Í sporum dvergs Það er fallegur föstudagur. Ég ákveð að byrja daginn vel og fara í sund á Álftanesi, bílferðin gekk brösulega þar sem ég náði ekki í kúplinguna nokkur skipti, það reddaðist auðvitað, þetta var góður rúntur. Það var enginn til þess að spyrja mig hvort ég sé nógu stór til þess að sitja frammí eða dæma ökuhæfni mína. Ég fæ auðvitað frítt í sund, sundlaugarvörðurinn spyr mig ekki einusinni hvað ég er gömul. Ég var í svo góðum fíling að ég ákveð að skella mér í öldulaugina. Skyndilega er ég komin að rauðu línunni í lauginni og ég næ ekki niður. Ég fæ fiðring í magann og áður en ég veit af eru öldurnar farnar í gang. Ég hélt að þetta væri mín hinsta stund. Þrátt fyrir að hafa fallið í sundi í grunnskóla ákvað ég að gefast ekki upp. Það er djamm í kvöld og ég er ennþá virgin, minn tími eru ekki kominn. Þessi orð mín gefa mér styrk og ég streytist við öldurnar þangað til að það er loks slökkt á öldulauginni. Ég dríf mig upp úr lauginni því það er stutt í skólann. Sundlaugarvörðurinn segjir mér að drífa mig til krakkana í lauginni því tímininn er að byrja. Ég tek þessu næstum inn á mig en hugsa svo að ég er betri en það. Skóladagurinn leið hratt, ég fékk nokkur comment að öll þessi koffíndrykkja væri ástæðan fyrir að ég stækka ekki, en annars var þetta frekar góður dagur, ég nýti mér það líka að ég nái ekki upp í efstu hillu í bónus og bið stóru sætu strákana um að gera það og segji pick me, chose me, love me. Þeir fíla það. Við vinkonurnar skellum okkur svo á kaffibrennsluna eftir langan skóladag. Stelpurnar eru allar sestar upp en ég er ennþá að ákveða hvað verði fyrir valinu. Fyrir aftan mig í röðinni stendur gömul vinkona mín sem ég heilsa og við eigum vandræðalegt spjall, Þetta gekk allt vel þangað til hún hendir í “Aww þú ert svo krúttleg og lítil, þú hefur bara ekkert stækkað síðan ég sá þig seinast.”
Þarna fór hún alveg með það. Þótt að þetta hafi verið létt vandræðalegt held ég ótrauð áfram því það er jú djamm í kvöld. Við byrjum á Prikinu þar sem Flóni my fellow dwarf er að spila. Ég sé ekki neitt eins og vanalega, allir risarnir troða sér fremst. Næst er ferðinni heitið á íslenska, ég er með áfengið tilbúið inná mér þar sem ég er í sparnaði og ökuskírteinið komið upp. Stelpunum er öllum hleypt inn en þegar röðin er kominn að mér tekur dyravörðurinn í mig og spyr mig áhyggjufullur hvort ég sé búin að týna foreldrum mig í hjartastað, ég hvernig
er
hægt
na á minnihluta tók að rísa og enginn spurt
mínum,
Þetta
stakk
var sár og pirruð, að ráðast svohópa. Sólina það
hafði
mig hvort
ég væri lög-
l e g u r
dvergur. Ég
s t e n d
ein,
og
ísköld
mana
en
mur upp að tur
strákur,
hávaxinn, dökmeð freknur og leg heitur. Ég hélt að tala við mig en hann veðrið þarna niðri” og vinir
það
einke-
mér sæhann
er
khærður ekkert
eðli-
hann ætlaði að hendir í “hvernig er hans hlæja. Þetta var sein-
asta stráið. Ég flý aðstæður, sár og reið. Ég reyni að hugsa um jákvæða hluti eins og hvernig ég er limbó meistarinn og það kemur mér aftur í gott skap. Kannski var þetta bara ágætur dagur eftir allt saman. Ég er hætt að fela mig og hef ákveðið að uppljóstra hæð minni. Já það er rétt, ég er ekki 1.62 cm eins og ég á til að segja. Ég er 1.58 cm og ég er stolt af því.
Lífið er eilíf hringrás, við lifum og deyjum og eyðum lífinu að gera eitthvað sem okkar finnst gaman eða hundleiðilegt. En afhverju að gera eitthvað sem okkur finnst leiðinlegt. Áður en við vitum af erum við orðin gömul og þá getum við litið til baka og líkað við okkur sjálf og það sem við höfum afrekað eða horft til baka með eftirsjá. Lífið snýst um að líða vel og gera það sem manni finnst skemmtilegt, auðvitað er lífið ekki alltaf dans á rósum en á endanum lítum við ekki á allt sem við gerðum illa eða fannst leiðinlegt heldur hugsum við um allar góðu minningarnar og það góða sem gerði okkur af þeim sem við erum. Lifðu í núinu og njóttu lífsins meðan þú getur. Prófaðu nýja hluti, farðu út fyrir þægindaramman og ekki hugsa hvað öðrum finnst um þig, það eru allir of uppteknir af sjálfum sér til þess að pæla í þér eða einhverjum öðrum. Gerðu hluti sem þú nýtur að gera og gerðu þitt besta í einu og öllu og ekki vera of harður við sjálfan þig. Gerðu hluti sem veita þér innblástur. Og gerðu allt sem þú vilt svo lengi sem þú er ekki að meiða aðra. Hættum að reyna alltaf að þóknast öðrum og lifa eftir hætti annarra því þegar öllu er á botninn hvolft þá er markmið lífs okkar að vera hamingjusöm.
Frjáls líkt og fuglinn Upp á fjallshlíðinni hún er breiðir út vængina horfir yfir fjörðinn og tekur af stað. Hún verður brátt frjáls líkt og fuglinn sem flýgur í takt við vindinn. Hún finnur hvernig gróðurinn græðir hana lífi á líkama og sál með fegðurð og frelsi. En fyrst þarf að berjast og biðja bandalög og bræður feður og mæður um að rísa á fætur uns sólin hækkar á loft. Við verðum að taka upp skjöldinn og sverð og leggja í hina miklu ferð. Því lífsins þróttur og þrá að jafnrétti er það sem við viljum fá.