Skip to main content

Arbaejarbladid 6.tbl 2008

Page 1

Árbæjarblaðið 6. tbl. 6. árg. 2008 júní

Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti

Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is

Pantið tíma í síma 511–1551 Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3

Ungir nemendur í Árbæjarskóla virða fyrir sér fallega hluti sem voru til sýnis á afmælishátíð skólans á dögunum. Árbæjarskóli átti þá 40 ára afmæli og mætti mikill fjöldi gesta í afmælisveisluna. Sjá nánar á bls. 14

Frábær gjöf fyrir veiðimenn Falleg flugubox með vinsælum laxa- og silungaflugum frá Krafla.is Tilvalin afmælisgjöf fyrir kröfuharða fluguveiðimenn

Kannaðu málið á Krafla.is eða í síma 587-9500

Gröfum nöfn veiðimanna og lógó fyrirtækja á boxin


2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 (660 fyrirtæki).

Merkilegur dagur 17. júní er nýlega liðinn og aldrei þessu vant rigndi hátíðahöldin ekki niður í höfuðborginni. Þvert á móti var veður með allra besta móti og gríðarlegur fjöldi fólks kom saman í miðborg Reykjavíkur. Þessi dagur, þjóðhátíðardagur Íslendinga er afar merkilegur dagur. Ákveðið var á sínum tíma árið 1944 að heiðra Jón Sigurðsson með því að gera afmælisdag hans að þjóðhátíðardegi Íslendinga. Sú staðreynd ein, að við Íslendingar skulum eiga þjóðhátíðardag, er merkileg því mjög mörg lönd eiga engan slíkan dag enda þurftu þau ekki að hafa fyrir því á nokkurn hátt að öðlast sjálfstæði og fullveldi á sínum tíma. Nægir hér að nefna Svíþjóð sem dæmi. Mjög mikilvægt er að Íslendingar haldi sem lengst í fastar venjur á 17. júní og breyti þeim hvergi. Það er mjög mikilvægt að viðhalda öllum okkar venjum á þessum degi og gefa þar hvergi eftir. Halda í alla íslenska siði svo lengi sem þess er nokkur kostur. Ástæða er til að minnast á þetta hér þegar sótt er að okkur úr ýmsum áttum og nýjar kynslóðir koma með nýja siði og gleyma öðrum eða sinna þeim í engu. Ánægjulegt er þó til þess að vita að ekki eiga allir gamlir og góðir íslenskir siðir undir högg að sækja. Ungt fólk í dag hefur enn gaman af þorrablótum, sviða- og pungaáti, kæstri skötu á jólum, bolluáti einn dag á ári og saltkjötsáti svo eitthvað sé nefnt. Vonandi lifa allar okkar hefðir varðandi 17. júní sem allra lengst um ókomin ár. Þar á meðal sá siður að foreldrar fari með ung börn sín í skrúðgöngu. Stefán Kristjánsson, ritstjóri Árbæjarblaðsins

abl@centrum.is

Vonbrigði í boltanum Mikil og hrikaleg vonbrigði voru það á dögunum að íslenska landsliðinu skyldi ekki takast að tryggja sér þátttökurétt á næsta heimsmeistaramóti í handknattleik sem fram fer í Króatíu í janúar á næsta ári. Íslenska landsliðið tapaði með 8 mörkum í Makedóníu og varð því að vinna með 8 eða 9 marka kun í síðari leiknum í Laugardalshöllinni. Fyrirfram gat maður haldið að það væri óvinnandi vegur en þegar á hólminn var komið í Höllinni var greinilegt fljótlega að þetta var mjög góður möguleiki. En dæmalaus klaufagangur og óheppni gerði það að verkum að íslenska liðið vantaði tvö mörk til að takast ætlunarverkið. Nokkur dauðafæri fóru í súginn í leiknum og síðan er ekki hægt annað en að minnast á hreint ótrúlega slaka pólska dómara sem dæmdu leikinn af hreint ótrúlegu getuleysi. Það var vitað mál að lið Makedóníu myndi hanga á boltanum eins lengi og dómararnir leyfðu og freista þess að byggja leik sinn á löngum sóknum og hægum leik í alla staði. Bara eðlilegt og ekkert um það að segja. En að dómarar í nútíma handbolta skuli leyfa liði aðra eins hluti og Makedónar komust upp með í þessum leik er með hreinum

ólíkindum. Meir að segja leyfðu þeir Makedónum að leika sín á milli í dágóða stund eftir að hendi þeirra var komin á loft til merkis um leiktöf. Oft í leiknum náðu Makedónar að skora eftir nokkrar sendingar sín á milli eftir að hendur dómaranna voru komnar á loft. En vitanlega þýðir ekkert að vera að tuða yfir þessu hér né annars staðar. Þetta er búið og gert og verður ekki aftur tekið. Íslenska liðið lék sinn lélegasta leik í mörg ár úti í Makedóníu og átti því varla skilið að komast áfram. En eins og svo oft áður mun íslenska liðið vera á meðal þeirra bestu er Ólympíuleikarnir fara fram í Kína í ágúst. Þar leikum við í svakalega erfiðum riðli og gaman verður að fylgjast með okkar mönnum.

um þessa dagana en svona tímabil ganga yfir og taka verður þeim með þeirri ró sem til staðar er. Það koma vonandi þeir tímar aftur sem fyrst að íslenska landsliðið í handknattleik komist aftur inn í lokakeppni HM, að Fylkir vinni leik í Landsbankadeildinni og að Englendingar komist í mót á meðal þeirra bestu. Vonandi gerist þetta fyr en seinna. Nóg um íþróttir að sinni. Sumarið er nú skollið á í allri sinni dýrð. Fjölmiðlar eru yfirfullir af neikvæðum fréttum og það virðist allt vera á hraðri leið til fjandans. Staðreyndin er hins vegar sú að fólk í kringum mig finnur ekki fyrir þessu ástandi sem fjölmiðlar hamast við að lýsa. Kannski gerist það síðar en sú staða er ekki veruleikinn í dag. Vissulega er verðið á eldsneyti hrikalegt og farið að koma við buddur landsmanna. Með skynsamlegum bílakaupum, aðhaldi í akstri er þó auðvelt að takmarka áhrif þessa háa eldsneytisverðs. Núna í sumarbyrjun er útlitið samkvæmt fjölmiðlunum afar slæmt. Vonandi rætast hrakspárnar ekki. Vonandi tekst okkur að taka á okkar málum með skynsemina að leiðarljósi og þá ætti þetta allt að fara vel. Svarthöfði

STÓRhöfði skrifar: Sem Árbæingur og stuðningsmaður enskrar knattspyrnu eru vonbrigði mín margföld þessa dagana. Lið Fylkis er á leið í bullandi fallbaráttu í Landsbankadeildinni og lið Englands náði ekki að komast í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í knattspyrnu sem nú fer fram í Sviss og Austurríki. Það eru því engir sæludagar hjá manni í boltan-

A – lið 3.flokks karla Reykjavíkurmeistarar 2008 Efri röð frá vinstri, Kjartan Stefánsson þjálfari, Kári Jónasson þjálfari, Egill Trausti Ómarsson, Benedikt Þorgilsson, Ásgeir Eyþórsson,, Árni Þórmar Þorvaldsson, Benedikt Andri Ágústsson, Ari Páll Ísberg, Steinar Geir Ólafsson, Davíð Þór Ásbjörnsson Snæþór Guðjónsson og Jóhann Andri Kristjánsson. Neðri röð frá vinstri, Davíð Einarsson, Sigurður Jóhann Einarsson, Anton Oddsson Stefán Víðir Ólafsson, Elís Rafn Björnsson, Björgvin Gylfason, Pétur Finnbogason, Andri Már Hermannsson, Benedikt Óli Breiðdal, Styrmir Erlendsson og Pálmi Óskarsson.


4

Matur

Matgæðingarnir Valborg Elísdóttir og Björn Ingvarsson og sonurinn Elís Rafn. Á myndina vantar dótturina Birnu Hrund. ÁB-mynd PS

Árbæjarblaðið

Svínalundir og eplaog kókosbolluterta - að hætti Valborgar og Björns Hjónin Valborg Elísdóttir og Björn Ingvarsson, Brekkubæ 17, eru matgæðingar okkar að þessu sinni. Girnilegar uppskriftitr þeirra fara hér á eftir og við skorum á sem flesta að prófa.

Svínalundir með döðlum og beikoni 2 svínalundir. 20 döðlur. 6-8 sneiðar beikon. 250 gr sveppir. 1/4 l rjómi. Svartur pipar. Hvítlaukssalt. Aðferð Svínalundirnar eru skornar í

Eldfast mót smurt með olíu stöppuð hvítlauksrif sett í botninn (má nota hvítlaukskrydd í staðinn) Kartöflur( bökunar) flysjaðar og skornar í sneiðar, raðað þétt, gratínosti stráð yfir og kryddað með grófum svörtum pipar og grófu salti Annað lag af kartöflum, gratínosti, pipar og salti. Hellt vel af rjóma yfir og bakað í ofni við 180-200° í 30 mín, hitinn lækkaður í 140° og bakað í 30-40.

Epla - og kókosbolluterta 3 epli. 1 1/2 msk. smjör. 1 1/2 msk. olífuolía.

Skora á Ragnheiði og Ásbjörn Valborg Elísdóttir og Björn Ingvarsson, Brekkubæ 17, skora á Ásbjörn Skúlason og Ragnheiði Björnsdóttur, Rauðási 11, að koma með uppskriftir í næsta matarþátt. Við birtum uppskriftir þeirra í næsta Árbæjarblaði sem kemur út í júlí. hluta, steiktar í olíu og kryddaðar með pipar - sett í eldfast form. Sveppir skornir í sneiðar, steiktir í smjöri og kryddað með hvítlauksalti. Döðlur skornar í 2-3 bita og steiktar og að lokum er beikonið steikt. Öllu blandað saman og hellt yfir lundirnar. Bakað í ofni við 180 gráðu hita í 30 mínútur. Að síðustu er rjómanum hellt yfir og eldað í 15 mínútur í viðbót. Meðlæti, hrísgrjón, gratíneraðar kartölfur, hvítlauksbrauð og salat. Gratíneraðar kartöflur

1 bolli rúsínur. 2 tsk. kanill. 15 stykki Ritzkex. Kókosbollur. Afhýðið eplin og skerið í sneiðar. Hitið smjörið og olíuna á pönnu, setjið eplin útí ásamt kanilnum og rúsínunum. Myljið Ritz-kekið útí og mýkið á pönnunni í nokkrar mínútur. Setjið í eldfast mót, skerðið kókusbollurnar í tvennt, langsum og raðið þeim ofan á með sárið upp. Bakið við 175° í 10-15 mín. Verði ykkur að góðu, Valborg og Björn


ÏHA:CH@ A6B76@?yI Ì <ÓÁJ K:GÁ>

(%

)%

@; k^aa^`gnYYVÂVg aVbWVa¨g^hhcZ^ÂVg &(.. `g#$`\# B:G@I K:GÁ &..- @G#$@<#

@; aVbWV` i^aZiijg gVhe^ &&.. `g#$`\# B:G@I K:GÁ &... @G#$@<#

K>CH¡A6HI6 <G>AA@?yI>Á Ï 7ÓCJH

*%

@H [Zgh`i aVbWV[^aaZi ').- `g#$`\# JEEH@G>;I Ì lll#Wdcjh#^h /A6B76;>AA:I Ï HB?yG9:><>

6;HAÌIIJG

&&.-

@H [gdh^c aVbWVhk^Â &.. `g#$`\# B:G@I K:GÁ (.. @G#$@<#

@H [gdh^Â aVbWVa¨g^ hcZ^Âjb &&.- `g#$`\#

+.-

)-.

CVjiVVi [Zgh`i cVjiV]V`` +.- `g#$`\#

@H [gdh^cc aVbWVW \jg )-. `g#$`\# B:G@I K:GÁ +.. @G#$@<#

%BA *. @G# 7 % * G > 6J N@@

@JG

C 76@6Á Ï 7ÓCJH

>C

C

<D

G 9 H

').-

6;HAÌIIJG

6;HAÌIIJG

*. EZeh^ B6M *%%ba *. `g# :\^ah VeeZah c *%%BA *. `g# EZeh^ 8A6HH>8 *%%BA *. `g#

&(. 7 cjh cÅWV`VÂ^g hc ÂVg HÖ@@JA6Á> $ @6G6B:AAJ &(. `g# hi`#

6;<G:>ÁHAJIÏB>/ ;>BBIJ96<6 &'#%%"&-#(%


FRÁBÆR - ÁRBÆR

GERUM ÁRBÆ AÐ FEGURSTA HVERFI BORGARINNAR Tiltektardagar í Árbæ 21. júní - 22. júní Hverfisráð Árbæjar hvetur alla íbúa til að taka þátt í tiltektardögum í Árbæ helgina 21. - 22. júní nk. Íbúar eru hvattir til að taka til hendinni í görðum sínum og í sínu nánasta umhverfi. Starfsmenn borgarinnar muna keyra um hverfið mánudaginn 23. júní og hreinsa upp rusl og gróðurúrgang. Með samstilltu átaki gerum við hverfið okkar að hreinasta og fallegasta hverfi borgarinnar.

ÁRBÆR - FEGURSTA HVERFI BORGARINNAR!!!


GOLFKORT K AUPÞINGS

Þín forgjöf þegar þú verslar

\da[`dgi#^h

Golfkort Kaupþings er fullgilt kreditkort fyrir kylfinga, hlaðið golftengdum fríðindum. Kortið er gefið út í samstarfi við Golfsamband Íslands og því fylgja margvísleg fríðindi án aukakostnaðar fyrir korthafa. Sæktu um Golfkortið á golfkort.is, í síma 444 7000 eða næsta útibúi Kaupþings.


9

8

Uppskeruhátíð meistaraflokks Fylkis 2007

Árbæjarblaðið

Uppskeruhátíð meistaraflokks Fylkis 2007

Árbæjarblaðið

Helgi Bjarnason fékk Lárviðarsveig KRR úr hendi Steins Halldórssonar. Rut Magnúsdóttir og Laufey Sigurðardóttir.

Bylgja Björgvinsdóttir, Gunnar Högnason og Ólafur Hafsteinsson.

Uppskeruhátíð

Þessi fengu silfurmerki Fylkis, Lína Þyrí Jóhannesdóttir, Halldór Páll Gíslason, Helgi Bjarnason og Guðrún Hjartardóttir ásamt Birni Gíslasyni sem afhendi verðlaunin.

Hermann Erlingsson og Addbjörg Grímsdóttir. Friðrik Björgvinsson og Guðný Guðmundsdóttir.

Uppskeruhátíð meistaraflokks hjá Fylki fyrir síðasta keppnistímabil var að venju mikil og skemmtileg hátíð.

Fjölmargir leikmenn og annað gott Fylkisfólk var þar verðlaunað fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.

Þrátt fyrir mótlæti í byrjun Íslandsmóts vonum við enn að lið Fylkis standi sig vel í sumar í öllum flokkum og

Þorvaldur Árnason og Katrín Björgvinsdóttir.

næsta uppskeruhátíð verði ekki síður glæsileg en sú síðasta. Áfram Fylkir!!

Lína Þyrí Jóhannesdóttir og Elín Erlingsdóttir. Stefanía Arnardóttir, Sigurðardóttir.

Jóhanna

Steingrímsdóttir

og

Þorgerður

Hörður Antonsson formaður meistaraflokks karla fékk gullmerki Fylkis úr hendi Björns Gíslasonar.

Ámundi Halldórsson fékk gullmerki Fylkis úr hendi Björns Gíslasonar fyrrverandi varaformanni Fylkis.

Ólafur Björgvin Pétursson tekur við silfurmerki KRR úr hendi Steins Halldórssonar formanni Knattspyrnuráðs Reykjavíkur.

Ámundi Halldórsson og Margrét Traustadóttir. Elín Sigurjónsdóttir og Eyþór Kolbeinsson. Óli Haffa ásamt dóttur sinni Diljá.

Kristján Már Unnarsson og Logi Ragnarsson.

Halldór P. Gíslason fékk Lárviðarsveig KRR úr hendi Steins Halldórssonar.

Sölvi Ólafsson og Ingibjörg Sverrisdóttir.

Erla Guðjónsdóttir og Oddur Ólason.

Laufey Sigurðardóttir og Bjarki Sigurðsson.

Ólafur Björgvin Pétursson fékk gullmerki Fylkis úr hendi Björns Gíslasonar.

óhanna Ósk Breiðdal og Bylgja Björgvinsdóttir.

Kjartan Daníelsson úr stjórn KSÍ afhendir Guðmundi J. Jónssyni t.v. silfurmerki KSÍ.

Indriði Rósenbergsson fékk gullmerki Fylkis úr hendi Björns Gíslasonar.

Bjarney Sif Ólafsdóttir listakona fékk Lárviðarsveig KRR úr hendi Steins Halldórssonar.

Sölvi Ólafsson og Kristján Már Unnarsson.


10

Fréttir

Árbæjarblaðið

Grennandi meðferð

Rétt verð 55.700 kr. Apastiginn er erfiður í Skólahreysti.

Námskeið í Skólahreysti

Sumartilboð

29.200 kr. hringið

núna í síma 577 7007

CELLÓNUDD: Kemur blóðrásinni af stað, hjálpar til við frekara niðurbrot og losar líkamann við eiturefni. HÚÐBURSTUN: Opnar húðina og gerir leirnum kleift að fara vel inn í hana. HLJÓÐBYLGJUR: Brjóta niður fitu. VAFNINGAR: Leir er borinn á húðina sem gerir hana stinna, silkimjúka og er jafnframt mjög vatnslosandi. Síðan er notaður Universal líkamsvafningur en með honum missir þú að minnsta kosti 16 cm í hvert skipti. FLABÉLOS: Að lokum er gott að fara í nokkrar mínútur í Flabélos tækið.

Í júlí stendur Icefitness fyrir skólahreystinámskeiðum í Egilshöll. Námskeiðin eru fyrir stráka og stelpur á aldrinum 9 til 13 ára / 4. til 7. bekkur. Skólahreystivöllurinn verður uppsettur á gerfigrasinu. Þarna gefst krökkum tækifæri, sem ekki eru orðin nógu gömul, til að keppa í Skólahreysti og spreyta sig. Þetta eru fjölbreytt og skemmtileg námskeið þar sem farið er vel í alla

þætti skólahreysti. Einnig verður fræðsla um heilbrigt líferni og mikilvægi hollrar og góðrar fæðu. Í lok hvers námskeiðs fá krakkarnir skólahreystibol og viðurkenningarskjal. Einnig er boðið upp á hollustuhlaðborð seinasta daginn. Námskeiðið er tvískipt eftir aldri: Árg. 1997-1998 kl. 10:00 - 12:00 Árg. 1996 - 1997 kl. 13:00 - 15:00

Námskeiðið verður vikuna 7. júlí 11. júlí. Skráning er hafin. ATH!! Takmarkaður fjöldi. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á skolahreysti@skolahreysti.is Stjórnandi námskeiðs: Kristinn Freyr Guðmundsson IAK einkaþjálfari. Allar upplýsingar gefur Lára Berglind Helgadóttir í síma 663-1112.

NICOTINELL ER ÓDÝRARA Í ÁRBÆJARAPÓTEKI EN Í ÖÐRUM APÓTEKUM* *Samkvæmt verðkönnun neytendasamtakanna á nikótínlyfjum í febrúar 2008

MUNNSOGSTÖFLUR

FORÐAPLÁSTUR

LYFJATYGGÍGÚMMÍ

Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Þeir sem hafa fengið ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega, eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Börn undir 15 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.


PIPAR • SÍA • 81168 • Ljósmynd: Spessi

Lóan er komin! Ljósafossstöð við Sog Einstakt tækifæri til að sjá valin verk úr sýningu Steingríms Eyfjörð „Lóan er komin“ sem var framlag Íslendinga á Feneyjatvíæringnum 2007. Sýningin er opin alla eftirmiðdaga í sumar.

Kynnið ykkur raforkuframleiðslu og sjáið einnig skemmtilegar sýningar í Blöndustöð, Búrfelli, Kröflustöð, Laxárstöð og Gestastofu Fljótsdalsstöðvar í Végarði. Stöðvar Landsvirkjunar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Végarður er opinn frá kl. 9-17 alla daga vikunnar. Heimsókn til Landsvirkjunar er ókeypis.

Nánari upplýsingar um opnunartíma og sýningar í stöðvum eru á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000.

Handhafi Íslensku gæðaverðlaunanna 2007


12

Fréttir

Árbæjarblaðið

Hressir skátar í Hamri.

Útilífsnámskeið í boði skáta

Árbæjarblaðið Sími: 587-9500

Skátafélagið Hamar hefur til fjölda ára boðið upp á útilífsnámskeið á sumrin og í ár verða í boði fjögur skemmtileg tveggja vikna námskeið fyrir hressa krakka á aldrinum 8-11 ára. Námskeiðin byggja á útiveru, leikjum, þrautum og fjölbreyttum ævintýraferðum og öllum námskeiðum lýkur með spennandi einnar nætur tjaldútilegu. Útilífsámskeiðin eru góð kynning á starfi skáta og eru hvatning til þátttöku í skátastarfi. Allir þátttakendur námskeiðana fá í haust sendan upplýsingabækling um skátastarf Skátafélagsins Hamars á komandi vetri. Í Árbæ eru tvær starfsstöðvar, í Sæmundarskóla Grafarholti þar sem Skátafélagið Hamar er með útilífsskóla og í skátamiðstöðinni Hraunbæ 123 þar sem Skátafélagið Árbúar eru með útilífsskóla. Útilífsnámskeiðin standa yfir frá 9. júní til 18. júlí og síðan er lokanámskeið 11. - 21. ágúst. Ástæðan þess að ekki er námskeið í lok júlí er landsmót skáta sem haldið verður á Akureyri, en þang-

Það er margt skemmtilegt gert í skátastarfinu. að mæta allir skátar á landinu, setja upp tjaldbúðir og skemmta sér saman við leik og söng í eina viku. Landsmót skáta er frábært tækifæri fyrir börn og unglinga til að kynnast skátum úr öðru skátafélögum eða jafnvel frá öðrum lönd-

um. Síðan er það mikil upplifun og einstök skemmtun að búa í tjaldi með vinum í heila viku. Nánari upplýsingar um útilífsskólann og skráningu er að finna á www.utilifsskoli.is

Höfuðlausnir bjóða velkomin til starfa Elis Veigar og reynsluboltann Ingibjörgu!

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330


14

Fréttir

Árbæjarblaðið

Tannréttingar Þórir Schiöth tannlæknir hefur hafið störf Þessir hressu krakkar skemmtu gestum á afmælishátíðinni.

við tannréttingar á Tannlæknastofunni Spönginni 33 í Grafarvogi. Þórir starfar eingöngu við tannréttingar og viðtalstíma má panta í síma

Árbæjarskóli 40 ára Elsti skólinn í Árbæjarhverfi, Árbæjarskóli, fagnaði 40 ára afmæli sínu á dögunum. Skólinn er einn fjölmennasti grunnskóli landsins og var mikið um dýrðir í veglegri afmælisveislu þar sem gríðarlegt fjölmenni

mætti. Boðið var upp á skemmtiatriði og utan dyra var gestum boðið upp á pylsur og Svala eins og hver gat í sig látið. Skólanum bárust gjafir víða að og Björn Gíslason, formaður Hverfisráðs Árbæjar afhenti Þorsteini

577 1666

Þarft þú að losna við köngulær?

Nóg var af áhugaverðum myndum á veggjunum til að skoða.

Boðið var upp á SS pylsur og Svala og pylsurnar soðnar í gríð og erg.

Sæberg skólastjóra veglegan blómvönd. Við óskum skólanum, starfsfólki og nemendum, til hamingju með afmælið og frábæran skóla.


SUNDSUMAR Í ÁRBÆJARLAUG www.itr.is w itr is

sími 411 5000

Sumarafgreiðslutími: Virka daga kl. 6:30–22:30 Helgar kl. 8:00–22:00


– við erum að tala um peninga Auktu ánægju þína með fjárhagslegri heilsu. Það er mikilvægt fyrir þig að skoða fjármálin reglulega. Sérstaklega þegar aðstæður breytast. Fjárhagslega heilsupróf Byrs gefur þér yfirsýn yfir fjármálin og hjálpar þér að taka betri ákvarðanir til að bæta fjárhagslega heilsu þína. Fjárhagslega heilsuprófið er hannað í samvinnu við viðskiptavini Byrs, viðskiptavini annarra banka og fjárhagslega einkaþjálfara Byrs. Prófið tekur á þeim þáttum sem skipta mestu máli fyrir þig. Komdu þér í fjárhagslegt form með Byr.

Byrjaðu á byr.is – kannaðu fjárhagslega heilsu þína núna. Komdu með í ræktina. Sími 575 4000 byr.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Arbaejarbladid 6.tbl 2008 by Skrautás Ehf. - Issuu