Skip to main content

SALKA_ELIN_A5_baeklingur_2026_listo

Page 1


X- SALKA Í FORMANN LISTÓ

ÁVARP

Góðan daginn elsku Verzlingur og gleðilega kosningaviku!

Salka Elín Sæþórsdóttir heiti ég og býð mig fram í embætti formanns

Listafélagsins og þar af leiðandi í stjórn NFVÍ. Ég elska nemendafélagið og allt sem það hefur upp á bjóða, ég hef verið svo heppin að taka þátt í allskonar verkefnum seinustu tvö ár eins og GVÍ, myndatökur, undirnefndir leikfélagana og svo auðvitað Listó. Félagslífið hefur kennt mér hluti sem enginn áfangi getur kennt mér og þar hef ég öðlast reynslu sem ég mun nýta mér út lífið. Ég vonast til að geta öðlast meiri og betri reynslu á næsta ári sem formaður Listó.

Ég hef fylgst með Listó í mörg ár (þeir sem vita vita) og varð strax hrifin, þá vissi ég að Verzló var þar sem ég vildi vera því Listó var eitthvað sem ég varð að fá að vera partur af. Eftir að hafa setið í nefndinni í ár er ég ekki lengur hrifin af Listó heldur ástfangin. Í nefndinni fékk ég að vera samfélagsmiðlastjóri og sá um markaðsetningu þar ásamt því að sjá leikskrána, alla prentun, peysurnar og fleira. Listó hefur gefið mér svo margt: bestu vini, gríðarlega reynslu, innsýn inn í þennan heim og svo fallegar minningar og allt mun þetta fylgja mér út lífið. Mig langar að halda áfram að læra og ég tel hlutverk formanns Listó vera hið fullkomna næsta skref.

Ég elska Listó og það væri gríðarlegur heiður að fá að vera formaður nefndarinnar á næsta ári, help a girl out og setjið X-Salka Elín í formann Listó <3

REYNSLA REYNSLA REYNSLA REYNSLA REYNSLA REYNSLA REYNSLA REYNSLA REYNSLA

Reynsla innan NFVÍ

1. bekkjarráð

GVÍ 24-25

Undirnefndir Listó 24-25

• Sýningarstjóri

• Sviðsmynd

• Leikskrá

Undirnefndir Nemó 24-25

• Sýningarstjóri

• Leikskrá

• Búninganefnd

• Ljósmyndanefnd

• Sviðsmynd

Alls kyns myndatökur t.d. Gullið, Nemó og

Peysó

Listó nefnd 25-26: samfélagsmiðlastjóri, peysur, leikskrá, prentun á efni

Aðstoðarmaður leikstjóra Nemó 25-26

Undirnefndir Nemó 25-26

• Sýningarstjóri

• Ljósmyndanefnd

Reynsla utan NFVÍ

Vaktstjóri í Ísbúð Huppu 2023-2025

Fótbolti í Þrótti 2016-2025

Skrekkur 2022 og 2023

Nemendaráð Langholtsskóli 2022 og 2023

Lokaverkefni í Langholtsskóla Börn í neyð

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

LISTÓ

MÓRALL

STEFNUMÁL

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

Númer 1, 2 og 3 í Listó er mórall! Það gerist ekkert gott ef stemningin í hópnum er ekki góð, leikritið verður ekki eins gott og fólk fær ekki að njóta þess að vera partur af þessu frábæra ferli. Fyrsta skrefið er að byggja upp góðan móral innan nefndarinnar, til dæmis með check in og hópefli. Svo vil ég passa upp á heildina milli leikhóps og nefndar, ferlið verður einfaldlega skemmtilegra þannig. Að lokum vil ég tryggja góðan móral milli nefndar og undirnefnda, ef stemningin er góð vilja undirnefndirnar leggja sitt að mörkum og sýningin verður betri. Það gerir enginn neitt einn og við þurfum allt þetta fólk til að gera bestu Listósýningu sem hefur verið.

