Fréttaveita Sambands stjórnendafélaga | Júní 2023
40. þing STF á Húsavík Stjórnendur komu saman til sambandsþings á Húsavík í byrjun maí sl. og ræddu hagsmunamál sín í þaula. Við segjum frá þinginu í máli og myndum í blaðinu.
Mikil tækifæri í samstöðunni „Ég er sannfærður um að það eru gífurlega mörg tækifæri fólgin í samstöðunni og ég mun sem nýr forseti leggja mig fram um að auka samstöðuna og tala menn saman til góðra ákvarðana. Það er augljóst af umræðunni innan STF síðustu ár að forystumenn sumra félaga vilja renna þeim saman í stærri einingar en aðrir vilja reyna á samstarf okkar með öðrum hætti. Þarna verða menn að fara sínar leiðir en aðalatriðið er að gera þetta vel og gera þetta saman,“ segir Bjarni Þór Gústafsson, nýr forseti STF í samtali. Í lok viðtalsins segir Bjarni Þór: „Það eru spennandi tímar fram undan og mikilvægt að við leggjum okkur öll fram um að styrkja félagsheildina með hag félagsmanna okkar að leiðarljósi. Ég er klár í slaginn.“
Sjá bls. 6
Gáttaður á rausnarskap Forsvarsmenn STF færðu sjúkrahúsinu á Húsavík 1.750.000 kr. að gjöf í tilefni sambandsþingsins þar nyrðra. Jóhann Johnsen, yfirlæknir tók við gjöfinni og kvaðst bókstaflega vera gáttaður á þessum rausnarskap.
Sjá bls. 29