Skip to main content

Árbæjarblaðið 4. tbl. 2026

Page 1


Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

4. tbl. 24. árg. 2026 apríl

íbúa í Árbæjarhverfi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

almennar bílaviðgerðir

Þessir glæsilegu unglingar náðum merkum áfanga á lífsleiðinni á skírdag en þá fór fram síðasta fermingin í Árbæjarkirkju þetta árið. Fermingin er merkur áfangi og gleðin skein úr augum fermingarbarnanna. ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir

Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

tÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322.

Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is

Útlit og hönnun: Skrautás ehf.

Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir.

Dreifing: Póstdreifing.

Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti og Norðlingaholti.

Það hanga ekki allir á netinu

Í blaðinu að þessu sinni eru kosningarnar fyrirferða-miklar og margir frambjóðendur hafa falast eftir birt-ingum á greinum í okkar blöðum. Við þessum beiðnum höfum við orðið í öllum tilfellum.

Frambjóðendur flokkanna eru misjafnlega duglegir að hafa samband við okkur. Mestur áhugi fyrir hverfablöðum okkar er meðal frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins og frambjóðendur Miðflokksins eru einnig áhugasamir og telja hverfablöðin góðan vettvang til að koma skoðunum sínum á framfæri við kjósendur.

Það vekur furðu að ekki heyrist frá sumum flokkunum og þeir láta sem blöðin séu ekki til. Það er auðvitað þeirra mál en ekki okkar.

Talandi um hverfablöðin. Í fyrra voru gefin út sjö hverfablöð í Reykjavík. Um mitt árið í fyrra var útgáfu fjögurra hverfablaða hætt. Eftir standa blöðin okkar þrjú, Grafarvogsblaðið, Árbæjarblaðið og Grafarholtsblaðið.

Til þessa hefur útgáfa blaðanna gengið vel. Fyrirtæki átta sig enn á því að það hanga ekki allir á netinu og fólk vill fá sitt hverfablað.

Skilningsleysi opinberra aðila er hins vegar algjört. Sem dæmi um það er að ríkið styrkir einkarekna fjölmiðla.

Borgin hefur veitt okkar blöðum lítinn styrk í gegnum árin. Þegar ríkið greiðir út styrkinn til okkar dregur það styrkinn frá borginni frá. Þetta er auðvitað meira en glórulaust og þegar farið er fram á að þessu verði breytt er það viðurkennt að þetta mætti betur fara en ekkert gert í málinu.

Ríki og Reykjavíkurborg eru mjög léleg þegar kemur að því að auglýsa í blöðunum. Erfiðlega gengur að ná sambandi við aðila, sérstaklega hjá borginni. Í Kópavogi, Mosfellsbæ og Garðabæ eru hverfablöðin til dæmis löðrandi í auglýsingum frá viðkomandi yfirvöldum.

Stefán Kristjánsson

Bílastæðastefna sem gengur ekki upp

- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Það er ekki tilviljun hvernig bílastæðamálum er háttað í nýjum hverfum Reykjavíkur. Sú þróun á sér skýra stoð í Aðalskipulagi Reykjavíkur, þar sem gert er ráð fyrir að bílastæðakröfur taki mið af staðsetningu og þéttleika byggðar og geti verið lægri en áður tíðkaðist. Þetta er meðvituð stefna sem birtist í nýjum uppbyggingarsvæðum þar sem færri bílastæði eru skipulögð en lengi var venjan.

Á sama tíma liggur fyrir að bílaeign hér á landi er með því hæsta sem þekkist. Fjöldi bifreiða á hvern íbúa er mjög hár og raunveruleikinn sá að flest heimili eiga bíl og mörg fleiri en einn. Þessi staðreynd hefur ekki breyst þrátt fyrir stefnumörkun á skipulagsstigi og bendir til þess að eftirspurn eftir bílastæðum sé áfram raunveruleg og viðvarandi, óháð því hvaða væntingar eru settar fram.

Samhliða þessu er verið að byggja upp og fyrirhugað að byggja ný hverfi, til dæmis í Keldnalandi, á þéttingarreitum í efri byggðum og á Höfðanum, þar sem ekki er gert ráð fyrir sambærilegu aðgengi að bílastæðum. Í slíkum verkefnum virðist gert ráð fyrir breyttri hegðun íbúa án þess að forsendur fyrir þeirri breytingu séu til staðar. Það er einfaldlega gengið út frá því að fólk muni breyta lífsstíl sínum en án þess að raunhæfir valkostir séu til staðar.

Skortstefna í bílastæðamálum Reikningsdæmið er einfalt og gengur ekki upp. Ef færri bílastæði eru

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

skipulögð en eftirspurn stendur til, skapast skortur. Afleiðingarnar eru fyrirsjáanlegar. Bílar hverfa ekki, þeir leita annað. Álag færist yfir í nærliggjandi götur og hverfi þar sem innviðir voru ekki hannaðir fyrir slíkt álag. Vandinn leysist því ekki heldur flyst til. Þá skapast einnig aukið álag á umferð, meiri leit að stæðum, meiri tími sem fer í að finna bílastæði og þar með aukin mengun og óþarfa akstur.

Samhliða þessu blasir við önnur þróun sem erfitt er að horfa fram hjá. Borgaryfirvöld hafa á sama tíma

markvisst dregið úr fjölda bílastæða með því að umbreyta stæðum með blómakerum og svokölluðum kleinuhringjum. Þannig er ekki aðeins verið að takmarka framboð í nýjum hverfum heldur rýra þau gæði sem áður voru fyrir hendi. Þetta er ekki tilviljun heldur stefna sem hefur raunveruleg áhrif á daglegt líf fólks.

Slík nálgun býr til vítahring. Minna framboð leiðir ekki sjálfkrafa til minni eftirspurnar heldur til meiri þrýstings. Íbúar neyðast til að leggja lengra frá heimili sínu, nýta götur sem ekki voru hannaðar fyrir slíkt eða keppa um takmörkuð gæði sem áður voru sjálfsögð. Þetta dregur úr lífsgæðum og skapar ónauðsynlegan núning í daglegu lífi.

Hér í úthverfum blasir þetta sérstaklega við. Þetta eru ekki miðborgarsvæði þar sem allt er í göngufæri heldur hverfi þar sem daglegt líf krefst þess að fólk komist leiðar sinnar með einföldum hætti. Að skipuleggja slík svæði með færri bílastæðum en raunveruleg notkun gefur tilefni til er ekki framsýni heldur misræmi sem mun óhjákvæmilega koma fram í daglegu lífi íbúa í efri byggðum. Slíkt misræmi getur jafnframt haft áhrif á verðmæti eigna, aðdráttarafl hverfa og traust til skipulagsyfirvalda.

Skipulag þarf að byggja á raunveruleikanum, ekki forsendum sem ganga ekki upp. Björn Gíslason borgarfulltrúi

GETUR

Grænmetis- og kjúklingasúpa með graskeri

- frábær uppskrift sem vert er að prófa

Hér kemur ein extra ljúffeng súpuuppskrift eftir stórsteikur páskanna.

Hráefni (4–6 skammtar)

2 msk. ólífuolía.

1 laukur, saxaður.

1 púrrulaukur, sneiddur.

2 hvítlauksrif, smátt söxuð.

300 gr. grasker (butternut eða annað), teningar.

2 gulrætur, sneiddar.

1 stór sæt kartafla, teningar.

1 paprika (appelsínugul eða rauð), teningar.

1 dós (400 gr.) niðursoðnir tómatar.

1 lítri kjúklingasoð (eða grænmetissoð)( kraftur og vatn).

2 kjúklingabringur, skornar í bita.

1 tsk. paprikuduft.

½ tsk. cumin.

½ tsk. timían eða rósmarín.

Salt og pipar eftir smekk.

Auka sem ég mæli alveg með:

1 dl. rauðar linsubaunir (gera súpuna þykkari og próteinríkari).

Handfylli ferskt grænt í lokin.

Safi úr ½ sítrónu til að fríska upp á bragðið.

Aðferð Hitaðu olíu í stórum potti. Mýktu lauk og púrrulauk í 3–4 mínútur. Bættu hvítlauk út í síðustu mínútuna. Settu kjúklingabitana út í, kryddaðu og brúnaðu létt. Settu grasker, gulrætur, sæta kartöflu og papriku í pottinn. Hrærið saman.

Helltu niðursoðnum tómötum og soði yfir. Bættu linsubaunum út í ef þú ætlar að nota þær. Láttu malla í 20–25 mínútur þar til allt er mjúkt.

Bættu babyleaves / spínati / grænkáli út í síðustu 2–3 mínúturnar. Smakkaðu til með salti, pipar og smá sítrónusafa. Næringar + Prótein úr kjúklingi og linsubaunum. Beta-karótín úr graskeri, gulrótum og sætum kartöflum.

Trefjar sem styðja meltingu. Súpan er fullkomin sem máltíð í hádeginu eða léttur kvöldmatur.

Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast

Spönginni Grafarvogi

Grænmetis- og kjúklingasúpan hennar Jönu er algjört salgæti.
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).

Árbær - Gerum gott hverfi enn betra

Árbær er einstakt hverfi. Nálægðin við náttúruna, öflugt íþróttafélag og perla hverfisins, sundlaugin. Þetta gerir hverfið að frábæran stað til að búa á. Við sem höfum alist upp hér vitum að Árbær er ekki bara staður – hann er hluti af okkur. En það þarf að viðhalda hverfinu svo Árbær verði áfram eftirsóttaverður.

Árbær er hluti af því hver ég er. Það er eitthvað við hverfið sem fylgir manni alla ævi. Það er sagt að „Árbæingur sé alltaf Árbæingur“, hvort sem „Árbæingurinn“ búi í hverfinu eða ekki. Við sem ólumst hér upp berum með okkur sérstaka hlýju og stolt gagnvart hverfinu okkar.

Katrín Magnúsdóttir. - eftir Katrínu Magnúsdóttur frambjóðanda Miðflokksins

Eitt af því sem mótaði æskuna mína var Rauðavatn. Fáir vita það í dag, en þar var áður starfræktur siglingaklúbbur á vegum Fylkis. Þetta var einstakt tækifæri fyrir fjölskyldur í hverfinu til að njóta samverustunda enda hefur þetta svæði mikið upp á að bjóða. Byggjum upp útivistasvæðið við Rauðavatn- gerum það að paradís efri byggða.

Höldum í sérstöðu Árbæjar – ráðumst í nauðsynlegar viðhaldsframkvæmdir

Leiksvæðin voru miðpunktur lífsins þegar við vorum krakkar. En mörg þeirra eru nú orðin gömul, slitin og ekki í takt við þarfir barna í dag. Það er

kominn tími til að endurnýja þau — ekki bara til að laga heldur til að skapa örugg, falleg og fjölbreytt leiksvæði sem hvetja til hreyfingar og samveru:

• Setja upp ný og örugg leiktæki

• Bæta lýsingu og aðgengi

• Setja mjúkt undirlag í stað malar

• Gera svæðin aðlaðandi fyrir bæði börn og foreldra.

Góðir stígar eru grunnforsenda fyrir lifandi og öruggu hverfi en margir göngustígar eru orðnir slitnir og þarfnast endurnýjunar, til dæmis þeir stígar þar sem gengið er í skóla, í Fylki og niður dal og heim aftur. Fara þarf í heildarendurnýjun gangstétta, ekki bara plástra.

Það er líka kominn tími til að styrkja rödd Árbæjar. Mögulega er skynsamlegt að endurvekja íbúðaráð með öðru sniði en áður var, aðalatriðið er að tryggja tengilið í hverfinu við miðlægja stjórnsýslu Ráðhúss Reykjavíkur.

Skýrari forgangsröðun

Það er mikilvægt að forgangsraða rétt þegar kemur að uppbyggingu hverfa. Grunninnviðir eiga að vera í lagi áður en farið er í aukaverkefni.

Miðflokkurinn hefur lagt áherslu á einmitt þetta – að færa fókusinn aftur á grunnþætti sem skipta íbúa mestu máli í daglegu lífi.

Það felur í sér:

• að setja grunninnviði í forgang

• að ráðast í heildarendurnýjun þar sem þörfin er mest

• og að tryggja að hverfi eins og Árbær sitji ekki eftir í þróun.

Þetta eru ekki flóknar lausnir –heldur skynsamleg nálgun sem getur

skilað raunverulegum umbótum.

Árbærinn er enn einstakt hverfi og fer sístækkandi. Því er um að gera að veita því þá umhyggju sem það á skilið svo það geti haldið áfram að dafna fyrir næstu kynslóðir. Ég vil að börnin sem alast upp í Árbæ í dag fái sömu góðu upplifun, tækifæri og minningar eða jafnvel betri.

Höfundur eru frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Að hlaupa með hundinum sínum er meira en bara líkamsrækt. Þetta er frábær leið til að styrkja tengslin ykkar á meðan þið hreyfið ykkur saman. Hvort sem þið farið út í ferska loftið, njótið útiverunnar eða eigið einfaldlega góða stund saman, þá er þetta gefandi fyrir bæði mann og hund. En áður en lagt er af stað er gott að undirbúa sig aðeins, því það gerir upplifunina bæði öruggari og skemmtilegri.

Er hundurinn þinn tilbúinn að hlaupa? Áður en þú reimar á þig hlaupaskóna er mikilvægt að huga að líkamlegu ástandi hundsins.

Aldur: Ekki er mælt með löngum hlaupum fyrir hvolpa sem eru enn að vaxa eða eldri hunda með liðavandamál.

Tegund: Sumar tegundir, eins og stuttlappa hundar, þola síður mikla áreynslu. Aðrar tegundir, eins og retrieverar og fjárhundar, eru oft náttúrulega hreyfanlegri.

Heilsa: Gott er að ganga úr skugga um að hundurinn sé ekki með vandamál í mjöðmum, liðum eða hjarta. Fljótlegt tékk hjá dýralækni getur verið góð hugmynd áður en byrjað er.

Áhugi: Ekki eru allir hundar sjálfkrafa spenntir fyrir því að hlaupa. Sumir þurfa rólega aðlögun, þolinmæði og jafnvel nokkra nammobita til að fá áhuga.

Veldu rétt umhverfi

Það skiptir miklu máli hvar þið hlaupið. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga: Í borginni eða á gangstéttum: Hafðu hundinn við hliðina á þér, helst þeim megin sem snýr frá umferð, til öryggis.

