
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS 2026 – 2027
2026 – 2027
![]()

2026 – 2027
FRAMKVÆMDASTJÓRI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
„Hápunktar
starfsársins eru fjölmargir en það er ekki laust við að einhver andi goðsagna og dularfullrar orku einkenni efnisvalið.“

Kæru tónlistarunnendur
Nú er heldur betur spenna í lofti!
Hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands ríkir mikil tilhlökkun fyrir nýju starfsári enda ekki á hverjum degi sem nýr aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi kemur til starfa. Eins og tónleikagestir hljómsveitarinnar hafa fengið að kynnast á undanförnum árum er Barbara Hannigan ótrúlega litríkur og hugmyndaríkur listamaður og við munum njóta hennar krafta næstu árin. Barbara á magnaðan söngferil og hefur einnig vakið mikla athygli á síðari árum sem hljómsveitarstjóri hjá mörgum virtustu sinfóníuhljómsveitum heims, með víðtæka og áhugaverða sýn á tónlist og áhrifamátt hennar.
Tónleikaárið framundan er gríðarlega fjölbreytt og framsækið. Frábærir gestir koma til samstarfs við sveitina og tónlistin er bæði litrík og spennandi. Sumir listamannanna framlengja heimsókn sína og deila með okkur list sinni á einleiks- eða kammertónleikum. Hápunktar starfsársins eru fjölmargir og það er ekki laust við að einhver andi goðsagna og dularfullrar orku einkenni efnisvalið.
Með fjölbreyttri dagskrá, fjölskyldu- og skólatónleikum ásamt öðru fræðslustarfi viljum við opna heim tónlistarinnar upp á gátt fyrir sem flestum. Allt snýst þetta um að snerta hjörtu og víkka sjóndeildarhringinn. Það er von okkar að sem flestir komi til fundar við tónlistina við bestu aðstæður í Hörpu, því tónlistin veitir lífsfyllingu og er frábær förunautur í gegnum lífið.
Við leggjum saman upp í ferðalag, hvert það leiðir, mun koma á óvart!

AÐALHLJÓMSVEITARSTJÓRI OG LISTRÆNN STJÓRNANDI
Kæru tónleikagestir
Strax við fyrstu kynni mín af Sinfóníuhljómsveit Íslands vorið 2022 fann ég fyrir sterkri tengingu; sameiginlegum anda ímyndunarafls, hugrekkis og forvitni. Hér fann ég sterka einstaklinga og skapandi listamenn en ekki síður sterka samkennd í hópnum. Slíkt er ekki sjálfsagt í hljómsveitum og ég met það mikils.
Ég ólst upp í Nova Scotia á Atlantshafsströnd Kanada, sem líkt og Ísland mótast af náttúruöflum, fámenni og fjarlægð frá stórborgum heimsins. En listræn orka og dirfska getur komið víða að og Ísland er vitanlega frábært dæmi um það. Það verður spennandi að fá að taka þátt í ykkar dýrmæta tónlistarlífi.
Ég hlakka til að fagna ríkri sögu og einstökum sérkennum hljómsveitarinnar, og að uppgötva nýjar leiðir á nýjum tímum með áheyrendum. Ég hef alltaf haft óbilandi trú á áhrifamætti lifandi tónlistarflutnings; þeim galdri sem getur skapast í tónleikasalnum og verður ekki endurtekinn. Sameiginleg upplifun tónlistar; spennan og eftirvæntingin, undrun og fegurð, eru kjarni þess galdurs og ég vona að tónleikagestir finni að þeir eru alltaf velkomnir í ævintýraheim tónlistarinnar. Sumir tónleikanna byggja á kunnuglegum hefðum, á meðan aðrir leiða okkur inn á nýjar óvæntar slóðir. Hvort tveggja er nauðsynlegt – og fyrir alla. Þegar best lætur getur tónlistin hughreyst okkur og ögrað, vakið okkur og umbreytt. Sérhver áheyrandi leggur sömuleiðis eitthvað einstakt til þeirrar upplifunar.
Ég hlakka til að deila þessu starfsári með framúrskarandi samstarfsfólki, þar á meðal staðarlistamanni okkar, píanóleikaranum Bertrand Chamayou og staðartónskáldinu Huga Guðmundssyni. Við Bertrand höfum lengi unnið saman og það er dýrmætt að fá að taka þátt í sköpun nýrrar tónlistar með Huga, bæði sem söngkona og hljómsveitarstjóri. Umfram allt er ég himinlifandi yfir því að hefja þetta ferðalag, þennan könnunarleiðangur með hljómsveitinni og ykkur.
„Ég hef alltaf haft óbilandi trú á áhrifamætti lifandi tónlistarflutnings; þeim galdri sem getur skapast í tónleikasalnum og verður ekki endurtekinn.“
LAU 22. ÁGÚST KL . 15 & 17
OPIÐ HÚS
HJÁ SINFÓ
SUN 20. SEPTEMBER KL . 14
FIM 24. SEPTEMBER KL . 20
MEISTARI MORRICONE
FIM 5. NÓVEMBER KL . 19
DAÐI FREYR & SINFÓ
FIM 12. NÓVEMBER KL . 19:30
PSYCHO BÍÓTÓNLEIKAR
FÖS 28. ÁGÚST KL . 20
MENNINGARNÓTT KLASSÍKIN OKKAR
ÞRI 1. SEPTEMBER KL . 18
OPIN KYNNING
MEÐ BARBÖRU HANNIGAN
FIM 3. SEPTEMBER KL . 19:30
ATTACCA!
UPPHAFSTÓNLEIKAR
FIM 10. SEPTEMBER KL . 19:30
CHAMAYOU LEIKUR RAVEL
FÖS 11. SEPTEMBER KL . 18
CHAMAYOU
EINLEIKSTÓNLEIKAR
FIM 1. OKTÓBER KL . 19:30
SCHUMANN & BEETHOVEN
FIM 8. OKTÓBER KL . 19:30
ALINA IBRAGIMOVA & BEETHOVEN NÍU
FÖS 9. OKTÓBER KL . 20
EDWARD GARDNER STJÓRNAR NÍUNDU
FIM 15. OKTÓBER KL . 19:30
FIM 22. OKTÓBER KL . 19:30
FÖS 13. NÓVEMBER KL . 18
SAKARI STJÓRNAR BLÁSARASVEITINNI
BLÁSARATÓNLEIKAR
FIM 19. NÓVEMBER KL . 19:30
STORGÅRDS STJÓRNAR BRUCKNER 2 HANNIGAN & HORSCH
FIM 26. NÓVEMBER KL . 19:30
HEIMSHORNA Á MILLI KAMMERTÓNLEIKAR
TIL HAMINGJU MOZART BERTRAND
LAU 19. SEPTEMBER KL . 14
DALENE LEIKUR ADÈS LÝRÍSKA SINFÓNÍAN POGA STJÓRNAR SHOSTAKOVITSJ
FIM 29. OKTÓBER KL . 19:30
AÐVENTUTÓNLEIKAR
LAU 28. NÓVEMBER KL . 14 FIM 3. DESEMBER KL . 19:30 LAU, SUN 12.– 13. DESEMBER KL . 14 & 16
JÓLATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR
FIM, FÖS, LAU 7.– 9. JANÚAR
VÍNARTÓNLEIKAR
FIM 14. JANÚAR KL. 19:30
FRÁ NÝJA HEIMINUM
FIM 28. JANÚAR KL. 19:30
SINFÓNÍAN Á MYRKUM
FIM 4. FEBRÚAR KL. 19:30
ARNHEIÐUR SYNGUR MAHLER
FÖS 23. APRÍL KL. 19:30
PRÓMEÞEIFUR
BARBARA SYNGUR ZORN KAMMERTÓNLEIKAR
LAU 20. FEBRÚAR KL. 14 & 15
FIM 29. APRÍL KL. 19:30
FRUMSÝNING LAU 6. MARS
PÍNULITLI TÓNSPROTINN FALSTAFF ÓPERAN
FIM 11. MARS KL. 19:30
FIM 18. MARS KL. 19
ÁSTA DÓRA LEIKUR GRIEG MATTHEUSARPASSÍAN
FÖS 2. APRÍL KL. 19:30
FÖS, LAU 9.– 10. APRÍL
KVIKMYNDIN KYNNT SÍÐAR
FIM 15. APRÍL KL. 19:30
FIM 11. FEBRÚAR KL. 19:30 LAU 13. FEBRÚAR KL. 17
FÖS 30. APRÍL KL. 18
LEONSKAJA LEIKUR MOZART ELISABETH LEONSKAJA EINLEIKSTÓNLEIKAR
LAU 8. MAÍ KL. 14
Í GRÆNNI LAUTU
FIM 20. MAÍ KL. 19:30
ANTONINI & AVITAL
FIM 27. MAÍ KL. 19:30
FREYJA
FIM 3. JÚNÍ KL. 19:30 HARPA FÖS 4. JÚNÍ KL . 19:30 HOF
DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT
FIM 10. JÚNÍ KL. 19:30
TAN DUN & STRAVINSKÍJ



REGNBOGAKORT
SKÓLAKORT
KORTA- & MIÐASALA
Boðið er upp á fimm ólíkar tónleikaraðir á starfsárinu og veitir áskrift 20% afslátt frá almennu miðaverði.
Áskrifendur fá einnig 10% afslátt af viðbótarmiðum og gjafakortum Sinfóníunnar.
Áskrifendur ganga að sætum sínum vísum og eiga forkaupsrétt á þeim þegar kemur að endurnýjun áskriftar.
Tvær áskriftaraðir veita 25% afslátt af miðaverði og þrjár áskriftaraðir veita 30% afslátt af miðaverði.
Regnbogaáskrift hentar þeim sem vilja setja saman sína eigin tónleikaröð. Veldu að lágmarki ferna tónleika úr dagskrá starfsársins og fáðu 20% afslátt af almennu miðaverði. Regnbogaáskrifendur fá einnig 10% afslátt af viðbótarmiðum og gjafakortum Sinfóníunnar.
FYRIR 25 ÁRA OG YNGRI
25 ára og yngri njóta 50% afsláttar með Regnbogakorti af almennu miðaverði á verðsvæðum 2 og 3 í Eldborg.
Ungt fólk, 25 ára og yngra, getur keypt miða á almenna tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar samdægurs á 2.590 kr. með Skólakorti. Hægt er að velja úr lausum sætum hvar sem er í salnum.
Skráðu þig fyrir Skólakorti og fáðu frekari upplýsingar á sinfonia.is/skolakort eða í miðasölu Hörpu.
Sala og endurnýjun áskrifta fer fram á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu. Upplýsingar um áskriftarverð og verðsvæði má finna á blaðsíðu 79 og á sinfonia.is/askriftaradir
Miðasala
528 5050 / midasala@harpa.is
Fyrir þau sem vilja kraftmikla sinfóníska tónlist með íslenskum og erlendum einleikurum í fremstu röð.

FIM 10. SEPTEMBER KL. 19:30
BARBARA HANNIGAN HLJÓMSVEITARSTJÓRI OG EINSÖNGVARI
BERTRAND CHAMAYOU EINLEIKARI
ALBERT ROUSSEL
LE FESTIN DE L'ARAIGNÉE / KÖNGULÓARVEISLAN
OLIVIER MESSIAEN
OISEAUX EXOTIQUES / FRAMANDI FUGLAR
BENJAMIN BRITTEN LES ILLUMINATIONS
MAURICE RAVEL PÍANÓKONSERT Í G-DÚR
FIM 15. OKTÓBER KL . 19:30


FIM 14. JANÚAR KL. 19:30
OLARI ELTS HLJÓMSVEITARSTJÓRI
ISABELLE FAUST EINLEIKARI
HJÁLMAR H. RAGNARSSON
DJÚPIÐ – SÁLUMESSA, FRUMFLUTNINGUR
BRETT DEAN THE LOST ART OF LETTER WRITING, FYRIR FIÐLU OG HLJÓMSVEIT
ANTONÍN DVOŘÁK SINFÓNÍA NR. 9 Í E-MOLL, „FRÁ NÝJA HEIMINUM“
FIM 11. MARS KL. 19:30
ÁSTA DÓRA LEIKUR GRIEG
TABITA BERGLUND HLJÓMSVEITARSTJÓRI
ÁSTA DÓRA FINNSDÓTTIR EINLEIKARI
CARL NIELSEN HELÍOS FORLEIKUR
EDVARD GRIEG PÍANÓKONSERT Í A-MOLL
ANNA ÞORVALDSDÓTTIR
SHADOWS OF SOLACE FRUMFLUTNINGUR Á ÍSLANDI
FIM 15. APRÍL KL. 19:30
DALENE LEIKUR ADÈS EVA STJÓRNAR BRUCKNER 5
DANÍEL BJARNASON HLJÓMSVEITARSTJÓRI
JOHAN DALENE EINLEIKARI
JEAN SIBELIUS RÁNARDÆTUR THOMAS ADÈS FIÐLUKONSERT, CONCENTRIC PATHS
BENJAMIN BRITTEN PASSACAGLIA ÚR ÓPERUNNI PETER GRIMES
JEAN SIBELIUS SINFÓNÍA NR. 7
FIM 29. OKTÓBER KL . 19:30
ANDRIS POGA HLJÓMSVEITARSTJÓRI
ALEXANDER ROSLAVETS EINSÖNGVARI
KARLAKÓRINN FÓSTBRÆÐUR
OG SÖNGHÓPURINN KYRJA
SERGEJ RAKHMANÍNOV EYJA HINNA DAUÐU
DMÍTRÍJ SHOSTAKOVITSJ SINFÓNÍA NR. 13 „BABÍ JAR“
EVA OLLIKAINEN HLJÓMSVEITARSTJÓRI
STEFAN DOHR EINLEIKARI
STEINGRÍMUR ROHLOFF HORNKONSERT ANTON BRUCKNER SINFÓNÍA NR. 5
FIM 3. JÚNÍ KL. 19:30 HARPA FÖS 4. JÚNÍ KL . 19:30 HOF
BILL ELLIOTT AT THE FAIR POGA STJÓRNAR
DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT
BARBARA HANNIGAN HLJÓMSVEITARSTJÓRI OG EINSÖNGVARI
FELIX MENDELSSOHN
ÞÆTTIR ÚR DRAUMI Á JÓNSMESSUNÓTT
AARON COPLAND DANCE SYMPHONY
RICHARD RODGERS CAROUSEL WALTZ

Fyrir þau sem vilja þekkta og aðgengilega klassík með fyrsta flokks einleikurum og söngvurum.
FIM 7. JANÚAR KL. 19:30


1. OKTÓBER KL . 19:30
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
BRYAN CHENG EINLEIKARI
LILI BOULANGER
D'UN MATIN DE PRINTEMPS / Á VORMORGNI
ROBERT SCHUMANN SELLÓKONSERT
SINFÓNÍA Í CÍS-MOLL
LUDWIG VAN BEETHOVEN
LEÓNÓRA, FORLEIKUR NR. 3
26. NÓVEMBER KL . 19:30
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
LUCIE HORSCH EINLEIKARI
JOHANN SEBASTIAN BACH RICERCAR A 6
JOHANN SEBASTIAN BACH
KONSERT FYRIR BLOKKFLAUTU, BWV 1053
ÍGOR STRAVINSKÍJ DUMBARTON OAKS
ERKKI-SVEN TÜÜR
WHISTLES AND WHISPERS FROM ULURU
SERGEJ PROKOFÍEV SINFÓNÍA NR. 1
„KLASSÍSKA SINFÓNÍAN“
CHRISTOPH KONCZ HLJÓMSVEITARSTJÓRI
HARPA ÓSK BJÖRNSDÓTTIR OG EGGERT REGINN KJARTANSSON EINSÖNGVARAR
FIM 4. FEBRÚAR KL. 19:30
TOMÁŠ HANUS HLJÓMSVEITARSTJÓRI ARNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR EINSÖNGVARI
ANTONÍN DVOŘÁK KARNIVAL FORLEIKUR
GUSTAV MAHLER SÖNGVAR FÖRUSVEINSINS
GUSTAV MAHLER URLICHT ÚR SINFÓNÍU NR. 2 JOHANNES BRAHMS SINFÓNÍA NR. 1
FIM 20. MAÍ KL. 19:30
GIOVANNI ANTONINI
HLJÓMSVEITARSTJÓRI OG EINLEIKARI
AVI AVITAL EINLEIKARI
JOSEPH BOLOGNE SINFÓNÍA NR. 1
JOHANN NEPOMUK HUMMEL
MANDÓLÍNKONSERT Í G-DÚR
JOHANN SEBASTIAN BACH KONSERT FYRIR
MANDÓLÍN OG BLOKKFLAUTU Í C-MOLL, BWV 1060R
WOLFGANG AMADEUS MOZART
SINFÓNÍA NR. 41, JÚPÍTER
Fjölskyldutónleikar þar sem yngstu gestirnir kynnast töfrum tónlistarinnar. Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir án hlés. Hrífandi ævintýri sem heilla börn á öllum aldri.


19. SEPTEMBER KL . 14
LAU 12. DESEMBER KL. 14
NICHOLAS SWENSEN HLJÓMSVEITARSTJÓRI TRÚÐURINN BARBARA/ HALLDÓRA GEIRHARÐSDÓTTIR KYNNIR ÁLFHEIÐUR ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR, JÓHANN KRISTINSSON OG KOLBRÚN VÖLKUDÓTTIR EINSÖNGVARAR KÓRAR, BJÖLLUKÓRAR, DANSARAR O.FL. GESTIR
RICHARD SCHWENNICKE HLJÓMSVEITARSTJÓRI
HALLDÓRA GEIRHARÐSDÓTTIR KYNNIR
BRYNDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR EINSÖNGVARI
UNNSTEINN ÁRNASON EINSÖNGVARI
WOLFGANG AMADEUS MOZART BROT ÚR EINE
KLEINE NACHTMUSIK, SINFÓNÍU NR. 1, KONSERT
FYRIR FLAUTU OG HÖRPU, TÖFRAFLAUTUNNI, RONDO ALLA TURCA O.FL.
LAU 8. MAÍ KL. 14
HJÖRTUR PÁLL EGGERTSSON HLJÓMSVEITARSTJÓRI ÓLAFUR EGILL ÓLAFSSON SÖGUMAÐUR OG KYNNIR
ANTONIO VIVALDI ÚR ÁRSTÍÐUNUM NIKOLAJ RIMSKÍJ-KORSAKOV BÝFLUGAN INGI T. LÁRUSSON Ó, BLESSUÐ VERTU SUMARSÓL MILEY CYRUS BLÓM
VAUGHAN WILLIAMS GEITUNGARNIR, FORLEIKUR JOSEPH KOSMA HAUSTLAUF
ENSKT LAG FROST ER ÚTI FUGLINN MINN ÍSLENSKT ÞJÓÐLAG KRUMMI SVAF Í KLETTAGJÁ
Áhugaverðir og óvenjulegir kammerog einleikstónleikar
í Norðurljósum. Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir án hlés. Láttu koma þér á óvart!

FÖS 11. SEPTEMBER KL . 18
LAU 28. NÓVEMBER KL . 14
KAMMERTÓNLEIKAR
BARBARA HANNIGAN EINSÖNGVARI
LUCIE HORSCH EINLEIKARI
HLJÓÐFÆRALEIKARAR ÚR
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
LUCIANO BERIO ÞJÓÐLÖG
GEORG PHILIP TELEMANN TVÍKONSERT FYRIR
BLOKKFLAUTU OG ÞVERFLAUTU
BÉLA BARTÓK RÚMENSKIR ÞJÓÐDANSAR
BÉLA BARTÓK ÞRJÚ RÚMENSK ÞJÓÐLÖG
ASTOR PIAZZOLLA LIBERTANGO
CHARLIE PARKER TICOTICO
ÍSLENSKT ÞJÓÐLAG MÓÐIR MÍN Í KVÍ KVÍ
LAU 13. FEBRÚAR KL. 17

EINLEIKSTÓNLEIKAR
BERTRAND CHAMAYOU PÍANÓ
LIEDER OHNE WORTE
SONG WITHOUT (GOOD) WORDS
JOHN LENNON & PAUL MCCARTNEY / GOLDEN SLUMBERS
ROBERT SCHUMANN / FRANZ LISZT WIDMUNG
EINE KLEINE MITTERNACHTMUSIK
SCRAPS OF A COLINDA
MELODY – FAINTLY RECOLLECTED WANDERER FANTASIE
13. NÓVEMBER KL . 18
BLÁSARASVEITINNI
BLÁSARATÓNLEIKAR
BLÁSARASVEIT
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
FANFARE POUR PRÉCÉDER LA PÉRI DIXTOUR
SINFÓNÍUR FYRIR BLÁSARA SEASCAPES
KAMMERTÓNLEIKAR
BARBARA HANNIGAN EINSÖNGVARI BERTRAND CHAMAYOU PÍANÓLEIKARI
OLIVIER MESSIAEN CHANTS DE TERRE ET DE CIEL / SÖNGVAR HIMINS OG JARÐAR ALEXANDER SKRJABÍN
POÈME NOCTURNE / NÆTURLJÓÐ ALEXANDER SKRJABÍN
VERS LA FLAMME / TIL LOGANS
JOHN ZORN JUMALATTERET / GYÐJUR
FÖS 30. APRÍL KL. 18
GRAN DUO ELISABETH LEONSKAJA
EINLEIKSTÓNLEIKAR
ELISABETH LEONSKAJA PÍANÓ LUDWIG VAN BEETHOVEN FANTASÍA OP. 77
FRANZ SCHUBERT
PÍANÓSÓNATA Í B DÚR, D. 960
OPIÐ HÚS HJÁ SINFÓ
MENNINGARNÓTT
ROLF VERBEEK HLJÓMSVEITARSTJÓRI
SÆVAR HELGI BRAGASON KYNNIR
FÖS 28. ÁGÚST KL . 20
DANÍEL BJARNASON HLJÓMSVEITARSTJÓRI
ÁLFHEIÐUR ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR EINSÖNGVARI
BRYNDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR EINSÖNGVARI
ELMAR GILBERTSSON EINSÖNGVARI
UNNSTEINN MANUEL STEFÁNSSON EINSÖNGVARI
ÁSTA DÓRA FINNSDÓTTIR EINLEIKARI KARLAKÓR REYKJAVÍKUR
FIM 3. SEPTEMBER KL . 19:30
UPPHAFSTÓNLEIKAR
BARBARA HANNIGAN HLJÓMSVEITARSTJÓRI
CHARLES IVES FROM THE STEEPLES AND THE MOUNTAINS
HUGI GUÐMUNDSSON UNDARK FRUMFLUTNINGUR
JOHN CAGE 4:33
GUSTAV MAHLER SINFÓNÍA NR. 1

FIM 24. SEPTEMBER KL . 20
THIAGO TIBERIO HLJÓMSVEITARSTJÓRI
DÍSELLA LÁRUSDÓTTIR EINSÖNGVARI
ENNIO MORRICONE KVIKMYNDATÓNLIST
FÖS 9. OKTÓBER KL . 20
EDWARD GARDNER HLJÓMSVEITARSTJÓRI HARPA ÓSK BJÖRNSDÓTTIR, HANNA DÓRA STURLUDÓTTIR, STUART SKELTON OG ANDRI BJÖRN RÓBERTSSON EINSÖNGVARAR SÖNGSVEITIN FÍLHARMÓNÍA OG KÓR LANGHOLTSKIRKJU
LUDWIG VAN BEETHOVEN SINFÓNÍA NR. 9
FIM 5. NÓVEMBER KL . 19
DAÐI FREYR & SINFÓ
DANÍEL BJARNASON HLJÓMSVEITARSTJÓRI
FIM 12. NÓVEMBER KL . 19:30 SUN 20. SEPTEMBER KL . 14
UNGSVEIT SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
NATHANAËL ISELIN HLJÓMSVEITARSTJÓRI
NIKOLAJ RIMSKÍJ-KORSAKOV SHEHERAZADE
PSYCHO BÍÓTÓNLEIKAR
PSYCHO ALFRED HITCHCOCK LEIKSTJÓRI
BERNARD HERRMANN TÓNLIST
BEN PALMER HLJÓMSVEITARSTJÓRI

FIM 3. DESEMBER KL . 19:30
MATTHEW HALLS HLJÓMSVEITARSTJÓRI
GEIRÞRÚÐUR ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR EINLEIKARI
WOLFGANG AMADEUS MOZART
BALLETTÓNLIST ÚR ÓPERUNNI IDOMENEO
JOSEPH HAYDN SELLÓKONSERT NR. 2
MARIANNA MARTINES SINFÓNÍA Í C-DÚR
WOLFGANG AMADEUS MOZART
SINFÓNÍA NR. 36 „LINZ“
FIM 28. JANÚAR KL. 19:30
BJARNI FRÍMANN BJARNASON HLJÓMSVEITARSTJÓRI
CAROLIN WIDMANN EINLEIKARI
ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR MISS REYKJAVIK RITA
CLARA IANNOTTA SAND LIKE GOLD-LEAF IN SMITHEREENS
KJARTAN SVEINSSON NÝTT VERK
HAUKUR TÓMASSON SIXTY SILVER DOMES
BÁRA GÍSLADÓTTIR SEA SONS SEASONS
LAU 20. FEBRÚAR KL. 14 & 15
RAGNHEIÐUR INGUNN JÓHANNSDÓTTIR
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
NÍELS THIBAUD GIRERD / BOLLI
KÖNNUSON LE STELL KYNNIR
FRUMSÝNING LAU 6. MARS
FALSTAFF ÓPERAN
ALEXANDER JOEL HLJÓMSVEITARSTJÓRI
BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR LEIKSTJÓRI
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON FALSTAFF
GIUSEPPE VERDI FALSTAFF
FIM 18. MARS KL. 19
BENEDIKT KRISTJÁNSSON
HLJÓMSVEITARSTJÓRI OG EINSÖNGVARI
ANTON HAUPT, HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR, ODDUR ARNÞÓR JÓNSSON, REGINALD MOBLEY OG SVEINN DÚA HJÖRLEIFSSON EINSÖNGVARAR
KÓR LANGHOLTSKIRKJU, MÓTETTUKÓRINN OG SKÓLAKÓR KÁRSNESSKÓLA
JOHANN SEBASTIAN BACH MATTHEUSARPASSÍAN
FÖS 2. APRÍL KL. 19:30
JOE HISAISHI HLJÓMSVEITARSTJÓRI
TÓNLIST EFTIR JOE HISAISHI
FÖS, LAU 9.– 10. APRÍL
KVIKMYNDIN KYNNT SÍÐAR
FÖS 23. APRÍL KL. 19:30
SAMUEL LEE HLJÓMSVEITARSTJÓRI
SIGURVEGARAR KEPPNINNAR UNGIR EINLEIKARAR


AÐALHLJÓMSVEITARSTJÓRI OG LISTRÆNN STJÓRNANDI
Það eru mikil tímamót í sögu Sinfóníuhljómsveitar Íslands nú þegar Barbara Hannigan hefur störf sem nýr aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi. Á ferli sem spannar ríflega þrjá áratugi hefur hún vakið gríðarlega aðdáun fyrir hljómsveitarstjórn og stórfenglegan söng og tvinnar oft saman þessi tvö hlutverk á einstakan máta. Barbara starfar með mörgum af fremstu sinfóníuhljómsveitum heims en þetta er í fyrsta sinn sem hún tekur að sér hlutverk aðalhljómsveitarstjóra og list-
Listræn sýn Barböru Hannigan einkennist af nýsköpun, dirfsku og ferskleika. Verkefnaval hennar kemur oft á óvart en einkennist jafnframt af djúpri hugsun og botnlausri virðingu fyrir tónlistinni. Hún hefur unnið náið með stórum hópi tónskálda, frumflutt fjölda nýrra tónverka og lagt sérstaka rækt
Barbara Hannigan er hlaðin verðlaunum og viðurkenningum fyrir list sína, hefur meðal annars hlotið Grammy- og Gramophone verðlaun, Sonning-verðlaunin og árið 2025 hlaut hún hin virtu Polar-tónlistarverðlaun. Við það tilefni sagði dómnefnd verðlaunanna að „einstakir tónlistarhæfileikar Hannigan og hugrekki geri hana að einum fremsta túlkanda
STAÐARLISTAMAÐUR


Franski píanóleikarinn Bertrand Chamayou er staðarlistamaður starfsársins. Hann er einn mest skapandi píanóleikari samtímans, þekktur fyrir túlkun sína sem er í senn kraftmikil, hugmyndarík og einstaklega falleg. Chamayou er leiðandi í túlkun franskrar tónlistar, til dæmis á verkum eftir Ravel, Liszt og Messiaen. Hann býr jafnframt yfir djúpri ástríðu fyrir nýrri tónlist og hefur unnið með tónskáldum á borð við Pierre Boulez, Henri Dutilleux, Thomas Adès og fleirum. Chamayou leikur reglulega í virtustu tónleikasölum heims og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir upptökur sínar, m.a. á öllum píanóverkum Ravels.
Á þessu starfsári leikur Chamayou á alls fernum tónleikum. Hann kemur fram sem einleikari á tvennum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Hannigan þar sem hann mun flytja tvo glæsilega píanókonserta. Auk þess leikur hann á einleikstónleikum og kammertónleikum með Barböru Hannigan en þau hafa starfað reglulega saman.
Hugi Guðmundsson er nýtt staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands til tveggja ára. Hann hefur fyrir löngu skipað sér í röð athyglisverðustu tónskálda þjóðarinnar. Hugi lærði tónsmíðar við tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík, Konunglega danska tónlistarháskólann og raftónlist við Sonology stofnunina í Haag. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, innanlands og á alþjóðlegum vettvangi.
Sem staðartónskáld hljómsveitarinnar mun Hugi semja fjögur hljómsveitarverk af ólíkum toga. Á upphafstónleikum starfsársins verður frumflutt nýtt verk, Undark, undir stjórn Barböru Hannigan. Þá vinnur Hugi að konsert fyrir Hannigan sem hefur hlotið nafnið Freyja og verður frumfluttur í maí 2027. Hugi vinnur einnig að tveimur öðrum tónverkum sem hljómsveitin frumflytur starfsárið 2027–28.
AÐALGESTASTJÓRNANDI

Hljómsveitarstjórinn Tomáš Hanus er aðalgestastjórnandi
Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann hefur verið aðalhljómsveitarstjóri Þjóðaróperunnar í Wales frá haustinu 2016 og stjórnað mörgum þekktum hljómsveitum í Evrópu; Sinfóníuhljómsveitum Lundúna og Breska ríkisútvarpsins, Þýsku sinfóníuhljómsveitinni í Berlín og fjölmörgum öðrum. Hanus hefur verið tíður gestastjórnandi við Ríkisóperuna í Vínarborg og stjórnað óperuuppfærslum við Bæversku ríkisóperuna í München, við Þjóðaróperuna í París og La Scala í Mílanó.
Á starfsárinu stjórnar Hanus hljómsveitinni á tvennum tónleikum í apríl og febrúar þar sem hann leiðir hljómsveitina meðal annars í gegnum hið stórfenglega Má vlast eftir samlanda sinn, tékkneska tónskáldið Bedřich Smetana.

Berlínarfílharmónían og Fílharmóníusveit New York borgar hafa til dæmis frumflutt tónverk eftir hana á undanförnum árum. Anna verður áfram listamaður í samstarfi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands starfsárið 2026/27. Anna gegndi hlutverki staðartónskálds SÍ frá árinu 2018 til ársloka 2023 en samstarf hennar við hljómsveitina spannar enn lengri tíma.
Á starfsárinu mun hljómsveitin standa að Íslandsfrumflutningi á stóru hljómsveitarverki eftir Önnu: Shadows of Solace, sem Sinfóníuhljómsveit Ísland pantaði í samstarfi við Sinfóníuhljómsveitina í Boston, Gewandhaus hljómsveitina í Leipzig og Fílharmóníusveitina í Helsinki.
LISTAMAÐUR Í SAMSTARFI
HEIÐURSSTJÓRNANDI
Finnski hljómsveitarstjórinn Osmo Vänskä var aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árunum 1993–1996. Vänskä nýtur mikillar virðingar á alþjóðavettvangi og náði frábærum árangri með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann tók við stöðu heiðursstjórnanda SÍ árið 2014 og hefur síðan að jafnaði stjórnað einum tónleikum á hverju starfsári. Vänskä var um árabil aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Lahti í Finnlandi og var aðalstjórnandi Minnesota-hljómsveitarinnar 2003 til 2022. Hann tók við stöðu aðalstjórnanda Fílharmóníusveitarinnar í Seúl í Suður-Kóreu árið 2020 og gegndi henni til 2023. Hljóðritanir hans hafa hlotið mikið lof og hefur hann hljóðritað með Sinfóníuhljómsveit Íslands nokkur hljómsveitarverk Jóns Leifs fyrir BIS-útgáfuna, meðal annars Sögusinfóníuna. Hann stjórnar næst tónleikum

Daníel Bjarnason hefur átt farsælt samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands í rúman áratug, sem hljómsveitarstjóri og tónskáld. Hann var staðarlistamaður á árunum 2015 til 2018 og aðalgestastjórnandi á árunum 2019 til 2021, en starfar nú með sveitinni sem listamaður í samstarfi. Tónsmíðar Daníels hafa vakið mikla athygli utan landsteinanna og hafa verið frumflutt eftir hann verk hjá helstu hljómsveitum heims.
Á starfsárinu 2026/27 stjórnar Daníel hljómsveitinni á þrennum tónleikum; Klassíkinni okkar, tónleikum með Johan Dalene í október og tónleikum hljómsveitarinnar á Iceland Airwaves. Þá mun Daníel leiða hljómsveitarstjórakademíu SÍ í fyrsta sinn, þar sem ungt tónlistarfólk fær að spreyta sig á stjórnandapallinum.
Vladimir Ashkenazy vakti fyrst alþjóðlega athygli þegar hann hlaut önnur verðlaun í Chopin-keppninni í Varsjá árið 1955, og síðan fyrstu verðlaun í Queen Elisabeth keppninni í Brussel 1956 og Tsjajkovskíj-keppninni í Moskvu 1962. Ashkenazy á að baki glæsilegan feril í hljóðverinu og hefur hlotið sjö Grammyverðlaun, m.a. sem besti einleikari með hljómsveit, fyrir bestu kammerhljóðritun og besta einleiksdisk. Samstarf Ashkenazy og Sinfóníuhljómsveitar Íslands spannar meira en hálfa öld. Hann kom fyrst fram með hljómsveitinni árið 1964 og stjórnaði henni í fyrsta sinn árið 1971. Hann hefur verið heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2002. Ashkenazy gegndi lykilhlutverki í því að hvetja ráðamenn til byggingar tónlistarhúss í Reykjavík og stjórnaði opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu vorið 2011. Forseti Íslands sæmdi Ashkenazy stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu í apríl 2018 fyrir framlag hans til íslensks tónlistar- og menningarlífs.
Ashkenazy lagði tónsprotann endanlega á hilluna árið 2020.

22. ÁGÚST LAUGARDAGUR KL. 15 & 17
ELDBORG HARPA
ROLF VERBEEK HLJÓMSVEITARSTJÓRI
SÆVAR HELGI BRAGASON KYNNIR
TÓNLIST EFTIR EDVARD GRIEG, JOHN WILLIAMS, CLAUDE DEBUSSY O.FL.
Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands gestum og gangandi á Sólmyrkvahátíð í Eldborg í fylgd með okkar ástsæla Sævari Helga Bragasyni eða Stjörnu-Sævari. Á tónleikunum förum við í ferðalag til sólarinnar og tunglsins og njótum glæsilegrar tónlistar um leið. Við skoðum hvernig sólarljósið verður til, hvernig sólin fæddist og hvernig hún býr til norðurljósin. Síðan höldum við til tunglsins, skoðum tignarlegan dans mánans um jörðina og hvernig tunglið er að hægja á snúningi jarðar. Hver veit nema sól- og tunglmyrkvar komi við sögu? Á tónleikunum verða einnig gerðar einfaldar sýnitilraunir sem dýpka skilning okkar á sólkerfinu. Verið öll hjartanlega velkomin í veislu fyrir augu og eyru með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Menningarnótt í Reykjavík.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis og hægt er að sækja miða á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu á tónleikadegi frá kl. 10:00.


UPPHAFSTÓNLEIKAR
MEÐ BARBÖRU HANNIGAN
„Barbara Hannigan er fyrir löngu
orðin miklu meira en stórkostleg sópransöngkona. Hún er heilsteyptur listamaður, stjórnar, sviðsetur og veltir fyrir sér hvernig skilgreina megi inntak og form klassískra tónleika upp á nýtt.“
DIE WELT
3. SEPTEMBER FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
BARBARA HANNIGAN HLJÓMSVEITARSTJÓRI
CHARLES IVES FROM THE STEEPLES AND THE MOUNTAINS
HUGI GUÐMUNDSSON UNDARK – FRUMFLUTNINGUR
JOHN CAGE 4:33
GUSTAV MAHLER SINFÓNÍA NR. 1
Barbara Hannigan, nýr aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, stýrir einstökum upphafstónleikum starfsársins þar sem tími og rúm renna saman. Tónleikarnir bera yfirskriftina Attacca!, en það hugtak er notað í tónlist þegar kaflar eða tónverk eru flutt án þess að hlé sé gert á milli þeirra. Kvöldið hefst á áhrifamikilli tónlist fyrir slagverk og málmblásara eftir bandaríska tónskáldið Charles Ives sem leiðir okkur inn í frumflutning á tónverkinu Undark eftir nýtt staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Huga Guðmundsson. Þá fáum við að upplifa saman þekktustu þögn tónlistarsögunnar í 4 mínútur og 33 sekúndur. Þetta umtalaða listaverk er eftir hinn tilraunaglaða John Cage og vildi hann með því vekja hlustandann til meðvitundar um eigin líkama, umhverfi sitt og þá staðreynd að ekki er til neitt sem heitir alger þögn. Tónleikunum lýkur á að fyrsta sinfónía Mahlers fær að hljóma í öllum sínum stórfengleika.
OPIN KYNNING - BARBARA HANNIGAN
Þriðjudaginn 1. september kl. 18 gefst áhugasömum tækifæri til að kynnast nýjum aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníunnar. Barbara Hannigan segir frá listrænum áherslum og hápunktum í dagskrá á nýju starfsári. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Nýr staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands, píanóleikarinn Bertrand Chamayou og sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn, Barbara Hannigan, verða í brennidepli á þessum fjölbreyttu tónleikum sem óneitanlega hafa sterkt franskt yfirbragð. Chamayou leikur tvö tónverk eftir samlanda sína frá Frakklandi sem eiga það sameiginlegt að búa yfir einstökum litbrigðum. Söngur framandi fugla Ameríku og Asíu varð Olivier Messiaen að innblæstri í litskrúðugu verki fyrir píanó, blásara og slagverk á meðan Ravel hugsaði fyrst og fremst um að skrifa léttan og skemmtilegan píanókonsert þar sem einleikarinn fengi að glansa. Tónskáldið sótti þar innblástur í þjóðtónlist forfeðra sinna í Baskalandi og töfrar fram tápmikil stef og einn fegursta hæga þátt píanóbókmenntanna. Ljóð Arthurs Rimbaud voru kveikjan að tónverki Benjamins Britten, Les Illuminations. Þau boða okkur að stórborgin sé að minnsta kosti jafn villt og frumskógurinn! Öldur sem brotna við ströndina, fjörugar skrúðgöngur og töfrandi ljós sem lýsa dansandi elskendum í kvöldhúminu.
Barbara Hannigan og strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands flytja okkur þetta kraftmikla meistaraverk.
Í upphafi tónleikanna hljóma atriði úr ballettinum Köngulóarveislunni eftir Albert Roussel, þar sem við kynnumst tælingarmætti köngulóarinnar, harðduglegum maurum og lífshlaupi dægurflugunnar.
10. SEPTEMBER FIMMTUDAGUR KL. 19:30 ELDBORG HARPA
BARBARA HANNIGAN HLJÓMSVEITARSTJÓRI OG EINSÖNGVARI BERTRAND CHAMAYOU EINLEIKARI
ALBERT ROUSSEL LE FESTIN DE L'ARAIGNÉE / KÖNGULÓARVEISLAN
OLIVIER MESSIAEN OISEAUX EXOTIQUES / FRAMANDI FUGLAR
BENJAMIN BRITTEN LES ILLUMINATIONS
MAURICE RAVEL PÍANÓKONSERT Í G-DÚR
Gagnrýnendur hafa vart undan því að lofa píanóleik Bertrands Chamayou. Efnisval hans hefur verið kallað frumlegt og leitandi, leikurinn kraftmikill, tæknilega fullkominn og hrífandi fagur.

11. SEPTEMBER FÖSTUDAGUR KL. 18:00
NORÐURLJÓS HARPA
BERTRAND CHAMAYOU PÍANÓ
FELIX MENDELSSOHN LIEDER OHNE WORTE
(ÚRVAL ÚR HEFTUM I, III OG VI)
CHARLES IVES SONG WITHOUT (GOOD) WORDS
JOHN LENNON & PAUL MCCARTNEY / TORU TAKEMITSU GOLDEN SLUMBERS
ROBERT SCHUMANN / FRANZ LISZT WIDMUNG
GEORGE CRUMB EINE KLEINE MITTERNACHTMUSIK
GYÖRGY KURTÁG SCRAPS OF A COLINDA
MELODY – FAINTLY RECOLLECTED
FRANZ SCHUBERT WANDERER FANTASIE
Ljóð án orða er leiðarstef þessara tónleika, þar sem öll efnisskráin tengist sönglögum sem orðið hafa tónskáldum innblástur. Smálög Mendelssohns, Ljóð án orða, eru viðeigandi upphaf þessa ferðalags. Þeim fylgir tónlist sem rímar vel við hógvær og innileg lög Mendelssohns, þar á meðal Söngur án (góðra) orða eftir Charles Ives, „Tileinkun“ Schumanns og dreymandi upprifjun Kurtágs á gleymdum rúmenskum jólasálmi. Vangaveltur George Crumbs um sígildan ópus Thelonious Monks ’Round Midnight, í Eine kleine Mitternachtmusik og frjálsleg útsetning Takemitsus á Bítlalaginu Golden Slumbers færa okkur á framandi slóðir. Tónleikunum lýkur svo á hinni glæsilegu Wanderer-fantasíu eftir Franz Schubert þar sem hver hinna fjögurra þátta hefst á tilbrigði við samnefnt sönglag tónskáldsins.

19. SEPTEMBER LAUGARDAGUR KL. 14 ELDBORG HARPA
RICHARD SCHWENNICKE HLJÓMSVEITARSTJÓRI HALLDÓRA GEIRHARÐSDÓTTIR KYNNIR BRYNDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR EINSÖNGVARI UNNSTEINN ÁRNASON EINSÖNGVARI
WOLFGANG AMADEUS MOZART BROT ÚR EINE KLEINE NACHTMUSIK, SINFÓNÍU NR. 1, KONSERT FYRIR FLAUTU OG HÖRPU, TÖFRAFLAUTUNNI, RONDO ALLA TURCA O.FL.
Við bjóðum í afmælisveislu eins mesta undrabarns tónlistarsögunnar, Wolfgangs Amedeusar Mozart. Á tónleikunum fögnum við 270 ára fæðingarafmæli tónskáldsins. Halldóra Geirharðsdóttir leikkona leiðir tónleikagesti í ferðalag um ólíka tónleikasali, lönd og menningarheima sem tónskáldið kynntist frá barnsaldri. Mozart var engum líkur, orkumikill og skemmtilegur, og líka dálítill prakkari. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur ásamt söngvurum valin verk sem draga upp lifandi mynd af afmælisbarninu. Í lok tónleikanna tökum við lagið með hljómsveitinni og syngjum Hann Tumi fer á fætur.
Þetta eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum og er lengd tónleikanna um ein klukkustund án hlés.

20. SEPTEMBER SUNNUDAGUR KL. 14 ELDBORG HARPA
UNGSVEIT SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
NATHANAËL ISELIN HLJÓMSVEITARSTJÓRI
NIKOLAJ RIMSKÍJ-KORSAKOV SHEHERAZADE
Á tónleikum Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fá tónleikagestir tækifæri til að horfa inn í framtíð íslensks tónlistarlífs. Á ári hverju tekst unga fólkið okkar á við metnaðarfullt verkefni úr tónlistarsögunni sem þau velja sjálf eftir umhugsun og rökræður. Nú verður fyrir valinu glæsilegt hljómsveitarverk RimskíjKorsakovs sem byggt er á ævintýraheimi Þúsund og einnar nætur en þann sagnaheim spinnur hin heillandi Sheherazade kvöld eftir kvöld fyrir soldáninn og bjargar þannig lífi sínu. Hljómur sinfóníuhljómsveita verður tæplega mikið litríkari en í einmitt þessu tónverki enda var Rimskíj-Korsakov yfirburða meistari í því að skrifa fyrir hljómsveit. Verkið er það langvinsælasta eftir tónskáldið og ástæður vinsældanna eru algjörlega skiljanlegar. Tónlistin er uppfull af heillandi laglínum sem kryddaðar eru af framandi hljóðheimi og hér eru allir litir sinfóníuhljómsveitar notaðir til fulls.
24. SEPTEMBER FIMMTUDAGUR KL. 20
ELDBORG HARPA
THIAGO TIBERIO HLJÓMSVEITARSTJÓRI
DÍSELLA LÁRUSDÓTTIR EINSÖNGVARI
ENNIO MORRICONE KVIKMYNDATÓNLIST
Fáir hafa haft jafn mikil áhrif á sviði kvikmyndatónlistar og ítalska tónskáldið Ennio Morricone. Hann samdi tónlist við meira en 400 kvikmyndir og sjónvarpsþætti og er af mörgum talinn eitt merkasta kvikmyndatónskáld allra tíma. Mikill hluti tónlistar hans fyrir kvikmyndir lifir enn góðu lífi utan kvikmyndatjaldsins en galdurinn margfaldast þegar tónlist og mynd koma saman. Morricone var gríðarlega fjölhæfur, gat auðveldlega tekist á við ólíkar tegundir tónlistar og margar þekktustu laglínur hans hafa enn djúpstæð áhrif á áhorfandann.
Á þessum kvikmyndatónleikum leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands tónlist úr mörgum af þekktustu kvikmyndunum sem meistari Morricone vann að. Þar á meðal eru Once Upon a Time in America, The Untouchables, Cinema Paradiso, Once Upon a Time in the West og The Mission. Sýnd verða brot úr kvikmyndunum á stóra tjaldinu á meðan á flutningi stendur og úr verður ógleymanleg stund fyrir kvikmyndaáhugafólk og tónlistarunnendur.
Tónleikarnir eru um 90 mínútna langir, án hlés.


Kanadíski sellóleikarinn, Bryan Cheng, sem skotist hefur hratt upp á stjörnuhimininn, leikur hinn innilega og ljóðræna sellókonsert Roberts Schumann. Þrátt fyrir blendnar móttökur í upphafi hefur konsertinn hlotið sess sem einn þekktasti sellókonsert rómantíska tímabilsins. Tónlist hinnar frönsku Charlotte Sohy hefur vakið aukna athygli á síðustu árum. Sinfónían í cís-moll er áhrifamikil lýsing konu á stríðsátökum þar sem lítið fer fyrir hetjudáðum en meira fyrir ótta og óvissu. Á tónleikunum hljómar einnig stuttur, sólbjartur forleikur eftir Lili Boulanger sem fangar vorstemninguna í París þegar náttúran vaknar úr vetrardvala. Að lokum er leikinn hinn kraftmikli þriðji Leonóru-forleikur Beethovens sem lifir góðu lífi sem sjálfstætt hljómsveitarverk. Hljómsveitarstjóri tónleikanna er hin unga Bar Avni. Hún var sigurvegari La Maestra hljómsveitarstjórakeppninnar árið 2024 og hefur ferill hennar verið á hraðri uppleið á síðustu misserum.
1. OKTÓBER FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
BAR AVNI HLJÓMSVEITARSTJÓRI BRYAN CHENG EINLEIKARI
LILI BOULANGER D'UN MATIN DE PRINTEMPS / Á VORMORGNI
ROBERT SCHUMANN SELLÓKONSERT
CHARLOTTE SOHY SINFÓNÍA Í CÍS-MOLL
LUDWIG VAN BEETHOVEN LEÓNÓRA, FORLEIKUR NR. 3

8. OKTÓBER FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
EDWARD GARDNER HLJÓMSVEITARSTJÓRI
ALINA IBRAGIMOVA EINLEIKARI
HARPA ÓSK BJÖRNSDÓTTIR, HANNA DÓRA STURLUDÓTTIR,
STUART SKELTON OG
ANDRI BJÖRN RÓBERTSSON EINSÖNGVARAR
SÖNGSVEITIN FÍLHARMÓNÍA
OG KÓR LANGHOLTSKIRKJU
SERGEJ PROKOFÍEV FIÐLUKONSERT NR. 1
LUDWIG VAN BEETHOVEN SINFÓNÍA NR. 9
Edward Gardner telst tvímælalaust til þekktustu hljómsveitarstjóra heims um þessar mundir. Hann gegnir starfi aðalstjórnanda Fílharmóníusveitar Lundúna og er tónlistarstjóri við Norsku óperuna og ballettinn auk þess sem hann er eftirsóttur gestastjórnandi hjá hljómsveitum og stærstu óperuhúsum heims. Fiðluleikarinn Alina Ibragimova hefur skipað sér á bekk með fremstu fiðluleikurum sinnar kynslóðar og kemur reglulega fram sem einleikari með hljómsveitum víða um heim en einnig sem flytjandi kammertónlistar. Hér færa þessir frábæru listamenn okkur hinn gullfallega fiðlukonsert nr. 1 eftir Sergej Prokofíev. Konsertinn ber höfundi sínum fagurt vitni með lýrískum seiðandi laglínum í bland við kraftmikil átök einleiksfiðlunnar við hljómsveitina. Níunda sinfónía Beethovens verður engu að síður þungamiðja þessara tónleika í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands með fulltingi einsöngvara og kóra í fremstu röð. Sinfónían er stórkostlegt ákall til mennsku og bræðralags, boðskapur sem á jafn brýnt erindi við nútímann og hún hafði í byrjun 19. aldar.
9. OKTÓBER FÖSTUDAGUR KL. 20 ELDBORG HARPA
EDWARD GARDNER HLJÓMSVEITARSTJÓRI
HARPA ÓSK BJÖRNSDÓTTIR, HANNA DÓRA STURLUDÓTTIR, STUART SKELTON OG ANDRI BJÖRN RÓBERTSSON EINSÖNGVARAR SÖNGSVEITIN FÍLHARMÓNÍA OG KÓR LANGHOLTSKIRKJU
LUDWIG VAN BEETHOVEN SINFÓNÍA NR. 9
Níunda sinfónía Ludwigs van Beethoven er af mörgum talin eitt glæsilegasta tónverk sögunnar. Form hennar og dramatískt umfang er mikilfenglegt og hún stendur fyllilega undir þeirri nafnbót að teljast til eins af hornsteinum vestrænnar tónlistarsögu. Eftir fyrstu þrjá þættina sem mótaðir eru af miklum innri átökum, færir fjórði þátturinn von og trú á mannkynið með túlkun tónskáldsins á Óðnum til gleðinnar eftir Friedrich Schiller. Sinfóníuna má líta á sem stórfenglega brýningu til mannkyns um að leita samkenndar og mennsku í gleðinni. Einsöngvarar tónleikanna eru meðal þekktustu söngvara þjóðarinnar að ógleymdum tenórsöngvaranum Stuart Skelton. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Söngsveitin Fílharmónía og Kór Langholtskirkju færa okkur þetta magnaða verk, undir stjórn Edwards Gardner.
Tónleikarnir eru í samstarfi við Arctic Circle - Hringborð Norðurslóða og Höfða friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands.

„Fyrir utan frábæra tækni, orku, næmni og tónlistarlega meðvitund býr Johan Dalene yfir þeirri gjöf að fanga athygli hlustandans algjörlega... Stjarna hans er þegar risin og glitrar í dýrlegum ljóma.“
RUCH MUZYCZNY
15. OKTÓBER FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
DANÍEL BJARNASON HLJÓMSVEITARSTJÓRI
JOHAN DALENE EINLEIKARI
JEAN SIBELIUS RÁNARDÆTUR
THOMAS ADÈS FIÐLUKONSERT, CONCENTRIC PATHS

BENJAMIN BRITTEN PASSACAGLIA ÚR ÓPERUNNI PETER GRIMES
JEAN SIBELIUS SINFÓNÍA NR. 7
Hér kemur tónlistin til okkar úr djúpinu en tvö heillandi tónverk eftir Jean Sibelius ramma inn tónleikana. Í upphafi rísa úr hafi Ránardætur í samnefndu tónaljóði finnska tónskáldsins. Þar dregur Sibelius upp listilega mynd af leik gyðjanna og hafinu, þessu mikla afli sem eina stundina virðist alsaklaust en rýkur upp þá næstu með ógnarafli. Undir lok tónleikanna hljómar hin stórkostlega sjöunda sinfónía tónskáldsins sem er, eins og tónaljóðið, aðeins í einum kafla. Sinfónían þykir bera frumleika tónskáldsins fagurt vitni og er af mörgum talin eitt af stórkostlegustu tónverkum Sibeliusar. Sænska ungstirnið Johan Dalene leikur einleik í áhrifamiklum fiðlukonserti eftir Thomas Adès. Stjarna hans hefur risið hratt frá því að hann lék síðast einleik með hljómsveitinni. Konsert Adès, eins þekktasta tónskálds samtímans, er í senn margbrotinn og hárnákvæmur, ljóðrænn og tilfinningaþrunginn. Annað breskt tónskáld, Benjamin Britten, á einnig verk á tónleikunum; millispil úr óperunni Peter Grimes þar sem hafið mótar líf persónanna, líkt og það gerir hjá okkur á eyjunni í norðri.
22. OKTÓBER FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
INGO METZMACHER HLJÓMSVEITARSTJÓRI
BRYNDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR EINSÖNGVARI
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON EINSÖNGVARI
FRANZ SCHUBERT SINFÓNÍA NR. 8 „ÓFULLGERÐA SINFÓNÍAN“
ALEXANDER ZEMLINSKY LÝRÍSK SINFÓNÍA
Barítónsöngvarinn Ólafur Kjartan Sigurðarson hefur notið mikillar hylli á undanförnum árum og er orðinn fastagestur á þekktustu óperusviðum heims. Á þessum tónleikum syngur hann ásamt sópransöngkonunni Bryndísi Guðjónsdóttur hina stórbrotnu Lýrísku sinfóníu eftir Alexander Zemlinsky. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta síðrómantíska verk hljómar hérlendis en tónskáldið samdi það undir sterkum áhrifum frá Mahler og tekst þar á við eftirsjá og þrá með frumlegum og áhrifaríkum hætti.
Tónlistarfræðingar eru ekki á einu máli hvers vegna Franz Schubert lauk ekki að fullu við 8. sinfóníu sína, en hann lauk aðeins tveimur þáttum af fjórum. Þrátt fyrir það lætur sinfónían engan ósnortinn með sínum ógleymanlegu laglínum. Það er hinn heimsþekkti hljómsveitarstjóri, Ingo Metzmacher sem stjórnar og er þetta í fyrsta sinn sem hann kemur fram með hljómsveitinni.




5. NÓVEMBER FIMMTUDAGUR KL. 19
ELDBORG HARPA
DANÍEL BJARNASON HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Daði Freyr hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af ástsælustu og skemmtilegustu tónlistarmönnum landsins. Hann er þekktur fyrir snjallar og húmorískar lagasmíðar, grípandi rafpopp og ófyrirsjáanlega nálgun sem höfðar til áheyrenda um allan heim.
Á þessum tónleikum stígur Daði Freyr á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg. Hér er tónlist hans færð í nýjan búning þar sem sinfónískar útsetningar mæta einkennandi popphljómi Daða Freys og úr verður einstök tónlistarupplifun. Daði Freyr vakti heimsathygli árið 2020 með laginu Think About Things, sem fór sigurför á netinu víða um heim, lagið fékk yfir 200 milljónir spilana og hlaut lof víða. Síðan þá hefur hann byggt upp stóran alþjóðlegan aðdáendahóp með eftirminnilegum tónleikum þar sem samstilltir dansar, leikandi sjónræn framsetning og hlý, sammannleg stemning skapa einstaka upplifun. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason.
Viðburðurinn er hluti af Iceland Airwaves 2026 sem sérstakur Partner Event. Áður hafa Sinfó og Iceland Airwaves haldið saman tónleika með John Grant, Jóhanni Jóhannssyni, Emilíönu Torrini, Ólafi Arnalds, Ásgeiri Trausta, Mugison og fleirum.

„Við verðum öll dálítið brjáluð stundum.“
NORMAN BATES, PSYCHO
12. NÓVEMBER FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
PSYCHO
ALFRED HITCHCOCK LEIKSTJÓRI
BERNARD HERRMANN TÓNLIST
BEN PALMER HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Kvikmynd Alfreds Hitchcock, Psycho, frá árinu 1960 um örlagaríka heimsókn Marion Crane á Bates-gistihúsið í Kaliforníu er af mörgum talin til bestu bíómynda liðinnar aldar. Kvikmyndin var tilnefnd til fernra Óskarsverðlauna og nýtur enn gríðarlegra vinsælda þrátt fyrir að rúm 65 ár séu liðin frá frumsýningu hennar. Þar skiptir sköpum hin hrollvekjandi tónlist bandaríska tónskáldsins Bernards Herrmann. Hann samdi tónlist við einar sjö kvikmyndir Hitchcocks og er tónlistin við Psycho langþekktust. Hún er einvörðungu skrifuð fyrir strengjahljóðfæri hljómsveitarinnar og eru möguleikar þeirra kannaðir í þaula. Skerandi strengjahljómarnir í hinu fræga sturtu-atriði eiga eftir að fylgja áheyrendum dögum saman í kjölfar tónleikanna!
Ekki missa af Psycho í lifandi flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg. Myndin er bönnuð áhorfendum yngri en 16 ára.

13. NÓVEMBER FÖSTUDAGUR KL. 18
NORÐURLJÓS HARPA
BLÁSARASVEIT SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS PETRI SAKARI HLJÓMSVEITARSTJÓRI
PAUL DUKAS FANFARE POUR PRÉCÉDER LA PÉRI
DARIUS MILHAUD DIXTOUR
ÍGOR STRAVINSKÍJ SINFÓNÍUR FYRIR BLÁSARA RUTH GIPPS SEASCAPES
MAGNUS LINDBERG GRAN DUO
Hljómsveitarstjórinn Petri Sakari, fyrrum aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir blásarasveit hljómsveitarinnar í afar fjölbreyttri efnisskrá þar sem allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Glæsilegt lúðragjall úr ballettónlist Paul Dukas setur tóninn áður en smellin og stríðnisleg tónlist Milhaud tekur við. Tónlist Stravinskíjs, sem tileinkuð er minningu Claude Debussys, er íhugult og hátíðlegt verk sem lýkur með kyrrlátum kóral.
Enska tónskáldið Ruth Gipps var einstaklega fjölhæf og eftir hana liggur fjöldi verka, m.a. fimm sinfóníur. Sem óbóleikari hafði hún afar góða þekkingu á blásturshljóðfærum sem birtist í einstaklega fallegu verki fyrir 10 blásara þar sem hafið og ströndin leika aðalhlutverkin. Tónleikunum lýkur á kraftmiklu verki fyrir 24 blásara eftir eitt þekktasta tónskáld Finna á síðari árum, Magnus Lindberg. Í Gran Duo takast á tré- og málmblásarar þar sem tónblær hvors hóps fær að njóta sín til fulls.
Á þessum tónleikum hljóma tvö tónverk í fyrsta sinn í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands: Píanókonsert eftir Clöru Schumann og 2. sinfónía Antons Bruckner. Píanókonsertinn hljómar hér í einstakri túlkun Alexöndru Dariescu en konsertinn skrifaði Clara kornung, aðeins 14 ára gömul, sem Clara Wieck. Fáum árum síðar giftist hún tónskáldinu Robert Schumann og tók þá upp hið þekkta eftirnafn eiginmannsins. Önnur sinfónía Bruckners fékk snemma viðurnefnið „Sinfónía þagnanna“ vegna rausnarlegrar notkunar Bruckners á þögnum til að skilja á milli formhluta innan verksins. Í síðari gerð verksins hafði Bruckner fækkað þögnunum umtalsvert og stytt en nafngiftin hélt sér engu að síður. Með þessari sinfóníu má segja að Bruckner hafi stigið stórt skref í að fullkomna tök sín á hinu sinfóníska formi.

Finnski hljómsveitarstjórinn og fiðluleikarinn John Storgårds stýrir Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikununum en hann mun einnig leika einleik á fiðlu í þremur litlum rómönsum eftir Clöru í hljómsveitarútsetningu Bernards Rofe.

26. NÓVEMBER FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
BARBARA HANNIGAN HLJÓMSVEITARSTJÓRI
LUCIE HORSCH EINLEIKARI
JOHANN SEBASTIAN BACH RICERCAR A 6
JOHANN SEBASTIAN BACH KONSERT FYRIR BLOKKFLAUTU, BWV 1053
ÍGOR STRAVINSKÍJ DUMBARTON OAKS
ERKKI-SVEN TÜÜR WHISTLES AND WHISPERS FROM ULURU
SERGEJ PROKOFÍEV SINFÓNÍA NR. 1 „KLASSÍSKA SINFÓNÍAN“
Blokkflautuleikarinn Lucie Horsch hefur skotist upp á stjörnuhimininn þrátt fyrir ungan aldur og er nú talin fremsti blokkflautuleikari sinnar kynslóðar. Hið virta tónlistartímarit breska ríkisútvarpsins, BBC sagði um leik Horsch að þar væri á ferðinni „Ógnvekjandi snilldargáfa og frábær tækni.“ Á þessum tónleikum kynnumst við möguleikum blokkflautunnar í tveimur mismunandi verkum; í umritun Frans Brüggen á fiðlukonsert Bachs fyrir blokkflautu og hljómsveit, en einnig í ævintýralegu verki eftir eistneska tónskáldið Erkki-Sven Tüür, Whistles and Whispers from Uluru, þar sem fuglasöngur Eystrasaltsins blandast dulmagni hins rauðleita sandsteinsfjalls, Uluru, í Ástralíu. Barbara Hannigan, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir einnig hljómsveitina í tveimur tónverkum nýklassíska tímans: Hinum glitrandi konsert, Dumbarton Oaks, eftir Ígor Stravinskíj og hinni bráðskemmtilegu klassísku sinfóníu eftir Sergej Prokofíev.

28. NÓVEMBER LAUGARDAGUR KL. 14:00
NORÐURLJÓS HARPA
BARBARA HANNIGAN EINSÖNGVARI
LUCIE HORSCH EINLEIKARI
HLJÓÐFÆRALEIKARAR ÚR SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
LUCIANO BERIO ÞJÓÐLÖG
GEORG PHILIP TELEMANN TVÍKONSERT FYRIR
BLOKKFLAUTU OG ÞVERFLAUTU
BÉLA BARTÓK RÚMENSKIR ÞJÓÐDANSAR
BÉLA BARTÓK ÞRJÚ RÚMENSK ÞJÓÐLÖG
ASTOR PIAZZOLLA LIBERTANGO
CHARLIE PARKER TICOTICO
ÍSLENSKT ÞJÓÐLAG MÓÐIR MÍN Í KVÍ KVÍ
Barbara Hannigan, blokkflautusnillingurinn Lucie Horsch og hópur hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands bjóða tónleikagestum í spennandi óvissuferð þar sem þjóð- og dægurtónlist frá ólíkum heimshornum er borin fram. Hér heyrum við frábærar útsetningar Luciano Berio á þjóðlögum ýmissa landa í flutningi Barböru Hannigan, kraftmikla austur-evrópska takta sem urðu Bartók að innblæstri og dillandi suðræna blokkflautuslagara. Þegar við bætist partítónlist eftir Charlie Parker og þjóðlagaarfur Íslands verða þessir tónleikar að sannkallaðri veislu fyrir augu og eyru með listamönnum á heimsmælikvarða.

3. DESEMBER FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
MATTHEW HALLS HLJÓMSVEITARSTJÓRI
GEIRÞRÚÐUR ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR EINLEIKARI
WOLFGANG AMADEUS MOZART BALLETTÓNLIST ÚR
ÓPERUNNI IDOMENEO
JOSEPH HAYDN SELLÓKONSERT NR. 2
MARIANNA MARTINES SINFÓNÍA Í C-DÚR
WOLFGANG AMADEUS MOZART SINFÓNÍA NR. 36 „LINZ“
Það er fátt sem dregur betur fram eftirvæntingu aðventunnar en þokkafull og hlýleg tónlist klassíska tímabilsins. Úr óperu Mozarts um Idomeneo drottningu kemur þokkafull balletttónlist sem er vinsæl ein og sér í tónleikasölum heimsins, utan samhengis óperunnar. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir leikur einleik í léttleikandi D-dúr sellókonserti annars meistara klassíska tímans, Josephs Haydn, en konsertar hans fyrir hljóðfærið eru algjör kjarnaverk selló-bókmenntanna og ná alltaf að heilla áheyrendur. Sjaldheyrð er hins vegar sinfónía eftir
Mariönnu Martines sem yfirleitt er talin hafa verið fyrsta konan til að semja sinfóníu. Hún náði að rækta tónlistargáfur sínar
þrátt fyrir að lifa í karllægum heimi austurrísks tónlistarlífs á átjándu öld. Hljómsveitarstjórinn Matthew Halls stjórnar að lokum hinni svokölluðu Linz sinfóníu Mozarts sem kennd er við borgina austurrísku en þar hafði tónskáldið stutt stopp árið 1783 og kom borginni rækilega á heimskort tónlistarsögunnar með þessari sólbjörtu sinfóníu.

12. DESEMBER LAUGARDAGUR KL. 14 & 16
13. DESEMBER SUNNUDAGUR KL. 14 & 16 ELDBORG HARPA
NICHOLAS SWENSEN HLJÓMSVEITARSTJÓRI TRÚÐURINN BARBARA/ HALLDÓRA GEIRHARÐSDÓTTIR KYNNIR ÁLFHEIÐUR ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR, JÓHANN KRISTINSSON OG KOLBRÚN VÖLKUDÓTTIR EINSÖNGVARAR STÚLKNAKÓR REYKJAVÍKUR OG KAMMERKÓRINN AURORA, DANSARAR ÚR LISTDANSSKÓLA ÍSLANDS, BJÖLLUKÓRAR TÓNLISTARSKÓLA REYKJANESBÆJAR OG TÓNSTOFU VALGERÐAR, SKÓLAHLJÓMSVEIT KÓPAVOGS OG HÖRPUHÓPUR

HARPA ÓSK BJÖRNSDÓTTIR OG
EGGERT REGINN KJARTANSSON EINSÖNGVARAR í uppfærslum Kammeróperunnar, nú síðast sem Don Jose í Carmen. Auk þeirra koma fram samkvæmisdansarar sem stíga létt og glæsileg spor í Eldborg við dynjandi Vínartónlistina. Vínartónleikarnir eru ævinlega fullkominn upptaktur að nýju ári og færa áheyrendum birtu og yl í svartasta skammdeginu.
„Isabelle
Faust er óttalaus leiðtogi í veröld fiðlunnar […] Hljómur fiðlu hennar svífur líkt og bros í gegnum tónlistina og hún sigrast auðveldlega á sérhverri hindrun.“
SÜDDEUTSCHE ZEITUNG

14. JANÚAR FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
OLARI ELTS HLJÓMSVEITARSTJÓRI ISABELLE FAUST EINLEIKARI
HJÁLMAR H. RAGNARSSON DJÚPIÐ – SÁLUMESSA, FRUMFLUTNINGUR BRETT DEAN THE LOST ART OF LETTER WRITING, FYRIR FIÐLU OG HLJÓMSVEIT ANTONÍN DVOŘÁK SINFÓNÍA NR. 9 Í E-MOLL, „FRÁ NÝJA HEIMINUM“
Isabelle Faust hefur verið einn eftirsóttasti fiðluleikari heims um árabil. Hún er Íslendingum að góðu kunn eftir að hafa verið staðarlistamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á árunum 2010–11 og heimsótt okkur nokkrum sinnum eftir það. Á þessum tónleikum leikur hún margverðlaunaðan fiðlukonsert eftir eitt þekktasta núlifandi tónskáld Ástralíu, Brett Dean, þar sem viðfangsefnið er hin týnda list bréfaskrifta. Þá verður frumflutt tónverkið Djúpið – Sálumessa eftir Hjálmar H. Ragnarsson, en hann lést í mars 2026. Í þessu tregafulla verki minnist hann vina og annarra sem gengið hafa af eigin hvötum yfir þröskuldinn sem aðskilur okkar verun og heim hins óþekkta. Djúpið – Sálumessa var síðasta hljómsveitarverkið sem Hjálmar lauk við. Tónleikunum lýkur svo með hinni sívinsælu sinfóníu Dvořáks, Frá nýja heiminum, sem snertir enn við áheyrendum með ógleymanlegum laglínum og hrífandi dramatík.
14. JANÚAR

FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
BJARNI FRÍMANN BJARNASON HLJÓMSVEITARSTJÓRI
CAROLIN WIDMANN EINLEIKARI
ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR MISS REYKJAVIK RITA
SAND LIKE GOLD-LEAF IN SMITHEREENS NÝTT VERK – FRUMFLUTNINGUR
SIXTY SILVER DOMES – FRUMFLUTNINGUR
BÁRA GÍSLADÓTTIR SEA SONS SEASONS FRUMFLUTNINGUR Á ÍSLANDI
Á tónlistarhátíðinni Myrkum Músíkdögum er ný tónlist í brennidepli. Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytur tvö tónverk eftir þá
Kjartan Sveinsson og Hauk Tómasson. Þá eiga Bára Gísladóttir, Þuríður Jónsdóttir og Clara Iannotta einnig verk á efnisskránni.
Kjartan er ótrúlega fjölhæfur tónlistarmaður og tónskáld.
Þekktur sem einn af forsprökkum hljómsveitarinnar Sigur Rósar en einnig fyrir tónsmíðar sem fluttar hafa verið víða um heim.
Haukur Tómasson er á meðal okkar fremstu tónskálda og hefur hljómsveitin flutt og hljóðritað fjölda verka hans. Ferill Báru
Gísladóttur er á hraðri uppleið og á þessum tónleikum verður verk hennar, sea sons seasons, flutt í fyrsta sinn á Íslandi. Þar veltir tónskáldið fyrir sér hafinu og þeim fjölbreyttu verum sem þar búa, raunverulegum sem óraunverulegum. Á tónleikunum leikur hin heimsþekkta Carolin Widmann nýjan fiðlukonsert eftir
Clöru Iannotta. Þessi konsert komst nýlega í menningarpressuna þegar hljómsveitin sem pantaði verkið í upphafi neitaði að flytja það. Konsertinn er skrifaður fyrir Widmann og kannar litamöguleika fiðlunnar og hljómsveitarinnar til hins ítrasta. Á tónleikunum hljómar einnig verk Þuríðar Jónsdóttur frá árinu 2014,

4. FEBRÚAR FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
TOMÁŠ HANUS HLJÓMSVEITARSTJÓRI
ARNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR EINSÖNGVARI
ANTONÍN DVOŘÁK KARNIVAL FORLEIKUR
GUSTAV MAHLER SÖNGVAR FÖRUSVEINSINS
GUSTAV MAHLER URLICHT ÚR SINFÓNÍU NR. 2
JOHANNES BRAHMS SINFÓNÍA NR. 1
Arnheiður Eiríksdóttir, messósópran, hefur skotist upp á stjörnuhimininn á síðustu árum og hlaut m.a. Alþjóðlegu óperuverðlaunin sem rísandi stjarna ársins 2024. Hér flytur hún okkur nokkur af fegurstu sönglögum Gustavs Mahler: Söngva förusveinsins, sem fjallar um ástir og sorgir förusveinsins og hið áhrifamikla Urlicht, eða Frumljós úr sinfóníu nr. 2, þar sem lýst er þránni eftir lausn frá veraldlegum þjáningum. Á síðari hluta tónleikanna stjórnar Tomáš Hanus, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hinni gullfallegu sinfóníu nr. 1 eftir Johannes Brahms, en það tók tónskáldið yfir 20 ár að ljúka við hana. Biðin eftir verkinu margborgaði sig þar sem sinfónían er einn af hornsteinum rómantískra tónbókmennta.

11. FEBRÚAR FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
BARBARA HANNIGAN
HLJÓMSVEITARSTJÓRI OG EINSÖNGVARI
BERTRAND CHAMAYOU EINLEIKARI
RAFAEL ADOBAS BAYOG EINLEIKARI
FABIANA PICCIOL I LJÓSAHÖNNUN
GEORGE CRUMB A HAUNTED LANDSCAPE
CLAUDE DEBUSSY SYRINX
JEAN SIBELIUS LUONNOTAR
MARIA HULD MARKAN SIGFÚSDÓTTIR AEQUORA ALEKSANDR SKRJABÍN PRÓMEÞEIFUR, LJÓÐ ELDSINS
Listrænn stjórnandi og aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Barbara Hannigan færir okkur tónleika sem hjúpaðir eru dulúð og sækja innblástur í fornar goðsagnir. Staðarlistamaðurinn, Bertrand Chamayou píanóleikari og Rafael Adobas Bayog, nýráðinn leiðari flautudeildar hljómsveitarinnar, eru í einleikshlutverkum kvöldsins. Einn af meisturum litbrigðanna, bandaríska tónskáldið George Crumb, dregur upp draugalega mynd af ímynduðu landslagi þar sem andar fortíðar eru á sveimi. Dreymandi einleikur Debussys um grísku gyðjuna Syrinx leiðir okkur svo inn í tónaljóðið Luonnotar fyrir sópran og hljómsveit eftir finnska tónskáldið Jean Sibelius. Þar flytur Hannigan á ljóðrænan hátt söguna af því hvernig Luonnotar, gyðja lofts og hafs, skóp heiminn úr brotum af andareggi. Gríska sagan um Prómeþeif, sem stal eldinum frá guðunum til að færa mönnunum í formi visku og þekkingar hefur verið tónskáldum innblástur um aldir. Rússneska tónskáldið Aleksandr Skrjabín lét ekki sitt eftir liggja og skrifaði tónaljóðið Ljóð eldsins fyrir píanó og hljómsveit þar sem samspil lita, ljóss og skugga skapar einstaka stemningu í draumkenndri tónlistinni. Einnig hljómar verkið Aequora eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur sem sækir innblástur í hafdjúpin og lífríki þeirra.
„Chamayou er framúrskarandi tónlistarmaður, ekki spurning.“

13. FEBRÚAR LAUGARDAGUR KL. 17
NORÐURLJÓS HARPA
BARBARA HANNIGAN EINSÖNGVARI
BERTRAND CHAMAYOU PÍANÓLEIKARI
OLIVIER MESSIAEN CHANTS DE TERRE ET DE CIEL
SÖNGVAR HIMINS OG JARÐAR
ALEXANDR SKRJABÍN POÈME NOCTURNE / NÆTURLJÓÐ
ALEXANDR SKRJABÍN VERS LA FLAMME / TIL LOGANS
JOHN ZORN JUMALATTERET / GYÐJUR

„Einstakir tónlistartöfrar, ljóðrænir, frumstæðir og hrífandi fallegir.“
THE GUARDIAN
Barbara Hannigan og píanóleikarinn Bertrand Chamayou bjóða til einstakra söngtónleika í Norðurljósum. Þessir tónleikar hafa farið sigurför um heiminn á undanförnum misserum og íslenskir tónlistarunnendur fá nú loks tækifæri til að njóta þeirra. Verkin á efnisskránni eiga öll uppruna í samspili náttúru og þeirra goðsagna sem mannkynið hefur mótað til að reyna að skilja heiminn. Þrír ólíkir meistarar eiga tónlistina hér en tveir þeirra, Messiaen og Skrjabín, eru jafnan taldir einhver frumlegustu og áhrifamestu tónskáld 20. aldar. Við bætist tónlist bandaríska tónskáldsins og spunameistarans Johns Zorn sem alltaf nær að skjóta sér undan skilgreiningum og koma á óvart. Tónleikarnir voru valdir meðal bestu tónleika ársins í New York á árinu 2024 af tónlistarblaðamönnum New York Times en í umsögn blaðsins sagði að þar töfruðu þau Hannigan og Chamayou fram epískan heim kvenorku og sköpunarkrafta.

20. FEBRÚAR LAUGARDAGUR KL. 14 & 15 FLÓI HARPA
RAGNHEIÐUR INGUNN JÓHANNSDÓTTIR HLJÓMSVEITARSTJÓRI
NÍELS THIBAUD GIRERD / BOLLI KÖNNUSON LE STELL KYNNIR
Pínulitli tónsprotinn er sniðinn að allra yngstu áheyrendum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónleikarnir eru um hálftímalangir og haldnir í Flóa, opnu og fallegu umhverfi í Hörpu. Hljómsveitin leikur fallega tónlist og skemmtileg lög sem margir þekkja. Kynnir er enginn annar en Bolli Könnuson Le Stell og Maxímús Músíkús kíkir að sjálfsögðu í heimsókn. Áhersla er lögð á létt og vinalegt andrúmsloft og nánd barnanna við hljómsveitina. Gott er að koma með púða fyrir þau minnstu til að sitja á.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
FRUMSÝNING 6. MARS LAUGARDAGUR
ELDBORG HARPA
ALEXANDER JOEL HLJÓMSVEITARSTJÓRI
BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR LEIKSTJÓRI
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON FALSTAFF
GIUSEPPE VERDI FALSTAFF
Fyrsta stóra uppfærsla Óperunnar verður gamanóperan Falstaff e. Giuseppe Verdi og er þetta er í fyrsta sinn sem þetta meistaraverk er sýnt á Íslandi. Verkið byggir á leikritinu Vindsórkonurnar kátu eftir William Shakespeare og fjallar um spaugilegar tilraunir aðalsmannsins Falstaff til að draga tvær efnaðar konur á tálar og hafa síðan fé út úr eiginmönnum þeirra. Þær sjá fljótt í gegnum blekkingar kauða og taka til sinna ráða. Falstaff er fjörug og leiftrandi ópera um breyskleika og blekkingar, afbrýðisemi og hégómagirnd.
Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með titilhlutverkið, en hann er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og hefur um árabil staðið á óperusviði víða um heim. Önnur hlutverk eru í höndum einvalaliðs íslenskra söngvara, en óperan verður flutt á íslensku í þýðingu Sólveigar Sigurðardóttur og Þórhalls Auðar Helgasonar.
Hin nýstofnaða Ópera er hluti af Þjóðleikhúsinu og setur sýninguna upp í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands
Áskrifendur Sinfóníunnar fá 15% afslátt af miðaverði á óperuna Falstaff.


11. MARS FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
TABITA BERGLUND HLJÓMSVEITARSTJÓRI
ÁSTA DÓRA FINNSDÓTTIR EINLEIKARI
CARL NIELSEN HELÍOS FORLEIKUR
EDVARD GRIEG PÍANÓKONSERT Í A-MOLL
ANNA ÞORVALDSDÓTTIR SHADOWS OF SOLACE FRUMFLUTNINGUR Á ÍSLANDI
Ásta Dóra Finnsdóttir er ein af okkar efnilegustu píanóleikurum og stundar nú framhaldsnám við einn virtasta tónlistarskóla heims, Curtis Institute of Music í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn sem Ásta Dóra kemur fram sem einleikari á áskriftartónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún leikur hér hinn síunga píanókonsert Griegs sem geislar af lífi og krafti. Konsertinn sló í gegn strax við frumflutning og hefur síðan verið eitt vinsælasta tónverk Griegs. Á síðari hluta tónleikanna verður Íslandsfrumflutningur á nýju stórvirki eftir Önnu Þorvaldsdóttur, en jafnan er beðið eftir nýjum verkum frá Önnu með mikilli eftirvæntingu um allan heim. Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveitinni í Boston, Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig og Fílharmóníuhljómsveitinni í Helsinki. Hin norska Tabita Berglund, stjórnandi tónleikanna, er á hraðri uppleið í heimi hljómsveitarstjóra og tekur við stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar í Bergen haustið 2026.

18. MARS FIMMTUDAGUR KL. 19 ELDBORG HARPA
BENEDIKT KRISTJÁNSSON HLJÓMSVEITARSTJÓRI OG EINSÖNGVARI ANTON HAUPT, HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR, ODDUR ARNÞÓR JÓNSSON, REGINALD MOBLEY OG SVEINN DÚA HJÖRLEIFSSON EINSÖNGVARAR KÓR LANGHOLTSKIRKJU, MÓTETTUKÓRINN OG SKÓLAKÓR KÁRSNESSKÓLA
JOHANN SEBASTIAN BACH MATTHEUSARPASSÍAN
Það er ekki á hverjum degi að ráðist er í flutning á þrekvirki J. S. Bachs, Mattheusarpassíunni, en árið 2027 verða 300 ár liðin frá frumflutningi hennar. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur nú þetta stórvirki tónlistarsögunnar ásamt fjölda einsöngvara og kóra undir stjórn Benedikts Kristjánssonar. Benedikt er okkar fremsti túlkandi á söngtónlist Bachs og eftirsóttur sem slíkur um gervalla Evrópu. Hér leiðir hann hljómsveitina auk þess að syngja hlutverk guðspjallamannsins. Með Benedikt koma fram margir af okkar fremstu söngvurum ásamt einvalaliði erlendra einsöngvara. Þrír kórar taka þátt í flutningi þessa mikilfenglega verks, sem tekur um þrjár klukkustundir í flutningi. Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi getur látið framhjá sér fara.
2. APRÍL FÖSTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
JOE HISAISHI HLJÓMSVEITARSTJÓRI
TÓNLIST EFTIR JOE HISAISHI
Tónskáldið, hljómsveitarstjórinn og píanóleikarinn Joe Hisaishi er einn þekktasti tónlistarmaður samtímans þökk sé fíngerðri og vandaðri tónlist hans fyrir hljómsveitir og einleikshljóðfæri. Hann hefur samið tónlist við yfir 100 kvikmyndir en það er einkum tónlist hans við kvikmyndir Ghibli-myndversins í Tókýó sem borið hefur hróður hans um heiminn. Hisaishi er eftirsóttur hljómsveitarstjóri og kemur reglulega fram með fremstu sinfóníuhljómsveitum heims og tónleikar með tónlist hans seljast iðulega upp með löngum fyrirvara. Meðal verka sem flutt verða er nýr konsert fyrir hljómsveit og svíta úr einni af Ghibli-myndum hans.
Það er mikill fengur að fá þennan heimsþekkta tónlistarmann í heimsókn og geta notið í fyrsta sinn tónlistar hans í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.


Sinfóníur Antons Bruckner hafa hrifið áheyrendur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í gegnum tíðina. Fimmta sinfónía Antons Bruckner er þar engin undantekning, en þessi tilkomumikla sinfónía skipar nokkuð sérstakan sess í höfundarverki Bruckners. Hún er frekar innhverft verk, hefst á hægum inngangi en þegar á líður rís hún upp í stórkostlegt samspil tóna og lita og nær hápunkti í glæsilegum lokaþættinum.
Tónlist íslensk-þýska tónskáldsins Steingríms Rohloff hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum og verk hans verið flutt víða um heim. Síðustu ár hefur hann einbeitt sér að einleikskonsertum fyrir einleikara í fremstu röð. Á þessum tónleikum fáum við að heyra Íslandsfrumflutning á konsert fyrir horn og hljómsveit sem saminn var að undirlagi Stefans Dohr, leiðara horndeildar Fílharmóníuhljómsveitar Berlínar. Konsertinn var frumfluttur í maí á síðasta ári í Álaborg og hlaut frábærar móttökur áheyrenda og gagnrýnendur töluðu um „meistaraverk sem á eftir heyrast aftur og aftur“. Hljómsveitarstjóri tónleikanna er Eva Ollikainen, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá 2020 til 2026.
15. APRÍL FIMMTUDAGUR KL. 19:30 ELDBORG HARPA
EVA OLLIKAINEN HLJÓMSVEITARSTJÓRI STEFAN DOHR EINLEIKARI
STEINGRÍMUR ROHLOFF HORNKONSERT ANTON BRUCKNER SINFÓNÍA NR. 5

23. APRÍL FÖSTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
SAMUEL LEE HLJÓMSVEITARSTJÓRI
SIGURVEGARAR KEPPNINNAR
UNGIR EINLEIKARAR
EFNISSKRÁ KYNNT SÍÐAR
Á þessum tónleikum, sem bera yfirskriftina Ungir einleikarar, kynnumst við nokkrum af björtustu framtíðarstjörnum íslenskrar tónlistar. Tónleikarnir eru sannkölluð uppskeruhátíð, þar sem sigurvegarar í einleikara- og einsöngskeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands stíga á svið með hljómsveitinni. Andrúmsloftið á þessum tónleikum er jafnan einstakt og eftirvæntingin mikil þegar ungu tónlistarfólki gefst færi á að koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, á glæsilegasta tónleikasviði landsins, í Eldborg.
Hljómsveitarstjóri að þessu sinni er Samuel Lee, sem sigraði hina virtu Malko-stjórnendakeppni árið 2024 og stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á síðasta starfsári á eftirminnilegum tónleikum. Undirtektir gesta á tónleikunum voru afar góðar og því er honum boðið hingað á nýjan leik í þetta gefandi, en krefjandi verkefni.
Einleikarakeppnin fer fram í byrjun árs 2027 og verða nöfn sigurvegara og efnisskrá tónleikanna birt á vef hljómsveitarinnar þegar úrslit liggja fyrir.

BACHTRACK
29. APRÍL FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
TOMÁŠ HANUS HLJÓMSVEITARSTJÓRI
ELISABETH LEONSKAJA EINLEIKARI
WOLFGANG AMADEUS MOZART PÍANÓKONSERT NR. 24
BEDŘICH SMETANA MÁ VLAST / FÖÐURLAND MITT
Elisabeth Leonskaja hefur átt glæstan feril sem píanóleikari í um 60 ár – og þessi hógværa drottning hljóðfærisins heillar enn áheyrendur með litskrúðugum leik sínum og innblásinni túlkun. Á tónleikunum leikur hún hinn gullfallega píanókonsert nr. 24 í c-moll eftir W.A. Mozart, sem er einn af hans þekktustu og mest leiknu píanókonsertum. Tomáš Hanus, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir hljómsveitina einnig í gegnum hið stórfenglega Má vlast eftir samlanda sinn, tékkneska tónskáldið Bedřich Smetana. Tónverkið hefur aldrei áður verið flutt hér í heild sinni en það er samsett úr sex sjálfstæðum tónaljóðum sem öll tengjast náttúru og sögu Bæheims. Annað tónaljóðið, Moldá, er langþekktasti hluti verksins og hefur margoft verið leikið af Sinfóníuhljómsveit Íslands.
30. APRÍL FÖSTUDAGUR KL. 18
NORÐURLJÓS HARPA
ELISABETH LEONSKAJA PÍANÓ
LUDWIG VAN BEETHOVEN FANTASÍA OP. 77
FRANZ SCHUBERT PÍANÓSÓNATA Í B DÚR, D. 960
Hin heimsþekkta Elisabeth Leonskaja nýtir Íslandsheimsókn sína vel og hér býðst öllum unnendum píanótónlistar einstakt tækifæri til að upplifa blæbrigðaríkan leik hennar á einleikstónleikum. Leonskaja fæddist í Georgíu rétt eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk. Hún sigraði Enesco píanókeppnina árið 1964 og lék til dæmis dúó tónleika með hinum goðsagnakennda Sviatoslav Richter. Frá árinu 1978 hefur Leonskaja verið búsett í Vínarborg og þaðan kemur hún með tónlist tveggja meistara í farteskinu. Hér hljómar annars vegar fantasía Beethovens sem líklegt er að tónskáldið hafi fyrst leikið af fingrum fram á risavöxnum tónleikum árið 1808, áður en hann festi verkið á blað ári síðar. Hins vegar tekst Leonskaja hér á við hinar feykimiklu og áhrifaríku sónötu Schuberts D 960 sem var síðasta sónatan sem hann samdi fyrir hljóðfærið skömmu fyrir dauða sinn og var ekki gefin út fyrr en að honum gengnum.


8. MAÍ LAUGARDAGUR KL. 14
ELDBORG HARPA
HJÖRTUR PÁLL EGGERTSSON HLJÓMSVEITARSTJÓRI
ÓLAFUR EGILL ÓLAFSSON SÖGUMAÐUR OG KYNNIR
ANTONIO VIVALDI ÚR ÁRSTÍÐUNUM NIKOLAJ RIMSKÍJ-KORSAKOV BÝFLUGAN
INGI T. LÁRUSSON Ó, BLESSUÐ VERTU SUMARSÓL
MILEY CYRUS BLÓM
VAUGHAN WILLIAMS GEITUNGARNIR, FORLEIKUR
JOSEPH KOSMA HAUSTLAUF
ENSKT LAG FROST ER ÚTI FUGLINN MINN
ÍSLENSKT ÞJÓÐLAG KRUMMI SVAF Í KLETTAGJÁ
Í grænni lautu er samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Listasafns Íslands og Grasagarðs Reykjavíkur. Þar eiga þjóðsögur, tónlist, myndlist og náttúran stefnumót. Við förum í árstíðatengt ferðlag þar sem tónlistin vekur allt að vori og listaverkin leika sér að litagleði sumarsins, fjúka með laufum haustsins og falla í djúpan dvala vetrarins.
Ólafur Egill Egilsson er sögumaður á þessum heillandi og lærdómsríku fjölskyldutónleikum og leiðir tónleikagesti í gegnum litróf árstíðanna þar sem tónlistin og grasafræðin sameinast myndlistinni sem varpað verður upp á meðan tónleikunum stendur.
Þetta eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum og er lengd tónleikanna um ein klukkustund án hlés.

20. MAÍ FIMMTUDAGUR KL. 19:30 ELDBORG HARPA
GIOVANNI ANTONINI HLJÓMSVEITARSTJÓRI OG EINLEIKARI
AVI AVITAL EINLEIKARI
JOSEPH BOLOGNE SINFÓNÍA NR. 1
JOHANN NEPOMUK HUMMEL MANDÓLÍNKONSERT Í G-DÚR
JOHANN SEBASTIAN BACH KONSERT FYRIR
MANDÓLÍN OG BLOKKFLAUTU Í C-MOLL, BWV 1060R
WOLFGANG AMADEUS MOZART SINFÓNÍA NR. 41, JÚPÍTER
Mandólín er ekki algengt einleikshljóðfæri á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands en nú ber svo við að okkur heimsækir þekktasti mandólínleikari samtímans, Avi Avital. Hann er heillandi tónlistarmaður og göldróttur á hljóðfæri sitt. Á þessum tónleikum sýnir hann snilli sína í laufléttum konsert frá klassíska tímanum eftir Johann Nepomuk Hummel og einnig í konsert fyrir mandólín og blokkflautu eftir meistara Bach þar sem hljómsveitarstjórinn Giovanni Antonini leikur á blokkflautuna. Antonini er aufúsugestur hingað til lands sem beðið hefur verið eftir enda stjórnar hann öllum fremstu sinfóníuhljómsveitum heims. Antonini stjórnar hér ennfremur tveimur sinfóníum klassíska tímans, annarri eftir Joseph Bologne sem fengið hefur aukna athygli á síðustu árum í heimi sígildrar tónlistar – og loks meistaraverki Mozarts, sinfóníu nr. 41 sem jafnan er kölluð Júpítersinfónían. Hún er síðasta og metnaðarfyllsta sinfónía Mozarts og jafnframt einn af hápunktum klassískrar tónlistarhefðar.
27. MAÍ FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
BARBARA HANNIGAN HLJÓMSVEITARSTJÓRI OG EINSÖNGVARI
HUGI GUÐMUNDSSON FREYJA, FRUMFLUTNINGUR LUDWIG VAN BEETHOVEN SINFÓNÍA NR. 2
Barbara Hannigan, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hugi Guðmundsson, staðartónskáld hljómsveitarinnar, taka hér höndum saman og frumflytja nýtt tónverk, Freyju, sem samið er í nánu samstarfi þeirra tveggja og kanadíska rithöfundarins
Julie Salverson sem ritar texta verksins. Freyja sveiflast milli hins hversdagslega og goðsagnakennda. Innblástur verksins er hið merka lífshlaup Margrétar Benedictsson (1866–1956) sem fluttist 21 árs úr örbirgð íslenskra heimahaga til Kanada, þar sem hún varð síðar mikill baráttukona fyrir mannréttindum. Hún stofnaði m.a. tímaritið Freyju og var einstakt afl í baráttunni fyrir kosningarétti kvenna í Kanada. Verkið kannar einnig samþættingu þeirra tveggja hlutverka sem Hannigan fer með í verkinu; sem hljómsveitarstjóri og einsöngvari.
Tónleikunum lýkur svo með hinni kraftmiklu og líflegu sinfóníu nr. 2 eftir Ludwig van Beethoven. Þrátt fyrir að vitneskjan um óumflýjanlegt heyrnarleysi hafi litað líf hans dökkum litum um þetta leyti er sinfónían engu að síður full af gáska og stríðni. Hún er eitt stórt bros sem fylgir okkur vonandi út í milt vorkvöldið.


3. JÚNÍ FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
4. JÚNÍ FÖSTUDAGUR KL. 19:30
HOF AKUREYRI
BARBARA HANNIGAN
HLJÓMSVEITARSTJÓRI OG EINSÖNGVARI
FELIX MENDELSSOHN ÞÆTTIR ÚR DRAUMI
Á JÓNSMESSUNÓTT
AARON COPLAND DANCE SYMPHONY
RICHARD RODGERS CAROUSEL WALTZ
BILL ELLIOTT AT THE FAIR
Í lok tónleikaársins býður Barbara Hannigan, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar upp á heillandi og sumarlega efnisskrá. Tónleikarnir hefjast með fjórum þáttum úr tónlist Mendelssohns við leikritið Draum á Jónsmessunótt, þar á meðal eru hinn fjörlegi forleikur og brúðkaupsmarsinn alþekkti. Dansinn er áberandi í bandarískri tónlist, sem finna má á efnisskránni. Hringekjan snýst og snýst í dillandi valsi úr söngleik Richard Rodgers og Dansasinfónía Aarons Copland hljómar nú í fyrsta sinn á Íslandi, verk sem tónskáldið endurvann upp úr balletti sem aldrei varð. Í lok tónleikanna syngur Barbara Hannigan í nýrri tónsmíð, Á hátíðinni, sem hún hefur skapað ásamt bandaríska kvikmynda- og leikhústónskáldinu Bill Elliot.
Tónleikarnir verða endurteknir í styttri útgáfu, án Dansasinfóníunnar, í Hofi á Akureyri.

„Tónlist Tan Dun er jafn víðfeðm og hún er altæk og höfðar til áheyrenda um allan heim.“
GRAMMOPHONE
10. JÚNÍ FIMMTUDAGUR KL. 19:30
ELDBORG HARPA
TAN DUN HLJÓMSVEITARSTJÓRI
SORAYA NAYYAR EINLEIKARI
ÍGOR STRAVINSKÍJ FEU D’ARTIFICE / FLUGELDAR
TAN DUN WATER CONCERTO, KONSERT FYRIR VATNSSLAGVERK OG HLJÓMSVEIT
ÍGOR STRAVINSKÍJ LE CHANT DU ROSSIGNOL SÖNGUR NÆTURGALANS
TAN DUN PASSACAGLIA: SECRETS OF WINDS AND BIRDS
Tan Dun er eitt af þekktustu tónskáldum samtímans og er hvað þekktastur fyrir að hafa náð að tengja saman kínverska og vestræna tónlistarhefð á listilegan máta. Hann er þekktur fyrir sinfónísk verk sín jafnt sem kvikmyndatónlist og hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín, þ. á m., Grammy-, BAFTA- og Óskarsverðlaunin fyrir tónlist sína við kvikmyndina Crouching Tiger, Hidden Dragon. Hann er góðvildarsendiherra UNESCO á sviði vatnaverndar, enda er vatn og önnur frumefni afar algengt yrkisefni í verkum hans. Leiðari pákudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Soraya Nayyar, mun leika hinn einstaka vatnskonsert eftir Tan Dun, þar sem vatnið er oft og tíðum aðal einleikshljóðfærið. Á tónleikunum verða einnig flutt tvö verk eftir Stravinskíj í fyrsta sinn á Íslandi: Æskuverkið Flugeldar, sem vakti verðskuldaða athygli á tónskáldinu unga þegar verkið var frumflutt og tónaljóðið Söngur næturgalans, sem Stravinskíj vann upp úr óperu sinni Næturgalanum frá 1914. Andi Vorblótsins svífur yfir vötnunum í þessu litskrúðuga og fjörmikla tónaljóði sem segir söguna af því hvernig söngur næturgalans bræddi hjarta keisarans í Kína.

Öflugt og fjölþætt fræðslustarf er mikilvægur þáttur í starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hefur verið allt frá stofnun hennar.
Fræðslustarfið er í stöðugri þróun þar sem áhersla er lögð á gæði, fjölbreytileika, inngildingu og samstarf. Skólatónleikar fyrir nemendur á öllum skólastigum og skólaheimsóknir eru fastur liður í starfsemi hljómsveitarinnar. Auk þess stendur hljómsveitin fyrir Ungsveitarnámskeiði, keppni ungra einleikara í samvinnu við Listaháskóla Íslands og hljómsveitarstjóraakademíu fyrir tónlistarnema.
Frekari upplýsingar: sinfonia.is/fraedslustarf

Saga Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Ríkisútvarpsins er samofin og í áratugi hafa hlustendur Rásar 1 um allt land getað hlýtt á tónleika hljómsveitarinnar í beinni útsendingu á Rás 1. Mikil áhersla er lögð á vandaða dagskrárgerð í tengslum við tónleikana. Hægt er að nálgast upptökur frá tónleikum og Á leið í tónleikasal á ruv.is. RÚV sjónvarpar einnig beint frá Klassíkinni okkar í ágúst árlega og sjónvarpar frá nokkrum völdum áskriftartónleikum á starfsárinu auk þess að sýna Jólatónleikana í

Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands býður í samvinnu við hljómsveitina upp á tónleikakynningar fyrir alla áskriftartónleika á starfsárinu. Á kynningunum gefst tónleikagestum tækifæri til að fræðast um efnisskrána í tali og tónum. Veitingasalan hefst í Hörpuhorni kl. 18:00 og geta gestir setið í notalegu umhverfi og notið veitinga. Sjálf kynningin hefst kl. 18:20 og stendur í um hálftíma. Tónleikakynningar eru haldnar í Hörpuhorni á 2. hæð, fyrir framan Eldborg. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands er öflugur vettvangur fyrir þá sem láta sig starfsemi hljómsveitarinnar miklu varða. Félagið hefur í gegnum tíðina staðið fyrir tónleikakynningum, fyrirlestrum og málþingum um sígilda tónlist og hefur einnig styrkt fjárhagslega ákveðin verkefni tengd hljómsveitinni.
Allir geta orðið meðlimir í Vinafélaginu — skráðu þig á sinfonia.is/vinafelag eða í miðasölu Hörpu.
Námsmenn yngri en 25 ára eiga kost á frábæru tilboði til að njóta tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Námsmenn ná sér í Skólakort Sinfóníunnar í miðasölu Hörpu eða skrá sig á vef hljómsveitarinnar sinfonia.is/skolakort. Á tónleikadegi geta skólakortshafar keypt miða á alla almenna áskriftartónleika Sinfóníunnar á aðeins 2.590 kr. Hægt er að kaupa miða á þessum bestu kjörum hvar sem er í salnum, allt eftir því hvað er laust á tónleikadegi. Það er ekki hægt að láta svona kostakjör renna sér úr greipum.
Sinfóníuhljómsveitin opnar dyrnar að lokaæfingum á tónleikadegi fyrir flesta áskriftartónleika. Hægt er að kaupa aðgang að æfingunum í miðasölu Hörpu, á harpa. is og sinfonia. is. Lokaæfing hefst kl. 10:00 en aðgangur er takmarkaður við ákveðin sæti í Eldborg á 1. svölum. Þetta er tilvalið tækifæri til að dýpka upplifun og skilning á tónlistinni sem flutt verður á tónleikum um kvöldið. Tekið skal fram að opnu æfingarnar eru vinnuæfingar og dagskrá þeirra því ekki endilega í fullu samræmi við tónleika kvöldsins.
Sinfóníuhljómsveit Íslands stuðlar að nýsköpun íslenskra tónverka; bæði með því að taka til flutnings ný og eldri verk sem send eru inn til verkefnavalsnefndar, en hljómsveitin hefur einnig haft frumkvæði að því að panta ný verk af íslenskum tónskáldum. Á komandi starfsári verða þrjú tónverk frumflutt sem Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur pantað, ýmist ein eða í samstarfi við aðrar hljómsveitir. Það eru verkin Freyja eftir Huga Guðmundsson, sea sons seasons eftir Báru Gísladóttur og Shadows of Solace eftir Önnu Þorvaldsdóttur.
Fyrirmyndir okkar í
óaðfinnanlegum flutningi
Vandvirkni, lipurð og dýnamík eru lykilorð í okkar fagi. Við erum stoltur bakhjarl Sinfóníuhljómsveitar Íslands og leggjum okkur fram við að ná sömu hæðum og sveitin þegar kemur að hljóðfæraflutningi á okkar sviði.

1. FIÐLA
Sigrún Eðvaldsdóttir NN*
Una Sveinbjarnardóttir
Bryndís Pálsdóttir
Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir
Skelton
Helga Þóra Björgvinsdóttir
Hildigunnur Halldórsdóttir
Joanna Bauer
Laufey Jensdóttir
Laura Liu
Margrét Kristjánsdóttir
Olga Björk Ólafsdóttir
Pálína Árnadóttir
Wei Lín Sigurgeirsson
Zbigniew Dubik NN* NN*
2. FIÐLA NN*
Gunnhildur Daðadóttir
Emma Garðarsdóttir
Hekla Finnsdóttir
Ingrid Karlsdóttir
Justyna Bidler
Kristján Matthíasson
Margrét Þorsteinsdóttir
Ólöf Þorvarðsdóttir
Sigurlaug Eðvaldsdóttir
Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir
Sólveig Steinþórsdóttir
Þórdís Stross
VÍÓLA
Þórunn Ósk Marinósdóttir
Rita Porfiris
Eyjólfur Bjarni Alfreðsson
Guðrún Hrund Harðardóttir
Guðrún Þórarinsdóttir
Guðbjartur Hákonarson
Herdís Anna Jónsdóttir
Kathryn Harrison
Sarah Buckley
Svava Bernharðsdóttir
Þórarinn Már Baldursson
SELLÓ
Sigurgeir Agnarsson
Steiney Sigurðardóttir
Bryndís Björgvinsdóttir
Bryndís Halla Gylfadóttir
Guðný Jónasdóttir
Hrafnkell Orri Egilsson
Margrét Árnadóttir
Sigurður Bjarki Gunnarsson
Urh Mrak
BASSI
Xun Yang
T.C. Fitzgerald
Hávarður Tryggvason
Jacek Karwan
Þórir Jóhannsson
NN*
FLAUTA
Rafael Adobas
Áshildur Haraldsdóttir
Caterina Compagno
ÓBÓ
Julia Hantschel
Matthías Nardeau
Peter Tompkins
KLARINETT NN*
Grímur Helgason
Rúnar Óskarsson
FAGOTT
Clara Manaud
Bryndís Þórsdóttir
Brjánn Ingason
HORN
Stefán Jón Bernharðsson
Justin Mange
Emil Steindór Friðfinnsson
Yi-Ling Shih
NN*
TROMPET
Zach Silberschlag
Einar Steinþór Jónsson
Eiríkur Örn Pálsson
Guðmundur Hafsteinsson
BÁSÚNA
Jón Arnar Einarssn
Sigurður Þorbergsson
BASSABÁSÚNA
David Bobroff
TÚBA
NN*
HARPA
Katie Buckley
PÁKUR
Soraya Nayyar
SLAGVERK
Marco Santos
Steef van Oosterhout
Frank Aarnink
FRAMKVÆMDA- OG
SKRIFSTOFUTEYMI
Guðni Tómasson framkvæmdastjóri
Valdís Þorkelsdóttir viðburða- og skipulagsstjóri Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað verkefnastjóri viðburða Hjördís Ástráðsdóttir fræðslustjóri
Tryggvi M. Baldvinsson listrænn ráðgjafi
Jökull Torfason verkefnastjóri dagskrárgerðar
Margrét Ragnarsdóttir markaðs- og kynningarstjóri
Kristín Björg Björnsdóttir markaðsfulltrúi
(í leyfi)
Rut Sigurðardóttir markaðsfulltrúi (í afleysingu)
Dagrún Hálfdánardóttir mannauðsstjóri
Svanhvít Hrólfsdóttir fjármálastjóri
Tracy Bass nótnavörður
Brynja Guðmundsdóttir umsjónarmaður nótna
Sigþór J. Guðmundsson verkefnastjóri sviðsog tæknimála
Björk Björgúlfsdóttir sviðsmaður
STJÓRN
Sigurður Hannesson formaður
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Margrét Pálmadóttir
Emil Friðfinnsson
Ragnar Jónasson
VERKEFNAVALSNEFND 2025—26
Tryggvi M. Baldvinsson, formaður
Daníel Bjarnason
Grímur Helgason
Hjördís Ástráðsdóttir
Margrét Ragnarsdóttir
Ragnar Jónasson
Sigrún Eðvaldsdóttir
Soraya Nayyar
Urh Mrak
Valdís Þorkelsdóttir
Þorbjörg Daphne Hall

ALMENNT MIÐAVERÐ
Miðaverð á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands getur verið breytilegt. Boðið er upp á ólík verðsvæði í Eldborg og því ættu allir að geta valið sér sæti. Nánari upplýsingar um verð á einstaka tónleika er að finna á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu
ÁSKRIFTAKORT
Áskrift að tónleikaröðum Sinfóníuhljómsveitarinnar veitir 20% afslátt af almennu miðaverði. Tvær raðir veita 25% afslátt af miðaverði og þrjár raðir veita 30% afslátt. Áskrifendur fá einnig 10% afslátt af viðbótarmiðum á alla tónleika. Endurnýjun og sala korta fer fram á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu.
REGNBOGAKORT
Regnbogaáskrift veitir 20% afslátt af almennu miðaverði. 25 ára og yngri njóta 50% afsláttar með Regnbogakorti af almennu miðaverði á verðsvæðum 2 og 3 í Eldborg.
GJAFAKORT SINFÓNÍUNNAR
Gjafakort Sinfóníunnar fást í miðasölu Hörpu og á sinfonia.is. Þau eru tímalaus og renna ekki út. Hægt er að prenta út rafræn gjafakort strax eða fá þau afhent í sérstökum gjafaumbúðum Sinfóníunnar í miðasölu Hörpu.
Miðasala Hörpu er opin alla daga vikunnar kl. 10 – 18 og lengur á tónleikakvöldum. Hægt er að hafa samband við miðasöluna í síma 528 5050 og á midasala@harpa.is.

Útgefandi: Sinfóníuhljómsveit Íslands vorið 2026
Ritstjórn: Margrét Ragnarsdóttir
Textar: Tryggvi M. Baldvinsson, Margrét Ragnarsdóttir, Hjördís Ástráðsdóttir og Guðni Tómasson Hönnun og umbrot: Aton
Myndskreytingar: Sigurður Ýmir
Hópmynd af hljómsveit: Ari Magg
Ljósmyndir: Ýmsir
Prentun: Litróf, umhverfisvottuð prentsmiðja
Athugið að tilhögun tónleika, miðaverð og annað sem greint er frá í þessum bæklingi kann að breytast án fyrirvara. Nýjustu upplýsingar er ávallt að finna á vef Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sinfonia.is.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Harpa, Austurbakka 2, 101 Reykjavík
Sími 545 2500