐ H ITA HEIMA HEIMA !
198 198 @G# *%% <G @ G# * %% <G
198 198 @ @G# G# E E6G>Á 6G>Á
259 2 59 5 @ @G# G# &&% HI@# % HI@#
698 69 9 8 @ @G# G# ' '*% BA *% BA
698 69 98 @G# @G# ' AIG# ' AIG#