Skip to main content

Árbæjarblaðið 11. tbl. 2025

Page 1

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/14/2025 6:43 PM Page 1

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Árbæjarblaðið

Allar almennar bílaviðgerðir

11. tbl. 23. árg. 2025 nóvember

Fréttablað íbúa í Árbæjarhverfi

Vigdís Hrefna Magnúsdóttir, Helga Rún Sigurðardóttir, Matthildur Mía Bang Gabríelsdóttir, Rún Ingvarsdóttir, Alexandra Árný Andradóttir og Matthildur Mínerva Bjarkadóttir voru dugleg á hrekkjavökunni á dögunum. ÁB Mynd Katrín J. Björgvinsdóttir

Grikkur eða gott - sjá bls. 12 og 13

Spönginni Grafarvogi

Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

www.bilavidgerdir.is

Þjónustuaðili


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/18/2025 10:53 AM Page 2

2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Setið lengur en Árbæjarblaðið góðu hófi gegnir tÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing.

Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti og Norðlingaholti.

Lýsum upp skammdegið og það lengi Dimmasti tími ársins er að ganga í garð og fullrar birtu gætir ekki orðið dag hvern nema í nokkra klukkutíma. Þessi tími reynist mörgum erfiður og margir eiga um sárt að binda. Í mesta skammdeginu er gott að reyna að horfa á björtu hliðarnar og njóta þess sem hægt er. Eftir tíu daga gengur aðventan í garð með öllum sínum ljóma og boðskap. Á vef Árnastofnunar stendur eftirfarandi: ,,Aðventa er annað heiti á jólaföstu. Hún hefst fjórða sunnudag fyrir jóladag og stendur því í fjórar vikur. Orðið aðventa hefur verið notað í málinu að minnsta kosti frá því á 14. öld og er tökuorð úr latínu adventus í merkingunni 'tilkoma'.” Ein er sú leið sem fólk er að grípa æ fyrr til en það er að henda jólaseríum á hús sín og nágrenni. Það er vel til fundið og um að gera að setja séríurnar snemma upp og taka þær mjög seint niður og helst ekki fyrr en í mars. Í gamla daga var fólk að ná í jólaseríur og skraut í geymsluna að morgni Þorláksmessu. Og jólatréð var skreytt á Þorláksmessunni og oft entist fólki ekki dagurinn og kvöldið til skreytinga. Var nóttin fyrir aðfangadag oft í styttra lagi. Í dag eru breyttir tímar. Dæmi eru um fólk sem skreytir jólatré sitt í lok nóvember og ekkert við það að athuga nema síður sé. Við eigum að gera það sem okkur langar til að gera í aðdraganda aðventunnar og þegar dimmasti og drungalegasti tími ársins gengur yfir. Og alltaf er gott að líta á björtu hliðarnar. Í dag er ekki nema mánuður í að daginn taki að lengja á ný. Það er gott í drunganum og dimmunni að ylja sér við þá tilhugsun. Og nú er að skella á okkur svartur föstudagur og fleira sem hleypir öllu í loft upp í verslnum landsins og lýðurinn verslar af sér afturendann eins og enginn verði morgundagurinn. En margir gera góð kaup og ekkert nema gott um það að segja svo lengi sem innistæða er fyrir kaupunum. Stefán Kristjánsson

abl@skrautas.is

- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks er það hið versta sem hægt er að gera.

Núverandi meirihluti í Reykjavík hefur setið lengur en góðu hófi gegnir og við blasir stjórnleysi, vanhugsuð verkefni og rekstur sem stenst ekki áætlanir. Í aðdraganda kosninga er svo lögð fram óraunhæf fjárhagsáætlun, „kosningaáætlun“, þar sem forsendur standast einfaldlega ekki. Það sér það hver borgarbúi að hér er verið að fegra stöðuna fremur en að horfast í augu við veruleikann sem við blasir.

Þetta mun taka langan tíma, þar sem allt deiliskipulagsferlið og fjölmargar samþykktir eru enn eftir. Í ljósi reynslunnar er erfitt að sjá hvers vegna borgarbúar ættu að treysta þessum meirihluta fyrir verkefni af þessari stærðargráðu. Reykjavík rekin eins og tilraunastofa Á Höfðabakka stendur borgin svo í vanhugsaðri tilraun til að þrengja eina helstu umferðaræð borgarinnar án þess að heildargreining liggi fyrir. Útkoman verður meiri tafir, hærri kostnaður og verri þjónusta.

Stenst hvorki veður né vind Þegar litið er á stóru málin í borginni sést sama mynstrið alls staðar þar sem hugmyndafræði um bíllausan lífsstíl er látin ráða för í stað almennrar skynsemi. Í Keldnalandi á að reisa 12 þúsund manna hverfi þar sem 62% heimila geta ekki átt bíl. Bílastæði verða í miðlægum gjaldskyldum húsum, í allt að sjö mínútna göngufjarlægð frá heimilum. Og borgarlínan verður tilbúin sex árum eftir að fólk flytur inn. Verktakar hafa þegar lýst yfir áhugaleysi. Þetta er ekki borgarskipulag, þetta er tilraun sem stenst hvorki veður né vind. Óljóst og áhættusamt Í Úlfarsárdal á að byggja 4.000 nýjar íbúðir sem hluta af húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar, ætlaðar ungu fólki

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. og fyrstu kaupendum. Samt liggja engar skýrar forsendur fyrir um þjónustu, samgöngur eða skólamál. Verktakar segja verkefnið óljóst og áhættusamt og borgin bætir ofan á það allt saman með því að efna til hugmyndasamkeppni um skipulagið, sem einungis hækkar verð og lengir byggingartíma. Þegar bráðvantar íbúðir

VISSIR ÞÚ?

Samnefnarinn er skýr; Reykjavík hefur verið rekin eins og tilraunastofa í allt of langan tíma og borgarbúar borga brúsann dýru verði. Það er ekkert óeðlilegt að gefa stjórnmálamönnum frí þegar þeir hafa setið svona lengi og skilað svona litlu. Borgarbúar eiga betra skilið. Við í Sjálfstæðisflokknum viljum skynsamlegt skipulag, ábyrga fjármálastjórn og þjónustu sem virkar. Nú er komið að vaktaskiptum! Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/14/2025 6:27 PM Page 3

<;:98:76:8567:4732/.6,8: +**78: ;96: )(8)'56,: 2: /2*73&7**787: %$: /2*)3.8: ;96: #'"878 :;96:9,!)' 3 3 :.') !, #(8);267678: ,!!8('',!$78: 8 : % %3( : 78' : : /%86 * ' ; : '53, : 76 98/98$,: 98 : *2)7* $6 8 : ,9*9: %$: : /* ! ! 78'53, 7 6 (*85!: *% '85)',!$: %$: ! 6: !! !: ': 87: )37 7: 9,!)'73 37 )7;)9'!,!$ :45$,! 7:%$:$567 : 8'.!) 6,: 98: 9,'': ;9)': ) 9!!7! ,: ! / $$,!$78) 56 $$ $ 6, 9 3&7 23 8 : 47 78: )9;: !.'2;7 7*9$78: 2/.6,8: %$ $: 87;.8)3787! , )'76)9'!,!$:)7; ;9,!7)' : 8)',: 7!$,!! ! : 7;78,!! : / 6 6 8: : : & */89 9 ''78: 2/.6,8: )9; 9!'7: /56,: 9,! !)'73*,!$ ;: %$: & *)3 * ; : 33,: )39;;,8: 8,8: 76 :,!!7!: 9 3&7 .') !,6:98:;96:4 2:/9)'7:)9;: 98 , 7 23 8:/ 6 8: : :2: 9)' 8 ;96: 7**9$8,:) ! !: ,8:/%8$,!7:%$:)"*78*7$ ) 9)' 8 : 8 $$6 : 4(8: 9,;,*,: 2: 49)) : 9,! !)'737: 98 ,: : **3%;,!!: )'76 8 8,8: 87;'26,!7


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/14/2025 7:56 PM Page 4

4

Mataruppskriftir

Árbæjarblaðið

Dásamleg vetrarsúpa - frábær réttur sem vert er að prófa Það er svo sannarleg þess virði að prófa vetrarsúpuna sem við bjóðum upp á að þessu sinni. 1-2 msk. Ólífuolía. 1 laukur (smátt saxaður). 2–3 hvítlauksrif (pressuð eða söxuð). 2 gulrætur (sneiddar smátt). 1 meðalstór sæt kartafla (í litlum bitum). 1 dós niðursoðnir tómatar (eða 2 ferskir, skornir). 1 msk. fersk basilika (smátt söxuð). 1 msk. fersk steinselja (smátt söxuð). 1 tsk. þurrkað timjan. 1 dós hvítar baunir eða linsubaunir (valfrjálst). 1 lítri grænmetissoð (eða vatn + kraftur). Salt og pipar eftir smekk Handfylli af spínati eða grænkáli (í

lokin). Hitið ólífuolíu í potti og steikið lauk og hvítlauk í um 2 mínútur eða þar til laukurinn er orðinn glær. Bætið við gulrótum og sætri kartöflu, steikið í aðrar 2–3 mínútur. Hellið tómötum og grænmetissoði út í ásamt linsubaununum (ef þær eru ósoðnar). Láta sjóða í 15–20 mínútur, eða þar til grænmetið er mjúkt og baunirnar soðnar. Ef þú notar soðnar tilbúnar baunir bætið þeim þá út í, í lokin ásamt ferskum kryddjurtum og spínati. Smakkið til með salti og pipar. Verði ykkur að góðu. Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is www.instagram.com/janast

Vetrarsúpan er sérlega góð og við skorum á lesendur að prófa.