SVIÐSMYND

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

SALKA ELÍN Í

Sviðsmyndin er mikilvægur partur af starfi Listónefndar og ég vil leggja áherslu á að skipuleggja uppsetningu hennar vel. Mig langar að við nefndin byrjum snemma á undirbúningi fyrir sviðsmyndahelgina, við nefndin byrjum kvöldið áður, pössum að skipuleggja hana í þaula og skipta niður verkum því þannig verðum við komin lengra þegar helgin klárast. Með betra skipulagi geta þeir sem eru ekki að fara í skólaferðir yfir vetrarfríið vonandi nýtt það í önnur verkefni en vinnu við sviðsmynd eins og til dæmis markaðssetningu.

MARKAÐSSETNING

FORMANN LISTÓ

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

Markaðssetningin var góð í fyrra en ég vil gera hana enn betri á næsta ári. Mig langar að við förum í fleiri PR-kynningar, dreifum fleiri plakötum um allan bæ, förum í útvarps- og sjónvarpsviðtöl til að ná til breiðari hóps. Einnig vil ég leggja mikla áherslu á að framleiða markaðsefni fyrir samfélagsmiðla í æfingaferlinu sem við getum svo póstað seinna. Eftir frumsýningu þurfa leikarar að einbeita sér að náminu og eiga erfiðara með að gera Tiktok í sýningartímabilinu. Með betri undirbúningi minnkum við þetta vandamál og efnið sem við gefum frá okkur verður einnig vandaðara.

HORFA TIL FRAMTÍÐAR

SALKA ELÍN Í FORMANN LISTÓ

Ég vil ráðast í verkefni sem einfalda nefndarstörf fyrir komandi ár eins og til dæmis að ganga frá í listógeymslunni. Þessi blessaða geymsla hefur séð betri daga og það þarf að taka hana í gegn. Einnig vil ég fjárfesta í hlutum sem við og framtíðarnefndir getum nýtt, eins og hljóðnema fyrir markaðsefni og betri tæknibúnaður í Bláa sal.

STEFNUMÁL

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

SALKA ELÍN Í

LEIKLISTARNÁMSKEIÐ LISTÓ

FORMANN LISTÓ

Mig langar að endurvekja leiklistarnámskeið Listó sem var alltaf haldið fyrsta skóladaginn eftir sumarfrí. Síðasta námskeiðið var haldið árið 2019 en hefðin hætti með komu Covid. Námskeiðið yrði haldið eftir skóla og væri góður undirbúningur fyrir prufurnar sem hefjast svo daginn eftir. Við myndum fá leikstjóran/a eða aðra hæfileikaríka einstaklinga til að halda námskeiðið.

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

STJÓRN NFVÍ

VIRKJA SAMFÉLAGSMIÐLA

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

Ég tel samfélgasmiðla vera mjög góða leið til markaðssetningar og trúi því að með aukinni virkni getum við stækkað skólann. Ef við virkjum miðla NFVÍ á Instagram og Tiktok er ég viss um að skólinn verði meira spennandi. Grunnskólanemendur myndu frekar vilja koma í Verzló en aðra skóla og það myndi skila sér í betri mætingu á böll, leikrit og aðra viðburði sem skólinn heldur.

SALKA ELÍN Í

MEIRI HEILD

FORMANN LISTÓ

Mig langar að gera skólann að enn meiri heild en hann er í dag. Ég tel að við getum náð því með því að halda fleiri viðburði sem eru fyrir allan skólann. Mig langar að halda fleiri böll, bæta við einu annað hvort fyrir eða eftir áramót. Einnig langar mig að passa að vikurnar verði vel heppnaðar, með skemmtilegri dagskrá og reyna að búa til stemningu þar sem allir vilja koma niður á marmara.

NÝNEMAR

Mig langar að leggja sérstaka áherslu á að taka vel á móti nýnemum á næsta ári. Það var tekið mjög vel á móti okkur þegar við byrjuðum í skólanum. Maður fann strax að maður var partur af hópnum sem er gríðarlega mikilvægt, sérstaklega þar sem menntaskólaárin eru aðeins þrjú ár. Nýnemavikan, fleiri viðburðir fyrir allan skólann, stækka busanefndirnar og viðburðaríkar vikur eru allt dæmi um það sem við getum gert til að láta nýnemum líða betur og stærri partur af heildinni.

KOLLA OG HALLDÓR

Salka Salka Salka, hvar á maður byrja? Það hentar engum betur en þér að vera formaður Listafélagsins. Salka er hreinlega allur pakkinn, hún er skipulögð, hlý og ein fallegasta sál sem við höfum kynnst. Þegar við komum inn í Listó, bæði bara litlir óöruggir busalingar tókst þú sérstaklega vel á móti okkur, okkur leið strax eins og hluti af hópnum þökk sé þér elsku Salka. Nú höfum við verið með þér bæði sem nefndarmeðlimi í Listó og aðstoðarmaður leikstjóra í Nemó og hefur þú svo algjörlega sýnt fram á það að þetta hlutverk sé fyrir þig. Systir þín varð formaður 2024 og systir Tinnu á undan því. Síðan var það Tinna í fyrra og er það skrifað í skýin að nú takir þú við. Þetta er alls ekki erfitt val kæru Verzlingar.

X við Sölku í formann Listó! Kolla og Halldór

Meðlimir leikhóps Listó 25

Ég gerðist svo lánsamur að hafa fengið hana Sölku í leikstjórnarteymið mitt í Nemó þetta skólaárið þegar við settum upp söngleikinn Barbí. Salka var frábær í alla staði og var draumur einn að vinna með henni í gegnum þetta ferli. Styrkleikar Sölku munu klárlega nýtast henni vel í formennsku Listafélagsins þar sem hún er mjög skipulögð og getur séð um yfirsýn á flóknum verkefnum. Salka klárar öll þau verkefni sem henni eru fólgin og gat ég alltaf treyst á það. En það sem mér finnst standa hvað mest upp úr í fari Sölku er hvað hún er jákvæð, metnaðarfull og gefur góða orku frá sér, það er ótrúlega þægilegt og gott að vinna með henni Sölku sem mun skila henni langt og hvað þá í verkefni sem þessu.

Af öllu mínu hjarta mæli ég með henni Sölku sem formann Listafélagsins næsta skólaár og vona svo innilega að þú kjósir hana - Verzló gæti ekki fengið betri manneskju í jobbið!

SALKA ELÍN Í

Höskuldur

Leikstjóri Nemó 25-26

FORMANN LISTÓ

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

SALKA ELÍN Í

Salka er fyrst og fremst góð í að baka bollakökur. Hún er líka góð í íshokkí, að mála, finna hver á raunverulegu prumpulyktina, búa til pappírs skutlur og að sækja hluti upp frá gólfinu með tásunum sínum.

Nei, okei

HÖSKULDUR

FORMANN LISTÓ

Öllu gríni sleppt er Salka bókstaflega bara góð í öllu. Hún er góð í samskiptum, hún er góð í að vera jákvæð, hress, fyndin, áreiðanleg, hógvær, hugmyndarík og góð í að matcha orkuna þína í öllum aðstæðum alltaf og að passa að þér líði vel. Hún er góð í að skapa og gagnrýna list og hún er frábær leiðtogi sem kann að skipta niður verkefnum. Auk þess er hún líka ábyrg, ástríðufull og dugleg gagnvart öllu því sem hún tekur að sér.

SALKA ELÍN Í FORMANN LISTÓ

Og halló, ekki nóg með allt þetta, heldur er ángríns Salka´s destiny að vera formaður listó. Hún hefur alltaf verið partur af listó ferlinu á einn eða annan hátt síðustu ár og meira að segja þegar hún var ekki komin í Versló. Hún er með alla reynsluna sem þarf og veit hvers ætlast er af henni og hvað er hægt að gera betur.

SALKA ELÍN Í

Vá, ég held ég hafi aldrei skrifað jafn gott meðmæli. Ef þið eruð ekki seld þá veit ég ekki hvað. Salka væri nefnilega ekki einu sinni bara góður formaður listó heldur væri hún fullkomin formaður listó. Drauma og Ísabel Bekkjarsystur Í 2B

FORMANN LISTÓ

LISTÓ NEFNDIN 25-26

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

SALKA ELÍN Í

Salka Elín er snilli í alla staði, dugleg jákvæð og geislandi. Það er ekker sem hún getur ekki og það var heiður að vinna með henni í vetur. Ef ég væri í Verzló myndi ég kjósa nöfnu í formann Listó!!

Salka Gústafs

Leikstjóri Listó 25

SALKA GÚSTAFS

FORMANN LISTÓ

Dugnaðarforkur landsins hún Salka. Það er óteljandi margir kostir sem hægt er að telja upp sem eiga við hana Sölku svo það verður erfitt að troða því öllu í lítinn textabút… En til að byrja sterkt þá rennur Listó blóðið um æðarnar á þessari stelpu! Salka var mætt í niðurtekt á Listó leikmyndinni áður en hún varð einu sinni nemandi í skólanum. Talandi um dugnað, hún þurfti að mæta vegna þess að ENGINN nennti að mæta. Þetta er eitt sem er víst um Sölku, hún er til staðar ef þið þurfið á henni að halda. Hún er umburðarlynd, dugleg, litrík og allt í allt einstakur gullmoli sem við í Listó erum svo heppin að hafa kynnst. Við sem fyrrverandi nefndarmeðlimir hennar getum sagt með stolti að Salka smellpassar í starfið sem formaður Listó og við gætum ekki verið stoltari af henni.

SALKA ELÍN Í

Gerið það sem er rétt og setjið X við Sölku í formann

Listó!

FORMANN LISTÓ

Listó nefndin 25-26 (Tinna undanskilin)

Salka fokking Elín. The woman you are Sölku í formann Listó gæti ekki verið einfaldari ákvörðun því metnaðarfyllri, ákveðnari og áreiðanlegri manneskju er erfitt að finna. Við fengum svo sannarlega að kynnast því í Nemó ferlinu þar sem að Salka var aðstoðarmaður leikstjóra. Heppnar vorum við að fá hana í þetta starf því Barbí sýningin hefði ekki orðið að veruleika án hennar. Salka var alltaf með allt á hreinu og vissi einhvern veginn alltaf allt. Ef við þurftum einhverjar upplýsingar eða aðstoð með eitthvað þá leituðum við til Sölku og fengum svar við því strax.

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

SALKA ELÍN Í

Við munum svo vel eftir augnablikinu þegar Salka steig inn í GVÍ viðtalið sitt. Hún var svo ótrúlega einlæg og yfirveguð. Það sem sat í okkur eftir viðtalið var hvað hún var stútfull af frumlegum hugmyndum sem myndu nýtast verkefnum nefndarinnar fullkomlega en síðan fundum við líka hvað hún myndi vera geggjuð fyrir móralinn í hópnum. Að hafa Sölku með var hin fullkomna viðbót inn í nefndina. Hún tók af skarið, alltaf jákvæð og í öllum aðstæðum (sama hversu krefjandi) náði hún að halda ró og bjartsýni. Salka er manneskja sem maður getur treyst. Hún stendur við sitt og maður veit að það alltaf hægt að leita til hennar. Hún býr yfir mjög mikilli leiðtogahæfni og þolinmæði sem er akkúrat það sem formaður Listó þarf að hafa. Það er bókað mál að besta leikrit í sögu Listó verður framkvæmt undir hennar stjórn!

Sunna og Kristjana Formenn GVÍ 24-25

FORMANN LISTÓ

Við fengum einnig að fylgjast með Sölku blómstra í Listó í ár. Hún sinnti öllum verkefnum sem þurfti sama hvort það var að mála veggi, taka upp auglýsingu eða henda á leikarana málningu í miðri sýningu. Salka er smá svona „the glue“ alls staðar. Hún heldur öllu saman og lætur allt ganga vel og hratt fyrir sig. Ekki nóg með það þá er Salka líka frábær vinkona. Hún er svo hjartahlý og góð manneskja og það líður ekki dagur þar sem hún er ekki brosandi. Salka er alltaf í góðu skapi og fær alla í kringum sig til að brosa. Þegar við vorum í hápunkti álagsins í Nemó ferlinu og við vorum algjörlega að missa það úr stressi, þá var Salka sú sem gat róað okkur og sagt að allt yrði í lagi. Salka er best og hún mun verða frábær formaður Listó nefndarinnar sem hún elskar svo heitt þannig kjósið rétt og setjið X við Sölku í formann Listó <3 Inga Lilja og Marta Sif Meðlimir Nemónefndar 25-26

SALKA ELÍN Í

FORMANN LISTÓ

TAKK

Mamma og pabbi

Saga systir

Balli bró

Meðmælin mín

Styrktaraðilar

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
SALKA_ELIN_A5_baeklingur_2026_listo by Salka Elin - Issuu