ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2025 11:54 PM Page 1
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Árbæjarblaðið 10. tbl. 23. árg. 2025 október
Fréttablað íbúa í Árbæjarhverfi
Gatnamótin umdeildu við Höfðabakka og Bæjarháls.
Framkvæmdir án heimilda? - sjá bls. 2
Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477
www.bilavidgerdir.is
Þjónustuaðili
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2025 4:17 PM Page 2
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Leikur að öryggi borgarÁrbæjarblaðið búa við Höfðabakka tÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing.
Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti og Norðlingaholti.
Félagasamtök í USA meira virði en Ljósið Íslenskir stjórnmálamenn opinbera það oft þegar þeir komast til valda að þeir kunna ekki að fara með peninga. Fjölmargar undarlegar ákvarðanir undanfarin misseri færa rök fyrir þessari fullyrðingu. Hægt er að nefna mörg dæmi þessa en hér verða tiltekin nokkur dæmi. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Í fyrra greiddi ríkið tæpar 200 milljónir til Ljóssins í formi aukafjárframlags en 474 milljónir í heildina til Ljóssins. Nú hefur verið ákveðið að stroka þessa aukafjárveitingu út til Ljóssins og því verða þessi mikilvægu samtök fyrir þessari 200 milljóna skerðingu í ár. Á meðan þessar hörmungar ganga yfir Ljósið ákveður ríkisstjórn Íslands að gefa félagasamtökum í útlöndum himinháa upphæð í styrk. Tilkynnt hef-ur verið um 150 milljóna króna fjárstuðning Íslands við alþjóðleg félaga-samtök í New York. Þá er allt í einu til nóg af peningum og þessi forgangsröðun er algjörlega forkastanleg. Og ofan í kaupið er tilkynnt í fréttum að formaður þessara félagasamtaka sé með 40 milljónir í laun á ári. 3,4 milljónir á mánuði. Það skiptir sem sagt meira máli að styrkja félagasamtök í útlöndum en að hjálpa Íslendingum sem hafa orðið fyrir gríðarlegu áfalli í lífinu og eiga um sárt að binda þegar hinn íllvígi sjúkdómur krabbamein er annars vegar. Og svo er það Úkraína. Þangað senda íslenskir stjórnmálamenn tæpa 20 milljarða króna til stríðsreksturs samkvæmt fréttum sem hér birtast. Kannski ekki há upphæð enda nóg til af seðlum á Íslandi. Í þessum málum varð sprenging þegar núverndi ríkisstjórn tók við. Og þar fór Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, fremst í flokki og fer enn. Lokatölur kosninga varla birtar þegar hún var komin í faðm vina sinna í Evrópusambandinu og tilbúin að svíkja kosnngaloforðin á Íslandi. Á þeim tíma sem hún hefur verið við völd hefur hún varið miklum hluta hans erlendis, smjaðrandi fyrir erlendum stjórnmálamönnum og reynt að gera sig gildandi eins og væri hún fulltrúi stórþjóðar. Og ekki nóg um Úkraínu. Ríkisstjórn Þorgerðar Katrínar fannst ekki nóg komið varðandi Úkraínu. Þar sem að nóg er til af peningum á Íslandi ákvað ríkisstjórnin að henda 60 milljónum í stuðning við verkefnið ,,römpum upp Úkraínu.” Hvað eiginlega í veröldinni er það? Er það forgangsverkefni hjá íslenskum stjórnvöldum að styrkja þarfir hjólastólafólks í Úkraínu? Hefðu samtök fatlaðra á Íslandi ekki þegið þessa peninga? Eru 20 milljarðarnir í hernaðarbröltið ekki nóg? Þessar ákvarðanir sem nefndar eru hér eru dæmi um illa ígrundaðar og heimskulegar ákvarðanir. Og lengi væri hægt að halda áfram. Ekki var hún gáfuleg ákvörðunin hjá meirihlutanum í borginni varðandi gatnamótin við Höfðabakka og Bæjarháls. Þrengingarnar þar hafa hrikalegar afleiðingar á umferðina um gatnamótin og íbúar í úthverfunum sem þetta varðar eru yfir sig reiðir. Þessi framkoma gagnvart fólki gengur ekki. En hjá stjórnmálamönnum sem eru í heilögu stríði við einkabílinn er þetta bara allt í lagi. Og fólk hefur ekki séð mikið ennþá. Ef borgarlínan verður að veruleika á fyrst eftir að heyrast í fólki. Gatnakerfið í borginni er þegar sprungið og enn á eftir að taka margar akreinar úr notkun og þá fyrst byrjar ballið. Ekki er enn vitað hvað Borgarlínan mun kosta. Það veit enginn. Uppi eru getgátur og enginn veit hver eða hvernig á að greiða fyrir borgarlínuna. Hvernig hugsa stjórnmálamenn sem taka svona ákvarðanir? Líklega hugsa þeir bara ekki neitt. Eigum við ekki að skipta þessu fólki út? Það gerum við aðeins með því að kjósa það ekki í komandi kosningum. Stefán Kristjánsson
abl@skrautas.is
- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks
Umdeildar framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls hafa valdið miklum umferðartöfum og óánægju meðal borgarbúa. Þar voru fjarlægðir beygjuvasar, svokölluð framhjáhlaup hægri beygju, sem gera ökumönnum kleift að taka hægri beygju án þess að bíða á ljósi til að viðhalda eðlilegu flæði í umferðinni. Nú bendir allt til þess að breytingarnar hafi verið framkvæmdar án þess að fyrir lægju fjárheimildir til verksins. Kallar á athugun ráðuneytis sveitarstjórnarmála Til að bæta gráu ofan á svart var skýrsla verkfræðistofunnar Cowi, sem sýndi skýrt hvaða áhrif breytingarnar hefðu á umferð, ekki lögð fram þegar málið var tekið fyrir í skipulagsráði. Hún var skilgreind sem „vinnugagn“ og því haldið frá kjörnum fulltrúum minnihlutans. Hér er um alvarlegan trúnaðarbrest að ræða sem að mati undirritaðs kallar á athugun ráðuneytis sveitarstjórnarmála. Það er grafalvarlegt þegar upplýsingum sem varða öryggi og daglegt líf borgarbúa er haldið frá kjörnum fulltrúum minnihlutans í fjölskipuðu stjórnvaldi. Slíkt vinnulag brýtur gegn öllum meginreglum um gagnsæi og ábyrgð í stjórnsýslu. Óskað eftir áliti borgarlögmanns Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn hefur óskað eftir áliti borgarlögmanns á því hvort ráðist hafi verið í framkvæmdirnar án lögmætra heimilda og hvaða afleiðingar það kann að hafa. Samkvæmt gögnum sem borist hafa var einungis veitt heimild til að endurnýja umferðarljósastýringar á gatnamótunum, en ekki til að fjarlægja beygjuvasa eða breyta gatnamótunum sjálfum. Þrátt fyrir það var ráðist í verkið, sem hefur aukið tafir og skapað glundroða í umferðinni. Ábendingar um öryggi hundsaðar Skammt frá gatnamótunum er staðsett slökkvistöð höfuðborgarsvæðisins sem þjónar eystri byggðum, m.a. Árbæ, Grafarvogi og Breiðholtinu. Þrengingar þessar geta haft áhrif á viðbragðstíma slökkviliðsins og þar með á öryggi borgarbúa. Slíkar breytingar hefðu átt að sæta ítarlegri greiningu og formlegri afgreiðslu áður en ráðist var í verkið. Undirritaður gerði formanni skipulagsráðs og oddvita Flokks fólksins grein fyrir þessum áhyggjum á sínum tíma, en á það var ekki hlustað. Ef fjárheimildir hafa skort er hér um að ræða sambærilegt mál og svonefnt
tafir, en sú niðurstaða var ekki kynnt borgarfulltrúum minnihlutans. Að velja útfærslu sem eykur tafir, sérstaklega þar sem slökkvistöð er skammt frá gatnamótunum, sýnir skort á faglegri forgangsröðun.
Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. braggamál, þar sem framkvæmdum var hrundið af stað án samþykkta. Slíkt vinnulag brýtur gegn reglum um góða stjórnsýslu og grefur undan trausti borgarbúa. Málið þarfnast skoðunar af hálfu innri endurskoðunar og öðrum viðeigandi eftirlitsaðilum. Greining sýndi auknar tafir Í skýrslu verkfræðistofunnar Cowi kemur fram að breytingarnar myndu valda allt að 240 metra biðröðum síðdegis og 80 metra biðröðum að morgni. Sviðsmynd þar sem hægri beygjur héldust sýndi helmingi minni
Krafan um gagnsæi og ábyrgð Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn krefst þess að upplýst verði hvort heimildir hafi verið til staðar þegar framkvæmdirnar hófust, hvernig kostnaði var háttað og hvort fullt tillit hafi verið tekið til öryggissjónarmiða. Að mati undirritaðs þurfa viðeigandi eftirlitsaðilar, ráðuneytið, innri endurskoðun Reykjavíkurborgar og Umboðsmaður Alþingis, að skoða málið í heild sinni, enda hefur framkvæmdin bein áhrif á öryggi og lífsgæði borgarbúa. Svo virðist sem ráðist hafi verið í verkið án fjárheimilda og lykilgögnum var haldið frá kjörnum fulltrúum við ákvarðanatöku. Stjórnsýslan í málinu kallar því á athugun allra þessara aðila, enda er það hlutverk þeirra að tryggja rétt borgarbúa og gæta þess að stjórnsýslan sé fagleg og sanngjörn. Það er óásættanlegt að ráðist sé í framkvæmdir af þessu tagi án heimilda og án þess að kjörnum fulltrúum sé gerð grein fyrir forsendum þeirra. Borgin verður að sýna ábyrgð, virða stjórnsýslulega ferla og endurheimta traust borgarbúa á faglegri og gagnsærri stjórnsýslu. Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
Gatnamótin umdeildu við Höfðabakka og Bæjarháls.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/8/2025 10:12 PM Page 3
! 987 6594434217 40-,+ ++14+386*)(17 ' %9,$#3*'$7 "9(7 4! '"3 9+ "7 '-!( "7 + 83"!86$3834217 6 3(69 414+ 7 , ,86 17 34+144 3"38144 7 -0( ( 87 # -89, 387 '-!(187 ,818 9146 3$ 14+37 +7 # 6$, 2 8 9 7"9(79146 $ 7! 6041 , 187 - 8+1437 +7 6 38 3+7 '7 *9 96 8 7 *)(1( 63"914387 8 -) )837 # 4 6 7 + ( (387 + 4+ 91(18 +7 6 98$37 94+14+ 7 *1(7 - 8+143 7 8,++( 7 8 91"1 17 7 9666 7 9 186 37 6*)(1 7 # 818 6 1+3+34+387 3873 791447 ,8187 7 8837 +79 281
*1(7 18 1 $# 63427 987 40 7 # -0 16 !67 7 )( "7 "9(7 6$# + ( "7 144+38(17 + 63"91+14 9+ "7 3$+38(1 7 69"7 -0( 887 557 7 4 3 9+ ! 60417 +7 2088") 387 6 42187 342,837 7 ' "1(-)4 "7 6# " 7 -!(184387 98 7 # -89, 387 3( 6 )8(7 +7 6$15 3 3+1 7 3 387 "9(7 + 1 3 7 * 42 ( " 1448 14+ "7 +7 6* "7 9(37 6 83 3 4 3 9 1 7 8 ! 814+ 87 !6614 467 987 "9(7 6*3 3 $$ 47 69"7 6 946 '6 946$7 6$1 ,8(17 + +7 417 6 ( 3 7 67 *98(37 -' 36 )(1 ,8187 )5 9+37 7 -1 891(387 '7 63"91+14 9+81 -' 3+9,"6 7 42187 6*)(14 7 387 69"7 3 (*9 3(+94+17 *98( 87 3( 3 7 83 9(6 6 (* " 7 , 87 98 7 ' "76 1+3+ 4+ "
!
!
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/8/2025 10:13 PM Page 4
4
Mataruppskriftir
Árbæjarblaðið
Haustsúpa er snilldarmatur - frábær réttur sem vert er að prófa Mer finnst alveg upplagt að birta hér uppskrift af góðri súpu þar sem þær eru svo mikill snilldarmatur, hollar og góðar og ljúft að fá ser heita suúu þegar haustlægðirnar fara að detta inn hver af annarri. Dásamleg Haustsúpa toppuð með ristuðum fræjum: Innihald: 1-2 msk. Ólífuolía. 1 laukur (smátt saxaður). 2–3 hvítlauksrif (pressuð eða söxuð). 2 gulrætur (sneiddar smátt). 1 meðalstór sæt kartafla (í litlum bitum). 1 dós niðursoðnir tómatar (eða 2 ferskir, skornir). 1 msk. fersk basilika (smátt söxuð). 1 msk. fersk steinselja (smátt söxuð). 1 tsk. þurrkað timjan. 1 dós hvítar baunir eða linsubaunir (valfrjálst). 1 lítri grænmetissoð (eða vatn + kraftur).
Salt og pipar eftir smekk. Handfylli af spínati eða grænkáli (í lokin). Leiðbeiningar: Hitið ólífuolíu í potti og steikið lauk og hvítlauk í um 2 mínútur eða þar til laukurinn er orðin glær. Bætið við gulrótum og sætri kartöflu, steikið í aðrar 2–3 mínútur. Hellið tómötum, grænmetissoði, kollageni út í, ásamt linsubaununum ( ef þær eru ósoðnar). Láta sjóða í 15–20 mínútur, eða þar til grænmetið er mjúkt og baunirnar soðnar. Ef þú notar soðnar tilbúnar baunir bætið þeim þá út í, í lokin ásamt ferskum kryddjurtum og spínati. Smakkið til með salti og pipar. ⸻ Borið fram með: Ristuðum graskers og sólblómafræjum ( hitið á meðalhita á pönnu í um 5 mínútur, hrærið reglulega í. Haustsúpan er sannkölluð snilld og um að gera að prófa.
- Gæðin skipta máli -
Máta t ðu í verslun unum u okkar k Sæktu u á Kefl f av fla víkurffllugvelli Kringlan Glæsibær G Grrand dii Spöngin Keflavíkurfl efflav ku fllu ugv vö ölllu ur wwwey ww ww w..ey ye esland.is
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).
GV 2020_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 5/2/2025 6:39 PM Page 7
Stærrðin skiptir ek kki máli
Breiðhöfða 13
Á Nesdekki Brreiðhöf iðhöfða ð 13 finnur þú eitt fullkomnasta hjólbarðaverkstæ æði landsins þar sem fag gmenn okkar þjónusta b bíla af öllum stærðum og gerðum. Bókaðu tíma á nesdekk.is
Skannaðu QR kóðann til að bóka tíma á netinu
Skoðaðu u úrvalið o og bókaðu tíma í dekkjas skipti á ne esdekk.is Breiðhöfði 13
110 Reykjavík 590 2080
Stæ ærðin skiptir ekki máli á Breiðhöfffð ða 13.
nesdekk.iis / 561 4200
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2025 1:26 PM Page 6
6
Fréttir
Árbæjarblaðið
Reykjavíkurborg er í baráttu gegn notkun nagladekkja í borginni.
Markmið borgarinnar að fækka nagladekkjum
VISSIR ÞÚ?
AÐ KEILA ER LEIKIN AF 120.000.000 MANNS Í YFIR 90 LÖNDUM. KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
Reykjavíkurborg hefur sett sér metnaðarfull markmið til næstu ára um að bæta loftgæði í borginni og vill hvetja íbúa til að taka þátt í þeirri vegferð. Eitt af fyrstu og mikilvægustu skrefunum er að draga verulega úr notkun nagladekkja, sem spilar stóran þátt í slæmum loftgæðum, sérstaklega yfir vetrartímann. Nú á næstu vikum flykkjast borgarbúar með bíla sína á dekkjaverkstæði til að undirbúa sig fyrir veturinn, en mikilvægt er að vanda valið á dekkjum.
miklar framfarir í dekkjaframleiðslu og þá sérstaklega á vetrardekkjum án nagla. Naglar í dekkjum hjálpa ekki til við akstur í snjó heldur aðeins við ákveðin skilyrði við ísingu á götum. Utan við svifryksmyndun og slæm loftgæði, valda nagladekk miklu sliti á götum sem eykur viðhald og kostnað. Dekkin stórauka umferðarhávaða og auka þannig ónæði fyrir íbúa. Þá eyða bílar á nagladekkjum meira eldsneyti. Þess vegna mælir Reykjavíkurborg frekar með góðum ónegldum dekkjum undir borgarbílinn.
Slæm áhrif nagladekkja á loftgæði Nagladekk, sem eru algeng yfir vetrarmánuðina, valda miklu sliti á malbiki sem leiðir til losunar svifryks í andrúmsloftið. Svifryk, fínar agnir sem myndast við slíkt slit, hafa bein áhrif á loftgæði og heilsu borgarbúa, sérstaklega þeirra sem þjást af öndunarfærasjúkdómum. Á undanförnum árum hefur bílum á götum borgarinnar fjölgað og loftgæði í Reykjavík versnað umtalsvert þegar notkun nagladekkja er mest, og því er mikilvægt að leita lausna.
Aðrar aðgerðir til að bæta loftgæði Hlutfall nagladekkja á götum borgarinnar spilar stóran þátt í slæmum loftgæðum. Hins vegar hefur Reykjavíkurborg innleitt fjölmargar aðrar aðgerðir til að ná fram markmiðum sínum um betri loftgæði, t.d. aðgerðir til að minnka útblástur, auknir innviðir fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur, uppsetningu loftgæðamæla o.fl. Markmið Reykjavíkurborgar er að fækka nagladekkjum í umferðinni og bæta loftgæði til frambúðar með fjölbreyttum aðgerðum. Með þátttöku íbúa vonast borgin til að skapa hreinna og heilnæmara umhverfi fyrir öll.
Vissir þú að naglar hjálpa ekki í snjó? Á undanförnum árum hafa orðið
Laugarnar í Reykjavík
Heilsurækt
Opnum snemma
Slökun
Fjör
Leikur
Lokum seint
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/9/2025 11:23 PM Page 7
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2025 11:17 AM Page 8
8
Fréttir
Árbæjarblaðið
!
Björn Gíslason með viðurkenninguna fyrir miðri mynd.
Árbæjarblaðið Björn Gíslason hlýtur viðurkenningu RÍSÍ Ritstjórn og auglýsingar Sími 698-2844 / 699-1322
Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) veitti Birni Gíslasyni, formanni Fylkis og borgarfulltrúa, sérstaka viðurkenningu á Skjálfta í gær fyrir óeigingjarnt og ómetanlegt framlag hans til uppbyggingar rafíþrótta á Íslandi. Viðurkenningin, sem ber heitið Hvatningarverðlaun Rafíþróttasambands Íslands, var afhent í fyrsta skipti við hátíðlega athöfn á Skjálfta af
Willum Þór Þórssyni forseta Íþróttaog Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Kára Björnssyni formanni RÍSÍ og Ólafi Hrafni Steinarssyni, stofnanda og fyrrverandi formanni sambandsins. „Með þessari viðurkenningu viljum við heiðra ómetanlegt framlag Björns við að efla samfélag rafíþrótta á Íslandi, skapa jákvæðar fyrirmyndir og stuðla að áframhaldandi vexti og
viðgangi greinarinnar,“ segir Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands. Skjálfti, sem hefur verið lykilviðburður í íslensku rafíþróttalífi í rúmlega tvo áratugi, var fyrst haldinn árið 1998 og hefur frá þeim tíma skapað heila kynslóð metnaðarfullra leikmanna. Alls tóku um fjögur hundruð leikmenn þátt í mótinu.
Íslensk Hönnun Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar á www.Krafla.is (698-2844)
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/8/2025 10:17 PM Page 7
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/9/2025 11:08 PM Page 10
10
Fréttir
Árbæjarblaðið
Rebbi fékk að sjálfsögðu pylsu hjá Magga kirkjuverði.
Verðandi fermingarbörn í Árbæjarkirkju 2026, Anna Katrín Guðmundsdóttir, Hanna Rún Einarsdóttir og Elísabet Emma Björnsdóttir.
Kátt í kirkjunni
Þegar skammdegið leynist í nágrenninu og haustið er handan við hornið er fátt meira skemmtilegt og gefandi en skella sér í fjölskyldumessu í Árbæjarkirkju. Þetta var fyrsta fjölskyldumessan í kirkjunni og greinilegt að allir skemmtu sér mjög vel. Messur þessar eru vinsælar en alls mætti á annað hundrað manns í
messuna. Þetta var sem sagt skemmtileg og vel sótt fjölskyldumessa sunnudaginn 14. september.
Ljósmyndir Katrín J. Björgvinsdóttir Leikhópurinn Lotta kíkti við. Aldís og sr. Þór Hauksson sóknarprestur sáu
Konni hafði nóg að gera að græja pylsur fyrir kirkjugesti.
um stundina ásamt Aðalheiði á flyglinum. Maggi kirkjuvörður og Konni sóknarnefndarformaður fóru á kostum á grillinu. Takk fyrir þið öll sem komuð og áttu skemmtilega fjölskyldustund.
Rikka fannst gott að fá sér pylsu og djús með afa sínum eftir messu.
Það var mikil ánægja þegar leikhópurinn Lotta kíkti við.
VISSIR ÞÚ?
Úlfurinn og grísirnn fóru á kostum.
AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00 Það er gott að vera í ömmufangi að horfa á Rauðhettu og Úlfinn.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/9/2025 11:16 PM Page 11
LóðaLóð mörk
Lágmark 2,80 m
Stétt/stígur
Lágmark 42 4,2 20 m
Akbraut
ðaLágmark Lóð mörrk 2,80 m
Stétt/stígur
Hugum m að gróðrri við ið lóðarmörk lóð k Trjágróður og runnar sem vaxa út fyrir lóðarmörk geta skapað óþægindi fyrir vegfarendur. Umferðarmerki eiga að sjást vel og gróður má ekki byrgja götulýsingu. Gæta þarf að lágmarkshæð trjágróðurs og runna þar sem vélsópar, snjóruðningstæki og sorphirðubílar þurfa að fara um. Hugsum út fyrir garðinn svo leiðin sé greið allt árið!
Nánari upplýsingar á reykjavik.is/trjagrodur
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/11/2025 4:29 PM Page 12
12
Fréttir
Árbæjarblaðið
Glundroði á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls - eftir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Gatnamótin umdeildu við Höfðabakka og Bæjarháls.
Þrenging gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls sýnir að vinstri meirihlutinn í borgarstjórn hefur ekki gleymt eystri hverfum borgarinnar eins og margir héldu. Við endurhönnun gatnamóta á Höfðabakka gafst tækifæri til að þrengja að umferð, sem vinstri meirihlutinn gat ekki látið ónotað. Þrengingin hefur í för með sér umferðaröngþveiti á gatnamótunum og stórauknar umferðartafir á stóru svæði í austurhluta borgarinnar, ekki síst á umferð til og frá Árbæjarhverfum og Grafarvogi. Umrædd lokun tveggja beygjuakreina á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 26. marz sl. Þar lögðumst við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eindregið gegn þrengingunni og bentum á að hún drægi úr umferðarflæði og ylli óþarfa töfum á umferð. Um leið og beygjuakreinunum var lokað, jukust umferðartafir gífurlega á gatnamótunum. Í ljósi þess lagði ég til um miðjan ágúst að hætt yrði við þrengingu gatnamótanna og umræddar beygjuakreinar yrðu látnar halda sér. Borgarfulltrúar meirihlutans, Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins og Flokks fólksins, felldu tillöguna á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 3. september sl. Ekkert samráð við íbúa Ráðist var í þrengingu gatnamótanna án samráðs við ýmsa aðila, sem hún
hefur neikvæð áhrif á. Ekki var t.d. haft samráð við Íbúasamtök Árbæjar þrátt fyrir að ljóst væri að breytingin hefði mikil áhrif á íbúa hverfisins. Ekki var heldur haft samráð við slökkviliðið þrátt fyrir að það starfræki slökkvistöð skammt frá gatnamótunum og sendi oft
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. bifreiðar í neyðarakstri um þau. Þá var hvorki haft samráð við atvinnufyrirtæki í Hálsahverfi né Strætó bs. um þrenginguna. Gögnum haldið leyndum Komið hefur í ljós að í aðdraganda breytinganna fékk Reykjavíkurborg verkfræðistofuna Cowi til að greina áhrif mismunandi útfærslna á
gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls. Cowi skilaði skýrslu um málið í desember 2024 en þar kom skýrt fram að lokun beygjuakreina myndi lengja bílaraðir og valda stórauknum umferðartöfum á gatnamótunum. Augljóst er að greining Cowi var lykilgagn við að meta afleiðingar hugsanlegra breytinga á gatnamótin. Þrátt fyrir það var þessi greining ekki kynnt fyrir kjörnum fulltrúum í umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar þegar ákvörðun var tekin um þrenginguna. Var greiningin ekki kynnt í ráðinu fyrr en í september, þegar framkvæmdum við þrenginguna var nánast lokið. Slík stjórnsýsla er auðvitað afleit. Umferðartafaskattur vinstri flokkanna Ætla má að árlegur kostnaður einstaklinga vegna umferðartafa á höfuðborgarsvæðinu sé ekki undir sjötíu milljörðum króna en að þjóðhagslegur kostnaður sé mun hærri. Stærstur hluti þessa kostnaðar er óþarfur þar sem hann er til kominn vegna aðgerða eða aðgerðaleysis borgaryfirvalda. Slíkur kostnaður er því viðbótarskattur á borgarbúa, sem leggst þyngst á íbúa í eystri byggðum og þá ekki síst á íbúa í Árbæjarhverfum. Ljóst er að vinstri meirihlutinn í borgarstjórn hefur hækkað þennan umferðartafaskatt verulega með þrengingu gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls.
Árbæjarblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími 698-2844 / 699-1322
Tólf spor – Andlegt ferðalag
Tólf sporin – Andlegt ferðalag í Mosfellsbæ í vetur. Síðasti opni sporafundur vetrarins verður 22. október kl. 19.30. í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, Eftir það verða fundir og hið eiginlega sporastraf hefst. Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig.
Garðeigendur bera ábyrgð á sínum gróðri Eftir því sem dagarnir styttast og veturinn nálgast er rétt að minna á ábyrgð garðeigenda á gróðri við lóðamörk. Með góðu viðhaldi tryggjum við að gróðurinn prýði en valdi ekki hindrunum eða hættu á götum og stígum. Samkvæmt byggingareglugerð þurfa garðeigendur að halda gróðri innan lóðarmarka. Þar segir „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin
svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“ Helstu reglur varðandi gróður á lóðarmörkum eru: • Gróðurinn má ekki gera umferðarmerki minna sýnileg né skyggja á götulýsingu
lágmarkshæð gróðurs yfir stígum vera 2,80 metrar • Á akbraut (og þar sem sorphirða, slökkvilið eða sjúkrabílar fara), má gróður ekki vera lægri en 4,20 metrar
• Gangandi og hjólandi þurfa að eiga greiða leið um göngustíga
Íbúar Reykjavíkur eru beðnir um að fara yfir trjá- og runnavöxt á lóðinni sinni og athuga hvort greinar eða gróður fari yfir gangstéttar, götulýsingu eða umferðarmerki.
• Þar sem snjóruðningstæki
vélsópar fara um,
eða skal
• Hávaxnar trjátegundir má ekki planta nær lóðamörkum aðliggjandi lóða en 3,00 metrar.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/11/2025 4:57 PM Page 13
13
Fréttir
Árbæjarblaðið Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi:
Leikföng á barnadeild LSH.
Stórtónleikar í Grafarvogskirkju 13. nóvember Fimmtudaginn 13. nóvember verða tuttugustu og fyrstu árlegu stórtónleikar Lionsklúbbsins Fjörgynjar í Grafarvogskirkju. Tónleikarnir hefjast klukkan 19:30. Gegnum árin hafa landskunnir tónlistarmenn komið fram og hafa þeir ávallt gefið sína vinnu og gert tónleikana að veruleika öll þessi ár.
Unnið við fyrstu áhorfendasvæði við Fjölnisvöllinn.
Unnið við skátaheimili Vogabúa.
Meðal flytjenda í ár eru Baggalútur sem eiga ekki ófáa smelli undanfarin ár, Emmsjé Gauti sem fer ekki með neina Klisju, Páll Rósinkranz, Greta Salóme tekur nokkur lög, stórtenórinn Gissur Páll tekur nokkur lög, Guðrún Árný stýrir m.a. fjöldasöng að sínum hætti. Kristján Kristjánsson (KK) mætir með kassagítarinn, Guðrún Gunnarsdóttir sem hefur glatt marga með söng sínum og Þór Breiðfjörð er gæti mögulega tekið söngleikjalög. Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti Grafarvogs-kirkju, annast undirleik. Hún mun væntanlega bæði grípa í flygil kirkjunnar og hið frábæra orgel kirkjunnar. Felix Bergsson verður kynnir á tónleikunum. Að vanda mun Lionsklúbburinn Fold vera með veitingasölu til styrktar
sínum líknarsjóði. Fold hefur m.a. styrkt Konukot. Í 35 ára sögu Fjörgynjar hafa margir aðilar notið stuðnings gegnum fé sem safnast hefur á stórtónleikum Fjörgynjar. Brot úr sögu Fjörgynjar Frá stofnun klúbbsins 1990 hefur aðaláhersla verið stuðningur við æsku landsins. Fyrstu árin voru verkefnin bundin við Grafarvog. M.a. Skátafélagið Vogabúar, Skólahljómsveit Grafarvogs, Foldaskóli og Fjölnir. Klúbburinn vann einnig fjölmörg verk við byggingu Grafarvogskirkju. Lagði parket og flísar í kjallara, innréttaði fundaraðstöðu á 2. hæð sem kallaður var Lionssalurinn, en þar hélt Fjörgyn félagsfundi sína um margra ára skeið. Salurinn var m.a. einnig notaður fyrir fermingarfræðslu, en nýtist í dag sem skrifstofa og fundarsalur. Upp úr 1995 beindi klúbburinn verkefnum sínum meira að Barnaspítala Hringsins (BH) með ýmsum tækjagjöfum. Á meðfylgjandi myndum eru dæmi um búnað sem Fjörgyn hefur afhent spítalanum Frá 2003 hefur klúbburinn aðallega
stutt við BUGL (barna- og unglingageðdeild LSH). Klúbburinn hefur gefið margvíslegan búnað sem nýtist í starfi á BUGL og fjármagnað bíla sem notaðir eru til að þjónusta skjólstæðinga BUGL. Síðastliðið sumar veitti klúbburinn 4 milljón króna styrk til kaupa á nýrri bifreið til afnota fyrir meðferðarteymi á BUGL. Fjölmargir aðrir aðilar hafa notið stuðnings frá klúbbnum m.a. Ljósið, Stuðlar, Eir, SPOEX, Umhyggja, Dropinn, Blindrafélagið, Sólheimar, Kraftur, o.fl. Þá hefur Fjörgyn í samstarfi við Grafarvogkirkju og Íslensku Kristskirkjuna tekið þátt í matargjöfum til fjölskyldna í Grafarvogi allt frá árinu 1991. Án stuðnings fjölmargra styrktaraðila þar á meðal ykkar lesendur góðir væri þetta ekki mögulegt. Sjáumst nóvember 19:30.
á tónleikunum 13. næstkomandi klukkan
Fyrir hönd félaga í Lionsklúbbnum Fjörgyn, Þór Steinarsson
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/10/2025 3:19 PM Page 14
14
Fréttir
Árbæjarblaðið
Hermann Erlingsson, Hörður Guðjonsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Ragnar Grétarsson, Guðmundur Figfússon og Kristinn Óli Hallsson.
Síldarveisla
Í síðasta blaði birtum við myndir frá Síldarveislu Fylkis sem haldin var með pompi og prakt fyrir síðasta heimaleik Fylkis í Lengjudeildinni. Viðburður sem hefur verið fastur liður í starfi félagsins til fjölda ára. Hér birtum við fleiri myndir frá veislunni. Síldarveislan er kærkomið tækifæri fyrir félagsmenn og stuðningsfólk til að
koma saman, spjalla og njóta góðra veitinga áður en flautað er til leiks. Í ár var frábær stemning og fjölmenni, en yfir 100 manns mættu til
Ljósmyndir Katrín J. Björgvinsdóttir að taka þátt í gleðinni. Gestir gæddu sér á síld og meðlæti í félagsheimilinu og
Elsa Jakobsdóttir og Jakob Örn Heiðarsson.
nutu samverunnar. Að þessu sinni kom Arnar Grétarsson, fyrrverandi landsliðsmaður og núverandi þjálfari, í heimsókn fyrir leik Fylkis og Völsungs. Hann ræddi leikinn, gaf innsýn í stöðuna í liðinu og tilkynnti byrjunarlið leiksins fyrir stuðningsmenn sem skapaði einstaka stemningu fyrir leikinn.
Valur Ragnarsson og Björn Gíslason í góðum gír.
Tómas Kristinsson, Björn Árni Ágústsson og Smári Björgvinsson.
Jón Þór Júlíusson, Júlíus Þór Jónsson og Helga Hrund Guðmundsdóttir.
Óðinn Ari Guðmundsson og Ólafur Bjrgvin Pétursson.
Arnar Grétarsson nýji aðalþjálfarinn hjá meistaraflokki karla fór yfir stöðu liðsins.
Mæðginin Rún Rafnsdóttir og Sigurður Þór Reynisson, nýr aðalþjálfari hjá meistaraflokki kvenna.
VISSIR ÞÚ?
AÐ KEILA ER LEIKIN AF 120.000.000 MANNS Í YFIR 90 LÖNDUM. KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
Vinirnir Þorvaldur Árnason, Kjartan Daníelsson og Hermann Erlingsson.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/10/2025 3:21 PM Page 15
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/11/2025 4:17 PM Page 16
16
Fréttir
Árbæjarblaðið
Fiskréttir dagsins
Fiskverslunin í Spönginni breytist fljótlega í Aldan fisk & sælkeraverslun.
Aldan fisk & sælkeraverslun opnar á næstunni í Spönginni
Fiskverslunin í Spönginni, gengur nú í gegnum breytingar, en verslunarstjórinn Páll Pálsson hefur nú alfarið tekið við rekstrinum. Ný verslun tekur við í Spönginni og mun hún bera nafnið – Aldan fisk & sælkeraverslun. Að sögn Páls er markmiðið að endur-
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .
V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N
Stíf tífluþ luþjón ónusta usta ramynd yndir Röra Dælubíll VALUR HELGASON stifla.is | 896 1100
nýja og efla verslunina með áherslu á gæði, ferskleika og framúrskarandi þjónustu.
Undirbúningur stendur nú yfir og verður verslun Öldunnar opnuð með breyttu sniði á næstunni.
„Við ætlum að byggja ofan á gamla hefð og gera verslunina enn betri. Við viljum að Aldan verði staður þar sem fólk kemur ekki bara til að kaupa fisk, heldur líka til að njóta góðrar þjónustu og fá innblástur í eldhúsinu.“
Páll býður alla viðskiptavini, nýja sem gamla, hjartanlega velkomna og hlakkar til að taka á móti bæjarbúum í nýrri og endurbættri verslun í Spönginni 13.
Körfuleiðrétting Í Árbæjarblaðinu í september var sagt að Fylkir sé í dag í fyrsta skipti í næstefstu deild karla í körfubolta. Þetta er einfaldlega rangt. ,,Þetta er rangt þar sem ég lék með Fylki í næstefstudeild tímabilið 1998-1999. Við sögðum okkur úr keppni en eftir fund með KKÍ var ákveðið að við myndum klára tímabilið og svo hætta með körfubolta í Fylki,” sagði Sigurgeir Sigurpálsson fyrrverandi formaður Körfuknattleiksdeildar Fylkis og leikmaður liðsins í samtali við Árbæjarblaðið. Við erum fylgjendur því sem sannara reynist og biðjumst velvirðingar á mistökunum. Hér til hægri er gömul Morgunblaðsfrétt þar sem rætt er um körfuboltann í Fylki árið 1999.
Garðeigendur bera ábyrgð á sínum gróðri Eftir því sem dagarnir styttast og veturinn nálgast er rétt að minna á ábyrgð garðeigenda á gróðri við lóðamörk. Með góðu viðhaldi tryggjum við að gróðurinn prýði en valdi ekki hindrunum eða hættu á götum og stígum. Samkvæmt byggingareglugerð þurfa garðeigendur að halda gróðri innan lóðarmarka. Þar segir „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni
svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“ Helstu reglur varðandi gróður á lóðarmörkum eru: • Gróðurinn má ekki gera umferðarmerki minna sýnileg né skyggja á götulýsingu • Gangandi og hjólandi þurfa að eiga greiða leið um göngustíga • Þar sem vélsópar eða snjóruðningstæki fara um, skal lágmarkshæð gróðurs yfir stígum vera 2,80 metrar
• Á akbraut (og þar sem sorphirða, slökkvilið eða sjúkrabílar fara), má gróður ekki vera lægri en 4,20 metrar • Hávaxnar trjátegundir má ekki planta nær lóðamörkum aðliggjandi lóða en 3,00 metrar. Íbúar Reykjavíkur eru beðnir um að fara yfir trjá- og runnavöxt á lóðinni sinni og athuga hvort greinar eða gróður fari yfir gangstéttar, götulýsingu eða umferðarmerki. Saman tryggjum við öryggi vegfarenda og gott borgarumhverfi!
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/10/2025 3:24 PM Page 17
17
Fréttir
Árbæjarblaðið
Eitt hundrað álteppi Á dögunum færði foreldrafélag Heiðarborgar leikskólanum 100 álteppi að gjöf. Forsagan að gjöfinni er að á vormánuðum hafði eitt foreldri samband við leikskólastjóra með áhyggjur af því hvernig hægt væri að halda hita á börnunum ef hópurinn þyrfti að yfirgefa leikskólann í
snarhasti og úti væri nístingskuldi. Ýmsar hugmyndir kviknuðu en að endingu var sú ákvörðun tekin að best væri að eiga neyðarkassa með álteppum sem hægt væri að vefja utan um börnin ef við lentum í slíkum aðstæðum, sem við vonandi gerum aldrei. Foreldrafélagið steig inn í
verkefnið í tilefni af 35 ára afmæli Heiðarborgar í júní síðastliðnum og núna fara kassar með þessum neyðarbyrgðum á sinn ákveðna stað þar sem auðvelt verður að nálgast þá ef neyð ber að garði. Takk kærlega fyrir okkur. (Frétt frá Heiðarborg)
Stjórn foreldrafélagsins afhendir leikskólastjóra gjöfina. Talið frá vinstri: Lára Ósk Eggertsdóttir Claessen, Bjarni Þór Árnason með son sinn Róbert Kára, Súsan Ósk Scheving Thorsteinsson, leikskólastjórinn Jóhanna Benný Hannesdóttir og Arnar Már Örlygsson.
Álteppin komin í kassana.
Árbæjarblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími 698-2844
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/11/2025 9:01 PM Page 18
18
Fréttir
Árbæjarblaðið
Í Metabolic verður venjulegt fólk að hversdagshetjum er Reykjavík Metabolic hóptímaæfingastöð þar sem venjulegt fólk verður að hversdagshetjum. Okkar ástríða er að hjálpa uppteknu nútímafólki að koma markvissri hreyfingu inn í daglegt líf án öfga eða átaksnámskeiða. Við elskum að sjá fólk verða smám saman sterkara, hraðara og úthaldsmeira og við vitum að þessi líkamlegi styrkur þeirra smitar jákvætt frá sér inn í öll önnur hólf daglegs lífs. Hjá okkur er barnahorn, sem er mikið notað, en börnin geta fylgst með foreldrum sínum æfa úr sófanum og við viljum alltaf ýta undir gott heilsuuppeldi. Þegar börnin eru orðin nógu gömul geta þau svo komið með mömmu og pabba á æfingarnar.
Hefðbundin æfingatafla eru 20 hóptímar á viku, fyrir utan að iðkendur geta komið á eigin tíma inn í sal á milli hóptíma. Þess utan eru 24 POP UP tímar yfir mánuðinn með athyglisverðu og góðu efni sem tengist æfingunum okkar og styður við heilbrigða nálgun á hreyfingu. Í þessum mánuði eru á dagskrá hjá okkur tækninámskeið í lyftingum, sérstök hjólaæfinga-helgi á assault hjólum, og í lok mánaðar er mobility og endurheimt. Þetta allt ásamt öðrum þemadögum eins og Bleika deginum þar sem við mætum öll í bleikum fatnaði og Hrekkjavöku, en þá ætlum við að vera með eitthvað skemmtilega hryllilegt þema. (Frétt frá Metabolic)
3. flokkur karla 2015 Gamla myndin að þessu sinni sýnir fjölmennan og brosmildan leikmannahóp 3. flokks karla sumarið 2015. Þjálfarar flokksins þetta ár voru þeir Jón Steindór Þorsteinsson og Kristján Gylfi Guðmundsson. Mynd: Einar Ásgeirsson KGG
Beðið um stuðning vegna lyftu í Árbæjarkirkju Hefðbundin æfingatafla eru 20 hóptímar á viku hjá Metabolic.
Safnaðarheimili Árbæjarkirkju hefur löngum verið hjarta safnaðarog félagstarfs í Árbæjarhverfi — vettvangur þar sem kynslóðir koma saman, deila trú, gleði, sorgum og daglegum verkefnum. Með stækkun safnaðarheimilis kirkjunnar er brugðist við auknum þörfum og gefin tækifæri til að efla starfsemina enn frekar, opna fyrir nýjar leiðir í þjónustu og styrkja tengslin milli fólks í hverfinu. Vegna framkvæmdanna við stækkun safnaðarheimilisins þurfti að loka eldhúsi og sal og þrengja enn frekar að starfsfólkinu. Nú hefur nýtt og glæsilegt eldhús verið tekið í notkun ásamt endurbættu anddyri. Salurinn er óbreyttur. Ekkert af viðbyggingunni er komið í notkun, þar á meðal stækkun salarins og starfsmannahlutinn. Lyfta milli hæða Milli hæða í Árbæjarkirkju hefur aldrei verið lyfta, aðeins þröngur hringstigi sem er ekki á allra færi að nota. Eðlilega var ákveðið að setja lyftu í kirkjuna þegar húsnæðið yrði stækkað. Meðan lyftan er ekki komin er ekki hægt að nýta salinn og eldhúsið til fullnustu, hvort heldur er til félags- og safnaðarstarfs eða til dæmis fyrir erfidrykkju. Því er nauðsynlegt að koma lyftunni fyrir hið allra fyrsta. Á því hefur borið að aldraðir og hreyfihamlaðir treysti sér ekki til að fara í salinn fyrr en lyftan kemur. Af þessum ástæðum er ótvíræð nauðsyn að næsta skref endurbótanna í Árbæjar-kirkju verði að setja í hana lyftu.
Árbæjarkirkja.
Styrktartónleikar 19. október Styrktartónleikar verða haldnir í Árbæjarkirkju sunnudaginn 19. október kl. 16:00. Tindatríó ásamt Sigurði Helga leika vel valin lög á tónleikunum. Tindatríóið er skipað feðgunum Atla Guðlaugssyni, skólastjóra Listaskóla Mosfellsbæjar og bræðrunum Bjarna og Guðlaugi Atlasyni. Atli er söngvari og trompetleikari en bræðurnir hafa báðir lokið framhaldsprófi í söng og komið fram sem einsöngvarar með ýmsum kórum. Sigurður Helgi lauk framhaldsprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri árið 2004. Hann stundaði framhaldsnám í við Berklee College of Music í Boston og lauk þaðan BM gráðu árið 201 Sigurður hefur unnið jöfnum höndum sem klassískur og rytmískur píanóleikari ásamt því að stjórna, kenna, útsetja og semja. Sigurður Helgi hefur verið stjórnandi Karlakórs Kópavogs frá árinu 2022 Allur ágóði rennur í lyftusjóð Árbæjarkirkju.
Við biðjum um stuðning Allt frá byrjun hefur ráðdeild einkennt starfið í Árbæjarkirkju og tekist að halda úti öflugu starfi án þess að stofna til skulda. Þegar ráðist er í brýnar framkvæmdir eins og núna verður ekki hjá því komist að fara út fyrir eigin sjóði og leita stuðnings einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja til þess að ljúka því uppbyggingarverki sem hófst árið 2024. Næsta verkefni í því er að kaupa lyftu og koma henni fyrir á sínum stað, halda síðan áfram við aðra hluta nýbyggingarinnar. Við heitum á ykkur að standa með Árbæjarkirkju, láta fé af hendi rakna og styðja þannig uppbygg-ingarstarfið. Hægt er að styðja við byggingu safnaðarheimilisins fjárhagslega með því að leggja fé inn á söfnunarreikning 0113 – 15 – 630348 kt. 420169-4429.
Feðgarnir Atli Guðlaugsson og synirnir Bjarni og Guðlaugur.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/9/2025 11:18 PM Page 19
19
Fréttir
Árbæjarblaðið
Fréttamolar frá kirkjustarfinu - r
Helgihald 16. október til 20. nóvember Sunnudaginn 19. október - Guðsþjónusta kl. 11:00 Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina. Íþrótta-sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Aldísar Elvu Sveinsdóttur æskulýðsfulltrúa.
Sunnudaginn 16. nóvember - Guðsþjónusta kl. 11:00 Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina. Íþrótta-sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Aldísar Elvu Sveinsdóttur æskulýðsfulltrúa.
Sunnudaginn 26. október - Guðsþjónusta kl. 11:00 Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina. Íþrótta-sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Aldísar Elvu Sveinsdóttur æskulýðsfulltrúa.
Barnastarfið í vetur: Það verður líf og fjör í barnastarfi Árbæjarkirkju í vetur og ættu allir krakkar að finna eitthvað við sitt hæfi. Það hefur löngum verið mikill metnaður að halda úti öflugu barna og unglingastarfi í söfnuðinum.
Sunnudaginn 2. nóvember. Guðsþjónusta kl. 11:00 Allra heilagara messa. Látina minnst. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina. Íþrótta-sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Aldísar Elvu Sveinsdóttur æskulýðsfulltrúa.
Tilgangurinn með starfinu er að kenna börnunum í gegnum sögur, söngva og leiki um kristna trú og siðfræði, gera hjálparstarfsverkefni og margt fleira. Skrá þarf sérstaklega börnin í STN (6-9 ára) og TTT-starf (10-12 ára). Það er gert á heimasíðunni. Allt barna- og unglingastarf á vegum Árbæjarkirkju er ókeypis.
Sunnudaginn 9. nóvember. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. 00 Söngur og biblíusaga. Leikhópurinn Lotta mætir á svæðið. Aldís Elva, sr. Þór og Aðalheiður sjá um stundina. Verið öll hjartanlega velkomin.
1. -3. bekkur. STN Þriðjudagar kl.15:00 – 16:00 4. -7. bekkur. TTT Þriðjudagar kl. 16:00 – 17:00 Allar nánari upplýsingar um barna- og unglingastarf Árbæjarkirkju veitir Aldís Elva Sveinsdóttir á netfangið: aldiskvaran@gmail.com
Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is
Það hallar að vetri - eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn Það hallar að vetri hið ytra eða svo segir dagatalið. Haustið með sína litríku palletu í hendi sveiflar penslinum ákveðið eins og hjómsveitarstjóri í Eldborgarsal Hörpunnar á fimmtudagskveldi svo úr verða litríkir tónar sem kitla eyru og um síðir falla við fætur sem minnir okkur á að allt hefur sinn tíma, upphaf og endi. Þessi dægrin falla laufin til jarðar af greinum trjáa. Ekki til einskis, heldur til þess að næra nýtt líf. Svo er það einnig með okkur. Við erum öll hluti af hringrás lífsins. Eitthvað sem við ekki endilega leggjum huga að svona hversdags. Við erum upptekin af því sem blasir við. Ljósin á skjánum, augnaráðið yfir kaffibollanum, umferðin framhjá glugganum. Allt þetta er sýnilegt og því trúum við því að það sé hið raunverulega. En það sem hefur mest áhrif á lífið okkar er oft það sem við sjáum ekki. Við sjáum ekki hvað býr innra með hverju og einu okkar. Við sjáum bros, handaband, kurteisislegt hja stæltan líkama. En við sjáum ekki svefnlausar nætur, áhyggjur sem bíta sig fasta í hugann, eða vonina sem heldur fólki á floti þegar allt virðist ótryggt. Það er auðvelt að dæma út frá því sem við sjáum, en sú mynd er eins og
borgarísjaki fljótandi í hafi, aðeins yfirborð hans er sýnilegt. Fljótt á litið á fljótandi borgarísaki ekkert sameiginlegt með mannshuganum. Reyndar er það ekki svo fjarlæg samlíking. Yfirborð hugans kann að vera sýnilegt en stærsti hluti þess lúrir undir hljótt, ,,veltir” fyrir sér – á ég eða á ég ekki? Við sjáum heldur ekki ósýnilega þætti sem halda heiminum gangandi. Við hugsum lítið um loftið sem flæðir inn og út úr lungunum. Við tökum ekki eftir þeim smáu lífverum sem vinna hljóðlaust að því að halda vistkerfinu í jafnvægi. Við sjáum ekki straumana sem stýra veðrinu eða orkuna sem heldur plánetunni á sínum brautum. Þeirra tilvist skiptir þó öllu máli. Þegar við gleymum þessu ósýnilega eigum við á hættu að verða of yfirborðsleg í hugsun og viðbrögðum. Við horfum á manneskju og segjum: „Hún hefur það gott.“ Við sjáum bjarta hlið en gleymum möguleikanum á því sem sést ekki. Við notum auðlindir jarðar eins og þær séu endalausar, af því að við sjáum ekki hvernig kerfin bregðast við ofneyslu. Kannski er það lærdómurinn: að treysta því að það ósýnilega er alltaf til
VISSIR ÞÚ?
staðar, þótt við getum ekki mælt það eða fangað með augunum. Að bera virðingu fyrir því sem við skiljum ekki til fulls er að sína varfærni í samskiptum og þakklæti í daglegu lífi. Samfélagsmiðlarnir ýta undir og gera okkur blindari en nokkuð annað. Þar sjáum við hinn glansandi hluta lífsins — síuð bros, stilltar myndir og orð sem eiga að sýna styrk en fela veikleika. Við sjáum forsíðuna, en ekki handritið á bak við. Og samt látum við eins og þetta sé allt. Ef við sættum okkur við þessa hálfsýn erum við ekki bara að svíkja sjálf okkur, heldur líka hvert annað. Því spurningin sem situr eftir er þessi: Ætlum við að halda áfram að láta blekkjast af því sem sést — eða ætlum við loksins að leggja okkur fram við að sjá það sem skiptir máli? Raunar er þetta sístæð spurning. Danski rithöfundurinn H.C. Andersen var á þeim slóðum í sögunni um Nýju föt keisarans og á undan honum voru heimspekingar fornaldar þar. Hvað segir það um okkur sem lifum á fyrsta fjórðungi 21. aldar? Mannshugurinn er sá sami sem var og væntanlega verður svo áfram. Eftir sumar með grænum grundum
AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
kemur haust með fallandi litríkum laufum og sölnandi grasi og út við næsta horn biðröð á dekkjaverkstæði. Það kemur okkur alltaf á óvart að við lifum á norðurhveli jarðarkringlunnar og það hallar að vetri burt séð frá dagatölum þessa heims. Þór Hauksson
sr. Þór Hauksson.
Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga kl. 12-16. Þangað eru allir fullorðnir velkomnir og þar er ýmislegt á dagskrá. Byrjað er með kyrrðarstund í kirkjunni, síðan er léttur hádegisverður á vægu verði (kr. 1500). Að því loknu er hin sívinsæla stólaleikfeimi og svo er spjallað eða einhver gestur mætir í heimsókn. Endað er á gómsætu síðdegiskaffi. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Helgihald hvern sunnudag kl.11.00 Annan sunnudag hvers mánaðar er Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2025 1:35 PM Page 20