Spönginni Grafarvogi

Máta t ðu í verslun unum u okkar k Sæktu u á Kefl f av fla víkurffllugvelli Kringlan Glæsibær G Grrand dii Spöngin Keflavíkurfl efflav ku fllu ugv vö ölllu ur wwwey ww ww w..ey ye esland.is

Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 5/2/2025 6:39 PM Page 7

Stærrðin skiptir ek kki máli

Breiðhöfða 13

Á Nesdekki Brreiðhöf iðhöfða ð 13 finnur þú eitt fullkomnasta hjólbarðaverkstæ æði landsins þar sem fag gmenn okkar þjónusta b bíla af öllum stærðum og gerðum. Bókaðu tíma á nesdekk.is

Skannaðu QR kóðann til að bóka tíma á netinu

Skoðaðu u úrvalið o og bókaðu tíma í dekkjas skipti á ne esdekk.is Breiðhöfði 13

110 Reykjavík 590 2080

Stæ ærðin skiptir ekki máli á Breiðhöfffð ða 13.

nesdekk.iis / 561 4200


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/16/2025 11:02 PM Page 6

6

Fréttir

Ævintýraheimur íslenskra fugla

!

Árbæjarblaðið

Ævintýraheimur íslenskra fugla 1 er barnabók sem var að koma út. Hún er eftir Sigurð Ægisson, ætluð aldurshópnum 1–12 ára og er hugsuð þannig, að pabbi, mamma, afi eða amma eða þá eldri systkin lesi úr henni fyrir þau allra yngstu á kvöldin og e.t.v. spjalli um innihaldið, en önnur, sem komin eru í fyrstu bekki grunnskóla, eiga að geta notið hennar án aðstoðar. Þarna er um að ræða ýmsan fróðleik um 16 fuglategundir af þeim 75–80 tegundum sem eru hér reglubundnir varpfuglar. Þetta eru: álft, glókollur, heiðlóa, helsingi, hrafn, hrossagaukur, kría, krossnefur, lundi, maríuerla, músarrindill, rjúpa, snjótittlingur, spói, svartþröstur og æðarfugl.

Siglufirði, Skagaströnd, Tálknafirði og Vestmannaeyjum. Myndirnar eru gerðar af listakonu í Indónesíu, Ratih Dewanti, sem að auki er líffræðingur að mennt. Hér er sýnishorn úr bókinni: Heiðlóa „Lóan er komin, lóan er komin!“ hrópuðu börnin áður fyrr, þegar þau sáu fyrstu heiðlóuna undir lok vetrar. Hún var og er farfugl, en hafði þá dvalið í hlýrri löndum yfir köldustu og

hóparnir birtast þó ekki fyrr en liðið er á aprílmánuð. Hún er félagslynd árið um kring, nema á varptíma. Hreiðrið er einföld laut á opnu svæði. Eggin eru fjögur að tölu, oftast mosabrún, grá eða ljósgræn, með rauðum og svörtum dröfnum. Báðir hinir verðandi foreldrar sjá um að liggja á þeim í 27–34 daga, svo að þau haldist volg, af því að ef eggin kólna getur enginn ungi orðið til inni í þeim. Móðirin og faðirinn annast líka sameiginlega um litlu hnoðrana sína eftir að þeir klekjast. Fyrsta

Gert er ráð fyrir nokkrum öðrum bókum í sama flokki á næstu árum, uns búið verður að dekka allar varptegundir okkar. Hin síðasta mun fjalla um 16 langt aðkomna gesti, en á Íslandi hafa sést rúmlega 400 fuglategundir frá upphafi skráningar. Bókarhöfundur hefur fengið til liðs við sig börn á þessu aldursbili, sem bókin er ætluð, og þau hafa ort fyrir hann ljóð um viðkomandi fugla, eitt um hvern, sem verður í lok umfjöllunar um hverja tegund. Mikið hefur verið lagt upp úr því að hafa þau sem víðast að af landinu og að þessu sinni eru þau frá Akureyri, Borgarfirði eystra, Búðardal, Djúpavogi, Hellissandi, Húsavík, Höfn í Hornafirði, Ísafirði, Kópavogi, Langanesbyggð, Reykjavík, Selfossi,

JÓL JÓ LAM MARK KAÐU UR U -í He eiðmö örk-

Í l k jó ól ólatré é–T Trröpp ö putré – Handv H dverksmarkaðu k k ður Íslensk – Jólasve einar – Bar nas stund í Rjóðrrinu Opið allar aðventuhelgar milli kl 121 17. Njótið fjölskyldustundar í Heiðm mörk með heitu súk kkulaði og smákökum við eldstæðið. g g ggvið eigið gg g jjólatré úr ú skóginum g Jólaskógurinn á Hólmsheiði – hög Opið aðventuh helgar frá 7.desemb ber milli kl 11-16.

www.heidmorrk.is

Heiðlóan. Fuglinn trúr sem fer og kveður burt snjóinn. dimmustu mánuðina á Íslandi, af því að hún átti engin hlífðarföt til að fara í — enga úlpu eða húfu eða trefil eða vettlinga, ekki heldur kuldaskó eða snjógleraugu — bara sitt eigið fiður. Það var henni gott skjól gegn regni og vindi, en dugði ekki eins vel til að halda á henni hita þegar tók að frysta. Október, nóvember, desember, janúar, febrúar og mars geta nefnilega verið mjög kaldir fyrir smáfugla hér á landi. Aðalvandamálið er samt það, að í vetrarmánuðunum, sem nefndir voru, er svo erfitt að finna eitthvað við hæfi til að borða. En í sólskininu líður heiðlóunni vel. Þarna var hún sumsé komin heim til sín aftur frá útlöndum til að stofna fjölskyldu og börnin hlupu kát inn til að segja fréttirnar, sem auðvitað glöddu allt heimilisfólkið, af því að nú var öruggt, að þess yrði ekki langt að bíða að náttúran öll vaknaði til lífsins, að veðrið færi að batna og sumarið að heilsa Íslendingum á ný, með blóm í haga. Nokkrar aðrar fuglategundir voru sömuleiðis í hópi vorboðanna, misjafnt eftir landshlutum, en með tímanum varð lóan helsta tákn vors og sumars og er það enn. Enda gleðjast landsmenn allir þegar fregnir berast af komu hennar, þótt tímarnir séu breyttir, húsin bjartari og auðveldara að kynda þau en í gamla daga. Fyrr á öldum var reyndar talið að heiðlóan færi aldrei héðan af landi burt, heldur lægi í dvala í hellum, klettasprungum eða skútum, með laufblað eða birkiviðaranga í nefinu, þegar færi að kólna og snjóa, af því að fólk átti erfitt með að ímynda sér, að hún, svona lítil, gæti flogið yfir ógnarstórt hafið. Um þessa elskulega veru og tvo aðra fugla segir í gamalli vísu: Heyló syngur sumarið inn, semur forlög gaukurinn, áður en vetrar úti er þraut aldrei spóinn vellir graut. Heyló, sem þarna kemur fyrir í upphafi, er eitt af eldri nöfnum á lóunni, gaukurinn er hrossagaukurinn, og þegar sagt er að spóinn „velli graut“, er verið að lýsa sérkennilegum hljóðum eða söng hans, sem minnti á þegar grautur var eldaður í potti og farinn að bulla og sjóða. Íslenska heiðlóan er þegar byrjuð að koma til landsins í mars, en stærstu

sólarhringinn eru þeir í hreiðrinu, en verða sjálfbjarga og fara á kreik um leið og hýið, það er mjúka hárið þeirra eða dúnninn, er þornað og eru fljótir að læra að bjarga sér. Þeir verða fleygir 25–33 daga gamlir. Í varpbúningi er heiðlóan gullgul að ofan en svört og hvít að neðan, en á veturna er hún fremur einsleit, að mestu öll gulbrún. Lit ungfuglanna svipar um margt til vetrarbúnings hinna fullorðnu. Hér á landi er fæðan einkum skordýr, helst bjöllur og fiðrildalirfur, og svo ánamaðkar. Við sjó borðar heiðlóan einnig marflær, burstaorma og svoleiðis. Og á haustin auk þess ber, áður en hún þenur út vængina sína og flýgur til útlanda aftur. Vetrarstöðvarnar eru á Bretlandseyjum og vesturströnd meginlands Evrópu, frá Jótlandi í Danmörku og allt suður til Gíbraltar, og auk þess hefur merkt, íslensk lóa endurheimst við strendur Marokkó, í Norður-Afríku. Áður fyrr töldu menn sig geta lesið veðurbreytingar út frá hegðun og söng heiðlóanna. Á einum stað var til dæmis sagt, að þær flygju hratt og með miklum vængjaþyt og kvökuðu: „Bí, bí“ á undan illviðri, en syngju: „Dirrindí“ eða „Dírrí-dí“ eða þá „Dýrðin, dýrðin“, þegar betra veður nálgaðist. Annars staðar sögðu menn hins vegar, að þegar heiðlóan kvakaði: „Spítí, spítí“, myndi bráðlega fara að rigna, en þeir voru sammála um hitt. Og á enn öðrum stað var sagt, að ef hún syngi: „Fú, fí“, eða „Óhú, óhú“, boðaði það votviðri, en ef heyrðist: „Dirrin, dirrin“, átti að vera þurrt næsta dag. Í Evrópusöngvakeppni fugla, sem var haldin í maí 2002, bar þessi elska sigur úr býtum, og í kosningu Fuglaverndar, þar sem niðurstaðan var gerð opinber 22. apríl 2021, var hún kosin „Fugl ársins“ og sigraði með yfirburðum. Heiðlóan á sér mörg önnur heiti, flest, ef ekki öll, gömul. Þar á meðal eru brokfugl, heiðaló, heiðalóa, heiðarló, heiðarlóa, heiðló, heiðlói, heiláfa, heiló, heilóa, heyláfa, heylóa, heylói, lava, láfa, láva, ló, lófa, lóva, lævirki, táta, títa, þeiló, þeyló og þeylóa. Þegar lóan kemur næsta vor, ásamt kríunum, maríuerlunum, spóunum og öllum hinum yndislegu fuglunum, ætlarðu þá ekki að reyna að sjá hana? Kannski getur þú líka spáð í veðrið með því að hlusta á hvernig hún syngur? Það væri nú aldeilis skemmtilegt!


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/14/2025 6:30 PM Page 7


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/14/2025 11:05 PM Page 8

8

Fréttir

Árbæjarblaðið

Fiskréttirnir í Öldunni eru sérlega girnilegir og bragðgóðir.

Þessar verður ,,Allt sem við bjóðum upp þú að lesa! á er vandlega valið” Vinirnir Páll og Haraldur stíga ölduna saman í Öldunni - fisk- og sælkeraverslun í Spönginni.

SÁ BESTI

Þessa bók verða allir knattspyrnuunnendur að eiga ‐ og lesa!

HVENÆR HAFA BÆNDUR MÖK? Bráðskemmtilegar sögur úr skólastarfinu. Já, og hvenær skyldu nú bændur hafa mök? að er Svarið sjálfsögðu í bókinni ‐ eins og svo mörg önnur!!! DAUÐAFÆRI Á HVERRI SÍÐU! Ómissandi bækur á öllum ,,knattspyrnu‐ heimilum”. Þú tæklar þig í gegnum þær og skorar auðvitað þrennu!

Bókaútgáfan Hólar holabok.is / holar@holabok.is

- Aldan - fisk og sælkeraverslun hefur opnað í Spönginni Fiskverslunin Hafið er hætt í Spönginni en í sama húsnæði hefur verið opnuð ný fiskverslun, Aldan fisk- og sælkeraverslun. Páll Pálsson er eigandi Öldunnar ásamt matreiðslumeistaranum Haraldi. Við hittum Pál á dögunum og báðum hann um að gara grein fyrir sér ‘i upphafi. ,,Ég heiti Páll Pálson og hef alla tíð, búið í Hafnarfirði. Fiskurinn hefur alltaf verið stór hluti af lífi fjölskyldunnar minnar. Langafi minn starfaði við að selja fisk úr hjólbörum í Reykjavík. Pabbi, nafni minn var farsæll skipstjóri og bróðir minn stofnaði Hafið Fiskverslun. Það má því með sanni segja að ég hafi alist upp með sterkar tengingar við sjávarútveginn og að fiskurinn er í blóðinu.” - Segðu okkur aðeins frá tilurð þess að þú ákvaðst að opna þessa sælkerafiskverslun hér í Spönginni. ,,Ég hef starfað hjá bróður mínum síðustu tuttugu árin og rekið Hafið í Spönginni í um áratug. Það hefur lengi blundað í mér að gera eitthvað mitt eigið, og nú fannst mér loksins rétti tíminn til að stíga það skref. Með mér í þetta nýja ævintýri er Haraldur vinur minn sem er matreiðslumaður að mennt með mikla og fjölbreytta reynslu úr veitinga- og matreiðslugeiranum. Hann þekkir brans-ann út og inn, og saman deilum við ástríðunni fyrir góðum mat og fersk-um fiski. Okkur langaði að skapa sælkeraverslun sem sérhæfir sig í fiski og öllu því sem honum fylgir, hvort sem það er meðlæti, sósur eða hráefni sem gerir fiskréttinn fullkominn. Draumurinn okkar er að byggja upp fiskverslun á traustum grunni, þar sem persónuleg þjónusta og gæði eru í fyrirrúmi, verslun þar sem hver og einn viðskiptavinur fær að upplifa að hann skipti raunverulega máli. Eins og tíðkaðist hér áður hjá kaupmann-

inum á horninu.” - Þú hefur rekið fiskbúð áður og þekkir þennan bransa vel, hvað er það sem skiptir sköpun í rekstri sem þessum? ,,Þjónustan er algjört lykilatriði í þessum bransa, það skiptir öllu máli að viðskiptavinirnir finni að þeim sé sinnt af fagmennsku. Svo þarf auðvitað hráefnið að vera í hæsta gæðaflokki, á heimsmælikvarða. Ef þessi tvö atriði eru í lagi, góð þjónusta og frábært hráefni, þá á þetta einfaldlega ekki að geta klikkað.” - Hvað ætlar þú að gera öðruvísi núna? ,,Við ætlum að byggja á þeim góða grunni sem þegar hefur verið lagður, en um leið þróa okkur áfram. Markmiðið er að halda áfram að bjóða upp á fyrsta flokks fisk og spennandi fiskrétti – en líka að bæta stöðugt við nýjum hugmyndum og sælkeravörum sem henta vel með. Við viljum skapa verslun þar sem fólk fær innblástur í eldhúsið, ekki bara hráefnið sjálft, heldur líka hugmyndir að nýjum bragðsamsetningum og réttum.” - Hverjar eru helstu áherslur þínar í vöruúrvali? ,,Áherslan er á ferskleika, gæði og fjölbreytni. Við viljum bjóða upp á það besta í fiski og allt sem gerir fiskréttinn fullkominn – frá hráefninu sjálfu til meðlætis og krydds.” - Þar sem Aldan flokkast undir sælkeraverslun er áhugavert að vita hvað þýðir að vera sælkeraverslun? ,,Fyrir mér snýst sælkeraverslun ekki bara um að selja góðar vörur, heldur um upplifunina í heild. Við viljum skapa stað þar sem fólk finnur innblástur, fær ráðleggingar og finnur fyrir ástríðunni okkar fyrir góðum mat. Allt sem við bjóðum upp á er vandlega valið, hvort sem það er

fiskurinn, meðlætið eða sósurnar. Þetta snýst um gæði, smekk og umhyggju fyrir smáatriðunum.” - Eruð þið að bjóða upp á mikið af tilbúnum fiskréttum eða leggið þið meiri áherslu á að vera með ferskan og nýjan fisk án þess að búið sé að gera eitthvað við hann? ,,Við erum með fjölbreytt úrval af fiskréttum og mikið magn af sælkeraréttum sem eru vinsælir í saumaklúbba eða í matarboðið. Ókryddaði fiskurinn selst alltaf vel en réttirnir hafa tekið fram úr í sölu þar sem þeir eru einstaklega þægilegir í eldun, eða 20 mínútur í 200 gráður.” - Er fiskneysla Íslendinga að aukast? ,,Fiskneysla Íslendinga hefur alltaf verið mikil, og við finnum fyrir því að yngri kynslóðin er alltaf að verða duglegri eða koma til okkar og fá sér fisk í matinn. Aukin gæði í réttum og brögðum hefur haft mikið að segja.” - Hver er þinn uppáhaldsfiskréttur? ,,Minn uppáhaldsréttur verð ég að segja er minn mánudagfiskur, soðin nætursöltuð ýsa, stöppuð með íslenskum kartöflum og smjöri. En ef ég vil gera extra vel við mig, þá er fyllti laxinn sá réttur sem ég fæ mér. Þar erum við með stökka rösti kartöflu undir laxinum sem er fylltur með bökuðum hvítlauk, kóríander og rjómaosti. Hann er svo toppaður með apríkósu, engifer og trönuberja pestói. Algjört lostæti!” - Eitthvað annað sem þú vilt koma á framfæri í lokin? ,,Við mælum með fiski alla daga vikunnar. Okkur hlakkar til að taka á móti ykkur í nýrri og glæsilegri verslun okkar og bjóðum viðskiptavini hjartanlega velkomna,” segir Páll Pálsson.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2025 1:35 PM Page 20


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2025 2:14 PM Page 10

10

Fréttir

Árbæjarblaðið

Hressandi og hátíðleg útivist í Jólaskóginum Ferð í Jólaskóginn á Hólmsheiði er orðin að fastri aðventuhefð hjá mörgum fjölskyldum og vinahópum. Enda tilvalin leið til að njóta samveru, vera úti í náttúrunni og vinna saman að hressandi og hátíðlegu verkefni. Í Jólaskóginum, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir, er hægt að fella sitt eigið jólatré. Umhverfið er fallegt og nýtur fólk útiverunnar meðan leitað er að rétta trénu. Hægt er að setjast við varðeld á staðnum, gæða sér á kakói og smákökum eða jafnvel grilla sykurpúða yfir eldinum sem eru til sölu í jólakofa Skógræktarfélagsins. Jólasveinar verða á ferli milli klukkan 13 og 14. Margar fjölskyldur koma í

Jólaskóginn ár eftir ár, enda hátíðlegt og skemmtileg samvinna að finna og fella sitt eigið tré. í Jólaskóginum er mest af stafafuru, sem er óðum að festa sig í sessi sem „íslenska jólatréð“. Ágóðinn af jólatrjáasölunni rennur svo beint til starfsemi þessara frjálsu félagasamtaka. Meðal annars skógræktar, landgræðslu og uppbyggingar útivistarsvæða í Heiðmörk og víðar. Jólatrén sem þarna eru seld, eru auk þess sjálfbær afurð úr útivistarskógum. Enda grisjun hluti af nauðsynlegri umhirðu vaxandi skóga. Skógræktarfélag Reykjavíkur heldur líka Jólamarkað í Heiðmörk með margskonar skemmtun og huggulegheitum.

Og svo er bara að koma jólatrénu heim og á sinn stað.

Allir góðir og glaðir á jólamarkaðnum í Heiðmörk.Og svo er bara ð koma jólatrénu hem


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/14/2025 6:31 PM Page 11


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/14/2025 10:35 PM Page 12

12

Fréttir

Árbæjarblaðið

Vinirnir Mía Atladóttir og Aron Darri Einarsson.

Guðríður María Guðjónsdóttir, Birta Sóley Birkisdóttir, Hildigunnur Ásta Gunnlaugsdóttir, Embla Friðbjörg Hrafnsdóttir og Hekla Arnfinnsdóttir.

Grikk eða gott

Sumir leggja meira á sig en aðrir þegar viðfangsefnin eru erfið. Krakkar í Selásnum og Norðlingaholti lögðu hart að sér á Hrekkjavökunni á dögunum og það gerði líka ljósmyndari Árbæjarblaðsins, Katrín J. Björgvinsdóttir. Af harðfylgi og dugnaði fylgdist hún með duglegum krökkum sem lögðu mikið á sig til að bjóða grikk gegn gotti og náði

mörgum frábærum myndum sem hér birtast í Árbæjarblaðinu. Katrín var við myndatökur í tvo

Ljósmyndir Katrín J. Björgvinsdóttir daga. Miklar vangaveltur voru á föstudeginum hvort veður leyfði göngu

Renata Agnes Kubielas og Liam Ari Sigursteinsson sem bankaði upp á og bað um grikk eða gott?

krakka um hverfið og sumir frestuðu göngunni til laugardagsins. Á föstudeginum var Katrín á ferð um Selásinn í erfiðri færð og síðan á laugardeginum í Norðlingaholti þegar aðstæður voru mun betri. Þar var mikil stemning. Búið að útbúa draugahús í einu húsinu og bílskúrnum, þvílík stemning og draugagangur.

Hifa Buse Kaymaz, Isabella Embla Þorsteinsdóttir, Karen Elva Guðjónsdóttir, Klara Ísfold og Theódóra Líf.

Lovísa Eriksen, Aríana Irja, Magnea Eriksen og Theódóra Bjarkadóttir.

Jóhann Pétur Ragnarsson og Alvar Ási Robinson komu við hjá Marlena Rzepnicka sem var búin að skreyta hátt og lágt.

Ása Geirsdóttir og Axel Gómez voru á leiðinni í hrekkjavökupartý.

Anna Kristín Kristjánsdóttir stóð vaktina að taka á móti börnum með ýmsu góðgæti.

Andri Ólafsson og synirnir Bjartur Eysteinn og Hafsteinn Darri.

Kornel Pogorzalski, Matthias Arnarson, Frosti Már Ívarsson og Nökkvi Þór Ívarsson.

Systurnar Íris Hulda Káradóttir og Finna Guðrún Káradóttir.

Feðgarnir Ægir Már og Aron Berg.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/14/2025 10:35 PM Page 13

13

Fréttir

Árbæjarblaðið

Daníel Páll Jónsson ásamt dóttur sinni Hörpu Guðrúni og vinkonu hennar, Viktoríu Mist Daníelsdóttur.

Samia Rósa A. Bosma, Oddný Dís Jónsdóttir og Embla Katrín Ragnarsdóttir.

Bergþóra Líf Sigurðardóttir, Sigurður Mgnússon og Alexía Lind Arnarsdóttir.

Kristján Jens Eyðsson, Viktor Benedikt Már Ingimarsson, Guðmundur Gunnar Haraldsson, Jóhann Már Ingimarsson og Baldur Már Einarsson.

Patrekur Leó Jakobsson, Ólafur Pétur Ólafsson, Aron Freyr Sævarsson og Hilmar Leví Heiðarsson.

Hjónin Ingi Björn Ásgeirsson og Kristín Bridde ásamt hjónunum Stefáni Elfari Garðarssyni og Ernu Sigurgeirsdóttur voru með flottasta draugahúsið í Norðlingaholtinu.

Arnór Skagfjörð, Þórunn Ragnarsdóttir, Védís Eir Bjarkadóttir og Grímur Bjarkason.

Patrik Aaron Wilkins og Emma Jordan Wilkins.

Systkinin Aron Briem og Friðrikka Líf.

Þórir Rúnar Auðunsson og Kristian Birnir.

Emma Kristín Corinsdóttir, Vala Margrét Guðnadóttir og Heiða Viktoría Pétursdóttir.

Bjarki Hrafn Níelsson kom við í draugahúsinu í Norðlingaholtinu.

Einar Orri Þorvaldsson, Aron Hugi Þorvaldsson og Ingunn Ylfa Jakobsdóttir.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2025 5:01 PM Page 14

14

Fréttir

Árbæjarblaðið

Magnús Daði Ottesen.

Þrír ungir leikmenn fylkis til reynslu erlendis Þeir Atli Björn Sverrisson (f. ’10), Magnús Daði Ottesen (f. ’10) og Olivier Napiórkowski (f. ’09) eru alir ungir og efnilegir leikmenn sem spila með 3. og 2. flokki Fylkis ásamt því að vera byrjaðir að æfa með meistaraflokki karla. Á dögunum voru þeir kallaðir út til reynslu, en þeir Atli Björn og Oliver Napiórkowski fóru saman til

Heimir Guðjónsson nýr aðalþjálfari meistaraflokks karla

Heimir Guðjónsson er nýr þjálfari Fylkis og Eva Rut komin heim

Í október var tilkynnt um ráðningu á nýjum aðalþjálfara meistaraflokk karla í knattspyrnu þar sem Heimir Guðjónsson, einn sigursælasti þjálfari íslands var tilkynntur sem nýr aðalþjálfari félagsins. Heimir gerði tveggja ára samning við Fylki sem gildir út keppnistímabilið 2027. Hann hefur nú þegar tekið til starfa og æfingar hafnar undir hans stjórn. Hvalreki fyrir félagið! Eva Rut Ásþórsdóttir,

fyrrum

Atli Björn og Oliver Napiórkowski fóru saman til Lyndby. kaupmannahafnar þar sem þeir fóru til reynslu hjá Lyndby BK og æfðu þar með U19 ára liði félagsins og stóðu sig með prýði. Þess má til gamans geta að góð Fylkistenging er við félagið en Micheal Kingdom fyrrum yngri flokka þjálfari hjá félaginu og leikgreinandi hjá meistaraflokknum er þjálfari U19 ára liðsins. Þá fór Magnús Daði Ottesen til Munich þar sem hann æfði með

unglingaliði Bayern Munich og stóð sig með prýði. Bayern sem er eitt sigursælasta liðs heims er einnig með eina öflugustu akademíu sem til er en þeir hafa alið upp þó nokkra heimsklassa leikmenn eins og Franz Beckenbauer, Gerd Muller, Thomas Muller, Toni Kroos og nú nýjustu stjörnurnar þeirra Jamal Musiala og Lennart Karl.

fyrirliði kvennaliðs Fylkis sem lék með liðinu frá 2020-2024 er mætt aftur heim eftir eitt tímabil í burtu og mun leika með liðinu í 2. Deildinni að ári og aðstoða liðið að koma sér á réttu brautina á ný. Eva meiddist í fyrsta keppnisleik með Þór/KA í bestu deildinni í sumar og verður frá fram að byrjun næsta sumars ef endurhæfing gengur vel. En gríðarlega stór og mikilvægur liðsstyrkur fyrir félagið sem stefnir

hraðbyrðis upp í Lengjudeildina á ný. Auk þess eru margar stelpur sem halda tryggð við félagið og skrifa undir nýjan samning og ætla að aðstoða liðið að koma sér upp um deild. Þær sem hafa þegar framlengt samning sinn eru Rebekka Rut, Birna Kristín, Bergljót Júlíana, Kolfinna Baldursdóttur, Nína Zinovieva, Signý Lára, Tinna Harðadóttir, Sara Rún, Sigrún Helga, Erna Þurý, Katla Sigrún, Sigríður Karitas, Hildur Anna og Birta Margrét

sem er þvílíkur hvalreki fyrir félagið að halda þessum gæðaleikmönnum innan félagsins og að þær treysta ferlinu hjá félaginu. Þá hefur Nikulás Val Gunnarsson einnig skrifað undir framlengingu á sínum samningi en Nikulás á hátt í 150 leiki fyrir félagið og þar af 70 í efstu deild. Gríðarlegur styrkur að halda Nikulás áfram innan okkar röð og hlökkum við til að sjá hann bæta við leikjafjölda sinn næstu tvö ár a.m.k.

Eva Rut Ásþórsdóttir er komin aftur til Fylkis og er koma hennar mikill hvalreki fyrir Fylki.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2025 10:05 PM Page 15

SA

N A M BÓKAÐU NÚÚNA Á KEILUHOLLLIN.IS


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/15/2025 11:30 PM Page 16

16

Fréttir

Árbæjarblaðið

Blóðsykurmælingar í boði Fjörgynjar og Foldar Glæsilegir fulltrúar Árbæjarskóla á sviðinu.

Árbæjarskóli komst í úrslitin í Skrekk 2025 Annað undanúrslitakvöld Skrekks 2025 fór fram í Borgarleikhúsinu þann 4. nóvember sl. Níu grunnskólar tóku þátt en það voru Árbæjarskóli, Fellaskóli, Hlíðaskóli, Klébergsskóli, Landakotsskóli, Laugalækjarskóli, Víkurskóli, Vogaskóli og Ölduselsskóli. Í úrslit komust Árbæjarskóli með atriðið 5:00 sem fjallaði um það sem við hræðumst og þarf ekki að vera svo hræðilegt og Fellaskóli með atriðið Þrýstingsbylgja sem fjallaði um pressuna sem fylgir því að reyna að uppfylla væntingar annarra. 264 ungmenni í Reykjavík tóku þátt í atriðunum þetta kvöldið Í heildina voru 742 þátttakendur í Skrekk í ár.

Nóvembermánuður er tengdur vitund um sykursýki og varnir gegn þeim sjúkdómi. Sykursýkisvarnir eru eitt af höfuðverkefnum Lions um allan heim og eru ýmsir viðburðir því tengdu á dagskrá hjá Lionsumdæmum og klúbbum svo sem ýmis fræðsla og mælingar blóðsykurs en alþjóðlegi sykursýkisdagurinn er 14. nóvember ár hvert. Hér á landi munu Lionsklúbbar um allt land bjóða upp á blóðsykurmælingar í nóvember mánuði á sínum heima svæðum. Lionsklúbburinn Fjörgyn hóf að bjóða upp á blóðsykurmælingar árið 2012 og höfum við gert það árlega eftir það að undanskildum Covid

árunum og höfum við fengið aðstöðu í verslunarkjarnanum Bíldshöfða 20 en þar hafa Krónan, JYSK og Húsgagnahöllin veitt okkur húsaskjól fyrir þetta verkefni. Frá árinu 2017 höfum við átt í góðu samstarf við Lionsklúbbinn Fold við blóðsykurmælingarnar og höfum við ávalt skilað af okkur flestum mælingum á landsvísu. Þessi þjónusta er að öllu leiti í boði klúbbanna og höfum við átt því láni að fagna að hafa gott aðgengi að heilbrigðis starfsmanni sem hefur verið okkur til halds og trausts og veitt þeim ráðgjöf sem þess þurfa. Á þessum árum hafa klúbbfélagar mælt blóðsykur í 5455 einstaklingum sem skiptist þannig að 3198 konur

Og góð tilþrifin komu Árbæjarskóla í úrslit í Skrekk 2025.

Skíðagöngubrautir á Austurheiðum og Rauðavatni

Foldarkonur við blóðsykurmælingar.

Skrifað var undir samning Reykjavíkurborgar við Icebike Adventures, á dögunum um styrkveitingu vegna lagningar skíðagöngubrauta á Austurheiðum og Rauðavatni. Samningurinn, sem er til tveggja ára, var samþykktur í borgarráði og undirritaður við Rauðavatn. Skúli Helgason, formaður menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkur, skrifaði undir fyrir hönd Reykjavíkurborgar, en Ásta Briem framkvæmdastjóri, fyrir hönd Icebike Adventures. Markmiðið með samningnum er að tryggja áfram öflugt samstarf við fyrirtækið Icebike Adventures, sem stendur að baki Sporinu, um lagningu gönguskíðaspora á svæðunum þegar veður og aðstæður leyfa. Með því er leitast við að stuðla að bættri lýðheilsu íbúa með aukinni hreyfingu og útiveru í anda lýðheilsustefnu borgarinnar og stefnu í íþróttamálum. Brautir fyrir byrjendur og lengra komin Magne Kvam, hönnuður brautanna, segir að svæðin sem um ræðir séu algjör paradís til útivistar. Á Hólmsheiði skapar skógurinn gott skjól sem eykur notagildi og bætir upplifunina. Markmiðið með Sporinu er að skapa aðstæður fyrir sem fjölbreyttastan hóp fólks til gönguskíðaiðkunar og eru brautirnar hannaðar til þess að henta bæði byrjendum og reyndara skíðafólki. Mikil áhersla er lögð á að skapa fjölskylduvæn, aðgengileg og skemmtileg svæði til útivistar og á komandi vetri má búast við spennandi nýjungum. Upplýsingar um hvar og hvenær gönguskíðaspor eru lögð má nálgast á fésbókarsíðu Sporsins og á upplýsingasíðu Reykjavíkurborgar um gönguskíðaspor á höfuðborgarsvæðinu. Karlar í Fjörgyn við blóðsykurmælingar. VISSIR ÞÚ?

AÐ KEILA ER LEIKIN AF 120.000.000 MANNS Í YFIR 90 LÖNDUM. KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

Loftmynd af skíðagönguspori á Reykjavíkursvæðinu.

hefur fengið mælingu og 2257 karlar, þetta er fólk á öllum aldri frá barnsaldri og yfir nírætt og kemur fólk í sumum tilfellur á staðinn þegar það veit af þessari þjónustu okkar. Þetta er verkefni er mjög góð og öflug kynning fyrir Lions hreyfinguna og veitir það okkur félögunum mikla ánægju að fá að taka þátt í þessu verkefni. Í ár bjóða Lionsklúbbarnir Fjöryn og Fold upp á blóðsykurmælingar á Bíldshöfða 20 laugardaginn 22. nóvember n.k. milli 11:00 og 16:00 og hvetjum við alla til að koma og fá mælingu hjá okkur. Fyrir hönd undirbúningsnefndar, Guðmundur Helgi Gunnarsson


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2025 2:17 PM Page 17

6 6 6A6 A>=<;:9<8<76584735:2:6196>0/7.<8:6-26;,=+;*5<(6 '7.88<+216-26:;>&%$1+(65.8#(6>.<":=7.<8:6!6 -26,'0=<7.2:+65 8+1" :56>:+:6 6.<+1965$=.+2 !6 57<6 :=#.<++6 :731=55-+(6 <8:+69."6 57:6 :=#.<+<

:++8:77:"1=6 +3<57.5#1= !6 :2+><731=6 <2;%53,##<=

72& =#68-+;.8# !6 <==*6 =+:=3,##<=


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2025 4:25 PM Page 18

18

Þessar verður þú að lesa!

Fréttir

Árbæjarblaðið

SÁ BESTI Þessa bók verða allir knattspyrnuunnendur að eiga ‐ og lesa!

HVENÆR HAFA BÆNDUR MÖK? Bráðskemmtilegar sögur úr skólastarfinu. Já, og hvenær skyldu nú bændur hafa mök? Svarið er að sjálfsögðu í bókinni ‐ eins og svo mörg önnur!!! IP65 LED jólasería Takið eftir hvað vírinn er þykkur og frágangur vandaður.

Jólalegar jólaseríur fyrir íslenskt veðurfar

DAUÐAFÆRI Á HVERRI SÍÐU! Ómissandi bækur á öllum ,,knattspyrnu‐ heimilum”. Þú tæklar þig í gegnum þær og skorar auðvitað þrennu!

Bókaútgáfan Hólar holabok.is / holar@holabok.is

Í dag geta allir fengið sér vandaðar og sterkar jólaseríur sem þola íslenskt veðurfar. Undanfarin ár hefur úrvalið af jólaseríum, sem áður voru eingöngu seldar til sveitarfélaga og fagaðila aukist mikið. Hér er átt við alvöru útiseríur sem eru með IP65 vottun. Vírar og allur frágangur allur eins og best verður á kosið. Perurnar eru höggþolnar þannig að þær þoli íslenskt vetrar veður. Áður fyrr voru svona vandaðar jólaseríur mjög dýrar, en í dag er hægt að fá þær á hagstæðu verði. Múrbúðin hefur lengi verið leiðandi í að bjóða hagstætt verð á jólaseríum. Undanfarin átta ár hafa þeir alltaf verið með lægsta verðið á „alvöru útiseríum“ eins og þeir segja. Útiseríur IP44 og útiseríur IP65 – hver er munurinn Áður fyrr voru flestar útiseríur með IP44 vatnsvörn. Það þýðir að serían er varin fyrir hlutum sem eru stærri en 1mm og fyrir vatnsúða. Vírinn í þessum seríum er almennt þunnur og þolir ekki mikil átök. Í dag kaupa sífellt fleiri jólaseríur með IP65 vatnsvörn. IP65 þýðir að serían er alveg varin fyrir ryki og þolir vatnsúða undir þrýstingi. Yfirleitt eru IP65 seríur búnar til úr þykkum vír sem þolir mikil átök. IP65 seríur eru tilvaldar til að hafa uppi allt árið um kring – ef vel er gengið frá festingum.

