1
SEPTEMBER
Leo Hussain hljómsveitarstjóri
Fiðlukonsert nr. 1
Ingibjörg Guðjónsdóttir einsöngvari
Ludwig van Beethoven
Lilja Guðmundsdóttir einsöngvari Agnes Tanja Þorsteinsdóttir einsöngvari Elmar Gilbertsson einsöngvari Oddur Arnþór Jónsson einsöngvari
Aríur, dúettar og forleikir úr óperum eftir Mozart, Wagner, Verdi, Puccini og fleiri.
25 17:00
UNGSVEITIN LEIKUR TSJAJKOVSKÍJ Eivind Aadland hljómsveitarstjóri Ungsveit SÍ Pjotr Tsjajkovskíj
Sinfónía nr. 5
Daniel Raiskin hljómsveitarstjóri Akiko Suwanai einleikari
SEP
FIM
Anna Þorvaldsdóttir
Aeriality Esa-Pekka Salonen
Fiðlukonsert Juliana Hodkinson
…can modify / in this case / not that it will make any difference…
SEP
FIM
Eldfuglinn, svíta
DESEMBER 01 19:30
AÐVENTUTÓNLEIKAR Elfa Rún Kristinsdóttir einleikari
L’Arlésienne, svítur
Hamrahlíðarkórarnir Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri
NÓVEMBER 03 20:00
BEDROOM COMMUNITY Á AIRWAVES André de Ridder hljómsveitarstjóri Bryndís Halla Gylfadóttir einleikari Daníel Bjarnason
Valgeir Sigurðsson
Struck
Fleiri verk tilkynnt síðar
10 19:30 NÓV
FIM
FÖS
OKT OKT
FIM
OKT
LAU
Tanja Tetzlaff einleikari
Ígor Stravinskíj
Georges Bizet
Mixed Messages
08 14:00
Capriccio
Eivind Aadland hljómsveitarstjóri
Nico Muhly
OKTÓBER
Ígor Stravinskíj
Fagottkonsert
Emergence
TETZLAFF06 19:30 TVÍEYKIÐ SPILAR BRAHMS 07 19:30 Christian Tetzlaff einleikari
W.A. Mozart
Godai – Frumefnin fimm
Dafnis og Klói
Osmo Vänskä hljómsveitarstjóri
Pétur Gautur, svítur
Benjamin Staern
Maurice Ravel
15 19:30
Edvard Grieg
Burleske
BRANTELID LEIKUR DVOŘÁK
FANTASÍA DISNEYS
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Andreas Brantelid einleikari
W.A. Mozart Brúðkaup Fígarós, forleikur J.S. Bach
Fiðlukonsert í E-dúr G.F. Händel
My Heart is Inditing W.A. Mozart
Sinfónía nr. 39
17 14:00 / 16:00 18 14:00 / 16:00 DES
Píanókonsert nr. 3
W.A. Mozart
Brottnámið úr kvennabúrinu, forleikur
Richard Strauss
DES
Sergej Rakhmanínov
Michael Kaulartz einleikari
From Darkness Woven
LAU SUN
Nikolai Lugansky einleikari
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri
NÓV
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri
27 19:30
MOZART OG GRIEG
FIM
NORRÆNIR MÚSÍKDAGAR
LUGANSKY OG TORTELIER
Sinfónía nr 3, Eroica
29 19:30
KLASSÍKIN OKKAR 08 19:30
Magnus Lindberg
SEP
FIM
SEP
FÖS
02 20:00
Haukur Tómasson
Flow and Fusion
DES
Fiðlukonsert
NÓV
Pjotr Tsjajkovskíj
Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari
Þuríður Jónsdóttir
FIM
Rúslan og Lúdmíla, forleikur
FIM
Mikhaíl Glinka
UPPÁHALDS ARÍUR
SEP
Páll Palomares einleikari
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri
Jack Liebeck einleikari
SUN
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
22 19:30
OKT
RÚSSNESK VEISLA
17 19:30
VÍKINGUR OG TORTELIER
FIM
ÁGÚ
LAU
20 17:00
OKT
Pétur og úlfurinn
FIM
Sergei Prokofíev
13 19:30
HETJUHLJÓMKVIÐAN
SEP
Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri
SEP
PÉTUR OG ÚLFURINN
BARNASTUND FIM
ÁGÚ
LAU
20 15:00
LAU
ÁGÚST
17 11:30
JÓLATÓNLEIKAR Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri Trúðurinn Barbara kynnir Eivør Pálsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir og Kolbrún Völkudóttir einsöngvarar Ungir einleikarar, Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Nemendur úr Listdansskóla Íslands, kórar úr Langholtskirkju, Táknmálskórinn Litlu sprotarnir og Skólahljómsveit Kópavogs Hrafnkell Orri Egilsson
Jólaforleikur Leroy Anderson
Sleðaferðin Pjotr Tsjajkovskíj
María Huld Markan Sigfúsdóttir
Blómavalsinn
Aequora
Peter Grönvall
Ted Sperling hljómsveitarstjóri
Antonín Dvorˇák
Dansaðu vindur
Konsert fyrir fiðlu og selló
Walt Disney
Sellókonsert
Sígild jólalög
Carl Nielsen
Fantasía
Jean Sibelius
Páll Ísólfsson
Lýrísk svíta Johannes Brahms
Sinfónía nr. 2, Skapgerðirnar fjórar
Sinfónía nr. 2
Heims um ból, Aðfangadagskvöld, Nóttin var svo ágæt ein o.fl.
02 19:30
STRAVINSKÍJ OG BRITTEN Matthew Halls hljómsveitarstjóri Viviane Hagner einleikari Benjamin Britten
Russian Funeral Benjamin Britten
Fiðlukonsert Ígor Stravinskíj
Atli Heimir Sveinsson
Doloroso
Úlfur Hansson
Arborescence Thomas Adès
Polaris
Píanókonsert nr. 3
11 11:30
BARNASTUND
Edward Elgar
Enigma-tilbrigðin
APRÍL 27 19:30
BRUCH OG BRAHMS Vladimir Ashkenazy hljómsveitarstjóri Boris Belkin einleikari Þorkell Sigurbjörnsson
Mistur Max Bruch
16 19:30
OSMO STJÓRNAR BEETHOVEN
Fiðlukonsert nr. 1 Johannes Brahms
Sinfónía nr. 4
MAÍ
Osmo Vänskä hljómsveitarstjóri Yevgeni Sudbin einleikari Kalevi Aho
06 14:00
Birnirnir þrír
Píanókonsert nr. 23 í A-dúr
MÚMÍNÁLFAR Í SÖNGVAFERÐ
Eivør Pálsdóttir & Helga Arnalds
Ludwig van Beethoven
Erkki Lasonpalo hljómsveitarstjóri
Rósa Jóhannsdóttir kórstjóri
Minea
Eric Coates
W.A. Mozart
Skrímslið litla systir mín
23 19:30
RAKHMANÍNOV OG BEETHOVEN Jun Märkl hljómsveitarstjóri Stephen Hough einleikari Antonín Dvorˇák
Slavneskir dansar op. 46 nr. 1, 2, 7 og 8 Sergej Rakhmanínov
Rapsódía um stef eftir Paganini Ludwig van Beethoven
Sinfónía nr. 4
Sinfónía nr. 7
17 18:00 MAR
Nýtt verk
Ludwig van Beethoven
FÖS
Kristín Þóra Haraldsdóttir
Graduale Futuri kór
FEB
Echo chamber, víólukonsert
Eivør Pálsdóttir söngur
FIM
Haukur Tómasson
Trúðurinn Barbara kynnir og sögumaður
Fiðlukonsert
MAÍ
Þórunn Ósk Marínósdóttir einleikari
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri
Samuel Barber
APR
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
SKRÍMSLIÐ LITLA SYSTIR MÍN
Dolly, svíta
LAU
DANÍEL STJÓRNAR MYRKUM
Píanókonsert nr. 2
MAR
JAN
FIM
26 19:30
18 14:00
Gabriel Fauré
Ludwig van Beethoven
MAR
Sinfónía nr. 6, Pathétique
Ari Eldjárn kynnir og uppistandari
FEB
Pjotr Tsjajkovskíj
Matthew Halls hljómsveitarstjóri
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri
LAU
Klarínettkonsert (D’om le vrai sens)
PÍANÓKONSERTAR BEETHOVENS
FIM
Kaija Saariaho
09 19:30
LAU
Rakastava (Elskhuginn)
FEB
Jean Sibelius
MARS
Sinfónía nr. 96, „Kraftaverkið“
FEB
Kari Kriikku einleikari
James Ehnes einleikari
Sinfónía í þremur þáttum
UPPISTAND! ARI ELDJÁRN OG SINFÓ
ENIGMATILBRIGÐIN Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri
Joseph Haydn
FÖS
Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri
Sinfónía nr. 4
Ígor Stravinskíj
FIM
SAARIAHO OG SIBELIUS
Daughters of the Lonesome Isle
Paul Lewis einleikari
09 19:30 10 19:30
30 19:30
John Cage
Dumbarton Oaks
JAN
FIM
19 19:30
Density 21.5
FIM
Efnisskrá kynnt síðar
Sinfónía nr. 8
Anton Bruckner
MAR
Sigurvegarar úr einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands
Hallfríður Ólafsdóttir einleikari
MAR
Petri Sakari hljómsveitarstjóri
Markus Poschner hljómsveitarstjóri
FIM
UNGIR EINLEIKARAR
Tinna Þorsteinsdóttir einleikari
Ludwig van Beethoven FEB
JAN
FIM
12 19:30
Jun Märkl hljómsveitarstjóri
FIM
FEBRÚAR FIM
Óperettutónlist og valsar eftir Johann Strauss yngri, Franz Lehár og Emmerich Kálman, m.a. úr Leðurblökunni og Kátu ekkjunni
POSCHNER ÞRÍR BYLTINGARMENN STJÓRNAR BRUCKNER
Edgard Varèse
Bror Magnus Tødenes einsöngvari
23 19:30 MAR
Ný verk eftir Finn Karlsson, Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Þráin Hjálmarsson
FIM
Þóra Einarsdóttir einsöngvari
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
24 18:00 FEB
JAN
David Danzmayr hljómsveitarstjóri
YRKJA UPPSKERUTÓNLEIKAR
FÖS
JAN
VÍNARTÓNLEIKAR
JAN
JAN
FIM FÖS LAU
05 19:30 06 19:30 07 16:00 / 19:30
FÖS
JANÚAR
27 12:00
FIÐRILDI OG FINNSKIR SKÓGAR Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Sæunn Þorsteinsdóttir einleikari Kaija Saariaho
Sept Papillons Jean Sibelius
Sinfónía nr. 2
Egill Ólafsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir einsöngvarar Stúlknakór Reykjavíkur Margrét Pálmadóttir kórstjóri Hannele Huovi og Soili Perkiö
Múmínálfar í söngvaferð
MAÍ
FIM
11 19:30
Helena Juntunen einsöngvari Fanny Mendelssohn
Forleikur í C-dúr Hafliði Hallgrímsson
Fimm söngvar fyrir sópran og hljómsveit Jean Sibelius
Sinfónía nr. 6
09 12:00 JÚN
John Storgårds hljómsveitarstjóri
JÚNÍ FÖS
FIMM SÖNGVAR OG SINFÓNÍA
HÁDEGISTÓNLEIKAR MEÐ RUMON GAMBA Ruman Gamba hljómsveitarstjóri Dag Wirén
Divertimento
MIÐASALA Í HÖRPU sinfonia.is 528 50 50 Upplýsingar um verð og sætaskipan er að finna á bls. 48–49
Dag Wirén
Serenaða fyrir strengi Dag Wirén
MAÍ
FÖS
12 18:00
BRAHMS OG BAROKKIÐ Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Schola cantorum kór Hörður Áskelsson kórstjóri
Sinfónía nr. 3
Facebook Instagram Twitter YouTube
Johann Sebastian Bach
Komm, Jesu, komm Johannes Brahms
Sinfónía nr. 4 MAÍ
FIM
18 19:30
@icelandsymphony #sinfó
CARMENFANTASÍA Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Simone Lamsma einleikari Ambroise Thomas
Mignon, forleikur
ÞÚ ÁTT ÞINN SAMA STAÐ MEÐ ÁSKRIFTARKORTI
Claude Debussy
Petite suite Ernest Chausson
Poème Maurice Ravel
Alborada del gracioso Pablo de Sarasate
Carmen-fantasía Pjotr Tsjajkovskíj
Capriccio italien MAÍ
FÖS
26 19:30
IBRAGIMOVA SPILAR BRAHMS Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Alina Ibragimova einleikari Johannes Brahms
Fiðlukonsert Dmítríj Shostakovitsj
Sinfónía nr. 5
Áskrift er besta leiðin til þess að tryggja sér öruggt sæti
SETTU SAMAN ÞÍNA TÓNLEIKARÖÐ MEÐ REGNBOGAKORTINU Með Regnbogakorti getur þú valið þá tónleika sem höfða helst til þín af öllum tónleikum starfsársins og tryggt þér gott sæti með 20–50% afslætti.
3
Arna Kristín Einarsdóttir Framkvæmdastjóri
V
ið lifum á tímum sem skráðir verða í sögubækur, ekki bara Íslandssögunnar heldur mannkynssögunnar. Það er mikilvægt að vera meðvitaður um söguna til að skilja samhengi hlutanna, þróun þeirra og raunverulega þýðingu.
hjá hljómsveitinni við kjöraðstæður hafði mikið að segja um að hinn virti og heimsþekkti stjórnandi Yan Pascal Tortelier gekk til samninga við hljómsveitina. Óhætt er að fullyrða að aldrei hafi jafn alþjóðlega þekktur og virtur tónlistarmaður tekið við stöðu aðalhljómsveitarstjóra hjá hljómsveitinni.
Saga Sinfóníuhljómsveitar Íslands er hrífandi saga. Hljómsveitin var stofnuð 1950, sama ár og Þjóðleikhúsið var vígt – sex árum eftir að Ísland varð lýðveldi. Hið unga, sjálfstæða Ísland vildi vera þjóð meðal þjóða og standa jafnfætis öðrum slíkum með háskóla, Ríkisútvarp, Þjóðleikhús og Sinfóníuhljómsveit. Það er vert að hafa í huga að ekki bjuggu nema 50 þúsund manns í Reykjavík árið 1950.
Eins er það ómetanlegt að Osmo Vänskä, sem nú stendur á hápunkti ferils síns, hafi framlengt samning sinn sem aðalgestastjórnandi til ársins 2020. Varla er hægt að hugsa sér öflugra stjórnendatríó en Tortelier, Vänskä og heiðurstjórnanda okkar, Vladimir Ashkenazy. Það eru góð meðmæli með hljómsveitinni og starfi hennar.
Saga Sinfóníuhljómsveitar Íslands er því samofin sögu lýðveldisins og órjúfanlegur hluti af sjálfsmynd Íslendinga. Það tók nokkra áratugi að tryggja starfseminni öruggan starfsgrundvöll en í dag, 66 árum frá stofnun hennar, blómstrar hljómsveitin í einu fegursta tónlistarhúsi heims.
Starfsárið 2016–2017 býður hljómsveitin enn og aftur upp á glæsilega og fjölbreytta dagskrá. Hér eiga allir tónlistarunnendur að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að geta notið tónlistar sem leikin er af jafn færum hljóðfæraleikurum og skipa Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn virtra hljómsveitarstjóra og einleikara auðgar íslenskt menningarlíf til mikilla muna.
Þegar Harpa opnaði fyrir fimm árum kvað við nýjan tón í íslensku samfélagi. Árin eftir hrun reyndust þjóðinni erfið og ljóst að sjálfsmynd Íslendinga var brotin. Þær Katrín Jakobsdóttir þáverandi mennta-og menningarmálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sýndu mikið hugrekki með því að ákveða að lokið yrði við bygginguna þrátt fyrir botnfrosið efnahagslíf. Það hefur gefið Sinfóníuhljómsveit Íslands aukið vægi að vera hluti af þeirri upprisu samfélagsins sem Harpa er nú orðin tákn fyrir.
En hljómsveitarinnar nýtur ekki bara við í Hörpu. Tónlist hennar má heyra á öldum ljósvakans, í gegnum útsendingar RÚV, í sjónvarpi, á geisladiskum og á netinu. Hljómsveitin sinnir jafnframt gríðarlega öflugu fræðslustarfi með skólatónleikum og þjálfun ungra tónlistar nema, meðal annars í Ungsveit SÍ og í samstarfi við skólahljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess mun hljómsveitin leggja land undir fót og fara í tónleikaferðir. Þannig snertir hljómsveitin hug og hjörtu fólks um land allt, beint og óbeint, og teygir anga sína vítt og breitt um samfélagið. Sinfóníuhljómsveit Íslands er hljómsveit allra landsmanna – hún er hljómsveitin þín.
Strax eftir að hljómsveitin flutti í Hörpu jókst áskriftarsala margfalt og gestum hljómsveitarinnar fjölgaði. Síðustu misseri hafa verið sett aðsóknarmet og uppselt á tónleika hvað eftir annað. Eldborgarsalurinn reynist líka aðdráttarafl fyrir erlenda listamenn sem nú sækjast eftir því að vinna með hljómsveitinni. Sá nýi tónn sem er að myndast 7
Árni Heimir Ingólfsson Listrænn ráðgjafi
S
infóníuhljómsveit Íslands sinnir margvíslegum skyldum við fjölbreyttan hóp áheyrenda. Hún er vettvangur fyrir lifandi flutning sígildra meistaraverka sem jafnvel teljast meðal mestu afreka mannsandans. Að þessu leyti er sinfóníuhljómsveit síkvikt listasafn, hún miðlar áfram til nýrra kynslóða því sem upp úr stendur í tónmenningu liðinna alda. En Sinfóníuhljómsveit Íslands sinnir margs konar skyldum við samtímann: hún leggur rækt við nýsköpun, heldur úti fjölbreyttu barnastarfi, starfrækir Ungsveit og laðar til sín nýja tónleikagesti. Því er fjölbreytnin mikil þegar kemur að verkefnavalinu og starfsárið 2016–17 er engin undantekning hvað þetta varðar.
Það er sérstakt ánægjuefni að mikið er um norræna listamenn á efnisskrá vetrarins. Hljómsveitin leggur Norrænum músíkdögum lið í september, þar sem hljóma nokkur af áhugaverðustu verkum Norðurlanda á síðustu árum. Í vetur munu hljóma í Eldborg verk eftir fjögur af fremstu samtímatónskáldum Finnlands: Esa-Pekka Salonen, Kaiju Saariaho, Kalevi Aho og Magnus Lindberg. Einnig munu tveir heimsþekktir norrænir einleikarar koma fram í fyrsta sinn á Íslandi, Andreas Brantelid og Kari Kriikku. Þá hljóma sinfóníur eftir meistarana Nielsen og Sibelius, í túlkun finnskra hljómsveitarstjóra. Starfsárinu lýkur svo með hljóðritun á verkum sænska tónskáldsins Dag Wirén fyrir Chandos-forlagið.
Ótal framúrskarandi listamenn munu heimsækja Ísland í vetur til þess að leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Píanósnillingarnir Nikolai Lugansky og Stephen Hough leika tvö af frægustu verkum Rakhmanínovs; Paul Lewis opnar nýjan „Beethoven-hring“ þar sem fluttir verða allir píanókonsertar Beethovens á þrennum tónleikum. Meðal fiðlusnillinga sem stíga á svið með hljómsveitinni má nefna Christian Tetzlaff, Viviane Hagner, James Ehnes og Alinu Ibragimovu. Fiðlukonsertar eru sérlega áberandi á efnisskrá Sinfóníuhljómsveitarinnar í vetur og má líta á það sem virðingarvott við einn af dyggustu liðsmönnum hennar fyrstu áratugina, Björn Ólafsson konsertmeistara, en í febrúar 2017 verður öld liðin frá fæðingu hans.
Íslenskir einleikarar og einsöngvarar prýða einnig dagskrá hljómsveitarinnar. Víkingur Heiðar leikur tvo konserta á sömu tónleikunum í nóvember og Elfa Rún Kristinsdóttir leikur Bach á aðventutónleikum. Fimm söngvarar koma fram á óperuveislu Sinfóníunnar í september. Íslenskri tónlist er sömuleiðis gert hátt undir höfði. Ný verk hljóma eftir Hafliða Hallgrímsson, Hauk Tómasson, Kristínu Þóru Haraldsdóttur og Valgeir Sigurðsson, auk þess sem eldri verk frá ýmsum skeiðum heyrast á nýjan leik, eftir Pál Ísólfsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Atla Heimi Sveinsson, Önnu Þorvaldsdóttur, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Þuríði Jónsdóttur. Það verður blásið verður til sinfónískrar veislu í Hörpu svo að segja í hverri viku á komandi starfsári. Tónleikagestir mega eiga von á stórkostlegri upplifun, og við hlökkum til að sjá ykkur sem oftast. 8
Yan Pascal Tortelier Aðalhljómsveitarstjóri
Í
september tekur franski stjórnandinn Yan Pascal Tortelier við stöðu aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann er meðal þekktustu stjórnenda í heimalandi sínu og nýtur virðingar um allan heim fyrir tónleika sína og hljóðritanir. Tortelier er fæddur árið 1947 og faðir hans var Paul Tortelier, einn dáðasti sellóleikari heims á síðari hluta 20. aldar. Yan Pascal vann ýmis verðlaun fyrir fiðluleik á unglingsárum en sneri sér í auknum mæli að hljómsveitarstjórn. Hann hefur gegnt stöðu aðalstjórnanda og aðalgestastjórnanda meðal annars við BBC Fílharmóníuhljómsveitina í Manchester, Sinfóníuhljómsveitina í Pittsburgh og Sinfóníuhljómsveitina í São Paulo.
Þá hefur hann hljóðritað tugi hljómdiska, aðallega fyrir Chandos-útgáfuna sem einmitt hefur gefið út fjölmarga diska með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Samningur Torteliers við SÍ nær til þriggja ára og mun hann stjórna tónlist af ýmsum toga, nýrri og gamalli. Þó verður tónlist frá heimalandinu áberandi á efnisskrám hans eins og sjá má af verkefnavalinu í vetur, þar sem meðal annars er að finna tónverk eftir frönsku meistarana Debussy, Ravel, Fauré og Chausson. Sinfóníuhljómsveit Íslands býður Yan Pascal Tortelier hjartanlega velkominn til landsins og hlakkar til ógleymanlegra samverustunda í Eldborg næstu ár.
9
ÁSKRIFTARKORT
ÞÚ ÁTT ÞINN SAMA STAÐ Áskrift er besta leiðin til þess að tryggja sér öruggt sæti og gott verð FIMM FJÖLBREYTTAR TÓNLEIKARAÐIR
Afbragðskostur fyrir þá sem vilja heyra fjölbreytilega klassíska tónlist.
Fyrir þá sem vilja hlusta á stóra sinfóníuhljómsveit leika kröftuga og áhrifamikla tónlist.
15. SEP
08. SEP
TETZLAFF-TVÍEYKIÐ SPILAR BRAHMS
LUGANSKY OG TORTELIER
GRÆNA RÖÐIN Fyrir þá sem hafa gaman af vinsælli klassík af léttara taginu. 22. SEP
UPPÁHALDSSARÍUR
FÖSTUDAGS RÖÐIN
LAU
RAUÐA RÖÐIN
FÖS
FIM
FIM
FIM/FÖS
GULA RÖÐIN
Daníel Bjarnason teflir saman hljómsveitarverki og einleiksverki á klukkustundarlöngum tónleikum í Norðurljósum.
LITLI TÓNSPROTINN Áskrift að skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem yngstu tónlistarunnendurnir kynnast töfrum tónlistarinnar.
27. OKT
24. FEB
08. OKT
MOZART OG GRIEG
ÞRÍR BYLTINGARMENN
FANTASÍA DISNEYS
17. NÓV
13. OKT
VÍKINGUR OG TORTELIER
HETJUHLJÓMKVIÐAN
05. JAN
17. MAR
17. DES
10. NÓV
VÍNARTÓNLEIKAR
BRANTELID LEIKUR DVOŘÁK
FIÐRILDI OG FINNSKIR SKÓGAR
JÓLATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR
16. MAR
12. MAÍ
18. FEB
BRAHMS OG BAROKKIÐ
SKRÍMSLIÐ LITLA SYSTIR MÍN
02. FEB
STRAVINSKÍJ OG BRITTEN 09. MAR
PÍANÓKONSERTAR BEETHOVENS 30. MAR
19. JAN
SAARIAHO OG SIBELIUS
OSMO STJÓRNAR BEETHOVEN 18. MAÍ
CARMEN-FANTASÍA
23. FEB
ENIGMA-TILBRIGÐIN
RAKHMANÍNOV OG BEETHOVEN
11. MAÍ
23. MAR
FIMM SÖNGVAR OG SINFÓNÍA
POSCHNER STJÓRNAR BRUCKNER
26. MAÍ
27. APR
IBRAGIMOVA SPILAR BRAHMS
BRUCH OG BRAHMS
Áskrifandi bíður ekki í röð í miðasölu fyrir tónleika, hann gengur alltaf að sæti sínu vísu og á forkaupsrétt á því sæti þegar áskrift er endurnýjuð.
Áskrift veitir 20% afslátt af miðaverði. Upplýsingar um verð og sætaskipan í Eldborg er að finna á bls. 48. 10
06. MAÍ
MÚMÍNÁLFAR Í SÖNGVAFERÐ
Áskrifendur fá 10% afslátt af viðbótarmiðum á alla tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
11
REGNBOGAKORT
SETTU SAMAN ÞÍNA TÓNLEIKARÖÐ Með Regnbogakorti getur þú valið þá tónleika sem höfða helst til þín
TRYGGÐU ÞÉR GOTT SÆTI MEÐ GÓÐUM AFSLÆTTI Með Regnbogakorti getur þú valið þá tónleika sem höfða helst til þín af öllum tónleikum starfsársins og tryggt þér gott sæti með 20% afslætti. Hægt er að kaupa Regnbogakort með í það minnsta fernum tónleikum eða fleiri, eftir því sem best hentar.
TVEIR FRÁBÆRIR KOSTIR FYRIR UNGT FÓLK OG NÁMSMENN REGNB0GAKORT
SKÓLAKORTIÐ
Ungu fólki, 25 ára og yngra, gefst tækifæri á að kaupa Regnbogakort með 50% afslætti á verðsvæði 2 og 3 í Eldborg. Regnbogakortið er góður kostur fyrir þá sem vilja tryggja sér öruggt sæti á uppáhalds tónleikana sína á góðu verði. Hægt er að velja úr öllum tónleikum starfsársins og tryggja sér helmingsafslátt.
Nú býður Sinfóníuhljómsveitin námsmönnum yngri en 25 ára nýjan möguleika til að njóta sinfóníutónleika, Skólakortið. Eftir að hafa sótt Skólakortið í miðasölu Hörpu geta handhafar þess keypt miða á tónleikadegi á almenna tónleika Sinfóníunar á 1.700 kr. Hægt er að kaupa miða hvar sem er í salnum á þessu verði, allt eftir því hvað er laust.
Öruggt sæti á hálfvirði
Gott sæti á góðu verði – á síðustu stundu
Miðasala í Hörpu
sinfonia.is / 528 50 50 12
NOKKRAR TILLÖGUR AÐ REGNBOGAKORTI STÓRBROTIÐ OG SPENNANDI
SÓLISTAR Í FREMSTU RÖÐ
LÉTT OG SKEMMTILEGT
NORRÆNA RÖÐIN
Ómissandi á Regnbogakort þeirra sem vilja stórbrotna og kröftuga sinfóníutónleika:
Enginn verður svikinn af því að setja þessa snillinga á Regnbogakortið sitt:
Einmitt það sem þarf með á Regnbogakortið til að auka á fjölbreytileikann:
Norræn tónlist og einleikarar í fremstu röð:
08. SEP
08. SEP
02. SEP
LUGANSKY OG TORTELIER
NIKOLAI LUGANSKY
KLASSÍKIN OKKAR
29. SEP
13. OKT
15. SEP
HETJUHLJÓMKVIÐAN
CHRISTIAN OG TANJA TETZLAFF
10. NÓV
22. SEP
NORRÆNIR MÚSÍKDAGAR 13. OKT
MAGNUS LINDBERG
UPPÁHALDS ARÍUR
10. NÓV
27. OKT
27. OKT
ANDREAS BRANTELID
BRANTELID LEIKUR DVOŘÁK
MICHAEL KAULARTZ
MOZART OG GRIEG
19. JAN
02. FEB
17. NÓV
01. DES
SAARIAHO OG SIBELIUS
STRAVINSKÍJ OG BRITTEN
VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON
AÐVENTUTÓNLEIKAR
26. JAN
05.–07. JAN
23. MAR
02. FEB
DANÍEL STJÓRNAR MYRKUM
VIVIANE HAGNER
VÍNARTÓNLEIKAR
16. MAR
23. FEB
09.–10. FEB
30. MAR
STEPHEN HOUGH
ENIGMATILBRIGÐIN
09. MAR
UPPISTAND! ARI ELDJÁRN OG SINFÓ
POSCHNER STJÓRNAR BRUCKNER
27. APR
BRUCH OG BRAHMS 26. MAÍ
IBRAGIMOVA SPILAR BRAHMS
PAUL LEWIS
18. MAÍ
30. MAR
CARMENFANTASÍA
JAMES EHNES 26. MAÍ
ALINA IBRAGIMOVA
13
KALEVI AHO 11. MAÍ
FIMM SÖNGVAR OG SINFÓNÍA
ÁGÚST
Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands á tvenna tónleika. Ókeypis er á tónleikana og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
20 17:00 ÁGÚ
LAU
ÁGÚ
LAU
20 15:00
PÉTUR OG ÚLFURINN
RÚSSNESK VEISLA
Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri
Sergei Prokofíev
Páll Palomares einleikari
Pétur og úlfurinn
Mikhaíl Glinka
Rúslan og Lúdmíla, forleikur Pjotr Tsjajkovskíj
Fiðlukonsert
Á
tónleikum kl. 15 er höfðað til yngri kynslóðarinnar með ævintýrinu sívinsæla um Pétur og úlfinn eftir Sergei Prokofíev. Sögunni fylgir bráðskemmtileg teiknimynd eftir Suzie Templeton sem hlaut Óskarsverðlaunin 2008 og sem gagnrýnandi Classic FM-tímaritsins kallaði „lítið meistaraverk“. Bjarni Frímann Bjarnason stýrir hér hljómsveitinni í fyrsta sinn, en hann hefur hlotið mikið lof fyrir tónlistargáfur sínar og var meðal annars útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum í vor. Tónleikarnir eru um það bil hálftími að lengd.
Á
seinni tónleikunum verður einnig leikin tónlist eftir rússneska meistara: forleikurinn að Rúslan og Lúdmílu eftir Glinka og fiðlukonsert Tsjajkovskíjs. Þar fer með einleikshlutverkið íslensk-spænski fiðluleikarinn Páll Palomares, sem hefur unnið til verðlauna í fjölda alþjóðlegra keppna undanfarin misseri.
14
ÁGÚST / SEPTEMBER
SEP
FÖS
02 20:00
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
Hvert er uppáhalds klassíska tónverkið þitt? Er það Bolero eftir Ravel eða Árstíðirnar fjórar eftir Vivaldi? Er það píanókonsert eftir Mozart eða sinfónía eftir Beethoven? RÚV í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Íslands efnir til netkosningar þar sem allir landsmenn geta valið eftirlætis tónverkið sitt. Þau verk sem flest atkvæði hljóta í kosningunni verða svo flutt á sérstökum hátíðartónleikum í Eldborg sem um leið er upptaktur að glæsilegu starfsári Sinfóníuhljómsveitarinnar.
15
Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason, en Víkingur Heiðar Ólafsson og Sigrún Eðvaldsdóttir verða einnig til taks ef á þarf að halda. Ekkert er þó hægt að fullyrða um úrslitin enn, því að efnisskráin er alfarið í höndum þjóðarinnar. Netkosningin stendur til 30. júní og er slóðin www.ruv.is/klassikin.
SEPTEMBER
SEP
FIM
08 19:30
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Nikolai Lugansky einleikari Sergej Rakhmanínov
Píanókonsert nr. 3 Maurice Ravel
Dafnis og Klói Tónleikakynning kl. 18:00
Y
an Pascal Tortelier býður upp á sérlega litríka og glæsilega efnisskrá á fyrstu tónleikum sínum sem aðalhljómsveitarstjóri SÍ. Þriðji píanókonsert Rachmanínovs er einn sá kröfuharðasti sem saminn hefur verið, enda sérsniðinn að risavöxnum höndum tónskáldsins. Með kvikmyndinni Shine, þar sem glíma ástralska píanistans David Helfgott við þann þriðja var í forgrunni, komst konsertinn í hóp vinsælustu tónverka fyrr og síðar. Rússneski píanistinn Nikolai Lugansky er svo sannarlega vandanum vaxinn. Hann hreppti silfurverðlaun í Tsjajkovskíj-keppninni í Moskvu 16
árið 1994 og skaust upp á stjörnuhimininn í kjölfarið; hann hefur komið fram í öllum helstu tónleikasölum heims auk þess sem hann leikur kammertónlist með stórstjörnum á borð við Önnu Netrebko og Joshua Bell. Viðamesta meistaraverk Ravels er tónlist hans við ballettinn um elskendurna Dafnis og Klói, sem standa frammi fyrir óvæntum vanda þegar Klói er rænt af sjóræningjum. Á þessum tónleikum stjórnar Tortelier eftirlætisþáttum sínum úr ballettinum svo úr verður fjölbreytt og heillandi frásögn í tónum.
Í fyrri Barnastund vetrarins má meðal annars heyra danstónlist af ýmsum toga frá ólíkum menningarsvæðum ásamt úrvali léttra og skemmtilegra laga.
Christian Tetzlaff einleikari Tanja Tetzlaff einleikari Páll Ísólfsson
Lýrísk svíta Johannes Brahms
Konsert fyrir fiðlu og selló Carl Nielsen
Sinfónía nr. 2, Skapgerðirnar fjórar Tónleikakynning kl. 18:00
S
B
ystkinin Christian og Tanja Tetzlaff eru meðal fremstu tónlistarmanna Þýskalands. Þau hafa áður leikið hvort í sínu lagi með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess sem þau komu fram á Listahátíð í Reykjavík ásamt píanistanum Leif Ove Andsnes. Nú snúa þau aftur með tilfinningaþrunginn tvíkonsert Brahms í farteskinu, síðasta hljómsveitarverk meistarans. Lýrísk svíta eftir Pál Ísólfsson heyrist furðu sjaldan, en hún er í ljúfum og áheyrilegum stíl og jafnast á við það besta sem hann lét frá sér.
arnastundir Sinfóníuhljómsveitarinnar hafa notið mikilla vinsælda. Tónlistin og lengd stundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Leiðarar á Barnastundum SÍ eru konsertmeistararnir Sigrún Eðvaldsdóttir og Nicola Lolli en kynnir er Hjördís Ástráðsdóttir, fræðslustjóri hljómsveitarinnar. Sérstakur gestur er Maxímús Músíkús. Barnastundin er 30 mínútur og fer fram í Hörpuhorni á 2. hæð, framan við Eldborg. Gott er að taka með sér púða til að sitja á.
Carl Nielsen var eitt mesta sinfóníutónskáld Norðurlanda og meðal tímamótaverka á ferli hans var sinfónían nr. 2, sem var flutt af sjálfri Berlínarfílharmóníunni skömmu eftir frumflutninginn árið 1901. Kenningin um skapgerðirnar fjórar, sem liggur til grundvallar verkinu, nær aftur til gríska heimspekingsins Hippókratesar og er á þá leið að í hverjum einstaklingi sé ein skapgerð meira eða minna ráðandi: glaðlyndi, bráðlyndi, dauflyndi eða melankólía. Osmo Vänskä hefur sýnt snilldartilþrif í starfi sínu með SÍ undanfarin misseri og þykir frábær túlkandi Nielsens, svo að þessir tónleikar ættu ekki að láta neinn ósnortinn.
17
SEPTEMBER
Osmo Vänskä hljómsveitarstjóri
17 11:30 SEP
LAU
SEP
FIM
15 19:30
SEMTEMBER
25 17:00 SEP
SUN
SEP
FIM
22 19:30
Ingibjörg Guðjónsdóttir einsöngvari
Eivind Aadland hljómsveitarstjóri Ungsveit SÍ
Lilja Guðmundsdóttir einsöngvari
Pjotr Tsjajkovskíj
Agnes Tanja Þorsteinsdóttir einsöngvari
Sinfónía nr. 5
Leo Hussain hljómsveitarstjóri
Elmar Gilbertsson einsöngvari Oddur Arnþór Jónsson einsöngvari
Aríur, dúettar og forleikir úr óperum eftir Mozart, Wagner, Verdi, Puccini og fleiri. Tónleikakynning kl. 18:00
S
E
infóníuhljómsveit Íslands býður til óperuveislu þar sem heimskunnar aríur, dúettar og tríó hljóma ásamt vinsælum óperuforleikjum. Meðal þess sem hér hljómar eru dúettinn úr Perluköfurum Bizets, aríur úr Tannhäuser og Madama Butterfly, bátssöngurinn úr Ævintýrum Hoffmanns og kvartettinn frægi úr Rigoletto.
itt mikilvægasta hlutverk sinfóníuhljómsveita um allan heim er að miðla þekkingu sinni og áhuga til nýrra kynslóða hljóðfæraleikara. Frá árinu 2009 hafa tæplega hundrað ungmenni úr tónlistarskólum landsins safnast saman árlega undir merkjum Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og náð undraverðum árangri. Nú stjórnar Eivind Aadland hljómsveitinni öðru sinni, en hann hefur fyrir löngu áunnið sér gott orð hér á landi með innblásinni túlkun og listfengi í starfi sínu með SÍ.
Einsöngvarar eru allir í fremstu röð íslenskra söngvara. Ingibjörg Guðjónsdóttir hefur hrifið landsmenn með tilfinninganæmum söng sínum um árabil. Elmar Gilbertsson og Oddur Jónsson eru meðal hæfileikaríkustu karlsöngvara af yngri kynslóðinni og starfa mikið erlendis um þessar mundir. Lilja Guðmundsdóttir hefur sungið við góðan orðstír bæði hér heima og í Vínarborg, og þar stundar einnig nám Agnes Tanja Þorsteinsdóttir sem vakið hefur mikla athygli fyrir sönghæfileika sína á undanförnum árum.
Fimmta sinfónía Tsjajkovskíjs er ein af hinum glæsilegu hljómsveitarverkum rússneska meistarans, magnþrungin útfærsla á „örlagastefi“ sem leiðir að lokum til sigurs. Þetta eru tónleikar sem áhugafólk um framtíð tónlistarlífs á Íslandi má ekki láta fram hjá sér fara. Ungsveitin er hluti af metnaðarfullu fræðslustarfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Leo Hussain er aðalstjórnandi við óperuna í Rúðuborg og hefur stjórnað við mörg af frægustu óperuhúsum heims, til dæmis Covent Garden, Glyndebourne og Staatsoper í Berlín. Hann stýrði frábærum Mozart-tónleikum með SÍ fyrir tveimur árum og hlaut þegar í stað boð um að snúa aftur á sviðið í Eldborg.
18
SEPTEMBER
SEP
FIM
29 19:30
Daniel Raiskin hljómsveitarstjóri Akiko Suwanai einleikari
N
orrænir músíkdagar eru haldnir á Íslandi 29. september til 1. október og hefjast með glæsilegum hljómsveitartónleikum þar sem fjögur nýleg úrvalsverk hljóma. Fiðlukonsert Esa-Pekka Salonen frá árinu 2009 er eitt af lykilverkum þessa finnska tónsnillings. Alex Ross, gagnrýnandi The New Yorker, sagði að þetta væri „ein áhrifaríkasta tónsmíð seinni ára“ enda hlaut Salonen hin virtu Grawemeyer-verðlaun fyrir verkið. Anna Þorvaldsdóttir er löngu komin í röð fremstu tónskálda samtímans og nú í ár er hún staðartónskáld Fílharmóníuhljómsveitarinnar í New York. Verk hennar var samið fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og það er meðal annars að finna á hljómdiski hennar sem kom út hjá Deutsche Grammophon og vakti mikla hrifningu.
Anna Þorvaldsdóttir
Aeriality Esa-Pekka Salonen
Fiðlukonsert Juliana Hodkinson
…can modify / in this case / not that it will make any difference… Benjamin Staern Godai
Hin danska Juliana Hodkinson hlaut Carl Nielsen-verðlaunin árið 2015 fyrir tónlist sína sem nýtir sér hina ýmsu miðla á áhugaverðan og hrífandi hátt. Eitt nýjasta verk hennar hljómar hér, eins konar smákonsert fyrir rafgítar og hljómsveit. Benjamin Staern smíðar stórt og tilþrifamikið hljómsveitarverk sitt út frá hugmyndum búddista um frumefnin fimm: vatn, loft, eld, jörð og tómið.
Frumefnin fimm
Þýski hljómsveitarstjórinn Daniel Raiskin hefur vakið mikla athygli fyrir kröftugan og vel útfærðan flutning. Hann er nú aðalstjórnandi Rínarfílharmóníunnar í Koblenz og stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn í janúar 2016; árangurinn þótti svo afburðagóður að honum var boðið að koma aftur við fyrsta tækifæri.
19
OKTÓBER
FÖS
OKT OKT
FIM
OKT
LAU
06 19:30 07 19:30 08 14:00
Ted Sperling hljómsveitarstjóri Walt Disney
Fantasía
F
áar teiknimyndir hafa vakið jafn almenna aðdáun og Fantasía Disneys. Myndin markaði tímamót þegar hún kom fyrst út árið 1940 þar sem sígildri tónlist og teiknimyndum var blandað saman á eftirminnilegan hátt. Nú gefst aðdáendum klassískra teiknimynda tækifæri til að koma á glæsilega bíótónleika í hæsta gæðaflokki með Sinfóníuhljómsveit Íslands þar sem tónlist við upprunagerð Fantasíu og Fantasíu 2000 er leikin með heillandi myndefni.
Hér er hvert atriðið öðru eftirminnilegra: Mikki mús reynir fyrir sér við töfrabrögð við tóna úr Lærisveini galdrameistarans eftir Dukas; fígúrur úr klassískri goðafræði dansa við Sveitasinfóníu Beethovens, fílar og flóðhestar dansa fimlega við Stundadans Ponchiellis, hnúfubakar fljúga við tóna úr Furum Rómaborgar eftir Respighi. Hljómsveitarstjóri kvikmyndatónleikanna er bandaríski Broadway-jöfurinn Ted Sperling sem hefur starfað í heimi söngleikjanna með afburðaárangri í yfir þrjátíu ár.
20 ©DISNEY
MOZART OG GRIEG
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Jack Liebeck einleikari
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri
Þuríður Jónsdóttir
Michael Kaulartz einleikari
Flow and Fusion
W.A. Mozart
Magnus Lindberg
Brottnámið úr kvennabúrinu, forleikur
Fiðlukonsert nr. 1
Edvard Grieg
Ludwig van Beethoven
Pétur Gautur, svítur
Sinfónía nr. 3, Eroica
W.A. Mozart
Tónleikakynning kl. 18:00
Fagottkonsert Georges Bizet
L’Arlésienne, svítur Tónleikakynning kl. 18:00
H
M
Magnus Lindberg er eitt frægasta tónskáld Norðurlanda um þessar mundir. Hann hefur gegnt stöðu staðartónskálds við Fílharmóníuhljómsveitirnar í Lundúnum og New York, og hefur hlotið Tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs. Fiðlukonsert hans frá árinu 2006 er glæsilegt verk þar sem gamall og nýr tími mætast; gagnrýnandi New York Times sagði um verkið að það væri „fullt af fegurð og spennu“.
Að öðru leyti er leikhústónlist allsráðandi á þessari efnisskrá sem Yan Pascal Tortelier, nýráðinn aðalstjórnandi SÍ, setti saman. Sprækur forleikurinn að „tyrkneskri“ óperu Mozarts um Brottnámið úr kvennabúrinu gefur tóninn, en því næst hljóma þættir úr hinni sívinsælu leikhústónlist Griegs við Pétur Gaut eftir Henrik Ibsen, meðal annars Söngur Sólveigar, Morgunstemning og Í höll Dofrakonungs.
Breski fiðluleikarinn Jack Liebeck hefur náð langt þrátt fyrir ungan aldur; hann hefur hlotið einróma lof fyrir hljómdiska sína hjá Sony Classical, og á milli þess sem hann ferðast heimshorna á milli til að halda tónleika er hann prófessor í fiðluleik við Royal Academy of Music. Daníel Bjarnason er staðarlistamaður SÍ og nýtur sífellt aukinnar virðingar hér heima og erlendis fyrir tónsmíðar sínar og hljómsveitarstjórn.
Ekki síðri er sviðsmúsík Bizets við leikritið Stúlkan frá Arles, sem sett var á svið í París árið 1872, þremur árum áður en óperan Carmen var frumsýnd. Leikritið þótti takast illa og fór af fjölunum eftir aðeins 21 sýningu. Bizet brá á það ráð að safna bestu tónlistarþáttunum saman í svítur sem náðu miklum vinsældum, svo að nafn tónskáldsins var á hvers manns vörum í Parísarborg.
ichael Kaulartz er nýráðinn 1. fagottleikari SÍ og hefur hann vakið mikla aðdáun tónleikagesta fyrir safaríkan tón og tjáningarríka túlkun. Nú gefst kostur á að heyra þennan þýska fagottsnilling í hlutverki einleikarans, í ljúfum og innblásnum konserti sem Mozart samdi aðeins 18 ára gamall og var hans fyrsti konsert fyrir blásturshljóðfæri.
etjuhljómkviða Beethovens er eitt af tímamótaverkum tónlistarsögunnar, kynngimagnað verk sem sprengdi öll viðmið um það hvað sinfónía átti að vera. Innblásturinn að verkinu er sagður hafa verið sjálfur Napóleón, en þegar hann tók sér keisaranafnbót dró Beethoven tileinkunina til baka. Tónlistin er þó eftir sem áður innblásin af ímynd hetjunnar, kraftmikil og djörf.
21
OKTÓBER
HETJUHLJÓMKVIÐAN
27 19:30 OKT
FIM
OKT
FIM
13 19:30
NÓVEMBER
10 19:30 NÓV
FIM
NÓV
FIM
03 20:00
BRANTELID LEIKUR DVOŘÁK
BEDROOM COMMUNITY Á AIRWAVES
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Andreas Brantelid einleikari
André de Ridder hljómsveitarstjóri
María Huld Markan Sigfúsdóttir
Bryndís Halla Gylfadóttir einleikari
Aequora
Daníel Bjarnason
Antonín Dvorˇák
Emergence
Sellókonsert
Nico Muhly
Jean Sibelius
Mixed Messages
Sinfónía nr. 2
Valgeir Sigurðsson
Struck Fleiri verk tilkynnt síðar
Á
H
inn sænsk-danski Andreas Brantelid er ekki nema 29 ára en hefur þó verið meðal eftirsóttustu sellóleikara Norðurlanda í áratug. Hann sigraði í Júróvisjón-keppni ungra einleikara árið 2006 og hlaut menningarverðlaun dönsku krónprinshjónanna árið 2009. Hann leikur á Stradivarius-selló frá árinu 1707 og innlifuð spilamennska hans á einkar vel við sellókonsert Dvořáks. Konsertinn er eitt vinsælasta verk sinnar gerðar, sneisafullt af eftirminnilegum stefjum.
rið 2006 stofnaði Valgeir Sigurðsson útgáfuforlagið Bedroom Community í samvinnu við bandaríska tónskáldið Nico Muhly og hinn ástralska Ben Frost, og skömmu síðar bættist Daníel Bjarnason í hópinn. Undir merkjum útgáfunnar hafa komið út tugir geisladiska með áhugaverðri tónlist sem spannar hinar ýmsu greinar listarinnar. Á þessum tónleikum heyrast hljómsveitarverk þeirra Bedroom Community-meðlima í bland við flutning annarra tónlistarmanna sem útgáfa hefur á sínum snærum, og sem koma oft fram saman undir merkinu „Whale Watching Tour“. Má þar nefna Ben Frost, bandaríska söngvaskáldið Sam Amidon og víólusnillinginn Nadiu Sirota sem bæði hefur starfað með Arcade Fire og Jónsa í Sigur Rós.
Aequora eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur var frumflutt á Tectonics-hátíðinni nú í vor við mikla hrifningu viðstaddra. Latneska heitið merkir slétt yfirborð og hljómur orðsins sjálfs er eins konar útgangspunktur fyrir verkið.
Bandaríkjamaðurinn Nico Muhly er eitt áhugaverðasta tónskáld sinnar kynslóðar og verk hans hafa vakið feiknamikla athygli og jafnvel ratað á svið Metropolitan-óperunnar í New York. Mixed Messages var frumflutt af Philadelphia-hljómsveitinni 2015 og hlaut frábæra dóma, gagnrýnandi The Guardian sagði að það væri „einhvers staðar mitt á milli Sibeliusar og John Adams“. Emergence eftir Daníel Bjarnason hljómaði fyrst á Myrkum músíkdögum 2011 og hefur vakið mikla hrifningu víða um heim.
Sinfónía nr. 2 eftir Sibelius er eitt af lykilverkum þessa sinfóníusnillings. Hann samdi stærstan hluta hennar á Ítalíu árið 1901 og ritaði vini sínum í Finnlandi um sama leyti: „Ég er ástfanginn upp fyrir haus af nýja verkinu. Ég get hreinlega ekki rifið mig frá því!“ Seinna sagði hann að verkið væri „játning sálar minnar“, og engin norræn sinfónía fyrr né síðar hefur notið þvílíkra vinsælda um allan heim en einmitt þetta kröftuga og glaðværa verk.
Bryndís Halla Gylfadóttir hefur löngu skapað sér sess í íslensku tónlistarlífi fyrir innblásinn og listilega útfærðan leik sinn og hér frumflytur hún nýtt verk eftir Valgeir Sigurðsson fyrir selló og hljómsveit. Hljómsveitarstjórinn André de Ridder er heimavanur á Airwaves-hátíðinni þar sem hann hefur nokkrum sinnum áður stýrt Sinfóníunni við frábærar undirtektir. 22
NÓVEMBER
NÓV
FIM
17 19:30
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Víkingur Heiðar Ólafsson einleikari Haukur Tómasson
From Darkness Woven Richard Strauss
Burleske Ígor Stravinskíj
Capriccio Ígor Stravinskíj
Eldfuglinn, svíta Tónleikakynning kl. 18:00
R
ichard Strauss og Ígor Stravinskíj teljast með helstu tónjöfrum 20. aldar. Hér hljóma sjaldheyrð verk þeirra fyrir píanó og hljómsveit, Burleske og Capriccio – bæði eins konar skemmtimúsík full af glensi og fjöri. Strauss var ekki nema tuttugu og eins árs gamall þegar hann samdi Burleske en það var alla tíð í miklum metum hjá tónskáldinu sem jafnvel taldi það með sínum bestu verkum; nú hljómar það á tónleikum á Íslandi í fyrsta sinn. Capriccio Stravinskíjs frá árinu 1929 er sömuleiðis glettin tónsmíð sem minnir jafnvel á Poulenc. Tveimur áratugum fyrr hafði Stravinskíj náð athygli svo um munaði með glæsilegri tónlist sinni við ballettinn Eldfuglinn, sem tryggði framtíð hans næstu árin. Þetta verk hefur allar götur síðan verið talið til meistaraverka tónlistarinnar á 20. öld og á þessum tónleikum hljómar svíta með frægustu þáttunum, meðal annars kraftmiklum og ógnvænlegum vítisdansinum. Nýtt hljómsveitarverk eftir Hauk Tómasson sætir ávallt tíðindum enda er hann eitt helsta tónskáld sinnar kynslóðar og verk hans njóta sífellt meiri hylli um allan heim. Víkingur Heiðar Ólafsson er óðum að vekja athygli á heimsvísu fyrir innblásinn og agaðan leik sinn. Á undanförnum mánuðum hefur hann meðal annars leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit danska útvarpsins undir stjórn Ashkenazys, auk þess sem hann tók við stjórn tónlistarhátíðarinnar Vinterfest af sænska klarínettsnillingnum Martin Fröst. 23
DESEMBER
DES
AÐVENTUTÓNLEIKAR
17 14:00 / 16:00 18 14:00 / 16:00 DES
LAU SUN
DES
FIM
01 19:30
JÓLATÓNLEIKAR
Eivind Aadland hljómsveitarstjóri Elfa Rún Kristinsdóttir einleikari
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri
Hamrahlíðarkórarnir Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri
Trúðurinn Barbara kynnir Eivør Pálsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir og Kolbrún Völkudóttir einsöngvarar
W.A. Mozart
Brúðkaup Fígarós, forleikur
Ungir einleikarar, Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Nemendur úr Listdansskóla Íslands, kórar úr Langholtskirkju, Táknmálskórinn Litlu sprotarnir og Skólahljómsveit Kópavogs
J.S. Bach
Fiðlukonsert í E-dúr G.F. Händel
My Heart is Inditing
Hrafnkell Orri Egilsson
W.A. Mozart
Jólaforleikur
Sinfónía nr. 39
Leroy Anderson
Tónleikakynning kl. 18:00
Sleðaferðin Pjotr Tsjajkovskíj
Blómavalsinn Peter Grönvall
Dansaðu vindur Sígild jólalög
Heims um ból, Aðfangadagskvöld, Nóttin var svo ágæt ein o.fl.
Á
aðventutónleikum Sinfóníunnar hljómar hátíðleg tónlist eftir þrjá meistara 18. aldar: Bach, Händel og Mozart. Tvö hrífandi verk eftir Mozart ramma inn efnisskrána, fjörmikill forleikur að Brúðkaupi Fígarós og sinfónía nr. 39 sem var ein sú síðasta sem hann samdi. Glæsilegt kórverk Händels var samið til flutnings við krýningu Karólínu Bretadrottningar í Westminster Abbey árið 1727 og hefur engu glatað af hátíðleika sínum. Hamrahlíðarkórarnir hafa komið fram á ótal tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og bjartur og tær hljómur þeirra hentar tónlist Händels sérlega vel. Einleikari á Aðventutónleikunum er Elfa Rún Kristinsdóttir sem hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim og var nýverið tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Elfa Rún hefur hlotið mikið lof fyrir flutningi sinn á verkum Bachs og nýr geisladiskur hennar með partítum meistarans hefur fengið afburða góða dóma.
Á
jólatónleikum Sinfóníunnar er hátíðleikinn í fyrirrúmi og þar eiga sígildar jólaperlur fastan sess. Nýr forleikur með jólalögum frá Norðurlöndunum og Sleðaferð Andersons gefa upptaktinn að tónleikunum ásamt gullfallegri túlkun nemenda Listdansskólans á Blómavalsi Tsjajkovskíjs og flutningi Bjöllukórs Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á hinu sígilda íslenska jólalagi Jólin alls staðar. Skólahljómsveit Kópavogs flytur sívinsælt lag Gunnars Þórðarsonar Aðfangadagskvöld og ungir einleikarar koma fram í hinu ægifagra Panis Angelicus. Einsöngvarar ásamt kórum úr Langholtskirkju og táknmálskór flytja úrval innlendra og erlendra jólalaga sem koma öllum í sannkallað hátíðarskap. Trúðurinn Barbara kynnir tónleikana af sinni alkunnu snilld en tónleikarnir eru einnig túlkaðir á táknmáli. Nemendur úr Skólahljómsveit Kópavogs og Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar flytja jólalög á undan tónleikunum.
Norski hljómsveitarstjórinn Eivind Aadland starfar með Sinfóníuhljómsveit Íslands á ári hverju enda sérlega innblásinn og vandvirkur listamaður sem nær frábærum árangri með hljómsveitinni í hvert sinn. Þessir tónleikar láta engan ósnortinn og koma öllum í sannkallað hátíðarskap í upphafi aðventu. 24
JANÚAR
JAN JAN JAN
FIM FÖS LAU
05 19:30 06 19:30 07 16:00 / 19:30
V David Danzmayr hljómsveitarstjóri Þóra Einarsdóttir einsöngvari Bror Magnus Tødenes einsöngvari
Óperettutónlist og valsar eftir Johann Strauss yngri, Franz Lehár og Emmerich Kálman, m.a. úr Leðurblökunni og Kátu ekkjunni
ínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa um árabil verið allra vinsælustu og fjölsóttustu tónleikar hljómsveitarinnar. Nokkur af djásnum valsakóngsins Johanns Strauss prýða efnisskrá fyrstu tónleika ársins sem hefjast á forleiknum að Leðurblökunni og lýkur á Dónárvalsinum. Inn á milli heyrast fagrir valsar og polkar að ógleymdum óperettuaríum og dúettum sem allir þekkja. Meðal annars hljómar arían „Heut’ Nacht hab’ ich geträumt von dir“ eftir óperettuskáldið Emmerich Kálman, en hún hefur óvænt slegið í gegn á Íslandi á seinni árum við textann „Ég er kominn heim“. Austurríski hljómsveitarstjórinn David Danzmayr stjórnaði Vínartónleikum Sinfóníunnar fyrir tveimur árum og vakti slíka lukku að honum var umsvifalaust boðið að snúa aftur. Hann hlaut eldskírn sína sem 25
aðstoðarmaður Pierres Boulez og komst á verðlaunapall í tveimur stærstu stjórnendakeppnum heims, Malko- og Mahler-keppnunum. Þóra Einarsdóttir hefur fyrir löngu sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna. Meðal ótal viðurkenninga sem henni hafa fallið í skaut má nefna Íslensku tónlistarverðlaunin 2015, en þar var hún valin söngkona ársins fyrir tvenna tónleika þar sem hún söng verk Sibeliusar með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Norski tenórinn Bror Magnus Tødenes hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir hljómþýða rödd sína og fyrsti hljómdiskur hans, þar sem hann syngur aríur sem Jussi Björling gerði vinsælar, náði metsölu. Hann hlaut fyrstu verðlaun í Tebaldi-söngkeppninni árið 2015 og hefur meðal annars sungið á Salzburgarhátíðinni og við afhendingu friðarverðlauna Nóbels.
JANÚAR
JAN
FIM
12 19:30
Petri Sakari hljómsveitarstjóri Sigurvegarar úr einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands Efnisskrá kynnt síðar
Á
hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin er opin nemendum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja, og fá þeir hlutskörpustu að leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi tónleikanna er Petri Sakari, fyrrum aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, sem er tónleikagestum að góðu kunnur. Petri kemur reglulega fram með Sinfóníuhljómsveitinni og hefur einnig stjórnað tónleikum Ungsveitar SÍ.
26
Sinfóníuhljómsveitin og Listaháskóli Íslands leiða saman hesta sína og styðja við okkar efnilegasta tónlistarfólk á leið þess inn í heim atvinnumennskunnar. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríki á hverju ári í aðdraganda þessara tónleika og stemningin á tónleikunum sjálfum er engu lík. Einleikarakeppni SÍ og LHÍ fer fram á haustmánuðum 2016 og í kjölfarið verða nöfn sigurvegaranna birt á vef Sinfóníuhljómsveitarinnar.
JANÚAR
JAN
FIM
19 19:30
Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri Kari Kriikku einleikari Jean Sibelius
Rakastava (Elskhuginn) Kaija Saariaho
Klarínettkonsert (D’om le vrai sens) Pjotr Tsjajkovskíj
Sinfónía nr. 6, Pathétique Tónleikakynning kl. 18:00
K
aija Saariaho er eitt dáðasta samtímatónskáld Finnlands og margverðlaunuð fyrir list sína. Tónlist hennar einkennist af dulúð og fíngerðum blæbrigðum enda hefur hún verið kölluð „töframaður hljóðsins“. Hún samdi klarínettkonsertinn handa samlanda sínum, Kari Kriikku, árið 2010, innblásin af veggtepparunu frá miðöldum sem kallast „Stúlkan og einhyrningurinn“ og táknar skilningarvitin fimm. Tímaritið Gramophone sagði um konsertinn að hann væri „töfrandi“ og flutningur Kriikkus á glæsilegri einleiksrullunni hefur vakið aðdáun víða um heim. Sjötta og síðasta sinfónía Tsjajkovskíjs er svanasöngur hans til lífsins og tónlistarinnar; níu dögum eftir að hann stjórnaði frumflutningi hennar í Sankti Pétursborg var hann allur. Meðan á æfingum stóð á hann að hafa sagt: „Þetta er án efa besta og einlægasta tónsmíð mín, og mér þykir vænna um hana en nokkurt annað verk sem ég hef skapað.“ Anna-Maria Helsing er einn fremsti kvenstjórnandi Norðurlanda og stjórnaði m.a. Konunglegu fílharmóníuhljómsveitinni í Stokkhólmi við afhendingu Nóbelsverðlaunanna 2015.
27
JANÚAR
27 12:00 JAN
FÖS
JAN
FIM
26 19:30
DANÍEL STJÓRNAR MYRKUM
YRKJA – UPPSKERUTÓNLEIKAR
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
Þórunn Ósk Marínósdóttir einleikari
Ný verk eftir Finn Karlsson, Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Þráin Hjálmarsson
Atli Heimir Sveinsson
Doloroso Haukur Tómasson
Echo chamber, víólukonsert Kristín Þóra Haraldsdóttir
Nýtt verk Úlfur Hansson
Arborescence Thomas Adès
Polaris
Y
rkja er samstarfsverkefni Íslenskrar tónverkamiðstöðvar og ýmissa tónlistarstofnana og tónlistarhópa. Verkefnið miðar að því að búa tónskáld undir starf í faglegu umhverfi hjá hljómsveitum, hátíðum og öðrum listastofnunum.
Fyrsta Yrkju-verkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands lauk í apríl 2016 og í sama mánuði var tilkynnt um framhald þess. Fimm manna dómnefnd, skipuð tónskáldum og meðlimum SÍ, valdi tvö tónskáld til þátttöku: Finn Karlsson og Þráin Hjálmarsson. Þeir munu starfa með hljómsveitinni í níu mánuði og fá þannig tækifæri til að þróa færni sína í að semja fyrir hljómsveit. Auk þess hljómar á þessum tónleikum verk eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur sem tók þátt í fyrsta Yrkju-verkefninu.
T
ónleikar Sinfóníunnar á Myrkum músíkdögum eru vettvangur fyrir nýja og spennandi íslenska tónlist í bland við erlend meistaraverk. Hér hljómar nýr víólukonsert eftir Hauk Tómasson, saminn fyrir Þórunni Ósk Marínósdóttur sem er leiðandi víóluleikari SÍ og meðal fremstu tónlistarmanna landsins. Einnig verður frumflutt nýtt hljómsveitarverk eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur en verk hennar, Water's Voice, vakti mikla eftirtekt á Tectonics-tónlistarhátíð SÍ árið 2015. Verk Úlfs Hanssonar var samið fyrir Fílharmóníuhljómsveit Franska útvarpsins í kjölfar þess að hann hlaut fyrstu verðlaun í flokki ungra tónskálda á Tónskáldaþinginu 2013. Doloroso eftir Atla Heimi Sveinsson er kyrrlátur huggunar- og saknaðarsöngur, og er tileinkað minningu Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar.
Daníel Bjarnason staðarlistamaður hefur veg og vanda af verkefninu. Hann leiðir vinnustofur með tónskáldunum og stjórnar auk þess tónleikunum þar sem verkin hljóma fullmótuð. Ókeypis inn og allir velkomnir.
Breska tónskáldið Thomas Adès er einn virtasti tónlistarmaður samtímans. Hið glæsilega hljómsveitarverk hans, Polaris, er samið árið 2010. Það ber undirtitilinn „ferðalag fyrir hljómsveit“ og er innblásið af Pólstjörnunni eins og heitið gefur til kynna. Einn gagnrýnandi sagði eftir frumflutninginn að það væri „yfirgengilega fagurt“ og eru það orð að sönnu. 28
FEBRÚAR
FEB
FIM
02 19:30
Matthew Halls hljómsveitarstjóri Viviane Hagner einleikari Benjamin Britten
Russian Funeral Benjamin Britten
Fiðlukonsert Ígor Stravinskíj
Dumbarton Oaks Ígor Stravinskíj
Sinfónía í þremur þáttum Tónleikakynning kl. 18:00
Á
þessum tónleikum hljómar áhrifamikil tónlist eftir tvö lykiltónskáld frá fyrri hluta 20. aldar. Þeir Stravinskíj og Britten héldu báðir til Bandaríkjanna þegar heimsstyrjöldin síðari braust út, og þar urðu flest verkin á þessari efnisskrá til. Fiðlukonsert Brittens þykir eitt hans allra besta verk, með tjáningarfullri lýrík í bland við dramatísk tilþrif. Fáeinum árum síðar samdi Stravinskíj fyrsta stóra verk sitt eftir flutninginn til Bandaríkjanna, verk sem hann sjálfur kallaði „stríðssinfóníuna“ og er dekkri og kraftmeiri tónsmíð en hann hafði þá samið um nokkra hríð. Kammerkonsertinn Dumbarton Oaks er létt og áheyrilegt verk í nýklassískum stíl sem tekur mið af Brandenborgarkonsertum Bachs. Viviane Hagner er meðal fremstu fiðluleikara Þýskalands. Hún hefur leikið með öllum helstu hljómsveitum heims og kemur reglulega fram með tónlistarmönnum á borð við Daniel Barenboim og Yo-Yo Ma. Matthew Halls er íslenskum tónleikagestum að góðu kunnur, en hann hefur stjórnað hér reglulega frá árinu 2009. Hann nýtur mikillar virðingar um allan heim fyrir túlkun sína og fékk nýverið frábæra dóma hjá helstu blöðum Berlínar fyrir flutning sinn á Jóhannesarpassíu Bachs.
29
FEBRÚAR
FEB
FIM
FEB
FÖS
09 19:30 10 19:30
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri Ari Eldjárn kynnir og uppistandari
A
ri Eldjárn er einn fyndnasti Íslendingur sem uppi hefur verið og erfitt getur verið að hemja brosvöðvana þegar hann fer á flug. Nú stígur hann á stokk með Sinfóníuhljómsveit Íslands, segir gamanmál sem tengjast hljómsveitinni en kynnir einnig vinsæl hljómsveitarverk sem margir þekkja úr öðru samhengi en af sinfóníutónleikum, til dæmis úr vinsælum kvikmyndum síðustu áratuga. Hér hljóma meðal annars Allegretto-kaflinn úr sjöundu sinfóníu Beethovens (sem margir þekkja úr myndinni The King’s Speech), Dofrakonungs-kaflinn úr Pétri Gaut eftir Grieg (sem notað var með eftirminnilegum hætti í myndinni The Social Network), og Valkyrjureið Wagners, sem gerði atriði úr Apocalypse Now ógleymanlegt. Á þessum uppistandstónleikum fléttast húmor og meistaraverk tónlistarinnar saman svo að úr verður sannkölluð eðalskemmtun fyrir alla fjölskylduna. 30
SKRÍMSLIÐ LITLA SYSTIR MÍN
RAKHMANÍNOV OG BEETHOVEN
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri
Jun Märkl hljómsveitarstjóri
Trúðurinn Barbara kynnir og sögumaður
Stephen Hough einleikari
Eivør Pálsdóttir söngur
Antonín Dvorˇák
Graduale Futuri kór
Slavneskir dansar op. 46 nr. 1, 2, 7 og 8
Rósa Jóhannsdóttir kórstjóri
Sergej Rakhmanínov
Eric Coates
Rapsódía um stef eftir Paganini
Birnirnir þrír
Ludwig van Beethoven
Eivør Pálsdóttir & Helga Arnalds
Sinfónía nr. 4
Skrímslið litla systir mín
Tónleikakynning kl. 18:00
S
E
Á tónleikunum má einnig heyra Gullbrá og birnina þrjá í flutningi Sinfóníuhljómsveitinnar með skemmtilegu afbrigði af brúðuleikhúsi án orða, einskonar pappírsbíói, þar sem leikmynd og brúður eru klipptar út líkt og dúkkulísur. Pappírsbíóinu, sem unnið er af Helgu Arnalds, er varpað upp á tónleikunum þannig að hlustendur geti hvílt í áhrifaríkum ævintýraheimi um leið og þeir njóta tónlistarinnar.
Auk þess hljóma fjórir dansar Dvořáks þar sem slavnesk sveitastemning ríkir, og hin bráðskemmtilega fjórða sinfónía Beethovens. Jun Märkl er einn fremsti túlkandi Vínarklassíkur meðal stjórnenda samtímans, enda stjórnar hann meðal annars við Vínaróperuna á hverju starfsári.
nski píanistinn Stephen Hough er einn fjölhæfasti tónlistarmaður samtímans. Hann hefur leikið í öllum virtustu tónleikasölum heims og varð fyrsti klassíski flytjandinn til að hljóta hin virtu MacArthurverðlaun; auk þess hefur hann hljóðritað yfir 50 geisladiska sem hafa fengið frábærar viðtökur og meðal annars aflað honum átta Gramo phone-verðlauna. Hann er einnig tónskáld og rithöfundur, auk þess að vera prófessor við Juilliard-skólann í New York. Í farteskinu í þetta sinn er hin fjöruga og skemmtilega Paganini-rapsódía Rakhmanínovs.
krímslið litla systir mín, saga Helgu Arnalds, heyrist nú í fyrsta sinn í sinfónískum búningi með tónlist Eivarar Pálsdóttur. Eivør og Halldóra Geirharðsdóttir ásamt Graduale Futuri flytja söguna í tali og tónum í útsetningu Trónds Bogasonar við myndefni Bjarkar Bjarkadóttur. Á þessum sannkölluðu ævintýratónleikum má heyra söguna af Bjarti sem eignast litla „skrímsla“-systur sem étur mömmu og pabba. Hann ferðast alla leið út á heimsenda til að reyna að skila systur sinni og fá mömmu og pabba til baka.
31
FEBRÚAR
23 19:30 FEB
FIM
FEB
LAU
18 14:00
FEBRÚAR
FEB
FÖS
24 18:00
Jun Märkl hljómsveitarstjóri Tinna Þorsteinsdóttir einleikari Hallfríður Ólafsdóttir einleikari
Þ
róun tónlistarinnar hefur alla tíð grundvallast á verkum framsækinna byltingarmanna sem vildu breyta bæði listinni og heiminum. Á þessum tónleikum hljóma verk eftir tvö framsækin tónskáld 20. aldar auk Beethovens sem markaði nýja leið í tónlistinni.
Edgard Varèse
Density 21.5 John Cage
Daughters of the Lonesome Isle
Fransk-ameríska tónskáldið Edgard Varèse samdi risastór hljómsveitarverk innblásin af nið stórborganna, en í hinu kraftmikla Density 21.5 breytir hann einleiksflautunni svo að segja í nýtt hljóðfæri. Verkið dregur heiti sitt af eðlisþyngd platínu, enda samið fyrir platínuflautu. Cage var frumkvöðull þegar kom að hinu breytta píanói þar sem skrúfur og aðrir aukahlutir eru settir milli strengja til að framkalla óvenjulegan slagverkshljóm. Hin glaðværa og skemmtilega sinfónía nr. 4 eftir Beethoven er til marks um að sá mikli byltingarmaður átti sér margar hliðar í listinni.
Ludwig van Beethoven
Sinfónía nr. 4
32
MARS
MAR
FIM
09 19:30
Matthew Halls hljómsveitarstjóri Paul Lewis einleikari Joseph Haydn
Sinfónía nr. 96, „Kraftaverkið“ Ludwig van Beethoven
Píanókonsert nr. 2 Ludwig van Beethoven
Píanókonsert nr. 3 Tónleikakynning kl. 18:00
F
áir píanóleikarar hafa hlotið þvílíkt lof síðustu ár fyrir túlkun á verkum Beethovens sem enski píanistinn Paul Lewis. Hljóðritun hans á öllum píanósónötunum hlaut meðal annars Gramophone-verðlaun, og hann varð fyrstur til að leika alla píanókonserta Beethovens á einni og sömu Proms-hátíðinni árið 2010. Hann vakti líka mikla athygli fyrir frábæran leik sinn í Hörpu árið 2013. Nú mun Lewis leika alla fimm píanókonserta Beethovens á þrennum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands, í mars og september 2017, og febrúar 2018. Með konsertunum hljóma sinfóníur eftir þrjá samtímamenn Beethovens sem einnig settu mark 33
sitt á tónlistarlífið í Vínarborg: Haydn, Mozart og Schubert. Það er vel við hæfi að hefja þennan Beethoven-hring á konsertinum nr. 2, því hann er hinn elsti af útgefnum konsertum Beethovens hvað sem raðtölum líður. Greina má áhrif Mozarts í ljúfum og áreynslulausum hendingunum, en í hinum kraftmikla konserti nr. 3 hefur Beethoven fundið sinn eigin dramatíska tón. „Kraftaverks“-sinfónía Haydns er bæði fáguð og kraftmikil. Viðurnefni sitt hlaut hún af því að sagt var að ljósakróna hefði fallið úr loftinu meðan á flutningi hennar stóð, en til allrar hamingju ekki skaðað nokkurn mann.
MARS
MAR
LAU
11 11:30
SINFÓNÍUNNAR
Í síðari Barnastund vetrarins fögnum við vorkomunni með fjölbreyttri tónlist. Gamlir gullmolar og nýjar útsetningar ungra tónskálda verða í forgrunni ásamt léttu og skemmtilegu lögunum sem eiga sinn fasta sess á þessari sannkölluðu gæðastund.
B
arnastundir Sinfóníuhljómsveitarinnar hafa notið mikilla vinsælda. Tónlistin og lengd stundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Leiðarar á Barnastundum SÍ eru konsertmeistararnir Sigrún Eðvaldsdóttir og Nicola Lolli en kynnir er Hjördís Ástráðsdóttir, fræðslustjóri hljómsveitarinnar. Sérstakur gestur er Maxímús Músíkús. Barnastundin er hálftíma löng og fer fram í Hörpuhorni á 2. hæð, framan við Eldborg. Gott er að taka með sér púða til að sitja á.
34
FIÐRILDI OG FINNSKIR SKÓGAR Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
Osmo Vänskä hljómsveitarstjóri
Sæunn Þorsteinsdóttir einleikari
Yevgeni Sudbin einleikari
Kaija Saariaho
Kalevi Aho
Sept Papillons
Minea
Jean Sibelius
W.A. Mozart
Sinfónía nr. 2
Píanókonsert nr. 23 í A-dúr Ludwig van Beethoven
Sinfónía nr. 7 Tónleikakynning kl. 18:00
K
aija Saariaho er dáð um allan heim fyrir hljómsveitarverk sín og óperur, en á verkaskrá hennar eru einnig sérlega áhrifamikil einleiksverk. Hún samdi Sept papillons eða Sjö fiðrildi meðan hún var við æfingar á Salzburgarhátíðinni árið 2000, og tónlistin hefur hrífandi yfirbragð hins hverfula og skammvinna. Sæunn Þorsteinsdóttir hefur fengið frábæra dóma í helstu blöðum Bandaríkjanna fyrir innlifaðan sellóleik sinn og hefur m.a. leikið kammertónlist með Itzhak Perlman og Mitsuko Uchida.
R
ússneski píanistinn Yevgeni Sudbin hefur á undanförnum árum sópað að sér verðlaunum fyrir leik sinn. Nýlegur diskur hans með verkum Skrjabíns var valinn diskur ársins hjá Telegraph og um leið sagði gagnrýnandi blaðsins að Sudbin væri „á góðri leið með að verða einn mesti píanisti 21. aldarinnar“. Hann flytur hér hinn guðdómlega A-dúr konsert Mozarts, þar sem skiptast á skin og skúrir með eftirminnilegum hætti.
Sinfónía nr. 2 eftir Sibelius er ein hans glæsilegasta tónsmíð og nýtur verðskuldaðrar hylli um allan heim. Sibelius lýsti tónsmíðavinnu sinni eitt sinn svo að það væri „sem Guð almáttugur hafi fleygt niður mósaíkflísum úr gólfi himnaríkis og beðið mig að raða þeim eins og þær voru áður.“ Sinfónían hljómar hér í flutningi Daníels Bjarnasonar, staðarlistamanns SÍ, sem einnig er listrænn stjórnandi hinnar vinsælu Föstudagsraðar.
Osmo Vänskä þykir einn eftirtektarverðasti Beethoven-túlkandi okkar daga og hljómdiskar hans með Minnesota-hljómsveitinni hafa fengið prýðilega dóma. Hér hljómar hin dásamlega sjöunda sinfónía Beethovens, sem er ein sú fjörugasta sem hann samdi og sem Wagner kallaði „fullkomnun dansins“.
Sinfóníuhljómsveitin fagnar því að árið 2017 er öld liðin frá því að Finnland öðlaðist sjálfstæði. Af því tilefni verður finnsk tónlist áberandi á efnisskránni vorið 2017: verk eftir Sibelius og Saariaho hljóma á tvennum tónleikum (19. janúar og 17. mars) auk þess sem hljómsveitin flytur nýlegt verk eftir Kalevi Aho, sjöttu sinfóníu Sibeliusar og múmínálfarnir sívinsælu mæta á Tónsprotatónleika.
Það er enginn skortur á framúrskarandi tónskáldum í Finnlandi, en Kalevi Aho sker sig úr fyrir litríka og áheyrilega tónlist sína, sem stundum minnir á Shostakovitsj. Eitt áhugaverðasta verk úr smiðju hans síðustu ár er Minea, eins konar konsert fyrir hljómsveit þar sem hver hljóðfærahópur fær sína stund í sviðsljósinu. Verkið samdi Aho árið 2008 fyrir Minnesota-hljómsveitina og Osmo Vänskä, og fá nýleg hljómsveitarverk hafa hlotið jafn einróma lof gagnrýnenda og áheyrenda og þetta frísklega verk sem nú hljómar í fyrsta sinn á Íslandi.
35
MARS
OSMO STJÓRNAR BEETHOVEN
17 18:00 MAR
FÖS
MAR
FIM
16 19:30
MARS
POSCHNER STJÓRNAR BRUCKNER
30 19:30 MAR
FIM
MAR
FIM
23 19:30
ENIGMA-TILBRIGÐIN Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri James Ehnes einleikari Gabriel Fauré
Markus Poschner hljómsveitarstjóri
Dolly, svíta
Anton Bruckner
Samuel Barber
Sinfónía nr. 8
Fiðlukonsert Edward Elgar
Enigma-tilbrigðin
S
infóníur Antons Bruckners eru meðal þess glæsilegasta sem samið var fyrir hljómsveit á síðari hluta 19. aldar. Mikilfenglegur hljómur þeirra er engu líkur, stórbrotnir tónflekar renna saman í áhrifamikla heild og ekki síst gefur hljómur málmblásturshljóðfæranna verkum hans einstakan lit og áferð. Sinfónían nr. 8, sem jafnan er talin með bestu sinfóníum Bruckners, var fullgerð árið 1890 og tileinkuð sjálfum Frans Jósef I Austurríkiskeisara. „Þessi sinfónía er krúnudjásn tónlistarinnar á vorum dögum“ sagði einn hugfanginn hlustandi og tónjöfrarnir Hugo Wolf og Johann Strauss voru á sama máli.
K
anadíski fiðluleikarinn James Ehnes vakti verðskuldaða athygli íslenskra tónleikagesta þegar hann lék einleik með Sinfóníuhljómsveitinni í Toronto í Hörpu haustið 2014. Þessi fiðlusnillingur hefur hlotið bæði Grammy- og Gramophone-verðlaun, auk þess sem gagnrýnendur um allan heim hafa ausið hann lofi. „Óviðjafnanlegar tónlistargáfur“ gagði gagnrýnandi Times í Lundúnum og líkti honum við sjálfan Paganini hvað leiksnilli snerti. Ehnes mun leika hinn ljóðræna og síðrómantíska konsert bandaríska tónskáldsins Samuels Barber, sem kunnastur er fyrir tónsmíð sína Adagio fyrir strengi.
Sinfóníur Bruckners hljóma sjaldan hér á landi og sú áttunda hefur ekki heyrst í rúman áratug. Það er því fagnaðarefni að flutningur hennar nú verði í öruggum höndum Markusar Poschners, sem hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands margoft frá árinu 2009. Það er samdóma álit manna að þessi þýski stjórnandi, sem gegnir stöðu aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitarinnar í Bremen, hafi einstakt vald á öllum blæbrigðum hljómsveitarinnar og að SÍ leiki sjaldan betur en undir hans stjórn.
Enigma-tilbrigði Elgars eru magnþrungið hljómsveitarverk með óvenjulega sögu, því að tónskáldið neitaði alla tíð að gefa upp hvert stefið væri sem tilbrigði hans byggja á. Eitt tilbrigðanna, Nimrod, hefur notið sérstakrar hylli og margir muna eftir því úr leikritinu Abel Snorko býr einn, sem sýnt var við miklar vinsældir í Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum árum.
36
APRÍL
APR
FIM
27 19:30
Vladimir Ashkenazy hljómsveitarstjóri Boris Belkin einleikari Þorkell Sigurbjörnsson
Mistur Max Bruch
Fiðlukonsert nr. 1 Johannes Brahms
Sinfónía nr. 4 Tónleikakynning kl. 18:00
B
oris Belkin er heimskunnur fyrir tilfinningaþrunginn fiðluleik af „rússneska skólanum“. Hann kom fyrst fram opinberlega aðeins sjö ára gamall og hreppti gullið í fiðlukeppni Sovétríkjanna árið 1973, en flýði skömmu síðar til Vesturlanda. Belkin hefur átt gifturíkt samstarf við Vladimir Ashkenazy um langt árabil, þeir hafa hljóðritað geisladiska saman og farið í tónleikaferðir víða um heim. Annar náinn vinur og samstarfsmaður Ashkenazys var íslenska tónskáldið Þorkell Sigurbjörnsson og á tónleikunum hljómar Mistur frá árinu 1972, sem er eitt helsta hljómsveitarverk hans. Lokapunkt tónleikanna myndar svo hin stórfenglega fjórða sinfónía Brahms, sem er þykkt og safaríkt verk, innblásið af barokkformum og ekki síst tónlist Bachs. Með þessum flutningi lýkur „Brahms-hring“ Ashkenazys, en hann hefur nú stjórnað öllum sinfóníum meistarans á fjórum árum með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
37
MAÍ
11 19:30 MAÍ
FIM
MAÍ
LAU
06 14:00
MÚMÍNÁLFAR Í SÖNGVAFERÐ
FIMM SÖNGVAR OG SINFÓNÍA
Erkki Lasonpalo hljómsveitarstjóri
John Storgårds hljómsveitarstjóri
Egill Ólafsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir einsöngvarar
Helena Juntunen einsöngvari Fanny Mendelssohn
Stúlknakór Reykjavíkur Margrét Pálmadóttir kórstjóri
Forleikur í C-dúr Hafliði Hallgrímsson
Hannele Huovi og Soili Perkiö
Fimm söngvar fyrir sópran og hljómsveit
Múmínálfar í söngvaferð
Jean Sibelius
Sinfónía nr. 6
Þ
að gerðist ekki oft að kventónskáld 19. aldar semdu fyrir sinfóníuhljómsveit. Karlar lögðu línurnar í tónlistarlífinu í þá daga og þeim þótti kröftum kvenna betur varið í smærri verk sem flytja mætti innan veggja heimilisins, sönglagasmíði og píanómúsík. Fanny Mendelssohn var hámenntuð tónlistarkona en samdi aðeins eitt hljómsveitarverk, forleikinn sem nú hljómar í fyrsta sinn á Íslandi og er það kærkomið tækifæri til að kynnast betur tónsmíðum þessarar merku listakonu.
© Moomin Characters™
M
úmínálfarnir sem Tove Jansson skapaði eru mörgum afar kærir og ná vinsældir þeirra langt út fyrir heimahagana. 70 ára afmæli þessara ástsælu álfa var fagnað í Finnlandi með útkomu Múmínálfa í söngvaferð, nýrrar söngvabókar með geisladiski, sem hlaut finnsku Emma-verðlaunin 2014. Það var Fílharmóníusveitin í Helsinki sem frumflutti Múmínálfa í söngvaferð vorið 2015 í útsetningum Matta Kallio, en það var upphafið að mikilli söngvaferð Múmínálfanna um gjörvallt Finnland. Nú flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands, fyrst hljómsveita utan Finnlands, þessa geysivinsælu söngva í þýðingu Þórarins Eldjárns. Með hljómsveitinni á tónleikum koma fram stórsöngvararnir Egill Ólafsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir ásamt Stúlknakór Reykjavíkur.
Í nýjum lagaflokki sínum tónsetur Hafliði Hallgrímsson ljóð eftir þrjú af helstu skáldum Englands á 18. og 19. öld: Samuel Taylor Coleridge, William Blake og Christinu Rosetti. Þau Helena Juntunen og John Storgårds frumfluttu verkið ásamt Skosku kammersveitinni í febrúar síðastliðnum; gagnrýnandi The Telegraph sagði verkið mynda „fullkomlega sannfærandi heild“ sem væri knúið áfram af tónrænu ímyndunarafli Hafliða og „ótrúlegu næmi“ hans á litbrigði hljómsveitarinnar. „Ég gef gömlu meisturunum ekkert eftir“ ritaði Sibelius í dagbók sína árið 1922, fullur sjálfstrausts. Um sama leyti var hann að ljúka við 6. sinfóníu sína, fagurt og friðsælt verk sem hefur á köflum yfirbragð þjóðlaga og sálmasöngs. Stjórnandinn John Storgårds var um langt skeið aðalstjórnandi Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Helsinki og er einmitt margverðlaunaður fyrir túlkun sína á sinfóníum Sibeliusar.
Litríkt og fallegt myndefni fylgir tónleikunum og þannig er hægt að fylgjast með sögunni bæði í myndum og tónum. Erkki Lasonpalo stýrir Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikunum, en hann stjórnaði einnig frumflutningi verkefnisins í Finnlandi.
38
SINFÓ 16/17
MAÍ MAÍ
MAÍ
FÖS
12 18:00
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri Schola cantorum kór Hörður Áskelsson kórstjóri Johann Sebastian Bach
Komm, Jesu, komm Johannes Brahms
Sinfónía nr. 4
J
ohannes Brahms hafði sterka söguvitund og hafði sérstakt dálæti á tónlist þýskra barokkmeistara, ekki síst verkum Bachs. Hann stjórnaði verkum hans og gerði af þeim útsetningar, en áhrifin komu einnig fram í tónlistinni sjálfri. Í lokaþætti hinnar mögnuðu fjórðu sinfóníu notar hann til dæmis stef sem upphaflega kom úr einni af kantötum Bachs, og smíðar yfir það mikilfengleg tilbrigði samkvæmt lögmálum barokktónlistarinnar. Upptakt að flutningi SÍ að þessu sinni gefur Schola cantorum, sem flytur eina af hinum stórkostlegu mótettum Bachs fyrir tvo kóra sem kallast á með eftirminnilegum hætti. 39
MAÍ
MAÍ
FIM
18 19:30
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Simone Lamsma einleikari Ambroise Thomas
Mignon, forleikur Claude Debussy
Petite suite Ernest Chausson
Poème Maurice Ravel
Alborada del gracioso Pablo de Sarasate
Carmen-fantasía Pjotr Tsjajkovskíj
Capriccio italien Tónleikakynning kl. 18:00
H
ljóðfærasnillingar 19. aldar settu gjarnan saman í syrpur dáðustu aríur úr þeim óperum sem nutu mestrar hylli; hvað tæknikröfur snertir eru þessar útsetningarnar oft á mörkum hins ómögulega. Flestar þessar syrpur eru nú öllum gleymdar, en undantekningin er hin vinsæla Carmen-fantasía spænska fiðlusnillingsins Sarasates. Hér er að finna öll vinsælustu stefin úr óperu Bizets, í bland við tilþrifamikið virtúósaspil og fingurbrjóta. Hollenski fiðluleikarinn Simone Lamsma leikur Carmen-fantasíuna og einnig hið ljúfa og ljóðræna Poème. Lamsma hefur vakið mikla athygli síðustu ár fyrir leik sinn og gagnrýnendur hafa dáðst að „ægifögrum, fáguðum og tjáningarríkum“ leik hennar. Hún leikur á Stradivarius-fiðlu frá árinu 1718. Fyrri hluti tónleikanna er helgaður frönskum tónskáldum en eftir hlé verður haldið lengra suður. Capriccio italien („Ítölsk gletta“) er eitt vinsælasta hljómsveitarverk Tsjajkovskíjs, samið í Róm og kryddað með léttum ítölskum götusöngvum. Kætin er einnig í fyrirrúmi í spænskum morgunsöng Ravels sem er eitt hans glæsilegasta hljómsveitarverk. 40
HÁDEGISTÓNLEIKAR MEÐ RUMON GAMBA
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri Alina Ibragimova einleikari
Ruman Gamba hljómsveitarstjóri
Johannes Brahms
Dag Wirén
Fiðlukonsert
Divertimento
Dmítríj Shostakovitsj
Dag Wirén
Sinfónía nr. 5
Serenaða fyrir strengi
Tónleikakynning kl. 18:00
Dag Wirén
Sinfónía nr. 3
S
ænska tónskáldið Dag Wirén var undir sterkum áhrifum frá Stravinskíj og Poulenc, samdi létta og glaðværa músík með hrynrænni spennu. Hann var líka sérlega fjölhæfur tónsmiður, samdi til dæmis framlag Svíþjóðar í Júróvisjón-keppnina árið 1965. Í júní 2017 mun SÍ hljóðrita disk með verkum Wiréns fyrir Chandos-útgáfuna, og af því tilefni verða haldnir hádegistónleikar þar sem áheyrendum gefst færi á að kynnast þessari áhugaverðu tónlist.
A
lina Ibragimova er einn áhugaverðasti fiðluleikari sem komið hefur fram á sjónarsviðið síðustu ár. Hún leikur jöfnum höndum barokktónlist og nútímaverk, hefur flutt allar sónötur Beethovens og Mozarts í Wigmore Hall, og var staðarlistamaður Proms-tónlistarhátíðarinnar árið 2015. Yndisfagur fiðlukonsert Brahms er meðal þeirra verka hans sem oftast eru flutt, enda nær hann hér fullkomnu jafnvægi milli hins blíða og kraftmikla, hins háfleyga og jarðbundna.
Serenaðan fyrir strengi frá árinu 1937 er vinsælasta verk Wiréns enda sérlega áheyrileg tónsmíð. Sinfónía nr. 3 er einnig glæsileg en ber þó dekkri blæ enda samin meðan á heimsstyrjöldinni síðari stóð; þar má greina áhrif Sibeliusar og jafnvel á köflum Shostakovitsj.
Sjaldan hefur eitt tónskáld átt jafn mikið undir viðtökum einnar tónsmíðar og þegar fimmta sinfónía Dmítrjís Sjostakovitsj var frumflutt í Leníngrad árið 1937, einu harðasta ári ógnarstjórnar Stalíns. Tónlistin er hádramatísk og margir telja sinfóníuna einhverja þá mögnuðustu sem samin var á 20. öld.
Hljómsveitarstjórann Rumon Gamba þarf vart að kynna; hann var aðalstjórnandi SÍ frá 2002–2010 og er ávallt aufúsugestur hér á landi. Ókeypis inn og allir velkomnir.
Þessir tónleikar verða tileinkaðir minningu Björns Ólafssonar fiðluleikara, í tilefni þess að árið 2017 er öld liðin frá fæðingu hans. Björn var fyrsti konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitarinnar og lék Brahmskonsertinn þrívegis með sveitinni.
41
MAÍ / JÚNÍ
IBRAGIMOVA SPILAR BRAHMS
09 12:00 JÚN
FÖS
MAÍ
FÖS
26 19:30
STARFSEMI
Í BEINNI Á RÁS EITT
S
aga Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Ríkisútvarpsins er samofin og í áratugi hafa hlustendur Rásar 1 um allt land, og í seinni tíð á netinu um allan heim, getað hlustað á tónleika hljómsveitarinnar í beinni útsendingu á Rás 1. Mikil áhersla er lögð á vandaða dagskrárgerð og eru nær allir tónleikar Sinfóní-
unnar sendir út. Á undan útsendingum geta hlustendur Rásar 1 fræðst um tónlistina og listamennina í þættinum Á leið í tónleikasal og í hléi er fræðandi og skemmtileg dagskrá. Hægt er að nálgast upptökur frá tónleikum og Á leið í tónleikasal í Sarpinum á ruv.is.
ÖLL TÓNLISTIN Á EINUM STAÐ
S
infóníuhljómsveitin er með sérstaka rás á tónlistarveitunni Spotify. Þar er m.a. að finna lagalista tónleikaraða starfsársins þar sem hægt er að hlusta á sérvaldar upptökur af þeim verkum sem eru á efnisskrá. Hér er því um að ræða auðvelda og skemmtilega leið til að undirbúa sig fyrir tónleika eða njóta góðrar
tónlistar með úrvals flytjendum. Auk þess geyma lagalistar Sinfóníunnar skemmtilegar upptökur með einleikurum og hljómsveitarstjórum sem heimsækja hljómsveitina, tónlist fyrir börn, íslenska tónlist fyrir hljómsveit auk tónlistar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur hljóðritað og gefið út.
SJÓNVARPSTÓNLEIKAR
V
aldir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands verða aðgengilegir öllum notendum Sjónvaps Símans í vetur. Tónleikarnir verða sendir út beint og í kjölfarið hægt að njóta þeirra í sjónvarpsþjónustu Símans
notendum að kostnaðarlausu. Lögð er áhersla á gæði í hljóð og mynd sem skilar upplifuninni sem best heim í stofu.
sinfonia.is/sjonvarp.
NÝJAR HLJÓÐRITANIR SÍ
S
infóníuhljómsveit Íslands gefur reglulega út hljóðritanir, m.a. á vegum útgáfufyrirtækjanna BIS, Chandos og Naxos. Á síðasta starfsári komu út tveir nýir hljómdiskar, annarsvegar með leik hljómsveitarinnar og Sigrúnar Eðvaldsdóttur og hinsvegar diskur með hátíðlegri jólatónlist í flutningi SÍ, sem m.a. var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins í opnum flokki. Haustið 2016 kemur út nýr hljómdiskur hjá Ondine með hljómsveitarverkum Jóns Nordal, en hann fagnaði níræðisafmæli sínu fyrr á árinu. Einnig er væntanlegur diskur með hljómsveitarverkum eftir Daníel Bjarnason sem hljóðritaður var nýverið. 42
Á starfsárinu 2016/17 hljóðritar SÍ tvo diska til útgáfu á erlendum markaði. Bandaríska útgáfan Sono Luminus mun í nóvember hljóðrita disk með íslenskri hljómsveitartónlist í flutningi SÍ undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Í lok starfsársins stendur breska útgáfufyrirtækið Chandos fyrir upptökum á verkum eftir sænska 20. aldar tónskáldið Dag Wirén undir stjórn Rumons Gamba.
HLJÓMSVEITIN
VINAFÉLAG SINFÓNÍUNNAR
V
inafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands er öflugur vettvangur fyrir þá sem láta sig starfsemi hljómsveitarinnar miklu varða. Félagið hefur í gegnum tíðina staðið fyrir tónleikakynningum, fyrirlestrum og málþingum um sígilda tónlist og hefur einnig styrkt fjárhagslega ákveðin verkefni tengd hljómsveitinni.
Starfsemi félagsins hefur mælst afar vel fyrir. Sinfóníuhljómsveit Íslands býður vinum sínum á tónleika Ungsveitar SÍ og eina opna æfingu á starfsárinu. Allir geta orðið meðlimir í Vinafélaginu og hægt er að skrá sig á sinfonia.is eða í miðasölu Hörpu.
Árgjaldið er 3.500 krónur.
TÓNLEIKAKYNNINGAR
V
inafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveitina, býður upp á fimmtán tónleikakynningar í Hörpuhorni á starfsárinu. Hörpuhornið opnar á tónleikadegi kl. 18:00 og gefst gestum tækifæri til að sitja í fallegu umhverfi og kaupa veitingar frá Smurstöðinni. Sjálf kynningin hefst kl.
18:20 og stendur í hálftíma. Tónleikakynningarnar eru í höndum Árna Heimis Ingólfssonar, listræns ráðgjafa hljómsveitarinnar, Sigurðar Ingva Snorrasonar, klarínettuleikara, Svanhildar Óskarsdóttur, rannsóknardósents á Árnastofnun og Sigríðar St. Stephensen dagskrárgerðarmanns.
Tónleikakynningarnar eru haldnar í Hörpuhorninu á 2. hæð fyrir framan Eldborg.
TÓNLEIKAR Í GAUTABORG
S
infóníuhljómsveitin heldur í tónleikaferð til Gautaborgar og leikur í víðfrægu tónlistarhúsi borgarinnar þann 19. apríl 2017. Á efnisskránni er Aeriality eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Burleske eftir Richard Strauss og Sinfónía nr. 2 eftir Jean Sibelius. Einleikari verður Víkingur Heiðar Ólafsson en Yan Pascal Tortelier stjórnar hljómsveitinni.
OPNAR ÆFINGAR
S
infóníuhljómsveitin opnar dyrnar að lokaæfingum á tónleikadegi allra áskriftartónleika í gulri, grænni og rauðri röð á nýju starfsári. Hægt verður að kaupa aðgang að æfingunum í miðasölu Hörpu og á vef Sinfóníunnar. Lokaæfingin hefst kl. 9.30 en aðgangur sinfonia.is/aefingar
43
Það er ómetanlegt fyrir Sinfóníuhljómsveitina að fá tækifæri til þess að spila á erlendri grund og því eru þessir tónleikar mikið tilhlökkunarefni. Þess má geta að hljómsveitin hefur aðeins einu sinni áður leikið í Svíþjóð, en það var í Stokkhólmi árið 1990.
er takmarkaður við ákveðin sæti í Eldborg. Opnar æfingar eru tilvalið tækifæri til að dýpka upplifun og skilning á tónlistinni sem flutt er síðar á tónleikum um kvöldið.
44
ÖFLUGT FRÆÐSLUSTARF Öflugt og fjölþætt fræðslustarf er mikilvægur þáttur í starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hefur verið allt frá stofnun hennar. Fræðslustarfið er í stöðugri framþróun þar sem áhersla er lögð á gæði, fjölbreytileika og samstarf. Skólatónleikar, skólaheimsóknir og leiðsögn nemendahópa er fastur liður í starfsemi hljómsveitarinnar sem einnig starfar að langtímaverkefnum með ungu fólki, bæði einleikurum og hljóðfærahópum. Þróunarverkefni af ýmsum toga eru unnin í samvinnu við skóla og lengra komna nemendur í listnámi. Hljómsveitin leggur ríka áherslu á að vera í góðum tengslum við samfélagið og heimsækir bæði stofnanir og vinnustaði og hefur átt farsælt samstarf við eldri borgara um langt skeið. Í vetur verður boðið upp á ferna glæsilega og lifandi fjölskyldutónleika Litla tónsprotans og hinar vinsælu Barnastundir sem ætlaðar eru yngstu hlustendunum.
Hægt er að nálgast allar upplýsingar um fræðslustarf frá lokum ágústmánaðar á sinfonia.is.
SKÓLATÓNLEIKAR
Á hverju starfsári heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands fjölmarga skólatónleika þar sem nemendum, allt frá leikskólaaldri til framhaldsskólanema, er boðið að hlusta á vandaða dagskrá í tali og tónum. Skólatónleikar hljómsveitarinnar hafa vakið verðskuldaða eftirtekt þar sem tónverk hverra tónleika eru sniðin að ákveðnum aldurshópi.
BÓKANIR Á FRÆÐSLUVIÐBURÐI
Skólar geta bókað fyrir nemendur sína á fræðsluviðburði vetrarins frá lokum ágústmánaðar 2016. Nánari upplýsingar er að finna á sinfonia.is/fraedslustarf.
ÞRÓUNARVERKEFNI
Spennandi verkefni eru unnin af Sinfóníuhljómsveitinni í samstarfi við ýmsa hópa yfir lengri tímabil. Nú er að ljúka tveggja ára samstarfi við Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts og við tekur annað tveggja ára tímabil þar sem hljómsveitin mun eiga samvinnu við Skólahljómsveit Kópavogs. Hljómsveitin mun á komandi starfsári vinna að fjölmenningarverkefni tengdu vögguvísum í samvinnu við Fella- og Austurbæjarskóla ásamt innlendum og erlendum listamönnum.
SKÓLA- OG STOFNANAHEIMSÓKNIR
Sinfóníuhljómsveitin leggur sig fram um að sækja grunnskóla, dvalarheimili og spítala heim u.þ.b. einu sinni á starfsári með fjölbreytta og áheyrilega tónlist í farteskinu.
OPNAR ÆFINGAR
Á opnum æfingum er framhaldsskóla- og tónlistarnemum ásamt eldri borgurum boðið að hlýða á valin verk sem oft eru kynnt af hljómsveitarstjóra eða einleikara. Nærvera við hljómsveitina og hljómsveitarstjórann er meiri – öðruvísi upplifun í miðri hljómkviðunni.
EINLEIKARAKEPPNI
Árlega er haldin einleikarakeppni fyrir tónlistarnemendur á háskólastigi í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin fer fram á haustdögum en sigurvegarar keppninnar leika á tónleikunum Ungum einleikurum í janúar 2017 með Sinfóníuhljómsveitinni.
UNGSVEIT SÍ 2016
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands heldur sína áttundu tónleika nú í lok september. Ungsveitin flytur 5. sinfóníu Tsjajkovskíjs undir stjórn Eivinds Aadland sem stjórnar Ungsveitinni í annað sinn, en hann hefur fyrir löngu skapað sér nafn hér á landi með störfum sínum með SÍ. Hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru virkir í starfsemi Ungsveitarinnar og miðla af reynslu sinni og þekkingu. Ungsveitin hefur tekið þátt í Tectonics-tónlistarhátíð Sinfóníunnar og kynnst þannig ólíkri framsetningu ýmissa tónverka og samtali hennar og áhrifum á hlustandann.
LITLI TÓNSPROTINN
Litli tónsprotinn er röð vandaðra og glæsilegra fjölskyldutónleika. Verkefnaval tónleikanna miðast við tónleikagesti frá fimm ára aldri. Á Litla tónsprotanum kynnast börn töfraheimi tónlistarinnar á lifandi og skemmtilegan hátt.
FYRIR ÞAU ALLRA YNGSTU Í HÖRPUHORNI
Barnastund Sinfóníuhljómsveitarinnar er ætluð yngstu hlustendunum. Í Barnastundinni er flutt tónlist í um það bil 30 mínútur. Tónlistin og lengd Barnastundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Tvær barnastundir verða á starfsárinu. Sérstakur gestur Barnastundarinnar er Maxímús Músíkús. Aðgangur ókeypis.
45
46
HLJÓÐFÆRALEIKARAR OG STARFSMENN 2016/17 1. FIÐLA
BASSI
Sigrún Eðvaldsdóttir 1. konsertmeistari Nicola Lolli 1. konsertmeistari Una Sveinbjarnardóttir 3. konsertmeistari Andrzej Kleina Ágústa María Jónsdóttir Bryndís Pálsdóttir Hildigunnur Halldórsdóttir Júlíana Elín Kjartansdóttir Laufey Sigurðardóttir Lin Wei Margrét Kristjánsdóttir Mark Reedman Olga Björk Ólafsdóttir Pálína Árnadóttir Rósa Hrund Guðmundsdóttir Zbigniew Dubik
Hávarður Tryggvason Páll Hannesson Dean Ferrell Jóhannes Georgsson Richard Korn Þórir Jóhannsson
2. FIÐLA
Arngunnur Árnadóttir Grímur Helgason Rúnar Óskarsson
Joaquín Páll Palomares Vera Panitch Christian Diethard Dóra Björgvinsdóttir Greta Guðnadóttir Gunnhildur Daðadóttir Helga Þóra Björgvinsdóttir Ingrid Karlsdóttir Joanna Bauer Kristján Matthíasson Margrét Þorsteinsdóttir Ólöf Þorvarðardóttir Roland Hartwell Sigurlaug Eðvaldsdóttir Þórdís Stross
VÍÓLA
Þórunn Ósk Marinósdóttir Svava Bernharðsdóttir Eyjólfur Alfreðsson Guðrún Hrund Harðardóttir Guðrún Þórarinsdóttir Herdís Anna Jónsdóttir Jónína Auður Hilmarsdóttir Kathryn Harrison Móeiður A. Sigurðardóttir Sarah Buckley Sesselja Halldórsdóttir Þórarinn Már Baldursson
SELLÓ
Sigurgeir Agnarsson Hrafnkell Orri Egilsson Sigurður Bjarki Gunnarsson Bryndís Björgvinsdóttir Bryndís Halla Gylfadóttir Inga Rós Ingólfsdóttir Júlía Mogensen Lovísa Fjeldsted Margrét Árnadóttir Ólöf Sesselja Óskarsdóttir
FLAUTA
Hallfríður Ólafsdóttir Áshildur Haraldsdóttir Martial Nardeau
ÓBÓ
Yan Pascal Tortelier aðalhljómsveitarstjóri Osmo Vänskä aðalgestastjórnandi Vladimir Ashkenazy heiðursstjórnandi Daníel Bjarnason staðarlistamaður
STARFSMENN
Framkvæmdastjóri Arna Kristín Einarsdóttir Listrænn ráðgjafi Árni Heimir Ingólfsson
Matthías Nardeau Peter Tompkins
Tónleikastjóri Anna Sigurbjörnsdóttir
KLARÍNETT
Fræðslustjóri Hjördís Ástráðsdóttir
FAGOTT
Markaðs- og kynningarstjóri Margrét Ragnarsdóttir Verkefnastjóri Greipur Gíslason
Michael Kaulartz Brjánn Ingason Rúnar Vilbergsson
Mannauðsstjóri Una Eyþórsdóttir
HORN
Stefán Jón Bernharðsson Emil Friðfinnsson Joseph Ognibene Lilja Valdimarsdóttir Frank Hammarin
TROMPET
Einar Jónsson Eiríkur Örn Pálsson Ásgeir Steingrímsson Guðmundur Hafsteinsson
BÁSÚNA
Sigurður Þorbergsson Oddur Björnsson David Bobroff, bassabásúna
TÚBA
Nimrod Ron
HARPA
Katie Buckley
PÍANÓ
Anna Guðný Guðmundsdóttir
PÁKUR
Eggert Pálsson
SLAGVERK
Steef van Oosterhout Frank Aarnink Árni Áskelsson 47
Fjármálafulltrúi Margrét Sigurðsson Nótna- og skjalavörður Kristbjörg Clausen Umsjónarmaður nótna Jökull Torfason Sviðsstjórar Grímur Grímsson Sigþór J. Guðmundsson
STJÓRN
Sigurbjörn Þorkelsson formaður Bryndís Pálsdóttir Friðjón R. Friðjónsson Jens Garðar Helgason Oddný Sturludóttir
ELDBORG SÆTASKIPAN
MIÐASALA
3. SVALIR
2. SVALIR
1. SVALIR
28 27 26 25 24 23 22 21 20 19 18 17 16 15 14 13 12 11 10 9 8 7 6 5 4
3 2 1
SVIÐ
=
ÁSKRIFTARKORT SVÆÐI RAUÐ RÖÐ
ALMENNT MIÐAVERÐ
GUL RÖÐ
GRÆN RÖÐ
TÓNSPROTINN
SVÆÐI
ALMENNT
SVÆÐI
TÓNSPROTINN
1
33.040 kr.
33.040 kr.
23.600 kr.
8.640 kr.
1
5.900 kr.
1
2.700 kr.
1+
40.320 kr.
40.320 kr.
28.800 kr.
8.640 kr.
1+
7.200 kr.
1+
2.700 kr.
2
28.560 kr.
28.560 kr.
20.400 kr.
7.360 kr.
2
5.100 kr.
2
2.300 kr.
3
21.840 kr.
21.840 kr.
15.600 kr.
7.360 kr.
3
3.900 kr.
3
2.300 kr.
4
2.500 kr.
FÖSTUDAGSRÖÐ Í NORÐURLJÓSUM
ATHUGIÐ
Miðaverð á staka tónleika í hinni nýju Föstudagsröð er 2.800 kr. Einnig er hægt að kaupa miða sem gildir á alla röðina; 6.720 kr
Athugið að almennt miðaverð gildir um flesta áskriftartónleika SÍ en miðaverð er þó mismundi eftir tónleikum og er að finna á sinfonia.is.
48
MIÐASALA Í HÖRPU
SINFONIA.IS / 528 50 50
ÁSKRIFTARKORT
Áskrift veitir þér 20% afslátt af almennu miðaverði. Áskrifendur fá einnig 10% afslátt af viðbótarmiðum á alla tónleika. Ef keyptar eru tvær áskriftarraðir, t.d. Gul og Rauð, er veittur 25% afsláttur. Ef keyptar eru þrjár raðir, Gul, Rauð og Græn, er veittur 30% afsláttur.
ENDURNÝJUN ÁSKRIFTA
Endurnýjun og sala nýrra áskriftar- og Regnbogakorta hefst 9. júní.
REGNBOGAKORT
Hægt er að kaupa Regnbogakort með fernum tónleikum eða fleiri úr hvaða röð sem er eða utan raða. Regnbogakort veitir 20% afslátt.
AFSLÁTTUR FYRIR 25 ÁRA OG YNGRI
50% afsláttur er af Regnbogakortum í verðsvæði 2 og 3 í Eldborg. Einnig býðst þessum aldurshópi að kaupa miða á tónleika samdægurs á 1.700 kr. gegn framvísun Skólakorts sem nálgast má í miðasölu Hörpu.
HÓPAFSLÁTTUR
Veittur er 10% afsláttur fyrir 25–50 miða en 15% fyrir fleiri en 50 miða.
MIÐASALA
Miðasala í anddyri Hörpu er opin 9–18 virka daga og 10–18 um helgar og fram að upphafi tónleika. Miða má kaupa á Netinu á sinfonia.is og harpa.is og í síma 528 50 50.
GJAFAKORT
Gjafakort á tónleika Sinfóniuhljómsveitar Íslands fást í miðasölu Hörpu. Kortin eru í fallegum umbúðum og tilvalin gjöf fyrir tónlistarunnendur.
BÍLASTÆÐI
Í kjallara Hörpu eru gjaldskyld bílastæði. Athugið að bílakjallaranum er lokað á miðnætti en er opnaður kl. 7 að morgni alla virka daga og kl. 10 um helgar. Hægt er að greiða bílastæði fyrir allt tónleikaárið fyrirfram á tónleikadaga að eigin vali.
AÐGENGI FATLAÐRA
Sérstök sæti fyrir hreyfihamlaða eru á aðalgólfi og í stúku á 1. svölum.
SINFÓNÍAN Á NETINU
Við hvetjum alla til að skrá sig á póstlistann á sinfonia.is og fá reglulega sendar fréttir af tónleikum og tilboðum. Einnig er hægt að gerast vinur Sinfóníunnar á Facebook, fylgja okkur á Twitter, Instagram, Youtube og Spotify.
TÓNLEIKASKRÁR
Tónleikaskrár eru afhentar við innganga í tónleikasal. Tónleikaskrárnar eru birtar á sinfonia.is daginn fyrir tónleika.
TÓNLEIKAUPPTÖKUR
Hægt er að nálgast upptökur frá tónleikum á sinfonia.is og ruv.is.
49
�
�
Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands
Mæðginin Ágústa María Jónsdóttir og Stefán Jón Bernharðsson eru hluti af mikilvægri heild.
Stefán Jón: Ég var auðvitað alveg grænn fyrst þegar ég byrjaði í sveitinni fyrir fimmtán árum síðan. Ágústa: Já, en þetta vandist fljótt og ætli þetta hafi ekki snúist við í dag, þú alir mig upp. Það er allavega stuðningur í því að vinna með fjölskyldumeðlimum. Sagt er að ákveðnar manngerðir leiki á viss hljóðfæri, eða skyldu hljóðfærin á einhvern hátt hafa mótandi áhrif á manneskjurnar? Að sitja inni í miðri hljómsveit þegar allt er komið á fulla ferð er merkileg upplifun sem Ágústa María Jónsdóttir þekkir vel. Hún kom til starfa í Sinfóníu
hljómsveit Íslands undir lok áttunda áratugarins. Tónlistarnámið stundaði hún hér heima og í sjálfri háborg tónlistarinnar, Vín í Austurríki, þar sem menn á borð við Mozart og Beethoven sömdu verk sín forðum daga. Þó að fiðlan sé í öndvegi í sinfónískum tónverkum eru hornin engu að síður
meðal glæsilegustu hljóðfæra sinfóníuhljómsveitar og einn tónlistarmannanna sem blæs í þau er Stefán Jón, sonur Ágústu. Það er gott að vita að í hljómsveitinni komi kynslóðirnar saman með eitt markmið – að þjóna tónlistargyðjunni.
gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf. 50
www.gamma.is
Sinfóníuhljómsveit Íslands 2016/17 Útgefandi: Sinfóníuhljómsveit Íslands, júní 2016 Ritstjóri: Margrét Ragnarsdóttir Texti: Árni Heimir Ingólfsson og Hjördís Ástráðsdóttir Hönnun og umbrot: Döðlur Ljósmyndir/forsíða: Ari Magg Aðrar ljósmyndir: Ýmsir Prentun: Litróf, umhverfisvottuð prentsmiðja
Athugið að tilhögun tónleika, miðaverð og annað sem greint er frá í þessum bæklingi kann að breytast án fyrirvara. Nýjustu upplýsingar er ávallt að finna á vef Sinfóníuhljómsveitar íslands, sinfonia.is Sinfóníuhljómsveit Íslands Harpa, Austurbakka 2, 101 Reykjavík Sími 545 25 00 sinfonia.is
9
Aðalstyrktaraðili :
Í samstarfi við : Sinfóníuhljómsveit Íslands Miðasala í Hörpu / sinfonia.is / harpa.is / 528 50 50 @icelandsymphony / #sinfó 10