9. tbl. 4. árg. 2006 september
Þessar hressu pæjur úr Fylki voru á meðal þátttakenda á Pæjumótinu á Siglufirði sem fram fór í sumar. Á myndinni eru frá vinstri: Laufey Þóra, Erla Hrönn, Sólveig og Sigrún. Við segjum frá mótinu og birtum fjölda mynda frá Sigló í miðopnu blaðsins. ÁB-mynd Kata
Bilastjarnan_02_001.ai
18.11.2004
15:18:40
410 4000
Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti
Pæjumótið á Siglufirði
40%
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Árbæjarblaðið
Eitt númer
afsláttur af sóttum pizzum
Pantið tíma í síma 511–1551 Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3
Opið virka daga frá kl. 9-19 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is
55 44444
Komdu beint til okkar! - og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu Bílastjarnan ehf. · Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686
Nýr tælenskur veitingastaður Frábær matur á frábæru verði Lynghálsi 4 Sími: 564-4488
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.
Fegrunarátakið Laugardaginn 16. september stendur Reykjavíkurborg fyrir fegrunarátaki í Árbæjarhverfi. Lengi getur gott batnað og við hvetjum alla íbúa í hverfinu til að taka til hendinni. Sama dag leika Fylkismenn síðasta heimaleik sinn í Landsbankadeildinni og hafi lið Fylkis einhvern tíman þurft á öflugum stuðningi að halda þá er það núna í fallbaráttu deildarinnar. Við hvetjum alla Árbæinga til að fjölmenna á leikinn en fyrir hann býður Fylkir til mikillar veislu eins og sjá má annars staðar í blaðinu. Knattspyrnusumrinu er senn lokið og hefur árangur karlaliðsins oft verið betri. Yngri flokkar Fylkis hafa verið að gera góða hluti í sumar og við greinum í blaðinu frá fjörugu Pæjumóti á Siglufirði, bikarmeistaratitli og gagnlegri og skemmtilegri keppnisferð Fylkisstráka til Spánar fyrr í sumar. Glöggir lesendur blaðsins taka eftir því að í blaðinu birtast fréttir frá nýstofnuðu Hverfisráði Grafarholts og Úlfarsárdals auk efnis frá Hverfisráði Árbæjar. Innan Árbæjarhverfis starfa nú tvö hverfisráð þrátt fyrir að hverfið sé eitt og hið sama eftir sem áður en þess misskilnings hefur gætt að Árbæjarhverfi hafi verið skipt upp í tvö hverfi. Svo er ekki. Stefán Kristjánson
abl@centrum.is
Magni er málið
Magni er málið í dag. Þegar þetta er skrifað er úrslitaþátturinn framundan í Supernova keppninni. Mér er hins vegar slétt sama hvernig sá þáttur fer. Magni hefur þegar komið út úr þessari keppni sem sigurvegari og í kjölfar glæsilegrar frammistöðu hans virðast honum flestir ef ekki allir vegir færir á heimsvísu. Sannarlega ógleymanleg frammistaða sem verður lengi í minnum höfð. Hins vegar leyfi ég mér að vona að Magni vinni ekki þessa keppni. Ég held að hann muni koma enn betur frá þessu ef hann verður í 2.-4. sæti. Og enn sýndu Íslendingar hvers þeir eru megnugir þegar mikið liggur við. Ekki er vitað hve mikil áhrif íslensku atkvæðin höfðu en þó virðist ljóst að þau skiptu miklu máli. En örugglega ekki öllu máli. Magni var að fá fína kosningu strax í upphafi keppninnar og áður en æðið rann á íslenska aðdáendur hans. Sjálfur hefur Magni komið gríðarlega sterkur frá keppninni. Ekki bara sem söngvari heldur hefur hann borið af öðrum keppendum hvað alla framkomu varðar. Verið landi og þjóð til sóma á allan hátt. Einhvern veginn sér maður
ekki Magna fyrir sér sem söngvara Supernova. Þá sveit skipa slíkir rugludallar að það getur engan veginn verið að Magni eigi nokkra samleið með þeim. Og tónlistarlega séð virðist hann í allt öðrum klassa svo ekki sé nú minnst á hljómsveit keppninnar. Þar eru vanir menn á ferð og er sú hljómsveit mörgum klössum betri en Supernova. Þessi hljómsveit ásamt nokkrum keppendum hefur boðist til að koma til Íslands og halda hljómleika með Magna í aðalhlutverki. Eftir þeim er beðið með mikilli eftirvæntingu. Að öðru. Íþróttafréttamönnum og öðrum áhugamönnum um íþróttir hefur orðið tíðrætt um Grýlu nokkra undanfarin ár. Hefur þessi Grýla átt rætur sínar að rekja til Svíþjóðar og
þátttökurétt á næsta heimsmeistaramóti sem fram fer víst í Þýskalandi eftir næstu áramót. Verður þess væntanlega langt að bíða að Grýla þessi verði til umfjöllunar í fjölmiðlum. Nú nýverið skaut ný Grýla upp kollinum. Er sú dönsk og aðaláhugamál hennar er knattspyrna. Íslenska landsliðinu hefur ekki tekist að leggja danska landsliðið í marga áratugi og Danagrýlan birtist enn á ný á Laugardalsvellinum á dögunum. Annars er það alveg með ólíkindum hve Íslendingar gera miklar kröfur til sinna íþróttamanna. Eftir stórbrotinn leik íslenska liðsins gegn Norður Írum á dögunum var í hugum margra formsatriði að leggja Dani að velli. Staðreyndin er auðvitað sú að lið Dana er gæðaflokkum betra en það norður írska og íslenska. Það var því vitað fyrirfram að við áttum alls ekki mikla möguleika í leiknum gegn Dönum sem hafa á að skipa einu besta og skemmtilegasta landsliði Evrópu í dag. 2-0 tapið gegn Dönum var því alveg viðunandi þrátt fyrir að alltaf sé djöfullegt að tapa landsleik. Stórhöfði