Í garði eða á öruggum stíg: Ef reglur á svæðinu leyfa má hundurinn hlaupa örlítið á undan, svo lengi sem hann heldur athyglinni á þér.

Virðið reglur á svæðinu: Á sumum stöðum þarf hundurinn alltaf að vera í taumi. Kynntu þér reglurnar áður en þið leggið af stað.

Athugaðu truflanir: Hjól, skokkarar

og aðrir hundar geta auðveldlega tekið athygli hundsins. Hann þarf að læra að fylgja þér þrátt fyrir spennandi áreiti.

Að læra að hlaupa saman Það þarf smá æfingu að læra að hlaupa saman. Best er að byrja rólega og kenna hundinum grunninn:

• Byrjið á röskum göngutúrum til að venjast hraðanum.

• Kennið góða staðsetningu, til dæmis vinstra megin, við hliðina á þér eða örlítið á undan, eftir því hvað er öruggast.

• Verðlaunið góða hegðun með hrósi eða litlu nammi þegar hundurinn hleypur rólega við hliðina á þér. Þannig byggirðu upp jákvæða tengingu við hlaupin.

Nauðsynlegur búnaður fyrir þægileg hlaup Réttur búnaður getur skipt miklu máli. Fyrir meiri þægindi og öryggi getur verið sniðugt að nota hlaupagerði um mittið og teygjanlegan taum sem er hannaður fyrir hunda. Slíkur búnaður hentar vel í göngur, skokk eða gönguferðir utandyra með hundinum. Stillanlegt belti með endurskinsröndum eykur sýnileika og teygjutaumur hjálpar til við að dempa snögg tog. Á sumum beltum fylgja einnig litlir vasar eða hólf sem henta vel fyrir síma, vatnsflösku eða nammi. Það einfaldar allt og gerir útiveruna þægilegri.

Skipulagðu fyrstu hlaupatúrana vel Eins og með alla nýja hreyfingu er lykillinn að árangri að fara rólega af stað. Þannig minnkarðu líkur á meiðslum eða því að áhuginn detti niður hjá ykkur báðum.

• Byrjið á stuttum vegalengdum og hóflegum hraða.

• Fylgstu vel með hundinum. Mikil mæði, hægari hraði eða áhugaleysi þýðir að það sé kominn tími á hvíld.

• Hafðu alltaf vatn með fyrir bæði þig og hundinn.

Svona heldurðu þessu skemmtilegu

• Breyttu stundum um leið svo hundurinn haldi forvitni og áhuga.

• Bættu við leikpásum eða leyfðu honum að þefa aðeins, það skiptir hann máli.

• Vertu sveigjanleg/ur, suma daga er góður göngutúr alveg nóg.

• Hafðu þetta jákvætt, þetta snýst ekki um afrek heldur að eiga góða stund saman.

Að hlaupa sem lið Að hlaupa með hundinum sínum er meira en bara hreyfing. Þetta er sérstök samverustund þar sem þið vinnið saman sem lið. Með góðum undirbúningi, því að hlusta á hundinn og virða hans hraða getið þið byggt upp dýrmætar minningar, eitt skref og eina loppu í einu.

Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar á www.Krafla.is (698-2844)

Fermingarbörnin hlustuðu athugul á sr. Þór Hauksson sóknarprest Árbæjarkirkju.

Ferming í Árbæ

Veturinn tók kuldalega á móti fermingarbörnum í Árbæjarkirkju eftir athöfnina. Mikil snjókoma og kuldi.

Þessu var öfugt farið innan dyra. Þar réði hlýja og kærleikur ríkjum. Gleðin skein af hverju andliti og fermingar-

börnin stigu ánægð og stolt inn í nýjan kafla í lífinu og fjöldi skyldmenna og

Ljósmyndir

Katrín J. Björgvinsdóttir

gesta fylgdist vel með öllu sem fram fór.

Þetta var fjölmennasta fermingarathöfnin í ár og þegar næsta haust fer nýr og glæsilegur hópur að undirbúa sig fyrir nýja hátíð.

Fermingin er falleg tímamót, þar sem ástvinir samfagna fermingarbarninu.

Kórfélagarnir Leó Jóhannesson og Gunnar Hannes Reynarsson.

Gullfallegar fermingarvinkonur.

Christel Silva Anítudóttir var glæsileg í tilefni dagsins.

Sr. Þór Hauksson sóknarprestur Árbæjarkirkju, Magnús Sævar Magnússon kirkjuvörður og sr. Bjarki Geirdal Guðfinnsson.

stund í fermingarmessunni á Skírdag.

Ida Hildur Fenger og Ólafía S. Hansdóttir úr kirkjukórnum.

Systkinin Fríða Kristín Ingólfsdóttir, Finnbogi Ingólfsson og fermingarsystirin Soffía Ingólfsdóttir voru í sínu fínasta pússi.

Hátíðleg
Það var margt um manninn enda mörg börn að fermast á Skírdag.
Það snjójaði hressileg á kirkjugesti eftir ferminguna.
Allt klárt fyrir inngöngu í fermingarmessuna.
Guðrún Helgadóttir og Lilja Arnardóttir úr kirkjukórnum
Carmen Dögg Baptiste í glæsilegum bleikum kjól og vel skóuð fyrir snjókomuna.
Ein af fallegustu stundum lífs þíns er að fermast.
Kórfélagarnir Páll Sigurvinsson og Sigurður Páll Ásólfsson.

Frelsi og val í samgöngum

- eftir Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Samkvæmt mælingum Vegagerð—arinnar eykst umferð ár frá ári - það finnum við öll á eigin skinni. Árið 2019 var áætlað að tæplega níu milljónum klukkustunda yrði sóað í umferðartafir innan höfuðborgarinnar árlega. Umferðartafir á annatíma höfðu aukist um nærri 50% á örfáum árum. Þessar tafir samsvöruðu um 40 klukkustundum – eða heilli vinnuviku - á hvern höfuðborgarbúa árlega.

Undanfarið hefur ástandið einungis versnað enda engar teljandi samgöngubætur átt sér stað í Reykjavík síðustu tvo áratugi. Sjálfstæðisflokkurinn vill greiða fyrir umferð svo fólk komist hraðar á milli staða enda lífsgæðamál fyrir fólkið í Reykjavík.

Tryggja þarf frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur og láta af stjórnlyndi í garð borgaranna. Stokkum spilin!

Sjálfstæðisflokkurinn vill stokka spilin og forgangsraða verkefnum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins uppá nýtt. Tryggja þarf að brýnustu og arðbærustu verkefni sáttmálans njóti forgangs. Flýta þarf mislægum gatnamótum við Sprengisand, Miklubrautargöngum og innleiðingu snjallra ljósastýringa. Samhliða þarf að afturkalla þrengingar við Höfðabakka, bæta umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum og tryggja nauðsynlegt viðhald á samgönguinnviðum borgarinnar.

Við teljum meirihlutann í Reykjavík hafa siglt Borgarlínu í strand og viljum endurskoða verkefnið frá grunni. Innleitt verði nýtt hagkvæmt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að almennri umferð. Markmiðið verði að gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti fyrir fleiri. Ferðir verði tíðari, biðskýli betri, þjónustan öflugri og dregið úr áherslu á miðjusetningu sérakreina. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar yfirvofandi þrengingum á almennri umferð, svo sem á Suðurlandsbraut eða Gullinbrú.

Breytt bílastæðastefna Sjálfstæðisflokkurinn hyggst kollvarpa bílastæðastefnu borgarinnar svo hún mæti betur þörfum íbúa og

atvinnulífs. Við viljum fella brott reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og tryggja aukinn sveigjanleika. Við viljum jafnframt vinda ofan af breytingum á bílastæðagjöldum í miðborg sem leiddu til þess að gjaldsvæði voru stækkuð, gjaldskrár voru hækkaðar og gjaldskyldutími lengdur. Hefur gjaldskyldan orðið að íþyngjandi miðborgarskatti sem fælir landsmenn frá því að sækja verslun og þjónustu á þetta öfluga markaðssvæði. Sundabraut án tafar

Hildur Björnsdóttir.

Fjölbreyttar þarfir og frjálsir valkostir

Sjálfstæðisflokkurinn vill hefja uppbyggingu Sundabrautar strax enda þjóðhagslega arðbær samgönguframkvæmd og mikilvæg tenging fyrir fjölmörg hverfi í Reykjavík. Brautin mun efla Reykjavík sem höfuðborg allra landsmanna, styrkja samkeppnishæfni borgarinnar og stöðu almannavarna.

Útfærslu þarf að vinna í sátt við íbúa og atvinnulíf en Sjálfstæðisflokk-urinn aðhyllist gangalausnir.

Sjálfstæðisflokkurinn vill skapa borg sem virkar fyrir fólk og fyrirtæki. Höfuðborg, þar sem fólk getur leitað hamingjunnar á eigin forsendum. Borg sem byggir á frjálsum valkostum – og býður lífsgæðin sem felast í greiðum samgöngum. Borg þar sem níu milljón klukkustundum er ekki sólundað í umferðartafir - heldur varið í verðmætasköpun og gæðastundir. Samgönguvandann þarf að leysa með hraði – það er lífsgæðamál fyrir okkur öll.

Hildur Björnsdóttir. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Á Nesdekki Br

ða 13 reiðhöf

s S ÁNdkkiB tir ek skip tær iðhöfð13 kki máli rðin

finnur þú eitt f

ullkomnasta

hjólbarðaverkstæ

æði landsins

stærðum ta b þjónus ag þar sem f

bíla af öllum ar gmenn okk

ðum. og ger

aðu tíma á Bók nesdekk.is

Breiðhöfða 13 h

Leikskólaframkvæmdir sem fara um víðan völl

- eftir

Helga Áss Grétarsson, frambjóðanda Miðflokksins fyrir

komandi sveitastjórnarkosningar

„Með viljann að vopni“ er bók sem fjallar um lífshlaup Guðmundar í Víði. Segja má að Guðmundur hafi verið einn frumbyggja Norðlingaholts, árið 1962 flutti hann ásamt fjölskyldu að Víðivöllum við Elliðaárvatn.

Guðmundur varð alblindur tíu ára gamall en þrátt fyrir fötlun sína rak hann trésmiðju sína um margra áratuga skeið. Skömmu fyrir seinni heimsstyrjöldina árið 1938 reisti hann fimm íbúð hús að Víðimel 31, þá 28 ára gamall. Byggingaframkvæmdir tóku um eitt ár.

Áðurnefnt fjölskylduheimili að Víðivelli reisti hann á innan við tveimur árum.

Hann endurbyggði höfuðstöðvar fyrirtækisins að Laugavegi 166, eftir stórbruna í júlí 1957, bætti við tveimur hæðum við húsið og sagði:

„Brann hús mitt og brann til batnaðar“.

Á yfirstandandi kjörtímabili hef ég stundum leitt hugann að framkvæmdagleði og útsjónarsemi Guðmundar í Víði þegar ég hef rýnt í hverja sorgarsöguna á fætur annarri við framkvæmdir Reykjavíkurborgar, ekki síst í tengslum við leikskólaframkvæmdir.

Leikskólinn Árborg er ein slík framkvæmd

Þótt Brákarborg sé þekktasta dæmið um misheppnaða framkvæmd við leikskóla þá er einnig hryggilegt hvernig til hefur takist með framkvæmdir á leikskólanum Árborg að Hlaðbæ 17. Þessum leikskóla var lokað í október 2022 vegna rakaskemmda og starfsemin flutt í Selásskóla.

Svo gerðist ekkert. Húsið, sem er á glæsilegum stað í hverfinu, var látið standa autt. Engin ákvörðun var tekin. Eingöngu var farið í niðurrif að innan.

Það var svo ekki fyrr en í árslok 2024 sem útboð verkframkvæmdar var auglýst. Þá hafði tæpum hálfum milljarði króna verið varið í verkefni tengt leikskólanum. Samkvæmt verkstöðuskýrslu í lok september 2025 hafði svo rúmlega 100 milljónum króna verið eytt til viðbótar í framkvæmdir á húsinu.

Sem sagt, á þremur árum var 600 milljónum eytt af skattfé og enn stendur leikskólinn auður!

Leikskólinn Árborg. Leikskólanum var lokað í október 2022 vegna rakaskemmda. 600 milljónum af skattfé eytt í verkefni tengt leikskólanum sem enn stendur auður.

Á framkvæmdasíðu Reykjavíkurborgar segir að áætlað sé að framkvæmdum við leikskólann verði lokið fyrir haustið 2026. Þá verður heilt kjörtímabil nánast liðið frá því að loka þurfti leikskólanum upphaflega.

Lokaorð Mín reynsla er sú að forgangsröðun í rekstri Reykjavíkurborgar sé á villigötum. Best væri að fá reyndan framkvæmdar- og rekstrarmann sem borgarstjóra til að bæta reksturinn. Þar undir fellur að bæta framkvæmdir á vegum borgarinnar. Svona grunnþjónusta á ekki að fara um víðan völl. Ég hygg að Guðmundur í Víði, væri hann enn á lífi, myndi samsinna því að það sé hneyksli hversu langan tíma taki að gera við leikskólabyggingar, hann gat klárað svona verkefni, blindandi, skjótt og örugglega, við mun erfiðari aðstæður.

Höfundur er varaborgarfulltrúi og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Þú færð allt fyrir vorverkin hjá Múrbúðinni:

Vorið hefur loks bankað upp á og þá er gott að geta fundið allt fyrir vorverkin á einum stað.

Meira úrval af blómapottum sem nota má inni og úti

Blómapottarnir hjá Múrbúðinni hafa notið mikilla vinsælda og í ár hefur

úrvalið verið aukið mikið. Ný sending er komin af vinsælu portúgölsku leirpottunum, sem hafa slegið í gegn hér á Íslandi og má búast við að þeir seljist fljótt upp.

Áburður og grasfræ – á lægra verði Múrbúðin leitast við að bjóða alltaf lægsta verðið á áburði og grasfræi. Hvort sem þig vantar Blákorn, Graskorn eða grasfræ þá getur ferð í Múrbúðina marg borgað sig. Þú færð

verkfærin fyrir

líka mjög sniðuga áburðar- og frædreifara hjá Múrbúðinni.

Mosatætari og mosaeyðir – Lykillinn að fallegri grasflöt Múrbúðin byrjaði að selja mosatætara fyrir nokkrum árum.

