Skip to main content

Póstmannafélagið - 100 ára afmælisrit

Page 1

1. TBL. 39. ÁRG. MARS 2019

Ár og öld að baki

Stiklur úr sögu póstmanna 1919-2019


Á tímamótum Ágætu félagar. Póstmannafélag Íslands er 100 ára. Af því tilefni gefum við út afmælisblað til að minnast sögunnar, það er við hæfi á slíkum tímamótum. Félagið okkar er meðal elstu stéttarfélaga á Íslandi og stéttin hefur staðið vel saman í áranna rás. Fyrstu áratugina var rekstur félagins einfaldur og breytist ekkert. Enginn starfsmaður, formaður og stjórnarmenn unnu vinnuna í sjálfboðavinnu og félagar fáir. Á áttunda áratugnum hófst uppbygging orlofskosta félagsins, fyrst í Munaðarnesi og síðan víðar. Félagið keypti nokkuð stóran hlut í BSRB húsinu og á hann enn. Það var ekki fyrr en 1986 sem félagið fór að gera kjarasamninga við ríkið. Áður var samið sem hluti af BSRB. Við það breyttist margt og félagið varð sjálfstæðara og félagsmönnum fjölgaði hratt. Á árunum frá 1980 fram að því að Íslandspóstur var stofnaður, voru miklir uppgangstímar; póstur jókst gríðarlega og félagsmönnum fjölgaði hratt. Á þeim árum fór skipting félagsmanna í að vera hátt í 80% konur. Á þeim árum náði tala félagsmanna hámarki, rúmlega eitt þúsund manns. Fyrstu árin eftir stofnun Íslandspósts árið 1998 var stöðugleiki en ljóst að dagar jafnvægis voru að baki og fór að glitta í ýmiskonar hagræðingarstarfsemi. Pósthúsum fækkaði hratt og þjónustunni m.a.

Jón Ingi Cæsarsson, formaður PFÍ skrifar

3


komið fyrir hjá kaupmönnum, sparisjóðum og víðar. Hluti af þeirri tilraun gekk til baka og pósthúsin í rekstri Póstsins sjálfs birtust á ný á höfuðborgarsvæðinu. Úti á landsbyggðinni voru aðeins nokkur lykilpósthús eftir í eigin rekstri. Þetta varð þess valdandi að póstafgreiðslumönnum fækkaði nokkuð. Síðustu ár á póstþjónustan á Íslandi í vök að verjast eins og er reyndar um allan heim. Bréfum hefur fækkað hratt eins og allsstaðar. Íslenskir stjórnmálamenn hafa verið seinir til að bregðast við og skilningur þeirra á eðli og rekstri póstfyrirtækja verið takmarkaður. Víðast hvar í Evrópu hefur ríkið komið inn með fjármuni til að halda uppi þjónustu við hinar dreifðu byggðir en ekki á Íslandi, enn sem komið er. Þó eru líkur á að það sé að breytast og skilningur að aukast hjá þeim sem ábyrgðina bera. Þessi staðreynd hefur síðan orðið til þess að ráðist hefur verið í sársaukafullar hagræðingaraðgerðir sem auðvitað bitna fyrst og síðast á félagsmönnum PFÍ. Póstmönnum hefur því fækkað nokkuð á síðustu árum og hefur félagið okkar gert sitt besta til að að þeim sé staðið með mannlegum og ábyrgum hætti. Við höfum orðið vör við að hugarfar ráðamanna Póstsins er að breytast og vilji til samráðs og samvinnu er að aukast, það er vel. En enn sér ekki fyrir endann á þessum breytingum og því ljóst að Póstmannafélagið þarf að vera á tánum við að verja hagsmuni félagsmanna næstu árin. Saga okkar skiptist því í þrjú tímabil. Tími kyrrstöðu og stöðugleika á árunum frá 1919 til 1970. Tíma uppbyggingar og þenslu á árunum frá 1971 til 2007. Og að lokum árin frá 2008 til 2019 sem hefur einkennst af varnarbaráttu, hagræðingu og fækkun félagsmanna. Það er því ákaflega nauðsynlegt að félagið okkar verði öflugt á næstu árum og vinni að því að bæta hag þeirra félagsmanna sem eftir verða. Það mun verða fækkun í sumum störfum en aukning í öðrum, þannig að störfin og starfsumhverfið mun breytast frá því sem við höfum þekkt í áranna rás, það er sagan í flestum löndum Evrópu. Það verður því verkefni stjórna framtíðarinnar að mæta þessum breytingum með meiri sveigjanleika og móta framtíðarskipan félagsins. Póstmenn eru komnir til að vera og þörfin fyrir öflugt stéttarfélag er jafnvel enn nauðsynlegri á næstu árum en nokkru sinni. Til hamingju póstmenn með 100 árin.

1. TBL. 39. ÁRG. MARS 2019

Póstmannablaðið ISSN 1022-5064

Ár og öld að baki

Stiklur úr sögu póstmanna 1919-2019

4

39. árgangur. 1. tbl. Mars 2019 Útgefandi: Póstmannafélag Íslands Ábyrgðarmaður: Jón Ingi Cæsarsson Texti: Valþór Hlöðversson Hönnun og umbrot: Ritform ehf. Prentun: Svansprent ehf.


Ár og öld að baki

Stiklur úr sögu póstmanna 1919-2019

Póst- og flutningalest á Hellisheiði áður en bifreiðar komu til sögunnar.

Upphafsár póstþjónustunnar Árið 1776 gaf Kristján 7. Danakóngur út tilskipun um póststofnun á Íslandi. Samkvæmt henni skyldi póstur ganga þrisvar á ári úr hverjum landsfjórðungi til Bessastaða í tengslum við póstskip milli Íslands og Danmerkur. Stjórn og skipulag póstmálanna var í höndum stiftamtmanns og sýslumanna. Fyrsta póstferðin á Íslandi skv. þessari tilskipun var þó ekki farin fyrr en 10. febrúar 1782 þegar pósturinn Ari Guðmundsson fór gangandi frá Reykjanesi við Djúp að Haga á Barðaströnd og var hann sex daga á leiðinni. Reglubundnar póstferðir hófust svo 1785. Um miðja 19. öld munu póstferðir hafa verið orðnar allt að sex á ári.

Fyrsta pósthúsið var opnað í Reykjavík árið 1873, sama ár og fyrsta frímerkið var gefið út. Þá voru póstafgreiðslur í landinu 15 talsins. Sama ár var gefin út ný tilskipun um póstmál á Íslandi og rekstur póstþjónustu falinn sérstakri ríkisstofnun, Póststjórninni. Yfir henni var póstmeistari og sá fyrsti til að gegna því embætti hét Ole Peter Finsen. Árið 1935 var fyrirtækið Póstur og sími sett á fót. Árið 1940 voru fyrst sett lög sem kváðu á um einkarétt hins opinbera til flutnings á bréfum og öðrum sendingum, sbr. lög nr. 31/1940.

5


Bréfberar í Reykjavík árið 1925 en þá hafði einkennisfatnaðurinn enn ekki verið tekinn upp. Frá vinstri: Magnús Guðbjörnsson, Bjarni Þóroddsson, Haraldur Sigurðsson, Sigurjón Símonarson og Þóroddur Bjarnason.

Stétt póstmanna verður til 1873 Fyrsta pósthúsið opnað í Reykjavík og fyrsta frímerkið gefið út.

Fyrstu árin voru flestir starfsmenn póstþjónustunnar í Reykjavík íhlaupamenn en árið 1900 voru ráðnir tveir póstafgreiðslumenn á föstum launum, Vilhjálmur Jónsson og Þorleifur Jónsson, sem síðar varð fyrsti formaður PFÍ. Póststofan í Reykjavík var meginstöð allra póstflutninga um landið og nær allur póstur frá útlöndum fór um hennar borð og bekki. Árið 1907 voru sjö fastráðnir starfsmenn á póststofunni auk póstmeistara en þegar nýja pósthúsið var tekið í notkun 1915 eru starfsmenn orðnir 12-13 auk póstmeistara.

6

Á fyrsta áratug aldarinnar fór póstmönnum, sem höfðu póststörf að aðalstarfi, smám saman fjölgandi í kaupstöðunum fjórum, Reykjavík, Ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði. Einnig riðu landpóstar um héruð með böggla og póst og voru um leið fréttamiðlar þess tíma. Póstafgreiðslustörfin þóttu eftirsóknarverð og ágætlega launuð, allt þangað til verðbólga stríðsáranna setti strik í reikninginn. Árið 1917 kom í fyrsta sinn til svokölluð dýrtíðaruppbót á launin en hún hrökk skammt.


Vonarhugur í þjóðinni

1900

Margs konar óáran reið yfir íslenska þjóð hið sögulega ár 1918. Árið hófst með fimbulkulda um land og því lauk með spánskri inflúensu sem lagði hundruð manna í gröfina í Reykjavík og nágrenni. Til að krydda tilveruna enn frekar gaus Katla gamla í okóbermánuði til að minna landsmenn á tilvist náttúruaflanna. En þótt hart væri í ári var samt vonarhugur í Íslendingum. Sjálfstæðisbaráttan var að skila árangri og krafan um sjálfstæði þessarar guðsvoluðu þjóðar reis ár frá ári. Það var því tekið að birta í sinni landsmanna þegar þeir fengu bréf upp á það 1. desember 1918 að þeir væru loksins orðnir fullvalda þjóð. Þegar hér er komið sögu bjuggu 92.000 manns í landinu öllu og þar af aðeins ríflega 16.000 í höfuðstaðnum sjálfum. Íslendingar voru sveitamenn og tæplega helmingur þjóðarinnar bjó í torfhúsum. Árið 1920 unnu 39,1% starfandi einstaklinga við landbúnað og ef fiskveiðar voru taldar með var hlutfallið 53,5%. Til samanburðar má geta þess að árið 2016, tæpri öld síðar, er aðeins 3,9% vinnuaflsins í þessum atvinnugreinum.

Tveir fyrstu póstafgreiðslumennirnir ráðnir á föstum launum í Reykjavík.

1915 Nýtt pósthús tekið í notkun í Reykjavík.

1916 Benedikt Benjamínsson póstur. Myndin er tekin árið 1918 og birtist í Póstmannablaðinu 1969. Hann sá um póstinn á póstleiðinni frá Stað í Hrútafirði að Árnesi á Ströndum.

Víða var hart í ári hjá almenningi í fyrstu áratugum 20. aldar. Vöruverð hafði margfaldast á stríðsárunum 1914-1918, en vinnulaun ekki að sama skapi.

Verkalýðshreyfing kemst á legg Ekki er hægt að segja að bjart hafi verið yfir samfélaginu á 2. áratug 20. aldarinnar. Vöruverð hafði margfaldast á stríðsárunum 1914-1918, en vinnulaun ekki að sama skapi. Fram kemur í bók Ólafs Björnssonar, Þjóðarbúskapur Íslendinga, að kaupmáttur verkamannalauna hafi minnkað um 36% á árunum 1914-1918. Opinberir starfsmenn hafa eflaust setið við skarðari hlut en aðrar stéttir því þeir höfðu ekki frjálsan samningsrétt. Verðlag hélt áfram að hækka eftir stríðið og þolimæði opinberra starfsmanna

þrotin því kjör þeirra höfðu farið síversnandi. Það er því engin tilviljun að einmitt á þessum árum hófst verkalýðsbaráttan á Íslandi fyrir alvöru og menn hófu að skipa sér í sveitir til að bæta lífskjörin. Alþýðusamband Íslands hafði verið stofnað 12. mars 1916 af sjö aðildarfélögum á fundi í Báruhúsinu: Verkamannafélaginu Dagsbrún, Hásetafélaginu, Verkakvennafélaginu, Prentarafélaginu, Bókbindarafélaginu, Verkamannafélaginu Hlíf og Hásetafélagi Hafnarfjarðar.

7

Alþýðusamband Íslands stofnað.


1919 Póstmannafélagið stofnað 26. mars í Reykjavík. Formaður kjörinn Þorleifur Jónsson.

1920 Póststofa sett á laggirnar á Akureyri og starfsmaður ráðinn. Launalögin taka gildi 1. janúar þetta ár.

Fundur í Landsbókasafninu Úr þessum jarðvegi spratt Póstmannafélagið, stofnað 26. mars 1919. Sú ákvörðun að stofna stéttarfélag var auðvitað í anda þess tíma en það sem ýtti á var frumvarp til svokallaðra launalaga þetta ár þar sem Alþingi fjallaði um launakjör starfsmanna landsstjórnarinnar. Vildu póstmenn reyna að hafa áhrif á endanlega gerð þeirra og blésu því til fundar. Póstmenn voru auðvitað á þessum árum eingöngu ríkisstarfsmenn og var skammtað laun úr hnefa landsstjórnarinnar hverju sinni. Ungir menn og vaskir töldu tímabært að breyta slíku fyrirkomulagi. „Hérmeð eruð þér beðinn að koma til fundar við nokkra aðra menn á lestrarsal Landsbókasafnsins sunnudaginn 2. febr. kl 3 til þess að ræða um undirbúning launamáls landsstarfsmanna til næsta Alþingis.“ Þannig hljómar bréf sem 20 póstmenn fengu í lok janúar 1919 frá Matthíasi Þórðarsyni, Jóni Jacobssyni og Jóni Þorkelssyni. Þetta fundarboð hratt af stað atburðarás sem leiddi til stofnunar Póstmannafélagsins tveimur mánuðum síðar. Á fundinum í Landsbókasafninu var kosin nefnd til að undirbúa stofnun félags póstmanna og í stjórn valdir þeir Ole P. Blöndal, Páll Steingrímsson og Þorleifur Jónsson. Á formlegan stofnfund félagsins 26. mars mættu 11 póstmenn, þar af 2 konur. Þeim Ole, Páli og Þorleifi var þar falið að semja lög félagsins og voru þau staðfest á fundi 5. apríl

Fundargerðin frá því 26. mars 1919 þegar póstmenn í Reykjavík samþykktu að stofna póstmannafélag.

sama ár. Samstaðan var mikil því á þann fund mættu allir póstmenn í Reykjavík auk Guðmundar Bergssonar sem þá var póstafgreiðslumaður á Ísafirði. Á fyrsta fundi stjórnar 12. maí þetta vor skipti hún með sér verkum og var Þorleifur Jónsson valinn formaður. Í ársbyrjun 1920 var Þorleifur skipaður póstmeistari í Reykjavík en þrátt fyrir það naut hann ávallt trausts undirmanna sinna sem hagsmunagæslumaður þeirra.

Safnahúsið við Hverfisgötu var byggt á árunum 1906-1909. Þar komu póstmenn saman vorið 1919 og stofnuðu með sér félag.

8


1923 Fyrsta reglugerðin sett sem tryggði póstmönnum greiðslu fyrir yfirvinnu.

1924 Póstmannasjóður stofnaður hinn 29. maí.

Í árdaga Póstmannafélagsins var pósturinn fluttur á hestvögnum og tveimur jafnfljótum. Tilkoma bifreiða á 3. áratugnum létti mjög störf póstmanna.

„Sundurlaus embættismannastétt“ Það er ástæða til að minnast með virðingu þeirra 11 póstmanna sem hér stigu fram. Á þessum árum var langt í frá sjálfsagt að menn væru í skipulögðum samtökum til að bæta kjör sín enda lítil sem engin hefð fyrir slíku. Sérstaklega átti þetta við um þá sem störfuðu í póstþjónustunni þar sem langflestir voru í hlutastörfum; höfðu starfið sem aukabúgrein. Í 1. tbl. Póstmannablaðsins, sem hóf göngu sína sumarið 1932, er fjallað um fyrstu áratugi póstþjónustunnar á Íslandi: „Frá því er póstskipulag hófst hér á landi, um og eftir 1872, uns stéttarfélag póstmanna var stofnað hinn 26. dag marsmánaðar 1919, eða um hálfrar aldar skeið hefir póstmannastéttin lifað og hrærst sem sundurlaus embættismannastétt.“

Og síðar segir: „Um aldamótin voru um 300 starfandi menn í póstþjónustunni hér á landi. En 20 árum síðar voru þeir orðnir 600, og nú munu þeir vera nær 750, er að einhverju leyti hafa póststörf að atvinnu. Lítill hluti þessara manna hefir póststarf að aðalstarfi, eða sem svarar 6% og er mestur hluti þeirra í Pósthúsinu í Reykjavík, eða um 4%.“ Það er hins vegar ljóst af þessum tölum að mjög lítill hluti póstmanna gerðust félagsmenn í Póstmannafélaginu framan af enda aðeins félag póstmanna í fullu starfi. Mjór var þó mikils vísir.