STÓRhöfði skrifar: helst tekin til umfjöllunar þegar handboltalandslið okkar hefur verið að leika gegn Svíum í handbolta. Leikmenn íslenska landsliðsins í handknattleik kváðu þessa sænsku Grýlu endanlega í kútinn í sumar með eftirminnilegum hætti þegar þeir slógu Svía út í aukaleikjum um
Fylkir bikarmeistari í 3. flokki:
Sigruðu Fjölni í úrslitum Dagurinn var tekinn snemma og mættu drengirnir kl. 08:30 til morgunverðar í Fylkishöll en þar beið þeirra hlaðborð að hætti Matta. Að morgunverði loknum var haldinn fundur og farið yfir leikinn og helstu áherslur. Bikarleikurinn var flautaður á kl. 12:00 á aðalvelli Fjölnis við frábærar aðstæður í 20°c hita. Leikurinn fór vel af stað þar sem Fylkismenn voru sterkari aðilinn. Nokkur ágætis færi litu dagsins ljós en markvörður Fjölnismanna stóð vaktina vel. Það var svo ekki fyrr en undir miðjan fyrri hálfleik að Fylkismenn fengu hornspyrnu frá hægri, fastur bolti á fjærstöng þar sem fyrirliði liðsins, Sölvi Þrastarson, var réttur maður á réttum stað, hamraði boltann upp í þaknetið, ótrúlegt mark og staðan 1-0. Fyrri hálfleikur var eign Fylkismanna og við óheppnir að bæta ekki við marki. Seinni hálfleik byrjuðu Fjölnismenn af krafti, ákveðnir að jafna
Hér eru strákarnir í 3. flokki Fylkis sem urðu bikarmeistarar á dögunum. Efri röð frá vinstri: Tryggvi Björnsson, þjálfari, Bergur Logi Lúðvíksson, Alexander Ágúst Sverrisson, Friðrik Ingi Þráinsson, Hafþór Hafliðason, Felix Hjálmarsson, Daníel Freyr Guðmundsson, Valdimar Fannar Sölvason, Viktor Ingi Kristjánsson og Kjartan Stefánsson, þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Sigurður Þór Reynisson, Orri Ólafsson, Guðlaugur Victor Pálsson, Sölvi Þrastarson, Alexander Már Steinarsson, Pape Mamadou Faye, Pétur Óskarsson, Ásgeir Örn Arnþórsson og Andri Þór Jónsson. ÁB-mynd EÁ sem fyrst. En í einni af skyndisóknum Fylkismanna kom fastur bolti með jörðinni inn fyrir teig Fjölnismanna í fætur Pape sem sneri snilldarlega á varnarmenn og lagði boltann á fjærstöngina og staðan
orðin 2-0. Jafnræði var síðan með liðunum eftir það og skiptust liðin á að sækja. Þegar rétt rúmlega 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma skoruðu Fjölnismenn eftir að Fylkismenn töpuðum boltanum
klaufalega á miðsvæðinu. Eftir markið var eins og allur vindur væri úr okkar mönnum. Gerðu Fjölnismenn harða hríð að marki Fylkis það sem eftir lifði leiks. Ótrúleg varsla Péturs á línu gerði
það að verkum að Fjölni tókst ekki að jafna. Sigurinn var Fylkis eftir hreint frábæran leik þar sem allir sem einn stóðu saman og unnu saman sem eitt lið. Fylkir lengi lifi.
4
Matur
Árbæjarblaðið
Matgæðingarnir Axelína M. Garðarsdóttir ásamt dóttur sinni, Heiðrúnu Maríu.
ÁB-mynd PS
Kjúklingur og ávaxtaréttur - að hætti Línu og Gunnars Hér er uppskrift af einum vinsælasta rétti fjölskyldunar, bæði fljótlegur og hollur.
Nýtt hjá okkur !
Þær á myndinni eru allar með hárlengingu frá Balmain Paris. Það tekur aðeins 2 tíma og kostar minna en þú heldur 6 mánaða ábyrgð á hárinu. Kíktu á nýtt og flott pöntunarkerfi á www.stubbalubbar.is Hárgreiðslustofa Helenu - stubbalubbar - Barðastöðum 1-5 Sími 586 1717 - panta tíma á netinu! www.stubbalubbar.is Opnunartími: mán-mið 10-18, fim 10-19 föst 10-18 laugard 10-16
Kjúklingaréttur í Satay sósu fyrir ca. 6 manns
osti og cashew hnetum. Þessu er blandað saman og að síðustu er kjúklingnum blandað saman við. Borið fram með góðu brauði, td. tómatbrauði. Tilvalið er að hafa góða kaloríubombu á eftir svona heilsurétti.
4 kjúklingabringur .
Skora á Sonju og Snorra Axelína M. Garðarsdóttir og Gunnar Böðvarsson, Þórðarsveig 22 skora á Sonju og Snorra í Þórðarsveig 24 að koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað. Við birtum uppskriftir þeirra í Árbæjarblaðinu sem kemur næst út í október. 1 krukka Blue Dragon Satay sósa. 1 poki spínat. 1 poki klettasalat. 1 rauð paprika. 1 rauðlaukur. 1 askja Cherry tómatar. Agúrka ef vill. Fetaostur eftir smekk. Cashew hnetur eftir smekk. Cashew hnetur brúnaðar á pönnu og látnar kólna. Kjúklingabringur skornar í strimla og steiktar á pönnu. Satay sósan sett saman við og látið malla smá stund. Paprika, rauðlaukur, cherry tómatar og agúrka skorið niður og sett í skál ásamt spínati, klettasalati, feta-
Ávaxtaréttur 2 snickers. 2 mars. 3 bitar Bounty. 2 hnefar makarónukökur. 1/2 l rjómi þeyttur. Niður skornir ávextir eftir smekk.
Snickers, mars, bounty skorið smátt og makarónukökur muldar. Þetta er sett saman við þeyttan rjómann og sett í form. Ávextir skornir niður og settir ofan á. Verði ykkur að góðu Axelína (Lína) og Gunnar.
Frá Hverfisráði Árbæjar:
Fjárhagstaða Strætó bs. er í rúst Á fundi Hverfisráðs Árbæjar 26. júlí sl. var gerð samþykkt þar sem ráðið mótmælti þeirri ákvörðun stjórnar Strætó bs. að skerða þjónustu strætó við Árbæjarhverfi og voru þessi mótmæli ítrekuð á fundi ráðsins 5. september sl. Einnig kom fram að í Árbæ varð strax mikil óánægja með þá breytingu sem gerð var á leiðakerfi
strætó fyrir um ári síðan. Það virðist krauma óánægja með leiðakerfi srætó í nánast öllum hverfum borgarinnar enda með ólíkindum að breyta öllu leiðakerfi strætó á einni nóttu. Þetta gerði notendur strætó mjög afhuga almenningssamgöngum í Reykjavík enda fækkaði notendum strætó stórlega í kjölfarið og ekki var því fyrir að fara að R-listinn hefði samráð við íbúa varðandi þessar breytingar. Í ágúst kannaði Hverfisráð Árbæjar hug íbúa í Árbæ til strætósamgangna í hverfinu og talað var við eldri borgara og krakka á framhaldsskólaaldri en þessir hópar nota strætó einna mest. Mikill sam-
hljómur var hjá þeim að það þurfi að vera tvær strætisvagnaleiðir í hverfinu, þær fari báðar í Björn Gíslason, formaður Hverfisráðs Árbæjgegnum hverfið, önnur ar. fari niður Miklubraut, Hringbraut og niður í miðbæ og hin niður á íbúar í Ártúnsholti þurftu að gera. Hlemm. Þau vildu einfaldlega Þessum skoðunum íbúa í Árbæ gamla leiðakerfið aftur þ.e. leið 10 hefur verið komið til borgarstjóra og 110. sem mun skoða málið. Í viðtölum við þessa tvo hópa Sú stjórnsýsluúttekt á Strætó bs. kom fram að eldri borgurum þótti sem er í gangi leiðir vonandi til mjög slæmt að fara í strætisvagn á þess að farið verði í ítarlega endurBæjarhálsi eins og var þegar leið S skoðun á leiðakerfi Strætó og við 5 var í gangi, vagninn verði að fara endurskoðunina verði þjónustan í gegnum hverfið. Krökkunum þótti við íbúa höfð að leiðarljósi. mjög langt að fara í vagninn á BæjBjörn Gíslason arhálsi eða Vesturlandsvegi eins og formaður Hverfisráðs Árbæjar.
dráttur og 360 milljón króna taprekstur umfram fjárveitingar sveitarfélaga. Þetta er ríflega milljón á dag sem Strætó BS tapaði umfram framlög sveitarfélaga. Ekkert sveitarfélaganna hafði tekið á þessum vanda fyrir kosningar því lausnin fólst í niðurskurði þjónustu við notendur. Ný stjórn fékk það verkefni óumbeðið. Árbærinn varð fyrir niðurskurði til viðbótar við alla þjónustu á höfuðborgarssvæðinu vegna niðurfellingar 10 mínútna tíðnarinnar. Árbærinn varð fyrst og fremst fyrir valinu því að S5 var samhliða öðrum leiðum á flestum stöðum. Starfsmenn Strætó bs hafa í kjölfarið breytt tímaáætlunum S6 sem passa nú vel við leið 19. Á þessar breytingar er
að reyna núna en alltaf hefur verið ljóst að vinna yrði að aukinni þjónustu til að sníða af agnúa og óþægindi til að sinna þessu stóra hverfi sem best. Sú vinna er að hefjast. Fyrir liggur ákvörðun stjórnar um rekstrarúttekt á fyrirtækinu sem mun gefa borgarfstjórn góðar upplýsingar um stöðu Reykjavíkur og stöðu fyrirtækisins Strætó BS. Þegar niðurstöðurnar koma nú í byrjun næsta mánaðar verður hægt að taka ákvarðanir um framtíðarfjármögnun, framtíðarskipulag samgangna í borginni og skipulag félagsins í takt við raunhæfa stefnumótun nýs meirihluta í borgarstjórn. Í því ferli er samráð við öll hverfi mikilvæg því skoða þarf alla borgina og bæta í kjölfarið aft-
ur þjónustuna í Árbænum. Nýr meirihluti leggur mikla áherslur á traustar almenningssamgöngur í og mun standa við gefin loforð. Áður en þau koma til framkvæmda verður að skoða reksturinn rækilega og stöðu Reykjavíkur í byggðasamlaginu. Í kjölfarið verður þjónusta við Reykvíkinga rækilega skoðuð út frá þörfum notenda þjónustunnar, bæði þeirra sem vilja raunhæfan kost við einkabílinn en ekki síður fremur þeirra sem verða að nýta sér almenningssamgöngur og urðu útundan við innleiðingu nýs leiðakerfis. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Komið hefur í ljós samkvæmt skýrslu sem lögð var fram á stjórnarfundi Strætó bs. 16 mars sl. að fjárhagsstaða Strætó bs er í rúst. Skýrslan hefur ekki enn verið gerð opinber en fulltrúi R-listans sem jafnframt var formaður stjórnar fyrirtækisins á þessum tíma upplýsti borgarráð ekki um skýrsluna, sennilega til að forðast óþægilega umræðu í aðdraganda kosninga. Hallarekstur fyrirtækisins lendir fyrst og fremst á Reykjavíkurborg sem greiðir sjötíu prósent af opinberum framlögum til fyrirtækisins. Sveitarfélögin sem standa að Strætó bs. hafa lagt fram til rekstrarins tæpar 1.600 milljónir og stefndi í júní að öllu óbreyttu ef
ekkert yrði aðhafst að tap fyrirtækisins á þessu ári hefði ekki orðið undir 300 milljónum króna umfram þessar 1.600 milljónir sem eigendur höfðu þá þegar lagt fram til rekstrarins.
Ljóst er að markmið R-listans sáluga um eflingu almenningssamgangna gengu ekki eftir. Á valdatíma R-listans jók borgin framlag sitt til almenningssamgangna um 330% en á sama tíma fækkaði farþegum um 26%. Rekstrartekjur fyrir árið í ár eru nú þegar langt undir áætlunum. Þrátt fyrir dýrt og umdeilt leiðakerfi sem sett var í gagnið fyrir ári síðan heldur farþegum áfram að fækka. Mörg önnur markmið tengd bættri þjónustu hafa heldur ekki náð fram að ganga eins og til dæmis forgangur í umferð, upplýsingar um leiðakerfi inni í vögnum og rafræn gjaldtaka. Ný stjórn fékk ekki eftirsóknarvert verkefni í hendur enda beið hennar 300 milljóna króna yfir-
Árbæingar vilja fá gamla leiðakerfið aftur
26% fækkun farþega frá 1994
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi og stjórnarmaður i Strætó bs.