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)

Þó IP65 jólaseríur séu með mun betri vatnsvörn in IP44 seríur, þá þola þær ekki að liggja á kafi í vatni í langan tíma. Þannig þola þær vel að vera í trjám, þakskeggi og á veggjum þar sem

Hér má sjá muninn á jólalegu jólaseríunni og marglitri jólaseríu. vatn Veldu rennur af þeim. Ekki er mælt með að vandaðar jólaseríur frá Múrbúðinni nota þær t.d. niður við jörð þar sem vatn þessi jól og njóttu þeirra mörg næstu ár. getur safnast fyrir. Sama á við um samtengin. Ef þú Frá upphafi hefur Múrbúðin boðið kemst ekki hjá því að láta samtengin mun lægri verð en Íslendingar eru vanir. liggja á jörðinni, þá er sniðugt að nota Jólaseríurnar eru engin undantekning. svokallaða „krumpuhólka“ til að Kíktu á verðið, og láttu það koma þér vantsverja samtengin 100% eða notað þægilega á óvart. hlífðarbox fyrir samtengi.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/17/2025 2:17 PM Page 19

FÖ ÖSTUDAGINN 16 6. JANÚAR A 2026 6

HER HER RR RRAK RA AK KVÖ VÖLD ÖLD

FY YLKISS MÁ VERK MÁL V AUPP PBOÐ Ð

HAPPDR HA RÆTTI - GÍSLI EINARSS

M GN MA NÚS K KJAR RTTAN AN

SVEP V PI - GREI G IPUR R

Þ ÞORRA AMATU TUR & LAMB B Fjölmennum á glæsilegt og sk s emmtilegt HERRAKVÖLD með góðum g vinum oog Fylkismönnuum. Miðasala hefst 25. 25 2 nóvember MIÐASALA #viðerumÁrbær

VERÐ AÐ ÐEINS

13.90 00 kr.

B ðapantanir á herrakvold@fylkir.is Bor

w .fylkir.is www


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/16/2025 10:39 PM Page 20

20

Bókakaflar

Árbæjarblaðið

„Viðburðalítill gamantúr“

Í kaflanum um jökulhlaupið 1934 er einnig getið farar Hannesar yfir jökulinn. En þar eð borizt hefir allýtarleg frásögn Hannesar sjálfs um þessa sögulegu og sennilega einsdæma jökulför er sú frásögn birt hér í sérstökum þætti. Er það í bréfi til Vigfúsar Guðmundssonar, að Hannes segir ferðasögu þessa, óefað eftir beiðni Vigfúsar og áskorun. Segir Vigfús, að Hannes telji í bréfi sínu jökulför þessa „viðburðalítinn gamantúr,“ og Vigfús bætir við:

Spönginni

Útfararþjónusta í yfir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is

VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN

Stíf tífluþ luþjón ónusta usta ramynd yndir Röra Dælubíll VALUR HELGASON stifla.is | 896 1100

„… En öðru máli gegnir, hvort lítt vanir ferðamenn á tveimur jafnfljótum eða kjarklítil smámenni hefðu sífellt haft „gamantúr“ í huga alla leiðina. … Hannes Jónsson segir sjálfur frá ferðinni.“ – Er þó með hans leyfi fellt úr lítilsháttar eða vikið við orðalagi á stöku stað. Kemur hér frásögn Hannesar: „Í póstferð á vesturleið var ég viðbúinn að leggja upp frá Svínafelli í Öræfum 28. marz 1934. Tvo menn hafði ég ráðið til ferðar með mér vestur á jökulinn, af því að þá var ekki um aðra leið að ræða. Voru það röskir menn, þeir Oddur Magnússon2 og Jón Stefánsson. Við lögðum ekki af stað fyrr en á laugardagsmorgun klukkan 7 sökum þess, að veðurútlit hafði ekki verið tryggilegt á jöklinum þennan dag, snjóburður og bylkóf öðruhvoru og eins tvo næstu daga – skírdag og föstudaginn langa. Héldum við inn Skaftafellsheiði að vestanverðu og urðum að krækja allt inn úr Morsárdalnum til þess að komast vestur í Jökulfellið, því að hlaupið lónaði svo langt inn á Morsáraurana. Komumst við að Rauðhellum og höfðum þá farið talsverðan krók frá vanalegri leið til Jökulfellsins. Jökulhlaupið huldi undirlendið allt, svo að við urðum að fara gegnum Bæjarstaðaskóg og skriðurnar, unz við komum að útfallinu. Gaf þar á að líta tröllslegar hamfarir og ógleymanlega hrífandi átök elds, vatns og ísa. Vatnsflaumurinn hafði spennt upp jökulröndina, brotið og var að brjóta í hana býsna mikið skarð og hafði grafið í aurinn þann feikna hyl, að þegar jökulstykkin hvert af öðru brotnuðu úr jökulbrúninni, þá sukku þau í kaf, og bólaði ekki á þeim, fyrr en tók að grynnast talsvert neðar. Held ég þó ekki of í lagt, að stykkin stærstu hafi verið um 25 metrar á hæð. Þessir litlu molar rákust svo hver á annan með braki og brestum, morruðu að meira hluta í kafi ofan eftir mesta straumnum, unz þá rak í strand til og frá á Skeiðarársandi. Eftir að við höfðum horft hugfangnir um hríð á þessi ægilegu átök, lögðum við á jökulinn skammt fyrir ofan útfallið, og var klukkan þá orðin 10. Ófærð var þar af skelsnjó í miðjan legg. Skíði hafði ég fengið lánuð í Skaftafelli og notaði þau nú til að draga á þeim dót mitt, póstinn og nestið, meðan of bratt var til þess að ganga á þeim. Héldum við nú norðvestur á jökulinn, og eftir rúmlega ½ klukkustundar gang vorum við komnir NV af Krossgilstindi, sem er norðvestan við Jökulfell. Sáum við þá Súlutind gnæfa yfir jökulbreiðuna, og var áformað að komast þangað, enda sýndist ekkert til fyrirstöðu. Veðrið var ákjósanlegt, sást varla ský á lofti, aðeins lítilsháttar skýhnoðri með élfukti á Færnesstindum nyrzt í Skaftafellsfjöllum. Þá er við höfðum gengið þrjá stundarfjórðunga á jöklinum, urðu sprungur þvert fyrir okkur, sem töfðu mjög förina. Fórum við fyrst að krækja með þeim til þess að geta hlaupið yfir þær, en urðum brátt að láta okkur lynda að klífa þær upp og ofan. Þó að sprungurnar væru þéttar og þunnir kambar milli þeirra, reyndist keldan skár en krókurinn. Snjór var í botni gjánna og broti í snjónum til hliða, svo að þetta seinfarna ferðalag ofan og upp hvað eftir annað gekk þó sæmilega.

Niðri í gjánum, undir fótum okkar, urðum við ókyrrðar og undirgangs varir, þar sem skessan skreið áfram undir jöklinum með „óvæntu urri og leiðum ropum“. Hrutu okkur þá spaugsyrði af vörum, t.d. þá er einna mest gekk á, sagði ég við Odd: „Hvers konar óvenju hljóð var þetta?“ Hann svaraði: „Ætli henni (Skeiðará) þyki ekki óþarfi, að við séum að traðka ofan á lífinu á henni.“ Eftir 1¼ klukkustundar yfirferð um gjáaklasann sýndist okkur, að honum væri lokið að mestu leyti. Vildi ég þá ekki láta fylgdarmennina fara lengra,

sem litlu munaði, að ég gæti heilsað með veifu heim til mín, fór ég beina leið vestur yfir Eystrafjall og kom klukkan 4 í gangnakofa (sæluhús) sem er á svonefndum Staðarhóli vestan í fjallinu. Þaðan var ekki nema tæplega 4 klukkustunda gangur heim til mín, ef ég hefði komizt venjulega leið ríðandi manna. En nú voru þar allir aurar í kafi undir hlaupinu. Hefði ferðin gengið miklu seinna og verr en nú var orðið, gat verið gott og sjálfsagt að gista í kofanum. En póstinum vildi ég koma áfram, og hann þurfti líka að fara frá Klaustrinu á páskadaginn. Dvaldist ég

