10. tbl. 4. árg. 2006 október
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Árbæjarblaðið
Eitt númer
410 4000
Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti
Pantið tíma í síma 511–1551
Fjör á lokaballi Fylkis Guðlaugur Þór Þórðarson:
Hagsmunir borgarbúa eru mitt forgangsmál - sjá bls. 8
Bilastjarnan_02_001.ai
18.11.2004
Þessar hressu Fylkisstúlkur voru á meðal margra gesta á glæsilegu lokaballi hjá Fylki á dögunum. Við birtum 30 myndir frá ballinu á bls. 14 og 15. ÁB-mynd EÁ
Vantar þig gjöf fyrir veiðimann? Kíktu þá á www.Krafla.is Íslenskar laxa- og silungaflugur í hæsta gæðflokki í fallegum tréboxum
Sjón er sögu ríkari
15:18:40
Komdu beint til okkar! - og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu Bílastjarnan ehf. · Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686
NÝTT!
Glæsilegur kvenfatnaður í stórum stærðum Bolir úr ull/silki og ull/bómull með og án blúndu Fallegir dömu- og herrabolir Mikið úrval af barnafatnaði Tilboðsslár
Ásnum - Hraunbæ 119 - Sími 567 7776
Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3
Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@centrum.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.
Lækkun matarverðs Eftir áralanga umræðu í íslensku þjóðfélagi um alltof hátt matarverð virðist loksins komið að því að eitthvað gerist í málinu. Og þó fyrr hefði verið. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að grípa til aðgerða. Þær hafa nýlega komið fram. Uppistaðan í aðgerðunum verður 7% lækkun virðisaukaskatts á matvæli, úr 14% í 7%. Einnig koma til framkvæmda lækkanir á vörugjaldi og tollum og alls er reiknað með að verðlækkun matvæla á Íslandi þann 1. mars 2007 geti numið 16%. Grundvallaratriðið er þó að það verði tryggt með einhverju móti að þessi lækkun öll skili sér í vasa neytenda og að verð á matvælum hækki ekki óeðlilega mikið þar til lækkunin kemur til framkvæmda 1. mars 2007. Hér er um gríðarlega kjarabót að ræða til handa neytendum öllum. Ef við gefum okkur að fjölskylda verji um 60 þúsund krónum mánaðarlega til matarinnkaupa ætti sú tala að lækka í sem næst 50 þúsund krónur þann 1. mars nk. Að öðru máli og heldur óskemmtilegu. Ofsaakstur ungmenna hefur verið fyrirferðamikill í fréttum undanfarið. Þrátt fyrir að lögreglan hafi hert mjög eftirlit á götum borgarinnar og nágrenni hennar virðist ekkert lát á þessum ófögnuði. Hvað er til ráða? Ein leið sem skoða þarf vandlega er að hækka aldur þeirra sem fá bílpróf í 18 eða 19 ár. Önnur að koma sem allra fyrst upp aðstöðu fyrir ungmenni sem finna hjá sér hvatir til að keyra langt yfir venjubundnum hámarkshraða. Beita þarf öllum tiltækum ráðum til að koma ofsaakstrinum af götum borgarinnar. Hér þurfa foreldrar einnig að koma að málum. Ofsaakstur ungmenna skiptir alla vegfarendur máli. Um er að ræða mikið vandamál sem taka verður á sem allra fyrst. Við verðum öll að taka höndum saman og útrýma ofsaakstri. Stefán Kristjánsson
abl@centrum.is
Að bíta á jaxlinn Árbæingar eru langt frá því að vera ánægðir með framgöngu sinna manna í Fylki í Landsbankadeildinni í knattspyrnu í sumar. Liðið slapp naumlega við fall í 1. deild og það vita allir sem fylgjast með knattspyrnu að fall í 1. deild hefði verið gríðarlegt áfall fyrir Fylki. En okkar menn sluppu sem sagt fyrir hornið og nú tekur nýtt mót við næsta vor. Í raun má segja að litlu hafi munað líka að Fylkisliðið yrði mun ofar í deildinni en raunin varð, svo jafnt var mótið fram að lokum síðasta leiks ef toppbaráttan er undanskilin. Þar voru FH-ingar í nokkrum sérflokki en þó minni sérflokki en undanfarin ár. Ljósir punktar eru hjá Fylki í sumar. Starfið í yngri flokkunum gekk vel að venju og margir flokkar náðu mjög góðum árangri. Framtíðin er björt og með Leif Dagfinn áfram við stjórnvölinn á meistaraflokkur án efa eftir að gera góða hluti á næstu leiktíð. Fylkir nýtur áfram krafta fjölda fólks sem vinnur mjög þarft og óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Ekki er að sjá að á þessu verði nein breyting á komandi árum.
Nú er ljóst að Árbæjarhverfið mun í framtíðinni skarta tveimur félögum í Landsbankadeildinni í knattspyrnu. Fram er að hasla sér völl í Grafarholti og Úlfarsárdal sem vitaskuld tilheyrir Árbænum. í sumar vann Fram sér rétt til að leika í Landsbankadeildinni eftir glæsilegan sigur í 1. deildinni. Einhver tími mun líða þar til að Fram fær viðunandi aðstöðu í Grafarholtinu en ljóst er að í framtíðinni munu leikir þessara liða verða miklir baráttuleikir og svo sannarlega hægt að tala um nágrannaslag þegar fram líða stundir. Langvarandi vandamál varðandi strætisvagnasamgöngur virðist vera leyst í Árbænum. Hraðleiðin S5 hefur verið endurvakin á annatímum og marg-
frekari skerðinga í framtíðinni. Og enn að íþróttunum. Dapurleg frammistaða íslenska landsliðsins í knattspyrnu í Lettlandi á dögunum vakti mikla athygli sumra. 4-0 tap er nánast ófyrirgefanlegt gegn ekki sterkara liði en því lettneska. Menn hafa verið að bíða eftir því árum saman að íslenska landsliðið næði einhverjum árangri á stórmótum. Sigur í fyrsta leiknum í sumar gegn Norður Írum kveikti vonir en ósigrar gegn Dönum og nú Lettum hafa slöggt alla vonarneista. Framundan er leikur gegn Svíum þegar þetta er skrifað og útlitið ekki björgulegt eftir 2-0 sigur Svía á Spánverjum. Ef íslenska liðið á að eiga einhverja möguleika á að komast á stórmót verður að bjarga einu stigi gegn Svíum. Því miður eru engir möguleikar á að það takist, svo öflugt er lið þeirra að líta verður á það sem slys hjá Svíum ef þeir fara ekki með sigur af hólmi. En vonandi eru bjartari tímar framundan hjá íslensku knattspyrnulandsliði. Það er kominn tími til að við náum árangri í þessari vinsælu íþróttagrein. Stórhöfði
STÓRhöfði skrifar: ir íbúar í hverfinu munu fagna því. Það virðist vera ómögulegt að reka almenningssamgöngur í Reykjavík með hagnaði. Sú staðreynd á auðvitað ekki að bitna á íbúunum eins og verið hefur undanfarið. Það er skýlaus krafa íbúanna að almenningssamgöngur séu í lagi og vonandi verður ekki gripið til
Hraðleið S5 aftur komin í gagnið:
Stutt athugasemd um Strætó Skrifuð í tilefni af greinum í Árbæjarblaðinu í september 2006 eftir Björn Gíslason og Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur. Fyrirsagnir beggja greinanna eru um "vanda" strætó. - Björn og Þorbjörg tala um hallarekstur á strætó. Hvers vegna tala þau ekki um hallarekstur á mislægum gatnamótum, götum sem eru spændar upp af nagladekkjum, grónum landssvæðum sem eru lögð undir malbikuð bílastæði? Allt þetta er borgað af stjórnvöldum án þess að talað sé um hallarekstur. Allar þessar framkvæmdir eru rándýrar og greiddar af skattpeningum íbúanna - líka þeim íbúum sem leitast við að spara einkabílinn og taka strætó. - Björn segir að Árbæingar vilji fá gamla leiðarkerfið aftur, þ.e. 110. Þetta er ekki rétt. Einhverjir vilja það kannski en alls ekki allir. Björn segir að hverfisráð hafi kannað hug íbúa í Árbæ. Fróðlegt væri að fá upplýsingar um hvernig sú könnun
var gerð og hve víðtæk hún var. - Gamla 110 varð aldrei hraðferð a.þ.a. hún fór í gegn um hverfið þar sem verður að aka hægt. 110 var líka notuð af íbúum sem voru aðeins að fara um innan hverfisins t.d. skólakrökkum í Árbæjarskóla úr Selási og Ártúnsholti. Það tók langan tíma fyrir þau að fara t.d. í strætó við Árbæjarskóla og aftur úr honum í Ártúnsholti. Strætó var því orðinn seinn þegar hann loksins komst á beinu brautina á Vesturlandsvegi og Miklubraut. Þessir krakkar þurfa auðvitað strætó en þau ættu ekki að nota þá leið sem hugsuð er sem hraðferð úr hverfinu til annarra hverfa og niður í bæ. - Þorbjörg segir að tímar leiða 19 og S6 hafi verið samræmdir. Það hefur kannski verið gert á tímatöflum en er alls ekki í raun. Leið 19 er mjög oft sein, lengi að fara í gegn um Árbæjarhverfið. Þá er S6 farin sína leið og fólk verður að bíða í 20 mínútur. Oft þarf líka að bíða eftir
Strætó á ferð í Árbæjarhverfi. Margir íbúar fagna S5 hraðleiðinni sem aftur komst í gagnið 6. október sl. leið 19 á leið í hverfið. - Það er ekki hægt bæði að fella niður 10 mínúta tíðnina og líka að ætlast til að fólk fari á milli vagnanna á stofnleiðunum. Ef maður missir af vagni er kannski ásættanlegt að bíða í 10 mínútur en ekki 20. - Björn fullyrðir að alls staðar sé kraumandi óánægja með nýja leiðarkerfi strætó og farþegum þeirra hafi fækkað. Þetta er ekki rétt. Nýja strætókerfið var miklu betra en það
gamla á mörgum stöðum, t.d. í Seláshverfi, og nýjustu kannanir sýna að farþegum strætó hafi fjölgað þrátt fyrir að 10 mínútna tíðnin hafi verið felld niður. - Hagsmunum Árbæinga er ekki best borgið með því að menn skipi sér í pólitískar fylkingar og taki síðan afstöðu með eða móti nýja leiðarkerfinu og S5. Hagsmunir Árbæinga, og borgarbúa allra, er að fá hraðferð sem tengir hverfið við önn-
ur hverfi svo að íbúar hverfisins geti hindrunarlítið sótt stóra vinnustaði og skóla utan hverfis og fólk úr öðrum hverfum komist á vinnustaði í Árbæjarhverfi. Stríðsfyrirsagnir í Árbæjarblaðinu ættu að vera um þarfir og óskir Árbæinga en ekki um fjárhagsstöðu strætó. Sigrún Helgadóttir Líf- og umhverfisfræðingur Þverási 21
4
Matur
Árbæjarblaðið
Bringur frá Mexíkó og kaka fyrir óvænta gesti - að hætti Sonju og Snorra
Matgæðingarnir Matgæðingar okkar að þessu sinni eru þau Sonja Ósk Gunnarsdóttir og Snorri Karl Pálsson.
ÁB-mynd PS
Hér er uppskrift af einum svakalega góðum mexikönskum rétti sem er tilvalinn til að hafa í matarboðum. Uppskriftin kemur frá þeim Sonju Ósk og Snorra Karli sem búa í Þórðarsveig 24 í Grafarholti. Sannarlega girnileg upskrift sem vert er að reyna við fyrsta tækifæri.
Mexíkanskur réttur 3-4 kjúklingabringur. 1 laukur. Matarolía. 2-3 hvítlauksrif. 2-3 chilli pipar rauður. 1 lítil krukka Coriander frá Thai Choice. 1 dós Stewed Tomatoes frá Hunt´s. 1 lítið box kotasæla. 1 pakki pizzaostur. Brún hrísgrjón. 1 dós sýrður rjómi.
Nýr tælenskur veitingastaður Frábær matur á frábæru verði Lynghálsi 4 Sími: 564-4488
Þá er kjúklingablöndunni deilt niður á pönnukökurnar, þær rúllaðar upp og lagðar í smurt, eldfast mót með samskeytin niður. Maukinu af pönnunni er hellt yfir rúllurnar og álpappír lagður yfir. Eldað í 35 mínútur við 180° hita. Tekið út, rifinn ostur settur yfir og smá saxað chilli. Sett aftur inn í ofn, álpappírinn yfir í um það bil 15 mínútur. Borið fram með salati, brúnum hrísgrjónum, sýrðum rjóma og guacamole.
Súkkulaðikaka í eftirrétt og fyrir óvænta gesti Hér er svo uppskrift að súkkulaðiköku sem er mjög vinsæl innan fjölskyldunnar. Hægt er að bera hana fram sem eftirrétt og er uppskriftin það einföld og fljótleg að hún hentar
Skora á Ragnheiði og Hjalta Sonja Ósk Gunnarsdóttir og Snorri Karl Pálsson, Þórðarsveig 24, skora á Ragnheiði Pálsdóttur og Hjalta Ólafsson í Viðarási 33a, að koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað. Við birtum uppskriftir þeirra í Árbæjarblaðinu sem kemur næst út í nóvember. 1 dós Guacamole. 1 poki litlar pönnukökur frá Casa Fiesta. Byrjað er á því að léttsteikja kjúklingabringurnar á pönnu og setja þær svo í eldfast mót og inn í ofn í ca. 30 mínútur eða þangað til að þær eru tilbúnar. Á meðan bringurnar eru að eldast þá er einn laukur fínsaxaður, 2-3 hvítlauksrif og 2 matskeiðar af matarolía brúnað á pönnu. Síðan er chilli piparinn skorinn smátt, 1 1/2 tsk. Coriander og stewed tomatoes sett saman við brúnaða laukinn á pönnunni og látið malla í 20 mínútur og lok sett yfir. Þegar bringurnar eru tilbúnar eru þær skornar niður í bita og settar í skál. Kotasæla og pizzaostur sett saman út í við og blandað saman.
vel ef óvænta gesti ber að garði. 175 gr. smjörlíki. 5 dl. sykur. 4 egg. 1 dl. kakó. 2 tsk. vanillusykur eða vanilludropar. 2 tsk. salt. 3 dl. hveiti. Egg og sykur þeytt saman létt og ljóst. Kakó, vanillusykur, salt og hveiti hrært saman við. Linu smjörlíki bætt út í. Bakað í eldföstu móti í 35-40 mínútur við 175° hita. Kakan á að vera blaut að innan. Borin fram með ís eða rjóma. Verði ykkur að góðu. Sonja og Snorri
Frá Hverfisráði Árbæjar:
Vel heppnaður dagur Fegrunarátakið ,,Tökum upp hanskan fyrir Reykjavík’’ sem Reykjavíkurborg stóð fyrir í Árbæjarhverfi 16. september sl. tókst með miklum ágætum. Veðrið var eins og best verður á kosið, sól og blíða og greinilegt var að íbúar kunnu vel að meta þetta framtak Reykjavíkurborgar. Borgarstjóri hafði 11. september haldið fund í Árbæjarskóla með íbúum Árbæjarhverfa vegna fegrunarátaksins þar sem farið var yfir þau svæði í Árbænum sem leggja átti áherslu á að hreinsa og laga. Þátttakendur fengu vesti er þeir mættu á fyrirfram auglýsta staði við Árbæjarkirkju, Ártúnsskóla og Selásskóla. Síðan var farið um hverfið og tínt upp rusl, girðingar lagfærðar sem þurfti, leiktæki yfirfarin og máluð, tyrft þar sem þess þurfti ofl. ofl. Fegrunarátakinu lauk síðan við Fylkishöll með grillveislu þar sem starfsfólk
Þjónustumiðstöðvar Árbæjar sá um að grilla. Ekki er hægt á einum degi að komast yfir allt sem gera þarf í hverfinu en það er ljóst að dagur sem þessi hefur áhrif á vitund fólks til að hafa sitt nánasta umhverfi hreint og snyrtilegt. Það er mikill vilji hjá borgaryfirvöldum að borgin sé snyrtileg og þá verða allir að leggjast á eitt í þeim efnum, íbúar jafnt sem fyrirtæki og stofnanir. Reykjavíkurborg mun á næsta ári efna til samskonar fegrunarátaks og haldið var í Árbænum í öllum hverfum borgarinnar.
Leið S 5 aftur í Árbæ Hverfisráð Árbæjar lýsir yfir ánægju með frumkvæði borgarstjóra að koma leið S 5 aftur á í Árbæ. Hverfisráðið mótmælti 26. júlí sl. þeirri ákvörðun stjórnar Strætó bs að skerða þjónustu strætó við Árbæjarhverfi og ítrek-
aði það á fundi ráðsins 5. september. Jafnframt kom fram að í Árbæ varð strax mikil óánægja með þá breytingu sem gerð var á leiðakerfi strætó fyrir ári síðan. Það á fyrst og fremst við þá íbúa sem búa í Ártúnsholti og í elsta hluta Árbæjarhverfis þ.e. bæjunum. Þessum íbúum finnst einfaldlega langt að fara í leið S5 á Bæjarhálsi eða Vesturlandvegi. Um 100 eldri borgarar og aðrir íbúar í Árbæjarhverfi skrifuðu nýlega undir bréf til borgarstjóra þar sem þeir lýstu yfir mikilli óánægju með þá þjónustuskerðingu sem orðið hefur á þjónustu strætó í Árbæjarhverfi sl. ár. Óskuðu þeir eftir við borgarstjóra að leiðakerfi strætó yrði lagfært og tekið yrði mið af því leiðakerfi sem í gildi var fyrir breytingu fyrir um ári síðan. Íbúar í Árbæjarhverfi eru ekki þeir einu sem gagnrýnt hafa leiðakerfi strætó. Íbúar í Grafar-
vogi og Grafarholti hafa gagnrýnt það mjög. T.d. eiga íbúar í Grafarholti að sækja alla þjónustu í Árbæ s.s. heilsugæslu, þjónustumiðstöðina, félagsstarf eldriborgara í Hraunbæ 105 ofl. R-listinn gerði sér lítið fyrir og felldi niður strætóleiðina milli Árbæjar og Grafarholts sl. vetur. Hljómgrunnur er greinilega fyrir því hjá íbúum úthverfanna í austurhluta borgarinnar að við endurskoðun á leiðakerfi strætó verði kannað að setja upp leið sem tengir betur úthverfin. Að lokum er gaman að geta þess að um fjölgun farþega hefur verið að ræða hjá strætó undanfarið eftir mikla niðursveiflu. Vonandi verður um enn meiri fjölgun farþega að ræða eftir að sú stjórnsýsluúttekt sem er í gangi og í kjölfarið endurskoðun á leiðakerfinu hefur farið fram. Björn Gíslason formaður Hverfisráðs Árbæjar
Björn Gíslason, formaður Hverfisráðs Árbæjar.
Leitaðu upplýsinga á Reykjavik.is Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts heldur úti heimasíðu sem er undirsíða af www.reykjavik.is Hægt er að komast inn á þessa síðu í gegnum tvær vefslóðir; annars vegar www.reykjavik.is/arbaer og hins vegar www.reykjavik.is/grafarholt Unnið er í því að efla þessa síðu og koma inn á hana upplýsingum um starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar. Einnig er þessi síða hugsuð sem miðill til að miðla fréttum tengdum því sem fram fer í hverfunum og sem heildar viðburðadagatal fyrir hverfin. Eru skólar, félagasamtök og aðrir aðilar sem telja sig þurfa að koma á framfæri upplýsingum um það sem fram fer í hverfunum, hvött til að senda þær inn á netfangið arbaer-grafarholt@reykjavik.is Vanti upplýsingar um;
Rétt er að benda íbúum í Árbæjarhverfi á að kynna sér upplýsingar í greininni um húsaleigubæturnar hér að neðan.
Húsaleigubætur Um húsaleigubætur og almennan rétt til þeirra og skilyrði sem uppfylla þarf gilda lög nr. 138/1997 og reglugerð nr. 118/2003. Þeir sem leigja íbúðarhúsnæði í Reykjavík til búsetu og eiga þar lögheimili og njóta ekki vaxtabóta, eiga rétt á húsaleigubótum. Skilyrði húsaleigubóta er að fyrir liggi, sex mánaða eða lengri þinglýstur leigusamningur. Námsmenn eru undanþegnir skilyrði um lögheimili en þurfa að skrá aðsetur geti þeir ekki sótt viðkomandi skóla frá lögheimili sínu. Með íbúðarhúsnæði er átt við venjulegar og fullnægjandi heimilisaðstæður og eru lágmarksskilyrði a.m.k. eitt svefnherbergi ásamt eldhúsi eða eldunaraðstöðu, sérsnyrtingu og baðaðstöðu. Íbúðin þarf ekki að vera samþykkt. Umsókn um húsaleigubætur skal hafa borist sveitarfélagi eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Ef umsókn berst seinna verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar. Sé umsókn ófullnægjandi eða vanti nauðsynleg gögn er sent bréf þar sem umsækjandi er beðinn um þau gögn sem vantar. Berist þau innan næstu tveggja mánaða miðast réttur til bóta við dagsetningu umsóknar. Helstu gögn sem þarf að skila: 1. Þinglýstur húsaleigusamningur til a.m.k. sex mánaða. Frumriti leigusamn-
ings þarf að þinglýsa hjá embætti sýslumanns Ekki er þó skylt að þinglýsa leigusamningi frá Félagsbústöðum. 2. Staðfesting á lögheimili þeirra sem í íbúðinni búa 3. Staðfesting skóla um nám barna umsækjanda 20 ára og eldri sem stunda nám í sex mánuði eða lengur á árinu. 4. Upplýsingar um reiknað endurgjald fyrir þrjá síðustu mánuði vegna sjálfstæðrar starfsemi ef um slíkt er að ræða. Að fengnu umboði frá umsækjanda hefur Reykjavíkurborg beinan aðgang að upplýsingum ríkisskattstjóra um tekjur og eignir umsækjenda. Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka eða út leigusamninginn. Almennum kvörtunum/ábendingum er hægt að koma á framfæri símleiðis eða í mótttöku á öllum þjónustumiðstöðvum borgarinnar. Verkferill við afgreiðslu húsaleigubóta. 1. Umsókn skilað inn á þjónustumiðstöð í síðasta lagi 16. dag fyrsta greiðslumánaðar 2. Umsækjandi getur gefið leyfi til að tilskilinna gagna sé aflað frá Hagstofu og skattyfirvöldum og þarf þá ekki að skila inn þeim gögnum. 3. Þegar umsókn hefur verið skilað inn
er kannað hvort umsækjandi eigi rétt á húsaleigubótum. a. Uppfylli umsækjandi öll skilyrði er umsóknin samþykkt, réttur til húsaleigubóta reiknaður og umsækjandi fær húsaleigubætur greiddar fyrsta virka dag næsta mánaðar. Bæturnar greiðast einungis til eins íbúa leiguíbúðar og verða leigjendur því að koma sér saman um það hverjum skuli greiða bæturnar. Einnig er hægt að láta þær renna beint til leigusala. b. Sé umsókn ófullnægjandi eða henni fylgja ekki nauðsynleg gögn koma bætur ekki til greiðslu. Berist hins vegar fullnægjandi gögn innan næstu tveggja mánaða miðast réttur til húsaleigubóta við dagsetningu umsóknar. c. Eigi umsækjandi ekki rétt á húsaleigubótum er umsókn hafnað og umsækjanda sent bréf þess efnis. Ákvörðun um synjun á húsaleigubótum má skjóta til velferðarráðs Reykjavíkurborgar Tryggvagötu 17 101 Reykjavík. Skal það gert skriflega og eigi síðar en fjórum vikum eftir að viðkomandi barst vitneskja um ákvörðun. Ákvörðun velferðarráðs má skjóta til úrskurðarnefndar félagsþjónustu Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu 150 Reykjavík. Skal það gert eigi síðar en fjórum vikur frá því að viðkomandi barst vitneskju um ákvörðun.
- húsaleigubætur - leikskólavist - heimaþjónustu - liðveislu - sérfræðiþjónustu við grunnskóla - sérfræðiþjónusta við leikskóla - fjárhagsaðstoð - dagforeldra - ferðaþjónustu fatlaðra - akstursþjónustu aldraðra - félagslega þjónustu - samfélagsverkefni - kennsluráðgjöf - umsóknir um leiguhúsnæði - frístundaráðgjöf - náms- og starfsráðgjöf leitið aðstoðar hjá starfsfólki Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts, Bæjarhálsi 1. Sími: 411 1200 eða sendið tölvupóst á netfangið arbaer-grafarholt@reykjavik.is
Hverfisráð Grafarholts Úlfarsárdals Ábendingar og fyrirspurnir til hverfisráðs Grafarholts -Úlfarsársdals er hægt að senda á netfangið: grafarholt@reykjavik.is
Hverfisráð Árbæjar Ábendingar og fyrirspurnir til hverfisráðs Grafarholts -Úlfarsársdals er hægt að senda á netfangið: grafarholt@reykjavik.is
8
Fréttir
Árbæjarblaðið
Guðlaugur Þór Þórðarson býður sig fram í annað sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins:
Hagsmunir borgarbúa eru mitt forgangsmál ,,Ég hef hlotið ómælda gagnrýni frá þingmönnum annarra flokka fyrir að gæta hagsmuna reykvíkinga á Alþingi. Fyrst þegar þetta gerðist varð ég mjög hissa. Það er eins og stjórnmálamenn veigri sér við því að standa vörð um hagsmuni borgarbúa, á meðan að það er talið sjálfsagt að þingmenn utan Reykjavíkur berjist ötullega fyrir sína umbjóðendur. Ég hef látið þessa gagnrýni sem vind um eyru þjóta. Ég mun áfram berjast fyrir hagsmunum borgarbúa og borgarinnar okkar. Ég er stoltur af því hlutskipti að vera þingmaður Reykjavíkur.’’ Svo mælir Guðlaugur Þór Þóraðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður þingflokks sjálfstæðismanna. Guðlaugur er búsettur í Grafarvogi og líkar vel að búa í úthverfi og austurbænum. Eiginkona Gulla eins og hann er gjarnan kallaður, er Ágústa Johnson. Þau eiga saman tvíburana Þórð Ársæl og Sonju Dís. Ágústa á tvö börn af fyrra hjónabandi, þau Önnu Ýr og Rafn Franklín Hrafnsbörn. Guðlaugur verður fertugur á næsta ári og stefnir nú til æðstu metorða í Sjálfstæðisflokknum. Síðastliðið haust tilkynnti hann að hann myndi ekki sækjast eftir sæti á lista borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, og lýsti því jafnframt yfir að hann myndi bjóða fram krafta sína sem einn af leiðtogum flokksins í
komandi Alþingiskosningum. Nú sækist Guðlaugur Þór eftir öðru sæti í prófkjöri flokksins sem fram fer 27. og 28. október.
Sjálfstæðisflokknum best treystandi fyrir framtíðinni En af hverju annað sætið? ,,Ég er búinn að starfa í stjórnmálum í tvo áratugi. Hokinn af reynslu, eins og krakkarnir myndu orða það. Ég er einfaldlega tilbúinn að takast á hendur meiri ábyrgð og legg það í dóm sjálfstæðismanna í Reykjavík hvort þeir telja það gott fyrir flokkinn. Ég hef áhuga á að leiða annað kjördæmið í komandi kosningabaráttu. Mitt góða flokksfólk mun svo meta hvort það treystir mér fyrir því eða einhverjum öðrum að takast á við okkar pólitísku andstæðinga í stóru orrustunni í vor. Það er hlutskipti Sjálfstæðisflokksins að verja þann mikla ávinning sem náðst hefur í landsmálunum og um leið að sækja fram. Það er engum flokki betur treystandi fyrir því en Sjálfstæðisflokknum.’’ Það er eldmóður í augum þessa glaðbeitta og reynslumikla stjórnmálamanns þegar hann horfir til framtíðar.
Samþætting atvinnuþátttöku og fjölskyldulífs En hvaða málaflokkar eru efstir á baugi hjá Guðlaugi? ,,Hagsmunir borgarbúa eru mér hugleiknir. Ég nefni fjölskyldumál, málefni eldri borgara og umhverfismál. Ég lít svo á að nær öll mál séu fjölskyldumál. Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið að uppbyggingu á öflugu efnahagslífi og velferðarkerfi á Íslandi. En það er alltaf hægt að gera betur. Það eru teikn á lofti um að við séum að gleyma börnunum okkar. Eitt stærsta verkefni næstu ára er að fá alla aðila þjóðlífsins til að taka höndum saman um að samþætta þátttöku í atvinnulífi og innihaldsríku fjölskyldulífi. Þá er ég ekki bara að tala um stjórnmálamenn. Við þurfum á hugarfarsbreytingu að halda. Að þessu verða atvinnurekendur, foreldrar, frjáls félagasamtök og í raun allir að koma."
Okkur liggur á í samgöngumálum Guðlaugur vill meina að samgöngumálin séu einmitt hluti af þessu. ,,Með betra skipulagi skóladags og samþættingu skóla, íþrótta og annara tómstundastarfsemi má auka enn frekar þann tíma sem fjölskyldan getur varið saman. Endalaust skutl bæjarhluta á milli er gífurlega tímafrekt og kostnaðarsamt. Við þekkjum líka öll hvernig umferðarhnútar hafa sífellt farið stækkandi. Það verður að halda áfram að vinna í þeim málum og slíkt gerist í samvinnu þings og borgar. Ég hef beytt mér fyrir auknum fjárveitingum til samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu og okkar miðar áfram en betur má ef duga skal. Á sama hátt Guðlaugur Þór kann vel við sig í úthverfi og finnst gott að búa hef ég tekið upp umferðí Austurbænum.
aröryggismál á Alþingi og hefur samgönguráðherra stigið mikilvæg skref til að gera þeim málaflokki hærra undir höfði. Í fyrsta skipti hafa vegir landsins verið skoðaðir skipulega út frá því sjónarhorni og það er ljóst að á Höfuðborgarsvæðini eru mörg verkefni framundan. Vesturlandsvegurinn og Suðurlandsvegurinn eru góð dæmi um það. Fjármunir hafa verið settir í að auka umferðaröryggi á þessum vegum í ár en það liggur mikið á því ástandið á eftir að versna.’’
Ég varð hissa á þeirri miklu gagnrýni sem ég fékk á mig frá þingmönnum annarra flokka þegar ég var tilbúinn að verja hagsmuni reykvíkinga á Alþingi.
Úlfljótsvatni bjargað En hvað með umhverfismálin? Þú ert stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur og ert þar af leiðandi í forsvari fyrir einn af orkuframleiðendunum. ,,Rétt og þetta getur farið saman, að framleiða vistvæna orku og gæta að umhverfinu. Við höfum séð hinar illvígu deilur sem uppi hafa verið í samfélaginu vegna Kárahnjúkavirkjunar. Nú er breytt landslag í þessum málum og við, hvort sem það heitir Orkuveita Reykjavíkur eða stjórnmálamenn verðum að horfast í augu við breyttar áherslur. Fólk vill að við förum varlega í sakirnar og látum umhverfið njóta allrar virðingar. Eitt mitt fyrsta verk í OR var að falla frá hugmyndum um að reisa 600 sumarbústaði umhverfis Úlfljótsvatn. Þetta voru stórtækar hugmyndir sem viðkvæmt lífríki vatnsins og umhverfis þess hefðu ekki þolað. Ég leit á þetta sem björgunaraðgerð. Að sama skapi erum við að virkja uppi á Hellisheiði. Ég lít svo á að OR hafi tekið Hellisheiði í fóstur og okkar ábyrgð fellst í því að skila þessu landi eftir framkvæmdir í sem bestu ásigkomulagi. Við erum að fara af stað með samkeppni sem bæði almenningur og listamenn og hönnuðir geta tekið þátt í. Þessi samkeppni gengur út á finna lausnir til að fela eða fegra þau mannvirki sem fylgja virkjunum. Ég hlakka til að virkja sköpunargleði og hugmyndaauðgi Íslendinga á þessu sviði. Það ljóst
að við íslendingar búum yfir miklu hugviti þegar að kemur að umhverfisvænni orkuöflun. Í því felast miklir möguleikar.’’
Skapgóður og traustur Eitt af einkennum Guðlaugs er góða skapið. ,,Maður fer langt á því,’’ segir hann. Þegar horft er til framtíðarsýnar Guðlaugs setur hann þá sýn í einfaldan búning. ,,Við erum búin að leggja traustan og góðan grunn með öflugu efnahagslífi og góðu velferðarkerfi. Nú er komið að næsta stigi þessarar uppbyggingar. Þá horfum við inn á við og þurfum á næstu árum að tryggja hag og viðgang fjölskyldunnar. Það er hlutverk nýrrar kynslóðar stjórnmálamanna að setja þessi gildi í öndvegi og halda áfram því góða verki sem vel miðar.’’ Guðlaugur Þór Þórðarson, er í fremstu röð alþingsmanna af nýrri kynslóð. Hann hefur einnig látið mjög að sér kveða sem borgarfulltrúi reykvíkinga síðastliðin átta ár. Hann nýtur mikils trausts meðal sjálfstæðismanna og raunar langt út fyrir raðir þeirra. Guðlaugur er í dag talinn einn efnilegasti stjórnmálamaður á Íslandi og vissulega einn sá reynslumesti þegar kemur að málefnum borgarinnar. Guðlaugur hefur nú tekið stórt skref með framboði sínu í annað sætið, en eins og hann lýsir sjálfur yfir í þessu viðtali verða það sjálfstæðismenn sem taka ákvörðun um framtíð Guðlaugs Þórs í prófkjörinu eftir nokkra daga.
Guðlaugur Þór og Yoko Ono í Höfða fyrir nokkrum dögum. Vel fór á með þeim og listamaðurinn hreyfst sérstaklega af Orkuveitu Reykjavíkur og vistvænni orku sem fyrirtækið framleiðir. Guðlaugur er stjórnarformaður OR og sá ástæðu til að brosa sínu breiðasta.
10
Fréttir
Árbæjarblaðið
Síldarveisla Hátt í 400 stuðningsmenn og styrktraðilar mættu í hina árlegu síldarveislu Fylkis fyrir síðsta
heimaleik liðsins í Landsbankadeildinni og að afloknu fegrunarátaki í Árbænum.
Hér má sjá nokkur þekkt andlit. Síldarveislan þótti takast vel að venju og var góður rómur gerður að veitingunum.
Myndirnar við þetta tækifæri tók Einar Ásgeirsson fyrir Árbæjarblaðið þegar hátíðin stóð sem hæst.
Fegrunarátakinu í Árbæ lauk við Fylkishöll með síldar- og grillveislu þar sem starfsfólk Þjónustumiðstöðvar Árbæjar sá um að grilla. Björn Gíslson, formaður Hverfisráðs Árbæjar, fyrir miðri mynd. Ungir sem eldri höfðu góða list á því sem í boði var.
Þessi kunnu vel að meta veitingarnar enda annálaðir sælkerar.
<j aVj\jg g @gV[ijg i^a [gVbi Vg
SUND ER LEIKUR AFGREIÐSLUTÍMI LAUGA Virka daga frá kl. 6:30 - 22:30
Stakt gjald fullorðnir 280 kr.
Helgar kl. 8:00 - 22:00
10 miða kort fullorðnir 2.000 kr.
afgreiðslutími er mismunandi eftir
Stakt gjald börn 120 kr.
sundstöðum, sjá nánar á www.itr.is
10 miða kort barna 800 kr.
Sund er æðislegt www.itr.is ı sími 411 5000
12
13
Fyrirtækjakynning
Árbæjarblaðið
Fyrirtækjakynning
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið heimsækir útibú SPV í Árbæ:
Athyglin beinist að SPV Við hjá Árbæjarblaðinu hleypum nú af stokkum nýjum lið í blaðinu, fyrirtækjakynningu, sem verður að finna á síðum blaðsins annað slagið í framtíðinni. Árbæjarblaðið heimsótti SPV í Árbænum á dögunum og tók spjall við Bjarna Þór Þórólfsson útibússtjóra ásamt Evald Hansen, einstaklingsráðgjafa og Hrefnu Sigríði Briem, fyrirtækjaráðgjafa.
Hverfisandinn Heimsóknin hófst með spjalli við
Bjarna um þá menningu sem ríkir í Árbænum. Hann segir einstakt að finna fyrir þeirri samheldni sem einkennir svæðið sem endurspeglist ekki síst í starfi Árbæinga á vettvangi Fylkis. Margir íbúar Árbæjar eru svokallaðir frumbyggjar og líta á sig sem Árbæinga fyrst og fremst. Rótgrónir Árbæingar þekkja hvern annan og vita deili hver á öðrum og er greinilegt að mikill nágrannakærleikur ríkir oft á milli manna. Algengt er að fólk hafi búið í Árbænum árum saman og upp á síðk-
Útibú SPV í Árbæ er miðstöð ráðgjafar og þjónustu.
astið hafa myndast nýjir möguleikar fyrir íbúa sem vilja skipta um húsnæði án þess að færa sig langt. Margir Árbæingar hafa flutt sig yfir í Norðlinga- og Grafarholt og geta því haldið góðum tengslum við rætur sínar og börnin geta áfram iðkað íþróttir með Fylki. Bjarni nefnir að miklar breytingar hafi átt sér stað á svæðinu að undanförnu. Kemur þá til tals verslunarkjarninn Ásinn þar sem útibú SPV er staðsett. Þau Bjarni, Evald og Hrefna eru sammála um að verslunarkjarninn Ásinn setji
sterkan svip á mannlífið og menninguna í Árbænum. Þau segja Sparisjóðinn hafa verið áberandi þátttakanda í framþróun Árbæjarsvæðisins undanfarin ár, ekki síst með stuðningi við Fylki og með samstarfi við ýmsa hagsmunaaðila ásamt grunn- og leikskólum svæðisins. Með þessu móti styður SPV við bakið á ungum Árbæingum.
Áhersla á samfélagið Hugmyndafræði Sparisjóðsins ber því næst á góma og þótti blaðamanni áhugavert að fræðast um stefnu Sparisjóðsins ekki síst nú á tímum ofuráherslu á hagnaðarsjónarmið. Bjarni segir að sparisjóðirnir á Íslandi hafa í gegnum árin látið gott af sér leiða með stuðningi við menningarstarfsemi af ýmsu tagi, þ.m.t. íþrótta- og æskulýðsstarf og þannig stuðlað að blómlegu mannlífi hver á sínu svæði. Hann telur að þessi hugmyndafræði og hæfni sparisjóðanna til að veita fyrir alvöru persónulega þjónustu sé grunnurinn að samkeppnisforskoti sparisjóðanna sem endurspeglist í sigri sparisjóðanna sjö ár í röð í hinni svokölluðu íslensku ánægjuvog. Meðal sparisjóðanna sé mikil áhersla lögð á langtímasamband við viðskiptavini sem skili sér með mikilli tryggð þeirra og skapar þetta yfirburðastöðu fyrir sparisjóðina. Bjarni segir Sparisjóðinn hafa að leiðarljósi að treysta fjár-
Hjá SPV í Árbæ starfar ellefu manna samhentur hópur. Hér leggur Bjarni Þór Þórólfsson á ráðin með Evald Hansen og Hrefnu Sigríði Briem. hagslega velferð viðskiptavina sinna með því að veita faglega ráðgjöf og upplýsingar þar sem byggt er á þekkingu og langtímasjónarmiðum.
Þjónusta við Árbæinga SPV hefur starfrækt útibú í Árbænum frá því árið 1991 en í apríl 2002 var opnað nýtt og glæsilegt útibú í verslunarkjarnanum Ásnum þar sem veitt er öll almenn bankaþjónusta fyrir einstaklinga, fyrirtæki og félög. Bjarni leggur áherslu á hversu breytt hlutverk bankaútibúa er þar sem ráðgjöf og upplýsingar eru í aðalhlutverki og má segja að hið dæmigerða bankaútibú hafi breyst í miðstöð ráðgjafar og þjónustu. Í ljósi þessa breytta hlutverks telur hann lykilatriði að hafa á að skipa hæfu og vel upplýstu starfsfólki sem getur veitt góð ráð. Evald Hansen þjónusturáðgjafi segir mikilvægt að hafa fjármál heimilisins í góðu lagi og bendir á að nauðsynlegt sé að fara reglulega yfir fjármálin til að vera viss um að hagsmunir fjöl-
SPV hefur að leiðarljósi að treysta fjárhagslega velferð viðskiptavina sinna með því að veita faglega ráðgjöf og upplýsingar þar sem byggt er á þekkingu og langtímasjónarmiðum.
SPV er, ásamt Bónus, aðalstyrktaraðili Knattspyrnudeildar Fylkis. Myndin er tekin þegar samningur um stuðning SPV var undirritaður. skyldunnar séu hámarkaðir. Hann segir t.d. óþarfa að vera með mörg skammtímalán og þar að auki yfirdráttarheimild til langs tíma. Það kostar peninga að skulda en í mörgum tilfellum megi spara mikið með því að
SPV hefur staðið fyrir vel sóttum og veglegum hverfishátíðum í Árbænum undanfarin ár í samvinnu við ÍTR, Fylki og fleiri aðila.
hagræða. Þar komi SPV inn í myndina með traustri ráðgjöf og ráði viðskiptavinum sínum heilt í þessum efnum. Hrefna Sigríður Briem fyrirtækjaráðgjafi sér um fyrirtækjasvið úti-
ÁB-myndir PS
búsins. Hún segir ánægjulegt að upplifa þá miklu uppbyggingu sem verið hefur í atvinnustarfsemi á Árbæjarsvæðinu. Fyrirtækjum hefur fjölgað mikið í Hálsum og í Grafarholti á undanförnum árum. Þar sé nú að finna fjölbreytta atvinnustarfsemi og hefur fyrirtækjaþjónusta SPV að markmiði að veita þessum aðilum alhliða fjármálaþjónustu sem sé sniðin að þeirra þörfum. Hrefna segir SPV vera góðan kost þegar fyrirtæki velji sér traustan aðila til sjá um bankaþjónustu. Það sé eftirsóknarvert að eiga samstarf við SPV þar sem sparisjóðurinn gangi lengra í að mynda hátt þjónustustig þar sem hagsmunir viðskiptavina séu fyrir alvöru hafðir að leiðarljósi. Hún segir enn fremur að fyrirtækjaþjónusta SPV leggi áherslu á að aðstoða rekstraraðila við að ná góðri yfirsýn og stuðla þannig að virkri fjármálastjórn. Með þessum hætti vinni SPV markvisst að því að þekkja þarfir viðskiptavina og leggi sig fram um að svara þörfum hvers og eins.
Fylkismenn fagna bikarmeistaratitli með SPV.
Bjarni útibússtjóri á Fylkisvellinum. SPV á nú einnig samstarf við handknattleiksdeild en Bjarni var á dögunum kjörinn í stjórn deildarinnar.
14
Lokaball Fylkis 2006
Gestir skemmtu sér vel enda engin ástæða til annars.
Árbæjarblaðið
Þessir brugðu á leik.
Í góðum gír á lokaballinu.
Þrír dyggir stuðningsmenn Fylkis.
Brosað út í eitt.
Málin rædd í þaula. Sætar saman - ekki satt? Þessi voru að sjálfsögðu mætt.
Góðar vinkonur.
Saman á góðri stundu.
Þessi voru í stuði.
Og fleiri góðar vinkonur.
Góðir gestir á lokaballi. Falleg saman.
Þessar skemmtu sér greinilega vel.
Engin ástæða til annars en brosa.
Glæsilegir fulltrúar ungu kynslóðarinnar.
Glæsilegar Fylkiskonur.
15
Lokaball Fylkis 2006
Árbæjarblaðið
Sannir Fylkismenn.
Lokaball
Þjálfarinn fær góðar ráðleggingar.
Árlegt lokaball Fylkis er nýlega afstaðið og þótti takast vel að venju. Mikill fjöldi fólks mætti og
skemmti sér konunglega eins og lög gera ráð fyrir. Myndirnar á Lokaballi Fylkis fyr-
Sæt saman eins og stundum er sagt.
ir Árbæjarblaðið tók Einar Ásgeirsson og þær tala sínu máli.
Tvær Fylkisdömur í öruggum höndum.
Glaðar á góðri stundu.
Þessar voru kátar.....
Þessi skemmtu sér vel........
............... og þessir líka.
..... og þessi líka.
Hressir Fylkismenn.
Kátir félagar á lokaballi.
16
Fréttir
Árbæjarblaðið
Íslandsmeistarar í 4. flokki karla Fylkir varð Íslandsmeistari í 4. flokki karla b - liða nú í sumar. Árangur þeirra var glæsilegur, þar sem strákarnir fóru taplausir í gegnum allt mótið þ.e. 13 sigrar og 1 jafntefli. Til úrslita léku Fylkir og FH þar sem bæði liðin voru jöfn að stigum og markatölu og var því um hreinan úrslitaleik að ræða. Leikið var á aðalleikvangi FH í Kaplakrika við bestu aðstæður og skapaði það mikla stemmingu hjá strákunum. Fjölmenntu foreldrar og aðrir stuðnigsmenn beggja liða á leikinn og gaf það leiknum skemmtilegt yfirbragð. Leikurinn þróaðist þannig að FH ingar voru yfir í hálfleik, 1-0, en Fylkismenn komu grimmir í seinni hálfleik og jöfnuðu leikinn og komust svo yfir en FH jafnaði undir lokin. Fór leikurinn því í framlengingu og skoraði Fylkir í seinni hlutanum. Leiknum lauk því 3-2 fyrir Fylki og skoraði Pálmi Óskarsson öll mörk Fylkis. Við óskum strákunum og þjálfurunum þeim Kára og Ólafi innilega til hamingju með árangurinn. ÁFRAM FYLKIR
Er leikurinn ekki að verða búinn?
Pálmi Óskarsson, markahrókur liðsins hampar bikarnum.
Pálmi sækir að FH-ingum.
Sigurhringurinn tekinn.
Fylkir í sókn.
Söngur og gleði í búningsklefanum.
Kæru viðskiptavinir! Föstudaginn 20. okt. frá klukkan 13.00-17.00 verðum við á Höfuðlausnum með hárgreiningartæki sem metur ástand hárs og hársvarðar! Hafið samband til að fá frekari upplýsingar.
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00
Pöntunarsími: 567-6330
17
Fréttir
Árbæjarblaðið Íslandsmeistarar Fylkis í 4. flokki karla: Aftari röð frá vinstri: Kári Jónasson, þjálfari, Kristján Ingi Mikaelsson, Pálmi Óskarsson, Jón Ófeigur Hallfreðsson, Árni Þórmar Þorvaldsson, fyrirliði, Steinn Haukur Hauksson, Friðrik Óskarsson, Sigurgeir Örn Sigurgeirsson, Ásgeir Hjartarson og Ólafur Hlynur Guðmarsson, þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Arnór Haukur Hjartarson, Páll Pálmason, Snorri Heimisson, Björgvin Gylfason, Anton Oddsson, Styrmir Erlendsson, Benedikt Óli Breiðdal, Friðrik Gunnarsson og Stefán Víðir Ólafsson.
Íslandsmeistarar 2006
Árni Þórmar, fyrirliði með bikarinn.
Benedikt Óli Breiðdal.
Árni Þórmar Þorvaldsson, fyrirliði, fagnar bikarnum.
Við verðum að vinna, Óli þjálfari.
SKÓVERSLUN Í ÞÍNU NÁGRENNI www.xena.is
GÆÐA HEILSUSKÓR
LOÐFÓÐRUÐ STÍGVÉL
HÁGÆÐA HEILSUSKÓR
Stærðir 36 - 41
HÁGÆÐA HEILSUSKÓR
Stærðir 36 - 41
Stærðir 25-35 Verð kr: 4.795.-
GÆÐA BARNASKÓR Mikið úrval af vönduðum barnaskóm á góðu verði
Með hverju keyptu pari fylgja inniskór að eigin vali á barnið!
Vandaðir skór á alla fjölskylduna í stærðum 16 - 50 Stærðir 18 - 26
Stærðir 18 - 34
Stærðir 18 - 34
MJÓDDINNI S: 557 1291
SPÖNGINNI S: 587 0740
18
Fréttir
Árbæjarblaðið
Fegrunarátak í Árbæjarhverfinu:
Tekið til hendi í Árbænum Laugardaginn 16. september sl. var á dagskrá svokallað fegrunarátak í Árbæjarhverfi. Árbæingar, ungir sem aldnir, tóku þá til hendinni og snyrtu hverfi sitt sem mest þeir máttu. Á meðal þeirra sem mættu í hverfið þennan dag var borgarstjórinn í Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, og lét hann ekki sitt eftir liggja við hin ýmsu verk sem vinna þurfti. Mikið var um að vera á þessum laugardegi. Hinni árlegu hausthá-
tíð í hverfinu var fundinn staður og stund á þessum degi og þá má nefna að Fylkismenn buðu stuðningsmönnum sínum og velunnurum til árlegrar síldarveislu sem jafnan er haldin fyrir síðasta heimaleik Fylkis sem var á Fylkisvelli þennan dag og var leikið gegn liði Breiðabliks. Að fegrunarátakinu loknu var víða fegurra um að litast og alveg ljóst að slíkt átak sem þetta er nauðsynlegt og gott framtak. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, mætti og lét ekki sitt eftir liggja.
Það var vel tekið á og fegrunarátakið tókst vel.
Samvinnan var í fyrirrúmi.
Leikmenn meistaraflokks kvenna létu sig ekki vanta.
Þessir Árbæingar breyttu moldarsvæðum í iðagrænar brekkur.
Frá leik Fylkis og Breiðabliks.
ÁB-myndir EÁ
19
Árbæjarblaðið
Fréttir
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins:
Guðlaugur Þór Þórðarson hefur ákveðið að bjóða sig fram í annað sæti á lista sjálfstæðismanna í borginni í næstu alþingiskosningum. Það er mikið fagnaðarefni fyrir sjálfstæðismenn og kjósendur að ungir og þróttmiklir stjórnmálamenn komi til starfa fyrir flokkinn og tryggi nauðsynlega endurnýjun hugmynda og aðferða sem hæfir síbreytilegu umhverfi kjósenda. Guðlaugur Þór hefur sýnt og sannað að hann er verðugur fulltrúi sjálfstæðismanna í Árbæ og reyndar allra borgarbúa í störfum sínum fyrir Reykjavíkurborg en einnig á landsvísu með störfum sínum á Alþingi. Hann hefur borið hag fjölskyldunnar fyrir brjósti og stuðlað að aukinni æskulýðs- og íþróttastarfssemi ungmenna. Hann var ötull baráttumaður heilbrigðar skynsemi í rekstri borgarinnar með það að markmiði að stuðla að hagkvæmum rekstri á þjónustu- og stuðningskerfum borgarinnar. Öflugt, hagkvæmt og framsækið stuðningskerfi í samfélaginu kemur öllum kjósendum til góða. Fjármunum ríkisins er aðallega varið í heilbrigðis, trygginga- og menntamál. Það vantar unga og þróttmikla baráttumenn á Alþingi til að aðlaga þjóðfélagið að nýjum tíma. Við undirrituð skorum á íbúa í Árbæ og Grafarholti og aðra bæjarbúa að kjósa Guðlaug Þór Þórðarson alþm. í annað sætið á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík í næstu alþingiskosningum. Virðingarfyllst, Björn Gíslason, formður félags Sjálfstæðismanna í Árbæ. Hrafnhildur Baldursdóttir, formaður félags Sjálfstæðismnna í Grafarholti. Sigrún Jónsdóttir, formaður Knattspyrnudeildar Fylkis. Hermann Gunnarsson, Árbæingur og fjölmiðlamaður. Alda María Magnúsdóttir, matráður. Páll Einarsson, knattspyrnumður í Fylki. Guðrún Ósk Jakobsdóttir, formaður Fimleikadeildar Fylkis og formaður meistaraflokksráðs kvenna í knattspyrnu. Gylfi Einarsson, atvinnumaður í knattspyrnu hjá Leeds United. Sigurður Jensson, formaður handknattleiksdeildar Fylkis. Ásgeir Þórðarson, sölumaður. Guðlaugur Pálsson, verkefnisstjóri. Guðbjörg Pálsdóttir, deildarstjóri. Jón Ellert Tryggvason, verkefnisstjóri. Hulda Bjarnadóttir, eldri borgari. Rut Woodvard, kennari. Ólafur Ófeigsson, deildarstjóri. Ólafur Loftsson, fangavörður. Linda Jóhannsdóttir, þroskaþjálfi. Linda Hrönn Gylfadóttir, skrifstofumaður. Eyjólfur Héðinsson, knattspyrnumaður í Fylki. Haraldur Albert Guðlaugsson, eldri borgari. Tómas Hauksson, rafvirki. Magnús Ingólfsson, byggingameistari. Viðar Helgason, rekstrarfræðingur. Haukur Tómasson, rafvirki. Valur Tómasson, sölumaður. Sigurður Ingvarsson, ráðgjafi.
Páll Pálsson, eldri borgari og fyrrverandi hreppstjóri. Inga Ásgrímsdóttir, húsmóðir og eldri borgari. Magnús Magnússon, verkfræðingur. Magnús Sigurgeirsson, verkefnastjóri. Jón Magngeirsson, pípulagningameistari. Gunnar Pálsson, eldri borgari. Þórður Kristjánsson, rannsóknarmaður. Rut Jónsdóttir, skrifstofustjóri. Unnur Lilja Hermannsdóttir, eldri borgri. Hermann Hreiðarsson, knattspyrnumaður hjá Charlton. Atli Kristjánsson, innkaupastjóri. Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi Miss World.
18/10
Áskorun til íbúa í Árbæ og Grafarholti
GÆÐASTÁL
Vönduð stálpottasett Orkusparandi Þrefaldur botn • 12 hlutir Aðeins kr. 22.000,Kynningarverð
Hnífaparatöskur 72 hlutir Gyllt eða stál Aðeins kr. 14.500,-
Grilltíminn framundan
Eldhúshnífar Steikarasett 24 hlutir Aðeins kr. 12.000,-
Pöntunarsími893 894 2666 5272 Pöntunarsími
Opið alla daga frá kl. 10.00 til 22.00. Sendum í póstkröfu ef óskað er. Póstburðargjald greiðist af viðtakanda
Ice-Atlantic ehf. Sími 893 2666
20
Fluguveiði
Árbæjarblaðið
Krafla.is ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Kröfluflugurnar hafa gefið mörgum veiðimönnum góða veiði í sumar. Hér er Krafla orange túpan vel föst í kjaftvikinu og skömmu síðar lá fallegur laxinn á árbakkanum.
Eitt númer
410 4000
Egilshöllinni Sími: 594-9630 www.orkuverid.is Alhliða líkamsrækt og sjúkraþjálfun
Sjóbirtingsveiðin í haust hefur verið mjög döpur og sérstaklega á suðurlandi:
Sjóbirtingurinn á miklu undanhaldi ,,Þetta var ákaflega dapurt. Við höfðum reyndar frétt af mun minni veiði á þessum slóðum en í fyrra en að þetta yrði svona dapurt datt okkur aldrei í hug,’’ sagði veiðimaður sem var að koma úr sjóbirtingsveiði í nágrenni við Kirkjubæjrklaustur. Hann ásamt félaga sínum veiddu í einn dag í Laxá, Brúará og Djúpá sem oft hafa gefið mjög góða veiði. Nú brá svo við að afar lítill fiskur var á svæðinu en í fyrra fengu þessir sömu veiðimenn 79 væna sjóbirtinga á tæplega tveimur veiðidögum. ,,Það hjálpaðist reyndar allt að. Vatnið í bergvatnsánum Laxá og Brúará var nánast ekki neitt og í sögulegu lágmarki. Neðar á svæðinu var síðan jökuláin Djúpá tvöföld eða þreföld og skítug eftir því. Allt svæðið var því óveiðandi. Það breytir ekki því að enginn fiskur sást í Brúará og var ekki erfitt að sjá fisk í henni ef hann hefði verið á staðnum. Nokkrir fiskar voru í brúarhylnum í Laxá en þeir voru legnir og engan nýgenginn fisk að sjá. Á sama tíma og viðmælendur okkar voru við veiðar í
Laxá, Brúará og Djúpá voru veiðimenn að slíta upp einn og einn birting í Vatnamótunum og Hörgsá á Síðu. ,,Óheppnin elti okkur í þessum túr. Daginn eftir að við vorum í Laxá, Brúará og Djúpá áttum við veiði í Hörgsá á Síðu. Þar hafði hellirignt og var áin nánast óveiðandi sökum vatnavaxta. Þarna eru ekki nema nokkrir kílómetrar á milli, á öðrum staðnum hellirigndi en á hinum kom varla dropi úr lofti. Svona getur þetta verið í veiðinni og heppnin ekki alltaf með í för,’’ sagði veiðimaðurinn. Sjóbirtingsveiðin byrjaði 14. ágúst í Laxá, Brúará og Djúpá. Nú nýverið voru 100 birtingar komnir á land á tvær stengur og 2 laxar og 5 bleikjur að auki. Döpur veiði eins og víðast á þessum annáluðu sjóbirtingsslóðum á suðurlandi. Á þessu fiskleysi hafa menn ekki haldbærar skýringar. Hlaup í Skaftá kann þó að vera ein skýringin. Menn áttu von á mikilli sjóbirtingsveiði á þessum slóðum í haust eftir frábæra veiði í fyrra en þær vonir manna hafa nær allar brugðist.
Vötn og veiði er allt í senn, tímarit, fréttaveita og veiðibók. Gamli og nýi tíminn þræddir saman. Ritstjóri er Guðmundur Guðjónsson einn sá reyndasti í stangaveiðimálefnum, með rúmlega 26 ára reynslu sem stangaveiðisérfræðingur Morgunblaðsins og ritstjóri Íslensku stangaveiðiárbókarinnar frá upphafi hennar árið 1988.
votnogveidi.is FRÍTT VEFRIT UM STANGAVEIÐI
Veiðimaður rennir fyrir sjóbirting í efsta veiðistað Brúarár á dögunum.
Já, en kallinn á allt í sambandi við veiði! En ekki þetta! Flugubox úr mangóviði og við gröfum nafn veiðimannsins á boxið - þéttsetið íslenskum flugum í fremstu röð!!
Hágæðaflugur íslensk hönnun Sjón er sögu ríkari!! Kíktu á www.Krafla.is Þar finnur þú gjöfina sem alla fluguveiðimenn dreymir um
,,Kröflurnar eru númer eitt í fluguboxinu mínu. Alltaf fyrstar á og skila mér alltaf mjög góðri veiði,’’ segir Kristján Hilmir Gylfason.
Besta vörnin í netverslun í dag Framleiðandi Skrautás ehf - Bíldshöfða 14 - Sími: 587-9500 / 698-2844
Kristján Hilmir með glæsilega veiði úr Blöndu í sumar á flugur frá Krafla.is ,,Einfaldlega langbestu flugurnar, hvort sem litið er til áhuga fiska eða endingar.’’
22
Fréttir
Árbæjarblaðið
Stór pizza með 2 áleggjum
Opnunartími: Virka daga 16 - 22 Um helgar 12 - 22
Núpalind 1 Kópavogi
Hverafold 1-5 Grafarvogi
Reykjavíkurvegi 62 Hafnarfirði Vilhjálmur borgarstjóri með börnunum á Regnboganum.
Laus störf í leikskólum Viltu vinna í þínu hverfi? Þá höfum við störf fyrir þig.
.. . .. .. .. .. .. .. . .. ..
Deildarstjórar Fellaborg, Völvufelli 9, sími 557-2660 Lyngheimar, v/Mururima, sími 567-0277 Ösp, Iðufelli 16, sími 557-6989 Leikskólakennari/leiðbeinandi Blásalir, Brekknaás 4, sími 557-5720. Brekkuborg, Hlíðarhúsum 1, sími 567-9380. Fífuborg, Fífurima 13, sími 587-4515. Geislabaugur, Kristinbraut 26, sími 517-2560. Heiðarborg, Selásbraut 56, sími 557-7350. Um er að ræða hálfa stöðu eftir hádegi. Klettaborg, Dyrhömrum 5, sími 567-5970. Lyngheimar, v/Mururima, sími 567-0277. Um er að ræða bæði fast starf og afleysingastöðu. Reynisholt, Gvendargeisla 13, sími 517-5560. Rofaborg, Skólabæ 6, sími 567-2290 og 587-4816. Völvuborg, Völvufelli 7, sími 557-3040. Um er að ræða 100% störf frá 1. desember og 1. janúar 2007. Einnig vantar í 50% stöðu frá 1. janúar 2007. Sérkennsla Fífuborg, Fífurima 13, sími 587-4515. Hólaborg, Suðurhólum 21, sími 557-6140. Þroskaþjálfi eða starfsmann með sambærilega menntun óskast. Suðurborg, Suðurhólum 19, sími 557-3023. Þroskaþjálfar, leikskólakennarar eða annað uppeldismenntað fólk óskast til starfa við sérkennslu.
Regnboginn bauð borgarstjóranum Aðdragandi fegrunarvikunnar á dögunum í leikskólanum Regnboganum var að bréf barst frá borgarstjóra þar sem skorað var á alla í Árbæjar- og Ártúnshverfi að taka þátt í fegrunarátaki laugardaginn 16. september sl. Þar sem leikskólinn er lokaður á laugardögum en fegrunarátak féll vel að vinnu okkar í leikskólanum þar sem þemað í skólanum er ,,Að virða, vernda og njóta náttúrunnar’’ slógum við til og skipulögðum ,,Fegrunarviku’’. Börnin sendu Vilhjálmi borgarstjóra meðfylgjandi bréf og er skemmst frá því að segja að hann brást vel við og kom og hitti krakkana kl. 14 á föstudeginum og allir hjálpuðust að við að fegra umhverfið niður við Elliðaár á föstudeginum 15. sept. síðasta degi fegrunarviku leikskólans. Börnin voru afar upp með sér að hitta Vilhjálm borgarstjóra og afhentu honum rauða regnhlíf til afnota því það ringdi mikið þennan dag. Börnin spurðu borgarstjóra síðan margs, m.a. ,,Vilhjálmur getur þú ekki látið fullorðna fólkið hætta að henda rusli út um bílgluggann?’’ og: ,,Vilhjálmur átt þú pollagalla? " og ,, Borgarstjóri, varstu góður þegar þú varst lítill?’’ Vilhjálmur svaraði börnunum vel og var áhugasamur um hvað þau væru að gera í leikskólanum og hrósaði þeim fyrir dugnaðinn við að fegra umhveri sitt.
Bréf barnanna til borgarstjórans var svona: Heill og sæll Vilhjálmur borgarstjóri. Eitt af árlegum þemum leikskólans er að Vernda náttúruna, virða og njóta og umhverfi Regnbogans er óspart notað og notið í því sambandi. Leikskólabörnin fara mikið í ferðir hér í nágrenni skólans og er Elliðaárdalurinn okkur afar kær og þangað förum við oft. Þegar við sáum auglýst að borgin standi fyrir fegrunarátaki laugardaginn 16. sept. í Árbæjarhverfi ákváðum við að nota vikuna á undan til að fegra í kringum skólann okkar og í nágrenninu. Síðan er það spurningin til þín; Viltu koma og hjálpa okkur að fegra niður við Elliðaár á föstudeginum 15. september? Þ.e. hefja átakið degi fyrr af því við erum ekki í leikskólanum á laugardögum en okkur langar svo að hitta þig og aðstoða við að gera hreint og fallegt. Við getum svo tekið með okkur nesti og borðað í Kjartanslundi ef þú vilt. Við erum voðalega duglegir krakkar og það eru 4 og 5 ára krakkarnir sem ætlað að fegra og tína rusl á föstudeginum niður við Elliðaár og þú getur að mestu ráðið tímanum sem við hittumst á, það er að segja ef þú getur komið. Við hlökkum til að heyra frá þér. Börn og starfsfólk Regnbogans
Yfirmaður í eldhúsi Fálkaborg, Fálkabakka 9, sími 557-8230, vegna afleysinga í fæðingarorlofi. Klettaborg, Dyrhömrum 5, sími 567-5970. Aðstoð í eldhúsi Heiðarborg, Selásbraut 56, sími 557-7350. Um er að ræða starf frá 1. desember 2006. Maríuborg, Maríubaug 3, sími 577-1125 / 849-6737. Um er að ræða 75% stöðu. Vinnutími frá kl. 9:45-16:15.
Nánari upplýsingar um þessi störf veita leikskólastjórar í viðkomandi leikskóla. Einnig veitir Starfsmannaþjónusta Menntasviðs upplýsingar í síma 411-7000. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um laus störf er að finna á heimasíðunni www.menntasvid.is Börnin höfðu gaman af að ræða við borgarstjórann.
Árbæjarblaðið - Auglýsingasími 587-9500
Þetta er vekjaraklukka
Hjá Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins gerir þú mikið úr litlu. Á þriðjudögum F í t o n / S Í A
færðu t.d. 500 kr. SMS inneign aukalega þegar fyllt er á Frelsi frá Símanum fyrir 2.000 kr. eða meira í Heimabankanum. Fáðu góða aðstoð við fjármálin svo þú getir gert mikið úr litlu. Nánari upplýsingar á www.spar.is eða í næsta sparisjóði. Við hlökkum til að heyra frá þér.
Gerðu mikið úr litlu!
SPV - Sparisjóður vélstjóra - Hraunbæ 119 - Aðalsími 575 4000 - Þjónustuver 575 4100 - spv@spv.is - www.spv.is
Ef þú setur GSM síma inn í stórt glas virkar það eins og magnari. Það er skemmtilegt að vakna við syngjandi glamur á hverjum morgni!