Öflugt hverfastarf is- og fegrunardaginn og síðasta heimaleik Fylkis en á Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts tók til starfa næsta ári verður blásið til veglegrar hverfishátíðar þar 1. júní 2005 að Bæjarhálsi 1 sem útibú frá Þjónustumiðsem m.a. verður fagnað 40 ára afmæli Fylkis. stöð Breiðholts. Í byrjun árs tók sérstakur framkvæmdaFöstudaginn 15. september n.k. hefst samgönguvika í stjóri til starfa við Þjónustumiðstöðina en endanlegur Reykjavík í fjórða sinn en vikan er samevrópskt átak þar aðskilnaður þjónustumiðstöðvanna verður um næstsem um 1000 borgir taka þátt. Þjónustumiðstöð Árbæjar komandi áramót. og Grafarholts hefur verið valin til að taka við SamHverfin sem fá þjónustu starfsmanna Þjónustumiðgöngublóminu og varðveita það í eitt ár. stöðvarinnar eru Árbær, Grafarholt og NorðSamgöngublómið er táknræn hvatning lingaholt en íbúar hverfanna voru 1. des. 2005 frá borgaryfirvöldum til íbúa hverfanna 13.150. Nú í haust eru börn á leik - og grunnskólavarðandi umferðar- og umhverfismál. aldri 2.750 í tíu leikskólum og fimm grunnskól- EVRÓPSK SAMGÖNGUÞjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts um. er þekkingarmiðstöð í umhverfismálum Eitt af mikilvægustu hlutverkum þjónustu- VIKA og er það því kærkomið tækifæri fyrir miðstöðva er að stuðla að og styrkja margvíslegt okkur að taka þátt í að efla umræðu um umhverfismál og hverfastarf og er það því ánægjulegt að geta tekið þátt í betri samgöngur innan hverfanna þriggja. umhverfis- og fegrunarátaki borgarstjóra undir slagorðFleiri verkefni bíða nýrrar Þjónustumiðstöðvar sem inu ,,Tökum upp hanskann fyrir Reykjavík’’. byggja á öflugu hverfastarfi m.a. innleiðing og framLaugardaginn 16. sept. n.k. er komið að Árbæingum að kvæmd forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar í samstarfi taka upp hanskann fyrir Reykjavík en safnast verður við börn og ungmenni sem og foreldra þeirra, íbúa og saman við Selásskóla, á Árbæjartorgi við Árbæjarkirkju stofnanir sem á einn eða annan hátt koma að málefnum og Ártúnsskóla kl. 11:00 þar sem verkefni, verkfæri og barna og ungmenna. Nýráðinn verkefnisstjóri frístunda vesti verða til reiðu. Ætlunin er að fá íbúa hverfisins til og félagsauðs mun á næstu mánuðum innleiða auknar liðs við starfsmenn borgarinnar í því að snyrta hverfin; áherslur á heilsueflingu, heilbrigðan lífsstíl, íþróttir og tína rusl, hreinsa veggjakrot, leggja torfur, laga net á fóttómstundir fyrir unga sem aldna í samráði við íbúa, boltamörkum, kantskera, sópa og bæta girðingar. Að stofnanir hverfisins og félagasamtök. loknu góðu dagsverki verður safnast saman kl. 14:00 við Starfsmenn Þjónustumiðstöðvarinnar þakka íbúum Fylkishöllina þar sem grillað verður og ungmenni úr fyrir samstarfið á fyrsta starfsári og vonast eftir áframhverfinu skemmta. Síðasti heimaleikur Fylkis hefst kl. haldandi góðu samstarfi. 16:00 og eru þeir sem klæddust vestum merktum átakinu leystir út með miðum á leikinn. Áfram Fylkir! Árleg hverfishátíð Árbæjar fellur saman við umhverf-
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, tekur til hendinni í fegrunarátaki í einu hverfa Reykjavíkur á dögunum.
Frá Hverfisráði Grafarholts og Úlfarsárdals:
Nýtt Hverfisráð Grafarholts og Úlfarsárdals hefur þegar tekið til starfa og er farið að vinna að hagsmunamálum íbúa hverfisins. Á myndinni eru frá vinstri: Hrafnhildur B. Baldursdóttir, Steinarr Björnsson, formaður ráðsins, Sólveig Reynisdóttir framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts og Jóhanna Eyjólfsdóttir.
Nýtt hverfisráð í Grafarholti - eftir Steinarr Björnsson formann
Í sumar var stofnað nýtt Hverfisráð Grafarholts- og Úlfarsárdals en áður tilheyrði Grafarholt Hverfisráði Árbæjar. Þannig hefur verið undirstrikuð sérstaða Grafarholts m.a. sem eins yngsta hverfis Reykjavíkur. Þannig gefst einnig tækifæri til að huga vel að tengslum hverfanna við skipulags nýs hverfis í Úlfarsárdal. Hverfisráðin eru kosin í Borgarstjórn og er hlutverki m.a. lýst á þennan hátt í Borgarstjórnarsam-
þykkt: ,,Hverfisráð eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna.’’ Hið nýja hverfisráð hefur þegar hafið vinnu við úrlausn á aðkallandi málum í hverfinu. Sem dæmi má nefna frágang á gangstéttum og öðrum mannvirkjum, skort á aðstöðu til íþróttaiðkunar og vandamál varðandi almenningssamgöngur, til að mynda milli Árbæjar
og Grafarholts. Við höfum þegar fundað með sumum hagsmunaaðilum og mun sú yfirferð standa fram á haustið. Nú þegar höfum við fengið góð viðbrögð við tillögum ráðsins til úrbóta og það er ljóst að nýr meirihluti í borginni er ákveðinn í því að láta verkin tala. Hverfisráðinu er ekkert óviðkomandi er varðar málaflokka Borgarinnar í hverfunum. Við viljum hvetja íbúa hverfisins til að koma tilmælum og ábendingum til skila með því að
Steinarr Björnsson, formaður Hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsárdals. hafa samband við Þjónustumiðstöð Árbæjar sem er staðett í Orkuveituhúsinu. Það er einnig hægt að fá ýmsar upplýsingar í gegnum heimasíðu Reykjavíkurborgar, reykjavik.is, en þar er hægt að sjá fundargerðir hverfisráðanna.
Grafarholt í fremstu röð Nú er Grafarholt að komast á lokastig uppbyggingar. Það er mikilvægt að vanda vel til verks nú þegar við leggjum lokahönd
á hverfið hvað varðar þjónustu og aðstöðu borgarbúa. Allar forsendur eru fyrir hendi til að Grafarholt verði að eitt mest aðlaðandi útverfi á Höfuðborgarsvæðinu og er það ætlun hverfisráðsins að vinna að því af krafti. Við hvetjum alla íbúa í hverfinu til að taka þátt í því að koma Grafarholtinu í fremstu röð. Með bestu kveðjum, Steinarr Björnsson
Nýtt grasæfingasvæði verður sett upp í Grafarholti Nýlega var samþykkt í Borgarráði tillaga frá Íþrótta- og Tómstundaráði um að setja upp grasæfingarsvæði í Leirdal í Grafarholti. Um er að ræða nokkuð stórt svæði, 100 x 600 metrar og er
áætlað að hægt verði að stunda æfingar þar strax næsta vor en framkvæmdir hefjist í haust. Unnið er hörðum höndum að því hjá borgaryfirvöldum að finna lausn á vanda vegna skorts á
íþróttaaðstöðu í hverfi Grafarholts. Nýja grasæfingarsvæðið mun leysa úr bráðum aðstöðuvanda Knattspyrnudeildar Fram og nýtast íbúum hverfisins á ýmsa vegu.
Til framtíðar er litið til þess a heimavellir Fram verði í Úlfarsárdal og Grafarholti. Þegar er hafinn undirbúningur þess að koma upp gervigrasvelli á svæðinu. Við skipulag nýs hverfis í
Úlfarsárdal er gert ráð fyrir nýju íþróttahúsi, sundlaug og knattspyrnuvelli svo eitthvað sé nefnt og aðstaða til íþróttaiðkunar verði góð.
10
11
Pæjumótið á Siglufirði 2006
Árbæjarblaðið
Pæjumótið á Siglufirði 2006
Árbæjarblaðið
Fótbolti í drullunni.
Jóhanna Breiðdal að smyrja.
Pæjumót á Sigló
Stelpurnar í 6. flokki.
Systurnar Júlía og Áshildur.
Eins og síðustu sumur héldu stelpurnar úr Fylki til Siglufjarðar á Pæjumótið. Að þessu sinni fóru stelpur úr 5. fl, 6. fl og nokkrar stelpur úr 4. fl tóku þátt í 7 manna bolta. Liðunum gekk misvel á mótinu og náðu stelpurnar úr 5. fl. C-liða að spila til úrslita við Stjörnuna en töpuðu 1-0 og stelpurnar úr 4. fl lentu í 3. sæti. Veðrið setti svip á mótið, hellirigning og urðu vellirnir eitt drullusvað þannig að
Heiðrún og Elísa. Stelpurnar að hampa bikarnum.
ekki var keppt á sumum þeirra vegna bleytu og á þeim sem spilað var var fótboltinn líkari mýrarboltanum á Ísafirði en knattspyrnu. En stelpurnar höfðu bara gaman af og voru fljótar að aðlaga sig aðstæðum. Stuðningsmenn Fylkis voru með tjaldstæði í miðbænum og ríkti þar mikil og góð stemming, þar var haldin sameiginleg grillveisla á laugardagskvöldinu og skemmtu menn og konur sér hið besta.
Leifur og Hermann.
Þjálfararnir Natasha og Hörður. Sylvía Ósk Breiðdal.
C-liðið í 5. flokki.
Bjarni, Sólveig og Guðrún.
A-liðið í 5. flokki.
4. flokkur hafnaði í 3. sæti.
Hlíf og Leifur. Sigri fagnað og úrslitin framundan..
Hart barist í úrslitaleiknum.
Sigrún Lilja, Júlía, Thelma og Ylfa.
Drífa Guðrún, Sigrún og Júlía leggja á ráðin í leikhléi. C-liðið í 5. flokki hafnaði í 2. sæti.
Góðum árangri fagnað - að komast í úrslitaleikinn.
4. flokkur að spila um 3. til 4. sæti.
Sigló að kvöldlagi.
Guðbrandur, Áshildur og Sigrún.
Lúnir fætur í drúllusvaðinu á Siglufirði.
Laufey Þóra með pabba sínum Bergþóri.
12
Fréttir
Árbæjarblaðið
Thai Shop Matstofu vel tekið - segir einn eigendanna, Kristmann Þór Einarsson
,,Við opnuðum fyrir nokkrum dögum og ég verð að segja eins og er að viðtökurnar hafa komið okkur þægilega á óvart. Í raun segja þessar viðtökur okkur ekki annað en að full þörf var á svona stað í þessu hverfi,’’ segir Kristmann Þór Einarsson, einn eigenda veitingastaðarins Thai Shop Matstofa sem er til húsa að Lynghálsi 4. Kristmann Þór á staðinn ásamt tælenskri eiginkonu sinni, systur hennar og bróður og eiginkonu hans. ,,Þetta er fyrst og fremst tælenskur veitingastaður og sá fyrsti sinnar tegundar í Árbæjarhverfi. Við getum tekið 70 gesti í sæti í mat og bjóðum upp á heitan mat í hádeginu og alltaf nýja matseðla, alla daga,’’ segir Kristmann Þór. Hjá Thai Shop Matstofu er opið í hádeginu og alla
virka daga á kvöldin. Um helgar er einnig opið á kvöldin en staðurinn hefur vínveitinga- og skemmtanaleyfi fram undir morgun ef því er að skipta. Kristmann Þór og eiginkona hans eiga innflutningsfyrirtækið Thai Shop sem er til húsa í Kópavogi. Fyrirtækið flytur inn hrísgrjón, sósur og fleira gott til tælenskrar matargerðar sem viðskiptavinir Thai Shop Matstofu fá nú að njóta. ,,Við höfum nú þegar tekið á móti mörgum hópum frá fyrirtækjum á kvöldin. Við bjóðum mjög góða rétti og einnig eru hjá okkur mjög vandaðar karókí-græjur sem hafa slegið í gegn. Það er mikið um að fyrirtæki panti staðinn á kvöldin og áhuginn er greinilega mikill,’’ segir Kristmann Þór.
,,Það hefur tekið okkur fjóra mánuði að undKristmann Þór Einarsson ásamt öðrum irbúa eigendum tælenska veitingastaðarins opnunThai Shop Matstofa. ina. þann daginn sem ÁrÞetta hefur verið mikil bæjarblaðið leit við í vinna og álag á mitt fólk en Thai Shop Matstofu við höfum lagt fram nær voru í boði kjúklingaalla vinnuna við undirbúnréttir í ,,Matsamnn inginn og leitast við að hafa Karry’’ og ,,Paneng þetta allt saman mjög vandKarry’’, kjúklingaað og snyrtilegt. Eins og ég vængir ,,Paló’’, steiktsagði áður hafa móttökurnar núðlur með grænar verið frábærar og við ermeti og djúpsteiktar um mjög þakklát fyrir það rækjur með súrsætri hvernig Árbæingar og aðrir sósu. Rétturinn kostnágrannar hafa tekið okkar 765 krónur. ur,’’ sagði Kristmann Þór. Loks má geta þess Eins og áður sagði býður að hjá Thai Shop MatThai Shop Matstofa upp á stofu verða af og til í girnilega tælenska rétti á gangi tilboð, tveir fyrhverjum degi. Daglega er ir einn. matseðill dagsins í boði og
Thai Shop hefur opnað að Lynghálsi 4 í sama húsi og verslun Europris.
Kæru viðskiptavinir! Erum komnar frá París með nýja strauma í tísku Takk fyrir þolinmæðina meðan við vorum frá vinnu!
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00
Pöntunarsími: 567-6330
13
Fréttir
Árbæjarblaðið
Fegrunarátak og matarboð hjá Fylki á laugardaginn:
Tökum til hendinni
Það verður mikið um að vera í Árbænum næsta laugardag og allir sem vettlingi geta valdið ættu að taka daginn frá. Fyrst skal nefna fegrunarátak Reykjavíkurborgar. Áhugasamir íbúar get mætt við Ártúnsskóla, á Árbæjartorgi og við Selásskóla kl. 11 að morgni laugardags. Þar verður þeim úthlutað verkfærum og sérstökum vestum sem síðar um daginn tryggja viðkomandi aðgöngumiða á síðasta heimaleik Fylkis í Landsbankadeildinni. Á áðurnefndum stöðum verða starfsmenn Reykjavíkurborgar og leiðbeina fólki. Ætlunin er að koma sem mestu í verk, hreinsa veggjakrot, leggja torfur, týna rusl, lagfæra girð-
ingar, kantskera, laga net í fótboltamörkum og svona mætti lengi telja. Að loknu góðu verki verður síðan safnast saman við Fylkishöllina kl. 14.00. Þar verður grillað g boðið upp á skemmtiatriði sem ungmenni úr hverfinu sjá um. Og síðast en ekki síst verður boðið upp á hina árlegu síldarveislu Fylkis og plokkfisk sem hinn landsfrægi kokkur Úlfar Eysteinsson mun matreiða (sjá nánar auglýsingu frá Fylki annars staðar í blaðinu). Hin árlega Hausthátíð í Árbæ fellur inn í þennan ágæta laugardag þetta árið en á næsta ári verður Hausthátíðin með veglegasta móti og þar má búast við að 40 ára afmæli Fylkis verði í hávegum.
Karlakórinn Stefnir - söngur og gleði Láttu drauminn rætast! Karlakórinn Stefnir getur bætt við sig söngmönnum í allar raddir. Spennandi verkefni í góðum félagsskap. Nánari upplýsingar hjá Herði í síma 694-7525, Atla í síma 864-8019 eða á æfingum í Brúarlandi á þriðjudagskvöldum.
Nú verður tekið til hendinni í Árbænum á laugardaginn.
Fegrunarátak Árbæjar 16. september Mæting kl. 11.00
kl. 14.00–15.30
• Við Ártúnsskóla • Á Árbæjartorgi við Árbæjarkirkju
• Fylkisvöllur • Veitingar og skemmtiatriði
• Við Selásskóla
Gerum okkur glaðan dag og tökum upp hanskann fyrir Reykjavík
14
Fréttir
Árbæjarblaðið
Skemmtileg keppnisferð 4. flokks til Spánar:
Fylkisstrákarnir stóðu sig mjög vel Í byrjun júlí héldu strákar á eldra ári í 4. fl. karla í keppnisferð til Spánar á Costa Blanca Cup með tvö lið sem tóku þátt hvort í sínum riðli. Fylkir 1 komst í 16-liða úrslit og tapaði þar í vítaspyrnukeppni og bráðabana eftir herfileg mistök hjá dómara leiksins sem var illa staðsettur til að sjá að boltinn fór inn fyrir marklínu eftir að hafa lent í slánni. Fylkir 2 tókst ekki að komast upp úr sínum riðli þrátt fyrir drengilega baráttu. Gríðarlegur styrkleiki var á mótinu og var gaman að sjá til
margra þeirra drengja sem þar spiluðu og virtust þar vera framtíðar atvinnumenn á ferð. Á mótinu voru einnig tvö önnur lið þ.e. KR og Fjölnir og komst hvorugt þeirra áfram. Fyrir mót og milli leikja var tíminn notaður til að skemmta sér og slógu drengirnir hvergi af í því frekar en á vellinum. Ffarið var í tívolí, vatnsrennigarða og að sjálfsögðu á ströndina. Einnig var farið í verslunarleiðangur og fleira skemmtilegt gert. Ferðinn tókst hið besta að allra mati og voru lögð drög að því að koma aftur að ári til Spánar og vinna mótið.
Lagt af stað til Spánar.
Fararstjórarnir Gylfi, Þórður og Ársæll.
Fylkir 1: Aftari röð frá vinstri: Kári þjálfari, Jóhann, Ari, Steinar, Davíð Þór og Snæþór. Neðri röð frá vinstri: Arnór Haukur, Benedikt, Andri, Pétur, Davíð, Elís og Steinn Haukur.
Kiddi aðstoðarmaður að bera vatn fyrir leik.
Fylkir 2. Aftari röð frá vinstri: Óli þjálfari, Kristján Pétur, Arnór, Ásgeir, Sigurgeir, Björgvin og Hjalti. Fremri röð frá vinstri: Daníel, Magnús, Gunnlaugur, Viktor og Snorri.
Stuðningsmenn voru á öllum aldri, Erika Líf Káradóttir.
Haustlitaferð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður farin 23. september næstkomandi. Lagt verður af stað frá Valhöll klukkan 10:00. Meðal annars verður ekið að Úlfljótsvatni og grillað þar og farið í leiki, Nesjavallavirkjun heimsótt og litið á framkvæmdir við Hellisheiðarvirkjun. Tekið er við skráningu í ferðina í Valhöll til klukkan 16:00 föstudaginn 22. september í síma 515-1700. Verð á mann fyrir fullorðna 1.000,- og börn undir 18 ára 500,- krónur. Fararstjóri verður Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður.
Árbæjarblaðið
Fréttir
18/10
GÆÐASTÁL
Vönduð stálpottasett Orkusparandi Þrefaldur botn • 12 hlutir Skrúðganga á ströndinni.
Aðeins kr. 22.000,Kynningarverð
Hnífaparatöskur 72 hlutir Gyllt eða stál Aðeins kr. 14.500,-
Óli, Alex og Kári.
Grilltíminn framundan
Eldhúshnífar Steikarasett 24 hlutir Aðeins kr. 12.000,-
Pöntunarsími893 894 2666 5272 Pöntunarsími
Opið alla daga frá kl. 10.00 til 22.00. Sendum í póstkröfu ef óskað er. Póstburðargjald greiðist af viðtakanda
Ice-Atlantic ehf. Hitinn var mikill og gott að kæla sig niður.
Sími 893 2666
SKÓVERSLUN Í ÞÍNU HVERFI Loðfóðruð stígvél
Stærðir 25-35 Verð kr: 4.795.-
Með hverju keyptu pari fylgja inniskór að eigin vali á barnið! Vandaðir skór á alla fjölskylduna í stærðum 16 - 50
MJÓDDINNI S: 557 1291
SPÖNGINNI S: 587 0740
16
Fluguveiði
Árbæjarblaðið
Myndlistanámskeið fyrir börn KORPÚLFSSTÖÐUM
Krafla.is
www.myndlistaskolinn.is sími 551 1990
Jón Ársælsson að landa einum af löxunum 9 í Hofsá. Orange Kraflan er pikkföst í kjaftvikinu.
Jón ,,Skelfir’’ Ársælsson var í banastuði í Hofsá: Viltu vinna í þínu hverfi þar sem ríkir góður starfsandi? Eftir farandi störf eru laus í leikskólum Reykjavíkurborgar Leikskólakennari / leiðbeinandi
.. .. .. .. .. .. .. .. .. .. ..
Bakkaborg, Blöndubakka 2, sími 557-1240 Blásalir, Brekknaási 4, sími 557-5720 Brekkuborg, Hlíðarhúsum 1, sími 567-9380 Geislabaugur, Kristnibraut 26, sími 517-2560 Heiðarborg, Selásbraut 56, sími 557-7350 Jöklaborg, Jöklaseli 4, sími 557-1099 Klettaborg, Dyrhömrum 5, sími 557-1099 Kvarnaborg, Árkvörn 4, sími 567-3199 Maríuborg, Maríubaug 3, sími 577-1125 Rauðaborg, Viðarási 9, sími 567-2185 Rofaborg, Skólabæ 6, sími 567-2290/587-4816 Ösp, Iðufelli 16, sími 557-6989
Sérkennsla Fellaborg, Völvufelli 9, sími 557-2660. Um er að ræða vinnu með einhverft barn. Seljakot, Rangárseli 15, sími 557-2350. Leitað er eftir leikskólakennara eða þroskaþjálfa til að vinna með sjónskert barn. Um er að ræða annaðhvort 100% stöðu eða 50% stöðu eftir hádegi. Yfirmaður í eldhús Klettaborg, Dyrhömrum 5, sími 567-5970 Rofaborg, Skólabæ 6, sími 567-2290/587-4816 Vinagerði, Langagerði 1, sími 553-8085/694-6621 Völvuborg, Völvufelli 7, sími 557-3040
Mokveiddi á Kröfluna
,,Þetta var afar skemmtilegur veiðitúr. Það er ekki ofsagt að orange Kraflan hafi bjargað túrnum hjá mér. Það var mjög mikið vatn í ánni og því reyndust smáflugur ekki vel. Ég setti því á hjá mér tommulanga Kröflu orange túpu og er skemmst frá því að segja að ég tók hana ekki af það sem eftir lifði af veiðitúrnum,’’ sagði Jón ,,Skelfir” Ársælsson í samtali við Árbæjarblaðið. Jón ,,Skelfir’’ var við veiðar í Hofsá í Vopnafirði dagana 4. til 7. september. Hann mokveiddi á orange Kröfluna sem hann keypti á Krafla.is áður en lagt var í veiðitúrinn. Alls fékk Jón 9 laxa og alla á umrædda flugu. ,,Mér er flugan hugleikin því ég veiddi minn fyrsta lax í Grímsá fyrir nokkrum áratugum á orange Kröflu. Mér finnst flugan alveg mögnuð og ég veiddi á túpuna þrátt fyrir að ég væri með flotlínu. Þetta var alveg magnaður túr og ég fékk alla mína fiska á orange Kröfluna,’’ sagði Jón.
Kröfluflugurnar eru nú fáanlegar aftur á markaðnum en þar er um að ræða flugur eftir Kristján Gíslason sem hann hannaði á löngum ferli sem fluguhnýtingamaður. Flugurnar eru til sölu í netversluninni á Krafla.is en þar er einnig að finna hinar þekktu silungaflugur Gylfa Kristjánssonar. Í sumar hafa margir veiðimenn fengið góða veiði á þessar flugur. Við fréttum af veiðimnni sem fékk 18 bleikjur og vænan urriða í Víidalsá. Allir fiskarnir tóku fluguna Hófí. Þá missti sami veiðimaður Maríulaxinn sinn á rauða Kröflu í sama veiðitúr. Vatsnleysi var viðvarandi vandamál í mörgum ám í ágúst. Þá fréttum við af nokkrum veiðimönnum sem fengu góða laxveiði á silungafluguna Mýslu. Einn fékk 4 laxa og 5 stóra sjóbirtinga á fluguna í Laxá í Leirársveit og einnig fréttum við af þremur löxum sem komu á land á Mýslu í Langá á Mýrum.
Aðstoð í eldhús Brekkuborg, Hlíðarhúsum 1, sími 567-9383. Um er að ræða 75% stöðu. Jöklaborg, Jöklaseli 4, sími 557-1099. Um er að ræða 50% stöðu. Kvarnaborg, Árkvörn 4, sími 567-3199. Um er að ræða 50% stöðu. Maríuborg, Maríubaug 3, sími 577-1125. Um er að ræða 75% stöðu. Vinnutími frá kl.10-16.
Nánari upplýsingar um þessi störf veita leikskólastjórar í viðkomandi leikskólum. Einnig veitir Starfsmannaþjónusta Menntasviðs upplýsingar í síma 411 7000. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um laus störf er að finna á www.menntasvid.is Öll laus störf í leik-og grunnskólum eru auglýst á www.menntasvid.is
Jón ,,Skelfir’’ Ársælsson sporðtekur einn laxinn af níu sem hann landaði á orange Kröfluna í Hofsá.
Já, en kallinn á allt í sambandi við veiði! En ekki þetta! Flugubox úr mangóviði og við gröfum nafn veiðimannsins á boxið - þéttsetið íslenskum flugum í fremstu röð!!
Hágæðaflugur íslensk hönnun Sjón er sögu ríkari!! Kíktu á www.Krafla.is Þar finnur þú gjöfina sem alla fluguveiðimenn dreymir um
,,Kröflurnar eru númer eitt í fluguboxinu mínu. Alltaf fyrstar á og skila mér alltaf mjög góðri veiði,’’ segir Kristján Hilmir Gylfason.
Besta vörnin í netverslun í dag Framleiðandi Skrautás ehf - Bíldshöfða 14 - Sími: 587-9500 / 698-2844
Kristján Hilmir með glæsilega veiði úr Blöndu í sumar á flugur frá Krafla.is ,,Einfaldlega langbestu flugurnar, hvort sem litið er til áhuga fiska eða endingar.’’
18
Fréttir
Árbæjarblaðið Auglýsing
Miðstöð ráðgjafar og þjónustu, útibú SPV Árbæ.
Húsfélagaþjónusta SPV öflugur liðsauki Góður liðsauki við rekstur húsfélaga Húsfélagaþjónusta SPV léttir starf gjaldkera húsfélaga verulega með traustri ráðgjöf. Þjónustan sparar tíma og fyrirhöfn og er sérsniðin að þörfum hvers húsfélags, fjármál húsfélagsins verða öruggari og bókhaldið aðgengilegra.
.
Húsfélagaþjónustan felur m.a. í sér: Gjöld húsfélagsins eru innheimt með greiðsluseðlum sem sendir eru greiðendum. Gjaldkera er sendur reglulega listi yfir greidda og ógreidda greiðsluseðla.
. . . .
Greiddir eru reikningar húsfélagsins á réttum tíma og gjaldkera sent reglulega yfirlit þar um. Árlegt rekstraruppgjör. Færslur sem myndast í innheimtu- og greiðsluþjónustunni eru grunnur að bókhaldi húsfélagsins. Um hver áramót sendir SPV gjaldkera húsfélagsins sundurliðað yfirlit yfir tekjur og gjöld fyrra árs. Hagstæð framkvæmdalán til viðhaldsverkefna með sveigjanlegum lánstíma. Viðskiptayfirlit fyrir hverja íbúð.
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Egilshöllinni Sími: 594-9630 www.orkuverid.is Alhliða líkamsrækt og sjúkraþjálfun
Eitt númer
410 4000
.
Netbanka þar sem gjaldkeri fær góða yfirsýn yfir fjármálin. Þar hefur gjaldkeri ávallt upplýsingar um stöðu sjóðs og viðskiptayfirlit yfir hvern greiðanda. Starfsmenn SPV leggja metnað sinn í að veita faglega og persónulega ráðgjöf þar sem markmiðið er að stuðla að traustu langtímaviðskiptasambandi við sérhvert húsfélag. Allar nánari upplýsingar um húsfélagaþjónustu SPV má fá með því að hringja í síma 575-4096 eða með því að senda tölvupóst á hrefna@spv.is SPV býður húsfélögum kynningu á þjónustu sinni á húsfélagsfundi.
Þetta er tanngarður
Hjá Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins gerir þú mikið úr litlu. Gott dæmi um það F í t o n / S Í A
er vegleg námsmannamáltíð á Subway fyrir aðeins 500 kr. auk frábærra annarra tilboða. Fáðu góða aðstoð við fjármálin svo þú getir gert mikið úr litlu. Nánari upplýsingar á www.spar.is eða í næsta sparisjóði. Við hlökkum til að heyra frá þér.
Gerðu mikið úr litlu!
SPV - Sparisjóður vélstjóra - Hraunbæ 119 - Aðalsími 575 4100 - Þjónustuver 575 4100 - spv@spv.is - www.spv.is
Ef þig langar að koma fólki á óvart með nýju og skemmtilegu útliti er lítið mál að búa til mjög flottar gervitennur úr appelsínuhýði. Enga feimni, fáðu þér skínandi bros!