Hannes Jónsson landpóstur ásamt eiginkonu sinni, Þórönnu Þórarinsdóttur. þar því aðeins í stundarfjórðung. En nú var ekki hægt að nota skíðin lengur, því að nú varð ég að fara þvert fram úr skógarbrekkum, bröttum skriðum og þéttum klapparákum. Fór nú að versna gengið, því að í skóginum var svo mikil ófærðarbotnleysa, að mótbrekkið varð ég að skríða og þjappa snjónum undir mig. Þó að slík leið væri ekki löng, seinkaði hún þó för minni. Ekki var að óttast myrkrið, því að ekki dró ský eða skugga fyrir himinljósin, og auk þess var jökullinn nú sífellt að senda mér leifturgeisla sína, og eftir því skærari sem dagsbirtan dvínaði, og mátti nú sjá, að eldgosið var í algleymingi. Ferðina byrjaði ég með því að krækja býsna langt upp með jökulhlaupinu, nú varð ég að halda niður með því að vestanverðu. Og því að nú sýndist og reyndist stutt leið þannig mátti svo kalla, að ég kæmist og greiðfær eftir að Súlutindi. Hvíldum yfir það þurrum fótum. Og árla við okkur þar í 15 mínútur, árnuðum páskadagsmorgun, klukkan 2, var ég svo hver öðrum fararheilla og héldum kominn heim til mín að Núpsstað, og hver sína leið, en þá var klukkan eitt pósturinn komst að Kirkjubæjarklaustri kort gengin í eitt. Skíðin höfðu tafið í tækan tíma.“ fyrir yfir gjárnar, en nú komu þau í Hannes Jónsson bætir því við góðar þarfir, með því að lausi snjórinn frásögn sína, að sumir hafi láð sér að var dýpri en fyrr. En skíðamaðurinn var hafa ekki fylgdarmann alla leiðina, „og nú ekki útlærður í listinni, svo að ferðin hefði það auðvitað verið skemmtilegra. gekk tæplega mikið yfir liðugan En hættunnar vegna var það hégómi. klyfjagang. Ég var alvanur að fara um þessi fjöll Eftir tveggja klukkustunda skíðaför einn, og mörgum sinnum í 40 ár, þekki kom ég vestur í skarðið í Súlutindi, sem þau eins og fingur mína og hefi oft mun vera nálægt 30 metra yfir jökulinn. orðið að fara þau hættulegri en í þetta Hafði ég þá verið 4 klukkustundir milli sinn. Sumir héldu jafnvel, að hlaupið fjalla fyrir utan viðstöðu. Víðsýni var mundi að einhverju leyti flóa fram af hið bezta úr skarðinu. Sá ég vel til jöklinum, en slíkt er ósæmileg jökulhlaupsins, og sýndist það breiðast hugmynd fullvita fólki. Og aldrei yfir mest af sandinum, austur fyrir kemur það fyrir. En hitt getur borið við, Ingólfshöfða og vestur í Veiðiós fyrir að gusist upp um gjár, milli fjalls og austan Skaftárós.3 Séð hafði ég jökuls á jökulbrún. En þar er alltaf hægt fáeinum leiftrum bregða fyrir í að krækja fyrir.“ sólskininu; annars gerðist ekkert Þetta er þá frásögnin um jökulför sögulegt. En ljósin gátu þó bent til þess, Hannesar á Núpsstað. Látlaust og að eitthvað sögulegra kynni að vera í skemmtilega sögð, eins og verið væri í vændum. Nú fannst mér næstum sem ríkisútvarpinu að segja frá skemmtiför ég væri kominn heim, þar sem ég Ferðafélags Íslands upp á Esju eða Hengil. En hér gildir að menn verða að þekkti hvern krók og kima, hól og kunna þá list að lesa milli lína og sjá og hæðir eins og blettina í túninu mínu. skynja hið raunverulega viðhorf. Og Eftir litla dvöl við þetta dásamlega annað væri „ósæmilegt fullvita fólki.“ útsýni í allar áttir, – og á þeim stað þar


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/16/2025 10:40 PM Page 21

21

Bókakaflar

Árbæjarblaðið

„Jú, sko … við leigðum á hann smóking“ - Hólar gefa að venju út bók með Fimm aura bröndurum Bókin FIMM AURAR langfyndnustu brandarar í heimi er bráðskemmtileg og höfðar til allra aldurshópa. Hér eru nokkur dæmi úr henni en bókin kom út á dögunum: * Vinur minn sagði mér að það væri líf utan internetsins og að ég ætti endilega að skoða það. Ég bað hann um að senda mér linkinn.

„Þú verður að fara varlega með þetta tæki. Það er ekki langt síðan að stórslys hlaust af rangri meðferð suðutækja. Tólf manns stórslösuðust.“ „Það gæti ekki átt sér stað hér,“ svaraði sá glannalegi snúðugt. „Nú, því segir þú það?“ „Við erum ekki nema átta á verkstæðinu.“

* Konan mín sagði að ég hlustaði aldrei á hana – eða eitthvað í þá veruna. * Dóttir mín spurði hvort að við gætum farið á McDonald´s. Ég sagði að það væri ekkert mál ef hún gæti stafað nafnið rétt á þessum vinsæla veitingastað. Stelpan leit á mig undrunaraugum, en sagði síðan: „Æ, förum bara á KFC.“ * Þegar ég var á baðströndinni í dag sá ég mann skammt undan landi sem baðaði út öllum öngum og kallaði: „Hjálp! Hákarl! Hjálp!“ Ég hló bara að manninum. Hvernig dettur honum í hug að biðja hákarl um hjálp? * Þetta er búinn að vera mjög skrýtinn dagur. Fyrst fann ég hatt, fullan af peningum, á götunni og síðan var ég hundeltur af bandbrjáluðum manni með gítar. * „Afi, hver voru áhugamálin þín þegar þú varst ungur?“ „Það voru veiðar og konur.“ „Og hvað veiddir þú?“ „Konur.“ * Menn frá Öryggiseftirliti ríkisins komu inn á ónefnt verkstæði í höfuðborginni. Þeim fannst einn starfsmaðurinn fara heldur óvarlega með suðutæki. „Heyrðu vinur,“ sögðu þeir við hann.

* Hvað gerðu foreldrar þínir sér eiginlega til dundurs á kvöldin fyrir daga internetsins?“ „Það hef ég ekki hugmynd um og ég spurði öll 20 systkini mín að því sama og þau vissu það ekki heldur.“ * Faðir Jónasar lést. Eftir jarðarförina millifærði hann í netbankanum greiðslu til útfararþjónustunnar og taldi þá viðskiptunum við hana lokið. En mánuði síðar fékk Jónas greiðslukröfu frá útfararstofunni upp á tuttugu þúsund krónur. Þeim hefur

Árbæjarblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími 698-2844

sjálfsagt yfirsést eitthvað, hugsaði hann með sér, og greiddi kröfuna athugasemdalaust. Um næstu mánaðamót fékk Jónas svo aðra greiðslukröfu frá útfararstofunni upp á sömu upphæð. Þeim hefur sjálfsagt yfirsést eitthvað annað, hugsaði hann með sér, og greiddi þá kröfu líka. Þriðju mánaðamótin komu og Jónas fékk enn aðra tuttugu þúsund króna greiðslukröfuna frá útfararstofunni. Í þetta sinn ákvað hann að hringja þangað til þess að forvitnast um hvernig á þessu stæði. Hann sagði við útfararstjórann: „Ég greiddi fyrir jarðarför föður míns að fullu. Af hverju fæ ég samt alltaf mánaðarlega reikning frá ykkur?“ Útfararstjórinn svaraði: „Já, herra. En manstu þegar þú sagðir að þú vildir aðeins það besta fyrir föður þinn?“ „Já, ég man eftir því.“ „Jú, sko … við leigðum á hann smóking.“


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/18/2025 2:39 PM Page 22

22

Fréttir

Árbæjarblaðið

Handboltastrákar í Fylki 1974 Þetta er mynd frá 1974 af gömlu handboltaliði Fylkis úr yngri flokkum. Fimmti frá vinstri í efri röð er kraftajötuninn Jón Páll Sigmarsson heitinn. KGG

Skyndihappdrætti Líknarsjóðs Árbæjarsóknar Hvers þarfnast hver kirkjusöfnuður helst? Því er fljótsvarað. Öfluga leikmenn konur og karla. Löngum hafa verið öflugar konur haldið uppi starfi Árbæjarkirkju eða allt frá því að Kvenfélag og Líknarsjóður Kvenfélags Árbæjarsóknar var stofnað ekki löngu eftir að Árbæjarsöfnuður varð til. Árið 1991 var í fyrsta sinn haldið skyndihappdrætti á Kirkjudegi Árbæjarkirkju fyrsta sunnudag í aðventu og tókst það vel. Skyndihappdrætti Líknarsjóðsins er í dag langstærsti

vettvangur fjáröflunar sjóðsins sem í ár ber upp á 30. nóvmber. Dagurinn hefst með Sunnudagaskólanum kl.11.00 Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 í Árbæjarkirkju. Afrakstur sölu happadættisvininga rennur til bágstaddra í sókninni okkar. Hvetjum við ykkur sem þetta lesið að líta við og njóta tónlistar og samveru á fyrsta sunnudegi aðventunar og styrkja gott málefni. Viljum við þakka öllum þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem hafa styrkt hafa Líknarsjóðinn í gegnum árin.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 11/14/2025 9:27 PM Page 23

23

Fréttir

Árbæjarblaðið

Fréttamolar frá kirkjustarfinu - r

Helgihald í Árbæjarkirkju Annar sunnudagur í aðventu, 7. desember. Sunnudagaskólinn kl. 11.00. Mikill söngur og gleði. Aðventukvöld - kl. 17.00 Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum er stund fyrir alla fjölskylduna. Aðventuköld kl. 17 Ræðumaður:? Leikhópurinn Lotta með söngvasyrpu, Organisti: Guðmundur Sigurðsson Kór Árbæjarkirkju sýning/skemmtun fyrir alla fjölskylduna. syngur. Margrét Helga Kristjánsdóttir syngur Hátíðarmessa kl. 14.00 Prestar: séra Þór Hauksson og einsöng. Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Organisti leikur undir stjórn Önnu Sigurbjörnsdóttur. Guðmundur Sigurðsson. Kór Árbæjarkirkju syngur. Óbóleikari: Matthías Birgir Nardeau. 14. desember kl. 11.00 Harmóníukórinn syngur undir stjórn Sólveigar Þriðji sunnudagur í aðventu Sigurðardóttur. Jólafjölskyldustund í kirkjunni. Jólaball í Hátíðarkaffi og Líkanarsjóðshappdrætti kvenfélagsins safnaðarheimili kirkjunnar þangað sem kátir sveinar og sveinkur mæta með söng og gleði í safnaðarheimili kirkjunnar. og góðgæti í poka. Veglegir vinningar í boði. Fyrsti sunnudagur í aðventu 30. nóvember Kirkjudagur Árbæjarsafnaðar Sunnudagaskólinn kl. 11.00

Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is

Hrós

- eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn Stundum koma fallegustu orðin úr átt sem maður á síst von á. Þau kosta ekkert, taka eina sekúndu en geta breytt stemningunni heilan dag. Ég fékk mitt hrós á ólíklegum stað eða hvað? Sem leiðir hugann að því hvar og hvenær maður á von á hrósi í hnappagatið. Ég var á leiðinni heim frá kirkjunni nú nýverið, leiðin lá fram hjá skólalóð Árbæjarskóla. Börn að leik, lítil stúlka stóð á öðrum fæti ein innan við grindverk skólalóðarinnar og spurði mig hvort ég gæti ekki rétt henni stígvél hinum megin við grindverkið á göngustígnum þar sem ég átti leið um. Það var sjálfsagt að gera það. Ég var ofurlítið leiður að vita til þess að einhver hefði haft ánægju af að stríða stúlkunni. Hún brosti og þakkaði fyrir sig. Ég hélt för minni áfram, var á rólegri göngu, með hugann við slæmsku þessa heims og tilveru og birtingarmynd hennar. Út undan mér heyri ég hróp í hópi barna í leik með bolta. Tveir drengir standa þar hjá, uppteknir við sitt. Drengir á að giska í 1. bekk. Allt í einu kalla þeir á mig: „Heyrðu maður, þú ert með fallegt hár!“ Ég staldraði við, brosti til þeirra . „Takk kærlega,“ sagði ég. Þá spyr annar strákurinn, grafalvarlegur og einlægur eins og sex ára barn getur verið: „Kemurðu ekki aftur á morgun?“ Mér vafðist tunga um höfuð og sagði: „Alveg örugglega“ og hélt för minni áfram heim. Ekki laust við að það sem hafði hangið í huga mér stuttu áður um vonsku heimsins og hennar samansafnaða pakk vék á örskotsstundu fyrir athugasemd þessara ungu drengja. Það var sem sólin settist í fangið mitt. Sjálfhverfa mín sem stundum vill

eiga sviðið olli því að þegar heim var komið fór ég rakleiðis að speglinum á gestasalerninu því ég mátti engan tíma missa að athuga hvort þetta „fallega hár“ væri enn á sínum stað. Það var það, svona að mestu leyti því ég hef ekki hitt, hvað þá sjálfan mig, manneskju sem er ánægð/ánægður með hár sitt, að ekki sé talað um þau sem hárið hafa misst. Það þarf svo lítið til að gera daginn bjartari. Athugasemdir af litlum vörum geta gert kraftaverk fyrir stórt fólk, svona yfirleitt. Yfirleitt segi ég því; mér varð á um daginn eftir skírn að spyrja stóru systur skírnarþegans hversu gömul hún væri. Fjögra ára, sagði hún stolt með fjóra putta á lofti. Eins og segir í málshættinum: „Æ er skuld til gjalda.“ Sú stutta spurði mig prestinn: Hvað ert þú gamall? Hvað heldur þú að ég sé gamall, spurði ég? Sú stutta hugsaði sig um aðeins og sagði svo brosandi svo það sást að hún hafði misst eina tönn. 96 ára. Ég: „Takk.“ Þetta var smá útúrdúr. Snúum aftur að þessum ungu piltum með sína athugasemd. Við sem erum fullorðin frá ca. 18-96 ára erum fljót að gagnrýna, en stundum hæg í hrósi. Kannski af því við höldum að það þurfi sérstakt tilefni. Kannski bara af því við gleymum að segja það sem við hugsum. En þegar við segjum það, þegar við hrósum einlæglega, breytist eitthvað. Eins og ljós kveiknaði inni hjá báðum: þeim sem fær hrósið og þeim sem gefur það. Hrós er í raun einfaldasta gleðigjöf heims. Enginn þarf að panta það og sækja það eftir þrjá daga í næsta Droppbox eða borga fyrir það að fá pakkann heim að dyrum. Enginn þarf að bíða eftir því – maður bara segir það. Ég hef oft hugsað um þetta síðan ég rakst á

piltana tvo sem ekki voru uppteknir af skoppandi bolta. Ekki að ég sé upptekinn af mínu fallega hári. Ég er þó með hár en það geta ekki allir vinir mínir og kunningjar sagt. Hvað við höfum mörg tækifæri á dag til að segja eitthvað gott en látum þau oftar en ekki líða hjá. Það getur verið vinkona sem stendur sig vel, starfsfélagi sem reddar málum í þögn, eða jafnvel nágranni sem er komin út á stétt í fyrstu snjóum vetrarins og mokar heimreiðina óumbeðinn. Það er eitthvað fallegt við að hrósa í sínu eigin umhverfi þar sem fólk hittist í búðinni, á leikvelli, í gönguferð eða við Dropp-boxið. Þar sem við erum öll hluti af sömu litlu heild, sem stundum þurfum bara smá hlýju til að muna hversu gott það er að vera í hversdeginum. Ég hef hlerað manneskjur sem segja: „Það á ekki að hrósa of mikið, fólk verður bara montið.“ Ég held að við getum hrósað hundrað sinnum meira en við gerum og það yrði samt ekki of mikið. Hlý orð eru ekki eins og sælgætii, þau valda ekki sykurofgnótt. Þau eru meira eins og ferskt loft – það verður aldrei of mikið af því. Ég minnist þess þegar kennarinn minn í menntaskóla sagði: „Þú skrifar svo lifandi.“ Það var örstutt setning, en hún sat eftir og hefur fylgt mér alla tíð. Við vitum aldrei hvaða áhrif orð okkar geta haft. Það sem fyrir okkur er bara kurteisi eða augnablik, getur orðið upphaf að sjálfstrausti, von eða hlýju sem fylgir einhverjum árum saman. Svo ef þú lest þetta og hugsar: Ég gæti alveg hrósað einhverjum í dag, þá er svarið einfalt: Gerðu það. Kannski hittirðu einhvern á göngu, í búðinni eða við skólalóðina í vinnunni.

Kannski sérðu fallegt hár, eða fallega hegðun. Segðu það. Því hver veit? Kannski breytir þú deginum hjá einhverjum sem þú rekst á, á förnum vegi. Kannski hlær hann eða hún innra með sér seinna um kvöldið, eins og ég gerði, með bros á vör og hugurinn aðeins fallegri en hann var nokkru áður. Þór Hauksson sr. Þór Hauksson.

Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga kl. 12-16. Þangað eru allir fullorðnir velkomnir og þar er ýmislegt á dagskrá. Byrjað er með kyrrðarstund í kirkjunni, síðan er léttur hádegisverður á vægu verði (kr. 1500). Að því loknu er hin sívinsæla stólaleikfeimi og svo er spjallað eða einhver gestur mætir í heimsókn. Endað er á gómsætu síðdegiskaffi. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Helgihald hvern sunnudag kl.11.00 Annan sunnudag hvers mánaðar er Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00


GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 11/18/2025 11:14 AM Page 24

Jólapakki veiðimannsins á 40% afslætti

Innihald jólapakkans: Echo Lift einhenda 9 fet ‑ Echo Bravo LT fluguhjól ‑ Echo Bravo LT aukaspóla Echo flotlína ‑ 12 þekktar laxaflugur ‑ 12 þekktar silungaflugur Bókin Ofurlaxar ‑ og aðrir minni eftir Kristján Gíslason

Fullt verð á pakkanum er 101.620 krónur Jólapakkaverð 58.872 krónur með 40% afslætti Pantanir afgreiddar í síma 698‑2844 og 699‑1322


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Árbæjarblaðið 11. tbl. 2025 by Skrautás Ehf. - Issuu