Skip to main content

Arbaejarbladid 7.tbl 2006

Page 1

7. tbl. 4. árg. 2006 júlí

ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005

Árbæjarblaðið

Eitt númer

410 4000

Dreift ókeypis í Ártúnsholti, Árbæ og Grafarholti

Pantið tíma í síma 511–1551 Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3

Leifur Sigfinnur Garðrsson hefur staðið í ströngu í sumar sem þjálfari Fylkis. Í blaðinu að þessu sinni birtum við viðtal við Leif á bls. 8.

Vantar þig flugur fyrir sumarið? Kíktu þá á www.Krafla.is Íslenskar laxa- og silungaflugur í hæsta gæðflokki Bilastjarnan_02_001.ai

18.11.2004

15:18:40

Opið virka daga frá kl. 9-19 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is

Sjón er sögu ríkari

Komdu beint til okkar! - og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu Bílastjarnan ehf. · Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686

I oo jb agpbo

q`mfa¹md odg ] \f\pk\

Ë `dia\g_\md g`d \ ] \f\pkph Bm`d ngph\o i`odip G inphn fi i`odip


2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.

Nýtt hverfisráð Skipað hefur verið nýtt Hverfisráð Árbæjarhverfis í kjölfar borgarstjórnarkosninganna eins og við greinum frá á öðrum stað í blaðinu að þessu sinni. Nýs Hverfisráðs bíða mörg erfið og brýn verkefni undir formennsku Björns Gíslasonar sem tekur við formennsku í ráðinu af Degi B. Eggertssyni. Þar má nefna aðstöðumálin hjá Fylki, ýmis skipulagsmál og síðan bíða margir Árbæingar eftir því að úr rætist í málefnum nýrrar heilsugæslu. Það er vitaskuld ekki í verkahring Hverfisráðs að koma á fót nýrri heilsugæslustöð en ráðið getur eins og í mörum öðrum málum látið í sér heyra og mun örugglega gera það. Árbæingar eru eins og aðrir íbúar höfuðborgarsvæðisins orðnir hundleiðir á leiðinlegu veðri og segja má að sumarið hafi ekki enn látið sjá sig. Ekki er öll nótt úti enn og vonum við að það sem eftir er af sumari verði betra veður en verið hefur. Árbæjarblaðið kemur nú út í sjöunda sinn á árinu. Næsta blað kemur út 24. ágúst. Við tökum okkur nú örlítið sumarfrí frá útgáfunni og líður því aðeins lengri tími nú á milli blaða en verið hefur. Eftir sem áður koma þó 12 blöð út á árinu. Stefán Kristjánsson

abl@centrum.is

Frábær skemmtun Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu í Þýskalandi hefur verið stórkostleg skemmtun. Að vísu hafa sumir leikirnir verið óskaplega slakir eins og gengur á stórmótum en mikil stemning og mikið fjör engu að síður. Víst er að þegar þessari mánaðarveislu fer senn að ljúka munu margar húsmæðurnar taka gleði sína á ný enda margar hverjar orðnar þreyttar á ósköpunum. HM í knattspyrnu er alveg ofboðslegt batterí. Umstangið er hreint ótrúlegt og áhugi almennings slíkur að uppselt er á alla leiki, sama hvaða þjóðir eru að leika hverju sinni. Og misjafnlega hefur þjóðunum gengið. Margir Íslendingar hafa haldið með Englendingum en enn einu sinni koma enskir knattspyrnumenn á óvart með getuleysi sínu á knattspyrnuvellinum. Og aðra heimsmeistarakeppnina í röð fellur liðið úr keppni eftir vítaspyrnukeppni. Alveg merkilegt að snjallir knattspyrnumenn skuli ekki geta klárað vítaspyrnur á stórmóti. Atvinnumenn sem gera ekkert annað en að leika knattspyrnu og þiggja dágóð laun fyrir. Annars er það ekkert skrítið að Englendingar skuli ekki geta meira í knattspyrnunni. Ensku liðin eru uppfull af erlendum leikmönnum og enskir komast ekki að hjá bestu liðunum. Nefna má Chelsea og Arsenal í því sambandi. Oft veltir maður því fyrir sér

Mikið hefur gengið á í Þýskalandi undanfarnar vikur á HM. stórkostlega frammistöðu gegn Svíum. Þeir voru ekki margir sem höfðu trú á því að okkar mönnum tækist að slá Svíana út í forkeppninni en það tókst og hin eina sanna Svíagrýla er látin og um hana verður ekki rætt næstu árin. Öruggt má telja að íslenskir handknattleiksunnendur fjölmenni á HM í Þýskalandi og menn eru sammála um að keppnin verði sú mesta og besta til þessa. Og vonandi gengur okkar mönnum allt í haginn. Stórhöfði

STÓRhöfði skrifar: hvernig staðan yrði hér á landi ef það gæti einhvern tíman komið til þess að við Íslendingar kæmumst í svona keppni. Á því verður víst löng bið og alls ekki víst að maður lifi þau tímamót. Reyndar hefur íslenska landsliðið í handbolta séð um að viðhalda þjóðarstolti okkar undanfarna áratugi og á því verður engin breyting nú. Íslenska handboltalandsliðið er komið á HM í Þýskalandi í janúar 2007 eftir

Þú færð allt í veiðiferðina hjá okkur Kasthjól frá 1990 kr Fluguhjól frá 4990 kr Nielsen flugu- og kaststangir

Arkóveiði Veiðihöllinni. Krókhálsi 5 G Sími 587 5800 - 893 7654 www.arko.is


Landsbankinn er 120 ára! Afmælisfagnaður í Árbæjarútibúi, Kletthálsi 1, föstudaginn 7. júlí frá kl. 13.00 - 15.00. • Ingó Idolstjarna tekur lagið • Moli trúður skemmtir börnunum • Pylsur fyrir alla • Afmæliskaffi og meðlæti Hlökkum til að sjá þig!


4

Matur

Árbæjarblaðið

Nýtt hverfisráð:

Björn Gíslason nýr formaður Nýtt hverfisráð í Árbæjarhverfi hefur verið skipað. Nýr formaður Hverfisráðs Árbæjar er Björn Gíslason, Sjálfstæðisflokki og tekur hann við formennsku af Degi B. Eggertssyni, Samfylkingu. Hinn fulltrúinn í meirihluta er Svava Friðgeirsdóttir frá Framsóknarflokki og þriðji maður í ráðinu og í minnihluta er Dagur B. Eggertsson, Samfylkingu. Varamaður Björns er Sigrún Jónsdóttir, formaður Knattspyrnudeildar Fylkis, varamaður Svövu Friðgeirsdóttur er Ella Þóra Jónsdóttir og varamaður Dags B. Eggertssonar er Rúnar Geirmundsson.

Það vantaði eggjahvíturnar Glöggir matgæðingar hafa eflaust tekið eftir því að í síðasta Árbæjarblaði vantaði einn liðinn í uppskriftina að eftirréttinum, súkkulaði Pavlova. Í uppskriftina vantaði 6 eggjahvítur og við biðjumst velvirðingar á mistökunum.

Matgæðingarnir Pia Viinikka og rhallur MÆsson Æsamt brnum snum.

Kúskús

`B-mynd PS

- að hætti Piu og Þórhalls Litríkur kúskúsréttur

Nýtt hjá okkur !

Þær á myndinni eru allar með hárlengingu frá Balmain Paris. Það tekur aðeins 2 tíma og kostar minna en þú heldur 6 mánaða ábyrgð á hárinu. Kíktu á nýtt og flott pöntunarkerfi á www.stubbalubbar.is Hárgreiðslustofa Helenu - stubbalubbar - Barðastöðum 1-5 Sími 5861717 - panta tíma á netinu! www.stubbalubbar.is Opnunartími: mán-mið 10-18, fim 10-20 föst 10-18 laugard 10-16

3 dl kúskús, gjarnan með bragði. 1 tsk. ólívuolía. 1,5 dl vatn. 2 stórir laukar, skornir smátt. 3-4 hvítlauksgeirar, pressaðir. 1,5 dl vatn + 1 grænmetisteningur. 2 púrrulaukar skornir í skífur. 1 rauð, 1 gul, 1 græn papríka, skornar í skífur. 100 gr. brokkóli. 8 stórir sveppir, skornir í skífur. 150 gr. minimaís. 2 dósir hakkaðir tómatar. 6 tómatar, skornir í sneiðar.

steinseljunni yfir og berið fram með mangó chutney og góðu brauði.

Gulrótarkaka 2,5 dl olía. 3,5 dl sykur. 4 dl rifnar gulrætur. 3 egg. 3,5 dl hveiti. 2 tsk. lyftiduft. ½ tsk. salt. 1 tsk kanill. 1 dl hakkaðar heslihnetur. Hrærið saman olíu og sykri. Setjið gulrætur og egg saman við. Hrærið

Skora á Lindu og Garðar Hjónin Pia Viinikka og Þórhallur Másson í Þorláksgeisla 23 skora á Lindu og Garðar í Þorláksgeisla 23 í Grafarholti að koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað. Við birtum uppskriftir þeirra í Árbæjarblaðinu sem kemur næst út þann 24. ágúst. Salt og pipar. Steinselja. Sjóðið vatn og ólívuolíu, takið af hitanum og setjið kúskúsið út í. Látið kólna undir loki í ca. 5 mín. Hitið ofn í 150°. Sjóðið vatn og tening í potti, setjið lauk og hvítlauk út í og sjóðið í 5 mín. Hellið því síðan yfir kúskúsið. Setjið púrrulaukin, papríkurnar, brokkolíið, sveppina, maisínn og hökkuðu tómatana saman við. Kryddið með salti og pipar. Setjið allt í ofnfast mót og setjið tómatsneiðarnar ofan á. Hyljið með álpappír og bakið í 30 mín. Stráið

saman hveiti, lyftidufti, salti, kanil og hnetum. Blandið þessu öllu saman. Setjið í kökuform og bakið við 200° í ca. 50 mín. Krem 200 gr. philadelphiuostur / rjómaostur 150 gr. flórsykur. 175 gr. bráðið smjör. 1 tsk. vanillusykur. Safi og börkur af ½ sítrónu. Hrærið öllu saman og smyrjið á kökuna. Verði ykkur að góðu, Pia og Þórhallur


Kæru viðskiptavinir! Í júlí og ágúst verður lokað á laugardögum með von um góðar útileguhelgar! En við erum kátar og hressar hina fimm daga vikunnar og kynnum til starfa tvo nýja starfskrafta þær Maríu og Stínu.

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330


8

Fréttir

Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis í knattspyrnu, í viðtali við Árbæjarblaðið:

stofan - 4100

Árbæjarblaðið

Ekki staddur á stoppistöð Knattspyrnuhefðin er mikil í Árbænum og íbúarnir þar eru stolltir að eiga lið í efstu deild. Þar er baráttan hatrömm og ekkert gefið eftir. Keppni í úrvalsdeildinni eða Landsbankadeildinni eins og hún er kölluð er hálfnuð en mikið vatn á eftir að renna til sjávar áður en yfir lýkur í haust. Það verður ekkert gefið eftir í seinni hlutanum en eins og staðan er í dag eru Fylkismenn í fjórða sæti deildarinnar. Leifur Garðarsson tók við liðinu fyrir tímabilið en áður var hann aðstoðarþjálfari hjá FH. Leifur er skólastjóri Áslandsskóla í Hafnarfirði en frægur er hann fyrir dómarastörf sín í körfuknattleik. Leifur var um árabil einn fremsti körfuknattleiksdómari landsins og gat sér einnig gott orð erlendis á þeim vettvangi. Leifur gaf sér tíma í spjall eftir leik Ítala og Þjóðverja í undanúrslitum á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu á dögunum. - Íslandsmótið er nú hálfnað, liðið er í fjórða sæti með 13 stig. Ertu sáttur með árangurinn til þessa í deildinni? ,,Tja, hvenær er maður sáttur. Í sjálfu sér er ég ekkert ósáttur við fjórða sætið en það ber lítið á milli og sannarlega vill maður vera ofar þegar upp verður staðið í vor. Spekingarnir spáðu okkur oftast 6. sæti í vor en við vitum sjálfir að við höfum burði til að gera betur en það.” - Hver voru markmið ykkar í upphafi mótsins? ,,Okkar markmið voru einföld í sjálfu sér. Að fara í hvern leik með

Leifur fylgist með sínum mönnum.

Sumarnámskeið ÍTR Leikvellir ÍTR Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Brúðubíllinn Sundlaugar ÍTR Ylströndin Bátaleiga í Nauthólsvík

sigur í huga og gera ávallt eins vel og mögulegt væri. Þau markmið eru ennþá góð og gild.” - Hafa meiðsli sett einhver strik í reikninginn hjá ykkur? ,,Það eru yfirleitt einhverjir meiddir í öllum liðum eins og gefur að skilja, í liði Fylkis eins og öllum liðum. Við eigum þó ávallt ellefu til átján öfluga einstaklinga, og jafnvel fleiri, sem eru tilbúnir að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að Fylkir standi sig vel. Þess vegna vantar aldrei nokkurn mann í okkar lið og ávallt kemur maður í manns stað.” - Voru það mikil vonbrigði að detta út úr bikarnum á dögunum? ,,Það eru ávallt vonbrigði að falla úr keppni. Bikarkeppni er skemmtileg viðbót við Íslandsmótið og það hefði verið gaman að fá að vera með í henni alla leið. En til þess þarf að skora mörk og það var það eina sem vantaði í leik okkar gegn ÍBV.” - Hvað hefur komið þér einna mest á óvart í sumar í deildinni? ,,Kannski hversu mörg lið eru í einum pakka frá 2.-9. sæti og hversu lítið má út af bregða til að lið sveiflist frá topp- í botnbaráttu. En ég held reyndar að nú í næstu 2-3 umferðum komi til með að skilja á milli liða í meiri mæli en fyrr í sumar.” - Hvaða sæti í deildinni myndir þú sætta þig við þegar upp verður staðið í haust? ,,Fylkir stefnir ávallt að því að standa sig sem best. Liðið gengur nú í gegnum mikla endurnýjun og markmið þurfa auðvitað að vera raunhæf. Félagið hefur alla burði til að blanda sér í baráttuna um nafnbótina besta knattspyrnulið Íslands. Sú nafnbót virðist reyndar vera frátekin þetta árið en við stefnum auðvitað að því að enda eins ofarlega og framast er kostur.”

þá hefur það gengið nokkuð vel án þess að ná að klára færin sem skyldi. Það er eitthvað sem við erum staðráðnir að laga í seinni umferðinni. Ég mun hins vegar aldrei missa trú á því að þau lið sem ég stjórna leiki fótbolta og í mínum liðum séu ekki leikmenn sem forðist það að hafa boltann. Ég trúi því að slíkt muni á endanum verða árangursríkt.”

- Hvernig finnst þér knattspyrnan sem leikin hefur verið í deildinni til þessa? ,,Liðin í deildinni eru að vissu leyti ólík hvað leikstíl varðar. Sum lið treysta á það að liggja til baka, beita háum löngum sendingum og treysta á guð og lukkuna. Að vissu leyti hefur það gengið upp hjá sumum þeirra. Önnur vilja leika knettinum frá aftasta manni til þess fremsta og hvað okkur varðar

- Hvernig finnst þér umgjörðin í Árbænum og er stuðningur við liðið á heimaleikjum í Árbænum góður? ,,Umgjörðin um Fylki er mjög góð að mínu mati. Stjórnun félagsins er metnaðarfull. Hér starfar kraftmikið og skipulagt meistaraflokksráð og framkvæmdastjóri félagsins okkar er sérlega öflugur. Þá er í kringum okkar leiki mikið af fólki sem hugar að veitingum fyrir og eftir leiki sem fær sjaldan nægar þakkir fyrir. Hvað stuðninginn varðar þá þekki ég það bara úr Hafnarfirði að það er ekkert mál að vera stuðningsmaður þegar vel gengur. Það eru hins vegar alvöru stuðningsmenn sem mæta á alla leiki og styðja sitt lið í blíðu og stríðu. Eitthvað af fólki í Árbænum þarf greinilega að temja sér það hugarfar að það er ekki BARA merkilegt

Frábært sumar með ÍTR! ÍTR býður upp á fjölbreytta og skemmtilega afþreyingu að vera flottur Fylkismaður á tyllidögum eða þegar liðið vinnur glæsta sigra. Heldur á fólk ávallt að vera stolt af því að vera með Fylkishjarta, mæta á völlinn og styðja sitt lið og gefa af sér til félagsins. Held á stundum að sumir hugsi kannski of mikið hvað Fylkir geti gert fyrir þá í stað þess að hugsa hvað þeir geti gert fyrir Fylki. En sem betur fer er það ávallt sterkur kjarni sem mætir á hvern einasta leik og stendur við bakið á sínu liði, hvað sem á dynur. Það er ómetanlegt okkur öllum sem stöndum í eldlínunni.” - Verður erfitt að stöðva FHinga úr þessu og finnst þér þeir leika jafnvel og í fyrra? ,,Vissulega verður erfitt að koma í veg fyrir að Fimleikafélagið sigri Landsbankadeildina eins og mótið hefur spilast. Það er reyndar ótrúleg klisja sem sumir hafa sett fram að FH hafi skemmt Íslandsmótið, það hljóta frekar að vera hin liðin með því að láta þá sigra sig. Hvað leikstílinn varðar og hvað áferðarfallega knattspyrnu varðar þá geta menn vissulega deilt á eitt og annað hjá öllum liðum en það eru jú stigin sem telja. Þeim ætlum við að safna í síð-

ari hluta mótsins og vonandi verður það til þess að við nálgumst efstu sætin.” - Finnst þér mikil pressa fylgja því að þjálfa lið í úrvalsdeild? ,,Ég er búinn að þjálfa knattspyrnulið síðan ég var 18 ára gamall og þegar maður stendur í þjálfun þá býr maður ávallt til pressu á sjálfan sig. Íþróttamenn eru í þessu til að ná árangri og ef einhver heldur að ég sé hér á einhverri stoppistöð þá er það hinn mesti misskilingur. Við sem stöndum að liði Fylkis í dag, þjálfarar, leikmenn, liðsstjórn og stjórnarmenn erum í þessu til að gera veg Fylkis sem glæstan. Auðvitað getur það tekið smá tíma, en hver hefur ekki tíma þegar knattspyrnan er annars vegar? Þannig að mestu pressuna sköpum við sjálfir innan frá, utanaðkomandi pressa er eitthvað sem fólkið og fjölmiðlar leika sér eðlilega að.” Ég vil að lokum þakka þeim fjölmörgu sem mætt hafa á leiki liðsins fyrir öflugan stuðning og hvetja hina sem eru á leiðinni á völlinn til að láta ekki sitt eftir liggja. Fylkir þarf á Árbæingum að halda og Árbæingar þurfa á Fylki að halda. Áfram FYLKIR,” sagði Leifur Garðarsson þjálfari Fylkismanna að lokum.

fyrir alla fjölskylduna í sumar Sumarnámskeið frístundamiðstöðva ÍTR - Komdu út að leika. Frábær sumarnámskeið fyrir hressa krakka Leikvellir ÍTR - Viltu vera memm? Leikvellir fyrir 2-5 ára verða opnir á 6 stöðum í sumar. Fjölskyldu - og húsdýragarðurinn - Sannkölluð perla í Laugardalnum. Garðurinn verður opinn alla daga vikunnar í sumar frá kl. 10-18 Brúðubíllinn - Verður á ferð og flugi um alla borg í sumar. Frábær skemmtun fyrir yngstu fjölskyldumeðlimina Sundlaugar ÍTR - Á að kíkja í pottinn? Fara í smá gufu eða taka sundsprett? ÍTR rekur 7 sundlaugar í Reykjavík og þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi Ylströndin - Á ekki að reyna að taka smá lit í sumar? Ylströndin er opin frá 15.maí til 15. september kl. 10-20 Láttu sjá þig! Bátaleiga í Nauhólsvík - Langar þig í siglingu? Leigan er opin í allt sumar miðvikud. og fimmtud. frá kl. 15-19. Hægt að leigja árabáta, kajaka og kanóa. Út um borg og bý - óvænt stefnumót við listagyðjuna Götuleikhús Hins Hússins og Skapandi sumarhópar skjóta upp kollinum í sumar og gleðja gesti og gangandi. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur – www.itr.is – sími: 411-5000


10

Fréttir

Árbæjarblaðið

Öflugt starf í Árseli:

Hafa fengið kofa sína senda heim

Ungir smiðir frmtíðarinnar.

Það er alltaf jafn ánægjulegt þegar sumarstarf í Frístundamiðstöðinni Árseli hefst. Í sumar hófst það strax eftir hvítasunnuhelgi og stendur fram til föstudagsins 18. ágúst. Eftir breytingar á fyrirkomulagi á opnunartíma róluvalla var ákveðið að ÍTR kæmi að rekstri þeirra á sumrin. Því erum við ánægð með að segja frá því að róluvöllurinn við Malárás er í okkar umsjón í fyrsta skiptið nú í sumar. Heyra má mörg hamarshöggin berast frá smíðaverkstæðinu við Ársel og hafa fjölmargir kofar litið dagsins ljós. Margir stoltir kofaeigendur hafa fengið kofa sína senda heim í garð og vitað er af einum sem var sendur austur fyrir fjall og settur niður í sumarbústaðalandi afa og ömmu eins snilldarsmiðsins. Ungir og upprennandi smiðir framtíðarinnar í Grafarholti munu fá að spreyta sig með spýturnar og hamrana til 14. júlí. Einnig mun smíðaverstæði verða í boði fyrir káta krakka í Norðlingaholti frá og með 8. ágúst. Þetta verður í fyrsta skipti sem ÍTR er með sumarstarf í þessu nýjasta hverfi borgarinnar.

„Hvað er með Ásum?“

Orka í iðrum jarðar!

Ísland í augum innflytjenda

Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings. Laxárstöðvar í Aðaldal

Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu. Kröflustöð í Mývatnssveit

Hvaða sýn hafa innflytjendur á land og þjóð? Listsýning nokkurra innflytjenda. Skemmtidagskrá margar helgar í sumar. Ljósafossstöð við Sog

qqqqqqqqqqqqqqqq qqqqqqqqqqqqqqqq q q q q q qTilvalið q q að qlíta qinn qqqqqq qqqqqqqqqqqqqqqq

Sumarið er okkar tími!

Leikjanámskeiðin í Árseli í Árbæ og Sæmundarseli í Grafarholti eru sívinsæl og vel sótt. Meðal þess sem hefur verið gert á námskeiðunum í sumar eru ferðir í Fjölskyldu-og húsdýragarðinn, bátsferðir í Nauthólsvík, heimsókn á Dýraspítalann, sundferðir og Söngsystur komu í heimsókn og buðu upp á skemmtilega söngdagskrá. Eina vikuna var dagskráin helguð íþróttum og endaði hún á þátttöku allra í ólympíuleikum barnanna. Þetta er þriðja sumarið sem Frístundamiðstöðin Ársel/'ITR stendur fyrir leikjanámskeiðum í Grafarholti. Þátttakendum hefur fjölgað ört og búast má við enn fleirum næsta sumar þ.s. hverfi er enn að byggjast og börnum sem þangað flytja fjölgar. Allar nánari upplýsingar um sumarstarf má sjá í sumarbæklingi ÍTR á www.itr.is eða í Árseli í síma 567-1740. Sumarkveðja til allra frá Frístundamiðstöðinni Árseli.

•

fít •

MIXA

Róluvöllurinn við Malarás er starfræktur í sumar. Brúðubíllinn kom í heimsókn í byrjun júní og von er á honum aftur 11.júlí kl. 14.00. Allur aðbúnaður, leiktæki og leikföng eru til fyrirmyndar. Andrea og hennar fólk taka vel á móti öllum börnum á aldrinum 2-6 ára.

6 032 9

Ung-verjum (10-12 ára) í félagsmiðstöðinni Árseli og Fókus stóð til boða, í eina viku í júní, að taka þátt í og koma að skipulagningu á skemmtilegri afþreyingu sem við köllum ,,Brot af því besta’’. Þar var margt brallað og meðal annars var farið í sund, keilu og siglingu. Í ágúst gefst Ung-verjum, í Árseli og Fókus, aftur tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttu stafi í góðum hópi.

Kynnist Kárahnjúkavirkjun!

List og saga

Með krafta í kögglum!

Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar ásamt ferðamennsku og útivist norðan Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en haldið er upp á Fljótsdalsheiði. Végarður í Fljótsdal

„Andlit Þjórsdæla – mannlíf fyrr og nú“. Málverkasýning Hlífars Snæbjörnssonar. Athyglisverð sölusýning á landslagsmálverkum. Sultartangastöð ofan Þjórsárdals

Sýning á myndum Halldórs Péturssonar listmálara við Grettissögu. Kynnið ykkur orkumannvirki sem kemur á óvart. Blöndustöð, Húnaþingi

Spennandi sumar framundan hjá Landsvirkjun Sýningarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Nánari upplýsingar um opnunartíma á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000.


11

Stangaveiði

Árbæjarblaðið

Upp úr sófanum og þér líður betur Það er alkunna að hæfileg hreyfing er flestra meina bót. Vöðvar, sinar, liðamót, bein, hjarta, lungu og æðakerfi verða sterkari og heilbrigðari ef þau eru látin vinna hæfilega mikið. Gagnsemi hreyfingar hefur þó fleiri hliðar en þessar augljósu. Grænir seðlar eða hreyfiseðlar, sem úrræði í heilbrigðisþjónustu er ný lausn sem verið hefur í umræðunni hér á landi undanfarið og er það gott mál.

eða andlegir kvillar hindra hreyfingu þá geta sjúkraþjálfarar eða aðrir vel menntaðir þjálfarar aðstoðað.

Njótum sumarsins Nú er tækifærið til þess að upplifa

sumarið og njóta þess að vera í góðri þjálfun. Á 4-6 vikum er hægt að bæta þol og auka vellíðan og bæta útlitið mikið með hæfilegri hreyfingu. Gangi ykkur vel, Jakobína Sigurðardóttir

Jakobína Sigurðardóttir Sjúkraþjálfari í Hreyfigreiningu, Sjúkraþjálfun og heilsurækt.

Einkenni kyrrsetunnar Þeir sem lítið eða ekkert hreyfa sig finna gjarnan fyrir litlu úthaldi. Einkenni lítils úthalds og hreyfingarleysis geta verið af ýmsum toga s.s. vöðvabólga, liðverkir og jafnvel höfuðverkur eða svimi vegna vöðvabólgu. Ekki má gleyma í þessu samhengi að ýmislegt annað getur legið að baki þessum einkennum en það útilokar læknir ef á þarf að halda. Ef þeir sem lítið hreyfa sig eru líka undir miklu álagi eða streitu þá fylgir oft svefnleysi. Kyrrsetumaður brennir líka minna og bætir gjarnan á sig nokkrum kílóum í tímans rás, jafnvel þó hann borði ekki svo ýkja mikið.

Hve mikið skal þjálfa? Talað hefur verið um að til þess að hafa gagn af þjálfun þá þurfi álagið í hverjum tíma að vera nógu mikið til þes að maður hitni og svitni og hjartslátturinn aukist nokkuð (háð aldri). Einnig hefur verið talað um að þjálfa þurfi a.m.k. þrisvar í viku til þess að ná árangri. Allt er þetta gott og gilt og rétt svo langt sem það nær. Staðreyndin er samt sem áður sú að fyrir þann sem þjálfar ekkert þá er lítil hreyfing mjög mikil framför. Þjálfun einu sinni eða tvisvar í viku getur fært líðan einstaklingsins á mun betri veg. Bætt líðan kemur þá fram sem minni vöðva- og liðverkir, betri andleg líðan og betri svefn.

Hvernig þjálfun á að velja og hvernig á að byrja? Hver og einn þarf að skoða hug sinn og finna hreyfingu eða þjálfun sem honum hentar. Hér getum við nefnt, göngu, sund, hjólreiðar, stafagöngu, ofl.ofl. Hæfileg samsetning þolþjálfunar, styrktarþjálfunar, vöðvateygja og slökunar er engu að síður heppilegust fyrir all felsta. Það sem skiptir þó mestu máli er að hreyfa sig eitthvað og að byrja ekki of geyst. Ef einhverjir líkamlegir

Árbæjarblaðið

Auglýsingar og ritstjórn sími: 587-9500 Árbæjarblaðið

Opnum kl. 11.45 - oftast fyr en aldrei seinna Lokum kl. 21 - stundum seinna en aldrei fyr


12

Fréttir

Árbæjarblaðið

www.krafla.is Gylfi Kristjánsson, höfundur Króksins, Mýslunnar, Beykis og nú síðast Beyglunnar, kastar Króknum á hinni einu sönnu Króksbreiðu í Eyjafjarðará. Þessi mynd segir mikla sögu. Hér var Krókurinn frumsýndur á sínum tíma. Hann hefur síðan skilað veiðimönnum rosalegri veiði og stórum bleikjum, Gylfa og syni hans rúmlega 9 punda bleikjum eitt árið. Krókurinn er án efa ein besta íslenska silungaflugan á markaðnum í dag og nýja flugan, Beyglan, virðist ekki ætla að gefa honum neitt eftir.

Tveir vænir í Heljarþröm - 10 og 12 punda fiskar tóku Kröflu og fyrstu flugulaxar sumarsins á Iðu einnig

Veiðimenn sem voru á ferð á þriðja svæðinu í Stóru Laxá á dögunum lentu í skemmtilegu ævintýri. Veiði á þessu gullfallega svæði er jafnan róleg en alltaf er möguleiki á að hitta á sprækan göngufisk á þessum tíma sumars og það var einmitt það sem gerðist hjá þeim félögum. Þegar þeir mættu í hús voru 4 laxar komnir á land frá opnun. Síðari part fyrri veiðidagsins urðu þeir varir við fisk í Sveinskeri en enginn náðist á land. Morguninn eftir hófu þeir félagar veiðar í hinum magnaða veiðistað Heljarþröm eða Heljarþrem eins og margir vilja kalla hann. Eftir skamma stund var appelsínugul Kröflutúpa þrifin með miklum látum og upp hóst mikill bardagi.

Nokkuð var erfitt um vik við löndun en eftir um 15 mínúutur var viðureignin við 10 punda nýgenginn hæng afstaðin með sigri þeirra félaga. Eftir að hafa áttað sig á þessum viðburði fór hinn veiðimaðurinn með rauða Kröflutúpu og byrjaði efst. Nokkrum mínútum síðar var rauða Kröflutúpan tekin og fljótlega kom í ljós að þar var stærri fiskur á ferðinni. Leikurinn barst neðarlega í hylinn. Fljótlega kom í ljós að fiskurinn sem veiðimðurinn var að þreyta var ekki einn á ferð. Honum fylgdi annar fiskur og stökk sá og djöflaðist nokkrum sinnum í nágrenni við laxinn sem barðist fyrir lífi sínu. Á land náðist 12 punda hængur og veiðimenn vægast sagt sáttir. Hafði

Stóra Laxá og umhverfi hennar er sannkallaður gullmoli. Veiðimaður kastar flugu á veiðistaðinn Þórunnarauga.

Fyrsti flugulaxinn austur við Iðu tók rauða Kröflu í túpuformi og sést hér skömmu eftir að viðureigninni lauk. Eins og sést sat Kraflan pikkföst i kjaftvikinu. hængurinn, sem var lúsugur, magagleypt rauðu Kröfluna.

