Göngubók UMFÍ, Göngum um Ísland 2023, hefur að geyma lýsingar á fjölda stuttra gönguleiða fyrir alla fjölskylduna.
Göngubók UMFÍ kom fyrst út sumarið 2002 og hafði þá að geyma 144 stuttar gönguleiðir víða um land.
Leiðunum hefur fjölgað mikið eftir það og endurspeglar bókin aukinn áhuga fólks á ferðum um landið.
Markmiðið með útgáfu Göngubókar UMFÍ hefur frá upphafi verið að vekja athygli á aðgengilegum gönguleiðum og hvetja til samveru fjölskyldunnar úti í náttúrunni.
Göngubók UMFÍ er að hluta til unnin í samstarfi við göngugarpinn Einar Skúlason. Líklega hafa fáir stiklað jafn mikið um stokka og steina á Íslandi og Einar, en hann stofnaði m.a. gönguhópinn Vesen og vergang sem þúsundir fylgjast með á Facebook.
Það sem mestu skiptir er að Einar er höfundur smáforritsins Wapp, sem geymir mikið safn fjölbreyttra GPS-leiðarlýsinga um allt Ísland.
Við mælum með Wappinu fyrir þau sem hafa gaman af gönguferðum og vilja fræðast betur um ákveðnar slóðir.
Reimum nú á okkur skóna.
Góða ferð!