Mosatætararnir hafa notið mikilla vinsælda enda er ekkert verkfæri betra til að hreinsa mosa úr grasflötum. Til að koma í veg fyrir að mosi nái sér á strik þá býður Múrbúðin uppá Growell

Trippel M sem dregur verulega úr vexti mosa í grasflötum og styrkir grasvöxtin.

Pallahreinsir sem gerir kraftaverk og nú líka helluhreinsir

Þau sem hafa prófað pallahreinsinn frá Hagmans nota ekkert annað til að hreinsa pallinn hjá sér. Hagmans

pallahreinsirinn er einfaldur í notkun og

mjög áhrifaríkur. Margir vita að það er

best að hreinsa pallinn þegar það er rigning eða úði. Ástæðan er sú að það þarf að bleyta pallinn áður en pallahreinsir er borinn á hann. Það er því sniðugt að hreinsa pallinn þegar það rignir svo hann sé tilbúinn fyrir pallaolíu þegar það styttir upp. Þú færð auðvita úrvals sænska pallaolíu í Múrbúðinni. Múrbúðin býður nú einnig uppá nýtt efni frá Growell, en það hreinsiefni fyrir stéttar og steypta fleti. Auðvelt er að bera efnið á. Einungis þarf að tengja garðslöngu við brúsann og skrúfa frá. Brúsinn er með innbyggðum úðara þannig að það er auðvelt og fljótlegt að bera helluhreinsinn á. Hvort sem þú ert að hreinsa pallinn, hellulögnina eða steypta innkeyrslu þá er gott að nota öfluga háþrýstidælu með pallabursta, sem auðvita fæst hjá Múrbúðinni.

Garðverkfæri á ótrúlega hagstæðu verði

Á vorin þarf oft að endurnýja garðverkfæri og tæki. Múrbúðin hefur um árabil boðið garðverkfæri á ótrúlega hagstæðu verði. Það er sama hvort þú þarft nýja sláttuvél, sláttuorf, hekklippur, hjólbörur nú eða bara strákúst, þá er ólíklegt að þú finnir garðverkfæri á hagstæðara verði en hjá Múrbúðinni.

Komdu í Múrbúðina og undirbúðu vorverkin! Það er óhætt að mæla með ferð í Múrbúðina, þar finnur þú allt sem þú þarft fyrir vorverkin og með réttu tækjunum verður garðvinna bæði skemmtileg og árangursrík og garðurinn þinn enn fallegri í sumar.

Smærri
garðinn eru í miklu úrvali í Múrbúðinni og þar færðu allt sem þú þarft fyrir garðinn á mjög hagstæðu verði.
Helgi Áss Grétarsson er frambjóðandi Miðflokksins.

verk Öl Ö kf kfæri

Frábært ú l m

rðverkfæ f ga a

æru rva

r háþrý Lavo ýstidælur

og slá Sláttu á r u rf

l Color Ú g og v rex má a vi

yl- og ha a

ga Sérfræð a

G lla r a Gott verð fyri lltaf! a, a

Forgangsmál að laga gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls

- segir Ari Edwald, borgarstjóraefni Miðflokksins

,,Miðflokkurinn mun setja lagfæringu gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls í forgang og opna beygjuakreinar þar að nýju. Þrenging gatnamótanna síðasta sumar var algjört óþurftarverk, sem hefur valdið miklum umferðartöfum á stóru svæði. Þessar umferðartafir hafa haft mikinn kostnað í för með sér fyrir Árbæinga og aðra íbúa í eystri hverfum borgarinnar.

Jafnframt þarf að skoða úrbætur á öðrum gatnamótum við Höfðabakka sem einnig hafa verið þrengd,“ segir

Ari Edwald efsti maður á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Víðtæk reynsla

Ari á fjölbreyttan starfsferil að baki og hefur komið að stjórnun og rekstri margra fyrirtækja og stofnana. Að loknu námi gegndi hann starfi aðstoðarmanns dómsmálaráðherra og sjávarútvegsráðherra og öðlaðist þannig mikla reynslu af stjórnsýslu. Síðar gegndi hann starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífins, 365 miðla, Mjólkursamsölunnar og Ísey útflutnings. Hann hefur einnig sinnt ritstörfum og var á sínum tíma ritstjóri Stúdentablaðsins og seinna Viðskiptablaðsins.

Ari segir að í öllum þessum störfum hafi hann öðlast dýrmæta reynslu, sem muni nýtast vel í borgarstjórn. ,,Þessi ólíku störf áttu það sameiginlegt að snúast um mikilvæga hagsmuni. Rík krafa var gerð um árangur og oft þurfti að ráðast í miklar breytingar til að bæta rekstur og þjónustu. Þá skipti öllu máli að standa rétt að slíkum breytingum og oft þurfti að sætta andstæð sjónarmið.

Rekstur Reykjavíkurborgar er erfiður og ekki verður undan því vikist að ráðast í miklar umbætur, t.d. í fjármálum, samgöngumálum og skólamálum. Ég býð mig fram í þetta umbótastarf og tel að reynsla mín úr atvinnulífi, félagsmálum og stjórnsýslu muni gagnast vel í þeirri vinnu,“ segir Ari.

Enga ofurþéttingu

Miðflokkurinn hyggst knýja fram breytingar í skipulagsmálum og samgöngumálum í Reykjavík sem eru í miklum ólestri að sögn Ara. ,,Mörg undanfarin ár hafa Samfylkingin og aðrir vinstri flokkar fylgt stefnu ofurþéttingar í skipulagsmálum með slæmum afleiðingum víða í borginni. Græna gímaldið í Breiðholti er ein birtingarmynd þessarar stefnu en einnig má nefna dæmi úr Gufunesi og Vogabyggð þar sem sums staðar eru einungis nokkrir metrar á milli hárra fjölbýlishúsa.

Samhliða ofurþéttingarstefnunni er þrengt að fjölskyldubílnum sem langflestir Reykvíkingar velja til að komast leiðar sinnar um borgina. Bílastæðum er markvisst fækkað í grónum hverfum og ný hverfi eru

skipulögð með allt of fáum bílastæðum til að gera fólki erfiðara fyrir að eiga bíl.“

Gegn borgarlínuskatti

Miðflokkurinn tekur eindregna afstöðu gegn svokallaðri borgarlínu en vill þess í stað efla núverandi strætókerfi að sögn Ara. ,,Borgarlínan mun kosta hundruð milljarða króna, arðsemi hennar er neikvæð og ávinningurinn í besta falli óljós. Þá er a.m.k. hálfur áratugur í að hún verði að veruleika. Mun hagkvæmara og fljótlegra er að efla núverandi strætókerfi með ýmsum hætti, t.d. lagningu fleiri strætóakreina og að veita strætó sjálfvirkan forgang á umferðarljósum.

Íslendingar borga nú þegar einhver hæstu gjöld á bíla sem þekkjast í heiminum. Samt eru hugmyndir um að leggja á nýjan skatt, sem á að fjármagna þessa dýru borgarlínu. Þessi skattur mun líklega leggjast þyngst á

íbúa Árbæjar, Norðlingaholts og annarra eystri hverfa Reykjavíkur. Frekari skattpíning er það síðasta sem Reykvíkingar þurfa og því hafnar Miðflokkurinn alfarið slíkum borgarlínuskatti,“ segir Ari.

Heimgreiðslur eru sanngirnismál Ari hefur mikinn áhuga á skólamálum og segir að þar þurfi að taka til hendi. ,,Íslendingar reka eitt dýrasta grunnskólakerfi í heimi en námsárangur er samt langt frá því að vera viðunandi. Við þurfum að ná meiri árangri og þá verður ekki hjá því komist að gera breytingar á skipulagi skólastarfsins. Bekkir eru nú mjög blandaðir og mestallur tími margra kennara fer í að hjálpa verst stöddu nemendunum. Það getur þýtt að miðlungsnemendur fái ekki þá þjónustu sem þeir þurfa, hvað þá afburðanemendur. Þessu þarf að breyta og tryggja að allir fái viðeigandi kennslu.

Við í Miðflokknum viljum takast á

við leikskólavandann með fjölbreytilegum lausnum. Borgin á ekki að hafna fyrirtækjareknum leikskólum eins og vinstri meirihlutinn hefur gert, heldur taka þeim fagnandi. Þá á að efla dagforeldrakerfið og taka upp heimgreiðslur. Heimgreiðslur eru sanngirnismál enda auka þær valfrelsi foreldra á viðkvæmu aldursskeiði barnsins og létta á almenna leikskólakerfinu.“

Stækkun Fylkissels

Greinilegt er að Ari þekkir málefni Árbæjar og nefnir hann nokkur dæmi um það sem betur megi fara. ,,Borgarstjórn hefur því miður vanrækt Árbæinn og á það ekki síst við um Fylki. Árið 2020 samþykkti borgarráð tillögur starfshóps um forgangsröðun íþróttamannvirkja í borginni að undangenginni skoðun á því hvar úrbóta væri helst þörf. Þrátt fyrir að stækkun á Fylkisseli, fimleikahúsi Fylkis, væri sett efst á forgangslistann, bólar enn ekkert á framkvæmdum.

Miðflokkurinn vill bæta úr þessu enda brýn þörf á stækkun vegna öflugrar starfsemi Fylkis.

Viðhaldsátak í Árbæ

Ari nefnir að víða í hverfinu hafi viðhald og endurbætur setið á hakanum og að þar þurfi að bæta úr með sérstöku átaki. ,,Gangstéttir eru víða ósléttar og brotnar enda komnar til ára sinna. Nefna má Hraunbæ, Rofabæ, Fylkisveg og Selásbraut í þessu sambandi. Undanfarin misseri hefur gatnalýsingu einnig verið ábótavant í hverfinu, m.a. á göngu- og hjólastígum í Elliðaárdal og Víðidal. Víða þarf að bæta aðstæður gangandi vegfarenda, t.d. við Fylkissel og félagsmiðstöðina Holtið við Norðlingabraut. Ég veit að verkefnin eru mörg og við í Miðflokknum óskum eftir stuðningi Árbæinga til að koma þeim í framkvæmd,“ segir Ari Edwald að lokum.

,,Miðflokkurinn mun setja lagfæringu gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls í forgang og opna beygjuakreinar þar að nýju. Þrenging gatnamótanna síðasta sumar var algjört óþurftarverk, sem hefur valdið miklum umferðartöfum á stóru svæði,” segir Ari Edwald.

Spönginni

Fylkismenn tryggðu sér Lengjubikarinn

Meistaraflokkur karla lauk afar sterkum undirbúningi fyrir sumarið með því að tryggja sér Lengjubikarinn eftir dramatíska lokaviku.

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir

Staðsetning lagna og dýptarmælingar

Þekking og áratuga reynsla

Eftir að hafa farið með sigur af hólmi í sínum riðli mættu Fylkismenn Þór í undanúrslitum fyrir norðan. Þar sýndi liðið mikinn styrk og vann verðskuldaðan 2–0 sigur með mörkum frá Benedikt Daríusi og Guðmundi Tyrfingssyni.

Úrslitaleikurinn gegn KR á Tekk vellinum reyndist síðan sannkölluð veisla fyrir áhorfendur. Leikurinn var gríðarlega jafn og lauk venjulegum leiktíma 4-4 eftir mörk frá Guðfinni Þór Leóssyni, Guðmundi Tyrfingssyni sem skoraði tvívegis, og Birki Eyþórssyni. Í vítaspyrnukeppninni steig Ólafur Kristófer markvörður upp sem hetja með tveimur glæsilegum vörslum, á meðan Guðmundur, Arnór Breki Ásþórsson, Birkir og Máni Austmann skoruðu af miklu öryggi. Þar með voru Fylkismenn krýndir Lengjubikarmeistarar 2026. Kvennaliðið í úrslit eftir markaveislu Ekki hefur síður gengið vel hjá meistaraflokki kvenna sem hefur verið á miklu flugi í vetur. Liðið vann sinn riðil sannfærandi með stórsigri gegn KÞ, sigri á Völsungi og jafntefli gegn Fjölni. Í undanúrslitum Cdeildar Lengjubikarsins mættu Fylkisstúlkur svo ÍR á Tekk vellinum þar sem þær sýndu algjöra yfirburði.

Lokaniðurstaðan varð 8–0 sigur þar sem Birna Kristín Eiríksdóttir fór mikinn og skoraði þrennu. Eva Stefánsdóttir bætti við tveimur mörkum og þær Hildur Anna, Katla Sigrún og Emilía Sif skoruðu sitt markið hver. Með þessum glæsilega sigri tryggði liðið sér sæti í úrslitaleik gegn Aftureldingu. Sterk byrjun í Mjólkurbikar karla Að loknum Lengjubikarnum tók Mjólkurbikarinn við og hafa Fylkismenn þar einnig byrjað af krafti. Í 64-liða úrslitum vann liðið stórsigur, 6–0, gegn KV á Tekk vellinum. Þar stal uppaldi Fylkismaðurinn Theodór Ingi senunni þegar hann kom inn af bekknum og skoraði þrennu á aðeins átta mínútum. Benedikt Daríus, Guðfinnur Þór og Bjarki Steinsen bættu við sitt hvoru markinu.

Í næstu umferð mætti liðið KFA í leik sem verður seint gleymdur. Snjókoma og erfið veðurskilyrði í Árbænum urðu til þess að leikurinn var flautaður af eftir aðeins 24 mínútur, í stöðunni 1–0 fyrir Fylki. Leikurinn var síðan fluttur í Skessuna í Hafnarfirði þar sem honum lauk með 2–0 sigri Fylkis og sæti í 16liða úrslitum.

Það gerist ekki oft að sami bikarleikurinn fari fram í tveimur sveitarfélögum – og að mörkin tvö séu skoruð sitt hvorum megin bæjarmarkanna.

Árbæjarblaðið Líkamsrækt

Kraftur og vellíðan

Þegar fyrstu vorboðarnir minna á sig og daginn fer að lengja, fyllast margir nýrri orku. Við förum að huga að útivist, sumarbústöðum og fjallgöngum. En oft gerist það að við bíðum þar til sólin er farin að skína hátt á lofti með að huga að eigin heilsu – og þá getur brekkan virtst dálítið brött.

Hjá okkur í Metabolic Reykjavík trúum við því að besta leiðin til að njóta sumarsins sé að leggja grunninn strax í dag. Ekki með boðum og bönnum eða öfgafullu „átaki“, heldur með því að byggja upp styrk og þol sem þjónar þér í raunverulegu lífi.

Meira en bara æfingastöð

Margir tengja orðið „Metabolic“ við mikla ákefð og svita, og jú, við fáum púlsinn vissulega upp! En eftir 15 ár í bransanum veit ég að lykillinn að árangrinum sem lifir með þér, er jafnvægi. Í stöðinni okkar við Stórhöfða leggjum við áherslu á að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur.

Við sameinum kraftinn úr styrktarþjálfun og mýktina sem líkaminn þarf á að halda til að vera liðugur og verkjalaus. Markmiðið er að þú gangir út af æfingu með meiri orku en þú komst með inn.

Af hverju að byrja núna?

Það er algeng mýta að við þurfum að vera „komin í form“ áður en við mætum í skipulagða þjálfun. Raunveruleikinn er sá að við mætum einmitt til að byggja okkur upp með aðstoð þjálfara! Með því að byrja núna, áður en sumarfríin skella á, nærðu að: ● Vekja líkamann af dvala: Byggja upp grunnstyrk sem verndar liðamót og bakið þegar garðverkin eða gönguferðirnar byrja.

● Auka orkuna jafnt og þétt: Það tekur líkamann nokkrar vikur að aðlagast nýjum venjum. Með því að byrja strax ertu komin með blússandi orku þegar útilegutímabilið hefst. ● Finna samfélagið: Grafarvogurinn er frábært hverfi og í Metabolic myndast dýrmætur vinskapur. Það er miklu auðveldara að mæta þegar þú veist að það er beðið eftir þér með bros á vör.

Þjálfun fyrir raunverulegt fólk Við vitum að lífið er áskorun. Milli vinnu, skutls og heimilisreksturs getur verið erfitt að forgangsraða sjálfum sér. Þess

vegna leggjum við áherslu á skilvirkar æfingar þar sem hver mínúta telur. Hjá okkur er engin dómharka –bara hvatning, fagmennska og hlýja.

frítt! Og finndu muninn á líkama og sál. Við hlökkum til að taka á móti þér!

Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík 025

Við hjálpum þér að fínstilla væntingarnar. Stundum er sigurinn fólginn í því að mæta og hreyfa sig aðeins, þótt nóttin hafi verið erfið eða vinnudagurinn langur. Það er þessi samfella sem skilar árangri til lengri tíma.

Vertu velkomin í hópinn Ég hvet þig til að nýta vorið í að fjárfesta í þér. Ekki vegna þess að þú „þurfir“ að breyta þér, heldur vegna þess að þú átt skilið að líða vel, finna styrkinn og hafa orku í allt það skemmtilega sem sumarið ber í skauti sér.

Kíktu við hjá okkur á Stórhöfðan-um, prófaðu tvær vikur

Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.

Láttu okkur sjá um

a@eignaumsjon.i t að senda póst á thjonust innig er hæg E linu. 4800 eða á netspjal - glega; í síma 585 og örug tt yrirspurnum hra erið okkar svarar f Þjónustuv faasteigna. ekstrar í þjónustu við húsfélög og r eynslu 5 ára þekkingu og r ið erum með 2 V

erum þér tilboð! yrðu í okkur og við g He

Sími 585 4 | Reykjavík ut 30 Suðurlandsbra félög f umsjon is eigna

s 800

eignaumsjonis

Málin rædd í Metabolica. Þar mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.

Sigri fagnað árið 2008

Myndin er tekin eftir sigur Fylkismanna gegn Þrótti R. í vítaspyrnukeppni í bikarnum á Valbjarnarvelli árið 2008. Það er ekki á hverjum degi sem sigrar vinnast í vítakeppni en þær reyna á taugar allra, jafnvel þeirra allra rólegustu.

Mynd: Einar Ásgeirsson KGG

Hafðu samband við okkur!

Fréttamolar frá kirkjustarfinu

Helgihald í Árbæjarkirkju frá 19. apríl til 17. maí

Sunnudaginn 19. apríl guðsþjónusta kl. 11.00

Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina. Íþróttasunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Aldísar Elvu Sveinsdóttur æskulýðsfulltrúa Sumardagurinn fyrsti 23. apríl

Litagleðin-Kirkjuskokk barnanna 1-7 bekkur ásamt forráðamönnum kl.11.00 lagt af stað frá Fella og Hólakirkju. Grill og fjör í Árbæjarkirkju eftir skokkið. Auglýst betur þegar nær dregur.

Sunnudaginn 26. apríl Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Bjarki Geirdal Guðfinnsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina. Sunnudagaskólinn sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjón Aldísar. Aðalfundur safnaðarins eftir messu. Venjuleg aðalfundarstörf .

Sunnudaginn 3. maí Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina. Sunnudagaskólinn er á sama

tíma í safnaðarheimilinu í umsjón Aldísar Elvu Sveinsdóttur æskulýðsfulltrúa.

Sunnudaginn 10. maí Guðsþjónusta kl.11.00 Kór

Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Sr. Bjarki Geirdal Guðfinnssonprédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina. Íþróttasunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjón Aldísar.

Fimmtudaginn 14. maí (Uppstigningardagur). Dagur aldraðra. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Katrín Haldóra, söng og leikkona, syngur. sr. Þór Hauksson og sr. Bjarki Geirdal þjóna fyrir altari. Sr. Sigurður Rúnar Ragnarsson fyrrverandi sóknarprestur á Neskaupsstað prédikar. Soroptimistaklúbbur Árbæjar býður upp á kaffihlaðborð i safnðarheimilinu eftir guðsþjónustuna.

Sunnudaginn 17. maí Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina.

Trúnaðarjátning

- eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn

Fermingarnar eru fyrir mörgum einn skýrasti vorboðinn. Þær bera með sér fyrirheit um birtu, léttleika og nýtt upphaf. Það er eitthvað við hvítu kyrtlana, björtu kirkjurnar og hátíðleika stundarinnar sem talar inn í þessa árstíð, jafnvel þegar árstíðin sjálf virðist ekki alveg sammála. Í ár lætur vorið bíða eftir sér. Páskana bar snemma að, þann 5. apríl, en veðrið fylgir ekki dagatalinu. Vetur konungur situr sem fastast, eins og hann hafi hvorki heyrt né ætlað að taka mark á neinum vorboðskap. Lægðirnar skella á hver á eftir annarri, vindurinn bítur í kinn og snjórinn fellur með þeirri þrjósku sem aðeins íslenskur vetur kann. Það er því ákveðin togstreita í loftinu. Ekki bara milli árstíða, heldur líka milli væntinga og veruleika. Við viljum að vorið komi en það kemur þegar það kemur. Þessi togstreita varð næstum táknræn þegar staðið var í anddyri kirkju í dymbilvikunni. Inni voru fermingarbörnin, klædd í hvíta kyrtla, sum spennt, önnur stressuð, flest einhvers staðar þar á milli. Úti hamaðist veturinn. Snjórinn þyrlaðist upp og vindurinn ýlfraði eins og til að minna á sig. Það var eins og tvær sögur væru að gerast á sama tíma. Inni var saga um vöxt, þroska og nýtt skeið í lífi ungs fólks. Úti var saga um vetur sem neitaði að víkja. Einhverjum varð að orði, hálf í gríni og hálf í alvöru, að kannski væri ráð að „ferma“ veturinn. Gefa honum sinn dag, sína athöfn og sjá hvort hann léti þá af hendi völdin. Það vakti kátínu, en líka ákveðna samkennd. Við höfum öll upplifað þessa þreytu gagnvart vetri sem dregst á langinn. En þegar inn var komið tók eitthvað annað við. Hlýjan, birtan og nærveran færðu fókusinn frá veðrinu yfir á fólkið. Og þar, eins og svo oft, reyndust fermingarbörnin vera það sem skipti mestu máli. Fermingarbörn eru nefnilega sérstakur hópur. Þau eru ekki lengur börn í hefðbundnum skilningi, en ekki heldur fullorðin. Þau standa á þröskuldi milli tveggja heima. Þau eru að mótast, prófa sig áfram, spyrja spurninga

