Árbæjarblaðið 9. tbl. 6. árg. 2008 september
Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti
Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is
Pantið tíma í síma 511–1551 Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3
Fylkisstrákarnir í 3. flokki í knattspyrnu tóku í sumar þátt í risastóru knattspyrnumóti í Bandaríkjunum og komu heim með gullverðlaunin. Hér bregða tveir leikmenn liðsins á leik í verslunarleiðangri. Sjá allt um þessa glæsilegu keppnisferð í máli og myndum í miðopnu. Sjá bls. 8-9.
Gjöfin fyrir veiðimenn? Kíktu á Krafla.is Íslenskar laxa- og silungaflugur í hæsta gæðflokki í fallegum tréboxum
Gröfum nafn veiðimanns á boxið Uppl. í síma 698-2844
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið
Hús Mest sem varð gjaldþrota á dögunum. Verið er að skoða hvort húsið getur orðið fimleikahöll í framtíðarplönum Fylkis og karatedeild félagsins hafi þar einnig aðstöðu. Ef húsið hentar sem fimleikahús og ekki þarf að gera umtalsverðar breytingar á húsinu ætti hér að geta verið fýsilegur kostur á ferðinni. ÁB-mynd PS
Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 (660 fyrirtæki).
Mæður ljóssins Það er ekki hægt annað en að minnast á deilu ljósmæðra og þá miklu þrautagöngu sem þær mega ganga til að ná fram leiðréttingu launa sinna. Ljósmæður þurfa 25% launahækkun til að ná launum hjúkrunarfræðinga, en ljósmæður eiga að baki tveggja ára lengra nám en hjúkrunarfræðingar svo dæmi sé tekið. Allir virðast sammála um að ljósmæður eigi að fá þessa leiðréttingu en þegar þetta er skrifað gengur hvorki né rekur í deilunni. Afar fróðlegt hefur verið að fylgjast með framgöngu stjórnmálamanna í þessu máli. Komið hefur í ljós að stjórnmálamenn sem tala fyrir kosningar um að eyða verði launamun kynjanna meina ekkert með því hjali. Ágætt er fyrir konur að muna eftir því næst þegar kosið verður hve hraustlega formaður Samfylkingarinnar hefur fylgt eftir stefnu ríkisstjórnar varðandi launamuninn. Ljósmæður eru ekki fjölmenn stétt og líkast til kostar leiðrétting á launum þeirra um 80 milljónir. Kjörið tækifæri er fyrir núverandi ríkisstjórn að stíga nú lítið skref og ganga að sjálfsögðum kröfum ljósmæðra, kvennastétt sem leitar nú sjálfsagðra réttinda sinna og á alla samúð allra nema viðsemjenda sinna. Ekki hefur fjármálaráðherrann komið sterkur frá málinu. Ótrúlegt útspil hans á dögunum mun seint gleymast og virðist ráðherrann úr öllum takti við raunveruleikann þessa dagana. Það að stefna kvennastétt fyrir dómstóla í heilu lagi í miðri kjaradeilu ber ekki vott um mikla herkænsku. Allt tuð um lagatæknilegt atriði virkar ekki. Klaufagangurinn er algjör. Stefán Kristjánsson, ritstjóri Árbæjarblaðsins
abl@centrum.is
Mest-húsið undir fimleika? - væntanlega fýsilegur kostur fyrir fimleikafólk í Fylki Eins og flestir vita eru aðstöðumál hjá Fylki í megnasta ólestri og ekki er endanlega ljóst hvar höfuðstöðvar félagsins verða og sýnist sitt hverjum. Fimleikadeild Fylkis hefur lengi verið á hrakhólum með aðstöðu en ekki er langt síðan að hugmynd kom fram hjá Birni Gíslasyni, formanni Hverfisráðs Árbæjar, þess efnis hvort nýta mætti hús Mest sem framtíðarhús fyrir fimleika- og einnig karatedeild Fylkis. Er verið að skoða málið og getur svo farið að stórhýsi Mest, sem varð gjaldþrota á dögunum, verði nýtt sem íþróttahús í framtíðinni. Mörgum lýst vel á þessa hugmynd en ekki öllum. Kostirnir eru væntanlega þeir að varanleg aðstaða yrði til staðar mun fyr hjá fimleikafólki í Fylki en ef
bíða ætti eftir nýju húsi. Er þá ekki reiknað með að það taki langan tíma að gera húsið klárt fyrir fimleikaiðkun. Einnig má telja það kots að ungir iðkendur þyrftu ekki að fara yfir Suðurlandsveg. Við bárum aðstöðumál Fylkis undir Kjartan Magnússon, formann ÍTR, og hann sagði: ,,Afar ánægjulegt er að sjá að þróttmikið starf Fylkis hefur skilað sér í gífurlegri fjölgun iðkenda í barna- og unglingastarfi félagsins á undanförnum árum. Afleiðingin af þessari jákvæðu þróun er sú að aðstöðuleysi háir starfsemi félagsins og ég veit að þörfin fyrir úrbætur er afar knýjandi. Íþrótta- og tómstundaráð hefur ýmsar leiðir til skoðunar sem miða að því að bæta keppnisað-
stöðu knattspyrnudeildar Fylkis og fjölga æfingavöllum. Þá eru hugmyndir um byggingu nýs fimleikahúss einnig til alvarlegrar athugunar. Til skoðunar er hvort og þá að hvaða leyti hægt sé að leysa vandann á núverandi athafnasvæði Fylkis eða hvort þurfi að leita annað, t.d. í Hádegismóa. Til tals hefur komið að leysa húsnæðisvanda fimleikadeildar með því að kaupa eða leigja stórhýsi undir þessa starfsemi, sem þegar eru til staðar, og innrétta það sem fimleikahús. Slíkt getur verið hagkvæmt og er að sjálfsögðu mun fljótlegra en að hanna og byggja nýtt hús. Nú þegar hafa tveir slíkir kostir verið skoðaðir og fleiri eru fyrir hendi. Enn hefur þó ekkert verið ákveðið í þessum efnum,’’ sagði Kjartan Magnússon.