9


1929 Fyrsti póstbíllinn tekinn í notkun í Reykjavík.

Sá sem fyrstur var ráðinn sem póstbifreiðastjóri í fullu starfi var Gísli V. Sigurðsson. Þetta var árið 1929. Hér má sjá Guðmund Albertsson bílstjóra við bifreiðina RE 231 sem kom til landsins 1933.

Bílar í stað þarfasta þjónsins Hestar og tveir jafnfljótir voru lengi framan af helstu burðarklárar með póst og annan varning vítt og breitt um landið. Þann 22. ágúst 1929 er fyrsta bifreiðin tekin í þjónustu póstsins. Það var yfirbyggður vörubíll af Chervolet gerð og fékk pósthúsið í Reykjavík hann til umráða. Bíll þessi bar númerið RE 747, fagurrauður með póstmerkjum á báðum hliðum. Guðjón Eiríksson ók bílnum fyrst meðfram öðrum störfum en fljótlega var Gísli V. Sigurðsson ráðinn sem fyrsti póstbifreiðastjórinn. Bíll þessi létti mjög undir með póstburðarmönnum í Reykjavík sem áður þurftu að bera bréf og böggla í töskum allt frá Pósthússtræti til móttakenda við ystu mörk vaxandi höfuðstaðar.

Póstbifreiðum á vegum póstþjónustunnar fór hægt fjölgandi á næstu árum. Fyrrgreindur bíll var í rekstri til ársins 1932 og mun hafa endað sinn feril í sveitum austur í Rangárþingi. Fordbifreiðin RE 854 var keypt árið 1930 en hún var yfrbyggð með sætum fyrir 13 farþega. Sá bíll flutti póst og menn á leiðinni Borgarnes-Blönduós. Þriðji bíllinn í þjónustu póstsins kom árið 1933 en það var Ford, RE 231 og lá leið hans gjarnan á milli Reykjavíkur og Sauðárkróks. Guðmundur Albertsson var bílstjóri beggja þessara bíla með ökuskírteini nr. 999.

Póstur fluttur á fyrstu árum bílaaldar í Reykjavík.

10


Þorleifur Jónsson var formaður Póstmannafélagsins frá stofnun þess til ársins 1923.

Fyrsti formaðurinn 1919-1923

Ósérhlífinn og samviskusamur Þorleifur Jónsson var fæddur að Sólheimum í Svínavatnshreppi í A.- Húnavatnssýslu, hinn 26. apríl 1855. Hann innritaðist í Reykjavíkurskóla 1876 og lauk stúdentsprófi 1881 með hárri 1. einkunn. Að loknu stúdentsprófi nam hann lögfræði við Hafnarháskóla um þriggja ára skeið. Lauk hann prófi í forspjallsvísindum en varð að hverfa frá námi vegna veikinda. Eftir að Þorleifur kom heim frá Kaupmannahöfn keypti hann blaðið Þjóðólf 1886 og var ritstjóri hans og eigandi um sex ára skeið, eða til ársins 1891. Hann gerðist bóndi fyrir norðan og stundaði búskap á bæjunum Stóra-Dal, Syðri-Löngumýri og Sólheimum í Svínavatnshreppi á árunum 1894-1900. Hann var þingmaður Húnvetninga 1886-1899. Á öndverðu ári 1900 fluttist Þorleifur með sinni fjölskyldu til Reykjavíkur og hóf störf hjá póstþjónustunni og var hann meðal fyrstu fastráðinna starfsmanna póststofunnar. Hann starfaði sem slíkur í tvo áratugi en í ársbyrjun 1920 var hann skipaður póstmeistari og gegndi því til starfsloka hjá póstinum 1928. Sveinn G. Björnsson, sem lengi var forvígismaður PFÍ, skrifar aldarminningu um Þorleif í Morgunblaðið 26. apríl 1955 og gerir að umtalsefni þá sérkennilegu stöðu að formaður stéttarfélagsins hafi jafnframt verið yfirmaður og stjórnandi félagsmanna: „Slíkt mun sennilega vera einsdæmi í sögu launabaráttunnar, að húsbóndanum hafi verið falið forustustarf í slíku máli fyrir fjölmenna stétt. En þegar lengra er skyggnzt verður þetta ekki undrunarefni þeim, er þekktu Þorleif heitinn, drengskap hans og hjálpfýsi. Á þessum árum vann Þorleifur einnig að því ásamt Sigurði heitnum Briem, þáverandi póstmálastjóra, að stofna póstmannasjóðinn svo nefnda, en hann hefur nú um 30 ára bil styrkt starfsmenn póstþjónustunnar til fræðslu og menningar.“ Þorleifur var kvæntur Ragnheiði Bjarnadóttur frá Reykhólum og áttu þau fimm börn. Þekktast þeirra er Jón Leifs tónskáld. Þorleifur lést árið 1929.

11


1932 Póstmannablaðið hefur göngu sína ágústmánuði. Nafni félagsins breytt í Póstmannafélag Íslands.

Fyrsta ritnefnd Póstmannablaðsins var skipuð þeim Kristjáni Sigurðssyni, Sveini G. Björnssyni og Tryggva Magnússyni. Þessi mynd var tekin árið 1959 þegar póstmenn minntust 40 ára afmælis félagsins.

Skrikkjótt blaðaútgáfa Á fundi í Póstmannafélaginu 4. maí 1932, sem haldinn var á bréfapóststofunni, var samþykkt tillaga frá Sveini Björnssyni um að fela bókasafnsnefnd að athuga skilyrði um útgáfu blaðs fyrir félagið. Á aðalfundinum 22. júní er tillaga um stofnun blaðs samþykkt samhljóða. Aðalfundarstörfin gengu treglega í þetta sinn og á 3. framhaldsaðalfundi 20. júlí voru loks samþykkt ný lög þar sem nafni félagsins var breytt í Póstmannafélag Íslands. Í ágústmánuði 1932 kemur fyrsta tölublað Póstmannablaðsins út og í inngangsorðum segir m.a.: „Ekki mun þurfa að færa rök fyrir því hér, hver nauðsyn útgáfu blaðs er fyrir póstmenn. Önnur stéttarfélög, er sum munu varla fjölmennari en Póstmannafélagið, hafa orðið vör við þá nauðsyn og hafist handa til þess að bæta úr henni, að svo miklu leyti er ástæður hvers félags hafa leyft. Það mætti því furðu gegna, ef póstmenn hefðust ekkert að, þótt ekki megi búast við því að blað þeirra verði mikið að vöxtum eða fjölbreytt að efni fyrst um sinn.“ Félagið gaf út tvö tölublöð fyrsta árið, fjögur tölublöð árið 1933, þrjú tölublöð árið 1934 og eitt tölublað árið 1935. Öll voru þau fjölrituð. Sex ár liðu uns blaðið kom aftur út og þá prentað í Ísafoldarprentsmiðju. Árið 1941

12

Forsíða fyrsta tölublaðs Póstmannablaðsins 1932. kom út eitt tölublað og þrjú árið 1942. Aftur var þráðurinn tekinn upp og í júlí, lýðveldisárið 1944, kemur út eitt tölublað. Þá skellur á útgáfuhlé sem varði allt til ársins 1962. Það ár komu aðeins út tvö tölublöð. Árið 1968 eru gefin út þrjú tölublöð og tvö tölublöð árið 1969, þar af veglegt afmælisrit. Taldist þetta 10. árgangur Póstmannablaðsins. Nú liðu tæp fimm ár þangað til aftur var ráðist í útgáfu. Meira um það síðar.


Pósthúsið í Reykjavík var tekið í notkun árið 1915 en það var hannað af Rögnvaldi Ólafssyni sem kallaður hefur verið fyrsti íslenski arkitektinn. Þessi mynd er tekin árið 1930.

Kröfur um bættan aðbúnað Höfuðvinnustaður póstmanna í Reykjavík lengi framan af var Póststofan við Pósthússtræti sem reist var árið 1914 eftir teikningu Rögnvaldar Ólafssonar. Þetta var stórhýsi á sínum tíma og þar fóru öll póststörf höfuðstaðarins fram allt til ársins 1934 en þá var tekið á leigu húsnæði undir erlendan bögglapóst og sett á stofn ný deild, Tollpóststofan. Fljótlega varð afar þröngt um starfsemi Póstsins. Póstmenn voru áhugasamir um að byggt yrði nýtt pósthús en ár og dagar áttu eftir að líða þar til í þær framkvæmdir var ráðist. Húsið góða við Pósthússtræti virðist hafa verið látið drabbast niður á stríðsárunum og kvörðuðu starfsmenn oft og títt undan skorti á viðhaldi við húsið. Var m.a. kvartað undan óþéttum útihurðum og gluggum sem leiddi af sér dragsúg og annan ófögnuð. Þegar 6. áratugurinn gengur í garð er ljóst að póst-

mönnum er nóg boðið og er málið oft rætt á vettvangi félagsins. Á félagsfundi 12. janúar 1951 er t.d. samþykkt áskorun til póststjórnarinnar og póstmeistara í Reykjavík að lagfæra húsið og í umræðum um málið segir einn fundarmanna að þrifnaði í húsinu væri mjög ábótavant, snyrtiherbergi illa lýst og dúkur á gólfum víða slitinn niður í stein. Árið 1957 er loks ráðist í gagngerar endurbætur á afgreiðslu pósthússins. Þá var orðið svo þröngt á þingi að tekin var ákvörðun um að flytja böggplapóststofuna alfarið úr húsinu og 1962 var svo blaðadeildin flutt í nýtt húsnæði BSÍ, Umferðarmiðstöðina sunnan Hringbrautar. Strax í upphafi 7. áratugarins fara svo póstútibú að rísa í nýjum hverfum og fjölgar þeim smátt og smátt næstu árin.

13

1934 Tollpóststofan sett á fót til að afgreiða erlendan póst.

1935 Allur póst- og símarekstur í landinu sameinaður í Póst- og símamálastofnun. Bréfberar í Reykjavík fá einkennisbúning til afnota.


Reffilegir bréfberar í Reykjavík 1942 í einkennisfatnaði sem tekinn var upp sjö árum áður. Aftari röð, talið frá vinstri: Reynir Ármannsson, Ingvar Jónsson, Arnlaugur Árnason, Einar Sturlaugsson, Gunnar Jóhannesson, Jón Sigurðsson. Fremri röð: Kristinn Árnason, Hallur Kristjánsson, Magnús Guðbjörnsson, Haraldur Sigurðsson og Bjarni Þóroddsson.

1940 Alþingi samþykkir lög nr. 31/1940 um einkarétt hins opinbera til flutnings á bréfum og öðrum sendingum.

1942 Bandalag starfsmanna ríkis og bæja stofnað 14. febrúar. PFÍ einn stofnaðila.

1941

Konungsmerkið sorfið af! Langflestir starfsmenn póstþjónustunnar höfðu það sem aukastarf á fyrstu áratugum 20. aldarinnar eins og áður sagði en smám saman fjölgar föstum störfum, einkum í þéttbýlinu. Flestir störfuðu við póstafgreiðslu á fyrstu pósthúsunum, fjölmargir sinntu útburði bréfa og böggla um hinar dreifðu byggðir og í þéttbýlinu verður til stétt bréfbera. Fyrsti bréfberinn er ráðinn til starfa á Akureyri árið 1902, Guðmundur Jónsson. Fleiri bætast við í stærstu kaupstöðunum næstu ár. Árið 1932 eru bréfberar í Reykjavík orðnir 7 talsins. Á þessum árum var auðvitað kaupið lágt og álagið óx ár frá ári samfara fjölgun í bænum. Krafa þessa fámenna hóps bréfbera var sú að fleiri yrðu ráðnir til starfa, launin hækkuð verulega og einkennisbúningar saumaðir á mannskapinn. Lengi vel var ekkert á þetta hlustað en póstmenn færðu ýmis rök fyrir máli sínu. Í Póstmannablaðinu 1933 ritar Sveinn G. Björnsson hugleiðingu um þessi efni og segir:

14

„Til fróðleiks má geta þess, að slíkt er nú eigi óalgengt, að konur vinni að útburði pósts, t.d. í London, og er þeim þá séð fyrir vetrar- og sumarfrakka, síðu herðaslá (Waterproof Cape) vetrar- og sumarhatti, stígvélum (á hverjum 7 mánuðum) og leggbjörgum (Gaiters) ef sérstaklega stendur á.“ Konur komu raunar lítt við sögu bréfaútburðar hérlendis á þessum árum og áttu eftir að líða ríflega þrír áratugir áður en þær höfðu þetta að aðalstarfi. En hvað einkennisfatnaðinn varðar gáfu yfirvöldin sig á endanum og hann tekinn í notkun vorið 1935. Í reglugerð sem kom 1936 segir að hver bréfberi skuli fá alklæðnað einu sinni á ári. Framan á húfunni var póstlúðurinn á skildi með kórónu yfir. Segir sagan að margir bréfberar hafi í eldmóði sjálfstæðisbaráttunnar sorfið konungsmerkið af þegar nær dró lýðveldisstofnun!


1943 Opinberir starfsmenn fá verulegar launabætur.

1944 Póstmenn fá aðild að lífeyrissjóði opinberra starfsmanna.

1945

Mynd þessi er tekin í gömlu Bögglapóststofunni árið 1946. Það voru löngum miklar annir í afgreiðslunni en á myndinni má sjá póstafgreiðslumennina Sigurð Pétursson, til vinstri og Guðmund Albertsson til hægri þjónusta viðskiptavinina.

PFÍ viðurkennt sem samningsaðili varðandi kaup og kjör póstmanna.

1946 Reglugerð um fyrirkomulag á greiðslu fyrir yfirvinnu.

Langir vinnudagar og strangir Frumherjar Póstmannafélagsins höfðu verk að vinna fyrstu árin. Hafa verður í huga að á þessum árum hafa póstmenn engan samningsrétt en laun þeirra ákvörðuð skv. lögum sem tóku gildi 1. janúar 1920, svokölluð launalög. Samningsréttur kom ekki í hendur póstmanna fyrr en löngu síðar og því við ramman reip að draga. Samstöðuna skorti þó ekki og fleiri tóku þátt í baráttunni. Á aðalfundi félagsins 1920 eru félagsmenn orðnir 42 talsins, þar af 31 utan Reykjavíkur. Á þessum upphafsárum þurftu póstmenn að vinna langan vinnudag og allar helgar án aukagreiðslna. Lengi vel höfðu menn föst laun á mánuði, algerlega óháð fjölda vinnustunda. Mikill launamunur var á milli kynja en um 1920 höfðu karlar í almennum póststörfum 157 kr. í mánaðarlaun en konurnar aðeins 100 kr. Héldust kjörin nær óbreytt næstu 20 árin. Áfangasigur vannst árið 1923 þegar póstmenn fengu það fyrst í gegn að fá greidda yfirvinnu sem þeir unnu umfram tvo tíma á helgidögum. Fyrsta reglugerðin sem tók á vinnutíma var sett 1931 en hún breytti litlu. Loks árið 1942 fengu póstmenn ítarlega reglugerð um vinnutíma, yfirvinnugreiðslur og réttindi í veikindum. Draumur póstmanna og baráttumál lengi

Í önnum dagsins létti fólk sér lundina með því að fara í skemmtiferðir út á land.

um að tekin yrðu upp vaktaskipti og útibú í höfuðborginni rættist þó ekki fyrr en að styrjöldinni lokinni en vinnudagurinn var samt áfram langur. Baráttan var farin að skila árangri.

15

1942


1947 Starfsmenn Póststofunnar í Reykjavík stofna með sér byggingasamvinnufélag um að reisa fjölbýlishús fyrir póstmenn.

1950 Félagsmenn PFÍ 101 talsins, 98 karlar og 3 konur.

1954 Ný lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Sumarorlof póstmanna lengist í 15-24 daga. Reglugerð sett um rétt til launa í veikindum.

Póstmannafélag Íslands var eitt af stofnfélögum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja árið 1942. Fulltrúar PFÍ á fundinum voru Sæmundur Helgason póstfulltrúi og Tryggvi Magnússon póstfulltrúi.

Kjarabætur og lífeyrisréttur Eins og kjörum póstmanna var háttað framan af var ekki um neinn lífeyrissjóð að ræða og því síður eftirlaun að loknu ævistarfinu. Sú venja skapaðist þó um 1930 að starfsmenn póstþjónustunnar, sem ekki fengu laun eftir launalögunum, gátu sótt um eftirlaun til Alþingis. Ekkert var þó fast í hendi með slíkt. Þegar póstmenn höfðu starfrækt sitt félag í hartnær aldarfjórðung náðu opinberir starfsmenn samstöðu um allsherjarsamtök og BSRB var sett á laggirnar árið 1942. Póstmannafélag Íslands var eitt stofnfélaga bandalagsins. Þessi aukna samstaða þeirra tryggði þeim verulegar kjarabætur strax ári síðar. Fleira fréttnæmt gerðist því árið 1944 voru sett lög á Alþingi um lífeyrissjóð sem veittu öllum opinberum starfsmönnum rétt til aðildar að sjóðnum. Fram til þess tíma höfðu einungis embættismenn átt kost á slíkum hlunnindum. BSRB óx hratt fiskur um hrygg og árið 1945 tóku ný launalög gildi þar sem fyrst er minnst á samráð við hið nýja bandalag opinberra starfsmanna. Óðaverðbólga hafði ríkt um árabil og þegar hér var komið sögu voru árslaun starfsmanna í póstþjónustunni á bilinu 4.800 kr. upp í 7.800 kr. Viðmiðunarstéttirnar eru „blöndunarmenn tóbaksgerðar hins opinbera, gæslumaður plötusafns nýstofnaðs Ríkisútvarps og barnakennarar.“

1944

16

Póstmenn sinna störfum sínum þótt landið sé hernumið.

Á sjötta áratug aldarinnar miðaði baráttumálum póstmanna sem og annarra opinberra starfsmanna nokkuð áfram. Árið 1954 voru sett lög um réttindi og skyldur þeirra og náðust allmiklar réttarbætur fram. Sumarorlof var þetta árið orðið heilir 15 dagar fyrir byrjendur í starfi og 24 dagar fyrir þá sem höfðu stritað í 15 ár eða lengur. Reglugerð var sett um rétt til launa í veikindum og um fæðingarorlof. Taldist hvort tveggja til nokkurra nýmæla. Ný launalög voru svo sett árið 1955 sem leystu hin fyrstu af hólmi. Það var svo ekki fyrr en 1962 sem opinberir starfsmenn fengu takmarkaðan samningsrétt og jafnframt ákveðið að gerðardómur skyldi skera úr ágreiningsmálum.


Árni Þ. Jónsson, formaður PFÍ 1962-1964: „Póstmannafélagið stóð ekki aðeins í kjarabaráttu á þessum árum þó svo hún hafi verið meginverkefnið. Ég minnist með ánægju fjöltefla og skemmtana sem við efndum til víða um bæinn.“

Árni Þ. Jónsson, formaður PFÍ 1962-1964.

Róðurinn var oft erfiður

Árni Þ. Jónsson, sem síðast gegndi stöðu póstrekstrarstjóra við Póststofuna í Reykjavík, var formaður Póstmannafélagsins á árunum 1962-1964. Þegar hann var kjörinn formaður stóðu yfir miklar breytingar á launakerfi ríkisins, m.a. póstmanna og urðu allnokkur átök í því ferli öllu. Árni var í samtali við Póstmannablaðið árið 1994 þegar félagið fagnaði 75 ára afmælinu, þá fyrir nokkru hættur störfum og sestur á friðarstólinn. Árni Þ. Jónsson var Þingeyingur að uppruna, fæddur í Kelduhverfi í Suður-Þingeyjarsýslu en fluttist ungur til Seyðisfjarðar þar sem hann bjó uns hann flutti til Reykjavíkur í stríðslok. Hann ræðir í viðtalinu um þær breytingar sem urðu á starfsumhverfi póstmanna í hans embættistíð. Hann minnir á að þegar hann hóf störf hafi Pósthúsið í gamla miðbænum verið eina pósthúsið í Reykjavík auk Tollpóststofunnar í Hafnarhúsinu. „Mér er það minnisstætt að við fulltrúar póstmanna áttum allnokkrar viðræður við þáverandi fjármálaráðherra Gunnar Thoroddsen, sem tók okkur ávallt vel eins og hans var von og vísa. Hitt fór hins vegar ekkert á milli mála að róðurinn í kjarabaráttunni var erfiður á þessum tímamótum eins og oftar. Samkvæmt nýju launalögunum var það svonefnt Kjararáð, sem annast átti um niðurröðun starfsmanna ríkisins í launaflokka. Samhliða því hófst hið harðasta stríð um flokkun starfa ásamt meðfylgjandi mati. Fram til þessara tímamóta hafði staða póstmanna verið nokkuð sterk að því ég tel, kjaralega séð. Svo fór að röðun póstmanna í launaflokka tók nokkur misseri. Þegar yfir lauk hafði Kjararáðið, sem skipað var bæði fulltrúum BSRB og ríkisins, gefið úr þrjár eða fjórar niðurstöður um launakjör póstmanna. Já, þetta var harður slagur.“ Árni starfaði lengi í póstþjónustunni eða frá árinu 1946 að hann réðst til skráningardeildar Póststofunnar í Reykjavík. Árni var skipaður fulltrúi þar 1954, varðstjóri 1956, yfirdeildarstjóri bréfapóststofu 1970 og að lokum póstrekstrarstjóri 1980. Hann lét af störfum árið 1987. Árni Þ. Jónsson lést 15. apríl 2005.

17


1957 Bögglapóststofan flutt úr pósthúsinu við Pósthússtræti.

1960 Félagsmenn PFÍ 135 talsins, 120 karlar og 15 konur.

1962 Opinberir starfsmenn fá takmarkaðan samningsrétt. Blaðadeildin flutt í nýtt húsnæði BSÍ sunnan Hringbrautar.

Jólapósturinn sundurgreindur 1963. Frá vinstri: Dýrmundur Ólafsson, Gunnar Jóhannesson, Ingi Gunnlaugsson, Bjarni Þóroddsson og Halldór Runólfsson.

Burt með ráðherrana! Árið 1959 hélt PFÍ upp á 40 ára afmæli sitt og sem fyrr voru kjaramálin efst á baugi. Skömmu fyrir afmælið eða 15. mars þetta ár er aðalfundur félagsins haldinn. Þar kemur fram í máli formanns, Tryggva Haraldssonar, að verkefni stjórnar á liðnu starfsári hafi einkum falist í að verja réttindi póstmanna en yfirstjórn Póstsins hefðu ítrekað reynt að rýra kjörin. Nefndi hann sem dæmi tilraunir til að skerða símafríðindi og koma í veg fyrir að sanngjörn greiðsla fengist fyrir aukið vinnuálag póstafgreiðslumanna. Hins vegar hrósaði hann Eysteini Jónssyni, fyrrverandi póstmálaráðherra, fyrir úrskurð hans um að óheimilt væri að ráða fólk til póstafgreiðslustarfa fyrir lægri laun en í 10. launaflokki.

1962

Nokkrir af starfsmönnum Blaðadeildar sem flutti í ný húsakynni árið 1966. Frá vinstri: Tryggvi Haraldsson, Jóhann Hjálmarsson, Helgi Björnsson og Ásgeir Kröyer.

18

Allir voru þó ekki jafnþakklátir yfirvöldunum því á fundinum flutti Jón Gíslason tillögu um að fundurinn mótmæli því að fyrrverandi póstmálaráðherrum sé boðið á samkomur félagsins „... og sér í lagi mótmælir fundurinn því harðlega að þeim sé boðið á merkis afmælishátíð félagsins.“ Tillaga Jóns var felld með 29 atkvæðum gegn 6. Óstaðfest er hvort ellefu þálifandi póstmálaráðherrum hafi verið boðið í teiti vegna 40 ára afmælis PFÍ. Hitt er vitað að þá komu póstmenn saman léttir í lundu og sungu einum rómi texta eftir Kristján Jakobsson við lagið Hvað er svo glatt. Lokaerindið er svona: Með hreinan skjöld, til heillaríkra starfa, skal halda fram á næsta áratug, og vinna margt, er verða má til þarfa, og vekja og efla félagsbræðra dug. Að standa saman máttinn eykur manna, til meiri gæða í lífsins jarðardal. Og PFÍ mun enn sem áður sanna: Það á hér lið, til hvers er gera skal.


1963 Póstmeistarinn í Reykjavík auglýsir eftir ungum konum til þess að starfa við bréfaútburð.

1966 Hæstaréttardómur úrskurðar um full laun í veikindum, þar með talið vaktaálag. Auglýsingin frá Póstmeistaranum í Reykjavík árið 1963 hratt af stað ófyrirséðri atburðarás.

„Hentug störf fyrir ungar húsmæður“ Árið 1963 var erfitt að fá blaðbera til starfa en fram að því höfðu þeir að mestu verið af sterkara kyninu. Því brá póstmeistarinn í Reykjavík á það ráð í septembermánuði að auglýsa í dagblöðunum eftir ungum konum til þess að starfa við bréfaútburð. Í auglýsingunni, sem sérstaklega var beint til kvenna á aldrinum 18-40 ára, var tekið fram að bréfaútburður væri hentugt starf fyrir ungar húsmæður! Margar konur sóttu um en þær fengu aðeins kost á að vinna hálfan daginn. Ekki áttu þær kost á neinum hlunnindum eins og einkennis- eða hlífðarfatnaði. Í ódagsettum gögnum frá Póststofunni má sjá hvernig þessar konur voru vegnar og metnar þegar þær lögðu inn umsókn sína. „Konan er mjög hreinleg og prúð, gift, tveir í heimili.“ „Ógift. Röskleika kvenmaður.“ „Sæmileg, nokkuð gömul.“ Svona mætti lengi telja og nokkrar fengu umsögnina „Myndarkona.“ Einkennilegustu umsögnina fékk þessi: „Myndarkona. Á einn mann.“ Framan af voru allir þessir kvenkyns bréfberar utan stéttarfélaga þar sem lög þeirra heimiluðu ekki inngöngu nýrra félaga nema að starfshlutfall væri 100%. Þær gerðu ítrekaðar tilraunir til þess að fá að ganga í Póstmannafélagið en allt kom fyrir ekki, alltaf var vísað í ákvæðið um starfshlutfall. Að því kom að konur þessar stofnuðu Póstfreyjuféag Íslands árið 1967 og var formaður þess og aðalhvatamaður Kolbrún Jóhanna Finnbogadóttir. Félagið barðist fyrir sjálfsögðum réttindamálum á borð við þau að konur í þessu starfi fengju einkennis- og

Póstmannafélagið gerist aðili að Norræna póstráðinu.

1967

hlífðarfatnað eins og karlpeningurinn hafði notið allt frá 4. áratugnum.

Póstfreyjufélag Íslands stofnað.

Félagar í Póstfreyjufélaginu og Póstmannafélaginu söfnuðu árið 1973 undirskriftum frá 10.170 manns á höfuðborgarsvæðinu til stuðnings því að hætta póstútburði á laugardögum. Langflestir þeirra sem svöruðu var samþykkur kröfu bréfberanna. Þetta sama ár óskar stjórn Póstfreyjufélagsins eftir inngöngu í PFÍ og var það samþykkt ári síðar. Þar með fengu þeir sem gegndu hlutastarfi fulla aðild að félaginu. Þá voru félagsmenn PFÍ 218 talsins en fjölgaði nú í 469 og konur í meirihluta í fyrsta sinn.

Forystumenn Póstmannafélagsins og Póstfreyjufélagsins knúðu í gegn með undirskriftarsöfnun árið 1973 að póstútburði yrði hætt á laugardögum.

1968

19


1968 Póst- og símaskólinn tekur til starfa. Póstmannafélagið gerist aðili að Norræna póstsambandinu (NPU). Póstmannakórinn settur á laggirnar.

1969 Kaup fest á landi í Munaðarnesi fyrir sumarhúsabyggðir BSRB. Haldið upp á 50 ára afmæli Póstmannafélags Íslands.

1970 Hallarbylting í PFÍ. Stjórninni vikið frá störfum.

Haustið 1972 var sett á laggirnar tveggja ára nám við Póst- og símaskólann. Hér má sjá árgang póstafgreiðslumanna 1972. Neðri röð frá vinstri: Dagmar Gunnarsdóttir, Sigrún Sigurgeirsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Auður Þorgeirsdóttir og Ragnheiður Björnsdóttir. Efri röð: Kristbjörg Halldórsdóttir yfirkennari, Margrét Sigurðardóttir, Svala Varmdal, Böðvar Benjamínsson, Ármann Guðmundsson, Arnór Arnórsson og Kristján Helgason skólastjóri.

Póst- og símaskólinn Forsvarsmenn PFÍ höfðu lengi þrýst á um það við póststjórnina að efla fólk í starfi með því að huga að fræðslunámskeiðum fyrir félagana. Skriður komst á málin árið 1966 þegar tekið var upp í launasamningi að nám í póstfræðum gæfi launahækkun. Í maí 1968 er svo Póst- og símaskólinn stofnaður og sá hann um námskeið af ýmsu tagi. Haustið 1972 er sett á laggirnar tveggja ára nám, bæði bóklegt og verklegt. Tilgangurinn með Póstog símaskólanum var að bæta menntun starfsmanna og gera þá hæfari til að sinna hinum margbreyttu störfum sem eru í póstþjónustunni enda var aðalnámsgreinin að læra að þekkja póstreglugerðir sem starfa skyldi eftir.

almennum greinum frá Póst-og símaskólanum til eininga á framhaldsskólastigi það segir sína sögu um gæði námsins. Ráðamenn Íslandspósts ohf. hafa ekki séð kosti þess að sérmennta sína starfsmenn og því lagði Póst- og símaskólinn upp laupana, fljótlega eftir hlutafélagavæðinguna.

Ragnheiður Björnsdóttir, sem lengi var ritstjóri Póstmannablaðsins, var í hópi fyrsta árgangs í þessu formlega námi. Henni segist svo frá í Póstmannablaðinu 1982, 10 árum eftir að hún hóf þar nám: „Eftir tveggja ára nám, verklegt og bóklegt, var boðið upp á kaffi og napóleonskökur í Sigtúni og okkur afhent skírteini um að nú værum við orðnir póstafgreiðslumenn, en ekki póstfræðingar eins og við höfðum stefnt að, en ráðuneytið hafði hafnað því heiti.“ 1968

Á síðari árum hafa skólayfirvöld metið próf í

20

Nemendur í Póst- og símaskólanum hafa verið fjölmargir í gegnum tíðina. Myndin er tekin 1994.


Stofnendur Póstmannafélags Íslands voru ellefu talsins. Þegar hálfrar aldar afmælisins var minnst voru fimm þeirra á lífi en hér má sjá þrjá þeirra sem sátu afmælissamsætið. Frá vinstri: Sæmundur Helgason, Sigríður Einarsdóttir og Helgi B. Björnsson.

Fimm stofnendur heiðraðir Þegar PFÍ varð 50 ára árið 1969 var nokkuð um dýrðir og gerðu menn sér glaðan dag. Í kaffistofu Pósthússins var boðið upp á veitingar á sjálfan afmælisdaginn en síðan haldið veglegt hóf í Sigtúni við Austurvöll. Þangað mættu um 300 manns. Sex félagsmenn voru sæmdir heiðursmerki félagsins en það voru auk Magnúsar Jochumssonar, fyrrum póstmeistara, fimm þeirra sem eftir lifðu af stofnendum félagsins árið 1919. Þau voru: Sigríður Einarsdóttir, Einar Hróbjartsson, Kara Briem, Sæmundur Helgason og Helgi B. Björnsson. Stjórn Póstmannafélagsins efndi og til ljóðasamkeppni meðal félagsmanna í tilefni af afmælinu. Fyrstu verðlaun skyldu vera flugfar fyrir tvo, fram og til baka, til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar. Aðeins tvö ljóð bárust og ákvað stjórn félagsins að veita ekki fyrstu verðlaun heldur tvenn 2. verðlaun, eitt þúsund krónur. „Ráðstöfun þessi er studd þeim rökum, að munur ljóðanna sé ekki það auðsær, að réttlætanlegt sé, að mismuna

1971

þeim í verðlaunaveitingum.“ Höfundar reyndust þeir Bjarni Þóroddsson og Lúðvíg Thorberg Helgason.

Þetta ár hefst útleiga í sumarhúsabyggð BSRB í Munaðarnesi.

Alþjóðlegt samstarf

Starfsemi Póstgíró hefst.

Póstmannafélag Íslands gerðist aðili að Norræna póstsambandinu árið 1968 (Nordisk Post Union, NPU) en öll norrænu póstmannafélögin, sem eru 9 talsins, eru aðilar að sambandinu. Í gegnum aðild að NPU er Póstmannafélagið aðili að alþjóðasamtökum sem áður hétu PTTI en heita nú UNI, United Network International, og eru samtök stéttarfélaga þar sem félagsmenn vinna að flutningamálum, fjarskiptum o.fl. Þessi samtök láta sig varða flest það sem gerist í heiminum og viðkemur launþegum svo sem alþjóðavæðingu og aðbúnaði verkafólks hvar sem er.

21

1969


Stjórn PFÍ árið 1973. Þá var lokið átakatímabili á vettvangi félagsins. Frá vinstri: Magnús Erlendsson gjaldkeri, Sigurður Samúelsson fjármálaritari, Birgir Jakobsson ritari, Reynir Ármannsson formaður, Axel Sigurðsson varaformaður, Guðfreður Guðjónsson meðstjórnandi og Hrólfur Jóhannesson meðstjórnandi.

Átök í PFÍ– stjórnin sett af 1973 Stefnumótandi póstmannaþing haldið í Munaðarnesi. Félagar í Póstfreyjufélaginu safna undirskriftum hjá almenningi á höfuðborgarsvæðinu til stuðnings því að hætta póstútburði á laugardögum.

Þegar Póstmannafélagið fagnar hálfrar aldar afmæli sínu er nokkuð um dýrðir en undir kraumaði. Víða voru átök í samfélaginu á þessum tíma, kjarabaráttan hörð og byltingarviðhorf víða uppi í hinum vestræna heimi. Póstmannafélagið fór ekki varhluta af þessum tíðaranda. Árið 1968 tekur við ný stjórn undir forystu Ásgeirs Höskuldssonar og virtist hafa skapast lítil eining meðal félagsmanna um þá stjórn. Voru menn ósáttir um ýmis mál, m.a. verkefni sem lutu að kjarabaráttunni. Fleira olli ósætti eins og ákvörðun stjórnar um kaup á tveimur orlofshúsum í Munaðarnesi vorið 1970 en stjórnarandstæðingar töldu stjórn ekki hafa haft heimild til að kaupa nema eitt hús. Deilur magnast og á fyrri framhaldsaðalfundi PFÍ þann 13. september 1970 er lögð fram svohljóðandi áskorun, undirrituð af 51 félagsmanni: „Við undirritaðir póstmenn skorum hér með á stjórn PFÍ að segja nú þegar af sér þar sem við teljum að hún hafi ekki unnið að málefnum félagsins á viðunandi hátt.“

22

Eftir miklar umræður og gagnryni á stjórn var fundi frestað og annar framhaldsaðalfundur haldinn 29. október sama ár. Þar halda deilur áfram og stjórn m.a. harkalega gagnrýnd fyrir áform um að kaupa pappír og bréfsefni fyrir félagið erlendis frá. Á þessum fundi er lesið upp skeyti frá póstmönnum á Akureyri, Siglufirði og Ísafirði þar sem lýst er yfir vantrausti á stjórn félagsins. Einn fundarmanna, Pétur Eggertsson, lagði að þessu loknu fram tillögu til fundarins um að stjórn yrði vikið frá störfum og kjörstjórn falið að skipa félaginu nýja stjórn til loka kjörtímabilsins. Eftir miklar umræður var gengið til leynilegrar atkvæðagreiðslu og tillaga Péturs samþykkt með 36 atkvæðum gegn 28. Auðir seðlar voru þrír og einn ógildur. Kjörstjórn skipaði síðan nýja stjórn PFÍ undir forsæti Reynis Ármannssonar sem síðan var kjörinn formaður á aðalfundi 1971 og gegndi hann störfum til ársins 1976.


Landsbyggðamenn krefjast breytinga Fyrstu áratugina er Póstmannafélag Íslands fyrst og fremst félagsskapur utan um þá sem störfuðu hjá Póstinum í Reykjavík. Langflestir félagsmanna voru úr höfuðborginni, einkum bréfberar og póstafgreiðslumenn. Þótt nokkrir póstmenn úr byggðakjörnum landsbyggðarinnar gerðust félagsmenn gripu aðrir til sinna ráða og sem dæmi má nefna stofnun Póstmannafélags Norðurlands árið 1940 en stofnendur þess voru 19 talsins og starfssvæðið frá Horni að Langanesi. Fyrsti formaður þess var kjörinn Óli P. Kristinsson póstmeistari. Þegar kemur fram á 8. áratuginn jókst mjög óánægja póstmanna víða um land í garð PFÍ og töldu þeir sig afskipta í störfum og áherslum forystumanna sinna. Reynir Ármannsson, sem gegndi formennsku 1970-1976, segir í grein í Póstmannablaðinu árið 1989 að póstmenn hafi á þeim árum haft lítil sem engin tengsl við félagið. Hann kveðst hafa haldið fjölsóttan fund árið 1972 með póstmönnum á Norðurlandi og að þar hafi kviknað sú hugmynd að stofnað yrði félagsráð PFÍ. Haustið 1973 er haldið Landsþing póstmanna í Munaðarnesi í annað sinn í sögu félagsins og þar var margt skrafað og skeggrætt um málefni póstmanna. Póstmenn utan af landi lýstu þar óánægju með sína stöðu. Í fundargerð segir t.d.:

1974

„Ævar Ólafsson Akureyri var ævareiður fyrir hönd starfsbræðra sinna utan Reykjavíkur vegna afskiptaleysis PFÍ af þeirra málum. Bar hann fram drög að tillögu þar sem þung áhersla var lögð á að bæta hag þeirra sem vinna alhliða póststörf.“ Þetta þing í Munaðarnesi fjallaði ítarlega um skipulagsmál PFÍ. Þar var kynnt tillaga starfandi laganefndar um að skipta félaginu upp í deildir til að tryggja betur hagsmuni póstmanna utan Reykjavíkur og gera þá meira gildandi í starfi félagsins. Samþykkti þingið þessa stefnuyfirlýsingu og vísaði henni til afgreiðslu næsta aðalfundar.

Póstfreyjufélagið fær aðild að PFÍ. Deildaskipting tekin upp í PFÍ og félaginu skipt í sjö deildir. Félagsmönnum PFÍ fjölgar úr 218 í 469! Póstmannafélag Íslands kaupir hluta úr jörðinni Rauðaberg II í Austur-Skaftafellssýslu.

Á aðalfundi PFÍ 7. apríl 1974 voru svo samþykktar viðamiklar breytingar á lögum Póstmannafélagsins þar sem félaginu var skipt í sjö deildir og var 6. deild fyrir Suðurland og Vesturland og 7. deild fyrir Norðurland og Austurland. Jafnframt var ákveðið að kjósa stjórnir þeirra meðal félagsmanna næstu vikur. Á framhaldsaðalfundi 16. maí voru kunngerð úrslit í nýafstöðnum kosningum til félagsráðs. Með þessari breytingu fengu póstmenn af landsbyggðinni meiri áhrif í félaginu auk þess sem félagsmönnum fjölgaði verulega.

Póstmannablaðið endurvakið Árið 1973 kom 11. árgangur Póstmannablaðsins út, allveglegt blað í ritstjórn Jóns Gíslasonar sem um skeið hafi látið að sér kveða á fundum félagsins. Þremur árum síðar kemur 12. árgangurinn út og er ábyrgðarmaður blaðsins Jakob Tryggvason. Enn líða þrjú ár en á 60 ára afmælisári 1979 er ráðist í útgáfu blaðs auk þess sem ritnefndin hóf útgáfu fjölritaðra fréttabréfa sem komu út um skeið. Fram til 1982 kemur út eitt tölublað á ári en það ár telst vera 16. árgangur Póstmannablaðsins. Næstu ár er útgáfan stopul en haustið 1991 skiptir Póstmannablaðið um búning um leið og útgáfutíðnin var aukin frá því sem verið hafði um nokkurt árabil. Blaðið breyttist mjög að innihaldi, efnið varð fjölbreyttara og fleiri voru fengnir til að stinga niður penna. Allt fram undir miðjan 1. áratug aldarinnar er útgáfan stöðug og flest árin raunar gefin út tvö tölublöð á ári. Árið 2009 var svo gefið út 90 ára afmælisrit og ekki hafa komið út fleiri Póstmannablöð uns þetta, sem hér liggur fyrir kemur út, en það telst vera 39. árgangur þessa merka rits.

23

1973


Fjölbýlishúsin sem póstmenn byggðu við Grettisgötuna eru reisuleg og standa enn fyrir sínu.

Póstmenn reisa fjölbýlishús Byggingasamvinnufélag póstmanna var stofnað 1947. Tveimur árum síðar fékk það leyfi til að byggja þrílyft íbúðarhús úr steinsteypu á lóðinni Grettisgötu 90-98. Risu húsin á næstu tveimur árum. Síðar voru innréttaðar íbúðir í bæði risi og kjallara húsanna. Í marsmánuði 1959 segir Þjóðviljinn frá þessu: „Árið 1947 stofnuðu starfsmenn póststofunnar í Reykjavík byggingafélag og hefur það nú aðstoðað við að koma upp 48 íbúðum. Hafa starfsmenn, sumir hverjir, unnið að þessum málum í frístundum sínum

af miklum dugnaði. Samtökin hafa þannig stuðlað að því, að margir efnalitlir starfsmenn stofnunarinnar hafa smám saman getað eignast þak yfir höfuðið og með því lagt traustan grundvöll að bættri lífsafkomu fyrir sig og sína á komandi tímum.“ Eins og fram kemur var þetta frumkvæði ekki fyrir atbeina félagsins heldur starfsmanna póststofunnar en slík byggingasamvinnufélög voru algeng á þessum árum. Byggingasamvinnufélagi póstmanna var formlega slitið í desember 2005.

Póstþjónusta í 200 ár Póstþjónustan í landinu átti 200 ára afmæli vorið 1976 en það var þann 13. maí 1776 sem Kristján VII Danakonungur gaf út tilskipun um að komið skyldi á skipulagðri dreifingu pósts í landinu. Fól hann stiftamtmanni að tryggja þrjár póstferðir um landið ár hvert. Þessi samfélagsþjónusta komst þó ekki á fyrr

24

en 1782 þegar fyrsta ferðin var farin frá Reykjanesi við Ísafjarðardjúp til Haga á Barðaströnd. Fyrsti póstur landsins hét Ari Guðmundsson og fór hann með 17 bréf í ferðinni og var eitt þeirra til Skúla landfógeta Magnússonar.


Reynir Ármannsson vann hjá póstinum alla sína starfsævi og var mikill baráttumaður fyrir bættum kjörum hinna lægst launuðu.

Reynir Ármannsson, formaður PFÍ 1970-1976

Stórvirkur félagsmálamaður

Reynir Ármannsson var formaður Póstmannafélags Íslands á árunum 1970-1976. Hann hóf störf hjá Póst- og símamálastofnuninni í júlí 1941 og starfaði við póststörf til ársloka 1992 að hann lét af störfum vegna aldurs. Reynir sinnti flestum þáttum póstþjónustunnar og var síðast yfirdeildarstjóri bréfadeildar póstmiðstöðvar. Í minningarbrotum í tilefni 70 ára afmælis PFÍ eftir Reyni, sem birtust í Póstmannablaðinu 1989, segist honum svo frá: „Mér eru minnisstæð ummæli póstmanns á Sauðárkróki 1972. Hann sagði: „Það eina sem póstmenn á landsbyggðinni vita um tilveru Póstmannafélagsins er að innheimt væri félagsgjald einu sinni á ári.“ Sumarið 1972 hélt ég fund á Akureyri með póstmönnum. Sá fundur var fjölsóttur. Kom þar fram eindregin ósk um að stjórn PFÍ sinni betur félögum á landsbyggðinni og að þeir fengju virka aðild að félaginu. Á þessum fundi vaknaði fyrst sú hugmynd að stofnað yrði félagsráð PFÍ.“ „Þegar litið er yfir 70 ára starfstímabil PFÍ má sjá að margt hefur áunnist fyrir stéttina. Félagið hefur knúið fast á í réttindabaráttunni og á stundum hefur það unnið brautryðjendastarf af hálfu opinberra starfsmanna. Ný verkefni blasa hvarvetna við, svo sem vera ber í stofnun sem háð er þróun tímans og kröfum framsækinnar þjóðar. Er póstþjónustunni því mikilsvert að vel sé búið að henni og því starfsliði sem hana skipar. Við skulum með þakklátum huga minnast þeirra 11 félaga okkar sem með forsjá og framsýni stofnuðu Póstmannafélag Íslands fyrir 70 árum síðan.“ Reynir var ætíð virkur félagsmálamaður en eftir að hann lauk formannstíðinni í PFÍ varð hann formaður Neytendasamtakanna til ársins 1982. Einnig var hann um skeið formaður félagsins Ísland-Ísrael og Náttúrulækningafélags Reykjavíkur og sat í stjórnum Heilsuhælisins í Hveragerði, Velunnarafélags Borgarspítalans og Fuglaverndunarfélags Íslands. Reynir lést 4. desember 2002.

25


Póstmannafélag Íslands keypti hluta úr jörðinni Rauðaberg II í Austur-Skaftafellssýslu árið 1974. Þar áttu póstmenn athvarf allt til ársins 2002 að Rauðbergið var selt.

Hallir sumarlandsins Þegar BSRB hóf rekstur sumarhúsa og félagsmiðstöðvar í Munaðarnesi slóst PFÍ í hópinn og ákvað að kaupa tvö 40 m2 hús þar vorið 1970. Núna eiga póstmenn kost á fjórum húsum í Munaðarnesi. Árið 1974 keypti Póstmannafélagið 12 ha. úr jörðinni Rauðaberg II í Mýrarhreppi í AusturSkaftafellssýslu. Þar var fyrir uppistandandi íbúðarhús úr torfi og timbri en önnur útihús komin að falli. Póstmenn hófust strax handa við endurbætur og á næstu árum var íbúðarhúsið þiljað og innréttað miðað við nútímaþarfir, girðingar reistar um landspilduna, trjám plantað og margvíslegar aðrar endurbætur gerðar. Smám saman fjölgaði orlofshúsum félagsins og næstu ár fengu félagsmenn einnig aðgang að húsum á Illugastöðum í Fnjóskadal og á Eiðum. Árið 1997 festi félagið kaup á glæsi-

legri 3ja herbergja íbúð að Sólheimum 25 í Reykjavík. Því var fagnað í Póstmannablaðinu um haustið: „Með þessum kaupum rætist langþráður draumur póstmanna, sérstaklega þeirra sem búa úti á landi, að eiga kost á leiguíbúð um skamman tíma í höfuðborginni, hvort sem er á orlofstíma eða í erindum utan hans. Þessi nýja íbúð póstmanna er með svefnplássi fyrir allt að 8 manns og búin öllum húsbúnaði af bestu gerð.“ Árið 2002 seldi PFÍ hús sitt og jarðarskika á Rauðabergi og keypti í framhaldinu íbúð Tjarnarlundi 2e á Akureyri. Árið 2018 var íbúðin í Sólheimum seld en önnur keypt að Stakkholti 2B í Reykjavík. Auk þess eiga póstmenn kost á að leigja bústaðina á Eiðum, á Illugastöðum og í Munaðarnesi eins og áður var nefnt.

Í Munaðarnesi hefur lengi verið vinsæl orlofshúsabyggð. Póstmannafélagið hefur til umráða fjögur hús í Munaðarnesi.

26


1976 PFÍ fær aðild að starfsmannaráði Pósts og síma. 200 ár frá tilskipun um póstþjónustu á Íslandi. Póstmannafélagið opnar skrifstofu tvisvar í viku frá kl. 16:30-18:00.

1977 Fyrsta verkfall BSRB er frá 11.-25. október.

Stjórn PFÍ 1978-1980 í nýjum húsakynnum félagsins að Grettisgötu 89. Frá vinstri: Sævar Einarsson gjaldkeri, Gyða Jónsdóttir ritari, Björn Björnsson formaður, Pétur Einarsson varaformaður og Sigurður Samúelsson meðstjórnandi.

1978

Skrifstofa og framkvæmdastjóri

PFÍ kaupir 13,05% eignarhlut í Grettisgötu 89 með stuðningi Póstmannasjóðs.

Vorið 1976 fóru fram harðvítugar kosningar í stjórn og félagsráð PFÍ og tók Björn Björnsson við formennskunni en hann hafði áður gegnt því embætti. Ný stjórn lagði áherslu á eflingu félagsins en á þessum tíma voru væringar upp á vinnumarkaði. Þetta ár er Gylfi H. S. Gunnarsson ráðinn skrifstofumaður félagsins í hlutastarfi og var skrifstofa opin tvisvar í viku frá kl. 16:30-18:00. Árið 1978 keypti Póstmannafélag Íslands, með stuðningi Póstmannasjóðs, 13,05% eignarhlut í Grettisgötu 89 á móti öðrum samtökum opinberra starfsmanna. Síðar meir afhenti Póstmannasjóður félaginu sinn hlut í húnæðinu til eignar. Ári síðar opnar félagið þar skrifstofu í eigin húsnæði og var Guðrún K. Þorbergsdóttir ráðin framkvæmdastjóri í hálfu starfi. Gegndi hún því starfi nær óslitið til þess er hún gerðist húsfreyja á Bessastöðum árið 1996. Í maí það ár var Margrét Ragnarsdóttir ráðin til starfa á skrifstofunni en hún var þá gjaldkeri félagsins. Verkefni á skrifstofunni jukust mjög í kjölfar þess að rekstrarformi aðalvinnuveitanda félagsmanna var breytt. Haustið 1997 var samþykkt að ráða formann félagsins, Þuríði Einarsdóttur í fullt starf framkvæmdastjóra eftir að Margrét hafði sagt upp störfum fyrr á árinu. Jafnframt kom Elísabet Þórólfsdóttir til starfa á skrifsofunni. Þuríður gegndi starfi

Guðrún Þorbergsdóttir var ráðin fyrsti framkvæmdastjóri Póstmannafélagsins árið 1979.

formanns og framkvæmdastjóra allt til ársins 2015 að hún gaf ekki lengur kost á sér. Var þá Elísabet ráðin framkvæmdastjóri PFÍ og með henni á skrifstofu var í hlutastarfi Halla Reynisdóttir meðan hún gegndi stöðu formanns félagsins á árunum 2015-2017. Þegar Elísabet lét af störfum í janúar 2019 var Sigrún Ómarsdóttir ráðin sem framkvæmdastjóri. Með henni á skrifstofunni starfar formaðurinn, Jón Ingi Cæsarsson.

1976

27


1979 Póstmannafélag Íslands opnar skrifstofu í eigin húsnæði að Grettisgötu 89. Guðrún K. Þorbergsdóttir ráðin fyrsti framkvæmdastjóri félagsins. Eftirlaunadeild PFÍ sett á laggirnar.

1980 Kjarasamningur með félagsmálapakka sem m.a. tryggði aðild opinberra starfsmanna að atvinnuleysistryggingum og stofnun starfsmenntunarsjóðs. Félag íslsenskra landpósta stofnað.

Eftirlaunaþegar í Strandakirkju sumarið 2003.

Fyrrum póstmenn í góðum gír Sérstök eftirlaunadeild Póstmannafélags Íslands hefur verið starfandi frá árinu 1979 og gera menn sér ýmislegt til gamans. M.a. hefur á hverju sumri verið efnt til sumarferðar og mikil ánægja verið með þær enda nást alltaf fullbókað. Í byrjun aðventu er haldinn aðventufagnaður að Grettisgötu 89 í húsnæði félagsins þar sem er lesin jólasaga og nýjar bækur kynntar. Alltaf er heitt súkkulaði og meðlæti í boði. Ekki má gleyma happdrættinu þar sem margt góðra vinninga er í boði. Á aðalfundum eftirlaunadeildar er spiluð félagsvist ef mæting er nægjanleg. Með starfi eftirlaunadeildar gefst þeim sem látið hafa af störfum kostur á að hitta gamla

Úti í guðsgrænni náttúrunni. vinnufélaga og eru samkomur og ferðalög á vegum hennar oft eini vettvangurinn fyrir slíka endurfundi.

Landpóstar stofna félag Meginverkefni Póstmannafélagsins allt frá stofnun höfðu snúið að kjörum og baráttumálum vaxandi póstmannastéttar í þéttbýlinu. Er ljóst af fundargerðum stjórnar og aðalfunda í gegnum áratugina að mjög lítið er fjallað um kjör póstmanna í hinum dreifðu byggðum. Hinn 12. janúar 1980 er Félag íslenskra landpósta, FÍLP, stofnað á Selfossi og var Skúli Einarsson kjörinn fyrsti formaður þess. Félagar í FÍLP skv. félagslögum voru „... þeir einstaklingar sem vinna við póst-

28

flutninga og póstdreifingu í dreifbýli á eigin farartækjum og hafa undirritaðan samning við Póst- og símamálastofnunina þar um.“ Í grein eftir Helga Ingvarsson, þáverandi formann FÍLP árið 1987, kemur fram að þá eru félagsmenn 160 talsins um land allt. Landpóstar eru ekki í PFÍ heldur sinna þeir störfum sínum í verktöku fyrir Íslandspóst og sinna póstdreifingu í þéttbýli.


Björn Björnsson var formaður PFÍ á tímabili átaka og uppgangs í sögu félagsins.

Björn Björnsson, formaður PFÍ 1967-1968 og 1976-1984

Var heppinn að fá vellaunað starf

„Fékk ég vinnu í bréfadeildinni, sem var inn af afgreiðslunni í Pósthússtræti 5 en þar var öll póstþjónustan til húsa á þeim tíma. Það er óhætt að segja að ég hafi verið heppinn að fá þessa vinnu því á þeim tíma voru póstmenn mjög vel launaðir. Man ég að um svipað leyti fluttu allmargir lögreglumenn sig yfir til póstsins vegna launakjaranna. Laun okkar voru þá ákveðin af Alþingi og hljóta kjörin að hafa talist allgóð. Vinnuvikan var t.d. ekki nema 37 stundir en þá átti almenna verkalýðshreyfingin langt í land með að ná 40 stunda vinnuviku fyrir sitt fólk.“ Þannig segir Björn Björnsson, fyrrverandi formaður PFÍ frá þegar hann rifjaði upp gamla tíma í samtali við Póstmannablaðið árið 1999. Hann sat tvisvar í embættinu, annars vegar 1967-1968 og svo aftur 1976-1984. Í viðtalinu við Björn er hann spurður um tildrög þess að hann varð formaður PFÍ: „Ég hafði alltaf verið áhugasamur um málefni stéttarinnar og fór að mæta á fundi í félaginu strax eftir að ég hóf störf í stríðslok. Eldskírnina í félagsmálunum hlaut ég sem varaformaður hjá Tryggva Haraldssyni á árunum 1965-1967. Þá ólgaði vinnumarkaðurinn mjög í deilum, ekki síst hjá opinberum starfsmönnum sem töldu að laun sín hefðu dregist verulega aftur úr öðrum stéttum.“ Miklar breytingar urðu í PFÍ undir formennsku Björns Björnssonar. Má m.a. nefna að póstmenn fengu aðild að starfsmannaráði Pósts og síma. Einnig nefndir Björn þátttöku í fyrsta verkfalli opinberra starfsmanna árið 1977. Segir hann það hafa verið mjög lærdómsríkt og í raun prófsteinn á samstöðu meðal opinberra starfsmanna. „Við fundum mjög fyrir því þá að hafa ekki yfir skrifstofu að ráða en allt frá fyrstu tíð hafði skrifstofuhald verið á hendi þess formanns sem starfinu gegndi á hverjum tíma. Því þróuðust mál svo að við póstmenn keyptum hlut í BSRB húsinu við Rauðarárstíg og nokkru síðar innréttuðum við skrifstofu fyrir starfsemina og réðum okkar fyrsta framkvæmdastjóra, frú Guðrúnu K. Þorbergsdóttur. Reyndist sú ráðning hið mesta happaspor því Guðrún var frábær starfsmaður og er óhætt að segja að efling félagsins næstu árin hafi ekki síst verið hennar verk.“ Björn lést 16. júní 2009.

29


1981 Styrktarsjóður póstmanna stofnaður.

1982 Trúnaðarmannakerfi póstmanna sett á laggirnar.

1983 Orlofsbúðir að Eiðum teknar í notkun.

1984 Verkfall BSRB hefst 4. október og stendur í fjórar vikur.

1986 PFÍ fær sjálfstæðan samningsrétt eins og aðrir opinberir starfsmenn.

Miklu skiptir að póstmenn stilli saman strengi sína og móti sameiginlega þær kröfur sem stjórn er ætlað að berjast fyrir. Myndin er tekin 1994.

Eldskírn í verkfalli 1984 Það var nóg að gera á skrifstofu PFÍ þegar opinberir starfsmenn hlutu eldskírnina í kjarabaráttunni í hinu sögulega verkfalli sem hófst 4. október 1984. Stóð það í heilan mánuð. Eftir langar viðræður í Karphúsinu var gerður kjarasamningur með félagsmálapakka sem m.a. tryggði aðild opinberra starfsmanna að atvinnuleysistryggingum og stofnun starfsmenntunarsjóðs.

voru sett um sjálfstæðan samningsrétt félaga opinberra starfsmanna. Þar með fékk PFÍ samningsréttinn í sínar hendur, þ.m.t. verkfallsréttinn. Póstmannafélagið gerði svo sinn fyrsta sjálfstæða kjarasamning árið 1987. Félagið tók virkan þátt í gerð þjóðarsáttar árið 1990 þegar aðilar vinnumarkaðarins ásamt ríkisvaldinu náðu að kveða niður verðbólgudrauginn.

Einn merkasti áfanginn í sögu réttindabaráttu póstmanna náðist árið 1986 þegar lög

1979

Tölvurnar urðu smám saman meginverkfæri starfsmanna Póstmiðstöðvarinnar. Myndin er tekin á námskeiði árið 1987.

30


Dagana 25.-27. maí 1987 var 18. norræna póstmótið haldið á Íslandi. Frá vinstri: Birgitt Munksgaard, formaður Dansk Post og Giro, Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri, Erling Elberg, settur skipulagsstjóri mótsins og Kristín Jenný Jakobsdóttir, formaður PFÍ.

Norrænum félögum boðið til veislu Árið 1987 var Póstmannafélag Íslands gestgjafi 18. norræna póstmótsins sem haldið var hér á landi í fyrsta sinn dagana 25.-29. maí á Hótel Loftleiðum. Þar komu 120 póstmenn saman til skrafs og ráðgerða um framtíðina. Aðalumræðuefnið mótsins var „Til ársins 2000 – Hvaða megináskorunum standa meðlimir norrænu póstmannafélaganna frammi fyrir?“ Aðalræðumenn á mótinu voru Ted Hanisch, aðstoðarráðherra frá Noregi og Bertil Zachrisson, póstmála-

stjóri frá Svíþjóð. Þá voru félagsmál og kjör póstmanna í brennidepli.

1987

Þáverandi formaður PFÍ, Kristín Jenný Jakobsdóttir, var í fyrirsvari fyrir íslensku undirbúningsnefndina og leysti hún það verkefni vel af hendi. Hún hafði veg og vanda af undirbúningi þingsins hér á landi og var góður rómur gerður að þinghaldinu öllu. Tæpu ári eftir þetta norræna póstmót lést Kristín Jenný, aðeins 56 ára gömul.

Þingfulltrúar litu upp úr önnum sínum og brostu framan í ljósmyndarann.

31

Póstmannafélagið gerir sinn fyrsta sjálfstæða kjarasamning. Norræna póstmótið haldið á Íslandi.


Morgunblaðið birti frétt þess efnis þann 8. apríl 1987 að póstmenn hótuðu verkfalli til að ná kjarasamningi. Það tókst án átaka í það sinn.

Póstmenn ná samningum Harðvítug átök voru á vinnumarkaði vorið 1987 og í Morgunblaðinu 8. apríl er þessi frétt á baksíðu: „Fulltrúar Póstmannafélags Íslands sátu á sáttafundi með viðsemjendum sínum fram eftir kvöldi í gær hjá sáttasemjara. Óvíst var um árangur. Verkfall, sem Múrarafélag Reykjavíkur og Póstmannafélag Íslands hafa boðað, hefst á miðnætti hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma.“

Undir þessari hótun var knúinn fram nýr kjarasamningur til handa póstmönnum og verkfalli aflýst á síðustu stundu. Að mati Jennýjar Jakobsdóttur, þáverandi formanns félagsins, færði samningurinn félagsmönnum 25% launahækkun á tveimur árum. Póstmenn samþykktu kjarasamningana 27. apríl með miklum meirihluta en já sögðu 74,5%. Þessi samningur er ágætt dæmi um þá verðbólgusamninga sem einatt voru gerðir á 8. áratugnum – fyrir svokallaða þjóðarsátt.

Hópuppsögnum hótað Kjarasamningar á 8. áratugnum voru fljótir að brenna upp og svo var með þennan samning Póstmannafélags Íslands sem samþykktur hafði verið vorið 1987. Í Degi á Akureyri birtist forsíðufrétt 30. september með fyrirsögninni „Hópuppsagnir póstmanna á Akureyri.“ Forvígismaður aðgerðanna var Jón Ingi Cæsarsson trúnaðarmaður og í viðtali við Dag segir hann m.a.: „Þetta er fólk með metnað sem er búið að fá nóg af því að vinna hörðum höndum hjá ríkisfyrirtæki og sér þess engin merki, hvorki í launaumslaginu né á annan hátt, að það leggi hart að sér.“

1987

Aðspurður hvort samningar félagsins um vorið hafi verið mistök svarar Jón Ingi: „Samningarnir voru samþykktir í vor með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða ófaglærðra starfsmanna. 800 manns eru í Póstmannafélagi Íslands en þar af eru ekki nema um 150 faglærðir. Ég vil því orða þetta svo að síðustu samningar hafi verið mjög vanhugsaðir.

32

Bréfberar og bílstjórar fengu sæmilega viðbót í samningunum en við hinir sátum alveg eftir.“


1989 PFÍ heldur upp á 70 ára afmælið. Póstmannafélagið kaupir annað hús á Eiðum fyrir afmælisgjöf frá Pósti og síma.

Fyrrum formenn PFÍ voru kallaðir upp á svið í 70 ára afmælisfagnaðinum. Frá vinstri: Ásgeir Höskuldsson 1968-1970, Þorgeir Ingason 1984-1986, Dýrmundur Ólafsson 1961-1962, Ari Jóhannesson 1960-1961, Sigurður Ingason 1952-1953, Björn Björnsson 1967-1968 og 19761984 og þáverandi formaður, Lea Þórarinsdóttir, 1988-1994.

Glaumur og gleði á 70 ára afmæli Póstmannafélag Íslands hélt veglega upp á 70 ára afmælið árið 1989 og komu fjölmargir póstmenn ásamt mökum og öðrum gestum saman til að fagna áfanganum. Þá voru fyrrum formenn félagsins heiðraðir af þessu tilefni. Félaginu bárust margar góðar gjafir. Póst- og símamálastofnun bauð einnig stjórnum stéttarfélaganna innan Pósts og

síma til kaffidrykkju í Sigtúni við Austurvöll og þar fékk PFÍ að gjöf 2.500.000 kr sem Ólafur Tómasson póst- og símamálastjóri afhenti. Þá fékk félagið af þessu tilefni forláta símtæki að gjöf sem notað er á skrifstofunni að Grettisgötu 89. Formaður BSRB gaf PFÍ orðabækur í tilefni tímamótanna.

Sungið PFÍ til dýrðar í afmælisfagnaði 1989. Sigrún Stefánsdóttir, Sigríður Hansdóttir, Kolbrún Finnbogadóttir og Þuríður Einarsdóttir.

33


„Burt með frumvarpið“ var kjörorð PFÍ þegar Alþingi afgreiddi umdeilt frumvarp um að einkavæða síma- og póstþjónustuna árið 1996. Hér er formaður PFÍ með sínu fólki á þingpöllum.

Atlaga gerð að PFÍ 1993 Minnisvarði um landpóstana afhjúpaður á Stað í Hrútafirði. Frumvarp kemur fram á Alþingi um einkavæðingu Pósts og síma.

Árið 1993 kom fram ríkisstjórnarfrumvarp um stofnun hlutafélags um rekstur stofnunarinnar er skyldi fá heitið Póstur og sími hf. Póstmannafélagið snerist strax öndvert gegn þessum hugmyndum og varaði sérstaklega við því að póstþjónustan færi úr höndum ríkisins. Taldi félagið atvinnuöryggi fólks í hættu því með einkavæðingu yrði póstþjónusta víða lögð af, einkum í strjálbýlinu. Lögðu forystumenn PFÍ áherslu á að Póstur og sími ætti að vera rekið af hinu opinbera, sérstaklega þjónusta póstsins. Árið 1996 var umrætt lagafrumvarp nær óbreytt afgreitt sem lög frá Alþingi og tóku þau lög gildi 1. janúar 1997. Ekki leið nema eitt ár þangað til hlutafélaginu Pósti og síma hf. var skipt upp og Íslandspóstur ohf. tók til starfa. Varð hann strax eitt stærsta fyrirtæki landsins með um 1000 póstmenn á sínum vegum.

Við uppskiptingu félagsins urðu átök um það innan verkalýðshreyfingarinnar hverjir skyldu semja um kaup og kjör fyrir starfsmenn hins nýja félags. ASÍ gerði kröfu um að fá það hlutverk en en að mati forystu póstmanna hefði það þýtt dauða félagsins á skömmum tíma. Þetta var tónninn í Póstmannablaðinu í ársbyrjun 1997: „Nú þegar sótt er að verkalýðshreyfingunni úr öllum áttum og mikið ríður á að sýna órofa samstöðu þá stendur það forystumönnum hreyfingarinnar nær að standa vörð um og reyna að bæta kjör sinna félagsmanna heldur en að vera í innbyrðis stríði um félagsmenn. Félög póst- og símamanna hefðu frekar vænst stuðnings félaga sinna innan ASÍ á þeim erfiðu umbrotatímum, sem þau ganga nú í gegnum en að komið væri í bakið á þeim með þessum hætti.“

Úr afgreiðslusal pósthússins við Rauðarárstíg árið 1993. Sigríður Gylfadóttir gjaldkeri, Kristrún Guðmundsdóttir umsjónarmaður og Eyborg Drífa Flosadóttir gjaldkeri.

34


Landpóstanna minnst

1994 Formaður PFÍ kosinn í beinni kosningu til 3ja ára.

Fimmtudaginn 13. maí 1993 var minnisvarði um landpóstana afhjúpaður á Stað í Hrútafirði. Staður var um árabil stærsta póstmiðstöð í sveit á Íslandi og þangað komu ekki færri en sex landpóstar um 15. hvers mánaðar allt árið um kring. Það voru Sunnanpóstur, Akureyrarpóstur, Stykkishólmspóstur, Króksfjarðarnespóstur, Stranda­ póstur og Núpsdalstungupóstur.

Reykingar bannaðar á starfsstöðum Pósts og síma.

Minnisvarðinn um landpóstana er eftir Grím Marinó Steindórsson myndhöggvara. Verkið er stálsúla, um 3,5 metrar á hæð og greinist í þrjár burstir að ofan. Á súlunni er lágmynd af manni á hesti sem teymir töskuhest. Frumkvæði að gerð minnisvarðans áttu þeir Staðarbræður Magnús og Eiríkur Gíslasynir.

Minnisvarðinn um landpóstana á Stað í Hrútfirði er eftir Grím Marinó Steindórsson.

Formaður kjörinn beinni kosningu Um það leyti sem Póstmannafélag Íslands hélt upp á 75 ára afmæli sitt árið 1994 fóru fram kosningar til formanns, stjórnar og í trúnaðarráð félagsins. Var kosið samkvæmt nýjum lögum frá aðalfundi árið áður þar sem m.a. var tekin upp sú nýbreytni að kjósa formann beinni kosningu til 3ja ára.

Póstgíró, gaf einnig kost á sér. Á kjörskrá voru 979 manns og atkvæðu greiddu 800 eða 82%. Leikar fóru svo að Þuríður fór með sigur af hólmi. Nýkjörinn formaður hafði lengi starfað í forystu PFÍ, síðast sem ritari félagsins. Þuríður átti eftir að gegna embætti formanns í 21 ár, lengst allra í sögu félagsins.

Lea Þórarinsdóttir, póstafgreiðslumaður á R-4 sat í sæti formanns eftir kjör árið 1988 og gaf nú kost á sér til endurkjörs. Nú bar til tíðinda að Þuríður Einarsdóttir, fulltrúi hjá

Á aðalfundi PFÍ vorið 1994 var Lea Þórarinsdóttir, fráfarandi formaður, heiðruð með gullmerki félagsins og þakkað fyrir góð störf í þágu félagsmanna.

Kjörnefnd að störfum þegar kosningar fóru fram um formann og stjórn PFÍ í mars 1994. Þetta var í fyrsta sinn sem formaður var kjörinn beinni kosningu. Á kjörskrá voru 979 manns og atkvæðu greiddu 800 eða 82%.

1993

35


Forsetafrúin Guðrún Katrín Þorbergsdóttir með formanni Póstmannafélagsins, Þuríði Einarsdóttur. Myndin er tekin á Bessastöðum 1996.

Frá PFÍ til Bessastaða Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, sem varð fyrsti framkvæmdastjóri Póstmannafélags Íslands árið 1979, gegndi því starfi með einu hléi allt til ársins 1996. Það ár var eiginmaður hennar, Ólafur Ragnar Grímsson, kjörinn forseti Íslands og varð Guðrún Katrín þar með forsetafrú á Bessastöðum. Guðrún Katrín átti mikinn þátt í endurreisn Póstmannafélags Íslands á 9. áratugnum þegar félagið efldist mjög til allra verka. Kom það í hennar hlut að byggja upp og móta skrifstofu félagsins þaðan sem starfinu var

stýrt af myndarbrag. Vann Guðrún Katrín þétt með stjórn félagsins og nutu póstmenn hennar atorku, sterka persónuleika og afburða þekkingar á réttindamálum stéttarinnar. Póstmannafélag Íslands þakkaði Guðrúnu Katrínu fyrir vel unnin störf þegar leiðir skyldu og gaf henni forláta skautbúning sem foretafrúin skrýddist við hátíðleg tækifæri. Guðrún Katrín Þorbergsdóttir lést eftir skammvinna baráttu við krabbamein 12. október árið 1998 og var öllum, sem hana þekktu, harmdauði.

Heimasíða og nýir sjóðir Haustið 1998 fór vefsíða í loftið á vegum Póstmannafélagsins og þar var að finna ýmsar upplýsingar um félagið, m.a. er varða sögu þess, forystumenn, kjarasamninga, gildandi launatöflu, orlofsmál o.fl. Heiðurinn af heimasíðunni áttu feðgarnir Skúli Árnason og Árni Skúlason á Akureyri. Þetta sama ár voru tveir sjóðir í eigu póstmanna settir á laggirnar, Starfsmenntunarsjóður og Sjúkrasjóður. Póstmenn höfðu áður

36

átt aðild að Starfsmenntasjóði BSRB og var framlag launagreiðandans óbreytt, eða 0,22% af launum hvers félagsmanns. Hlutverk Sjúkrasjóðsins er fyrst og fremst að koma til móts við félagsmenn sem verða fyrir launatapi vegna veikinda og var hann ætlaður þeim starfsmönnum sem hófu störf hjá fyrirtækinu eftir stofnun hlutafélags og ekki höfðu áunnið sér rétt til launa í veikindum á sama hátt og eldri starfsmenn.


Lea Þórarinsdóttir var lengi í brúnni hjá póstmönnum og stjórnaði félaginu af skörungsskap.

Lea Þórarinsdóttir, formaður PFÍ 1988-1994

Réttindin fást ekki sjálfkrafa

„Ég byrjaði sem bréfberi hjá póstinum veturinn 1971. Í fyrstu ætlaði ég aðeins í afleysingar í tvo mánuði, svona til þess að prófa að fara út á vinnumarkaðinn aftur og auka heimilistekjurnar. Ég átti þá fjögur börn á aldrinum 2 til 12 ára og hafði ekki verið á vinnumarkaði frá því ég gifti mig. Fljótlega eftir að ég byrjaði fékk yngsta barnið pláss á dagheimili hálfan daginn sem varð til þess að ég endaði í föstu starfi,“ segir Lea Þórarinsdóttir, fyrrum formaður PFÍ í afmælisspjalli í Póstmannablaðinu þegar félagið fagnaði 85 ára afmælinu árið 2004. Eftir að Póstfreyjufélagið gekk inn í Póstmannafélag Íslands árið 1974 hélt Lea áfram að starfa að félagsmálum stéttarinnar og nú innan PFÍ. Árið 1981 varð hún fyrsta póstfreyjan til að taka sæti í stjórn Póstmannafélagsins og gegndi næstu árin ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir sitt félag. Árið 1983 hætti Lea sem bréfberi og tók við gjaldkerastöðu í R-4. Hún segir að gjaldkerastarfið hafi verið mjög skemmtilegt en ábyrgð á miklum fjármunum hafi ekki verið metin sem skyldi til launa, þó seinna hafi náðst áfangi í þeirri baráttu með sérstöku gjaldkeraálagi. Lea hafði farið í Póst- og símaskólann og hún segir að nám í skólanum hafi verið mikil lyftistöng fyrir félagsmenn. Árið 1984 fóru opinberir starfsmenn í langt og strangt verkfall. Lea segir að þá hafi mikið reynt á samstöðu félagsmanna. „Póstmenn, sem og aðrir opinberir starfsmenn, lærðu heilmikið af þessu verkfalli. Við svona aðstæður kynnist fólk alveg upp á nýtt. Það var alveg ótrúlegt hvað samstaðan var mikil og ágreiningur um smámál var lagður til hliðar, enda náðist talsverður árangur með þessu verkfalli,“ segir Lea. Áralöng félagsstörf urðu til þess að Lea var kjörinn formaður PFÍ árið 1988. Hún segir að kjaramálin hafi alltaf verið númer eitt, tvö og þrjú. „Þjóðarsáttasamningarnir árið 1990 voru stórt skref fyrir alla launamenn og má segja að síðan hafi ríkt sátt, allavega á yfirborðinu. Launþegar þurfa þó alltaf að vera á varðbergi og halda í þau réttindi sem kostað hafa blóð, svita og tár. Mér finnst stundum að unga fólkið geri sér ekki grein fyrir því að engin réttindi fengum við sjálfkrafa í hendur,“ segir Lea í viðtali við Póstmannablaðið árið 2004.

37


„Farvel Póstur og sími hf. Blessuð sé minning þín!“ Þannig lauk grein Jóns Inga Cæsarssonar í Póstmannablaðinu vorið 1998.

Póstur og sími h.f. – Im memoriam 1997 Lög taka gildi um einkavæðingu Pósts og síma. Fyrsti sameiginlegi kjarasamningur PFÍ og FÍS við Póst og síma hf. Póstmenn eignast íbúð að Sólheimum 25 í Reykjavík.

1998 Íslandspóstur hf. stofnaður.

Forysta Póstmannafélagsins var allt frá upphafi ósátt við það hvernig staðið var að málum varðandi hlutafjárvæðingu Pósts og síma og þá ákvörðun að hafa póst- og símaþjónustuna í einu fyrirtæki. Jón Ingi Cæsarsson, þáverandi varaformaður Póstmannafélags Íslands gerir aðdragandann að stofnun Íslandspósts hf. að umtalsefni í grein í Póstmannablaðinu vorið 1998. „Póstmannafélagið vildi byrja á að aðskilja póst- og símarekstur og stofna um reksturinn tvö fyrirtæki. Þeim sem réðu ferðinni þóttu þessar tillögur með eindæmum vitlausar og ekki þótti einu sinni taka því að hlusta á slíka þvælu. Meirihluti samgöngunefndar trúði sérfræðingunum og lagði tillöguna fyrir Alþingi. Þar var hún samþykkt því auðvitað trúa alþingismenn sérfræðingum.“

Allir vita hvernig fór. Ári eftir hlutafjárvæðingu Pósts og síma var einmitt hinu nýja fyrirtæki skipt upp. Og Jón Ingi endar grein sína í Póstmannablaðinu á þessa leið: „Farvel Póstur og sími hf. Blessuð sé minning þín! Ég óska hinum nýju fyrirtækjum, Íslandspósti ohf. og Landssíma Íslands hf. velfarnaðar í framtíðinni.“ Póstmenn höfðu allt frá upphafi póstþjónustunnar í landinu verið opinberir starfsmenn og var PFÍ m.a. eitt stofnfélaga BSRB árið 1942 eins og áður hefur komið fram. Nú urðu breytingar á og langflestir starfsmannba þáðu nú laun sín frá hlutafélagi í eigu ríkisins en ekki póststjórninni. Þrátt fyrir þetta hélt PFÍ áfram samstarfinu innan BSRB og er ein traustasta stoðin í þeim félagsskap.

Bygging nýrrar póstmiðstöðvar hefst. Heimasíða PFÍ í loftið.

Fyrir jólin 1998 voru miklar annir hjá póstmönnum eins og endranær í aðdraganda hátíðarinnar.

38


1999 Póstmannafélagið 80 ára 26. mars. Félagsmenn 1.110 talsins, 889 konur og 221 karl. Póstmiðstöðin flytur úr Ármúla á Stórhöfða 32.

Fjöldi gesta kom og heiðraði póstmenn á 80 ára afmæli félagsins árið 1999. Úrklippa úr Póstmannablaðinu haustið 1999.

Öflugur öldungur Undir lok 20. aldar var mikill uppgangur í þjóðfélaginu, hið kunna góðæri var að ganga í garð. Þuríður Einarsdóttir formaður víkur að stöðu verkalýðsfélaga við þessar aðstæður og segir í leiðara blaðsins: „Því miður er sú skoðun uppi víða í þjóðfélaginu að stéttarfélög séu orðin óþörf, allir hafi það svo gott og þjóðin sé það vel upplýst að launamenn þurfi ekki samtök til að berjast fyrir sig, hver einstaklingur hafi möguleika á að bjarga sér sjálfur. Þetta er bara ekki svona einfalt og dæmin sýna að aðild að verkalýðs-

félagi og sú þjónusta og samtrygging sem í því felst er ómetanleg.“ Það var glatt á hjalla og margt um manninn þegar félagsmenn í Póstmannafélagi Íslands og gestir þeirra efndu til afmælishátíðar í tilefni 80 ára afmælisins. Fjölbreytt dagskrá var í boði á hátíðinni og skemmti fólk sér hið besta enda ærið tilefni á merkum tímamótum. Við þessi tímamót var Póstmannafélag Íslands öflugra en nokkru sinni fyrr og félagsmenn orðnir 1.110 talsins, konur 889 og karlar 221.

39

1999


Póstmiðstöðin við Vesturlandsveg var tekin í notkun haustið 1999. Formaður Póstmannafélags Íslands, Þuríður Einarsdóttir, flutti kveðjur frá félaginu.

Hjartað færist í austurátt Allt frá því árið 1914 hafði hjarta póstþjónustunnar í landinu slegið í Rauða húsinu við Pósthússtræti þar sem varð fljótlega þröngt á þingi. Strax eftir stofnun Íslandspósts er ákveðið að reisa nýja Póstmiðstöð á Stórhöfða 32 og þangað flutt úr Ármúlanum ári síðar eða haustið 1999. Menn höfðu á orði að póstmenn söknuðu ekki Ármúlans þar sem miðstöðin hafði búið við þröngan kost og óhentugu húsnæði í um það bil hálfan annan áratug. Nýja húsnæðið á Stórhöfðanum var sérhannað með þarfir

Allt fyrir heilsuna! Í tímaritinu Vikunni vorið 2000 birtist lokkandi auglýsing frá Íslandspósti þar sem fólk var hvatt til að sækja um störf bréfbera og í flokkun á pósti. Þess er getið í auglýsingunni að um sé að ræða bæði hlutastörf og heilsdagsstörf. Pósturinn, eins og Íslandspóstur kallaði sig gjarnan á þessum árum, lofar að útvega góðan útivistarfatnað, hjól, kerrur og töskur. – Ekkert er minnst á launakjörin.

40

póstsins í huga; hátt til lofts og vítt til veggja. Ári síðar flutti svo öll aðalstjórn Íslandspósts hf., ásamt stoðdeildum, í stórt og glæsilegt hús Rafiðnaðarsambands Íslands að Stórhöfða 29, beint gegnt hinni nýju Póstmiðstöð. Þar sameinuðust undir einu þaki margar deildir, m.a. skrifstofa forstjóra, fjárstýring, starfsmannahald, bókhald og þjónustudeild, skrifstofa flutningamála og fleiri deildir Póstsins.


2001 Íslandspóstur gerir samning við Kaupfélag Skagfirðinga um rekstur póstafgreiðslna í verslunum þess í Varmahlíð og á Hofsósi.

Eldri póstmenn hafa verið virkir í félagslífinu um langt árabil.

Öflugt starf eftirlaunaþega Starfsemi eftirlaunadeildar PFÍ var með nýrri öld lífleg eins og endranær. Í desember 2000 segir í Póstmannablaðinu frá dagsferð í boði félagsins og Íslandspósts hf. þar sem var fjölmenni svo færri komust að en vildu. „Að þessu sinni var farið inn á hálendið og skoðað virkjunarsvæðið við Þjórsá. Notuðu ferðalangar sér tilboð Landsvirkjunar um leiðsögn í virkjunum og skoðuðu þessi

stórkostlegu mannvirki að utan sem innan. Því miður var veðrið ekki eins og best var á kosið en það rigndi allan daginn og því lítið hægt að njóta útsýnis. En þátttakendur í ferðinni höfðu á orði að sem betur fer hefði aðaltilgangur ferðarinnar verið að skoða mannvirki og þá skipti veðrið ekki eins miklu máli.“

Ekki ferð til fjár Um og upp úr aldamótum leitaði Íslandspóstur leiða til að spara í póstþjónustunni og efna til samstarfs við verslanir og banka um dreifingu á bréfum og bögglum. Frá því er greint í Degi í mars 2001 að Kaupfélag Skagfirðinga hafi tekið við pósþjónustu í Varmahlíð og á Hofsósi og að samstarf við Búnaðarbankann á Skagaströnd sé í planinu. Formaður Póstmannafélagsins, Þuríður Einarsdóttir, segist í samtali við Dag eiga erfitt með að trúa því að póstþjónustan verði eins góð eftir að hún er komin í eitthvert búðarhornið. „Maður óttast að þegar þetta er fært í hendur aðila sem ekki hafa þá fagþekkingu sem starfsmenn Póstsins hafa, bæði í gegnum nám og starfsþjálfun, þá muni þjónustan fara niður á við. Póstþjónusta er nefnilega meira heldur en að dreifa bréfum til landsmanna, þótt það sé góðra gjalda vert og þurfi að gera það vel. En þeir fá líka og senda frá sér bæði böggla og ábyrgðarsendingar, sem allt verður að

komast til skila og vera rekjanlegt.” – Tíminn leiddi fljótlega í ljós að þessar hagræðingaraðgerðir skiluðu engum árangri og að formaðurinn hafði rétt fyrir sér.

41

2001


2002 Rauðabergið selt og orlofsíbúð keypt á Akureyri.

2003 Samið við Kaupás um póstafgreiðslu í Nóatúnsverslunum.

Póstmenn láta aldrei deigan síga þrátt fyrir meiðsli, brot og bruna! Úrklippa úr Póstmannablaðinu í desember 2002.

„Með vöðvabólgu og blöðru á fæti“ Árið 2002 birtist í Póstmannablaðinu skemmtilegur bragur sem fluttur var af landpósti á Norðurlandi við jólahlaðborð póstmanna fyrir nokkrum árum. Höfundur er því miður óþekktur. Bráðum koma blessuð jólin burðardýrin kenna á því. Kjaga þau með klyfjar þungar komin jólapóstinn í.

Er kærust loksins koma jólin kjaga þreyttir póstar heim. Jesúbarnið blíða og góða byrði hefur létt af þeim.

Kaupmenn senda bunka af blöðum boða sölu frelsarans. Og kirkjan dátt við kálfinn gyllta kostulegan stígur dans.

Með vöðvabólgu og blöðru á fæti brölta þeir til messunnar. En gjafakort í „Hár og heilsu“ er hámark jólablessunar.

Örugg póstdreifing? Þannig er spurt í Póstmannablaðinu sumarið 2003 þegar Íslandspóstur hafði opnað póstafgreiðslu í samstarfi við Kaupás sem rak matvöruverslanir Nóatúns. Póstmannafélag Íslands lýsti sig á sínum tíma andvígt þeirri stefnu fyrirtækisins og hafði ekki skipt um skoðun á því. Í grein í blaðinu er fjallað um þessa nýju póstþjónustu í landinu og þar segir m.a.: „Þjónustan felst líka í því að flytja póst sem sendandanum er annt um að komist til skila og að hægt sé að rekja ferðir hans ef

eitthvað fer úrskeiðis. Því er spurt: Mun halda það öryggisnet sem Íslandspóstur hefur byggt upp utan um þessar sendingar með sífellt fleiri rekstararaðilum?“ Í fundargerðum stjórnar Póstmannafélagsins frá þessum tíma kemur glögglega fram að félagið telur þennan samning um póstdreifngu í gegnum matvöruverslanir vera skýlaust brot á lögum þar sem aðeins eitt félag hafi leyfi til póstdreifingar auk Íslandspósts en það sé Póstdreifing hf.

Íslandspóstur reyndi um tíma að bjóða upp á póstþjónustu í samstarfi við Nóatúnsbúðirnar. Það reyndist ekki vel.

42


Póstburðarhverfin stækkuð – þyngdarmörk rædd

2004 Heitir pottar settir upp við orlofshúsin í Munaðarnesi.

Í frétt í DV í febrúar 2004 er frá því greint að hagræðing Íslandspósts í póstnúmeri 201 í Kópavogi feli m.a. í sér að bréfberar, sem eru í 50 prósenta starfi, hafi verið leystir frá störfum og þeir sem eru í fullu starfi skikkaðir til að taka við þeirra verkefnum, án kauphækkunar! Áslaug Alexandersdóttir, bréfberi í Lindahverfi segist í samtali ganga daglega í þrjá til fjóra tíma með póst og stundum teygist það upp í sex klukkutíma.. „Ég segi upp ef þetta verður óviðunandi og hef sagt mínum yfirmanni að ég sé mjög ósátt við þetta.” Fleiri sjónarmið komu fram hjá bréfberum sem kvörtuðu undan álagi. T.d. var rætt um þyngdartakmörk á pósti dagsins en bréfberar í stórum hverfum þurfa að burðast með ótrúlega þunga bagga þegar stórdreifing stendur yfir, t.d. á hinum ágæta IKEA bæklingi sem út kemur árlega.

500 milljónir í hítina Í Fréttablaðinu 31. mars 2004 birtist svohljóðandi frétt sem byggð er á samþykkt aðalfundar PFÍ sem þá var nýlokið: „Póstmannafélag Íslands lýsir yfir furðu sinni á þeirri tillögu samgönguráðherra að fimmhundruð milljóna króna hagnaður Íslandspósts skuli greiddur til ríkissjóðs. Þetta kom fram á aðalfundi Póstmannafélagsins. Póstmannafélagið bendir á þá

staðreynd að um 70 prósent félagsmanna eru í láglaunastörfum, með um 100 þúsund á mánuði. En meðalmánaðarlaun starfsmanna Íslandspósts eru um 185 þúsund. Félagsmenn vilja að hagnaðurinn verði nýttur til að bæta kjör þess fólks sem býr við lægstu kjörin hjá Íslandspósti fremur en að byggja póstþjónustu landsmanna á vinnuframlagi þeirra.“

43


Bað bréfbera að njósna um sig „Póstberum á afgreiðslu Íslandspósts í Keflavík barst fyrir nokkru bréf frá forstöðumanni Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Í bréfinu voru póstberar beðnir um að skrá hjá sér á hvaða heimilum í bænum þeir yrðu varir við hunda. Sérstaklega var beðið um að skráður yrði fjöldi þeirra. Stöðvarstjóri afgreiðslunnar í Keflavík, Anna María Guðmundsdóttir, játar að hafa heyrt af bréfinu en ekki komið nærri því að öðru leyti. Persónuvernd segir að lagaheimild þurfi til upplýsingaöflunar með þessum hætti.“

Þannig hófst uppsláttarfrétt í DV þann 20. janúar 2006 og olli hún nokkrum úlfaþyt. Forstöðumaður heilbrigðiseftirlitsins kannaðist vel við málið og sagði í samtali við blaðið að hugsunin hafi einfaldlega verið sú að ná til þeirra sem væru með óskráða hunda til að koma skilaboðum til þeirra og þar með vernda póstburðarfólkið sjálft. Sigrún Jóhannesdóttir, forstöðumaður Persónuvemdar, tjáði sig um málið og kvað upp úr með það að lagaheimild til að afla kerfisbundinna upplýsinga væru ekki fyrir hendi.

Fríblöðin fylla póstkassana Þegar góðærið stóð sem hæst voru firnin öll gefin út af fríblöðum af ýmsu tagi sem auðvitað póstmenn þurftu samviskusamlega að koma til skila. Svo var komið árið 2007 að vegna þessa mikla umfangs gátu póstmenn ekki komið venjulegum pósti í póstkassa fjölbýlishúsa þar sem þeir voru orðnir

2006 VG_B7167.001-P1 útg. 1 (15.12.2006 09:30)

Prentað 15.12.2006 09:44

44

yfirfullir þegar þá bar að garði. „Fríblöðin eru komin í kassana þegar bréfberar okkar koma. Þá eru kassarnir einfaldlega orðnir fullir, þeir eru of litlir fyrir allt þetta magn sem sett er í þá,“ segir Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Íslandspósts í samtali við DV 19. janúar 2007.


2007 Póstmenn ganga á Hvannadalshnjúk.

2008 Íslandspóstur býður fólki upp á að afþakka fjölpóst. Bréfberum er létt. Starfsmenn Íslandspósts fylktu liði á topp Hvannahnjúks.

Póstmenn gengu á toppinn Í Mogga sumarið 2007 er sagt frá því að Pósturinn hafi skipulagt ferð starfsmanna á Hvannadalshjnúk og sé það liður í heilsuátaki undir yfirskriftinni Heilsupósturinn. Alls tóku 70 póstmenn þátt í göngunni. „Gengin var Sandfellsleið í léttskýjuðu veðri og smá golu. Svo skemmtilega hittist á að aðeins fimm dögum eftir að póstmenn náðu á tindinn gefur Íslandspóstur út frímerki með mynd af Hvannadalshnjúk að verðgildi 300 krónur. Frímerkið er hluti af frímerkjaröðinni Jöklar á Íslandi. Þetta söguríka ár hélt Póstmannafélag Íslands aðalfund og var að loknum aðalfundarstörfum glatt á hjalla. Póstmannakórinn söng og sennilega hefur fáa grunað hvaða áfallaár væri í vændum. En það er allt önnur saga.

Póstmannakórinn söng við raust á aðalfundi PFÍ 2007.

Fjölpósturinn afþakkaður Vorið 2008 hóf Íslandspóstur að bjóða upp á þá þjónustu að fólk gæti afþakkað fjölpóst sem fram að því hafði allur verið borinn samviskusamlega í hvert hús. Með þessu voru tvær flugur slegnar í einu höggi; fólk gat beðist undan ýmsum auglýsingapésum sem það ekki hafði óskað eftir en um leið var þungu fargi létt af bréfberum – í orðsins fyllstu merkingu!

45


Vel var gert við menn í mat og drykk.

Eldri póstmenn að Skógum Starf eftirlaunadeilar PFÍ hefur alltaf verið með miklum ágætum en á fundum hennar og öðrum mannamótum fá fyrrum samstarfsfélagar tækifæri til að hittast og rifja upp gamla tíma. Á hverju sumri er farið í

2009

46

skemmtiferðir út á land og sumarið 2008 var farið austur að Skógum undir Eyjafjöllum. Þar naut fólk m.a. leiðsagnar hins aldna frumkvöðuls að Skógasafni, Þórðar Tómassonar. Við látum nokkrar svipmyndir fylgja.


Vilja arðinn til starfsmanna Fréttablaðið birtir frétt af vef BSRB 31. mars 2009 þar sem Póstmannafélag Íslands gagnrýnir stjórnvöld fyrir að greiða arð af starfsemi Íslandspósts í ríkissjóð á sama tíma og stjórnendur fyrirtækisins telja sig ekki geta staðið við umsamdar launahækkanir til starfsmanna Íslandspósts. Félagið hafði áður gagnrýnt stjórnvöld harðlega fyrir þetta eins og fram hefur komið. „Í ályktun trúnaðarráðs Póstmannafélagsins átelur félagið stjórnvöld fyrir að aflétta ekki arðsemiskröfu sinni á fyrirtækið og benda á að félagsmenn verði af kjarasamningsbundnum launahækkunum meðan vinnuveitandinn greiðir arð til ríkisins,“ segir í fréttinni.

Póstpokarnir þyngri fyrir jólin „Ég kann ofsalega vel við mig hérna. Ég er búin að vera bréfberi í fimm ár og finnst þetta mjög gaman,“ segir Helma Dröfn Karlsdóttir, bréfberi í Hafnarfirði. Helma ber út póstinn í sínu heimahverfi og líkar vel bæði við vinnufélagana og vinnutímann.” Svo segist Helmu Dröfn, bréfbera í Hafnarfirði frá í samtali við DV í desember 2009 en þá voru miklar annir hjá henni eins og öðrum bréfberum landsins í aðdraganda jóla. Helma segir að bréfberum sé yfirleitt tekið mjög vel. Sérstaklega yfir jólin þegar pokarnir eru þyngri en venjulega.

Handbók Póstmannafélags Íslands 2010

„Þegar við erum klifjuð er mikil jákvæðni og skilningur. En fólk áttar sig kannski ekki á að þetta dettur ekki bara ofan í lúguna hjá því. Það er saga á bak við hvert bréf. En þetta er stundum mikið púl en ofsalega skemmtilegt,“ segir Helma og heldur af stað. Það þarf að koma jólakortunum til skila.“

Handbók 2010 Helma Dröfn var í viðtali í DV í desember 2009.

47


Erfiðlega hefur gengið að hækka lægstu launin þrátt fyrir góðan ásetning.

Baráttan við að hækka lægstu launin Í kjölfar samninga á almenna vinnumarkaðnum vorið 2011 undirritaði Póstmannafélag Íslands nýjan kjarasamning við Íslandspóst og fól hann í sér sambærilegar launahækkanir og aðildarfélög ASÍ höfðu samið um sömdu nokkrum dögum fyrr. Í samningnum var lögð mest áhersla á hækkun lægstu launa sem verður framkvæmd með svonefndri launatryggingu. „Bréfaútburður á Íslandi er láglaunastarf. Áður var töluverður hluti tekna bréfbera í formi yfirvinnu sem hefur alveg horfið síðustu ár. Þrátt fyrir að reynt hafi verið að leggja áherslu á hækkun lægstu launa hafa tekjur í bréfberastarfi hrunið vegna þess sem áður sagði varðandi yfirvinnu og tekjumöguleika á þeim vettvangi. Það má því með rökum halda því fram að tekjur fyrir bréfberastarf séu verulega lægri en áður og nefndar hafa verið tölur frá 15-20%. Það hefur jafnframt þau áhrif að erfitt er að fá gott fólk og erfitt að manna sífellt færri stöðugildi og stærri hverfi. Það er betri kostur að sitja heima á atvinnuleysisbótum en vinna 8 tíma á dag við erfitt starf fyrir sáralítið meiri tekjur.“ Þetta var tónninn í minnispunktum vegna útburðarmála sem Jón Ingi Cæsarsson lagði fram í stjórn PFÍ haustið 2010. Á fundi trúnaðarráðs 6. október var kjörið í samn-

48

inganefnd og landaði hún fyrrgreindum samningi vorið eftir. Baráttan hélt áfram og tveimur árum síðar voru enn undirritaðir kjarasamningar sem félagar í Póstmannafélaginu samþykktu með 73% greiddra atkvæða. Þar með varð félagið fyrsta aðildarfélag BSRB sem samþykkti nýja kjarasamninga í atkvæðagreiðslu en bæði Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og SFR höfðu hafnað viðlíka samningum. Í samningnum var meðal annars kveðið á um 2,8% hækkun launaliða. Illa gekk að hækka laun hinna lægst launuðu – þá sem endranær.


Þór og Freyja arfleiðir Kvennadeildina Eins og fram hefur komið voru lög PFÍ þannig allt fram á 8. áratuginn að þeir sem gegndu hlutastörfum fengu ekki inngöngu í félagið. Einkum var þar um að ræða bréfbera. Til að efla samheldni sína stofnuðu þeir með sér félag sem hét Þór og Freyja og stóð það fyrir ýmsum skemmtiferðum, spilakvöldum og slíku. Var Kolbrún Finnbogadóttir helsti hvatamaður að stofnun þess. Við inngöngu

2012

þessa hóps í PFÍ lognaðist Þór og Freyja út af. Áratugum síðar, eða árið 2012, kemur Þór og Freyja við sögu í fundargerðum stjórnar PFÍ þegar formaður leggur til að um 100.000 króna inneign í sjóði sem skemmtifélagið skyldi eftir sig, rynni til góðs málefnis. Úr varð að Kvennadeild Landspítalans var styrkt og sjóðurinn þannig tæmdur.

Sigríður A. Sigurðardóttir bréfberi var í viðtali við Morgunblaðið árið 2015.

Rauðvín og konfekt – en lág laun „Kúfurinn kemur á fimmtudögum, þá koma út bæklingar og tilboðsblöð stóru verslananna sem dreift er í hvert hús. Það er af sem var að póstmagnið sé mest í kringum mánaðamót enda eru gluggabréf á undanhaldi,“ segir Sigríður A. Sigurðardóttir bréfberi í Bústaðahverfinu í Reykjavík í viðtali í Morgunblaðinu í febrúar 2015. Hún segir að fólkið sem fái póstinn sé yfirleitt elskulegt en vaxandi hundaeign sé hins vegar vandamál enda hafi hún verið blóðbitin a.m.k. tíu sinnum frá því hún hóf að bera út póstinn árið 1979. Síðan fjallar hún um viðtökur í fyrirtækjunum sem hún ber út í og segir:

„Starfsfólk fyrirtækjanna er síðan alveg sér á báti. Þaðan hef ég í þakklætisskyni fyrir þjónustuna fengið rauðvínsflösku, konfekt og jafnvel jólagjafir.“ Hún bætir því við að vinnutíminn sé þægilegur, frá klukkan sjö á morgnana og yfirleitt sé bréfburði lokið um klukkan þrjú á daginn. Þetta sé fín hreyfing, samskiptin við fólkið góð en launin í lægra lagi.

49

Erfðafé Þórs og Freyju rennur til Kvennadeildar Landspítalans.


2015 Póstafgreiðslum í Vík og á Kirkjubæjarklaustri lokað

Póstmannablaðið hæddist að skertri þjónustu Póstsins.

Enn þrengt að þjónustunni Í Fréttablaðinu er sagt frá því í mars 2015 að Póst- og fjarskiptastofnun hafi samþykkt beiðnir Íslandspósts um heimild til að loka póstafgreiðslum sínum í Vík og á Kirkjubæjarklaustri. Í staðinn muni póstbíll sinna þjónustunni á þessum svæðum. „Engin breyting er boðuð af hálfu Íslandspósts varðandi útburð póstsendinga á

svæðinu. Breytingin felst eingöngu í þeim þætti starfseminnar er varðar móttöku sendinga á sérstökum afgreiðslustað,“ segir í umfjöllun PFS. „Bréfberi/bílstjóri mun nú taka á móti póstsendingum frá íbúum og fyrirtækjum á þessum stöðum með sama hætti og hann hefur gert hjá íbúum utan þéttbýlis um áraraðir.“

Einkakrétturinn afnuminn? Stjórnvöld hafa árum saman gælt við þá hugmynd að afnema með öllu einkarétt Íslandspósts á bréfum undir 50 gr. Stjórn Póstmannafélagsins hefur ályktað um hugmyndir þessar, m.a. í nóvember 2013 þar sem sjónarmið félagsins í þessu efni eru enn og aftur ítrekuð.

„Stjórn félagsins hefur miklar áhyggjur af starfsöryggi félagsmanna ef til afnáms einkaréttar kemur. Nú þegar hefur starfsmönnum póstþjónustunnar fækkað og álag aukist á þá sem eftir eru.“ Um leið minnti stjórnin á samfélagslegar skyldur í póstþjónustunni og að hætta yrði á að einkaaðilar myndu ekki hafa áhuga á að þjóna dreifðum byggðum þar sem þjónustan væri ekki hagkvæm.

50

Af ýmsum ástæðum varð ekkert úr því að stjórnvöld legðu fram frumvarp um afnám einkaréttar fyrr en árið 2018 sem það kom loks fram frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Einkaréttur Íslandspósts f.h. ríkisins hefur náð til bréfa undir 50 gr., útgáfu frímerkja, uppsetningu póstkassa og notkunar á lúðrinum sem auðkennis fyrirtæksins. Póstmannafélagið lagði fram umsögn um þetta frumvarp þar sem kemur fram það sjónarmið félagsins að það sé út af fyrir sig fylgjandi afnámi einkaréttarins á bréfapósti undir 50 gr. en hins vegar séu frumvarpsdrögin stórgölluð og að þau þurfi að endurskoða frá grunni. Ekki sé sjáanlegt að þau tryggi með neinum hætti eðlilega samkeppni til hagsbóta neytendum í landinu. Málið er enn í meðförum Alþingis.


Þuríður og Elísabet Þórólfsdóttir, en þær voru lengi samstarfskonur á skrifstofu PFÍ. Myndin er tekin árið 2004.

Þuríður Einarsdóttir, formaður PFÍ 1994-2015

Baráttunni lýkur aldrei

„Já, þessi tími hjá Póstmannafélaginu var langur en skemmtilegur. Verkefnin voru auðvitað fyrst og fremst að semja um bætt kjör félagsmanna og verja réttindi þeirra. Þetta hefur alla tíð verið ströng barátta og sérstaklega tók í þegar einkavæðingarferlið gekk yfir. Árið 1997 urðu straumhvörf því eftir að Póstur og sími var gerður að hlutafélagi voru póstmenn ekki lengur opinberir starfsmenn eins og hafði verið alla tíð. Íslandspóstur tók svo við sem aðalvinnuveitandinn. Allt okkar starf á þessum umbrotatímum var mikill línudans en forysta Póstmannafélagsins reyndi sem hún gat að vinna af ábyrgð og festu í því að tryggja kjör okkar félagsmanna án þess að ríða starfsemi fyrirtækisins á slig. Orsökin fyrir erfiðleikum Póstsins í dag er ekki að finna í því að laun póstmanna séu of há. Þvert á móti eru póstmenn sem fyrr láglaunastétt og því eru verkefni félagsins áfram næg. Baráttunni lýkur aldrei. Ég vona hins vegar að póstþjónustan á Íslandi finni leið út úr ógöngunum, sníði sér stakk eftir vexti og að starfsmenn geti með stolti sagst vinna hjá Póstinum.“ Hér talar Þuríður Einarsdóttir sem lengst allra gegndi formennsku í Póstmannafélagi Íslands eða frá 1994 til þess að hún gaf ekki lengur kost á sér árið 2015. Þuríður starfar í dag sem formaður og framkvæmdastjóri Handprjónasambands Íslands. Eins og rakið er annars staðar í blaðinu var Póstmannafélagið eitt af stofnfélögum BSRB árið 1942. Nú, þegar póstþjónustan hefur verið einkavædd hafa spurningar vaknað hvort póstmenn eigi heima í samtökum opinberra starfsmanna. „Já, þetta eru auðvitað eðlilegar vangaveltur en minna má á að árið 2000 var lögum BSRB breytt til að bregðast við þeirri þróun að breyta ríkisstofnunum í hlutafélög. Þess vegna eru fjölmargir félagsmenn í aðildarfélögum BSRB á almennum vinnumarkaði. Póstmannafélagið er ein styrkasta stoð BSRB og þar hafa póstmenn sótt stuðning sem skiptir þá miklu máli. Það mikilsverðasta er að þeir átti sig á þýðingu þess að vera í sterku stéttarfélagi sem getur sótt fram og verið þeim brjóstvörn á erfiðum tímum í þjóðfélaginu. Því miður halda sumir að stéttarfélög séu óþörf og að launamenn þurfi ekki samtök til að berjast fyrir sínum hag. Þetta er ekki svona einfalt og ótal mörg dæmi sýna að aðild að verkalýðsfélagi, og sú þjónusta og samtrygging sem í því felst, er ómetanleg. Ég vona að Póstmannafélag Íslands eigi langa lífdaga fyrir höndum en forsenda þess er að félagsmenn standi þétt við bakið hver á öðrum eins og þeir hafa gert þá öld sem er að baki. Ég sendi póstmönnum öllum baráttukveðjur á 100 ára afmæli þessa merka félagsskapar þeirra,“ segir Þuríður Einarsdóttir.

51


2018

.

Stjórnarfrumvarp lagt fram um afnám einkaréttar ríkisins á bréfaútburði.

2019 Póstmannafélagið fagnar 100 ára afmælinu.

Póstmenn velta nú vöngum og meta stöðu sína innan verkalýðshreyfingarinnar. Myndin er tekin 2006.

Áfram í BSRB eður ei? Í kjölfar stofnunar Íslandspósts komu upp umræður um stöðu Póstmannafélagsins innan samtaka opinberra starfsmanna og hvort félagið ætti fremur samleið með öðrum samtökum á almennum launamarkaði. Starfsmannahópur Íslandspósts var tvískiptur því þeir sem ráðnir voru fyrir 1996 nutu allra réttinda sem opinberisr starfsmenn en þeir sem komu til starfa eftir það voru ráðnir á öðrum kjörum. Sá hópur hefur mjög farið stækkandi á síðustu árum.

Stjórn og trúnaðarráð Póstmannafélags Íslands hefur ítrekað rætt þessa stöðu og hugað að framtíðarskipan félagsins og þá hvort því væri betur fyrirkomið með stéttarfélögum á almennum markaði. Trúnaðaráðið fól stjórn að kanna þetta nánar á trúnaðaráðsfundi 2018 en sú athugun leiddi ekki til breytinga á þeim tímapunkti. Reikna má með að skoðun af þessum toga haldi áfram því sannarlega er umhverfi félagsmanna PFÍ að miklu leyti allt öðruvísi en launamanna á opinberum vettvangi.

Frímerki tileinkað PFÍ 100 ára Í tilefni af 100 ára afmæli Póstmannafélags Íslands hefur verið gefið út frímerki. Merkið er hannað og unnið af Erni Smára Gíslasyni og er það prentað í 60.000 eintökum. Á merkinu er að finna einkennisfatnað bréfbera og pósttösku auk merkis Póstmannafélags Íslands. Verðgildið er 50 g innanlands. Útgáfunúmer merkisins er 679A.

52


Formenn PFÍ í

100 ár

Þorleifur Jónsson 1919-1923 Guðmundur Bergsson 1923-1929 Egill Sandholt 1929-1931 Jón H. Leós 1931-1935 Sveinn G. Björnsson 1935-1936 og 1939-1941 Tryggvi Magnússon 1936-1938 Sæmundur Helgason 1938-1939 Hannes Björnsson 1941-1945 Matthías Guðmundsson 1945-1950 og 1953-1956 Karl Hjálmarsson 1950-1952 Sigurður Ingason 1952-1953 Skarphéðinn Pétursson 1956-1957 Tryggvi Haraldsson 1957-1960 og 1966-1967 Ari Jóhannesson 1960-1961 Dýrmundur Ólafsson 1961-1962 Árni Þ. Jónsson 1962-1964 Ásgeir Kröyer 1965-1965 Haraldur Sigurðsson 1965-1966 Björn G. Björnsson 1967-1968 og 1976-1984 Ásgeir Höskuldsson 1968-1970 Reynir Ármannsson 1970-1976 Þorgeir Ingvason 1984-1986 Kristín Jenný Jakobsdóttir 1986-1988 Lea Þórarinsdóttir 1988-1994 Þuríður Einarsdóttir 1994-2015 Halla Reynisdóttir 2015-2017 Jón Ingi Cæsarson 2017-

Þorleifur Jónsson

Guðmundur Bergsson

Egill Sandholt

Jón H. Leós

Sveinn G. Björnsson

Tryggvi Magnússon

Sæmundur Helgason

Hannes Björnsson

Matthías Guðmundsson

Karl Hjálmarsson

Sigurður Ingason

Skarphéðinn Pétursson

Tryggvi Haraldssson

Ari Jóhannesson

Dýrmundur Ólafsson

Árni Þ. Jónsson

Ásgeir Kröyer

Haraldur Sigurðsson

Björn G. Björnsson

Ásgeir Höskuldsson

Reynir Ármannsson

Þorgeir Ingvason

Kristín Jenný Jakobsdóttir

Lea Þórarinsdóttir

Þuríður Einarsdóttir

Halla Reynisdóttir

Jón Ingi Cæsarsson

53


Póstþjónusta er samfélagsþjónusta Þegar Póstmannafélag Íslands heldur upp á aldarafmæli sitt og minnist frumherjanna sem ýttu fleyinu úr vör eru blikur á lofti í starfsemi póstþjónustunnar. Bréfapóstur dregst saman ár frá ári, stjórnvöld hyggjast einkavæða þjónustuna og stöðugt er gripið til aðgerða í hagræðingarskyni. Þetta hefur komið illa niður á póstmannastéttinni, sérstaklega bréfaútburðarhlutanum þar sem mikill samdráttur hefur orðið í mannahaldi. „Póstmenn eru láglaunastétt og þetta óöryggi og skortur á faglegri stefnumótun hefur gert að að verkum að mikil starfsmannavelta er farin að setja mark sitt á stéttina, fækkun fólks með reynslu og þekkingu fækkar, en fjölgar í hópi nýliða sem aftur stoppa stutt við. Hætt við að slíkt komi niður á gæðum þjónustunnar eins og gefur að skilja,“ segir Jón Ingi Cæsarsson, formaður Póstmannafélagsins í aðsendri grein í Morgunblaðinu í ágúst 2018. Síðan segir hann: „Póstþjónusta er samfélagsþjónusta sem ríkið síðan felur fyrirtæki eða fyrirtækjum að vinna fyrir sig. Vandi Íslandspósts og póstþjónustu á Íslandi er að stórum hluta að það vantar áðurnefnda stefnumótun og ekki

1. TBL. 39. ÁRG. MARS 2019

Ár og öld að baki

Stiklur úr sögu póstmanna 1919-2019

2019

54

síður að ríkið skuldar fyrirtækinu stórar fjárhæðir. Ef til vill má rökstyðja að það vanti 600 milljónir á ári frá ríkinu fyrir þjónustu sem það ber ábyrgð á. Fyrirtækið þarf að ganga á eigið fé og hagræða enn frekar ef ríkisvaldið greiðir ekki það sem upp á vantar í þessa þjónustu. Staðan í málefnum póstins á Íslandi er ef til vill svipuð eins og við heyrum frá rekstri t.d. sveitarfélaga á öldrunarheimilum, ríkið gerir kröfu um gæði þjónustu en skilar síðan engu eða allt of litlu fjármagni inn í þann rekstur. Niðurstaðan fyrir póstmenn á Íslandi er óöryggi og slæmt starfsumhverfi.“ Enginn veit nákvæmlega hvernig þessi mál þróast eftir að Póstmannafélag Íslands hefur lagt upp í næstu aldarvegferð. – Það er annar tími og önnur saga.


55


100 ára

1919 - 2019 Póstmannafélag Íslands


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook