5. tbl. 4. árg. 2006 maí
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Árbæjarblaðið
Eitt númer
410 4000
Dreift ókeypis í Ártúnsholti, Árbæ og Grafarholti
Pantið tíma í síma 511–1551 Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3
Sumardagurinn fyrsti Fjölmargir Árbæingar mættu á fjölskylduskemmtun SPV á sumardaginn fyrsta. Sumarið heilsaði með veðurblíðu og allir skemmtu sér vel. ÁB-mynd EÁ/ Sjá nánar í miðopnu.
Vantar þig flugur fyrir sumarið? Kíktu þá á www.Krafla.is Íslenskar laxa- og silungaflugur í hæsta gæðflokki Bilastjarnan_02_001.ai
18.11.2004
15:18:40
Opið virka daga frá kl. 9-19 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is
Sjón er sögu ríkari
Komdu beint til okkar! - og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu Bílastjarnan ehf. · Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686
I oo jb agpbo
q`mfa¹md odg ] \f\pk\
Ë `dia\g_\md g`d \ ] \f\pkph Bm`d ngph\o i`odip G inphn fi i`odip
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.
Kjósið rétt!!! Það hefur víst ekki farið framhjá nokkrum manni að kosningar til borgarstjórnar eru á dagskrá eftir nokkra daga. Árbæingar sem áhuga hafa á sínu hverfi og vilja fræðast um hvað frambjóðenddur flokkanna hafa til málanna að leggja ættu að fá nóg að lesa í þessu blaði. Fjölmargir frambjóðendur skrifa greinar í Árbæjarblaðið að þessu sinni og var þeim jafnan bent á að fjalla um málefni hverfisins í greinum sínum. Víst er að mörg mál í Árbæjarhverfi bíða úrlausnar og margt hefur verið vel gert eins og gengur. Árbæjarsafn og hugsanlegur flutningur safnsins hefur verið mjög áberandi í fréttum undanfarið. Í ljós kemur í blaðinu að skoðanir frambjóðenda eru skiptar varðandi framtíðar staðsetningu safnsins. Í miðopnu birtum við fjölmargar myndir frá fjölmennri og vel heppnaðri hátíð SPV í Árbænum á sumardaginn fyrsta. Þar var boðið upp á skemmtiatriði sem unga fólkið kunni ekki hvað síst að meta. Nú þegar sumarið er gengið í garð hefst Landsbankadeildin í knattspyrnu. Fylkismenn stóðu sig vel í fyrsta leik sínum í deildinni og vonandi verður framhald á góðum sigrum Fylkis í sumar. Og vonandi verða Árbæingar duglegir við að mæta á völlinn og styðja sína menn. Að lokum óska ég Árbæingum öllum gleðilegs sumars og þakka fyrir mjög ánægjulegan vetur. Stefán Kristjánsson
abl@centrum.is
Sylvía nótt - Nei takk! þá er komið að því að Sylvía Nótt láti ljós sitt skína í Aþenu. Líklega er komið í ljós hvort henni tókst að komast í úrslitakeppnina þegar þessi pistill er lesinn af Árbæingum. Svona fyrirfram var maður auðvitað svartsýnn og kannski ekki síst eftir misjafna framgöngu skvísunnar í Grikklandi. Í Grikklandi var hún varla lent þegar blótsyrðunum tók að rigna yfir heimamenn og aðra viðstadda. Er ekki ofsagt að mörgum landanum hafi brugðið í brún. Við höfum ekki átt því að venjast í gegnum árin að skrautlegir og áberandi Íslendingar hafi gengið um götur stórborga bölvandi og ragnandi upp á enska tungu. Líkast til á þetta að vera töff og til þess gert að vekja sem mesta athygli. Mér finnst þó að næturdrottningin hefði átt að leggja meiri áherslu á lagið í stað þess að opna ekki munninn nema til að blóta og nota orð sem allt siðmentað fólk sparar yfirleitt við sig. Lengi vel kunni ég vel að meta húmor Sylvíu Nætur og nánast alla hennar framgöngu. Hins vegar gerðist á dögunum atburður í Ártúnsbrekkunni sem margir muna eftir og eiga líkast til seint eftir að gleyma. Essó hafði þá auglýst uppákomu með Sylvíu Nótt sem síðan mætti ekki á staðinn í eigin persónu heldur sendi fólk í sinn stað sem enginn kannðist við. Var frmmistaða þessa fólks svo döpur að viðstaddir höfðu vart séð annað eins. Það versta var
Sylvía Nótt. Mörgum hefur blöskrað framkoma hennar síðustu dagana. hins vegar framkoman gagnvart börnunum sem grétu í kór þegar ljóst var að Sylvía hafði svikið gefin loforð. Þessi ótrúlega framkoma varð þess valdandi að á
ur með henni eftir að læra. Reyndar er dómgreindarleysi þessa fólks alveg með hreinum ólíkindum. Að láta sér detta annað eins í hug og halda að hægt sé að svíkja ungar sálir á þennan hátt er barnaskapur og ekkert annað. Má ég þá frekar biðja um Línu Langsokk. Rétt er að taka fram að starfsmenn Essó komu af fjöllum. Í fyrstu héldu þeir að þetta væri grín og að Sylvía sjálf myndi birtast eftir skamma stund. Hún sást hins vegar aldrei og þótti starfsfólkinu þetta mjög miður. Og líka má koma fram að fyrirtækið bætti börnunum upp missinn og fækkaði þá eitthvað tárunum. Stórhöfði
STÓRhöfði skrifar: einu augabragði missti ég allt álit á þessari manneskju. Ég held að það hafi verið umboðsmaður hennar sem gaf þá skýringu að Sylvía Nótt væri aðeins persóna í leikriti og nánast hver sem er gæti leikið hana í leikritinu. Vísaði hann í Línu Langsokk máli sínu til stuðnings. Það síðasta sem maður gerir er að svíkja börn. Þennan sannleik á Sylvía Nótt og það lið sem vinn-
F-listinn forgangsraðar til fólksins í borginni F-listi, Frjálslyndra og óháðra, vill forgangsraða í þágu fólksins í borginni. Þetta kemur skýrast fram í flugvallarmálinu, þar sem F-listinn vill halda flugvellinum á besta stað í borginni í stað þess að verja tugum milljarða króna í að flytja hann á verri og óöruggari stað, eins og hin framboðin vilja.
Bætt staða eldri borgara og öryrkja Við viljum að brýn verkefni í velferðarkerfinu og í samgöngukerfi borgarinnar hafi forgang. Við viljum t.a.m. fjölga hjúkrunarrýmum fyrir aldraða og stórefla heimaþjónustu þeirra. Í samræmi við þessar áherslur viljum við stórlækka álögur á aldraða til að þeir geti búið eins lengi heima hjá sér og þeir vilja. Við höfum áður lagt áherslu á lægri þjónustugjöld aldraðra, öryrkja og barnafjölskyldna og nú höfum við lagt til að tekjumörk fyrir niðurfellingu fasteignagjalda aldraðra verði hækkuð um 100% þegar á næsta ári. Það þýðir að þau verða um 3,2 milljónir króna á ári í stað 1,6 milljónir króna. Við þessa breytingu mun
mikill meirihluti þeirra 10.000 eldri borgara, sem búa í Reykjavík losna undan álagningu fasteignagjalda, en hingað til hafa 40% þeirra notið afsláttar af þeim. Afsláttur fasteignagjalda aldraðra var um 200 milljónir króna á þessu ári en verður væntanlega um 500 milljónir króna samkvæmt tillögum F-listans á næsta ári. Þetta er ekki mikill kostnaður fyrir borgina en hins vegar mikil kjarabót fyrir eldri borgara um leið og þeim er gert kleift að búa lengur heima hjá sér.
Þegar þau sækja tómstundir annars staðar í hverfinu, þurfa þau að geta ferðast með hverfastrætó, sem þarf að vera ókeypis. Í dag er hins vegar staðan sú að til að skreppa með strætó t.d. út í næstu verslunarmistöð þurfa 13 ára unglingar að greiða 500 krónur fyrir ferð fram og til baka. Þar sem hverfisstrætó vantar í dag er hins vegar líklegt að börnin þyrftu að fara niður á Hlemm með strætó áður en þau gætu snúið við heim. Þessu viljum við breyta.
Bætt staða barnafjölskyldna
Efling almenningssamgangna
Á sama hátt og við viljum bæta kjör aldraðra og öryrkja viljum við bæta hag barnafjölskyldna í borginni. Við leggjum áherslu á heilsdagsskóla með máltíðum, íþróttum, list og verknámi frá upphafi skólagöngu. Við viljum að bæði leikskóla- og grunnskólastigið sé gjaldfrjálst með ókeypis máltíðum. Efla þarf samstarf íþróttafélaga og skóla sem annast listkennslu við grunnskólastarfið þannig að börnin geti stundað íþróttir og listnám á daginn sem hluta af vinnudegi sínum.
F-listinn hefur þrívegis flutt tillögu um það í borgarstjórn að strætófargjöld barna, unglinga, aldraðra og öryrkja yrðu felld niður. Þetta myndi aðeins kosta um 200 milljónir króna á ári og myndi vafalítið leiða til mun betri nýtingar á strætó, minni einkabílanotkunar, minna slits á götum, minna svifryks og minni mengunar almennt. Hinir flokkarnir hafa fellt þessar tillögur og er það dæmalaust að horfa upp á B-listann (Framsóknarflokkinn) segjast nú kortéri fyrir kosningar
styðja þær tillögur sem þeir hafa þrívegis fellt í borgarstjórn. Helsta framlag Sjálfstæðisflokks til almenningssamgangna er hins vegar tillaga við gerð fjárhagsáætlunar um niðurskurð á fjárveitingum til almenningssamgangna um 100 milljónir króna. Við teljum rétt að verja meiri fjármunum í almenningsamgöngur til að bæta þjónustuna og auka nýtingu strætó. Á sama hátt og börn þurfa að geta ferðast fljótt og vel með strætó innan hverfanna þarf að tryggja þeim öruggar gönguleiðir í skólann og draga úr umferðahraða í íbúðarhverfum. Við viljum gera öll íbúðarhverfi borgarinnar að 30 km svæðum.
Betri stofnbrautir draga úr umferð um íbúðarhverfi F-listinn hefur ávallt barist fyrir fjölgun mislægra gatnamóta á Miklubraut og vill flýta gerð mislægra gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, sem R-listinn hefur tafið um heilan áratug. Við viljum líka tryggja mislæg gatnamót Miklubrautar og Lönguhlíðar með gerð
Ólafur F. Magnússon, læknir og oddviti F-listans í Reykjavík. stokks undir Lönguhlíðina. Við leggjum að sjálfsögðu áherslu á flýtingu tvíbreiðrar Sundabrautar alla leið upp á Kjalarnes og í góðri sátt við íbúa í aðliggjandi íbúðarhverfum. Útrýma þarf einbreiðum þjóðvegum á höfuðborgarsvæðinu Við bendum loks á að ef hin framboðin í borginni gefa flugvellinum í Vatnsmýri ekki frið þá flyst hann að líkindum til Keflavíkur með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir innanlands- og sjúkraflug í landinu. Aukin umferð á þjóðvegum ásamt erfiðu aðgengi að bráðasjúkrahúsi landsins myndi kosta tugi mannslífa á nokkrum árum. F-listinn er eina aflið sem hefur tekið á umferðar- og skipulagsmálum í borginni af ábyrgð og festu. Atkvæði greitt okkur í F-listanum er því vel varið og við munum undir engum kringumstæðum taka þátt í því glapræði, sem brottflutningur flugvallarins úr Vatnsmýri yrði. Ólafur F. Magnússon, læknir og oddviti F-listans í Reykjavík.
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 32678 05/2006
Forsala miða og allt um Landsbankadeildina á www.landsbankadeildin.is
410 4000 | landsbanki.is
4
Matur
Árbæjarblaðið Best er að láta furuhneturnar fyrst til að hafa þær stökkar og grófar, saxa síðan kóríander, chili og hvítkauksrif og blanda saman við hneturnar. Síðan er fyllingin smá þynnt út, en eggjahvítunni er ætlað að binda fyllinguna saman.
Matgæðingarnir
Leggið bringurnar á sléttu hliðina og skerið vasa frá miðju. Reynið að skera allan hringinn því falleg kóríanderfyllingin má gjarnan fljóta aðeins út úr bringunni þegar hún er borin fram. Látið standa meðan grænmetið er skorið niður.
Hitið grillið Best er að grilla grænmetið í Wok grillpönnu, þessari götóttu. Skerið það smátt en þó ekki þannig að það hverfi gegnum götin á Wok pönnunni. Magnið fer eftir smekk hvers og eins og að sjálfsögðu má nota það grænmeti sem hverjum og einum líkar. Blandið saman svipuðu magni af ostrusósunni og olíunum og kryddið með pipar. Ekki er verra að setja smá sítrónusafa. Best er að hafa allt við höndina þegar grillun hefst ásamt einum svellköldum. Byrjið að setja Wok pönnuna með grænmetinu á grillið og blandið síðan Ostru- og olíublöndunni saman við. Hrærið í reglulega. Setjið bringurnar á sléttu hliðina og kryddið með salt og pipar. Grillið eins stutt og þið ÁB-mynd PS treystið ykkur til á miklum hita. Ágætt er að miða við 5 - 7
Stefán Hjörleifsson og fjölskylda. Hann er mikill listakokkur og einkar laginn við grillið.
Grillaður kóríander kjúklingur - að hætti Stefáns og Rósu í Melbæ 36
Kóríanderjurtin er ekki allra. Hún hefur verið notuð í matargerð í Austurhluta Asíu og sértaklega mikið í Kína frá örófi alda og stundum nefnd kínversk steinselja. Spánverjar hafa líka notað hana í margar aldir og það er kannski þess vegna sem það er eitthvað sumarlegt við hana. Sumarið er komið og því kjörið að draga fram grillið, fylla nokkrar bringur og skella á funheitt grillið ásamt íslensku grænmeti. Í uppskrifinni er leitast við að færa upp á disk afbrigði af aust-
urlenskri matargerð en grilla við alíslenskar aðstæður. Vonandi fellur það í góðan jarðveg.
Uppskriftin: 4 kjúklingabringur Salt og pipar
arsalt. Grænmeti Gulrætur. Blómkál. Kúrbítur.
Sesamolía. Ólífuolía. Svartur pipar Naan brauð eða hrísgrjón. Sósa (ef vill) Afganginn af fyllingunni má hita í restinni af kókosmjólkinni sem var opnuð fyrir fyllinguna.
mínútur á heilu hliðinni. Snúið varlega við til að fyllingin fjóti ekki út og grillið helst styttra á þessari hlið. Grænmetið ætti að vera tilbúið á sama tíma. Hitið Naan brauðið á grillinu samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Að sjálfsögðu má líka útbúa eigið Naan brauð að hætti Madhur Jaffrey. Þið getið fundið það á Netinu.
Skora á Mikka og Völu í Melbæ 32
Gjarnan má skreyta Fylling Hjónin Stefán Hjörleifsson og Rósu Steingrímsdóttur í Melbæ 36 skora á Mikka og Völu í Melbæ 32 með örlitlu af kóríand75 gr. furuhnetur. að koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað. Við birtum girnilegar uppskriftir þeirra í Árbæjarblaðinu sem er laufum þegar réttur1 knippi fersk kórkemur næst út í júní. inn er borinn fram. íanderlauf og stiklar. Með þessu er ekki slæmt að 3 hvítlauksrif. Rauð paprika. drekka Amarone frá Tommasi. ½ grænn chili (má sleppa). Aðferðin Rauðlaukur. Verði ykkur að góðu, 1 eggjahvíta. hvítlaukur. Stefán og Rósa 2 matskeiðar kókosmjólk. Blandið saman öllu hráefni sem ferskur engifer. Nýmalaður svartur pipar og sjávfer í fyllinguna í matvinnsluvél. Ostrusósa.
Grafarvogsbúar - hjólbarðaverkstæðið ykkarþjónusta er að Gylfaflöt Árbæingar! Reynið viðskiptin - Frábær og góð3 verð
Gylfaflöt 3 • sími 567 4468
Árbæjarblaðið - Auglýsingasími 587-9500
6
Fréttir
Árbæjarblaðið
Forgangsröðun í þágu fjölskyldna Samkvæmt viðhorfskönnun sem Gallup gerði nýlega fyrir Sjálfstæðisflokkinn telja um 95% borgarbúa mikilvægt að fá fleiri tækifæri til að fjölga samverustundum með fjölskyldu sinni. Þrátt fyrir að þessi niðurstaða komi varla á óvart, felur hún í sér mjög afdráttarlaus skilaboð um þau verkefni sem borgarbúar telja brýnust. Augljóst er að flest langar okkur til að sinna betur því sem okkur er kærast, börnunum okkar og fjölskyldu, og fjölga þeim stundum sem við höfum til þess.
Tími til að lifa Þrátt fyrir að stjórnmálamenn geti hvorki lofað né tryggt íbúum þessi lífsgæði sem mestu skipta, geta stjórnmálin skapað aðstæður sem auðveldað geta íbúum að láta vilja sinn og langanir verða að veruleika. Með þetta að markmiði hefur Sjálfstæðisflokkurinn nú kynnt metnaðarfullar tillögur um betri fjölskylduborg, undir heitinu Tími til að lifa. Markmið þeirra er umfram allt að bæta þjónustu við fjölskyldur, lækka byrðar, minnka skutl og fjölga gæðastundum fjölskyldnanna í borginni. Til að ná
þessum markmiðum leggjum við áherslu á betri leikskóla, betri grunnskólamenntun, samhæfingu skólastarfs og íþrótta- og tómstundastarfs og bætt borgarumhverfi.
Í leikskólamálum er forgangsatriði að tryggja foreldrum góða og örugga þjónustu strax að loknu fæðingarorlofi. Það verður best gert með auknum stuðningi við starfsemi dagforeldra, stofnun sérstakra smábarnadeilda við leikskóla í öllum hverfum og því að allir foreldrar njóti sama stuðnings, hvort sem þeir sækja þjónustu til einkarekinna eða borgarrekinna leikskóla. Samhliða því verða leikskólagjöld lækkuð um 25% strax 1.september á þessu ári og foreldrar sem eiga fleiri en eitt barn í leikskóla munu aðeins greiða eitt gjald.
efnum grunnskólanna er skýr. Við viljum auka val, árangur og gæði í skólastarfinu og ætlum, í góðu samráði við skólastjórnendur, kennara, foreldra og aðra, að setja fram tímasetta áætlun um enn betri grunnskóla í borginni. Við viljum að reykvískir skólar séu í hópi þeirra allra bestu og við ætlum að gera allt sem við getum til að tryggja börnunum okkar menntun sem stenst samanburð við það besta sem þekkist. Að auki viljum við fara í sérstakt heilsuátak í grunnskólum, þar sem áhersla verður lögð á stórbættar góðar skólalóðir, næringarríkar máltíðir og betri aðstæður barna til útivistar og hreyfingar.
Áætlun um enn betri grunnskóla
Samfella i skólastarfi og tómstundum
Val um þjónustu frá lokum fæðingarorlofs
Stefna Sjálfstæðisflokksins í mál-
færi til að ljúka námi og tómstundum innan hefðbundins vinnutíma. Með samningum tómstundaheimila við íþróttafélög og aðra sem koma að starfi barna í hverfunum, ásamt því að
Hanna Birna Kristjánsdóttir, í Hverfisráði Árbæjar og frambjóðandi skrifar:
Börnin okkar eiga að hafa tæki-
börnum standi til boða akstur innan hverfis, er hægt að minnka þann tíma sem foreldrar og börn eyða í stress og skutl á milli staða. Samhliða þessu vill Sjálfstæðisflokkurinn gera samninga við íþrótta- og tómstundafélögin í borginni um
lækkun þátttökugjalda, ásamt því að gera forvarnarstarf að öflugum þætti í öllu barna- og unglingastarfi.
Enn betra borgarumhverfi Auk þess að bjóða góða þjónustu í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum á borgin að veita borgarbúum fleiri tækifæri til að njóta hreins og fallegs umhverfis sem tekur mið af þörfum og óskum þeirra. Það á að vera gaman að búa í borginni og með hlutum eins og árlegri barnahátið, vísinda- og ævintýrasafni, fríum aðgangi að ákveðnum söfnum borgarinnar og nýjum leiðum til útivistar og afþreyingar í hverfum borgarinnar getum við boðið fjölskyldum enn fleiri tækifæri til að njóta lífsins í Reykjavík! Hanna Birna Kristjánsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og er fulltrúi í hverfisráði Árbæjar
Skráning á fléttunámskeið Vegna mikillar eftirspurnar erum við byrjaðar að skrá niður á fléttunámskeið fyrir foreldra
Skráning og uppl. í síma 567-6300
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir
Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00 og lau frá 10:00-14:00 Pöntunarsími: 567-6330
8
Fréttir
Árbæjarblaðið
Ísbjarnarverkefnið Nemendur í 6. ASÁ í Selásskóla eru meðal þeirra sem taka þátt í svo kölluðu ísbjarnaverkefni. Selásskóli er einn átta skóla í þróunarverkefni sem styrkt er af menntamálaráðuneytinu og gengur út á að þróa nýjar aðferðir í kennslu. Í stað þess að nemendur læri um Grænland af bók eru þau í samskiptum við leiðangur á Austur-Grænlandi. Leiðangurinn hefur fylgt eftir ísbjarnaveiðimönnum og þaðan er nafnið komið. Frá því um miðjan apríl hafa nemendur verið í reglulegum samskiptum við leiðangurinn, fengið sendar myndir, myndbönd og fróðleik jafnframt því sem þau hafa fengið svör við spurningum sem þeir hafa spurt. Samskiptin fara að mestu fram í gegnum vefsíðu verkefnisins en hún er öllum opin, vefslóðin er isbjorn.menntagatt.is. Á vefnum má sjá myndefni frá Grænlandi og samskipti nemenda við leiðangurinn, brátt verður líka hægt að sjá þar afrakstur af vinnu nemendanna. Jafnhliða því að nemendur fræðist um náttúru og mannlíf á Grænlandi eru þeir að nýta og læra upplýsinga- og samskiptatækni. Krakkarnir í 6. ASÁ eru t.d. að nota forrit til að búa til
margmiðlunarefni. Þá semja þau texta, setja inn myndir og myndbönd frá Grænlandi, jafnvel tal eða tónlist líka. Verkefnið hefur almennt gengið vel nema hvað að vandræði hafa verið með beinar myndútsendingar sem ráðgert var að hafa á milli Grænlands og skólann. Í stað þeirra hefur aðeins verið talsamband í gegnum Skype (þ.e. samband yfir Netið). Verkefninu lýkur brátt en reynsluna af þessari tilraun verður eflaust hægt að nýta áfram, bæði í skólunum sem taka þátt og víðar. Þess má að lokum geta að umsjón með vef verkefnisins er líka í höndum Árbæinga en það Menntagátt á Grjóthálsinum sem sér um hann auk annarra skipulagsþátt í tengslum við verkefnið.
Selásskóli 20 ára Á uppstigningardag, fimmtudaginn 25. maí verður opið hús í Selásskóla. Tilefnið er 20 ára afmæli skólans Skólinn verður opinn á milli kl. 10:30 – 15:00. Starfsfólk, nemendur og foreldrar ætla að sameinast í að gera daginn sem ánægjulegastan. Gaman væri að sjá sem flesta eldri nemendur skólans og velunnara á þessum tímamótum.
Baldvin er á vettvangi í Grænlandi og hefur miðlað upplýsingum, myndum og myndböndum til krakkanna í Selásskóla.
Grænlensk æska.
Húsin í Tasilaq.
Krakkarnir í 6. ASÁ í Selásskóla.
TÍMI TIL AÐ SKIPULEGGJA Brýnustu verkefnin í skipulagsmálum í Reykjavík eru að auka lífsgæði í borginni, fjölga íbúum, stórauka framboð lóða og tryggja að allir sem hér vilja búa eigi þess kost. Með því að horfa lengra og hugsa stórt kynnir Sjálfstæðisflokkurinn metnaðarfulla stefnu fyrir næsta kjörtímabil um ný byggingarsvæði og raunhæfar lausnir í samgöngumálum.
NÝ BYGGINGARSVÆÐI » Geldinganes: Fyrstu lóðum úthlutað á árinu 2007. Íbúafjöldi getur orðið um 10 þúsund. » Vatnsmýrin: Flugvellinum verði fundinn annar staður á höfuðborgarsvæðinu. Innanlandsflug verði ekki flutt til Keflavíkur. Í samræmi við heildarskipulag af svæðinu verði fyrstu lóðum úthlutað utan helgunarsvæðis flugvallar í byrjun árs 2008. Íbúafjöldi getur orðið 8 til 10 þúsund. » Örfirisey: Skipulagi fyrir 1. áfanga eyjabyggðar verði lokið árið 2008. Íbúafjöldi getur orðið um 6 þúsund.
SAMGÖNGUBÆTUR » Sundabrautin alla leið upp á Kjalarnes í einum áfanga. » Mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. » Miklabraut lögð í stokk að hluta þar sem byggðin er næst. » Hlíðarfótur og Öskjuhlíðargöng. » Hagkvæmni hafnarganga frá Örfirisey að Sæbraut könnuð. » Hagkvæmni Skerjabrautar könnuð.
ÖNNUR UPPBYGGINGARSVÆÐI » Miðborgin ásamt nærliggjandi svæðum, Elliðaárvogur og nágrenni, Keldnaland, Kjalarnes og Úlfarsfell.
VELKOMIN Í HEIMSÓKN Á KOSNINGASKRIFSTOFUR » Kosningaskrifstofa Árbæ, Hraunbæ 102b. Opið 16-21 virka daga og 14-17 um helgar, símar: 567 4011 - 557 2356 - 557 2376, netfang: arbaer@xd.is
10
Fréttir
Árbæjarblaðið
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson skipar efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 27. maí og er borgarstjóraefni flokksins:
,,Vorkvöld í Reykjavík þann 27. maí’’ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, leiðtogi og borgarstjóraefni sjálfstæðismanna í Reykjavík, hélt upp á sextugs afmæli sitt þann 26. apríl sl. Það verður því ekki sagt um Vilhjálm að hann sé dæmigerður ungur maður á uppleið. Sumir pólitískir mótherjar hans hafa jafnvel gefið það varfærnislega í skyn að Vilhjálmur sé orðinn of fullorðinn til að sækjast eftir erilsömu borgarstjórastarfi. Aðrir andmæla viðhorfum af þessu tagi, telja að hér sé of langt gengið í æskudýrkun, og að einstaklingurinn sjálfur, reynsla hans, hæfni og almenn viðhorf, skipti megin máli. Ef hugað er að þessum atriðum stendur Vilhjálmur vel að vígi. Hann hefur verið borgarfulltrúi frá 1982, borgarráðsfulltrúi frá 1986, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 1990, hefur setið í fjölda mikilvægra nefnda og ráða borgarinnar um árabil og var m.a. formaður skipulagsnefndar 1982-94, þegar lóðaframboð og íbúðauppbygging var meiri í Reykjavík en nokkurn tíma, fyrr eða síðar. Hann hefur því án efa meiri reynslu af stjórnsýslustörfum borgarinnar og sveitarstjórnarmálefnum almennt, en nokkur annar Íslendingur. Hann hefur ætíð notið trausts og virðingar, samherja, jafnt sem pólitískra mótherja, fyrir eljusemi og skipulögð vinnubrögð, er raunsær og skilningsríkur gagnvart öllum þeim fjölda borgarbúa sem til hans leita, og hefur unnið meira og lengur að húsnæðis- og hjúkrunarmálum aldraðra en nokkur annar borgarfulltrúi. - Vilhjálmur, ef þetta er nú allt raunin, hvers vegna hefur þú ekki orðið borgarstjórarefni sjálfstæðismanna fyrr? ,,Fyrir því eru ýmsar ástæður. Sumar tilviljunarkenndar, aðrar persónulegar, eins og gengur. Ég gæti reynt að greina þær hér, en ég sé ekki að það skipti neinu máli fyrir mig eða kjósendur. Það hefur óneitanlega komið sterklega til álita áður að ég yrði borgarstjóraefni flokksins, en líklega er meginástæðan sú, að ég sóttist aldrei eftir því af fullum þunga fyrr en nú. Það skiptir hér líka miklu máli að jafnframt því að vera borgarfulltrúi og borgarrráðsmaður hef ég gegnt afar veigamiklu starfi sem formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ég hef alltaf lagt áherslu á það að vera trúr mínu starfi og ég get ekki sagt, að þrátt fyrir öll mín störf í þágu Reykjavíkurborgar, hafi ég gengið með borgarstjóraembættið í maganum í öll þessi ár. Slík ófrávíkjanleg markmið eru engum holl til lengdar.’’ - Ætlarðu að halda því fram að bogarstjóraembættið hafi aldrei freistað þín?
,,Ó nei, engan veginn. Ég held að það hljóti að vera mjög skemmtilegt að vera borgarstjóri, - sérstaklega ef maður kann til verka og allt gengur í haginn. En ég held líka að það sé hörmulegt að taka að sér veigamikil embætti fyrir ríki eða borg og standa sig ekki í stykkinu, - og þeim mun verra eftir því sem embættið er veigameira. Mér finnst fjölmiðlar gera of mikið úr þeirri röngu afstöðu, að lífshamingjan sé fólgin í metorðum, einum saman. Gæfumaður er sá sem vinnur verk sín samviskusamlega, hver sem þau eru - stendur sig í hlutverki sínu gagnvart fjölskyldu sinni og samfélagi, og getur kinnroðalaust litið um öxl og sagt sem svo: ,,Ég stóð mína vakt og lét gott af mér leiða.’’ Ekkert í lífinu er mikilvægara en að standa sína pligt og gera sitt besta. Allt annað er hégómi í samanburði við það. Þetta viðhorf er ég alinn upp við og þetta skilja flestir Íslendingar, ekki síst sjómenn af gamla skólanum. Kannski finnst einhverjum þetta háfleygt, en ég er sannfærður um að þetta eru sígild sannindi um lífið, tilveruna og hamingjuna, og ég hef alla tíð reynt að lifa og starfa samkvæmt þessu.’’ - En þá hlýturðu að vera sannfærður um það núna að þú sért besti kosturinn sem næsti borgarstjóri Reykjavíkur? ,,Já, ég held ég sé það, - að vandlega yfirveguðu ráði. Annars hefði ég ekki lagt í þessa vegferð, fyrst í spennandi prófkjör, og síðan í þessa kosningabaráttu sem er ekki síður spennandi. En í þessari afstöðu minni er hvorki fólgin nein sérstök sjálfumgleði, né vanvirða gagnvart mótherjum mínum sem gæla við sömu embættishugmynd. Ég held að ýmsir gætu orðið ágætis borgarstjórar. Til þess þarf enga sérgáfu. En til þess þarf þó hugsjón, ótvíræða leiðtogahæflileika og töluverða reynslu af sveitarstjórnarmálum. Ég brenn í skinninu að láta gott af mér leiða í þessu embætti og ég er sannfærður um að ég kann til þessara verka.’’ - Stefnuskráratriði þín og borgarstjórnarflokksins um málefni aldraðra og um fjölskyldumál hafa vakið þá spurningu hjá pólitískum mótherjum ykkar að þú sért að leika pólitískan einleik innan Sjálfstæðisflokksins. Er það raunin? ,,Nei, engan veginn! Árásir R-lista flokkanna á ríkisstjórina í þessari kosningabaráttu eru í megin atriðum ósanngjarnar svo ekki sé meira sagt. Það er hins vegar afstaða mín og annarra frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að svara ekki fyrir þessar árásir. Ef við gerðum það værum við að samþykkja þá ósk R-lisaflokkanna, að breyta borgarstjórnarkosningum í Alþingiskosningar.
,,Góður borgarstjóri þarf að búa yfir reynslu, pólitískri hugsjón og hafa leiðtogahæfileika. Leiðtogahæfileikar hans eru ekki síst fólgnir í því, að hefja sig yfir fjölmiðlaþras líðandi stundar, sjá skóginn fyrir trjánum, vita hvert hann ætlar og taka daglegar ákvarðanir í samræmi við það.’’ Það hefur alltaf verið fyrir hendi tiltekin togstreyta milli ríkisstjórnar og borgarstjórnar um kostnaðarliði þeirra málaflokka sem báðir aðilar standa að, alveg óháð hægri eða vinstri stjórnum í ríkisstjórn eða borgarstjórn. Árásir R-listaflokkanna núna á ríkisstjórnina, helgast af því einu að þeir vilja firra sig ábyrgð. Það er að mínum dómi afar ótrúverðugt af núverandi borgarstjórnarmeirihluta, að reyna að halda því fram gagnvart kjósendum, að Reykjavíkurborg hafi nánast ekkert að segja um málefni eldri borgara, eða um stofnbrautir borgarinnar. Það er alrangt og svo hefur aldrei verið. Í þessum málaflokkum hefur borgarstjórnin einfaldlega staðið sig mjög illa og reynir því að koma sökinni yfir á aðra.’’ - Því hefur verið haldið fram í spjallþáttum að undanförnu að allir stjórnmálaflokkar sæki nú inn að miðjunni með mjúka pakka og aukin útgjöld. Eru allir stjórnmálaflokkarnir orðnir eins í Reykjavík? ,,Nei! Afstaða okkar byggir á yfirveguðu mati og reynslu af þeim málaflokkum er lúta að öldruðum og félagsmálum almennt. Ég held að þessir málaflokkar eigi í vaxandi mæli eftir að flytjast til sveitarfélananna á næstu árum, og þá skiptir miklu máli hvernig tekið verður á þessum viðfangsefnum. Í þeim efnum viljum við að virðing, valfrelsi og hjálp til sjálfsbjargar, verði höfð að leiðarljósi. Hér skiptir öllu máli að félagsmálaþjónusta snúist um hjálp til
sjálfsbjargar og um félagslega virkni og lífsfyllingu, en ekki um það eitt að gera öryggisnet samfélagsins að hengirúmi. Hægri húmanismi okkar sjálfstæðismanna snýst einmitt um þessi atriði en vinstri flokkarnir hafa ekki unnið sína heimavinnu í þessum efnum.’’ - Eru borgarstjórnarkosningar alltaf persónulegar í þeim skilningi að borgarbúar séu ekki einungis að kjósa framboðslista flokkanna, heldur einnig að spá í það hver verði næsti borgarstjóri? ,,Já, ég held það. Og ég vona að svo verði sem lengst. Borgarstjóraembættið skiptir gífurlega miklu máli. Góður borgarstjóri í Reykjavík getur svo sannarlega verið í fararbroddi í framþróun þjóðarinnar og hefur oft verið það. Það má hins vegar alls ekki gleyma framboðslistunum og þeim sem þá skipa. Ég tel það feikilega mikilvægt að við sjálfstæðismenn bjóðum nú fram einhver öflugasta framboðslista sem sjálfstæðisflokkurinn hefur nokkurn tíma haft á að skipa hér í Reykjavík.’’ - Lengst af sátuð þið sjálfstæðismenn einir að þeim forréttindum að bjóða fram borgarstjóraefni. En nú er það liðin tíð, ekki satt? ,,Jú og nei! Ein megin ástæðan fyrir velgegni R-listans frá 1994 var sögulegt einsdæmi sem fólst í því að R-lista flokkarnir gátu komið sér saman um borgarstjóra sem var ekki sóttur í hina þrjá klassísku miðju- og vinstriflokka, Alþýðu-
flokk. Alþýðubandalag eða Framsókn, heldur til Kvennalistans, sem aldrei hafði komið að ríkisstjórn eða meirihluta borgarstjórnar. Með breyttu flokkakerfi á vinstri vængnum brást þessi forsenda og síðan hefur óeining í R-listanum kristallast í vandræðagangi um borgarstjóra. Eftir höfðinu dansa limirnir, en ef þeir eru ósammála um höfuðið, er ekki við góðu að búast.’’ - Hvaða kostum þarf góður borgarstjóri að vera búinn? ,,Ég hef að vissu leyti svarað þessari spurningu. Góður borgarstjóri þarf að búa yfir reynslu, pólitískri hugsjón og hafa leiðtogahæfileika. Leiðtogahæfileikar hans eru ekki síst fólgnir í því, að hefja sig yfir fjölmiðlaþras líðandi stundar, sjá skóginn fyrir trjánum, vita hvert hann ætlar og taka daglegar ákvarðanir í samræmi við það. Á þessu öllu hefur því miður verið mikill misbrestur að undanförnu. Ég mun gera á því bragarbót ef við sjálfstæðismenn fáum til þess brautargengi.’’ - Fáið þið það? ,,Það er ýmsilegt sem bendir til þess þó enn geti brugðið til beggja vona. Við höfum unnið okkar heimavinnu vel, heimsótt fjölda fyrirtækja síðastliðin tvö ár og lagt mikla vinnu í faglega stefnumótun. Ólíkt R-listaflokkunum, vitum við hvar við stöndum, hvert við ætlum og getum boðið borgarbúum upp á einn flokk til ábyrgðar. Ef Reykvíkingar eru sama sinnis, verður sannkallað ,,Vorkvöld í Reykjavík'’’ þann 27 maí nk.
10
Fréttir
Árbæjarblaðið
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson skipar efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 27. maí og er borgarstjóraefni flokksins:
,,Vorkvöld í Reykjavík þann 27. maí’’ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, leiðtogi og borgarstjóraefni sjálfstæðismanna í Reykjavík, hélt upp á sextugs afmæli sitt þann 26. apríl sl. Það verður því ekki sagt um Vilhjálm að hann sé dæmigerður ungur maður á uppleið. Sumir pólitískir mótherjar hans hafa jafnvel gefið það varfærnislega í skyn að Vilhjálmur sé orðinn of fullorðinn til að sækjast eftir erilsömu borgarstjórastarfi. Aðrir andmæla viðhorfum af þessu tagi, telja að hér sé of langt gengið í æskudýrkun, og að einstaklingurinn sjálfur, reynsla hans, hæfni og almenn viðhorf, skipti megin máli. Ef hugað er að þessum atriðum stendur Vilhjálmur vel að vígi. Hann hefur verið borgarfulltrúi frá 1982, borgarráðsfulltrúi frá 1986, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 1990, hefur setið í fjölda mikilvægra nefnda og ráða borgarinnar um árabil og var m.a. formaður skipulagsnefndar 1982-94, þegar lóðaframboð og íbúðauppbygging var meiri í Reykjavík en nokkurn tíma, fyrr eða síðar. Hann hefur því án efa meiri reynslu af stjórnsýslustörfum borgarinnar og sveitarstjórnarmálefnum almennt, en nokkur annar Íslendingur. Hann hefur ætíð notið trausts og virðingar, samherja, jafnt sem pólitískra mótherja, fyrir eljusemi og skipulögð vinnubrögð, er raunsær og skilningsríkur gagnvart öllum þeim fjölda borgarbúa sem til hans leita, og hefur unnið meira og lengur að húsnæðis- og hjúkrunarmálum aldraðra en nokkur annar borgarfulltrúi. - Vilhjálmur, ef þetta er nú allt raunin, hvers vegna hefur þú ekki orðið borgarstjórarefni sjálfstæðismanna fyrr? ,,Fyrir því eru ýmsar ástæður. Sumar tilviljunarkenndar, aðrar persónulegar, eins og gengur. Ég gæti reynt að greina þær hér, en ég sé ekki að það skipti neinu máli fyrir mig eða kjósendur. Það hefur óneitanlega komið sterklega til álita áður að ég yrði borgarstjóraefni flokksins, en líklega er meginástæðan sú, að ég sóttist aldrei eftir því af fullum þunga fyrr en nú. Það skiptir hér líka miklu máli að jafnframt því að vera borgarfulltrúi og borgarrráðsmaður hef ég gegnt afar veigamiklu starfi sem formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ég hef alltaf lagt áherslu á það að vera trúr mínu starfi og ég get ekki sagt, að þrátt fyrir öll mín störf í þágu Reykjavíkurborgar, hafi ég gengið með borgarstjóraembættið í maganum í öll þessi ár. Slík ófrávíkjanleg markmið eru engum holl til lengdar.’’ - Ætlarðu að halda því fram að bogarstjóraembættið hafi aldrei freistað þín?
,,Ó nei, engan veginn. Ég held að það hljóti að vera mjög skemmtilegt að vera borgarstjóri, - sérstaklega ef maður kann til verka og allt gengur í haginn. En ég held líka að það sé hörmulegt að taka að sér veigamikil embætti fyrir ríki eða borg og standa sig ekki í stykkinu, - og þeim mun verra eftir því sem embættið er veigameira. Mér finnst fjölmiðlar gera of mikið úr þeirri röngu afstöðu, að lífshamingjan sé fólgin í metorðum, einum saman. Gæfumaður er sá sem vinnur verk sín samviskusamlega, hver sem þau eru - stendur sig í hlutverki sínu gagnvart fjölskyldu sinni og samfélagi, og getur kinnroðalaust litið um öxl og sagt sem svo: ,,Ég stóð mína vakt og lét gott af mér leiða.’’ Ekkert í lífinu er mikilvægara en að standa sína pligt og gera sitt besta. Allt annað er hégómi í samanburði við það. Þetta viðhorf er ég alinn upp við og þetta skilja flestir Íslendingar, ekki síst sjómenn af gamla skólanum. Kannski finnst einhverjum þetta háfleygt, en ég er sannfærður um að þetta eru sígild sannindi um lífið, tilveruna og hamingjuna, og ég hef alla tíð reynt að lifa og starfa samkvæmt þessu.’’ - En þá hlýturðu að vera sannfærður um það núna að þú sért besti kosturinn sem næsti borgarstjóri Reykjavíkur? ,,Já, ég held ég sé það, - að vandlega yfirveguðu ráði. Annars hefði ég ekki lagt í þessa vegferð, fyrst í spennandi prófkjör, og síðan í þessa kosningabaráttu sem er ekki síður spennandi. En í þessari afstöðu minni er hvorki fólgin nein sérstök sjálfumgleði, né vanvirða gagnvart mótherjum mínum sem gæla við sömu embættishugmynd. Ég held að ýmsir gætu orðið ágætis borgarstjórar. Til þess þarf enga sérgáfu. En til þess þarf þó hugsjón, ótvíræða leiðtogahæflileika og töluverða reynslu af sveitarstjórnarmálum. Ég brenn í skinninu að láta gott af mér leiða í þessu embætti og ég er sannfærður um að ég kann til þessara verka.’’ - Stefnuskráratriði þín og borgarstjórnarflokksins um málefni aldraðra og um fjölskyldumál hafa vakið þá spurningu hjá pólitískum mótherjum ykkar að þú sért að leika pólitískan einleik innan Sjálfstæðisflokksins. Er það raunin? ,,Nei, engan veginn! Árásir R-lista flokkanna á ríkisstjórina í þessari kosningabaráttu eru í megin atriðum ósanngjarnar svo ekki sé meira sagt. Það er hins vegar afstaða mín og annarra frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að svara ekki fyrir þessar árásir. Ef við gerðum það værum við að samþykkja þá ósk R-lisaflokkanna, að breyta borgarstjórnarkosningum í Alþingiskosningar.
,,Góður borgarstjóri þarf að búa yfir reynslu, pólitískri hugsjón og hafa leiðtogahæfileika. Leiðtogahæfileikar hans eru ekki síst fólgnir í því, að hefja sig yfir fjölmiðlaþras líðandi stundar, sjá skóginn fyrir trjánum, vita hvert hann ætlar og taka daglegar ákvarðanir í samræmi við það.’’ Það hefur alltaf verið fyrir hendi tiltekin togstreyta milli ríkisstjórnar og borgarstjórnar um kostnaðarliði þeirra málaflokka sem báðir aðilar standa að, alveg óháð hægri eða vinstri stjórnum í ríkisstjórn eða borgarstjórn. Árásir R-listaflokkanna núna á ríkisstjórnina, helgast af því einu að þeir vilja firra sig ábyrgð. Það er að mínum dómi afar ótrúverðugt af núverandi borgarstjórnarmeirihluta, að reyna að halda því fram gagnvart kjósendum, að Reykjavíkurborg hafi nánast ekkert að segja um málefni eldri borgara, eða um stofnbrautir borgarinnar. Það er alrangt og svo hefur aldrei verið. Í þessum málaflokkum hefur borgarstjórnin einfaldlega staðið sig mjög illa og reynir því að koma sökinni yfir á aðra.’’ - Því hefur verið haldið fram í spjallþáttum að undanförnu að allir stjórnmálaflokkar sæki nú inn að miðjunni með mjúka pakka og aukin útgjöld. Eru allir stjórnmálaflokkarnir orðnir eins í Reykjavík? ,,Nei! Afstaða okkar byggir á yfirveguðu mati og reynslu af þeim málaflokkum er lúta að öldruðum og félagsmálum almennt. Ég held að þessir málaflokkar eigi í vaxandi mæli eftir að flytjast til sveitarfélananna á næstu árum, og þá skiptir miklu máli hvernig tekið verður á þessum viðfangsefnum. Í þeim efnum viljum við að virðing, valfrelsi og hjálp til sjálfsbjargar, verði höfð að leiðarljósi. Hér skiptir öllu máli að félagsmálaþjónusta snúist um hjálp til
sjálfsbjargar og um félagslega virkni og lífsfyllingu, en ekki um það eitt að gera öryggisnet samfélagsins að hengirúmi. Hægri húmanismi okkar sjálfstæðismanna snýst einmitt um þessi atriði en vinstri flokkarnir hafa ekki unnið sína heimavinnu í þessum efnum.’’ - Eru borgarstjórnarkosningar alltaf persónulegar í þeim skilningi að borgarbúar séu ekki einungis að kjósa framboðslista flokkanna, heldur einnig að spá í það hver verði næsti borgarstjóri? ,,Já, ég held það. Og ég vona að svo verði sem lengst. Borgarstjóraembættið skiptir gífurlega miklu máli. Góður borgarstjóri í Reykjavík getur svo sannarlega verið í fararbroddi í framþróun þjóðarinnar og hefur oft verið það. Það má hins vegar alls ekki gleyma framboðslistunum og þeim sem þá skipa. Ég tel það feikilega mikilvægt að við sjálfstæðismenn bjóðum nú fram einhver öflugasta framboðslista sem sjálfstæðisflokkurinn hefur nokkurn tíma haft á að skipa hér í Reykjavík.’’ - Lengst af sátuð þið sjálfstæðismenn einir að þeim forréttindum að bjóða fram borgarstjóraefni. En nú er það liðin tíð, ekki satt? ,,Jú og nei! Ein megin ástæðan fyrir velgegni R-listans frá 1994 var sögulegt einsdæmi sem fólst í því að R-lista flokkarnir gátu komið sér saman um borgarstjóra sem var ekki sóttur í hina þrjá klassísku miðju- og vinstriflokka, Alþýðu-
flokk. Alþýðubandalag eða Framsókn, heldur til Kvennalistans, sem aldrei hafði komið að ríkisstjórn eða meirihluta borgarstjórnar. Með breyttu flokkakerfi á vinstri vængnum brást þessi forsenda og síðan hefur óeining í R-listanum kristallast í vandræðagangi um borgarstjóra. Eftir höfðinu dansa limirnir, en ef þeir eru ósammála um höfuðið, er ekki við góðu að búast.’’ - Hvaða kostum þarf góður borgarstjóri að vera búinn? ,,Ég hef að vissu leyti svarað þessari spurningu. Góður borgarstjóri þarf að búa yfir reynslu, pólitískri hugsjón og hafa leiðtogahæfileika. Leiðtogahæfileikar hans eru ekki síst fólgnir í því, að hefja sig yfir fjölmiðlaþras líðandi stundar, sjá skóginn fyrir trjánum, vita hvert hann ætlar og taka daglegar ákvarðanir í samræmi við það. Á þessu öllu hefur því miður verið mikill misbrestur að undanförnu. Ég mun gera á því bragarbót ef við sjálfstæðismenn fáum til þess brautargengi.’’ - Fáið þið það? ,,Það er ýmsilegt sem bendir til þess þó enn geti brugðið til beggja vona. Við höfum unnið okkar heimavinnu vel, heimsótt fjölda fyrirtækja síðastliðin tvö ár og lagt mikla vinnu í faglega stefnumótun. Ólíkt R-listaflokkunum, vitum við hvar við stöndum, hvert við ætlum og getum boðið borgarbúum upp á einn flokk til ábyrgðar. Ef Reykvíkingar eru sama sinnis, verður sannkallað ,,Vorkvöld í Reykjavík'’’ þann 27 maí nk.
Sérstakt sóltilboð á Ford Nýtt tákn um gæði
Mondeo Trend Plus 2,0i 5 dyra, 5 gíra* Bílasamningur 27.490 kr. Rekstrarleiga 41.120 kr. Verð án sóltilboðs 2.350.000 kr. Sóltilboð 2.250.000 kr. Sóltilboð á sjálfskiptum Mondeo Trend Plus: Til viðbótar aðeins 140.000 kr.
Mondeo Trend Plus
27.490 *
Mán.gr. Bílasamningur Lýsingar og Brimborgar
Sumarið er komið í Brimborg. Nú er rétta tækifærið til að fá sér nýjan bíl fyrir sumarfríið á sérstöku sóltilboði Brimborgar. Skoðaðu góðan Bílasamning* Lýsingar og Brimborgar - aðeins 20 prósent út og lágar mánaðargreiðslur. Skoðaðu Mondeo Trend Plus eða Focus C-Max Trend Plus frá Ford. Vertu í hópi þeirra bestu. Komdu í Brimborg.
Við staðgreiðum gamla bílinn þinn Þú veltir fyrir þér hvernig best er að losna við gamla bílinn. Brimborg kaupir hann af þér staðgreitt** veljir þú bíl á góðu sóltilboði Brimborgar. Þú færð peninginn beint í vasann eða greiðir upp lánið á gamla bílnum. Þú losnar við allt umstang við að selja og lækkar þinn kostnað. Komdu í Brimborg. Kynntu þér hvernig þú getur fengið þér nýjan Ford.
Focus C-Max - eins og að vera á fyrsta farrými
Betra aðgengi, mikið rými og góð þjónusta eru atriði sem Focus C-Max eigendur sækjast eftir. Aðstaðan um borð getur vart verið betri. Allir sitja hátt með góða yfirsýn. Auðvelt að sinna yngri börnunum og færa þau í og úr barnabílstólum. Eldri börn sitja hvert fyrir sig í sérstöku sæti en þrjú sérstök aftursæti eru í Focus C-Max. Kerran fær einnig gott rými í skotti. Focus C-Max stenst ströngustu kröfur þýsku TÜV eftirlitsstofnunarinnar við ofnæmisprófanir.
Focus C-Max Trend Plus 2,0i 5 dyra, sjálfskiptur* Bílasamningur 29.200 kr. Rekstrarleiga 41.670 kr. Verð án sóltilboðs 2.590.000 kr. Sóltilboð 2.390.000 kr.
Focus C-Max Trend Plus
29.200
*
GCI ALMANNATENGSL - GREY COMMUNICATIONS INTERNATIONAL
(mán.gr. bílasamningur)
Komdu núna. Sóltilboð Brimborgar gildir aðeins til 27. maí n.k. eða meðan birgðir endast.
Nýttu þér sérstakt Trend-plús sóltilboð Brimborgar: Ford Mondeo Trend Plus og Ford Focus C-Max Trend Plus.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.ford.is * Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Lán er bílasamningur með 20% útborgun og mánaðarlegum greiðslum í 84 mánuði og eru háðar breytingum á vöxtum og gengi erlendra mynta 50% isk / 50% erl.myntkarfa. Leiga er rekstrarleiga og er miðuð við mánaðarlegar greiðslur í 39 mánuði sem eru háðar gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra. Smur- og þjónustueftirlit samkvæmt ferli framleiðanda og Brimborgar er innifalið í leigugreiðslu og allt að 20.000 km akstur á ári. ** Staðgreitt 45 dögum eftir afhendingu nýja bílsins. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar. Aukabúnaður á myndum eru álfelgur.
12
Fréttir
Árbæjarblaðið
Borgarstjórinn úr Árbænum
- Samfylkingin í Reykjavík leggur áherslu á jafnan rétt allra til þjónustu Árbæingur skipar efsta sæti lista Samfylkingarinnar og segir hann reynsluna úr hverfinu nýtast vel í ráðhúsinu. Dagur B. Eggertsson er alinn upp í Árbænum og þekkir því til hverfisins eins og hvefisbúar hafa kynnst í verkum hans sem formaður Hverfisráðs Árbæjar. Nái Samfylkingin kjöri í vor verður Dagur fyrsti borgarstjórinn sem alinn er upp austan Elliðaáa. ,,Það að hafa alist upp í Árbænum breytir töluvert sjónarhorni mínu sem frambjóðanda í borgarstjórnarkosningum,’’ segir hann. ,,Maður þekkir þau viðfangsefni sem tengjast nýjum hverfum og uppbyggingu þeirra mun betur en ella. Fylkir varð t.a.m. strax mjög öflugt íþróttafélag en samt þurftum við að sækja allar æfingar í Breiðholt. Við lögðum líka sjálf allar þökurnar á grasvöllinn. Þannig að ég skil vel eðlilegar kröfur um að þjónusta byggist upp samhliða íbúahúsnæði í hverfinu.’’ Dagur þekkir það sem þarf til að hverfi geti notið sín sem best. ,,Það sem skiptir mestu máli til þess að hverfi nái að blómstra er gott fólk og náið samfélag þess á milli. Það skiptir miklu máli að ná upp hverfisstemningu til að fólk standi saman þegar eitthvað bregður útaf og geti tekið á því áður en það vindur upp á sig og verður stórt vandamál. Það skiptir miklu máli að nágrannar fylgist
með húsum hver hjá öðrum þegar fólk er í sumarfríi. Að fólk keyri þannig um íbúagöturnar að það virði rétt annarra á rólegu og öruggu umherfi. Ef að svona atriði eru í lagi kemur hitt að sjálfu sér; mannlífið, samskiptin og stemningin fyrir íþróttaleik eða hverfishátíð. Samt sem áður þarf að hugsa fyrir svona þegar hverfin eru skipulögð og þjónustan í þeim útfærð. Það hefur gengið vel að mynda góðan anda hér í Árbænum.’’
Áhrif fólksins ,,Ég hef stundum sagt að stjórnmálin séu of mikilvæg til að láta þau stjórnmálamönnunum einum eftir,’’ segir Dagur. Hann er menntaður læknir auk þess sem hann tók meistaragráðu í alþjóðamannréttindalögum í háskólanum í Lundi, Svíþjóð. ,,Það þarf allskonar fólk inn í stjórnmál til að hafa áhrif á samfélagið. Ég lít ekki nauðsynlega á þetta sem æviferil heldur sem tímabundið verkefni sem maður tekur að sér í umboði kjósenda og reynir að sinna eins vel og maður getur, reynir að koma miklu í verk á stuttum tíma. En það skiptir líka miklu máli hvernig er unnið. Ég er fulltrúi allra Reykvíkinga. Að mínu mati þarf góður stjórnandi bæða að hafa skýra sýn en um leið skynsemi til að hlusta á fólk og virkja sjálfstæða hugsun þess og frumkvæði. Í stórum málum þar sem ólíkir hagsmunir vegast á skiptir
,,Við höfum lagt áherslu á hverfin sem sterkar einingar með þjónustu eins nálægt íbúum og hægt er.’’ miklu að vaða ekki áfram með gömlu valtaratækninni heldur finna lausnir sem við getum lifað með. Ekki bara í fimm mánuði eða til næstu kosninga, heldur í hálfa eða heila öld. Þá getur maður þurft að standa á móti skammtímasjónarmiðum Sjálfstæðismanna í ríkisstjórn, þessu nánasarviðhorfi sem þeir oft hafa þegar uppbygging í Reykjavík er annars vegar. Þar er oft reynt að þröngva ódýrustu og oft verstu
Dagur bíður spenntur við ráslínuna í hinu árlega Fylkishlaupi á yngri árum.
lausninni upp á borgarbúa. Í þeim tilvikum verðum við að taka fast á móti.’’
Kraftmikil uppbygging ,,Í Árbænum hefur okkur tekist að hrinda í verk fjölmörgum verkefnum á þessu kjörtímabili. Lokið var við viðbyggingar við alla skólana, hið langþráða bókasafn hefur verið opnað, komin er gervigrasvöllur við Fylkisvöll og umferðaröryggisáætlun hefur verið innleidd. Öflug, alhliða þjónustumiðstöð hefur einnig verið opnuð fyrir Árbæ og Grafarholt eins og kunnugt er. Í Grafarholti vígðum við einn glæsilegasta skóla landsins, Ingunnarskóla, sem fær heimsóknir víða að vegna útfærslu sinnar og framsækins skipulags. Árbæjartorg er jafnframt orðið að veruleika, þar sem áður var ófrágengið svæði milli Árbæjarskóla, kirkjunnar og Ársels. Næstu skref felast í því að bæta þar enn frekar umhverfið og stuðla að því að kaffihús verði rekið í nágrenni útivistarsvæðisins í Elliðaárdal. Á svæði Fylkis í Lautinni á að hefja uppbyggingu í samræmi við stefnumótun félagsins til framtíðar og hafa á fjórða hundruð milljónir verið ætlaðar til þeirra verkefna til næstu þriggja ára.’’ - Eru þetta ekki bara loforð? ,,Nei, við höfum látið verkin tala í Árbænum. Við höfum undanfarið lagt áherslu á hverfin sem sterkar einingar með þjónustu eins nálægt íbúum og hægt er. Við höfum lagt áherslu á íbúalýðræði og nærsamfélagið sem var algjörlega nýtt fyrirbæri þegar við fórum að vinna á þessum nótum. Hörðustu pólistísku slagirnir í borgarstjórn á þessu kjörtímabili hafa verið um stofnun þjónustumiðstöðva í öðrum hverfum. Við viljum hugsa um hverfin sem
heild en ekki að öllum þessum hlutum sé miðstýrt úr miðbænum. Við viljum aukið sjálfstæði skóla, aukið sjálfstæði þjónustunnar og efla samráð við íbúana. Ef fólk vill sjá meiri framþróun í þessum efnum hlýtur það að horfa sterklega til okkar. Þá sjáum við fyrir okkur að heilsugæslan, málefni fatlaðra og málefni aldraðra ásamt núverandi starfsemi þjónustumiðstöðvanna myndi eina sterka heild svo fólk geti leitað á einn stað með öll sín mál. Í stað þess að vera sent á milli mismunandi stofnana eins og núna á meðan þessi verkefni eru hjá ríkinu. Stundum illa sinnt - því miður.’’
Næg verkefni ,,Við höfum lagt mjög glæsilegan grunn undanfarin ár sem hluti af Reykjavíkurlistanum. En verkefnunum er hvergi nærri lokið. Stefnuskráin okkar er mjög metnaðarfull og við erum þegar byrjuð á sumum verkefnunum. Samfylkingin státar af gífurlega sterkum hópi frambjóðenda sem myndar góða heild. Við höfum reynslubolta úr borgarstjórninni í bland við nýja einstaklinga með ferska sýn á borgarmálin. Við sjáum gríðarlega mörg tækifæri og viljum alls ekki snúa klukkunni til baka eins og sumir virðast vilja. Við leggjum það óhrædd í dóm borgarbúa hvaða fólk er best til þess fallið að halda áfram að byggja upp þessa nýju Reykjavík sem hefur á rúmum áratug breyst úr því að vera smábær í að vera eftirsótt og þekkt um allan heim kraftmikil og lifandi borg með öruggri þjónustu, öflugu atvinnulífi, blómstrandi menningarog menntastofnunum og síðast en ekki síst frábærum hverfum eins og Árbænum.’’
15
14
Fréttir
Árbæjarblaðið
Hér var greinilega eitthvað spennandi að gerast.
Margt var íboði fyrir börnin.
Fréttir
Árbæjarblaðið
Eins og sjá má á þessari mynd voru allir í hátíðarskapi enda sumarið loksins komið.
Gospelkór Árbæjar söng falleg sumarlög.
Rapp-sveitin Bust'a Bitches úr Árbænum sló í gegn.
Bjarni Þór Þórólfsson útibússtjóri SPV Árbæ bauð gesti velkomna og kynnti dagskrá hátíðarinnar.
SPV veitti fjórum handboltahetjum í Árbænum verðlaun fyrir frábæran árangur.
Fjölskylduhátíð SPV á sumardaginn fyrsta
Fólkið naut veðurblíðunnar og skemmtiatriðanna. Þessar lifðu sig inn í það sem í boði var á sviðinu.
Besta útsýnið var úr fangi mömmu og pabba.
Spenntir Árbæingar.
Margir voru með blöðrur og hoppukastalinn lék stórt hlutverk.
Þessi fjölskylda hafði það gott í blíðunni.
SPV stóð fyrir veglegri hverfishátíð í Árbænum á sumardaginn fyrsta. Hátíðin heppnaðist í alla staði mjög vel og létu íbúar sig að sjálfsögðu ekki vanta. Um leið og SPV fagnaði með Árbæingum sumardeginum fyrsta, var haldið upp á að nú eru liðin fjögur ár síðan SPV flutti útibú sitt frá Rofabæ að Hraunbæ 119. Í máli Bjarna Þórs Þórólfssonar útibússtjóra kom fram að saga Sparisjóðsins í
Árbænum er mun lengri en svo, því það eru 15 ár síðan Sparisjóðurinn opnaði fyrst afgreiðslu í húsnæði Nóatúns í Rofabænum. Á hátíðinni, sem haldin var í samvinnu við ÍTR, Fylki, Vífilfell, Árbæjarbakarí og fleiri aðila komu fram ýmsir frambærilegir listamenn sem fóru á kostum. Flaututríó og jazz-sveit nemenda Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar fluttu listilega
nokkur lög. Gospelkór Árbæjar söng falleg sumarlög og Ronja Ræningjadóttir gladdi unga sem aldna með boðskap sínum. Allt ætlaði þó um koll að keyra þegar Rapp-sveitin Bust'a Bitches úr Árbænum steig á svið. SPV veitti fjórum ungum Árbæingum viðurkenningu fyrir frábæran árangur í handbolta, en þær Elín Helga Jónsdóttir, Hanna Rut Sigurjónsdóttir, Iðunn Elva Ingibergsdóttir og Nataly Sæunn
Valencia voru valdar í U-16 ára landslið kvenna. Í tilefni af afmælinu var gestum boðið upp á afmælisköku, gos og pylsur. SPV hefur lagt mikla áherslu á þá hverfismenningu sem ríkir í Árbænum og styrkir íþrótta-, menningar- og félagsstarf myndarlega í því skyni að gefa samfélaginu til baka og styðja við bakið á þeim aðilum sem vinna mjög gott starf á svæðinu.
Þessi ungmenni spiluðu af mikilli snilld.
Fullorðna fólkið skemmti sér líka vel.
Frambjóðendurnir Dagur B. Eggertsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson voru mættir með sínum heittelskuðu.
Ronja Ræningjadóttir vakti mikla lukku meðal yngri kynslóðarinnar.
16
Fréttir
Egilshöllinni Sími: 594-9630
www.orkuverid.is
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Alhliða líkamsrækt og sjúkraþjálfun
Eitt númer
410 4000
Árbæjarblaðið
Fylkir - Íþróttafélagið í Árbænum Við erum heppin! Við búum í Árbænum! Við eigum Fylki! Þetta er yfirskrift á bæklingi sem ber heitið "Fylkishjartað 2006" og borið var út fyrir stuttu á hvert heimili í Árbæjarhverfum. Það eru orð að sönnu að við sem búum í Árbænum erum heppin að eiga Fylki. Það kemur alltaf betur og betur í ljós að íþróttir eru besta vopnið í baráttunni gegn ýmsum kvillum nútímans eins og offitu og hreyfingarleysi. Margar rannsóknir sýna að regluleg hreyfing bætir námsgetu og geðheilsu svo eitthvað sé nefnt og því er þeim fjármunum sem fara til uppbyggingar íþróttamannvirkja vel varið.
sökum þess og á það fyrst og fremst við fimleika. Á síðasta ári lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram tillögu í íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur um að úrbætur yrðu gerðar í aðstöðumálum Fylkis, m.a. með byggingu fimleikahúss og aðstaða yrði bætt fyrir knattspyrnu. Í framhaldi af þessari tillögu voru 350
Björn Gíslason, Árbæingur og frambjóðandi skrifar:
Aðstöðuvandi Fylkis Öflugt íþróttastarf hefur verið innan raða Fylkis og kemur þar að fjöldi sjálfboðaliða í ýmsum nefndum og ráðum og eru allir hvattir til að vera með í fjölbreyttu starfi félagsins. Geta félagsins til að sinna þeim mikla fjölda sem vill taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi er því miður takmörkuð. Aðstöðuleysi hrjáir mjög félagið og hefur þurft að vísa börnum frá
Kjósum
trúverðugt fólk
milljónir eyrnamerktar uppbyggingu hjá Fylki í þriggja ára áætlun borgarinnar. Það sjá allir að þetta hrekkur skammt og betur má ef duga skal. Fimleikahús og ný áhorfendastúka við aðalknattspyrnuvöll félagsins sem jafnframt þarf að uppfylla kröfur KSÍ er efst á óskalista Fylkis yfir framkvæmdir á svæði félagsins. Fimleikadeild Fylkis á 30 ára afmæli á árinu og er löngu tímabært að aðstaða deildarinnar batni en vel á 3ja hundrað iðkendur eru hjá deildinni og komast færri að en vilja eins og áður hefur komið fram.
Frumkvæði sjálfstæðismanna Á síðasta áratug átti sér stað mikil uppbygging íþróttamannvirkja í
Reykjavík undir forystu meirihluta Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Gerð var áætlun um byggingu nýrra íþróttahúsa í flestum hverfum borgarinnar m.a. íþróttahús Fylkis í Árbænum. Sjálfstæðismenn gerðu sér ljóst að bæta þyrfti aðstæður til íþróttaiðkunar í hverfum borgarinnar og fjölga iðkendum. Þó borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi setið í minnihluta í borgarstjórn hafa þeir beitt sér fyrir ýmsum framfaramálum í þágu íþróttahreyfingarinnar í borginni. Þeir áttu frumkvæði að flutningi tilagna um að bæta innra starf íþróttafélaganna með hugmyndum um íþróttafulltrúa fyrir íþróttafélög og sérstaka þjónustusamninga milli borgarinnar og íþróttafélaga. Þessar hugmyndir sjálfstæðismanna hafa nú báðar komist til framkvæmda þó ekki gengi það þrautalaust fyrir sig. R-listinn hefur í íþróttamálum lagt áherslu á ýmsar miðlægar framkvæmdir sem eru í sjálfu sér góðra gjalda verðar en ekki verður því á móti mælt að í þeirri vinnu hafa hagsmunir hverfisíþróttafélaga algjörlega setið á hakanum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt það með verkum sínum að hann leggur áherslu á aðstöðusköpun fyrir hverfisíþróttafélögin og mun sýna það í verki fái hann til þess stuðning borgarbúa 27. maí. Höfundur er í aðalstjórn Fylkis og skipar 13. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Umferðarteppa R-lista flokkanna Það er hlutverk borgarfulltrúa að taka ákvarðanir um öll helstu málefni borgarbúa. Það er þeirra hlutverk að útsetja, taka ákvarðanir og hafa eftirlit með framkvæmdum. Framkvæmdir borgarinnar eru á ábyrgð borgarfulltrúa, þær eru ekki á ábirgð embættismanna borgarinnar eða annarra starfsmanna. Kosningarnar 27. maí þurfa að snúast um árangur R-lista flokkanna, -það sem þeir hafa framkvæmt og það sem þeir hafa ekki framkvæmt, en hefðu kannski átt að framkvæma. Stór þáttur í starfi borgarfulltrúa er að skipuleggja borgarhverfi og umferðarmannvirki. Það vantar t.d. ekki, að Höfðabakkabrúin yfir Vesturlandveginn er "fallegt" mannvirki, en því miður misklukkað að mörgu leiti. Brúin er t.d. of lág og ekki er gert ráð fyrir að hægt sé að aka með stóran og þungan farm yfir Höfðabakkann á brúnni sjálfri. Í staðinn fer nú vaxandi umferð flutningabíla með háreistan farm um Ártúnsholtið upp Straum og um íbúðabyggð. Á sama tíma og byggðar eru mislukkuð umferðarmannvirki sem mest líkjast listaverkum eru engar framkvæmdir á gatnamótum sem fyrir löngu eru hætt að anna umferðarþunga. Sem dæmi má nefna gatnamót Bústaðarvegar og Reykjanesbrautar. Þeir sem þurfa að fara um þessi gatnamót á annatíma milli kl. 16:00 og 18:00 á
virkum dögum eyða þar oft löngum tíma í bið. Biðröðin er stundum svo löng að hún nær út á Miklubraut. Á þessum gatnamótum þarf að setja Bústaðaveginn í stokk undir Reykjanesbrautina, svipaðan þeim þar sem Kringlan liggur undir Miklubraut. Á sama tíma og umferðarhnúturinn er sem mestur við Bústaðarveg nær önnur bílaröð, frá ljósunum á gatnamótum Stekkjarbakka og Höfðabakka niður að ljós-
Kjartan Eggertsson, Árbæingur og frambjóðandi, skrifar:
Virðum óskir íbúanna
ODDI VOA 9130
Árbæjarsafn á sínum stað
Kosningaskrifstofa Aðalstræti 9, s. 552 2600 • flistinn @xf.is • www.f-listinn.is
unum við Þönglabakka . Fyrir löngu hefði þurft að vera byrjað að byggja upp þessa leið. Svipað ástand er víða í borginni, en R-lista flokkarnir sitja bara með hendur í skauti. Það er krafa F-listans í viðræðum við myndun nýrrar borgarstjórnar að hafist verði handa við að byggja upp gatnamót þar sem umferðarhnútar myndast á álagstímum og að öllum umferðarljósum og hindrunum verði eytt á stofnbrautum í Reykjavík. Kjartan Eggertsson er í 6. sæti á F-lista við borgarstjórnarkosningarnar 27. maí.
17
Stangaveiði
Árbæjarblaðið
www.krafla.is Gylfi Kristjánsson, höfundur Króksins, Mýslunnar, Beykis og nú síðast Beyglunnar, kastar Króknum á hinni einu sönnu Króksbreiðu í Eyjafjarðará. Þessi mynd segir mikla sögu. Hér var Krókurinn frumsýndur á sínum tíma. Hann hefur síðan skilað veiðimönnum rosalegri veiði og stórum bleikjum, Gylfa og syni hans rúmlega 9 punda bleikjum eitt árið. Krókurinn er án efa ein besta íslenska silungaflugan á markaðnum í dag og nýja flugan, Beyglan, virðist ekki ætla að gefa honum neitt eftir.
Margt nýtt á Krafla.is - áhugamenn um lax- og silungsveiði, ættu að kíkja á Krafla.is Rétt er að benda veiðimönnum á ársgamlan veiðivef og netverslun, Krafla.is Þar eru til sölu íslenskar laxa- og silungaflugur í hæsta gæðflokki eftir Kristján Gíslason og Gylfa Kristjánsson. Kröflurnar eru nú til sölu á Kristján er án efa einn þekktasti fluguhnýtingaKrafla.is en sem keilutúpur hafa maður landsins og sá fyrsti hérlendis sem hnýtti hinar þekktu Kröfluflugur aldrei flugur með hárvæng. Kristján er þekktastur fyrir verið hnýttar áður. Kröflurnar Kröflurnar í ýmsum litum en einnig má nefna flugeru til í öllum litum og tveimur ur eftir hann eins og Iðu, Grímu bláa, Grænfriðung, stærðum og þriðja stærðin Skörgg að ógleymdum Elliðanum og mörgum öðrbætist við innan skamms. um þekktum flugum. Núna eru nýkomnar margar nýjar flugur á Krafla.is og nýjar útfærslur af öðrum. Fyrir laxveiðina ber hæst að Kröflutúpurnar eru nú komnar í fyrst skipti sem keilutúpur. Þær hafa aldrei verið hnýttar sem slíkar áður. Einnig má sjá margar aðrar nýungar á Krafla.is Þar má nefna nýjar útfærslur af Grímum sem gárutúpur og þekktar laxa- og silungaflugur í stærðum sem aldrei hafa sést áður, t.d. örsmáar flugur númer 16 og 18 sem eru mjög öflugar silungaflugur. Einnig má nefna SilungaKröflur á einkrækju með kúluhaus og margt fleira. Þá eru silungaflugurnar Krókurinn, Mýsla og Beykir nú til í stærðum 12, 14 og 16 og hafa þær alrei verið hnýttar eða Svarta Kraflan seldar svo smáar áður. Þá er nýjasta silmeð gulri keilu er ungafluga Gylfa, Beyglan, nýkomin aftur vægast sagt glæsiá Krafla.is en hún seldist upp á örlegt agn. skömmum tíma. Beyglan er ekki lík nokkurri annarri silungaflugu og sannarlega sérstök og glæsileg hönnun. Efni í henni er afar sérstakt og framleitt sérstaklega fyrir Krafla.is Við heyrðum ótrúlegar sögur af Beyglunni í fyrra og þær eiga örugglega eftir að verða enn fleiri í sumar. Sjá nánar á Krafla.is
Vötn og veiði er allt í senn, tímarit, fréttaveita og veiðibók. Gamli og nýi tíminn þræddir saman. Ritstjóri er Guðmundur Guðjónsson einn sá reyndasti í stangaveiðimálefnum, með rúmlega 26 ára reynslu sem stangaveiðisérfræðingur Morgunblaðsins og ritstjóri Íslensku stangaveiðiárbókarinnar frá upphafi hennar árið 1988.
Gríma rauð sem gárutúpa en þannig hefur þessi glæsilega fluga aldrei sést áður. Ein af fjölmörgum nýungum á Krafla.is
Hér er nýjasta fluga Gylfa Kristjánssonar, Beygla. Afar sérstök silungafluga sem reyndist hreint ótrúlega vel í tilraunaveiði sl. sumar, bæði í urriða og bleikju. Flugan seldist strax upp á Krafla.is en er nú komin aftur í öllum stærðum og rennur út eins og heitar lummur.
votnogveidi.is FRÍTT VEFRIT UM STANGAVEIÐI
Votnogveidi.is er hreint magnaður veiðivefur
Guðmundur Guðjónsson er ritstjóri á Votnogveidi.is Hér er Guðmundur um það bil að sleppa ca 8 punda birtingi í Tungulæk nú í vor. Mynd Einar Falur.
Margar vefsíður fjalla um stangveiði hér álandi. Vefurinn www.votnogveidi.is hefur sérstöðu þegar kemur að fréttum úr stangaveiðiheiminum. Vefurinn er gríðarlega öflugur og á vefnum má stöðugt finna nýjustu fréttir af veiðimönnum og afrekum þeirra. ,,Vefurinn er vinsæll og gríðarlega margir
sem heimsækja hann á degi hverjum. Við reynum alltaf að vera með nýjustu fréttirnar og leggjum einnig mikið upp úr góðum myndum en Heimir Óskrsson sér að mestu leyti um þá hlið mála,’’ sagði Guðmundur Guðjónsson, ritstjóri á votnogveidi.is í samtali við okkur. Þeir félagar eru mjög ötulir við að bregða sér
af bæ og afla frétta eins og glögglega má sjá á vefnum. Yfir sumartímann er vitanlega mesta fjörið á vefnum enda vertíð veiðimanna þá í gangi. Guðmundur Guðjónsson hefur mikla reynslu af veiðiskrifum en hann vann um áratugaskeið sem slíkur á Morgunblaðinu. Mikil þekking hans á öllu tengdu veiði
auk afburða lipurðr með ,,pennann’’ skemmir ekki fyrir enda mikið atriði að skrifaður sé góður texti á vefsíðum ekki síður en annars staðar. Við hvetjum veiðimenn til að kíkja á votnogveidi.is og munum nánar greina frá þessum magnaða veiðivef síðar enda mjög margt annað að finna á vefnum en nýjar fréttir.
18
Fréttir
Árbæjarblaðið
Björn Ingi Hrafnsson, oddviti B-listans í Reykjavík:
Verndum gamla
Árbæinn Við framsóknarmenn fórum á vinnustaðafund upp í Árbæjarsafn fyrir nokkrum dögum. Þetta var af fróðlegur fundur og gerði það að verkum að okkar fólk fékk dýpri og betri skilning á stöðu mála í tengslum við þetta frábæra safn okkar reykvíkinga. Það kom nefnilega í ljós að ekkert samráð hefur verið haft við starfsfólk safnsins í tengslum við ótímabærar yfirlýsingar um að það sé að flytja. Fyrst er þó rétt að árétta að B-listinn er tilbúinn að skoða hugmyndir um framtíðarstækkun safnsins á þessum tveimur stöðum og hafnar engum hugmyndum þar að lútandi. Einu hafnar þó Blistinn og það er að skipt verði út fuglasöng á lóð Árbæjarsafnsins fyrir vinnuvélar. Við ætlum ekki að samþykkja að falleg og skemmtileg staðsetning safnsins verði nýtt undir hið fræðilega heiti ,,þéttingu byggðar.’’ Það er líka sanngjörn og eðlileg krafa að hugmyndir af þessu tagi séu ræddar í samráði við starfsfólk og fulltrúa íbúa hverfisins. Það er ljóst að hugmyndir Samfylkingar um að flytja safnið út í Viðey eru ekki einasta vanhugsaðar heldur einnig óþroskaðar. Árbær og Grafarholt eru úthverfi og sem slík þarf að vernda þau svæði sem liggja að óspilltri náttúru og um leið að
tryggja græna reiti og opin svæði.
Enn um félagsmiðstöð Unglingar í Grafarholti eru einn af þeim hópum reykvíkinga sem ég vil setja í forgang. Það er brýnt mál að koma upp sjálfstæðri félagsmiðstöð í hverfinu sem veitir þessum stækkandi hópi aðgang að góðri skemmtan og afþreyingu við hæfi í sínu hverfi. Þetta er margslungið mál. Félagsmiðstöð í eigin hverfi styrkir ímynd og tilfinningu fyrir nýrri heimabyggð. Unglingar eru okkar viðkvæmasti hópur og við verðum að huga vandlega að honum. Ég hef heyrt frá foreldrum í Grafarholti að þetta sé mjög brýnt mál og ég tek heilshugar undir það.
Úthverfi - aðalhverfi Ég hef heyrt alla flokka í þessari kosningabaráttu tala um að efla þurfi miðbæinn. Það er búið að tala um þetta í öllum sveitarstjórnakosningum sem ég man eftir hér í borginni. 101 er alltaf eitthvað sem þarf að gera betra. En hvað með úthverfin? Ég bý sjálfur í úthverfi og geri það af fúsum og frjálsum vilja. Vil
Skemmtileg borg
,,Einu hafnar þó B-listinn og það er að skipt verði út fuglasöng á lóð Árbæjarsafnsins fyrir vinnuvélar. Við ætlum ekki að samþykkja að falleg og skemmtileg staðsetning safnsins verði nýtt undir hið fræðilega heiti ,,þéttingu byggðar,’’ segir Björn Ingi Hrafnsson.
vera þar með mína fjölskyldu af því að okkur líður vel þar. Það vantar að stjórnmálamenn horfi til úthverfanna. Ég vil efla þessi hverfi og gera þau enn betri. Ég hef lagt til að við reisum stóran og mikinn vatnaskemmtigarð í Reykjavík og að sjálfsögðu í úthverfi. Þar er fólkið og þar á afþreyingin að vera.
bóknáms, íþrótta, listnáms og tómstunda í samfelldum skóladegi. Markmiðið er að vinnudegi barna ljúki fyrr á daginn og fjölskyldan eigi lengri samverustundir. Þannig verði uppfyllt markmið sem sett voru við einsetningu grunnskólans.
Menntun er málið!
Berjumst gegn einelti. Kannaðir verði kostir þess að taka upp skólafatnað í grunnskólum Reykjavíkur. Skólastjórnendur og samtök foreldra taki ákvörðun fyrir hvern skóla fyrir sig, en Reykjavíkurborg taki þátt í kostnaði við skólabúninga hjá þeim sem þess óska. Einelti vegna efnamunar má ekki viðgangast og í skólanum eiga allir að búa við jafnrétti.
,
Við í B-listanum viljum gera Reykjavík enn skemmtilegri, færa afþreyinguna til fólksins í hverfunum og skapa betri umgjörð um blómlegt mannlíf í miðborginni. - Vatnaveröld (vatnsrennibrautagarður). - Eflum og nýtum græn svæði. - Fleiri hjóla- og göngustíga. - Ókeypis í söfn í eigu borgarinnar. - Nýta skólabyggingar og félagsmiðstöðvar betur undir ýmsa starfsemi um kvöld og helgar. - Lýsum upp Geirsnefið. Bætum þjónustu við hundaeigendur. - Lokið verði við að koma upp æfingasvæði fyrir skotmenn. - Útbúa leiðarkort yfir gönguleiðirnar innan borgarlandsins. - Sædýrasafn í Laugardal. - Tryggður verði stuðningur við uppbyggingu Motorcrossbrautar. - Skautasvell á Perlunni. - Tryggja hagsmuni hestamanna vegna uppkaupa á hesthúsahverfum.
Vinnudagur barnanna okkar er of langur. Við þurfum að koma íþróttum, listnámi og tómstundastarfi inn í skóladag barna þannig að vinnudegi sé lokið þegar heim er komið. Þetta verði gert með þjónustusamningum við íþróttafélög og önnur félagasamtök þannig að allir geti tekið þátt í þróttmiklu og skapandi félagsstarfi án tillits til efnahags. Hagsmunir borgarinnar felast í öflugri lýðheilsu borgarbúa og uppbyggjandi starfi íþróttafélaga og margvíslegra félagasamtaka. ll börn í borginni, 5 til 18 ára, fái frístundakort að upphæð 40 þúsund krónur á ári sem renni til íþrótta- og tómstundaiðkunar á vegum viðurkenndra aðila. Áhersla verði lögð á samþættingu
Skólafatnaður
Leikskólinn er fyrsta skólastigið Gjaldfrjáls leikskóli fyrir öll börn frá 18 mánaða aldri þar sem tekið er tillit til þess að leikskólinn er fyrsta skólastigið og gegnir mikilvægu hlutverki að því er varðar menntun
og þroska barnanna okkar. Hugað verði að uppbyggingu smábarnadeilda í leikskólum til að uppfylla markmið um að innan tíu ára geti öll börn frá 12 mánaða aldri fengið inni á leikskóla. Starfsaðstaða leikskólakennara verði bætt og hugað að stækkun elstu leikskólanna þar sem þrengslin eru mest.
Tvísýnar kosningar Ég hef gert mitt til að reka kosningabaráttu framsóknarmanna í borginni á heiðarlegan og jákvæðan hátt. Þegar aðrir flokkar hafa hnýtt í okkur og gert grín að nýju merki flokksins hef ég kosið að þegja og tala fremur um þau mál sem ykkur varða. Þrátt fyrir þetta er gengi framsóknarmanna eða exbé eins og merkið okkar heitir ekki nægilega gott og það er ljóst að hvert einasta atkvæði okkur veitt er gríðarlega mikilvægt. Ef þér líkar það sem þú hefur lesið hér að ofan, vonast ég til að þú látir frá þér heyra. Það er einfaldast að gera það í kjörklefanum 27. maí. Þú veist hvað ég meina. Björn Ingi Hrafnsson
20
Fréttir
Árbæjarblaðið
Börnin þurfa á borginni að halda Reykjavíkurborg er búin til af fullorðnum og að mestu leyti hönnuð og skipulögð fyrir fullorðna. Umferðin, skipulagið, mannvirkin séð með augum fullorðinna með þeirra þarfir í fyrirrúmi. Það þarf vilja og kjark til að breyta borginni í þá veru að hún verði sniðin meira að þörfum barna. Nauðsynlegt er að skapa borg þar sem meira hlustað er á börn og þarfir þeirra virtar. Slík nálgun er sjálfsögð en ekki bara til hátíðabrigða. Ekki bara í ræðum á 17. júní eða áramótaávarpi heldur á hverjum degi.
Börnin eru líka Reykvíkingar Bernskan hefur sjálfstætt gildi og börn eru ekki bara fullorðnir framtíðarinnar. Það er ekki bara umdirbúningur fyrir lífið að vera barn. Það er lífið. Við Vinstrigræn viljum setja börnin í brennidepil þar sem sérhvert barn er einstakt og á rétt á því að vera meðhöndlað með virðingu af stofnunum samfélagsins. Við megum heldur ekki líta á börnin í borginni sem viðfangsefni heldur sem Reykvíkinga. Horfum á borgina með þeirra augum. Börn og ungmenni þurfa að eiga kost á bestu mögulegu skilyrðum til vaxtar og þroska. Þeirra rödd þarf að heyrast þegar verið er að ráða ráðum í borginni og stofnunum hennar. Það er algjör nauðsyn að horft sé á málefni barna á heildstæðan hátt, hvort sem um er að ræða skólamál, fjölskyldumál, félagsleg mál eða aðbúnað barna. Börn og ungmenni þurfa að fá ríkari tækifæri til að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi, koma að lýðræðislegum ákvörðunum og ferlum. Það þarf að rækta lýðræðisvitund barna og áhrifavilja með beinum hætti í leikskólum og grunnskólum og síðan framhaldsskólum.
Hlustum á börnin Öll börn eiga að búa við bestu
mögulegu uppvaxtarskilyrði sama hvernig þau eru úr garði gerð. Börn sem einhverra hluta vegna eiga ekki möguleika á fullum þroska eiga rétt á sömu möguleikum og önnur börn. Börn sem líða fyrir fátækt, fötlun eða mismunun þurfa á borginni að halda, að á þau sé hlustað og þau njóti skilnings. Viðfangsefni okkar er að eyða mismunun gagnvart börnum. Að líta á réttindi þeirra og möguleika allt frá fæðingu. Foreldraorlof þarf að lengja. Borgin á að beita þrýstingi á ríkisvaldið í þá veru. Stórauka þarn foreldrafræðslu og stuðning við unga foreldra. Borgin þarf að vinna að raunhæfum úrræðum fyrir börn frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til leikskólinn tekur við. Hjá Vinstri grænum viljum við halda áfram uppbyggingu leikskólans með því að gera þá reiðubúna til að taka á móti yngstu börnunum. Leikskólinn á að vera gjaldfrjáls, þar sem um er að ræða fyrsta skólastigið og ótækt er að þar sé gjaldtaka frekar en á öðrum skólastigum. Í leikskólum borgarinnar fer fram metnaðarfullt skólastarf, oft við erfiðar aðstæður, manneklu og hávaða. Gera þarf gangskör að því að fjölga menntuðum leikskólakennurum og bæta starfsaðstæður þeirra sem á leikskólunum starfa. Hugmyndafræði leikskólastigsins má aldeilis hefja til vegs og virðingar á öðrum skólastigum og í samfélaginu öllu. Hugmyndafræði þar sem leikurinn, uppgötvun, sköpun og barnmiðuð sýn er í brennidepli.
Kostnaðurinn er byrði Matarkostnaður í grunnskólunum er byrði fyrir sum heimili sem og kostnaður við frístundaheimili. Þennan kostnað á að innheimta í skattkerfinu en ekki af nánasta umhverfi barnanna. Það er brýnt að boðið sé upp á gjaldfrjálsar máltíðir í skólanum, hollar, fjölbreyttar og lystugar. Skóla-
Svandís Svavarsdóttir skipar 1. sæti á V-lista Vinstri - grænna í Reykjavík.
máltíðunum þarf að búa gott umhverfi fyrir spjall og notalega samveru, og góðan tími fyrir nám í samskiptum, borðsiðum og virðingu fyrir öðrum. Finnar hafa boðið upp á gjaldfrjálsan mat í grunnskólunum frá því fljótlega eftir síðari heimstyrjöld og Svíar hafa boðið upp á slíkt um árabil. Nú er komið að Íslendingum að fylgja í kjölfarið og er við hæfi að þar fari höfuðborgin í broddi fylkingar með að bjóða börnum órofinn skóladag með góðri máltíð og án gjaldtöku.
ÍTR þarf stuðning Frístundaheimilin eru nýgræðingur í þjónustunni við börnin í borginni. ÍTR hefur annast upp-
byggingu starfseminnar með faglegan metnað að leiðarljósi og hefur víða náð góðri fótfestu þrátt fyrir erfið skilyrði að því er varðar húsnæði og umbúnað annan. Í frístundaheimilinu á að fara fram uppbyggilegt starf þar sem börn eru kynnt fyrir fjölbreyttum möguleikum í tómstundastarfi, íþróttaiðkun og listum. Þar sem þjónusta af þessu tagi nýtur ekki lagaumhverfis líkt og gildir með skólastarf er brýnt að ÍTR fái pólitískan stuðning til að halda uppbyggingu starfsins áfram, þjónustan verði gjaldfrjáls og ráðist verði í að bæta aðstöðu og samstarf við skólana enn frekar en nú er. Íþróttaiðkun barna, tómstundir
og listnám eru allt mikilvægir þættir til að börn njóti fullra þroskamöguleika. Það er með öllu óeðlilegt að aðgangur þeirra að slíku ráðist af peningum foreldranna. Þar með er stórlega verið að gera upp á milli barna í möguleikum þeirra til að ná fullum þroska og styrkjast félagslega. Horfum á borgina með augum barnanna, ræktum lýðræðisvitund þeirra, drögum úr gjaldtöku vegna þjónustu við þau og jöfnum tækifæri þeirra. Það er okkar hlutverk. Svandís Svavarsdóttir skipar 1. sæti á V-lista Vinstri - grænna í Reykjavík.
Árbæingar!
Grafarvogsbúar hjólbarðaverkstæðið ykkar Snögg og góð þjónusta að verð. og er góð
Gylfaflöt 3 Reynið viðskiptin Gylfaflöt 3 • sími 567 4468
Sumarið er komið Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn og bókin Lauftré á íslandi fást nú á næsta sölustað. Tryggðu þér eintak
2 VIÐ RÆKTUM
Lauftré á Íslandi
Handhægur leiðarvísir fyrir garðeigendur og ræktendur
Frábært áskriftartilboð Árgangur 2006 af tímaritinu Sumarhúsið og garðurinn á aðeins kr. 3.550.-
Ritstjóri Auður I. Ottesen
Önnur bókin í bókaflokknum Við ræktum er komin út. Hún fjallar um 53 tegundir lauftrjáa sem geta náð 5 m hæð hér á landi. Bókin býðst einnig í áskrift á kr 2.450.- miðað við að greitt sé með VISA/MASTERCARD. Verð í verslunum kr. 2.900
Fimm blöð á ári. Greitt með VISA/MASTERCARD. Áskriftin gildir í eitt ár og endurnýjast þá sjálfkrafa sé henni ekki sagt upp fyrir þann tíma.
Nýir áskrifendur fá að gjöf bókina Garðurinn allt árið, að andvirði kr. 2.450 og geisladisk með efni eftir Stanislas Bohic garðhönnuð.
Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum okkar www.rit.is eða með því að hringja í síma 586 8005. Helstu sölustaðir í ykkar hverfi: Húsasmiðjan/Blómaval Grafarholti, Hagkaup Spönginni, Árbæjarblóm og Garðheimar í Mjódd.
Sumarhúsið og garðurinn ehf. Síðumúla 15, 108 Reykjavík Sími 586 8003 • www.rit.is
Hringdu núna! – Áskriftarsími 586 8005
Hæ pabbi! Ég fór á reykjavik.is og fletti mér upp í kjörskránni. Sá a› ég á líka a› kjósa í Rá›húsinu eins og flú, eigum vi› a› ver›a samfer›a og kíkja svo á kaffihús? Kve›ja, Sigga
Reykjavik.is, borg innan seilingar Símaverinu (411-1111) og fljónustumi›stö›vunum í hverfunum hefur bæst li›sauki flví á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is, er nú flægilegra en nokkru sinni a› n‡ta sér fljónustu borgarinnar. fiú getur rætt vi› fljónustufulltrúa, fengi› uppl‡singar um hverfi› sem flú b‡r› í, fjölskyldufljónustu e›a um fla› sem er efst á baugi hverju sinni. Einnig getur›u spara› flér sporin á umsóknarsafninu og sótt um pláss á leikskólum, atvinnu, byggingarleyfi, styrki, sumarnámskei› og margt fleira.
22
Fréttir
Árbæjarblaðið
Lóðabrask eða umhverfissjónarmið í Árbæ - Selási Skipulagsyfirvöld borgarinnar hafa hlutast til um, og stefna að, róttækum breytingum á á núverandi deiliskipulagi Árbæjar - Seláss, sem gætu haft í för með sér nýja röð einbýlishúsa fyrir neðan núverandi neðstu einbýlishúsin við Hlaðbæ, Vorsabæ, Þykkvabæ og Glæsibæ. Hér er um að ræða breytingu á deiliskipulagi sem haldist hefur óbreytt frá því hverfið var upphaflega skipulagt fyrir meira en þrjátíu og fimm árum. Breytingarnar hafa í för með sér mikla röskun fyrir eigendur og íbúa neðstu húsana í þessu hverfi, og munu án nokkurs efa rýra mjög verðmæti fasteigna þeirra. Oft hefur verið fjallað um það að undanförnu hvernig örfáir, óprúttnir verktakar reyna að selja fasteignir í nýjum hverfum áður en uppbyggingu í hverfunum er lokið og nýjar byggingar hafa skert verulega mjög tímabundið útsýni í hálf byggðum hverfum. Íbúðakaupendur sem ekki gæta þess að skoða
skipulag slíkra hverfa, verða því oft fyrir vonbrigðum og telja sig hlunnfarna með óljósum svörum seljenda um framtíðarútsýni.. Það er því m.a. hlutverk deiliskipulags og upplýsinga um það, að koma í veg fyrir óvandaða viðskiptahætti af þessu tagi. Í þessu tilfelli ganga skipulagsyfirvöld hins vegar fram fyrir skjöldu í braski af þessu tagi. Íbúar og eigendur neðstu húsanna í framangreindu hverfi eru handhafar fasteigna sem óumdeilanlega fela í sér þau verðmæti að húsin eru neðstu húsin við framangreinar götur og standa næst Elliðaánum. Þeir sem upphaflega fengu þessum lóðum úthlutað á sínum, tóku þá ákvörðun að byggja á lóðunum og setjast þar að með þessi verðmæti í huga. Enn aðrir hafa fest kaup á einhverjum þessara tilteknu fasteinga með verðmætin í huga og greitt sérstaklega fyrir þau. Með fyrirhuguðum breytingum á skipulagi sem gilt hefur í meira en þrjátíu og fimm ár, ætla borgaryfirvöld að hafa af þessum
fasteignaeigendum verðmæti sem þeir hafa greitt fyrir, og án þess að bæur komi í staðinn, og selja þessi verðmæti öðrum einstaklingum. Ef þetta er ekki lóðabrask, þá á orðið ,,lóðabrask'’’ aldrei við. Önnur hlið á þessu máli snýr að sjálfsagðri umhverfis- og náttúruvernd. Með því að bæta við heilli röð lóða, nær Elliðaánum en nú er, eru skipulagsyfirvöld að þverbrjóta reglur borgarinnar um fjarlægð byggðar frá ám og vötnum. Samkvæmt núgildandi reglum skal fjarlægð byggðar vera 100 metrar frá ám og vötnum (og í sumum tilfellum 250 metrar). Með þessum breytingum verður fjarðlægð neðstu húsanna frá Elliðaám um 40 metrar og fjarðlægð lóðamarkanna verður 35 metrar. Það er því augljóst mál að skipulagsyfirvöld skirrast ekki við að brjóta mikilvægar reglur um náttúruvernd og skerða eignarétt borgaranna, í því skini að stunda lóðabrask í Árbæ - Selási. Theódór Marínósson íbúi í Árbæ.
Einstök list * Gjafabréf Verið velkomin! ABBA Gallerí Grafarholt Kirkjustétt 2-6 Opið virka daga kl. 13-18 og augardaga kl. 13-16
,,Breytingar á deiliskipulagi gætu haft í för með sér nýja röð einbýlishúsa fyrir neðan núverandi neðstu einbýlishúsin við Hlaðbæ, Vorsabæ, Þykkvabæ og Glæsibæ.’’ Greinarhöfundur á innfelldri mynd.
Getum bætt við okkur nokkrum starfsmönnum í aukavinnu Starfsmennirnir þurfa að vera ábyrgir, stundvíslegir, hressir og áhugasamir. Ef þú vilt vinna á stað sem er í pizzum bestir renndu þá við og talaðu við okkur. Kveðja Hrói Höttur.
Nýtt hjá okkur !
Þær á myndinni eru allar með hárlengingu frá Balmain Paris. Það tekur aðeins 2 tíma og kostar minna en þú heldur 6 mánaða ábyrgð á hárinu. Kíktu á nýtt og flott pöntunarkerfi á www.stubbalubbar.is
24
Fréttir
Árbæjarblaðið
Vorsýning Fimleikadeildar Vorsýning Fimleikadeildar Fylkis verður haldin fimmtudaginn 25 maí og hefst sýningin kl. 17:00. í Fylkishöll. Þar sýna allir hópar deildarinnar það sem þau hafa verið að æfa í vetur og verður þema sýningarinnar Sumar og Sól. Við hjá Fimleikadeildinni hvetjum alla til að koma og sjá afrek iðkenda okkar.
Afmælisdagskrá hjá Fylki Sunnudagurinn 28. maí 2006 Kl. 11:30 Árbæjarhlaup - Skráning hefst kl. 10.00 sama dag í Árbæjarþreki Grillveisla og verðlaunaafhending fyrir þátttakendur í Árbæjarhlaupi er eftir hlaupið. Kl. 14:00 Íslandsmót í knattspyrnu, 3. flokkur kvenna. Fylkisvöllur Fylkir-FH. Kl. 16:00 Upphitun fyrir stórleik í Landsbankadeild karla á Fylkissvæðinu. Kl. 19:15 Landsbankadeild karla Fylkisvöllur Fylkir-FH.
Greifamótsmeistarar A-lið. Efri röð frá vinstri: Ólafur Hlynur Guðmarsson þjálfari, Steinn Haukur Hauksson, Friðrik, Ari Páll Ísberg, Ásgeir Eyþórsson, Davíð Þór Ásbjörnsson, Steinar Geir Ólafsson, Kári Jónasson þjálfari, Gylfi Magnús Einarsson liðsstjóri. Neðri röð frá vinstri: Arnór Haukur Hjartarson, Elís Rafn Björnsson, Benedikt Andri Ágústsson, Pétur Finnbogason, Stefán Víðir Ólafsson, Davíð Einarsson, Björgvin Gylfason.
Greifameistarar Fylkis
Í vetur fór 4.fl. karla í keppnisferð til Akureyrar og tóku þátt í Greifamótinu. Ferðin tókst í alla staði vel. Fylkir fór með fjögur lið til keppni og stóðu þau sig öll mjög vel.
Fylkir stóð uppi að lokum sem Greifamótsmeistarar. Í flokki A- liða varð Fylkir 2 í fyrsta sæti og Fylkir 1 í 6.sæti. Í flokki B-liða varð Fylkir 3 í fjórða sæti og Fylkir 4 í fimmta sæti.
Hörð barátta var hjá Fylki 3 og 4 um verðlauna sæti og réðust úrslit ekki fyrr en á loka mínútunum í síðustu leikjunum. KA-menn stóðu vel að mótinu og fengu allir nóg af grilluð-
um samlokum. Milli leikja fóru strákarnir í sund og gönguferðir í bæinn og fl. Á laugardeginum var boðið upp á pítsuveislu og á eftir skelltu sér allir í bíó. Í lok móts voru allir
ánægðir með ferðina og vonast strákarnir til að fara aftur að ári. Í næsta blaði segjum við frá árangri 4. flokks karla á Reykjavíkurmótinu.
Að lyfta andanum á flug Árbæjarhverfið er gott hverfi og ber íbúum sínum fagurt vitni hvað varðar snyrtimennsku og góðan smekk. En þó er eins og eitthvað vanti. Eitthvað sem örvar hugsun og kippir andanum úr farvegi hvunndagsins. Það er alveg nauðsynlegt að í umhverfi fólks sé eitthvað sem hugurinn stoppar við og lyftir andanum á flug. Annars er alveg sama hve snyrtilegt umhverfið er og snoturt.
Vantar okkur ef til vill útilistaverk? Árbæjartorg er fallegt og stílhreint en algjörlega andlaust. Gerð Árbæjartorgs var þó þörf framkvæmd því þarna var óhrjálegt malarsvæði engum til gagns. En vonandi á sem oftast eftir að vera líf og fjör á torginu.
Vatnspósturinn nýi þar í nágrenninu er mikið augnayndi þó göngumenn séu orðnir langeygðir eftir vatninu. Fylkissvæðið er enn í vinnslu og byggingar eiga eftir að rísa en vel mætti huga að því að staðsetja þar eitthvert listaverk. Ekki er þó rétt að alveg vanti útilistaverk í hverfið því Gengisfall Inga Hrafns Haukssonar (1941 – 1983) trónir á sínum stalli í trjálundinum við eystri enda Rofabæjar. Ingi Hrafn gerði þetta listaverk á árunum upp úr 1960 en það kom ekki í Árbæinn fyrr en 1982. Fyrir páskana hvarf það og töldu menn að verið væri að hressa upp á það, enda veðurguðirnir farið um það óblíðum höndum, en það kom aftur jafn tötralegt og áður. Lengi vel stóð útilistaverk á
mótum Vesturlandsvegar og Höfðabakka. Stóð það á klettanöf á svipuðum slóðum og nú stendur hús Landsbjargar. Það listaverk var flutt í burtu og sást síðast við Breiðholtsbrautina ekki langt frá Sprengisandi.
Heimilislaus listaverk Klyfjahestur Sigurjóns Ólafssonar er horfinn úr Sogamýrinni. Hann mundi sóma sér vel á holtinu norðan Rauðavatns en þar lá leiðin til og frá Reykjavík í gamla daga áður en bíllinn kom til sögunnar og vegur var lagður sunnan við vatnið. Það skyldi þó ekki vera að víðar leynist heimilislaus listaverk sem myndu sóma sér vel hér í hverfinu og lífga upp á umhverfið? GÁs 02.05.06
Gengisfall Inga Hrafns Haukssonar (1941 – 1983) - eina útilistverkið í Árbænum. ÁB-mynd EÁ
Frístundakort - fyrir börnin Ég hef haft mikilvægt tækifæri til að hlusta á borgarbúa varðandi málefni barna og ungmenna á hverfafundum á s.l. ári. Ég hef, sem formaður Forvarnarnefndar Reykjavíkurborgar, kynnt drög að nýrri forvarnarstefnu borgarinnar í öllum hverfum borgarinnar þar sem við tókum við ábendingum og í næsta skrefi kynnt nýja Forvarnarstefnu í hverfunum eftir að hún var samþykkt. Rauði þráðurinn á öllum þessum fundum var nauðsyn þess að borgin kæmi til móts við börn og ungmenni til að jafna rétt þeirra til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Einnig kom margoft fram mikilvægi þess að auka fjölbreytni í íþrótta- og
tómstundastarfi til að fleiri börn og ungmenni gætu fundið frístundariðkun við sitt hæfi. B-listinn í Reykjavík vill bregðast við þessari brýnu þörf með Frístundakorti fyrir öll börn í Reykjavík.
Fyrir öll börn í Reykjavík! B-listinn í Reykjavík vill að öll börn í borginni, 5 til 18 ára, fái frístundakort að upphæð 40 þúsund kr á ári sem þau geta notað til að greiða fyrir þáttöku í viðurkenndum íþróttum, tómstundum, eða listnámi. Frístundakortið hefur marga kosti í för með sér, það slær allavega fjórar flugur í einu höggi:
Frístundakortið er réttlætismál. Það er vitað að möguleiki barna til þáttöku er mismunandi út frá efnahag foreldra. Það er mikilvægt að öll börn hafi jafnan rétt til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag foreldra. Frístundakortið mun einnig hafa í för með sér aukið og fjölbreyttara framboð á íþróttum og tómstundum. Það ætti að treysta í sessi ýmislegt íþrótta- og tómstundastarf sem ekki hefur náð fótfestu hingað til fjárhagslega þar sem eftirspurn barna og ungmenna mun ráða ferðinni um það sem þarf að vera í boði. Frístundakortið er öflug forvörn í
verki. Rannsóknir hafa sýnt að börn og ungmenni sem taka þátt í íþrótta- eða tómstundastarfi við hæfi eru síður líkleg til að leiðast út í neyslu vímuefna eða aðrar sjálfseyðileggjandi athafnir. Frístundakortið kemur beint við budduna hjá fjölskyldum sem eiga börn sem stunda íþróttir eða tómstundir. Fyrir hvert barn gerir þetta 40 þúsund kr. á ári. Sem dæmi fyrir þriggja barna fjölskyldu er það 120 þúsund á ári. Þetta eitt af því sem við í B-listanum viljum gera fyrir börn og fjölskyldur í borginni. Marsibil Sæmundardóttir skipar 3ja sæti á B-listanum í Reykjavík
Marsibil Sæmundardóttir skipar 3ja sæti á B-listanum í Reykjavík.
Verslun fluguveiðimanna er á www.Krafla.is Vorum að bæta við mörgum nýjum flugum
Kröflurnar í öllum litum sem keilutúpur í fyrsta sinn á Íslandi
Gríma blá
Hófí
Grænfriðungur
Iða
Venus
Marbendill
Gríma rauð
Gríma gul
Fjölbreytt úrval af íslenskum laxaflugum - tvíkrækjur/þríkrækjur - Flugur með reynslu
Beykir
Mýsla
Krókurinn
SilungaKrafla rauð
SilungaKrafla bleik
SilungaKrafla Orange
,,Landsliðið’’ þegar íslenskar silungflugur eru annars vegar Besta vörnin í netverslun í dag Framleiðandi Skrautás ehf - Bíldshöfða 14 - Sími: 587-9500 / 698-2844
Beygla
26
Þetta er gjöfin fyrir veiðimanninn
Fréttir
Árbæjarblaðið
Glæsileg flugubox úr Mangóviði Íslenskar flugur - íslensk hönnun
Kíktu á www.krafla.is Börn í Ártúnsskóla í Árbænum æfðu sig með sumargjafirnar sínar á skólalóðinni.
Glaðningur til 7 og 8 ára barna í borginni:
Auglýsing
Fngu sippubönd og brennibolta
7 og 8 ára börn í borginni fá brennibolta og sippubönd í sumargjöf. Íþróttabandalag Reykjavíkur (heildarsamtök íþróttafélaganna í borginni) gefur um þessar mundir öllum sjö og átta ára börnum brennibolta eða sippuband í sumargjöf. Hvert barn í 2. bekk fær sitt sippuband og hvert barn í 3. bekk fær afhentan sinn brennibolta. Með boltanum og sippubandinu fylgir bæklingur sem kennir helstu leikina sem fara má í með
Útibú SPV í Árbæ, miðstöð ráðgjafar og þjónustu.
Vildarþjónusta SPV Það er mikilvægt að hafa fjármálin í góðu lagi og nauðsynlegt að fara yfir þau reglulega til að vera viss um að hagsmunir fjölskyldunnar séu hámarkaðir. SPV býður upp á víðtæka ráðgjöf og þjónustu á sviði fjármála og er Vildarþjónusta SPV sérsniðin að þörfum viðskiptavina. Í henni felst heildarlausn á sviði bankaviðskipta ásamt góðum kjörum og ýmsum fríðindum. Þeir sem eru í Vildarþjónustu SPV eiga kost á margvíslegum sumartilboðum
sem geta komið sér vel. Má þar helst nefna tilboð á sumarleyfisferðum, á flugi innanlands, bílaleigubílum og ferðalán á betri kjörum. Þeir sem skrá sig fyrir 1. júlí geta valið um að fá 10.000 kr. ferðaávísun frá Mastercard eða 10.000 ferðapunkta frá Icelandair. Komdu við hjá okkur og fáðu allar nánari upplýsingar um Vildarþjónustuna og sumartilboðin, við tökum vel á móti þér og erum alltaf með heitt á könnunni. Með sumarkveðju, Starfsfólk SPV
boltanum eða bandinu, s.s hollíhú, sto!, verpa eggjum eða snúsnú og margir fleiri.Í bæklingnum er auk þess tafla sem börnin geta merkt við þegar þau hafa náð tökum á þraut eða leik. Tilgangur reykvískra íþróttafélaga með gjöfinni er að gleðja reykvísk börn og um leið hvetja þau til að hreyfa sig og leika sér með því að læra að sippa og leika sér með bolta. 7 ára börn fengu sippuband í ár og í fyrra, og þetta árið bætist það við að 8 ára börn fá afhentan brennibolta.
Ráðningarþjónustan í austurborgina Ráðningarþjónustan hefur flutt starfsemi sýna frá Háaleitisbraut 5860 að Krókhálsi 5a og er nú loksins komin slík þjónusta í austurhluta borgarinnar. Ráðningarþjónustan er þekkt fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum starfsmanna til fyrirtækja. Framkvæmdastjóri er María Jónasdóttir sem tók við 10 ára gömlu fyrirtæki í apríl á síðasta ári og er því rúmt ár síðan hún tók við rekstrinum. Það er gaman að segja frá því að María er uppalinn árbæingur og því komin með fyrirtækið á heimaslóðir. Ráðningarþjónustan býður upp á perónulega og faglega þjónustu á samkeppnishæfu verði fyrir fyrirtæki í öllum stærðarflokkum og gerðum um allt land. Fyrirtæki leyta til Ráðningarþjónustunnar . og vilja að Ráðningarþjónustan sjái um allt ráðningarferlið og nýti þá sérþekkingu og reynslu sem fyrirtækið býr yfir. það sparar bæði tíma og fyrirhöfn fyrir stjórnendur sem og starfsmannastjóra fyrirtækja.
Ráðningarþjónustan býður fyrirtæki í starfsmannaleit velkomin sem og einstaklinga í atvinnuleit. Þess má geta að lokum að allar nánari upplýsingar er að finna inn á heimasíðu fyrirtækisins www.radning.is
María Jónasdóttir er framkvæmdastjóri Ráðningaþjónustunnar.
Árbæjarblaðið - Auglýsingasími 587-9500
F í t o n / S Í A
Við lítum á viðskiptavini okkar sem mikilvægustu fjárfestinguna. Við aðstoðum þig við að sjá um fjármál heimilisins og fylgjumst með því að þú fáir alltaf það besta sem er í boði. Það er engin tilviljun að Sparisjóðurinn er með ánægðustu viðskiptavinina í bankakerfinu 7 ár í röð.
Við lögum okkur að þínum þörfum!
SPV - Sparisjóður vélstjóra | Hraunbæ 119 | Sími: 575 4000 | www.spv.is