Árbæjarblaðið 8. tbl. 7. árg. 2009 ágúst
¨ Bílastæðamálun ¨ Vélsópun ¨ Malbiksviðgerðir s.s.588 www.bilastaedi.is 5884800 4800 www.bilastaedi.is
Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti
Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 115 – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is Mesthúsið er gríðarlega stórt og verður væntanlega í framtíðinni að mestu leyti í hlutverki fimleikahallar. Húsið mun leysa afar mörg vandamál hvað aðstöðu varðar hjá Fylki og einnig hjá ÍTR. ÁB-mynd PS
Mesthúsið til Fylkis?
Samkvæmt heimildum Árbæjarblaðsins mun Fylkir fá afnot af hinu svokallaða Mesthúsi sem staðsett er í Norðlingaholti og hefur staðið að mestu ónotað frá gjaldþroti byggingavöruverslunarinnar Mest. Hugmyndin er að fimleikadeild Fylkis fái stærstan hluta hússins til afnota ásamt Karatedeild Fylkis en
ÍTR mun einnig verða með frístundamiðstöð fyrir Norðlingaholt í húsinu. Sennilega verður greint verður frá þessu opinberlega í september en Reykjavíkurborg mun leigja húsið af Eykt sem er eigandi hússins. Heimildir okkar segja að þegar liggi fyrir hagstæður leigusamning-
ur og ekkert geti komið í veg fyrir að Mesthúsið verði ein glæsilegasta fimleikahöll landsins í framtíðinni. Vitað er að Björn Gíslason formaður Hverfisráðs Árbæjar hefur unnið ötullega að þessu máli og í samtali við Árbæjarblaðið sagði Björn að málið væri í fullri vinnslu og að vonandi hylli undir kærkomna lausn fyrir
Fylki. Þessi lausn á húsnæðisvanda fimleikadeildarinnar hjá Fylki leysir mörg önnur vandamál hjá Fylki hvað aðstöðu varðar. Karatedeildin kemst í varanlegt húsnæði og með því að leigja Mesthúsið lýkur leit borgarinnar að hentugu húsnæði fyrir frístundamiðstöð ÍTR í Norðlingholti.
Glæsileg flugubox fyrir veiðimenn 15 til 26 flugur í hverju boxi Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Sjá nánar á Krafla.is - Sími 698-2844
Tjónaskoðun . hringdu og við mætum
͙ŽŐ ƊƷ ŬĞŵƐƚ ş ĨŽƌŵ͊
Löggiltur rafverktaki Sími - 699-7756
Pantið tíma í síma 511–1551
Bíldshöfða 14 - Sími: 699-7756
Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3
Bílamálun & Réttingar Bæjarflöt 10 - Sími: 567-8686 www.kar.is ą × Ą Ą × Ǧ À §Ą Ą
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingastjóri: Þorvarður Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 (660 fyrirtæki).
Stelpurnar okkar Það var stórkostleg stund þegar íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu, stelpurnar okkar, gengu inn á leikvanginn í Finnlandi sl. mánudag. Til þessa hafa handknattleiksmenn séð um að halda merki Íslands á lofti í hópíþróttum erlendis en núna loksins var komið að knattspyrnulandsliði. Fyrsti leikurinn gegn Frakklandi var mikil vonbrigði. Ekki með íslenska liðið heldur dómara leiksins. Vissulega voru það vonbrigði þegar Margréti Láru tókst ekki að skora úr vítinu og þegar Ásta markvörður missti boltann klaufalega í netið en rússneska dómarakerlingin var alveg skelfilega léleg. Tvö víti dæmdi hún á íslenska liðið og bæði algjört bull að því er sparksérfræðingar segja. Og síðan sleppti hún augljósu víti á Frakkana. Í íþróttum er alltaf ef og hefði. Hvað hefði gerst ef rússneski dómarinn hefði dæmt eins og maður. Sleppt þessum tveimur vítaspyrnum, dæmt vítið á Frakkana og ef Margrét Lára hefði skorað úr sínu víti og Ásta ekki misst boltann í netið? Niðurstaðan hefði orðið stór íslenskur sigur. Sæmilega réttlátur dómari og íslenska liðið hefði hirt öll stigin. Ég var stoltur af íslenska liðinu en hins vegar held ég að það hafi ríkt of mikil bjartsýni fyrir þetta mót. Í Finnlandi eru 12 bestu þjóðir Evrópu. Við erum í þeim pakka, það eitt er frábær árangur. Framundan eru erfiðir leikir gegn Noregi og Þýskalandi. Í raun og veru eigum við ekki að eiga mikla möguleika gegn Noregi en samt einhverja. Gegn Þýskalandi hlýtur stefnan að vera að tapa með sem minnstum mun. Íslenska liðið stendur sig vonandi vel í þessum tveimur leikjum. Hvernig sem allt fer er þátttaka í úrslitakeppni EM mikið innlegg í reynslubankann og stelpurnar okkar geta bara orðið betri í framtíðinni. Stefán Kristjánsson, ritstjóri Árbæjarblaðsins
abl@skrautas.is
Björn Gíslason, formaður Hverfisráðs Árbæjar, afhendir sr. Þór Haukssyni í Árbæjarkirkju umhverfisverð-
Umhverfisverðlaun Árbæjar 2009:
Umhverfisviðurkenning Hverfisráðs til kirkjunnar Á fundi hverfisráðs Árbæjar þann 13. ágúst síðastliðinn var samþykkt að veita Árbæjarkirkju Umhverfisverðlaun Árbæjar fyrir árið 2009. Umhverfisverðlaunin eru veitt árlega fyrir fallegt og snyrtilegt nærumhverfi og gott starf eða þjónustu við íbúa. Verðlaunin voru formlega afhent forsvarsmönnum kirkjunnar þann 21. ágúst í Árbæjarkirkju. Er Árbæjarkirkja afar vel að verðlaunum þessum komin og undirstrika þau enn og aftur það góða og mikla starf sem unnið er í kirkjunni.
Björn Gíslason og sr. Þór Hauksson fremstir á myndinni sem tekin var í kaffisamsæti að verðlaunaafhendingu lokinni.
