Skip to main content

Arbaejarbladid 7.tbl 2007

Page 1

7. tbl. 5. árg. 2007 júlí

ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005

Árbæjarblaðið

Eitt númer

410 4000

Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti

Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is

<VgÂV\g Âjg V[ aajb \ZgÂjb G{Â\_ [ d\ i^aWdÂh\ZgÂ

Hi_ gcj\g [ &- " H b^ *-& )**% " ;Vm *-& '''lll# bdg`#^h bdg`5bdg`#^h

Nýir tímar fyrir tjónaþola:

Komdu beint til okkar! – og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu! Það s máli kiptir eng hvern u ig bíl þú ert á!

Gjöfin fyrir veiðimenn? Kíktu á Krafla.is Íslenskar laxa- og silungaflugur í hæsta gæðflokki í fallegum tréboxum

BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686

Gröfum nafn veiðimanns á boxið Uppl. í síma 698-2844

;67G>@6C $ hbe

Árbæingar hafa sem aðrir landsmenn notið einmuna veðurblíðu undnfarnar vikur. Við rákumst á þessa kappa í Árbænum þar sem þeir voru að leika sér í blíðunni með nýja traktorinn sinn. Við birtum fleiri myndir frá rölti okkar um hverfið um síðustu helgi. Sjá bls. 6 og 7.

Pantið tíma í síma 511–1551 Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3


2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.

Áfram konur! Af mörgum ágætum fréttum undanfarna daga hérlendis var það þó ein frétt sem vakti athygli margra. Eftir óteljandi skýrslur, vinnu margra nefnda og vinnuhópa, er staðan enn sú, að konur fá ekki greidd sömu laun Íslandi í dag og karlar fyrir sömu vinnu. Með öðrum orðum. Launamunur kynjanna er enn sá sami á Íslandi eða meiri en hann var fyrir áratug síðan. Þessi staðreynd er mikill áfellisdómur yfir ráðamönum sem lofað hafa öllu fögru. Má nú öllum vera ljóst að allar þær aðferðir sem reyndar hafa verið mörg undanfarin árin til að jafna launamuninn hafa engu skilað. Til að koma málum í það horf að konur fái greidd sömu laun fyrir sömu vinnu og karlar er því aðeins eitt ráð eftir. Setja landslög sem banna launamuninn. Lengi hefur mér komið á óvart hve konur sjálfar eru rólegar yfir þessum ójöfnuði. Virðast íslenskar konur vera orðnar svo samdauna þessu óréttlæti að þær gera ekkert til að bæta ástandið. Alla vega ekki neitt hingað til sem skilað hefur árangri. Er ekki fyrir löngu kominn tími til að konur á Íslandi geri eitthvað í sínum málum? Grípi til einhverra aðgerða sem duga? Ég skil ekki langlundargeð íslenskra kvenna. Víst er að ef karlar fengju ekki greidd sömu laun fyrir sömu vinnu og konur væri fyrir margt löngu búið að kippa því í liðinn. Ég skora á konur að gera eitthvað róttækt í sínum málum. Því verður ekki trúað að óreyndu að konur ætli að láta þetta yfir sig ganga öllu lengur. Hreint undarlegur júnímánuður er nú að baki. Örugglega einn þurrasti júní í mjög langan tíma og varla hægt að segja að deigur dropi hafi komið úr lofti allan mánuðinn. Hafa margir nýtt sér þetta ótrúlega veðurfar til að taka til hendinni í garðinum. Og þeir sem hafa verið iðnir með garðslönguna hafa uppskorið vel. Líkast til hefur þörfin fyrir að vökva aldrei verið meiri en í liðnum mánuði. Mjög mikið hefur verið um það í sumar að húseigendur hafi tekið til hendinni og málað hús sín. Hefur viðrað einstaklega vel fyrir málningavinnu utan húss og verður svo vonandi áfram í júlí fyrir þá sem enn eiga eftir að leika listir sínar með rúlluna og pensilinn. Með þessu sjötta tölublaði ársins erum við hálfnuð með árið, sex blöð komin út af 12 á árinu. Nú tökum við okkur stutta sumarpásu en næsta blað kemur út þann 23. ágúst. Stefán Kristjánsson

abl@centrum.is

Ljósmyndin sýnir kolamökk yfir Reykjavík um 1930. Háteigsvegurinn sést vinstra megin á myndinni og það rétt grillir í Austurbæjarskólann í mekkinum.

100 þúsund krónur á hvert heimili

Hitaveitan á höfuðborgarsvæðinu sparar ekki eingöngu útblástur gróðurhúsalofttegunda heldur nam fjárhagslegur sparnaður viðskiptavina Orkuveitunnar um hundrað þúsund krónum á hvert heimili á höfuðborgarsvæðinu í fyrra, sé hitaveitan borin saman við olíukyndinguna, sem hún leysti af hólmi.

Heimilisbuddan nýtur þess Hitaveitan, sem starfrækt hefur verið frá 1930, kom í stað olíu- og kolakyndingar og er nú stærsta jarðhitaveita í heimi. Meðan verið var að byggja upp kerfið lá oft þykkur kolamökkur yfir borginni. Það er liðin tíð en auk hinna jákvæðu umhverfisáhrifa hefur hitaveitan haft afgerandi fjárhagsleg áhrif. Útreikningar sýna að það innflutta eldsneyti, sem þurft hefði að kaupa til húshitunar í fyrra hefði

verið um níu milljörðum króna dýrara en kynding með heitu vatni. Það svarar til um 100 þúsund króna á hvert heimili á höfuðborgarsvæðinu. Sé litið lengra aftur þá hefði innflutta eldsneytið kostað á árunum 1944 til 2006 borgarbúa meira en fjóra milljarða bandaríkjadala að núvirði. Upphæðin svarar til um 270 milljarða íslenskra króna eða um einnar milljónar króna á hvern landsmann.

Umhverfið nýtur þess ekki síður Sé reiknað með að í stað hitaveitunnar hefðu verið notuð kol af meðalgæðum þá hefði útblástur koltvísýrings orðið 100 milljónum tonna meiri en ella. Á árinu 2006 varð útblástur þessarar gróðurhúsalofttegundar 3,5 milljónum tonna minni vegna þess að

jarðhitinn hefur leyst jarðefnaeldsneyti af hólmi í kyndingu húsa á höfuðborgarsvæðinu. Það eru staðreyndir á borð við þessar sem vekja mikla athygli meðal erlendra þjóða nú þegar heimsbyggðin stendur frammi fyrir hlýnun jarðar af völdum gróðurhúsalofttegunda. Það þykir einkar athyglisvert að hægt sé spara fé með því að leita umhverfisvænna lausna. Útreikningarnir sem hér er getið hafa verið kynntir á erlendum vísindaráðstefnum en voru nýlega uppfærðir að beiðni Clinton Foundation, stofnunar sem kennd er við fyrrverandi Bandaríkjaforseta og einbeitir sér nú að loftslagsmálunum. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Orkunnar, fréttabréfi Orkuveitu Reykjavíkur. Hægt er nálgast blaðið á vef Orkuveitunnar á slóðinni

Nýr og glæsilegur leikskóli opnaður í Norðlingaholti Í byrjun júní var formlega opnaður leikskóli í Norðlingaholti. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri var viðstaddur opnunina og klippti á borða sem tvö barnanna héldu á milli sín. Samkeppni um nafn á skólann var sett á laggirnar á meðal starfsmanna og foreldra barna í skólanum og varð nafnið Rauðhóll fyrir valinu. Í Rauðhól er rými fyrir 88 börn á fjórum deildum. Í skólastarfi er lögð áhersla á umhverfisvernd og leik með náttúrulegan efnivið. Einnig er vináttan og náin tengsl við fjölskyldur barnanna í hávegum höfð og leitast er við að kenna börnunum að lifa lífinu hægt og njóta þess. Nýi leikskólinn kemur til móts við þarfir íbúa í þessu nýja hverfi þar sem mikið er um fjölskyldu-fólk. Arkitekt er Manfreð Vilhjálmsson og

er skólahúsið glæsileg og rúmgóð bygging, hönnuð með þarfir og leikgleði barnanna að leiðarljósi. Sterkgulir pýramídar rísa upp úr húsi, grasfláar ganga sums staðar upp á veggi, aðaldyr eru myndskreyttar og spéspegill er nálægt anddyri. Hjarta skólans er rúmgóður salur með sviði, listasmiðju og mötuneyti. Þar borða allir saman og er hollusta og góð næring í fyrirrúmi. Leikskólinn Rauðhóll er í fallegri náttúru við Sandavað 7. Lóðin er stór og mikið er lagt upp úr því að hún sé hluti af villtri náttúru. Leikskólinn Rauðhóll verður í nánu samstarfi við Norðlingaskóla, m.a. um notkun á útileikstofu sem býður upp á margvísleg tækifæri til náttúruskoðunar. Leikskólastjóri er Guðrún Sólveig Vignisdóttir.

Emma Árnadóttir.

Emma ráðin rekstrarstjóri Fyrir nokkru auglýstu Þjónustumiðstöð Vesturbæjar og Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts eftir sameiginlegum rekstrarstjóra. Átta umsækjendur sóttu um og gengið hefur verið frá ráðningu Emmu Árnadóttur í starfið. Hún er viðskiptafræðingur að mennt og með meistaragráðu í mannauðsstjórnun. Emma verður í 40% starfi hjá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts og 60% starfi hjá Þjónustumiðstöð Vesturbæjar.

Árbæjarblaðið Auglýsingasími 587-9500


4

Matur

Árbæjarblaðið

Sósan er málið

- að hætti Auðnu og Kjartans Hjónin Auðna Ágústsdóttir og Kjartan Gíslason, Lækjarási 17, eru matgæðingar okkar að þessu sinni. Við birtum girnilegar uppskriftir þeirra og skorum á sem flesta að spreyta sig.

Matgæðingarnir Auðna Ágústsdóttir og Kjartan Gíslason ásamt börnum sínum.

ÁB-mynd PS

Forréttur Mozarella með parmaskinku og klettasalati Það sem þarf fyrir fjóra:

Kíkið á brúðargreiðslur á vefsíðu okkar Stubbalubbar.is

4 parma-hráskinkusneiðar. 2 stórar kúlur af ferskum mozarellaosti. Nokkur graslauksstrá. Klettasalat. Furuhnetur. Parmesanostur. Balsamic syrup. Skerið moserallaostakúlurnar í tvennt. Rúllið hverjum helmingi inn í eina parmaskinkusneið. Bindið utan um rúlluna með graslauksstrái. Dreifið u.þ.b. hnefafylli af kletta-

gera rauf á ská í stykkið (eins og vasa) og setja þar í gráðost. Setja í ofnfast fat (eða á álpappír/bakka fyrir grill). Smyrja með smjörinu og setja salt og pipar eftir smekk. Setja í 200 gráðu heitan ofn í 6-8 mínútur eða á útigrill. Sherrýsósa 2 dl. meðalsætt sherrý. 1 fiskiteningur. Sýrður rjómi 1 dós. Dill (2 msk. þurrkað eða meira. Á að vera mikið) 2 msk. smjör. Setja sherrý í pott og láta sjóða með fiskiteningi. Bæta sýrða rjómanum út í, láta sjóða smástund. Bæta í dilli og síðast smjöri. Sósan er þunn. Bera fram með soðnum kartöflum og salati.

Skora á Sigrúnu og Gunnbjörn Auðna Ágústsdóttir og Kjartan Gíslason, Lækjarási 17, skora á Sigrúnu Baldursdóttur og Gunnbjörn Marínóson í Vesturási 49, að koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað.

Bjóðum einnig upp á förðun. Kveðja, Helena Hólm, Hanna, Helena E., Oddný og Sirrý.

salati á hvern forréttardisk og setjið parmaskinkurúlluna ofan á. Ristið furuhneturnar og stráið yfir diskinn. Skerið parmesanostinn í litlar sneiðar og stráið þeim yfir líka. Droppið balsamiksýrópi yfir að listrænum smekk og skreytið e.t.v. með svo sem eins og einu til tveimur graslauksstráum. Gott er að bera balsamic sýróp fram sér með þessu svo hver og einn geti fengið sér meira eftir smekk.

Aðalréttur Lax með sherrýsósu Uppskrift fyrir 4

Hárgreiðslustofa Helenu - stubbalubbar - Barðastöðum 1-3 Sími 586 1717 - stubbalubbar.is Opnunartími: mán-mið 10-18, fim 10-19 föst 10-18 laugard 10-16

1 kg beinhreinsað laxaflak. 50-100 gr. gráðostur. 2 msk. brætt smjör. Salt og pipar. Skera laxinn í lítil stykki, ca 5 cm,

Eftirréttur Bláberjafrauð Uppskrift fyrir 4. 2 dl. rjómi. 1 egg. 1 eggjarauða. 2 msk. flórsykur. 4 msk. bláberjamauk. 3 blöð matarlím. Þeyta rjómann og geyma í kæli. Þeyta egg og sykur saman þar til það er ljóst Eggjahrærunni blandað varlega saman við rjómann. Matarlímsblöðin vætt í köldu vatni og síðan brædd yfir vatnsbaði. Kæla matarlímið með hluta af blárberjamaukinu, blanda saman við eggja- og rjómahræruna og bæta afgangnum af bláberjamaukinu út í. Setja í skál eða eftirréttarglös og kæla í klst. Verði ykkur að góðu, Auðna og Kjartan


Taktu þessar með í veiðitúrinn Laxaflugur

Iða

Krafla gul

Krafla rauð

Krafla orange

Krafla blá

Krafla græn

Iða

Skröggur

Grænfriðungur

Elsa

Gríma blá

Krafla orange

Tungsten keilutúpur

Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung)

Íslenska landsliðið í silungaflugum Beygla

Beykir

SilungaKrafla bleik

SilungaKrafla orange

Kíktu á Krafla.is - Gjöfular, fallegar og sterkar flugur - Íslensk hönnun

Krókurinn

Mýsla

íslensk fluguveiði Skrautás ehf. Sími: 587-9500


7

6

Fréttir

Árbæjarblaðið

Fréttir

Árbæjarblaðið

Árbæingar nutu veðurblíðunnar - Árbæjarblaðið á ferðinni með myndavélina í einstakri veðurblíðu Alveg einstök veðurblíða hefur verið í Reykjavík undanfarnar vikur og hafa íbúar í Árbæjarhverfi, sem og öðrum hverfum borgarinnar notið útivistar í ríkum mæli. Við fengum okkur göngutúr um hverfið með myndavélina að vopni sl. laugardag. Hitinn var óvvenjulegur og varla ský að sjá á himni lengi dags. Reyndar byrjaði að rigna undir kvöldmatinn en harðir grillarar létu það ekki á sig fá.

Greinilegt var að stífluhringurinn var vinæll þennan daginn sem aðr daga en fjölmargir skelltu sér hringinn, gangandi eða hjólandi. Heilu fjölskyldurnar tóku sig saman og nutu útivistar í frábæru veðri. Nú má reikna með þegar blaðið kemur út að veðrið sé á ný orðið eðlilegt en er á meðan er. Á leið okkar um hverfið hittum við meðal annars íbúa í Þykkvabæ sem voru að undirbúa mikla grill-

veislu, árlega veislu þar sem velflestir íbúarnir mæta með grillin og njóta samvista. Einnig hittum við fólk sem hafði allan daginn glímt við að fella gríðarlega stóra ösp í garði sínum og var breytingin mikil þegar öspin stóra hafði endanlega lotið í gras. Um grillhátíðina og skógarhggið má lesa nánar annars staðar í blaðinu.

Þessir ungu félagar skemmtu sér vel í þessum flotta leikfangabíl.

Þessi föngulegi hópur var að leggja í lokaáfangann heim á leið eftir skemmtilegan hjólreiðatúr.

Hress útivistarkona með göngustafina klára á stíflunni.

Þrír fallegir nýgengnir laxar, 5-7 pund, í Elliðaánum en laxarnir blöstu við vegfarendum af stíflunni.

Þessir spræku strákar voru að busla í óvenjulegri sundlaug í garðinum heima hjá sér og nutu veðurblíðunnar.

Veðurblíðan var einstök um liðna helgi og á efri myndinni eru hjón á gangi og nutu þau útiverunnar sem og aðrir Árbæingar sem aldrei fyr.

Þessi fjölskylda var í hjólreiðatúr um Árbæjarhverfið og naut veðurblíðunnar sl. laugardag.

Á myndinni til vinstri er grillið tekið til kostanna í Rofbænum. Ekki er annað að sjá en að þetta sé í öruggum höndum kokksins á myndinni. Við rákumst á þessi hjón á gönguferð með barnið sitt og hundinn. Ferðinni var heitið á stífluhring sem er afar skemmtileg gönguleið.

Þessar góðu vinkonur voru á ferðinni í Glæsibæ. Þær Edda og Jóhanna voru ánægðar með góða veðrið og dúkkan Sara svaf vært í vagninum.

Á innfelldu myndinni má sjá pabbann með litla guttann á nýstárlegu hjóli.


8

Fréttir

Árbæjarblaðið

Vökvun, klipping og barátta við mosa - Guðmundur Vernharðsson í Gróðrarstöðinni Mörk veitir Árbæingum góðar upplýsingar um garðinn. Mörk 40 ára

,,Það sem helst er viðkvæmt fyrir þurrki eru plöntur sem nýbúið er að planta. Það á jafnt við um tré runna sumarblóm matjurtir og fjölærar plöntur. Nýlagðar þökur eru sérlega viðkvæmar sem og grassáningar,’’ segir Guðmundur Vernharðsson, garðyrkjufræðingur í gróðrastöðinni Mörk sem fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir. Eftir mikla þurrkatíð undanfarið leituðum við ráða hjá Guðmundi um vökvun, baráttuna við mosann og klippingu. ,,Mikilvægt er að vökva vel þegar vökvað er þannig að jarðvegurinn blotni vel niður í að minnsta kosti 20 cm dýpi. Ekki er heppilegt að vökva mörgum sinnum á dag pínulítið í einu þannig að jarðvegurinn blotni jafnvel bara rétt í yfirborðinu. Það dregur úr vexti plantnanna að vera sífellt að baða þær í köldu vatni í góðu hlýju veðri þegar þær eiga að vera í fullum vexti. Plöntu sem plantað er niður í jörð er nóg að vökva einu sinni á dag ef rétt og vel er vökvað. Plöntur sem eru í pottum geta þurft vökvun tvisvar á dag í miklum þurrki. Þurrkur er mestur þegar hlýtt er og vindur. Látið ekki smáskúr blekkja ykkur. Ef skúrin er ekki nægilega mikil til þess að bleyta þessa 20 sentimetra ofan í jörðina þá getið þig samt þurf að vökva ef útlit er fyrir áframhaldandi þurrk, til dæmis daginn eftir,’’ segir Guðmundur. Og þá er það mosinn. ,,Merkilegt með mosann sem virtist eiga alla grasflötina eins og hún lagði sig. Það er eins og hann hafi hörvað. En skýringin er venjulegast sú að það er grasið sem er orðið meyra áberandi. Til að eiga von um að geta gert eitthvað varanlegt gegn mosanum þá þarf að skilja mosann. Hvað líkar honum og hvað líkar honum ekki? Til þess að fá fallegan grasblett þarf á sama hátt að skilja hvað grasinu líkar og hvað grasinu líkar ekki. Þetta spilar reyndar ótrúlega vel saman. Það sem grasinu líkar það mislíkar mosanum og öfugt.

Loft ofan í jarðveginn. Grasið vill hafa loftríkan jarðveg. Það er jarðveg sem er hvorki samanklesstur né blautur. Rætur grassins þrífast illa ef ekki er til staðar súrefni ofan í jarðveginum. Súrefnið minnkar eða hverfur ef jarðvegur er klesstur eða of blautur. Einnig er blautur jarðvegur kaldur og dregur þannig úr vexti. Mosinn vill hafa jarðveginn rakan. Þannig að þéttur og blautur jarðvegur hentar honum vel. Hvernig fæst loft ofan í jarðveginn? Ef jarðvegur er mjög blautur þá getur þurft að ræsa hann fram með þar til gerðum framræsisskurðum (drenskurðum). Mjög er til bóta að hafa mikið sandinnihald í jarðvegi undir grasi. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að setja hreint sandlag í allt að 10 centimetra undir þökur og reynst vel. En þá þarf að gæta mun betur að vökvun á þökunum á meðan þær róta sig niður úr sandlaginu. Í gömlum þéttum grasflötum hefur reynst vel að sandstrá með allt að 3 cm sandlagi sem þurrkar yfirborðið til ógagns fyrir mosann. Einnig er gott að fara út með stungugaffal og stinga lárétt ofan í flötinn og ýta gaflinum fram og til baka þannig að eftir sitja göt í jarðveginum. Þessi göt hleypa súrefni ofan í jarðveginn. Það spilar mjög vel saman með götun að setja sand sem fyllir í holurnar og heldur þeim þannig lengur virkum. Grasið vill fá nóg að borða en mosanum er sama um mat. Grasið vill fá sinn áburð en mosinn þrífst mjög vel án allrar áburðargjafar. Hér þarf líka að gæta hófs vegna þess að meiri áburður þýðir meiri garðslátt. Gæta þarf þess í allri meðhöndlun á tilbúnum áburði að hann fari jafnt á yfirborðið. Gras getur mjög auðveldlega sviðið og jafnvel drepist undan ójafnri áburðargjöf. Gras í samkeppni við tré. Gras getur látið á sjá í samkeppni við tré um bæði ljós og næringu. Og merkilegt nokk þá líður mosanum bara vel í skugga trjánna. Er þá ekki bara ráðið að gefa grasinu meiri áburð? En kannski er

ekki meiningin að örva vöxt hjá stóru trjánum.’’ - Nú klæjar mig í fingurna að dunda mér eitthvað í garðinum, snyrta trén og klippa. En má ég það á þessum árstíma? Má ekki bara klippa þegar trén eru í dvala? ,,Sumarklipping á fullmótuðum limgerðum gefur þeim skýrar og formfagrar línur síðsumars og fram á vetur. Hana skal framkvæma á tímabilinu upp úr miðjum júlí fram í byrjun ágúst. Ef hún er framkvæmd seinna er hætta á að það sem eftir situr eftir klippinguna séu gulnuð laufblöð sem voru komin í skugga inn í limgerðinu fyrir klippingu. Ef klippt er fyrr þá vex limgerðið of mikið eftir klippinguna og línurnar aflagast. Þó að klippt sé á réttum tíma þá getur engu að síður þurft að klippa einstaka anga seinna í ágúst ef það á að halda línunum alveg hreinum og beinum,’’ segir Guðmundur. Almenn smávægileg snyrting á trjágróðri. Almennt má framkvæma á hvaða árstíma sem er. ,,Ef fella á tré þá er mjög gott að gera það á miðju sumri og þá koma færri rótarskot upp en ella. En hvort það fæst nokkur garðyrkjumaður til að framkvæma verkið á þeim tíma skál ósagt látið. Það skal hinsvegar alveg forðast á sumrin að klippa trjágróður alveg niður til þess að láta hann endurnýja sig. Það gæti reynst trjáplöntum ofviða á þessum árstíma. Slíkt er betra að framkvæma á veturna þegar plönturnar eru í dvala.’’

stöðin hefur á að skipa 4 garðykjufræðingum auk eigenda. Mörk er staðsett í Stjörnugróf í Fossvogi og er alls 5,2 hektarar, stór hluti af stöðinni nær yfir í Kópavogi. Í stöðinni eru framleiddar og seldar margar og mismunandi tegundir trjáa og runna í stærðum allt frá 10 cm upp í 4-5 metra, einnig sumarblóm og fjölærar plöntur og matjurtir. Seinni ár hafa bæst við ávaxtatré svo sem epla, plómu, kirsuberja og perutré. Í Mörk eru til sölu vörur sem tilheyra

garðrækt, t.d. mold, áburður, og ker. Í stöðinni eru 30 plasthús sem eru frá 50-256 m2 að stærð. Einnig eru í stöðinni 2 glergróðurhús, annað er 358 m2 og hitt er 150 m2. Í stærra glerhúsinu fer fram sáning sumarblóma og dreifplöntun á tímabilinu febrúar fram í júní . Síðan tekur við stunga og ræting sumargræðlinga fram á haust . Í Gróðrarstöðinni Mörk eru 4 heilsársstarfsmenn en 25 starfsmenn bætast við yfir sumartímann.

Gróðrastöðin Mörk umvafin gróðri í 40 ár og dafnar enn Í ár fagnar Gróðrarstöðin Mörk 40 ára starfsafmæli og er í dag sankallaður sælureitur. Gróðrarstöðin var stofnuð þann 1. ágúst 1967 af hjónunum Pétur N Olsen og Mörthu C Björnsson. Í ársbyrjun 1999 keyptu Guðmundur Vernharðsson og Sigríður Helga Sigurðardóttir stöðina af þeim og reka hana í dag. Gróðrar-

Hjónin í Mörk. Guðmundur Vernharðsson og Sigríður Helga Sigurðardóttir. ÁB-mynd PS

Sumarið er komið og við erum í sumarskapi! Ert þú að fara erlendis í sól eða ætlar þú að baka þig í Nauthólsvíkinni í sumar? Hvort sem er þá þarf hárið sólarvörn eins og húðin! Við erum með frábærar sólarvörur frá KÉRASTASE og Redken. Komdu og fáðu ráðgjöf frá fagmönnum.

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330


9

Fréttir

Árbæjarblaðið

Atvinnuhúsnæði óskast til leigu Ca 50-80 fermetra verslunar- eða skrifstofuhúsnæði óskast til leigu. Uppl. í síma 699-1322 / 698-2844

Sagað af miklum móð og skömmu eftir að myndin var tekin féll öspin stóra til jarðar og fylgdi því mikill dynkur.

Skógarhögg í Þykkvabæ - 25 ára gríðarhá ösp felld og skyndilega birti til

Á ferð okkar í veðurblíðunni um síðustu helgi rákumst við á frekar óvenjulega sjón í einum garðinum í einum elsta hluta Árbæjarhverfisins. Þar hömuðust íbúarnir við að fella gríðarháa ösp sem talið er að hafi verið einir 15 metrar á hæð. ,,Tréð var mjög tignarlegt og krónumikið. Það var því ekki mikil birta í garðinum,’’ sögðu íbúarnir og greinilegt var á ummerkjum að dæma í garðinum að tréð hafði ekki verið nein smásmíði. Greinar og lauf um allan garðinn. Þegar öspin loks féll til jarðar töldu viðstaddir árhringina í stofni asparinnar og taldist mönnum til að tréð væri 25 ára gamalt. Áspir eru víða orðnar mjög háar í Árbæjarhverfinu og við heyrðum af fleiri íbúum sem hugsa sér til hreyfings í sumar með sögina. Aspir eru misvel síðar í görðum við heimahús. Rætur aspa geta gert óskunda og í garðinum þar sem okkur bar að garði höfðu rætur asparinnar þegar gert gat á vatnslagnir kalda vatnsins. ,,Það var ein ástæðan fyrir því að við ákváðum að fella tréð. Við vorum orðin hrædd við að heita vatnið yrði næsta fornarlamb asparinnar,’’ sögðu íbúarnir við Árbæjarblaðið.

Þetta er gjöfin fyrir vandlátu veiðimennina! Stubburinn snyrtur í lokin. Árhringirnir reyn dust vera 25.

Glæsileg flugubox úr Mangóviði Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Langmesta úrval landsins af íslenskum laxa- og silungaflugum

Allt annað líf. Öspin fallin og birtan ræður ríkjum í gerbreyttum garðinum.

Kíktu á www.Krafla.is


11

Árbæjarblaðið

Meindyraeydir.is

Íbúarnir mættu með grillin og fjölmenntu í árlegu grillveisluna í Þykkvabæ.

Árleg grillveisla í götunni ,,Við ætluðum að halda þessa veislu síðar í sumar en einstök veðurblíðan gerði það að verkum að við slógum til. Þetta er mikil hátíð hjá okkur og velflestir íbúarnir mæta með grillin sín hér á leikvöllinn og

grilla saman,’’ sagði Jón Magngeirsson pípulagningameistari í samtali við Árbæjarblaðið. Íbúar í Þykkvabæ í Árbænum tóku sig saman síðasta sunnudag og héldu árlega grillveislu sína á lei-

kvellinum í götunni. Þrátt fyrir að dropar féllu úr lofti um kvöldmatarleytið létu íbúarnir það ekki á sig fá og glæsilegar steikurnar runnu ljúflega niður í mannskapinn.

Spönginni

Sími: 5 700 900 Jón Magngeirsson pípulagningameistari og einn forsprakki grillveislunnar í Þykkvabænum.

Lyklakippa og giftingarhringur merktur Gunnhildi hjá Guðrúnu Ungur drengur gekk fyrir nokkru fram á lyklakippu á göngustígnum í nágrenni við Árbæjarkirkju. Lyklakippan er nokkuð völdug og í leðurhulstri. Þessi sami drengur virðist vera fundvís því fyrir nokkru fann hann forláta giftingrhring. Öruggt er að karlmaður á hringinn því inn í hringnum stendur nafnið Gunnhildur. Þeir sem telja sig eiga viðkomandi hluti geta haft samband við Guðrúnu i sima 6952064. Rétt er að taka fram að hún svarar símanum aðeins seinni part dags eða á kvöldin. Og svo er bara að vona að lyklakippan og giftingarhringurinn ratri til réttra eigenda.

i¨`^[¨g^ K^Â h`jb Z[i^g hkZ^cjb d\ bZ^hijgjb ]Z^ah" d\ ]{a[hYV\hhi g[ { a [aZ\jb d\ gi hi¨``VcY^ k^ccjhiVÂ# Óh`jb Z^cc^\ Z[i^g cZbjb i^a hiVg[V#

] { g h i d [ V lll#iZmijgZ#^h H b^ *++ -*%%


Nú hefur myndast nýr meðbyr í persónulegri fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki

BYR - sparisjóður | Sími 575 4000 | www.byr.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Arbaejarbladid 7.tbl 2007 by Skrautás Ehf. - Issuu