Skip to main content

Arbaejarbladid 4.tbl 2008

Page 1

Árbæjarblaðið 4. tbl. 6. árg. 2008 apríl

Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti

Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is

Pantið tíma í síma 511–1551

Gleðilegt sumar Þessir eldhressu krakkar á Frístundaheimilinu Stjörnulandi við Ingunnarskóla í Grafarholti voru heldur betur ánægð með lífið er þau brugðu út af vananum og fóru dagsferð í keilu. Um 70 krakkar eru á Stjörnulandi og starfsemin fjölbreytt og skemmtileg. Sjá nánar á bls. 14

Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3

Frábær gjöf fyrir veiðimenn Falleg flugubox með vinsælum laxa- og silungaflugum frá Krafla.is Tilvalin afmælisgjöf fyrir kröfuharða fluguveiðimenn

Kannaðu málið á Krafla.is eða í síma 587-9500

Gröfum nöfn veiðimanna og lógó fyrirtækja á boxin


2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Árbæjarblaðið

Rótarýklúbburinn Reykjavík Árbær:

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 (660 fyrirtæki).

Tökum til hendinni Vorið er handan við hornið ef það er þá ekki þegar skollið á í allri sinni dýrð. Framundan eru hreinsunardagar í Árbæjar- og Grafarholtshverfi sem og öðrum hverfum borgarinnar. Íbúum gefst kostur á því að koma rusli úr görðum sínum út fyrir lóðirnar sem starfsmenn borgarinnar sjá síðan um að fjarlægja. Lesendur geta séð nánari útskýringar á þessu á öðrum stað í blaðinu. Víða er ekki vanþörf á að taka til í borginni. Úthverfin eru líkast til þau hverfi borgarinnar sem jafnan eru hreinlegust og snyrtilegust. Á móti er miðborgin ávallt afskaplega skítug og óaðlaðandi svo ekki sé meira sagt. Þar hafa borgaryfirvöld sofið algjörlega á verðinum mörg undanfarin ár og horft upp á miðborgina drabbast niður. Það verður að teljast með ólíkindum að yfirvöld í borginni skuli ekki fyrir mörgum árum hafa sent eigendum gamalla og yfirgefinna húsa stutt bréf þar sem gefinn er örstuttur frestur, nokkrir dagar, til að ganga svo frá húsum að þau séu algjörlega lokuð útigangsfólki. Einnig að húsin skuli líta snyrtilega út. Og ef eigendur húsanna trassa tiltektina og fráganginn er málum komið í lag af starfsmönnum borgarinnar og reikningurinn sendur eigendum húsanna. Svona einfalt er þetta mál. Og svona einfalt hefur alltaf verið að koma í veg fyrir þá hörmung sem blasir við í miðbænum í dag. Staðan er hreinlega þannig að maður skammast sín fyrir miðborgina. Hún er í raun hreinn viðbjóður og þeir erlendu ferðamenn sem séð hafa ósköpin hafa örugglega orðið hissa. Vonandi er að núverandi stjórnendur borgarinnar geri eitthvað í málunum. Skrifi bréf á sjái svo til hvort eigendur húsanna hrökkvi ekki við og þessi mörg hver fallegu hús taki ekki mjög fljótlega á sig betri mynd. Gleðilegt sumar.

Jón Magngeirsson og félagar opna fyrir vatnspóstinn þann 10. apríl sl.

Höldum hverfinu hreinu - vatn komið á vatnspóstinn. Hreinsun 19. apríl kl. 10

Fyrir nokkrum árum stóð Rótarýklúbbur Árbæjar fyrir uppsetningu á vatnspósti neðan við kirkjuna til afnota fyrir alla, sem ferð eiga um svæðið að vori, hausti eða á sumardegi. Sístreymi er af svalandi Gvendarbrunnavatni úr vatnspóstinum og nándin við Árbæjarkirkju gefur sopanum virðulegan blæ. Klúbbfélagar hafa á ári hverju lagt sig fram við að endurbæta og snyrta svæðið í kring. Ný tré hafa verið gróðursett og önnur fjarlægð, sem illa pössuðu. Bekkur úr stuðlabergi settur upp og áningarstaur við vatnspóstinn. Í ár var vatni

hleypt á vatnspóstinn fimmtudaginn þann 10. april s.l. Það er góð regla fyrir alla þá, sem ganga dalinn að taka með sér poka og tína rusl sem á vegi verður og veldur okkur leiðindum. Ekki er hægt að ætlast til að borgarstarfsmenn anni því alltaf að halda öllu svæðinu eins snyrtilegu og við hverfisbúar vildum. Það er því ekki úr vegi að við hjálpum til og tökum til hendinni, þegar færi gefst. Borgin annast losun úr ruslafötum meðfram gangstígum og er nægjanlegt að setja pokana við ruslaföturnar. Best er auðvitað að

setja ruslið í tunnur heima hjá sér. Ef hverfið á alltaf að vera hreint og snyrtilegt, verða íbúar að taka þátt í að bæta umgengni og taka til hendinni þegar þurfa þykir. Laugardaginn 19. april kl 10 ætla félagar ásamt fjölskyldumeðlimum og vonandi einnig með félögum úr öðrum klúbbum, sem búa í hverfinu, að hreinsa rusl allt frá svæðinu kringum leikskólann í Hlaðbæ upp að Fylkisvelli og Rofabæinn frá kirkjunni út götu í vestur. Mæting verður kl 10 við Árbæjarkirkjuna.

Til hamingju Árbæingar! - tímamótasamstarf heilbrigðis- og velferðarþjónustu í Árbæ

Það verða ákveðin tímamót í haust þegar Heilsugæsla Árbæjar og Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts flytjast undir sama þak í nýju og sérStefán Kristjánsson, ritstjóri Árbæjarblaðsins hönnuðu húsnæði. Skrifað var undir leigusamninga þess efnis þann 14. mars síðastliðinn. Samhliða flutningi þessara tveggja þjónustuþátta í sama húsnæði skapast tækifæri til þess að auka samstarf þeirra á milli. Það tækifæri látum við ekki renna okkur úr greipum og því var jafnframt skrifað undir sérstakan samstarfssamning um leið og skrifað var undir leigusamningana. Til þess að samstarfið verði svo farsælt sem frekast er kostur var ákveðið að skipa fjögurra manna samráðsnefnd með fulltrúum beggja aðila til að móta nánara og formfastara samFulltrúar heilsugæslunnar, borgarinnar, byggingaraðila og heilbrigðisráðherrann, Guð- starf. Fulltrúar í laugur Þór Þórðarson, skrifa undir leigusamninginn á dögunum. ÁB mynd PS samstarfsnefndinni

abl@centrum.is

Árbæjarblaðið

verða þau Margrét Gunnarsdóttir hjúkrunarstjóri Heilsugæslu Árbæjar, Haraldur Ó. Tómasson, læknir, Sólveig Reynisdóttir framkv.stj. Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarvogs og Þorgeir Magnússon deildarstjóri/sálfræðingur. Hvort tveggja, heilsugæsla og velferðarþjónusta, eru mikilvægar nærþjónustur við íbúa hvers svæðis. Margir einstaklingar eru í senn skjólstæðingar Heilsugæslunnar og Velferðarþjónustunnar. Aukin samvinna býður upp á marga möguleika, s.s. sameiginleg námskeið fyrir skjólstæðinga og starfsmenn, aukna samvinnu starfsmanna, aukið upplýsingaflæði og aukin þægindi jafnt fyrir skjólstæðingana sjálfa sem og aðstandendur þeirra, svo fátt eitt sé talið. Tilvalið er að nýta það tækifæri sem hér gefst til að koma á nánara samstarfi þessara stofnana, bæði hvað varðar skipulag á þjónustu við sameiginlega skjólstæðinga og þjónustuframboð almennt. Markmið aukins samstarfs eru meðal annars að: - auka skilvirkni þjónustuþáttanna - auka gæði þjónustunnar - kanna mögulega samþættingu þjónustunna. - kanna lögformlegan og hagrænan grundvöll fyrir ennþá frekara sam-

Jórunn Frímannsdóttir. starfi heilsugæslu og Velferðarsviðs - kanna möguleikann á sameiginlegri móttöku skjólstæðinga auk annarrar samnýtingar húsnæðis. Fróðlegt verður að fylgjast með vinnu samráðsnefndarinnar og sjá hverjar niðurstöður hennar verða. Það er ótvíræður vilji bæði Heilbrigðisráðuneytis og Borgaryfirvalda að auka þetta samstarf sem frekast er kostur. Jórunn Frímannsdóttir, formaður Velferðarráðs

Auglýsingar og ritstjórn 587-9500


)%

)..

6;HAÌIIJG

6a^ [Zgh`jg hk cVW \jg VÂZ^ch ).. `g#$`\

7 cjh [Zgh`^g `_ `a^c\VW^iVg '.. `g#$`\# B:G@I K:GÁ ).. @G#$@<#

ÏHA:CH@I A6B76@?yI Ì <ÓÁJ K:GÁ> Ï 7ÓCJH

(%

*%

6;HAÌIIJG

6;HAÌIIJG

..-

@H aVbWVhk^Â &.. `g#$`\# B:G@I K:GÁ (.. @G$@<#

@H [gdh^cc aVbWVW \jg )-. `g#$`\# B:G@I K:GÁ +.. @G$@<#

@H [gdhcVg aVbWV"h^gad^chcZ^ÂVg ..- `g#$`\# ;GÌ7¡G6G Ì <G>AA>Á#

&).-

&*.-

&,.-

@H [Zgh`i aVbWVeg^bZ &).- `g#$`\#

@; [gdhcVg aVbWV` i^aZiijg I"WdcZ &*.- `g#$`\#

@; [gdhcVg aVbWVb^Âa¨g^hhcZ^ÂVg &,.- `g#$`\#

)-. Jc\cVjiV]VbWdg\VgVg ) hi` b$WgVjÂ^ )-. `g# eV``^cc#

&.-

7 cjh [Zi^ '*%\ ik¨g iZ\# VÂZ^ch &.- `g#

). DH hb_ gk^ (%% \g# I^aWdÂhVh`_Vc

(%

)%

,.-

6;HAÌIIJG

CVjiVVi [Zgh`i haZch`i jc\cVjiV]V`` ,.- `g#$`\#

6a^ [Zgh`Vg hk cV` i^aZiijg &% B:G@I K:GÁ &,-( @G#$@<# &%,% `g#$`\#

:\^ah Dg`V {a[aVh`V '*% ba# ). `g#

6;HAÌIIJG 6a^ [Zgh`jg hk cV]cV``^ &'*. `g#$`\# B:G@I K:GÁ &,.- @G$@<#

BZÂ [ng^gkVgV jb egZcik^aajg ZÂV jeehZaYVg k gjg#

6;<G:>ÁHAJIÏB>/ ;>BBIJ96<6 &'#%%"&-#(%


4

Matur

Árbæjarblaðið

Kjúklingasalat og súkkulaðikaka - að hætti Lilju Birnu og Guðjóns

Matgæðingarnir Helena, Arnór Örn og Kristján Karl og svo foreldrarnir Lilja Birna Arnórsdóttir og Guðjón Karl Reynisson.

Hjónin Lilja Birna Arnórsdóttir og Guðjón Karl Reynisson eru matgæðingar okkar að þessu sinni. Þau bjóða upp á kjuklingasalat og dásamlega súkkulaðiköku í eftirrétt. Uppskriftir þeirra fara hér á eftir:

Kjúklingasalat 1 grillaður kjúklingur (eða bringur sem eru steiktar og síðan marineraðar). Klettasalatblanda. 1 Iceberg haus. Furuhnetur eða Cashew hnetur. Sesamfræ. Nachos orginal (td. frá Mariac-

sem fæst t.d. í 10-11. Furuhnetur og sesamfræ eru ristuð á pönnu þar til fara að poppa og svo er brotið nachos yfir salatið. Þar er allt í lagi að helminga dressing uppskriftina því hún er svolítið mikil. Ekki setja hnetur, fræ eða nachos út í fyrr en salatið er borið fram. Borðist vel og lengi með þeim sem ykkur þykir vænt um.

Dásamleg súkkulaðikaka 4 egg. 2 dl. sykur. 200 gr. smjör.

Skora á Huldu Rós og Lárus Lilja Birna Arnórsdóttir og Guðjón Karl Reynisson, Brekkubæ 44, skora á Huldu Rós Rúriksdóttur og Lárus Finnbogason, Brekkubæ 35, að koma með upppskriftir í næsta matarþátt. Við birtum uppskriftir þeirra í næsta Árbæjarblaði sem kemur út í maí.

Árbæjarblaðið

Auglýsingar og ritstjórn

Sími: 587-9500

hi). Avacado. Tómatar. Rauðlaukur. Sólþurrkaðir tómatar. Feta- ostur. Dressing 2 búnt steinselja. ½ hvítlaukur eða minna eftir smekk. 4 góðar msk. hunang. 1 tsk. salt. 4 dl. græn ólifuolía. Allt sem fara á í dressinguna er sett í mixara og mixað vel. Kjúklingurinn skorinn í bita og settur í hluta af dressingunni og er hann látinn liggja þar í a.m.k. 2 kls. (jafnvel yfir nótt). Gott er að nota heilan grillaðan kjúkling

200 gr. suðusúkkulaði. 1 dl. hveiti. Egg og sykur hrært saman þar til ljóst og létt. Smjör og súkkulaði brætt saman í potti á lágum hita. Öllu síðan blandað varlega saman með sleif ásamt hveitinu. Bakað við 180°C í ca. 30 mínútur í formi sem smjörpappír hefur verið settur í. Krem 70 gr. smjör. 150 gr. suðusúkkulaði. 1-2 msk. síróp. Allt hitað saman í potti og síðan skellt yfir kökuna. Verði ykkur að góðu, Lilja Birna og Guðjón Karl


SUMARIÐ BYRJAR SNEMMA Í LAUGUNUM!

Árbæjarlaug og Laugardalslaug Nú er opið til 22.00 um helgar í íma lauganna á www.itr.is Nánari upplýsingar um afgreiðslut

www.itr.is

sími 411 5000


Þessar þurfa að vera í boxinu þínu í sumar Laxaflugur

Iða

Krafla gul

Krafla rauð

Krafla orange

Krafla blá

Krafla græn

Iða

Skröggur

Grænfriðungur

Elsa

Gríma blá

Gríma gul

Tungsten keilutúpur

Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung)

,,Íslenska landsliðið’’ í silungaflugum Beygla

Beykir

SilungaKrafla bleik

SilungaKrafla orange

Kíktu á Krafla.is - Gjöfular, fallegar og sterkar flugur - Íslensk hönnun

Krókurinn

Mýsla

íslensk fluguveiði Skrautás ehf. Sími: 587-9500


Nýr og endurhannaður Mazda6 er frá öllum hliðum séð, búinn nýjustu öryggistækni. Rammgerðar árekstrarvarnir verja ökumann og farþega og vel hönnuð sætin veita á ögurstundu rétta stuðninginn á réttu stöðunum. DSC stöðuleikastýrikerfi með TCS spólvörn heldur akstursstefnu bílsins stöðugri í möl, hálku eða kröppum beygjum og hemlakerfið er af fremstu gerð, búið EBD hemlajöfnun, ABS aflhemlun og EBA hjálparhemlun. Fyrir vikið lætur nýr Mazda6 enn betur að stjórn, einnig við erfiðar aðstæður. Fjórir öryggispúðar eru að framanverðu. Öryggisgardínur eru beggja vegna auk þess sem Mazda6 er búinn Isofix-festingum fyrir barnabílstóla og þriggja punkta öryggisbeltum. Segðu Zoom-Zoom. Og þú ert tilbúinn fyrir meiri dýpt í akstrinum. Vertu Mazda. Komdu í Brimborg í dag. Nýr Mazda6. Dýpri bíll.

Dýpraöryggi. NýrMazda6.

Komdu ídag

Rey

nslu

aktu

Þú ge

nýju

frumsýningin

mM

tur un

nið 50

azd

heldur áfram

a6 o

.000 k

g þú

r. ben s

ert í

íBrimborg Akureyri,

Hap

pap Reykjavík ínútte o kt hjá tti Brim Olís. borg ar.

Mazda6 Advance

2,0i 147 hö 184 Nm 4 dyra 5 þrepa sjálfskiptur Frumsýningarverð: 3.490.000 kr.* Bensínnotkun í blönduðum akstri 7,7 l/100 km. CO2 losun 182 g/km

seljagamla

Segðu Zoom-Zoom. Vertu á hreyfingu, ferð og flugi. Vertu Mazda.

kaupa nýjan notaðan GCI GROUP GREY ALMANNATENGSL

Komdu einnig við í sal notaðra úrvalsbíla Brimborgar. Gefðu þér tíma. Skoðaðu nýjan notaðan hjá Brimborg. Láttu okkur vinna fyrir þig. Þú færð örugglega sanngjarnt verð fyrir gamla bílinn þinn. Við gerum næstum allt fyrir þig.

Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.mazda.is

*Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.


8

Fréttir

Árbæjarblaðið

Krakkarnir á Rofaborg voru í góðu skapi og ánægð með nýju viðbygginguna við leikskólann.

Hér er greinilega nóg að gera.

Viðbygging í gagnið við leikskólann Rofaborg Í febrúar var tekin í notkun viðbygging við leikskólann Rofaborg. Viðbyggingin leysir af hólmi gömlu Selásborgina sem hefur verið leikskóladeild frá Rofaborg síðan 1995. Í viðbyggingunni, sem er um 320

fermetrar, eru tvær heimadeildir, lystasmiðja og salur til hreyfileikja. Með stækkuninni getur leikskólinn tekið á móti 110 börnum, sem dreifast á 5 deildir. Í sumar er áætlað að ljúka framkvæmdum við leik-

skólann en þá verður garðurinn endurgerður og breytingar gerðar á starfsmannaaðstöðu og eldhúsi. Að sögn Þórunnar Gyðu Björnsdóttur leikskólastjóra er byggingin björt og skemmtileg um leið og hún

Puðað og púlað í leikfiminni. býður upp á marga möguleika í starfi og leikjum með börnunum. Það er afar ánægjulegt að loksins skuli skólinn allur vera kominn undir eitt þak. Opið hús verður í Rofaborg

fimmtudaginn 22. maí frá kl. 10 -11:30 f.h og 15:00-16:30 eftir hádegi. Þá geta gestir og gangandi komið og skoðað leikskólann og kynnt sér starfsemi hans.

Samráðsfundur borgarstjóra með íbúum í Árbæjarhverfi:

Lofaði bekkjum og ruslafötum Það var fámennt en góðmennt á fundi borgarstjóra með íbúum í Árbæjarhverfi í tengslum við 1, 2 og Reykjavík.

Árbæjarblaðið

Rétt liðlega 100 ábendingar bárust frá Árbæingum inn á ábendingavefinn á reykjavik.is í tengslum við átakið 1, 2 og Reykjavík. Borgarstjóri hélt nýverið samráðsfund í Árbæjarskóla með íbúum. Þar lofaði hann að fjölga bekkjum og ruslafötum í hverfinu og einnig lofaði borgarstjóri því að leikvöllurinn við Rofabæ yrði lagfærður.

Sólveig Reynisdóttir, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts fór yfir ábendingar Árbæinga. Loks var íbúum sem mættu á fundinn skipt í fjóra hópa eftir búsetu, ábendingar íbúanna ræddar og þær settar í forgangsröð. Ábendingarnar er hægt að lesa um á vefnum reykjavik.is

Auglýsingar og ritstjórn 587-9500


[¨g bZ^gV K mijg

K mijg! k^aYVg _ cjhiV @Vje ^c\h! [¨g^g g Vak gj {k^cc^c\ KVmiVg[ aV\Vg Zgj WZhij k^ h`^eiVk^c^g @Vje ^c\h d\ c_ iV bZ^g^ {k^cc^c\h Zc V g^g# Ï Wd ^ Zgj WZig^ `_ g { WVc`V _ cjhij d\ bVg\k haZ\jg _ cjhijV[ha{iijg hZb `Zbjg hVbhijcY^h i^a [g{Yg{iiVg# K mijg kZ^i^g g Zcc[gZbjg h ghi ` `_ g ]_{ KÏH! @Vje ^c\^ a [^! A [ h! A h^c\j d\ ygn\\^hb^ hi ^cc^# @nccij g b{a^ { kdmijg#^h


10

Fréttir

Árbæjarblaðið

Vortónleikar Karlakórinn Stefnir heldur sína árlegu vortónleika sem hér segir: Miðvikudaginn 23. apríl kl 20:00 í Langholtskirkju Föstudaginn 2. mai kl 20:00 í Víðistaðakirkju Laugardaginn 3. mai kl 16:30 í Hlégarði Miðasala við innganginn.

Bílaverkstæði á besta stað Ávallt í leiðinni Allar almennar viðgerðir, púst, bremsur, tímareimar, hjólalegur, stýrisendar, kúplingar, olíuþjónusta og fl. Einnig athugum við bíla fyrir skoðun og lagfærum það sem sett hefur verið út á í skoðun Góð og heiðarleg þjónusta

,,Ég er mjög ánægður með að Heilsugæsla Árbæjar og Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts eru að flytja saman í nýtt og sérhannað húsnæði í Hraunbæ sem á að vera tilbúið í haust,’’ segir Björn Gíslason sem á ný er orðinn formaður í Hverfisráði Árbæjar. ÁB mynd PS

Björn Gíslason er á ný formaður Hverfisráðs Árbæjar:

,,Hreinn munaður að búa í úthverfi’’

Björn Gíslason er aftur orðinn formaður Hverfisráðs Árbæjar eftir 100 daga hvíld og tókum við hann tali af þessu tilefni og spurðum hann nokkurra spurninga líkt og við gerðum við formann Hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsárdals í síðasta blaði. - Fyrst báðum við Björn að segja okkur hvert væri helsta hlutverk hverfisráðsins?

Hlusta á óskir íbúanna ,,Hverfisráðið er vettvangur fyrir samráð borgaryfirvalda við íbúa, hópa og félagasamtök í hverfinu um hvaðeina sem snýr að málefnum hverfisins. Hlutverk hverfisráðsins er fyrst og fremst að vera í góðum tengslum við íbúana og hlusta á óskir þeirra og þarfir um nánast allt er snýr að hverfinu.’’ - Hefur orðið einhver breyting varðandi hverfisráðið með tilkomu nýs meirihluta í borgarstjórn?

Bíldshöfða 18 - bakhús 112 Reykjavík - Sími 587-3131 - www.bilastofa.is

,,Það hefur orðið heilmikil breyting á hverfisráðinu sjálfu en í tíð síðasta meirihluta var fulltrúum í hverfisráðunum fjölgað í sjö en áður höfðu verið þriggja manna hverfisráð. Það er mjög gott fólk sem skipar Hverfisráð Árbæjar í dag og ég finn að allir vilja hverfinu það allra besta en ég tel þó að þriggja manna hverf-

isráð séu heppilegri því yfirleitt er það nú þannig að minni nefndir og ráð eru skilvirkari en þær stærri.’’

1, 2 og Reykjavík - Hver sérðu fyrir þér að verði helstu verkefni Hverfisráðs Árbæjar á næstunni? ,,Við höfum verið og verðum að vinna í verkefninu 1,2 og Reykjavík sem er ábendingavefur á heimasíðu Reykjavíkurborgar reykjavik.is en ,,1, 2 og Reykjavík’’ er yfirskrift víðtæks samráðs Reykjavíkurborgar við íbúa í hverfum borgarinnar um viðhaldsverkefni og smærri nýframkvæmdir í borgarumhverfinu. Á ábendingavefnum gefst notendum kostur á að koma á framfæri eigin ábendingum með skýringum og fylgjast með stöðu - eigin ábendinga og annarra. Einnig er hægt að hringja inn ábendingar í þjónustusíma Reykjavíkurborgar 4111111. Sl. laugardag var svo haldinn samráðsfundur borgarstjóra með íbúum Árbæjar vegna verkefnisins og var fundurinn haldinn í Árbæjarskóla. Í máli borgarstjóra lofaði hann íbúum því meðal annars að strax yrði farið í að fjölga bekkjum og ruslafötum í hverfinu ásamt því að hann ætlar að beita sér fyrir því að róluvöllurinn við Rofabæ verði lagfærður.’’ Björn segir að alltaf séu næg verk-

efni fyrir hverfisráðið að glíma við:

,,Vitanlega eru viðfangsefnin misjafnlega erfið og skemmtileg,’’ segir Björn og nefnir eitt mál sérstaklega sem er honum sérstakt gleðiefni eins og fleirum í hverfinu. ,,Ég er mjög ánægður með að Heilsugæsla Árbæjar og Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts eru að flytja saman í nýtt og sérhannað húsnæði í Hraunbæ sem á að vera tilbúið í haust. Skrifað hefur verið undir samstarfssamning þessara stofnana um aukið samstarf þeirra á milli,’’ segir Björn.

Viðræður borgaryfir valda og Fylkis hafnar Þá má einig nefna að viðræður eru hafnar milli borgaryfirvalda og Íþróttafélagsins Fylkis um aðstöðumál Fylkis en Fylkir sótti um að byggt verði fimleikahús og stúka við aðalknattspyrnuvöll félagsins í Hádegismóum. Að lokum vil ég nefna hvað við Árbæingar erum heppnir að búa í Árbæ með öllum þeim möguleikum og tækifærum sem okkur gefast til hreyfingar og útivistar í hverfinu og okkar frábæra umhverfi. Það er hreinn munaður að búa í úthverfi,’’ sagði Björn Gíslason.


VORTILBOÐ Þú kaupir 4 mánaða kort á kr. 19.900 og færð frábærar gjafir með. · · · ·

5 tíma ljóskort Veggsport vatnsbrúsa Viku vinakort í Veggsport Faglega ráðgjöf hjá einkaþjálfara í tækjasal · 1 pakka af Rauðu eðal ginseng, sem eykur súrefnisnýtingu og flýtir fyrir árangri í markvissri þjálfun.

Þetta er geggjað!!! Þú getur ekki látið þetta fara framhjá þér.


12

Fréttir

Árbæjarblaðið

Vorhátíð BYRS í fyrra þar sem fjölmenni mætti og skemmti sér vel.

Í ár kemur það í hlut Reykjavíkurborgar að standa fyrir fjölskylduhátíð í Árbæ á sumardaginn fyrsta Eins og er vel þekkt hefur Byr sparisjóður staðið fyrir veglegri vorhátíð við verslunarkjarnann Ásinn undan farin ár. Hátíðin hefur verið vel sótt og gert mikla lukku meðal íbúa Árbæjar jafnt ungum sem öldnum. Í ár verður

sú breyting á að það kemur í hlut Hverfismiðstöðvar Reykjavíkurborgar að halda hátíðina. Hverfismiðstöðin heldur hátíðina að eigin frumkvæði og vill hún með því undirstrika hlutverk sitt á Árbæjarsvæðinu. Byr styður

hins vegar hátíðina með því að bjóða yngri kynslóðinni upp á fjör í hoppuköstulum. Við skulum vona að vel viðri til hátíðahalda á sumardaginn fyrsta.


13

Fréttir

Árbæjarblaðið

Ótrúlegur fjöldi í páskaeggjaleit í Elliðaárdalnum laugardaginn fyrir páska

2000

leituðu að eggjum Laugardaginn fyrir páskadag fór fram árleg páskaeggjaleit á vegum Sjálfstæðisfélaganna í Árbæ og Breiðholti. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður borgarráðs og oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn setti páskaeggjaleitina af stað. Margir lögðu leið sína í Elliðaárda-

linn þennan dag eða hátt í 2000 manns. Börnin leituðu að fagurlega skreyttum hænueggjum og fengu að launum súkkulaðiegg. Keppt var í húlahoppi og fengu sigurvegararnir stór súkkulaðipáskaegg í verðlaun. Allir fóru glaðir og ánægðir heim eftir skemmtilegan páskaleik.

Gríðarlegur fjöldi fólks mætti í páskaeggjaleitina í Elliðaárdalnum og veður var með þokkalegasta móti. Í fyrra mættu um 1000 manns en nú er áætlað að helmingi fleiri hafi leitað að eggjunum og margir fóru glaðir heim. Á myndunum sjást þátttakendur í páskaeggjaleitinni og voru þeir á öllum aldrei eins og sjá má.

Kæru viðskiptavinir! Takk fyrir veturinn og gleðilegt sumar

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is

Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330


14

Fréttir

Árbæjarblaðið

Allir eru vinir i Stjörnulandi. Glatt á hjalla í landi stjarnanna í Grafarholtinu.

Frístundaheimilið Stjörnuland við Ingunnarskóla:

Tannréttingar Stjörnulandsfréttir Þórir Schiöth tannlæknir hefur hafið störf við tannréttingar á Tannlæknastofunni Spönginni 33 í Grafarvogi. Þórir starfar eingöngu við tannréttingar og viðtalstíma má panta í síma: 577 1666

Hér í frístundaheimilinu Stjörnulandi við Ingunnarskóla eru 70 börn og alltaf nóg að gera. Við höfum starfandi listahópa sem eru að föndra, lita, teikna, mála og margt fleira. Saumaklúbbur hefur verið í gangi í allan vetur en eins og er, er puttaprjónið og vinabönd eftst á baugi þessa stundina ásamt Jungle Speed spilinu sem gefur mikla útrás

og keppnisskap einstaklingsins brýst fram. Á löngum degi í páskafríinu fórum við með börnin í keilu og stóðu þau sig frábærlega vel í allri ferðinni. Það var mikill keppnishugur í öllum og voru þau mjög klár í keilu. Krakkarnir eiga hrós skilið fyrir góða hegðun. Framundan eru spennandi tímar

Fjórir fjörugir félagar í Stjörnulandi.

þar sem að Stjörnuland er að fara að flytja í nýtt húsnæði ásamt félagsmiðstöðinni Fókus. Opnunarhátíð verður haldin þann 23. apríl á síðasta vetrardegi og öllum foreldrum verður boðið. Nánar auglýst síðar. Bestu kveðjur frá Stjörnulandi.


15

Fréttir

Árbæjarblaðið

hvaderimatinn.is

Góðar vinkonur á árshátíð.

Árshátíð í 4. - 5. bekk

Sæmundarskóla

4. - 5. bekkur í Sæmundarskóla hélt árshátíð síðastliðinn fimmtudag. Tókst Árshátíðin mjög vel og stóðu nemendur sig með prýði. Krökkunum var skipt upp í hópa og hafði hver hópur sitt hlutverk. Einn hópur sá um skreytingar, annar um skemmtiatriði, enn annar um að þjóna til borðs og að

Vinsældir vefsíðunnar hvaderimatinn.is hafa farið vaxandi síðan hún fór fyrst í loftið í júní síðastliðnum. Notendur hennar er nú orðnir rúmlega 4.700, að sögn Felix Gylfasonar en hann rekur síðuna ásamt 2 vinum sínum úr Árbænum. ,,Við vorum í matarboði að ræða daginn og veginn þegar umræðan fór inn á matargerð og kom upp sú hugmynd að það væri nú sniðugt og þægilegt að geta fengið sendar hugmyndir um matseðil á sms eða netfang. Þá þurfum við ekki lengur að hugsa á síðustu stundu og enda alltaf á því að elda það sama. Og við létum slag standa og ca 9 mánuðum seinna leit vefurinn dagsins ljós,’’ sagði Felix Gylfason í samtali við Árbæjarblaðið. Hvaderimatinn.is þjónar hagsmunum þeirra ófáu Íslendinga sem vinna mikið og hafa lítinn tíma til að hugsa um hvað þeir eigi að bera á borð í kvöldmatnum. Fólk getur skráð sig hjá okkur án kostnaðar. Það velur inni-

haldið í því sem það vill hafa yfir vikuna, hversu oft það vill hafa fisk eða kjúkling, til dæmis, og svo velur það erfiðleikastig á matseldinni. Þá setur síðan upp matseðil fyrir heilan mánuð. Innkaupalista dagsins er annaðhvort hægt að prenta út af netinu, eða fá sendan með sms-skilaboðum, en hægt er að aðlaga uppskriftir að fjölda matargesta. „Fyrir meðlimi bendum við líka oft á vín sem henta vel með hverjum og einum rétti," bæir Felix við. ,,Í byrjun hvers mánaðar sendum við út matseðilinn fyrir mánuðinn, og vikulega sendum við innkaupalista miðað við þær forsendur sem voru settar upp. Þægilegra getur það ekki verið. Einnig er að finna helgartilboð verslana og topp 10 lista en við viljum að vefurinn sé lifandi og skemmtilegur. Betrumbætt útgáfa af síðunni fer í loftið á næstu mánuðum, þar sem notendum bjóðast enn fleiri möguleikar. Við ætlum að bæta við ítarlegri leitar-

möguleikum og setja inn matseðla fyrir veislur, þema partí og saumaklúbba. Það verður líka hægt að vista uppskriftir og búa til sína eigin uppskriftabók, gefa einkunnir og fleira," bendir Felix á. Í framtíðinni verður notendum boðið upp á ýmiss konar tilboð og afslátt hjá verslunum, enda vilja aðstandendur síðunnar hafa hana neytendavæna. Vefurinn vann til verðlauna hjá Íslensku vefverðlaununum sem Bjartasta vonin 2007. ,,Þessi viðurkenning er okkur mikilvæg og einnig þau viðbrögð sem við fáum við vefnum, þetta segir okkur að við erum á réttri braut með vefinn. Hægt er að senda uppskriftir til okkar inn á vefnum og hvetjum við fólk til að senda til að fá mikla fjölbreytni. Það eiga flestir uppskriftir frá foreldrum og frænkum í skúffunni hjá sér og um að gera að leyfa öðrum að njóta,’’ segir Felix.

lokum var einn hópur í að taka á móti gestum. Nemendur sáu um veitingar og heimatilbúin skemmtiatriði. Samhentur hópur foreldra sá um skipulagningu hátíðarinnar og var kvöldið gleðilegt í alla staði og krakkarnir kátir eins og myndirnar bera með sér.

Felix Gylfason er einn af þremur Árbæingum sem lét skemmtilega hugmynd verð að veruleika.

Þessir nemendur voru í hópi þerra sem sáu um veitingarnar.

Þessi voru í tonlistardeildinni.


NÝ OG FÁRÁNLEGA SKEMMTILEG SÝNING UM FJÁRMÁL ÍSLENDINGA!

SÝNINGAR Þri Mið Fös Lau Lau Fös Fös Lau Lau Fös Fös Lau Lau

15/4 Forsýning - uppselt 16/4 Forsýning - uppselt 18/4 Frumsýning - uppselt 19/4 Uppselt 19/4 2/5 2/5 3/5 3/5 16/5 16/5 17/5 17/5

kl. 20 kl. 20 kl. 21 kl. 19 kl. 21 kl. 19 kl. 21 kl. 20 kl. 22 kl. 19 kl. 21 kl. 19 kl. 21

með fjá rha þína u j g

ri heilsu leg gs

Auktu ánæ

DY N AMO REY KJ AV I K

Fyrst var það Hellisbúinn, síðan Pabbinn og nú er það HVERS VIRÐI ER ÉG? Óborganlega fyndin sýning Bjarna Hauks Þórssonar um fjármál Íslendinga. Frábær sýning í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar.

Sýnt í Salnum Kópavogi Miðasala hjá Salnum í síma 5700 400, á salurinn.is og midi.is. Miðaverð 2000 kr. 50% afsláttur er fyrir viðskiptavini Byrs (allt að 5 miðar) ef keypt er í miðasölunni í Salnum. ATH! Takmarkaður sýningafjöldi.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Arbaejarbladid 4.tbl 2008 by Skrautás Ehf. - Issuu