Umhverfisverðlaun Grafarholts og Úlfarsárdals:
Lambhagi varð fyrir valinu Á fundi hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsárdals 15. júní s.l. var samþykkt að veita Gróðrarstöðinni Lambhaga viðurkenningu fyrir snyrtilegt nærumhverfi og góða þjónustu. Fimmtudaginn 16. júlí sótti formaður hverfisráðs húsbændur í
Lambhaga heim en gróðrarstöðin er staðsett vestast í Úlfarsárdalnum. Þarna er boðið upp á ferska og vistvæna ræktun á salati og kryddjurtum ásamt margvíslegri trjárækt sem umlykur þessa atvinnustarfsemi og gerir svæðið að frábærri gróðurvin rétt ofan við Vesturlandsveginn.
Gróðrarstöðin Lambhagi hélt upp á þrjátíu ára starfsafmæli þann 21. júní s.l. og segja eigendur að framtíðin sé björt í þeirra rekstri og ýmsar nýjungar í undirbúningi jafnframt því sem fyrirhugað er að bæta við fleiri gróðurhúsum.
Hársnyrtistofa Höfðabakka 11 -- S. Höfðabakka S. 587-7900 587-7900 Opið virka daga 08-18 Opiðá laugardögum virka daga 08-18 Lokað í sumar
Formaður hverfisráðs Óttarr Guðlaugsson, Hafberg Þórisson, Jóhanna Guðjónsdóttir og Ásmundur Þórisson.
4
Matur
Árbæjarblaðið
Kjúklingur og skyr- og súkkulaðimús - að hætti Hjördísar og Kristjáns Hjónin Hjördís Jónsdóttir og Kristján Ágústsson í Reykási 11 eru matgæðingar okkar að þessu sinni. Afar girnilegar uppskriftir þeirra fara hér á eftir.
Kjúklingabringur með sólþurrkuðum tómötum - fyrir 4-6
Matgæðingarnir Hjördís Jónsdóttir og KristjánÁgústsson.
ÁB-mynd PS
4 kjúklingabringur, skinnlausar. 100 gr. pestó með sólþurrkuðum tómötum. 150 gr. rjómaostur með sólþurrkuðum tómötum. 4 sólþurrkaðir tómatar, olíulegnir. 4 svartar steinlausar ólífur. Salt og grófmalaður pipar. Pestóið borið á bringurnar, báðu megin. Teskeið af rjómaostinum sett á miðja bringuna. Ofan á rjómaostinn er
stórri pönnu eða potti. Gyllið laukinn og hvítlaukinn þar í. Bætið hrísgrjónunum saman við og veltið þeim upp úr olíunni. Hellið síðan soðinu á pönnuna í smáum skömmtum og hrærið vel í. Látið hrísgrjónin drekka vel í sig soðið á milli þess sem meiru er bætt í. Tekur um 20 mínútur. Skerið sveppina í litla bita og blandið saman við grjónin ásamt hvítvíninu, afganginum af smjörinu og rifna paramigiano ostinum. Kryddið og hrærið vel í. Stráið dálitlu af paramigiano ostinum yfir réttinn þegar hann er borinn fram. Kúrbíts- og tómatgratín. Fyrir 4-6. 2 kúrbítar. 4-6 tómatar. 2-3 hvítlauksrif, smátt söxuð. Ólífuolía. Salt og grófmalaður pipar. Brauðmylsna.
Skora á Ragnhildi og Hauk Hjördís Jónsdóttir og Kristján Ágústsson, Reykási 11, skora á Ragnhildi Guðmundsdóttur og Hauk Garðarsson í Reyðarkvísl 15 að koma með uppskriftir í næsta matarþátt Árbæjarblaðsins. Við birtum gómsætar uppskriftir þeirra í næsta blaði sem kemur út í september. sett ein ólífa og einn sólþurrkaður tómatur. Bringan lögð saman yfir fyllinguna og fest saman með tannstöngli. Setjið í eldfast mót. Saltið og piprið yfir bringurnar. Bakið við 180° í 30-35 mínútur. Afgangurinn af rjómaostinum brætt með sem sósa. Meðlæti Svepparísottó og kúrbíts- og tómatagratín.
Hárgreiðslustofa Helenu-Stubbalubbar Barðastöðum 1-3 Hægt er að panta tíma á netinu. Kíkið á tilboðin okkar á Stubbalubbar.is Panta tíma í síma 586-1717 frá kl. 8-18 alla virka daga. Verið velkomin. Ungir sem aldnir. Við dekrum við þig.
Svepparísottó. Fyrir 4-6. ½ l kjúklinga- eða grænmetissoð. 1 pk. þurrkaðir sveppir. 1 msk. ólífuolía. 3 msk. smjör. 1 laukur, smátt skorinn. 2 hvítlauksrif, marin. 2 dl risottó hrísgrjón (arborio). 1 dl hvítvín. 2 dl rifinn paramigiano ostur. Salt og grófmalaður pipar. Hitið soðið og látið þurrkuðu sveppina liggja í því um stund. Sigtið soðið frá og leggið sveppina til hliðar. Hitið ólífuolíuna með ½ af smjörinu á
Skiptum um bremsuklossa og diska
Sneiðið kúrbítana og tómatana og raðið þeim í eldfast mót í lögum. Dreifið ólífuolíu og hvítlauk yfir hvert lag fyrir sig. Stráið brauðmylsnu yfir allt saman og bakið við 200° í um 40 mínútur.
Eftirréttur Skyr- og súkkulaðimús fyrir 6-10 300 gr. Kea skyr með vanillu. 300 gr. hvítt súkkulaði. 2 eggjarauður. 4 dl rjómi, þeyttur. Setjið súkkulaðið í stóra skál og bræðið yfir vatnsbaði. Gætið þess að vatnið sé ekki of heitt. Hrærið eggjarauðunum varlega saman við. Hrærið skyrið út í með sleif og hrærið að lokum rjómann saman við. Setjið á diska eða í skálar og kælið. Berið fram með berjum eða ávöxtum. Verði ykkur að góðu, Hjördís og Kristján
ÁRBÆ fyrst og fremst...
ódýr!
R I R Y F T L L A
! A N Í Þ G O ÞIG torg is t e m n æ r g g o a t Ávax ferskleiki og hollusta!
Bakað á staðnum!
Kjtvöintnoslagáfsistakðnuurm!
ntgtoúgrvhal!ollt Lífróæ trúle
kjö
Opið alla daga til 21:00! Opið 11-21 alla virka daga, 10-21 um helgar
6
Námskeið fyrir börn KORPÚLFSSTÖÐUM haust / vetur 2009
Fréttir
Árbæjarblaðið
- 2010
ÓBREYTT verð frá s.l. vetri
INNRITUN STENDUR YFIR www.myndlistaskolinn.is sími 551-1990 á skrifstofutíma mán-fim kl.13-17 og fös kl.13-16
Aftasta röð frá vinstri, Aðalsteinn Sverrisson þjálfari, Arnar Jónsson, Kristófer Máni Friðriksson, Ásmundur Atli Guðjónsson, Arnór Gauti Brynjólfsson og Jakob Leó Bjarnason þjálfari. Miðröð frá vinstri, Valdimar Þór Ingimundarson, Mikael Emil Kaaber, Kolbeinn Birgir Finnsson og Dagur Dan Þórhallsson. Fremstur, Guðjón Freyr Guðjónsson.
Shellmótsmeistarar
6. flokkur karla gerðu sér góða ferð til Eyja í sumar og sigruðu Shellmótið. Þeir sigruðu í flokki Aliða, B1 lenti í 2 sæti, B2 urðu í 3 sæti og C1 vann Helliseyjarbikarinn. Þetta var sérlega glæsilegur árangur hjá þessum ungu og efnilegu knattspyrnumönnum Fylkis.
Og hér eru meistararnir með verðlaun sín.
VETUR
'%%."'%&%
JEEA H>C<6K:;JG ;NG>G ÏÃGÓII6" D< IÓBHIJC96HI6G; Ï G:N@?6KÏ@
strætó.is
Breytingar á ferðum Strætó -Ym VN TLó mN Z[ Akstursleiðir 18, 19, og 24 breytast. Leið 26 er ný leið sem tengir Grafarholtið við Grafarvog og Árbæ. Leið 18
Leið 19
Leið 26
Aksturinn breytist þannig að ekki verður ekið frá Spöng. Vagninn ekur hefðbundna leið frá Hlemmi að Ártúni. Tímasetningin í Ártúni passar við leiðir 5, 6 og 15 í Ártúni í báðar áttir á dagtíma og við leiðir 5 og 6 á kvöldin og um helgar. Frá Ártúni verður ekið eftir Vesturlandsvegi að Lambhagavegi (hringtorgið við Bauhaus). Ekið verður að öðru hringtorgi við Mímisbrunn og eftir Lambhagavegi aftur að Reynisvatnsvegi. Síðan verður „hefðbundinn“ hringur ekinn í Grafarholtinu, en ný endastöð kemur á Vínlandsleið fyrir framan Húsasmiðjuna. Ekin verður sama leið aftur að Hlemmi. Farþegar í Grafarholti verða því að taka strætisvagninn „öfugu“ megin við veginn miðað við það sem verið hefur.
Leið 19 mun þjónusta Hálsahverfi í framtíðinni. Eftir að komið er frá Streng verður ekið niður Bitruháls, eftir Grjóthálsi og upp Hálsabraut og Bæjarbraut að Rofabæ. Síðan er farin sama leið í átt að bænum.
Leið 26 er ný leið sem tengir Grafarholtið við Grafarvog og Árbæ. Leiðin er farin á 60 mínútna fresti að deginum á virkum dögum. Akstursleiðin er frá Spöng eftir Borgavegi, Víkurvegi, Reynisvatnsvegi, Lambhagavegi, Mímisbrunni, Lambhagavegi og Reynisvatnsvegi. Héðan verður ekið eins og leið 18 gerði að Rofabæ í Árbæ. Leiðin mun þó liggja að Árbæjarskóla og þaðan eftir Fylkisvegi, Hraunsási og þaðan í Rofabæ aftur og síðan sömu leið að Spöng.
Leið 24 Leið 24 mun aka fram hjá „Húsahverfinu“ í Grafarvogi í framtíðinni. Ekið verður frá Fjallkonuvegi eftir Gagnvegi, Víkurvegi og Borgavegi að Spöng. Frá Spöng verður sama leið ekin, þ.e. Borgavegur, Víkurvegur, Gagnvegur og Fjallkonuvegur.
Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á strætó.is og í nýrri leiðabók sem fæst á öllum sölustöðum Strætó.
8
9
Kaupþingsmót 7. flokks á Akranesi
Árbæjarblaðið
Kaupþingsmót 7. flokks á Akranesi
Árbæjarblaðið
Spáð í spilin á milli leikja. ,,Þú messar ekki við mig, ég er tröll’’.
Fararstjórarnir, Heiðar og Sigfús. Marteinn, Rúnar Andri, Númi Steinn, Ævar Daði og Markús Máni.
Prúðastir á Skaganum
Stærsti bikarinn í höfn, prúðasta liðið á mótinu.
Mótið er það lang stærsta sem er haldið er fyrir þennan aldurshóp með um 1100 keppendur úr 27 félögum sem sendu 120 lið til keppni. Fyrirkomulag mótsins var þannig að á föstudeginum spiluðu strákarnir þrjá leiki en eftir að úrslit lágu fyrir var liðunum rað-
að í riðla eftir styrkleika. Á laugardeginum voru svo leiknir fjórir leikir og á sunnudeginum einn leikur. Fylkisstrákarnir stóðu sig með sóma og voru félaginu til fyrirmyndar enda unnu þeir stærsta bikarinn annað árið í röð fyrir að vera prúðasta liðið.
Strákarnir sýndu mörg skemmtileg tilþrif á mótinu og það er alveg ljóst að þarna eru á ferðinni framtíðar meistaraflokksleikmenn.
Mótið heppnaðist í alla staði mjög vel og það voru þreyttir en jafnframt ánægðir drengir sem héldu heim á leið seinnipart sunnadags.
Hákon Ísar, Númi Steinn og Ívar Helgi.
Myndir: Katrín J. Björgvinsdóttir
Markús Máni. Halldóra og Anna Kristín fararstjórar.
Efri röð f.v. Gabríel Máni, Axel Máni, Hrannar Ingi, Jón Guðni og Jón Orri. Neðri röð f.v. Kári, Haukur Ingi, Magnús Ari og Egill Orri.
Fararstjórinn Stefán og Georg Guðni. Máni, Arnar Máni, Orri Hrafn, Bjarni Freyr og Hrannar Ingi Fylkismenn fagna bikarnum.
Hrannar Ingi og Egill Orri sýna tilþrif á móti KR.
Sebastian Óli. Sebastian Óli leikur á Reynismann.
,,Ég á Fjalar markmanninn í Fylki’’
Tindur Örvar í baráttu um boltann.
Þjálfararnir Siggi og Guðbjörg að leggja línurnar fyrir leik.
Kári sýnir flotta takta í KR leiknum.
Dagur Ingi.
Einbeittir í vörninni.
8
9
Kaupþingsmót 7. flokks á Akranesi
Árbæjarblaðið
Kaupþingsmót 7. flokks á Akranesi
Árbæjarblaðið
Spáð í spilin á milli leikja. ,,Þú messar ekki við mig, ég er tröll’’.
Fararstjórarnir, Heiðar og Sigfús. Marteinn, Rúnar Andri, Númi Steinn, Ævar Daði og Markús Máni.
Prúðastir á Skaganum
Stærsti bikarinn í höfn, prúðasta liðið á mótinu.
Mótið er það lang stærsta sem er haldið er fyrir þennan aldurshóp með um 1100 keppendur úr 27 félögum sem sendu 120 lið til keppni. Fyrirkomulag mótsins var þannig að á föstudeginum spiluðu strákarnir þrjá leiki en eftir að úrslit lágu fyrir var liðunum rað-
að í riðla eftir styrkleika. Á laugardeginum voru svo leiknir fjórir leikir og á sunnudeginum einn leikur. Fylkisstrákarnir stóðu sig með sóma og voru félaginu til fyrirmyndar enda unnu þeir stærsta bikarinn annað árið í röð fyrir að vera prúðasta liðið.
Strákarnir sýndu mörg skemmtileg tilþrif á mótinu og það er alveg ljóst að þarna eru á ferðinni framtíðar meistaraflokksleikmenn.
Mótið heppnaðist í alla staði mjög vel og það voru þreyttir en jafnframt ánægðir drengir sem héldu heim á leið seinnipart sunnadags.
Hákon Ísar, Númi Steinn og Ívar Helgi.
Myndir: Katrín J. Björgvinsdóttir
Markús Máni. Halldóra og Anna Kristín fararstjórar.
Efri röð f.v. Gabríel Máni, Axel Máni, Hrannar Ingi, Jón Guðni og Jón Orri. Neðri röð f.v. Kári, Haukur Ingi, Magnús Ari og Egill Orri.
Fararstjórinn Stefán og Georg Guðni. Máni, Arnar Máni, Orri Hrafn, Bjarni Freyr og Hrannar Ingi Fylkismenn fagna bikarnum.
Hrannar Ingi og Egill Orri sýna tilþrif á móti KR.
Sebastian Óli. Sebastian Óli leikur á Reynismann.
,,Ég á Fjalar markmanninn í Fylki’’
Tindur Örvar í baráttu um boltann.
Þjálfararnir Siggi og Guðbjörg að leggja línurnar fyrir leik.
Kári sýnir flotta takta í KR leiknum.
Dagur Ingi.
Einbeittir í vörninni.
10
Fréttir
Lengd: 25m
•
Árbæjarblaðið
Breidd: 12m
Rótarýfélagar frá vinstri eru: Ársæll Jónsson, Jón Magngeirsson, Kolbeinn Finnson, Björn Gíslason og Ólafur Örn Ingólfsson.
Snyrting við vatnspóstinn
Fjöldi gufu- og eimbaða: 1
Fjöldi heitra potta: 5
Nokkrir rótarýfélagar komu saman nýverið og tóku í gegn og snyrtu svæðið við vatnspóstinn neðan við kirkjuna. Vatnspóstur þessi er gríðarlega mikið notaður af útivistarfólki enda ekki amalegt að geta fengið sér kaldan vatnssopa þegar trimmað er um hverfið. Að snyrtingu lokinni var svæðið mjög snyrtilegt og mun veita þeim sem leið eiga um svæðið enn meiri ánægju en áður. Þökk sé röskum rótarýfélögum í Árbænum.
Vanir menn á ferð.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar:
Dansinn er fyrir alla Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar, sem er einn af stærstu og virtustu dansskólum landsins, er staðsettur að Auðbrekku 17, Kópavogi en þar hafa verið nemendur frá öllu höfuðborgasvæðinu í gegnum árin. Skólinn leggur allan metnað sinn í fagleg vinnubrögð og hefur árangur keppnispara skólans vakið mikla athygli og allir kennarar skólans hafa, hver um sig, margra ára reynslu í danskennslu.
Byggingarár: 1994
Í vetur verður boðið uppá almenna barnadansa, standard-suður ameríska dansa, gömlu dansana, freestyle, og salsa. Danskólinn er með kennslu fyrir alla aldurshópa, hvoru tveggja fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir. Í ár býður Danskólinn í fyrsta skipti uppá danskennslu fyrir 3ja ára börn. Þeim er boðið upp á dans, söng og leik sem er fléttað saman við tónlist. Við þetta bætast síðan fyrstu sporin í almennum samkvæmis-
ÁRBÆJARLAUG
I ER LAUGIN Í ÞÍNU HVERF
AFGREIÐSLUTÍMI A FGREIÐSLUTÍMI L LAUGAR AUGAR 30 – 22:30 Virka daga frá kl. 6 6:30 Helgar kl. 8:00 – 20:30
www.itr.is
ı
sími 411 5000
Dansarar úr Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar.
dönsum. Dans er góð líkamsrækt fyrir alla aldurshópa og er ein af fáum íþróttum sem pör geta stundað saman. Við hvetjum lesendur til að kynna sér hvað Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar býður í vetur. Allar upplýsingar má fá á heimasíðu skólans www.dansari.is, það er líka hægt að innrita í síma: 564 -1111 og í tölvupósti dansari@dansari.is
11
Árbæjarblaðið
Fréttir
VORUM AÐ TAKA UPP HAUSTVÖRURNAR FRÁ
Árbæjarskóli fjölmennastur - skólahúsnæði í byggingu í Grafarholti, Norðlingaholti og Úlfarsárdal Skólasetning fór fram í grunnskólum Reykjavíkurborgar mánudaginn 24. ágúst og í sjálfstætt starfandi skólum aðeins fyrr. Á þessu hausti eru nemendur í grunnskólum í borginni rúmlega 14.000, þar af eru um 13.600 í skólum í rekstri Reykjavíkurborgar og um 400 í sjálfstætt starfandi grunnskólum. Rúmlega 1.300 börn eru að stíga sín fyrstu skref í grunnskólagöngunni. Nemendur í skólum borgarinnar eru um 300 færri en haustið 2008. Heildarfjöldi starfsmanna í grunnskólum Reykjavíkurborgar er um 2.500 í um 2.100 stöðugildum eða svipaður og síðustu árin. Vel hefur gengið að manna stöður í skólunum en um þessar mundir er auglýst eftir fólki í nokkrar stöður skólaliða. Fjölmennasti grunnskóli Reykjavíkurborgar er Árbæjarskóli með 725 nemendur, en fámennastur er Ártúnsskóli með 152 nemendur. Sjö grunnskólar borgarinnar eru með fleiri en 500 nemendur og 13 skólar með 300 nemendur eða færri. Þrír grunnskólar eru í byggingu. Sæmundarskóli, en bygging hans er komin vel á veg og gert er ráð fyrir að kennsla hefjist í hluta nýbyggingarinnar nú í haust. Bygging Norðlingaskóla er komin styttra á veg. Þá er hafin bygging skólahúsnæðis í Úlfarsárdal sem upphaflega var ætlað eingöngu fyrir leikskóla, en til að byrja með verður byggingin nýtt fyrir starfsemi leikskóla, yngri bekki grunnskóla og frístundaheimili. Fjöldi nemenda á stöðugildi hvers kennara er um 11 og hefur verið svipaður undanfarin ár. Meðalfjöldi nemenda í bekk er 20,8 og hefur hann verið svipaður í fjölda ára. (Sjá nánar í súluriti) Meðalfjöldi nemenda í 1. bekk er 18,6 og meðalföldi í 10. bekk 21, 7.
HNOKKAR & HNÁTUR er staðsett við Nettó í verslunarkjarnanum við Hverfold 1-3, Grafarvogi.
Hlökkum til að taka á móti þér. OPNUNARTÍMI: mánudaga og miðvikudaga kl. 12.00 – 18.00 þriðjudaga og fimmtudaga kl. 12.00 – 16.00 föstudag – sunnudaga LOKAÐ
Sími: 561 5910 Erum einnig á facebook.
12
Fréttir
Árbæjarblaðið
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Sverrir Einarsson
Hermann Jónasson
Jón G. Bjarnason
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Dalur
Þessir kappar eru að æfa fyrir Reykjavíkur marþon.
Við sem höfum valið að búa í þéttbýli og kunnum vel að meta kosti þess
Efalex eflir einbeitingu og sjón og stuðlar þannig að betri námsárangri.
Vönduð blanda fiski- og kvöldvorrósarolíu sem eflir og styrkir:
20% afsláttur í Árbæjarapóteki í september
verðum þó að hafa möguleika á að komast á gras öðru hverju. Við verðum að eiga þess kost að stíga út af malbikinu og fá eithvað mýkra undir fót. Jafnvel leggjast niður og velta okkur. Á flestum þéttbýlisstöðum er þessari þörf mætt með því að hafa sem mest af svokölluðu grænum svæðum þar sem fólk getur komið á góðviðrisdögum og notið útiveru í návígi við græn grös og annan gróður. Fólk kemur gjarnan með nesti og slær upp smáveislu án fjögurra veggja. Í borginni okkar er vel séð fyrir þessu. Grænu svæðin eru mörg og skemmtileg. Við í Árbænum eru þó alveg sér-
staklega heppin að hafa Elliðaárdalinn nánast inn í hverfinu.Þegar hér er talað um Dalinn er fyrst og fremst átt við svæðið frá Vatnsveitubrúnni niðar að Stíflu. Dalurinn er slík útivistarparadís að það hlýtur að flokkast sem helgispjöll að hrófla við honum. Við sem höfum búið lengi í hverfinu og verið tíðir gestir í Dalnum höfum upplifað ýmsar breytingar á þessum slóðum, flestar ef ekki allar til hins betra. Stígar hafa verið malbikaðir ( umdeilt) og lýstir(ekki umdeilt). Þá hefur bílum verið úthýst. Mesta breytingin er þó í gróðrinum.
• Hugsun • Einbeitingu • Sjón • Hormónajafnvægi
Einstakt gegn lesblindu og ofvirkni.
Fjölmennur 6. flokkur kvenna síðasta vetur.
Hentar fólki á öllum aldri. Fæst í fljótandi formi og hylkjum í lyfja- og heilsuverslunum.
Efalex er einstök samsetning úr hreinni kvöldvorrósarolíu og fiskiolíu sem innihalda þrjár mikilvægar fitusýrur, DHA, AA og GLA ásamt tveimur öflugum andoxunarefnum, E-vítamíni og tímían olíu sem vinna saman að viðhaldi lífsnauðsynlegra fitusýra í líkamanum. Nægt magn þessarra olía í líkamanum stuðla að skarpari hugsun og betri einbeitingu sem eykur færni okkar til þess að læra. Deildarmeistarar b-liðs 4. flokks kvenna 2009.
13
Fréttir
Árbæjarblaðið
Ung kona tekur á því. Ætli hún hafi ekki farið í maraþonið, hver veit.
rinn
ÁB myndir Einar Ásgeirsson
Dalurinn er nú allur gróðri vafinn og mannanna verk horfin undir gróðurþekjuna. Til dæmis eru engin merki um grjótnámuna í suðurhlíð dalsins lengur sjáanleg. En það er erfitt að gera öllum til hæfis. Til er fólk sem er ekkert hrifið af of miklum trjágróðri og það hefur nokkuð til síns máls. Þó skógurinn sé fallegur og veiti skjól þá hindrar hann útsýni. Í suðurhlíð Dalsins er nokkuð um stíga og meðal annars liggur stígur nokkuð ofarlega eftir hlíðinni endilangri rétt neðan við byggðina í Breiðholtinu. Af þessum stíg var frábært útsýni en nú takmarkast það talsvert af
trjágróðrinum. Það er erfitt að lýsa landkostum með orðum og því fylgja þessum pistli myndir sem segja sína sögu. Ekki er hægt að ljúka þessu spjalli án þess að minnast á aðra útivistarperlu sem við Árbæingar eigum en virðumst alveg hafa gleymt. Það er Rauðavatn. Svo ótrúlegt sem það er þá virðast augu manna gjörsamlega lokuð fyrir öllum þeim möguleikum sem vatnið býður upp á. Júlí 2009 Gunnar Ásgeirsson Myndir - Einar Ásgeirsson
Handboltinn að fara á fullt hjá Fylki - Reynir Þór þjálfar mfl. karla Nú þegar haustið nálgast styttist líka í handboltavertíðina. Handknattleiksdeild Fylkis hefur gengið frá ráðningu þjálfara allra flokka fyrir veturinn og er hægt að nálgast tímatöflu æfinga hjá einstökum flokkum á heimasíðu félagsins, www.fylkir.net. Þar er einnig að finna upplýsingar um æfingagjöld og eru foreldrar hvattir til að nýta sér frístundakort Reykjavíkurborgar til að greiða niður æfingagjöldin. Þess má geta að æfingagjöld eru óbreytt frá í fyrra. Farið verður í sérstakt átak til að efla karlaflokkana í vetur sem voru eilítið þunnskipaðri en kvennaflokkarnir síðasta vetur. Eru allir sem vettlingi geta valdið, strákar og stelpur, hvattir til að mæta á æfingar í vetur og prófa þessa skemmtilegu íþrótt sem stundum er kölluð þjóðaríþrótt okkar Íslendinga. Árangur hjá yngri flokkum var glæsilegur síðasta vetur, m.a. varð 6. flokkur kvenna Íslandsmeistari a-liða og a-lið 4. flokks kvenna Reykjavíkurmeistari og bikarmeistari, svo eitthvað sé nefnt. Ljóst er að það er ærið verkefni fyrir höndum að fylgja þessum frábæra árangri eftir á komandi vetri. Fylkir mun tefla fram öflugu liði í N1 deildinni í handknattleik kvenna í vetur. Þær hafa haldið flestum sínum leikmönnum frá síðasta vetri og tveir nýir leikmenn hafa gengið til liðs við félagið, þær Tinna Jökulsdóttir og Elisabeth Kowalck, en þær hafa báðar áður spilað með félaginu. Gengið var frá ráðningu Reynis Þórs Reynissonar sem þjálfara meistarflokksliðs Fylkis sl. vor til næstu tveggja ára. Reynir er gamalkunnur markvörður úr handboltanum og hefur m.a. þjálfað meistaraflokk karla hjá Víkingi eftir að hann lagði sjálfur skóna á hilluna. Það er spennandi vetur framundan hjá handboltastelpunum í Fylki og óhætt að hvetja alla til að mæta á leiki í Fylkishöllinni til að sjá handbolta í hæsta gæðaflokki. ÁFRAM FYLKIR!
Þessar tátur voru að gera sig klára á æfingu hjá Fylki.
Ung fjölskylda var á vegi okkar í góðviðrinu.
Hjólalest. Á stríðsárunum fóru skipalestirnar yfir atlandshafið eins hratt og gagnminnsta skipið leyfði, sömu lögmál eru hér í fullu gildi.
Eigi vitum við nöfn þessara kappa en þeir áðu við vatnspóstinn í dalnum sem Rótary-félagar gáfu og er alltaf hugsað vel til þeirra þegar menn slökkva þorstann.
14
KOMDU A� ÆFA SUND
FrĂŠttir
à rbÌjarblaðið
Bc\R S` V]ZZ ]U U„ OZVZW O `„bb aS[ aO[SW\O` Z YO[a`¨Yb ZSWY OUO ]U aZ‡Yc\ U„ c[ T{ZOUaaYO^
SUNDDEILD Ă RMANNS
bĂ˝r yfir ĂĄralangri reynslu Ă sundkennslu og ĂžjĂĄlfun. ĂžjĂĄlfunin er miðuð Ăşt frĂĄ aldri og getu hvers og eins. Hafið samband við ĂžurĂði (thurye@internet.is), yfirĂžjĂĄlfara Ă sĂma 691-7959
0ZZW` dSZY][\W` O Y][O t ¨TW\UO` ]U ^`cTO
SundhĂśllin
Byrjendur (6 ĂĄra og eldri):
Månudagar og miðvikudagar kl. 16:30-17:30
ĂžjĂĄlfari Hulda Bjarkar
Ă rbĂŚjarlaug
BronshĂłpur (6-9 ĂĄra): SilfurhĂłpur ( 7-11 ĂĄra):
Månu-, Þriðju- og fimmtudaga kl. 16:30-17:15 Månu-, Þriðju- og fimmtudaga kl. 17:15-18:30 Miðvikudagar kl: 16:30-18:00
ĂžjĂĄlfari Ă?ris Edda HeimisdĂłttir
Ă rbĂŚjarskĂłli
Byrjendur (6-7 ĂĄra):
Månudagar og miðvikudagar kl. 15:30-16:15
ĂžjĂĄlfari Ă?ris Edda HeimisdĂłttir
Månu-, Þriðju- og fimmtudaga kl. 15:00-16:00 Silfurhópur (10 åra og eldri): Månu- og Þriðjudaga kl. 16:30-18:30 Miðvikud. 18:30-20:00 og fÜstud. 16:00-18:00
Laugardalslaug BronshĂłpur (6-9 ĂĄra):
ĂžjĂĄlfarar: ĂžurĂður EinarsdĂłttir og Hulda Bjarkar
Arnar PĂĄll EyjĂłlfsson ĂžjĂĄlfari, Birta Ă“sk Ă“marsdĂłttir, Helga Þórey BjĂśrnsdĂłttir, Rakel LeifsdĂłttir, TheodĂłra HjaltadĂłttir, Eik ArnÞórsdĂłttir, DrĂfa GuðrĂşn ĂžorvaldsdĂłttir, NĂna BjĂśrk GrĂŠtarsdĂłttir, Thelma RĂşn SveinsdĂłttir og Þóra IngimundardĂłttir ĂžjĂĄlfari ĂĄsamt lukkudĂ˝rinu Kol. Ă myndina vantar SĂśru Lind FrostadĂłttur.
SĂmamĂłtsmeistarar
5., 6. og 7. flokkur kvenna Ă Fylki tĂłk Þått Ă SĂmamĂłtinu Ă knattspyrnu Ă sumar. Stóðu stelpurnar sig með mikilli prýði. 5. flokkur B sigraði Ă sĂnum flokki, Üðrum gĂŠkk misvel en allir skemmtu sĂŠr vel Ă frĂĄbĂŚru veðri. 5. fl.B sigraði 9 leiki og gerði eitt jafntefli, 1-1 ĂĄ mĂłti Breiðablik. Reyndist Ăžað einnig vera eina markið sem stelpurnar fengu ĂĄ sig Ă mĂłtinu. FrĂĄbĂŚr ĂĄrangur Ăžað! Ăšrslitaleikurinn var gegn FjĂślni og unnu Fylkis stelpurnar leikinn verðskuldað 10. Þó heldu ÞÌr foreldrunum Ă spennutreyju, Ăžvà ÞÌr skoruðu ekki fyrr en 3 mĂnĂştur voru eftir, ĂžrĂĄtt fyrir margar góðar tilraunir. Var Ăžað DrĂfa GuðrĂşn sem setti hann með skalla eftir snilldarsendingu frĂĄ Rakel Leifs. Allar stelpurnar bĂśrðust eins og ljĂłn og uppskĂĄru eftir ĂžvĂ . Innilega til hamingju 5. flokkur B.
SundskĂłli 2-6 ĂĄra
Kennari: Sandra Rån Garðarsdóttir Kennt å laugardÜgum à à rbÌjarskóla
Ungbarnasund
Kennari: Matja Steen Kennt à à rbÌjarlaug å laugardÜgum Upplýsingar um sundskóla og ungbarnasund Stella (stellag@torg.is)
www.armenningar.is
g
BĂŚjarflĂśt 10 - 112 ReykjavĂk SĂmi 567 8686 info@kar.is www.kar.is
KĂŚru viðskiptavinir! Sumar opnunartĂminn er að lĂða undir lok Byrjum aftur að vinna ĂĄ laugardĂśgum Ă september
Við ĂĄ HĂśfuðlausnum viljum við Ăžakka StĂnu fyrir frĂĄbĂŚrt samstarf en hĂşn ĂŚtlar að snyrta hĂĄr frĂŚnda okkar Ă Noregi nĂŚstu misseri!
HĂĄrsnyrtistofan HĂśfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 ReykjavĂk SĂmi: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: MĂĄnudaga til fĂśstudaga 09-18 - laugardaga 10-14
PĂśntunarsĂmi: 567-6330
15
Fréttir
Árbæjarblaðið
SUND fyrir alla - ,,krakka með hár og kalla með skalla’’
Fjölbreytileiki, metnaður, árangur og ánægja einkenna starf sunddeildar Ármanns. Þar er boðið upp á sundkennslu og æfingar allt frá ungbarnasundi til afreksþjálfunar keppnisfólks og garpasunds. Heildarfjöldi iðkenda innan sunddeildarinnar nálgast 150 manns frá aldrinum 10 vikna til tæplega sjötugs. Árbærinn hefur löngum verið megin uppeldisstöð sunddeildarinnar, en þar eru starfsrækt Sundskóli fyrir 2-6 ára börn, ungbarnasunds námskeið og æfingar fyrir alla aldurshópa. Í Laugardalslaug eru afrekshóparnir mest áberandi, en þar er einnig boðið upp á æfingar fyrir byrjendur frá 6 ára aldri. Einnig er boðið upp á æfingar fyrir byrjendur í Sundhöllinni, sem og Gar-
pasund. Ungbarnasund fer fram í Árbæjarlaug á laugardögum. Markmið ungbarnasundsins er að eiga ánægjulegar stundir með barninu og kenna því að umgangast vatnið. Foreldrum eru kennd handtök sem leyfa barninu að njóta sín í vatninu auk þess að setja barnið í kaf. Það er auðveldara að hreyfa sig í vatni en á þurru landi og því er sundið góð leið til þess að styrkja vöðva og örva hreyfiþroska barnsins. Næstu námskeið hefjast 29. ágúst. Sundskólinn býður upp á námskeið fyrir 2-6 ára börn í skólalaug Árbæjarskóla á laugardögum. Markmið sundskólans er aðlögun barns að vatninu, að börnin kynnist vatninu á jákvæðan hátt og hafi gaman að því að vera í
sundi. Í framhaldi af því er farið yfir grunninn í skriðsundi, bringusundi og baksundi. Þar sem hvert barn er með fullorðinn einstakling með sér ofan í lauginni er auðvelt að einstaklingsmiða kennsluna eftir þörfum hvers og eins. Næstu námskeið hefjast 17. október. Sundæfingar eru fyrir 6 ára og eldri. Í yngri hópunum er lögð áhersla á öryggi barnanna og vellíðan í vatninu. Grunnsundsaðferðirnar eru kenndar í bland við leik svo að æfingarnar verði hressar og skemmtilegar. Farið er eftir getu hvers og eins og stigin fyrstu skrefin í keppni þegar börnin eru tilbúnin til þess. Í eldri hópunum fer svo fram markviss keppnisþjálfun, bæði ofan í lauginni sem og á þurru landi. Æfingaog keppnisferðir eru fastir liðir í vetrar-
Frá Vorhátíð Sunddeildar Ármanns í Heiðmörk. starfinu. Næsta æfingaferð deildarinnar verður í Borgarnes 28.-30. ágúst. Sunddeild Ármanns býr yfir áralangri reynslu af sundþjálfun og kennslu. Þjálfunin er miðuð út frá aldri
og getu hvers og eins. Allir velkomnir að koma á æfingar og prufa! Allar upplýsingar um sundæfingar og námskeið má finna á heimasíðu deildarinnar á www.armenningar.is
Hópur frá Dansskóla Ragnars stefnir á alþjóðleg mót Á tímabilinu 9. - 15. október eru 4 alþjóðleg dansmót í London á Englandi. Á þessum mótum keppa flest bestu pörin í heiminum. 7 pör frá Dansskóla Ragnars Sverrissonar stefna á þessi mót og hafa verið að undirbúa sig í allt sumar. Krakkarnir eru á aldrinum 10 til 18 ára og hafa sumir einungis æft dans í um 1 ár en aðrir töluvert lengur. Ármann og Erna hafa dansað saman í rúmt ár og hafa nú þegar landað bikarmeistaratitli og íslandsmeistaratitli. Þau eru 16 ára. Aðalsteinn og Kristrún hafa dansað saman í rúmt ár líka og stóðu sig vel á Íslandsmeistaramótinu í maí og náðu 3. sæti. Arnar og Bryndís, Logi og Björg og Mathieu og Íris eru nýbyrjuð að dansa saman en það sýnir metnaðinn hjá þeim að þau eru strax tilbúin að fara erlendis og keppa. Guðmundur og Birgitta hafa dansað saman í tæpt ár og eru á meðal 6 bestu í sínum flokki á Íslandi. Þau eru 11 ára. Þau stefna hærra. Eyþór og Marta hafa dansað saman í tæp 2 ár og hafa farið erlendis tvisvar áður og eru með mikla reynslu miðað við að vera einungis 10 ára. Undirbúningurinn hefur gengið vel og hafa krakkarnir lagt hart að sér í allt sumar. Einnig er stefnt á að sækja danstíma í frægasta dansstúdíói í London, Semley Studio þar sem krakkarnir munu fá kennslu frá margföldum meisturum. Allir þessir krakkar keppa fyrir Dansskóla Ragnars og Dansfélagið Ragnar þar sem allir sem keppa á Íslandsmeistaramóti þurfa að vera skráðir í dansfélag. Krakkarnir hafa verið duglegir við fjáraflanir og ef einhver fyrirtæki vilja styrkja krakkana þá geta þau haft samband við dansskólann. Skráning er svo hafin á haustnámskeiðin í Dansskóla Ragnars í síma 586-2600 eða á dansskoli@dansskoliragnars.is og er hægt að nálgast allar upplýsingar á heimasíðu dansskólans www.dansskoliragnars.is.
Hressir krakkar í Dansskóla Ragnars.
Skilmálabreyting á bílasamningum Nú skiptir mestu fyrir marga að lækka greiðslubyrði hvers mánaðar. Íslandsbanki Fjármögnun býður lausn sem lækkar tímabundið afborganir af bílasamningum í erlendri mynt. Skilmálabreytingin felur í sér lækkun greiðslubyrði í 8 mánuði og lengingu á samningi um 4 mánuði. Lækkunin er u.þ.b 50% af greiðslubyrði í janúar 2009 og er föst krónutala þessa 8 mánuði. DÆMI
„Lægri greiðslubyrði skiptir mig mestu máli“
Bílasamningur að upphæð 2 milljónir 1. nóvember 2007 Lánstími: 5 ár Myntkarfa: 50% yen og 50% svissneskir frankar • Afborgun 1. desember 2007 42.000 kr. • Afborgun 1. maí 2009 84.000 kr. • Afborgun eftir skilmálabreytingu 43.000 kr. (m.v. 50% greiðslubyrði í 8 mánuði) • Mismunur 41.000 kr. eða 48,8% lækkun á greiðslubyrði. KOSTIR
Skúli Sigurðsson viðskiptavinur Íslandsbanka
• Jöfn greiðslubyrði til skamms tíma. • Lægri greiðslubyrði miðað við núverandi afborganir. • Styrkist gengi íslensku krónunnar greiðist höfuðstóll lánsins hraðar niður. • Möguleiki á að greiða inn á höfuðstól hvenær sem er. ÓKOSTIR
• Samningur lengist um 4 mánuði. • Gengisáhætta. • Hærri vaxtakostnaður með lengri lánstíma. • Breytilegir vextir gætu hækkað á lánstíma. • Ekki er hægt að taka nýtt fjármögnunarlán ef viðkomandi er með lán með skilmálabreytingu.
Kynntu þér skilmálabreytingu bílasamninga í erlendri mynt hjá ráðgjöfum Fjármögnunar á Kirkjusandi í síma 440 4400 eða á islandsbanki.is.
HVÍTA HÚSIÐ/SÍA 09-0513
Íslandsbanki Fjármögnun sérhæfir sig í fjármögnun atvinnutækja og atvinnuhúsnæðis fyrir rekstraraðila, og bifreiða fyrir einstaklinga.
FROSIN LAMBASVIÐ
FROSIÐ HEILT LAMBALÆRI
269 KR./KG
1078 KR./KG
KJÚKLINGALUNDIR er ð g ot t v a g a ! al l a d
1498 KR./KG merkt verð 1998 kr./kg. 25% afsláttur
1498 kr./kg.
898
359 kr./kg.
GUR
merkt verð 598 kr./kg. 40% afsláttur
FE R
BLANDAÐIR KJÚKLINGABITAR
U S KJ N Ó B ÚK R U
LIN
359
SK
FERSKT NAUTAHAKK 898 kr./kg.
125
125 kr. 2 ltr. TOPPUR 2 ltr. SÍTRÓNUR /ÁVAXTA
489 1498
BÓNUS FERSKUR HEILL KJÚKLINGUR merkt verð 698 kr./kg. 30% afsláttur
489 kr./kg.
125 kr
198
CONSUL BANANAR 198 kr./kg.
er ð g ot t va ga ! al l a d
398
K.F NÝTT KJÖTFARS
398 kr./kg.
398
879
ROÐ OG BEINLAUSIR
RENÉ KAFFIPÚÐAR 36 STK 398 kr.
25% AFSLÁTTUR
SKÓLAOSTUR merkt verð 1648 kr./kg. 25% afsláttur
1236 kr./kg.
N.F ÞORSKBITAR 879 kr./kg.
398
FROSIN SMÁBRAUÐ 15 STK 398 kr.
898
REYKT BRAUÐSKINKA
898 kr./kg.
298
BÓNUS KLEINUR 15 STK 298 kr.
159
BÓNUS KJARNABRAUÐ 500g 159 kr.