Skip to main content

Arbaejarbladid 2.tbl 2008

Page 1

Árbæjarblaðið 2. tbl. 6. árg. 2008 febrúar

Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti

Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is

Pantið tíma í síma 511–1551

Fimleikadrottningar Fimleikadeild Fylkis hélt innanfélagsmót á dögunum og þar sigruðu þessar glæsilegu fimleikadrottningar framtíðarinnar í keppni í hinum ýmsu þrepum. Frá vinstri: Lilja, Sara, Hildur, Birta, Viktoría, Guðrún Margrét og Rebekka Ósk. Sjá nánar á bls. 12

Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3

Frábær gjöf fyrir veiðimenn Falleg flugubox með vinsælum laxa- og silungaflugum frá Krafla.is Tilvalin afmælisgjöf fyrir kröfuharða fluguveiðimenn

Kannaðu málið á Krafla.is eða í síma 587-9500

Gröfum nöfn veiðimanna og lógó fyrirtækja á boxin


2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 (660 fyrirtæki).

Enn eitt heimsmetið Við Íslendingar eigum mörg heimsmetin og er þá gjarnan miðað við höfðatöluna. Samkvæmt okkar heimildum eigum við heimsmetið í því hve oft við förum í ljós. Eins og fram kemur í aðsendri grein hjúkrunarfræðinga á heilsugæslustöðinni í Árbæ er hér mikil alvara á ferð og skorar fagfólk í heilbrigðisgeiranum á foreldra að láta börn sín ekki fara í ljós. Samkvæmt okkar heimildum er Krabbameinsfélag Íslands að hefja herferð í ljósvakamiðlum hvað þetta varðar en mikið hefur borið á því að unglingar hafa farið í ljósatíma fyrir fermingarnar. Ekki er eingöngu við ljósabekkina að sakast þegar kemur að mjög tíðum greiningum á sortuæxlum hérlendis. Enginn er maður með mönnum nema farið sé nokkrum sinnum árlega erlendis og þá er það víst algengast hvað Íslendinga varðar að spara hressilega sólarvörnina. Þetta þekkja þeir fjölmörgu Íslendingar sem skaðbrennst hafa erlendis og ekki haft vaðið fyrir neðan sig þegar sterk sólin er annars vegar. Mikill ferðatími er framundan enda frekar stutt til páska. Er rétt að hvetja alla til að fara með gát, bæði hvað ljósabekkina varðar og ferðirnar erlendis. Foreldrar eiga jafnan erfitt hlutverk fyrir höndum þegar börn þeirra nálgast unglingsárin. Þá er jafnan erfitt að segja nei við sín börn þegar aðrir foreldrar hafa gefið leyfi fyrir misjafnlega gáfulegum hlutum. Við hvetjum alla foreldra til að bera hag barna sinna og unglinga fyrir brjósti og taka skynsamlegar ákvarðanir. Páskarnir eru snemma þetta árið og aðeins nokkrar vikur í fyrstu fermingar. Næsta Árbæjarblað, páskablaðið, kemur út fimmtudaginn 13. mars, viku fyrir skírdag. Stefán Kristjánsson, ritstjóri Árbæjarblaðsins

abl@centrum.is

Tölvukennsla eldri borgara í Hraunbæ 105 Í félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105 hafa verið settar upp, í þjónusturými, tvær tölvur fyrir notendur félagsmiðstöðvarinnar. Í samstarfi við Ártúnsskóla var um daginn boðið upp á kennslu í grunna-

triðum tölvunotkunar. Nemendur í 6. og 7. bekk skiptust á að mæta fjóra daga í röð og leiðbeindu eldri borgurum á tölvunar. Mæltist þetta vel fyrir og verður örugglega endurtekið á vormánuðum.

Friðjón og Gunnbjörn njóta leiðsagnar nemenda úr Ártúnsskóla.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Ólafur F. Magnússon, tók fyrstu skóflustunguna að nýjum skóla í Norðlingaholti ásamt nemendum í skólanum.

Norðlingaskóli fyrsti skóli borgarinnar þar sem leik- og grunnskóli munu starfa undir sama þaki:

Tilbúinn í ársbyrjun 2010 Þann 4. febrúar sl. tók Ólafur F. Magnússon borgarstjóri í Reykjavík, ásamt nemendum í Norðlingaskóla, fyrstu skóflustungu að nýrri leik- og grunnskólabyggingu við Árvað 3 í Norðlingaholti. Nýi skólinn verður bæði leik- og grunnskóli og sá fyrsti í borginni þar sem börn á tveimur fyrstu skólastigunum verða við nám og störf undir sama þaki. Auk þess verður tónlistarskóli starfræktur á sama stað. Fullbúið mun skólahúsið rúma 450 nemendur í 1.- 10. bekk og 110 leikskólabörn. Áætlaður heildarkostnaður við byggingar, lóð og bílastæði er um tveir milljarðar króna og er gert ráð fyrir að skólinn verði tekinn í notkun í ársbyrjun 2010. Útikennsla og virk þátttaka foreldra í skólastarfi Norðlingaskóli hefur frá haustinu 2005 verið starfræktur í bráðbirgðahúsnæði og stunda nú um 200 nemendur þar nám. Kennsla er einstaklingsmiðuð, kennarar vinna saman í teymum og árgöngum er jafnan kennt saman. Önnur sérstaða skólans er útikennsla og virk þátttaka foreldra í skólastarfi. Skólastjóri er Sif Vígþórsdóttir. Sterk tengsl við grenndarsamfélagið og umlykjandi náttúru

Undirbúningur og hönnun á nýjum skóla í Norðingaholti hófst 2006 og var stofnaður vinnuhópur sem setti fram hugmyndir að innra og ytra starfi skólans. Hópurinn vann samkvæmt hugmyndafræðinni ,,Frá hinu almenna til hins sérstæða’’ og lagði ríka áherslu á sveigjanleika, sterk tengsl við grenndarsamfélagið og umlykjandi náttúru. Í framhaldi af þessari undirbúningsvinnu settu þrjár arkitektastofur fram hugmyndir um skóla og varð tillaga Hornsteina arkitekta fyrir valinu til frek-

ari útfærslu. Mjúkar línur og hringform Tvær tveggja hæða kennsluálmur mynda skólahúsið og hvelfast þær um miðrými og íþróttasal. Í skólanum verða 5 heimasvæði, hvert fyrir tvo árganga, svo og smiðjur, vísindaver, tónlistarskóli, námsver, frístundaheimili, íþróttahús, fjölnotasalur og svið, mötuneyti og kennslueldhús, skólasafn/tölvuver, hópherbergi, skrifstofur og tæknirými. Húsnæði leikskólans er á einni hæð.

Nemendur í Norðlingaskóla.

Varað við ljósabekkjanotkun fermingarbarna Hérlendis er sérstakt áhyggjuefni hve ljósbekkjanotkun virðist algeng hjá börnum og unglingum. Sýnt hefur verið fram á með óyggjandi hætti að sólargeislar og sérstaklega geislar ljósbekkja valda ótímabærri öldrun húðarinnar með hrukkumyndun, æðaslitum og litabreytingum. Aðaláhyggjuefnið er hins vegar að algengi sortuæxla (melanoma) hérlendis hefur aukist verulega á undanförnum áratugum. Það er ekki síður þarft að höfða til forráðamanna ungmennanna. For-

Árbæjarblaðið

eldrar geta nefnilega haft mikil áhrif á börnin, bæði sem fyrirmyndir og í að fræða þau um hættuna sem fylgir útfjólubláum geislum sólarinnar og ljósabekkja. Tíðni sortuæxla eykst hraðar en nokkurs annars krabbameins. Tíðni sortuæxla er ótrúlega há á Íslandi miðað við legu landsins. Það skýrist án efa af óhóflegri brúnkudýrkun okkar á undanförnum árum, tíðum sólarlandaferðum og heimsmeti í ljósabekkjanotkun. Börn og unglingar ferðast mun meira með foreldrum

sínum en áður tíðkaðist og þess ekki nægjanlega gætt að verja viðkæma og ljósa húð þeirra fyrir geislum sólarinnar. Rannsóknir hafa sýnt að geislun fyrir tvítugt er megináhættuþáttur húðkrabbameina síðar á ævinni Foreldrar og forráðamenn fermingarbarna eru hvattir til að hafa í huga tilmæli alþjóðastofnana um að börn og unglingar fari ekki í ljósabekki. Hjúkrunarfræðingar Heilsugæslunni Árbæ

Auglýsingar og ritstjórn 587-9500


FIMMTUDAGSTILBOÐ 14. FEB. 10% afsláttur

10% afsláttur

808

725

10% afsláttur

845

NF laxabitar beinhreinsaðir m/roði 845 kr/kg. MERKT VERÐ 938 KR/KG

NF sjófryst ýsuflök roðlaus 808 kr/kg. MERKT VERÐ 899 KR/KG.

NF saltfiskbitar beinlausir m/roði 725 kr/kg. MERKT VERÐ 806 KR/KG.

40% afsláttur

25% afsláttur

479

898

798

Ferskur heill kryddaður kjúklingur

Nautaats borgarar 10 stk. 120g

Óðals nautahakk 798 kr/kg.

479 kr/kg. MERKT VERÐ 799 KR/KG.

898 kr. MERKT VERÐ 1198 KR/KG.

Innihald 85% nautakjöt og 15% prótein.

998

198

198

Sparigrís Bacon

EUROSHOPPER broccoli

EUROSHOPPER broccolimix

998 kr/kg.

1 kg 198 kr

1 kg 198 kr.

PEPPERONI

999 KS frosið læri í sneiðum 999 kr/kg.

198

MARGARITA

Myllu skúffukaka

400 gr 198 kr. SKINKA OG ANANAS

298 Ömmu Pizzur ferskar 350g 298 kr.

A F G R E I ÐS L UT Í M I : F I M M T UDA GA 1 2 . 0 0 - 18 .3 0


4

Matur

Árbæjarblaðið

Fljótlegur og góður saltfiskréttur - að hætti Helgu og Þrastar Helga Guðjónsdóttir og Þröstur Helgason, Vesturási 11, eru matgæðingar okkar að þessu sinni. Þau bjóða upp á girnilega rétti og við viljum við hvetja lesendur til að hnýta á sig svuntuna og prófa

Saltfiskréttur Saltfiskflak. 6 - 8 kartöflur eftir stærð. Laukur, hvítlaukur og púrrulaukur. 4 – 5 tómatar. Gott er að hafa nokkrar ólífur fyrir þá sem kunna að meta þær. Rjómi (má vera matreiðslurjómi). Rifinn ostur.

Matgæðingarnir

Tillaga að tómatasalati 5-6 tómatar. ¼ rauðlaukur. 1 msk. góð olía. Balsamic edik (eftir smekk). Svartur pipar Tómatar og laukur skornir í þunnar sneiðar. Þessu er síðan blandað saman og olía og balsamic ediki hellt yfir. Svartur pipar mulinn yfir. Gott er að láta salatið standa í a.m.k. 10 mínútur áður en það er borið fram.

Skora á Önnu Maríu og Sigurð Helga Guðjónsdóttir og Þröstur Helgason ásamt börnum sínum, Sölva og Rúnu og kisunni sem heitir því skemmtilega nafni Rjúpa.

Kvennakvöld Fylkis í sixties andanum Sixties andinn verður svífandi um, yfir og allt um kring í Fylkishöll laugardagskvöldið 23. febrúar 2008 á kvennakvöldi Fylkis. Þema kvöldsins verður sjöundi áratugurinn þegar smástirni urðu stórstjörnur og saklausar sveitastúlkur í Árbænum að hippum. Þessum tíma gleymir enginn miðaldra sem á annað borð vill muna og yngri kynslóðir vilja ólmar fá að heyra en er ekkert sagt! Nú er tækifærið að hverfa aftur til sixties áranna og líka aldrei að vita nema Jackeline Kennedy, Twiggy eða Janis

Joplin mæti í Fylkishöllina! Kvennakvöld Fylkis verður glæsilegra með hverju árinu og ekkert lát á því. Dagskráin er hlaðin gullmolum og góður matur á borðum. Veislustjóri verður Séra Þór Hauksson og ræðumaður kvöldsins alþingiskonan Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Bjarni Ara flytur nokkur lög og hinir frábæru grínarar í Breiðbandinu troða upp. Happdrættið verður á sínum stað með frábærum vinningum og heiðurskona Fylkis verður heiðruð. Fundið var upp á þeirri nýbreytni í fyrra að hleypa körlunum inn eftir kl.

11:30. Því var vel tekið og þess vegna verður hafður sami háttur á núna. Að lokinni formlegri dagskrá dunar dansinn fram á nótt. Kvennakvöldsnefndin hvetur allar konur í Árbænum til að fjölmenna. Þetta er ekki bara kvöld fyrir ,,Fylkiskonur’’ því kvennakvöldið er kjörið tækifæri fyrir ömmur, mömmur, saumaklúbba og vinnustaði í hverfinu til að eiga saman frábæra stund. Kvennakvöldið er mikilvæg fjáröflun fyrir m.fl. kvenna í knattspyrnu en líka eitt glæsilegasta kvennakvöld landsins!

Helga Guðjónsdóttir og Þröstur Helgason, Vesturási 11, skora á Önnu Maríu Þorsteinsdóttur og Sigurð Rúnar Sæmundsson, Brekkubæ 42, að koma með upppskriftir í næsta blað. Við birtum uppskriftir þeirra í páskablaðinu sem kemur út 13. mars.

Saltfiskur soðinn, kartöflur soðnar og skornar í bita. Laukurinn skorinn og steiktur í olíu þangað til hann er orðinn mjúkur. Tómatar skornir í sneiðar. Saltfiski, kartöflum, lauki, tómötum og ólífum blandað saman í eldfast fat, rjóma hellt útí og rifnum osti stráð yfir. Bakað í um 30 mínútur við 200 gráðu hita. Með þessu er gott að bera fram brauð og hrásalat

Eplaréttur Valrósar í eftirrétt 3 – 4 gul epli. Lu-kanel kex . Hindiberja- eða kirsuberjasulta. 1 peli rjómi. Eplin rifin og sett í skál. Kexið mulið í matvinnsluvél og sett yfir (1/2 – 1 cm). Sultan smurð ofan á og þeyttur rjóminn settur efstur. Verði ykkur að góðu, Helga og Þröstur

Ný hverfisráð í Árbæ og Grafarholti Björn Gíslason, varaformaður Fylkis, er nýr formaður Hverfisráðs Árbæjar. Með honum í ráðinu eru Sigrún Jónsdóttir, Alda Magnúsdóttir, Anna Sigríður Ólafsdóttir, Marsibil Jóna Sæmundardóttir, Margrét Guðnadóttir og Rúnar Geirmundsson. Varamenn eru Magnús Magnússon, Magnús Sigurgeirsson, Ólafur Ófeigsson, Kjartan Eggertsson, Svava Friðgeirsdóttir, Gunnar Kristinsson og Hermann Valsson.

Glæsilegar konur á glæsilegu kvennakvöldi Fylkis í fyrra.

Nýtt Hverfisráð Grafarholts og Úlfarsárdals hefur einnig verið skipað og þar er Óttarr Örn Guðlaugsson nýr formaður. Aðrir í ráðinu eru Jón B. Stefánsson, Stefanía Sigurðardóttir, Ásdís Sigurðardóttir, Hermann Valsson, Birna K. Jónsdóttir og Jóhanna Eyjólfsdóttir. Til vara eru Kristín Sigurey Sigurðardóttir, Jón Hlíðar Guðjónsson, Karen Ósk Úlfarsdóttir, Guðrún Sigríður Jósefsdóttir, Hákon Hákonarson, Olga Hrönn Olgeirsdóttir og Guðmundur H. Björnsson.


8AA8@@ " FÜ4 " A@&$')+

@gZY^i`dgi! ZcYjg\gZ^ haj`dgi! V[ha{iiVg`dgi d\ K^aYVg`dgi >XZaVcYV^g ¶ Vaai Z^cj `dgi^#

;Ì J 7DG<6 :<6G Ö 7DG<6G B: Z"@DGI>CJ ;GÌ @6JE >C<> Z"`dgi^c Zgj [ng^g { hZb `_ hV hkZ^\_VcaZ^`V \gZ^ hajb! k^a_V ]V\g¨ ^ V[ `dgiVcdi`jc h^cc^ d\ c_ iV jb aZ^ [g ^cYV { [Zg Va \jb# Z"K^aYVg`dgi [¨gV g ZcYjg\gZ^ haj d\ k^aYVgejc`iV h bj [¨ghajcc^# @nccij g `dhi^ Z"`dgiVccV { lll#`Vjei]^c\#^h$Z`dgi^c Z V _ cjhijkZg^ @Vje ^c\h h bV ))) ,%%%#


6

Fréttir

Árbæjarblaðið

Félagsstarf í Grafarholti Í salnum að Þórðarsveig 3 heldur Reykjavíkurborg úti félagsstarfi fyrir íbúa Grafarholts. Einnig er Grafarholtssókn með aðsetur þar og er m.a. messað í salnum einu sinni til tvisar í mánuði auk þess sem kirkjukórinn æfir í salnum. Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10:00 er bænastund þar sem allir eru velkomnir. Það félagsstarf sem er í boði fyrir íbúa Grafarholts er m.a.; - Almenn handavinna alla miðvikudaga frá kl. 09:00 - 13:00. - Leikfimi, mánudaga og fimmtudaga kl. 13:15 - 14:00. - Boccia, mánudaga og miðvikudaga kl. 14:45 - 16:00.

- Bingó annan hvern fimmtudag kl. 14:15. - Félagsvist þá fimmtudaga sem ekki er spilað bingó. Hefst kl. 14:15. Af annari starfsemi sem fer þarna fram má nefna að fyrsta þriðjudag í mánuði frá kl. 09:00 kemur hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslunni í Árbæ í heimsókn og annan hvern mánudag kl. 10:00 er félagsráðgjafi frá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts til viðtals í salnum. Á þriðjudögum kl. 12:00 fer rúta frá Bónus og keyrir þá sem vilja í næstu Bónusverslun. Bókabílinn er svo staðsettur fyrir utan blokkina á þriðjudögum kl. 16:45.

Yfirumsjón með starfseminni er á höndum Félagsmiðstöðvarinnar Hraunbæ 105 en starfsmaður salarins er Guðný Emilsdóttir. Hún er til staðar í salnum alla daga frá kl. 12:30 - 16:30. Á þeim tíma er alltaf heitt á könnunni og eru allir velkomnir að kíkja við og þiggja kaffisopa. Um kl. 15:30 er hægt að kaupa sér með kaffinu. Salurinn er einnig leigður út til funda og eins fyrir veislur. Allar nánari upplýsingar um starfsemina í salnum veitir Guðný í síma 891 6056.

Árbæjarblaðið Auglýsingar og ritstjórn

Sími:

587-9500

Frá þorrablóti eldri borgara í salnum við Þórðarsveig.

Kæru viðskiptavinir! Parafin handar-meðferð með lit og strípum til 29. febrúar

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330


Pöntunarsími

567 2770 Bíldshöfða 18 • 110 Reykjavík • matbordid@matbordid.is • Fax 567 2760

Fermingarveislur Munið að panta tímanlega www.matbordid.is


9

8

Herrakvöld Fylkis 2008

Hrafnkell Helgason ex. Footballer og Geir Hilmarsson.

Árbæjarblaðið

Herrakvöld Fylkis 2008

Árbæjarblaðið

Herra Fylkir Kiddi Tomm og Örvar Karlsson.

Herrakvöld

Fylkishöllin var troðfull og menn skemmtu sér konunglega og hámuðu i sig frábæran þorramatinn.

Addi frá Nýja Sjálandi til að fara á herrakvöld með pabba sínum.

Runi í góðum félagsskap.

Það var að venju kátt í Fylkishöllinni á bóndadaginn þegar árlegt Herrakvöld Fylkis var þar á dagskrá. Höllin var að venju þéttsetin gestum og skemmtu menn sér vel yfir nánast öllu því sem í boði var. Gísli Einarsson fréttamaður var veislustjóri og komst að venju vel frá sínu hlutverki. Stjórnaði hann samkundunni með harðri hendi og fór með

Þrír frægir.

gamanmál inn á milli eins og honum einum er lagið. Bjarni Harðarson alþingismaður var ræðumaður kvöldsins og var framganga hans eini skugginn sem yfir samkomunni hvíldi. Minnti um margt á afar dapra frammistöðu Sverris Hermannssonar um árið. Fljótlega voru gestir staðnir á fætur og töldu hyggilegra að eyða tímanum í þarfari og

skemmtilegri hluti en að hlusta á leiðinlegan ræðumann. Jón Magnússon stjórnaði málverkauppboði að venju og voru dæmi um málverk sem voru slegin áhugasömum kaupendum fyrir á aðra milljón króna. Hápunktur kvöldsins var hreint óborganleg frammistaða Jóhannesar Kristjánssonar eftirhermu. Fór Jóhannes á kostum að venju og er ekki hægt að

hugsa sér samkomu sem þessa án þessa stórkostlega skemmtikrafts. Og svo eru dömurnar næstar. Góugleði Fylkiskvenna eða Kvennakvöld Fylkis er á dagskrá laugardaginn 23. febrúar og verður þar mikið um dýrðir að venju. Við skorum á konur í Árbænum að mæta og taka vinkonur með. Við birtum myndir frá samkomunni í næsta Árbæjarblaði sem kemur út 13. mars.

Frá vinstri: Andrés Ívarsson, Evald Hansen og Halldór P. Gíslason.

Jón Þór og Einar Ágústsson komnir á trúnó.

Halli í Andra og Gunnar sem stendur fyrir öðru G-inu í Bygg. Það er Bjarni sparisjóðsstjóri hjá BYR í Hraunbæ sem stendur á milli þeirra.

Víggó og Steinn.

Tassja og Rut voru röskar í uppvaskinu.

Frá vinstri Halli tengdasonur Gísla sjómanns, Jón Óli og Geir Zoega.

Árni Þór Bjarnason glaðbeittur og rakarinn Ragnar Harðarson.

Aldarvinirnir Ólafur Loftsson og Kristján Erling Þórðarson.

Hreinn, Skúli, Ingó og séra Pálmi.

Hér er hluti hópsins frá Hitalögnum talið frá hægri: Garðar Jónsson, Stefán Þorsteinsson, Kjartan Kjartansson, Sævar Lúðvíksson og Ragnar Borgþórsson og frá vinstri: Örn Hreinsson og Sigurgeir Árnason.

Frá vinstri: Jón Helgi Sigurðsson garðyrkjuverktaki, Þórir Örn Ólafsson viðskiptafræðingur hjá Sector, Árni Þór Árnason sölufulltrúi, Kristinn Sigurðsson málarameistari hinn eini sanni og Stefán Már Óskarsson, framkvæmdarstjóri.

Frá vinstri: Gummi Sig.,Valdi og Einar Gylfa.

Fremstir frá vinstri eru: Hafsteinn afi hennar Kollu og Logi Ástralíufari.

Hörður og Mebubjössi fara yfir dagsskránna með Blótstjóranum.

Gummi Óli og Skúli faðir Ólafs Inga sem var hjá Arsenal.

Frá vinstri: Guðjón Eiríksson bóndi í Arnardal vestra, Sigurður Haraldsson óðalsbóndi í Kvíyndisfirði, Einar Ásgeirsson og Kristjan E. Þórðarson fjallaklifursmaður.

Þorgils Gunnþórsson, Arnar Unnarsson, Hjörtur Unnarsson, Örn Jóhannsson, Felix Sigurðsson, Einar Birgisson, Guðni Jónsson, Erlendur Eiríksson.

Felix Sigurðsson og Atli Vilhjálmsson.


10

Fréttir

Árbæjarblaðið

Alltaf fjör

í Árseli

Það er alltaf nóg um að vera í félagsmiðstöðinni Árseli og dagskráin í hverjum mánuði er ávallt full af skemmtilegum viðburðum. Frá því að starfið hófst í september höfum við m.a. farið í ferðalag á Selfoss með tæplega 40 unglinga, haldið Félagsmiðstöðvadaginn hátíðlegan, verið með stelpukvöld, Náttfatanótt þar sem 60 unglingar skemmtu sér alla nóttina í guitar hero, horfðu á bíómyndir á stóra bíótjaldinu, spiluðu billjard og borðtennis. Lan-mót var haldið í lok nóvember þar sem 25 strákar skráðu sig til leiks og spiluðu tölvuleik. Stemningin var frábær og geta strákarnir ekki beðið eftir næsta

Lan-móti! Við byrjuðum nýja árið með stóru balli þar sem rúmlega 160 unglingar mættu og skemmtu sér. Undankeppnin fyrir Söngkeppni Samfés var haldin í Árseli þar sem 9 atriði voru skráð til keppni úr Árbæ, Grafarholti og Norðlingaholti. Sigurvegararnir komu úr Árbænum og taka þeir þátt fyrir hönd Ársels í aðalkeppninni sem haldin verður í Laugardalshöll 8. mars. Í febrúar verður m.a. farið í brettaog skíðaferð til Dalvíkur yfir eina helgi. Ferðin er sameiginleg ferð Ársels og félagsmiðstöðvarinnar Fókuss í Grafarholti og eru 80 unglingar og 9 starfsmenn að fara í ferðina. Farið

Þessi hópur var ótrúlega hress á ballinu í janúar. var til Dalvíkur í fyrra og gekk sú ferð ótrúlega vel og ekki er búist við neinu öðru í ár. Við hvetjum alla unglinga í Árbænum að koma í Ársel og taka þátt í skemmtilegu starfi. ÁRSEL FYRIR ALLA!

Stuð í hópefli á Selfossi.

Er barnið þitt í

frístundastarfi? Stefán Björnsson viðskiptastjóri hjá MasterCard, Linda Einarsdóttir vinningshafi og Bjarni Þór Þórólfsson útibússtjóri Byrs í Árbænum.

Frístundakortið 25.000 kr. fyrir árið 2008

Frístundakortið er styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Nánari upplýsingar á www.itr.is ÍTR · Bæjarhálsi 1 · 110 Reykjavík · Sími 411-5000 · www.itr.is · itr@itr.is

Aðalvinningshafi MasterCard er viðskiptavinur Byrs

Nýverið var dregið í jólaleik MasterCard sem kallaðist Draumaferðin, en hann stóð frá 19. október til 6. janúar sl. Til að taka þátt þurfti aðeins að nota MasterCard kort á tímabilinu. Aðalvinningshafinn er viðskiptavinur í útibúi Byrs í Árbæ og heitir Linda Einarsdóttir en

hún vann 500.000 kr. ferðaávísun. Linda sem er flugfreyja segist hlakka til að vera farþegi svona til tilbreytingar. Hún var að sjálfsögðu hæstánægð með þennan óvænta glaðning en sagði að fjölskyldan ætti eftir að ákveða hvernig sumarfríinu yrði ráðstafað í sumar.


12

Fréttir

Árbæjarblaðið

Fimleikadrottningar Fylkis

Sigurvegarar í 6. þrepi A.

Innanfélagsmót Fimleikadeildar Fylkis fór fram á dögunum í Fylkishöll.Mótið er árlegur viðburður hjá deildinni og eru þar krýndir Fylkismeistarar í hverju þrepi fyrir sig. Fyrirtækið Rúmmeter hf. styrkti Fimleikadeild Fylkis í haust með framlagi til kaupa á áhöldum. Með því gat deildin endurnýjað stóran hluta af áhöldum sínum. Á Innanféllagsmótinu afhenti Guðrún Ósk Jakobsdóttir, formaður Fimleikadeildar Fylkis, Öldu Guðrúnu Hermannsdóttur, fulltrúa frá Rúmmeter hf. þakklætisvott fyrir höfðinglega gjöf.

Guðrún Ósk Jakobsdóttir, formaður Fimleikadeildar Fylkis, lengst til hægri, afhenti Öldu Guðrúnu Hermnnsdóttur viðurkenningu fyrir frábæran stuðning fyrirtækisins Rúmmeters hf. við fimleikadeildina.

Sigurvegarar í 6. þrepi B.

Litlar sætar skottur í 6. þrepi.

Sigurvegarar í 5. þrepi A.

Sigurvegarar í 5. þrepi B.

Allar vinkonur.

Sigurvegarar í 4. þrepi.

Sigurvegarar í 3. þrepi.


13

Fréttir

Árbæjarblaðið

Hlutverk foreldra í samvinnu heimilis og skóla Rannsóknir sýna að vellíðan og velgengni barna í námi byggist öðru fremur á góðum samskiptum foreldra og skóla og gagnkvæmu trausti þessara aðila. Umsjónarkennari gegnir veigamiklu hlutverki sem tengiliður heimilis og skóla, þar sem hann hefur yfirsýn yfir stöðu barnsins í skólanum. En foreldrar hafa einnig mikilvægu hlutverki að gegna og geta haft áhrif á skólagöngu barna sinna á ýmsan hátt. Góð samvinna er nauðsynleg til að geta veitt barninu allan þann stuðning sem það þarfnast til að vegna sem best á þessum árum sem skapa grundvöll að framtíð þess. Foreldrar þekkja börnin sín betur enn nokkur annar og er handleiðsla þeirra mjög mikilvæg alla skólagönguna og verður seint ofmetin. Nauðsynlegt er að foreldrar viti hvernig barninu þeirra gengur í skólanum og þekki þær væntingar sem skólinn gerir til barnsins. Þær leiðir sem foreldrar geta nýtt sér til að eiga góð samskipti við skólann er t.d. að mæta á námskynningar sem skólinn býður oft upp á í upphafi árs. Þar kynnast foreldrar hvor öðrum og leggja drög að foreldrasamvinnu, t.d. með kosningu bekkjarfulltrúa. Sumir skólar bjóða upp á skólafærninámskeið fyrir foreldra barna sem eru að byrja sína skólagöngu eða eru að fara yfir á unglingastigið. Mikilvægt er að reyna að kynnast kennurum barnsins og um leið fá mynd af því hvernig barninu vegni, t.d. með því að mæta í foreldraviðtöl, foreldrafundi og ýmsa viðburði í skólanum. Hægt er að hafa samskipti við kennara í gengum símtöl, með tölvupósti eða bréfum. Kennarar taka því vel að fá foreldra í heimsókn í bekkinn. Bekkjarheimsókn getur gefið upplýsingar um viðfangsefni barnsins og jafnaldra þess. Stundum hegða börn sér á annan hátt heima en í skólanum og því hægt er að koma auga á styrkleika eða veikleika hjá barninu sem ekki koma fram heima. Stuðningur, áhugi og eftirfylgd foreldra gagnvart heimanámi barnsins er ómetanlegur. Hvatning, hrós og aðstoð styrkir barnið og ýtir undir ábyrgð og áhuga þess gagnvart náminu. Smá rabb daglega um hvernig gengur í skólanum er gulls ígildi og gerir foreldrum kleift að fylgjast með líðan barnsins. Foreldrum ber að tala jákvætt um skólann í áheyrn barna sinna. Það mótar viðhorf barnsins og veitir því öryggi. Þegar barnið deilir með foreldrum sínum einhverju sem miður gengur, þá er ráðlegt að hlusta vel á barnið og sýna því skilning, jafnframt því að hafa samband við skólann og afla meiri upplýsinga með það að leiðarljósi að leysa málið í sameiningu á sem farsælastan hátt. Einnig er gott að láta kennarann vita ef það er eitthvað sem foreldri er ánægt með í skólastarfinu. Það styrkir kennarann í starfi sínu, sem síðan skilar sér til barnsins. Ef foreldrar eru í sambandi við skólann þegar vel gengur er auðveldara að leysa vandamál ef þau koma upp. Foreldrar geta haft áhrif á skólastarfið á víðtækari hátt. Til dæmis með því mæta á fundi foreldrafélags skólans, með því að bjóða sig fram í foreldraráð eða taka að sér starf bekkjarfulltrúa. Í öllum grunnskólum hverfisins er öflugt stoðkerfi svo hægt sé að bregðast við ólíkum þörfum nemenda. Hér má nefna námsráðgjafa, sérkennara, þroskaþjálfa (reyndar ekki í öllum skólum) og hjúkrunarfræðinga sem foreldrar geta átt samvinnu við. Nemendaverndarráð er í öllum skólum þar sem unnið er með hagsmuni nemenda. Einnig geta skóli og foreldrar leitað aðstoðar hjá Þjónustu-

miðstöð Árbæjar og Grafarholts, en þar eru starfandi sálfræðingar, félagsráðgjafar, leikskólaráðgjafi, sérkennsluráðgjafi fyrir leikskóla, unglingaráðgjafi og náms- og starfsráðgjafi. Ýmsar góðar upplýsingar má auk þess finna á heimasíðum grunnskólanna, Menntasviðs, SAMFOKS og

samtökum Heimilis og skóla, ásamt heimasíðu Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts. Höfundar: Matthildur Þ. Gunnarsdóttir og Arndís Þorsteinsdóttir, sálfræðingar á Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts

Matthildur Þ. Gunnarsdóttir.

ÁRBÆJARLAUGFI ER LAUGIN Í ÞÍNU HVER w w w.itr.is it is ı sími 411 50 0 0

Arndís Þorsteinsdóttir.

AFGREIÐSLUTÍMI LAUGAR Virka daga frá kl. 6:30 – 22:30 Helgar kl. 8:00 – 20:00


14

www.hrafnista.is

Fréttir

Árbæjarblaðið

Aðhlynning Hrafnista Reykjavík Starfsfólk óskast í aðhlynningu. Um er að ræða vaktavinnu eða dagvinnu. Starfshlutfall og vinnutími samkomulag. Einnig eru stuttar vaktir í boði. Góð íslenskukunnátta skilyrði. Nánari upplýsingar í síma 585 9529

vilborga@centrum.is

og á www.hrafnista.is

Málþing um hverfasamstarf Föstudaginn 29. febrúar kl. 13:00 - 17:00

Víst er að það geta ekki nema snillingar skorið svona listaverk úr tré.

HFI flytur í Nethyl 2 E Heimilisiðnaðarfélag Íslands og Heimilisiðnaðarskólinn fluttu starfsemi sína í Árbæ fyrir stuttu, nánar tiltekið að Nethyl 2 E. Heimilisiðnaðarfélag Íslands var stofnað 12. júlí 1913. Félagið vinnur að því að viðhalda þjóðlegum íslenskum heimilisiðnaði, auka hann og efla og stuðla að vöndun hans og fegurð. Einnig að vekja áhuga landsmanna á því að framleiða fallega og nytsama hluti, er hæfa kröfum nýs tíma en hafa rót sína í hinum gamla og þjóðlega menningararfi. Heimilisiðnaðarskólinn var stofnaður 1979, hann er handmenntaskóli þar sem í boði er markviss kennsla í mörgum greinum heimilisiðnaðar, handmennta og lista. Kappkostað er að nemendur tileinki sér og þjálfist í hefðbundnum íslenskum vinnubrögðum og finni þeim stað í nútímanum. Nemendur hafa fengið nám í skólanum viðurkennt sem þátt í námi í framhaldsskólum og sem aukna fagþekkingu í starfi. Samstarf er við Árbæjarsafn um ýmis námskeið, sýningar og uppákomur. Við höfum opið frá 12 – 16 alla virka daga. Síminn er 551-5500 og hægt að senda tölvupóst á hfi@heimilisidnadur.is Einnig má leit upplýsinga á heimasíðunni en slóðin er www.heimilisidnadur.is

Rauð skúfa.

Glæsilegur útsaumur.

Blóm - sannkallað listaverk.

Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts boðar hér með til málþings um hverfasamstarf. Málþingið er fyrir íbúa Árbæjar og Grafarholts og er öllum opið. Meginmarkmið málþingsins er að stuðla að auknum lífsgæðum íbúa hverfanna og aukinni vitundarvakningu þeirra á meðal um mikilvægi þess að efla hverfastarf og félagsauð. Flutt verða erindi um mikilvægi hverfasamstarfs og verður þátttakendum síðan skipt upp í málstofur eftir hverfum. Meðal þess sem verður rætt í málstofum er; forvarnir, íbúalýðræði, umhverfismál, samfella í skóla- og frístundastarfi, félagsauður og foreldrasamstarf.

Stuðningsmennirnir voru vel með á nótunum.

Gott hjá Árbæjarskóla Lið Árbæjarskóla náði þeim frábæra árangri í spurningakeppni grunnskólanna í Reykjavík, ,,Nema Hvað’’ að komast alla leið í úrslita-

viðureignina. Þar töpuðu Árbæingar fyrir vösku liði Hagaskóla en mega engu að síður mjög vel við áragurinn sinn una.

Málþingið verður haldið í húsi Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1. Tilkynna ber þátttöku í síma 411 1200 eða á netfangið kristinn.reimarsson@reykjavik.is

Árbæjarblaðið - 587-9500 Harðsnúið lið Árbæjarskóla stóð sig vel.


15

Fréttir

Árbæjarblaðið

Landsbankinn í Árbæ 40 ára Árbæjarútibú Landsbankans tók til starfa fyrir 40 árum. Útibúið var lengst af starfrækt í Hraunbæ en fluttist í lok árs 2005 í ný og glæsileg húsakynni að Kletthálsi 1. Átján starfsmenn starfa í útibúinu sem veitir víðtæka og öfluga fjármálaþjónustu til einstaklinga og fyrirtækja. Starfsmenn Árbæjarútibús buðu viðskiptavinum og

gestum og gangandi í opið hús þann 8. febrúar í tilefni 40 ára afmælisins. Þar komu fram söngvarar, dansarar, fimleikafólk auk þess sem Sproti kíkti í heimsókn. Í tilefni afmælisins færði Landsbankinn SÍBS, Sambandi íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, veglega gjöf að upphæð kr. 2.000.000. Það var Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sem færði fulltrúum SÍBS gjöfina á afmælishátíð útibúsins. SÍBS fagnar sömuleiðis tímamótum í ár en í haust verða 70 ár liðin frá stofnun sambandsins.

Fjölmargir Árbæingar á öllum aldri lögðu leið sína í útibú Landsbankans við Klettháls 1 á afmælisdaginn.

Birgitta Haukdal og Hreimur sungu fyrir gesti.

Fulltrúar SÍBS taka við gjöf Landsbankans. Frá vinstri: Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri, Helgi Hróðmarsson, framkvæmdastjóri SÍBS, Sigurður Rúnar Sigurjónsson, formaður SÍBS, Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs og Þorsteinn Þorsteinsson, útibússtjóri Árbæjarútibús.

Starfsfólk útibús Landsbankans í Árbæ. Þorsteinn Þorsteinsson, útibússtjóri, er lengst til vinstri.


– við erum að tala um peninga Auktu ánægju þína með fjárhagslegri heilsu. Það er mikilvægt fyrir þig að skoða fjármálin reglulega. Sérstaklega þegar aðstæður breytast. Fjárhagslega heilsupróf Byrs gefur þér yfirsýn yfir fjármálin og hjálpar þér að taka betri ákvarðanir til að bæta fjárhagslega heilsu þína. Fjárhagslega heilsuprófið er hannað í samvinnu við viðskiptavini Byrs, viðskiptavini annarra banka og fjárhagslega einkaþjálfara Byrs. Prófið tekur á þeim þáttum sem skipta mestu máli fyrir þig. Komdu þér í fjárhagslegt form með Byr.

Byrjaðu á byr.is – kannaðu fjárhagslega heilsu þína núna. Komdu með í ræktina. Sími 575 4000 byr.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook