Skip to main content

Sinfóníuhljómsveit Íslands | Starfsárið 2018/19

Page 1

Ein hljómsveit – tvennir tímar

ARNA KRISTÍN EINARSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI

„Þetta er svo magnað, þegar við ýtum nýju starfsári úr vör – þessi tilfinning kemur í hvert einasta skipti.“


Kaija Saariaho Ciel d’hiver (Vetrarhiminn)

Gustav Mahler

James MacMillan Píanókonsert nr. 3, „Leyndardómar ljóssins“

Tónleikakynning kl. 18:00

Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 3, „Hetjuhljómkviðan“

Joseph Canteloube Söngvar frá Auvergne (Chants d’Auvergne)

28 19:30

Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Andreas Brantelid einleikari Strokkvartettinn Siggi

Malcolm Sargent Impression on a Windy Day

Judith Ingólfsson einleikari

Joan Tower

Felix Mendelssohn Fiðlukonsert

Edward Elgar

Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 7

In Memory

Sellókonsert

TVÆR SINFÓNÍUR OG TOKKATA

LUGANSKY SPILAR GRIEG

Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Bergrún Snæbjörnsdóttir

Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Nikolai Lugansky einleikari

Ludwig van Beethoven

Giuseppe Verdi Á valdi örlaganna, forleikur

Nýtt verk

Sinfónía nr. 7

Tónleikakynning kl. 18:00

Anna Þorvaldsdóttir

Illumine

John Speight

Sinfónía nr. 5

APRÍL 04 19:30 05 19:30

BÍÓTÓNLEIKAR

Fratres

STAR WARS

Daníel Bjarnason

Ted Sperling hljómsveitarstjóri

Ígor Stravinskíj

John Williams / George Lucas Star Wars

Tónleikakynning kl. 18:00

16 19:30 MAÍ

Sinfónía nr. 2

Edvard Grieg Píanókonsert Sergei Prokofíev Rómeó og Júlía, ballettsvítur

APR APR

Þorsteinn Hauksson

09 19:30

DANSANDI SINFÓNÍA

FIM

Tokkata

Jóhann G. Jóhannsson Strákurinn og slikkeríið – tónlistarævintýri byggt á sögu eftir Roald Dahl

FÖSTUDAGSRÖÐIN

Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri Karólína Eiríksdóttir

Noam Aviel hljómsveitarstjóri Brynhildur Guðjónsdóttir söngvari Unnsteinn Manuel Stefánsson söngvari Stúlknakór Reykjavíkur

MAÍ

Sergej Prokofíev Pétur & úlfurinn

29 18:00

04 14:00

STRÁKURINN OG SLIKKERÍIÐ

FIM

14 19:30

Tónleikakynning kl. 18:00

MAÍ

MAR

09 11:30

Leopold Mozart Allegro úr Leikfangasinfóníunni

Vorblót

Tónleikakynning kl. 18:00

BRAHMS OG TORTELIER Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Ari Þór Vilhjálmsson einleikari Sigurgeir Agnarsson einleikari Johannes Brahms

Akademískur hátíðarforleikur Johannes Brahms

Konsert fyrir fiðlu og selló

Louise Farrenc

Sinfónía nr. 3

Veronique Vaka

Emmanuel Chabrier

María Huld Markan Sigfúsdóttir

Tónleikakynning kl. 18:00

Rift

Nýtt verk

España

JÚNÍ 06 19:30 JÚN

MENDELSSOHN OG BEETHOVEN Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri

Tónleikar í Hörpuhorni fyrir yngstu tónlistarunnendurna. Aðgangur ókeypis.

Fiðlukonsert

Sinfónía nr. 10 (fullgerð af Deryck Cooke)

Georges Bizet Sinfónía í C-dúr

TJÁNING TREGANS

Maxime Tortelier hljómsveitarstjóri Trúðurinn Barbara kynnir Bernd Ogrodnik brúðugerðarmeistari Leikfangasextett

VORBLÓTIÐ

Fiðlukonsert

FIM

FÖSTUDAGSRÖÐIN

BARNASTUND SINFÓNÍUNNAR

21 19:30

MAÍ

Johannes Brahms

Atli Heimir Sveinsson / W.A. Mozart Alla turca etc.

FIM FÖS

Crevace, konsert fyrir flautu og fagott

Osmo Vänskä hljómsveitarstjóri Jean-Yves Thibaudet einleikari

FÖS

Páll Ragnar Pálsson

01 18:00

MAR

Flutter, flautukonsert

MARS

PÉTUR OG ÚLFURINN

Maurice Ravel Bolero

Osmo Vänskä hljómsveitarstjóri Isabelle Faust einleikari

Tónleikakynning kl. 18:00

MAR

16 14:00

FIM

Tónleikakynning kl. 18:00

Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Anne Sofie von Otter einsöngvari Einar Jóhannesson einleikari

MAÍ

Sinfónía nr. 4

APR

Johannes Brahms

23 19:30

THIBAUDET OG BEETHOVEN

LAU

Píanókonsert nr. 2

FIM

Sergei Prokofíev

11 19:30

ISABELLE FAUST OG MAHLER

MAR

Örsmá eilífðarbrot

Arvo Pärt

Þuríður Jónsdóttir

Tónleikakynning kl. 18:00

MAR

Atli Heimir Sveinsson

Anna Meredith

Metacosmos

Sinfónía nr. 3

21 19:30

VON OTTER OG TORTELIER

FIM

Antonio Méndez hljómsveitarstjóri Denis Kozhukhin einleikari

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Pekka Kuusisto einleikari

Anna Þorvaldsdóttir

Witold Lutosławski

FIM

PROKOFÍEV OG BRAHMS

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Hallfríður Ólafsdóttir einleikari Martin Kuuskman einleikari Mario Caroli einleikari Ungsveit SÍ / Kór LHÍ

Handsfree

Sellókonsert

MAR

SINFÓNÍAN Á MYRKUM MÚSÍKDÖGUM

FEB

Hallfríður Ólafsdóttir saga Þórarinn Már Baldursson myndir

TÓNLEIKAFERÐ TIL JAPANS

31 19:30

Edward Elgar

FIM

Maxi fer á fjöll

Fjölbreytt jólatónlist

Tónleikakynning kl. 18:00

07 19:30

FEB

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Unnur Eggertsdóttir sögumaður

01 - 19

Sinfónískir dansar úr West Side Story

Eldur

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

FIM

Tónleikar í Hörpuhorni fyrir yngstu tónlistarunnendurna. Aðgangur ókeypis.

MAXI FER Á FJÖLL

NÓVEMBER NÓV

Dagskrá kynnt síðar

BARNASTUND SINFÓNÍUNNAR

OKT

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðni Tómasson kynnar

SEP

Uppáhalds íslenskt

LAU

KLASSÍKIN OKKAR

15 11:30

LAU

ÁUG

FÖS

31 20:00

Tónleikakynning kl. 18:00

Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri Trúðurinn Barbara kynnir Valgerður Guðnadóttir og Kolbrún Völkudóttir söngvarar Stúlknakór Reykjavíkur og Litlu sprotarnir Listdansskóli Íslands Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Lúðraþeytarar

Leonard Bernstein

Jórunn Viðar

LAU

Tónleikakynning kl. 18:00

JÓLATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR

Flautukonsert

Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Andreas Brantelid einleikari

FÖS

Sinfónía nr. 2

06 14:00

Jón Ásgeirsson

FIM

Píanókonsert nr. 2

Heitor Villa-Lobos

Bachianas Brasileiras nr. 7

BRANTELID LEIKUR ELGAR

Nýtt verk

FEB

Sergei Rakhmanínov

Richard Strauss

Dauði og uppljómun

15 14:00 / 16:00 16 14:00 / 16:00

Jökulljóð

Jean Sibelius

OKTÓBER

Ligia Amadio hljómsveitarstjóri Freyr Sigurjónsson einleikari

JAN

Serenaða fyrir blásara

Þorkell Sigurbjörnsson

Síðasti bærinn í dalnum

24 19:30

BERNSTEIN OG VILLA-LOBOS

FIM

Richard Strauss

Vladimir Ashkenazy hljómsveitarstjóri Nobuyuki Tsujii einleikari

Jórunn Viðar / Óskar Gíslason

Efnisskrá kynnt síðar

28 19:30

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir

LAU

ENDURTEKIÐ VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA

NOBU OG ASHKENAZY

Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri

Ligia Amadio hljómsveitarstjóri Sigurvegarar úr einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands.

JAN

Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri Ari Eldjárn kynnir og uppistandari

25 19:30

UNGIR EINLEIKARAR

FIM

ARI ELDJÁRN OG SINFÓ

Hector Berlioz

Sumarnætur (Les nuits d’été)

Tónleikakynning kl. 18:00

SÍÐASTI BÆRINN Í DALNUM

17 19:30

DES

Forleikur að Draumi á Jónsmessunótt

Josef Suk

BÍÓTÓNLEIKAR

Nýtt verk

Tónleikakynning 10. jan kl. 18:00

DES

Felix Mendelssohn

Píanókonsert

LAU SUN

Véronique Gens einsöngvari

UPPISTAND!

11 19:30

Robert Schumann

OKT

Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri

Les offrandes oubliées

FIM

SUMARNÆTUR

SEP

13 19:30

Olivier Messiaen

SEP

Tónleikakynning kl. 18:00

Tónleikakynning kl. 18:00

Jan Lisiecki einleikari

Ævintýri (Pohádka)

28 19:30 29 17:00

Sinfónía nr. 38, Prag-sinfónían

Haukur Þór Harðarson

FEB

Sinfónía nr. 5

Wolfgang Amadeus Mozart

FEB

Dmitríj Shostakovitsj

Brandenborgarkonsert nr. 2

Óperettutónlist og valsar eftir Johann Strauss yngri, Franz Lehár, Emmerich Kálman og fleiri.

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri

FIM

Viatore (Hommage à Arvo Pärt)

Johann Sebastian Bach

FÖS

Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands Daniel Raiskin hljómsveitarstjóri Pēteris Vasks

Maurice Ravel

Tríó í a-moll (úts. Tortelier)

18 19:30

UNGSVEITIN LISIECKI SPILAR SPILAR SCHUMANN SHOSTAKOVITSJ Bertrand de Billy hljómsveitarstjóri

Fiðlukonsert nr. 2

SEP

Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri Karlakór Reykjavíkur Kammerkórinn Hymnodia Barnakór Kársnesskóla

23 17:00

Les Indes galantes (Hin indælu Indíalönd), svíta

Christian Kluxen hljómsveitarstjóri Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað einsöngvari Sveinn Dúa Hjörleifsson einsöngvari

JAN

Béla Bartók

FIM

ÁGÚ ÁGÚ ÁGÚ

FIM FÖS LAU

Skálmöld & Sinfóníuhljómsveit Íslands

Jean-Philippe Rameau

JAN

Ungverskur mars

Tónleikakynning kl. 18:00

01 12:00

JAN

Hector Berlioz

Sinfónía nr. 10

JAN

Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Renaud Capuçon einleikari

Bolero

SKÁLMÖLD OG SINFÓ

Tónleikakynning kl. 18:00

Dmitríj Shostakovitsj

Dirk Vermeulen hljómsveitarstjóri Baldvin Oddsson einleikari Hallfríður Ólafsdóttir einleikari Felicia Greciuc einleikari Nicola Lolli einleikari

10 19:30 11 19:30 12 16:00 / 19:30

FEBRÚAR

YRKJA – UPPSKERUVÍNARTÓNLEIKAR TÓNLEIKAR

FIM

RAVEL OG BARTÓK

Maurice Ravel

23 20:00 24 20:00 25 17:00

Sinfónía nr. 5

FÖS LAU

Bolero

Pjotr Tsjajkovskíj

Fiðlukonsert

BACH, RAMEAU OG MOZART

FÖS LAU

Maurice Ravel

Fjórir síðustu söngvar

AÐVENTUTÓNLEIKAR

JANÚAR FIM

Sinfónía nr. 3, lokaþáttur

Pjotr Tsjajkovskíj

Forleikur að Birtingi (Candide)

06 19:30

DES

Ludwig van Beethoven

Richard Strauss

Ævintýri Ugluspegils

DESEMBER

ÞRI

Fiðlukonsert, fyrsti þáttur

Leonard Bernstein

OKT

Pjotr Tsjajkovskíj

Richard Strauss

FIM

Forleikur að Birtingi (Candide)

Klaus Mäkelä hljómsveitarstjóri Sayaka Shoji einleikari

SEP

Leonard Bernstein

SEP

Klaus Mäkelä hljómsveitarstjóri Sigrún Eðvaldsdóttir einleikari

06 19:30

FIM

Úrval úr efnisskrám vetrarins

Petri Sakari hljómsveitarstjóri Þóra Einarsdóttir einsöngvari

SUN

MENNINGARNÓTT

BROT AF ÞVÍ BESTA

TSJAJKOVSKÍJ OG SHOSTAKOVITSJ

DES

Vinafélag SÍ býður upp á fyrirlestur þar sem stiklað verður á stóru um sögu klassískrar tónlistar og hápunktar starfsársins kynntir. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

ÞÓRA SYNGUR STRAUSS

FIM

ÁGÚ

LAU

18 17:00

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur

11 19:30 OKT

Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri Brynhildur Guðjónsdóttir kynnir

KLASSÍSK TÓNLIST 101

FIM

Úrval úr dagskrá Litla tónsprotans

FYRIRLESTUR Í KALDALÓNI

20 19:30 SEP

FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR

03 20:00 SEP

MENNINGARNÓTT

MÁN

ÁGÚ

LAU

18 15:00

FIM

ÁGÚST

SEPTEMBER

RICHARD GOODE LEIKUR MOZART Edo de Waart hljómsveitarstjóri Richard Goode einleikari John Adams Short Ride in a Fast Machine W.A. Mozart Píanókonsert í C-dúr, K. 503 Johannes Brahms Sinfónía nr. 1 Tónleikakynning kl. 18:00


Ein hljómsveit – tvennir tímar

ARNA KRISTÍN EINARSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI

„Þetta er svo magnað, þegar við ýtum nýju starfsári úr vör – þessi tilfinning kemur í hvert einasta skipti.“


„Eftirvænting“ er fyrsta orðið sem kemur Örnu Kristínu Einarsdóttur, framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, í hug þegar hún er spurð út í veturinn framundan.

„Þ

etta er svo magnað, þegar við ýtum nýju starfsári úr vör – þessi tilfinning kemur í hvert einasta skipti,“ segir Arna Kristín. „Spennan og eftirvæntingin yfir því sem framundan er, öllum þessum frábæru tónleikum og spennandi listamönnum, jafnt okkar góðu fastagestum og þeim sem við fáum að kynnast. Þannig er það líka í vetur. Við ræktum sambandið við góðvini hljómsveitarinnar á borð við hljómsveitarstjórana Osmo Vänskä, Vladimir Ashkenazy og Petri Sakari, en kynnumst líka nýjum og spennandi listamönnum - stjórnendum og einleikurum í fremstu röð. Listin nærist á spennunni En það eru ekki bara tónleikarnir sjálfir sem skipta máli, enda er samfélagsleg vídd hljómsveitarstarfsins Örnu Kristínu mikið hjartans mál. Til dæmis þegar kemur að jafnréttismálum sem mjög hafa verið í umræðunni að undanförnu, ekki síst í klassíska tónlistarheiminum, þar sem langstærstur hluti fluttra tónverka eru eftir karla. „Ég held að nú sé komið að því að klassíski heimurinn verði að gera þetta upp við sig. Þetta er auðvitað hluti af því að vera sinfóníuhljómsveit sem byggir á arfleifð liðinna tíma, en tilheyrir á sama tíma samfélagi nútímans, því samfélagi sem veitir okkur brautargengi – og fjármagnar starfsemi okkar. Við getum ekki bara horft í baksýnisspegilinn, heldur verðum að spegla samtíma okkar og þjóðfélag. Við erum þannig ein hljómsveit sem spannar tvenna tíma,“ segir Arna. „Í því felst ákveðin glíma sem myndar ákveðna spennu. En spennan er af hinu góða. Oft þarf að vera svolítil spenna í listum svo eitthvað gerist. Það sem kannski er mest aðkallandi núna er staða kvenna, bæði á hljómsveitarstjórapallinum og á meðal tónskálda. Nú þarf að leiðrétta þetta – og það þarf að gera með handafli, því það er ekki hægt að láta hlutina gerast af sjálfu sér. Þá tækju þeir svo langan tíma,“ segir Arna og tekur fram að konur séu ekki bara helmingur mannkyns, heldur líka meira en helmingur tónleikagesta. Byltingin bak við tjaldið „Það vill þannig til að í klassíska heiminum eigum við stórkostlega sögu sem sannar að kynin eru jafn góð,“ segir Arna. „Sagan hefst í Bandaríkjunum á sjöunda áratugnum, þegar kröfunni

um faglegra ráðningarferli um stöður í sinfóníuhljómsveitum var svarað með því að láta umsækjendur leika á bak við tjald í áheyrnarprufum svo dómnefnd gæti aðeins heyrt í umsækjendum en ekki séð. Þetta var gert til að koma í veg fyrir að aðrir þættir eins og klíkuskapur réðu ráðningarmálum. Sem óvænt hliðarverkun sem enginn hafði séð fyrir hafði þessi faglega nálgun þau áhrif að hlutur kvenna jókst til muna. Konur fóru að vinna prufuspil til jafns við karlana. Fram að því hafði hreinlega verið litið svo á að konur væru bara ekki eins músíkalskar!“ segir Arna og hlær, enda virðist sú ályktun enn fjarstæðukenndari þegar talið berst að frábærum árangri íslenskra tónlistarkvenna síðustu ár. Ein þeirra er einmitt Anna Þorvaldsdóttir, sem tók við sem staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands í ársbyrjun. „Við erum afar stolt að hafa fengið Önnu Þorvaldsdóttur í þessa stöðu, og það hefur verið magnað að fylgjast með hennar ferli,“ segir Arna Kristín og bætir við að hún sé ekki viss um að Íslendingar geri sér almennt grein fyrir velgengni Önnu á erlendri grund. „Hún er búin að skáka Jóni Leifs í vinsældum meðal sinfóníuhljómsveita um allan heim. Við bindum miklar vonir við samstarfið. Þetta er margþætt samstarf, staðartónskáldið situr í verkefnavalsnefnd, leiðir tónskáldasmiðju og leggur okkur lið í listrænni stefnumótun. Það finnst mér skipta miklu máli. En svo hlökkum við auðvitað til að flytja verkin hennar Önnu – til dæmis hið nýja Metacosmos, sem New York-fílharmónían flutti síðasta vor við mikinn fögnuð,“ segir Arna Kristín, og bætir við að leið Önnu Þorvaldsdóttur upp á stjörnuhimininn sé gott dæmi um hve hratt hlutirnir geti breyst. „Það gerir þessa tíma sem við lifum á svo spennandi,“ bætir hún við. Blómaskeið byggt á menntun En er ekki svolítið sérstakt hvað íslensk tónlist hefur öðlast veigamikinn sess í menningarlegri sjálfsmynd Íslendinga frá opnun Hörpu árið 2011? „Ég fæ gæsahúð við tilhugsunina! Í þessu samhengi má auðvitað ekki gleyma því mikla og langa uppbyggingarstarfi sem tónlistarskólar um allt land hafa unnið. Við sinnum okkar þætti í því starfi líka af ástríðu, en um fjórðungur starfsemi SÍ fellur undir fræðslustarf. Við 7

fáum um fimmtán þúsund nemendur á öllum skólastigum á tónleika árlega og förum í skólaheimsóknir. Svo leggjum við rækt við unga hljómsveitarspilara með Ungsveitinni og reynum að styðja vel við unga listamenn. Einn slíkur er Bjarni Frímann Bjarnason sem ráðinn hefur verið aðstoðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands næstu tvö starfsár. Þetta ræktunarstarf hefur heldur betur skilað sér. Þannig hefur áhugi erlendra tónleikahaldara á hljómsveitinni aukist gífurlega eftir því sem vegur íslenskra tónlistarmanna á borð við Víking Heiðar Ólafsson, Daníel Bjarnason og Önnu Þorvaldsdóttur hefur vaxið á alþjóðlega sviðinu. Ferðin sem loks verður farin Meðal stærstu tíðinda komandi starfsárs er einmitt þriggja vikna langt tónleikaferðalag alla leið til Japans – ferð sem raunar stóð til að fara haustið 2008, en sem hætt var við vegna hrunsins. Hvernig tilfinning er það að vera nú loksins á leiðinni til Japans, tíu árum síðar? „Hún er mögnuð. Það var auðvitað mikið áfall þegar við urðum að aflýsa ferðinni fyrir áratug og þetta rifjast óneitanlega upp þessa dagana. En í þetta skiptið hefur verkefnið fengið byr undir báða vængi. Þetta er stórt ferðalag, 12 tónleikar víðsvegar um Japan með Vladimir Ashkenazy á stjórnandapallinum. Hugsunin er að halda upp á þetta stórkostlega samstarf sem við höfum átt við hann í gegnum tíðina. Um leið og hann settist hér að fyrir um 50 árum byrjaði hann að fá vini sína, marga af fremstu tónlistarmönnum heims, til að koma fram á Listahátíð í Reykjavík sem hann var einn af hvatamönnum að. Hann hóf svo sinn feril sem hljómsveitarstjóri með Sinfóníuhljómsveit Íslands og kom þá á mikilvægum tíma inn í þroskasögu hljómsveitarinnar. Svo má ekki gleyma því hvernig hann lagðist á árarnar við það að byggja tónlistarhús – meðal annars með því að hafa frumkvæði að frægum fjáröflunartónleikum í Lundúnum. Allt til þess að Íslendingar gætu fengið tónlistarhús. Áhrif hans verða seint ofmetin – og maður má varla til þess hugsa hvað hefði orðið ef hann hefði ekki kynnst eiginkonu sinni Þórunni, og þau lagt sín mikilvægu lóð á vogarskálar íslenskrar tónlistar,“ segir Arna Kristín. En Ashkenazy er ekki eina stjarnan sem kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Japan – einleikari á tónleikunum tólf verður japanski píanóvirtúósinn Nobuyuki Tsuji. „Hann er súperstjarna, elskaður og dáður í heimalandinu, svo nú er búist við að uppselt verði á alla tónleika okkar í þessum stórkostlegustu tónlistarhöllum Japans. Þetta verður mikið ævintýri!“


Með tónlist í blóðinu YAN PASCAL TORTELIER AÐALSTJÓRNANDI

„Meðal þess sem mér finnst sérlega ánægjulegt er að ég fæ tækifæri til að stjórna þremur glæsilegum konsertum frá rómantíska tímabilinu – eftir Mendelssohn, Brahms og Grieg. Fiðlukonsert Mendelssohns þekki ég út og inn, því ég lék hann sjálfur í meira en 20 ár og gæti líklega spilað hann utanað enn þann dag í dag.“


Yan Pascal Tortelier, hinn franski aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hefur haldið á sprotanum í Eldborg síðastliðin tvö ár og er því farinn að kynnast landi og þjóð nokkuð vel. Þegar hann er spurður út í nýtt starfsár hljómsveitarinnar segist hann fullur tilhlökkunar, bæði vegna samstarfsins við hljómsveitina en ekki síður vegna þeirra tónverka sem hann stjórnar í vetur. „Það er svo margt spennandi í vændum,“ segir Tortelier fullur ákafa. „Meðal þess sem mér finnst sérlega ánægjulegt er að ég fæ tækifæri til að stjórna þremur glæsilegum konsertum frá rómantíska tímabilinu – eftir Mendelssohn, Brahms og Grieg. Fiðlukonsert Mendelssohns þekki ég út og inn, því ég lék hann sjálfur í meira en 20 ár og gæti líklega spilað hann utanað enn þann dag í dag“, segir hann brosandi, en hann var einleikari á fiðlu um margra ára skeið áður en hann sneri sér að hljómsveitarstjórn. Konsert fyrir fiðlu og selló eftir Brahms er honum einnig afar kær, af sömu ástæðu. „Ég spilaði hann margoft með föður mínum,“ segir Tortelier, en faðir hans, sellóleikarinn Paul Tortelier, var einn dáðasti strengjaleikari Frakklands á 20. öld. „Fyrsta skiptið sem við lékum hann saman var einmitt í fyrsta sinn sem ég kom fram á stórum alþjóðlegum tónleikum, á Proms-tónlistarhátíðinni í Royal Albert Hall árið 1962. Það verður gaman að endurnýja kynnin í Reykjavík, ekki síst þar sem við getum gefið íslenskum tónlistarmönnum tækifæri í einleikshlutverkunum. Ég hlakka líka til endurfundanna við Nikolai Lugansky sem spilar píanókonsert Griegs. Við náðum einstaklega vel saman á fyrstu tónleikum mínum sem aðalstjórnandi hér, í september 2016, og strax eftir tónleikana var það fastmælum bundið að hann myndi snúa hingað aftur sem fyrst.“ Franskir söngvar og sinfóníur Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá tónleikagestum Sinfóníunnar að Tortelier er ötull talsmaður franskrar tónlistar og stjórnar henni af innblæstri sem fáum er gefinn. „Ég er með franska tónlist í

blóðinu – ég get ekki að því gert!“ segir hann og hlær. „Rétt eins og við gerðum á síðasta starfsári, þegar við fluttum og hljóðrituðum sinfóníur eftir Gounod fyrir Chandos-útgáfuna, munum við nú í vetur kynna tvær sjaldheyrðar franskar sinfóníur, eftir Georges Bizet og Louise Farrenc. Hún var afar merkilegt tónskáld, lifði á sama tíma og konur eins og Fanny Mendelssohn og Clara Schumann, og rétt eins og þær mætti hún fordómum fyrir það eitt að vera kona. Nú er sem betur fer farið að flytja tónlist hennar oftar, enda á hún það fyllilega skilið.“ „Mér finnst líka ánægjulegt að tveir afar ólíkir franskir söngvasveigar frá 19. öld skuli hljóma hér með dásamlegum listakonum,“ bætir Tortelier við. Sumarnætur eftir Berlioz eru líklega eitt aðgengilegasta verk hans, en sveitasöngvarnir eftir Canteloube eru af allt öðrum toga, mun alþýðlegri og léttari á sinn hátt. Ég hef dáðst að þessum söngkonum – Véronique Gens og Anne Sofie von Otter – í mörg ár og hlustað á geisladiska þeirra, en hef aldrei starfað með þeim fyrr en nú. Raunar er mér mjög minnisstætt þegar ég hljóðritaði sjálfur söngva Canteloubes fyrir áratugum síðan,“ bætir Tortelier við. „Það var með hinni ógleymanlegu sópransöngkonu Arleen Augér og Ensku kammersveitinni. Sú hljóðritun stendur ennþá fyrir sínu en ég hlakka til að koma að verkinu aftur – það er á vissan hátt eins og að heilsa gömlum vini en samt er upplifunin á tónlistinni ný í hvert sinn.“ Uppáhaldsverk á upphafstónleikum Tortelier segir að persónulega séu fyrstu áskriftartónleikar starfsársins honum óvenju hjartfólgnir. „Þar mun ég kynna 9

fyrir Íslendingum það sem ég tel vera eitt mitt helsta afrek á ferli mínum sem tónlistarmaður: hljómsveitarútsetningu mína á píanótríói Ravels. Ég lagði mig allan í þetta verkefni og það tók mig nokkur ár áður en allt var orðið eins og mér fannst að það þyrfti að vera. Þetta tríó er stórkostleg tónsmíð – ég held hreinlega að það sé eftirlætisverkið mitt. Ég lék það margoft á árum áður með föður mínum og systur, sem er píanisti, svo ég kann það út og inn.“ Það er auðheyrt að tónlistararfleifð fjölskyldunnar hefur mótað Tortelier svo um munar. „Ég ólst upp í návígi við marga helstu tónlistarmenn 20. aldar, sem voru vinir og samstarfsfólk föður míns. Auðvitað hafði það sitt að segja með upplifun mína af tónlist. Aðra þekkti ég ekki persónulega en heyrði af þeim sögur. Sem dæmi má nefna Richard Strauss, en við munum einmitt flytja hið yndislega verk hans, Dauði og uppljómun, nú í september. Faðir minn þekkti hann vel og lék meðal annars einleik í Don Quixote undir hans stjórn á árunum um 1930. Hann kunni ótal sögur af Strauss, sem gat verið kaldur og kröfuharður en hafði líka lúmska kímnigáfu,“ segir Tortelier. Sushi með víkingum En aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands ver ekki öllum tíma sínum á Íslandi innan veggja Eldborgar. Tortelier lætur vel af dvöl sinni hér og kveðst njóta þess að skoða landið þegar tími gefst. „Í samstarfi við hljómsveitina hefur tekist að skipuleggja ferðir mínar hingað á þann veg að ég er hér alltaf tvær vikur í senn, og oftast er Sylvie, eiginkona mín, með í för. Þá nýtum við helgina til að upplifa eitthvað nýtt og áhugavert. Við höfum skoðað mörg listasöfn, vorum til dæmis heilluð af verkum Jóhannesar Kjarval sem er listamaður á heimsmælikvarða. Svo förum við líka út fyrir borgarmörkin, vorum til dæmis nýverið í Stykkishólmi þar sem við fórum í siglingu um eyjarnar og gæddum okkur á „víkinga-sushi“. Ég vissi ekki að víkingar hefðu borðað sushi – en það var ljúffengt hvað sem því líður!“ segir Yan Pascal Tortelier hlæjandi að lokum.


„Fyrir mér er það dýrmætasta þegar fólk tengir við tónlistina á eigin forsendum.“


Anna Þorvaldsdóttir, nýtt staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands, segir frá nýju hlutverki og ævintýrinu sem skóp tónverkið Metacosmos ANNA ÞORVALDSDÓTTIR STAÐARTÓNSKÁLD

Í ársbyrjun 2018 tók Anna Þorvaldsdóttir við stöðu staðartónskálds Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en áður hafði Daníel Bjarnason gegnt starfinu til þriggja ára. Sem staðartónskáld mun Anna mun semja ný tónverk fyrir hljómsveitina, auk þess sem flutt verða nýleg verk hennar. Anna tekur einnig sæti í verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar, og leiðir tónskáldasmiðju. Tekur fyrst Manhattan, svo Berlín Anna Þorvaldsdóttir er meðal virtustu tónskálda samtímans og eru verk hennar reglulega flutt víðsvegar um heim. Þau hafa nýlega hljómað til dæmis á Mostly Mozart-hátíðinni í New York, í Walt Disney Hall í Los Angeles, Royal Festival Hall í Lundúnum og í Elbphilharmonie í Hamborg.. „Það er auðvitað dásamlegt að upplifa það þegar fólk vill hlusta á tónlistina og eiga í sambandi við hana,“ segir Anna. „Fyrir mér er það dýrmætasta þegar fólk tengir við tónlistina á eigin forsendum,“ bætir hún við. Anna var handhafi Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2012 og hefur síðan hlotið fjölda verðlauna – meðal annars Kravis Emerging Composer Prize frá Fílharmóníuhljómsveitinni í New York 2015. Nýjasti listræni sigur Önnu er einmitt sprottinn upp úr þeim verðlaunum, en í kjölfar þeirra pantaði Fílharmóníusveit New York-borgar af henni hljómsveitarverkið Metacosmos, og frumflutti það síðasta vor undir stjórn Esa-Pekka Salonen við mikið lof gagnrýnenda. „Það var magnað að vera við frumflutninginn. Verkið var flutt á áskriftartónleikum en þá eru þrennir tónleikar með sömu dagskrá,“ segir Anna. „Og það var dásamlegt að heyra með hverju kvöldinu hvernig verkið varð meira og meira hluti af hljómsveitinni

eftir því sem þau fluttu það oftar. Og það var líka auðvitað yndislegt að upplifa þessar góðu viðtökur við verkinu og finna það hversu margir vildu tengja við tónlistina,“ segir Anna, en í framhaldinu bárust fréttir af því að Fílharmóníusveit Berlínar hygðist flytja verkið í ársbyrjun 2019. Það verður í fyrsta sinn sem hljómsveitin, af mörgum talin sú besta í heimi, flytur íslenskt verk síðan hún flutti orgelkonsert Jóns Leifs 1941. Mikið ferðalag að baki Metacosmos Íslenskir tónleikagestir fá einnig að heyra Metacosmos á næstkomandi starfsári, því Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur verkið í janúar. Auk þess stendur til að hljómsveitin hljóðriti verkið fyrir bandaríska útgáfufélagið Sono Luminus. En hvernig er þetta verk? „Það var ótrúlegt ferðalag að skrifa Metacosmos,“ segir Anna. „Það fór með mig í marga hringi og gegnum miklar tilfinningar. Þegar ég er að byrja að skrifa verk tek ég mér alltaf góðan tíma til að finna hugmyndirnar að baki verkinu og setja þær saman í heildstætt form áður en ég byrja að skrifa verkið út í nótur. Fyrir Metacosmos þá varð hugmyndin um sambandið á milli óreiðu og fegurðar strax mjög sterkur innblástur fyrir mér, sérstaklega það hvernig óreiða getur stundum umbreyst yfir í formsterka heild.“ 11

Vill efla þátt samtímatónlistar En hlutverk staðartónskálds felur í sér margt annað en tónsmíðar. „Það felast mörg gríðarlega spennandi verkefni í þessu,“ segir Anna. „Ekki síst að geta tekið þátt í að móta listræna stefnu hljómsveitarinnar og vera hluti af verkefnavalsnefnd og tónskáldasmiðjunni Yrkju, sem er samstarfsverkefni Sinfóníunnar og Íslenskrar tónverkamiðstöðvar og miðar að því að veita ungum tónskáldum reynslu í að semja fyrir sinfóníuhljómsveit.“ Anna segir sitt innlegg til hljómsveitarstarfsins snúa að miklu leyti að því að efla þátt samtímatónlistar í starfi sveitarinnar. „Ég hef sjálf mikla ástríðu fyrir að vinna að hljómsveitartónlist og að auka aðgengi að nýjum og nýlegum hljómsveitarverkum. Mér finnst líka afskaplega mikilvægt að stuðla að nýsköpun á þessu sviði og hlakka til að leggja mitt af mörkum þar, eins og ég mögulega get. Það er líka gaman að segja frá því að við erum að panta nýtt kammerverk eftir Bergrúnu Snæbjörnsdóttur sem verður frumflutt í Föstudagsröðinni á næsta ári og ég sé fyrir mér að panta allavega eitt eða tvö verk á ári sem verða hluti af þeirri röð. Í tengslum við hlutverk mitt sem staðartónskáld er hljómsveitin líka hluti af öðrum stórum verkefnum sem hafa verið pöntuð hjá mér næstu ár, og það er mjög gaman að geta tengt hljómsveitir saman á þann hátt.“


ÁSKRIFTARKORT

TRYGGÐU ÞÉR GOTT SÆTI Á GÓÐU VERÐI FYRIR ÞÁ SEM VILJA MEIRI KRAFT

FYRIR ÞÁ SEM VILJA FJÖLBREYTTA KLASSÍK

RAUÐA RÖÐIN

GULA RÖÐIN

Fyrir þá sem vilja hlusta á stóra sinfóníuhljómsveit í öllu sínu veldi leika kröftuga og áhrifamikla tónlist, m.a. eftir Ravel, Rakhmanínov, Shostakovitsj og Mahler. Öll hin fjölbreyttu litbrigði hljómsveitarinnar njóta sín í þessum stórbrotnu snilldarverkum. Meðal flytjenda eru Renaud Capuçon, Andreas Brantelid, Isabelle Faust og Jean-Yves Thibaudet.

Afbragðskostur fyrir þá sem vilja heyra fjölbreytilega tónlist frá ýmsum tímum, m.a. eftir Mozart, Beethoven, Schumann, Brahms og Stravinskíj. Meðal einleikara eru Jan Lisiecki, Pekka Kuusisto, Ari Þór Vilhjálmsson og Richard Goode.

SJÖ TÓNLEIKAR

SJÖ TÓNLEIKAR

06. SEP 19:30 RAVEL OG BARTÓK: UPPHAFSTÓNLEIKAR

13. SEP 19:30 SUMARNÆTUR

Hector Berlioz Ungverskur mars / Béla Bartók Fiðlukonsert nr. 2 / Maurice Ravel Tríó í a-moll (úts. Tortelier) / Maurice Ravel Bolero |  Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Renaud Capuçon einleikari

Felix Mendelssohn Forleikur að Draumi á Jónsmessunótt / Hector Berlioz Sumarnætur (Les nuits d’été) / Richard Strauss Serenaða fyrir blásara / Richard Strauss Dauði og uppljómun  |  Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri / Véronique Gens einsöngvari

11. OKT 19:30 TSJAJKOVSKÍJ OG SHOSTAKOVITSJ

18. OKT 19:30 LISIECKI SPILAR SCHUMANN

Leonard Bernstein Forleikur að Birtingi (Candide) / Pjotr Tsjajkovskíj Fiðlukonsert / Dmitríj Shostakovitsj Sinfónía nr. 10  |  Klaus Mäkelä hljómsveitarstjóri / Sayaka Shoji einleikari

Olivier Messiaen Les offrandes oubliées / Robert Schumann Píanókonsert / Josef Suk Ævintýri (Pohádka)  |  Bertrand de Billy hljómsveitarstjóri / Jan Lisiecki einleikari

25. OKT 19:30 NOBU OG ASHKENAZY

Þorkell Sigurbjörnsson Jökulljóð / Sergei Rakhmanínov Píanókonsert nr. 2 / Jean Sibelius Sinfónía nr. 2  |  Vladimir Ashkenazy hljómsveitarstjóri / Nobuyuki Tsujii einleikari

Heitor Villa-Lobos Bachianas Brasileiras nr. 7 / Jón Ásgeirsson Flautukonsert / Leonard Bernstein Sinfónískir dansar úr West Side Story  |  Ligia Amadio hljómsveitarstjóri / Freyr Sigurjónsson einleikari

07. FEB 19:30 PROKOFÍEV OG BRAHMS

21. FEB 19:30 VORBLÓTIÐ: DANÍEL OG PEKKA

Atli Heimir Sveinsson Örsmá eilífðarbrot / Sergei Prokofíev Píanókonsert nr. 2 / Johannes Brahms Sinfónía nr. 4 |  Antonio Méndez hljómsveitarstjóri / Denis Kozhukhin einleikari

Arvo Pärt Fratres / Daníel Bjarnason Fiðlukonsert / Ígor Stravinskíj Vorblót |  Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri / Pekka Kuusisto einleikari

28. FEB 19:30 BRANTELID LEIKUR ELGAR

28. MAR 19:30 MENDELSSOHN OG BEETHOVEN

Jórunn Viðar Eldur / Edward Elgar Sellókonsert / Witold Lutosławski Sinfónía nr. 3 | Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri / Andreas Brantelid einleikari

11. APR 19:30 ISABELLE FAUST OG MAHLER

Johannes Brahms Fiðlukonsert / Gustav Mahler Sinfónía nr. 10 (fullgerð af Deryck Cooke) |  Osmo Vänskä hljómsveitarstjóri / Isabelle Faust einleikari

23. MAÍ 19:30 THIBAUDET OG BEETHOVEN

24. JAN 19:30 BERNSTEIN OG VILLA-LOBOS

Malcolm Sargent Impression on a Windy Day / Felix Mendelssohn Fiðlukonsert / Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 7  |  Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri / Judith Ingólfsson einleikari

16. MAÍ 19:30 BRAHMS OG TORTELIER

Johannes Brahms Akademískur hátíðarforleikur / Johannes Brahms Konsert fyrir fiðlu og selló / Louise Farrenc Sinfónía nr. 3 / Emmanuel Chabrier España |  Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri / Ari Þór Vilhjálmsson einleikari / Sigurgeir Agnarsson einleikari

Kaija Saariaho Ciel d’hiver (Vetrarhiminn) / James MacMillan Píanókonsert nr. 3, „Leyndardómar ljóssins“ / Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 3, „Hetjuhljómkviðan“ |  Osmo Vänskä hljómsveitarstjóri / Jean-Yves Thibaudet einleikari

06. JÚN 19:30 RICHARD GOODE LEIKUR MOZART

FIM

FIM

John Adams Short Ride in a Fast Machine / W.A. Mozart Píanókonsert í C-dúr, K. 503 / Johannes Brahms Sinfónía nr. 1 |  Edo de Waart hljómsveitarstjóri / Richard Goode einleikari


Áskrifandi bíður ekki í röð í miðasölu fyrir tónleika, hann gengur alltaf að sæti sínu vísu og á forkaupsrétt á því sæti þegar áskrift er endurnýjuð. Áskrift veitir 20% afslátt af miðaverði og áskrifendur fá 10% afslátt af viðbótarmiðum á alla tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands. FYRIR ÞÁ SEM VILJA HEYRA VINSÆL VERK

FYRIR YNGSTU TÓNLISTARUNNENDURNA

FYRIR ÞÁ SEM VILJA PRÓFA EITTHVAÐ NÝTT

GRÆNA RÖÐIN LITLI FÖSTUDAGS TÓNSPROTINN RÖÐIN Þeir sem hafa gaman af vinsælli klassík af léttara taginu ættu að kynna sér Grænu röðina. Hér hljóma m.a. Bach og Bizet, Tsjajkovskíj og Grieg, auk leiftrandi Vínartónlistar sem er ómissandi gleðigjafi og góður upptaktur að nýju ári. Meðal einleikara og einsöngvara eru Þóra Einarsdóttir, Anne Sofie von Otter og Nikolai Lugansky.

Áskrift að skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem yngstu tónlistarunnendurnir fá tækifæri til að kynnast töfrum tónlistarinnar.

Klukkustundarlangir tónleikar í Norðurljósum sem hefjast kl. 18. Elgar, Beethoven og hressandi samtímatónlist í áhugaverðri blöndu sem allir geta haft gaman af.

FIMM TÓNLEIKAR

FERNIR TÓNLEIKAR

TVENNIR TÓNLEIKAR

20. SEP 19:30 ÞÓRA SYNGUR STRAUSS

06. OKT 14:00 MAXI FER Á FJÖLL

01. MAR 18:00 TJÁNING TREGANS

Richard Strauss Ævintýri Ugluspegils / Richard Strauss Fjórir síðustu söngvar / Pjotr Tsjajkovskíj Sinfónía nr. 5 |  Petri Sakari hljómsveitarstjóri / Þóra Einarsdóttir einsöngvari

06. DES 19:30 AÐVENTUTÓNLEIKAR

Íslensk hljómsveitartónlist  Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri / Unnur Eggertsdóttir sögumaður / Hallfríður Ólafsdóttir saga / Þórarinn Már Baldursson myndir

Joan Tower In Memory / Edward Elgar Sellókonsert |  Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri / Andreas Brantelid einleikari / Strokkvartettinn Siggi

15. & 16. DES 14:00 & 16:00 JÓLATÓNLEIKAR

Bergrún Snæbjörnsdóttir Nýtt verk / Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 7 |  Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri

Jean-Philippe Rameau Les Indes galantes (Hin indælu Indíalönd), svíta / Johann Sebastian Bach Brandenborgarkonsert nr. 2 / Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 38, Prag-sinfónían  |  Dirk Vermeulen hljómsveitarstjóri / Baldvin Oddsson einleikari / Hallfríður Ólafsdóttir einleikari / Felicia Greciuc einleikari / Nicola Lolli einleikari

Fjölbreytt jólatónlist Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri / Trúðurinn Barbara kynnir / Valgerður Guðnadóttir og Kolbrún Völkudóttir söngvarar / Stúlknakór Reykjavíkur og Litlu sprotarnir / Listdansskóli Íslands / Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar / Lúðraþeytarar

10. JAN 19:30 VÍNARTÓNLEIKAR

16. FEB 14:00 PÉTUR OG ÚLFURINN

Óperettutónlist og valsar eftir Johann Strauss yngri, Franz Lehár, Emmerich Kálman og fleiri.  |  Christian Kluxen hljómsveitarstjóri / Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað einsöngvari / Sveinn Dúa Hjörleifsson einsöngvari

Leopold Mozart Allegro úr Leikfangasinfóníunni / Sergej Prokofíev Pétur & úlfurinn / Maurice Ravel Bolero  |  Maxime Tortelier hljómsveitarstjóri / Trúðurinn Barbara kynnir / Bernd Ogrodnik brúðugerðarmeistari / Leikfangasextett

21. MAR 19:30 VON OTTER OG TORTELIER

04. MAÍ 14:00 STRÁKURINN OG SLIKKERÍIÐ

Atli Heimir Sveinsson / W.A. Mozart Alla turca etc. / Joseph Canteloube Söngvar frá Auvergne (Chants d’Auvergne) / Georges Bizet Sinfónía í C-dúr |  Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri / Anne Sofie von Otter einsöngvari / Einar Jóhannesson einleikari

09. MAÍ 19:30 LUGANSKY SPILAR GRIEG

29. MAR 18:00 DANSANDI SINFÓNÍA

Jóhann G. Jóhannsson Strákurinn og slikkeríið – tónlistarævintýri byggt á sögu eftir Roald Dahl Noam Aviel hljómsveitarstjóri / Brynhildur Guðjónsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson söngvarar/sögumenn / Stúlknakór Reykjavíkur

Giuseppe Verdi Á valdi örlaganna, forleikur / Edvard Grieg Píanókonsert / Sergei Prokofíev Rómeó og Júlía, ballettsvítur  |  Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri / Nikolai Lugansky einleikari

FIM

LAU

FÖS Upplýsingar um verð og sætaskipan í Eldborg er að finna á bls. 68-69.


REGNBOGAKORT

FARÐU Á ÞÁ TÓNLEIKA SEM ÞÚ VILT Settu saman þína eigin tónleikaröð með 20% afslætti Með Regnbogakorti getur þú valið þá tónleika sem höfða helst til þín af öllum tónleikum starfsársins og tryggt þér gott sæti með 20% afslætti. Hægt er að kaupa Regnbogakort með í það minnsta fernum tónleikum eða fleiri, eftir því sem best hentar. Nú er hægt að kaupa áskrift og Regnbogakort á sinfonia.is.

NOKKRAR TILLÖGUR AÐ REGNBOGAKORTI STÓRBROTIÐ OG SPENNANDI

EINLEIKARAR Í FREMSTU RÖÐ

FJÖLBREYTT OG SKEMMTILEGT

ÍSLENSKA RÖÐIN

Ómissandi á Regnbogakort þeirra sem vilja stórbrotna og kröftuga sinfóníutónleika:

Enginn verður svikinn af því að setja þessa snillinga á Regnbogakortið sitt:

Einmitt það sem þarf með á Regnbogakortið til að auka á fjölbreytileikann:

Íslensk tónlist og íslenskir sólistar í fremstu röð:

13. SEP

06. SEP

23. - 25. ÁGÚ

20. SEP

13. SEP

31. ÁGÚ

11. OKT

18. OKT

28. - 29. SEP

SUMARNÆTUR ÞÓRA SYNGUR STRAUSS TSJAJKOVSKÍJ OG SHOSTAKOVITSJ 21. FEB

VORBLÓT: DANÍEL OG PEKKA 28. MAR

PROKOFÍEV OG BRAHMS 11. APR

RENAUD CAPUÇON VÉRONIQUE GENS

DENIS KOZHUKHIN

06. DES

AÐVENTUTÓNLEIKAR

28. FEB

ANDREAS BRANTELID

10.–12. JAN

VÍNARTÓNLEIKAR

21. MAR

ANNE SOFIE VON OTTER

04. - 05. APR

STAR WARS

11. APR

9. MAÍ

NIKOLAI LUGANSKY

THIBAUDET OG BEETHOVEN

ARI ELDJÁRN OG SINFÓ UPPISTAND!

07. FEB

ISABELLE FAUST

23. MAÍ

KLASSÍKIN OKKAR

JAN LISIECKI

ISABELLE FAUST OG MAHLER LUGANSKY SPILAR GRIEG

SKÁLMÖLD OG SINFÓ

09. MAÍ

LUGANSKY SPILAR GRIEG

09. MAÍ

06. JÚN

RICHARD GOODE LEIKUR MOZART

23. MAÍ

JEAN-YVES THIBAUDET 06. JÚN

RICHARD GOODE

31. ÁGÚ

KLASSÍKIN OKKAR: UPPÁHALDS ÍSLENSKT 20. SEP

ÞÓRA EINARSDÓTTIR 06. DES

BALDVIN ODDSSON OG FÉLAGAR 11. DES

SÍÐASTI BÆRINN Í DALNUM 10.–12. JAN

VÍNARTÓNLEIKAR: HRAFNHILDUR OG SVEINN 24. JAN

JÓN ÁSGEIRSSON OG FREYR SIGURJÓNSSON 31. JAN

DANÍEL STJÓRNAR Á MYRKUM MÚSÍKDÖGUM 21. FEB

DANÍEL BJARNASON 14. MAR

TVÆR SINFÓNÍUR OG TOKKATA 16. MAÍ

ARI OG SIGURGEIR SPILA BRAHMS

14


UNGT FÓLK OG NÁMSMENN

TVEIR FRÁBÆRIR KOSTIR FYRIR UNGT FÓLK OG NÁMSMENN REGNBOGAKORT

ÖRUGGT SÆTI Á 50% AFSLÆTTI Tryggðu þér miða á uppáhalds tónleikana þína Ungu fólki, 25 ára og yngra, gefst tækifæri á að kaupa Regnbogakort með 50% afslætti á verðsvæði 2 og 3 í Eldborg. Regnbogakortið er góður kostur fyrir þá sem vilja tryggja sér öruggt sæti á uppáhalds tónleikana sína á góðu verði. Hægt er að velja úr öllum tónleikum starfsársins og tryggja sér helmingsafslátt.

SKÓLAKORTIÐ

1.700 KR. Á TÓNLEIKA Gott sæti á góðu verði – á síðustu stundu Námsmenn yngri en 25 ára eiga kost á frábæru tilboði til að njóta tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar. Námsmenn ná sér í Skólakort Sinfóníunnar í miðasölu Hörpu með því að framvísa sínu nemendakorti og geta með því keypt miða á tónleikadegi á alla almenna tónleika Sinfóníunnar á aðeins 1.700 kr. Hægt er að kaupa miða á Skólakortskjörum hvar sem er í salnum, allt eftir því hvað er laust. Það er ekki hægt að láta svona kostakjör renna sér úr greipum.

Miðasala í Hörpu / sinfonia.is / 528 50 50


ÁGÚST

18. ÁGÚST

Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands á tvenna tónleika. Ókeypis er á tónleikana og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

18 17:00 ÁGÚ

LAU

ÁGÚ

LAU

18 15:00

FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR BROT AF ÞVÍ BESTA Úrval úr dagskrá Litla tónsprotans

Úrval úr efnisskrám vetrarins

Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri Brynhildur Guðjónsdóttir kynnir

Klaus Mäkelä hljómsveitarstjóri Sigrún Eðvaldsdóttir einleikari

Á

Leonard Bernstein

tónleikum Menningarnætur kl. 15:00 fá ungir hlustendur á öllum aldri að kynnast stuttlega þeim fjölbreyttu og skemmtilegu verkum sem flutt verða á Litla tónsprotanum, áskriftarröð fjölskyldunnar, á starfsárinu. Auk nýrra tónlistarævintýra um Maxímús Músíkús og Strákinn og slikkeríið verða leikin brot úr Leikfangasinfóníunni og rykið dustað af dansskónum í skemmtilegum slögurum. Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona er kynnir tónleikanna og hljómsveitarstjóri er Bjarni Frímann Bjarnason.

Forleikur að Birtingi (Candide) Pjotr Tsjajkovskíj

Fiðlukonsert, fyrsti þáttur Ludwig van Beethoven

Sinfónía nr. 3, lokaþáttur Maurice Ravel

Bolero

Á

seinni tónleikunum hljóma kaflar úr nokkrum helstu meistaraverkum tónlistarsögunnar, sem öll munu hljóma á tónleikum hljómsveitarinnar síðar í vetur. Candide-forleikur Bernsteins er fjörið uppmálað og Sigrún Eðvaldsdóttir leikur einleik í upphafsþætti hins stórkostlega fiðlukonserts eftir Tsjajkovskíj. Lokaþáttur „Hetjuhljómkviðunnar“ er dæmi um glæsilega og þróttmikla tónlist Beethovens, og Bolero eftir Ravel gefur hljómsveitinni tækifæri til að sýna öll sín fjölbreyttu litbrigði. Hljómsveitarstjóri er hinn finnski Klaus Mäkelä, sem ekki er nema 21 árs gamall en hefur þegar stjórnað flestum helstu hljómsveitum Norðurlanda.

16


ÁGÚ

FÖS

ÁGÚ

LAU

20:00 20:00 20:00 17:00

ÁGÚST

ÁGÚ ÁGÚ

MIÐ FIM

22 23 24 25

UPPSELT UPPSELT UPPSELT

SKÁLMÖLD OG SINFÓ

Skálmöld Sinfóníuhljómsveit Íslands Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri Karlakór Reykjavíkur Kammerkórinn Hymnodia og barnakór Kársnesskóla

T

ónleikar Skálmaldar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg í nóvember 2013 vöktu verðskuldaða athygli. Gagnrýnandi Morgunblaðsins kallaði þá „málmmessu áratugarins“ og komust færri að en vildu á þrenna tónleika. Upptaka frá tónleikunum náði platínusölu og vegna

fjölda áskorana er nú komið að því að Skálmöld og Sinfónían taki höndum saman á ný. Á þessum tónleikum verður töluvert af nýju efni í bland við vinsæl lög sem aðdáendur sveitarinnar þekkja í þaula. Kraftmeira upphaf á nýju tónleikaári er ekki hægt að hugsa sér!


ÁGÚST

ÁGÚ

FÖS

31 20:00

KLASSÍKIN OKKAR UPPÁHALDS ÍSLENSKT

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðni Tómasson kynnar Dagskrá kynnt síðar

BEIN ÚTSENDING Á RÚV Tónleikarnir verða sýndir í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV. Netkosningin stendur til 15. júní og er slóðin www.ruv.is/klassikin

E

r það Brennið þið, vitar eftir Pál Ísólfsson eða Smávinir fagrir eftir Jón Nordal? Eða kannski Vökuró eftir Jórunni Viðar? Tónleikarnir „Klassíkin okkar“ sem Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV hafa staðið fyrir undanfarin tvö ár hafa vakið fádæma hrifningu meðal landsmanna. Í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að Ísland varð fullveldi verður leikurinn nú endurtekinn með áherslu á íslenska tónlist 20. og 21. aldar. Landsmenn geta valið eftirlætis íslensku tónverkin sín í kosningu á www.ruv.is.

Þær tónsmíðar sem flest atkvæði hljóta í kosningunni verða svo fluttar á sérstökum hátíðartónleikum í Eldborg sem um leið eru upptaktur að glæsilegu starfsári Sinfóníuhljómsveitarinnar. Daníel Bjarnason er hljómsveitarstjóri en auk þess verða fremstu einsöngvarar, einleikarar og kórar Íslands til taks ef á þarf að halda. Ekkert er þó hægt að fullyrða um efnisskrána enn því að verkefnavalið er alfarið í höndum þjóðarinnar. Kosningin hefst á vef RÚV um miðjan maí og stendur til 15. júní.


G O

Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Renaud Capuçon einleikari Hector Berlioz

Ungverskur mars Béla Bartók

Fiðlukonsert nr. 2 Maurice Ravel

Tríó í a-moll (útsetning e. Tortelier) Maurice Ravel

Bolero

Tónleikakynning kl. 18:00

H

inn franski Renaud Capuçon er einn fremsti fiðluleikari samtímans og ferðast um heiminn með Guarnierus-fiðluna sem áður var í eigu kennara hans, Isaac Stern. Á milli þess sem hann leikur kammertónlist með Mörthu Argerich og einleik með Berlínarfílharmóníunni stjórnar hann sinni eigin tónlistarhátíð í Aix-enProvence, og nýjasti geisladiskur hans hlaut Echo Klassik-verðlaunin árið 2017. Á upphafstónleikum starfsársins leikur Capuçon glæsilegan fiðlukonsert Bartóks þar sem þjóðlegir dansar og nýrri stílbrögð módernismans fléttast saman með snilldarlegum hætti.

Píanótríó Ravels frá árinu 1914 er eitt hans dáðasta verk og almennt talið meðal meistaraverka franskrar kammertónlistar á 20. öld. Hér hljómar verkið í umritun fyrir sinfóníuhljómsveit sem sjálfur aðalstjórnandi Sinfóníunnar, Yan Pascal Tortelier, gerði og sem hefur hlotið frábæra dóma víða um heim. Tónleikunum lýkur með hinu sígilda meistaraverki Bolero, þar sem sakleysislegt stef ferðast um alla hljómsveitina við tifandi slátt sneriltrommu.

SEPTEMBER

SEP

FIM

06 19:30


SEPTEMBER

SEP

FIM

13 19:30

Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Véronique Gens einsöngvari Felix Mendelssohn Forleikur að Draumi á Jónsmessunótt

Hector Berlioz

Sumarnætur (Les nuits d’été) Richard Strauss

Serenaða fyrir blásara Richard Strauss

Dauði og uppljómun Tónleikakynning kl. 18:00

S

umarstemning ríkir á þessum tónleikum þótt farið sé að hausta. Hér hljómar hinn ljóðræni lagaflokkur Sumarnætur eftir Berlioz, sem margir telja eitt hans besta verk, ásamt fjörmiklum forleik Mendelssohns að Jónsmessunæturdraumi Shakespeares, sem tónskáldið samdi aðeins 17 ára gamall. Véronique Gens er fremsta sópransöngkona Frakklands um þessar mundir. Hún er fastagestur við óperuhús á borð við Covent Garden, Glyndebourne og Parísaróperuna, og söng fyrr á þessu ári með Berlínarfílharmóníunni við frábærar undirtektir. Nýjasti geisladiskur hennar var valinn einn af diskum mánaðarins

hjá hinu virta tímariti Gramophone og tónlistarrýnir Guardian var sömuleiðis yfir sig hrifinn, sagði að söngur hennar væri „töfrandi“. Seinni hluti tónleikanna er helgaður

litríkri tónlist Richards Strauss. Á eftir serenöðu hans fyrir blásara hljómar hið mikilfenglega tónaljóð Tod und Verklärung (Dauði og uppljómun), þar sem lýst er þönkum listamanns á dauðastundu. Hér fær litríkur tónavefur Strauss að njóta sín bæði í tignarlegum hápunktum sem og í fíngerðustu stemningum hljómsveitarinnar.


SEPTEMBER

SEP

FIM

20 19:30

Petri Sakari hljómsveitarstjóri Þóra Einarsdóttir einsöngvari Richard Strauss Ævintýri Ugluspegils

Richard Strauss

Fjórir síðustu söngvar Pjotr Tsjajkovskíj

Sinfónía nr. 5

Tónleikakynning kl. 18:00

P

etri Sakari hefur verið einn helsti samstarfsmaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands um langt árabil og framlag hans til vaxtar hljómsveitarinnar er ómetanlegt. Í nóvember 2018 fagnar Petri sextugsafmæli sínu og um sama leyti eru liðin 30 ár frá því að hann tók við stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníunnar, sem sannarlega var gæfuspor. Í tilefni af þessu tvöfalda afmæli stjórnar Sakari efnisskrá helgaða tveimur meisturum hljómsveitartónlistar: Pjotr Tsjajkovskíj og Richard Strauss. Tónaljóð Strauss um skálkinn Ugluspegil er eitt hans dáðasta verk, hrein skemmtimúsík þar sem uppátæki sagnapersónunnar eru útlistuð með

óborganlegum hætti. Fjórir síðustu söngvar voru síðasta verkið sem Strauss lauk við, kominn á níræðisaldur í rústum heimsstyrjaldarinnar síðari árið 1948. Angurvær tónlistin hefur yfir sér rómantískan blæ og silkimjúkar sópranhendingarnar eru með því fegursta sem fest hefur verið á blað. Hér er það Þóra Einarsdóttir sem flytur verkið, en hún hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem ein fremsta og dáðasta söngkona þjóðarinnar. Fimmta sinfónía Tsjajkovskíjs er eitt af hinum glæsilegu hljómsveitarverkum rússneska meistarans, magnþrungin útfærsla á „örlagastefi“ sem leiðir að lokum til sigurs.


SEPTEMBER

SEP

SUN

23 17:00

Daniel Raiskin hljómsveitarstjóri Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands Pēteris Vasks Viatore (Hommage à Arvo Pärt) Dmitríj Shostakovitsj

Sinfónía nr. 5

S

jaldan hefur eitt tónskáld átt jafn mikið undir viðtökum einnar tónsmíðar og þegar fimmta sinfónía Dmítrjís Shostakovitsj var frumflutt í Leníngrad árið 1937, einu harðasta ári ógnarstjórnar Stalíns. Tónlistin er hádramatísk og margir telja sinfóníuna einhverja þá mögnuðustu sem samin var á 20. öld. Einnig hljómar á tónleikunum strengjaverk lettneska tónskáldsins Pēteris Vasks sem hann tileinkar læriföður sínum, Arvo Pärt. Tónlistin er hrífandi í einfaldleika sínum, þar sem teflt er saman tveimur grunnhugmyndum. Verkið segir sögu ferðalangs sem vex og dafnar á lífsgöngu sinni, en undirleikinn myndar

stef eilífðarinnar sem aldrei breytist, og stjörnubjartur himinn lýsir honum á göngunni. Rússneski hljómsveitarstjórinn Daniel Raiskin heldur um taumana en hann hefur mikla reynslu af að starfa með ungmennum að metnaðarfullum verkefnum. Raiskin stýrði Ungsveit SÍ haustið 2017 í glæsilegum flutningi hennar á Vorblóti Stravinskíjs og snýr nú aftur með annað rússneskt meistaraverk í farteskinu. Raiskin hefur auk þess þrívegis stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands með afbragðs árangri. Ungsveit SÍ var valin Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2016.


UNGSVEITARFÉLAGAR TEKNIR TALI

Spiluðu áfram í svartamyrkri

U

ngsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur verið starfrækt frá árinu 2009, en í henni gefst hæfileikaríkum ungum tónlistarmönnum tækifæri til að þroska færni sína í hljómsveitarleik og kynnast um leið mörgum áhrifamestu verkum tónbókmenntanna. Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir er konsertmeistari sveitarinnar, en Árni Daníel Árnason er fyrsti trompetleikari hennar. Þrátt fyrir ungan aldur – Sólrún er tuttugu og eins árs en Árni Daníel sautján ára – hafa bæði tekið þátt í starfi sveitarinnar í nokkur ár. „Þetta er mikill skóli,“ segir Árni, „að fá að vera í þessu húsi, og spila á sama sviði og SÍ, með sama hljómsveitarstjóra, í sal sem er þekktur um allan heim fyrir hljómgæði. Það er mikill heiður,“ bætir hann við. „Þetta er líka svo dýrmæt samvinna,“ segir Sólrún Ylfa. „Ég ólst til dæmis upp í kringum hundrað fiðluleikara – en talaði eiginlega aldrei við trompetleikara eins og Árna, þótt við værum í sama skóla. En hér eru allir saman í þessu, og hópurinn verður mjög þéttur.“ Allt eins og í atvinnuhljómsveit Öll umgjörð Ungsveitarinnar er eins og í atvinnuhljómsveit – þar með taldar áheyrnarpufurnar, sem haldnar eru á vorin ár hvert. „Maður fær sendar nótur með góðum fyrirvara og fær tíma til að undirbúa sig,“ segir Sólrún Ylfa. „Svo spilar maður fyrir nokkra dómara sem maður veit ekkert hverjir eru, fyrir aftan svart tjald.“ Sólrún og Árni eru sammála um að ferlið sé svolítið stressandi. „Þetta er samt hvetjandi, vinsamleg samkeppni,“ segir Sólrún Ylfa. „Mesta stressið var í fyrsta skiptið,“ bætir Árni við, „fyrsta árið mitt prufuspiluðum við í sjálfri Eldborg, og það var meiriháttar upplifun að standa þar á sviðinu í fyrsta sinn. Hún virkar enn stærri séð frá sviðinu!“ Spiluðu áfram í svartamyrkri Þegar valið hefur verið í hópinn kemur hljómsveitin saman í septemberbyrjun og æfir stíft fram að tónleikum, sem í ár verða sunnudaginn 23. september. Á þessu starfsári kemur Ungsveitin einnig fram á Myrkum músíkdögum 31. janúar, og hefur þá í fyrsta sinn almenna tónleika

„Fyrsta árið mitt prufuspiluðum við í sjálfri Eldborg, og það var meiriháttar upplifun að standa þar á sviðinu í fyrsta sinn. Hún virkar enn stærri séð frá sviðinu!“ með Sinfóníuhljómsveit Íslands. „Það er mjög gaman að fjölga verkefnunum og koma oftar saman,“ segir Árni, og Sólrún Ylfa tekur undir: „Það er líka mjög spennandi starfsumhverfi á Myrkum músíkdögum, þar sem svona fersk tónlist er í forgrunni.“ Verkefni Ungsveitarinnar hafa annars verið mjög fjölbreytt síðustu ár. Hvað skyldi hafa verið í uppáhaldi hjá Sólrúnu og Árna? „Mér hafa reyndar þótt verkefnin verða skemmtilegri og skemmtilegri eftir því sem ég hef fengið að spila bitastæðari parta í þeim,“ viðurkennir Árni og hlær. „Það var kannski mest krefjandi í fyrra, þegar við spiluðum Vorblótið undir stjórn Daniels Raiskin, sem stjórnar okkur aftur í ár,“ og Sólrún Ylfa tekur undir þetta. „En ég held að uppáhaldið mitt sé samt efnisskráin sem var þegar ég tók fyrst þátt. Það var Sinfónía númer fimm eftir Mahler. Hún situr vel í minninu, enda alveg stórkostleg,“ segir Sólrún Ylfa. Það eru samt ekki bara tónverkin sem sem eru minnisstæð – enda getur ýmislegt komið uppá á æfingum og tónleikum. „Við höfum enn ekki lent í neinu svakalegu á tónleikum, en ég man ég eftir því þegar öll ljósin slokknuðu á æfingu í Norðurljósum 23

og það varð bókstaflega allt svart. Samt hélt hljómsveitin áfram að spila – það voru allir búnir að æfa sig svo vel og kunnu þetta utanbókar.“ Góð liðsheild og heimilislegt aukalag Ungsveitin hefur vakið athygli á tónleikum sínum fyrir kraftmikinn samleik og spilagleði – og svo eiga þau sína eigin einkennisbúninga, húfur og treyjur, sem ýta enn undir liðsheildina. „Já, það er smá stemming í kringum þetta allt,“ segir Sólrún Ylfa, „Okkur finnst þetta skemmtilegt. Að vera með okkar eigið lógó – og svo er það auðvitað aukalagið!“ Árni útskýrir þetta: „Við höfum tekið sama aukalagið í þrjú ár: Dýravísur í útsetningu Jóns Leifs, betur þekktar undir heitinu Hani, krummi, hundur, svín.“ Sólrún Ylfa bætir við: „Það er alltaf svolítið hressandi – eins og í fyrra – að spila rosalega flott og umdeilt verk eftir Stravinskíj, og taka svo þetta fjörlega aukalag í lokin. En það er ákveðinn sameiningarkraftur í því.“ Árni tekur undir það: „Það er eitthvað svo heimilislegt, eftir erfiða tónleika – að spila þetta lag í lokin.“


SEPTEMBER

SEP SEP

FÖS LAU

28 19:30 29 17:00

ENDURTEKIÐ VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA

Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri Ari Eldjárn kynnir og uppistandari

T

ónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar og Ara Eldjárns á þarsíðasta starfsári nutu geysilegra vinsælda. Uppselt var á þrenna tónleika í Eldborg og eftirspurn eftir miðum var slík að ákveðið var að endurtaka tónleikana í september 2018. Ari er ósvikinn gleðigjafi og hér fer hann með gamanmál sem tengjast

hljómsveitinni en kynnir einnig vinsæl hljómsveitarverk sem margir þekkja úr öðru samhengi en af sinfóníutónleikum, til dæmis úr vinsælum kvikmyndum síðustu áratuga. Hér hljóma meðal annars Allegrettokaflinn úr sjöundu sinfóníu Beethovens (sem margir þekkja úr myndinni The King’s Speech), Dofrakonungskaflinn úr Pétri Gaut eftir Grieg (sem var notað með eftirminnilegum hætti í myndinni The Social Network) og Valkyrjureið Wagners sem gerði atriði úr Apocalypse Now ógleymanlegt. Á þessum uppistandstónleikum fléttast saman óborganleg kímnigáfa og meistaraverk tónlistarinnar svo að úr verður sannkölluð eðalskemmtun fyrir alla fjölskylduna.


OKTÓBER

OKT

LAU

06 14:00

LITLI TÓNSPROTINN

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Unnur Eggertsdóttir sögumaður Hallfríður Ólafsdóttir saga Þórarinn Már Baldursson myndir Tryggvi M. Baldvinsson

Hátíðargjall fyrir einstaka mús Jórunn Viðar

úr Ólafi Liljurós Anna Þorvaldsdóttir

úr Hrími

Haukur Tómasson

úr Storku

Jón Ásgeirsson

Tröllaslagur

Gunnsteinn Ólafsson

Þýtur í stráum –Íslensk þjóðlög

Bára Grímsdóttir

Laumufarþegarnir Daníel Bjarnason

úr Collider

Hallfríður Ólafsdóttir

Lagið hans Maxa

Í

nýju tónlistarævintýri um músina ástsælu, Maxímús Músíkús, er íslensk tónlist í forgrunni, allt frá þjóðlögum að samtímatónlist. Á lifandi og áhugaverðan hátt magnar tónlistin upp spennandi sögur af álfum og tröllum og upplifun Maxa af eldgosi í jöklaferð. Maxi ferðast ekki einn því að tvær gestamýs, Viva og Moto, sem komu í tösku erlends hljómsveitarstjóra, eru með í för. Maxi hefur því enn eina ferðina eignast nýja vini sem fylgja honum á vit ævintýranna. Hann gleðst yfir því hvað hann sé heppin mús, því að „þar sem tónlist er, þar eru allir glaðir.“ Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit 25

Íslands og Fílharmóníusveit Los Angeles sem frumflutti verkið á Reykjavíkur-hátíð sinni í Walt Disneytónlistarhöllinni. Bækurnar um Maxa hafa notið mikilla vinsælda, hlotið fjölda viðurkenninga og komið út á mörgum tungumálum. Sögumaður í nýja ævintýrinu um Maxa er Unnur Eggertsdóttir en hún tók þátt í frumflutningi verksins undir stjórn Daníels Bjarnasonar í Los Angeles við mikið lof viðstaddra. Verndari verkefnisins er Vladimir Ashkenazy, aðalheiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.


OKTÓBER

OKT

FIM

11 19:30

Klaus Mäkelä hljómsveitarstjóri Sayaka Shoji einleikari Leonard Bernstein

Forleikur að Birtingi (Candide) Pjotr Tsjajkovskíj

Fiðlukonsert

Dmitríj Shostakovitsj

Sinfónía nr. 10

Tónleikakynning kl. 18:00

J

apanska fiðlustjarnan Sayaka Shoji er Íslendingum að góðu kunn, en hún hefur tvívegis leikið á sumarhátíðinni Midsummer Music í Hörpu. Árið 1999 varð hún yngsti sigurvegari í sögu Paganini-keppninnar og þar með voru örlög hennar ráðin. Í dag ferðast hún um heiminn með Stradivariusfiðluna sína og heillar áheyrendur hvert sem hún fer. Á þessum tónleikum leikur hún einn dáðasta fiðlukonsert allra tíma, þann sem Tsjajkovskíj samdi árið 1878 handa elskhuga sínum, fiðluleikaranum Josef Kutek. Ástríðuþrungnar hendingar í bland við stef sem minna á rússnesk þjóðlög gera konsertinn að ógleymanlegri upplifun.

Stjórnandi tónleikanna er hinn finnski Klaus Mäkelä, sem þrátt fyrir ungan aldur hefur sýnt að hann er einn eftirtektarverðasti hljómsveitarstjóri Norðurlanda um þessar mundir. Glitrandi forleikur Bernsteins að óperettunni Candide er viðeigandi upptaktur að tónleikunum enda er öld liðin frá fæðingu Bernsteins haustið 2018. Tíunda sinfónía Shostakovitsj er eitt hans vinsælasta verk enda hefur hún bæði að geyma ofsafengna dramatík og innilega ljóðrænu. Þetta var fyrsta sinfónían sem tónskáldið samdi eftir lát Stalíns vorið 1953 og margir heyra í verkinu uppgjör við þann örlagaríka tíma. Shostakovitsj á að hafa sagt að annar þátturinn væri „mynd af Stalín í tónum“, en hvað sem því líður er tónlistin einstaklega áhrifamikil.


OKTÓBER

OKT

FIM

18 19:30

Bertrand de Billy hljómsveitarstjóri Jan Lisiecki einleikari Olivier Messiaen Les offrandes oubliées

Robert Schumann

Píanókonsert Josef Suk

Ævintýri (Pohádka) Tónleikakynning kl. 18:00

K

anadíski píanistinn Jan Lisiecki er rétt rúmlega tvítugur en ferill hans spannar heilan áratug. Hann vakti heimsathygli þegar hann lék píanókonsert Chopins á Chopinhátíðinni í Varsjá árið 2008, tólf ára gamall, og sama ár lék hann í fyrsta sinn í Carnegie Hall. Tveimur árum síðar var hann kominn með samning hjá Deutsche Grammophon og síðan hefur hann leikið með flestum helstu hljómsveitum heims. Hann var valinn Ungi listamaður ársins á Gramophoneverðlaununum 2013 og sama ár hlotnuðust honum verðlaun kennd við Leonard Bernstein. Hér leikur hann hinn undurfagra og rómantíska píanókonsert Schumanns, en hljóðritun Lisieckis á verkinu kom út árið 2016 og hefur hlotið frábæra dóma.

Franski hljómsveitarstjórinn Bertrand de Billy þykir sérlega innblásinn stjórnandi og stýrði nýverið rómaðri uppfærslu af Toscu við Metropolitanóperuna í New York. Mörgum er enn í fersku minni þegar hann stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói vorið 2011 og Isabelle Faust lék fiðlukonsert Beethovens. Nú snýr de Billy loks aftur til Íslands með tvö hrífandi en sjaldheyrð verk í farteskinu. Olivier Messiaen var eitt trúræknasta tónskáld 20. aldar og hér hljómar eitt af hans fyrstu hljómsveitarverkum, Les offrandes oubliées (Gleymdar fórnargjafir) frá árinu 1930. Tékkneska tónskáldið Josef Suk var tengdasonur Dvořáks og samdi rómantíska tónlist sem stundum minnir á Richard Strauss. Pohádka eða Ævintýri er litrík og glæsileg hljómsveitarsvíta sem þykir hans besta verk og hljómar nú á Íslandi í fyrsta sinn.


OKTÓBER

OKT

FIM

25 19:30

Vladimir Ashkenazy hljómsveitarstjóri Nobuyuki Tsujii einleikari Þorkell Sigurbjörnsson Jökulljóð

Sergei Rakhmanínov Píanókonsert nr. 2

Jean Sibelius Sinfónía nr. 2 Tónleikakynning kl. 18:00

Í

nóvember 2018 heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands í þriggja vikna tónleikaferð um Japan. Þetta verður fyrsta tónleikaferð hljómsveitarinnar til Asíu og sú stærsta sem hljómsveitin hefur ráðist í frá árinu 2000. Alls heldur hljómsveitin 12 tónleika, meðal annars í Osaka, Nagoya og Hiroshima auk tvennra tónleika í Tókýó. Hljómsveitarstjóri verður Vladimir Ashkenazy en hann hefur notið gífurlegra vinsælda í Japan um áratuga skeið. Píanistinn Nobu er einnig stórstjarna í heimalandi sínu. Hann hefur verið blindur frá fæðingu en lætur það ekki aftra sér og lærir jafnvel erfiðustu verk píanóbókmenntanna eftir heyrn. Nobu hreppti gullverðlaun í Van Cliburn-píanókeppninni árið 2009 og hefur komið fram í öllum helstu tónleikahöllum heims; mynddiskur

með tónleikum hans í Carnegie Hall árið 2012 var valinn diskur mánaðarins hjá hinu virta tímariti Gramophone. Þessir tónleikar eru eins konar upphitun fyrir ferðalagið til Japans og er efnisskráin hin sama og flutt verður þar. Píanókonsert nr. 2 eftir Rakhmanínov er eitt vinsælasta tónverk allra tíma, ljóðrænn og þróttmikill og gefur japanska píanistanum Nobu óþrjótandi tækifæri til að sýna snilli sína. Sinfónía nr. 2 eftir Sibelius er sömuleiðis mikið meistaraverk enda var það hún sem þeytti tónskáldinu upp á stjörnuhimin sígildrar tónlistar og sem Sibelius sjálfur kallaði „játningu sálarinnar“. Jökulljóð samdi Þorkell Sigurbjörnsson árið 1998 sérstaklega að beiðni Ashkenazys og mun það hljóma í Japansferð Sinfóníuhljómsveitarinnar til þess að minnast þess að Þorkell hefði orðið áttræður á árinu.


NOBUYUKI TSUJII PÍANÓSNILLINGUR

„Annar píanókonsertinn er eitt af stórkostlegustu verkum Rakhmanínovs,“ segir japanski píanóleikarinn Nobuyuki Tsujii, sem kemur fram öðru sinni með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Vladimir Ashkenazy þann 25. október, áður en einleikari, stjórnandi og hljómsveit leggja af stað í þriggja vikna tónleikaferð um Japan með konsertinn í farteskinu. „Hann er stór, rómantískur og býr yfir mikilfengleika rússneskrar náttúru. Ég hef spilað hann víða og á margar góðar minningar tengdar honum,“ segir Nobu. „En það er ólíkt í hvert sinn, svo ég hlakka til að spreyta mig með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Ashkenazy. Þetta verður enn sérstakara með Ashkenazy við stjórnvölinn, enda hefur hann sjálfur spilað verkið ótal sinnum og þekkir það inn og út sem píanisti, ekki síður en sem hljómsveitarstjóri. Það er ekki laust við að það skapi ákveðna pressu fyrir mig – en góða pressu!“ bætir hann við og hlær. Dáist að einlægninni og vinnuseminni Það er óhætt að segja að tónleikar Nobu og Ashkenazy í apríl síðastliðnum hafi verið meðal hápunkta síðasta starfsárs. Þá kom Nobu til Íslands í fyrsta skipti, en samstarf þeirra Ashkenazys hófst árið 2010 og hafa þeir meðal annars komið fram víða um Japan, í Lundúnum og Sidney. Nobu segir þó að kynni hans af Ashkenazy nái raunar mun lengra aftur. „Ashkenazy er stórkostlegur tónlistarmaður, og í raun kynntist ég honum strax í æsku í gegnum píanóupptökur hans – til dæmis af verkum Chopins – það eru frábærar hljóðritanir sem eru mér enn kærar,“ segir hann. „Ég lít mjög upp til Ashkenazys sem tónlistarmanns – til dæmis fyrir þá tryggð sem hann sýnir tónskáldinu, heiðarleikann sem einkennir umgengni hans við tónlistina. Túlkun hans er afar einlæg, og það er meðal þess sem ég dáist að. Og svo er annað merkilegt sem ég hef tekið eftir á tónleikaferðalögum okkar: Þótt hann sé nú í hlutverki hljómsveitarstjórans slær hann aldrei slöku við, heldur æfir sig á píanóið á hverjum degi. Ég ber ómælda virðingu fyrir því.“

Góð pressa að spila Rakhmanínov með Ashkenazy Nobuyuki Tsujii leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Japan.

„Tónleikarnir eru auðvitað tilhlökkunarefni í sjálfu sér, en ég vona samt líka að við höfum tíma til að njóta japanskrar matargerðarlistar og náttúrufegurðar.“ Náttúruunnandi og matgæðingur Þótt Nobu sé ekki orðinn þrítugur eru tæp tíu ár síðan honum skaut upp á stjörnuhimin klassískrar tónlistar þegar hann sigraði í hinni virtu Van Cliburnpíanókeppni 2009. Það var einmitt Píanókonsert nr. 2 eftir Rakhmaninov sem skilaði hinum unga píanista fyrsta sætinu í úrslitunum. „Ég hef notið þess að koma fram síðan ég var lítill strákur, og ég nýt þess enn – að spila fyrir fólk. Í sannleika sagt elska ég tónlist frá mínum dýpstu hjartarótum,“ segir Nobu, sem var ekki nema eins árs þegar hann tók að sýna fádæma tónlistarhæfileika. Þá tók hann ástfóstri við leikfangapíanó sem móðir hans gaf honum, en Nobu var blindur frá fæðingu. „Að vinna þessa keppni gaf mér tækifæri til þess að koma fram með frábærum tónlistarmönnum í virtum tónleikasölum víða um heim – það var það sem mig dreymdi um. Nú vil ég bara halda áfram að læra og vaxa sem listamaður, og halda áfram 29

að spila á tónleikum.“ Og hann segist ekki orðinn þreyttur á þeim ferðalögum sem líf konsertpíanistans útheimtir. „Ég elska að heimsækja ný lönd og nýja staði, kynnast nýrri menningu og nýju andrúmslofti – og auðvitað smakka framandi mat,“ segir Nobu og bætir við að hann sé mikill matgæðingur. „Svo finnst mér fátt betra en að fara í gönguferðir, helst í náttúrunni. Þannig sæki ég innblástur fyrir tónlistina á hverjum nýjum stað, og hann nýtist líka í mínum eigin tónsmíðum. Þannig að ég er hreint ekki búin að fá leiða á ferðalögunum – öðru nær!“ segir Nobu, sem hlakkar mikið til að bjóða Sinfóníuhljómsveit Íslands velkomna til Japans. „Tónleikarnir eru auðvitað tilhlökkunarefni í sjálfu sér, en ég vona samt líka að við höfum tíma til að njóta japanskrar matargerðarlistar og náttúrufegurðar. Vonandi gefst svolítill tími til þess að hljómsveitin geti skoðað sig um.“


DESEMBER

DES

FIM

06 19:30

Dirk Vermeulen hljómsveitarstjóri Baldvin Oddsson einleikari Hallfríður Ólafsdóttir einleikari Felicia Greciuc einleikari Nicola Lolli einleikari Jean-Philippe Rameau Les Indes galantes (Hin indælu Indíalönd), svíta

Johann Sebastian Bach Brandenborgarkonsert nr. 2

Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 38, Prag-sinfónían Tónleikakynning kl. 18:00

Á

aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar 2018 hljóma verk eftir þrjá tónsmíðameistara 18. aldar. Jean-Philippe Rameau var eitt mesta óperutónskáld sinnar tíðar og „óperu-ballettinn“ Les indes galantes frá árinu 1735 er eitt hans vinsælasta verk, þar sem brugðið er upp ævintýralegum myndum úr Indíalöndum.

Brandenborgarkonsertar Bachs eru meðal helstu hljómsveitarverka hans og eru yfirgripsmikil úttekt á konsertforminu. Verkin gera miklar kröfur til einleikaranna og á það ekki síst við um konsertinn nr. 2 sem saminn er fyrir trompet, flautu, óbó og fiðlu. Hér er það hinn ungi en bráðflinki Baldvin Oddsson sem mundar trompetinn og fær til liðs við sig nokkra leiðandi hljóðfæraleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Mozart samdi Prag-sinfóníuna á hátindi ferilsins, um svipað leyti og óperuna Brúðkaup Fígarós. Það var einmitt velgengni síðarnefnda verksins í Prag sem varð til þess að Mozart samdi nýja sinfóníu borgarbúum til yndisauka, og hafði um það mörg orð að hvergi í heiminum kynnu áheyrendur að meta tónlist hans eins og þar. Hollenski hljómsveitarstjórinn Dirk Vermeulen er prófessor við Konunglega tónlistarháskólann í Brussel og nýtur virðingar víða um heim fyrir innblásna túlkun sína á tónlist frá 17. og 18. öld. Hann stjórnaði Aðventutónleikum Sinfóníunnar árið 2014 með frábærum árangri.


DESEMBER

DESEMBER

DES

ÞRI

11 19:30

BÍÓTÓNLEIKAR Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri Jórunn Viðar / Óskar Gíslason Síðasti bærinn í dalnum

Samstarfsverkefni Kvikmyndasafns Íslands og SÍ.

S

íðasti bærinn í dalnum er tímamótaverk í íslenskri kvikmyndasögu. Þessi fyrsta leikna kvikmynd Óskars Gíslasonar var frumsýnd árið 1950 og naut fádæma vinsælda. Tónlistina samdi Jórunn Viðar og var þetta fyrsta kvikmyndatónlist sem samin var á Íslandi við mynd í fullri lengd. Í tilefni af aldarafmæli Jórunnar, sem fæddist 7. desember 1918, verður myndin flutt við lifandi hljóðfæraleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Nóturnar að tónlist Jórunnar voru lengi týndar en Þórður Magnússon tónskáld hefur skrifað tónlistina upp eftir myndinni og útbúið til flutnings.

Efniviður myndarinnar er í anda gömlu þjóðsagnanna, sígilt ævintýri um baráttu góðs og ills. Í sveit einni hafa allir bændur flust á brott vegna ofsókna trölls og tröllskessu. Bóndi einn situr þó sem fastast með fjölskyldu sinni þar sem amman á bænum á töfrahring sem verndar íbúana frá öllu illu. Tröllin reyna að stela hringnum af henni og þá fer af stað atburðarás þar sem ýmsar vættir koma við sögu, meðal annars álfadrottning og dvergur sem getur gert sig ósýnilegan. Þjóðlegur stíll Jórunnar Viðar hentar efninu einkar vel og er sannkallað tilhlökkunarefni að bæði myndin og tónlistin séu nú aðgengileg nýrri kynslóð.


LOVÍSA FJELDSTED SELLÓLEIKARI

Með skeiðklukkuna á tröllunum Lovísa Fjeldsted segir frá móður sinni, Jórunni Viðar, og tónlistinni við Síðasta bæinn í dalnum.

„T

ónlistin var svo sjálfsögð. Hún var alltaf til staðar heima hjá mér,“ segir Lovísa Fjeldsted, sellóleikari, sem starfað hefur við Sinfóníuhljómsveit Íslands í nær 30 ár, en hún er dóttir Jórunnar Viðar tónskálds. Lovísa var ekki enn fædd þegar kvikmynd Óskars Gíslasonar, Síðasti bærinn í dalnum, var frumsýnd 1950, en Jórunn samdi tónlistina við myndina sem byggir á íslenskum þjóðsagnaarfi. Þetta var í fyrsta skipti sem íslenskt tónskáld samdi tónlist við leikna kvikmynd í fullri lengd. „Ég man eftir að hafa séð myndina sem barn,“ segir Lovísa. „Mér þótti hún ákaflega spennandi og skemmtileg, en gerði mér þó enga grein fyrir þeim stóra hlut sem móðir mín átti í verkinu,“ bætir hún við, og dregur fram blaðaúrklippu frá árinu 1989 þar sem Jórunn segir sjálf frá tilurð verksins. Við skulum grípa niður í frásögn Jórunnar sjálfrar, en viðtalið tók Pétur Már Ólafsson fyrir Þjóðlíf.

„Þar þurfti sextíu mínútur af tónlist. Þá sat ég með stoppúrið og mældi út því að allt varð að standast upp á sekúndu. Tónlistin var tekin upp á stálþráð og síðan „sínkróníseruð” við filmuna í London. Ég vandaði mig mjög mikið við þetta. Wagner hafði haft mikil áhrif á mig, sérstaklega

hvernig hann málar hverja persónu með tónum. Það langaði mig til að gera við myndina. Börnin, sveitin eða bærinn og tröllin höfðu hver sína tónlist sem átti að einkenna hvert fyrir sig. Óskar notar mörg tæknibrögð eins og til dæmis þegar fólk hverfur. Músíkin verður að sýna galdrana með einhverju viðeigandi. Þegar börnin fara í kistuna og fljúga af stað verða tröllin, óttinn og flugið að fylgjast að í tónlistinni. Skemmtilegast var atriðið þegar vinnumaðurinn er í smiðjunni að smíða og breytist á meðan í tröll og sleikir svo glóandi járnið.“ Kynjaverur röskuðu umferð Síðasti bærinn í dalnum var tímamótaverk, enda aðeins önnur íslenska kvikmyndin í fullri lengd. Þótt núorðið sé það alvanalegt að ýmsar kynjaverur sjáist á kreiki í íslenskri náttúru við tökur á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, var það alls ekki svo um miðja síðustu öld, eins og Jórunn Viðar segir frá: „Myndin var öll tekin upp undir Esju. Tröllin voru sminkuð og klædd í búninga í Reykjavík og síðan keyrð þannig á opnum vörubíl á tökustað. Sagt var að eitt sinn hafi drukkinn maður komið

32

eftir veginum og rekið augun í tröllin á pallinum. Við það mun hafa snarrunnið af manninum, — hann hefur haldið að hann væri kominn með hressilegt deleríum! Þegar Óskar Gíslason frumsýndi Síðasta bæinn í dalnum var Austurbæjarbíó nýtekið til starfa. Vinsældir myndarinnar voru slíkar að biðröðin í miðasölunni náði út úr dyrum, meðfram húshliðinni, fyrir hornið og meðfram næsta vegg.“ Listaverki bjargað frá glötun Þessar miklu vinsældir urðu reyndar til þess að stefna kvikmyndinni hreinlega í hættu. „Filman slitnaði margoft og var límd saman, en stálþráðurinn, sem tónlistin var á, hélt sér alveg,“ útskýrir Lovísa. „Fyrir vikið var tónlistin ekki lengur í samræmi við myndina, jafnvel út í hött! Öll nákvæmnisvinna Jórunnar með skeiðklukku í hönd t.d. við að mæla sekúndubrot milli


„Ég man eftir að hafa séð myndina sem barn,“ segir Lovísa. „Mér þótti hún ákaflega spennandi og skemmtileg, en gerði mér þó enga grein fyrir þeim stóra hlut sem móðir mín átti í verkinu.“ hamarshögga tröllsins í smiðjunni var unnin fyrir gýg, þegar filman sýndi allt annað atriði. Ég veit að Jórunni þótti mjög miður, þegar svo var komið að kvikmyndin og tónlistin pössuðu ekki lengur saman. Ekki var til önnur filma í stað þeirrar slitnu. Listrænt gildi tónlistarinnar hafði hreinlega eyðilagst,“ segir Lovísa, sem hlakkar því mikið til að heyra og sjá nýuppgerða útgáfu myndarinnar við lifandi flutning Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tónlist Jórunnar í desember. „Ég er innilega þakklát stjórn Sinfóníuhljómsveitar

Íslands og Kvikmyndasafni Íslands fyrir að gera þetta verkefni að veruleika,“ segir Lovísa, en í fyrsta skipti í áratugi hljómar nú tónlist Jórunnar óbjöguð við kvikmyndina í endurgerð sem Þórður Magnússon tónskáld hefur unnið. „Þetta var afar vandasamt verkefni, því handritið að tónlistinni hafði að stórum hluta glatast,“ segir Lovísa, „svo Þórður þurfti að skrifa upp tónlistina að miklu leyti eftir eyranu. Að auki þurfti hann að ráða ýmsar gátur – fylla í eyður og færa það aftur í fyrra horf sem fært var til þegar myndhlutinn var endurgerður. 33

Þórður hefur unnið ótrúlega vinnu – ég myndi segja að hans aðkoma að verkinu valdi straumhvörfum!“ Músin, osturinn og pylsan En hvort skyldi Lovísa vilja spila með á tónleikunum – eða sitja úti í sal og njóta kvikmyndarinnar? „Hefurðu heyrt um músina, sem fann þráð, sem á var fest oststykki vinstra megin en pylsa hægra megin? Músin gat ekki ákveðið sig, heldur horfði til skiptis: ostur-pylsa-ostur-pylsa, þar til hún fór úr hálsliðnum. Ég óttast svipuð örlög,“ segir Lovísa og hlær. „Það er ófært að spila með annað augað á nótnablaðinu og hitt á kvikmyndatjaldinu – ekki bara mjög slæmt fyrir sjónina, heldur er hætt við langvarandi hálsríg, eða jafnvel því að fara úr hálsliðnum eins og músin. Sennilega verð ég fyrst að fá að sjá og heyra endurgerðina áður en æfingar hefjast hjá hljómsveitinni og spila síðan með.“


DESEMBER

DES DES

LAU SUN

15 14:00 & 16:00 16 14:00 & 16:00

LITLI TÓNSPROTINN

Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri Trúðurinn Barbara kynnir Valgerður Guðnadóttir einsöngvari Kolbrún Völkudóttir einsöngvari Stúlknakór Reykjavíkur Litlu sprotarnir táknmálskór Dansarar úr Listdansskóla Íslands Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Lúðraþeytarar

J

ólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa um árabil verið hluti af hinum hefðbundna jólaundirbúningi hjá mörgum tónleikagestum. Á þessum hátíðlegu fjölskyldutónleikum verður skyggnst inn í íslensku baðstofuna þar sem gömlu jólasveinarnir og jólakötturinn hafa hreiðrað um sig. Einnig verður gullfalleg jólatónlist Jórunnar Viðar í forgrunni en tónskáldið hefði fagnað 100 ára afmæli á þessu ári.

Ingibjörg Þorbergs

Nemendur úr Listdansskóla Íslands túlka Jólakött Ingibjargar Þorbergs og Jólaóð Gunnars Þórðarsonar og Stúlknakór Reykjavíkur og Litlu sprotarnir flytja sígilda jólasöngva ásamt Valgerði Guðnadóttur og Kolbrúnu Völkudóttur. Ungir lúðraþeytarar koma fram með hljómsveitinni og Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hringir inn jólin og flytur jólalög fyrir og eftir tónleikana. Kynnir er trúðurinn Barbara og hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson. Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli.

Jólakötturinn

Jórunn Viðar Það á að gefa börnum brauð og Jól

Guðni Franzson Jólin koma - Jólalagasvíta fyrir sögumann, sópran, barna- og bjöllukór

Gunnar Þórðarson Óður til jólanna Sígildir jólasöngvar 34


JANÚAR

JAN JAN JAN

FIM FÖS LAU

10 19:30 11 19:30 12 16:00 & 19:30

ÁRAMÓTATÓNLEIKAR 2019 Christian Kluxen hljómsveitarstjóri Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað einsöngvari Sveinn Dúa Hjörleifsson einsöngvari Óperettutónlist og valsar eftir

Johann Strauss yngri, Franz Lehár, Emmerich Kálman og fleiri. Tónleikakynning 10. jan kl. 18:00

V

ínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa um árabil verið allra vinsælustu tónleikar hljómsveitarinnar. Nokkur af djásnum valsakóngsins Johanns Strauss prýða efnisskrána sem hefst venju samkvæmt á forleiknum að Leðurblökunni og lýkur á Dónárvalsinum. Inn á milli heyrast vinsælar óperettuaríur og dúettar, meðal annars Heut’ nacht hab’ ich geträumt von dir eftir Kálman, sem hefur óvænt slegið í gegn á Íslandi á seinni árum við textann „Ég er kominn heim“. Af öðrum atriðum má nefna Kampavínsgalopp sem áhorfendur RÚV þekkja úr gamansömu tónlistarmyndbandi sem jafnan er sýnt á nýársnótt. Dansarar stíga einnig á svið og ljá tónleikunum einstakan hátíðarblæ.

Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað stundaði framhaldsnám við Hollensku óperuakademíuna og hefur sungið við frábærar undirtektir bæði í Hollandi og hér heima. Sveinn Dúa Hjörleifsson er fastráðinn við Óperuna í Leipzig en var áður fastur söngvari við Óperuhúsið í Linz og söng þar fjölmörg helstu hlutverk óperubókmenntanna. Danski hljómsveitarstjórinn Christian Kluxen hefur stjórnað víða um heim og er fastagestur við Óperuhúsið í Kaupmannahöfn auk þess að vera aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Victoria í Kanada.


JANÚAR

JAN

FIM

17 19:30

Ligia Amadio hljómsveitarstjóri Sigurvegarar úr einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands. Dagskrá kynnt síðar

Á

hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin er opin nemendum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja, og fá þeir hlutskörpustu að leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi tónleikanna er hin brasilíska Ligia Amadio, aðalstjórnandi Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Montevideo í Úrúgvæ, en hún stjórnaði kvennatónleikum Sinfóníunnar árið 2015 við sérlega góðar undirtektir.

36

Sinfóníuhljómsveitin og Listaháskóli Íslands leiða saman hesta sína og styðja við okkar efnilegasta tónlistarfólk á leið þess inn í heim atvinnumennskunnar. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríki á hverju ári í aðdraganda þessara tónleika og stemningin á tónleikunum sjálfum er engu lík. Einleikarakeppni SÍ og LHÍ fer fram á haustmánuðum 2018 og verða nöfn sigurvegaranna birt á vef hljómsveitarinnar þegar úrslit liggja fyrir.


JANÚAR

JAN

FIM

24 19:30

& Ligia Amadio hljómsveitarstjóri Freyr Sigurjónsson einleikari Heitor Villa-Lobos Bachianas Brasileiras nr. 7

Jón Ásgeirsson Flautukonsert

Leonard Bernstein Sinfónískir dansar úr West Side Story Tónleikakynning kl. 18:00

B

rasilíski hljómsveitarstjórinn Ligia Amadio kemur til Íslands með tónlist frá heimalandi sínu í farteskinu. Heitor Villa-Lobos var höfuðtónskáld Brasilíu og sló þjóðlegan tón í verkum sínum, blandaði seiðandi hryn brasilískrar tónlistar saman við áhrif frá Stravinskíj. Meðal helstu verka hans er flokkurinn Bachianas Brasileiras þar sem brasilískir tónar renna saman við form og stíl barokksins á heillandi hátt. Sjöunda verkið í flokknum er frá árinu 1942 og hljómar hér í fyrsta sinn á Íslandi. Amerísk tónlist er einnig áberandi á seinni hluta efnisskrárinnar, þegar flutt verður glæsileg og fjörmikil svíta úr hinu sívinsæla verki Leonards Bernstein, West Side Story, í tilefni af aldarafmæli tónskáldsins.

Jón Ásgeirsson, eitt ástsælasta tónskáld Íslands, fagnar níræðisafmæli sínu haustið 2018. Útsetningar hans á Vísum Vatnsenda-Rósu og Sofðu unga ástin mín þekkir hvert mannsbarn, en hann hefur líka samið stór og metnaðarfull tónverk, til dæmis konserta og óperur. Flautukonsert hans frá árinu 2000 er hrífandi tónsmíð í þjóðlegum stíl og frumflutningur verksins á þessum tónleikum er mikið tilhlökkunarefni. Freyr Sigurjónsson hefur um árabil verið fyrsti flautuleikari Sinfóníuhljómsveitarinnar í Bilbao á Spáni og hefur leikið með hljómsveitum og kammersveitum víða um Evrópu, til dæmis með Útvarpshljómsveitinni í Madrid og kammersveitinni Moscow Virtuosi.


BRYNDÍS ÞÓRSDÓTTIR FAGOTTLEIKARI FRANK HAMMARIN HORNLEIKARI

Ferskir vindar í blásaradeildinni Tveir nýjustu meðlimir blásaradeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands teknir tali. Á síðustu árum hafa margir ungir hljóðfæraleikarar bæst í raðir Sinfóníuhljómsveitar Íslands og borið með sér ferska vinda úr ýmsum áttum. Þeirra á meðal eru Bandaríkjamaðurinn Frank Hammarin, sem gekk til liðs við horndeildina haustið 2016, og Bryndís Þórsdóttir, sem hóf störf sem fagottleikari vorið 2017. Reynsluboltar og nýgræðingar „Þetta er búið að vera frábært,“ segir Frank, „Auðvitað er margt nýtt fyrir manni, ég hef aldrei tilheyrt atvinnumannahljómsveit áður, svo hver dagur færir manni fersk viðfangsefni. En mér var afar vel tekið, og horndeildin er uppfull af einstökum ljúfmennum,“ segir Frank. Bryndís tekur í sama streng. „Andrúmsloftið í hljómsveitinni er mjög gott, og manni líður mjög vel hér – við erum ekkert látin finna fyrir því að vera yngst og nýjust!“ Þau eru sammála um að það sé styrkleiki fyrir hljómsveitina að eiga hljóðfæraleikara á fjölbreyttum aldri, bæði reynslubolta og nýgræðinga. „Margir af hinum eldri hafa kennt manni eða stjórnað í skólahljómsveitum. Og maður þekkir líka margt af unga fólkinu – sumir voru meira að segja með mér í náminu í Kaupmannahöfn. Við erum eiginlega dálítil dönsk klíka!“ segir Bryndís, en auk hennar voru meðal annars Vera Panitch, nýskipaður annar konsertmeistari, og Páll Palomares, nýr leiðari annarrar fiðlu, við nám í Kaupmannahöfn. „Við erum líka dugleg að hittast fyrir utan vinnuna, það er skemmtilegt félagslíf,“ segir Frank. „Það er meira að segja búið að stofna útivistarhóp!“ bætir Bryndís við. Örlögin réðust á unglingsárunum Frank er fæddur 1990 í Kaliforníu en Bryndís 1994 í Grafarvoginum. Þótt bæði hafi þau náð langt í tónlistinni

voru þau ekki alltaf viss um að hún yrði framtíðarstarfið. „Ég kem ekki beinlínis af tónlistarheimili, þótt ég og tvíburabróðir minn höfum báðir lært á hljóðfæri,“ segir Frank. „Pabbi minn starfar í tölvugeiranum og honum fannst mikilvægt að ég lærði stærðfræði og eðlisfræði. En hornið sótti sífellt á þegar leið á unglingsárin – og svo kom örlagastundin þegar ég var kominn í framhaldsskóla og átti að fara að læra örsmæðareikning. Þá hugsaði ég: Hingað og ekki lengra. Ég vel hornið!“ segir Frank og hlær. „Ég var líka með góða kennara sem beindu mér í rétta átt og hvöttu mig til þess að sækja um í tónlistarháskóla.“ Móðir Bryndísar er tónlistarkennari, en sjálf var hún heldur ekki viss um að hún myndi leggja tónlistina fyrir sig. „Ég byrjaði að læra á klarinett 8 ára í skólahljómsveit Grafarvogs. Það var skemmtilegt, en ég var samt ekki alveg sannfærð. Ég held ég hafi hreinlega ekki alveg fundið mig á því hljóðfæri. Örlagastundin mín kom því þegar ég ákvað að skipta yfir á fagottið. Þar fann ég mitt hljóðfæri,“ segir Bryndís. „En ég hef líka sérstaka ástríðu fyrir því að spila með öðru fólki – bæði í kammerhópum og hljómsveit. Líf tónlistarnemans er stundum einmanalegt við langar æfingar – ég átti alltaf svolítið erfitt með þessa einangrun á námsárunum. Þegar maður kemst út úr henni og finnur tónlistina lifna við í samhljómi heillar sinfóníuhljómsveitar – þá veit maður að maður hefur valið rétt,“ segir Bryndís, „ – það er einfaldlega ekkert skemmtilegra.“ Valdi slydduna fram yfir strandlífið Bryndís og Frank yfirgáfu bæði heimahagana ung til þess að mennta sig frekar í tónlist – Bryndís sem áður sagði í Kaupmannahöfn við Konunglega

38

tónlistarháskólann þar, en Frank fór frá Kaliforníu norður til Chicago, og þaðan til Baltimore, þar sem hann lauk meistaranámi frá Peabodytónlistarháskólanum. „Ég fikraði mig sífellt fjær og fjær foreldrum mínum, og nú er ég kominn til Íslands,“ segir Frank. „Þannig er heimur ungra hljóðfæraleikara í dag – þeir fara víða og búsetan ræðst af tækifærunum. Ég er mjög ánægður að hafa ratað til Íslands. Og þegar maður hugsar út í það er styttra frá Boston til Reykjavíkur en heim til Kaliforníu. Þetta er allt afstætt,“ segir hann brosandi. Aðspurður hvort fjölskyldunni þyki ekki leiðinlegt hvað hann er langt í burtu svarar hann: „Foreldrar mínir eru allavega ánægðir með hvað ég er ánægður – þau komu að heimsækja mig síðasta haust og lentu í alveg hræðilegu veðri. Þau brostu meðaumkunarbrosi til mín og sögðu: „Það er gott hvað þú ert hamingjusamur hér“. Ég held ég þurfi að bjóða þeim aftur fljótlega,“ segir Frank glaðbeittur.


Frank er fæddur 1990 í Kaliforníu en Bryndís 1994 í Grafarvoginum. „En ég valdi þetta. Þegar ég spilaði prufuspilið hér hafði ég nýlega fengið stöðu við mjög virta nemendahljómsveit, New World Symphony sem er staðsett á Miami Beach í Flórída. Þegar ég vann svo prufuspilið hér var valið auðvelt, þótt ég þyrfti að sjá á eftir ströndinni. Þegar manni gefst færi á að vinna við góða atvinnumannahljómsveit skiptir veðrið ekki öllu máli.“ Draumastarfið á Íslandi Umhverfið er ekki jafnframandi fyrir Bryndísi. Hún hefur líka áður unnið sem aukamaður með Sinfóníuhljómsveit Íslands og spilað með sveitinni af og til síðan 2013. Á námsárunum í Danmörku spilaði hún líka með hljómsveitum á borð við Fílharmóníusveit Kaupmannahafnar,

Dönsku útvarpshljómsveitina og Sinfóníuhljómsveitina í Árósum. En draumastarfið var heima á Íslandi. „Já, þetta var draumastarfið, engin spurning. Mig langaði alltaf að koma aftur heim, hér er stemningin persónulegri og nánari. Það eru sjaldgæf forréttindi að bjóðast staða á borð við þessa, svo áheyrnarprufan var dálítið stressandi, enda mikið í húfi. Svo tóku við prufuvikur, þar sem ég starfaði með sveitinni þrjár vikur í senn. Það var líka stressandi, enda skammur tími til að sanna sig. Nú er ég svo á prufuárinu mínu, svo það er eins gott að vera á tánum! En það er yndislegt að vera komin heim og starfið er jafnvel enn skemmtilegra en ég hélt. Maður er stöðugt að læra ný verk – ég held það sé ómögulegt að staðna í þessu starfi.“ 39

Spenntust fyrir Japansferðinni Næsta starfsár leggst vel í þau Bryndísi og Frank, sem bæði eru spenntust fyrir langþráðri Japansferð hljómsveitarinnar. „Það verður stórkostlegt að fá að ferðast með hljómsveitinni í þrjár vikur, og koma fram í mörgum af glæsilegustu tónleikasölum Japans,“ segir Bryndís. „Svo hlökkum við náttúrulega mikið til að skoða okkur um, kynnast menningunni og smakka matinn,“ bætir Frank við. Bryndís segir starfsárið sjálft fullt af skemmtilegum verkefnum, og erfitt að velja sér uppáhald. Frank er þó ekki í vafa: „Ég verð að nefna tónleikana 20. september, þar sem Ævintýri Ugluspegils og Fjórir síðustu söngvar Richards Strauss hljóma á sömu tónleikum og fimmta sinfónía Tsjajkovskíjs. Þetta verður stórkostleg hornveisla, eiginlega árshátíð horndeildarinnar. Leiðarinn okkar, Stefán Jón, hlýtur að hafa mútað einhverjum á æðstu stöðum!“


JANÚAR

JAN

FIM

31 19:30

SINFÓNÍAN Á

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Hallfríður Ólafsdóttir einleikari Martin Kuuskman einleikari Mario Caroli einleikari Ungsveit SÍ og Kór LHÍ Anna Meredith Handsfree

Anna Þorvaldsdóttir Metacosmos

Þuríður Jónsdóttir Flutter, flautukonsert

Páll Ragnar Pálsson Crevace, konsert fyrir flautu og fagott

Veronique Vaka Rift María Huld Markan Sigfúsdóttir Nýtt verk

Á

Myrkum músíkdögum 2019 verða blásturshljóðfæri í forgrunni. Flautukonsert Þuríðar Jónsdóttur frá árinu 2008 er meistaraleg tónsmíð þar sem hún blandar saman einleiksflautu, hljómsveit og krybbu- og engisprettuhljóðum. Nýr konsert Páls Ragnars Pálssonar fyrir flautu og fagott hljómar hér í fyrsta sinn, en verkið er sérstaklega samið fyrir Hallfríði Ólafsdóttur, 1. flautuleikara Sinfóníunnar. Ítalski flautuleikarinn Mario Caroli sérhæfir sig í flutningi nýrrar tónlistar og frumflutti konsert Þuríðar með miklum glæsibrag árið 2009. Eistneski fagottleikarinn Martin Kuuskman hefur sömuleiðis vakið heimseftirtekt fyrir túlkun sína á nýrri tónlist.

Auk þess hljómar hér í fyrsta sinn á Íslandi nýtt hljómsveitarverk Önnu Þorvaldsdóttur, staðartónskálds SÍ, samið fyrir Fílharmóníuhljómsveitina í New York og frumflutt þar undir stjórn Esa-Pekka Salonen í apríl síðastliðnum. Það er til marks um stöðu Önnu í tónlistarheiminum að hin víðfræga Fílharmóníuhljómsveit Berlínar mun flytja þetta nýja verk fáeinum dögum áður en það hljómar á Íslandi í fyrsta sinn. Upptaktur tónleikanna verður óvenjulegur, því að Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands flytur hina einkar frumlegu tónsmíð Handsfree eftir breska tónskáldið Önnu Meredith, sem hún samdi fyrir Ungsveit Bretlandseyja. Verkið var frumflutt á Proms-tónlistarhátíðinni 2012 við frábærar undirtektir og hefur síðan farið sigurför um heiminn, enda með eindæmum skemmtilegt og nýstárlegt.


FEBRÚAR

FEB

FÖS

01 12:00

NORÐURLJÓS

YRKJA UPPSKERUTÓNLEIKAR:

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Haukur Þór Harðarson Nýtt verk

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir Nýtt verk

Y

rkja er samstarfsverkefni Íslenskrar tónverkamiðstöðvar og ýmissa tónlistarstofnana og tónlistarhópa. Verkefnið miðar að því að búa tónskáld undir starf í faglegu umhverfi hjá hljómsveitum, hátíðum og öðrum listastofnunum.

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur undanfarin starfsár tekið þátt í Yrkju og þannig gefið ungum tónskáldum tækifæri til að kynnast hljómsveitinni í návígi. Nú efnir hljómsveitin til slíks samstarfs í fjórða sinn. Fimm manna dómnefnd, skipuð tónskáldum og meðlimum Sinfóníunnar, valdi tónskáld til þátttöku og lá niðurstaða fyrir í maí 2018. Tónskáldin Haukur Þór Harðarson og Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir munu starfa með hljómsveitinni í níu mánuði og fá tækifæri til að þróa færni sína í að semja fyrir hljómsveit. Verk þeirra verða frumflutt á hádegistónleikum á Myrkum músíkdögum og þar munu þau

spjalla við áheyrendur um verkin og tilurð þeirra. Anna Þorvaldsdóttir staðartónskáld hefur veg og vanda af verkefninu. Hún leiðir vinnustofur með tónskáldunum en Daníel Bjarnason stjórnar tónleikunum þar sem verkin hljóma fullmótuð. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.


FEBRÚAR

FEB

FIM

07 19:30

PROKOFÍEV OG BRAHMS

Antonio Méndez hljómsveitarstjóri Denis Kozhukhin einleikari Atli Heimir Sveinsson Örsmá eilífðarbrot

Sergei Prokofíev

Píanókonsert nr. 2 Johannes Brahms

Sinfónía nr. 4

Tónleikakynning kl. 18:00

R

ússneski píanistinn Denis Kozhukhin er ein skærasta píanóstjarna síðari ára. Hann hlaut fyrstu verðlaun í Queen Elisabethkeppninni í Brussel 2010, aðeins 23 ára gamall, og á síðasta tónleikaári lék hann m.a. með heimsþekktum stjórnendum á borð við Daniel Barenboim og Simon Rattle. Hljóðritun hans á píanókonsertum eftir Tsjajkovskíj og Grieg hefur fengið mikið lof og var valin diskur mánaðarins hjá Gramophone. Kraftmikill píanóleikur hans sver sig í ætt við „rússneska skólann“ svonefnda og hentar tónlist Prokofíevs fullkomlega. Hér leikur Kozhukhin hinn glæsilega konsert nr. 2 sem gerir miklar kröfur um tæknilega færni og úthald einleikarans. Atli Heimir Sveinsson fagnar áttræðisafmæli sínu í september

42

2018 og af því tilefni flytur Sinfóníuhljómsveitin eitt af hans sjaldheyrðari verkum. Atli samdi Infinitesimal Fragments of Eternity (Örsmá eilífðarbrot) fyrir Kammersveitina í St. Paul í Minnesota árið 1982 í tilefni af menningarhátíðinni Scandinavia Today. Fjórða sinfónía Brahms er stórfenglegt og safaríkt verk sem innblásið er af barokkformum og ekki síst tónlist Bachs. Spænski hljómsveitarstjórinn Antonio Méndez vakti alþjóðlega athygli þegar hann vann til verðlauna í hinni virtu Malkokeppni í Kaupmannahöfn árið 2012. Þegar hann stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands vorið 2016 stóðu áheyrendur á öndinni, gagnrýnendur gáfu fimm stjörnur og sögðu tónleikana hafa verið „óaðfinnanlega“.


FEBRÚAR

FEB

LAU

16 14:00

LITLI TÓNSPROTINN

Maxime Tortelier hljómsveitarstjóri Trúðurinn Barbara kynnir Bernd Ogrodnik brúðugerðarmeistari Leikfangasextett Leopold Mozart Allegro úr Leikfangasinfóníunni

Sergej Prokofíev

Pétur & úlfurinn Maurice Ravel

Bolero

B

ernd Ogrodnik og brúðurnar hans gera söguna um Pétur og úlfinn ljóslifandi og eftirminnilega í barnvænni og fallegri uppfærslu Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Halldóru Geirharðsdóttur. Bernd er einn fremsti brúðugerðarmeistari heims og hefur sýning hans á Pétri og úlfinum farið sigurför víða um heim enda töfrum líkust. Pétur og úlfurinn er eitt ástsælasta tónlistarævintýri sem sögur fara af, saga þar sem hver sögupersóna er túlkuð af hljóðfæri eða hljóðfærum sinfóníuhljómsveitarinnar. Þótt Pétri og úlfinum hafi verið fálega tekið þegar verkið var frumflutt í Moskvu árið 43

1936 þá má með sanni segja að verkið hafi öðlast alþjóðlegar vinsældir, ekki aðeins meðal barna, enda býr verkið yfir eilífum æskublóma. Fyrsti þáttur Leikfangasinfóníunnar sem eignuð er Leopold Mozart (föður Wolfgangs) verður fluttur á tónleikunum með aðstoð Maxímús Músíkús og ungra einleikara sem mynda leikfangasextett. Það má búast við mikilli leikgleði þegar Maxi og félagar slást í för með Sinfóníunni og ekki mun stemningin verða síðri þegar hljómsveitin flytur hið geysivinsæla Bolero eftir Ravel.


FEBRÚAR

FEB

FIM

21 19:30

IÐ Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Pekka Kuusisto einleikari Arvo Pärt Fratres

Daníel Bjarnason

Fiðlukonsert

Ígor Stravinskíj

Vorblót

Tónleikakynning kl. 18:00

V

orblót Stravinskíjs er meðal dáðustu hljómsveitarverka 20. aldar og um leið eitt hið áhrifamesta; Pierre Boulez kallaði það „fæðingarvottorð nútímatónlistar“. Tónlistin er kröftug og spennuþrungin, hefur að geyma krassandi hljóma og óvæntan hryn, en mörg stefjanna eru sótt í rússnesk og litháísk þjóðlög. Í verkinu er lýst fornri helgiathöfn þar sem valin er ein úr hópi ungra meyja til að dansa sig til dauða – og tryggir þannig komu vorsins. Flutningur Vorblóts á Íslandi telst ávallt stórviðburður, ekki síst þegar íslenskur hljómsveitarstjóri er við stjórnvölinn.

Daníel Bjarnason hefur á síðustu árum fest sig í sessi sem einn fremsti tónlistarmaður landsins. Fiðlukonsert hans var saminn fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Fílharmóníuhljómsveitina í Los Angeles, sem frumflutti verkið á útisviðinu Hollywood Bowl fyrir yfir 15 þúsund manns. Verkið hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og sama gildir um innblásinn leik finnska fiðlusnillingsins Pekka Kuusisto sem fer svo sannarlega ótroðnar slóðir, en verkið er samið sérstaklega með hann í huga. Upptaktur að tónleikunum er svo hið undurfagra og kyrrláta Fratres eftir Arvo Pärt sem er ein hans allra fegursta tónsmíð, dáleiðandi tilbrigði um sex takta stef.


PEKKA KUUSISTO SEGIR FRÁ FIÐLUKONSERTI DANÍELS BJARNASONAR

„V

erkið er mikil rússíbanareið, en jafnframt fallegt í hlutföllunum. Þyngdinni er einhvern veginn dreift á réttan hátt – og þess vegna flýtur það, í stað þess að sökkva,“ segir finnski fiðluleikarinn Pekka Kuusisto um fiðlukonsert Daníels Bjarnasonar, sem Pekka flytur með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn tónskáldsins 21. febrúar. Pekka hefur verið í fremstu röð meðal fiðluleikara heimsins um árabil, en sinnir ekki síður tilraunakenndri tónlist af ýmsu tagi, og bræðir saman spuna, þjóðlagatónlist og raftónlist. Pekka hefur verið tíður gestur á Íslandi síðustu ár, bæði til að spila á hefðbundnum tónleikum, en líka til vinna með félögum sínum í útgáfufélaginu Bedroom Community, sem hefur aðsetur í Breiðholti og starfar undir forystu Valgeirs Sigurðssonar tónskálds. Örlagavaldurinn Iceland Airwaves Það var einmitt í gegnum þann félagsskap sem Pekka kynntist Daníel Bjarnasyni tónskáldi. „Ég fór í afdrifaríka Íslandsferð 2011,“ segir Pekka. „Þá tók ég mér nokkurra mánaða hvíld frá tónleikahaldi, og fannst fyrirtakshugmynd að byrja á því að koma til Íslands, dvelja í viku í Gróðurhúsinu, stúdíói Valgeirs Sigurðssonar, og sjá kannski bara um kaffið fyrir þá sem kæmu þangað að taka upp. En dvölin hitti einmitt á Iceland Airwaves-hátíðina, svo ég endaði á því að skemmta mér glæpsamlega mikið með allskonar tónlistarmönnum og eignast marga nýja vini.“ Einn þeirra var Daníel Bjarnason, tónskáld. „Og við höfum verið í sambandi síðan.“ segir Pekka.„Ég man svo sem ekki hver átti hugmyndina að því að hann skrifaði fyrir mig konsert,“ bætir hann við, „en ég held að þetta hafi verið ein af þessum hugmyndum sem liggja í loftinu og margir fá á sama tíma. Ég er mjög hamingjusamur að þessi hugmynd varð að veruleika,“ segir Pekka, sem frumflutti konsertinn í ágúst 2017 með Fílharmóníusveit Los Angeles undir stjórn hins heimsfræga Gustavo Dudamel við frábærar undirtektir gagnrýnenda og almennings. Dýrðlega ónáttúrulegur fiðluhljómur Grunnurinn að fiðlukonsertinum var

Eins og að mæta í slagsmálaklúbb! lagður þegar Pekka og Daníel ræddu málin og skiptust á hugmyndum. „Ég sagði Daníel frá dálitlu sem ég hafði tekið upp á – ég prófaði að stilla neðsta strenginn á fiðlunni niður um ferund frá því sem almennt tíðkast, frá G-i niður á D, svo bilið milli tveggja neðstu strengjanna á hljóðfærinu er ekki lengur fimmund, heldur heil áttund. Þetta gerir það að verkum að fiðlan gefur frá sér ævintýralegt urr – það er einhver skemmtilega óheilbrigður hljómur í því. Það kom mér samt á óvart þegar ég fékk nóturnar að konsertinum að hann væri allur skrifaður í þessari stillingu! Það var auðvitað mjög skemmtilegt – en þegar maður hefur spilað sama tónstigann með sömu fingrasetningu síðan maður var þriggja ára gamall er mikið sjokk að þurfa nú skyndilega að stökkva með höndina á allt annan stað á

áhrif úr þjóðlagatónlistinni, sem ég nýti líka í raftónlist. Það eykur fjölbreytnina og gefur færi á litríkri tjáningu.“ Skilur ekki sjálfan sig eftir baksviðs Pekka segir verkið líka hafa komið til hans á hárréttum tíma í lífinu. „Ég hafði nýlega unnið að sviðsverki í Þjóðleikhúsinu í Helsinki sem var byggt á skáldsögu frá áttunda áratugnum. Æfingatíminn var þrír og hálfur mánuður, og á þeim tíma hurfum við algjörlega frá texta bókarinnar, losuðum okkur við allt sem við lögðum upp með – líka tónlistina – og sömdum allt upp á nýtt. Við leyfðum okkur að skapa eitthvað sem byggðist algjörlega á hver við værum og hvar við værum stödd í lífinu. Og leikstjórinn skýrði það út fyrir mér að þetta væri það sem hans starf snerist um – að taka fyrirbæri úr lífi sínu

„Það nær til tilfinninga manns og hrærir í þeim – kýlir mann í andlitið og fær mann til að bregðast við. Það er stórfenglegt, mér finnst það bæði frelsandi og endurnærandi.“ fingrabrettinu!“ segir Pekka og hlær. „En þetta er þess virði. Allt hljóðfærið ómar á nýjan hátt. Það er eitthvað dýrðlega ónáttúrulegt við það – og Daníel nýtir alla möguleika þess út í ystu æsar.“ Spunnið, blístrað, sungið Pekka hefur líka frjálsar hendur á köflum í verkinu, því Daníel gerir ráð fyrir því að einleikarinn spinni kadensurnar sjálfur – rétt eins og tíðkaðist gjarnan í konsertum klassíska tímans. „Ég er afar hamingjusamur með það,“ segir Pekka, „því þetta er hluti starfs fiðluleikarans sem hefur verið vanrækt í meira en öld. Það gleður mig að tónskáld sem býr yfir sterkri rödd og sem margir hlusta á skuli kjósa að veita spunanum slíkan sess í svo veigamiklu verki.“ Pekka segir sínar kadensur síbreytilegar. „Síðan verkið var frumflutt hef ég tekið ýmsa sénsa. Ég hef líka leikið mér að því að nýta aðrar hljóðuppsprettur en fiðluna – ég syng með eða blístra. Þetta eru sennilega

45

og nýta sem eldsneyti í listrænt starf. Ég hugsaði strax: Þetta er stórkostlegt. Ég hef farið í fiðlutíma allt mitt líf og látið segja mér að nóturnar geymi allar nauðsynlegar upplýsingar, og að maður eigi ekki að trana sjálfum sér fram í flutningi tónlistarinnar. Og þannig vinnur maður þegar maður spilar fiðlukonsert eftir Beethoven – maður fjarlægir sjálfan sig svolítið. En svo kemur svona verk eins og fiðlukonsert Daníels fram á sjónarsviðið, tekur í hnakkadrambið á manni og tuskar mann til – það krefst þess af manni að maður sé maður sjálfur, og taki mikla áhættu. Maður getur ekki skilið sjálfan sig og persónuleika sinn eftir baksviðs áður en þetta verk er flutt. Það nær til tilfinninga manns og hrærir í þeim – kýlir mann í andlitið og fær mann til að bregðast við. Það er stórfenglegt, mér finnst það bæði frelsandi og endurnærandi – svolítið eins og að fara í slagsmálaklúbb. Og ég vildi óska að fólkið í okkar listgrein gerði meira af þessu!“


FEBRÚAR

FEB

FIM

28 19:30

Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Andreas Brantelid einleikari Jórunn Viðar Eldur

Edward Elgar

Sellókonsert Witold Lutosławski

Sinfónía nr. 3

Tónleikakynning kl. 18:00

D

anski sellóleikarinn Andreas Brantelid vann hug og hjörtu íslenskra tónleikagesta þegar hann lék einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2016. Einn gagnrýnandi kvaðst „aldrei hafa heyrt jafnvel spilað á selló“ og að túlkunin á sellókonsert Dvořáks hafi verið framúrskarandi. Nú snýr Brantelid aftur með annað vinsælt meistaraverk í farteskinu. Tilfinningaþrunginn sellókonsert Elgars vekur í hugum margra minningu um sjóðheita túlkun Jacqueline du Pré. Brantelid hefur leikið þennan konsert með hljómsveitum um allan heim frá því hann var 14 ára gamall og þekkir hverja hendingu hans út og inn. Í desember 2018 verður öld liðin frá fæðingu Jórunnar Viðar og af því tilefni flytur hljómsveitin eitt af tímamótaverkum hennar. Eldur var fyrsta sinfóníska tónsmíð íslenskrar konu og jafnframt fyrsti ballettinn sem settur var á svið hér á landi við íslenska tónlist. Finnski stjórnandinn Eva Ollikainen stjórnar sömuleiðis þriðju sinfóníu pólska meistarans Lutosławskis, sem hann samdi fyrir Chicago-sinfóníuna og Sir Georg Solti árið 1983. Þetta er almennt talin ein magnaðasta sinfónía frá seinni hluta 20. aldar og hlaut hún feykigóðar viðtökur þegar við frumflutninginn, auk þess sem tónskáldið fékk hin virtu Grawemeyerverðlaun fyrir verkið árið 1985.


MARS

MAR

FÖS

01 18:00

NORÐURLJÓS

TJÁNING TREGANS Eva Ollikainen hljómsveitarstjóri Andreas Brantelid einleikari Strokkvartettinn Siggi Joan Tower

In Memory

Edward Elgar

Sellókonsert

J

oan Tower er með virtustu tónskáldum Bandaríkjanna og hefur meðal annars unnið til Grammy-verðlauna fyrir tónverk sín. Hún varð fyrsta konan til að hljóta hin virtu Grawemeyer-verðlaun árið 1990. In Memory samdi hún árið 2001 í minningu góðs vinar, en tileinkaði það einnig minningu

þeirra sem létust í árásinni á Tvíburaturnana sama ár. Verkið er tilfinningaþrungið og sérlega áhrifamikið; tónmálið er beinskeytt og minnir á köflum á Shostakovitsj. Strokkvartettinn Siggi var stofnaður árið 2012 og er skipaður hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Kvartettinn hefur vakið mikla athygli fyrir kraftmikinn leik og spennandi verkefnaval, en hann hefur meðal annars flutt fimm tíma langan strengjakvartett eftir Morton Feldman auk verka eftir Penderecki, Schnittke og Beethoven. Angurvær og ástríðufullur sellókonsert Elgars er seinna verkið á efnisskránni. Þetta var síðasta stóra verk Elgars, samið árið 1919 þegar skuggi heimsstyrjaldar hvíldi enn þungt á tónskáldinu. Danski sellósnillingurinn Andreas Brantelid er á heimavelli þegar kemur að þessu verki sem hann hefur leikið með ótal hljómsveitum víða um heim, allt frá því hann var 14 ára gamall og debúteraði með hljómsveit í heimaborg sinni, Kaupmannahöfn.


MARS

MAR

FIM

14 19:30

Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri Karólína Eiríksdóttir Tokkata

Þorsteinn Hauksson

Sinfónía nr. 2

Anna Þorvaldsdóttir

Illumine

John Speight

Sinfónía nr. 5

T

vær nýjar sinfóníur hljóma á þessum tónleikum sem helgaðir eru nýrri og nýlegri íslenskri tónlist. Þorsteinn Hauksson hefur um árabil verið búsettur á meginlandi Evrópu og hefur þrívegis verið tilnefndur til Tónskáldaverðlauna Norðurlandaráðs. Sinfónía hans nr. 2 (2014) er í átta stuttum köflum sem kallast á við japanskar haikur þar sem dregin eru upp flöktandi hugskot og hugdettur. John Speight hefur starfað sem tónskáld, söngvari og kennari á Íslandi síðan hann fluttist til landsins árið 1972. Hann hefur samið langt í 200 tónverk af ýmsum stærðum og gerðum, meðal annars konserta og sinfóníur. Þegar Sinfóníuhljómsveitin frumflutti sellókonsert hans árið 2014 komst einn gagnrýnandi svo að orði að verkið hefði verið „mögnuð upplifun“.

Fimmta sinfónía Speights er samin á árunum 2009–2016. Hún skiptist í fjóra þætti og þrjú millispil sem tileinkuð eru minningu um kæra vini tónskáldsins. Tokkata eftir Karólínu Eiríksdóttur er nokkuð eldra verk, kraftmikil tónsmíð samin fyrir Orkester Norden árið 1999. Illumine eftir Önnu Þorvaldsdóttur, staðartónskáld Sinfóníunnar, var samið árið 2016 fyrir hinn víðfræga franska tónlistarhóp Ensemble Intercontemporain. Anna-Maria Helsing hefur náð frábærum árangri á tónleikum sínum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hún er vel kunnug íslenskri tónlist, stjórnaði meðal annars flutningi á óperu Karólínu, Magnus Maria, víða á Norðurlöndum fyrir fáeinum árum. Þessir tónleikar eru ómissandi fyrir þá sem vilja fylgjast með hinu nýjasta í íslenskri tónsköpun.


MARS

MAR

FIM

21 19:30

Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Anne Sofie von Otter einsöngvari Einar Jóhannesson einleikari Atli Heimir Sveinsson / W.A. Mozart Alla turca etc.

Joseph Canteloube Söngvar frá Auvergne (Chants d’Auvergne)

Georges Bizet Sinfónía í C-dúr Tónleikakynning kl. 18:00

A

nne Sofie von Otter er ein dáðasta söngstjarna Norðurlanda. Hún hefur á viðburðaríkum ferli sungið með öllum helstu hljómsveitarstjórum heims, meðal annars Claudio Abbado, Georg Solti, Bernard Haitink og John Eliot Gardiner, og hefur unnið til bæði Gramophone- og Grammyverðlauna fyrir geisladiska sína. Á þessum tónleikum flytur hún heillandi útsetningar Josephs Canteloube á frönskum þjóðlögum sem eru hans kunnasta verk og hefur náð miklum vinsældum í flutningi söngkvenna á borð við Victoriu de los Angeles og Kiri Te Kanawa.

Tónleikarnir hefjast með sprellfjörugri útsetningu Atla Heimis Sveinssonar fyrir klarínett og hljómsveit á hinu vinsæla Rondo alla Turca eftir Mozart. Eftir hlé hljómar eina sinfónía Bizets, meistaraverk sem hann samdi aðeins 17 ára gamall. Enn í dag er þetta ein frægasta sinfónía fransks tónskálds og vitnisburður um ótvíræða snilligáfu hans. Í kjölfar tónleikanna mun Sinfóníuhljómsveit Íslands hljóðrita verkið til útgáfu hjá Chandos-forlaginu. Franskir tónar eru eru meginuppistaða þessara tónleika og þar er Yan Pascal Tortelier, aðalstjórnandi Sinfóníunnar, á algjörum heimavelli.


MARS

MAR

FIM

28 19:30

MENDELSSOHN Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Judith Ingólfsson einleikari Malcolm Sargent Impression on a Windy Day Felix Mendelssohn Fiðlukonsert Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 7 Tónleikakynning kl. 18:00

F

iðluleikarinn Judith Ingólfsson er dóttir Ketils Ingólfssonar stærðfræðings og tók fyrstu skrefin í tónlistinni sem nemandi í Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Hún sigraði í Alþjóðlegu fiðlukeppninni í Indianapolis árið 1998 og gagnrýnandi New York Times líkti leik hennar við kraftmikla flugeldasýningu. Judith er nú prófessor í fiðluleik við Tónlistarháskólann í Stuttgart og það er sannkallað gleðiefni að hún skuli leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands eftir langt hlé. Fiðlukonsert Mendelssohns er líka ótvíræður gleðigjafi, léttur og leikandi en líka tilþrifamikill og gefur einleikaranum færi á að sýna hinar ólíku hliðar hljóðfærisins.

50

Sjöunda sinfónía Beethovens er ein sú fjörugasta sem hann samdi. Wagner kallaði hana „fullkomnun dansins“ og sérstökum vinsældum hefur annar kafli verksins náð, en hann hljómaði meðal annars í kvikmyndinni vinsælu The King’s Speech. Sir Malcolm Sargent var einn fremsti hljómsveitarstjóri Bretlands á 20. öld en var jafnframt prýðilegt tónskáld. Svipmynd hans í tónum af gustríkum degi hljómaði á Last Night of the Proms-tónleikunum 2017 undir stjórn Sakaris Oramo og létu gagnrýnendur allir sem einn í ljós undrun sína á því að svo frábær tónsmíð skyldi nærri hafa fallið í gleymsku. Hljómsveitarstjóri er Yan Pascal Tortelier, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.


MARS

MAR

FÖS

29 18:00

NORÐURLJÓS

DANSANDI SINFÓNÍA Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Bergrún Snæbjörnsdóttir

Nýtt verk

Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 7

Bergrún Snæbjörnsdóttir hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum fyrir verk sín, sem hafa meðal annars hljómað í flutningi Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Ósló og International Contemporary Ensemble (ICE) í New York. Hún hefur einnig starfað með Sigur Rós og komið fram sem hornleikari með Björk Guðmundsdóttur, auk þess sem hún lauk meistaraprófi í tónsmíðum frá Mills College í Kaliforníu árið 2017. Á síðari föstudagstónleikum vetrarins hljómar nýtt verk eftir Bergrúnu, pantað af Önnu Þorvaldsdóttur og Sinfóníuhljómsveit

Íslands og sérstaklega samið fyrir hljóðfæraleikara úr hljómsveitinni. Sjöunda sinfónía Beethovens er eftirlætisverk tónlistarunnenda um allan heim. Tónlistin iðar af fjöri og kátínu, og hefur dansandi eiginleika. Þegar verkið var frumflutt í Vínarborg árið 1813 þurfti að endurtaka annan kaflann vegna glimrandi undirtekta áheyrenda. Þessi þáttur er einmitt dæmi um hvernig Beethoven gat skapað hrífandi heim úr einföldum efniviði, og tónlistin hefur allar götur síðan verið meðal þess dáðasta sem Beethoven festi á blað um ævina.


APRÍL

FÖS

APR APR

FIM

04 19:30 05 19:30

STAR WARS BÍÓTÓNLEIKAR

Ted Sperling hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveit Íslands

John Williams / George Lucas Star Wars

S

tjörnustríð eða Star Wars er ein frægasta kvikmyndasyrpa allra tíma. Fyrsta myndin, frá árinu 1977, sló strax í gegn og má segja að ekkert lát hafi orðið á vinsældunum síðan. Nú eru myndirnar alls orðnar átta og sagan sem þar er sögð er ævintýralegri en nokkurn óraði fyrir í upphafi. John Williams hefur samið tónlistina við allar Stjörnustríðsmyndirnar. Litrík og glæsileg tónlistin á stóran þátt í vinsældum myndanna enda hefur Williams sópað til sín verðlaunum fyrir verk sitt. Alls notar hann um 50 stef sem snúa aftur og tengjast ákveðnum persónum eða kringumstæðum, rétt eins og Richard Wagner gerði í óperum sínum meira en 100 árum fyrr. Í upphaflegu myndinni frá 1977 lék Sinfóníuhljómsveit Lundúna tónlistina, en á þessum tónleikum verður myndin sýnd við lifandi flutning Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þetta eru tónleikar sem enginn kvikmyndaunnandi má missa af.


APRÍL


APRÍL

APR

FIM

11 19:30

Osmo Vänskä hljómsveitarstjóri Isabelle Faust einleikari Johannes Brahms Fiðlukonsert

Gustav Mahler

Sinfónía nr. 10 (fullgerð af Deryck Cooke) Tónleikakynning kl. 18:00

I

sabelle Faust er einn fremsti fiðluleikari samtímans og mörgum er enn í fersku minni túlkun hennar á fiðlukonsertum Beethovens og Stravinskíjs þegar hún var staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2010– 2011. Síðan hefur stjarna hennar risið enn hærra í tónlistarheiminum. Hún kemur reglulega fram með Berlínarfílharmóníunni, er staðarlistamaður Mahlerkammersveitarinnar og hlaut Gramophone- verðlaunin 2017 fyrir túlkun sína á konsertum Mozarts. Í stórbrotnum sinfóníum sínum kannaði Gustav Mahler áður óþekkta heima. Honum entist aðeins aldur til að ljúka við níu slíkar, en þegar

hann lést árið 1911 skildi hann eftir sig tíundu sinfóníuna svo að segja fullgerða. Hann hafði aðeins lokið við að útsetja fyrsta þáttinn fyrir hljómsveit en árið 1960 fullgerði breski tónlistarfræðingurinn Deryck Cooke verkið og tókst frábærlega að laða fram hinn einstaka tón Mahlers. Tíunda sinfónían er mikilfenglegt meistaraverk, tilfinningaþrungið og dramatískt, sem lætur engan ósnortinn. Osmo Vänskä, heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar, er einn fremsti Mahler-túlkandi samtímans. Hljóðritanir hans á verkum meistarans hafa fengið frábæra dóma og nýjasti hljómdiskur hans, með fimmtu sinfóníu Mahlers, var nýverið tilnefndur til Grammy-verðlauna.


ÁRNI HEIMIR INGÓLFSSON, LISTRÆNN RÁÐGJAFI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS, SEGIR FRÁ MAHLER OG TÍUNDU SINFÓNÍU HANS.

Nr. 10 - Hin banvæna sinfónía

T

íunda sinfónía Gustavs Mahlers er stórbrotið verk sem á sér forvitnilega og sérkennilega sögu. Það er á dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands 11. apríl, en hljómar alla jafna fremur sjaldan á tónleikum. Hver skyldi vera skýringin á því? „Skýringin er líklega fyrst og fremst sú að Mahler auðnaðist ekki að ljúka verkinu,“ segir Árni Heimir. „Hann hóf að semja sinfóníuna árið 1910 en lést frá henni ófullgerðri ári síðar.“ Árni Heimir útskýrir að allur gangur sé á því hvort ófullgerð verk séu yfirleitt tekin fullgild í tónlistarheiminum – eða hvort þau séu dæmd til að verða eins og neðanmálsgrein við ævistarf viðkomandi tónskálds. „Dæmi um hið fyrrnefnda er Ófullgerða sinfónía Schuberts, sem er fastur liður á verkaskrám hljómsveita, en sá er munurinn að Schubert lauk að fullu við tvo kafla í því verki. Mahler var aftur á móti búinn að skissa upp alla sinfóníuna, sem er í fimm þáttum, en átti eftir að ganga frá hljómsveitarútsetningu í stærstum hluta verksins,“ segir hann. Ekkjan tvístígandi Nokkru eftir lát Mahlers fékk Alma, ekkja hans, tónskáldið Ernst Krenek til að ganga frá fyrstu tveimur þáttum sinfóníunnar og þeir voru fluttir nokkrum sinnum opinberlega á árunum upp úr 1920. „En Alma var tvístígandi um það hvort rétt væri að flytja verkið í þessu formi,“ segir Árni Heimir, „og svo fór að hún bannaði að þættirnir heyrðust framar. Það var ekki fyrr en enski tónlistarfræðingurinn Deryck Cooke gekk frá allri sinfóníunni til flutnings um 1960 að hún lét sannfærast og gaf leyfi sitt til flutnings. Nú eru sífellt fleiri þeirrar skoðunar að 10. sinfónía Mahlers sé lykilverk á ferli hans, og að jafnvel þótt hann hafi ekki náð að ljúka við öll smáatriði hafi Cooke af mikilli þekkingu tekist að færa það í sannfærandi búning. Sir Simon Rattle hefur til dæmis verið ötull talsmaður verksins og telur það að öllu leyti standast samanburð við aðrar sinfóníur Mahlers,“ segir Árni Heimir. Bölvun hinnar Níundu Mahler er sagður hafa óttast það mjög að endast ekki ævin til að semja tíu sinfóníur. „Þessi árátta Mahlers var vægast sagt furðuleg,“ segir Árni Heimir. „En til að skilja hana verðum við að hafa í huga að á 19. öld þótti hið sinfóníska form hátindur alls sem gert var í tónlist. Af tónskáldum þótti Ludwig van Beethoven bera af og verk hans voru fyrirmyndir allra sinfóníuhöfunda á þessum tíma. Beethoven samdi aðeins níu sinfóníur eins og kunnugt er, og Óðurinn til gleðinnar í 9. sinfóníunni er glæsilegur lokapunktur á hans sinfóníska höfundarverki. Sum önnur tónskáld á 19. öld sömdu líka einmitt níu sinfóníur – til dæmis Schubert og Dvořák – en annars var algengara að tónskáld afköstuðu færri sinfóníum, meðal annars af því að formið krafðist svo mikils af þeim. Svo gerðist

„Hvernig sem á því stendur var Mahler þess fullviss að sér myndi aldrei auðnast að semja nema níu sinfóníur, örlögin myndu sjá til þess að eitthvað færi úrskeiðis ef hann svo mikið sem reyndi við þá tíundu. Hann var heltekinn af „Bölvun hinnar Níundu.“ það árið 1896 að annar sinfóníumeistari, Anton Bruckner, lést frá 9. sinfóníu sinni ófullgerðri; dauðinn læsti í hann klónum áður en hann gat lokið við síðasta kaflann,“ segir Árni Heimir. „Hvernig sem á því stendur var Mahler þess fullviss að sér myndi aldrei auðnast að semja nema níu sinfóníur, örlögin myndu sjá til þess að eitthvað færi úrskeiðis ef hann svo mikið sem reyndi við þá tíundu. Hann var heltekinn af „Bölvun hinnar Níundu,“ ef svo má að orði komast,“ segir Árni Heimir. Reyndi að leika á örlögin Þótt Mahler tæki „Bölvun hinnar Níundu“ greinilega alvarlega lagði hann ekki árar í bát, heldur reyndi að komast undan með klækjabrögðum. „Mahler reyndi að snúa á örlögin með því að gefa hinni eiginlegu níundu sinfóníu sinni, Das Lied von der Erde, ekki raðtölu og kalla verkið ekki sinfóníu. Skömmu síðar lauk hann við það sem hann kallaði „Sinfóníu nr. 9“, og með því þóttist hann hafa leikið á örlögin; nú gæti hann haldið tónsmíðunum áfram óttalaus. En örlögin gripu í taumana þrátt fyrir allt,“ segir Árni Heimir. En hvað skyldi hafa orðið um Bölvun hinnar Níundu – eru tónskáld enn skjálfandi á beinunum frammi fyrir henni? „Nei, til allrar hamingju held ég að flest tónskáld séu nú ekki mikið að velta þessu fyrir sér,“ segir Árni Heimir og hlær. „Sinfónían var reyndar ekki eins miðlæg í 55

tónsköpun 20. aldar og þeirrar nítjándu, svo það reyndi ekki mikið á þetta. Sibelius og Prokofíev sömdu sjö sinfóníur, Rakhmanínov þrjár, en sum önnur lykiltónskáld – til dæmis Debussy og Ravel – sömdu engin verk í þessu formi. Aðeins Shostakovitsj fór langt umfram það sem tíðkaðist og samdi 15 sinfóníur. Þótt hann hafi verið undir sterkum áhrifum frá Mahler í tónlistinni átti það greinilega ekki við þegar kom að forlagatrú!“ Ólgandi tilfinningar og trylltar ástarjátningar En hvernig verk er þá tíunda sinfónía Mahlers – verkið sem segja má að hafi kostað hann lífið? „Hún er stórbrotið verk, ástríðuþrungið, innilegt og kraftmikið. Það dylst engum sem heyrir þessa tónlist að hún speglar að einhverju leyti hið óstöðuga sálarlíf Mahlers síðasta árið sem hann lifði,“ segir Árni Heimir, en Mahler hafði nýverið komist að því að Alma, eiginkona hans, átti í ástarsambandi við arkitektinn Walter Gropius, og í kjölfarið leitaði hann ráða hjá sjálfum Sigmund Freud. „Í handritinu að tíundu sinfóníunni má lesa athugasemdir sem Mahler ætlaði Ölmu og virðist sem tónlistin hafi átt að vera eins konar ástarjátning til hennar. Á síðustu síðu lokakaflans skrifar hann til dæmis: „für dich leben! für dich sterben!“ (Að lifa fyrir þig! Að deyja fyrir þig!). Þessi ólgandi tilfinningaþrá gefur tóninn fyrir verkið í heild,“ segir Árni Heimir, sem hlakkar til að heyra verkið á tónleikum undir stjórn Osmo Vänskä.


MAÍ

MAÍ

LAU

04 14:00

LITLI TÓNSPROTINN

S

trákurinn og slikkeríið er nýtt tónlistarævintýri eftir Jóhann G. Jóhannsson sem byggt er á sögu eftir Roald Dahl. Jóhann G. samdi tónlistina við Skilaboðaskjóðuna og færði lög Astrid Lindgren í hljómsveitarbúning á fádæma vinsælum tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar síðastliðið haust. Í Stráknum og slikkeríinu sláumst við í för með litlum dreng og þremur kostulegum vinum hans úr dýraríkinu: gíraffa, pelíkana og apa. Í grípandi sönglögum og litríkum ljóðum bregða söngvararnir sér í líki sögupersónanna, jafnt dýra sem manna. Andi Roalds Dahl svífur yfir vötnum með kímni, spennu og óvæntum vendingum allt til enda. Í tónlistarævintýrinu taka Brynhildur Guðjónsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson ásamt Stúlknakór Reykjavíkur höndum saman og hjálpast að við leysa vandamál og láta drauma rætast. Hljómsveitarstjóri er Noam Aviel sem þreytir frumraun sína með Sinfóníuhljómsveitinni.

Noam Aviel hljómsveitarstjóri Brynhildur Guðjónsdóttir söngvari Unnsteinn Manuel Stefánsson söngvari Stúlknakór Reykjavíkur Quentin Blake myndir Jóhann G. Jóhannsson Strákurinn og slikkeríið

tónlistarævintýri byggt á sögu eftir Roald Dahl

56


MAÍ

MAÍ

FIM

09 19:30

Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Nikolai Lugansky einleikari

Giuseppe Verdi Á valdi örlaganna, forleikur

Edvard Grieg Píanókonsert

Sergei Prokofíev Rómeó og Júlía, ballettsvítur Tónleikakynning kl. 18:00

R

ússneski píanósnillingurinn Nikolai Lugansky vakti gífurlega hrifningu haustið 2016 þegar hann lék þriðja píanókonsert Rakhmanínovs í Eldborg á fyrstu tónleikunum sem Yan Pascal Tortelier stýrði sem aðalstjórnandi Sinfóníunnar. Lugansky snýr nú aftur til Íslands og leikur hinn sívinsæla píanókonsert Griegs, þar sem tónskáldið sameinar í stóru formi blæbrigði norskra þjóðlaga og tónsmíðahefð þýskrar rómantíkur. Konsertinn varð umsvifalaust einn sá vinsælasti sem um getur. Þegar Franz Liszt hafði leikið hann í návist tónskáldsins árið 1870 er sagt að píanistinn frægi hafi hrópað upp yfir sig: „Haltu áfram að semja, í Guðs bænum! Þú hefur það sem til þarf!“

Önnur verk á efnisskránni eru þrungin spennu. Dramatískur forleikur Verdis að óperunni Á valdi örlaganna setur sviðið fyrir harmleikinn sem í vændum er: elskendurnir Alvaro og Leónóra fá ekki að eigast vegna andstöðu foreldranna. Hið sama er vitaskuld uppi á teningnum í Rómeó og Júlíu, og tónlist Prokofíevs fangar öll blæbrigði ástar og harms með áhrifamiklum hætti. Aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar, Yan Pascal Tortelier, hefur stjórnað ballettsvítum Prokofíevs víða um heim við frábærar undirtektir og það verður spennandi að fylgjast með túlkun hans á þessu magnaða verki.


MAÍ

MAÍ

FIM

16 19:30

OG TORTELIER Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Ari Þór Vilhjálmsson einleikari Sigurgeir Agnarsson einleikari

Johannes Brahms Akademískur hátíðarforleikur

Johannes Brahms Konsert fyrir fiðlu og selló

Louise Farrenc Sinfónía nr. 3

Emmanuel Chabrier España Tónleikakynning kl. 18:00

T

veir frábærir íslenskir strengjaleikarar leiða saman hesta sína á þessum tónleikum. Ari Þór Vilhjálmsson hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn og er nú leiðari 2. fiðlu Fílharmóníusveitarinnar í Helsinki, en Sigurgeir Agnarsson er leiðandi sellóleikari Sinfóníunnar. Sama leika þeir tilfinningaþrunginn tvíkonsert Brahms fyrir fiðlu og selló, síðasta hljómsveitarverk meistarans. Akademíski hátíðarforleikurinn er glaðvært skemmtistykki sem Brahms samdi í þakkarskyni eftir að honum hafði verið veitt heiðursdoktorsnafnbót við þýskan háskóla. Verkinu lýkur með stúdentasöngnum Gaudeamus igitur og á það vel við á vordögum þegar útskriftir eru á næsta leiti.

Louise Farrenc var framúrskarandi píanóleikari á 19. öld og starfaði í meira en þrjá áratugi sem prófessor í píanóleik við Tónlistarháskólann í París. Hún samdi fjölmörg píanó- og kammerverk, en einnig þrjár rómantískar sinfóníur sem þykja sérlega vel heppnaðar. Á síðustu árum hafa tónsmíðar Farrenc verið grafnar úr gleymsku og þykir ljóst að hún verðskuldar stóran sess í tónlistarsögunni. Í kjölfar tónleikanna verður sinfónía Farrenc hljóðrituð fyrir geisladisk á vegum breska hljómplötuforlagsins Chandos og er sérstakt ánægjuefni að Sinfóníuhljómsveit Íslands leggi sitt af mörkum til að kynna verk þessa merka tónskálds á alþjóðlegum vettvangi. Tónleikunum lýkur á spænskuskotinni fantasíu Chabriers þar sem hann fléttar saman sprellfjöruga spænska dansa með eftirminnilegum tilþrifum.


THIBAUDET BEETHOVEN Osmo Vänskä hljómsveitarstjóri Jean-Yves Thibaudet einleikari

Kaija Saariaho Ciel d’hiver (Vetrarhiminn)

James MacMillan Píanókonsert nr. 3, „Leyndardómar ljóssins“

Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 3, „Hetjuhljómkviðan“ Tónleikakynning kl. 18:00

F

ranski píanistinn Jean-Yves Thibaudet hefur um áratuga skeið verið einn sá fremsti á heimsvísu. Hljóðritanir hans hafa selst í metupplögum og hann hefur haldið tónleika með stjörnulistamönnum á borð við Joshua Bell, Renée Fleming og Ceciliu Bartoli. Árið 2011 frumflutti Thibaudet píanókonsert nr. 3 eftir skoska tónskáldið James MacMillan, litríkt og stórbrotið verk innblásið af aldagömlum kirkjusöng og trúarsiðum kaþólskra. Tónlist MacMillans er sérlega litrík og eftir frumflutninginn skrifaði einn gagnrýnandi að verkið væri „yfirflæðandi af litum og áhugaverðum augnablikum“. Það er sannarlega tilhlökkunarefni að Thibaudet skuli flytja þetta verk á Íslandi og að samverkamaður hans hér sé einmitt Osmo Vänskä, sem einnig stýrði frumflutningnum.

„Hetjuhljómkviða“ Beethovens er eitt af tímamótaverkum tónlistarsögunnar, kynngimagnað verk sem sprengdi öll viðmið um það hvað sinfónía átti að vera. Innblásturinn að verkinu er sagður hafa verið sjálfur Napóleón, en þegar hann tók sér keisaranafnbót dró Beethoven tileinkunina til baka. Tónlistin er þó eftir sem áður innblásin af ímynd hetjunnar, kraftmikil og djörf. Tónleikarnir hefjast á stemningsríku verki Kaiju Saariaho, einu margverðlaunaðasta samtímatónskáldi Norðurlanda. Hér sækir hún innblástur í norrænan vetrarhiminn og viðbrögð gagnrýnenda hafa öll verið á einn veg: „dásamlega fagurt næturljóð með impressjónísku ívafi“ og „einhver áhrifamesta tónlist sem Saariaho hefur samið til þessa.“

MAÍ

MAÍ

FIM

23 19:30


JÚNÍ

JÚN

FIM

06 19:30

Edo de Waart hljómsveitarstjóri Richard Goode einleikari

John Adams Short Ride in a Fast Machine

W.A. Mozart Píanókonsert í C-dúr, K. 503

Johannes Brahms Sinfónía nr. 1 Tónleikakynning kl. 18:00

„E

inhver magnaðasti tónaseiður sem ég hef upplifað lengi,“ sagði gagnrýnandi Fréttablaðsins eftir tónleika bandaríska stórpíanistans Richards Goode í Hörpu vorið 2015. Goode hefur um áratuga skeið verið í hópi fremstu tónlistarmanna Bandaríkjanna. Hann hefur hlotið Grammy-verðlaunin fyrir hljóðritanir sínar og nýverið skrifaði tónlistarrýnir New York Times að tónleikar hans í Carnegie Hall hafi einkennst af „stórbrotinni og djúpri túlkun“. Hér leikur Goode einn af síðustu píanókonsertum Mozarts, saminn árið 1786 þegar tónskáldið stóð á hátindi ferils síns.

Fyrsta sinfónía Brahms hefur stundum verið kölluð „tíunda sinfónía Beethovens“ enda þótti mörgum sem hann hefði með verkinu sannað að hann væri verðugur arftaki hins mikla meistara. Tignarlegt lokastefið á sér samsvörun í Óðnum til gleðinnar eftir Beethoven en þó fer Brahms í öllu sínar eigin leiðir og útkoman er einhver áhrifamesta sinfónía rómantíska skeiðsins. Hollenski hljómsveitarstjórinn Edo de Waart hóf feril sinn sem óbóleikari í hinni virtu Concertgebouw- hljómsveit en hefur um áratuga skeið verið framúrskarandi túlkandi tónlistar frá ýmsum skeiðum sögunnar. Stjórnandaferilinn hóf hann sem aðstoðarmaður Bernsteins hjá New York-fílharmóníunni, en síðan hefur hann gegnt stöðum aðalstjórnanda meðal annars í Minnesota, Sidney og Nýja-Sjálandi.


Í BEINNI Á RÁS EITT

S

aga Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Ríkisútvarpsins er samofin og í áratugi hafa hlustendur Rásar 1 um allt land, og í seinni tíð á netinu um allan heim, getað hlustað á tónleika hljómsveitarinnar í beinni útsendingu á Rás 1. Mikil áhersla er lögð á vandaða dagskrárgerð og eru nær allir tónleikar Sinfóníunnar sendir út.

Á undan útsendingum geta hlustendur Rásar 1 fræðst um tónlistina og listamennina í þættinum Á leið í tónleikasal og í hléi er fræðandi og skemmtileg dagskrá. Hægt er að nálgast upptökur frá tónleikum og Á leið í tónleikasal á ruv.is.

ÖLL TÓNLISTIN Á EINUM STAÐ

S

infóníuhljómsveitin er með sérstaka rás á tónlistarveitunni Spotify. Þar er m.a. að finna lagalista tónleikaraða starfsársins þar sem hægt er að hlusta á sérvaldar upptökur af þeim verkum sem eru á efnisskrá. Hér er um að ræða auðvelda og skemmtilega leið til að undirbúa sig fyrir tónleika eða njóta góðrar tónlistar með úrvals flytjendum. Auk þess geyma

lagalistar Sinfóníunnar skemmtilegar upptökur með einleikurum og hljómsveitarstjórum sem heimsækja hljómsveitina, tónlist fyrir börn, íslenska tónlist fyrir hljómsveit auk tónlistar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur hljóðritað og gefið út. Farðu á Spotify og hlustaðu á sinfóníska tónlist alla daga!

VINAFÉLAG SINFÓNÍUNNAR

V

inafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands er öflugur vettvangur fyrir þá sem láta sig starfsemi hljómsveitarinnar miklu varða. Félagið hefur í gegnum tíðina staðið fyrir tónleikakynningum, fyrirlestrum og málþingum um sígilda tónlist og hefur einnig styrkt fjárhagslega ákveðin verkefni tengd

hljómsveitinni. Starfsemi félagsins hefur mælst afar vel fyrir. Sinfóníuhljómsveit Íslands býður vinum sínum á tónleika Ungsveitar SÍ og eina opna æfingu á starfsárinu. Allir geta orðið meðlimir í Vinafélaginu og hægt er að skrá sig á sinfonia.is eða í miðasölu Hörpu.

Árgjaldið er 3.500 krónur.

TÓNLEIKAKYNNINGAR

V

inafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveitina, býður upp á fimmtán tónleikakynningar í Hörpuhorni á starfsárinu. Hörpuhornið opnar á tónleikadegi kl. 18:00 og gefst gestum tækifæri til að sitja í notalegu umhverfi og kaupa veitingar frá

Smurstöðinni. Sjálf kynningin hefst kl. 18:20 og stendur í hálftíma. Tónleikakynningarnar eru í höndum Árna Heimis Ingólfssonar listræns ráðgjafa hljómsveitarinnar, Sigurðar Ingva Snorrasonar klarínettleikara og Svanhildar Óskarsdóttur rannsóknardósents á Árnastofnun.

Tónleikakynningarnar eru haldnar í Hörpuhorninu á 2. hæð fyrir framan Eldborg.

62


SEP MAR

LAU LAU

15 11:30 BARNASTUNDIR 09 11:30 SINFÓNÍUNNAR

Á

Barnastundum Sinfóníuhljómsveitarinnar er megináhersla lögð á notalegheit og nánd við hljómsveitina þar sem létt og leikandi tónlist er flutt fyrir allra yngstu hlustendurna. Barnastundirnar hafa notið mikilla vinsælda

og eru sannkallaðar gæðastundir og góður upptaktur að ljúfum degi. Dagskráin er u.þ.b. hálftímalöng og er leidd af konsertmeisturum Sinfóníuhljómsveitarinnar.

OPNAR ÆFINGAR

S

infóníuhljómsveitin opnar dyrnar að lokaæfingum á tónleikadegi allra áskriftartónleika í gulri, grænni og rauðri röð á nýju starfsári. Hægt er að kaupa aðgang að æfingunum í miðasölu Hörpu og á vef Sinfóníunnar. Lokaæfingin hefst kl. 9.30 en

aðgangur er takmarkaður við ákveðin sæti í Eldborg. Opnar æfingar eru tilvalið tækifæri til að dýpka upplifun og skilning á tónlistinni sem flutt er síðar á tónleikum um kvöldið.

NÝJAR HLJÓÐRITANIR

S

infóníuhljómsveit Íslands gefur reglulega út hljóðritanir, m.a. á vegum útgáfufyrirtækjanna BIS, Chandos og Sono Luminus. Væntanlegir eru á markað nokkrir diskar með nýjum upptökum hljómsveitarinnar, meðal annars óratorían EDDA II: Líf guðanna eftir Jón Leifs, sinfóníur Charles Gounod undir stjórn Torteliers og nýr diskur með íslenskri samtímatónlist undir stjórn Daníels Bjarnasonar.

Á

starfsárinu 2018/19 mun hljómsveitin hljóðrita tvo diska til útgáfu á heimsmarkaði. Fyrir Chandos-útgáfuna verður tekin upp plata með tveimur frönskum sinfóníum 19. aldar, eftir Georges Bizet og Louise Farrenc. Einnig verður hljóðritaður síðasti diskurinn í þriggja diska röð Sinfóníunnar í samstarfi við bandaríska forlagið Sono Luminus. Á honum verður meðal annars að finna fiðlukonsert Daníels Bjarnasonar, Metacosmos eftir Önnu Þorvaldsdóttur og flautukonsertinn Flutter eftir Þuríði Jónsdóttur.

63


64


ÖFLUGT FRÆÐSLUSTARF Öflugt og fjölþætt fræðslustarf er mikilvægur þáttur í starfsemi Sinfóníuhljómsveitarinnar og hefur verið allt frá stofnun hennar. Fræðslustarfið er í stöðugri framþróun þar sem áhersla er lögð á gæði, fjölbreytileika og samstarf. Skólatónleikar, skólaheimsóknir og leiðsögn nemendahópa er fastur liður í starfsemi hljómsveitarinnar sem einnig starfar að langtímaverkefnum með ungu fólki, bæði einleikurum og hljóðfærahópum. Þróunarverkefni af ýmsum toga eru unnin í samvinnu við skóla og lengra komna nemendur í listnámi. Hljómsveitin leggur ríka áherslu á að vera í góðum tengslum við samfélagið og heimsækir bæði stofnanir og vinnustaði og hefur átt farsælt samstarf við eldri borgara um langt skeið. Í vetur verður boðið upp á ferna glæsilega og lifandi fjölskyldutónleika Litla tónsprotans og hinar vinsælu Barnastundir sem ætlaðar eru yngstu hlustendunum.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um fræðslustarf frá lokum ágústmánaðar á sinfonia.is.

SKÓLATÓNLEIKAR

Á hverju starfsári heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands fjölmarga skólatónleika þar sem nemendum er boðið að hlusta á vandaða dagskrá í tali og tónum. Skólatónleikar hljómsveitarinnar hafa vakið verðskuldaða eftirtekt þar sem tónverk hverra tónleika eru sniðin að ákveðnum aldurshópi.

BÓKANIR Á FRÆÐSLUVIÐBURÐI

Skólar geta bókað fyrir nemendur sína á fræðsluviðburði vetrarins frá lokum ágústmánaðar 2018. Allar upplýsingar um skólatónleika hljómsveitarinnar er að finna á hljómsveitarinnar undir fræðslustarf – www.sinfonia.is/fraedslustarf.

ÞRÓUNARVERKEFNI

Sinfóníuhjómsveit Íslands hefur frá árinu 2014 unnið að þróunarverkefni í samstarfi við skólahljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu. Með samstarfinu undirstrikar Sinfóníuhljómsveitin mikilvægi þess að starfræktar séu öflugar skólahljómsveitir þar sem ungmenni komist í kynni við kraftmikla tónlistariðkun og –uppeldi. Sinfóníuhljómsveitin hóf verkefnið í samstarfi við Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts í maí 2014. Árið 2016 hófst samstarf Sinfóníuhljómsveitarinnar við Skólahljómsveit Kópavogs en fyrir það verkefni veitti Menntaráð Kópavogs, Kópinn, viðurkenningu fyrir framúrskarandi verkefni í skólastarfi. Í apríl 2018 var lagður grunnur að samstarfi við Skólahljómsveit Austurbæjar.

SKÓLA- OG STOFNANAHEIMSÓKNIR

Sinfóníuhljómsveitin leggur sig fram um að sækja skóla, dvalarheimili og spítala heim u.þ.b. einu sinni á starfsári með fjölbreytta og áheyrilega tónlist í farteskinu.

OPNAR ÆFINGAR

Á opnum æfingum er framhaldsskóla- og tónlistarnemum ásamt eldri borgurum boðið að hlýða á valin verk sem oft eru kynnt af hljómsveitarstjóra eða einleikara. Nærvera við hljómsveitina og hljómsveitarstjórann er meiri – öðruvísi upplifun í miðri hljómkviðunni.

EINLEIKARAKEPPNI

Árlega er haldin einleikarakeppni fyrir tónlistarnemendur á háskólastigi í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin fer fram á haustdögum en sigurvegarar keppninnar leika á tónleikunum Ungum einleikurum með Sinfóníuhljómsveitinni í janúar ár hvert.

UNGSVEIT SÍ

Eitt mikilvægasta hlutverk sinfóníuhljómsveita um allan heim er að miðla þekkingu sinni og áhuga til nýrra kynslóða hljóðfæraleikara. Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands heldur sína tíundu tónleika nú í lok september. Hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru virkir í starfsemi Ungsveitarinnar og miðla af reynslu sinni og þekkingu.

LITLI TÓNSPROTINN

Litli tónsprotinn er röð vandaðra og glæsilegra fjölskyldutónleika. Dagskrá tónleikanna miðast við tónleikagesti frá fimm ára aldri. Á Litla tónsprotanum kynnast börn töfraheimi tónlistarinnar á lifandi og skemmtilegan hátt.

FYRIR ÞAU ALLRA YNGSTU Í HÖRPUHORNI

Barnastund Sinfóníuhljómsveitarinnar er ætluð allra yngstu hlustendunum. Í Barnastundinni er flutt tónlist í um það bil 30 mínútur. Tónlistin og lengd Barnastundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Tvær barnastundir verða á starfsárinu. Sérstakur gestur Barnastundarinnar er Maxímús Músíkús. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

65


66


HLJÓÐFÆRALEIKARAR OG STARFSMENN 2018/19 1. FIÐLA

Sigrún Eðvaldsdóttir  1. konsertmeistari Nicola Lolli  1. konsertmeistari Vera Panitch 2. konsertmeistari Una Sveinbjarnardóttir  3. konsertmeistari Andrzej Kleina Bryndís Pálsdóttir Helga Þóra Björgvinsdóttir Hildigunnur Halldórsdóttir Júlíana Elín Kjartansdóttir Laufey Sigurðardóttir Lin Wei Margrét Kristjánsdóttir Olga Björk Ólafsdóttir Pálína Árnadóttir Rósa Hrund Guðmundsdóttir Zbigniew Dubik

2. FIÐLA

Joaquín Páll Palomares NN Christian Diethard Dóra Björgvinsdóttir Greta Guðnadóttir Gunnhildur Daðadóttir Ingrid Karlsdóttir Kristján Matthíasson Margrét Þorsteinsdóttir Ólöf Þorvarðsdóttir Roland Hartwell Sigurlaug Eðvaldsdóttir Þórdís Stross

VÍÓLA

Þórunn Ósk Marinósdóttir Svava Bernharðsdóttir Ásdís Hildur Runólfsdóttir Eyjólfur Alfreðsson Guðrún Hrund Harðardóttir Guðrún Þórarinsdóttir Herdís Anna Jónsdóttir Móeiður Anna Sigurðardóttir Kathryn Harrison Sarah Buckley Þórarinn Már Baldursson

SELLÓ

Sigurgeir Agnarsson Hrafnkell Orri Egilsson Sigurður Bjarki Gunnarsson Bryndís Björgvinsdóttir Bryndís Halla Gylfadóttir Lovísa Fjeldsted Margrét Árnadóttir Ólöf Sesselja Óskarsdóttir Ólöf Sigursveinsdóttir Steiney Sigurðardóttir

BASSI

Hávarður Tryggvason Páll Hannesson Jacek Karwan Jóhannes Georgsson Richard Korn Þórir Jóhannsson

FLAUTA

Hallfríður Ólafsdóttir Áshildur Haraldsdóttir Martial Nardeau

ÓBÓ

STARFSMENN Framkvæmdastjóri Arna Kristín Einarsdóttir Listrænn ráðgjafi Árni Heimir Ingólfsson Tónleikastjóri Anna Sigurbjörnsdóttir Staðartónskáld Anna Þorvaldsdóttir Fræðslustjóri Hjördís Ástráðsdóttir Markaðs- og kynningarstjóri Margrét Ragnarsdóttir

NN Matthías Nardeau Peter Tompkins

Markaðsfulltrúi Jökull Torfason

KLARÍNETT

Arngunnur Árnadóttir Grímur Helgason Rúnar Óskarsson

Mannauðsstjóri Una Eyþórsdóttir Fjármálafulltrúi Margrét Sigurðsson Nótna- og skjalavörður Kristbjörg Clausen

FAGOTT

Michael Kaulartz Brjánn Ingason Bryndís Þórsdóttir

Umsjónarmaður nótna Gísli Magnússon

HORN

Stefán Jón Bernharðsson Asbjørn Ibsen Bruun Emil Friðfinnsson Frank Hammarin Joseph Ognibene

TROMPET

Einar Jónsson Eiríkur Örn Pálsson NN Guðmundur Hafsteinsson

BÁSÚNA

Sigurður Þorbergsson Oddur Björnsson David Bobroff, bassabásúna

TÚBA

Sviðsstjórar Grímur Grímsson Sigþór J. Guðmundsson

VERKEFNAVALSNEFND

Árni Heimir Ingólfsson, formaður Anna Sigurbjörnsdóttir Anna Þorvaldsdóttir Hjördís Ástráðsdóttir Magnús Lyngdal Magnússon Margrét Ragnarsdóttir Michael Kaulartz Steef van Oosterhout Þórunn Ósk Marínósdóttir Sigrún Eðvaldsdóttir, varamaður

STJÓRN

Sigurbjörn Þorkelsson formaður Bryndís Pálsdóttir Friðjón R. Friðjónsson Jens Garðar Helgason Oddný Sturludóttir

Nimrod Ron

HARPA

Katie Buckley

PÍANÓ

Anna Guðný Guðmundsdóttir

Yan Pascal Tortelier aðalhljómsveitarstjóri

PÁKUR

Vladimir Ashkenazy aðalheiðursstjórnandi Osmo Vänskä heiðursstjórnandi og aðalgestastjórnandi

NN

SLAGVERK

Steef van Oosterhout Eggert Pálsson Frank Aarnink

67

Anna Þorvaldsdóttir staðartónskáld Bjarni Frímann Bjarnason aðstoðarhljómsveitarstjóri


MIÐASALA Í HÖRPU

SINFONIA.IS / 528 50 50

TRYGGÐU ÞÉR GOTT SÆTI Á GÓÐU VERÐI ALMENNT MIÐAVERÐ SVÆÐI

ALMENNT VERÐ

LITLI TÓNSPROTINN

1

6.500 kr.

2.900 kr.

1+

7.800 kr.

2.900 kr.

2

5.500 kr.

2.500 kr.

3

4.100 kr.

2.500 kr.

4

2.500 kr.

/

Athugið að almennt miðaverð gildir um flesta áskriftartónleika SÍ en miðaverð er þó mismunandi eftir tónleikum og er að finna á sinfonia.is.

ÁSKRIFTARKORT RAUÐ RÖÐ GUL RÖÐ GRÆN RÖÐ

LITLI TÓNSPROTINN

1

36.400 kr.

36.400 kr.

26.000 kr.

9.280 kr.

1+

43.680 kr.

43.680 kr.

31.200 kr.

9.280 kr.

2

30.800 kr.

30.800 kr.

22.000 kr.

8.000 kr.

3

22.960 kr.

22.960 kr.

16.400 kr.

8.000kr.

SVÆÐI

FÖSTUDAGSRÖÐ Miðaverð:

3.000 kr.

Áskrift:

4.800 kr.

68


ELDBORG SÆTASKIPAN

3. svalir

2. svalir

1. svalir

28 27 26 25 24 23 22 21 20 19 18 17 16 15 14 13 12 11 10 9 8 7 6 5 4

3 2 1

SVIÐ

=

69


MIÐASALA

MIÐASALA Í HÖRPU

SINFONIA.IS / 528 50 50

ÁSKRIFTARKORT

Áskrift veitir þér 20% afslátt af almennu miðaverði. Ef keyptar eru tvær áskriftarraðir, t.d. Gul og Rauð, er veittur 25% heildarafsláttur. Ef keyptar eru þrjár raðir, Gul, Rauð og Græn, er veittur 30% heildarafsláttur. Áskrifendur fá einnig 10% afslátt af viðbótarmiðum á alla tónleika hljómsveitarinnar.

REGNBOGAKORT

Hægt er að kaupa Regnbogakort með fernum tónleikum eða fleiri úr hvaða röð sem er eða utan raða. Regnbogakort veitir 20% afslátt.

AFSLÁTTUR FYRIR 25 ÁRA OG YNGRI

50% afsláttur er af Regnbogakortum í verðsvæði 2 og 3 í Eldborg. Einnig býðst þessum aldurshópi að kaupa miða á tónleika samdægurs á 1.700 kr. gegn framvísun Skólakorts sem nálgast má í miðasölu Hörpu.

HÓPAFSLÁTTUR

Veittur er 10% afsláttur fyrir 25–50 miða en 15% fyrir fleiri en 50 miða.

MIÐASALA

Miðasala í anddyri Hörpu er opin 12–18 alla daga og fram að upphafi tónleika. Miða má kaupa á Netinu á sinfonia.is og harpa.is og í síma 528 50 50.

GJAFAKORT

Gjafakort á tónleika Sinfóniuhljómsveitar Íslands fást í miðasölu Hörpu. Kortin eru í fallegum umbúðum og tilvalin gjöf fyrir tónlistarunnendur.

BÍLASTÆÐI

Í kjallara Hörpu eru gjaldskyld bílastæði. Athugið að bílakjallaranum er lokað á miðnætti en er opnaður kl. 7 að morgni alla virka daga og kl. 10 um helgar. Hægt er að greiða bílastæði fyrir allt tónleikaárið fyrirfram á tónleikadaga að eigin vali.

AÐGENGI FATLAÐRA

Sérstök sæti fyrir hreyfihamlaða eru á aðalgólfi og í stúku á 1. svölum.

SINFÓNÍAN Á NETINU

Við hvetjum alla til að skrá sig á póstlistann á sinfonia.is og fá reglulega sendar fréttir af tónleikum og tilboðum. Einnig er hægt að gerast vinur Sinfóníunnar á Facebook, fylgja okkur á Twitter, Instagram, Youtube og Spotify. @icelandsymphony #sinfó

TÓNLEIKASKRÁR

Tónleikaskrár eru afhentar við innganga í tónleikasal. Tónleikaskrárnar eru birtar á sinfonia.is daginn fyrir tónleika.

70


HUGSAÐU ÚT FYRIR MATSEÐILINN Smart. Geiri Smart. Frábær sælkerastaður í miðbænum. Skapandi eldhús í einstaklega fallegri umgjörð. Engar reglur í matargerðinni, bara alls konar tækifæri sem ferskustu og mest spennandi hráefnin færa kokkunum okkar. Húrra! Húrra! Húrra!

Hverfisgata 30 | 528 7050 | geirismart.is | geiri@geirismart.is


MIÐASALA

72


�

�

Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sigrún Eðvaldsdóttir, 1. konsertmeistari, og systir hennar, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, eru hluti af fiðlusveitinni.

Sigrún: Auðvitað þykir okkur rosalega vænt um fiðluna en þetta er líka stundum svolítið erfitt samband. Hljóðfærið er oft harður húsbóndi. Sigurlaug: Einmitt, en samt er gott samband við góða fiðlu eins og gott ástarsamband, það svarar allt svo vel. Við vitum öll hvað það merkir að stilla saman strengi, en í starfi Sinfóníu­ hljómsveitar Íslands er orðtakið notað í bókstaflegri merkingu og í raun er fátt nauðsynlegra. Fagmennska er leiðarstef í öllu starfi hljómsveitarinnar.

Sigrún Eðvaldsdóttir er ástríðufullur tónlistarmaður sem gefur allt í flutninginn á milli þess sem hún leikur angurvært á fiðluna. Sigrún hefur leikið víða um lönd og náð góðum árangri í alþjóðlegum fiðlukeppnum. Eldri systir Sigrúnar, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, hefur kennt þeirri yngri

allt sem hún kann. Framhaldsnám í fiðlu­

leik stunduðu þær báðar fyrir vestan haf, Sigurlaug í New York við Manhattan School of Music en Sigrún við hinn sögufræga Curtis­tónlistar­ háskóla í Philadelphiu. Fiðlan ber oftar en ekki uppi laglínur tónbókmenntanna, getur fengið hárin til að rísa og á hug þeirra systra allan.

gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf. www.gamma.is 74


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Sinfóníuhljómsveit Íslands | Starfsárið 2018/19 by Sinfóníuhljómsveit Íslands - Issuu