Árbæjarblaðið Auglýsingar og ritstjórn 587-9500
;:GH@I ร HA:CH@I C6JI6@?yI ร <ร ร J K:Gร > ร 7ร CJH G
,.-
&).-
&).-
C6JI6K:>HAJ ;:GH@I C6JI6=6@@ C6JI6=6@@
C6JI6K:>HAJ ;:GH@I 6JI6<ร AA6H 6JI6<ร AA6H
C6JI6K:>HAJ ;:GH@I 6JI6HC>IH:A 6JI6HC>IH:A
&).- @G#$@<#
,.- @G#$@<#
(%
6;HAร IIJG C6JI6K:>HAJ ;:GH@I C6JI6;>AA:I C6JI6;>AA:I '(%. @G#$@<#
&).- @G#$@<#
B:G@I K:Gร ('.- @G#$@<#
E>G>"E>G> @> @GN99ED :ร B >G ;NA<
)%
6;HAร IIJG =DAI6 @?ร @A>C<67G>C<JG &+,. @G#$@<# B:G@I K:Gร ',.. @G#$@<#
'.-
BNAAJ @GN99@6@6 ))%\ '.- @G#
&.-
:H <GยกCB:HI>H7A6C96 ;GDH>C & `\ &.- @G#
(.-
6G>:A ร KDII6:;C> H:CH>I>K: &% h`VbbiVg (.- @G#
&'.
&).@G6;I ;GDHC6G ร HA:CH@6G @?ร @A>C<67G>C<JG &).- @G#$@<#
-*
HK6A> ( E@# 6EE:AHร CJ$:EA6
HN@JGA6JH B:ร HN@G> -* @G#
7ร CJH7G6Jร & @<
'+ HC:>ร 6G &'. @G#
.-
:H =Kร IA6J@H7G6Jร ' hi` .- @G#
&.-
:H 7GD88DA> ;GDH>ร & `\ &.- @G#
'.-
E6BE:GH ร JGG@J@Aร I6G HZch^ik^Z +( hi` '.- @G#
6;<G:>ร HAJIร B>/ ;>BBIJ96<6 &'#%%"&-#(%
(.-
7:G>D :MIG6 K>G<>C DAร 6 *%% ba (.- @G# 7:G>D DA>KJDAร 6 *%% ba (.- @G#
4
Matur
Árbæjarblaðið
Matgæðingarnir María Ýr Valsdóttir og Rúnar Sigurðsson.
Traust
dráttarbeisli Ásetning á staðnum.
Víkurvagnar ehf Dvergshöfða 27 Sími 577 1090 www.vikurvagnar.is
Árbæjarblaðið
Auglýsingar og ritstjórn
Sími: 587-9500
ÁB-mynd PS
Einfaldur sætur og frábær ofnréttur - að hætti Maríu og Rúnars í Melbænum
Hjónin María Ýr Valsdóttir og Rúnar Sigurðsson eru matgæðingar okkar að þessu sinni og fara uppskriftir þeirra hér á eftir.
Einfaldur sætur og frábær ofnréttur 2 Laukar. 2 Sætar kartöflur. ½ Sellerýrót. ½-1 Kúrbítur (má sleppa). 1 Paprika (rauð). ½ dl Ólífuolía, græn. ½ dl Tamari sósa. Timian eða rósmarin. Sjávarsalt (má sleppa). Pipar (nýmalaður). Blandið saman ólífuolíu og tamarisósu í jöfnum hlutum ca. einn dl. samtals eða eftir smekk. Hrært saman og kryddað, timian eða rósmarin, nýmöluðum pipar og/eða smá sjávarsalti. Skerið grænmetið niður. Sneiðið laukinn, skerið paprikuna í strimla og sætu kartöflurnar, kúrbítinn og
sellerýrótina í teninga (sellerýrótina smærra). Setjið grænmetið í eldfast mót og hellið olíusósunni yfir og bakið í ofni, 200° C ca. 40 mínútur eða þar til grænmetið er tilbúið. Skipta má út eða bæta við kartöflum, gulrótum, gulrófum, sellerý eða öðru grænmeti sem ykkur dettur í hug.
vill. Einnig er rétturinn góður sem meðlæti. Snilldin við þennan rétt, fyrir utan bragðið, er að hægt er að gera ríflega af honum og nota svo afganginn í gómsæta súpu. Þá tekur þú afganginn af réttinum bætir við karrý og kókosmjólk, skellir í mixerinn, maukar og hitar aðeins í potti.
1 hluti kókosolía. 1 hluti kakó. Rúmlega ½ hluti agavesíróp. Örlítið sjávarsalt. Kókosolía er hlýjuð í vatnsbaði eða heitri skál svo hún verði fljótandi, kakói er bætt útí ásamt agavesírópi eftir smekk, þá er sósan smökkuð til með örlitlu sjávarsalti. Ávextirnir eru skornir niður og þeim raðað fallega á diska svo er sósan látin leka yfir.
Magnið hér að ofan er bara til að gefa ykkur hugÞarna erum við mynd, en það er um komin með hinn María Ýr Valsdóttir og Rúnar Sigurðsson, Melbæ 30, skora á Jónu að gera að leika sér ljúfengasta eftirÞórsdóttur og Lars Peter Jensen. Þverási 11a, að koma með uppmeð þetta eftir rétt, mjög einfaldskriftir í næsta matarþátt Árbæjarblaðsins. Við birtum gómsætar smekk (og hvað þið an en bæði hollan uppskriftir þeirra í næsta Árbæjarblaði eigið til í ískápnog góðan. sem kemur út í október. um), þó mælum við með því að hafa sætu Til þess að fullkartöflurnar ríkjandi í réttinum. komna máltíðina og gera hana enn hollari, þá minnum við á að tyggja Girnilegur eftirréttur Þennan rétt má undirbúa fyrirmatinn vel og lengi með gleði og fram og geyma í ískáp, þá marinerþakklæti fyrir daginn í dag. Í eftirrétt mælum við með því að ast grænmetið. nota ferskan ananas, banana og Verði ykkur að góðu jarðaber með heimagerðri súkkulaðMeð réttinum er gott að hafa hýðBrynja Ýr og Rúnar isósu. ishrísgrjón, grænt salat og sósu ef
Skora á Jónu og Lars Peter
Skiptum um bremsuklossa og diska
Einstök gjöf fyrir veiðimenn og konur Falleg áletruð flugubox með vinsælum laxa- og/eða silungaflugum frá Krafla.is Tilvalin gjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem gera kröfur Gröfum nöfn veiðimanna eða lógó fyrirtækja á boxin
Kannaðu málið á Krafla.is eða í síma 587-9500
Rafn Hafnfjörð er án vafa einn allra besti fluguveiðimaður landsins. Rafn hefur mikið dálæti á flugunum frá Krafla.is og hér er hann með 20 punda hæng sem hann fékk nýverið í Víðidalsá. Hængurinn stóri tók rauðan Elliða.
íslensk fluguveiði Skrautás ehf. Sími: 587-9500
6
Fréttir
Sportklúbbur Árbæjar Fyrir unglinga í 9. og 10 .bekk í Árbæjarskóla og Norðlingaskóla Viltu taka þátt í skemmtilegu starfi í vetur? Viltu vera hluti af góðum félagsskap?
Árbæjarblaðið
10 metra afmæliskaka var í tilefni dagsins. Meter fyrir hvert ár, minna mátti það ekki vera.
Árbæjarþrek 10 ára 30. ágúst var haldið 10 ára afmæli Árbæjarþreks. Boðið var upp á kaffiveitingar sem meðal annars innhélt 10 m afmælisköku. Keppt var í þrí-
þraut (500m sund, 10km hjólreiðar og 3km hlaup) og bekkpressu. Fjölbreyttir voru í boði og þar á meðal tvöfaldur spinningtími. Hoppuka-
- Fótbolti Mánudaga kl. 16:00 - 17:00 á Fylkisvelli - Karfa, badminton, bandý og fleira Miðvikudaga kl. 16:00 - 17:10 í íþróttahúsi Árbæjarskóla - Tónlist, pool, borðtennis, playstation og fleira Fimmtudaga kl. 20:00 - 22:00 í Árseli - Til þess að vera hluti af þessum hóp er nóg að mæta í næsta tíma og skrá sig. Einnig er hægt að skrá sig á blogsíðu klúbbsins. - Ekkert kostar að taka þátt. - Ekki er skylda að mæta í alla tímana. Umsjónarmaður er Hörður Guðjónsson, sími 861-3317 Blogsíða klúbbsins: www.sportklubbur.blogcentral.is
stalar voru fyrir yngstu kynslóðina. Einnig var danshópur Nathöshu með sýningu.
Þessar konur mættu snemma.
Þrjár fyrstu í þríþrautinni í kvennaflokki voru. Arndís Björnsdóttir sem varð önnur, í miðið Eva Einarsdóttir sem sigraði og lengst til hægri Elín Gísladóttir sem varð þriðja.
Foreldrafundur foreldrafélagsins í Árbæjarskóla þrír efstu í bekkpressukeppni 16 ára og yngri.
Þrír fyrstu í þríþrautinni. Frá vinstri Trausti Valdimarsson sem varð annar, í miðið Dagur Egonsson sem sigraði og til hægri Remi Spilliert sem varð þriðji.
þrír efstu í bekkpressukeppni 16 ára og eldri í -75 kg flokki.
Verður haldinn miðvikudaginn 24. september n.k. kl.18:00 í hátíðarsal skólans. Við hvetjum alla foreldra til að mæta, börn eru einnig velkomin. Efnisskrá fundarins: 1. Kynning á dagskrá skólaársins 2008 - 2009 2. Félagsgjöld 3. Kynning á breyttu fyrirkomulagi foreldrastarfs innan bekkjadeilda 4. Stofnun nýs skólaráðs 5. Breytingar á stjórn foreldrafélagsins Boðið verður upp á tónlistaratriði nemenda. Stjórnin
Gamlir Árbæingar litu við til að fá frítt að borða. Frá vinstri Örvar Daði Marinósson, Hjalti Þorsteinsson, Guðmundur Örn Ingvason og Bergþór Ólafsson.
9
8
Fréttir
Árbæjarblaðið
Fréttir
Árbæjarblaðið
Sigurinn í höfn. Hjónin Erla og Oddur ásamt dóttur sinni Eddu. Bjössi fararstjóri undirbýr Elís fyrir næsta leik.
Styrmir, Árni , Leifur, Jakob, Egill Trausti, Siggi og Björgvin glaðir á sigurhátíðinni. Styrmir aðstoðar Egil við að setja sólarvörnina á sig.
Strákarnir glaðir eftir sjónvarpsleikinn og 4. liða úrslit í höfn.
Aftasta röð frá vinstri: Stefán Víðir Ólafsson, Árni Þórmar Þorvaldsson, Leifur Hreggviðsson, Ásgeir Eyþórsson, Daníel Andri Pétursson og Egill Trausti Ómarsson. Mið röð frá vinstri: Björn Ingvarsson fararstjóri, Hermann Erlingsson fararstjóri, Elís Rafn Björnsson, Benedikt Óli Breiðdal, Anton Oddsson, Björgvin Gylfason, Ýmir Rúnarsson, Baldvin Rafn Steinsson, Egill Lúðvíksson, Kári Jónasson þjálfari og Kjartan Stefánsson þjálfari. Fremsta röð frá vinstri: Ómar Gíslason fararstjóri, Tómas Hrafn Jóhannesson, Styrmir Erlendsson, Andri Már Hermannsson, Jón Birgir Eiríksson, Jakob Fannar Magnússon og Sigurður Jóhann Einarsson.
Gull á USA-Cup
Strákarnir að tana sig. Fararstjóra par ársins, Bjössi og Vala.
Kjartan, Terry og Ómar fara yfir dagskrána.
Þorvaldur, Erla Hrönn og Ómar sloppin inn úr rigningunni.
Hermann Erlingsson að bræða dómarana fyrir leik.
Blautir að bíða meðan skýstrókurinn fer yfir.
Þjálfararnir Kári og Kjartan í góðum gír.
Strákarnir að kanna aðstæður eftir skýstrókinn.
Fylkisstrákarnir í 3. flokki karla gerðu strandhögg í Bandaríkjunum í sumar og komu sáu og sigruðu þetta sterka knattspyrnumót sem haldið er árlega í Minneapolis. Þangað koma lið frá víðri veröld þó aðallega séu þau frá Bandaríkjunum. Til marks um umfang mótsins þá eru þar c.a. 10.000 keppendur og 550 dómarar og leikið er á um 60-70 völlum í fullri stærð. Keppt er í hverjum aldurs árgangi ólíkt því sem er hér heima þar sem 2 árgangar keppa saman. Fylkir sendi tvö lið, það er ‘92 og ‘93 árganga. Strákarnir lögðu hart að sér í vetur í hinum ýmsu fjáröflunum og tókst mörgum að safna alveg fyrir ferðinni og gott betur. Haldið var af stað til Bandaríkjanna þann 13. júlí og dvöldu strákarnir á Campus (há-
skóla gistingu) í háskólanum í Minneapolis ásamt mörgum öðrum liðum frá ýmsum þjóðum og er óhætt að segja að Fylkisstrákarnir vöktu mikla athygli og voru vinsælir hjá kvenþjóðinni. Mótið sjálft var algjört ævintýri því stærðin var ótrúleg og skipulag hið besta. Hjá öllum liðum var síðan einn leikur sýndur á netinu og gátu þeir sem heima voru fylgst með sínum mönnum og fjölmenntu margir í Fylkishöllina hér heima þar sem leikirnir voru sýndir beint á breiðtjaldi. Fylkisliðin spiluðu flottan fótbolta, sýndu að Íslendingar geta spilað jafnvel og betur þótt fámennir séu og sigruðu báða riðlana sína örugglega. Eldri strákarnir féllu að lokum út í 8 liða keppni en yngra liðið keppti til úrslita í einhverjum ótrúlegasta úrslitaleik sem íslenskt lið hef-
ur spilað. Það tók 6 klukkutíma að spila leikinn. Þegar leikur hófst var hið besta veður sól og 30 stiga hiti en smá saman dró fyrir sólu og tók að hvessa og eftir 20 mínútna leik fóru allar viðvörunarflautur af stað og dómarinn blés leikinn af og voru allir reknir inn í stóra íshokkíhöll þar sem skýstrókur og þrumuveður stefndi á svæðið og þegar sem mest gekk á voru allir reknir niður í kjallara í höllinni. Aðra eins rigningu höfðum við Íslendingar aldrei séð áður. Skyggnið var ekki nema fáeinir metrar þegar mest rigndi. Eftir rúma fjóra tíma og veðrið gengið yfir hófst leikurinn aftur eftir að skipt var um völl, þar sem fyrri völlurinn var kominn á kaf í vatni. Leikið var við lið frá Alaska sem var mjög sterkt og vel spilandi. Eftir venjulegan leiktíma var staðan
0-0 og var því framlengt. Þjálfararnir þeir Kjartan og Kári náðu upp gríðarlegri stemmingu hjá strákunum í leikhléinu. Og með þolinmæði og öguðu spili náðu strákarnir að skora þegar örfáar mínútur voru eftir af seinni hluta framlengingar. Fögnuðurinn var að sjálfsögðu gífurlegur þegar dómarinn flautaði leikinn af. Um kvöldið var haldin mikil sigurhátíð með öllum foreldrum og öllum þeim sem fylgt höfðu liðinu. Að mótinu loknu áttu strákarnir tveggja daga frí og var þá að sjálfsögðu skroppið og verslað í MALL OF AMERICA og það þótti ekki leiðinlegt. Haldið var svo aftur heim þann 22. júlí með einn stærsta verðlaunagrip sem við höfum séð. Það lá við að kaupa þyrfti sæti undir hann. Já það er allt stórt í henni Ameríku.
Gangsterarnir, Sigurður Jóhann, Egill Trausti og Jakob Fannar.
Fylkisstrákarnir á opnunarhátíðinni.
Pálmi Óskarsson, Snæþór Guðjónsson, Steinar Geir Ólafsson og Stefán Víðir Ólafsson.
Sigurvegarnir fagna meðan hinir ganga niðurlútir framhjá.
Sigurgeir og Pétur bregða á leik á milli leikja.
Eiður Smári ásamt stuðningsmönnum Fylkis.
10
Fréttir
Árbæjarblaðið Ritstjórn og auglýsingar Sími: 587-9500 Leðurlitun Fyrir
Eftir
Hjá okkur öðlast leðrið nýtt líf! Sérhæfum okkur í leðurlitun á bílsætum og húsgögnum Viðurkennd efni - Áratuga reynsla toms ehf sími 824-1011 og 892-6890 toms@toms.is - www.toms.is
námskeið fyrir börn og unglinga
Árbæjarblaðið
Hér gengur greinilega mikið á og allir skemmta sér vel.
Það er alltaf blómlegt barnastarfið í Ársafni
Í Ársafni er alltaf mikið um að vera og barnastarfið einstaklega líflegt og skemmtilegt. Leik-ritsmiðja Á vorin er boðið uppá ókeypis smiðju fyrir börn 8-12 ára og í þetta sinn var leik- ritsmiðja í umsjón barnabókavarðarins og leikkonunnar Ólafar Sverrisdóttir. Kristín Arngrímsdóttir myndlistarkona sá um að leiðbeina krökkunum með myndirnar. Í lokin sýndu krakkarnir leikþátt sem þau sömdu með því að spinna saman í hóp. Sumarlesturinn Sumarlesturinn í þetta sinn bar titilinn ,,Dropinn holar steininn’’ en eins og allir vita mótar allt börnin okkar og lestur góðra bóka er eitt af því sem hefur áhrif á þau og víkkar sjóndeildarhringinn. Börnin skiluðu einum dropa fyrir hverja bók sem þau lásu. 260 bækur voru lesnar og eru því margir dropar sem hanga úr lofti barnadeildar Ársafns og setja svip á safnið. Þeir sem lásu flestar bækurnar fengu verðlaun og síðan var einn dreginn út. Allir sem tóku þátt fengu viðurkenningu. Einnig voru veitt verðlaun fyrir best skreyttu dropana. Sumarlesturshátíðin var 15. ágúst en þá fór verðlaunaafhendingin fram. Dúó Stemma flutti íslensk þjóðlög milli atriða og spilaði annar helmingur dúettsins á steinaspil sem
var vel við hæfi. Á eftir var boðið uppá veitingar. Vetrarstarfið Nú er vetrarstarfið að fara af stað en þá er boðið uppá sögustundir. Leikskólar geta pantað sögustundir þar sem börnin fara í leiki, hlusta á sögu og fá smá kynningu á safninu. Á eftir geta þau svo dundað sér, lesið eða skoðað bækur, kíkt á fiskabúrið og skoðað myndirnar á veggjunum sem eru oft mjög skemmtilegar. Núna eru ennþá myndir sem Selásskóli, leikskólarnir Rauðaborg, Blásalir og Heiðarborg teiknuðu eftir vísunni ,,Kötturinn og fiðlan’’ í þýðingu Stefáns Jónssonar en það var samstarfsverkefni þessara skóla síðastliðið vor. Í september prýða myndir af ömmum einn vegginn í barnadeildinni en september er tileinkaður ömmu og fá 2-3 verðlaun í Ársafni. Og hver veit nema afamánuður komi næst ... Bangsadagur er á sínum stað á afmælisdegi Theodore (Teddy) Roosevelt forseta Bandaríkjanna þann 27. október. Í tengslum við þann dag er ávallt einhverskonar getraun í gangi og fá verðlaunahafarnir auðvitað bangsa í verðlaun. En í Borgarbókasafninu birtist ný tegund af böngsum á hverju ári. Einnig er hægt að taka þátt í getraun mánaðarins en þar er dregið úr réttum svörum og fá 2-3 verðlaun í hverjum mánuði.
haust 2008 útibú Korpúlfsstöðum www.myndlistaskolinn.is sími 5511990
Gestir skemmta sér jafnan vel á hinum ýmsu uppákomum í Ársafni.
Jólaleikrit Fyrir jólin er alltaf boðið upp á jólaleiksýningu. Síðast kom Möguleikhúsið með Smið jólasveinanna en hver kemur núna "veit nú enginn ... vandi er um slíkt að spá ...". Koffort Fyrir utan allt sem um er að vera á safninu sjálfu er farið með fallega skreytt koffort á leikskólana en í þeim eru bækur sem krakkarnir og foreldrar geta fengið með sér heim. Þetta er ætlað sem einskonar æfing í að fá bækur lánaðar heim af bókasafni og hefur gengið mjög vel og allir ánægðir með þetta framtak. Á eftir að koffortin hafa verið á leikskólunum býður safnið uppá námskeið í meðferð bóka fyrir elstu börnin. Sögubíllinn Æringi Í vor fór af stað sögubíll sem kemur á leikskólana og býður börnunum uppá öðruvísi sögustundir. Borgarbókasafnið lét skreyta bílinn og innrétta og má segja að það sé mikið ævintýri að koma í Æringja þar sem sögurnar lifna við í meðförum sögumanna. Fyrir utan allt sem er fyrirfram ákveðið eru alltaf einhverjar óvæntar uppákomur en í fyrra kom t.d. frænka Línu í heimsókn þar sem Astrid Lindgren hefði orðið 100 ára þá. Hver veit hvað gerist þennan veturinn.... en eitt er víst að alltaf verður ákaflega gaman....í Ársafni.
11
Árbæjarblaðið
Þorgeir og Ólafur Geir hjá Toms ehf.
ÁB-mynd PS
Toms ehf á fullu í leðurlitun
,,Við höfum verið að láta vita af okkur og það eru búin að vera mikil viðbrögð og greinilegt að það er mikil vöntun á þessari þjónustu,’’ segir Þorgeir Pálsson hjá Toms ehf. en þeir Þorgeir og félagi hans, Ólafur Geir, hafa einnig staðið í bílainnflutningi undir nafni Toms ehf. Stafirnir í nafni fyrirtækisins standa fyrir traust, orðspor, metnað og sanngirni.
til þess að við vinnum verkið dregst það gjald frá heildarkostnaðinum. Einnig getur fólk sent okkur myndir á toms@toms.is og við gerum tilboð út frá þeim. Þeir sem eru með bíla geta rennt við hjá okkur og við gerum fast tilboð. Meðaltími sem við þurfum að hafa vöruna er 3-5 virkir dagar og styttra ef um minni viðgerðir er að ræða,’’ segja þeir Þorgeir og Ólafur Geir. Síminn hjá Toms er 824-1011.
Árbæjarblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími 587-9500
Toms ehf. er rúmlega árs gamalt fyrirtæki við Lyngháls 10 sem sérhæfir sig í leðurlitun og bílainnflutningi. ,,Það sem við erum að sérhæfa okkur í og með aðal áherslu á undan-
Fyrir.
Grafarvogsbúar! Kæru Árbæingar! Höfum opnað nýja bónstöð að Gylfaflöt í húsnæði Arnarbíla. Bjóðum upp á alls konar þjónustu við þrif bifreiða. Fagmenn og gæðaefni. Nánari upplýsingar í síma 567-2700
Eftir. farið er leðurlitun. Það er þá bæði húsgögn og leðurinnréttingar í bílum sem við sérhæfum okkur í. Ólafur Geir félagi minn er með 20 ára reynslu í þessu og er lærður bólstarari. Við flytjum inn sérstaka leðurliti sem við vinnum með og er sú vara sem við notum viðurkennd af öllum helstu húsgagnaframleiðendum í heiminum. Þá erum við að selja hreinsiefni og næringu fyrir leður sem fólk getur notað sjálft á leðurhúsgögn eða leðurinnréttinguna í bílnum. Einnig erum við með pakka sem er sérhannaður fyrir leðurgalla mótorhjólafólks,’’ segja þeir félagar og bæta við: ,,Til að geta gefið fólki fast verðtilboð bjóðum við upp á á að heimsækja fólk gegn vægu gjaldi og komi
Okkur vantar allar gerðir bifreiða á skrá vegna mikillar sölu
Gylfaflöt 5 - S: 567-2700 www.arnarbilar.is
12
Fréttir
Árbæjarblaðið
Á myndinni eru leikmenn meistaraflokks karla hjá Fram, þjálfarar og hluti af þeim krökkum sem eru að æfa fótbolta í Grafarholti.
Það er bjart framundan í fótboltanum í Grafarholti
Fótboltinn hjá Fram í Grafarholti gekk vel í sumar og eru í gangi flokkar í 7 manna bolta jafnt hjá strákum sem stelpum í 5. fl., 6 fl., 7 fl. og 8. fl. Mikill áhugi og gengið vonum framar.
Strákarnir í 5. flokki fengu brons í keppni c- og d-liða á nýafstöðnu Íslandsmóti og d- liðið fékk silfur í vor á Reykjavikurmóti. Einnig stóðu þeir sig mjög vel á öðrum mótum í sumar en t.a.m léku þeir 42 leiki í
sumar, sigruðu í 33, gerðu jafntelfi í 3 og töpuðu aðeins 6 leikjum sem er frábært en þess má geta að margir af þeim byrjuðu að æfa fótbolta í vetur. Stelpurnar eru í mikilli sókn og tóku þátt í öllum mótum sem voru í
boði og hafa bætt sig með hverjum mánuðinum sem líður. Þess má geta að nú í haust verður settur í gang 4. flokkur fyrir drengi sem eru fæddir 1996 og 1995 og búið að ganga frá ráðningu þjálfara fyrir
flokkinn. Það er bjart framundan hjá FRAM í fotboltanum í Grafarholti
Allir mættir aftur eftir sumarfríin hressir og kátir!
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00
Pöntunarsími: 567-6330
13
Fréttir
Árbæjarblaðið
Rauðavatn framkallar mismunandi skoðanir hjá fólki. Sumir vilja vatnið í burtu en greinarhöfundur lítur á Rauðavatn sem náttúruperlu. Líkast til eru fleiri á þeirri skoðun. ÁB-mynd EÁ
Er Rauðavatn drullupollur eða náttúruperla?
Ótrúlega margir virðast telja að Rauðavatn sé til einkis nýtt og megi alveg missa sig, ég tel hins vegar að það sé náttúruperla sem beri að varðveita. Vatnaíþróttir hverskonar njóta vaxandi vinsælda og möguleik-
veitt burt um holræsakerfið í ríkari mæli. Ekki veit ég nákvæmlega um legu hinna svokölluðu Hádegismóa en undanfarin misseri finnst mér að ég hafi heyrt um ótalmörg fyrirtæki sem stefna á að koma sér fyrir þar.
Þessi mynd er tekin á blómatíma siglingadeildar Fylkis, þá fekk Fylkir úthlutað svæði við Rauðavatn og spurning hvort félagið eigi ekki erfðafestu við vatnið? arnir á því sviði eru ótal margir, nánast endalausir. Þá má í þessu sambandi minna á að nú er róður talinn einstaklega holl íþrótt. Vatn er ómissandi í umhverfi mannfólksins þar sem reynt er að halda í eitthvað upprunalegt í hinni manngerðu veröld. Brekkan norðan við vatnið er kjörið útivistarsvæði. Hún er skjólgóð og sólrík með vatnið á aðra hönd. Leggja þyrfti stíga, búa til rjóður og lautir. Þá verður hægt að njóta þar útivistar hvernig sem viðrar. Koma þyrfti upp hreinlætis-aðstöðu og ekki mundi saka að hafa þar veitingasölu. Á vissan hátt geldur Rauðavatn fyrir nálægð sína við Elliðaárdalinn. Hann er slík náttúruperla að allt annað bliknar í nágrenni hans. Margir líta svo á að vatnið muni hverfa af náttúrulegum orsökum. Fyllast af áfoki eða þorna upp þegar byggð eykst og yfirborðsvatni verður
Þar á meðal er íþróttafélagið Fylkir sem býr við mikil landþrengsli. Því er ætlað svæði við vesturenda vatnsins. Segja má að félagið væri þá komið á gamlar slóðir því um árabil starfaði ein deild félagsins, siglingadeild, við vatnið Vatninu stafar því frekar ógn af framkvæmdasemi mannins en móður náttúru sem vinnur mun hægar en maðurinn þar sem hlutirnir gerast stundum svo hratt að skipulagsslysin uppgötvast ekki fyrr en eftir dúk og disk. Menn sjást því miður oft ekki fyrir í framkvæmdagleðinni. Aðstaða við vatnið þyrfti að vera slík að fólk geti komið þangað til að slappa af, njóta útivistar og afþreyingar í fögru og rólegu umhverfi líkt og í Laugardalnum, án þess að þurfa að ferðast um langan veg. Í september 2008, Gunnar Ásgeirsson
Árbæjarblaðið Sími: 587-9500
=^c\VÂ d\ Z``^ aZc\gV Ig_{\g jg Zg i^a eg ^ d\ {c¨\_j [ng^g Z^\ZcYjg d\ kZ\[VgZcYjg ÃZ\Vg ig_{\g jg Zg ]^ch kZ\Vg [Vg^cc V ]^cYgV jb[Zg d``Vg { \Vc\hi iijb! \ ijb d\ hi \jb Zg ]Vcc Z``^ i^a {c¨\_j d\ \Zijg _V[ckZa kVaY^ ]¨iij Z[ ]Vcc ]najg jb[Zg VgbZg`^ ¶ hZb Zg Äk b^ jg d[ Va\Zc\i GZn`_Vk `# ÃZiiV Äjg[jb k^ V W¨iV hVbZ^c^c\j# Ì`k¨ ^ Wn\\^c\VggZ\aj\Zg GZn`_Vk `jgWdg\Vg cg# ))&$&..- h`naYV W V i^a V \¨iV V ÄZhhjb Ä{iijb# :[ Äk Zg Z``^ h^cci ^ccVc {`kZ ^ccV i bVbVg`V d\ {b^cc^c\j Z``^ h^cci! \ZiV Wdg\Vgn[^gk aY a{i^ [_Vga¨\_V ÄZccVc \g jg! { `dhicV a VgZ^\ZcYV# <Zgjb [VaaZ\V Wdg\ Zcc [VaaZ\g^! hcngijb ig c d``Vg# C Zg g ii^ i b^cc# HÅcjb i^aa^ihhZb^
;gVb`k¨bYV" d\ Z^\cVhk^Â GZn`_Vk `jgWdg\Vg Ù Ã_ cjhijkZg )&& &&&& Ù lll#gZn`_Vk^`#^h$[Zg
14
Ertu gamall og þreyttur sófakarl?
Fréttir
Árbæjarblaðið
Karlaleikfimi fyrir 60-70 ára á þriðjudögum og fimmtudögum kl.20.00 Góður félagsskapur fyrir stirða karla. Sími: 5676471
Allir eru vinir í sumarfrístund.
Takk fyrir frábært sumar Í sumar var boðið upp á opnun í öllum frístundaheimilum ÍTR í Árbæ, Grafarholti og Norðlingaholti, svokallaða Sumarfrístund. Sumarfrístund kemur í staðinn fyrir hefðbundin leikjanámskeið á sumrin og er liður í þróun á heilsársrekstri frístundaheimilanna. Þessi
breyting stuðlar að stöðugleika og auknum tengslum barnanna við hvert annað, starfsfólkið og frístundaheimilið. Þessi nýbreytni tókst vel í alla staði og ekki sakaði hversu heppin við vorum með veður, sól upp á hvern einasta daga! Þema sumarsins
Bakarar framtíðarinnar.
Grunnnám í Námsflokkum Reykjavíkur Viltu læra stærðfræði, íslensku og ensku? Þessar námsgreinar verða kenndar í Námsflokkum Reykjavíkur þá daga sem hér segir: Enska er kennd á mán. kl. 18:50-21:00 og mið. kl. 17:20-18:40. Stærðfræði er kennd á mán. kl. 17:20-18:40 og mið. kl. 18:50-21:00. Íslenska er kennd á þri. kl.18:15-20:05 og fim. kl.18:15-20:05.
Það rigndi víst einu sinni í sumar.
Náms- og starfsráðgjafar Námsflokkanna kenna námstækni í tengslum við grunnnámið. Kennsla hefst 10.september 2008. Verð: Eitt fag: 16.000 krónur, tvö fög: 21.000 krónur og þrjú fög: 26.000 krónur. Upplýsingar í síma: 5677050. Námsflokkar Reykjavíkur, Þönglabakki 4 (efri hæð skiptistöðvar strætó í Mjódd). Hrói Höttur og félagar.
var ,,Börnin og borgin’’ og meðfylgjandi myndir sýna eitt og annað úr starfinu. Takk fyrir samveruna í sumar og sjáumst sem flest sumarið 2009! Kær kveðja frá öllum í Frístundamiðstöðinni Árseli.
Árbæjarblaðið 6. tbl. 6. árg. 2008 júní
Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti
Árbæjarblaðið er lesið á hverju heimili Mest lesni fjölmiðillinn í Árbæ og Grafarholti Auglýsingarnar skila árangri í Árbæjarblaðinu
587-9500
fs í l a r t e b u menn t s t m á ó n j N Byr þig í DYNAMO REYKJAVÍK
u –skráð
Tékkaðu á heilsunni!
byr.is
námstímann: t ú t r o k t i d e r Frítt MC plúsk
– taktu prófið!
Tveir fyrir einn! Notaðu sömu krónuna tvisvar þegar þú ferð út að borða, í bíó, á myndbandaleiguna, í leikhús, á kaffihús eða þegar þú ferð í klippingu, snyrtingu, líkamsrækt, lúxusdekur ... gildir á meira en 250 stöðum!
: Frítt debetkort
: f: f öf jö gj Fjárhagsleg ráðg ... og þú græðir he el ll li in ng g á þeim peningum sem þú þ sparar með Byr námsmönnum!
Þú finnur sparisögur Palla á byr.is
ennandi Þú finnur fleiri sp r.is by á ð bo il at nn námsma
Skráðu þig í Byr námsmenn og njóttu betra lífs. Þú getur grætt helling á því einu, að vera með greiðslukortin hjá Byr með afsláttum og alls konar tilboðum þér að kostnaðarlausu. Námsmannalífið verður svo miklu skemmtilegra, með þig í toppformi fjárhagslega. Fjárhagsleg heilsa er betra líf.
Sími 575 4000
byr.is