www.ungriff.is www.riff.is
23.09.—04.10.26
UM UNGRIFF UngRIFF er kvikmyndahátíð ætluð börnum og ungmennum á aldrinum 4–16 ára. Markmið hátíðarinnar er að efla kvikmyndalæsi yngri kynslóðarinnar, bjóða börnum inn í töfraheim kvikmyndanna og skapa öruggan og hvetjandi vettvang þar sem ungt fólk getur tjáð sig, myndað tengsl, deilt sjónarmiðum sínum og tekið þátt í skapandi störfum.
Hátíðin er starfandi allt árið um kring og býður upp á námskeið og fjölbreyttar sýningar um land allt. UngRIFF fer nú fram í fjórða sinn, bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni, þar sem boðið er upp á skólasýningar, sérhæft kennsluefni og vinnustofur í kvikmyndagerð.
SKÓLASÝNINGAR UNGRIFF UNGRIFF eflir kvikmyndalæsi barna og ungmenna með því að bjóða nemendum á skólasýningar í Smárabíói, Háskólabíói og Norræna húsinu – og víðsvegar um landið: Skjaldborgarbíói á Patreksfirði, Amtsbókasafninu Akureyri, Félagsheimilinu Blönduósi, Hofgarði í Öræfum og í menningarhúsum í Reykjanesbæ. Einnig eru sýningar um allt Norðurland vestra í samstarfi við Barnamenningarhátíðina Skúnaskrall.
2
2026
Á Opnunarhátíð UngRIFF í Smárabíói munu nemendur úr Víðistaðaskóla, Laugarnesskóla, Vatnsendaskóla, Smáraskóla og Álfhólsskóla, svo einhverjir skólar séu taldir, koma saman til að njóta þess að fara í bíó á skólatíma. Nú þegar eru yfir 2.000 nemendur frá grunnskólum og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu skráðir á skólasýningar á meðan hátíðinni stendur, auk fleiri hundruða á landsbyggðinni.
2
UM UNGRIFF
8
KVIKMYNDIR Í FULLRI LENGD
3
OPNUNARHÁTÍÐ
10
STUTTMYNDIR
5
SÉRVIÐBURÐIR
11
KENNSLA
7
FYRIR UNGLINGA
DAGSKRÁ
EFNISYFIRLIT
OPNUNARHÁTÍÐ Nemendur úr grunnskólum höfuðborgarsvæðisins á aldrinum sex til sextán ára eru boðaðir í hundraðatali til að horfa á opnunarmyndir hátíðarinnar á skólatíma. Myndirnar í ár eru Bretti og brúðarkaup fyrir eldri bekkina og teiknimyndin Týnda stúlkan fyrir yngri bekkina. Teiknimyndin hefur verið talsett í Upptekinu með Gun-
nari Árnasyni, þar sem Fríða Þorkelsdóttir þýddi yfir á íslensku og Ólafur S.K. Þorvaldz sá um leiklestur ásamt Þórunni Clausen. UngRIFF þakkar þeim kærlega fyrir samstarfið. Hátíðin verður haldin í Smárabíói þar sem hún verður formlega sett af bæjarstjóra Kópavogs, Ásdísi Kristjánsdóttur, sem einnig veitir heiðursverðlaun UngRIFF 2026.
FYRIR KENNARA Ertu kennari? Langar þig að brjóta upp tímann, sýna stuttmyndir og kenna síðan út frá þeim? UngRIFF bíður árlega upp á sérstakt stuðningsefni sem skólar og kennarar geta nýtt sér endurgjaldslaust. Kennsluefnið
er í formi stuttmynda fyrir 4+, 6+, 9+, 12+ og 14+ ára. Myndirnar koma hvaðanæva að úr heiminum og eru valdar af fagfólki í dagskrárgerð. Hægt er að lesa nánar um hvernig skal nálgast efnið á www.ungriff.is.
HEIÐURSVERÐLAUN UNGRIFF
2026
3
UNGRIFF
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR hefur glatt, skemmt og veitt íslenskum börnum innblástur með eftirminnilegum persónum sínum, leiktjáningu og einstakri nærveru í marga áratugi. Sem leikkona hefur hún brúað kynslóðir með hlutverkum á borð við Stellu í orlofi; kvikmyndar sem enn í dag er fastur punktur í uppvexti íslenskra barna. Edda hefur jafnframt lagt mikið af mörkum með leiklestri og talsetningu á vönduðu barnaefni, leiksýningum á sviði og persónusköpun í sjónvarpi. Með hlýju sinni, einstakri nærveru og persónutöfrum hefur leikkonan ástsæla fyrir löngu skipað sér varanlegan sess í hjarta þjóðarinnar og þess vegna hlýtur Edda Björgvins heiðursverðlaun UngRIFF árið 2026 fyrir ómetanlegt framlag sitt til íslenskrar barnamenningar.
TENGDU SAMAN PUNKTANA GRÍPTU PENNA EÐA BLÝANT OG TENGDU SAMAN PUNKTANA TIL AÐ SJÁ FÖLDU MYNDINA!
4
2026
SÉRVIÐBURÐIR eru sérstakar uppákomur þar sem bíóupplifunin er auðguð með ýmsum ráðum. UngRIFF í ár bíður upp á sérstaklega fjölbreytta viðburði af þessu tagi þar
DAGSKRÁ
SÉRVIÐBURÐIR sem kvikmyndaperlum er fagnað í einstöku umhverfi, ásamt því að ungum áhorfendum og ungu kvikmyndagerðarfólki er gefið sviðsljósið.
HELLABÍÓ: INDIANA JONES UngRIFF kynnir á nýjan leik fjölskyldubíó í Raufarhólshelli þar sem kvikmyndatöfrar og íslensk náttúra mætast djúpt í iðrum jarðar. Indiana Jones og leitin að týndu örkinni er ein vinsælasta mynd níunda áratugarins og skartar Harrison Ford í aðalhlutverki. Myndin verður sýnd á sérstakri fjölskyldusýningu fyrir 10 ára og eldri, þó þurfa öll börn yngri en 12 ára að vera í fylgd með fullorðnum. Nauðsynlegt er að klæða sig vel og fá allir gestir hlífðarhjálma við komu. Hellabíó er haldið í samstarfi við Lava Tunnel sem tryggir öryggi bíógesta. Athugið að akstur að sýningarstað er ekki innifalinn í miðaverði.
26.09 Raufarhólshellir 26.09 Raufarhólshellir
16:00 20:00
NÁTTFATABÍÓ: PADDINGTON UngRIFF bíður upp á einstaka upplifun fyrir alla fjölskylduna þar sem bíósal verður umturnað í risastórt náttfatapartý með teppum, púðum og pullum. Paddington frá 2014 er hugljúf og falleg mynd sem brúar kynslóðir en bangsinn góði mætti fyrst á sjónarsviðið árið 1958. Við hvetjum börn sem sækja sýninguna sérstaklega til að mæta í náttfötunum, en foreldrarnir mega það að sjálfsögðu líka. Sigurður Þór sem talar fyrir Paddington á íslensku er kynnir kvöldsins.
27.09 Háskólabíó 1
5
UNGRIFF
2026
10:30
BÍÓMYND Á BLAÐI: HUGMYNDASMIÐJA UngRIFF sýnir norsku barnamyndina Litlir hundar gelta hátt í stóra salnum í Norræna húsinu. Í kjölfarið leiðir barnabókahöfundurinn, kvikmyndafræðingurinn og dýravinurinn Gunnar Theodór Eggertsson hugmyndasmiðju fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Hópurinn vinnur saman að því að þróa hugmynd að kvikmynd og fær að lokum sérhannað kvikmyndaplakat byggt á sögunni sem minjagrip eftir listamanninn Hauk Valdimar Pálsson.
26.09
Norræna húsið
13:00 - 15:30
Skráning á smiðjuna fer fram á ungriff.is – öllum er hinsvegar velkomið að mæta á sýninguna á meðan sætafjöldi leyfir.
EF NÁTTÚRAN GÆTI TALAÐ: OPIN SMIÐJA FYRIR FJÖLSKYLDUR 27.09
Norræna húsið
15:00-17:00
Kvikmyndagerðarkonurnar á bakvið Ísey: Náttúrubarn munu sýna myndina á sérstakri kennslusýningu í Norræna húsinu og bjóða upp á náttúrusmiðju fyrir börn á aldrinum 2-7 ára eftir sýninguna. Vinnusmiðjan byggir á hugmyndafræði um vistmiðaða
heimsmynd og náttúrulæsi, þar sem lögð er áhersla á að rækta tengsl barna við lífríkið. Börn þurfa að vera vel klædd og í fylgd með foreldrum. Smiðjan er opin öllum þannig að mikilvægt er að mæta tímanlega á sýninguna til að skrá sig.
BAK VIÐ BÍÓTJALDIÐ Einstakur viðburður fyrir unglinga og jafnframt sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Sýndar verða öflugar stuttmyndir eftir menntskælinga og auk þess fá áhorfendur tækifæri til að vera í rýnihóp fyrir nýju íslensku unglingamyndina Bara barn. Vala Ómarsdóttir leikstjóri og Hlín Jóhannesdóttir framleiðandi munu sýna brot úr myndinni, taka við spurningum og deila reynslu sinni á sviðinu. Ungu leikstjórarnir sem taka þátt eru Valtýr Óskarsson, Halldór Ari, Benedikt Hilmir og Ísak Breki Gíslason.
6
2026
26.09
Háskólabíó 3
FRÍTT INN
19:00
DAGSKRÁ
FYRIR UNGLINGA
UNGLINGAR eru fólk á áhrifamiklum tímamótum þar sem raddir þeirra og reynsla skipta samfélagið gríðarlegu máli. Samt á þessi hópur til að gleymast í menningarlífinu. Í ár setjum við hjá UngRIFF unglingana á fremsta bekk. Við bjóðum því upp á sérvalda dagskrá með vönduðum unglingamyndum í fullri lengd.
Fríríkið Kristjanía Christiania
Karl Friis Forchhammer DE 2026 91 min
Í gegnum áhrifamiklar og ótrúlegar sögur sem spanna meira en fimmtíu ár skoðar þessi heimildamynd hvernig samfélag byggt á frelsi, samstöðu og andspyrnu heldur áfram að berjast fyrir tilverurétti sínum á eigin forsendum. 02.10 Háskólabíó 1 30.09 Háskólabíó 4
Ef gæfan lofar Hvis lykken vender
11:00 17:30
Camille Bildsoe IS, DE, NO 2026 86 min
Barnaæskunni lýkur við fjórtán ára aldur hjá afgönskum börnum undir stjórn talibana. Í niðurtalningu frá tólf ára til fjórtán ára aldurs krefjast þau Zahra og Zalgai þess að fá að leika sér á meðan þögnin og skyldan færast nær, og breyta sirkusnum sem þau elska í sína hinstu mótspyrnu áður en æskan hverfur.
Dua Dua
Skólasýning
02.10 03.10
Háskólabíó 1 Skólasýning Háskólabíó 1
13:00 12:30
27.09 02.10
Háskólabíó 4 Háskólabíó 2 Spurt og svarað
20:45 17:00
Blerta Basholli XKV, CH,FR 2026 100 min
2026
7
UNGRIFF
Seint á tíunda áratugnum er stríð að hefjast í Kosovo þar sem hin þrettán ára Dua leitast eftir að tilheyra í samfélaginu og eigin líkama. Á umrótartímum yfirvofandi hættu og fjölskyldubresta kynnist Dua nýrri vinkonu sem dregur hana á braut mótspyrnu, hugrekkis og í leiðinni til hugsanlegs skjóls.
DAGSKRÁ KVIKMYNDIR Í FULLRI LENGD
UngRIFF býður alla fjölskylduna velkomna á vandaðar kvikmyndir sem hreyfa við áhorfendum, efla kvikmyndalæsi og sýna ólíkar hliðar tilverunnar.
8
2026
Frítt er inn á allar sýningar í Norræna húsinu fyrir börn og foreldra. Fyrir sýningar í Háskólabíó gilda hátíðarpassar RIFF eða stakir miðar. Athugið að miðar á sérviðburði eru seldir sérstaklega á riff.is.
DAGSKRÁ
Týnda stelpan Lucy Lost
Olivier Clert FR 2025 91 min
MYNDIN ER SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Lucy, sérstök stúlka í litlu sjávarþorpi sem sér hluti sem enginn annar sér, kynnist leynilegri vinkonu sinni Milly. Saman leggja þær af stað í töfrandi ferðalag til þess að svipta hulunni af fortíðinni og dularfullum máttarvöldum. Myndin var tilfnefnd til ‚Golden Camera’ verðlaunanna á Cannes. Myndin er leiklesin á íslensku.
Bretti og brúðarkaup Skateboarding is Not For Girls
23.09 26.09 02.10 04.10
Smárabíó Háskólabíó 4 Háskólabíó 2 Háskólabíó 1
Skólasýning
10:00 15:30 11:15 11:00
Dina Duma MK, BE, SI, HR 2025 79 min
MYNDIN ER SÝND MEÐ ENSKUM TEXTA Þegar sú íhaldssama ástundun að selja stúlkur í hjónaband er lögð til sem lausn á fjárhagsörðugleikum fjölskyldunnar, stendur Adela skyndilega á krossgötum. Hún kynnist framandi veröld hjólabrettamenningar og finnur sig mitt á milli hefða fortíðar og farandheita nútímans.
Litlir hundar gelta hátt Salto, Pus og bucketlisten
23.09 Smárabíó 25.09 Háskólabíó 1 27.09 Háskólabíó 4
Skólasýning
10:00 13:00 13:30
Nora Nivedita Tvedt NO 2025 75 min
MYNDIN ER SÝND MEÐ ÍSLENSKUM TEXTA Tuni og hundinn hennar Salto, sem verður hennar besti vinur eftir að hún missir hálfbróður sinn og móðir hennar greinist með ólæknandi krabbamein, takast á við sorgina og erfiðar tilfinningar saman. Myndin sýnir hversu dýrmætan stuðning dýr geta veitt í gegnum áföll og hvernig hægt er að fagna lífinu þrátt fyrir mikla erfiðleika.
25.09 Háskólabíó 1 26.09 Norræna húsið 03.10 Háskólabíó 1
11:00 13:00 11:00
9
UNGRIFF
2026
Skólasýning
STUTTMYNDIR BARNA
— OG UNGMENNA DAGSKRÁ
Stuttmyndir frá öllum heimshornum með mismunandi áherslum fyrir mismunandi aldurshópa. Með teiknimyndum, heimildarmyndum og leiknum myndum bjóða þessar sögur börnum og ungu fólki að hlæja, undrast, spyrja spurninga og uppgötva nýjar leiðir til að sjá heiminn. Myndirnar fyrir yngri hópana eru að mestu án tals en fyrir eldri börnin er enskur texti.
10
2026
DAGSKRÁ
Ísey: Náttúrubarn
Linda Ásgeirsdóttir IS 2026 42 min
Fimm ára íslensk-eistnensk stúlka uppgötvar heiminn með hjálp frá náttúrunni, fjölskyldunni og vinum sínum. Sérstök fræðuslusýning fyrir börn sem fylgt er eftir með spjalli við kvikmyndagerðarfólkið og vinnustofu í formi náttúrusmiðju. Öll börn eru velkomin á smiðjuna sem hefst að sýningu lokinni, en athuga skal að þau þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
27.09
Norræna húsið
15:00
NORRÆNAR STUTTMYNDIR 28.09
Norræna húsið
Spurt og svarað
RIFF í samvinnu við NoJSE býður upp á sérstakt úrval vandaðra stuttmynda frá Norðurlöndunum. NoJSe er samstarf fimm barnakvikmyndahátíða á Norðurlöndunum; Buster í Kaupmannahöfn, BUFF í Malmö, Alþjóðlegu barnakvikmyndahátíðin í Kristiansand, Alþjóðlega barnamyndahátíðin í Oulu og UngRIFF í Reykjavík.
13:00
Markmið samstarfsins er að koma á framfæri vönduðum stuttmyndum til barna og ungmenna, ásamt því að auka aðgengi kvikmyndagerðarfólks sem framleiðir myndir fyrir þennan aldurshóp að norrænum kvikmyndum. Í ár tilkynnum við með stolti að íslenska stuttmyndin Í TAKT eftir Hönnu Huld er hluti af þessari frábæru dagskrá. Myndirnar ásamt kennsluefni eru einnig aðgengilegar á kennsluvefnum Norden i skolen.
HEIMSKAUTANÓTT
SNÚ
LAPPIR UPP
Gustav Littorin
Magnus Hippe Brun DE 14 mín
Olli Ilpo Salonen
Tveir vinir standa augliti til auglitis á hinu árlega borðtennismóti. Stuttmynd um vináttu, samkeppni og samfylgd í gegnum súrt og sætt.
Sófía þráir að skoða nýja veggjalist, en er sett í útgöngubann af foreldrum sínum eftir að hafa teiknað á matarborðið. Allt í einu snýst þyngdaraflið við og þá verður Sófía óstöðvandi.
POLARNATT
SE
4 mín
Í viðtali hittum við Bo og Arne, síðustu tvo ísbirnina á Norðurskauti. Bo flokkar rusl og borðar grænmetisfæði, hann vill svo að ísinn komi aftur. Arne hefur ekki jafn miklar áhyggjur.
FEET UP
SKRU
10 mín
11
UNGRIFF
2026
FI
Í TAKT
NÝJA HÚSIÐ
IN RYTHM
DET NYE HUSET 11 mín IS
Hanna Hulda Hafþórsdóttir
Æskuvinkonurnar Kara og Jenný eiga sameiginlega ástríðu fyrir dansi, en það reynir á vináttuna þegar Jenný eignast nýjar vinkonur.
Maria Alvsaker Næss
NO 7 mín
Astrid og Kristin eru að leika sér eins og vanalega, en eitthvað óvænt gerist og þær byrja að rífast. Geta þær orðið vinkonur aftur?
MÍNÚTUMYNDIR
UM LOFTSLAGSÁHRIF
Maldíveyjar í Indlandshafi er lægsta landsvæði miðað við sjávarmál í heiminum. Það gerir þær einstaklega berskjaldað fyrir hækkandi yfirborði sjávar. Gerum jörðina svala aftur er samansafn sextán stuttmynda um loftslagsbreytingar, hver og ein aðeins ein mínúta að lengd, eftir ungt fólk frá þessum eyjum. Norræna húsið
28.09
10:00
Minah Mazin Mohamed, Aishath Amani,Fathimath Zeek, Mariyam Sadhuva, Aishath Zeeba Hamid, Kamilah Shareef, Aminath Eanas Ahmed, Mariyam Reena Ahmed, Fathimath Aik Mohamed,Ibrahim Samooh Ali, Aishath Mauva Mohamed, Aiham Abdul Rahman, Aishath Najdha Ali, Mohamed Shafy Abdul Salaam
STUTTMYNDIR 4+ 24.09
Norræna húsið
HUNDABRÚ
NÆTURDÝR DE
Djúpt í frumskóginum virðist allt vera með kyrrum kjörum – þar til ljósker lýsir skyndilega upp nóttina.
12
LJÓSIÐ ER STÓRT
DOG BRIDGE
BATS & BUGS
Lena von Döhren
10:00
Jorn Leeuwerink
THE LIGHT IS BIG NL 3 mín
Hundur ákveður að hjálpa allskonar dýrum komast yfir vatnið. Hversu langt er hundurinn tilbúinn að ganga til að hjálpa öðrum?
2026
Markus Duffner
PT
5 mín
Í fyrstu hlæjum við. Síðan endurtökum við hljóð. Síðan orð. Hvað segja þessar fyrstu setningar um okkur? Hvað segja þær um heiminn?
VÉLMENNIÐ LEÓ
Kai Oppermann
Piret Sigus, Silja Saarepuu
PINGU & BEAR
DE 2 mín
Pingu og Bangsi ýta hjólinu sínu upp fjallið endalausa. Vinirnir tveir ferðast í gegnum skóga, engi og eyðimerkur.
STJÖRNURYK
ROBOT LEO
EE
NAMMIHIMINN 8 mín
Vélmenni fer að undirbúa heimilið fyrir heimsókn og verður sífellt meira stressaður eftir því sem gesturinn kemur nær.
THE SKY WAS CANDY
Anh Tú Nguyen
DE 3 mín
DAGSKRÁ
PINGU OG BANGSI
Við lifandi tónlist gerast undursamlegir hlutir – blóm springa út, egg fljúga, sólin rís og sólin sest.
STARDUST
Christie Khalil
LB 4 mín
ANANASAR ANANASI
Tvær litlar stjörnur tengjast órjúfanlegum böndum þvert yfir vetrarbrautina, alveg þar til ein þeirra hrapar til jarðar.
Anna Kadykova
STUTTMYNDIR 6+ 25.09
Endre Lund Eriksen, Isak Gjertsen
KAPPAKSTUR
10:00
NORA’S ARK
ONE LITTLE BIG DAY Nara Aragão, Renata Roberta
ÖRKIN HENNAR NÓRU
Vinir í skrautlegu dýraríki Sri Lanka rækta saman ananasa og dansa í bjartri og litríkri hugleiðingu um óendanleika náttúrunnar.
Norræna húsið
EINN LÍTILL STÓR DAGUR 12 mín BR
8 mín NO,HR
GRAVITY RACER Finn Walther
NO 5 mín
Þegar loftslagsbreytingar valda ógurlegu flóði þarf fjölskylda Nóru að flýja í gömlum báti, en fjölskyldufaðirinn leyfir bjöllunni Billy ekki að koma um borð. Núna þarf Nóra að búa til sinn eigin bát.
Óttalaus fjögurra ára strákur leggur af stað til þess að sigra bröttustu brekkuna í hverfinu með heimagerða kassabílnum sínum.
2026
13
UNGRIFF
Það er fyrsti skóladagurinn hjá Nínu. Dagurinn ber margt í skauti sér; nýjar uppgötvanir og áskoranir. Núna þarf Nína að labba í skólann, en til þess fær hún hjálp hjá ömmu sinni og litlum fugli.
LK 4 mín
VÖLUNDARHÚSIÐ Ó NEI! LUNDINN TÝNDI BÍÓMIÐANUM SÍNUM Í VÖLUNDARHÚSINU. GETURÐU HJÁLPAÐ HONUM AÐ FINNA HANN?
14
2026
DAGSKRÁ
STUTTMYNDIR 9+ Norræna húsið
24.09
DAGURINN SEM ÉG SLEIKTI STEINVÖLU
HUNDURINN AKTOS
Madina Yelikbayeva KZ
13 mín
Batyr hefur í laumi verið að vinna í háskalegu verkefni með trygga hundinum sínum Aktos. Þegar babb kemur í bátinn verður Batyr að fara í kapphlaup við tímann til þess að ljúka við ætlunarverk sitt.
REYNSLA OG LÆRDÓMUR. OG FORELDRAHLUTVERKIÐ. EXPERIENCES AND LEARNING. AND PARENTING. Malgorzata Rybak
11:00
PL
5 mín
Fjörugur krakki sem kallast O er mjög forvitinn. Þrátt fyrir allar hindranir tekst O að sanka að sér reynslu og öðlast nýja hæfileika. Munu þeir koma að góðum notum?
MEÐ ELD Í VASANUM FIRE IN MY POCKET
THE DAY I LICKED A PEBBLE Flavie Eliézer, Chloé Bernuchon, Goli Atefi, Maud Kolasa, Nathan Jauze, Marie Pijollet
Janka Feiner
HU
10 mín
7 mín FR
Á afar venjulegu sumarsíðdegi í sveitinni fer þremur systkinum, sem eru í heimsókn hjá ömmu sinni, að leiðast. Þau ákveða þess vegna að gera sér ferð í bakaríið til þess að versla sætindi og brjóta upp daginn.
Lítill strákur, sem leiðist, fer að leita að einhverju meira spennandi. Dularfull eldvera lokkar hann til sín í töfrandi sveppaveröld þar sem ævintýrin bíða.
SYSTIR MÍN
SISTER OF MINE André Vaara
SE
12 mín
Hinum tíu ára gamla Noel langar að vera meira eins og stóra systir sín. Að fara í klippingu veldur afbrýðisemi og upp koma systkinaerjur.
15
UNGRIFF
2026
STUTTMYNDIR 12+ Norræna húsið
24.09
13:00
ALLIR SAMAN
HÆNA
NEKO
JOIN (VERTU MEÐ)
CHICA
14 mín BR
Matheus Malburg, João Victor Silva
Dadá býr á litlum sveitabæ í São Paulo. Þegar mamma hennar biður hana að fara með hænu af bænum á veitingastað í byggðinni leggur Dadá af stað ásamt yngri bróður sínum Tato.
Brennan Bova
CA
NEKO
3 mín Ines Oliveira
Hópur andarunga kemur saman og sýnir listir sínar, einn á eftir öðrum. Ekki líður á löngu þar til þeir verða samstíga í gleðinni og skondinn hópdans brýst út.
PT
30 mín
Neko og vinir hans hittast í miðborginni síðla dags að sumri til. Hópurinn þræðir götur borgarinnar sem virðist vera á jafnmiklum tímamótum og unglingarnir sjálfir.
VEGSUMMERKI WHEREABOUTS Suejee Lee
US
2 mín
Risoprentuð teiknimynd sem fylgir för ungrar konu í gegnum stórborg. Frá sólarupprás til sólseturs minnir ferðalagið á fegurðina í litlu hlutunum og töfrana sem felast í því að færast í gegnum tilveruna.
STUTTMYNDIR 14+ 24.09
Norræna húsið
UPPTAKARINN THE CORKSCREW Torfinn Iversen
NO 18 mín
Lucas, sem er aðeins 12 ára, stendur frammi fyrir erfiðu siðferðislegu vali. Hvert sem valið verður verða afdrifaríkar afleiðingarnar óumflýjanlegar.
16
2026
11:00
HREIÐURGERÐ
NESTLING
Georgi Martev
BG
11 mín
Pavel og vinir hans taka upp myndbönd af sér að takast á við ýmsar áskoranir, allt þar til leikurinn gengur of langt.
BANG [DING DONG]
HENRY ER STÚLKA SEM ELSKAR AÐ SOFA
Henry Is a Girl Who Likes to Sleep Meggy Rustamova
BE
8 mín
Myndin segir frá hópi barna sem er að læra hollensku. Leikstjórinn sækir efniviðinn í eigin minningar frá því hún var átta ára flóttamaður í Evrópu.
Hundur einn Dog Alone
13 mín FR, PT
Höfundur skrifar ástkærum ketti sínum, Henry, bréf í leit að einhverju mjúku og blíðu til að hvíla í, litlum loðnum griðastað fullum af hlýju til að hörfa í þegar heimurinn verður of hávær.
Hundur er yfirgefinn á heimili. Hann vælir dag og nótt og truflar nágrannana. Aldraður maður býr einsamall í næsta húsi. Þegar barnabarn hans snýr aftur heim frá London áttar hún sig á einsemdinni.
2026
17
BE
UNGRIFF
14 mín
Marthe Peters
Marta Reis Andrade
DAGSKRÁ
BANK OG DINGDONG
18
2026
www.upptekid.is
KRAKKARFILMA! OG STELPURFILMA!
DAGSKRÁ
KENNSLA VESTFIRÐIR
Erlingur Óttar Thoroddsen kvikmyndaleikstjóri hélt utan um Krakkarfilma! námskeið á Patreksfirði, Bíldudal, Ísafirði, Bolungarvík, Þingeyri og Hólmavík. Smiðjurnar voru hluti af dagskrá Púkans, barnamenningarhátíð Vestfjarða. Margar frábærar stuttmyndir komu úr smiðjunum sem voru sýndar víðsvegar um landshlutann.
REYKJAVÍKURBORG
Silja Hauksdóttir kvikmyndaleikstjóri hélt utan um stuttmyndanámskeið fyrir ungar konur og kvár þar sem þemað var ‘breytingar’ – þátttakendur frá Hagaskóla, Austurbæjarskóla, Langholtsskóla og Háteigsskóla fengu þar tækifæri til að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndagerð. Námskeiðið var haldið í Norræna húsinu.
19
UNGRIFF
2026
UNGMENNARÁÐIÐ UNGMENNARÁÐ UNGRIFF SAMANSTENDUR AF UNGU FÓLKI MEÐ BRENNANDI ÁHUGA Á ÖLLU ÞVÍ SEM VIÐKEMUR KVIKMYNDUM. RÁÐIÐ KEMUR AÐ SKIPULAGNINGU HÁTÍÐARINNAR OG ÞVÍ GETA BÖRN OG UNGMENNI SANNARLEGA KALLAÐ UNGRIFF SÍNA EIGIN HÁTÍÐ. Í UNGMENNARÁÐI ÁRIÐ 2026 ERU:
Áshildur Herdís Gunnlaugsdóttir
Anna Signý Sæmundsdóttir
Sverrir Þór Leifsson
Rúnar Már Jónasson
Baldur Tumi Einarsson
Róbert Kári Örnólfsson
UMSJÓN MEÐ UNGRIFF: SALVÖR BERGMANN 20
2026