og mynda sér skoðanir. Og skoðanirnar eru oft sterkar, sérstaklega þegar kemur að því sem þau eiga að gera eða læra. Trúarjátningin er þar ofarlega á lista. Hún er löng, orðfærið framandi og setningarnar ekki endilega í takt við það tungumál sem ungmenni nota dagsdaglega. Fyrir mörg þeirra verður hún verkefni sem þarf að klára fremur en textinn sem þau tengja við. „Ég get aldrei lært þessa „trúnaðarjátningu,“ sagði einn fermingardrengurinn með mikilli sannfæringu. Það var ekki bara kvörtun, það var yfirlýsing. Eins og hann stæði frammi fyrir einhverju sem væri einfaldlega of mikið. Það var auðvelt að skilja hann. Fyrir kynslóð sem hefur vaxið upp við skjót svör, stutt myndbönd og stöðuga örvun getur það reynst þungt að setjast niður og leggja langan texta á minnið. Önnur stúlka bætti við, augljóslega pirruð, að hún ruglaðist alltaf í „skuldunautunum“. Það orð eitt og sér er nægilegt til að skapa ákveðna fjarlægð. Það hljómar meira eins og eitthvað úr bankakerfinu en úr trúarlífi og svo var það stelpan sem sagði: „Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einlægan son sinn…“ Það varð augnabliksþögn. Ekki vandræðaleg þögn, heldur svona þögn sem verður þegar eitthvað óvænt en fallegt gerist. Einlægur sonur. Ekki eingetinn – heldur einlægur. Það var eitthvað við þessa orðnotkun sem snerti við manni. Hún var ekki rétt samkvæmt bókinni, en hún var rétt á annan hátt. Hún bar með sér skilning, eða að minnsta kosti tilraun til skilnings. Hún var persónuleg. Kannski er það einmitt þar sem kjarni málsins liggur. Fermingarbörnin eru ekki bara að læra texta. Þau eru að glíma við merkingu. Þau eru að reyna að tengja orð við líf sitt, reynslu og skilning. Og þegar þau finna ekki beina tengingu, búa þau hana til. Það er ekki galli. Það er styrkur. Við sem eldri erum gleymum því stundum að orð sem við höfum heyrt allt okkar líf eru ekki sjálfgefin fyrir öðrum.

Við höfum vanist þeim. Þau hafa orðið hluti af bakgrunninum. En fyrir þann sem heyrir þau í fyrsta sinn, eða reynir að skilja

þau af alvöru, geta þau verið bæði flókin og framandi. Þess vegna eru spurningarnar sem fermingarbörnin spyrja svo mikilvægar. „Af hverju þarf ég að læra þetta?“ Þetta er ekki bara spurning um utanbókarlærdóm. Hún snýst um tilgang. Um merkingu. Um það hvort það sem verið er að gera hafi raunverulegt gildi. Það er spurning sem á fullt erindi við okkur öll. Hversu oft gerum við hluti af vana, án þess að staldra við og spyrja hvers vegna?

Hversu oft segjum við orð sem við höfum lært, án þess að velta fyrir okkur hvað þau þýða í raun og veru? Í þessu samhengi verða fermingarbörnin eins konar spegill. Þau endurkasta spurningum sem við höfum kannski hætt að spyrja og þau gera

það af einlægni. Það er líka eitthvað fallegt við mótstöðuna sem stundum kemur fram. Hún er ekki alltaf kurteis en hún er heiðarleg. Hún sýnir að það er verið að hugsa. Í heimi þar sem svo margt snýst um að gera hlutina rétt, segja rétt og passa inn er sá heiðarleiki dýrmætur. Kannski er það einmitt þetta sem gerir fermingartímann svona sérstakan. Hann snýst ekki bara um athöfnina sjálfa, heldur um ferlið sem liggur að baki. Samræðurnar, spurningarnar, efasemdirnar – og stundum húmorinn. Því það má ekki gleyma því að þetta er líka fyndið. Það er fyndið að ruglast í „skuldunautunum“. Það er fyndið að tala um „einlægan son“. En það er fyndni sem sprettur af tilraun til skilnings – og því fylgir hlýja. Við hlæjum, en við lærum líka. Kannski er það einmitt það sem við getum tekið með okkur. Leyfa okkur að vera ekki alltaf fullkomin. Að leyfa okkur að skilja ekki allt strax. Að prófa að setja hlutina í okkar eigin orð, jafnvel þótt þau séu ekki nákvæmlega þau sömu og við lærðum einhvern tíman. Stundum felst meiri sannleikur í einlægri tilraun en fullkominni endurtekningu. Þegar allt kemur til alls snýst trú, eins og svo margt annað í lífinu, ekki bara um orð. Hún snýst um tengsl, merkingu og upplifun. Hún snýst um að

reyna að skilja eitthvað sem er stærra en við sjálf. Sú viðleitni er aldrei fullkomin. Kannski á hún heldur ekki að vera það. Þess vegna er eitthvað við það að heyra ungt fólk glíma við þessi orð sem er bæði hressandi og mikilvægt. Það minnir okkur á að þetta er lifandi efni, ekki bara texti á blaði. Það má spyrja. Það má efast. Það má túlka og jafnvel má segja hlutina á annan hátt. Stundum, þegar við leyfum okkur að sleppa takinu á því að allt þurfi að vera rétt orðað, opnast rými fyrir eitthvað annað. Eitthvað einlægt. Það er kannski það sem skiptir mestu máli. Ekki hvort við kunnum hvert orð utanbókar, heldur hvort við meinum það sem við segjum. Ekki hvort við förum rétt með setningarnar, heldur hvort við tengjumst þeim. Ekki hvort við höfum öll svörin, heldur hvort við erum tilbúin að spyrja spurninganna. Fermingarbörnin minna okkur á þetta –jafnvel án þess að gera sér grein fyrir því. Mitt í vetri sem vill ekki víkja og vori sem lætur bíða eftir sér, minna þau okkur á að vöxtur og breyting eiga sér stað hvort sem er. Er það ekki hin raunverulega játning? Ekki sú sem er lærð utanbókar, heldur sú sem kemur innan frá hvort heldur það er trúarjátning eða trúnaðarjátning. Þór Hauksson

Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga kl. 12-16. Þangað eru allir fullorðnir velkomnir og þar er ýmislegt á dagskrá.

Byrjað er með kyrrðarstund í kirkjunni, síðan er léttur hádegisverður á vægu verði (kr. 1500). Að því loknu er hin sívinsæla stólaleikfeimi og svo er spjallað eða einhver gestur mætir í heimsókn. Endað er á gómsætu síðdegiskaffi. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir.

Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Helgihald hvern sunnudag kl.11.00 Annan sunnudag hvers mánaðar er Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00

sr. Þór Hauksson.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook