2. tbl. 5. árg. 2007 febrúar
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Árbæjarblaðið
Eitt númer
410 4000
Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti
Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is
Hlegið á herrakvöldi Herrakvöld Fylkis var á dagskrá að kvöldi bóndadags og tókst mjög vel að þessu sinni. Fylkismenn og gestir þeirra troðfylltu Fylkishöllina og allir skemmtu sér konunglega eins og sést á meðfylgjandi mynd. Við birtum 40 myndir frá herrakvöldinu á bls. 8, 9 og 10. ÁB-mynd EÁ
Vantar þig afmælisgjöf fyrir veiðimann? Kíktu þá á Krafla.is Íslenskar laxa- og silungaflugur í hæsta gæðflokki í fallegum tréboxum
Gröfum nafn veiðimanns á boxið - Uppl. í síma 698-2844 Bilastjarnan_02_001.ai
18.11.2004
15:18:40
Pantið tíma í síma 511–1551 Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3
Komdu beint til okkar! - og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu Bílastjarnan ehf. · Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686
Nýr veitingastaður Frábær matur á frábæru verði Fyrirtæki: Pantið og sækið í hádeginu Enski boltinn á breiðtjaldi Lynghálsi 4 Sími: 564-4488
Lynghálsi 4 Sími: 564-4488
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.
Sorglegir atburðir Sorglegir atburðir tengdir börnum og ungu fólki hafa undanfarnar vikur leikið aðalhlutverkið í fjölmiðlum. Nægir hér að nefna Byrgið og Breiðavík. Nú liggur fyrir að líf og framtíð fjölmargra Íslendinga sem dvöldust á þessum stöðum í leit að hjálp og umhyggju var lagt í rúst. Ungir drengir voru meðhöndlaðir sem skepnur í Breiðavík af fullorðnu fólki. Vissulega er Breiðavík mun lengra frá okkur í tímanum. Nánast er hægt að fullyrða að slíkir hlutir gerist ekki og gætu ekki gerst í dag. Hreint ótrúlegir hlutir sem gerst hafa í Byrginu eru auðvitað mjög alvarlegir ekki síst fyrir þær sakir að þeir eru að gerast í nútímanum. Á 21. öldinni. Undarlegt er að hundruð milljóna hafa streymt úr ríkissjóði í Byrgið eftirlitslaust. Auðvelt verður að laga þau mistök. Erfiðara verður hins vegar að bæta sjúku fólki sem leitaði í Byrgið skaðann sem það varð fyrir þar. Það verður hins vegar að gera strax með öllum tiltækum ráðum. Reynslan af Byrgismálinu sýnir í eitt skipti fyrir öll að fagmennskan á að ráða ríkjum í meðferðarmálum. Það á ekki að geta gerst að trúarhópar eða trúfélög geti kynnt sig út á við sem meðferðarstofnanir og sogað til sín fúlgur fjár á gjörsamlega fölskum forsendum. Sem betur fer hefur félagsmálaráðherra brugðist skjótt við í þessum málum. Fórnarlömbin fá aðstoð á næstu dögum og svo á auðvitað að greiða fórnrlömbunum frá Breiðavík bætur sem eru sæmandi og skipta máli. Þar erum við ekki að tala um 3 milljónir eins og einn örlátur alþingismaður nefndi um daginn. Nær væri að tala um 15-20 milljónir á mann til þeirra sem verst urðu úti og voru sendir nauðugir í opið fangið á glæpamönnum. Stefán Kristjánsson
Bókasafn í ljóðaskógi
Óskar Guðjónsson safnstjóri Ársafns og Sara Halldórsdóttir, deildarbókavörður safnsins.
- ljóðaganga í Elliðaárdal frá Rafveituheimilinu laugardaginn 24. febrúar kl. 14 Ljóðaskógurinn er liður í dagsskrá Borgarbókasafns á Vetrarhátíð Reykjavíkur dagana 22. til 24. febrúar. Ljóðaskógurinn, sem unninn er af starfsfólki Ársafns, verður opnaður með ljóðagöngu í Elliðaárdalnum frá Rafveituheimilinu í Elliðaárdal laugardaginn 24. febrúar kl. 14. Sara Halldórsdóttir bókasafnsog upplýsingafræðingur sagði að hugmyndin að Ljóðaskóginum hefði kviknað á ráðstefnu um lestur og lestrarmenningu barna og unglinga sem hún sótti sl. haust. Hugmyndin er að færa bókasafnið út til fólksins og glæða enn frekar áhugann á lestri. Ljóðin eru hengd í tré við göngustíg í dalnum en ljóð eru þeirrar náttúru að
abl@centrum.is
hvert þeirra er heill heimur út af fyrir sig. Bókmenntagöngur Borgarbókasafn hafa notið sívaxandi vinsælda, en þær hafa verið fastur liður í kynningarstarfi safnsins undanfarin ár. Ársafn verður þriggja ára í lok febrúar og safnstjórinn, Óskar Guðjónsson, segir að Árbæingar hafi tekið safninu fagnandi. Auk Árbæjar falla Grafar- og Norðlingaholt undir þjónustusvæði safnsins, en í raun starfar Borgarbókasafn undir kjörorðunum Ein borg - eitt safn!!!. Lánþegar eru á öllum aldri eða frá níu mánaða til níræðs og fyrir eldri borgara sem ekki komast á safnið er sérþjónusta sem kallast Bókin
heim. Auk bóka um allt milli himins og jarðar er boðið upp á tímarit, geisladiska, DVD, tungumálanámskeið til útláns. Heitur reitur er á safninu þannig að fólk getur komið með eigin tölvur og tengt þær inn á internetið en einnig er hægt að kaupa aðgang að tölvum safnsins. Margir stórir vinnustaðir eru í nágrenni safnsins og kemur starfsfólk þeirra gjarna í hádegishléi og lítur í dagblöðin yfir kaffisopa eða kíkir í tímarit. Ársafn er opið alla virka daga frá 11:00 - 19:00 og á sunnudögum frá 12:00 - 17:00. Verið velkomin. Ársafn-Bókasafnið við borgardyrnar.
Nýr leikskóli opnar 1. mars í Norðlingaholtinu
Atvinnu
tækifæri Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir sveinum eða meisturum í heilsog hálfsdagsstörf á nýjum og líflegum vinnustað.
TEXTURE h á r s t o f a
www.texture.is • Sími 566 8500
Nýr leikskóli í Norðlingaholti opnar formlega 1. mars n.k. Leikskólinn er fjögurra deilda og er við Sandavað 7. Leikskólinn kemur til með að taka inn 88 börn í heildina. Fyrstu 10 börnin byrja í aðlögun 1. mars og næstu 10 þann 15. mars. Leikurinn og skapandi hugsun verða aðaláherslur leikskólans en einnig verður lögð áhersla á leik, gleði, rólegheit, umhverfismennt og mikið foreldrasamstarf. Lóðin er mjög stór og mikið er lagt upp úr því að hún sé hluti af náttúrunni. Leikskólinn í Norðlingaholti er hannaður af Manfred Vilhjálmssyni og er einstaklega falleg bygging. Leikskólastjóri er Guðrún Sólveig Vignis og aðstoðarleikskólastjóri er Aðalheiður Björk Matthíasdóttir. Hægt er að ná í þær í síma 517 2566. Upplýsingar um innritun í skólann veitir Halldóra Ólöf Ágústsdóttir, innritunarfulltrúi þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts í síma 411 1200.
4
Matur
Árbæjarblaðið
Föstudagsýsa og súkkulaðikaka með appelsínubragði - að hætti ,,Dóu’’ og Einars
Matgæðingarnir Einar Sverrisson og Ásthildur Dóra Kristjánsdóttir með barnabörnin sín Einar og Bjarna Þór og einnig heimilisköttinn Skorra. = ÁB-mynd PS
Ásthildur Dóra Kristjánsdóttir, Dóa, og Einar Sverrisson, Melbæ 31, eru matgæðingar okkar að þessu sinni. Gómsætar uppskriftir þeirra fara hér á eftir:
250 gr. smjör. 170 gr. flórsykur. 80 gr. hveiti. 4 egg. 1 appelsína.
Föstudags-Ýsa
Sósa 3 dl. vatn. 1 msk. sykur. 1 appelsína (safi + börkur).
800 gr. roð og beinlaus ýsuflök. Einn stór laukur. 7 msk. Sweat-Relish.
Skora á Elvu og Pál Ásthildur Dóra Kristjánsdóttir og Einar Albert Sverrisson, Melbæ 31, skora á Elvu Önundardóttur og Pál Karlsson, Norðurási 6, að koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað. Við birtum uppskriftir þeirra í næsta Árbæjarblaði sem kemur út í mars.
7 msk. ananaskurl. 2 tsk. karrý. Smekk-magn af salti. Slatti af rifnum osti. Sósa 4 msk. smjörlíki 3 msk. hveiti 3 dl. mjólk. 1 dl. ananassafi.
Dvergshöfða 27 Reykjavík Sími/Símsvari 567-7888 www.heilunarsetrid.is
Hjá Heilunarsetrinu vinnur fagfólk á sviði heildrænna meðferða Okkur er umhugað um að hjálpa fólki til þess að finna jafnvægi og betri líðan. Höfuðbeina og Fæðuóþolsmælingar. Svæðanudd. Bowen. Skynhreyfiþjálfun. Heilun. Reiki-Heilun. Detox meðferð. SRT/andleg svörunarmeðferð.
Brúnið fiskinn á pönnu. Einnig laukinn við lágan hita þar til hann verður glær. Kryddið með karrýi og salti. Setjið í eldfast mót. Sweat-Relish og ananas dreift yfir. Bakið sósuna upp og hellið henni síðan yfir. Að lokum eru herlegheitin þakin vel með rifnum osti. Setjið mótið í ofninn og bakið við 200 gráður í um það bil 15 mínútur. Berið fram með nýjum íslenskum kartöflum eða þá hrísgrjónum og hvítlauksbrauði.
Súkkulaðikaka með appelsínubragði
1 askja jarðarber (söxuð). Súkkulaði, smjör og flórsykur brætt saman (hitað í vatnsbaði). Munið að hræra vel í á meðan. Sigtið hveitið í hrærivélaskál og blandið súkkulaðiblöndunni saman við. Bætið eggjunum útí, einu í einu. Kreistið safann úr annarri appelsínunni og blandið út í degið. Setjið deigið í smelluform og bakið í 25 mínútur við 180°C. Látið kökuna kólna vel áður en hún er tekin úr forminu. Hrærið saman vatni, appelsínusafa, sykri og slatta af rifnum appelsínuberki. Sjóðið þar til lögurinn þykknar. Leyfið sósunni að kólna og setjið síðan jarðarberin útí. Hellið sósunni yfir kökuna og berið fram með sælkerakaffi. Verði ykkur að góðu, Dóa og Einar
Deig 250 gr. dökkt súkkulaði.
Árbæjarblaðið Sími: 587-9500
6
Fréttir
Árbæjarblaðið
Ingibjörg Sif tekur til starfa Ingibjörg Sif Antonsdóttir, sálfræðingur, hefur hafið störf við þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts. Ingibjörg útskrifaðist með Cand. Psych gráðu frá Háskóla Íslands 2006. Lokaverkefni fjallaði um samanburð á börnum sem greinast með einhverfu á leikskóla og grunnskólaaldri. Ingibörg útskrifaðist með BA gráðu frá sama skóla árið 2000. Ingibjörg vann við atferlismeðferð á börnum með einhverfu á leikskóla og í heimahúsum 1998 - 2003. Einnig vann hún á skammtímaheimli fyrir börn með frávik í þroska og hegðun 1996 2000. Ingibjörg mun koma með fullum krafti inn í sérfræðiráðgjöf fyrir leikog grunnskóla. Ingibjörg Sif er boðin hjartanlega velkomin til starfa.
Krakkarnir í hverfunum 2006:
Hagir og líðan nemenda í 8., 9. og 10. bekk í Árbæ og Grafarholti Á hverju ári gerir RANNSÓKNIR & GREINING rannsókn sem lögð er fyrir í grunnskólum landsins og er úrtakið nemendur í 8., 9. og 10. bekk. Árið 2006 var níunda árið sem slík rannsókn var gerð. Yfirskrift rannsóknarinnar er, ,,Ungt fólk 2006’’, og viðkemur menntun, menningu, tómstundum, íþróttaiðkun og framtíðarsýn íslenskra ungmenna. Niðurstöður þessarar viðamiklu rannsóknar er hægt að skoða fyrir landið í heild sinni, eftir bæjarfélögum, hverfum Reykjavíkur og jafnvel einstaka skólum. Í hugum flestra er Árbær og Grafarholt sitt hvort hverfið en vegna borgarhlutaskiptingar
Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts Bæjarhálsi 1 - 110 Rvk Opnunartími: 08.30 - 16.00 Sími: 411 1200 Netfang: arbaer-grafarholt@reykjavik.is Heimasíða: www.reykjavik.is/arbaer www.reykjavik.is/grafarholt
Nýjar DVD myndir + ein eldri á kr. 350,-
Skalli Hraunbæ 102
Sími: 567-2880
Reykjavíkurborgar þá eru sameiginlegar niðurstöður fyrir hverfin í fyrrnefndri rannsókn. Kynningarfundur var haldinn 30. janúar sl. að frumkvæði Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts. Til fundarins voru boðaðir fulltrúar skólanna, foreldrafélaga, kirkjunnar, heilsugæslunnar, lögreglu og íþróttafélaganna í hverfunum. Á fundinum kynnti starfsmaður Rannsóknar og greiningar helstu niðurstöður rannsóknarinnar fyrir hverfin. Miklar og góðar umræður sköpuðust á fundinum og greinilegt var að ýmislegt kom fundarmönnum á óvart. Almennt má segja að unglingar í Árbæ og Grafarholti hafi komið vel út úr þessari rannsókn. Í flestum tilfellum eru krakkarnir í hverfunum ekki frábrugðin öðrum unglingum í borginni eða á landinu öllu þegar kemur að neyslu vímuefna, þátttöku í íþróttum, líðan í skóla svo eitthvað sé nefnt. Samt sem áður er vert að skoða þau atriði sem ekki komi vel út í rannsókninni. Ef niðurstöður rannsóknarinnar eru skoðaðar kemur í ljós að útivistartíminn virðist ekki vera virtur hjá stórum hluta nemenda í Árbæ og Grafarholti því 58% nemenda í 9. og 10. bekk sögðust einu sinni eða oftar hafa farið út að kvöldi og komið heim eftir miðnætti sl. 7 daga á undan þeim degi sem könnunin var framkvæmd. Til viðmiðunar var hlutfallið 42% í Reykjavík og 46% á landinu í heild. Ef litið er til þess hversu margir nemendur hafa verið úti eftir klukkan tíu þrisvar sinnum eða oftar síðastliðna 7 daga er hlutfall nemenda í Árbæ og Grafarholti 50% miðað við 41% nemanda í Reykjavík og 40% nemenda á landsvísu. Munn- og neftóbaksnotkun meðal nemenda í 10. bekk í Árbæ og Grafarholti árið 2006 var talsvert algengari ef miðað er við alla nemendur í Reykjavík og á landinu í heild. Þannig sögðust 11% nemanda í hverfunum hafa notað munntóbak 20 sinnum eða oftar um ævina þegar rannsóknin var gerð miðað við 5 % nemenda í Reykjavík og á landinu í heild. Hlutfall nemenda í Árbæ og Grafarholti sem höfðu notað neftó-
bak 20 sinnum eða oftar um ævina árið 2006 var 14% en í Reykjavík var hlutfallið 7% og á landinu öllu var
Þó ástandið hjá nemendum í 8., 9. og 10. bekk í Árbæ og Grafarholti sé almennt gott eru nokkur atriði sem
það 10%. Þegar spurt var um neyslu munnog neftóbaks síðastliðna 30 daga kom í ljós að hlutfall nemenda í hverfunum sem höfðu notað munntóbak einu sinni eða oftar á þessu tímabili var 17% árið 2006 en í Reykjavík allri var hlutfallið 8% og á landinu í heild var það 7%. Sambærileg spurning um neftóbaksneyslu leiddi í ljós að hlutfall nemenda í 10. bekk í Árbæ og Grafarholti var 21% miðað við 11% í Rekjavík og 15% á landinu öllu. Hlutfall nemenda í 10. bekk í hverfunum sem sagðist hafa notað munn- eða neftóbak þrisvar sinnum eða oftar síðastliðna 30 daga árið 2006 var einnig talsvert hærra miðað við nemendur í Reykjavík og á landinu í heild. Þess má geta að nemendur í 9. og 8. bekk í Árbæ og Grafarholti skáru sig ekki eins úr í neyslu munn- og neftóbaks eins og nemendur 10. bekkjar.
þarf að skoða nánar og kemur það til kasta þeirra sem koma að forvarnarmálum í hverfunum. Starfsfólk Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts mun á næstunni skoða í samvinnu við skólana og foreldrafélög þeirra hvort tilefni er til að fá nánari kynningu á þessum niðurstöðum. Hér hefur einungis verið greint frá litlum hluta þeirra niðurstaðna sem fram kom í skýrslu Rannsóknar og greiningar sem gerð var á nemendum í Árbæ og Grafarholti. Áhugasömum er bent á að skýrslan er aðgengileg í heild inni á vef þjónustumiðstöðvarinnar, www.reykjavik.is/arbaer og eða á www.reykjavik.is/grafarholt . Kristinn J. Reimarsson Verkefnisstjóri hjá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts Þorleifur Kr. Níelsson Félagsráðgjafi hjá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts
Sigvaldi Þorgilsson danskennari kennir línudans.
Heilsuefling í Árbæ og Grafarholti Hafið er sérstakt heilsueflingarátak á meðal eldri borgara í Árbæ og Grafarholti. Íbúar geta valið um dans, stafgöngu (10 tíma námskeið), göngu-eða skokk, leikfimi og síðan
fengið kennslu á líkamsræktartækin í Árbæjarþreki (10 tíma námskeið). Þetta er íbúum allt að kostnaðarlausu. Átakið fer vel af stað og hefur verið góð mæting í flesta tíma og er
óhætt að segja að mikil ánægja sé á meðal íbúa með þetta framtak. Nánari upplýsingar í félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105
Tilvalin gjöf fyrir vandláta veiðimenn! Flugubox úr mangóviði og við gröfum nafn veiðimannsins á boxið - þéttsetið íslenskum flugum í allra fremstu röð!!
Hágæðaflugur - íslensk hönnun Sjón er sögu ríkari!! Kíktu á www.Krafla.is Þar finnur þú gjöfina sem alla fluguveiðimenn dreymir um
Sturla Örlygsson með glæsilegan tveggja ára lax sem tók eina af Kröfluflugunum í Hofsá sl. sumar.
Besta vörnin í netverslun í dag Framleiðandi Skrautás ehf - Bíldshöfða 14 - Sími: 587-9500 / 698-2844
,,Flugurnar hans Kristjáns Gíslasonar frá Krafla.is eru alltaf til staðar í mínum fluguboxum og hafa reynst mér ómissandi í lax- og silungsveiði. Fluguboxin frá Kröflu eru stórglæsileg,’’ segir Sturla Örlygsson
9
8
Herrakvöld Fylkis 2007
Árbæjarblaðið
Herrkvöld Fylkis 2007
Árbæjarblaðið
Frá vinstri Björn Vignir Björnsson, Stefán S. Stefánsson og Jón Þór Júlíusson. Nonni og Jói.
Fremstur er Knútur Sölvi Hafsteinsson, Jóhann Páll Símonarson og Ágúst Hafsteinsson. Elsti Fylkismaðurinn Halldór Jakobsson lét sig ekki vanta, hann er hér ásamt tengdasyni sínum Jóni Hjaltasyni.
Sturlu skipaverkfræðingi þótti maturinn afbragð.
Fullt hús
Villi hinn eini sanni og náttúrlega Alfreð, siðan koma Steinn Halldórsson formaður KRR og Björn Gíslason formaður Hverfisráðs Árbæjar.
Frá vinstri: Valdi í Texta, Gummi Sig. og Friðrik vélfræðingur.
Kristján Már Unnarsson fréttamaður og Logi Ragnarsson Formaður herrakvöldsnefndar.
Séra Hjálmar fór auðvitað á kostum sem ræðumaður kvöldsins.
Frá vinstri Lúðvík Andreasson, Pálmi Lord, Viktor Steinarsson , Elvar Hólm Ríkharðsson, Grímur Brandsson.
Sigmar Steingrímsson sjávarlífræðingur og Þorsteinn Helgason listmálari og arkitekt.
Orginal Fylkismenn Pétur Stefánsson og Jón Árnason.
Herrakvöld Fylkis var að venju á bóndadaginn og tókst skemmtunin mjög vel að þessu sinni. Fylkismenn og gestir fylltu Fylkishöllina og allir skemmtu sér konunglega. Séra Hjálmar Jónsson var ræðumaður kvöldsins og vakti hann mikla lukku sem og skemmtikrafturinn og eftirherman Jóhannes Kristjánsson. Veislustjóri var Gísli ,,Út og suður’’ Einarsson og ku það þegar frágengið að þeir félagar mæti á herrakvöldið að ári. Við látum annars myndirnar tala að venju hér í opnunni og á næstu síðu einnig en myndirnar tók Einar Ásgeirsson.
Gylfi Einarsson og Pétur Ólafsson.
Kristján Már Unnarsson ásamt dætrum sínum Maríu og Kristínu, en þær spila báðar með meistaraflokki Fylkis, en þær voru að aðstoða í salnum.
Hjálmar Jónsson (83) fyrrv. formaður Fylkis lét sig ekki vanta frekar en oft áður
Jón Þorsteinn formaður stjórnar SPV, Árni Helgason fjárfestir í London og Atli Örn Jónsson framkv.stjóri bankaþjónustu SPV. Guðmundur Baldursson Sölustjóri hjá Ræsi og Þorsteinn Sigurðsson sviðstjóri á Hafró.
Kristinn Steingrímsson og Ólafur Eggertsson.
Jóhann Þórarisson fyrrv. smíðakennari í Árbæjarskóla, Ragnar Guðmundsson fyrrv. yfirk. í sama skóla og svo Toni fyrrv. knattspyrnukappi.
Hvað getur maður sagt.
Frá vinstri Steinar Friðgeirsson, Jón Magngeirsson, Runólfur Þorláksson og séra Þór Hauksson.
Þarna eru menn komnir á trúnó.
Guðjón L. Sigurðsson, Ómar S. Gíslason, Jón G. Birgisson, Arnar Hilmarsson.
Þessir voru í miklu stuði.
Sæmundur Sæmundsson framkvæmdastjóri Tölvumiðstöðvar Sparisjóðanna og Bjarni útibússtjóri SPV í Árbæ.
10
Herrakvöld Fylkis 2007
Árbæjarblaðið
Magnús Ingvarsson Kennari við Fjölbraut í Breiðholti og Bjarni í Nings. Þessa þekkja allir.
Teddi Kúbufari.
Þorsteinn útibússtjóri Landsbankans í Árbæ og Ólafur Loftsson gjaldkeri Fylkis til áratuga. Sagt er um Ólaf, að ef hann láti út eina vætt silfurs fái hann tvær vættir gulls til baka.
Guðmann vallarstjóri, Guðjón bryggjusmiður, Ólafur Eyktarskelfir og Óskar bólstrari.
Einar, Helgi og Tryggvi. Það moraði af þjóðþekktum mönnum.
Ólafur Hannibalsson.
Hér má sjá þrjár kempur Eldri flokks Fylkis sem hafa munað tímana tvenna. Samtals hafa þeir skorað 1783 mörk á ferlinum. Frá vinstri: Magnús Ingvason, Gunnar Stefán Jónasson og Daníel Gunnarsson.
Bara gaman.
Gísli Einarsson og Jóhannes Kristjánsson brugðu sér í allra kvikinda líki og verða á næsta ári.
Séra Þór Hauksson.
Myndir: Einar Tommi, Mebu-Bjössi og Marteinn fyrrv. Þjálfari Fylkis. Ekki er vitað um nöfnin á þessum 2 guttum sem tróðu sér inn í myndina en það er allt í góðu, þeir hafa bara viljað vera með á mynd af frægum mönnum.
Ásgeirsson
Oddgeir langhlaupari hafði bara gaman af þessu.
11
Fréttir
Árbæjarblaðið
Fjölmenni á þorrablóti í Árbænum
Borðin svignuðu undan kræsingum.
Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105 stóð fyrir þorrablótum nú um sl. helgi. Á föstudag var þorrablót haldið i Árbæ og var góð mæting og fólk skemmti sér hið besta. Raddbandafélag Reykjavíkur skemmti með söng og hlaut góðar undirtektir. Ólafur B. Ólafsson stýrði svo fjöldasöng og lék fyrir dansi á harmonikkuna sína. Fjöldi fólks mætti og skemmti sér konunglega.
Árbæjarblaðið Ritstjórn og auglýsingar Sími: 587-9500 Þorrablótin njóta alltaf mikilla vinsælda og fjölmennt var í Hraunbænum sl. föstudag.
Frábær febrúar í Orkuverinu Sex mánaðakort 19.990.-
Skólakort 12.990.Tveir fyrir einn á átaksnámskeiðum. Hefjast 21. febrúar Alhliða líkamsrækt og sjúkraþjálfun Egilshöllinni Simi: 594 9630
www.orkuverid.is
12
Fréttir
Árbæjarblaðið
Hverfin í borginni
Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar eru blómin í vasa hvers hverfis. Með tilkomu þeirra hefur yfirbragð þjónustukjarna í hverfum gjörbreyst og íbúar leita með fjölbreytt erindi sín til miðstöðvanna. Gömlu ,,borgarhlutaskrifstofurnar" hýstu eingöngu verkefni tengd velferðarmálum en hugmyndafræði þjónustumiðstöðvanna snýst um að öll verkefni, vandamál og viðfangsefni íbúanna finni sér farveg í þjónustumiðstöðvum. Hreyfing, fjölmenning, húsnæði, leikskólar, íbúasamtök, félagsstarf eldri borgara, hverfamenning, hátíðir og forvarnir. Viðfangsefni hverrar fjölskyldu eru leyst þverfaglega á þjónustumiðstöðvunum, sérfræðingar og faglegir ráðgjafar vinna í teymum og því hefur
náðst góður árangur í málefnum fjölskyldna sem áður var vísað á milli stofnanna. Þjónustumiðstöðvarnar voru stofnaðar á síðasta kjörtímabili og Samfylkingarfólk barðist ötullega fyrir þeirri stjórnkerfisbreytingu. Ein þjónustumiðstöð, Miðgarður í Grafarvogi, hefur þó verið starfandi í 9 ár og þar hefur náðst einstaklega góður árangur með þverfaglegri samvinnu allra í hverfinu.
Hverfisráð Samfylkingin hefur alla tíð lagt áherslu á sterk hverfi og að hverfisráðin tíu séu pípulögn fyrir íbúa hverfisins til að koma skoðunum sínum og áhyggjum á framfæri. Í hverfisráðunum sitja þrír kjörnir fulltrúar og vinna náið með framkvæmdastjóra hverrar þjónustumiðstöðvar.
Nútímalegir stjórnarhættir byggja á sífellt auknu samráði við íbúana sem kallar á öflug hverfisráð. Hlutverk hverfisráða er margþætt; að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfi, móta stefnu og leggja fram tillögur á vettvangi borgarráðs. Ýmis skipulagsmál fara til umsagnar hverfisráða, ýmis hagsmunasamtök kynna sína starfsemi í hverfisráðunum og ráðsmenn eru mikilvægir tengiliðir við íbúa hvers hverfis; enda gjarnan búsettir í hverfunum og þekkja þau vel af eigin reynslu.
Hverfisráðin eru vettvangur íbúasamráðs, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Íbúar verða sífellt meðvitaðri um sitt nærumhverfi og þjón-
Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi og formaður Borgarmálaráðs Samfylkingarinnar, skrifar: ustumiðstöðvarnar eru geysimikilvægur hlekkur í þeirri keðju. Það voru því kaldar kveðjur frá meirihluta borgarstjórnar
að vængstýfa hverfisráðin með því að taka frá þeim það fjármagn sem þau höfðu yfir að ráða. Fjármagn sem hverfisráðin gátu ráðstafað beint til íbúasamtaka, hverfishátíða, hverfisblaða og ýmissa viðburða innan hverfanna. Nú þurfa framfaraöflin í borginni að ganga bónleið til borgarstjóra og það gagnrýnir Samfylkingin harðlega. Valddreifing og valdefling eiga að vera leiðarljós í nútímalegri stjórnsýslu. Þannig byggjum við upp sterk hverfi í henni Reykjavík.
Kæru viðskiptavinir! Við erum byrjaðar að vinna með hárlengingar! Dagana 16. nóvember til 7. desember fá allir viðskiptavinir
Síttokkar hár á 120 mínútum! Hægt að nota aftur og aftur! 99% sem panta 100% lit ogmennskt strípurhár! PARAFIN handarmeðferð Hafið samband Frekari til að fáupplýsingar frekari upplýsingar ósýnilegt Hágæða hárlengingar hjá okkur í síma 567-6330
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00
Pöntunarsími: 567-6330
13
Árbæjarblaðið
Fréttir
Fjöldi fólks skemmti sér á þorrablótinu.
Þorra blótað í Grafarholti
Stella Kristjánsdóttir (t.v.) og Soffía Felixdóttir stjórnuðu þorrablótinu á Þórðarsveig.
Á laugardag var haldið þorrablót fyrir Grafarholtsbúa í salnum að Þórðarsveig 3. Þorrablótið fór fram á vegum Félagsmiðstöðvarinnar að Hraunbæ 105 og þótti takast mjög vel. Þar var mikið sungið og skemmtu allir sér mjög vel. Skemmtiatriði voru að hætti heimamanna og spilað var bingó.
Góugleði með nýju sniði
Hin árlega Góugleði Fylkis er á dagskrá laugardaginn 17. febrúar og verður gleðin með nokkru öðru sniði en vant er. Þema kvöldsins er svart/hvítt og húsið verður opnað kl. 19. Salurinn verður skreyttur hátt og lágt og nú verður herrunum hleypt inn í fjörið kl. 11.30 í fyrsta skipti. Er það vel við hæfi á 40 ára afmælisári félagsins. Ræðumaður kvöldsins verður Guðfinna Bjarnadóttir, fráfarandi rektor Háskólans í Reykjavík og veislustjóri útvarpsmaðurinn Freysi. Undirbúingsnefndin vonar að allar konur eigi heimangengt og mætti og styðji stelpurnar í Fylki. Ekki veitir af því það er kostnaðarsamt að halda úti öflugi kvennaliði og Góugleðinu er mjög mikilvæg fjáröflun fyrir meistaraflokk kvenna. Og nú er bara að taka laugardagskvöldið frá og mæta.
Ljóðin í skóginum Borgarbókasafn-Ársafn býður til ljóðagöngu í Elliðaárdalnum laugardaginn 24. febrúar kl. 14:00 undir leiðsögn Úlfhildar Dagsdóttur og Jónínu Óskarsdóttur. Skáldin Einar Már Guðmundsson og Ingunn Snædal slást með í för. Safnast verður saman við Rafveituheimilið og tekur gangan um eina klukkustund. Sýningin Ljóðaskógur er liður í dagskrá Vetrarhátíðar Reykjavíkurborgar og verða ljóðin í skóginum út apríl. Allir velkomnir.
Árbæjarblaðið - Auglýsingasími 587-9500
14
Frรฉttir
ร rbรฆjarblaรฐiรฐ
Hรบsfรฉlagaรพjรณnusta SPV er รถflugur liรฐsauki Auglรฝsing
&YRIR ALLAR KONUR SEM ELSKA SALSA MAMBร OG CHACHA &Rร Bย R SUยกRย N Tร NLIST Gร ยกAR ย lNGAR MEยก ยคAULREYNDUM KENNARA ร FJร LSKYLDUVย NU UMHVERl ยผKEYPIS PRUFUTร MI Tร MARNIR ERU ร ยคRIยกJU OG lMMTUDร GUM KL ร (REYlLANDI 3TANGARHYL "Jร ยกUM EINNIG UPP ร DANSLEIKlMI FYRIR KONUR JAZZDANS HIPPHOPP Mร DERN SALSA
!LLAR UPPLรขSINGAR ร Sร MA OG ร WWW HREYlLAND IS
8 vikna aรฐhaldsnรกmskeiรฐ fyrir konur hefst 6. mars Kennt er รก รพri/fim og fรถs kl. 17.00-18.00 Frjรกls mรฆting รญ aรฐra tรญma og tรฆkjasal รกsamt kennslu Skrรกning hafin รญ sรญma 5676471 Verรฐ: 14500
Fylkisvegi 6 - Sรญmi 567-6471
ร tibรบ SPV รญ ร rbรฆ, miรฐstรถรฐ rรกรฐgjafar og รพjรณnustu.
Gรณรฐur liรฐsauki viรฐ rekstur hรบsfรฉlaga Hรบsfรฉlagaรพjรณnusta SPV lรฉttir starf gjaldkera hรบsfรฉlaga verulega meรฐ traustri rรกรฐgjรถf. ร jรณnustan sparar tรญma og fyrirhรถfn og er sรฉrsniรฐin aรฐ รพรถrfum hvers hรบsfรฉlags, fjรกrmรกl hรบsfรฉlagsins verรฐa รถruggari og bรณkhaldiรฐ aรฐgengilegra.
.
Hรบsfรฉlagaรพjรณnustan felur m.a. รญ sรฉr: Innheimtuรพjรณnustu รพar sem gjรถld hรบsfรฉlagsins eru innheimt meรฐ greiรฐsluseรฐlum sem sendir eru greiรฐendum. Gjaldkera er sendur reglulega listi yfir greidda og รณgreidda greiรฐsluseรฐla. Greiรฐsluรพjรณnustu รพar sem greiddir eru reikningar hรบsfรฉlagsins รก rรฉttum tรญma og gjaldkera sent reglulega yfirlit รพar um. ร rlegt rekstraruppgjรถr. Fรฆrslur sem myndast รญ innheimtu- og greiรฐsluรพjรณnustunni eru grunnur aรฐ bรณkhaldi hรบsfรฉlagsins. Um hver รกramรณt sendir SPV gjaldkera hรบs-
. .
fรฉlagsins sundurliรฐaรฐ yfirlit yfir tekjur og gjรถld fyrra รกrs. Hagstรฆรฐ framkvรฆmdalรกn til viรฐhaldsverkefna meรฐ sveigjanlegum lรกnstรญma. Viรฐskiptayfirlit fyrir hverja รญbรบรฐ. Netbanka รพar sem gjaldkeri fรฆr gรณรฐa yfirsรฝn yfir fjรกrmรกlin. ร ar hefur gjaldkeri รกvallt upplรฝsingar um stรถรฐu sjรณรฐs og viรฐskiptayfirlit yfir hvern greiรฐanda.
. ..
Starfsmenn SPV leggja metnaรฐ sinn รญ aรฐ veita faglega og persรณnulega rรกรฐgjรถf รพar sem markmiรฐiรฐ er aรฐ stuรฐla aรฐ traustu langtรญmasamstarfi viรฐ sรฉrhvert hรบsfรฉlag. Allar nรกnari upplรฝsingar um hรบsfรฉlagaรพjรณnustu SPV mรก fรก meรฐ รพvรญ aรฐ hringja รญ sรญma 575-4083 eรฐa meรฐ รพvรญ aรฐ senda tรถlvupรณst รก evald@spv.is. SPV bรฝรฐur hรบsfรฉlรถgum kynningu รก รพjรณnustu sinni รก hรบsfรฉlagsfundi.
Tรถlvuรพjรณnusta fyrir fyrirtรฆki og einstaklinga. Netverslun meรฐ tรถlvubรบnaรฐ og rekstrarvรถru www.bst.is Gylfaflรถt 24-30 Sรญmi: 5679760
Spurst fyrir um postulรญnsmรกlun รก opnu hรบsi.
Egilshรถllinni Sรญmi: 594-9630 www.orkuverid.is Alhliรฐa lรญkamsrรฆkt og sjรบkraรพjรกlfun
100 mรฆttu รญ kaffi og kleinur
ร riรฐjudaginn 23. janรบar var opiรฐ hรบs รญ fรฉlagsmiรฐstรถรฐinni Hraunbรฆ 105. Kynning var รก รพvรญ starfi sem er รญ boรฐi fram รก vor. Leiรฐbeinendur voru รก staรฐnum og veittu upplรฝsingar um nรกmskeiรฐin og tekiรฐ var รก mรณti skrรกningum. ร hรฆtt er aรฐ segja aรฐ รพessi viรฐburรฐur hafi heppnast vel รพvรญ rรบmlega 100 manns mรฆttu og kynntu sรฉr starfiรฐ og รพรกรฐu kaffi og kleinur. Veriรฐ er aรฐ leggja aukna รกherslu รก heilsueflingu รญ starfi
fรฉlagsmiรฐstรถรฐvarinnar og virรฐist รพaรฐ falla รญ gรณรฐan jarรฐveg รก meรฐal notenda. Sรฉrstรถk kynningarnรกmskeiรฐ รญ stafgรถngu og lรญkamsrรฆkt, รญ samvinnu viรฐ ร rbรฆjarรพrek, eru aรฐ fara af staรฐ รญ nรฆstu viku og er mjรถg gรณรฐ skrรกning รก รพau nรกmskeiรฐ sem og รญ leikfimi og dans. Dagskrรก fรฉlagsmiรฐstรถรฐvarinnar mรก sjรก รก heimasรญรฐu รพjรณnustumiรฐstรถรฐvarinnar www.reykjavik.is/arbaer
15
Fréttir
Árbæjarblaðið
Viðloðandi ljósmyndabransann frá barnæsku Kristín Þóra opnar ljósmyndastofu að Rofabæ 9 Kristín Þóra Kristjánsdóttir hefur opnað ljósmyndastofu í Árbænum og er hún til húsa að Rofabæ 9. ,,Ég hef verið viðloðandi ljósmyndabransann frá barnæsku því foreldrar mínir stofnuðu framköllunarþjónustuna Myndsýn árið 1979 en þá var ég 11 ára gömul. Þar vann ég í öllum fríum og svo með skólanum þegar kom fram á menntaskólaárin. Ég fór á samning hjá SkyggnuMyndverk, og útskrifaðist með sveinspróf í ljósmyndun vorið 1993. Ég dreif mig strax um haustið í Meistaraskólann og útskrifaðist sem ljósmyndameistari,’’ segir Kristín Þóra í samtali við Árbæjarblaðið. ,,Þá var ég komin með ljósmyndastúdíó á Grettisgötunni ásamt nokkrum öðrum ljósmyndurum og var einnig heilmikið farin að mynda bekkjarmyndir í skólum í Reykjavík. Settist ég aftur á skólabekk árið 2000 og þá í California State University, Chico. Þar var ég í tvö ár og lagði áherslu á stafræna vinnslu ljósmynda og grafíkvinnslu. Þegar heim kom fór ég aftur að vinna hjá Myndsýn og tók við rekstri þess fyrirtækis árið 2003. Ég rak það þar til Hans Petersen keypti reksturinn fyrir rúmu ári síðan,’’ segir Kristín Þóra. ,,Fyrir nokkrum mánuðum frétti ég af þessu húsnæði í Rofabænum og þar sem ég bý í ca. 10 metra fjarlægð þá hentaði þetta auðvitað mjög vel. Húsnæðið er ekki stórt en mjög fínt fyrir stúdíóið en tölvuvinnsluna vinn ég heima hjá mér svo ég er ekki með viðveru á stofunni nema eftir samkomulagi. Ég hef verið svolítið í því að lita hluta af myndum og hafa annað svart-hvítt eða brúntónað. Ég er þessa dagana að taka niður pantanir fyrir fermingarmyndatökur og einnig eru útskriftarpantanir að byrja. Þeir sem eru skipulagðastir eru líka farnir að panta brúðkaups-
Atvinnuhúsnæði óskast til leigu Ca 50-80 ferm. verslunar eða skrifstofuhúsnæði óskast til leigu. Snyrtileg aðkoma skilyrði. Uppl. í síma 699-1322 / 698-2844
myndatökur fyrir sumarið. Öllum myndatökum skila ég í fallegu hvítu albúmi sem er í stærðinni A5 en myndirnar eru í stærð 10x15 cm. Fólk getur valið um myndatöku með 14 eða 20 myndum, ýmist lit, svart-hvítar eða hálflitaðar. Brúðkaupsmyndirnar eru oft stærri og oft fylgi ég brúðhjónum yfir daginn, kem jafnvel á hárgreiðslustofuna áður en ég kem í kirkjuna, eftir það förum við á stofuna og þegar veður leyfir finnst mér mjög gaman að fara
með þau niður í Elliðaárdal og síðan í veisluna. Þessi brúðkaup þurfa auðvitað stærri og veglegri albúm. Öllum myndatökum fylgir geisladiskur með 50-100 myndum í lit, svart-hvítu og nokkrum hálflituðum, og auðvitað eru miklu fleiri myndir í þeim tilfellum sem ég mæti í kirkju eða í veislu. Allar frekari upplýsingar er hægt að finna á vefsíðunni www.myndataka.is Síminn er 861-1968 og netfangið er kristin@myndataka.is
Kristín Þóra með myndavélina.
*Ð8*/(ä, )\ONLV @kZccV`k aY ;na`^h '%%, kZg jg ]VaY^ ;na`^h] aa^cc^ aVj\VgYV\^cc &,# [ZWg Vg# = h^ decVg `a# &.#%%
ZbV `k aYh^ch Zg ÖHK6GI d\ =KÝII "H6B@K¢B>H@A¢ C6 JG"Æ
áeZgj Y [jgcVg ]^iV jee bZ \a²h^h c\ higVm [dgYgn``cjb ák²ciVg jee{`dbjg G² jbV jg <j [^ccV 7_VgcVY ii^g! [g{[VgVcY^ gZ`idg ={h` aVch GZn`_Vk ` KZ^hajhi_ g^ äikVgehbV jg^cc ;gZnh^ B^ VhVaV ]Z[hi -# [ZWg Vg# ;na`^h] aa^cc^ B^ VkZg )%%% `g# B^ VkZg {hVbi ]ZggVb^ V )*%% `g# 6I= C _jc\ ]Zggjb ]aZnei ^cc `a# '(#(% = ejbhi hVbVc d\ [na`_jb a^ ^ H cjb hVbhi j d\ hing`_jb hiZaejgcVg d``Vg# Ú\ ^cc V[ `kZccV`k aY^cj gZccjg h`^eijg i^a bZ^hiVgV[ad``h `kZccV# 6aYjghiV`bVg` &- {g
Þetta er vekjaraklukka
Hjá Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins gerir þú mikið úr litlu. Á þriðjudögum F í t o n / S Í A
færðu t.d. 500 kr. SMS inneign aukalega þegar fyllt er á Frelsi frá Símanum fyrir 2.000 kr. eða meira í Heimabankanum. Fáðu góða aðstoð við fjármálin svo þú getir gert mikið úr litlu. Nánari upplýsingar á www.spar.is eða í næsta sparisjóði. Við hlökkum til að heyra frá þér.
Gerðu mikið úr litlu!
SPV - Sparisjóður vélstjóra - Hraunbæ 119 - Aðalsími 575 4000 - Þjónustuver 575 4100 - spv@spv.is - www.spv.is
Ef þú setur GSM síma inn í stórt glas virkar það eins og magnari. Það er skemmtilegt að vakna við syngjandi glamur á hverjum morgni!