Á meðal efnis í blaðinu:
• Loksins tókst að afhenda Eyrúnu Hörpu starfsmerki – fyrrverandi stjórnarfólk hittist hjá UMFÍ.
• Samskiptaráðgjafi hvetur fólk til að lesa samræmda viðbragðsáætlun fyrir íþróttafélög og önnur félög.
• Valdís Helga tekin við sem verkefnastýra Æskulýðsvettvangsins.
• Harrison Lewis ræðir um skoppbolta, sem er nýjasta æðið.
• Árni mælir með því að ný heildarlöggjöf verði gerð fyrir frístunda- og æskulýðsstarf frá vöggu til grafar.
• Hver er staðan á skautafélögum landsins?
• Ítarlegt viðtal við Helgu Olsen hjá Íþróttafélaginu Öspinni, Söruh Smiley hjá Skautafélagi Akureyrar og fleiri um skauta, íshokkí og margt fleira.
• „Við erum með tuttugu gáma af sandi en eigum engan pening. Getið þið hjálpað okkur?“ – ítarlegt viðtal við Valdimar Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra UMSK.
• Pælingar um íþróttahéruð og pælingar fólksins í hreyfingunni.
• Hilma Hólmfríður ræðir um næstu skref verkefnisins Allir með í Reykjanesbæ.
• Þrír ráðherrar skrifa undir tímamótasamning.