Tveir fyrstu flugulaxarnir austur við Iðu á Kröfluna Fyrir nokkrum dögum veiddust tveir fyrstu flugulaxar sumarsins austur við Iðu í Biskupstungum. Báðir tóku þeir rauða Kröflu. Veiðimenn í hollinu sáu lax stökkva á

svæðinu og settu þeir í fjóra laxa en náðu tveimur. Verður þetta að teljast óvenjumikið líf miðað við árstíma en þetta var í lok júní. Við höfum frétt víða af góðri veiði á flugurnar frá Krafla.is Ljóst er að þeir sem reyna flugurnar veiða jafnan vel á þær enda um að ræða af-

burðaflugur og úrvalið er hvergi meira hér á landi en á Krafla.is þegar íslenskar flugur og íslensk hönnun er annars vegar. Á Krafla.is er einnig landsins mesta úrval af íslenskum silungaflugum sem eru í allra fremstu röð. Sjá nánar á Krafla.is

Vötn og veiði er allt í senn, tímarit, fréttaveita og veiðibók. Gamli og nýi tíminn þræddir saman. Ritstjóri er Guðmundur Guðjónsson einn sá reyndasti í stangaveiðimálefnum, með rúmlega 26 ára reynslu sem stangaveiðisérfræðingur Morgunblaðsins og ritstjóri Íslensku stangaveiðiárbókarinnar frá upphafi hennar árið 1988.

votnogveidi.is FRÍTT VEFRIT UM STANGAVEIÐI

Guðjón Gunnar með laxana tvo sem hnn og félagi hans veiddu í Stóru Laxá nýverið. Fiskurinn nær er 10 pund en hinn 12 pund og báðir tóku þeir Kröflutúpur með miklu offorsi. Mynd Krfla.is


Verslun fluguveiðimanna er á www.Krafla.is

Landsins mesta úrval af íslenskum gæðaflugum Vorum að bæta við mörgum nýjum flugum

Kröflurnar í öllum litum sem keilutúpur í fyrsta sinn á Íslandi

Krafla orange

Krafla rauð

Krafla svört

Krafla gul

Iða

Skröggur

Gríma rauð

Elsa

Fjölbreytt úrval af íslenskum laxaflugum - tvíkrækjur/þríkrækjur - Flugur með reynslu

Beykir

Mýsla

Krókurinn

SilungaKrafla rauð

SilungaKrafla svört

SilungaKrafla Orange

,,Landsliðið’’ þegar íslenskar silungflugur eru annars vegar Besta vörnin í netverslun í dag Framleiðandi Skrautás ehf - Bíldshöfða 14 - Sími: 587-9500 / 698-2844

Beygla


14

Einstök list Verið velkomin! ABBA

Fréttir

Árbæjarblaðið

Námsmenn og SPV eiga samleið Auglýsing

Kirkjustétt 2-6 Opið virka daga kl. 13-18, laugardaga kl. 13-16

Útibú SPV í Árbæ, miðstöð ráðgjafar og þjónustu. SPV Árbæ býður víðtæka og sérsniðna þjónustu fyrir námsmenn á öllum aldri. Í boði er m.a. frítt námsmannakredit- og debetkort, veglegir bóka- og námsstyrkir og lán á góðum kjörum. Námsmönnum býðst að skrá sig í námsmannaþjónustu SPV og tryggja þar með aðgang sinn að persónulegri ráðgjöf um fjármál sín. SPV býður nýjum viðskiptavinum í námsmannaþjónustu inngöngugjöf.

ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005

Gegn námsloforði frá LÍN fá námsmenn framfærslulán sem er í formi yfirdráttar á debetreikningi sem bera mjög hagstæða vexti. Námsmenn erlendis með lánsloforð frá LÍN geta nú fengið framfærslulán í erlendri mynt hjá SPV sem nemur allt að

100% af áætlaðri lánveitingu. Fyrir námsmenn erlendis er mikilvægt að vita af þessu. Við hvetjum alla námsmenn til að nýta sér sérfræðiþekkingu starfsfólks SPV varðandi allt sem viðkemur fjármálunum og hafa þannig fullt svigrúm til að einbeita sér að náminu. Nánari upplýsingar má finna á heimsíðu okkar www.spv.is eða í síma 575-4100. Sigurbjörg Guðmundsdóttir er sérfræðingur Árbæjarútibús í málefnum námsmanna og hægt er að senda henni tölvupóst á sigurbjorg@spv.is. Bestu kveðjur starfsfólk SPV

Eitt númer

410 4000 Egilshöllinni Sími: 594-9630 www.orkuverid.is Alhliða líkamsrækt og sjúkraþjálfun

Árbæjarblaðið - Auglýsingasími 587-9500


Rekur þú fjölskyldufyrirtæki? Fjölskyldan skiptir okkur meira máli en hlutabréfaviðskipti og erlendar fjárfestingar.

F í t o n / S Í A

Í Vildarþjónustu Sparisjóðsins aðstoðum við þig við að láta fjármál fjölskyldunnar, drauma og hugmyndir ganga upp. Það er engin tilviljun að Sparisjóðurinn er með ánægðustu viðskiptavinina í bankakerfinu 7 ár í röð.

Við lögum okkur að þínum þörfum!

SPV - Sparisjóður vélstjóra - Hraunbæ 119 - Aðalsími 575 4100 - Þjónustuver 575 4100 - spv@spv.is - www.spv.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook