2021 2022
Fram koma: Bríet, Cell7, Flóni, GDRN, Joey Christ, JóiPé og Króli, Logi Pedro og Reykjavíkurdætur Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri —————————————————————— LAU 21|08 KL.15:00
PÉTUR OG ÚLFURINN Á MENNINGARNÓTT Sergej Prokofíev Pétur og úlfurinn
SEPTEMBER
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Halldóra Geirharðsdóttir sögumaður
FÖS 03|09 KL.20:00
KLASSÍKIN OKKAR
Vinsæl íslensk og erlend leikhústónlist frá ýmsum tímum.
NÍUNDA SINFÓNÍA BEETHOVENS
Sofia Gubaidulina Fachwerk Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 9 Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Geir Draugsvoll einleikari Hallveig Rúnarsdóttir einsöngvari Sigríður Ósk Kristjánsdóttir einsöngvari Stuart Skelton einsöngvari Jóhann Kristinsson einsöngvari Mótettukórinn Söngsveitin Fílharmónía Hörður Áskelsson kórstjóri Magnús Ragnarsson kórstjóri
——————————————————————— FIM 14|10 KL.19:30
TSJAJKOVSKÍJ OG PROKOFÍEV Pjotr Tsjajkovskíj Rómeó og Júlía, fantasíuforleikur Sergej Prokofíev Píanókonsert nr. 2 Emilie Mayer Sinfónía nr. 7 Anja Bihlmaier hljómsveitarstjóri Bezhod Abduraimov einleikari
AIŌN
Ævintýraleg tónlist um undur jarðar m.a. eftir John Williams, Richard Strauss, W.A. Mozart, Ferde Grofé og Jón Leifs.
Íslenski dansflokkurinn og Sinfóníuhljómsveit Íslands Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri ——————————————————————— FIM 28|10 KL.19:30
UNDUR JARÐAR MEÐ STJÖRNUSÆVARI
Peter Oundjian hljómsveitarstjóri Jonathan Swensen einleikari
LAU 11|09 KL. 11:30
Tónleikakynning kl. 18:30
LITLI TÓNSPROTINN
——————————————————————— LAU 25|09 KL.14:00
Johannes Brahms Akademískur hátíðarforleikur Henri Tomasi Básúnukonsert Johannes Brahms Sinfónía nr. 1
Tónleikakynning kl.18:00
Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Stefán Jón Bernharðsson einleikari Ásta Dóra Finnsdóttir einleikari
Tónleikakynning 16. sept kl.18:00
Noam Aviel hljómsveitarstjóri Sævar Helgi Bragason kynnir —————————————————————— SUN 26|09 KL.17:00
Bertrand de Billy hljómsveitarstjóri Jörgen van Rijen einleikari
Richard Strauss Hornkonsert nr. 1 Dmítríj Shostakovitsj Píanókonsert nr. 2 Richard Strauss Don Juan
Tónleikakynning kl. 18:00
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, Elmar Gilbertsson, Emilíana Torrini, Jóhann Sigurðarson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Lay Low, Salka Sól Eyfeld og fleiri söngvarar kynntir síðar Söngsveitin Fílharmónía Magnús Ragnarsson kórstjóri Guðni Tómasson kynnir Halla Oddný Magnúsdóttir kynnir ————————————————————————— FIM 09|09 KL.19:30
BERTRAND DE BILLY STJÓRNAR BRAHMS
STRAUSS OG SHOSTAKOVITSJ
UNGSVEITIN SPILAR SIBELIUS Jean Sibelius Sinfónía nr. 2
Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri ——————————————————————— FIM 30|09 KL.19:30
SELLÓKONSERT DVOŘÁKS
Halldór Smárason infinite image Antonín Dvořák Sellókonsert Joan Tower Konsert fyrir hljómsveit
Tónleikakynning kl.18:00
——————————————————————— FIM 21|10 KL.20:00 Anna Þorvaldsdóttir og Erna Ómarsdóttir AIŌN
JESS GILLAM OG PROKOFÍEV
Doreen Carwithen Bishop Rock Claude Debussy Rapsódía fyrir hljómsveit og saxófón Alexander Glazúnov Saxófónkonsert Sergej Prokofíev Sinfónía nr. 5 Ryan Bancroft hljómsveitarstjóri Jess Gillam einleikari Tónleikakynning kl.18:00
MIÐ 03|11 KL.20:00
TÖFRAR FORTÍÐAR
John Dowland If My Complaints Could Passions Move Benjamin Britten Lachrymae Thomas Adès Three Studies from Couperin Maurice Ravel La Valse Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Þórunn Ósk Marinósdóttir einleikari Tónleikakynning kl. 18:30
—————————————————————————––— FÖS 05|11 KL.18:00 & 20:00 FÖSTUDAGSRÖÐIN
HÖGNI OG SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Sinfónísk tónlist eftir Högna Egilsson
—————————————————————————––— FIM 11|11 KL.19:30
EVA STJÓRNAR STRAUSS
Daníel Bjarnason From Space I Saw Earth Richard Strauss Till Eulenspiegel Richard Strauss Der Rosenkavalier, svíta Richard Strauss Fjórir síðustu söngvar Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Camilla Nylund einsöngvari Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri Tónleikakynning kl. 18:00
—————————————————————————––— FIM 18|11 KL.19:30
VÍKINGUR OG ADÈS
Jean Sibelius Rakastava (Elskhuginn) Jean Sibelius Ofviðrið, svíta nr. 2 Thomas Adès Dawn Thomas Adès In Seven Days, píanókonsert Thomas Adès hljómsveitarstjóri Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari Tónleikakynning kl.18:00
—————————————————————————––— FIM 25|11 KL.19:00 FÖS 26|11 KL.19:00 LAU 27|11 KL.14:00 BÍÓTÓNLEIKAR
HARRY POTTER OG VISKUSTEINNINN™
John Williams Harry Potter og viskusteinninn Timothy Henty hljómsveitarstjóri
—————————————————————————––— 19|11 – 21|11 KL.20:00
VÍKINGUR SPILAR MOZART
Víkingur Heiðar Ólafsson leikur einleiksverk
DESEMBER
Sigurður Þór Óskarsson kynnir ———————————————————————— FIM 16|09 KL.19:30 FÖS 17|09 KL.19:30
MIÐ 06|10 KL.20:00
NÓVEMBER
NÝ KLASSÍK OG SINFÓ
Skemmtileg samverustund fyrir yngstu börnin. Aðgangur ókeypis.
OKTÓBER
FIM 19|08 KL.20:00 FÖS 20|08 KL.20:00
SEPTEMBER
ÁGÚST
2021
BARNASTUND
FIM 02|12 KL.19:30
BENEDIKT SYNGUR BACH OG HÄNDEL Georg Friedrich Händel Forleikur og aríur úr Messíasi Georg Friedrich Händel Lagartónlist, svítur nr. 2 og 3 Georg Friedrich Händel Waft Her, Angels, úr Jeptha Johann Sebastian Bach Aría úr kantötu nr. 198 Joseph Haydn Sinfónía nr. 99
Dirk Vermeulen hljómsveitarstjóri Benedikt Kristjánsson einsöngvari Tónleikakynning kl. 18:00
—————————————————————— LAU 11|12 KL.14&16 SUN 12|12 KL.14&16 LITLI TÓNSPROTINN
JÓLATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR
Eftirlætis jólatónlist, meðal annars Yfir fannhvíta jörð, Hin fyrstu jól og Gilsbakkaþula. Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Arnheiður Eiríksdóttir, Valdimar Guðmundsson og Kolbrún Völkudóttir einsöngvarar Eyrún Helga Aradóttir táknmálstúlkur Stúlknakór Reykjavíkur Dansarar úr Listdansskóla Íslands Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Flautuhópur úr Skólahljómsveit Kópavogs og víðar Gítarhópur úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar Táknmálskórinn Litlu sprotarnir
Tónleikakynning 6. jan. kl. 18:00
———————————————————————— FIM 13|01 KL.19:30
UNGIR EINLEIKARAR Efnisskrá kynnt síðar
Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri ———————————————————————— FIM 20|01 KL.19:30
SHOSTAKOVITSJ OG BARBER
Unsuk Chin Frontispiece Samuel Barber Fiðlukonsert Dmítríj Shostakovitsj Sinfónía nr. 10 Michael Sanderling hljómsveitarstjóri Johan Dalene einleikari Tónleikakynning kl. 18:00
———————————————————————— FIM 27|01 KL.19:30 MYRKIR MÚSÍKDAGAR
FERÐ ÁN FYRIRHEITS
Áskell Másson Capriccio Haukur Tómasson It Relaxes Me, the Repetition Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir Pons papilloma Kjartan Ólafsson Mar – Ferð án fyrirheits Sveinn Lúðvík Björnsson Glerhjallar Ville Matvejeff hljómsveitarstjóri Áskell Másson einleikari Bryndís Halla Gylfadóttir einleikari Grímur Helgason einleikari Sigrún Eðvaldsdóttir einleikari ———————————————————————— FÖS 28|01 KL.12:15
HÁDEGISTÓNLEIKAR
BÁRA OG GUNNAR ANDREAS Gunnar Andreas Kristinsson Flekar Bára Gísladóttir VAPE Ville Matvejeff hljómsveitarstjóri
Wolfgang Amadeus Mozart Töfraflautan (í styttri gerð)
Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri Þórunn Arna Kristjánsdóttir sögumaður Eyrún Unnarsdóttir Sveinn Dúa Hjörleifsson Oddur Arnþór Jónsson Harpa Ósk Björnsdóttir Bryndís Guðjónsdóttir einsöngvarar ————————————————————— MÁN 21|02 KL.20:00
NORÐURLJÓS
OPINN FYRIRLESTUR
Árni Heimir Ingólfsson kynnir Valkyrju Wagners ———————————————————— FIM 24|02 KL.18:00 LAU 26|02 KL.16:00
LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
VALKYRJAN
Richard Wagner Valkyrjan Íslenska óperan og Sinfóníuhljómsveit Íslands Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Julia Burbach leikstjóri Tal Rosner vídeóhönnun og útlit Iréne Theorin Brünnhilde Christopher Ventris Siegmund Christa Mayer Fricka Claire Rutter Sieglinde Ólafur Kjartan Sigurðarson Wotan Kristinn Sigmundsson Hunding ásamt fleiri söngvurum
John Adams Lollapalooza María Huld Markan Sigfúsdóttir Clockworking Daníel Bjarnason Píanókonsert nr. 3 Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari Tónleikakynning kl. 18:30
——————————————————— FÖS 11|03 KL.18:00 FÖSTUDAGSRÖÐIN
Á FERÐ UM SPORBAUG
Missy Mazzoli Sinfonia (for Orbiting Spheres) Kjartan Sveinsson Nýtt verk Anna Þorvaldsdóttir CATAMORPHOSIS Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri ————————————————————— LAU 12|03 KL. 11:30
BARNASTUND
Skemmtileg samverustund fyrir yngstu börnin. Aðgangur ókeypis. Þórunn Arna Kristjánsdóttir kynnir ——————————————————— FIM 17|03 KL.19:30
ÞÝSK SÁLUMESSA Olivier Messiaen Les Offrandes oubliées Johannes Brahms Ein deutsches Requiem
Bertrand de Billy hljómsveitarstjóri Emily Pogorelc einsöngvari Jóhann Kristinsson einsöngvari Mótettukórinn Söngsveitin Fílharmónía Hörður Áskelsson kórstjóri Magnús Ragnarsson kórstjóri Tónleikakynning kl. 18:00
———————————————————
FIM 31|03 KL.19:30
HETJULÍF
George Walker Lyric fyrir strengjasveit Richard Strauss Hornkonsert nr. 2 Richard Strauss Ein Heldenleben Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Stefan Dohr einleikari Tónleikakynning kl. 18:00
FIM 07|04 KL. 19:30
PÁSKATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR Sofia Gubaidulina Sieben Worte Anton Bruckner Sinfónía nr. 3 Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Geir Draugsvoll einleikari Sigurgeir Agnarsson einleikari Tónleikakynning kl. 18:00
—————————————————————— FIM 28|04 KL.19:30
2022 MAÍ
ÆVINTÝRIÐ UM TÖFRAFLAUTUNA
MIÐ 02|03 KL.20:00
VÍKINGUR OG DANÍEL
SCHUMANN OG SCHUBERT
Galina Ustvolskaja Sinfónískt ljóð nr. 2 Robert Schumann Sellókonsert Franz Schubert Sinfónía nr. 9
Tónleikakynning kl. 18:00
—————————————————————— MIÐ 18|05 KL.20:00
EVA STJÓRNAR SHOSTAKOVITSJ
Tónleikakynning kl. 18:00
—————————————————————— LAU 30|04 KL.14:00
Dmítríj Shostakovitsj Sinfónía nr. 5 Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri
LITLI TÓNSPROTINN
SKILABOÐASKJÓÐAN
Tónlist úr Skilaboðaskjóðunni í flutningi landsþekktra söngvara og leikara. Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri
VÍKINGUR OG JOHN ADAMS
John Adams hljómsveitarstjóri Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari
Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Kian Soltani einleikari
Þorvaldur Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson Skilaboðaskjóðan
FIM 05|05 KL. 19:30
John Adams Short Ride in a Fast Machine John Adams Must the Devil Have All the Good Tunes? John Adams Harmonielehre
Tónleikakynning kl. 18:30
JÚNÍ
David Danzmayr hljómsveitarstjóri Herdís Anna Jónasdóttir einsöngvari Elmar Gilbertsson einsöngvari
LITLI TÓNSPROTINN
APRÍL
Óperettutónlist, valsar og polkar eftir Johann Strauss, Franz Lehár, Emmerich Kálman, Hans Christian Lumbye, Ellen Sandels og fleiri.
LAU 12|02 KL.14:00
MARS
VÍNARTÓNLEIKAR
FEBRÚAR
JANÚAR
FIM 06|01 KL.19:30 FÖS 07|01 KL.19:30 LAU 08|01 KL.16:00&19:30
FÖS 03|06 KL.19:30 LAU 04|06 KL.17:00 LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
BARBARA HANNIGAN Efnisskrá kynnt síðar
Barbara Hannigan einsöngvari og hljómsveitarstjóri ——————————————————————— FÖS 10|06 KL.19:30
MARIANNA SPILAR GRIEG
Edvard Grieg Píanókonsert Jórunn Viðar Eldur Jórunn Viðar Ólafur liljurós Páll Ísólfsson Veislan á Sólhaugum Páll Ísólfsson Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar Rumon Gamba hljómsveitarstjóri Marianna Shirinyan einleikari Tónleikakynning kl. 18:00
Kæru tónleikagestir, Eftirvæntingin eftir nýju starfsári Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur sjaldan verið meiri. Framundan er glæsilegt, fjölbreytt og þéttskipað tónleikaár sem við hlökkum til að upplifa með ykkur.
árum, á sínum stað í upphafi starfsársins. Með þessu vill hljómsveitin auka fjölbreytni í tónleikahaldi sínu og ekki síður gefa landsmönnum öllum kost á því að njóta tónleika hljómsveitarinnar.
Nú gefst loks tækifæri á að halda stóra tónleika sem áður þurfti að fresta, til dæmis AIŌN eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Ernu Ómarsdóttur í samstarfi við Íslenska dansflokkinn, Valkyrjuna eftir Wagner í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Íslensku óperuna, Harry Potter-kvikmyndatónleika og Ný klassík þar sem margir vinsælustu tónlistarmenn dagsins ganga til liðs við hljómsveitina.
Fjölbreytnin kemur víðar fram. Hljómsveitin leggur sig fram um að kynna tónlist úr ýmsum heimshornum sem samin var á ólíkum tímum og af fólki með ólíkan bakgrunn. Efnisskrárnar spegla þá fjölbreytni sem býr bæði í fortíð okkar og samtíma, og má nefna að nú hljóma í fyrsta sinn á Íslandi tónsmíðar kventónskálda sem lengi voru gleymd. Þá hljóma einleikshljóðfæri af ýmsum toga á starfsárinu, ekki aðeins píanó og fiðla heldur einnig horn, básúna, saxófónn og harmóníka, svo eitthvað sé nefnt. Fjölbreytnin víkkar sjóndeildarhring okkar, dýpkar reynslu okkar og upplifun.
Það er viðeigandi að á fyrstu vikum starfsársins stýri Eva Ollikainen, aðalstjórnandi hljómsveitarinnar, Níundu sinfóníu Beethovens, þar sem gleðin umlykur allt. Verkið var flutt á fyrstu opnunartónleikum Sinfóníunnar í Hörpu fyrir áratug og þá stjórnað af Vladimir Ashkenazy, aðalheiðursstjórnanda SÍ. Tónleikarnir verða haldnir honum til heiðurs og vill hljómsveitin með því þakka honum fyrir ómetanlegt samstarf um áratugaskeið. Meðal annarra hápunkta starfsársins má nefna tónleika með Barböru Hannigan á Listahátíð í júní. Þá er Víkingur Heiðar Ólafsson staðarlistamaður hljómsveitarinnar 2021–22 og býður upp á nýstárlega og spennandi konsertaveislu. Heimsfaraldurinn hefur kennt okkur að hugsa út fyrir okkar hefðbundna ramma og sýnt og sannað hversu mikilvæg tónlistin er okkur öllum. Sinfóníuhljómsveit Íslands er sannkölluð þjóðarhljómsveit og hefur á tímum kófsins flutt landsmönnum tónlist í gegnum streymi, beinar útsendingar, heimsendingar og heimsóknir. Undirtektir voru með eindæmum góðar og í framhaldi af því hefur samstarf SÍ og RÚV verið eflt til muna. Við erum afar stolt af því að fernum tónleikum í grænni tónleikaröð verður sjónvarpað beint á RÚV á miðvikudagskvöldum og verða þeir klukkustundarlangir, án hlés og með kynningum af sviði. Einnig verður Klassíkin okkar, sá vinsæli dagskrárliður sem segja má að hafi sigrað hjarta þjóðarinnar á síðastliðnum
4
Það hefur verið einstakt ánægjuefni að sjá hversu eftirsótt hljómsveitin er á sviði alþjóðlegrar plötuútgáfu og á starfsárinu eru fyrirhugaðar upptökur á þremur plötum í samstarfi við virt erlend fyrirtæki. Fyrst ber að nefna upptökur á verkum Jóhanns Jóhannssonar í samstarfi við Deutsche Grammophon og er það í fyrsta sinn sem hljómsveitin hljóðritar sérstaklega fyrir það heimsþekkta forlag. Hljóðritun nýrra íslenskra verka heldur áfram í samstarfi við Sono Luminus og undir lok starfsársins fara fram upptökur á verkum eftir Pál Ísólfsson og Jórunni Viðar. Öflugt fræðslustarf hljómsveitarinnar heldur áfram. Ungsveitin leikur á tónleikum í upphafi árs, hljómsveitarstjóraakademían frá síðasta ári heldur áfram og boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í Litla tónsprotanum. Skólatónleikar og Barnastundir verða einnig á sínum stað. Ég vona svo sannarlega að við munum eiga þess kost næsta vetur að eiga saman gæðastundir í Hörpu þar sem hver og einn getur látið hugann reika, gleymt sér um stund og nært sálina með tónlist. Við hlökkum til að sjá ykkur, Lára Sóley
Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands
5
RAUÐA RÖÐIN
GULA RÖÐIN
SJÖ TÓNLEIKAR
SJÖ TÓNLEIKAR
Fyrir þá sem vilja kraftmikla sinfóníska tónlist beint í æð.
FIM 09|09 KL.19:30
FIM 20|01 KL.19:30
Johannes Brahms Akademískur hátíðarforleikur Henri Tomasi Básúnukonsert Johannes Brahms Sinfónía nr. 1
Unsuk Chin Frontispiece Samuel Barber Fiðlukonsert Dmítríj Shostakovitsj Sinfónía nr. 10
BERTRAND DE BILLY STJÓRNAR BRAHMS
Bertrand de Billy hljómsveitarstjóri Jörgen van Rijen einleikari ——————————————————————— FIM 30|09 KL.19:30
SELLÓKONSERT DVOŘÁKS
Halldór Smárason infinite image Antonín Dvořák Sellókonsert Joan Tower Konsert fyrir hljómsveit Peter Oundjian hljómsveitarstjóri Jonathan Swensen einleikari ——————————————————————— FIM 28|10 KL.19:30
JESS GILLAM OG PROKOFÍEV
Doreen Carwithen Bishop Rock Claude Debussy Rapsódía fyrir hljómsveit og saxófón Alexander Glazúnov Saxófónkonsert Sergej Prokofíev Sinfónía nr. 5
SHOSTAKOVITSJ OG BARBER
Michael Sanderling hljómsveitarstjóri Johan Dalene einleikari ———————————————————————
FIM 31|03 KL.19:30
HETJULÍF
George Walker Lyric fyrir strengjasveit Richard Strauss Hornkonsert nr. 2 Richard Strauss Ein Heldenleben Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Stefan Dohr einleikari —————————————————————— FIM 28|04 KL.19:30
SCHUMANN OG SCHUBERT
Galina Ustvolskaja Sinfónískt ljóð nr. 2 Robert Schumann Sellókonsert Franz Schubert Sinfónía nr. 9 Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Kian Soltani einleikari
Ryan Bancroft hljómsveitarstjóri Jess Gillam einleikari ——————————————————————— FIM 18|11 KL.19:30
VÍKINGUR OG ADÈS
Jean Sibelius Rakastava (Elskhuginn) Jean Sibelius Ofviðrið, svíta nr. 2 Thomas Adès Dawn Thomas Adès In Seven Days, píanókonsert Thomas Adès hljómsveitarstjóri Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari
Fyrir þá sem vilja fjölbreytni í verkefnavali, allt frá Vínarklassí k til nútímaverka.
FIM 16|09 KL.19:30
ÞÝSK SÁLUMESSA
Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Geir Draugsvoll einleikari Hallveig Rúnarsdóttir einsöngvari Sigríður Ósk Kristjánsdóttir einsöngvari Stuart Skelton einsöngvari Jóhann Kristinsson einsöngvari Mótettukórinn Söngsveitin Fílharmónía Hörður Áskelsson kórstjóri Magnús Ragnarsson kórstjóri ——————————————————————— FIM 14|10 KL.19:30
Bertrand de Billy hljómsveitarstjóri Emily Pogorelc einsöngvari Jóhann Kristinsson einsöngvari Mótettukórinn Söngsveitin Fílharmónía Hörður Áskelsson kórstjóri Magnús Ragnarsson kórstjóri ———————————————————
Sofia Gubaidulina Fachwerk Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 9
TSJAJKOVSKÍJ OG PROKOFÍEV
Pjotr Tsjajkovskíj Rómeó og Júlía, fantasíuforleikur Sergej Prokofíev Píanókonsert nr. 2 Emilie Mayer Sinfónía nr. 7 Anja Bihlmaier hljómsveitarstjóri Bezhod Abduraimov einleikari ——————————————————————— FIM 11|11 KL.19:30
EVA STJÓRNAR STRAUSS
Daníel Bjarnason From Space I Saw Earth Richard Strauss Till Eulenspiegel Richard Strauss Der Rosenkavalier, svíta Richard Strauss Fjórir síðustu söngvar Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Camilla Nylund einsöngvari Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri
Skannaðu og hlustaðu Við áskriftaraðir og tónleika er að finna Spotify-kóða. Þú finnur lagalistann með því að smella á myndavélartáknið í Spotify-appinu í símanum og tekur mynd af kóðanum. Þannig getur þú hlustað á verkin og kynnt þér dagskrána.
6
FIM 17|03 KL.19:30
NÍUNDA SINFÓNÍA BEETHOVENS
Olivier Messiaen Les Offrandes oubliées Johannes Brahms Ein deutsches Requiem
FIM 07|04 KL. 19:30
PÁSKATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR Sofia Gubaidulina Sieben Worte Anton Bruckner Sinfónía nr. 3 Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Geir Draugsvoll einleikari Sigurgeir Agnarsson einleikari
———————————————————————— FIM 05|05 KL. 19:30
VÍKINGUR OG JOHN ADAMS
John Adams Short Ride in a Fast Machine John Adams Must the Devil Have All the Good Tunes? John Adams Harmonielehre John Adams hljómsveitarstjóri Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari —————————————————————— FÖS 10|06 KL.19:30
MARIANNA SPILAR GRIEG
Edvard Grieg Píanókonsert Jórunn Viðar Eldur Jórunn Viðar Ólafur liljurós Páll Ísólfsson Veislan á Sólhaugum Páll Ísólfsson Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar Rumon Gamba hljómsveitarstjóri Marianna Shirinyan einleikari
GRÆNA RÖÐIN
LITLI TÓNSPROTINN
Fyrir þá sem vilja aðgengilega og áheyrilega klassí k af léttara taginu.
Áskrift fyrir alla fjölskylduna þar sem yngstu tónlistarunnendurnir kynnast töfrum hljómsveitarinnar.
TÓNLEIKARAÐIR
FIMM TÓNLEIKAR
FERNIR TÓNLEIKAR
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT AÐ SNILLD
MIÐ 06|10 KL.20:00
LAU 25|09 KL.14:00
Richard Strauss Hornkonsert nr. 1 Dmítríj Shostakovitsj Píanókonsert nr. 2 Richard Strauss Don Juan
Ævintýraleg tónlist um undur jarðar, m.a. eftir John Williams, Richard Strauss, W.A. Mozart, Ferde Grofé og Jón Leifs.
STRAUSS OG SHOSTAKOVITSJ
Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Stefán Jón Bernharðsson einleikari Ásta Dóra Finnsdóttir einleikari ————————————————————————————— MIÐ 03|11 KL.20:00
TÖFRAR FORTÍÐAR
John Dowland If My Complaints Could Passions Move Benjamin Britten Lachrymae Thomas Adès Three Studies from Couperin Maurice Ravel La Valse Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Þórunn Ósk Marinósdóttir einleikari ————————————————————————————— FIM 06|01 KL.19:30
VÍNARTÓNLEIKAR
Óperettutónlist, valsar og polkar eftir Johann Strauss, Franz Lehár, Emmerich Kálman, Hans Christian Lumbye, Ellen Sandels o.fl. Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Herdís Anna Jónasdóttir einsöngvari Elmar Gilbertsson einsöngvari ————————————————————————————— MIÐ 02|03 KL.20:00
VÍKINGUR OG DANÍEL
John Adams Lollapalooza María Huld Markan Sigfúsdóttir Clockworking Daníel Bjarnason Píanókonsert nr. 3 Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari ————————————————————————————— MIÐ 18|05 KL.20:00
EVA STJÓRNAR SHOSTAKOVITSJ
Dmítríj Shostakovitsj Sinfónía nr. 5 Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri
UNDUR JARÐAR MEÐ STJÖRNU-SÆVARI
Noam Aviel hljómsveitarstjóri Sævar Helgi Bragason kynnir
————————————————–––––—––––—– LAU 11|12 KL.14:00 &16:00 SUN 12|12 KL.14:00 & 16:00
JÓLATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR
Eftirlætis jólatónlist, meðal annars Yfir fannhvíta jörð, Hin fyrstu jól og Gilsbakkaþula. Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Arnheiður Eiríksdóttir, Valdimar Guðmundsson og Kolbrún Völkudóttir einsöngvarar Eyrún Helga Aradóttir táknmálstúlkur Stúlknakór Reykjavíkur Dansarar úr Listdansskóla Íslands Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Flautuhópur úr Skólahljómsveit Kópavogs og víðar Gítarhópur úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar Táknmálskórinn Litlu sprotarnir
LAU 12|02 KL.14:00
Áskrift veitir 20% afslátt af almennu miðaverði.
Wolfgang Amadeus Mozart Töfraflautan (í styttri gerð)
Tvö áskriftarkort veita 25% afslátt og þrjú kort gefa 30% afslátt af almennu miðaverði.
ÆVINTÝRIÐ UM TÖFRAFLAUTUNA
Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri Þórunn Arna Kristjánsdóttir sögumaður Eyrún Unnarsdóttir einsöngvari Sveinn Dúa Hjörleifsson einsöngvari Oddur Arnþór Jónsson einsöngvari Harpa Ósk Björnsdóttir einsöngvari Bryndís Guðjónsdóttir einsöngvari
————————————————–––––—–––– LAU 30|04 KL.14:00
SKILABOÐASKJÓÐAN
Þorvaldur Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson Skilaboðaskjóðan
Áskrifendur fá 10% afslátt af viðbótarmiðum á alla tónleika og gjafakortum hljómsveitarinnar. Áskrifendur bíða ekki í röð í miðasölu fyrir tónleika, ganga alltaf að sætum sínum vísum og eiga forkaupsrétt á þeim þegar áskrift er endurnýjuð.
Tónlist úr Skilaboðaskjóðunni í flutningi landsþekktra söngvara og leikara. Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri
MIÐASALA
FÖSTUDAGSTVENNAN FÖS 05|11 KL.18:00 & 20:00
FÖS 11|03 KL.18:00
Sinfónísk tónlist eftir Högna Egilsson
Missy Mazzoli Sinfonia (for Orbiting Spheres) Kjartan Sveinsson Nýtt verk Anna Þorvaldsdóttir CATAMORPHOSIS
HÖGNI OG SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Á FERÐ UM SPORBAUG
Sala og endurnýjun áskrifta fer fram í miðasölu Hörpu og á sinfonia.is Upplýsingar um sætaskipan í Eldborg er að finna á blaðsíðu 83.
Sími 528-5050
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
7
Víkingur Heiðar leikur þrjá magnaða nýja píanókonserta auk einleikstónleika með verkum Mozarts Víkingur Heiðar Ólafsson er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2021-22. Víkingur er ekki aðeins einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar heldur hefur hann á undanförnum árum hlotið mikla vegsemd á alþjóðlegum vettvangi. Sem dæmi má nefna að tímaritið Gramophone valdi hann tónlistarmann ársins 2019, auk þess sem Bach-plata hans hlaut BBC Music Magazine og Opus Klassik-verðlaunin sama ár. Verkefni Víkings sem staðarlistamanns hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands er bæði metnaðarfullt og óvenjulegt. Hann mun flytja þrjá glæsilega píanókonserta eftir nokkra af fremstu höfundum samtímans – Thomas Adès, John Adams og Daníel Bjarnason – undir stjórn tónskáldanna sjálfra. Öll verkin hljóma á Íslandi í fyrsta sinn. Raunar er konsert Daníels svo nýr að hann verður ekki frumfluttur á heimsvísu fyrr en í febrúar 2022, fáeinum vikum áður en hann hljómar á Íslandi.
Svarta röðin Í tilefni af samstarfi hljómsveitarinnar við Víking bjóðum við nú upp á sérstaka tónleikaröð með Víkingi í einleikshlutverki - Svörtu röðina. Auk þrennra tónleika með Víkingi og Sinfóníuhjómsveit Íslands eru þar einnig einleikstónleikar Víkings í Eldborg í nóvember þar sem hann leikur efni af nýjustu plötu sinni eftir Mozart og samtímamenn hans. Þeir sem kaupa kort á þessa einstöku röð fá 15% afslátt af almennu miðaverði. Samstarf Víkings og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á þessu starfsári er einstakt á heimsvísu og nokkuð sem enginn tónlistarunnandi má láta fram hjá sér fara.
8
SVARTA RÖÐIN
Sérstök tónleikaröð með Ví kingi í einleikshlutverki - þrennir hljómsveitartónleikar ásamt einleikstónleikum Ví kings í nóvember. FIM 18|11 KL.19:30
VÍKINGUR OG ADÈS
Jean Sibelius Rakastava (Elskhuginn) Jean Sibelius Ofviðrið, svíta nr. 2 Thomas Adès Dawn Thomas Adès In Seven Days, píanókonsert Thomas Adès hljómsveitarstjóri Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari ——————————————————————————— FÖS 19|11 KL.20:00 LAU 20|11 KL.20:00 SUN 21|11 KL.20:00
VÍKINGUR SPILAR MOZART
Víkingur Heiðar Ólafsson leikur einleiksverk eftir Wolfgang Amadeus Mozart og samtímamenn hans, af nýjum geisladiski sínum hjá Deutsche Grammophon. Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari ——————————————————————————— MIÐ 02|03 KL.20:00
VÍKINGUR OG DANÍEL
John Adams Lollapalooza María Huld Markan Sigfúsdóttir Clockworking Daníel Bjarnason Píanókonsert nr. 3 Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari ———————————————————————— FIM 05|05 KL. 19:30
VÍKINGUR OG JOHN ADAMS
John Adams Short Ride in a Fast Machine John Adams Must the Devil Have All the Good Tunes? John Adams Harmonielehre John Adams hljómsveitarstjóri Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari
ÝMSIR TÓNLEIKAR
Boðið er upp á fjölbreytta tónleika á starfsárinu sem eru utan tónleikaraða og tilvaldir á Regnbogakort. FIM 19|08 KL.20:00 FÖS 20|08 KL.20:00
NÝ KLASSÍK OG SINFÓ
Fram koma: Bríet, Cell7, Flóni, GDRN, Joey Christ, JóiPé og Króli, Logi Pedro og Reykjavíkurdætur Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri —————————————————————————————— LAU 21|08 KL.15:00
PÉTUR OG ÚLFURINN Á MENNINGARNÓTT Sergej Prokofíev Pétur og úlfurinn
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Halldóra Geirharðsdóttir sögumaður —————————————————————————————— FÖS 03|09 KL.20:00
KLASSÍKIN OKKAR
Vinsæl íslensk og erlend leikhústónlist frá ýmsum tímum. Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, Elmar Gilbertsson, Emilíana Torrini, Jóhann Sigurðarson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Lay Low, Salka Sól Eyfeld og fleiri söngvarar kynntir síðar Söngsveitin Fílharmónía Magnús Ragnarsson kórstjóri Guðni Tómasson kynnir Halla Oddný Magnúsdóttir kynnir —————————————————————————————— LAU 11|09 KL. 11:30
BARNASTUND
Sigurður Þór Óskarsson kynnir —————————————————————————————— SUN 26|09 KL.17:00
UNGSVEITIN SPILAR SIBELIUS
Jean Sibelius Sinfónía nr. 2 Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri
FIM 21|10 KL.20:00
AIŌN
Anna Þorvaldsdóttir og Erna Ómarsdóttir AIŌN Íslenski dansflokkurinn og Sinfóníuhljómsveit Íslands Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri ————————————————————————————— FIM 25|11 KL.19:00 FÖS 26|11 KL.19:00 LAU 27|11 KL.14:00
BÍÓTÓNLEIKAR
HARRY POTTER OG VISKUSTEINNINN™
John Williams Harry Potter og viskusteinninn Timothy Henty hljómsveitarstjóri ———————————————————————————— FIM 02|12 KL.19:30
BENEDIKT SYNGUR BACH OG HÄNDEL
Georg Friedrich Händel Forleikur og aríur úr Messíasi Georg Friedrich Händel Lagartónlist, svítur nr. 2 og 3 Georg Friedrich Händel Waft Her, Angels, úr Jeptha Johann Sebastian Bach Aría úr kantötu nr. 198 Joseph Haydn Sinfónía nr. 99 Dirk Vermeulen hljómsveitarstjóri Benedikt Kristjánsson einsöngvari —————————————————————————––––– FIM 13|01 KL.19:30
UNGIR EINLEIKARAR
Efnisskrá kynnt síðar —————————————————————————––––– FIM 27|01 KL.19:30
MYRKIR MÚSÍKDAGAR
FERÐ ÁN FYRIRHEITS
Áskell Másson Capriccio Haukur Tómasson It Relaxes Me, the Repetition Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir Pons papilloma Kjartan Ólafsson Mar – Ferð án fyrirheits Sveinn Lúðvík Björnsson Glerhjallar
FÖS 28|01 KL.12:15 HÁDEGISTÓNLEIKAR
BÁRA OG GUNNAR ANDREAS Gunnar Andreas Kristinsson Flekar Bára Gísladóttir VAPE
Ville Matvejeff hljómsveitarstjóri ————————————————————————— FIM 24|02 KL.18:00 LAU 26|02 KL.16:00
LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
VALKYRJAN
Richard Wagner Valkyrjan Íslenska óperan og Sinfóníuhljómsveit Íslands Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Julia Burbach leikstjóri Tal Rosner vídeóhönnun og útlit Iréne Theorin Brünnhilde Christopher Ventris Siegmund Christa Mayer Fricka Claire Rutter Sieglinde Ólafur Kjartan Sigurðarson Wotan Kristinn Sigmundsson Hunding ásamt fleiri söngvurum ————————————————————————— LAU 12|03 KL. 11:30
BARNASTUND
Þórunn Arna Kristjánsdóttir kynnir
————————————————————————— FÖS 03|06 KL.19:30 LAU 04|06 KL.17:00 LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
BARBARA HANNIGAN Efnisskrá kynnt síðar
Barbara Hannigan einsöngvari og hljómsveitarstjóri
Ville Matvejeff hljómsveitarstjóri Áskell Másson einleikari Bryndís Halla Gylfadóttir einleikari Grímur Helgason einleikari Sigrún Eðvaldsdóttir einleikari
9
FYRIR ÞÁ SEM VILJA SETJA SAMAN SÍNA EIGIN TÓNLEIKARÖÐ Með Regnbogakorti getur þú valið þá tónleika sem höfða mest til þín af öllum tónleikum starfsársins og tryggt þér gott sæti með 20% afslætti. Hægt er að kaupa Regnbogakort með minnst fernum tónleikum. Námsmenn, 25 ára og yngri, fá 50% afslátt á verðsvæðum 2 og 3 í miðasölu Hörpu.
STÓRBROTIÐ OG SPENNANDI
REGNBOGAKORT
Ómissandi á Regnbogakort þeirra sem vilja kraftmikla og stórbrotna sinfóníutónleika 16|09
NÍUNDA SINFÓNÍA BEETHOVENS
————————————————————————–––– 28|10
JESS GILLAM OG PROKOFÍEV
————————————————————————–––– 11|11
EVA STJÓRNAR STRAUSS
————————————————————————–––– 20|01
SHOSTAKOVITSJ OG BARBER
————————————————————————–––– 24 & 26|02 LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
VALKYRJAN
————————————————————————––– 17|03
ÞÝSK SÁLUMESSA
————————————————————————––– 31|03
HETJULÍF
————————————————————————––– 07|04
SKÓLAKORT
FYRIR TÓNLISTARNEMA OG UNGT FÓLK, 25 ÁRA OG YNGRA Miði á tónleika Sinfónuhljómsveitar Íslands samdægurs á 1.900 kr. með Skólakorti. Hægt er að fá miða hvar sem er í salnum eftir því hvað er laust. Skráðu þig fyrir skólakorti í miðasölu eða á sinfonia.is/skolakort
10
PÁSKATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR
————————————————————————––– 18|05
EVA STJÓRNAR SHOSTAKOVITSJ
EINLEIKARAR OG EINSÖNGVARAR Í FREMSTU RÖÐ
NOKKRAR TILLÖGUR AÐ REGNBOGAKORTI Þessir einleikarar á heimsmælikvarða eiga heima á öllum Regnbogakortum 30|09
JONATHAN SWENSEN
————————————————————————––– 28|10
JESS GILLAM
————————————————————————––– 11|11
CAMILLA NYLUND
————————————————————————––– 02|12
BENEDIKT KRISTJÁNSSON
————————————————————————––– 20|01
JOHAN DALENE
————————————————————————––– 31|03
STEFAN DOHR
————————————————————————––– 07|04
GEIR DRAUGSVOLL
————————————————————————––– 28|04
KIAN SOLTANI
————————————————————————––– 03 & 04|06
BARBARA HANNIGAN
————————————————————————––– 10|06
MARIANNA SHIRINYAN
19 & 20|08
NÝ KLASSÍK OG SINFÓ
————————————————————————– 03|09
KLASSÍKIN OKKAR – LEIKHÚSVEISLA
————————————————————————– 05|11
HÖGNI OG SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
————————————————————————– 25–27|11
HARRY POTTER OG VISKUSTEINNINN™
————————————————————————– 06–08|01
VÍNARTÓNLEIKAR
————————————————————————– 12|03
Á FERÐ UM SPORBAUG
————————————————————————– 05|05
VÍKINGUR OG JOHN ADAMS
————————————————————————– 03|06 & 04|06
BARBARA HANNIGAN Á LISTAHÁTÍÐ
ÍSLENSKA RÖÐIN
FJÖLBREYTT OG FREISTANDI
Fjölbreytt og öðruvísi tónlist fyrir öll áhugasvið
Íslensk tónlist og íslenskir sólistar í fremstu röð 03|09
KLASSÍKIN OKKAR
————————————————————————– 16 & 17|09
HALLVEIG, SIGRÍÐUR ÓSK OG JÓHANN
————————————————————————– 30|09
HALLDÓR SMÁRASON ————————————————————————– 06|10
STEFÁN JÓN OG ÁSTA DÓRA
————————————————————————– 21|10
AIŌN – ANNA ÞORVALDSDÓTTIR
————————————————————————– 11|11
DANÍEL BJARNASON
————————————————————————– 02|12
BENEDIKT KRISTJÁNSSON
————————————————————————– 06-08|01
ELMAR OG HERDÍS ANNA
————————————————————————– 27|01 MYRKIR MÚSÍKDAGAR
FERÐ ÁN FYRIRHEITS ————————————————————————– 02|03
VÍKINGUR OG DANÍEL ————————————————————————– 11|03
ANNA ÞORVALDSDÓTTIR OG KJARTAN SVEINSSON
————————————————————————– 10|06
JÓRUNN VIÐAR OG PÁLL ÍSÓLFSSON
11
Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi tekinn tali
Eva og endurfæðingin F
innski hljómsveitarstjórinn Eva Ollikainen tók formlega við stöðu aðalhljómsveitarstjóra á 70 ára afmælistónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í mars 2020. Það mun óhætt að segja að ekki hafi allt farið eftir áætlun síðan þá. Tveimur vikum síðar voru fjöldasamkomur óheimilar og í rúmt ár hefur glíman við kórónuveirufaraldur umturnað öllu starfi hljómsveitarinnar. „Það er vægt til orða tekið að ekkert hafi farið eins og við höfðum hugsað okkur á nýliðnu starfsári!“, segir Eva Ollikainen og brosir. „Í fyrsta lagi verð ég að hrósa hljómsveitinni og starfsliði Sinfóníuhljómsveitarinnar fyrir að vera svo skjót og sveigjanleg í að bregðast við hverri nýrri stöðu sem upp kom. Mér skilst raunar að Íslendingar hafi almennt verið mjög snöggir í viðbrögðum og nálgast erfiða stöðu af æðruleysi. Hjá hljómsveitinni var haldinn snöggur fundur, farið var yfir hvað væri mögulega hægt að gera í þeirri stöðu sem upp var komin, og svo var því bara hrint í framkvæmd. Ég verð að hrósa þessu því þetta er að mínu viti allt að því einstakt á heimsvísu. Okkur tókst alltaf að halda tónleika
12
þegar það var yfirleitt mögulegt. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að eiga slíkt samstarf. Meðlimir hljómsveitarinnar hafa sýnt úthald og sveigjanleika, tekið hverri breytingu með opnum huga jafnvel þótt fyrirvarinn væri skammur. Svo verð ég líka að þakka þeim meðlimum hljómsveitarinnar sem stigu fram og léku einleik þegar ljóst var að ekki yrði mögulegt að bjóða erlendum listamönnum að koma til landsins um sinn. Ég hef aðeins fengið jákvæð viðbrögð og þakklæti fyrir það að við skyldum geta haldið tónleika – sem er auðvitað það sem við brennum fyrir.“ Eva nefnir að sumar þær lausnir sem urðu til af illri nauðsyn á tímum samkomutakmarkana hafi í raun verið til góðs. „Það var til dæmis einstakt fyrir mig að ég skyldi geta starfað á Íslandi svo margar vikur í röð. Síðastliðinn vetur var ég hér í fimm vikur samfleytt, og það hef ég aldrei áður gert með nokkurri hljómsveit. Þannig gat ég lært betur inn á hljómsveitina og hún fengið meiri tíma til að kynnast mínum áherslum í tónlistinni. Þetta var dásamleg og jákvæð reynsla sem við búum að til framtíðar. Svo höfum við fengið mjög jákvæð viðbrögð við styttri efnisskrám án hlés. Þetta kenndi okkur að efnisskrár tónleika geta verið margs konar. Það hentar mörgum betur, ekki síst fjölskyldufólki sem vill koma með börnin sín á tónleika, að hafa tónleikana styttri og hnitmiðaðri. Þessa reynslu ætlum við einmitt að notfæra okkur á þessu starfsári, því að fernir tónleikar í grænu röðinni verða klukkutíma langir, án hlés, og í beinni útsendingu í sjónvarpi,“ segir Eva. Sé litið yfir efnisskrár vetrarins er augljóst að Richard Strauss er þar áberandi enda er hann í miklum metum hjá Evu. „Richard Strauss er hið fullkomna sinfóníska tónskáld,“ segir hún. „Fyrir sinfóníuhljómsveit ég get ekki hugsað mér neitt annað tónskáld sem skrifar svo frábæra tónlist og gefur hverjum og einum hljóðfæraleikara svo fallegar áskoranir í tónlistinni. Lokaútkoman er frábær – allir elska tónlistina hans, enda er hún fögur og glæsileg, oft ævintýraleg eða fyndin – en hvað sjálfan flutninginn snertir er helsta áskorunin að spila hverja nótu með fallegum, syngjandi tóni. Tónlist Strauss er tæknilega krefjandi en líka á vissan hátt hálfgerð kammertónlist, hún krefst nærgætni og tillits, sem er líka góður skóli. Mér fannst tónlist Strauss því tilvalið viðfangsefni fyrir
Kannski verður upplifun okkar jafnvel ennþá dýpri, vegna þess að við höfum svo lengi þurft að neita okkur um slíkar upplifanir. hljómsveitina einmitt nú, þegar við getum loksins tekist á við verk fyrir sinfóníuhljómsveit í fullri stærð.“ Það fer ekki á milli mála að Eva Ollikainen horfir björtum augum til framtíðar og hefur trú á hlutverki tónlistar í samfélaginu, ekki síst nú. „Það eru tvö verk á efnisskrá vetrarins sem mér finnst að fangi kjarnann í öllu okkar starfi einmitt á þessum merkilegu tímum. Þar á ég við Níundu sinfóníu Beethovens, sem færir okkur skilaboð um bræðralag mannkyns sem hafa aldrei verið mikilvægari en nú. Um leið er hún áminning til okkar sem veljum verk á efnisskrár hljómsveitarinnar um það að halda áfram að stuðla að jafnrétti á öllum sviðum. Í ár eru verk eftir konur og tónskáld úr minnihlutahópum meira áberandi en áður, og þótt vissulega megi alltaf gera betur þá held ég að við getum verið stolt af okkar framlagi í þá veru. Hitt verkið sem ég vil sérstaklega nefna er sinfónía nr. 5 eftir Shostakovitsj, sem má á vissan hátt líta á sem eins konar endurfæðingu í tónlist. Í raun er allt þetta starfsár í mínum huga eins konar endurfæðing eftir erfitt tímabil. Við getum boðið upp á dásamlegar efnisskrár og einleikara, og ég sé fyrir mér að samfélagið allt verði kraumandi af orku nú þegar loksins má koma saman og njóta tónleika á þann hátt sem við vorum áður vön. Kannski verður upplifun okkar jafnvel ennþá dýpri, vegna þess að við höfum svo lengi þurft að neita okkur um slíkar upplifanir.“
13
19|08 20| 08 FIMMTUDAGUR
KL.20:00
FÖSTUDAGUR
KL.20:00
Fram koma Bríet, Cell7, Flóni, GDRN, Joey Christ, JóiPé og Króli, Logi Pedro, og Reykjaví kurdætur
Ný klassí k og Sinfó Sinfóníuhljómsveit Íslands á stefnumót við marga af vinsælustu tónlistarmönnum landsins á þrennum stórtónleikum í Eldborg. Þau sem koma fram og flytja lög sín í nýjum órafmögnuðum útsetningum fyrir sinfóníuhljómsveit eru: GDRN, Flóni, Bríet, Joey Christ, Logi Pedro, JóiPé og Króli, Cell7 og Reykjavíkurdætur. Hjómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason og útsetningar eru í höndum Viktors Orra Árnasonar. Tónleikagestir geta átt von á því að heyra lög eins og Án þín, Ógeðsleg, Geimvera og Rólegur kúreki ásamt fleiri þekktum lögum. Enginn má missa af þessum einstöku tónleikum þar sem um hundrað tónlistarmenn taka höndum saman og skapa nýja klassík.
Ungstirnin í nýrri íslenskri tónlist stíga á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn.
14
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
15
21|08 LAUGARDAGUR
Sergej Prokofíev Pétur og úlfurinn
KL.15:00
Pétur og úlfurinn á Menningarnótt Pétur og úlfurinn er eitt ástsælasta tónlistarævintýri sem fyrirfinnst. Pétur býr hjá afa sínum sem er illa við að drengurinn álpist út fyrir garðinn þar sem úlfar ráfa um. En ævintýraþrá Péturs verður skynseminni yfirsterkari og þegar hann er kominn út fyrir garðinn hendir ýmislegt broslegt. Dýr af ýmsu tagi koma við sögu og Prokofíev gefur hverju þeirra sitt stef og hljóðfæri: fuglinn, öndin, kötturinn og úlfurinn gráðugi – en Pétur þyrmir lífi hans þrátt fyrir allt. Þetta litríka og skemmtilega ævintýri er fullkomin skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Einnig verður á tónleikunum sunginn afmælissöngurinn handa tónlistarhúsinu Hörpu, sem fagnaði tíu ára afmæli sínu í maí síðastliðnum. Aðgangur á tónleikana er ókeypis en sækja þarf miða á sinfonia.is eða í miðasölu Hörpu á tónleikadegi frá kl. 11.
16
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
Halldóra Geirharðsdóttir sögumaður
Cécile Parcillié myndskreytingar
03|09 FÖSTUDAGUR
KL.20.00
Vinsæl leikhústónlist frá ýmsum tímum, m.a. eftir Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ásgeirsson, Pál Ísólfsson, Edvard Grieg og úr söngleikjunum Vesalingunum og West Side Story.
LEIKHÚSVEISLA
Klassí kin okkar Undanfarin fimm ár hafa Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV efnt til glæsilegra tónleika undir yfirskriftinni „Klassíkin okkar“ sem hafa hlotið gífurlega athygli og vinsældir. Þann 3. september næstkomandi verða sjöttu tónleikarnir af þessum toga haldnir í Hörpu og að þessu sinni verður athyglinni beint að leikhústónlist, úr innlendum jafnt sem erlendum verkum frá ýmsum tímum. Meðal þeirra gimsteina sem hljóma á tónleikunum má nefna Afmælisdiktur („Í Skólavörðuholtið hátt“) eftir Atla Heimi Sveinsson, Söng Sólveigar eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Maístjörnuna eftir Jón Ásgeirsson, og lög úr vinsælum söngleikum eins og Vesalingunum og West Side Story. Vorið 2021 gafst Íslendingum færi á að kjósa sitt uppáhalds íslenska leikhúslag á ruv.is og verður tilkynnt um úrslitin á tónleikunum sem eru sýndir í beinni útsendingu á RÚV.
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, Elmar Gilbertsson, Emilíana Torrini, Jóhann Sigurðarson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Lay Low, Salka Sól Eyfeld og fleiri söngvarar kynntir síðar
Söngsveitin Fílharmónía Magnús Ragnarsson kórstjóri
Halla Oddný Magnúsdóttir Guðni Tómasson kynnar
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Þjóðleikhússins og RÚV.
Framúrskarandi söngvarar, leikarar og kórar koma fram í þessari einstöku dagskrá þar sem töfrar leikhússins verða í algleymingi.
17
09|09 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Johannes Brahms
Akademískur hátíðarforleikur
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Henri Tomasi Básúnukonsert
Bertrand de Billy stjórnar Brahms Fyrstu áskriftartónleikar starfsársins fara fram undir styrkri stjórn Bertrands de Billy, sem er nýr aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann kemur reglulega fram með fremstu hljómsveitum heims, meðal annars á Salzburgar-hátíðinni og við Metropolitan-óperuna í New York, auk þess sem hann er aðalgestastjórnandi Fílharmóníusveitarinnar í Dresden.
Johannes Brahms Sinfónía nr. 1
Bertrand de Billy
hljómsveitarstjóri
Jörgen van Rijen einleikari
Á Íslandi mun Bertrand de Billy meðal annars stjórna öllum sinfóníum Johannesar Brahms og því er viðeigandi að fyrsta sinfónía meistarans sé á efnisskránni á þessum tónleikum. Brahms átti í vandræðum með verkið fyrst um sinn, honum þótti erfitt að feta í fótspor Beethovens í þessu stórbrotna formi, en útkoman var sannarlega áreynslunnar virði og hefur hún oft verið nefnd „tíunda sinfónía Beethovens“. Akademíski hátíðarforleikurinn er eitt líflegasta hljómsveitarverkið sem Brahms samdi, syrpa af glaðværum stúdentasöngvum og tilvalinn upptaktur að nýju tónleikaári. Jörgen van Rijen leiðir básúnudeild Concertgebouwhljómsveitarinnar í Amsterdam, sem talin er ein sú besta í heimi. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir leik sinn, meðal annars Hollensku tónlistarverðlaunin, og hefur starfað náið með samtímatónskáldum eins og James MacMillan og Kalevi Aho. Á Íslandi leikur hann konsert eftir Henri Tomasi, verk sem er ljóðrænt en einnig með hressilegu djass-ívafi og hefur um áratugaskeið verið einn mest flutti básúnukonsert sem fyrirfinnst. 18
Brahms og básúnukonsert í meistaratúlkun á fyrstu áskriftartónleikum vetrarins.
11|09
LAUGARDAGUR
KL.11:30
NORÐURLJÓS
Barnastund Sinfóníunnar
Skemmtileg og lífleg tónlist, m.a. forleikurinn að Carmen, vinsæl lög úr Dýrunum í Hálsaskógi og íslensk lög um dýrin, Krummi krunkar úti og Heyrðu snöggvast Snati minn. Sigurður Þór Óskarsson kynnir
Í Barnastund hljómsveitarinnar að hausti kynnir Sigurður Þór Óskarsson ljúfar klassískar perlur í bland við þekkt sönglög. Ævintýratónlist úr Dýrunum úr Hálsaskógi og Emil úr Kattholti hljómar á þessari fallegu Barnastund í nýjum útsetningum Jóhanns G. Jóhannssonar. Skemmtileg samverustund fyrir yngstu börnin. Aðgangur er ókeypis og gott er að koma með púða til að sitja á.
19
16 |09 17 |09 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
FÖSTUDAGUR
KL.19:30
Sofia Gubaidulina Fachwerk
TÓNLEIKAKYNNING
16|09 KL.18:00
Ludwig van Beethoven Sinfónía nr.9
Níunda sinfónía Beethovens Níunda sinfónían er eitt dáðasta verk tónlistarsögunnar, síðasta sinfónía Beethovens en sú fyrsta í tónlistarsögunni þar sem notast var við söngvara. Hún hafði feykileg áhrif á þróun sinfóníunnar á 19. öld og meðal þeirra sem sömdu verk undir áhrifum hennar má nefna Mendelssohn og Brahms, Bruckner og Mahler. Lokakaflinn, Óðurinn til gleðinnar, hefur ekki síður verið áhrifavaldur á 20. og 21. öld. Tónlistin þykir boðberi friðar og jafnréttis, og verkið hljómaði meðal annars í tengslum við hrun Berlínarmúrsins og byltingu námsmanna á Torgi hins himneska friðar í Kína. Úrvalslið tónlistarmanna tekur þátt í flutningnum. Hallveig Rúnarsdóttir og Sigríður Ósk hafa um árabil verið meðal fremstu söngkvenna þjóðarinnar. Stuart Skelton er í flokki fremstu tenórsöngvara heims og var kosinn Söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021. Jóhann Kristinsson hefur vakið mikla hrifningu fyrir blæbrigðaríkan og innblásinn söng; „Rödd hans var dásamleg“, sagði gagnrýnandi Fréttablaðsins fyrir skemmstu, „í senn breið og voldug.“ Norðmaðurinn Geir Draugsvoll er einn fremsti harmóníkuleikari heims. Hann hefur um árabil starfað náið með Sofiu Gubaidulinu, sem hefur samið allnokkur verk 20
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Geir Draugsvoll
einleikari
Hallveig Rúnarsdóttir Sigríður Ósk Kristjánsdóttir Stuart Skelton Jóhann Kristinsson einsöngvarar
Mótettukórinn Söngsveitin Fílharmónía Hörður Áskelsson Magnús Ragnarsson kórstjórar
fyrir bajan, eða rússneska takkaharmóníku. Gubaidulina tileinkaði honum einmitt Fachwerk, sem gagnrýnandi BBC Music Magazine segir vera „töfrandi ljóðræna fantasíu“, og sem hljómar nú í fyrsta sinn á Íslandi. Draugsvoll leikur tvisvar sinnum með Sinfóníuhljómsveit Íslands á þessu starfsári, í bæði skiptin hrífandi tónsmíðar Gubaidulinu sem einmitt fagnar níræðisafmæli sínu í október 2021. Tónleikarnir eru tileinkaðir Vladimir Ashkenazy í þakklætisskyni fyrir áratuga starf hans í þágu tónlistarlífs á Íslandi.
Eitt frægasta verk tónlistarsögunnar ásamt frumlegri nýsmíði Gubaidulinu.
21
25|09
LAUGARDAGUR
KL.14.00
LITLI TÓNSPROTINN
Undur jarðar með Stjörnu-Sævari Á fyrstu Tónsprotatónleikum vetrarins verður haldið í magnað ferðalag þar sem undur veraldar eru meginstefið í tali, tónum og myndum. StjörnuSævar stýrir þessum leiðangri þar sem töfrar jarðar og alheimsins fá nýja vídd í stórbrotnum og litríkum tónverkum. Við förum aftur í tímann þegar jörðin varð til, skoðum eld og ís, höf og eyðimerkur, veðrið, lífið sjálft og hvernig við tengjumst þessu öllu. Sævar Helgi er landsþekktur fyrir þekkingu sína og ástríðu og er allt í senn, jarðfræðingur og kennari, dagskrárgerðarmaður og rithöfundur. Með óbilandi eldmóð í farteskinu munu fjallstindar, úthöf, eldgos og önnur náttúrufyrirbæri birtast tónleikagestum ljóslifandi á þessum stórbrotnu tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í Eldborg.
Heillandi dagskrá um töfra jarðarinnar og hvernig þeir birtast í tónlist. 22
Ævintýraleg tónlist um undur jarðar, eftir m.a. John Williams, Richard Strauss, W.A. Mozart, Ferde Grofé og Jón Leifs.
Noam Aviel
hljómsveitarstjóri
Sævar Helgi Bragason kynnir
26|09 SUNNUDAGUR
Jean Sibelius
Sinfónía nr. 2
KL.17.00
Ungsveitin spilar Sibelius
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands er einn af máttarstólpunum í hljómsveitarstarfi ungs tónlistarfólks á Íslandi. Sveitin hélt sína fyrstu tónleika haustið 2009 og síðan hafa tæplega hundrað ungmenni safnast saman undir merkjum Ungsveitarinnar ár hvert, með undraverðum árangri. Ungsveit SÍ var valin Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2017 og hélt síðast upp á 10 ára afmæli sitt með flutningi á Níundu sinfóníu Beethovens. Í ár er viðfangsefni Ungsveitarinnar sinfónía nr. 2 eftir Jean Sibelius. Þetta er eitt glæsilegasta hljómsveitarverk finnska meistarans, fullt af tilþrifamiklum stefjum sem vaxa að glæsilegum hápunkti lokaþáttarins. Á tónsprotanum heldur Eva Ollikainen, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar, en hún gjörþekkir tónlist Sibeliusar og stjórnar nú Ungsveitinni í fyrsta sinn.
Tónlistarfólk framtíðarinnar stígur á svið í magnaðri sinfóníu Sibeliusar.
23
30|09 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Halldór Smárason
infinite image
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Antonín Dvořák Sellókonsert
Sellókonsert Dvořáks „Maður hálfdansaði út úr Hörpunni á eftir“ sagði rýnir Fréttablaðsins eftir tónleika Peters Oundjian og Sinfóníuhljómsveitarinnar í Toronto í Reykjavík 2014 og bætti við að þeir hefðu verið „með flottustu klassísku tónleikum ársins“. Oundjian lék um árabil með Tókýó-strengjakvartettinum heimskunna og var lengi aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Toronto. Hann kemur nú til Íslands í þriðja sinn og er hægt að lofa innblásnum flutningi þegar hann á í hlut. Danski sellóleikarinn Jonathan Swensen hefur undanfarin ár sópað að sér verðlaunum í alþjóðlegum keppnum og hlaut einnig Leonie Sonning-verðlaunin í heimalandi sínu fyrir framúrskarandi leik. Hann leikur sellókonsert Dvořáks sem er eitt dáðasta verk sinnar tegundar, í senn flugeldasýning og hjartnæmur söngur sem tjáir sorg og söknuð. Á tónleikunum hljómar einnig glæsilegur Konsert fyrir hljómsveit sem Joan Tower samdi árið 1991 að beiðni þriggja bandarískra sinfóníuhljómsveita, í New York, Chicago og St. Louis. Tower hefur unnið til Grammyverðlauna fyrir tónlist sína og var fyrsta konan til að hljóta 24
Joan Tower
Konsert fyrir hljómsveit
Peter Oundjian hljómsveitarstjóri
Jonathan Swensen einleikari
hin virtu Grawemeyer-tónskáldaverðlaun. Um konsert hennar fyrir hljómsveit sagði gagnrýnandi New Yorktímaritsins að hann væri „litríkt og innblásið verk sem mun án efa teljast í flokki hinna bestu sem hún hefur samið“. Á tónleikunum verður frumflutt nýtt verk eftir Halldór Smárason, ísfirskt tónskáld sem hefur vakið mikla eftirtekt á undanförnum árum fyrir hæfileika sína og fjölhæfni. Verkið infinite image er samið undir áhrifum frá ljóðinu Þoka eftir Sigurð Pálsson, sem er einstaklega myndrænt og litríkt. Líkt og ljóðið hverfist tónverkið í kringum mörkin milli hins sjáanlega og ósjáanlega, hins heyranlega og óheyranlega.
Tilþrifamikill sellókonsert og bandarískt verðlaunaverk.
06 |10 MIÐVIKUDAGUR
KL.20:00
Richard Strauss Hornkonsert nr. 1
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:30
Dmítríj Shostakovitsj
Píanókonsert nr. 2
Richard Strauss
Strauss og Shostakovitsj Stefán Jón Bernharðsson er einn fremsti hljóðfæraleikari Íslands. Ásamt því að leiða horndeild Sinfóníuhljómsveitarinnar leikur hann reglulega með sveitum á borð við Mahlerkammersveitina og Fílharmóníusveit Stokkhólms. Hér leikur hann fyrri hornkonsert Richards Strauss, sem hann samdi aðeins átján ára gamall og færði föður sínum í afmælisgjöf, en Franz Strauss var afburða hornleikari og starfaði við óperuhljómsveitina í München. Ásta Dóra Finnsdóttir er aðeins fjórtán ára gömul en hefur um árabil verið í hópi efnilegustu píanóleikara Íslands. Hún komst í heimsfréttirnar níu ára þegar myndband þar sem hún lék Mozart á almenningspíanó í Lundúnum komst á flug í netheimum og milljónir manna horfðu á það um allan heim. Hljóðritun hennar á Corellitilbrigðum Rakhmanínovs, sem flutt var á Rás 1 Ríkisútvarpsins á nýársdag, vakti verðskuldaða athygli. Nú þreytir Ásta Dóra frumraun sína með Sinfóníuhljómsveit Íslands og flytur hinn bráðskemmtilega píanókonsert nr. 2 eftir Shostakovitsj, sem er fullur af æskufjöri enda samdi tónskáldið verkið fyrir ungan son sinn.
Don Juan
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Stefán Jón Bernharðsson einleikari
Ásta Dóra Finnsdóttir einleikari
Halla Oddný Magnúsdóttir kynnir
Tónleikunum lýkur með öðru meistaraverki eftir Strauss, tónaljóðinu Don Juan sem byggt er á sögninni frægu um kvennabósann sem svífst einskis þegar lífsins nautnir eru annars vegar. Tónsmíðin er ein sú glæsilegasta sem Strauss lét frá sér fara. Töfrandi hljómsveitarútsetning og eftirminnileg stef eru meðal þess sem hefur gert Don Juan að eftirlætisverki tónleikagesta í meira en 130 ár. Tónleikunum er einnig sjónvarpað beint á RÚV og eru þeir um klukkustundarlangir án hlés.
25
Stigið inn í sviðsljósið Stefán Jón Bernharðsson og Þórunn Ósk Marínósdóttir leika bæði einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands á starfsárinu
Í
hverri sinfóníuhljómsveit starfa hátt í hundrað manns sem hver og einn á að baki langt og strangt nám í sinni grein. Hver leggur sitt af mörkum til heildarinnar en er um leið fær um að stíga inn í sviðsljósið sem einleikari þegar færi gefst. Haustið 2021 leika tveir leiðarar úr hljómsveitinni, Þórunn Ósk Marínósdóttir víóluleikari og Stefán Jón Bernharðsson hornleikari, einleikskonserta á tónleikum í grænni áskriftarröð. Þórunn leikur Lachrymae eftir Benjamin Britten en Stefán Jón flytur hornkonsert nr. 1 eftir Richard Strauss. Það má segja að hljóðfærin hafi verið viðkomandi tónskáldum handgengin, því að Britten var sjálfur víóluleikari en faðir Strauss var einn fremsti hornleikari Þýskalands á sinni tíð. Skyldu þetta vera verk sem hafa lifað lengi með þeim? „Já, mjög lengi,“ segir Stefán Jón. „Þetta var einmitt fyrsti konsertinn sem ég spilaði í heild með hljómsveitinni, það var á einleikaraprófinu mínu frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1998. Þessi konsert er eitt af lykilverkum hornbókmenntanna, það eru konsertarnir fjórir eftir Mozart og svo fyrri Strauss-konsertinn sem eru eins konar hornsteinar. Það er óhjákvæmilegt að maður kynnist þessu verki í sínu námi sem hornleikari.“ Þórunn Ósk á líka löng kynni af verki Brittens. „Þetta verk er búið að lifa lengi með mér, enda er þetta ein af perlunum meðal konsertverka fyrir víólu. Við eigum ekki eins stóran og ríkan sjóð og fiðluleikarar eða sellóleikarar! Ég hef spilað þetta nokkrum sinnum áður með píanói en ekki með strengjasveit, það er virkilega gaman að fá tækifæri til þess. Britten samdi verkið árið 1950 þegar hann var í
26
miðjum óperusmíðum, þá hitti hann víóluleikarann William Primrose og ákvað að semja þetta verk fyrir hann. Þetta eru eins konar tilbrigði við stef úr lagi eftir endurreisnartónskáldið John Dowland. Það er bæði ástríða og dramatík í þessari tónlist, en hann sækir líka innblástur í endurreisnina, ekki bara laglínuna sjálfa heldur alls konar hljóma og andblæ. Svo er uppbygging verksins fremur óvenjuleg af því að víólan leikur tilbrigðin fyrst en stefið hljómar ekki fyrr en í blálokin,“ segir Þórunn. Hvernig tilfinning skyldi það vera fyrir hljómsveitarmeðlimi sem eiga sitt fasta sæti á sviðinu, að stíga allt í einu fremst á sviðið og taka að sér hlutverk einleikarans? Stefán Jón segir að það sé svolítið öðruvísi tilfinning en hann sé vanur. „Maður venst því að sitja á sínum stað í hljómsveitinni á hverjum degi, en sem sólisti þarf maður að setja sig í svolítið annan gír, sem er auðvitað bara skemmtilegt. Ekki síst að gera það með sinni eigin hljómsveit og kollegum sínum, þar sem maður finnur velvilja.“ Þórunn tekur undir þetta með velviljann: „Já, það myndast alveg sérstök stemning í hljómsveitinni þegar einleikarar úr okkar röðum koma fram. Ég finn það líka þegar ég er sjálf að spila í víóludeildinni að þegar einhver annar úr hljómsveitinni stígur fram sem einleikari þá styður maður viðkomandi 100% og gleðst með þeim yfir tækifærinu.“ Á hverju ári leika einhverjir meðlimir Sinfóníuhljómsveitar Íslands einleik með hljómsveitinni en starfsárið 2020–21 voru það margfalt fleiri en í venjulegu ári. Haustið 2020 varð smám saman ljóst að þeir erlendu einleikarar sem búið var að ráða til að leika með hljómsveitinni gætu ekki komið til landsins vegna ferðatakmarkana, og þá var brugðið á það ráð að óska eftir tillögum frá meðlimum hljómsveitarinnar um konserta sem mögulega væri hægt að flytja. Þórunn Ósk nefnir sérstaklega að áhugi hljóðfæraleikaranna hafi verið mikill. „Mér fannst það frábært framtak hjá
Sinfóníuhljómsveitinni að auglýsa eftir einleikurum á COVID-tímanum, en ég var líka mjög ánægð með hversu margir buðu sig fram – fleiri en hægt var að koma fyrir á þeim tónleikum sem hægt var að halda. Það er frábært að við séum með þannig sinfóníuhljómsveit að fólk treysti sér til að troða svona upp, og það er alls ekkert sjálfgefið. Það er svo allt öðruvísi að vera einleikari, maður þarf að setja sig í nýjar stellingar og meira að segja beita sér öðruvísi.“ Stefán tekur undir þetta og bætir við: „Svo fylgir líka allt annað hugarfar hlutverki einleikarans. Hornin eru til dæmis oft í bakgrunninum, veita stuðning og þá þarf maður að halda sig til baka, en einleikarinn þarf alltaf að láta í sér heyra, svo það er annað hugarfar og önnur nálgun.“ Bæði Þórunn Ósk og Stefán Jón spila á tónleikum í grænni áskriftaröð sem verða í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV. Þau eru bæði á því að best sé að velta því ekki of mikið fyrir sér að tónleikunum verði sjónvarpað beint. „Maður getur ekkert hugsað um það,“ segir Þórunn. „En auðvitað er það heiður að fá að taka þátt í Maður venst því að sitja á þessu. Ég hugsa aðallega til dæmis um mömmu og pabba, þau búa sínum stað í hljómsveitinni á fyrir norðan og þetta er dýrmætt hverjum degi, en sem sólisti tækifæri fyrir fólk á landsbyggðinni þarf maður að setja sig í til að bæði sjá hljómsveitina og heyra.“ „Maður lítur bara á þetta svolítið annan gír, sem er sem tækifæri og reynir að njóta auðvitað bara skemmtilegt. þess,“ bætir Stefán við. „Maður þarf Ekki síst að gera það með sinni nefnilega að halda í þessa barnslegu eftirvæntingu yfir því að spila eigin hljómsveit og kollegum tónleika, jafnvel þegar maður er sínum, þar sem maður finnur orðinn rútíneraður í faginu!“
velvilja.
27
28
14 |10 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Pjotr Tsjajkovskíj
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Rómeó og Júlía, fantasíuforleikur
Sergej Prokofíev Píanókonsert nr. 2
Tsjajkovskíj og Prokofíev
Emilie Mayer
Sinfónía nr. 7
Anja Bihlmaier
hljómsveitarstjóri
Bezhod Abduraimov einleikari
Bezhod Abduraimov, píanóleikarinn snjalli frá Úsbekistan, kemur nú til landsins í þriðja sinn. Frumraun hans með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2015 var töfrum líkust, „svo gríðarleg var fingrafimin að áhugamenn um slaghörpuloftfimleika, agndofa á sætisbríkum, máttu fara sáttir í háttinn“, sagði tónleikarýnir Morgunblaðsins. Það er svo sannarlega nóg um loftfimleika í píanókonserti Prokofíevs nr. 2, sem er ein hans kraftmesta og glæsilegasta tónsmíð. Einnig hljómar forleikur Tsjajkovskíjs innblásinn af sögunni um Rómeó og Júlíu, eitt dáðasta verk rússneskrar rómantíkur í tónlist. Hin þýska Emilie Mayer er eitt hinna mörgu kventónskálda sögunnar sem gleymdist nær algjörlega svo áratugum skipti. Undanfarið hefur hún hlotið þann sess sem hún verðskuldar og verk hennar hljóma æ oftar um allan heim. Mayer samdi meðal annars átta sinfóníur, þrátt fyrir að almenn skoðun í karllægum tónlistarheimi 19. aldar væri sú að konur gætu ekki valdið svo stórum tónlistarformum. Sinfónían sem hér hljómar sýnir svo ekki verður um villst að Mayer gat samið allt eins vel og karlarnir. Hún er dramatísk og glæsileg, minnir á Schumann og Mendelssohn en hefur samt sinn eigin, áhugaverða tón. Anja Bihlmaier er aðalstjórnandi Residentie-hljómsveitarinnar í Den Haag og aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Lahti. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir túlkun sína á óperum og sinfónískri tónlist, og hefur einstakt lag á að glæða gleymd tónverk nýju lífi.
Einn fremsti píanóleikari heims flytur kraftmikinn konsert Prokofíevs. 29
21| 10
Anna Þorvaldsdóttir og Erna Ómarsdóttir
AIŌN
FIMMTUDAGUR
KL.20:00
AIŌN
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS & ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN AIŌN er innblásið af abstrakt hugsun um tímann og ferðalag milli vídda. Í þessu nýja verki bjóða Erna Ómarsdóttir danshöfundur og Anna Þorvaldsdóttir tónskáld áhorfendum upp á töfrandi heim þar sem tónlist og dans mætast á óvanalegan hátt og dansarar Íslenska dansflokksins og hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitarinnar renna saman í eitt. Anna og Erna eru báðar áhrifavaldar á heimsvísu, hvor í sinni listgrein. Anna Þorvaldsdóttir er staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hafa verk hennar verið flutt af fremstu hljómsveitum heims, meðal annars Fílharmóníusveitunum í Berlín, New York og Los Angeles. Erna Ómarsdóttir er listdansstjóri Íslenska dansflokksins og hefur hún hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín sem sýnd hafa verið á helstu listahátíðum og leikhúsum í Evrópu og víðar.
30
AIŌN er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar, en verkið var frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar og Íslenska dansflokknum í maí 2019 í Tónlistarhúsinu í Gautaborg. Flutningurinn hlaut frábærar viðtökur gagnrýnenda jafnt sem tónleikagesta. Gagnrýnandi Dagens Nyheter lýsti flutningnum sem „eins konar náttúruafli“ og Die Presse í Þýskalandi sagði verkið „sönnun þess hve tónlist og hreyfing eiga vel saman. Tónlistin og dansararnir verða sem ein heild.“ Ekki missa af einstökum viðburði fyrir alla þá sem hafa áhuga á spennandi nýsköpun í tónlist og dansi á Íslandi.
Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri
Agnieszka Baranowska búningahönnuður
Ásgeir Helgi Magnússon Charmene Pang Elín Signý W. Ragnarsdóttir Erna Gunnarsdóttir Félix Urbina Alejandre Shota Inoue Sigurður Andrean Sigurgeirsson Una Björg Bjarnadóttir dansarar
Pierre-Alain Giraud Valdimar Jóhannsson vídeóverk
Áhrifamikið dans- og tónlistarverk Önnu Þorvaldsdóttur og Ernu Ómarsdóttur flutt í fyrsta sinn á Íslandi.
31
28|10 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Doreen Carwithen Bishop Rock
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Claude Debussy
Rapsódía fyrir hljómsveit og saxófón
Jess Gillam og Prokofíev
Alexander Glazúnov
Saxófónkonsert
Sergej Prokofíev Sinfónía nr. 5
Ryan Bancroft
hljómsveitarstjóri
Jess Gillam Breski saxófónleikarinn Jess Gillam hefur vakið fádæma hrifningu tónlistarunnenda undanfarin ár. „Hún breiðir út gleði hvar sem hún fer“ sagði The Times um leik hennar, en Gillam kom meðal annars fram á hinum frægu Last Night of the Proms-tónleikum árið 2018 og diskar hennar hafa náð metsölu. Á tónleikunum flytur hún rapsódíu Debussys fyrir saxófón en einnig síðrómantískan konsert Glazúnovs, rússneska tónskáldsins sem í dag er helst kunnur fyrir að hafa kennt Shostakovitsj tónsmíðar. Ryan Bancroft stal senunni í Malko-hljómsveitarstjórakeppninni árið 2018, þar sem bæði fyrstu verðlaun og áheyrendaverðlaun féllu honum í skaut. Bancroft er aðalstjórnandi Þjóðarhljómsveitar BBC í Wales, og tónleikarýnir The Guardian sagði nýverið að sem stjórnandi hafi hann „bæði kraft og þokka“ og að túlkun hans hafi verið „ótrúlega áhrifarík og fögur“. Doreen Carwithen var afkastamikið breskt tónskáld um miðja 20. öld, samdi tónlist við um 30 kvikmyndir auk hljómsveitarverka og kammertónlistar. Verk hennar lágu um skeið í gleymsku en hafa undanfarin ár hlotið verðskuldaða athygli á ný. Tónleikarnir hefjast á kraftmiklum forleik sem innblásinn er af „Biskupskletti“, einmana skeri við suðurodda Cornwall á Englandi þar sem ekki er pláss fyrir nema einn vita sem lýsir sæfarendum leið.
32
Breskur saxófónsnillingur leikur á Íslandi í fyrsta sinn.
einleikari
03 |11 MIÐVIKUDAGUR
KL.20:00
John Dowland
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:30
If My Complaints Could Passions Move
Benjamin Britten Lachrymae
Töfrar fortíðar Tónlist fortíðar getur orðið samtímanum innblástur með ýmsu móti. Nálgun tónskálda á 20. og 21. öld spannar allt frá háttvísum umritunum yfir í djarfa endursköpun – eða jafnvel kaldhæðna afbyggingu þar sem hriktir í gömlum stoðum. Á þessum tónleikum verða leikin meistaraverk sem á einn eða annan hátt taka eldri tónlist sem útgangspunkt. Benjamin Britten samdi víóluverkið Lachrymae árið 1950 út frá sönglagi eftir John Dowland frá árinu 1597, og kallaði verk sitt „hugleiðingu“ um eldra lagið. Þórunn Ósk Marinósdóttir leikur einleikshlutverkið, en hún leiðir víóludeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands og er meðlimur Strokkvartettsins Sigga sem hefur vakið verðskuldaða athygli á undanförnum árum. Thomas Adès samdi Þrjár æfingar eftir Couperin árið 2006 og byggir á þremur hljómborðsþáttum eftir franska barokktónskáldið François Couperin. Einn gagnrýnandi lýsti útkomunni þannig að það sé sem Adès líti á tónlistina gegnum kviksjá, þar sem brot úr upprunalegu verkunum veltast um eins og glitrandi glerbrot. Þetta er tilvalin upphitun fyrir Íslandsheimsókn Adèsar, en hann er væntanlegur hingað til lands í nóvember og stjórnar þá píanókonserti sínum í túlkun Víkings Heiðars.
Thomas Adès
Three Studies from Couperin
Maurice Ravel
La Valse
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Þórunn Ósk Marinósdóttir einleikari
Halla Oddný Magnúsdóttir kynnir
La valse eftir Maurice Ravel er eitt hans dáðasta hljómsveitarverk og ekki að ósekju. Í þessu magnaða verki líða hjá brot úr ljúfum Vínarvölsum en líka ágengari hendingar sem skapa aukna spennu með hverjum takti sem líður. Sumir heyra í La valse uppgjör Ravels við hið volduga austurríska keisaradæmi eftir hörmungar heimsstyrjaldarinnar fyrri, því að valstaktarnir verða í meðförum Ravels að eins konar skrumskælingu. Hvað sem því líður er tónverkið stórkostlegt og flutningur þess undir stjórn Evu Ollikainen er sannkallað tilhlökkunarefni. Tónleikunum er einnig sjónvarpað beint á RÚV og eru þeir um klukkustundarlangir án hlés.
Heillandi umbreytingar á gamalli tónlist eftir tónskáld 20. og 21. aldar. 33
05|11
Högni Egilsson Ný verk
FÖSTUDAGUR
KL.18 & 20
FÖSTUDAGSRÖÐIN Í NORÐURLJÓSUM
Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri
Högni og Sinfóníuhljómsveit Íslands
Högni Egilsson hefur um langt árabil verið meðal kunnustu tónlistarmanna landsins og hefur náð athygli langt út fyrir landsteinana með tónlist sinni og starfi með tónlistarhópnum Hjaltalín. Hann hefur einnig samið viðamikla tónlist fyrir þáttaröðina Katla á Netflix, sem Sinfóníuhljómsveit Íslands tók þátt í að flytja. Högni á að baki langt nám í klassískri tónlist. Hann stundaði fiðlunám í æsku, söng með Hamrahlíðarkórnum um árabil og lauk tónsmíðanámi við Listaháskóla Íslands. Á þessum tónleikum hljómar ný sinfónísk tónlist eftir þennan virta og vinsæla tónlistarmann og er þetta í fyrsta sinn sem Högni semur sérstaklega fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tónleikarnir eru hluti af dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves.
Frumleg og áhugaverð sinfónísk tónlist Högna Egilssonar.
11|11
FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Daníel Bjarnason
From Space I Saw Earth
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Richard Strauss Till Eulenspiegel
Richard Strauss
Eva stjórnar Strauss Richard Strauss var eitt merkasta tónskáld síðrómantíkur. Starfsárið 2021–22 verður tónlist hans áberandi á efnisskrám Sinfóníuhljómsveitarinnar og mun Eva Ollikainen stjórna alls sjö verkum hans á áskriftartónleikum. Á þessum tónleikum hljóma þrjú þeirra, afar ólíkir ópusar sem spanna meira en hálfa öld. Tónaljóðið sem Strauss samdi um hrekkjalóminn Ugluspegil framkallar bros við hverja hlustun, en í svítu úr óperunni Rósarriddaranum hljóma innilegir ástarsöngvar í bland við líflega Vínarvalsa.
Der Rosenkavalier, svíta
Richard Strauss
Fjórir síðustu söngvar
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Camilla Nylund
einsöngvari
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri
Finnska sópransöngkonan Camilla Nylund er ein sú fremsta á sínu sviði á heimsvísu. Hún hefur sungið við öll helstu óperuhús heims og gagnrýnendur eru á einu máli um að raddfegurð hennar og túlkun séu engu lík. „Hreinasta opinberun,“ sagði einn þýskur gagnrýnandi og annar dásamaði hina „gullnu rödd“ hennar. Á Íslandi syngur Nylund Fjóra síðustu söngva, verk sem Strauss lauk við undir lok ævinnar, rúinn trausti eftir hremmingar heimsstyrjaldarinnar síðari. Þetta er einhver fegursta kveðja til jarðlífsins sem nokkru sinni hefur verið fest á blað.
Daníel sækir innblástur í geimferðir sjöunda áratugarins og þá sýn sem blasir við þeim sem skoða jarðarkringluna utan úr geimnum. Verkið er ætlað þremur stjórnendum og við frumflutninginn héldu um taumana núverandi og fyrrverandi aðalstjórnendur sveitarinnar í Los Angeles, þeir Gustavo Dudamel, Esa-Pekka Salonen og Zubin Mehta. Í Eldborg mundar Eva Ollikainen tónsprotann ásamt tónskáldinu sjálfu og Kornilios Michailidis.
Daníel Bjarnason samdi nýjasta hljómsveitarverk sitt fyrir aldarafmæli Fílharmóníusveitarinnar í Los Angeles og var það frumflutt þar við mikinn fögnuð í nóvember 2019.
Hrífandi sönglög Strauss í túlkun einnar fremstu sópransöngkonu Norðurlanda.
35
35
Í leit að kjarnanum Víkingur Heiðar Ólafsson, staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands, tekinn tali
Þ
að má með sanni segja að vorið 2021 hafi verið viðburðaríkt hjá Víkingi Heiðari Ólafssyni. Þrátt fyrir að samkomubann og ferðatakmarkanir hafi leikið tónlistarheiminn grátt tókst honum að koma fram á fjölda tónleika, meðal annars með Concertgebouw-hljómsveitinni í Amsterdam, hann hljóðritaði nýja plötu fyrir Deutsche Grammophon og varð faðir í annað sinn. Það er líka margt spennandi í vændum, meðal annars tengt stöðu hans sem staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Verkefni hans með hljómsveitinni er sannarlega óvenjulegt og því liggur beint við að spyrja hvernig það hafi komið til? „Þegar Sinfóníuhljómsveitin kom að máli við mig um staðarlistamannsstöðu vildi ég freista þess að gera eitthvað óvenjulegt,“ segir Víkingur og eftirvæntingin í svipnum leynir sér ekki. Ég stakk upp á að flytja þrjá nýja (eða nýlega) píanókonserta eftir þrjú af mínum eftirlætis núlifandi tónskáldum og að höfundarnir héldu sjálfir um tónsprotann. Ég bað sem sagt ekki um lítið! Ég á langa vináttu og samstarf að baki með Daníel Bjarnasyni en undanfarið hef ég einnig kynnst og spilað með John Adams og Thomasi Adès. Þeir eru auðvitað afskaplega eftirsóttir listamenn og ég var í sannleika sagt ekki of vongóður að það tækist að fá þá til Íslands innan þess tímaramma sem í boði var, en einhvern veginn tókst að láta þetta allt saman ganga upp. Ég verð að hrósa Sinfóníuhljómsveitinni fyrir að taka svona vel í
36
þessa hugmynd, og ég held að þetta hljóti að teljast nokkur tíðindi í íslensku tónlistarlífi. Og það er auðvitað sérstakt tilhlökkunarefni að spila glænýjan konsert Daníels sem er pantaður í sameiningu af Sinfóníuhljómsveit Íslands, Fílharmóníusveitinni í Los Angeles og Útvarpshljómsveitinni í Frankfurt.“
eða crescendo eru í raun. Maður þarf alltaf að komast handan þeirra að kjarnanum sem bjó að baki þeim. Þá opnast margir möguleikar,“ segir Víkingur.
Samstarf Víkings við bandaríska tónskáldið John Adams er tiltölulega nýtilkomið en píanókonsert þess síðarnefnda, Must the Devil Have All the Good Tunes?, var frumfluttur árið 2019. „Síðustu tónleikarnir sem ég spilaði áður en COVID skall á voru einmitt með Adams í París og Amsterdam að flytja þennan konsert sem við munum spila á Íslandi,“ segir Víkingur. „Þetta voru í raun fyrstu tónleikar okkar saman, en svo þurftum við að aflýsa tónleikum í Cleveland og Róm vegna heimsfaraldursins. Með Adès spilaði ég píanókonsert Beethovens nr. 2 með Fílharmóníusveitinni í Los Angeles árið 2018, hann hélt þá um tónsprotann. Það var ótrúlega frjótt og skemmtilegt. En konsert hans, In Seven Days, sem mér finnst vera eitt albesta tónverk 21. aldarinnar, höfum við aldrei flutt saman. Í framhaldi af tónleikunum á Íslandi munum við flytja verkið með Fílharmóníusveitinni í Lundúnum seinna á starfsárinu. Það eru ótrúleg forréttindi fyrir mig að vinna með þessum mönnum sem eru meðal mestu tónskálda samtímans. Það er í raun svolítið eins og að vinna með Prokofíev eða Ravel hefði ég verið uppi fyrir 100 árum síðan!“
Hugmyndina að þessu nýstárlega verkefni staðarlistamanns má kannski einmitt rekja til þess þegar Víkingur frumflutti píanókonsertinn Processions eftir Daníel Bjarnason með Sinfóníuhljómsveitinni á Myrkum músíkdögum árið 2009. Hvernig skyldi það samstarf hafa þróast síðan þá?
Að óttast ekki tónskáldið og að hika ekki við að túlka verkið öðruvísi en það hefur áður verið gert ... tónlistin er stærri en einstaklingurinn, túlkunarleiðirnar, þegar um meistaraverk er að ræða, eru nær óendanlegar.
Nú hafa flestir flytjendur sem setja markið hátt í listinni einhverja reynslu af því að starfa með samtímatónskáldum að flutningi nýrrar tónlistar. Víkingur Heiðar er þar sannarlega ekki undanskilinn. En skyldi ekki vera töluvert öðruvísi að hafa tónskáldið beinlínis með sér á sviðinu sem hljómsveitarstjóra?
„Daníel er einn af mínum bestu vinum og ég ber takmarkalausa virðingu fyrir honum,“ segir Víkingur. „Hann er einstakt tónskáld, kjarkaður og ljóðrænn, og svo er hann líka fínn píanisti og auðvitað frábær hljómsveitarstjóri sem skilur eiginleika hljómsveitarinnar á afar djúpan hátt. Mér finnst það skína í gegnum konsertinn Processions að hann er á heimavelli í píanókonsertforminu, píanistinn sem aðalsöguhetjan og svo þessi einstöku litbrigði og ímyndunarafl í því hvernig hann nálgast hljómsveitina. Við höfum rætt um þristinn, þ.e.a.s. píanókonsert nr. 3, í meira en tíu ár og nú er hann loksins að verða að veruleika. Mér þykir mjög vænt um að vera treyst fyrir honum.“
Víkingur segir að sér finnist lykillinn vera í því fólginn að leyfa tónlistinni að streyma frjálst fram. „Að óttast ekki tónskáldið og að hika ekki við að túlka verkið öðruvísi en hefur áður verið gert. Enda vita flestir tónlistarmenn að tónlistin er stærri en einstaklingurinn, að túlkunarleiðirnar, þegar um meistaraverk er að ræða, eru nær óendanlegar. Þegar ég spilaði Adamskonsertinn með Adams sem stjórnanda fann ég sterkt fyrir þessari frumsköpun. Alltaf þegar ég hef spilað konsertinn Processions með Daníel, sem er orðið ansi oft, finnst mér við svolítið vera að endurskapa verkið frá grunni þó nóturnar séu þær sömu. Allir sem hafa prófað að semja tónlist vita hversu ómöguleg og merkingarlítil túlkunarmerki eins og mezzopiano
En hvað skyldi fleira vera framundan hjá hinum nýja staðarlistamanni Sinfóníuhljómsveitarinnar? „Næsti vetur er sannarlega þétt skipaður,“ segir Víkingur. „Ég gef út nýja plötu helgaða Mozart í haust og verð staðarlistamaður hjá Útvarpshljómsveitinni í Frankfurt og í Southbank Centre í London. Svo kem ég fram í fyrsta sinn á BBC Proms með Philharmonia-hljómsveitinni 14. ágúst, fer í tónleikaferð um Asíu með Fílharmóníusveitinni í Hong Kong og um Evrópu með Camerata Salzburg, spila í Carnegie Hall og kem fram með mörgum frábærum hljómsveitum, meðal annars Tonhalle í Zürich, Fílharmóníusveitinni í Los Angeles, útvarpshljómsveitum Vínarborgar, Finnlands og Svíþjóðar og Fílharmóníusveit Tékklands. Svo eitthvað sé nefnt!“
37
18|11
FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Jean Sibelius
Rakastava (Elskhuginn)
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Jean Sibelius
Ofviðrið, svíta nr. 2
Thomas Adès
Ví kingur og Adès
Dawn
Thomas Adès
In Seven Days, píanókonsert
Thomas Adès hefur um áratuga skeið verið meðal virtustu tónskálda Bretlands, auk þess að vera afburða hljómsveitarstjóri og píanóleikari. Píanókonsertinn In Seven Days var frumfluttur árið 2008 og er í sjö þáttum sem spegla sjö daga sköpunarsögunnar í Fyrstu Mósebók. Konsertinn hefur hlotið einróma lof og þykir einn fremsti píanókonsert sem saminn hefur verið á 21. öld. Tónlistarrýnir The New York Times sagði verkið „frábært“, og gagnrýnandi San Francisco Chronicle sagði að konsertinn væri „bæði dramatískur og íhugull, eins og hann vilji ná utan um allan heiminn – sem er verðugt takmark þegar sköpunarsagan er annars vegar – en líka dásamlega aðgengilegur“. Þessir tónleikar eru hinir fyrstu í röð þrennra tónleika með Víkingi Heiðari Ólafssyni, staðarlistamanni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þar sem hann flytur nýja píanókonserta eftir Thomas Adès, John Adams og Daníel Bjarnason undir stjórn tónskáldanna sjálfra. Þetta er einstakt tækifæri til að heyra það besta í nýjum konsertsmíðum og komast að því hvernig þessu aldagamla formi vegnar á 21. öldinni.
38
Thomas Adès
hljómsveitarstjóri
Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari
Adès er ákafur aðdáandi Sibeliusar og hefur stjórnað sinfóníum hans og öðrum hljómsveitarverkum víða um heim, meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Lundúna. Á Íslandi stjórnar hann svítunni Rakastava (Elskhuginn), ásamt þáttum úr leikhústónlist Sibeliusar við Ofviðri Shakespeares, sem var eitt það síðasta sem hann sendi frá sér áður en hann dró sig í hlé frá tónsmíðum.
Eitt fremsta samtímatónskáld Bretlands stjórnar eigin tónlist ásamt Víkingi Heiðari.
39
19 |11 FÖSTUDAGUR
KL.20:00
20|11
LAUGARDAGUR
KL.20:00
21|11
SUNNUDAGUR
KL.20:00
Víkingur Heiðar Ólafsson leikur einleiksverk eftir Wolfgang Amadeus Mozart og samtímamenn hans, af nýjum geisladiski sínum hjá Deutsche Grammophon.
Ví kingur spilar Mozart
EINLEIKSTÓNLEIKAR
Víkingur Heiðar hefur verið kallaður „óskabarn þjóðarinnar“ í íslenskum fjölmiðlum en á erlendum vettvangi er hann sagður vera „Glenn Gould Íslands“ og „listamaður sem skapar hrífandi landslag í tónum“. Ný einleiksplata hans hjá Deutsche Grammophon er heimsviðburður enda hafa síðustu plötur hans hlotið sæg verðlauna, meðal annars hjá BBC Music Magazine, Opus Klassik og Gramophone. Víkingur Heiðar er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2021–22. Einleikstónleikar Víkings eru ekki haldnir á vegum hljómsveitarinnar og því gilda afsláttarkjör Sinfóníuhljómsveitar Íslands ekki á þá nema í Svörtu röðinni.
41
42
25|11
26|11 27|11
KL.19:00
KL.19:00
FIMMTUDAGUR
FÖSTUDAGUR
Harry Potter og viskusteinninn
LAUGARDAGUR
KL.14:00
Harry Potter og viskusteinninn™ Á TÓNLEIKUM
Kvikmyndin Harry Potter og viskusteinninn™️ kom út árið 2001 og var aðsóknarmesta mynd ársins. Með myndinni öðluðust leikararnir ungu, Daniel Radcliffe og Emma Watson, heimsfrægð og ævintýraveröld hennar varð ljóslifandi á hvíta tjaldinu. Myndin hlaut þrjár tilnefningar til Óskarsverðlauna (ACADEMY AWARDS®) og sjö framhaldsmyndir bættust við á næstu níu árum. Tónlistin leikur stórt hlutverk í myndunum um Harry Potter™️ enda sjálfur John Williams sem samdi hana og hefur hlotið fyrir hana fjölda viðurkenninga. Williams notar leiðsögustef í tónlist sinni, lætur meginpersónur og staði hafa eigin stef sem hafa sterkan blæ, til dæmis erkióvininn Voldemort™️, galdraskólann Hogwarts™️, vináttustefið, og meginstefið sem kennt er við ugluna Hedwig™️. Tónlistin við þessa frábæru mynd lifnar við í lifandi flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem leikur við sjálfa myndina.
Ein dáðasta kvikmynd síðari ára með lifandi tónlistarflutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
WIZARDING WORLD and all related trademarks, characters, names, and indicia are © & ™ Warner Bros. Entertainment Inc. Publishing Rights © JKR. (s21)
Chris Columbus leikstjórn
John Williams
tónlist
Timothy Henty
hljómsveitarstjóri
Barokksöngvarinn Benedikt Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari syngur á aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar
B
enedikt syngur Bach og Händel er yfirskrift aðventutónleika hljómsveitarinnar. Þá flytur einn fremsti flytjandi okkar Íslendinga á sviði barokktónlistar, Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari, tvær aríur úr Messíasi eftir Händel, en verkið hefur fylgt Benedikt frá því að hann hóf nám og hefur hann flutt það ótal sinnum á ferli sínum. Önnur aría eftir Händel, Waft Her, Angels úr óratóríunni Jeptha verður einnig flutt. „En maður fær sjaldnar tækifæri til að flytja hana þar sem verkið er ekki eins oft flutt og Messías,“ segir Benedikt. „Händel samdi þetta verk seint á ævinni og arían er alveg ótrúlega falleg, algjör gimsteinn fyrir tenórsöngvara.“ Benedikt hefur sérhæft sig í flutningi barokktónlistar og er eftirsóttur flytjandi um allan heim. Hann segir barokkformið ólíkt hefðbundnu óperusöngformi, það krefjist annarar nálgunar og öðruvísi hæfni en þegar fengist er við Verdi eða Wagner. „Þetta er í raun gjörólíkt hljóðfæri þó að það heiti vissulega líka tenór,“ segir hann. Mörg barokktónverk eru trúarlegs eðlis og kallast það skemmtilega á við fjölskyldu Benedikts, sem er sonur Margrétar Bóasdóttur söngkonu og söngmálastjóra þjóðkirkjunnar, og séra Kristjáns Vals Ingólfssonar. Lá það alltaf fyrir að hann legði fyrir sig flutning kirkjulegrar tónlistar? „Nei, bara alls ekki. Ég hafði sem barn hvorki sérstakan áhuga á söng né á guðfræði. Ég var samt auðvitað tekinn með, svaf á bekknum í messunni og las bækur meðan mamma stjórnaði kóræfingum. Ætli þetta hafi ekki bara farið í undirmeðvitundina, því það var ekki fyrr en ég fór í MH og byrjaði í kórnum þar hjá Þorgerði Ingólfsdóttur, sem ég byrjaði virkilega að fá áhuga á klassískri tónlist og söng,“ segir Benedikt. 44
Benedikt hlaut Opus Klassik-verðlaunin árið 2020 fyrir einstakan flutning á Jóhannesarpassíunni eftir Johann Sebastian Bach, en hana flutti hann í nýstárlegri útgáfu ásamt aðeins orgel- og semballeikara og slagverksleikara í beinni útsendingu frá Tómasarkirkjunni í Leipzig á föstudaginn langa það ár, sem hluta af Bach-hátíðinni þar í borg. Tugþúsundir fylgdust með flutningnum á netinu, en Benedikt og félagar hans fluttu Jóhannesarpassíuna einnig fyrir fullri Hallgrímskirkju fyrr sama ár. Aðspurður um tilurð verkefnisins segir hann hugmyndina hafa orðið til í samtali við Steven Walter, stjórnanda Beethoven-hátíðarinnar í Bonn. „Ég stökk inn í flutning á Matteusarpassíunni í Berlín með fimm klukkustunda fyrirvara og á þeim tónleikum var Walter staddur. Hann kom til mín eftir tónleikana og spurði hvort ég teldi vera hægt að flytja Jóhannesarpassíuna með þessum hætti; einn með sembal og orgeli og svo slagverki. Mér fannst þetta strax geggjuð hugmynd,“ segir Benedikt, sem síðan útfærði hugmyndina og útsetti ásamt hljóðfæraleikurum verksins. „Þannig að þetta var sameiginlegt verkefni sem hlaut strax mikla athygli og það var ótrúlegur fjöldi sem horfði á útsendinguna. Í Bandaríkjunum hlaut flutningurinn líka mjög mikla athygli og við erum á leið í tónleikaferð með Jóhannesarpassíuna um austurströnd Bandaríkjanna og Kanada nú í nóvember.“ Steven Walter hefur ráðið Benedikt sem staðarlistamann við Beethovenhátíðina í Bonn í vetur, þar sem hann verður með þrenna tónleika þar sem hann fær frjálsar hendur. Skyldi eitthvað af þeim líkjast Jóhannesarpassíukonseptinu? „Já, eitt þeirra er aðeins skylt þessu, líka tónlist eftir Bach. Svo verð ég með annað verkefni sem hefur eitthvað að gera með Winterreise eftir Schubert, í mjög svo öðruvísi búningi,“ segir Benedikt leyndardómsfullur. Sem fyrr segir kemur Benedikt fram á aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem markar upphaf jólaundirbúnings hljómsveitarinnar. En hvað skyldi Benedikt sjálfur hlusta á um jólin? „Yfirleitt er ég að flytja Jólaóratóríu Bachs nánast stanslaust um jólin, með að minnsta kosti tíu tónleika í nóvember og desember. Þannig að ég hlusta eðli málsins samkvæmt mikið á Jólaóratóríuna, og ég fæ eiginlega aldrei nóg af henni. En svona til mótvægis við hana hlusta ég oft á Nat King Cole og Bing Crosby heima um jólin.“
02|12 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Georg Friedrich Händel
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Forleikur og aríur úr Messíasi
Georg Friedrich Händel
Lagartónlist, svítur nr. 2 og 3
AÐVENTUTÓNLEIKAR
Benedikt syngur Bach og Händel Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari hefur á undanförnum árum getið sér afar gott orð fyrir flutning sinn á barokktónlist, einkum verkum Bachs og Händels. Hann vakti athygli heimsins í einu vetfangi á föstudaginn langa 2020, þegar hann flutti Jóhannesarpassíu Bachs í beinni útsendingu frá Tómasarkirkjunni í Leipzig í eigin útgáfu fyrir tenórsöngvara og tvo hljóðfæraleikara. Hefðbundnum flutningi verksins um páskahelgina hafði þá verið aflýst víða um heim vegna kórónuveirufaraldurs, en í staðinn fylgdust tugþúsundir með afreki Benedikts á netinu og hlaut hann meðal annars Opus Klassik-verðlaunin fyrir frammistöðu sína. Nú syngur Benedikt í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands, aríur úr kantötum og óratoríum eftir Händel og Bach. Meðal annars hljóma tvær vinsælar aríur úr Messíasi en einnig hin dásamlega aría Waft Her, Angels, sem er meðal þess fegursta sem Händel samdi. Þá leikur hljómsveitin þætti úr hinni óviðjafnanlegu Lagartónlist (Water Music), sem Händel samdi Georg I. Bretakonungi til yndisauka þar sem hann sigldi upp Tempsá með fríðu föruneyti eitt ljúft sumarkvöld árið 1717. Tónleikunum lýkur með hinni bráðskemmtilegu sinfóníu nr. 99 eftir Haydn, sem var ein þeirra sem hann samdi fyrir tónleikaröð sína í Lundúnum síðla á ævinni.
Georg Friedrich Händel
Waft Her, Angels, úr Jeptha
Johann Sebastian Bach Aría úr kantötu nr. 198
Joseph Haydn Sinfónía nr. 99
Dirk Vermeulen hljómsveitarstjóri
Benedikt Kristjánsson einsöngvari
Belgíski stjórnandinn Dirk Vermeulen hefur helgað feril sinn flutning tónlistar frá 18. öld og meðal annars stjórnað Hljómsveit 18. aldarinnar auk þess að kenna við Tónlistarháskólann í Brussel. Hann stjórnar nú aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í þriðja sinn en fyrri tónleikar hans á Íslandi vöktu óblandna aðdáun tónleikagesta jafnt sem hljómsveitar.
Hátíðleg barokktónlist á aðventu í flutningi eins fremsta tenórsöngvara Íslands. 45
11 |12
LAUGARDAGUR
KL.14:00 & KL.16:00
12 |12
Hrafnkell Orri Egilsson
KL.14:00 & KL.16:00
Lag frá 14. öld Sjá himins opnast hlið
SUNNUDAGUR
LITLI TÓNSPROTINN
Jólatónleikar Sinfóníunnar Gullfallegir jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands vekja jafnan eftirvæntingu og gleði. Tónleikarnir eru hlaðnir minningarbrotum bernskunnar þar sem ilmur af nýbökuðum piparkökum og greniangan er allsráðandi. Syrpa norrænna jólalaga ásamt sígildum söngperlum og eftirlætislögum hljóma í flutningi valinkunnra söngvara ásamt Stúlknakór Reykjavíkur og táknmálskórnum Litlu sprotunum. Klassískir ballettdansarar dansa við tónlist Tsjajkovskíjs og flautukór ásamt gítarhópi og Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar flytja hugljúfa hátíðartónlist og hringja inn jólin. Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli.
Norrænn jólaforleikur
Pjotr Tsjajkovskíj
Rússneski dansinn úr Hnotubrjótnum
Ron Miller Bryan Wells
Yfir fannhvíta jörð Íslenskt þjóðlag Gilsbakkaþula
Ingibjörg Þorbergs Hin fyrstu jól
Spænskt lag Á jólunum er gleði og gaman Pjotr Tsjajkovskíj
Dans snjókornanna
Jón Sigurðsson Jóhanna G. Erlingsson
Jólin alls staðar
Franz Gruber Heims um ból
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Arnheiður Eiríksdóttir Valdimar Guðmundsson Kolbrún Völkudóttir einsöngvarar
Dansarar úr Listdansskóla Íslands Eyrún Helga Aradóttir táknmálstúlkur
Stúlknakór Reykjavíkur
Sívinsælir jólatónleikar Sinfóníunnar eru sannkölluð hátíðarveisla fyrir alla fjölskylduna. 46
Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Flautuhópur úr Skólahljómsveit Kópavogs og víðar Gítarhópur úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar Táknmálskórinn Litlu sprotarnir
47
48
06|01 07|01 08|01 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
FÖSTUDAGUR
KL.19:30
LAUGARDAGUR
KL.16:00 & KL.19:30
NÝÁRSTÓNLEIKAR
Vínartónleikar Hinir sívinsælu Vínartónleikar eru sannkölluð nýársveisla og sú glaðværa tónlist sem þar hljómar gefur tóninn fyrir nýtt ár. Í þetta sinn er það Austurríkismaðurinn David Danzmayr sem stjórnar tónleikunum, en hann hefur takt Vínarborgar svo sannarlega í blóðinu. Meðal þess sem hljómar eru valsar og polkar eftir Johann Strauss yngri, meðal annars Keisaravalsinn og Dónárvalsinn, auk forleiksins að Leðurblökunni. Einnig hljómar norræn tónlist innblásin af dönsum Vínarborgar: hið sívinsæla kampavínsgalopp Lumbyes en einnig kampavínsvalsinn Moët & Chandon eftir Ellen Sandels, sem var eitt helsta kventónskáld Svíþjóðar um aldamótin 1900. Tveir helstu einsöngvarar Íslands af sinni kynslóð koma fram á tónleikunum, auk þess sem dansarar ljá þeim sérstakan hátíðarblæ. Herdís Anna Jónasdóttir vakti stormandi lukku sem Violetta í La traviata í uppfærslu Íslensku óperunnar og hefur einnig fengið frábæra dóma fyrir flutning sinn á nýrri tónlist, til dæmis Kafka-Fragmente eftir Kurtág. Elmar Gilbertsson hefur löngu sungið sig inn í hjarta þjóðarinnar, en hann er um þessar mundir fastráðinn við óperuhúsið í Stuttgart.
Glaðvær Vínartónlist er fullkominn upptaktur að nýju ári.
Óperettutónlist, valsar og polkar eftir Johann Strauss, Franz Lehár, Emmerich Kálman, Hans Christian Lumbye, Ellen Sandels og fleiri.
David Danzmayr hljómsveitarstjóri
Herdís Anna Jónasdóttir einsöngvari
Elmar Gilbertsson
einsöngvari
13| 01 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Ungir einleikarar Framtíð tónlistarlífs á Íslandi hvílir á herðum þeirra ungu hljóðfæraleikara og söngvara sem um þessar mundir taka sín fyrstu skref á stóra sviðinu. Það er sérstakt tilhlökkunarefni þegar framúrskarandi ungmenni stíga fram sem einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands og njóta árangurs þrotlausrar vinnu. Í salnum sitja fjölskylda og vinir sem hafa fylgst með tónlistarnáminu um margra ára skeið og fagnaðarlætin í Eldborg eru aldrei einlægari en á þessum skemmtilegu og spennandi tónleikum. Einleikarar á tónleikunum eru valdir í samkeppni sem haldin er í samstarfi við Listaháskóla Íslands í nóvember 2021. Efnisskrá verður tilkynnt á heimasíðu Sinfóníuhljómsveitarinnar þegar úrslit liggja fyrir.
Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri
Efnisskrá kynnt síðar
50
20 |01 FIMMTUDAGUR
KL.19.30
Unsuk Chin
Frontispiece
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Samuel Barber Fiðlukonsert
Shostakovitsj og Barber „Ein besta fiðlufrumraun áratugarins“, sagði gagnrýnandi BBC Music Magazine nýverið um fyrsta geisladisk Johans Dalene, sænska fiðlusnillingsins sem er aðeins tvítugur að aldri en hefur þegar lagt tónlistarheiminn að fótum sér. Dalene hlaut fyrstu verðlaun í Carl Nielsen-fiðlukeppninni árið 2019, fékk í kjölfarið útgáfusamning hjá BIS og hefur Stradivariusfiðlu til umráða. Nýjasti diskur hans var valinn ein af útgáfum mánaðarins hjá tímaritinu Gramophone. Hér gefst einstakt tækifæri til að sjá eitt af skærustu ungstirnum fiðluheimsins í dag flytja hinn ljóðræna fiðlukonsert Barbers. Michael Sanderling er aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Luzern en á einnig að baki farsælt samstarf með Fílharmóníusveitinni í Dresden. Útgáfa hans hjá Sony Classical á öllum sinfóníum Shostakovitsj hlaut frábæra dóma um allan heim og sópaði að sér verðlaunum. Segja má að Sanderling hafi stjórnandahæfileikana í blóðinu og ekki síður tengslin við Shostakovitsj. Faðir hans, hljómsveitarstjórinn Kurt
Dmítríj Shostakovitsj
Sinfónía nr. 10
Michael Sanderling hljómsveitarstjóri
Johan Dalene
einleikari
Sanderling, var náinn vinur Shostakovitsj og stjórnaði fyrsta flutningi á allmörgum verka hans í Þýskalandi. Það má því búast við sannkölluðu gneistaflugi þegar hin magnþrungna sinfónía nr. 10 hljómar í meðförum Sanderlings með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Kóreska tónskáldið Unsuk Chin hefur um árabil verið í röð fremstu samtímatónskálda á heimsvísu. Hún hlaut hin virtu Léonie Sonning-verðlaun árið 2021, en meðal fyrri verðlaunahafa eru Ígor Stravinskíj og Arvo Pärt. Árið 2019 sagði listrýnir The Guardian að sellókonsert Chin væri eitt af allra bestu tónverkum 21. aldarinnar til þessa. Nú leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn verk eftir þessa mögnuðu listakonu, Frontispiece, sem hlaut frábæra dóma við frumflutninginn í Elbphilharmonie í Hamborg árið 2019.
Einn fremsti fiðluleikari Norðurlanda og magnþrungin sinfónía Shostakovitsj. 51
27|01
Áskell Másson
Capriccio
FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Haukur Tómasson
It Relaxes Me, the Repetition, frumflutningur
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Pons papilloma, frumflutningur
MYRKIR MÚSÍKDAGAR
Ferð án fyrirheits
Kjartan Ólafsson
Mar – Ferð án fyrirheits, frumflutningur
Sveinn Lúðví k Björnsson
Glerhjallar, frumflutningur
Ville Matvejeff
hljómsveitarstjóri Fimm ný og spennandi íslensk hljómsveitarverk hljóma á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar á Myrkum músíkdögum. Áskell Másson hefur um áratuga skeið verið meðal fremstu tónskálda þegar kemur að því að semja fyrir slagverkshljóðfæri. Capriccio er samið fyrir darabuka, sem er bikartromma ættuð frá Tyrklandi og Austurlöndum nær, en Áskell hefur á löngum ferli þróað ákveðna leiktækni á trommuna og bregður sér hér í hlutverk einleikarans. Þess má geta að í verkinu hljómar einnig annað óvenjulegt hljóðfæri, alúfónn, en Sinfóníuhljómsveit Íslands áskotnaðist nýverið slíkt hljóðfæri að gjöf. Haukur Tómasson er löngu landskunnur fyrir tónsmíðar sínar og verk hans er meðal annars að finna á hljómdiskinum Concurrence sem tilnefndur var til Grammyverðlauna nýverið. Nýtt hljómsveitarverk hans, It Relaxes Me, the Repetition, sækir innblástur í verk japönsku listakonunnar Yayoi Kusama, sem nýtur mikillar hylli fyrir litrík og þráhyggjukennd verk sín. 52
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir var valin bjartasta vonin í hópi sígildrar og samtímatónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum 2020 og tónleikhúsverk hennar, Fuglabjargið, fékk frábærar viðtökur í Borgarleikhúsinu nýverið. Nýtt verk hennar, Pons papilloma, er samið að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og segir hún að það sé „úrvinnsla og kortlagning af áfalli“.
Áskell Másson Bryndís Halla Gylfadóttir Grímur Helgason Sigrún Eðvaldsdóttir einleikarar
Nýtt hljómsveitarverk frá Sveini Lúðvík Björnssyni sætir tíðindum, en íhugul tónlist hans hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli. Þegar Sinfóníuhljómsveitin flutti klarínettkonsert hans árið 2014 sagði gagnrýnandi Fréttablaðsins að útkoman hafi verið seiðandi og unaðsleg, og að verkið væri „einn allra besti íslenski einleikskonsert sem ég hef hlýtt á“. Nýtt hljómsveitarverk Kjartans Ólafssonar er tileinkað minningu finnska tónskáldsins Einojuhani Rautavaara. Um tónsprotann heldur finnski hljómsveitarstjórinn og tónskáldið Ville Matvejeff, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Jyväskylä.
Ný og spennandi tónlist eftir fjölbreyttan hóp íslenskra tónskálda.
53
28|01 FÖSTUDAGUR
KL.12:15
Gunnar Andreas Kristinsson
Flekar
Bára Gísladóttir
VAPE
MYRKIR MÚSÍKDAGAR
Bára og Gunnar Andreas
Ville Matvejeff
hljómsveitarstjóri
HÁDEGISTÓNLEIKAR Í NORÐURLJÓSUM
Bára Gísladóttir hefur vakið verulega athygli undanfarin ár fyrir frumlegar tónsmíðar sínar og hefur hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars hlaut hún nýverið þriggja ára tónsmíðastyrk danska ríkisins. Hugmyndin að verkinu VAPE spratt út frá árás sem fimm menn gerðu með taugagasinu sarin í neðanjarðarlestarkerfi Tókýó-borgar árið 1995, og er hljómsveitinni skipt í fimm hópa. Frá því að verkið var frumflutt árið 2016 hefur það farið víða, var meðal annars flutt á opnunarhátíð hinnar víðfrægu tónlistarhátíðar í Darmstadt í Þýskalandi. Gunnar Andreas Kristinsson hefur hlotið mikið lof fyrir plötuna Moonbow sem kom út nýverið hjá Sono Luminus-útgáfunni í Bandaríkjunum. Á þessum tónleikum hljómar verkið Flekar, sem tónskáldið segir að sé „samsett úr tónmössum sem mætast eða skarast líkt og jarðflekar, með tilheyrandi núningi og spennumyndun“. Flekar voru samdir að beiðni Gunnsteins Ólafssonar vorið 2019 fyrir Sinfóníuhljómsveit unga fólksins en verkið hljómar nú í fyrsta sinn í útgáfu fyrir fullskipaða sinfóníuhljómsveit. Aðgangur er ókeypis. 54
Hádegistónleikar með nýlegum íslenskum hljómsveitarverkum sem hljóma nú í fyrsta sinn í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
12|02
Wolfgang Amadeus Mozart Töfraflautan (í styttri gerð)
LAUGARDAGUR
KL.14.00
LITLI TÓNSPROTINN
Ævintýrið um töfraflautuna Töfraflautan eftir Mozart er ein dáðasta ópera sögunnar og sannkallaður ævintýraheimur fyrir unga sem aldna. Prinsinn Tamínó leggur af stað í leiðangur til að bjarga hinni fögru Pamínu, en smám saman kemur í ljós að móðir hennar, Næturdrottningin, sem sendi hann af stað, er ekki öll þar sem hún er séð. Til aðstoðar hefur prinsinn fuglaveiðara að nafni Papagenó. Sá er lítið fyrir háfleygar hugsanir en kann vel að meta góðan mat og drykk og vill helst af öllu finna sér sálufélaga. Að lokum fella Tamínó og Pamína hugi saman, en þurfa að leysa erfiðar þrautir áður en þau fá að eigast.
Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri
Þórunn Arna Kristjánsdóttir sögumaður
Eyrún Unnarsdóttir Sveinn Dúa Hjörleifsson Oddur Arnþór Jónsson Harpa Ósk Björnsdóttir Bryndís Guðjónsdóttir einsöngvarar
Hér er meistaraverk Mozarts flutt í klukkustundarlangri útfærslu fyrir sögumann og fimm einsöngvara, en með hlutverkin fara íslenskir söngvarar af yngri kynslóðinni. Öll hafa þau stundað framhaldsnám erlendis og hlotið frábæra dóma fyrir söng sinn og leik. Sögumaður er Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem lýsir framvindunni með kímnigáfu að leiðarljósi. Þetta er hugljúf og eftirminnileg ævintýrastund fyrir alla fjölskylduna.
Hugljúf ævintýraópera Mozarts í barnvænum búningi. 55
24|02
26|02
KL.18:00
KL.16:00
FIMMTUDAGUR
Richard Wagner Valkyrjan (Die Walküre)
LAUGARDAGUR
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Julia Burbach
Valkyrjan Niflungahringur Richards Wagner er án nokkurs vafa ein metnaðarfyllsta ópera sem fyrirfinnst í tónlistarsögunni. Fjórar óperur mynda verkið og við smíði sögunnar sótti Wagner innblástur í Eddukvæði, Snorra-Eddu og Völsunga sögu sem hann átti í fórum sínum í þýskri þýðingu. Hann vann að verkinu í um aldarfjórðung og hér fékk gáfa hans bæði sem tónskáld og textahöfundur að njóta sín til fulls. Efnisþráður Valkyrjunnar er sóttur í Völsunga sögu. Fárviðri geisar og Siegmund leitar skjóls í húsi Sieglinde og manns hennar, Hundings. Þau Sieglinde fella hugi saman og valkyrjan Brynhildur, dóttir Óðins, óhlýðnast föður sínum með því að liðsinna Sigmundi þar sem hann heyr einvígi við Hunding. Óðinn refsar henni með því að svipta hana guðdómleikanum, breytir henni í mennska konu sem skal liggja sofandi á bjarginu umvafin vafurlogum og ekki vakna fyrr en mikil hetja fær sigrast á logunum og vakið hana með kossi. Þessi magnaða ópera er eitt af helstu meistaraverkum tónlistar á 19. öld og Valkyrjureiðin fræga er flestum kunn. Nú hljómar Valkyrjan í fyrsta sinn í heild á Íslandi og er það í fyrsta sinn síðan árið 2002 sem ópera Wagners er sýnd hér í fullri lengd. Sópransöngkonan Iréne Theorin fer með hlutverk Brynhildar, en hún hefur meðal annars sungið hlutverkið við Metropolitan-óperuna. Ólafur Kjartan
leikstjóri
Tal Rosner
vídeóhönnun og útlit
Iréne Theorin
Brünnhilde
Sigurðarson fer með hlutverk Óðins, Kristinn Sigmundsson syngur Hunding og glæsilegur hópur íslenskra söngkvenna fer með hlutverk valkyrjanna. Hljómsveitinni stjórnar Eva Ollikainen, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en hún hefur meðal annars vakið mikla hrifningu sem óperustjóri við Konunglegu óperuna í Kaupmannahöfn og Semperoper í Dresden. Mánudaginn 21. febrúar kl. 20 mun Árni Heimir Ingólfsson leiða gesti inn í tónheim Wagners og segja frá íslenskum fyrirmyndum að söguþræði Valkyrjunnar í opnum fyrirlestri í Norðurljósum. Flutningur verksins tekur fimm klukkustundir og eru tvö hlé meðtalin (45 og 30 mínútur).
Christopher Ventris Siegmund
Christa Mayer
Fricka
Claire Rutter Sieglinde
Ólafur Kjartan Sigurðarson Wotan
Kristinn Sigmundsson Hunding
Lilja Guðmundsdóttir Helmwige
Sigrún Pálmadóttir
Gerhilde
Margrét Hrafnsdóttir Ortlinde
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir Waltraute
Agnes Thorsteins Valkyrjan er samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Íslensku óperunnar og Listahátíðar í Reykjavík.
Siegrune
Guja Sandholt Roßweiße
Hildigunnur Einarsdóttir Grimgerde
Svanhildur Rósa Pálmadóttir Schwertleite
56
57
02 |03 MIÐVIKUDAGUR
KL.20:00
John Adams
Lollapalooza
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:30
María Huld Markan Sigfúsdóttir
Clockworking
Ví kingur og Daníel
Daníel Bjarnason
Píanókonsert nr. 3
Daníel Bjarnason
hljómsveitarstjóri
Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari
Halla Oddný Magnúsdóttir kynnir
Þegar Víkingur Heiðar Ólafsson frumflutti píanókonsertinn Processions eftir Daníel Bjarnason á Myrkum músíkdögum 2009 var augljóst að ný kynslóð væri í þann mund að setja mark sitt á íslenskt tónlistarlíf og gestir létu hrifningu sína óspart í ljós. „Tónleikagestir svifu út með nýja trú á framtíðina,“ skrifar Guðrún Nordal um þessa tónleika í bók sinni, Skiptidögum. Daníel hefur síðan hlotið margs konar viðurkenningar fyrir list sína og nú er komið að því að hann semji nýjan píanókonsert fyrir Víking Heiðar, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Fílharmóníusveitina í Los Angeles. Verkið verður frumflutt í Frankfurt í febrúar 2022 og það hljómar á Íslandi aðeins örfáum vikum síðar. Tvö önnur nýleg verk eru á efnisskránni. Lollapalooza er stutt og snaggaraleg tónsmíð eftir John Adams sem sjálfur er væntanlegur til Íslands á lokahnykk Víkings-þrennunnar í maí 2022. Verkið er bráðskemmtilegur bræðingur af djassi, klassík og nútímatónlist, og var afmælisgjöf tónskáldsins til Sir Simon Rattle sem hefur stjórnað verkum Adams víða um heim.
58
Clockworking eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur var upphaflega samið fyrir kammerhóp en ný gerð þess fyrir hljómsveit var frumflutt í Fort Worth í Bandaríkjunum árið 2019. Verkið byggir hún á gömlum vinnusöngvum bandarískra fanga, en úr hendingunum mótar hún mörg lítil gangverk sem saman mynda eina heild líkt og stór klukka. Tónleikunum er einnig sjónvarpað beint á RÚV og eru þeir um klukkustundarlangir án hlés.
Nýr píanókonsert Daníels Bjarnasonar ásamt nýlegum verkum frá Íslandi og Bandaríkjunum. 59
11|03
Missy Mazzoli
Sinfonia (for Orbiting Spheres)
FÖSTUDAGUR
KL.18:00
Kjartan Sveinsson Nýtt verk
FÖSTUDAGSRÖÐIN Í NORÐURLJÓSUM
Á ferð um sporbaug Tvö ný og spennandi íslensk hljómsveitarverk hljóma á þessum spennandi tónleikum.
Anna Þorvaldsdóttir
CATAMORPHOSIS
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
Anna Þorvaldsdóttir er eitt fremsta tónskáld samtímans og verk hennar hafa farið sigurför um heiminn síðustu ár. Nýjasta hljómsveitarverk hennar, CATAMORPHOSIS, var frumflutt á tónleikum Fílharmóníusveitarinnar í Berlín í janúar 2020 en meðal annarra hljómsveita sem komu að pöntun verksins voru Sinfóníuhljómsveit Íslands og Fílharmóníusveitin í New York. Gagnrýnandi The Guardian var stórhrifinn, sagði verkið að sumu leyti minna á tónaljóð Sibeliusar en að það stæði „algjörlega á eigin fótum, og skapar fullkomlega sannfærandi hljóðheim“. Kjartan Sveinsson var um árabil hljómborðsleikari í Sigur Rós en hefur undanfarin ár getið sér gott orð sem tónskáld á eigin spýtur. Meðal helstu verka hans má nefna Stríð og Kraftbirtingarhljóm guðdómsins, sem hann skapaði í samstarfi við Ragnar Kjartansson og hafa farið víða um heim. Nú hljómar nýtt hljómsveitarverk Kjartans sem hann semur sérstaklega fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Auk þess verður flutt Sinfónía (fyrir hnetti á sporbaug) eftir hina bandarísku Missy Mazzoli, sem hún samdi árið 2013 fyrir Fílharmóníusveit Los Angeles. Mazzoli var tilnefnd til Grammyverðlauna árið 2019 og The New York Times hafði um hana þau orð að hún væri „eitt hugmyndaríkasta tónskáld New York-borgar“ um þessar mundir. 60
Spennandi tónleikar með ferskri nýsköpun frá Íslandi og Bandaríkjunum.
12|03 LAUGARDAGUR
KL.11:30
Sumarleg tónlist af ýmsu tagi, m.a. Vorið eftir Vivaldi, Ó blessuð vertu sumarsól auk laga úr Emil í Kattholti og Kardemommubænum. Þórunn Arna Kristjánsdóttir
NORÐURLJÓS
kynnir
Barnastund Sinfóníunnar Í Barnastund Sinfóníuhljómsveitarinnar að vori kynnir Þórunn Arna Kristjánsdóttir fallegar vorperlur og klassíska gimsteina. Vorsöngur Idu og lag Kamillu úr Kardemommubænum hljóma á þessari fallegu Barnastund þar sem vorið er boðið velkomið.
Skemmtileg samverustund fyrir yngstu börnin. Aðgangur ókeypis.
61
17 |03 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Olivier Messiaen
Les Offrandes oubliées
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Johannes Brahms
Ein deutsches Requiem
Þýsk sálumessa „Sálumessan hefur haft dýpri áhrif á mig en nokkurt annað trúarlegt verk. Ég hef ekki fundið fyrir slíkri gleði lengi.“ Þannig ritaði Clara Schumann í dagbók sína eftir að hafa hlýtt á frumflutning á Þýskri sálumessu eftir Johannes Brahms, sem alla tíð síðan hefur verið talin eitt af öndvegisverkum trúarlegrar tónlistar á 19. öld. Sálumessan markaði tímamót á ferli tónskáldsins en er um margt óvenjuleg. Brahms valdi sjálfur texta úr Biblíunni fremur en að notast við texta hinnar hefðbundnu sálumessu. Blíð og líknandi nálgun hans er gjörólík því sem almennt tíðkaðist í sálumessum í konsertformi. Tónlistin er hrífandi samruni gamalla og nýrra strauma í tónlistinni, og áhrif barokkmeistaranna Bachs og Händels gefa verkinu aukna dýpt.
Bertrand de Billy
hljómsveitarstjóri
Emily Porgorelc
einsöngvari
Jóhann Kristinsson einsöngvari
Mótettukórinn Söngsveitin Fílharmónía Hörður Áskelsson kórstjóri
Magnús Ragnarsson
kórstjóri
Auk sálumessunnar hljómar á tónleikunum sjaldheyrt en heillandi æskuverk Oliviers Messiaen frá árinu 1930. Les Offrandes oubliées (Gleymdar fórnargjafir) er áhrifamikil hugleiðing um ást Guðs á mönnunum, en Messiaen var kaþólskur og mörg verka hans einkennast af djúpri trúartjáningu. Stjórnandi er Bertrand de Billy, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem er fastagestur við flest helstu óperuhús heims og var um árabil aðalstjórnandi Útvarpshljómsveitarinnar í Vínarborg.
62 62
Hrífandi trúartónlist í glæsilegum flutningi einsöngvara og kóra.
31 |03 FIMMTUDAGUR
KL.19.30
George Walker
Lyric fyrir strengjasveit
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Richard Strauss Hornkonsert nr. 2
Richard Strauss
Hetjulíf Ein Heldenleben eða Hetjulíf eftir Richard Strauss er eitt stórbrotnasta tónverk síðrómantíkur, samið fyrir risavaxna hljómsveit sem telur um hundrað manns. Verkið er eins konar lýsing á lífi tónskáldsins sjálfs, sem skorti sannarlega ekki sjálfstraust. „Ég er allt eins jafn áhugaverður og Napóleón,“ ku hann hafa sagt við franska rithöfundinn Romain Rolland. Í verkinu glímir Strauss við andstæðinga sína en hefur betur að lokum, stendur uppi sem sigurvegari og dregur sig í hlé frá skarkala heimsins.
Ein Heldenleben
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Stefan Dohr einleikari
Stefan Dohr hefur verið kallaður „konungur hornsins“ enda var hann ekki nema 25 ára þegar hann var valinn í stöðu fyrsta hornleikara í Fílharmóníusveit Berlínar. Þar hefur hann starfað frá árinu 1993 og er ekki ofsögum sagt að hann sé goðsögn meðal málmblástursleikara. Auk þess að starfa með einni fremstu hljómsveit heims er Dohr einnig eftirsóttur einleikari. Á Íslandi leikur hann hinn glæsilega hornkonsert nr. 2 eftir Strauss, saminn í Vínarborg árið 1942, eins konar kveðjuóður til gullaldar sem var að líða undir lok. Tónleikarnir hefjast á verki eftir George Walker, sem var fyrsta svarta tónskáldið til að hljóta hin virtu Pulitzer-verðlaun í tónlist. Kunnasta tónsmíð hans er hið undurfagra Lyric fyrir strengjasveit sem er innileg og tilfinningaþrungin hugleiðing, samin árið 1946 og tileinkuð ömmu tónskáldsins, sem upplifði sjálf þrældóm í æsku.
Eitt glæsilegasta hljómsveitarverk Richards Strauss ásamt einum fremsta hornleikara heims. 63
Frumkvöðull harmóníkunnar N
orski harmóníkuleikarinn Geir Draugsvoll hefur um áratuga skeið verið meðal hinna fremstu í sínu fagi á heimsvísu. Hann hefur leikið á tónleikum víða um heim, bæði einsamall og með virtum hljómsveitum, gefið út plötur auk þess sem hann er prófessor við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Draugsvoll leikur tvo konserta eftir rússneska tónskáldið Sofiu Gubaidulinu með Sinfóníuhljómsveit Íslands á starfsárinu og má segja að um endurkomu sé að ræða því að meira en 30 ár eru liðin síðan Draugsvoll lék með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói, tuttugu og eins árs gamall – og var þá fyrsti harmóníkuleikarinn til að leika einleik með sveitinni. Hvernig skyldi það hafa æxlast að piltur úr norskum fjallabæ skyldi verða einn fremsti túlkandi samtímatónlistar á harmóníku í heiminum? „Ég er fæddur og uppalinn í Voss, sem er fjallabær í vestur-Noregi,“ segir Draugsvoll. „Ég var átta ára gamall og hafði þegar gengið í forskóla í tónlist þegar ég fór í fyrsta harmóníkutímann. Raunar var mikil harmóníkumenning í bænum, þannig að engum þótti skrýtið þegar ég bað um að fá að læra á hljóðfærið. Í bekknum mínum voru tíu nemendur og við vorum átta sem æfðum á klassíska harmóníku. Svo það má kannski segja að í Voss hafi maður fyrst þótt skrýtinn ef maður spilaði ekki á harmóníku!“, segir Draugsvoll og hlær. „Ég man enn hrifninguna sem hríslaðist um mig þegar ég heyrði fyrst í hljóðfærinu – allir þessir takkar og öll litbrigðin!“ Draugsvoll er ötull flytjandi samtímatónlistar og hefur starfað náið með Sofiu Gubaidulinu í nærri þrjá áratugi. „Það var í Danmörku sem ég hitti Gubaidulinu í fyrsta sinn, árið 1994,“ segir hann. Þar var um áratugaskeið haldin hátíð helguð samtímatónlist sem hét Lerchenborg Musikdage, og þangað var okkur báðum boðið. Við fundum einhvern sameiginlegan tón strax meðan á æfingunum stóð. Ég hreifst mjög af djúpum, skínandi augum hennar og persónutöfrum, og hlustaði gaumgæfilega á það hvernig hún brást við tónlistinni og tjáði hugsanir sínar um hana. Ég held að henni hafi þótt vænt um að ég reyndi að nálgast tónlist hennar á mjög einlægan hátt. Þarna var fræjunum sáð og þau báru svo ávöxt í hinu stóra verki „Fachwerk“ sem hún samdi fyrir mig árið 2009.“ 64
Það verk hefur einmitt orðið miðpunktur í tónlistarferli Svo það má kannski segja Draugsvoll og ekki hefur liðið það ár að hann flytji það ekki að í Voss hafi maður fyrst oftar en einu sinni. „Gubaidulina þótt skrýtinn ef maður hefur heyrt mig flytja Fachwerk spilaði ekki á harmóníku! yfir 30 sinnum á tónleikum víða um heim, og það að fá viðbrögð hennar svo oft hefur auðvitað dýpkað túlkun mína og skilning á verkinu til mikilla muna. Fyrir mig hefur það verið einstakur innblástur að fá að vinna svo náið með einum sterkasta persónuleika samtímatónlistar. Hún hefur einstakan hæfileika til að láta jafnvel skrýtnustu hljóð hvers hljóðfæris eiga sinn eðlilega stað í tónlistinni, og getur fundið nýja liti og tjáningu sem maður vissi ekki áður að væru til.“ Geir Draugsvoll hefur nokkrum sinnum áður komið til Íslands til tónleikahalds, í fyrsta sinn árið 1988 þegar hann tók þátt í Tónlistarhátíð ungra norrænna einleikara sem fór fram í Reykjavík. „Ég á afar góðar minningar frá tónleikum mínum á Íslandi, þær spanna meira en 30 ár,“ segir Draugsvoll. „Fyrsta heimsóknin 1988 er mér sérlega minnisstæð. Þarna var ný kynslóð norrænna einleikara að kveða sér hljóðs, meðal annars Leif Ove Andsnes og Áshildur Haraldsdóttir, og við héldum öll einleikstónleika auk þess að spila með Sinfóníunni. Þetta eru allt frábærir tónlistarmenn og það var ótrúlega spennandi að vera í félagsskap þeirra og sýna hvað í mér bjó. En ég á líka aðrar ánægjulegar minningar frá Íslandi, til dæmis af því að flytja með Caputhópnum verk eftir Þuríði Jónsdóttur. Ég lék síðast í Norræna húsinu árið 2019 og hlakka mjög til að koma aftur til þessa dásamlega lands!“ Draugsvoll tengist Íslandi einnig sem kennari, því að nokkrir íslenskir harmóníkunemendur hafa verið nemendur hans í Kaupmannahöfn undanfarin ár. „Ég verð að segja að það kom mér ánægjulega á óvart að uppgötva alla þessa snjöllu harmóníkuleikara sem Ísland hefur eignast á síðustu árum! Íslensku nemendurnir eru allir ótrúlega duglegir og metnaðarfullir. Jón Þorsteinn Reynisson hóf nám hjá mér fyrir næstum áratug, síðan bættust við Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir og Jónas Ásgeir Ásgeirsson og saman stofnuðu þau tríóið Ítríó sem er algjörlega á heimsmælikvarða. Svo kom til mín Flemming Viðar Valmundsson sem lék einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir rúmu ári. Þetta hæfileikaríka fólk spratt ekki úr engu. Það eru augljóslega færir kennarar á Íslandi sem kunna að glæða áhuga nemenda sinna. Með þessari glæsilegu kynslóð er ég viss um að framtíðin fyrir harmóníkuleik á Íslandi er björt.“
07|04 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Sofia Gubaidulina
Sieben Worte
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Anton Bruckner
Sinfónía nr. 3
Páskatónleikar Sinfóníunnar
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Geir Draugsvoll
einleikari
Sigurgeir Agnarsson einleikari
Ýmis tónskáld hafa í aldanna rás samið tónverk innblásin af sjö orðum Krists á krossinum, meðal annars Sofia Gubaidulina. Hún samdi konsertinn Sieben Worte eða Sjö orð, fyrir bajan, selló og strengjasveit, árið 1982, en við frumflutninginn í Moskvu lét hún ekkert uppi um trúarlega skírskotun verksins enda höfðu yfirvöld í Sovétríkjunum óbeit á kristinni trú. Sjö orð er meðal allra áhrifamestu verka Gubaidulinu og hljómar hér í snilldarflutningi harmóníkuleikarans Geirs Draugsvoll, sem hefur starfað náið með tónskáldinu um árabil, og Sigurgeirs Agnarssonar, fyrsta sellóleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Anton Bruckner var eitt trúræknasta tónskáld 19. aldarinnar og sinfóníum hans hefur oft verið líkt við dómkirkjur í tónum. Þriðja sinfónían var tímamótaverk á ferli Bruckners og í verkinu fann hann sína eigin mikilfenglegu rödd eftir áralanga leit. Það var tónskáldinu gleðiefni að sjálfur Richard Wagner, sem hann dáði öðrum mönnum fremur, skyldi þiggja tileinkun verksins. Ekki fór þó allt jafn vel í framhaldinu, því að frumflutningur verksins í Vínarborg misheppnaðist algjörlega og sinfónían hlaut ekki fyrr en áratugum síðar þann sess sem henni ber. Eva Ollikainen, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar, hefur sérstakt dálæti á verkum Bruckners og túlkar þau af innsæi og röggsemi.
Meistaraverk með trúarlega skírskotun á páskatónleikum Sinfóníunnar. 65
28|04 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
Galina Ustvolskaja TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Sinfónískt ljóð nr. 2
Robert Schumann
Sellókonsert
Schumann og Schubert „Hrein fullkomnun“ segir rýnir tímaritsins Gramophone um túlkun austurríska sellóleikarans Kian Soltani og The Times kallar hann „stórmerkilegan sellista“. Soltani vakti fyrst heimsathygli þegar hann vann fyrstu verðlaun í Paulosellókeppninni í Helsinki árið 2013. Síðan hefur ferill hans verið samfelld sigurganga, með tónleikum í Carnegie Hall og útgáfusamningi við Deutsche Grammophon. Á Íslandi leikur hann ljóðrænan og tilfinningaþrunginn sellókonsert Schumanns, sem tónskáldið samdi undir lok ævinnar. Í níundu sinfóníu sinni er Schubert í sínu besta formi, lagræn gáfa hans og léttleiki er í forgrunni. Þótt verkið sé stórkostlegt hljómaði það ekki á opinberum tónleikum meðan tónskáldið sjálft lifði. Það var einmitt Schumann sem fann nóturnar í gömlu blaðarusli níu árum eftir að Schubert lést, vakti athygli á verkinu og sá til þess að það yrði flutt. Á tónleikunum hljómar einnig heillandi hljómsveitarverk eftir rússneska tónskáldið Galinu Ustvolskayu, sem var nemandi Shostakovitsj og um skeið ástkona hans. Hún bjó í Leníngrad í sárri fátækt, samdi fá verk sem hljómuðu sjaldan eða aldrei, en á síðustu árum hefur hún í æ ríkari mæli hlotið viðurkenningu sem ein merkasta huldukona sovéskra tónsmíða.
Hrífandi rómantík í flutningi eins fremsta sellóleikara heims.
66
Franz Schubert
Sinfónía nr. 9
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Kian Soltani einleikari
30|04 LAUGARDAGUR
KL.14.00
LITLI TÓNSPROTINN
Skilaboðaskjóðan
Þorvaldur Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson Skilaboðaskjóðan
Kornilios Michailidis hljómsveitarstjóri
Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson með tónlist eftir Jóhann G. Jóhannsson var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu árið 1993 og fékk fádæma góðar viðtökur. Tónlistin, sem hefur lifað góðu lífi utan leikhússins, hljómaði svo á Tónsprotatónleikum haustið 2013 í bráðskemmtilegri útsetningu tónskáldsins fyrir sinfóníuhljómsveit. Nú verða þessir vinsælu tónleikar endurteknir vegna fjölda áskorana. Við bregðum okkur inn í Ævintýraskóginn í fylgd frábærra leikara og söngvara sem leysa frá skjóðunni og gæða persónur skógarins lífi. Maddamamma saumakona, Rauðhetta og úlfurinn, Mjallhvít og stjúpan, Hans og Gréta og nornin að ógleymdum Dreitli og hinum dvergunum munu gleðja unga jafnt sem aldna og varpa sannkölluðum ævintýraljóma inn í Eldborg. Sinfóníuhljómsveit Íslands slæst í för með ævintýrapersónunum svo takast megi að bjarga Putta litla. Höfundur tónlistarinnar, Jóhann G. Jóhannsson starfaði um árabil sem tónlistarstjóri Þjóðleikhússins.
Heillandi og fjörug ævintýratónlist fyrir alla fjölskylduna. 67
Eitt frægasta tónskáld Bandaríkjanna stjórnar tónlist sinni á Íslandi í fyrsta sinn.
68
05|05 FIMMTUDAGUR
KL.19:30
John Adams
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Short Ride in a Fast Machine
John Adams
Must the Devil Have All the Good Tunes?, píanókonsert
Ví kingur og John Adams
John Adams
Harmonielehre
John Adams
hljómsveitarstjóri
Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari
John Adams er eitt virtasta tónskáld Bandaríkjanna og brautryðjandi í þeirri grein tónlistar sem kölluð er naumhyggja eða mínímalismi. Hann hefur samið viðamiklar óperur á borð við Nixon in China og Doctor Atomic, hann hefur hlotið fimm Grammy-verðlaun og sex háskólar hafa veitt honum heiðursdoktorsnafnbót. Nú kemur John Adams í fyrsta sinn til Íslands og stjórnar tónleikum með eigin tónlist, bæði eldri og nýrri verkum. Short Ride in a Fast Machine er eitt hans frægasta verk, snaggaraleg tónsmíð innblásin af stuttri ökuferð með glannalegum ökuþór. Harmonielehre frá árinu 1985 er mikilfenglegt verk og stórt í sniðum, eins konar „trúarjátning á mátt tóntegundanna“ eins og Adams sagði sjálfur. Verkinu hefur löngu verið skipað í flokk sígildra nútímaverka og eru flestir á því að hér sé um að ræða lykilverk í sögu bandarísks mínímalisma. „Það næsta sem komist verður naumhyggjusinfóníu,“ skrifaði gagnrýnandi Gramophone. Adams samdi píanókonsertinn Must the Devil Have All the Good Tunes? árið 2018 og sótti heiti hans í fleyg orð sem oft eru eignuð siðbótarfrömuðinum Marteini Lúther: „Þarf skrattinn að eiga öll góðu lögin?“ Það var Yuja Wang sem frumflutti verkið í Los Angeles, en Víkingur Heiðar Ólafsson hefur leikið það undir stjórn tónskáldsins víða um heim. Nú er komið að því að hann kynni verkið fyrir íslenskum áheyrendum. Þessi skemmtilegi konsert er „sprengigos af orku og uppfinningasemi“ að sögn eins gagnrýnanda, ómótstæðileg blanda af virtúósatækni Liszts, djassi og „honky-tonk“ píanóspili.
69
69
18 |05 MIÐVIKUDAGUR
KL.20:00
Dmítríj Shostakovitsj
Sinfónía nr. 5
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:30
Eva Ollikainen
hljómsveitarstjóri
Eva stjórnar Shostakovitsj
Halla Oddný Magnúsdóttir kynnir
Fáar sinfóníur 20. aldar hafa náð þvílíkri hylli sem fimmta sinfónía Shostakovitsj enda er hún magnþrungin og glæsileg, gædd dýpt og einlægri tjáningu. Hún var samin árið 1937, um sama leyti og pólitískar „hreinsanir“ Jósefs Stalín stóðu sem hæst. Tónskáldið átti mikið undir viðtökum verksins, því að einræðisherrann var síður en svo hrifinn af því sem hafði frá tónskáldinu komið undangengin misseri. Shostakovitsj kallaði verkið „listrænt svar sovésks listamanns við réttmætri gagnrýni“ en tónlistina er hægt að skilja á ýmsa vegu, jafnvel glæsilegan lokapunkt verksins. „Það er eins og einhver berji þig með kylfu og segi: Þú átt að fagna, þú átt að fagna,“ er haft eftir tónskáldinu sjálfu. Þetta er einstakt tækifæri til að heyra eina mögnuðustu sinfóníu 20. aldar undir stjórn Evu Ollikainen, aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónleikunum er einnig sjónvarpað beint á RÚV og eru þeir um klukkustundarlangir án hlés.
Ein magnaðasta sinfónía 20. aldar á lokatónleikum grænu raðarinnar. 70
71
Ein dáðasta tónlistarkona samtímans kemur fram í fyrsta sinn á Íslandi. 72
03| 06
04| 06
KL.19:30
KL.17:00
FÖSTUDAGUR
LAUGARDAGUR
Barbara Hannigan
einsöngvari og hljómsveitarstjóri
LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
Efnisskrá kynnt síðar
Barbara Hannigan
Kanadíska sópransöngkonan Barbara Hannigan hefur vakið feykilega aðdáun um heim allan undanfarin ár, fyrir stórfenglegan söng en ekki síður fyrir hæfileika sína sem hljómsveitarstjóri. Hún hefur starfað með öllum helstu hljómsveitum heims og hefur frumflutt yfir 85 ný tónverk, meðal annars eftir György Ligeti og Hans Abrahamsen. Þá hefur hún sungið í helstu óperuhúsum heims, meðal annars hið krefjandi titilhlutverk í Lulu eftir Alban Berg. Barbara Hannigan hefur hlotið ótal verðlaun fyrir list sína, meðal annars Grammy-verðlaun fyrir plötuna Crazy Girl Crazy árið 2018 og hin virtu Léonie Sonning-verðlaun árið 2020. Þegar Rolf Schock-verðlaunin féllu henni í skaut rökstuddi dómnefndin ákvörðun sína með þeim orðum að Hannigan væri „einstakur og framsækinn flytjandi sem nálgast tónlistina sem hún flytur með öflugum og lifandi hætti“. Hannigan kemur nú í fyrsta sinn til Íslands og er víst að tónleikar þessarar frábæru tónlistarkonu verða stórviðburður í tónlistarlífinu.
73
10|06 FÖSTUDAGUR
KL.19:30
Edvard Grieg
Píanókonsert
TÓNLEIKAKYNNING
KL.18:00
Jórunn Viðar
Eldur
Marianna spilar Grieg
Jórunn Viðar
Ólafur liljurós
Páll Ísólfsson
Veislan á Sólhaugum
Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar
Píanókonsert Griegs er einn vinsælasti konsert rómantíska skeiðsins, enda hrífandi blanda af glæsilegum tilþrifum einleikarans, djúpri tjáningu og léttum blæ norskra þjóðlaga. Armensk-danski píanóleikarinn Marianna Shirinyan hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir innblásinn leik, meðal annars verðlaun danskra gagnrýnenda og sérstök menningarverðlaun DR, danska útvarpsins. Hún hefur um árabil setið í dómnefnd Grieg-keppninnar í Bergen auk þess sem hún er prófessor í píanóleik við Tónlistarháskólann í Ósló, og veit því upp á hár hvernig á að túlka tónlist norska meistarans. Á tónleikunum hljómar einnig íslensk leikhús- og balletttónlist eftir tvö leiðandi íslensk tónskáld 20. aldar, Pál Ísólfsson og Jórunni Viðar. Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar er hrífandi leikgerð sem Halldór Laxness vann úr sögum og ljóðum listaskáldsins góða og var frumsýnd árið 1945. Tónlist Páls er leikandi létt og gamansöm, náði miklum vinsældum á sinni tíð en hefur legið í gleymsku svo áratugum skiptir. Sama má segja um Veisluna á Sólhaugum, tónlist hans við leikrit Ibsens. Ballettar Jórunnar Viðar, Eldur og Ólafur liljurós, eru tímamótaverk, fyrstu hljómsveitarverk íslenskrar
74
Páll Ísólfsson
Rumon Gamba
hljómsveitarstjóri
Marianna Shirinyan einleikari
konu og fyrstu ballettarnir eftir íslenskt tónskáld sem fluttir voru á Íslandi. Í kjölfar tónleikanna verða verkin hljóðrituð í samstarfi við Chandos-plötuforlagið til útgáfu á alþjóðlegum markaði. Rumon Gamba þarf vart að kynna fyrir íslenskum tónleikagestum en hann var aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands árin 2002–2010. Hann var nýverið ráðinn aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Oulu í Finnlandi.
Sjaldheyrðar íslenskar leikhúsperlur og einn vinsælasti píanókonsert allra tíma. 75
1. FIÐLA Sigrún Eðvaldsdóttir 1. konsertmeistari
Vera Panitch
2. konsertmeistari
Una Sveinbjarnardóttir 3. konsertmeistari
Andrzej Kleina Bryndís Pálsdóttir Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir Helga Þóra Björgvinsdóttir Hildigunnur Halldórsdóttir Júlíana Elín Kjartansdóttir Laufey Jensdóttir Laufey Sigurðardóttir Laura Liu Lin Wei Margrét Kristjánsdóttir Olga Björk Ólafsdóttir Pálína Árnadóttir Pétur Björnsson Zbigniew Dubik 2. FIÐLA Páll Palomares NN Christian Diethard Dóra Björgvinsdóttir Greta Guðnadóttir Gróa Margrét Valdimarsdóttir Gunnhildur Daðadóttir Hlín Erlendsdóttir Ingrid Karlsdóttir Kristján Matthíasson Margrét Þorsteinsdóttir Ólöf Þorvarðsdóttir Roland Hartwell Sigurlaug Eðvaldsdóttir Þórdís Stross
76
VÍÓLA Þórunn Ósk Marinósdóttir NN Eyjólfur Alfreðsson Guðrún Hrund Harðardóttir Guðrún Þórarinsdóttir Herdís Anna Jónsdóttir Kathryn Harrison Lucja Koczot Sarah Buckley Svava Bernharðsdóttir Þórarinn Már Baldursson SELLÓ Sigurgeir Agnarsson Steiney Sigurðardóttir Bryndís Björgvinsdóttir Bryndís Halla Gylfadóttir Guðný Jónasdóttir Hrafnkell Orri Egilsson Margrét Árnadóttir Sigurður Bjarki Gunnarsson NN BASSI Xun Yang Jacek Karwan Hávarður Tryggvason Páll Hannesson Richard Korn Þórir Jóhannsson FLAUTA NN Áshildur Haraldsdóttir Martial Nardeau ÓBÓ Julia Hantschel Matthías Nardeau Peter Tompkins
KLARINETT Arngunnur Árnadóttir Grímur Helgason Rúnar Óskarsson FAGOTT NN Bryndís Þórsdóttir Brjánn Ingason
HORN
Stefán Jón Bernharðsson Asbjørn Bruun Emil Friðfinnsson Frank Hammarin Joseph Ognibene TROMPET NN Einar Jónsson Eiríkur Örn Pálsson Guðmundur Hafsteinsson BÁSÚNA Sigurður Þorbergsson Oddur Björnsson David Bobroff bassabásúna
TÚBA Nimrod Ron HARPA Katie Buckley PÍANÓ Anna Guðný Guðmundsdóttir PÁKUR Soraya Nayyar SLAGVERK Steef van Oosterhout Frank Aarnink Eggert Pálsson
STARFSFÓLK OG STJÓRN
HLJÓÐFÆRALEIKARAR
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS 2021-22 FRAMKVÆMDASTJÓRI Lára Sóley Jóhannsdóttir
STJÓRN SINFÓNÍU- HLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
LISTRÆNN RÁÐGJAFI Árni Heimir Ingólfsson
formaður
VIÐBURÐA- OG SKIPULAGSSTJÓRI Halla Oddný Magnúsdóttir Í fæðingarorlofi
Valdís Þorkelsdóttir afleysing VERKEFNASTJÓRI VIÐBURÐA Valdís Þorkelsdóttir Jökull Torfason afleysing MARKAÐS- OG KYNNINGARSTJÓRI Margrét Ragnarsdóttir MARKAÐSFULLTRÚI Inga María Leifsdóttir FRÆÐSLUSTJÓRI Hjördís Ástráðsdóttir MANNAUÐSSTJÓRI Una Eyþórsdóttir FJÁRMÁLASTJÓRI Svanhvít Hrólfsdóttir NÓTNAVÖRÐUR Kristbjörg Clausen UMSJÓNARMAÐUR NÓTNA Larissa Weidler VERKEFNASTJÓRI SVIÐS-OG TÆKNIMÁLA Sigþór J. Guðmundsson SVIÐS-OG TÆKNIMAÐUR Björk Björgúlfsdóttir
Sigurbjörn Þorkelsson
Herdís Þórðardóttir varaformaður
Oddný Sturludóttir Hávarður Tryggvason Friðjón R. Friðjónsson VERKEFNAVALSNEFND Árni Heimir Ingólfsson formaður
Anna Þorvaldsdóttir Asbjørn Bruun Eva Ollikainen Guðrún Hrund Harðardóttir Halla Oddný Magnúsdóttir Hjördís Ástráðsdóttir Margrét Ragnarsdóttir Sigrún Eðvaldsdóttir Sigurður Þorbergsson Soraya Nayyar
SKANNAÐU OG HLUSTAÐU Á DAGSKRÁNA Á Spotify-rás Sinfóníuhljómsveitarinnar má m.a. finna lagalista tónleikaraða starfsársins. Þar er hægt að hlusta á sérvaldar upptökur af þeim verkum sem eru á efnisskrá. Spotify er auðveld og skemmtileg leið til að kynnast tónlistinni enn frekar með úrvalsflytjendum áður en haldið er í tónleikasal eða til að endur- upplifa hana þegar heim er komið. Auk þess geyma lagalistar Sinfóníunnar skemmtilegar upptökur með einleikurum og hljómsveitarstjórum sem heimsækja hljómsveitina, tónlist fyrir börn, íslenska tónlist fyrir hljómsveit auk tónlistar sem Sinfóníu hljómsveit Íslands hefur hljóðritað og gefið út. Heimsæktu Sinfóníuna á Spotify!
2
Ýttu á myndavélatáknið
3
Skannaðu kóðann
1
Ýttu á leitartáknið
77
Í BEINNI Á RÁS EITT
VINAFÉLAG SINFÓNÍUNNAR
TÓNLEIKAKYNNINGAR
Saga Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Ríkisútvarpsins er samofin og í áratugi hafa hlustendur Rásar 1 um allt land, og í seinni tíð á netinu um allan heim, getað hlustað á tónleika hljómsveitarinnar í beinni útsendingu á Rás 1. Mikil áhersla er lögð á vandaða dagskrárgerð og eru nær allir tónleikar Sinfóníunnar sendir út. Á undan útsendingum geta hlustendur Rásar 1 fræðst um tónlistina og listamennina í þættinum Á leið í tónleikasal og í hléi er fræðandi og skemmtileg dagskrá. Hægt er að nálgast upptökur frá tónleikum og Á leið í tónleikasal í Sarpinum á ruv.is.
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands er öflugur vettvangur fyrir þá sem láta sig starfsemi hljómsveitarinnar miklu varða. Félagið hefur í gegnum tíðina staðið fyrir tónleikakynningum, fyrirlestrum og málþingum um sígilda tónlist og hefur einnig styrkt fjárhagslega ákveðin verkefni tengd hljómsveitinni. Starfsemi félagsins hefur mælst afar vel fyrir. Sinfóníuhljómsveit Íslands býður vinum sínum á tónleika Ungsveitar SÍ og eina opna æfingu á starfsárinu. Allir geta orðið meðlimir í Vinafélaginu og hægt er að skrá sig á sinfonia.is/vinafelag eða í miðasölu Hörpu.
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveitina, býður upp á fimmtán tónleikakynningar í Hörpuhorni á starfsárinu. Veitingasala í Hörpuhorni hefst á tónleikadegi kl. 18:00 og geta gestir setið í notalegu umhverfi og pantað veitingar. Sjálf kynningin hefst kl. 18:20 og stendur í hálftíma. Í grænni tónleikaröð (nema á Vínartónleikum) hefst veitingasala kl. 18:45 og sjálf kynningin hefst kl. 19:00. Tónleikakynningarnar eru höndum Árna Heimis Ingólfssonar tónlistarfræðings, Sigurðar Ingva Snorrasonar klarínettleikara og Svanhildar Óskarsdóttur rannsóknarprófessors á Árnastofnun.
Árgjaldið er 4.000 krónur.
Tónleikakynningar eru haldnar í Hörpuhorni á 2. hæð fyrir framan Eldborg.
BARNASTUNDIR SINFÓNÍUNNAR
SKÓLAKORTIÐ
OPNAR ÆFINGAR
Á Barnastundum Sinfóníuhljómsveitarinnar er áhersla lögð á notalegheit og nánd við hljómsveitina þar sem létt og leikandi tónlist er flutt fyrir allra yngstu hlustendurna. Barnastundirnar hafa notið mikilla vinsælda og eru sannkallaðar gæðastundir og góður upptaktur að ljúfum degi. Dagskráin er um það bil hálftímalöng og er leidd af konsertmeisturum Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Námsmenn yngri en 25 ára eiga kost á frábæru tilboði til að njóta tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar. Námsmenn ná sér í Skólakort Sinfóníunnar í miðasölu Hörpu með því að framvísa sínu nemendakorti og geta með því keypt miða á tónleikadegi á alla almenna tónleika Sinfóníunnar á aðeins 1.900 kr. Hægt er að kaupa miða á skólakortskjörum hvar sem er í salnum, allt eftir því hvað er laust. Það er ekki hægt að láta svona kostakjör renna sér úr greipum.
Sinfóníuhljómsveitin opnar dyrnar að lokaæfingum á tónleikadegi allra áskriftartónleika í gulri, grænni og rauðri röð á nýju starfsári. Hægt verður að kaupa aðgang að æfingunum í miðasölu Hörpu og á vef Sinfóníunnar. Lokaæfingin hefst kl. 10:00 en aðgangur er takmarkaður við ákveðin sæti í Eldborg. Opnar æfingar eru tilvalið tækifæri til að dýpka upplifun og skilning á tónlistinni sem flutt er síðar á tónleikum um kvöldið.
LAU 11|09 KL. 11:30 LAU 12|03 KL. 11:30
78
www.sinfonia.is/aefingar
ÖFLUGT FRÆÐSLUSTARF Öflugt og fjölþætt fræðslustarf er mikilvægur þáttur í starfsemi Sinfóníuhljómsveitarinnar og hefur verið allt frá stofnun hennar. Fræðslustarfið er í stöðugri framþróun þar sem áhersla er lögð á gæði, fjölbreytileika og samstarf. Skólatónleikar, skólaheimsóknir og leiðsögn nemendahópa er fastur liður í starfsemi hljómsveitarinnar sem einnig starfar að langtímaverkefnum með ungu fólki, bæði einleikurum og hljóðfærahópum. Þróunarverkefni af ýmsum toga eru unnin í samvinnu við skóla og lengra komna nemendur í listnámi. Hljómsveitin leggur ríka áherslu á að vera í góðum tengslum við samfélagið og heimsækir bæði stofnanir og vinnustaði og hefur átt farsælt samstarf við eldri borgara um langt skeið. Í vetur verður boðið upp á ferna glæsilega og lifandi fjölskyldutónleika Litla tónsprotans og hinar vinsælu Barnastundir sem ætlaðar eru yngstu hlustendunum. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um fræðslustarf frá lokum ágústmánaðar á sinfonia.is/fraedslustarf
NÝJAR HLJÓÐRITANIR Á hverju starfsári hljóðritar Sinfóníuhljómsveit Íslands verk til alþjóðlegrar útgáfu í samstarfi við leiðandi útgáfufyrirtæki á heimsvísu. Áhugi erlendra útgefenda á samstarfi við hljómsveitina hefur farið vaxandi á síðustu árum, ekki síst þegar kemur að útgáfu á íslenskri tónlist. Á komandi starfsári mun hljómsveitin hljóðrita þrjár plötur með íslenskri tónlist til alþjóðlegrar útgáfu. Fyrir hið virta forlag Deutsche Grammophon tekur sveitin upp A Prayer to the Dynamo eftir Jóhann Jóhannsson undir stjórn Evu Ollikainen. Bandaríska útgáfan Sono Luminus hljóðritar ný íslensk og bandarísk tónverk undir stjórn Daníels Bjarnasonar, meðal annars eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Kjartan Sveinsson og Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur. Fyrir Chandos stjórnar Rumon Gamba íslenskri ballett- og leikhústónlist eftir Jórunni Viðar og Pál Ísólfsson, og koma sum þeirra verka nú út í fyrsta sinn á plötu. Þess má einnig geta að nýverið kom út hjá Sono Luminus diskurinn Occurrence sem hefur að geyma nýleg íslensk hljómsveitarverk: fiðlukonsert eftir Daníel Bjarnason með Pekka Kuusisto í einleikshlutverki og Flutter eftir Þuríði Jónsdóttur með Mario Caroli flautuleikara í einleikshlutverki, ásamt verkum eftir Veronique Vöku, Hauk Tómasson og Magnús Blöndal Jóhannsson. Verkin voru tekin upp í Hörpu undir stjórn Daníels Bjarnasonar. 79
AÐALSTJÓRNANDI OG SAMSTARFSLISTAMENN EVA OLLIKAINEN
aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Finnski hljómsveitarstjórinn Eva Ollikainen tók við stöðu aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands haustið 2020. Hún stundaði tónlistarnám við Sibeliusar-akademíuna í Helsinki og hreppti fyrstu verðlaun í Panulakeppninni fyrir unga hljómsveitarstjóra árið 2003. Hún kom fyrst til Íslands tveimur árum síðar og spannar samstarf hennar við Sinfóníuhljómsveit Íslands því meira en 15 ár. Þá stjórnaði hún framhaldsskólatónleikum hljómsveitarinnar með nær engum fyrirvara, en hún stjórnaði einnig nokkrum áskriftartónleikum á árunum 2007–2010. Hún stjórnaði í fyrsta sinn í Hörpu í febrúar 2019 og skömmu síðar tók hún boði hljómsveitarinnar um að gerast aðalstjórnandi hennar. Eva Ollikainen hefur stjórnað fjölda virtra hljómsveita, meðal annars Útvarpshljómsveitunum í Finnlandi og Svíþjóð, Fílharmóníusveitinni í Stokkhólmi og Sinfóníuhljómsveitinni í Vínarborg. Þá hefur hún stjórnað óperusýningum við Dönsku þjóðaróperuna og Semperoper í Dresden.
BERTRAND DE BILLY aðalgestastjórnandi
Franski hljómsveitarstjórinn Bertrand de Billy gegnir stöðu aðalgestastjórnanda á árunum 2021–2023. Hann hefur getið sér einstaklega gott orð bæði sem óperustjórnandi og stjórnandi sinfónískrar tónlistar. Hann var um skeið tónlistarstjóri við Liceu-óperuhúsið í Barcelona, aðalstjórnandi Útvarpshljómsveitarinnar í Vínarborg á árunum 2002–2010, og er nú aðalgestastjórnandi við Fílharmóníusveitina í Dresden. Bertrand de Billy kom fyrst til Íslands í febrúar 2011 og stjórnaði meðal annars fjórðu sinfóníu Antons Bruckner. Hann stjórnaði hljómsveitinni aftur í Hörpu árið 2018 og vakti feykilega hrifningu bæði hljómsveitar og áheyrenda. Á starfstíma de Billys með hljómsveitinni mun hann stjórna öllum sinfóníum Johannesar Brahms auk þess sem hann stjórnar Þýskri sálumessu eftir Brahms í mars 2022.
80
VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON staðarlistamaður
Víkingur Heiðar Ólafsson, staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitarinnar starfsárið 2021–2022, er heimskunnur fyrir áhugaverða, djúpa og oft óhefðbundna túlkun sína. Hann hefur hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar fyrir tónleika sína og hljómplötur, meðal annars Gramophone-verðlaunin, BBC Music Magazine-verðlaunin og Opus Klassik-verðlaunin. Víkingur mun á starfsárinu leika þrjá nýja píanókonserta á þrennum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands, eftir Thomas Adès, John Adams og Daníel Bjarnason. Tónskáldin sjálf munu stjórna verkum sínum og er þetta einstakt tækifæri til að heyra hið nýjasta í konsertsmíðum samtímans í túlkun tónskáldanna sjálfra.
ANNA ÞORVALDSDÓTTIR staðartónskáld
Anna Þorvaldsdóttir hefur skipað sér í fremstu röð tónskálda á heimsvísu undanfarin ár. Hún semur meðal annars stór sinfónísk verk fyrir helstu hljómsveitir heims, og hafa bæði Berlínarfílharmónían og Fílharmóníusveit New York-borgar frumflutt eftir hana tónverk á undanförnum árum. Anna hefur gegnt hlutverki staðartónskálds Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2018 en samstarf hennar við hljómsveitina spannar mun lengri tíma. Meðal annars samdi hún að beiðni hljómsveitarinnar verkið AERIALITY sem hljómaði fyrst árið 2011 og hefur heyrst víða um heim, meðal annars á nokkrum tónleikaferðalögum Sinfóníuhljómsveitarinnar á erlendri grund. Einn af hápunktum starfsársins 2021–22 verður flutningur á AIŌN, hljómsveitar- og dansverki sem Anna samdi í samstarfi við Ernu Ómarsdóttur. Meðal þeirra verkefna sem Anna vinnur nú að fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands má nefna stórt sinfónískt verk, og METAXIS sem er rýmisverk í formi tónlistar-innsetningar, sérsniðið að hinum ýmsu rýmum Hörpu þar sem hljómsveitin verður dreifð í smærri hópum um rými hússins. Stefnt er að því að frumflytja METAXIS á Norrænum músíkdögum sem fara fram í Reykjavík haustið 2022.
81
DANÍEL BJARNASON listamaður í samstarfi
Daníel Bjarnason hefur átt farsælt samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands í rúman áratug, bæði sem hljómsveitarstjóri og tónskáld. Hann var staðarlistamaður á árunum 2015–2018 og aðalgestastjórnandi árin 2019–2021, en starfar nú með sveitinni sem „listamaður í samstarfi“ (Artist in Association). Tónsmíðar Daníels hafa vakið mikla athygli víða um heim og hafa margsinnis hljómað á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, nú síðast fiðlukonsert hans í flutningi Pekka Kuusisto í mars 2021. Meðal verkefna sem framundan eru með Daníel og Sinfóníuhljómsveit Íslands má nefna hljóðritun á nýrri plötu fyrir Sono Luminus. Þrjár plötur forlagsins með íslenskri tónlist í flutningi hljómsveitarinnar hafa vakið mikla athygli og var ein þeirra tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir besta hljómsveitarflutning.
OSMO VÄNSKÄ heiðursstjórnandi
Finnski hljómsveitarstjórinn Osmo Vänskä var aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árunum 1993–1996. Hann náði frábærum árangri með sveitinni og stjórnaði meðal annars fyrstu tónleikum hennar í Carnegie Hall í New York, sem fengu afbragðs dóma meðal annars í The New York Times. Hann tók við stöðu heiðursstjórnanda Sinfóníuhljómsveitarinnar árið 2014 og hefur að jafnaði síðan stjórnað einum tónleikum á ári, meðal annars sinfóníum Gustavs Mahler. Næstu tónleikar Osmos á Íslandi eru fyrirhugaðir starfsárið 2022–23. Osmo Vänskä nýtur mikillar virðingar á alþjóðlegum vettvangi. Hann var um árabil aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Lahti í Finnlandi og var ráðinn aðalstjórnandi Minnesota-hljómsveitarinnar árið 2003. Hann tók nýverið við stöðu aðalstjórnanda Fílharmóníusveitarinnar í Seúl í Suður-Kóreu. Hljóðritanir hans hafa hlotið mikið lof, meðal annars túlkun hans á sinfóníum Sibeliusar með hljómsveitinni í Lahti og sinfóníum Mahlers með Minnesota-hljómsveitinni. Einnig hefur hann hljóðritað með Sinfóníuhljómsveit Íslands nokkur hljómsveitarverk Jóns Leifs fyrir BIS-útgáfuna, meðal annars Sögusinfóníuna.
82
KORNILIOS MICHAILIDIS staðarhljómsveitarstjóri
Gríski hljómsveitarstjórinn Kornilios Michailidis hefur verið ráðinn staðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2021–22. Hann stundaði píanónám í París og í Bandaríkjunum og lauk meistaraprófi í hljómsveitarstjórn við Sibeliusar-akademíuna í Helsinki. Hann var aðstoðarstjórnandi Finnsku útvarpshljómsveitarinnar 2016–17 og gegndi sömu stöðu við Fílharmóníusveit franska útvarpsins á árunum 2018–20. Hann hefur stjórnað fjölda hljómsveita og einnig við óperuhús, meðal annars Töfraflautu Mozarts við Teatro Real í Madrid, auk þess sem hann hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveitinni í Lahti, Grísku útvarpshljómsveitinni og hljómsveit Parísaróperunnar. Kornilios Michailidis hefur einnig komið víða fram sem píanóleikari, meðal annars með Sinfóníuhljómsveitinni í Aþenu og ásamt fiðluleikaranum Sergej Krylov. Árið 2016 stofnaði hann Tónlistarhátíðina í Koufonisia, þar sem klassísk tónlist hljómar á einni af smæstu eyjum Grikklands.
VLADIMIR ASHKENAZY aðalheiðursstjórnandi
Vladimir Ashkenazy vakti fyrst alþjóðlega athygli þegar hann hlaut önnur verðlaun í Chopin-keppninni í Varsjá árið 1955, og hann hreppti síðan fyrstu verðlaun í Queen Elisabeth-keppninni í Brussel 1956 og Tsjajkovskíj-keppninni í Moskvu 1962. Ashkenazy á að baki glæsilegan feril í hljóðverinu, en hann hefur verið samningsbundinn útgáfuforlaginu Decca frá árinu 1963. Hann hefur hlotið sjö Grammy-verðlaun, m.a. sem besti einleikari með hljómsveit, fyrir bestu kammerhljóðritun og besta einleiksdisk. Samstarf Ashkenazys og Sinfóníuhljómsveitar Íslands spannar meira en hálfa öld. Hann kom fyrst fram með hljómsveitinni árið 1964 og stjórnaði henni í fyrsta sinn árið 1971. Hann hefur verið heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2002. Ashkenazy gegndi lykilhlutverki í því að hvetja ráðamenn til byggingar tónlistarhúss í Reykjavík og stjórnaði opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu vorið 2011. Síðast kom hann fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tólf tónleikum í Japan í nóvember 2018. Forseti Íslands sæmdi Ashkenazy stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu í apríl 2018 fyrir framlag sitt til íslensks tónlistar- og menningarlífs.
83
STOLTUR BAKHJARL SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS Í FLUTNINGUM
3. svalir
MIÐASALA Í HÖRPU SINFONIA.IS / 528 50 50
TRYGGÐU ÞÉR GOTT SÆTI
2. svalir
1. svalir
ALMENNT MIÐAVERÐ Miðaverð á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands getur verið breytilegt. Boðið er upp á ólík verðsvæði í Eldborg og því ættu allir að geta valið sér sæti. Nánari upplýsingar um verð á einstaka tónleika er að finna á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu.
28 27 26 25
ÁSKRIFTARKORT
24 23
Áskrift að tónleikaröðum og Regnbogakorti Sinfóníuhljómsveitarinnar veitir 20% afslátt frá almennu miðaverði. Tvær raðir veita 25% afslátt af miðaverði og þrjár raðir veita 30% afslátt. Áskrifendur fá einnig 10% afslátt af viðbótarmiðum á alla tónleika.
22 21 20 19 18 17 16 15 14 13 12 11
SVÆÐI
10
RAUÐ RÖÐ
7 tónleikar
GUL RÖÐ
7 tónleikar
GRÆN RÖÐ
LITLI TÓNSPROTINN
5 tónleikar
4 tónleikar
1
40.320 kr.
40.320 kr.
26.400 kr.
10.720 kr.
1+
47.600 kr.
47.600 kr.
31.600 kr.
10.720 kr.
2
33.040 kr.
33.040 kr.
21.200 kr.
9.040 kr.
3
25.200 kr.
25.200 kr.
15.600 kr.
9.040 kr.
9 8 7 6 5 4
3 2 1
Hægt er að kaupa áskrift að Svörtu röðinni með fernum tónleikum Víkings Heiðars Ólafssonar. Áskrifendur að Svörtu röðinni fá 15% afslátt frá almennu miðaverði. Nánari upplýsingar er að finna á sinfonia.is.
SVIÐ
=
85
Framsækin fjármálaþjónusta með árangur að leiðarljósi.
Sinfóníuhljómsveit Íslands 2021/22 Útgefandi: Sinfóníuhljómsveit Íslands, júní 2021 Ritstjóri: Margrét Ragnarsdóttir Texti: Árni Heimir Ingólfsson Viðtöl: Árni Heimir Ingólfsson og Inga María Leifsdóttir Hönnun og umbrot: Kontor Ljósmyndir/forsíða: Ari Magg Aðrar ljósmyndir: Ýmsir Prentun: Litróf, umhverfisvottuð prentsmiðja
Athugið að tilhögun tónleika, miðaverð og annað sem greint er frá í þessum bæklingi kann að breytast án fyrirvara. Nýjustu upplýsingar er ávallt að finna á vef Sinfóníuhljómsveitar íslands, sinfonia.is Sinfóníuhljómsveit Íslands Harpa, Austurbakka 2, 101 Reykjavík Sími 545 25 00 sinfonia.is
Stoltur bakhjarl
Bakhjarl í flutningum
Miðasala í Hörpu sinfonia.is harpa.is
528 50 50
@icelandsymphony #sinfó