ÁRSSKÝRSLA RANNÍS
2020
Hönn un og umb rot: Hnotskóg ur / Pr entu n: Svanspr ent
2
2020 EFNISYFIRLIT ÁVARP FORSTÖÐUMANNS . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4 TÍMAÁS . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6 STARFSEMI OG SKIPULAG . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
12
SJÓÐIR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
21
ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 29 VIÐBURÐIR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
36
MANNAUÐUR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
38
ÚTGÁFU- OG KYNNINGARMÁL . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
41
REKSTUR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
45
ÁRSREIKNINGUR RANNÍS 2020 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 48
3
ÁVARP FORSTÖÐUMANNS Fordæmalaust ár er að baki. Í upphafi árs 2020 brast á heimsfaraldur sem heimsbyggðin hefur tekist á við síðan og gerir árið 2020 frábrugðið því sem við eigum að venjast, starf Rannís breyttist og ný reynsla mun breyta starfseminni til framtíðar. Starfsstöðvum Rannís var lokað fyrir gestum og gangandi og starfsfólk hvatt til að vinna heima eins og kostur var. Stofnunin kynnti aðgerðaráætlun þar sem viðbrögðum við umfangi faraldursins er skipt í fjögur stig og hefur starfsemin verið á neyðarstigi (appelsínugult) mestallt síðastliðið ár. Samkomutakmarkanir hafa haft mikil áhrif á starfið, engir hefðbundnir fundir, hvorki innanlands né erlendis, samskipti starfsfólks á vinnustaðnum hafa verið takmörkuð þó samskipti innan vinnustaðarins með hjálp tækninnar hafi verið mikil. Fullyrða má að uppbygging rafrænnar umsýslu sjóða og annarra verkefna hafi skilað sér við þessar aðstæður. Rafræn úrvinnsla, rafræn samskipti, rafræn umsóknarkerfi og ekki síst umsýslukerfin hafa gert stofnuninni kleift að sinna mikilvægum verkefnum og má segja að starfsmönnum hafi í sameiningu tekist að leysa verkefni sín með glæsibrag. Auk hefðbundinna verkefna, fólu stjórnvöld stofnuninni umfangsmikil viðbótarverkefni til úrlausnar.
í stakk búin til að takast hratt á við batann, þegar uppsveiflan kemur í kjölfar farsóttarinnar. Í þeirri uppbyggingu felast tækifæri til efnahagslegrar umbreytingar, sem við þurfum að vera tilbúin til að nýta okkur. Hlutverk hins opinbera er mikilvægt á starfssviði Rannís, þ.e. á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningarmála. Markaðsbrestur hefur kallað á inngrip hins opinbera til að styðja við uppbyggingu og almennt starf á þessum sviðum. Almennt er viðurkennt að grunnvísindi séu studd af hinu opinbera, þekkingarleit með nýjum uppgötvunum og til þess að skilja betur umhverfið og samfélagið sem við búum í. Í vaxandi mæli hefur hið opinbera komið að nýsköpun hér á landi, með öflugum stuðningi við Tækniþróunarsjóð og skattaendurgreiðsla hefur verið aukin verulega í efnahagssamdrættinum. Sama má segja um menntun, menningu og listir; viðurkennt er að þörf er fyrir stuðning á þeim sviðum til að halda úti öflugu starfi. Á liðnu ári kom fram mikilvægi þess að styðja við þessar greinar, ákveðið var að auka framlög til sjóða sem styðja við rannsóknir og nýsköpun, svo sem Rannsóknasjóð, Tækniþróunarsjóð, Innviðasjóð og Nýsköpunarsjóð námsmanna; 2 milljörðum króna var bætt í þessa sjóði, sem eru mikilvæg skilaboð um atvinnusköpun og að horfa til nýrra tíma í kjölfar faraldursins. Sömu sögu má segja um mennta-, menningar- og æskulýðsstarfsemi, þar var vegna sérstakra aðstæðna á tímum faraldursins bætt í til dæmis Launasjóð listamanna, Tónlistarsjóð og stuðning við atvinnuleikhópa um 650 milljónum króna. Jafnframt var lögum um endurgreiðslu á rannsókna- og þróunarkostnaði hjá fyrirtækjum breytt og stuðningur við nýsköpunarstarf þeirra verulega aukinn. Endurgreiðsluhlutfallið var hækkað úr 20% í 35% fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki en 25% fyrir
Opinber gæði sem Rannís tekur þátt í að deila út eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu og viðhaldi á lífsgæðum okkar í nútímasamfélagi. Það er athyglisvert að þau ríki sem búa yfir þróuðu stafrænu umhverfi og búa yfir félagslegu öryggisneti með tilheyrandi þróuðu heilbrigðiskerfi eru líkleg til að ná bestum árangri í að takast á við faraldurinn og vera
4
2020
stór fyrirtæki, auk þess sem hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti var hækkaður í 1,1 milljarð. Gert er ráð fyrir að kostnaður við þessa stuðningsaðgerð tvöfaldist og muni kostnaður nema 10 milljörðum á árinu 2021 samanborið við 2020. Fyrirtækjum var gefinn kostur á að endurskipuleggja verkefni sín með nýjum umsóknum seinnihluta árs 2020.
sviðunum.Auk þess er leitast við að stækka teymi sem vinna að sameiginlegum verkefnum og ná með þeim hætti að dreifa betur álagi sem fylgir starfinu. Hluti skipulagsbreytinganna var að innleiða teymishugsun þar sem teymin leitast við að nota straumlínuaðferðarfræði í starfi sínu, þ.e. einfalda og straumlínulaga öll ferli. Þetta var gert til að undirbúa styttingu vinnuvikunnar í byrjun árs 2021, úr 40 stundum í 36 stundir.
Viðbrögð stjórnvalda við faraldrinum höfðu því veruleg áhrif á starf Rannís, því samfara auknu fé þurfti í flestum tilfellum að auglýsa eftir umsóknum með hraði til að eiga möguleika á að koma viðkomandi fjármunum í gagnið sem fyrst. Aukið fé og breyttar samfélagslegar aðstæður höfðu í för með sér að umsóknir um stuðning tvöfölduðust á milli ára, voru um 5.000 árið 2019 en reyndust um 10.000 á árinu 2020. Rafræn umsýsla gerði stofnuninni kleift að takast á við þessa miklu aukningu í umsóknum samhliða breyttu vinnufyrirkomulagi.
Þegar litið er fram á veginn er ljóst að samfélagslegar áskoranir sem mikilvægt er að þróuð samfélög takist á við eru miklar. Umhverfismál með hringrásarkerfi og grænum lausnum, áframhaldandi uppbygging stafrænna innviða, gervigreind, fjórða iðnbyltingin, heilbrigðismál og fleira eru allt áskoranir sem þarf að takast á við á komandi árum. Það tók ekki nema eitt ár að þróa bóluefni við Covid-19, en að öllu jöfnu mátti búast við tíu ára þróunarferli. Breytingin er meðal annars fólgin í auknu alþjóðlegu samstarfi þar sem þekkingu er deilt, en áætlað er að 75.000 birtingar hafi komið fram tengdar Covid-19 á fyrstu tíu mánuðum 2020, 75% þeirra voru í opnu aðgengi. Normið var áður að innan við 50% birtinga voru í opnu aðgengi. Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að aukinn stuðningur við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu er leið til að skapa fjölbreyttara samfélag, ýta undir fjórðu stoðina í efnahagslífinu.
Alþjóðlegt samstarf er einn af hornsteinum í starfi Rannís, þ.e. aðstoð og kynning á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum á starfssviði stofnunarinnar. Alþjóðlegar stofnanir þurftu að taka upp rafræna fundi til að halda starfi sínu gangandi og má vænta þess að í framtíðinni verði rafrænir fundir mikilvægur hluti alþjóðasamstarfs, þó ljóst sé að þeir koma ekki í veg fyrir hefðbundna fundi, þó þeim muni fækka í framtíðinni. Rannís hefur haft umsýslu á rammaáætlunum ESB en þær voru: Horizon 2020, á sviði rannsókna og nýsköpunar, Erasmus+ og European Solidarity Corps á sviði menntunar, æskulýðsmála og sjálfboðastarfs og Creative Europe á sviði kvikmynda og menningar. Þessum áætlunum lauk á árinu 2020 og tóku við nýjar áætlanir til sjö ára frá og með 2021. Í stuttu máli má segja að árangur Íslands í þessum áætlunum hafi verið mjög góður. Ef litið er til rannsókna og nýsköpunaráætlunarinnar þá er árangur Íslands varðandi hlutfall samþykktra umsókna með því besta innan áætlunarinnar auk þess er fjármagn sem skilar sér til Íslands hlutfallslega hærra en meðal okkar nágrannaþjóða. Að meðaltali hafa komið í hlut Íslands um 3 milljarðar á ári undanfarin sjö ár. Sömu sögu má segja um menntaáætlunina og ekki síður um kvikmynda- og menningaráætlunina.
Starfsumhverfi stofnana eins og Rannís breytist stöðugt, vaxandi áhersla er nú um stundir á skattalegt hagræði til fyrirtækja og aukin framlög til sjóða. Almennt er viðurkennt að skattalegt hagræði hefur mikið gildi, en þar er veittur stuðningur til að auka smám saman við þekkingu og byggja ofan á það sem fyrir er. Stuðningur með beinum hætti, stuðningur úr sjóðum, eða viðurkenningar með fjárframlögum eru líklegri til að stuðla að stærri og metnaðarfyllri skrefum við framþróun þekkingar. Það er því mikilvægt að gætt sé að jafnvægi á milli þessara aðgerða. Að loknu viðburðarríku ári í rekstri Rannís, þar sem starfsfólk hefur þurft að takast á við breytingar og skilað góðu árangursríku starfi, vil ég þakka góð samskipti og samstarfið á liðnu ári.
Á árinu var skipuritinu breytt, alþjóðlegt samstarf og rekstur sjóða innan rannsókna- og nýsköpunarsviðs voru sameinuð. Breytingin hefur í för með sér aukna samlegð en gera verður ráð fyrir að aðilum, sem gengur vel í sókn sinni í innlenda sjóði, eigi fullt erindi í að sækja fé með erlendum samstarfsaðilum í erlenda sjóði. Nýtt svið tók til jafnframt til starfa, greiningar og hugbúnaðarsvið. Rafræn umsýsla umsókna og greining á gögnum er mjög mikilvægur þáttur í starfi stofnunarinnar og með sérstöku sviði er gert ráð fyrir að starfið þróist sjálfstætt óháð fag-
5
Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
2020
Viðburðir og kynningar skipa stóran sess í starfsemi Rannís. Til að styðja við kynningarstarf á rannsóknum, nýsköpun, menntun og menningu og gera áhrif þekkingarsköpunar sýnileg; stendur Rannís fyrir ýmsum viðburðum eins og Rannsóknaþingi, Vorfundi Tækniþróunarsjóðs, Vísindavöku, Erasmusdögum og Nýsköpunarþingi. Þá eru haldnir kynningarfundir víða um land, námskeið, vinnustofur og tengslaráðstefnur. Rannís á einnig þátt í að hvetja vísinda- og fræðafólk til dáða með viðurkenningum á borð við Hvatningaverðlaun Vísinda- og tækniráðs í samvinnu við ráðið, Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands í samvinnu við Nýsköpunarsjóð námsmanna og Nýsköpunarverðlaun Íslands í samvinnu við Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins. Hér getur að líta brot af því helsta sem bar til tíðinda í starfsemi Rannís á árinu, sem var með óhefðbundnu sniði hvað varðar viðburði og kynningar.
JANÚAR 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
2
Íþróttasjóður úthlutar 19 milljónum til 79 verkefna
9
Launasjóður listamanna úthlutar 325 listamönnum 1.600 mánaðarlaunum
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Leiklistarráð úthlutar 94 milljónum 24 til 20 atvinnuleikhópa
Verðlaunahafi ásamt forseta Íslands á Bessastöðum
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands afhent 29 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum Halldór Bjarki Ólafsson, nemi í læknisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, hlaut verðlaunin fyrir verkefnið Tengsl óeðlilegs blóðhags við bráða fylgikvilla og langtíma útkomu eftir skurðaðgerðir, sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin.
Niðurstaða könnunar styrkþega Tækniþróunarsjóðs kynnt í Nauthóli
Nýsköpunarumhverfið á Íslandi 14 Niðurstaða könnunar meðal sprotafyrirtækja var kynnt á Nauthóli í Reykjavík. Í samstarfi við Tækniþróunarsjóð og Gallup framkvæmdi Northstack umfangsmikla könnun á árinu 2019 meðal þeirra sprotafyrirtækja sem sótt höfðu um styrk úr Tækniþróunarsjóði þrjú ár fyrir könnunina (2017–2019). Rannsóknasjóður úthlutar um 15 800 milljónum til 55 nýrra verkefna Kynningarfundur á Tækniþróunarsjóði 15 Tækniþróunarsjóður stóð fyrir kynningarfundum um landið í janúarmánuði.
Starfsemi Rannís var kynnt á Framadögum
Opið hús hjá Landskrifstofu Erasmus+ 20 og Nordplus vegna umsóknarfrests náms- og þjálfunarverkefna Erasmus+ og samstarfsverkefna Nordplus
Rannís tekur þátt í Framadögum í 30 Háskólanum í Reykjavík Starfsfólk Rannís kynnti þar Erasmus+, Europass, Farabara, Nordplus, Tækniþróunarsjóð og Nýsköpunarsjóð námsmanna. Einnig var kynning á starfsemi Rannís í heild sinni. 6
31
FEBRÚAR 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Tónlistarsjóður úthlutar rúmum 14 22 milljónum til 60 verkefna, fyrri úthlutun
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
Skýrsla um samspil vísinda við 19 stefnumótun stjórnvalda kom út Skýrslan inniheldur niðurstöðu vinnusmiðju sem haldin var hjá Rannís.
MARS 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Æskulýðssjóður úthlutar rúmum 26 4 milljónum til 6 verkefna, fyrri úthlutun ársins Opnað fyrir þátttöku í 45 nýjum 26 COST-verkefnum
Ráðstefna Vísindaviku norðurslóða var rafræn í ár
Vísindavika norðurslóða 2020 27 Ráðstefnan Vísindavika norðurslóða (Arctic Science Summit Week 2020) sem halda átti á Akureyri var flutt alfarið á netið.
APRÍL 1
2
4
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Horizon 2020 námskeið um fjármál og uppgjör í samstarfi við Félag rannsóknastjóra
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
Rannís og Samtök iðnaðarins kynntu 24 Tækniþróunarsjóð, Nýsköpunarsjóð námsmanna og skattfrádrátt vegna rannsóknaog þróunarkostnaðar á fjarfundi
15 Nýtt rannsóknasetur um haf, loftslag og samfélag í samvinnu Carlsbergsjóðsins og íslenskra stjórnvalda og Rannís Í tilefni af 80 ára afmæli Margrétar Danadrottningar hinn 16. apríl og 90 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, þann 15. apríl setti Carlsbergsjóðurinn á fót danskt-íslenskt rannsóknasetur í samvinnu við íslensk stjórnvöld og Rannís.
Hljóðritasjóður úthlutar 18 milljónum til 30 67 hljóðritunarverkefna, fyrri úthlutun
Nýsköpunarsjóður námsmanna úthlutar 17 um 106 milljónum til 126 nemenda og 74 verkefna Rannís úthlutar um 845 milljónum 22 í náms- og þjálfunarstyrki úr Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlun ESB og úr European Solidarity Corps, sem er evrópsk sjálfboðaliðaáætlun Úhlutað var til 62 verkefna og nutu ríflega 1.000 einstaklingar frá skólastofnunum, fræðsluaðilum, æskulýðssamtökum og fyrirtækjum góðs af styrkjunum að þessu sinni. 7
30
31
MAÍ 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Rannsóknasjóður: aukaúthlutun vegna 6 átaksverkefnis, úthlutað tæpum 300 milljónum til 23 nýrra verkefna Þróunarsjóður námsgagna úthlutar um 11 54 milljónum til 31 verkefnis Tækniþróunarsjóður úthlutar um 15 774 milljónum til 95 nýrra verkefna nýsköpunarfyrirtækja og frumkvöðla
Vatnsdropinn þverfaglegt menningarverkefni styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands
ÁRSSKÝRSLA RANNÍS
16
Barnamenningarsjóður Íslands úthlutar 22 92 milljónum til 42 verkefna Barnamenningarsjóður er átaksverkefni til 5 ára og er hlutverk hans að styðja fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.
2019
Leiklistarráð úthlutar, í átaksverkefni 25 í menningu og listum, 95 milljónum til 30 atvinnuleikhópa
Ársskýrsla Rannís 2019 kemur út
Forsætisráðherra kynnir nýja markáætlun 20 um samfélagslegar áskoranir Lögð er áhersla á þrjú svið: umhverfismál, heilsu og velferð og líf og störf í heimi breytinga. Úthlutað verður einum milljarði króna á árunum 2020–2023. Tilkynnt um úthlutun úr Nordplus áætluninni 20 til verkefna sem hefjast á árinu 2020 Rannís hefur umsjón með Nordplus á Íslandi og taka íslenskir aðilar þátt í 164 af þeim 374 verkefnum sem styrkt voru.
Á Heilsudögum var boðið upp á endurnærandi jógagöngu um Grasagarðinn
25
Rannís býður starfsfólki upp á heilsudaga
Rannís auglýsir eftir 7 námsmönnum 28 í sumarstörf í tengslum við átak stjórnvalda um tímabundin störf vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins Stjórn starfslaunasjóðs sjálfstætt starfandi 29 fræðimanna úthlutar 48 milljónum í styrki til 15 sjálfstætt starfandi fræðimanna
8
31
JÚNÍ 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Auglýst eftir umsóknum um styrki í 10 Markáætlun um samfélagslegar áskoranir fyrir styrkárin 2020–2023 Tillögur að verkefnum fyrir vegvísi um 19 rannsóknarinnviði komnar á vef Rannís. Alls bárust 52 tillögur sem voru gerðar aðgengilegar á vefsíðu Innviðasjóðs.
Fyrstu úhtlutun úr Loftslagssjóði fagnað
Tilkynnt um úthlutun úr Loftslagssjóði, 3 veittar voru um 165 milljónir til 32 verkefna Alls voru 10 nýsköpunarverkefni styrkt og 22 kynningar- og fræðsluverkefni. Þetta var í fyrsta sinn sem úthlutað var úr Loftslagssjóði. Af því tilefni buðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Hildur Knútsdóttir, formaður stjórnar Loftslagssjóðs, handhöfum styrkjanna til kaffispjalls í ráðuneytinu. Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga.
Styrkjum var úthlutað við hátíðlega athöfn á kvenréttindadaginn
Stjórn Jafnréttissjóðs Íslands úthlutar 19 92 milljónum í styrki til 19 verkefna Rannís úthlutar um 563 milljónum króna til 24 21 samstarfsverkefnis í menntahluta Erasmus+. Einnig var úthlutað um 58 milljónum úthlutað til 15 verkefna sem sóttu um í aðra umsóknalotu European Solidarity Corps og æskulýðshluta Erasmus+
Nýsköpunarsjóður námsmanna: 5 aukaúthlutun vegna átaksverkefnis, úthlutað um 360 milljónum til 426 nemenda og 284 verkefna 8
Tónlistarsjóður úthlutar 18 milljónum til 61 verkefnis, seinni úthlutun
Launasjóður listamanna, aukaúthlutun 25 vegna átaksverkefnis, 278 listamönnum úthlutað 600 mánaðarlaunum
Tónlistarsjóður, aukaúthlutun vegna 8 átaksverkefnis, úthlutað 81 milljón króna til 162 verkefna
Innviðasjóður úthlutar rúmum 340 30 milljónum til 28 verkefna fyrir styrkárið 2020
JÚLÍ 1
2
8
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Óskað eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2020
9
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
ÁGÚST 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Menningarstyrkir í Creative Europe – 13 vinnustofa í gerð umsókna Rannís stóð fyrir rafrænni vinnustofu í samstarfi við Einkofi Production um hvernig best sé að haga gerð umsókna í Creative Europe – evrópska menningarstyrki.
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
Tilkynnt um sumarúthlutun 26 Tækniþróunarsjóðs Stjórn Tækniþróunarsjóðs samþykkti að bjóða fulltrúum 33 verkefna að ganga til samninga um nýja verkefnastyrki fyrir allt að 475 milljónir.
SEPTEMBER 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Ný Vísinda- og tæknistefna var samþykkt á árinu
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Sendiherra ESB fræddist um starfsemi Rannís ásamt starfsfólki sínu
Vísinda- og tæknistefna 2020–2022 1 samþykkt á fundi Vísinda- og tækniráðs Í stefnunni er sett fram sýn til næstu 10 ára ásamt aðgerðum til stuðnings.
Nýskipaður sendiherra ESB á Íslandi, 28 Lucie Samcová, heimsótti Rannís og fræddist um fjölbreytta starfsemi stofnunarinnar
Mótum framtíðina saman – Evrópskir 22 rannsókna- og nýsköpunardagar 2020 Markmiðið með viðburðinum, sem var rafrænn, var að stefnumótendur, vísindamenn, frumkvöðlar og almenningur kæmu saman til að ræða og móta framtíð rannsókna og nýsköpunar í Evrópu og víðar.
OKTÓBER 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Rafrænn upplýsingafundur vegna verkefna 15 fyrir vegvísi um rannsóknarinnviði Á fundinum var stutt kynning á umsóknarferlinu og væntanlegum vegvísi.
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Byggðaþróun og fæðuöryggi á 20 norðurslóðum: Hlutverk jarðvarmaorku Norðurslóðanet Íslands boðaði til veffundar í samstarfi við utanríkisráðuneytið, Rannís, SSNE og EIM. Umfjöllunarefni veffundarins var byggt á formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu (2019– 2021) og aðgerðaráætlun Íslands í loftslagsmálum 2019–2030. Einnig lágu umræðunum til grundvallar sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna sem fjalla meðal annars um loftslagsmál og sjálfbærar orkulausnir.
10
31
NÓVEMBER 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
2020
24
25
26
27
28
29
30
Málstofa á netinu um loftslagsbreytingar 5 á Íslandi síðustu 50 ár Málstofan var hluti af röð viðburða á netinu undir yfirskriftinni Samtal um Norðurslóðir, Málstofa á netinu um loftlagsbreytingar á Íslandi síðustu 50 ár, sem fram fóru haustið 2020. 6
Hljóðritasjóður úthlutar 19 milljónum til 63 verkefna, seinni úthlutun
Evrópska starfsmenntavikan – 9 Framúrskarandi starfsmenntun og sjálfbærni í tölvutækni Í starfsmenntavikunni var starfsmenntun kynnt í mörgum Evrópulöndum samtímis, svæðisbundið og á landsvísu. Skólar og aðrar stofnanir sem sinna starfsmenntun og fullorðinsfræðslu fengu tækifæri til að kynna hvaðeina sem eykur áhuga á starfsmenntun.
Controlant hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2020
Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands 18 2020 Fyrirtækið Controlant hlaut verðlaunin og veitti Gísli Herjólfsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Controlant, þeim viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
DESEMBER 1
2
3
5
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Rafræn jólagleði starfsfólks
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Úthlutun úr Markáætlun vegna samfélags15 legra áskorana 2020 Fulltrúum 7 verkefna var boðið að ganga til samninga fyrir allt að 360 milljónir.
Rannís úthlutar um 312 milljónum 14 til verkefna í Erasmus+ og European Solidarity Corps Þar á meðal voru níu samstarfsverkefni sem sótt var um í sérstökum Covid-19 umsóknarflokki. Honum er ætlað að efla stafræna væðingu í menntamálum annars vegar og að styrkja tengsl milli skapandi greina, menntunar og æskulýðsmála hins vegar. Að auki voru styrkt 14 verkefni úr þriðju umsóknarlotu æskulýðshlutans, fimm verkefni í European Solidarity Corps og tvö samstarfsverkefni sem höfðu verið á biðlista.
Æskulýðssjóður úthlutar 5,5 milljónum til 29 7 verkefna, seinni úthlutun
11
31
STARFSEMI OG SKIPULAG Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Rannís styður þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum, ásamt því að greina og kynna áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónusta undirbúning vísinda- og tæknistefnu.
ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar. Á meðal sjóðanna eru Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður, sem eru tveir stærstu samkeppnissjóðir hér á landi; Listamannalaun, Loftslagssjóður og Jafnréttissjóður Íslands sem eru dæmi um smærri sjóði og Horizon 2020 og Erasmus+ sem eru stærstu ESB áætlanirnar. Samskiptanetið er stórt, en skólar, stofnanir, einstaklingar, samtök og fyrirtæki auk stjórnsýslunnar tilheyra viðskiptavinahópi Rannís.
Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana
Hér má sjá yfirlit yfir helstu samkeppnissjóði og sérverkefni sem Rannís hefur umsjón með
Innlendir sjóðir ● Barnamenningarsjóður Íslands ● Hljóðritasjóður ● Innviðasjóður ● Íslenskukennsla fyrir útlendinga ● Íþróttasjóður ● Jafnréttissjóður Íslands ● Listamannalaun ● Loftslagssjóður ● Markáætlun í tungu og tækni ● Markáætlun um samfélagslegar áskoranir ● Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla ● Nýsköpunarsjóður námsmanna ● Rannsóknarsjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar ● Rannsóknasjóður ● Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara – SEF ● Skattfrádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga
Alþjóðastarf ● Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna ● Sóknarstyrkir ● Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna ● Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku ● Styrkir til atvinnuleikhópa ● Tónlistarsjóður ● Tækniþróunarsjóður ● Vinnustaðanámssjóður ● Þróunarsjóður námsgagna ● Æskulýðssjóður
● Arctic Research and Studies ● COST ● Creative Europe ● Erasmus+ ● Sérverkefni Erasmus+ EAAL ECVET EPALE eTwinning Eurodesk Euroguidance Higher Education Reform Kynningar á möguleikum fyrir ungt fólk ● European Solidarity Corps ● Eurostars ● Euraxess ● Evrópska tungumálamerkið ● Horizon 2020 ● Landstenglaverkefni Horizon 2020 BioHorizon C-Energy COSMOS
12
Ideal-ist NCP CaRE NET4MOBILITY Net4Society RICH SEREN SiS.net ● ERA-net BlueBioeconomy GEOTHERMICA M-ERA.NET 2 HERA ● Norrænt samstarf Nordplus NordForsk NOS-HS NOS-M NOS-N ● Jules Verne ● Rannsóknasetur Margrétar II Danadrottningar og Vigdísar Finnbogadóttur ● Tungumálamiðstöðin í Graz ● Uppbyggingarsjóður EES
SKIPURIT RANNÍS 2020 Vísinda- og tækniráð
Mennta- og menningarmálaráðuneyti Forstöðumaður
Skrifstofa Vísinda- og tækniráðs Skrifstofa IASC, Akureyri
Rekstrarsvið Fjármál, mannauðsmál, samskipta- og kynningarmál, skjalastjórnun, gæðamál, húsnæði, rekstur skrifstofu, tölvubúnaðar og mötuneytis
Greiningar- og hugbúnaðarsvið Umsóknarkerfi, umsýslukerfi, mínar síður, fagráðskerfi og úthlutunarsíða. Gagnaöflun, úrvinnsla og greining, framsetning og miðlun
Rannís heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneytið og starfar á grundvelli laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3/2003. Skipurit þetta var samþykkt 1. september 2020.
Rannsókna- og nýsköpunarsvið
Mennta- og menningarsvið
- Rannsóknasjóður - Tækniþróunarsjóður - Innviðasjóður - Nýsköpunarsjóður námsmanna - Markáætlun - Aðrir innlendir sjóðir í rannsóknum og nýsköpun - Horizon 2020 - Uppbyggingarsjóður EES - COST - Nordforsk - Norðurslóðasamstarf - Annað alþjóðasamstarf - Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna - Skattfrádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga
- Erasmus+ - Creative Europe - European Solidarity Corps - Nordplus - Europass - Euroguidance - Eurodesk - EPALE - eTwinning - Innlendir sjóðir mennta- og menningarmálaráðuneytis - Upplýsingastofa um nám erlendis
VÍSINDA- OG TÆKNIRÁÐ Rannís er náinn samstarfsaðili Vísinda- og tækniráðs og veitir stofnunin faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd stefnu ráðsins.
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ráðið markar stefnu stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum til þriggja ára í senn. Umfjöllun ráðsins á hvoru sviði um sig er undirbúin af starfsnefndum ráðsins, vísindanefnd og tækninefnd.
Vísinda- og tækniráð hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækniþróun í landinu í því skyni að treysta stoðir íslenskrar menningar og auka samkeppnishæfni atvinnulífsins. Forsætisráðherra er formaður ráðsins en þar sitja einnig mennta- og menningarmálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og ferðamála-,
Vísinda- og tækninefndir hittust tólf sinnum á sameiginlegum fundum og vísindanefnd fundaði þrisvar sinnum og tækninefnd tvisvar sinnum á árinu. Vísinda- og tækniráð fundaði í september og nóvember en á fundi ráðsins í september var Vísinda- og tæknistefna fyrir tímabilið 2020–2022 samþykkt. 13
FJÖGUR SVIÐ RANNÍS Starfsemi Rannís skiptist í tvö fagsvið: rannsóknaog nýsköpunarsvið og mennta- og menningarsvið. Rekstrarsvið og greiningar- og hugbúnaðarsvið ganga þvert á fagsviðin og styðja við starfsemi þeirra.
Samfara þessum breytingum var lögð áhersla á breytta stjórnunarhætti, tekin upp „Lean management“ eða straumlínustjórnun, þar sem sett hafa verið saman teymi sem leitast við að leysa sín verkefni á skilvirkari hátt. Til að tryggja innleiðingu aðferðafræðinnar var starfsfólki boðið upp á viðeigandi fræðslu og handleiðslu. Með þessu móti er vonast til að aukin samlegð náist í starfinu, auðveldara verður að samræma gæðakröfur, úrvinnslu og upplýsingaöflun auk þess að jafna álag í starfinu og gefa einstökum teymum og teymisstjórum sterkari rödd. Það er mikilvægt að stjórnunarfyrirkomulag Rannís sé með þeim hætti að starfsfólk eigi meira frumkvæði að stefnumótandi aðgerðum á starfssviði stofnunarinnar og styrki þannig ímynd hennar, bæti úrvinnslu og miðlun með áherslu á samfélagsleg áhrif, bætta starfshætti, mannauð og alþjóðastarf.
Sameiginlegt markmið sviðanna er að efla samstarf stjórnvalda og hagsmunaaðila við undirbúning og framkvæmd opinberrar vísinda- og tæknistefnu og styðja við rannsóknir og nýsköpun, menntun, menningu og þróun mannauðs. BREYTT SKIPURIT Frá og með 1. september 2020 var skipuriti Rannís breytt. Breytingin var gerð með hliðsjón af nýrri stefnu Rannís til ársins 2025, sem var gefin út árið 2019. Stefnumarkandi áherslur í nýrri stefnu eru: samfélagsleg áhrif, breyttir starfshættir, áhersla á mannauð, alþjóðasamstarf og styrking ímyndar.
Breytingar urðu í stjórnendateymi samhliða breyttu skipulagi: Sigurður Björnsson hætti sem sviðsstjóri vegna aldurs, en er áfram í hlutastarfi hjá Rannís. Ágúst H. Ingþórsson sem var sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs tók við rannsóknaog nýsköpunarsviði og Aðalheiður Jónsdóttir tók við mennta- og menningarsviði, en hún var áður sviðsstjóri alþjóðasviðs. Berglind Fanndal Káradóttir var skipuð sviðsstjóri greiningar- og hugbúnaðarsviðs.
Starfssvið Rannís tekur til rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar. Umsýsla sjóða og alþjóðlegt samstarf eru lykilþættir í starfi Rannís auk greininga og miðlunar. Tvær meginbreytingar voru gerðar, alþjóðasvið var sameinað rannsókna- og nýsköpunarsviði og stofnað var nýtt svið greininga og hugbúnaðar. Með því að sameina alþjóðasvið og rannsóknaog nýsköpunarsvið er tryggt að þjónusta sviðsins gagnvart sameiginlegum markhópi málaflokksins sé samræmd.
RANNSÓKNA- OG NÝSKÖPUNARSVIÐ Umtalsverðar breytingar urðu þegar innlend og alþjóðleg rannsókna- og nýsköpunarverkefni voru sameinuð. Innlend verkefni eru stóru samkeppnissjóðirnir tveir ásamt minni sjóðum sem tengjast rannsóknum og nýsköpun, skattfrádrætti rannsókna og þróunarverkefna og loks stuðningur við útgáfu bóka á íslensku. Í erlendum verkefnum sviðsins er evrópskt samstarf sem leiðir af EESsamningnum umfangsmest, en norrænt samstarf er einnig mikilvægt og norðurslóðamál hafa fengið aukið vægi.
Áhersla á samfjármögnun verkefna og áætlana yfir landamæri er jafnframt vaxandi og því mikilvægt að yfirsýn og umsýsla fyrir þennan mikilvæga viðskiptamannahóp sé samhæfð. Rannsóknaog nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins gerir ráð fyrir mjög umfangsmiklu samstarfi um samfjármögnun á næstu árum og norrænt samstarf hefur fært sig yfir í aukna samfjármögnun, auk þess sem sjóðir í einstökum löndum gefa kost á samstarfi um fjármögnun. Hér er því verið að stíga mikilvægt skref til framtíðar, alþjóðlegt samstarf skiptir sífellt meira máli og velgengni sjóða innanlands gefur tilefni til útrásar.
Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður eru langstærstu sjóðir til stuðnings vísinda- og nýsköpunarsamfélaginu hér á landi. Rannsóknasjóður styður fyrst og fremst við grunnrannsóknir í háskólum og rannsóknastofnunum, en þær stofnanir njóta enn fremur beins stuðnings hins opinbera. Tækniþróunarsjóður styður aftur á móti verkefni frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja sem miða að nýsköpun í atvinnulífinu. Þessi stuðningur, ásamt skattendurgreiðslu rannsókna og þróunar, er uppistaðan í opinberum stuðningi við þennan þátt atvinnulífsins. Samtals nam stuðningur til rannsókna og nýsköpunar sem Rannís sinnir um 12 milljörðum króna á árinu, sem er veruleg aukning frá árinu áður. Viðbrögð stjórnvalda við Covid-19 faraldrinum skýra að hluta mikla aukningu, en um mitt ár samþykkti Alþingi aukafjárveitingar upp á 1,8 milljarða króna til
Rafræn umsýsla í starfi Rannís hefur aukist mikið á undanförnum árum og fyrirséð að svo verði áfram með aukinni áherslu á aðgengi að gögnum og miðlun upplýsinga um starfið. Áhersla á rafræna umsýslu vex og þörfin fyrir aðgengi að gögnum er knýjandi. Með því að vera með sjálfstætt greiningarog hugbúnaðarsvið er lögð áhersla á mikilvægi þessara þátta og að verkefni þróist sjálfstætt, ekki bundin öðrum afmörkuðum þáttum í starfseminni.
14
fjögurra sjóða sem lið í viðbragðsáætlun stjórnvalda. Jafnframt voru gerðar breytingar á lögum um skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna þannig að hlutfall rannsókna- og þróunarkostnaðar sem kemur til frádráttar eða endurgreiðslu var hækkað talsvert. Sú hækkun kemur ekki til útgreiðslu fyrr en árið 2021 og mun leiða til þess að kostnaður ríkissjóðs vegna þessa úrræðis mun tvöfaldast – en á árinu 2020 var heildarendurgreiðsla skattfrádráttar 5,1 milljarður króna.
samt aðeins um 15%. Rétt er að halda því til haga að aldrei hafa borist eins margar umsóknir og árið 2020 og hefur erfitt efnahagsástand haft þar áhrif. Almennt má segja að ef árangurshlutfall umsókna er lægra en 20% þá þarf oft að hafna mörgum góðum umsóknum. Alþjóðasamstarf á sviði rannsókna og nýsköpunar var sem fyrr fyrirferðarmikið í starfsemi Rannís. Umfangsmest er rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB, en þetta var síðasta starfsár Horizon 2020 áætlunarinnar. Áfram var mikil og góð þátttaka íslenskra aðila í umsóknum og árangurshlutfall mjög hátt í samanburði við flest önnur þátttökuríki. Í lok árs 2020 höfðu 130 milljónir evra borist í formi styrkja til íslenskra aðila úr Horizon 2020 og var árangurshlutfall íslenskra umsækjenda ríflega 19%. Árangur Íslands er bestur í orkuáætluninni og fæðu-, landbúnaðar- og sjávarrannsóknum, auk þess sem íslenskum fyrirtækjum gengur einstaklega vel í undiráætlun sem snýr að nýsköpun í smærri fyrirtækjum. Stuðningur Rannís við umsækjendur var hefðbundinn á árinu, en Covid-19 gerði það að verkum að allir fundir voru rafrænir, sem starfsfólk Rannís hefði annars sótt erlendis. Þá voru námskeið og ráðgjöf með öðru sniði.
Aðrir innlendir sjóðir eru minni í sniðum, en umfang nokkurra þeirra jókst á árinu. Innviðasjóður úthlutaði 340 m.kr. eftir viðbótarfjárveitingar vegna Covid-19 og hefur úthlutunin aldrei verið hærri. Á árinu var jafnframt auglýst eftir umsóknum fyrir sérstakan vegvísi um rannsóknainnviði sem hefur lengi verið í undirbúningi. Alls bárust 52 umsóknir en vegvísirinn verður kynntur með formlegum hætti árið 2021. Fjárveiting til Nýsköpunarsjóðs námsmanna var fjórfölduð og var gefinn aukaumsóknafrestur sem tókst að afgreiða á mettíma, þrátt fyrir nærri 1.000 umsóknir. Samtals var hægt að styrkja um 550 nemendur í þrjá mánuði. Þrátt fyrir að það sé langstærsta úthlutun sjóðsins frá upphafi var einungis hægt að mæta um þriðjungi af eftirspurninni.
Auk þess að skipuleggja námskeið fyrir væntanlega umsækjendur og veita margvíslega ráðgjöf, úthlutar rannsókna- og nýsköpunarsvið sóknarstyrkjum til umsækjenda. Árið 2020 voru 20 m.kr. til ráðstöfunar í sóknarstyrki, en Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður fjármagna þá til jafns. Fóru allir styrkirnir til íslenskra aðila sem sóttu um í Horizon 2020 á árinu og vantaði talsvert upp á að unnt væri að mæta eftirspurn.
Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna hafði óbreytt fjármagn til ráðstöfunar og var árangurshlutfall innan við 20%. Úthlutað var úr Jafnréttissjóði – en sjóðurinn var stofnaður til 5 ára, í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli íslenskra kvenna árið 2015. Úthlutað var úr Loftslagssjóði í fyrsta sinn og voru fjárheimildir tveggja ára sameinaðar til að geta betur mætt eftirspurn. Það dugði þó engan veginn til, því sótt var um nærri áttfalt það fjármagn sem var til ráðstöfunar. Úthlutað var 165 m.kr. til kynningar- og fræðsluverkefna annars vegar og nýsköpunarverkefna hins vegar.
Starfsfólk sviðsins eru svokallaðir landstenglar fyrir alla þætti Horizon 2020. Til að styrkja starf þeirra, læra af öðrum og deila starfinu á alþjóðavettvangi, taka starfsmenn sviðsins þátt í tíu samstarfsverkefnum landstengla. Rannís leiðir eitt slíkt samstarfsverkefni á sviði Vísinda í þágu samfélagsins með þátttöku 16 systurstofnana um alla Evrópu.
Auglýst var eftir umsóknum í báðar þær markáætlanir sem nú eru í gangi. Fyrsta úthlutun úr Markáætlun um samfélagslegar áskoranir var undir lok ársins, en stuðst var við tveggja þrepa matsferli. Um er að ræða veglega styrki og var eftirspurn mikil. Úthlutað var til 7 verkefna, en 68 umsóknir bárust. Umsóknarfrestur var í Markáætlun í tungu og tækni í september og átti matsvinnslu að ljúka í byrjun árs 2021. Gert er ráð fyrir einum umsóknarfresti í viðbót á árinu 2021 í tengslum við máltækniáætlun fyrir íslensku 2018–2022.
Árið 2020 einkenndist ekki síst af undirbúningi fyrir næstu rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB, Horizon Europe, sem samþykkt var formlega undir lok ársins. Fjárveiting til áætlunarinnar eykst verulega og það munu fjárhagsskuldbindingar Íslands einnig gera. EES-ríkjunum var í fyrsta skipti boðið að vera með í svokölluðum skugganefndum sem lögðu línurnar varðandi vinnuáætlun næstu ára. Þannig var unnt að koma íslenskum sjónarmiðum að þegar í undirbúningsferlinu og hefur verið gott samstarf við mennta- og menningarmálaráðuneytið og vísinda-, mennta- og menningarfulltrúa í sendiráði Íslands í Brussel.
Árangurshlutfall innlendra sjóða sem sviðið ber ábyrgð á hefur farið lækkandi á undanförnum árum. Auknar fjárveitingar vegna Covid-19 leiddu til þess að árangurshlutfall Rannsóknasjóðs var 20,5%, það hæsta í þrjú ár. Árangurshlutfall Tækniþróunarsjóðs hækkaði einnig miðað við árin tvö á undan, en var 15
Stuðningur við Uppbyggingarsjóð EES jókst enn á árinu og hefur samstarfsáætlunum við langflest styrkþegalönd verið hleypt af stokkunum. Rannís hefur umsjón með sex áætlunum í fimm löndum á málefnasviðum stofnunarinnar í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Bættist Ungverjaland við undir lok ársins, en samningaviðræður sjóðsins um framkvæmdina í Ungverjalandi tóku mjög langan tíma. Þrátt fyrir Covid-19 var mikið um kynninga-, tengslamyndunar- og samstarfsnefndarfundi, sem allir voru haldnir rafrænt. Mikill áhugi er á samstarfi við íslenska aðila og hefur það verið sérstaklega á sviði menningar- og menntaáætlana.
þeirra sjóða sem sviðið ber ábyrgð á voru auknar verulega og til að ráðstafa því var tekið á móti mun fleiri umsóknum en nokkru sinni áður. Því var álag á starfsfólk mjög mikið, en það skilaði góðu starfi því hratt og vel gekk að úthluta því fjármagni sem var til ráðstöfunar. Á síðari hluta ársins ber hæst skipulagsbreytingar og undirbúning að því að takast á við ný verkefni. Starfsfólki sviðsins mun fjölga og umfangið halda áfram að aukast þannig að sviðið verður vel í stakk búið til að nýta þau tækifæri sem árið 2021 færir okkur. MENNTA- OG MENNINGARSVIÐ Starfsfólk mennta- og menningarsviðs skilaði einstaklega góðri vinnu á árinu í gegnum innri skipulagsbreytingar og undirbúning nýrra verkefna. Áskoranir og viðbrögð í tengslum við Covid-19 faraldurinn urðu til þess að vinnuálag á menntaog menningarsviði jókst tímabundið og ný og áður óþekkt úrlausnarefni komu inn á borð, bæði í umsýslu innlendra sjóða og í alþjóðasamstarfi sviðsins. Er óhætt að fullyrða að skilvirkni, seigla og sveigjanleiki starfsfólks hafi skipt sköpum í hve vel tókst að leysa verkefni ársins.
Af öðru Evrópusamstarfi sem sviðið hefur umsjón með má nefna COST sem Ísland hefur tekið þátt í allt frá árinu 1991. Á árinu var opnað fyrir þátttöku í 45 nýjum COST verkefnum. Þar er um að ræða stuðning fyrir vinnustofur og tengslamyndun sem oft hefur reynst stökkpallur inn í frekara rannsóknasamstarf. Norrænt samstarf er einnig nokkuð umfangsmikið, en það felst í því að kynna tækifæri á vegum NordForsk, norræna rannsóknaráðsins, og taka þátt í samfjármögnun nokkurra verkefna á vegum NordForsk sem hafa skilað góðum ávinningi fyrir íslenskt rannsóknasamfélag. Jafnframt sér Rannís um styrkveitingar úr tvíhliða samstarfi milli Íslands og Noregs undir heitinu Arctic Research and Studies, sem fjármagnað er af utanríkisráðuneytum ríkjanna og er ætlað að styðja við samstarf þjóðanna í rannsóknum á norðurslóðum.
Mennta- og menningarsvið hefur umsjón með þremur samstarfsáætlunum ESB: Erasmus+ á sviði menntunar, æskulýðsmála og íþrótta; European Solidarity Corps fyrir sjálfboða- og samfélagsverkefni ungs fólks og Creative Europe á sviði menningar og kvikmyndagerðar. Árið markaði síðasta starfsár yfirstandandi sjö ára tímabils þeirra, auk þess sem undirbúningur að næstu kynslóð áætlana fyrir árin 2021–2027 var í fullum gangi.
Rannís hefur undanfarin ár lagt áherslu á aukið samstarf um rannsóknir og þróunarstarf á norðurslóðum en áhugi alþjóðasamfélagsins á málefnum norðurslóða hefur aukist mikið. Rannís rekur skrifstofu Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC) á Akureyri og taka starfsmenn sviðsins þátt í samstarfsnetinu EU-PolarNet2, sem styrkt er af rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins, auk þess að sitja í stjórn IASC og European Polar Board. Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndin í samvinnu við Háskólann á Akureyri skipulagði mjög stóran viðburð, Vísindaviku norðurslóða (ASSW) en viðburðurinn var hluti af formennskuáætlun Íslands í Norðurskautsráðinu.
Heimsfaraldur Covid-19 varð þess valdandi að framlengja þurfti umsóknarfresti í Erasmus+ og European Solidarity Corps og veita umsækjendum og verkefnastjórum aukna þjónustu vegna breyttra forsenda í alþjóðasamstarfi sem krafðist sveigjanleika af þeim völdum. Veiran hafði ekki síst áhrif á ferðir í tengslum við nám og þjálfun og samstarfsverkefni á öllum sviðum og þurfti starfsfólk að bregðast fljótt við fordæmalausum áskorunum. Samhliða þessu var meira fjármagn til úthlutunar en nokkru sinni áður en viðbótarfjárveiting vegna Covid-19 kom til. Þrátt fyrir heimsfaraldur var eftirspurn í mennta- og æskulýðssamfélaginu mikil og í heild var úthlutað rúmlega 1.800 m.kr. sem er meira en hefur áður verið úthlutað.
Á árinu var undirbúið að Rannís tæki við rekstri Enterprise Europe Network, sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur rekið með stuðningi Evrópusambandsins um margra ára skeið. Gengið var frá samkomulagi um það við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og tók Rannís við verkefninu um áramótin 2020/2021.
Undirbúningur nýrra áætlana fór einnig öðruvísi en ætlað var, þar sem samþykkt fjárlaga ESB til næstu sjö ára frestaðist í sífellu þar sem sambandið þurfti jafnharðan að bregðast við faraldrinum. Á haustmánuðum bárust loks þær jákvæðu fréttir að áætlanirnar hefðu verið samþykktar og munu framlög til þeirra hækka talsvert. Þannig mun Erasmus+ hafa 25 milljarða evra úr að spila,
Af framangreindu má sjá að árið 2020 var mjög viðburðaríkt. Á fyrri hluta ársins standa viðbrögð stjórnvalda við Covid-19 upp úr, en fjárveitingar
16
European Solidarity Corps rúman milljarð evra og Creative Europe fær 2,5 milljarða evra til umráða.
áætlana snemma á árinu 2021 og taka saman skýrslu um árangur Íslendinga í þeim áætlunum sem renna sitt skeið í árslok 2020.
Norrænt samstarf var einnig fyrirferðarmikið á árinu en mennta- og menningarsvið Rannís hefur nú yfirumsjón með Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar, fyrir hönd allra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Áætlunin skiptist í fimm undiráætlanir og fer Ísland líka með umsýslu tungumálahluta hennar. Á árinu var úthlutað úr Nordplus um 10 milljónum evra til 362 verkefna og samstarfsneta. Alls bárust 500 umsóknir og samanlögð heildarupphæð styrkumsókna var 21 milljón evra sem er meira en tvöfalt það sem Nordplus hefur til úthlutunar. Innan Nordplus þurfti einnig að bregðast við áskorunum sem komu upp í rekstri verkefna í tengslum við faraldurinn og var leitað allra leiða til að veita verkefnastjórum sem mestan sveigjanleika og skilning þegar kom að framkvæmd verkefna og nýtingu styrkja. Á árinu var opnuð ný og glæsileg heimasíða Nordplus áætlunarinnar www.nordplusonline.org og leiddi starfsfólk yfirumsjónarteymis Nordplus á sviðinu þá vinnu fyrir hönd allra þátttökulanda áætlunarinnar.
REKSTRARSVIÐ Hlutverk sviðsins er umsjón með fjármálum, bókhaldi og rekstri skrifstofu Rannís ásamt mannauðsmálum, gagna- og gæðastjórnun, samskipta- og kynningarmálum, móttöku viðskiptavina og rekstri mötuneytis Rannís. Árið 2020 er og verður eftirminnilegt fyrir margra hluta sakir. Í upphafi árs færði Rannís bókhaldið úr Navision yfir í Orra og var í innleiðingarfasa fyrir Office 365 í svokölluðum skýjageira sem um 70 ríkisstofnanir samnýta. Gert hafði verið ráð fyrir þessum breytingum og þær undirbúnar. Þegar Covid-19 heimsfaraldurinn skall á þá reyndi verulega á innleiðingu beggja kerfa sem og almennt starf innan Rannís. Vinnustaðir voru að lokast og þjónustuaðilar Rannís, sem meðal annars áttu að sjá um fræðslu, máttu aðeins þjónusta viðskiptavini úr fjarlægð, símleiðis eða í gegnum fjarfundabúnað. Skrifstofa Rannís var lokuð viðskiptavinum og stór hluti starfsfólks var í fjarvinnu heima hjá sér í mun meira mæli en áður hafði tíðkast. Í einu vetfangi þurfti að uppfæra fundarbúnað, fjölga fjarfundaleyfum í Zoom því á þeim tíma var sameiginlegi skýjageiri ríkisins sem Rannís átti að verða hluti af, ekki tilbúinn. Hluti af innleiðingu nýs bókhaldskerfis var ferðakerfi sem átti að auðvelda utanumhald um ferðir og ferðauppgjör um það bil 200 fundarferða sem eru árlega farnar á vegum Rannís. Kerfið var sett upp í lok febrúar og þá tilbúið til notkunar en vegna Covid-19 var öllum fundarferðum aflýst og fjarfundir tóku við. Ferðatakmarkanir voru í gildi út árið 2020. Formleg innleiðing ferðakerfis bíður þar til ferðir á fundi erlendis hefjast á ný.
Mennta- og menningarsvið hefur umsjón með tólf innlendum sjóðum á sviði menntunar, menningar, æskulýðsmála og íþrótta. Stjórnvöld brugðust við Covid-19 faraldrinum með því að Alþingi samþykkti ályktun um sérstakt tímabundið fjárfestingarátak til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu og fólst stór hluti þess í því að ákveðið var að veita styrki til átaksverkefna á sviði lista og menningar. Þetta þýddi aukið álag í starfsemi sviðsins, einkum þeirri sem sneri að menningarsjóðum. Þannig auglýsti Launasjóður listamanna á vormánuðum 600 mánaða auka-úthlutun og 95 m.kr. var veitt aukalega til 30 verkefna atvinnuleikhópa og sviðslistamanna. Auk þess var veitt 81 m.kr. úr átaksverkefni á vegum Tónlistarsjóðs og voru veittir styrkir til 162 verkefna. Aukaúthlutanir voru afgreiddar hratt og örugglega og mæddi þar sérstaklega á starfsfólki sem hefur umsjón með þessum sjóðum, sem leysti þessi verkefni með skilvirkum og jákvæðum hætti.
Á árinu 2020 voru farnar alls 56 millilandaferðir á fundi á vegum Rannís sem er um fjórðungur þeirra ferða sem farnar voru á árinu 2019. Vegna alvarleika heimsfaraldursins Covid-19 var starfsfólk hvatt til að endurmeta fundarferðir sem voru framundan og ráðlagt að takmarka þær. Í kjölfarið, eða í byrjun marsmánaðar, var hætt við 15 fundarferðir af 71 sem hafði þegar verið pöntuð. Erlendir samstarfsaðilar glímdu við sama vanda og fljótlega færðust fundirnir frá staðfundum yfir í fjarfundi.
Í tengslum við breytingar á skipuriti Rannís, sem ráðist var í eftir sumarleyfi, var innra skipulag sviðsins endurskoðað og innleitt teymisskipulag byggt á straumlínustjórnun (e. Lean management). Starfsfólk hefur einnig þurft að tileinka sér nýtt vinnulag og nýja tæknikunnáttu í tengslum við faraldurinn, bæði í alþjóðasamstarfi sem innlendri sjóðaumsýslu, sér í lagi í tengslum við fundi og annað samstarf, sem hefur færst nær alfarið yfir á netið. Framundan eru heilmörg ný tækifæri og aukið samstarf þegar ný kynslóð samstarfsáætlana ESB tekur við og þá fer vel á því að líta um öxl og fagna góðri uppskeru um leið og nýjum áætlunum verður hleypt af stokkunum. Fyrirhugað er að skipuleggja opnunarhátíð nýrra
Á vegum mennta- og menningarsviðs var farið í 24 fundarferðir, þar af 6 af ytri sérfræðingum; einnig voru farnar 24 fundarferðir á vegum alþjóðasviðs þar af 7 af ytri sérfræðingum og 4 fundarferðir á rannsókna- og nýsköpunarsviði. Engar ferðir voru á vegum rekstrarsviðs og greiningar- og hugbúnaðarsviðs. 4 ferðir voru farnar á vegum IASC eða 8 færri en árið á undan.
17
Ferðadagar starfsfólks og ytri sérfræðinga Rannís voru alls 205 og hver ferð var tæplega 3,6 dagar að meðaltali. Stystu ferðirnar tóku tvo daga en sú lengsta sjö.
Aftur fór öll afgreiðsla fram símleiðis, yfir netið og í gegnum fjarfundi. Það sama gilti um litla sem stóra innanhússfundi. Fyrirhuguð árshátíð Rannís frestaðist aftur og aftur og féll að lokum niður. Starfsmanna- og fréttafundir voru ýmist haldnir á „Zoom“ eða í „Teams“ og hin árlega jólagleði var haldin í gegnum fjarfundabúnað föstudaginn 4. desember með heimsendum veitingum, spurningakeppni og uppistandi.
Flestar ferðir sem eru farnar á vegum Rannís eru til að sækja fundi eða ráðstefnur vegna evrópskra og norrænna samstarfsáætlana. Stærsti hluti ferðanna er endurgreiddur af ESB; annað hvort með beinu framlagi sem bæði er fyrir vinnu og/eða kostnað í viðkomandi verkefni, eða í gegnum beina endurgreiðslu á ferðakostnaði fyrir utan vinnulaun. Millilandaferðir á vegum Rannís
2019
2020
109
24
78
24
Rannsókna- og nýsköpunarsvið
8
4
Rekstrarsvið
0
0
Mennta- og menningarsvið Alþjóðasvið
Greiningar- og hugbúnaðarsvið IASC Samtals ferðir
Í apríl þá opnaðist skýjageirinn fyrir Rannís og starfsfólk fór að nýta Office 365 og Teams-fundi í auknum mæli. Mikil áhersla var lögð á gott skipulag og fræðslu til starfsfólks um notkunarmöguleika hugbúnaðarins. Í lok ársins hófst þróun svokallaðra „hnappa“ eða smáforrita (apps) sem leysa eiga af hólmi ýmis innanhússeyðublöð. Á haustmánuðum hófst undirbúningur fyrir verkefnið Betri vinnutími sem snýst um styttingu viðveru samkvæmt ákvæðum kjarasamninga. Markmið Betri vinnutíma er að stuðla að umbótum í starfsemi ríkisstofnana, bæta vinnustaðamenningu og auka samræmingu vinnu og einkalífs án þess að draga úr skilvirkni og gæðum þjónustu. Vinnuhópur innan Rannís lagði fram tillögu sem hlaut samþykki starfsfólks og niðurstaðan var að frá og með 1. janúar 2021 yrði gerð tilraun til 9 mánaða með 36 tíma vinnuviku fyrir fullt starf og samsvarandi ívilnanir fyrir lægri starfshlutföll. Styttingin felur meðal annars í sér breytingu á skilgreindri viðveru, fyrirkomulagi matarog kaffitíma og endurskoðun innra skipulags með hagræðingu í huga.
0 12
4
207
56
Í kjölfar heimsfaraldursins setti Rannís fram aðgerðaráætlun um fjögur stig viðbragða gegn Covid-19 en áætlunin tók mið af reglum almannavarna, meðal annars voru notaðir samsvarandi litakóðar en þeir gáfu til kynna á hvaða aðgerðarstigi Rannís væri hverju sinni og hvernig við sem hópur ættum að mæta því. Skrifstofa Rannís er á þremur hæðum og samgangur starfsfólks á milli hæða var takmarkaður. Skrifstofurýmin voru sótthreinsuð daglega og starfsfólki var skipt upp í matarholl eftir hæðum. Starfsfólk sýndi ráðstöfununum góðan skilning og sýndi samhug sinn í verki.
Rannís innleiddi straumlínustjórnun á árinu með það að markmiði að bæta innra skipulag, efla teymisvinnu og bæta verklag. Stefnt er á að nýta möguleika Office 365 og tengdra forrita til að styðja við teymisvinnu og auka skilvirkni. Stafrænar lausnir verða skoðaðar sérstaklega til að auka vinnuhagræði, bæta gæði og geta mætt styttingunni með raunhæfum hætti. Það má segja að á árinu 2020 hafi Rannís tekið stafrænt stökk inn í framtíðina ekki síst fyrir tilstuðlan heimsfaraldurs sem setti heldur betur pressu á þessa framþróun. Við munum halda áfram að skoða stafrænar lausnir til að auka vinnuhagræði og bæta gæði en einnig er nauðsynlegt að þróa starfsemi Rannís til að geta mætt loftslagsstefnu stjórnvalda. Árið 2020 hefur kennt okkur að í sameiningu getum við tekist á við stórar áskoranir með því að hugsa í lausnum.
Í lok mars þá tilkynnti ríkisstjórnin efnahagsaðgerðir vegna Covid-19. Einn hluti aðgerðanna var sókn í nýsköpun sem fólst meðal annars í að auka styrkúthlutanir nokkurra sjóða sem Rannís hefur umsýslu með. Koma þurfti fjármagninu sem fyrst í vinnu og því þurfti hluti starfsfólks að fresta sumarorlofi til að áætlun stjórnvalda stæðist. Annar hluti aðgerðanna var atvinnuátak fyrir skólanema. Rannís bjó til fimm tímabundin störf á ólíkum sviðum og fengu þau samþykki Vinnumálastofnunar. Auglýst var eftir háskólanemum samkvæmt reglum átaksins og fimm nýliðar fengu sumarvinnu hjá Rannís og leystu þau öll verkefni sín með sóma. Skrifstofa Rannís var lokuð fyrir viðskiptavinum frá 24. mars og fram í byrjun júnímánaðar. Þegar smit minnkuðu í samfélaginu var skrifstofan aftur opnuð fyrir viðskiptavinum en mælst til að starfsfólk sinnti sem flestum erindum í gegnum tölvupóst, fjarfundi og símtöl. Þeir sem komu til Rannís þurftu að hafa grímu fyrir vitum sér og virða tveggja metra fjarlægðarmörkin. Skrifstofa Rannís var opin með þessum takmörkunum fram til 5. október en þá var lokað aftur og gilti sú ráðstöfun út árið.
Skjala- og gagnasafn Rannís Innleiðing á Office 365 frá Microsoft fór á fullt á vormánuðum og hentaði tímasetningin afar vel. Starfsfólk tók lausnunum fagnandi þar sem langflestir unnu heima vegna Covid-19. Starfsfólk fékk fræðslu í gegnum fjarfundi í Teams. Áður en Teams-lausnin var tekin í notkun voru
18
settar reglur um stofnun teyma og skipulag gagna innan þeirra sem tekur mið af skipulagi í skjalakerfi Rannís. Gagna- og gæðastjóri stofnar öll teymi og veitir starfsfólki ráðgjöf um uppbyggingu þeirra og skjalavistun.
sviðum á árunum 2019 og 2020. Svið
Staða stofnaðra mála 2017-2020
2017
Opin mál (samþykkt, í bið, í vinnslu)
3.696 2.869 3.886 7.326
2018
2019
Lokuð mál (hafnað, dregin til baka, lokið)
3.925 3.183
Fjöldi stofnaðra mála
7.621 6.052 4.792 9.067
615
296
Mennta- og menningarsvið
758
209
Alþjóðasvið
Ábyrgðarmanni teymis ber að tryggja að gögn teymisins sem snerta mál með efnislegum hætti, rati í skjalakerfi. Sviðsstjórar taka þátt í öllum teymum sem tilheyra þeirra sviði og hafa þannig yfirsýn. Reglurnar vöktu athygli meðal skjalastjóra og hélt gagna- og gæðastjóri erindi um þær meðal annars á fræðslufundi Félags um skjalastjórn.
Fj. veitinga 2019 Fj. veitinga 2020
Rekstrarsvið
Rannsókna- og nýsköpunarsvið
350
9
1.204
225
Greiningar- og hugbúnaðarsvið
0
IASC
42
0
ALLS
2.969
739
Greiningar- og hugbúnaðarsvið Þann 1. september 2020 var greiningar- og hugbúnaðarsvið stofnað. Þetta svið gengur þvert á fagsviðin og styður við starfsemi þeirra. Hlutverk sviðsins er þróun, rekstur og umsjón með umsókna-, fagráðs- og umsýslukerfum Rannís auk utanumhalds og framsetningar á tölfræðilegum gögnum sem vinna má úr umsóknum og úthlutunum. Sviðið sér auk þess um nýsmíði á öðrum þeim kerfum sem starfsfólk Rannís þarfnast til umsýslu með umsóknir og til að styðja sem best við störf sjóðsstjóra Rannís. Auknum umsvifum Rannís og kröfum samfélagsins hefur verið mætt með aukinni áherslu á upplýsingatækni. Allar umsóknir eru rafrænar, öll fagráðsvinna rafræn svo og umsýsla sjóðsstjóra og stjórna.
2020
906 1.741
Á árinu voru 9.067 mál stofnuð í GoPro en það er nær 90% fjölgun frá árinu á undan. Hluti af því skýrist af viðbótarframlagi ríkisstjórnarinnar til sjóða vegna Covid-19. Í árslok var búið að loka 1.741 máli og 7.326 voru opin. Skjalasafnið rúmar um 400 hillumetra af gögnum eða um það bil 6.000 skjalaöskjur. Í árslok voru öskjurnar orðnar 2.300. Gengið er frá skjölum í sýrufríar arkir og skjalaöskjur samkvæmt reglum Þjóðskjalasafns. Nýting fundarherbergja hjá Rannís Lokun skrifstofu Rannís hafði lítil áhrif á fjölda funda en mikil áhrif á fjölda veitinga sem þeim fylgja í hefðbundnu ári. Á árinu voru bókaðir 1.285 fundir í fundarherbergjum Rannís eða 40 færri en árið á undan. Flestir fundir voru bókaðir í september eða 206, í janúar 158 og í febrúar 154 enda voru þetta mánuðirnir sem skrifstofa Rannís var opin fyrir viðskiptavinum. Að meðaltali voru tæplega 5 fundir bókaðir á dag á árinu 2020 eða um 107 fundir á mánuði. Það vekur athygli að þrátt fyrir að skrifstofan hafi verið lokuð stóran hluta ársins fyrir viðskiptavinum að þá fækkaði bókuðum fundum aðeins um 40 á milli ára, auk þess sem mjög margir starfsmenn unnu heiman frá sér stóran hluta ársins. Starfsfólk á skrifstofunni hefur nýtt fundarherbergin einstaklega vel, líklega til að halda fjarfundi, fá næði og/eða til að uppfylla tveggja metra fjarlægðarmörkin sem gerð var krafa um.
Áhersla er lögð á að allar upplýsingar fari í gegnum „Mínar síður“ Rannís og stefnt er á að öll helstu samskipti tengd líftíma umsóknar, frá stofnun umsóknarinnar til loka samnings með tilheyrandi skýrslum, fari þar í gegn. Allir samningar munu verða með rafrænum undirskriftum. Greiningarvinna við þessi næstu skref hófst á árinu og verður forritun hrundið í framkvæmd árið 2021. Hafin er grunnvinna við að koma tölfræði úr gögnum Rannís á aðgengilegan máta til stjórnvalda sem og almennings með uppsetningu svokallaðs mælaborðs á vef Rannís. Vinna er hafin við að samræma öll gögn frá því umsóknir urðu rafrænar árið 2009 þannig að öll almenn tölfræði verði mun aðgengilegri en nú er. Vonandi sjáum við þessa viðbót við kerfi Rannís verða að veruleika árið 2021. Stefna Rannís til 2025 kveður á um að efla upplýsingakerfið og vera þar í fremstu röð og gerum við ráð fyrir að meginmarkmiðum hennar verði náð innan eins til tveggja ára, en í raun lýkur því starfi aldrei.
Fundarveitingar Á árinu voru framreiddar 739 veitingar á 92 fundum fyrir fundargesti á vegum Rannís, allt frá te eða kaffi með eða án meðlætis og upp í hádegisverði. Fundarveitingum pr. gest fækkaði um 75% frá 2019. Flestar fundarveitingarnar á árinu 2020 voru bornar fram í júní eða samtals 168. Frá janúar og til loka júnímánaðar voru 625 fundarveitingar bornar fram og frá júlí fram til áramóta voru þær 114. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir fjölda fundarveitinga eftir
Alls störfuðu sex einstaklingar á sviðinu í lok árs. Það er sviðsstjóri, fjórir við hugbúnaðargerð og einn við greiningarvinnu, auk tæknilegs ráðgjafa sem vinnur bæði við hugbúnaðargerð og greiningarþátt sviðsins. Einn af mikilvægustu kostum allra þessara einstaklinga er getan til að aðlaga sig að fjölbreyttum verkefnum og að geta gripið og unnið faglega öll þau verkefni sem þarf að vinna innan sviðsins, óháð því hvort þau tilheyri hugbúnaðarþróun eða greiningarvinnu. Vonandi ber okkur gæfa til að halda 19
2020
þessum öfluga hópi saman og að létta á álagi með frekari þróun gagna- og upplýsingakerfis.
Hagnýt Rannsóknarverkefni, Loftslagssjóð, Barnamenningarsjóð Íslands, Íþróttasjóð, Æskulýðssjóð og skattfrádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga. Um áramótin 2020/2021 voru enn örfáir sjóðir sem ekki voru komnir með nýtt fagráðskerfi, en þau kerfi verða kláruð árið 2021. Umsóknarkerfi fyrir Innviðasjóð og Markáætlun um samfélagslegar áskoranir voru gerð, auk þess sem umsóknarkerfin fyrir Nýsköpunarsjóð námsmanna, skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna og skattfrádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga voru endurskrifuð og uppfærð til að vera í takti við tímann og bæta upplifun umsækjenda.
Umsókna-, fagráðs- og upplýsingakerfi Rannís Þessi kerfi gegna margþættu hlutverki og má að mörgu leyti líta á þau sem hryggjarstykkið í starfsemi innlendra sjóða á vegum Rannís. Í fyrsta lagi taka umsóknakerfin við öllum umsóknum og öðrum rafrænum gögnum sem tengjast framgangi umsókna, fagráðskerfin halda utan um vinnu matsmanna, sem allir eru utan Rannís, og loks er upplýsingum veitt þaðan til stjórnvalda og almennings um styrki og starfsemi sjóða í vörslu Rannís eftir því sem við á.
Segja má að þessi stóraukni fjöldi umsókna sem barst Rannís á árinu, auk aukins fjölda bæði umsókna- og fagráðskerfa, hafi verið stór prófsteinn á virkni kerfanna undir áður óþekktu álagi, sem kerfi Rannís stóðust með miklum sóma.
Notendur kerfanna skipta þúsundum. Umsóknum fjölgaði mikið frá árinu áður, en heildarfjöldi umsókna um styrki á árinu 2020 var yfir 10 þúsund. Má rekja þetta til viðbragða stjórnvalda við heimsfaraldri Covid-19 þar sem til dæmis var bætt við sex aukaumsóknarfrestum hjá sjóðum í umsjón Rannís auk þess sem umsóknarfrestur hjá Rannsóknasjóði var framlengdur um þrjár vikur. Auk allra þeirra þúsunda umsækjenda sem unnu með kerfin var fjöldi matsmanna og stjórnarmanna, þetta eru bæði innlendir og erlendir aðilar, en þeir eru rúmlega 1.000.
YFIRLIT YFIR INNSENDAR UMSÓKNIR Í INNLENDA SJÓÐI 3500 3000 2500 2000 1500
Á árinu var haldið áfram með innleiðingu fagráðskerfa fyrir sjóði Rannís og voru kerfi þróuð og tekin í notkun hjá fagráðum fyrir Innviðasjóð, Markáætlun í samfélagslegri ábyrgð, Starfslaunasjóð sjálfstætt starfandi fræðimanna, Tækniþróunarsjóð: Sproti – Vöxtur – Markaðsstyrkur, Tækniþróunarsjóð:
1000 500 0
J
F
M
A
M
J
J
Á
S
O
Rannís í hnotskurn árið 2020
26
innlendir sjóðir
~ 15.000
einstaklingar sem njóta góðs af starfinu
6
10.000
erlendar samstarfsáætlanir
19
milljarða króna stuðningur
20
4.100
umsóknir
verkefnastyrkir
Öflug upplýsingamiðlun og stuðningur við stefnumótun
starfsmenn á fjórum sviðum
54
N
D
SJÓÐIR Yfirlitsmynd yfir umfang sjóða sem Rannís hefur umsjón með. SJÓÐIR OG ÁÆTLANIR Í UMSÝSLU RANNÍS
Fjárveiting í m.kr.
Sótt um í m.kr.
Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna (greitt frá fyrra ári)
3.943
Rannsóknasjóður – nýjar umsóknir
3.245
Árangurshlutfall umsókna
544
->
496
91%
382
381
78
20%
916
833
156
17%
5.610
5.186
92%
5.499
1.058
19% 13%
1.753 2.988
10.087
Tækniþróunarsjóður – framhaldsumsóknir Erasmus+
Fjöldi samþykktra umsókna
Úthlutað í m.kr.
Fjöldi innsendra umsókna
Rannsóknasjóður – framhaldsumsóknir Tækniþróunarsjóður – nýjar umsóknir
Fjöldi umsókna sem stóðust forkröfu
Árangurshlutfall í upphæðum
1.333 1.639
103
1.800
3.210
1.834
57%
156
154
110
71%
Listamannalaun
896
6.894
896
13%
2.934
2.934
603
21%
Nýsköpunarsjóður námsmanna
485
1.437
466
32%
1.181
1.181
358
30%
Innviðasjóður*****
404
900
340
38%
80
77
28
35%
Stuðningur við útgáfu bóka á Íslandi
400
398
398
*
922
922
922
*
Vinnustaðanámssjóður
245
348
348
*
238
235
235
*
Styrkir til atvinnuleikhópa
198
1.548
189
12%
295
295
50
17%
Loftslagssjóður
175
1.311
165
13%
212
203
32
15%
Tónlistarsjóður
158
696
146
21%
865
865
293
34%
Íslenskukennsla fyrir útlendinga
143
392
143
36%
23
20
20
87%
European Solidarity Corps
133
108
99
92%
19
19
13
68%
Barnamenningarsjóður Íslands
100
540
92
17%
112
112
42
38%
Jafnréttissjóður Íslands
100
460
92
20%
88
88
19
22%
Nordplus Nordens Sprog
91
225
113
50%
29
29
21
72%
Þróunarsjóður námsgagna
55
240
52
22%
114
102
31
27%
Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna
49
248
47
19%
88
82
15
17%
Arctic Research and Studies
46
33
28
85%
10
10
8
80%
Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara - SEF
42
41
20
49%
62
58
58
*
Hljóðritasjóður ***
41
225
37
16%
307
307
130
42%
Íþróttasjóður***
26
149
19
13%
145
124
89
61%
Æskulýðssjóður
9
31
10
32%
34
34
13
38%
**
104
100
41
39%
130
120
86
9.990
9.285
4.050
Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla***
**
Skattfrádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga ***** Samtals
15.772
40.630
16.503
Horizon 2020****
**
**
2.527
**
198
33
17%
Creative Europe
**
**
399
**
32
20
63%
Áætlanir sem úthluta beint til íslenskra aðila án milligöngu Rannís
Samtals
2.926
0
230
53
Heildarumfang sjóða og áætlana sem Rannís þjónustar
19.429
9.990
9.515
4.098
Miðað var við gengi evru 154,52 kr. * Árangurshlutfall umsókna á ekki við þar sem aðeins fyrirfram skilgreindir aðilar geta sótt um og fá úthlutað uppfylli þeir öll skilyrði. ** Upphæð sem sótt er um er ekki þekkt, eða á ekki við, og því ekki hægt að reikna árangurshlutfall í upphæðum. *** Í þessum sjóðum er miðað við fjárlög 2021. **** Tölur fyrir samninga undirritaða á árinu. *****Með COVID aukafjárveitingu. -> Umsóknir sem standast kröfur laga og reglugerða eru staðfestar til RSK. Tölurnar í töflunni eru námundaðar að heilli tölu. Fjöldi umsókna miðast við þær umsóknir sem berast (innsendar umsóknir). Auk þess er dálkur með fjölda umsókna sem stóðust forkröfur.
21
SKATTFRÁDRÁTTUR RANNSÓKNA- OG ÞRÓUNARVERKEFNA Í maí 2020 var gerð breyting á lögum nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Eftir breytinguna eiga nýsköpunarfyrirtæki, sem eru eigendur að rannsókna- og þróunarverkefnum og hlotið hafa staðfestingu Rannís, rétt á frádrætti frá álögðum tekjuskatti árin 2020 og 2021 (til endurgreiðslu 2021 og 2022) sem nemur 35% af útlögðum kostnaði vegna þessara verkefna í tilviki lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en 25% í tilviki stórra fyrirtækja. Hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti frá álögðum tekjuskatti er eftir breytinguna samtals 1.100 m.kr. hjá hverju fyrirtæki, þar af skal heimilt að telja til þeirrar fjárhæðar allt að 200 m.kr. vegna aðkeyptrar rannsóknar- eða þróunarvinnu.
hefur áætlað að heildarendurgreiðslan á árinu 2021 verði um 10.200 m.kr. vegna umsókna á árinu 2020, sem er nær tvöföldun frá fyrra ári. Árið 2020 var heildarendurgreiðsla skattfrádráttar rannsókna- og þróunarverkefna 5.186 m.kr. vegna verkefna sem unnin voru á árinu 2019. Sú fjárhæð skiptist þannig að 4.362 m.kr. voru greiddar út og 824 m.kr. gengu upp í tekjuskatt. RANNSÓKNASJÓÐUR Rannsóknasjóður bauð upp á fjórar styrktegundir: verkefnisstyrki, öndvegisstyrki, nýdoktorsstyrki og doktorsnemastyrki og höfðu umsækjendur val á milli sjö fagráða. Framlag ríkisins til Rannsóknasjóðs á fjárlögum var 2.470 m.kr. og hefur verið óbreytt síðan 2016. Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnar Íslands vegna heimsfaraldurs Covid-19 var fjármagni bætt við úthlutun styrkársins í maí sem nam 775 m.kr. þannig að heildarfjármagn sjóðsins varð 3.245 m.kr. Alls barst 381 umsókn í Rannsóknasjóð að þessu sinni, heldur fleiri en undangengið ár og hlutu 78 verkefni styrk eða 20.5% umsókna. Sótt var um 5.499 m.kr. og voru 1.058 m.kr. veittar eða 19% umbeðinnar upphæðar. Þessar tölur endurspegla styrkupphæð 1. árs styrktra verkefna.
Í tengslum við þessar lagabreytingar voru umsækjendur sem sendu inn umsóknir um framhaldsverkefni fyrir 1. apríl 2020 hvattir til að afturkalla umsóknir sínar og skila inn nýjum umsóknum fyrir þessi verkefni fyrir 1. október 2020. Í þessu fólst möguleiki fyrir umsækjendur að stokka upp í rannsókna- og þróunarverkefnum sínum og laga þau að breyttum forsendum í tengslum við Covid-19. Langflestir umsækjendur nýttu þá hvatningu sem fólst í lagabreytingunni og alls bárust því 542 nýjar umsóknir áður en fresturinn rann út 1. október, sem er um 2,5 falt fleiri umsóknir en áður höfðu borist á einum umsóknarfresti. Tveir umsækjendur völdu þó að halda sínum framhaldsumsóknum til streitu samkvæmt eldri útgáfu laganna.
Alls bárust 22 umsóknir um öndvegisstyrki og voru 2 verkefni styrkt. Í flokkinn verkefnisstyrkir bárust 211 umsóknir og voru 42 verkefni styrkt. Innsendar umsóknir fyrir nýdoktorsstyrki voru 57 og voru veittir 11 styrkir. Innsendar umsóknir fyrir doktorsnemastyrki voru 91 og hlutu 23 doktorsnemar styrk.
Á sama tíma var Rannís að þróa nýtt umsókna- og umsýslukerfi fyrir skattfrádráttinn. Nýja kerfið reyndist vel við umsýslu hins óvenjumikla fjölda umsókna, þó úrvinnslan hafi óhjákvæmilega tafist á tímabili vegna umfangs og innleiðingar á nýju kerfi. Lokaniðurstaðan er þó á svipuðum tíma og áður án þess að bætt hafi verið við starfsfólki við afgreiðslu umsókna. Rannís
Af 448 skráðum verkefnisstjórum í umsóknum voru 254 karlar (57%) og 194 konur (43%). Fleiri en einn verkefnisstjóri getur verið skráður á sama verkefni. Alls eru 54 karlar verkefnisstjórar í styrktum verkefnum (57%) og 41 kona (43%). Árangurshlutfall
SKATTFRÁDRÁTTUR VEGNA RANNSÓKNA- OG ÞRÓUNARKOSTNAÐAR m.k.r. 10.000
Hækkun á þaki
9.000 8.000
Skattfrádráttur fjárlög
7.000
Hækkun á þaki
Skattfrádráttur greiðslur
6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 -
2011
2012
2013
2014
2015
2016
22
2017
2018
2019
2020
2021
karla er 21% og árangurshlutfall kvenna 21%. Af 590 skráðum meðumsækjendum voru 339 karlar (57%) og 251 kona (43%). Alls eru 63 karlar (63%) og 37 konur (37%) meðumsækjendur í styrktum verkefnum. Árangurshlutfall karla er 19% en árangurshlutfall kvenna 15%.
var 15% á árinu. Skipting umsókna, styrkja og árangurshlutfall milli styrktarflokka má sjá í töflunni að neðan. Tækniþróunarsjóður – miðað við fjölda umsókna FLOKKAR*
Hér má sjá árangurshlutfall eftir fagráðum, bæði varðandi fjölda umsókna og veittra styrkja og upphæðir sem sótt var um og úthlutað var. Rannsóknasjóður – miðað við fjölda umsókna FAGRÁÐ
Sótt
Veitt
Raunvísindi og stærðfræði
55
13
23,6%
Verkfræði og tæknivísindi
58
13
22,4%
Náttúruvísindi og umhverfisvísindi
49
11
22,4%
Lífvísindi
47
9
19,1%
Klínískar rannsóknir og lýðheilsa
35
7
20,0%
Félagsvísindi og menntavísindi
81
14
17,3%
Hugvísindi og listir
56
11
19,6%
381
78
20,5%
Samtals
Árangurshlutfall
Sótt
Veitt
Raunvísindi og stærðfræði
815
188
23%
Verkfræði og tæknivísindi
955
210
22%
Náttúruvísindi og umhverfisvísindi
650
174
27%
Lífvísindi
793
139
18%
Klínískar rannsóknir og lýðheilsa
494
59
12%
1.062
1759
17%
730
113
16%
5.499
1.058
19%
Félagsvísindi og menntavísindi Hugvísindi og listir Samtals
Veitt
Árangurshlutfall
45
6
13%
Fræ
185
53
29%
Sproti
287
26
9%
Vöxtur/Sprettur**
229
26
11%
Markaðsstyrkir
136
18
13%
Samtals
882
129**
15%
* Alls bárust 34 umsóknir um einkaleyfisstyrki á árinu en ekki liggur fyrir hversu margar umsóknir um einkaleyfisstyrki munu að lokum skila sér í innlögn á einkaleyfisumókn til einkaleyfisstofa og fá greiðslu úr sjóðnum. **Til viðbótar fengu fjögur Eurostars verkefni, þrjú verkefni í ERA-Net BlueBio og tvö verkefni í ERA-Net Geothermica stuðning frá Tækniþróunarsjóði á árinu.
Sjóðurinn tekur þátt í Eurostars áætlun Evrópusambandsins og fengu fjögur verkefni stuðning í þeirri áætlun á árinu. Sjóðurinn tekur þátt í Blue Bioeconomy ERA-Net, sem fjallar um lífhagkerfi sjávar og ferskvatns, þar sem auglýst var eftir umsóknum um rannsókna- og þróunarverkefni. Þrjú samstarfsverkefni með íslenskri aðild hlutu styrk í áætluninni árið 2020 og í tveimur þeirra leiðir íslenskur aðili verkefnið. Aftur var auglýst eftir umsóknum árið 2020 og verður úthlutun á öðrum ársfjórðungi 2021. Sjóðurinn tekur jafnframt þátt í ERA-Net Geothermica sem er evrópskt samstarfsnet á sviði jarðorku. Tvö verkefni fengu styrk á árinu og leiðir íslenskur aðili annað þeirra.
Rannsóknasjóður – miðað við upphæðir í m.kr. FAGRÁÐ
Sótt
Hagnýt rannsóknaverkefni
Árangurshlutfall
ERASMUS+ OG EUROPEAN SOLIDARITY CORPS Starfsemi Landskrifstofu Erasmus+ og ESC á Íslandi gekk vel á árinu þrátt fyrir áskoranir tengdar heimsfaraldrinum og jókst eftirspurn eftir fjármagni um 49% milli ára. Einnig var mikil aukning í veittum styrkjum, eða 43%. Árangurshlutfall var áfram hátt og nam 61%.
Tölur eru námundaðar að heilli tölu.
TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐUR Tækniþróunarsjóður bauð upp á sjö styrktarflokka á árinu: styrki til hagnýtra rannsóknaverkefna, einkaleyfisstyrki, Fræ, Sprota, Vöxt, Sprett og markaðsstyrki. Sjóðurinn hafði 2.288 m.kr. til umráða samkvæmt fjárlögum en til viðbótar bættust 700 m.kr við framlag til sjóðsins vegna aðgerða í þágu nýsköpunar vegna áhrifa Covid-19 heimsfaraldursins. Sjóðnum bárust 916 umsóknir á árinu sem er 41% aukning frá fyrra ári. Umsóknafjöldi sem barst í styrktarflokknum Fræ næstum tvöfaldaðist milli ára en mikil aukning var í öllum styrktarflokkum að undanskildum hagnýtum rannsóknaverkefnum, sem var með umsóknarfrest snemma á árinu, og einkaleyfisstyrkjum. Í ljósi aðstæðna á árinu ákvað stjórn sjóðsins að flýta hefðbundnum umsóknarfresti að hausti frá 15. september fram til 15. júní. Með þessari aðgerð var úthlutun flýtt og afgreiddi sjóðurinn úthlutun ársins í ágúst. Í heildina var úthlutað tæplega 3 milljarða og fór heldur meira til framhaldsstyrkja en nýrra styrkja. Hlutfall úthlutunar af fjölda umsókna
Á vormánuðum var úthlutað rúmlega 800 m.kr. til 62 fjölbreyttra verkefna um nám og þjálfun og um sumarið bættust við 36 verkefni af ólíkum toga sem hlutu alls tæplega 700 m.kr. í styrki. Á haustmánuðum var tilkynnt um nýja tegund af samstarfsverkefnum sem ætlað er að bregðast við þeim aðstæðum sem upp hafa komið vegna Covid-19, annars vegar til að efla stafræna væðingu í menntamálum og hins vegar til að styrkja tengsl milli skapandi greina, menntunar og æskulýðsmála og fékkst nokkur viðbótarfjárveiting til þessa. Landskrifstofu bárust fjölbreyttar umsóknir um þessi mikilvægu málefni og hlutu 9 þeirra styrk. Í þessari lokaúthlutun ársins voru einnig veittir styrkir til 21 verkefnis til viðbótar. Heildarúthlutun beggja áætlana var þannig rúmlega 1.800 m.kr., en úthlutanir og samningar eru í evrum og er því miðað við meðalgengi ársins.
23
Erasmus+ og ESC miðað við fjölda umsókna FLOKKAR
Listamannalaun – miðað við fjölda mánaða
Sótt
Veitt
Sótt
Veitt
Árangurshlutfall
Skólar*
51
32**
63%
Starfsnám
Launasjóður tónskálda
1.457
190
13%
18
16
89%
Háskólar
21
17
81%
Launasjóður tónlistarflytjenda
1.295
180
14%
Fullorðinsfræðsla
10
9
90%
Launasjóður rithöfunda
2.848
555
19%
Æskulýðsstarf
56
36
64%
Launasjóður myndlistarmanna
3.233
435
13%
European Solidarity Corps
19
13
68%
697
50
7%
175
123
74%
1.646
190
12%
11.176
1.600
14%
Samtals
Árangurshlutfall
Launasjóður hönnuða Launasjóður sviðslista Samtals
*Leik-, grunn-, og framhaldsskólar. **Að auki 39 verkefni sem stýrt var af öðrum löndum.
Aukaúthlutun vegna átaksverkefnis í júní 2020 Ríkisstjórnin bætti 600 mánuðum við sjóðinn, 1.390 listamenn sóttu um í launasjóðinn. Listamannalaun fengu 278 listamenn og árangurshlutfall umsækjenda var 18,5%. Alls var sótt um 5.747 mánuði og er árangurshlutfall sjóðsins því um 10% þegar reiknað er eftir mánuðum.
Erasmus+ og ESC miðað við upphæðir í m.kr. FLOKKAR
Sótt
Veitt
Skólar*
686
458
67%
Starfsnám
540
389
72%
1.217
568
47%
Fullorðinsfræðsla
131
96
73%
Æskulýðsstarf
636
323
51%
European Solidarity Corps
108
99
92%
3.318
1.933
58%
Háskólar
Samtals
Árangurshlutfall
Listamannalaun - miðað við fjölda einstaklinga Fjöldi umsækjenda Fjöld listam.
*Gerðir voru samningar upp á 476 m.kr. sem er 18 m.kr. hærra en það sem veitt var í flokknum.
LISTAMANNALAUN Fjárveiting til starfslauna listamanna var um 930 m.kr. í tveimur úthlutunum í janúar 2020 og síðan aukaúthlutun vegna Covid-19 í júní 2020. Umsóknarfrestur í fyrri úthlutun var til 1. október 2019 og til 20. maí 2020 í þeirri seinni. Störfum úthlutunarnefndanna sex lauk í desember 2019 og síðan í júní 2020. Til úthlutunar voru 1.600 mánaðarlaun úr sex launasjóðum í janúar og síðan 600 mánaðarlaun úr sex sjóðum í júní 2020. Um verktakagreiðslur er að ræða og aðeins er greitt til einstaklinga.
Veitt
Árangurshlutfall
41
26%
Launasjóður tónlistarflytjenda
154
35
23%
Launasjóður rithöfunda
232
82
35%
Launasjóður myndlistarmanna
263
65
25%
Launasjóður hönnuða
87
7
8%
Launasjóður sviðslista
653
95
15%
1.544
325**
21%
Samtals
5
5%
353
70
20%
Rithöfundar
279
78
28%
Sviðslistamenn
256
36
14%
Tónlistarflytjendur
181
34
19%
Tónskáld
217
55
25%
1.390
278
18.5%
Fjöldi mánaða Mánuðir úthlutun Hönnuðir
Árangurshlutfall
454
19
4%
Myndlistarmenn
1.667
163
10%
Rithöfundar
1.256
208
14%
Sviðslistamenn
661
71
11%
Tónlistarflytjendur
768
68
9%
Tónskáld
941
71
8%
5.747
600
9.3%
Alls
STUÐNINGUR VIÐ ÚTGÁFU BÓKA Á ÍSLENSKU Í lok árs 2018 voru samþykkt lög með það að markmiði að efla útgáfu bóka á íslensku með því að veita bókaútgefendum tímabundinn stuðning í formi endurgreiðslu. Lögin öðluðust gildi 1. janúar 2019 og verða endurskoðuð í lok árs 2023. Framlag ríkisins til stuðnings við útgáfu bóka á íslensku er 400 m.kr. á ári. Með þessu er ríkissjóður að taka að sér að endurgreiða 25% af endurgreiðsluhæfum kostnaði sem fellur til vegna útgáfu á bókum á íslensku. Bókaútgefendur hafa níu mánuði frá útgáfu bókar til að senda inn umsókn til að sækjast eftir endurgreiðslu. Árið 2020 var fyrsta heila árið í starfsemi sjóðsins. Alls voru afgreiddar 922 umsóknir á árinu og nam endurgreiðslan alls rúmum 398 m.kr.
Listamannalaun – miðað við fjölda einstaklinga
155
104
Myndlistarmenn
Listamannalaun - miðað við fjölda mánaða
Skipting umsókna milli sjóða og árangurshlutfall var eftirfarandi: Sótt
Hönnuðir
Alls
Fyrir árið 2020 í janúar-úthlutun var sótt um alls 11.176 mánuði. Fjöldi umsækjenda var 1.544 og fengu 325 listamenn úthlutað launum. Einstaklingsumsóknir voru 942 og frá sviðslistahópum barst 101 umsókn. Úthlutað var beint til 233 einstaklinga og 20 sviðslistahópa. Starfslaun listamanna eru 407.413 kr. á mánuði.
Launasjóður tónskálda
Árangurshlutfall
INNVIÐASJÓÐUR Framlag ríkisins til Innviðasjóðs á fjárlögum lækkaði um 11 m.kr. á milli ára og var 279 m.kr. fyrir árið 2020. Vegna Covid-19 var í maí veitt 125 m.kr.
*1.544 einstaklingar í 1.043 umsóknum. **325 einstaklingar í 253 umsóknum.
24
ÍSLENSKUKENNSLA FYRIR ÚTLENDINGA Styrkir til íslenskukennslu fyrir útlendinga eru veittir einu sinni á ári samkvæmt reglugerð sem samþykkt var í árslok 2015 og fer sú úthlutun fram í upphafi árs. Alls bárust 23 styrkumsóknir fyrir námskeiðahald á árinu 2020 en af þeim voru 20 sem stóðust umsóknarskilyrði sjóðsins. Heildarfjárbeiðnir námu alls 392,5 m.kr. og ákvað ráðuneytið að úthluta 143 m.kr. til að halda 452 námskeið fyrir alls 4.886 nemendur á árinu 2020.
aukaframlag sem bættist við úthlutun ársins. Sjóðurinn hefur 150 m.kr. í tekjur af leyfisgjaldi Happdrættis Háskóla Íslands en afgangurinn af rekstrarfé sjóðsins kemur úr ríkissjóði. Á árinu bárust alls 77 umsóknir í Innviðasjóð og voru 28 þeirra styrktar eða um 36% umsókna. Sótt var um tæplega 900 m.kr. en rúmlega 340 m.kr. voru veittar eða um 38% umbeðinnar upphæðar. Í boði voru fjórar styrktegundir: tækjakaupastyrkur, uppbyggingarstyrkur, uppfærslu- og viðhaldsstyrkur og aðgengisstyrkur. Flestar umsóknir bárust um styrk til tækjakaupa eða um 53% umsókna, en umsóknum um uppbyggingarstyrki fer fjölgandi og eru nú um 29% umsókna.
BARNAMENNINGARSJÓÐUR ÍSLANDS Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldis Íslands með ályktun Alþingis á hátíðarfundi 18. júlí 2018. Sjóðurinn nýtur 100 m.kr. framlags á ári fram til 2023. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er meðal annars horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Umsóknarfrestur var til 1. apríl og bárust 112 umsóknir. Í maí samþykkti forsætisráðherra aðra úthlutun sjóðsins og voru veittar 92 m.kr. til 42 verkefna og er árangurshlutfall umsækjenda 37,5%. Verkefnið Vatnsdropinn á vegum Kópavogsbæjar fékk hæsta styrkinn eða 6,5 m.kr. Úthlutun ársins var kynnt við hátíðlega athöfn í Hörpu á Degi barnsins, sunnudaginn 22. maí 2020 í boði forsætisráðuneytis.
Stjórn Innviðasjóðs vinnur að gerð vegvísis um rannsóknainnviði í samræmi við stefnu og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2017–2019. Í júní var auglýst eftir tillögum að verkefnum um rannsóknarinnviði á vegvísi og bárust 52 tillögur. Í kjölfarið voru umsækjendur hvattir til að skoða tillögurnar og íhuga hvort sameina mætti tillögur í færri og umfangsmeiri innviðakjarna. Í nóvember var síðan umsóknarfrestur vegna umsókna um að fá rannsóknainnviði á vegvísi. Var þar áberandi að hópar að baki tillögunum höfðu talað sig saman og alls bárust 28 umsóknir í kallið. Vegvísir mun verða gefinn út á fyrsta ársfjórðungi 2021. Innviðasjóður – miðað við fjölda umsókna Sótt
Veitt
Árangurshlutfall
Tækjakaup
41
10
24%
Uppbygging
22
10
45%
Uppfærsla/Rekstur
12
7
58%
Aðgengi
2
1
50%
Samtals
77
28
36%
Innviðasjóður – miðað við upphæðir í m.kr. Sótt
Veitt
Árangurshlutfall
Tækjakaup
496
80
16%
Uppbygging
269
155
57%
Uppfærsla/Rekstur
132
106
80%
Aðgengi
2,6
0,26
10%
Samtals
900
341
38%
VINNUSTAÐANÁMSSJÓÐUR Fjárveiting til Vinnustaðanámssjóðs var 245 m.kr. á fjárlögum 2020 og var það óbreytt fjárhæð frá árinu áður. Rannís hélt áfram samstarfi við Iðuna fræðslusetur og Rafmennt um tiltekna þætti í framkvæmd styrkveitinganna. Samtals var sótt um styrki fyrir 977 nema í 24.843 vikur á árinu 2020. Stjórn Vinnustaðanámssjóðs ákvað styrkupphæðina 14.000 kr. fyrir hverja viku í vinnustaðanámi. Nam því heildarúthlutun vilyrða á árinu 347,8 m.kr.
Barnamenningarsjóður styrkti verkefnið Vatnsdropann á vegum menningarhúsa Kópavogsbæjar. Vatnsdropinn er fyrsta alþjóðlega og þverfaglega menningarverkefnið sem tengir norrænar barnabókmenntir við þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Það byggir á vinnusmiðjum, sýningum og viðburðum fyrir almenning þar sem norræn skólabörn eru virkjuð í sýningarstjórn og í alla framkvæmd. Verkefnið er til þriggja ára og er samvinna eftirfarandi stofnana: H. C. Andersen safnsins í Óðinsvéum, Múmínsafnið í Tampere og Undralands Ilons í Haapsalu. Styrkupphæð er 6.5 milljónir. 25
JAFNRÉTTISSJÓÐUR ÍSLANDS Markmið Jafnréttissjóðs Íslands er að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Sjóðurinn var stofnaður í tilefni af 100 ára kosningarréttarafmæli íslenskra kvenna árið 2015 og var til 5 ára. Úthlutun ársins 2020 er því sú síðasta í þessari mynd. Alls bárust 88 umsóknir í sjóðinn og úthlutað var tæplega 92 m.kr. í styrki til 19 verkefna. Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, kynnti úthlutun sjóðsins við formlega athöfn í Hörpu á kvenréttindadeginum 19. júní.
NÝSKÖPUNARSJÓÐUR NÁMSMANNA Nýsköpunarsjóður námsmanna er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar. Alls bárust 189 umsóknir fyrir 281 háskólanema í hefðbundnum umsóknarfresti 5. febrúar. Sótt var um laun í 811 mannmánuði eða rúmlega 243 m.kr. Að þessu sinni úthlutaði sjóðurinn tæpum 106 m.kr. sem samsvarar 353 mannmánuðum til 126 nemenda í 74 verkefnum. Viðbótarfjármagni var veitt í sjóðinn vegna heimsfaraldurs Covid-19 og takmarkaðra atvinnutækifæra sumarið 2020 fyrir háskólanemendur í tengslum við hann. Ákveðið var því að opna aftur fyrir umsóknir og rann sá umsóknarfrestur út 8. maí. Þá bárust alls 992 umsóknir fyrir 1.401 háskólanema. Sótt var um laun í 3.980 mannmánuði eða rúmlega 1,2 milljarða króna.
STYRKIR TIL ATVINNULEIKHÓPA Styrkir til atvinnuleikhópa haldast í hendur við úthlutun listamannalauna og eru umsóknarfrestir miðaðir við sömu dagsetningu, 1. október og úthlutun í janúar. Félag íslenskra leikara tilnefndi sömu þrjá einstaklinga í leiklistarráð og í úthlutunarnefnd starfslaunasjóðs sviðslistafólks. Til hagræðingar þurfa leikhópar aðeins að fylla út eina umsókn til að sækja um atvinnuleikhópastyrk og í launasjóð listamanna. Fjárveiting til atvinnuleikhópa var 99 m.kr. á fjárlögum 2020 auk þess sem bætt var við öðrum 99 m.kr í tengslum við sérstakt átak stjórnvalda vegna Covid-19 faraldursins. Í október bárust 105 umsóknir frá 97 leikhópum. Sótt var um ríflega 625 m.kr. og var úthlutað tæpum 94 m.kr. til 20 verkefna. Árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna var 19% en sé miðað við upphæðir sem sótt er um þá er árangurshlutfall 15%.
Sjóðurinn úthlutaði í seinna skiptið um 360 m.kr. sem samsvarar 1.200 mannmánuðum til 426 nemenda í 284 verkefnum. Nýsköpunarsjóður námsmanna Sótt
Veitt
Árangurshlutfall
Fjöldi umsókna
1.181
358
30%
Upphæðir í m.kr.
1.437
466
32%
Fjöldi nemenda
1.682
552
33%
Mannmánuðir
4.791
1.553
32%
MARKÁÆTLUN Markáætlun er opinn samkeppnissjóður sem starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir (nr. 3/2003 með áorðnum breytingum). Áherslur áætlunarinnar eru ákvarðaðar af Vísinda- og tækniráði, en hún er fjármögnuð af mennta- og menningarmálaráðuneyti. Á árinu 2020 voru í gangi tvær markáætlanir:
Auglýst var eftir umsóknum í annað sinn að vori í tengslum við sérstakt átak stjórnvalda vegna Covid-19 og bárust 190 umsóknir og sótt var um ríflega 923 m.kr. Veitt var 95 m.kr. til 30 verkefna og hlutu tíu af þeim verkefnum viðbótarstyrki vegna seinkunar og tafa síðvetrar. Árangurshlutfall umsækjenda var 15,8% en 10,2% umsóttra upphæða.
Markáætlun um samfélagslegar áskoranir Auglýst var eftir umsóknum um verkefni á þremur forgangssviðum sem Vísinda- og tækniráð ákvað: • Umhverfismál og sjálfbærni • Heilsa og velferð • Líf og störf í heimi breytinga Umsóknarferlið var í tveimur þrepum og lauk með vali á sjö verkefnum sem var boðið að ganga til samninga sem ekki var lokið fyrr en á fyrsta ársfjórðungi 2021. Heildarúthlutun til þriggja ára mun nema um 700 m.kr.
NORDPLUS Árið 2020 bárust 500 umsóknir um Nordplus styrki og hlutu 362 þeirra brautargengi. Úthlutunarhlutfall umsókna var 72% sem er aðeins yfir meðaltali. Úthlutunarhlutfall fjármagns var 48%. Alls var úthlutað 10,2 milljónum evra til 2.785 skóla, stofnana, samtaka og fyrirtækja á öllum Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og sjálfsstjórnarsvæðunum Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Íslenskar stofnanir stýrðu 28 af þeim verkefnum sem fengu styrki. Því til viðbótar voru 183 verkefni sem stýrt var af öðrum löndum þar sem íslenskar stofnanir tóku þátt. Ísland hefur umsjón með Nordplus Sprog tungumálahluta áætlunarinnar og bárust 29 umsóknir í þann hluta sem er nokkuð yfir meðallagi.
Markáætlun í tungu og tækni Auglýst var eftir umsóknum um styrki fyrir 2020–2023 í lok ágúst og var umsóknarfrestur í október. Úthlutað verður 2021. TÓNLISTARSJÓÐUR Fjárveiting til tónlistarsjóðs á fjárlögum 2020 var 72 m.kr. Tveir umsóknarfrestir voru annar að hausti og hinn að vori, fyrri frestur 2. nóvember 2019 og sá síðari 2. maí 2020. 26
Sjóðnum bárust 325 umsóknir að heildarupphæð 296 m.kr. Heildarúthlutun var 65 m.kr. til 129 verkefna (þar af 8 samningsbundin verkefni til 3 ára).
Í lok árs höfðu 418 kennarar sótt sumarnámskeiðin sem skýrist af því að 11 námskeiðum var aflýst vegna Covid-19, þ. á m. öllum þremur sem áttu að fara fram erlendis. Af námskeiðum sem fram fóru voru 9 haldin hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og 6 hjá öðrum stofnunum. Heildarupphæð styrkja til sumarnámskeiða að loknum uppgjörum nam 10,3 m.kr. á árinu. 32 umsóknir bárust um gestafyrirlesaraog ráðstefnustyrki á árinu frá samtals 19 stofnunum, 10 faggreinafélögum og 9 skólum. Var sótt um styrki fyrir hönd 48 einstaklinga, 16 gestafyrirlesara og 32 ráðstefnuþátttakenda fyrir alls 9,3 m.kr. og fengu allar umsóknir úthlutun. Mikil fækkun var á umsóknum um ráðstefnu- og gestafyrirlesarastyrki enda þurfti að fresta mörgum þeirra ferða sem voru áætlaðar fyrr á árinu vegna Covid-19. Í lok ársins ákvað stjórn sjóðsins að nýta umframfé í sjóðnum til að veita styrk fyrir stóru námskeiði á vegum Skólameistarafélags Íslands, Kennarasambands Íslands og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Námskeiðið er ætlað völdum kennurum úr öllum framhaldsskólum landsins og er áætlað að framkvæmd þess hefjist á fyrri hluta árs 2021.
Aukaúthlutun vegna átaksverkefnis í maí 2020 Ríkisstjórnin samþykkti á vordögum sérstaka 86 m.kr. fjárveitingu vegna heimsfaraldurs Covid-19. Umsóknarfrestur var til 8. maí 2020, 540 umsóknir bárust og sótt var um 400 m.kr. Veitt var úr sjóðnum 81 m.kr. til 162 verkefna sem er 33% árangurshlutfall. ÞRÓUNARSJÓÐUR NÁMSGAGNA Fjárveiting til Þróunarsjóðs námsgagna nam tæplega 55 m.kr. á árinu 2020 og var óbreytt frá árinu áður. Stjórn sjóðsins ákvað að skipta styrkumsóknunum í tvennt líkt og í fyrri úthlutunarlotu. Áfram var hægt að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 2 m.kr. en einnig var hægt að sækja um þróunarog útgáfustyrk fyrir allt að 4 m.kr. Ákveðið var að veita að hámarki tveimur umsóknum þennan hámarksstyrk, að settum skilyrðum. Sjóðnum bárust 104 umsóknir og námu samanlagðar fjárbeiðnir um 239,6 m.kr. Alls féllu 77 umsóknir undir forgangsatriði ársins sem voru þrjú: 1) Námsgögn sem styðja við aðlögun og íslenskunám innflytjenda. 2) Námsgögn sem miða að markvissri eflingu orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum náms greinum. Sérstaklega er horft til íslensku, náttúru og stærðfræði. Námsgögnin þurfa að höfða til áhugahvatar hópa sem standa höllum fæti. 3) Námsefni sem styður við félagsfærni nemenda með áherslu á þátttöku í samfélagi, sjálfsmynd og líðan. Alls féllu 27 umsóknir undir önnur áhersluatriði. Styrkir voru veittir til 31 verkefnis á árinu 2020 fyrir alls 52,2 m.kr. Meðalstyrk upphæð nam 1,68 m.kr.
HLJÓÐRITASJÓÐUR Fjárveiting til sjóðsins á árinu var 41 m.kr. Á árinu bárust samtals 307 umsóknir um hljóðritun tónlistar að heildarupphæð 225 m.kr. Sótt var um í tveimur umsóknarlotum með umsóknarfresti 15. mars og 15. september. Heildarupphæð styrkja var 37 m.kr. til 130 verkefna. Árangurshlutfall umsækjenda er 42%. ÍÞRÓTTASJÓÐUR Á fjárlögum 2021 voru 22,2 m.kr. til ráðstöfunar úr Íþróttasjóði. Auk þess gat sjóðurinn úthlutað fjármunum vegna eldri styrkja sem höfðu ekki verið nýttir. Þar að auki bættust 4 m.kr. við fjárveitinguna sem var hlutdeild Íþróttasjóðs af hagnaði Íslenskra getrauna á árunum 2014–2018. Einn umsóknarfrestur var og bárust 124 umsóknir að upphæð 149,2 m.kr. Að tillögu íþróttanefndar ákvað mennta- og menningarmálaráðherra að úthluta styrkjum til 89 verkefna að upphæð 26 m.kr. Þar af fengu 47 verkefni styrk til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana fyrir 10,2 m.kr., 36 fræðslu- og útbreiðsluverkefni fengu styrk upp á 10 m.kr. og fimm verkefni vegna rannsókna í íþróttafræðum upp á 5,7 m.kr. Meðalstyrkur var rúmlega 290.000 kr. sem er hækkun frá fyrra ári, en samt sem áður lægstu styrkir sem Rannís veitir.
STARFSLAUNASJÓÐUR SJÁLFSTÆTT STARFANDI FRÆÐIMANNA Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna styrkir eingöngu ritun fræðirita á íslensku, einn opinberra sjóða á Íslandi. Alls bárust 82 umsóknir í sjóðinn. Sótt var um starfslaun til 612 mánaða eða um 248 m.kr. Til úthlutunar voru 48 milljónir og veittir voru 15 styrkir úr sjóðnum og voru um 18% umsókna styrktar. SAMSTARFSNEFND UM ENDURMENNTUN FRAMHALDSSKÓLAKENNARA – SEF Venju samkvæmt var boðið upp á tvær tegundir umsókna til Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara á árinu, annars vegar fyrir sumarnámskeið og hins vegar fyrir gestafyrirlesara og ráðstefnustyrki. Sótt var um styrk fyrir 30 sumarnámskeið á árinu en fimm umsóknanna voru dæmdar ógildar. Sótt var um námskeið fyrir alls 1.853 kennara en þessi háa tala skýrist af því að sótt var um styrki til að halda tvær stórar ráðstefnur.
ÆSKULÝÐSSJÓÐUR Fjárveiting til Æskulýðssjóðs var rúmlega 9 m.kr. á fjárlögum 2020. Auk þess gat sjóðurinn úthlutað fjármunum vegna eldri styrkja sem höfðu ekki verið nýttir. Umsóknarfrestir voru tveir, 15. febrúar og 15. október. Alls bárust 34 umsóknir sem er 14 umsóknum færra en á síðasta ári, en upphæðin sem sótt var um var 31,2 m.kr. Styrkt voru 13 verkefni að upphæð um 9,7 m.kr. sem er rúmlega 27
2020
5% hækkun frá fyrra ári. Meðalstyrkur var um 746.000 kr. á verkefni sem er hækkun frá fyrra ári.
130 umsóknir; 120 umsóknir hafa verið afgreiddar, 72% voru samþykktar og 28% hafnað. Flestar umsóknir koma frá fyrirtækjum, 92 umsóknir eða 71%, 25 frá háskólum eða 19% og 13 eða 10% komu frá stofnunum, sjúkrahúsum eða sjálfseignarstofnunum. Karlar eru 78% umsækjenda, 29% umsækjenda eru með doktorspróf og 45% með meistarapróf. Umsækjendur koma frá 31 landi, flestir eru Íslendingar sem hafa verið starfandi erlendis (21%) en jafnmargir frá Indlandi, 7% eru frá Bandaríkjunum og 5% eru frá Stóra-Bretlandi svo dæmi séu tekin.
NÁMSORLOF KENNARA OG STJÓRNENDA FRAMHALDSSKÓLA Alls bárust 104 umsóknir um námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla á árinu en umsóknirnar gilda fyrir veturinn 2021–2022. Alls sóttu 94 framhaldsskólakennarar um orlof í eigin nafni en 10 umsóknir bárust frá skólum fyrir hönd kennara. Nefndin úthlutaði alls 39 stöðugildum til 41 einstaklings, 37 heilum orlofum og fjórum hálfum; 33 stöðugildi fóru til kennara með einstaklingsumsóknir og 7 stöðugildum var úthlutað til kennara í gegnum skólaumsóknir. Að þessu sinni fengu 25 konur námsorlof og 16 karlar. Meðalaldur orlofsþega var rúmlega 56 ár og meðalstarfsaldur þeirra var 22,5 ár.
LOFTSLAGSSJÓÐUR Í maí var í fyrsta sinn úthlutað úr Loftslagssjóði en umsóknarfrestur var í janúar. Boðið var upp á tvær styrktegundir, annars vegar styrki til kynningar og fræðslu um loftslagsmál og hins vegar styrki til nýsköpunarverkefna. Þeir eru hugsaðir meðal annars til að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við innleiðingu á tæknilausnum og hönnun. Sótt var alls um 1,3 milljarða og veittar alls um 165 m.kr. eða um 13%. Alls bárust 203 gildar umsóknir í Loftslagssjóð og voru 32 þeirra styrktar eða um 16% umsókna. Alls voru 10 nýsköpunarverkefni styrkt og 22 kynningar- og fræðsluverkefni, en styrkir eru veittir til eins árs. Auglýst var á ný eftir umsóknum í október og umsóknarfrestur var í desember en úthlutað verður 2021.
SKATTFRÁDRÁTTUR FRÁ TEKJUM ERLENDRA SÉRFRÆÐINGA Á árinu 2016 var lögfest frádráttarheimild fyrir erlenda sérfræðinga sem eru ráðnir til starfa hér á landi vegna sérþekkingar sinnar og reynslu. Markmið laganna er að gera fyrirtækjum auðveldara að fá til sín sérfræðinga til að ekki þurfi að fara með viðkomandi starfsemi úr landi. Skilyrði er meðal annars að viðkomandi búi yfir þekkingu eða reynslu sem ekki er fyrir hendi hér á landi eða einungis í litlum mæli. Rannís rekur umsóknarkerfi fyrir nefnd sem afgreiðir umsóknirnar og tilkynnir ríkisskattstjóra niðurstöðuna. Alls bárust á árinu 2020, heilar
UMSÓKNIR OG ÚTHLUTANIR ÚR SJÓÐUM OG ÁÆTLUNUM Í UMSÝSLU RANNÍS Fjárveiting og úthlutanir
Fjárveiting í m.kr
15.772
Sótt um í m.kr.
40.630
Fjöldi umsókna og samþykktar umsóknir
Úthlutað í m.kr.
Fjöldi innsendra umsókna
16.503
9.990
28
Fjöldi umsókna sem stóðust forkröfu
9.285
Fjöldi samþykktra umsókna
4.050
ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF Alþjóðlegt samstarf er umfangsmikið í starfsemi Rannís og mikilvægur þáttur í daglegu starfi. Evrópskt og norrænt samstarf er stærstur hluti alþjóðlegs samstarfs og hefur hlutverk Rannís þróast í þá átt að verða helsti þjónustuaðilinn á Íslandi við formlegt alþjóðlegt samstarf á málefnasviðum stofnunarinnar. Rannís sinnir nú umsýslu með fimm helstu áætlunum sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samningsins.
endanlegar heildartölur um sókn og árangur íslenskra aðila í Horizon 2020 liggja ekki fyrir. Við ritun ársskýrslu var staðan þannig að íslenskir aðilar höfðu í heildina hlotið styrki til 284 verkefna sem hafa skilað rúmum 130 milljónum evra í styrkveitingar. Árangurshlutfall Íslands í heildina er nærri 20% en meðaltal árangurshlutfalla í heild fyrir öll þátttökulöndin er um 12%. Ef litið er eingöngu til ársins 2020, með þeim fyrirvara að enn á eftir að birta einhverjar niðurstöður, þá hlutu 33 verkefni með 42 íslenskum þátttakendum styrki að upphæð alls 2.500 m.kr. Flest þeirra verkefna sem hlutu styrk á árinu tilheyra undiráætlunum á sviði umhverfismála og orkurannsókna, auk þess sem jöfn og góð þátttaka var í áætlun um fæðuöryggi, landbúnað og sjávarútveg. Velgengni íslenskra nýsköpunarfyrirtækja heldur einnig áfram innan undiráætlunar sem ætluð er litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Mikilvægt er að hafa í huga, að þrátt fyrir gott gengi íslenskra aðila þegar kemur að styrkveitingum úr alþjóðlegum samkeppnissjóðum eins og Horizon 2020 og fleiri, þá er það ekki síst aðgangur að öflugu samstarfi í rannsóknum og nýsköpun sem skiptir máli fyrir íslenskt samfélag og hefur jákvæð áhrif til lengri tíma.
Helstu áætlanir sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samningsins Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins Erasmus+ mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun Evrópusambandsins European Solidarity Corps áætlun Evrópusambandsins um sjálfboðaliða- og samfélagsverkefni Creative Europe menningar- og kvikmyndaáætlun Evrópusambandsins Uppbyggingarsjóður EES rannsóknir og nýsköpun, menntun og menning
EVRÓPSKAR SAMSTARFSÁÆTLANIR Horizon 2020 Árið 2020 var sjöunda og síðasta starfsár núverandi kynslóðar Evrópuáætlana sem Ísland tekur þátt í og hefur íslenskt vísinda- og nýsköpunarsamfélag tekið virkan þátt í Horizon 2020 allt frá því áætluninni var hleypt af stokkunum árið 2014. Á árinu voru til ráðstöfunar umtalsverðir fjármunir auk þess sem bætt var við fé og umsóknarfrestum í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn. Enn er verið að vinna úr umsóknarfrestum ársins 2020 þannig að
Samstarf landstengla Horizon 2020 Rannís tekur virkan þátt í evrópskum samstarfsnetum landstengla hinna ýmsu undiráætlana Horizon 2020, en verkefnin miða að því að styðja við og styrkja samstarf landstengla, fræða þá um áætlunina og bæta færni þeirra svo þeir geti veitt umsækjendum, hagsmunaðilum og öðrum áhugasömum betri þjónustu. Samstarfsaðilarnir eru systurstofnanir í öllum þátttökulöndum Horizon 2020, en stofnanirnar
29
skiptast á að leiða samstarfið. Á árinu 2020 var starfstími samstarfsnetanna framlengdur vegna Covid-19 til að tryggja samfellu í þjónustunni og trygga yfirfærslu þekkingar og þjálfunar landstengla inn í nýja áætlun, Horizon Europe, sem tekur við árið 2021. Auk þess að taka virkan þátt í tíu samstarfsnetum helstu undiráætlana Horizon 2020, þá stýrir Rannís einu slíku samstarfsneti landstengla innan Vísinda í þágu samfélagsins og hefur leitt það samstarf allt frá árinu 2010. Þátttakendur í samstarfsnetinu, SiS.net, koma frá 15 öðrum löndum, allt frá Íslandi til Kýpur og frá Eistlandi til Egyptalands og var 2020 síðasta starfsárið.
Góður árangur í Creative Europe Árangur sjónvarpsþáttaframleiðenda var góður og hlutu þrjár af fjórum umsóknum styrki alls að upphæð 1.471.065 evrur sem skiptust þannig að Vesturport hlaut 500.000 evrur til framleiðslu á sjónvarpsþáttaröðinni Verbúð (e. Blackport), Glassriver fékk 482.000 evrur fyrir sjónvarpsþáttaröðina Vitjanir (e. Fractures) og Sagafilm fékk 489.065 evrur í styrk fyrir þáttaröðina Systrabönd. Auk þess hlaut kvikmyndin Dýrið sem Valdimar Jóhannsson leikstýrir 517.332 evrur til að dreifingar til 21 Evrópulands. Kvikmyndin verður frumsýnd árið 2021. Aðrir styrkir úr MEDIA hlutanum voru til dæmis til kvikmyndahátíða og til að styðja við sýningar evrópskra kvikmynda á Íslandi.
Erasmus+ Miklar áskoranir mættu styrkhöfum í Erasmus+ á árinu vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Stór hluti þeirra fjölmörgu sem stunduðu nám, kennslu eða þjálfun erlendis á vegum áætlunarinnar þegar faraldurinn kom upp í mars 2020 þurfti að snúa aftur til Íslands með stuttum fyrirvara. Mikil áhersla hefur verið lögð á að gera verkefnum kleift að halda áfram þrátt fyrir að ferðir milli landa hafi legið niðri mestallt árið. Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi hefur hvatt til þess að tæknin sé notuð eftir fremsta megni og einnig eiga verkefnisstjórar nú auðveldara með að framlengja verkefni svo að hægt sé að nýta ferðastyrki þegar ferðalög verða möguleg á ný.
Creative Europe Creative Europe styrkir skapandi greinar og eflir menningarlega fjölbreytni á sviði kvikmynda, lista og menningar. Áætlunin skiptist í tvennt, annars vegar í kvikmynda- og margmiðlunarhluta sem veitir styrki til framleiðslu og dreifingar á kvikmyndum, sjónvarpsefni og öðru margmiðlunarefni og hins vegar í menningarhluta sem styður við evrópskt samstarf í menningar- og listageiranum, svo sem bókmenntaþýðingar og tengslanet fagfólks í menningargeiranum.
Þrátt fyrir flóknar aðstæður hefur Landskrifstofa fundið vel fyrir bjartsýni meðal styrkhafa og miklum drifkrafti meðal umsækjenda, eins og eftirspurn ársins í Erasmus+ sýnir glöggt. Íslenskt mennta- og æskulýðssamfélag þekkir vel hversu miklu máli alþjóðasamstarf skiptir við að takast á við áskoranir samtímans, og þar er enduruppbygging í kjölfar heimsfaraldursins engin undantekning. European Solidarity Corps Árið 2020 var fyrsta heila árið sem Ísland tók þátt í European Solidarity Corps og má segja að áætlunin hafi fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir samfélagslega og borgaralega þátttöku ungs fólks. Áætlunin gerir ungu fólki kleift að sýna samstöðu í verki gegnum sjálfboðaliðastörf og styrkir einnig verkefni sem takast á við samfélagslegar áskoranir. Líkt og í Erasmus+ höfðu takmarkanir af völdum Covid-19 mikil áhrif á framkvæmd European Solidarity Corps á Íslandi eins og annars staðar í Evrópu. Ferðir sjálfboðaliða milli landa lágu niðri mestan hluta árs og í samfélagsverkefnum var gert hlé á framkvæmdinni. Engu að síður létu umsækjendur engan bilbug á sér finna og af þeim 19 umsóknum sem bárust var unnt að styrkja 13 ný verkefni.
Á starfstímabili Creative Europe 2014–2020 hafa 12 íslenskar menningarstofnanir eða félög þegið um 150 m.kr. í styrki til evrópskra samstarfsverkefna úr menningarhlutanum. Í kvikmynda- og margmiðlunarhluta áætlunarinnar hafa íslenskir aðilar náð einstökum árangri, en rúmur 1,3 milljarðar íslenskra króna hafa runnið til íslenska kvikmyndageirans á þessu sjö ára tímabili. Árið 2020 var það allra gjöfulasta í styrkupphæðum talið frá því að Íslendingar hófu þátttöku í MEDIA áætluninni árið 1992. Úthlutað var 350 m.kr. til íslenskra verkefna og fyrirtækja og er það einstakur árangur á tímum heimsfaraldurs. Árangurshlutfall Íslands var líka mjög hátt í evrópskum samanburði, en af 26 umsóknum sem sendar voru inn frá íslenskum aðilum á árinu fengu 17 verkefni úthlutun sem telst vera 65% árangurshlutfall.
30
Uppbyggingarsjóður EES Rannís fer með hlutverk þjónustuskrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES á málefnasviðum stofnunarinnar; rannsóknum, nýsköpun, menntun og menningu. Helstu markmið Uppbyggingarsjóðs EES eru annars vegar að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði innan Evrópska efnahagssvæðisins og hins vegar að styrkja tvíhliða tengsl á milli framlagaríkjanna þriggja, Íslands, Liechtenstein og Noregs, og styrkþegaríkjanna sem eru 15 talsins. Sjóðnum er því ætlað að styðja við samfélagslega innviði þeirra fimmtán ESB-ríkja sem lakar standa í efnahagslegu tilliti og greiðir Ísland til sjóðsins á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið ásamt hinum tveimur EES-ríkjunum sem standa utan Evrópusambandsins. Núverandi tímabil sjóðsins tekur til áranna 2014–2021, en alls eru um 1,5 milljarðar evra til ráðstöfunar.
eTwinning Árið 2020 hlutu 17 verkefni gæðamerki eTwinning en þótt það séu nokkuð færri verkefni en árið áður verður það að teljast góður árangur í ljósi Covid-19 faraldursins og áhrifa hans á skólastarf. Árið 2020 höfðu ellefu íslenskir skólar hlotið nafnbótina „eTwinning-skóli“, sem veitt er til tveggja ára, en þess má geta að það eru fleiri skólar en hin Norðurlöndin státa af. Á árlegu eTwinning-ráðstefnunni sem haldin var rafrænt í október, voru 500 þátttakendur en sex kennarar mættu fyrir Íslands hönd ásamt starfsmönnum Landskrifstofu Erasmus+. Einnig sendi menntaog menningarmálaráðuneytið fulltrúa á ráðstefnuna í fyrsta skipti, sem sat sérstaka vinnustofu fyrir fulltrúa menntamálaráðuneyta þátttökuríkja.
Rannís er samstarfsaðili í sex samstarfsáætlunum á fjórum mismunandi sviðum, það er á sviði rannsókna í Rúmeníu, nýsköpunar í Portúgal, menntunar í Póllandi, á sviði menningar í Tékklandi og á sviði menntunar og menningar í Ungverjalandi. Þátttaka íslenskra aðila í verkefnum styrktum af sjóðnum hefur verið umtalsverð, þá sérstaklega á sviði menningar- og menntaáætlana og ýmsir nýir möguleikar hafa opnast fyrir íslenska aðila t.a.m. á sviði nýsköpunar og rannsókna. Rannís veitir íslenskum aðilum stuðning og ráðgjöf gagnvart áætlunum Uppbyggingarsjóðs EES í öllum viðtökuríkjunum fimmtán á fagsviðum Rannís. Á árinu stóð Rannís fyrir, og tók þátt í, fjölda (mestmegnis rafrænna) kynninga-,tengslamyndunar- og samstarfsnefndarfunda á fagsviði rannsókna, nýsköpunar, menntaog menningarmála auk þess að veita leiðsögn til íslenskra þátttökuaðila í Uppbyggingarsjóði EES.
Euroguidance Norðurlöndin og löndin við Eystrasalt hafa þróað vefnámskeið fyrir náms- og starfsráðgjafa sem aðstoða fólk sem hefur áhuga á námi erlendis. Nemendur frá löndunum átta fara í gegnum ýmis konar efni um gagn af námi erlendis en jafnframt þær áskoranir sem því fylgja. Lögð er áhersla á samskipti þeirra þvert á landamæri. Tilraunahópur stundar nú námið sem boðið verður öllum sem áhuga hafa á árinu 2021.
COST Þátttaka í COST (European Cooperation in the field of Scientific and Technical Research) hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár, en COST er eitt elsta samstarf á sviði vísinda- og tæknirannsókna sem Ísland tekur þátt í, eða frá 1991. Nú taka 38 þjóðríki þátt í gegnum beina samninga. Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum og greiða verkefnin fyrir kostnað vegna funda og ráðstefnuhalds en ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf.
Europass Nýr Europass-vefur (europass.eu) á 29 tungumálum var opnaður um mitt árið. Notendur búa sér til prófíl og nota hann til þess að gera ferilskrá eða leita að frekara námi eða vinnu. Eftir ýmsa byrjunarörðugleika hefur nýi vefurinn farið á flug og heimsóknum á hann fjölgar jafnt og þétt. EPALE Ný íslensk útgáfa af EPALE-vefnum var tekin í gagnið á árinu https://epale.ec.europa.eu/is. Þar má finna greinar, fréttabréf og fleira á íslensku um fullorðinsfræðslu. Umferð um vefinn frá Íslandi eykst ár frá ári og er þátttakan héðan meiri en í mörgum fjölmennari löndum. Áhugi á alþjóðastarfi meðal allra þeirra fjölmörgu sem vinna að fullorðinsfræðslu á Íslandi er mikill og vilja því margir bæði kynna sér það sem reynst hefur vel hjá öðrum og deila því sem þeir gera sjálfir.
Í mars 2020 var opnað fyrir þátttöku í 45 nýjum COST verkefnum, en þau hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda, svo sem í stærri rannsóknaverkefni innan Horizon 2020. Mögulegt er að gerast aðili að verkefnum á umsóknarstigi en einnig eftir að verkefni er farið í gang. Íslensk þátttaka í COST verkefnum er að jafnaði mjög góð og árið 2020 lagði Rannís áherslu á að auka áhuga og þátttöku hjá yngra vísindafólki, doktorsnemum og nýdoktorum. 31
Euraxess Rannís hefur umsjón með þátttöku Íslands í Evrópska rannsóknastarfatorginu, Euraxess, en hlutverk þess er að miðla gagnlegum upplýsingum fyrir íslenskt og erlent vísindafólk sem hyggst starfa í öðru landi en sínu heimalandi. Upplýsingamiðlunin fer fram í gegnum heimasíðuna euraxess.is sem Rannís hefur umsjón með. Þar er hægt að finna upplýsingar og aðstoð við vistaskipti og búferlaflutninga til Íslands, en sambærilegar vefsíður eru reknar í öllum aðildarlöndum Euraxess. Árið 2020 var fyrirhugað að halda norræna Euraxess-ráðstefnu og vinnustofur í samstarfi við Háskóla Íslands en viðburðurinn var blásinn af vegna Covid-19. Að sama skapi lá þátttaka íslenskra háskóla í Euraxess samstarfsnetinu niðri að mestu, enda erfiðara um vik að virkja erlent vísindafólk til hreyfanleika milli landa vegna heimsfaraldursins.
Upplýsingastofa um nám erlendis Upplýsingastofa um nám erlendis rekur vefsíðuna FaraBara.is sem veitir margvíslegar upplýsingar um nám erlendis. Árið 2020 var vefurinn heimsóttur u.þ.b. 23.800 sinnum. Þó að það sé vissulega lækkun frá árunum áður, má sú tala samt sem áður teljast mjög góð í ljósi þess að mun færri voru að íhuga að stunda nám erlendis en áður vegna Covid-19. Upplýsingastofan hélt einnig rafrænar kynningar á starfsemi sinni í samstarfi við Erasmus+ í framhaldsskólum og háskólum. Náðu kynningarnar til 500 ungmenna vítt og breitt um landið. Upplýsingastofa veitir upplýsingar og aðstoðar viðskiptavini í gegnum síma og tölvupóst en vegna Covid-19 var einnig boðið upp á fjarfundi í gegnum Teams í stað viðtals á skrifstofu. Í lok árs 2020 hófst undirbúningsvinna að uppfærðum vef Farabara. is sem mun gagnast notendum í farsímum og spjaldtölvum betur, ásamt því að verða aðgengilegri en áður.
Eurostars Eurostars er fjármögnunaráætlun á vegum EUREKA sem er sérstaklega ætluð til að auka rannsókna- og þróunarsamstarf lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en Ísland hefur verið aðili að EUREKA samstarfinu frá árinu 1986. Í dag standa 36 lönd að áætluninni ásamt Evrópusambandinu. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári og er lögð áhersla á að verkefnin séu tiltölulega nálægt markaði. Tækniþróunarsjóður sér um að fjármagna íslenska þátttöku í samþykktum verkefnum, en á árinu fengu fjögur verkefni með íslenskri aðild stuðning auk þess sem sex framhaldsverkefni voru í gangi með íslenskum þátttakendum.
BlueBioeconomy ERA-Net er fimm ára evrópsk samstarfsáætlun um lífhagkerfi sjávar. Verkefnið er samstarf 27 fjármögnunaraðila frá 16 löndum og stýrir Rannís einum vinnupakka í áætluninni sem snýr að samskipta- og kynningamálum. Sá vinnupakki er unninn í samstarfi við Matís og þátttökulönd í áætluninni. Í fyrsta kalli var auglýst eftir umsóknum vegna rannsókna- og þróunarverkefna á tilteknum sviðum sem snúa að lífhagkerfi sjávar (bláa hagkerfið). Alls voru 19 verkefni valin og voru íslenskir þátttakendur í þremur þeirra. Þessi verkefni hófust á árinu 2020. Aftur var auglýst eftir umsóknum á árinu með stuðningi Tækniþróunarsjóðs. Áherslan var á verkefni sem tengjast „logistics and transportation – from harvest to processing“ og má vænta að úthlutun verði á öðrum ársfjórðungi 2021.
Sóknarstyrkir Markmiðið með sóknarstyrkjum er að auðvelda íslenskum aðilum að taka þátt í alþjóðlegum rannsóknasjóðum með því að styrkja undirbúning umsókna. Fjármagnið kemur úr Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði, en á árinu 2020 ákváðu stjórnir þessara sjóða að leggja til allt að 20 m.kr. til að styrkja undirbúning alþjóðlegs vísinda- og þróunarsamstarfs með íslenskri þátttöku. Var því fjármagni öllu úthlutað og vantaði verulega upp á að hægt væri að úthluta til allra þeirra sem áttu rétt á styrkveitingu, en einungis var unnt að koma til móts við innan við helming af eftirspurn. Skiptust styrkirnir nokkuð jafnt á milli háskóla og fyrirtækja og rannsóknastofnana.
GEOTHERMICA ERA-Net er samstarfsverkefni 17 stofnana frá 16 löndum á sviði jarðvarma, en þátttakendum fjölgaði frá fyrra ári meðal annars með þátttöku Bandaríkjanna. Úthlutað var styrkjum öðru sinni í öðru kalli verkefnisins í júní. Af þeim 12 verkefnum sem boðin var þátttaka í seinna þrepi umsóknarferlisins fóru 10 í lokamat og hlutu 7 þeirra styrk. Þar af voru 2 með íslenskri þátttöku og er öðru þeirra stýrt frá Íslandi. Undirbúningur að þriðja umsóknarfresti hófst 2020 og er það í samfloti með öðru neti á sviði orkumála, Smart Energy Systems. Tækniþróunarsjóður styrkir íslenska þátttöku.
ERA-NET Samstarf íslenskra rannsóknasjóða í ERA-netum gerir íslenskum fyrirtækjum og stofnunum kleift að taka þátt í fjölþjóðlegum rannsóknaverkefnum á völdum sviðum. Rannís tekur þátt í nokkrum slíkum verkefnum sem styrkja rannsóknir, þróun og nýsköpun. Hvert ERA-net hefur eigin áherslusvið, þátttökureglur og umsóknarfresti. ERA-netin sem Rannís tók þátt og voru með úthlutanir á árinu eru:
32
samskipti þjóðanna á sviði menntunar. Á hefðbundnu ári fara um 600–800 Íslendingar í námsog þjálfunarferðir til annarra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna og svipaður fjöldi kemur hingað til lands með stuðningi Nordplus. Þá er veittur stuðningur til þróunarverkefna í menntun á öllum stigum og til samstarfsneta sem vinna saman að brýnum verkefnum innan menntageirans.
M-ERA.NET 2 er samstarfsnet á sviði efnistækni og er framhald samskonar verkefnis sem Rannís hefur áður tekið þátt í. Um er að ræða samstarf 32 fjármögnunaraðila frá 23 löndum innan Evrópusambandsins og EFTA, ásamt Rússlandi, Japan og Taívan. Tækniþróunarsjóður stendur að baki styrkjum til íslenskra aðila, en ekkert verkefni með íslenskri þátttöku hlaut styrk 2020.
NORRÆNT SAMSTARF Samstarf milli Norðurlandanna á starfssviði Rannís á sér langa sögu og tekur stofnunin þátt í samstarfsnefndum á vegum Norræna ráðherraráðsins, rekur landskrifstofu norrænu menntaáætlunarinnar Nordplus auk þess að eiga gott samstarf við NordForsk og Nordic Innovation. Rannís sér um samfjármögnun nokkurra verkefna á vegum Nordforsk sem hafa skilað góðum ávinningi fyrir íslenskt rannsóknasamfélag. Jafnframt sér Rannís um styrkveitingar úr tvíhliða samstarfi milli Íslands og Noregs undir heitinu Arctic Research and Studies, sem fjármagnað er af utanríkisráðuneytum ríkjanna og er ætlað að styðja við samstarf þjóðanna í rannsóknum á norðurslóðum.
Covid-19 hafði mikil áhrif á rekstur Nordplus á árinu 2020. Nánast öllum verkefnum og fundum á vegum áætlunarinnar var frestað eða þeim breytt í rafræna viðburði. Þar er átt við öll þau verkefni sem styrkt voru á árinu en einnig málstofur, ráðstefnur og fundir stjórnar og verkefnastjóra. Nordplus brást mjög skjótt við breyttum aðstæðum með því að breyta úthlutunarreglum til dæmis með því að leyfa verkefnum að halda veffundi og var almenn ánægja hjá þátttakendum Nordplus með þann skilning og sveigjanleika sem gefinn var. Vonast er til að starfsemi Nordplus komist í hefðbundið horf á síðari hluta 2021. NordForsk Hlutverk NordForsk er að styðja við norrænt rannsóknasamstarf í gegnum samstarf stærstu fjármögnunaraðila rannsókna allra Norðurlandanna. Á vettvangi NordForsk eru skilgreindar samstarfsáætlanir á ákveðnum sviðum sem hafa það að markmiði að veita fé til sameiginlegra forgangsmála á sviði rannsókna. Á hverjum tíma eru í gangi nokkrar slíkar áætlanir á ólíkum fræðasviðum og má þar nefna svið samfélagslegs öryggis, heilbrigðis-vísinda og menntarannsóknir. Á árinu 2020 var úthlutað styrkjum til nýrra verkefna í tveimur áætlunum:
Nordplus Rannís rekur landskrifstofu fyrir norrænu menntaáætlunina Nordplus sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Áætlunin, sem skiptist í fimm undiráætlanir, veitir styrki á sviði menntamála til aðila á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum og hefur um 10 milljónir evra til úthlutunar á ári hverju. Rannís tók við yfirstjórn Nordplus árið 2019 og mun gegna því hlutverki til loka árs 2023. Í rekstri aðalskrifstofunnar felst samræming á starfi landskrifstofa á Norðurlöndunum fimm, sem skipta með sér verkum við undirbúning úthlutana, auk starfs sem unnið er af tengiliðum í Eystrasaltsríkjunum, Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum. Aðalskrifstofan sér einnig um samskipti við Norrænu ráðherranefndina og formennskuríkið á hverjum tíma. Meðal verkefna á árinu var að koma á fót nýrri heimasíðu, nordplusonline.org, sem var formlega opnuð haustið 2020 og einnig var sett af stað vinna við utanaðkomandi mat á starfsemi Nordplus sem danskt ráðgjafafyrirtæki stýrir, en stefnt er að því að skila niðurstöðum í ágúst 2021.
NordForsk – Societal Security Norræna rannsóknaáætlunin á sviði samfélagslegs öryggis er þverfagleg áætlun með það að markmiði að fjármagna rannsóknir sem taka á veikleikum og viðnámsþrótti samfélaga og getu þeirra til að takast á við áföll með vísan til forvarna, viðbragðsgetu, aðgerða og endurreisnar. Áætlunin er unnin í samstarfi NordForsk, Rannís, Finnsku akademíunnar, Almannavarnastofnunar Svíþjóðar, Norska rannsóknaráðsins og Almannavarnastofnunar Noregs. Árið 2020 var 650 m.kr. úthlutað til fjögurra öndvegisverkefna en alls bárust 28 umsóknir þegar áætlunin var auglýst undir formerkjum: „Samfélagslegt öryggi á Norðurlöndum í ljósi rísandi hnattrænna og svæðisbundinna meginstrauma“. Þar var lögð áhersla á að rannsóknaverkefni taki á samfélagsöryggi á Norðurlöndum út frá sjónarhorni loftslagsbreytinga, tækniþróunar og/eða stjórnunarhátta á lands- og heimsvísu. Háskólasetur Vestfjarða er á meðal samstarfsaðila í verkefninu „CliCNord - Climate Change Resilience in Small Communities in the Nordic Countries“ sem var eitt fjögurra styrktra verkefna í úthlutun áætlunarinnar árið 2020.
Fyrir utan að fara með yfirstjórn Nordplus hefur Rannís umsjón með tungumálahluta áætlunarinnar. Þar er árlega úthlutað styrkjum til ýmissa verkefna sem felast í gerð kennsluefnis, ráðstefnuhaldi og starfi sérfræðinganeta í norrænum tungumálum. Einnig sér Rannís um íslenska þátttöku í öðrum hlutum Nordplus, þar sem bæði nemendur og kennarar geta fengið styrki til heimsókna eða námsdvalar, samvinnuverkefna eða þátttöku í samstarfsnetum sem öll miða að því að auka
33
Arctic Research and Studies Áætlunin byggir á tvíhliða samstarfi milli Íslands og Noregs á sviði norðurslóðafræða sem hófst árið 2011 og hefur veitt styrki annars vegar til stúdentaskipta í háskólum á öllum námsstigum og hins vegar til samstarfs á milli stofnana, einkum í formi ferðastyrkja. Að auki er styrkt Nansen prófessorsstaða við Háskólann á Akureyri en sú fjármögnun fer ekki í gegnum Rannís. Samstarfssamningur um umsjón Rannís með sjóðnum var endurnýjaður haustið 2019. Áhersla núverandi tímabils sjóðsins er á sóknarstyrki vegna undirbúningsvinnu við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði.
NordForsk – Health and Welfare Norræna rannsóknaáætlunin á sviði heilbrigðis- og velferðarrannsókna auglýsti eftir umsóknum um verkefni sem tengdust Covid-19 faraldrinum. Úthlutað var um 800 m.kr. til fimm verkefna – en 17 umsóknir bárust. Þátttakendur koma frá öllum Norðurlöndunum, Eistlandi og Lettlandi. Öll verkefnin hafa það að markmiði að auka þekkingu í þágu heimsins alls á áhrifum þessa skæða sjúkdóms. Um leið er ætlunin að efla samstarf norrænna vísindamanna þannig að löndin verði betur í stakk búin til þess að takast á við slíka faraldra í framtíðinni. Eitt verkefni er leitt af íslenskum rannsóknahóp undir stjórn Unnar Önnu Valdimarsdóttur við Háskóla Íslands. Rannsóknin nefnist Þróun geðheilsu í áhættuhópum fimm landa í heimsfaraldri Covid-19 og hlaut um 150 m.kr. styrk. Rannsókninni er ætlað að bregðast við ákalli Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og vísindasamfélagsins um auknar rannsóknir á áhrifum kórónuveirufaraldursins á geðheilsu fólks.
Á árinu bárust 10 umsóknir í áætlunina eftir umsóknarfrest í febrúar og var 8 verkefnastyrkjum úthlutað að upphæð 27,6 m.kr. Því til viðbótar voru veittir fimm ferðastyrkir til þátttöku á Arctic Frontiers ráðstefnunni í Tromsø 26.–30. janúar 2020. Til ráðstöfunar voru 46 m.kr. og var annar umsóknarfrestur í október 2020, en úthlutun mun ekki fara fram fyrr en 2021.
Nordforsk – The Nordic Research and Innovation Programme for Sustainable Aquaculture Tækniþróunarsjóður, ásamt Matvælasjóði, tekur þátt í norrænu samstarfsverkefni til að efla sjálfbært fiskeldi laxfiskaætta á landi og í sjó. Verkefnið beinir sjónum að fjórum viðfangsefnum fiskeldis: örverum, fóðrun, líftækni og gagnagnótt með sjálfbærni í fyrirrúmi. Verkefnið er leitt af Nordforsk og allar Norðurlandaþjóðirnar ásamt Færeyjum, Eistlandi og Lettlandi taka þátt. Af átta verkefnum sem styrkt voru eru tvö með íslenskri þátttöku.
Norðurslóðarannsóknir á Íslandi Árið 2020 stóð Rannís, ásamt Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Norðurslóðaneti Íslands, fyrir útgáfu skýrslunnar Kortlagning norðurslóðarannsókna á Íslandi, en verkefnið naut góðs af sérstöku átaki ríkisstjórnarinnar um sumarstörf fyrir námsmenn á tímum heimsfaraldurs. Skýrslan inniheldur meðal annars yfirlit um norðurslóðastefnu íslenskra stjórnvalda og íslenska aðila sem stunda norðurslóðarannsóknir. Meginefni skýrslunnar er greining á norðurslóðaverkefnum út frá úthlutunum innlendra og erlendra samkeppnissjóða undanfarinn áratug. Þar kemur fram að yfir milljarði króna hafi verið úthlutað hérlendis til norðurslóðaverkefna úr Rannsóknasjóði síðastliðinn áratug; en háskólar, stofnanir og fyrirtæki á Íslandi hafa jafnframt sótt verkefnastyrki fyrir um milljarð króna í Horizon 2020 á sjö ára tímabili áætlunarinnar. Niðurstöður skýrslunnar leiða í ljós að á Íslandi kemur öflugur hópur aðila að norðurslóðarannsóknum og að íslenskir háskólar, stofnanir og fyrirtæki eru eftirsóttir samstarfsaðilar í alþjóðlegu samstarfi.
NOS nefndir Rannís tekur þátt í þremur norrænum samstarfsnefndum á vegum rannsóknaráða Norðurlandanna: NOS-N er samstarfsvettvangur á vegum fjármögnunaraðila rannsókna í raunvísindum og náttúruvísindum á Norðurlöndum. Haldnir voru þrír fjarfundir á árinu, fyrst að vori, 13. maí og 10. júní, til að fjalla um hugsanlegt kall að frumkvæði NOS-N á vegum Nordforsk, sem ekki varð úr. Einnig var haldinn almennur fjarfundur þann 22. október og var þema hans Jafnvægi kynja við úthlutun rannsóknastyrkja (e. Gender balance in research funding). NOS-N fundur átti að vera í Finnlandi þetta árið og verður hann haldinn þegar tækifæri gefst eftir Covid. NOS-M er samstarfsvettvangur í heilbrigðisvísindum á vegum fjármögnunaraðila rannsókna á Norðurlöndunum. Haldinn var einn fjarfundur í maí.
ALÞJÓÐLEGA NORÐURSKAUTSVÍSINDANEFNDIN (IASC) Skrifstofa Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC) hóf fjórða starfsár sitt í rannsóknarhúsinu að Borgum á Akureyri, samkvæmt samkomulagi við Rannís. Í ljósi þeirrar jákvæðu reynslu sem fengist hefur af starfsemi skrifstofu norðurskautsvísindanefndarinnar ákvað mennta- og menningarmálaráðherra, að framlengja starfsemina hjá Rannís á Akureyri um fimm ár frá upprunalegu samkomulagi eða til loka árs 2026.
NOS-HS er samstarfsvettvangur í hug- og félagsvísindum á vegum fjármögnunaraðila rannsókna á Norðurlöndunum. Rannsakendur í hug- og félagsvísindum og skyldum greinum geta sótt um styrki til að halda norrænar vinnustofur. Haldnir voru tveir fjarfundir á árinu, í apríl og október. Á árinu bárust 69 umsóknir um vinnusmiðjur sem fyrirhugað er að halda 2021–2022 og hlutu 34 verkefni styrk, þar af eitt sem er leitt af íslenskum aðila. Stefnt er á að Nordforsk muni sjá um rekstur og umsýslu NOS-HS frá og með árinu 2022.
34
2020
Auk vísindastofnana í norðurskautsríkjunum átta eiga aðild að IASC vísinda- og rannsóknastofnanir í Austurríki, Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Japan, Hollandi, Indlandi, Póllandi, Portúgal, Kína, Kóreu, Spáni, Sviss, Tékklandi og Þýskalandi. IASC stuðlar að samstarfi um vöktun og rannsóknir á norðurslóðum. Sem áheyrnaraðili að Norðurskautsráðinu gegnir nefndin mikilvægu hlutverki við miðlun upplýsinga frá vísindasamfélaginu til ráðsins um niðurstöður rannsókna á breytingum í náttúrufari norðurslóða. Starfsemi IASC fer að miklu leyti fram í fimm vinnuhópum; um landræn kerfi, gufuhvolf, hafvísindi, mann- og félagsvísindi og freðhvolf. Þátttökuríkin útnefna að jafnaði tvo meðlimi í hvern vinnuhóp. Þeir eru í senn fulltrúar innlendra vísinda- og rannsóknastofnana gagnvart hinu alþjóðlega vísindasamfélagi, sem og talsmenn IASC og helstu tengiliðir við starfsemi vinnuhópanna. Hóparnir funda, ásamt vísindaráði IASC, að vori ár hvert á vikulangri vísindaráðstefnu (Arctic Science Summit Week) til að leggja línurnar og móta stefnuna í starfi IASC.
Kynningar á möguleikum fyrir ungt fólk Framhaldsskólar og háskólar hafa verið aðalmarkhópur kynningarstarfs á tækifærum fyrir ungt fólk á aldrinum 13–30 ára þar sem er að finna ákveðna breidd og fjölbreytileika. Kynningar voru þó fáar á árinu vegna Covid-19 vegna þess að mikið af kennslu og öðru í lífi ungs fólks fór fram á netinu. Kynningar 2020 náðu til um 500 einstaklinga með heimsóknum í upphafi árs og veffundum þar sem kynnt voru tækifæri í námi, sjálfboðaliðastörfum, ungmennaskiptum og öðru sem stendur ungu fólki til boða í gegnum áætlanir og stoðverkefni Rannís, s.s. Erasmus+ og European Solidarity Corps. Í ár lagði Rannís einnig sérstaka áherslu á að vekja athygli á þessum tækifærum í gegnum samfélagsmiðla Erasmus+ og Eurodesk.
Dagana 27. mars til 2. apríl 2020 stóð Rannís að skipulagningu Vísindaviku norðurslóða (ASSW) ásamt Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndinni og Háskólanum á Akureyri, en viðburðurinn var jafnframt hluti af formennskuáætlun Íslands í Norðurskautsráðinu. Vegna heimsfaraldursins Covid-19 þurfti að færa ráðstefnuna sem halda átti á Akureyri á rafrænt form með skömmum fyrirvara. Gekk það vonum framar og tóku yfir 650 þátttakendur frá 28 löndum þátt í yfir 75 rafrænum málstofum. Í kjölfarið tóku skipuleggjendur vísindavikunnar saman skýrslu, Moving a Conference from Iceland to Zoom, um framkvæmdina og þann lærdóm sem má draga af því að flytja slíkan viðburð yfir á netið.
Vísindavika norðurslóða 2020 (ASSW) Þegar ljóst var að flytja þyrfti Vísindaviku norðurslóða (ASSW2020) yfir á rafrænt form með skömmum fyrirvara til að bregðast við heimsfaraldri Covid-19 tóku skipuleggjendur saman skýrslu, Moving a Conference from Iceland to Zoom, um framkvæmdina og þann lærdóm sem má draga af því að flytja slíkan viðburð yfir á netið. Yfir 650 þátttakendur frá 28 löndum skráðu sig á 75 málstofur og fundi, 10 pallborðsumræður, 5 yfirlitserindi og 2 veggspjaldakynningar. Samræður um sjálfbær samfélög og sameiginlegar áskoranir voru fyrirferðarmiklar í allri dagskránni en meðal þeirra sem tóku til máls voru vísindamenn, sérfræðingar, embættismenn, fulltrúar frumbyggja sem og fulltrúar annarra íbúa á norðurslóðum. Skýrslan fjallar um ákvarðanatökuna við að streyma dagskránni á netinu, svo sem mannafla og kostnað í því sambandi. Einnig er greint frá skráningu þátttakenda, samskiptaformi og stuðningi á netinu, dagskrárefni og áskorunum vegna tímamismunar. Þá eru einnig greindar niðurstöður könnunar meðal þátttakenda á árangri Vísindavikunnar þar sem fram kemur að ríflega 75% þátttakenda lýstu ánægju sinni með framkvæmd viðburðarins. Skýrslan greinir í einstökum atriðum hvað gekk vel í framkvæmdinni og hvað hefði betur mátt fara. Hún ætti því að koma að gagni fyrir þá sem eru að skipuleggja streymi viðburða á netinu. Höfundar skýrslunnar eru þau Federica Scarpa og Þorsteinn Gunnarsson.
Á skrifstofu IASC starfa þrír sérfræðingar í málefnum norðurslóða, ýmist í fullu starfi eða hlutastarfi. Árið 2020 var Dr. Gerlis Fugmann ráðin í starf fram-kvæmdastjóra skrifstofu IASC en Dr. Allen Pope sem hafði gegnt starfinu frá 2017 lét af störfum. Gerlis hefur víðtæka starfsreynslu á sviði rannsóknastarfs á norðurslóðum í meira en áratug og var áður framkvæmdastjóri Association of Polar Early Career Scientists (APECS). Skrifstofan styður við og nýtur góðs af þeirri sérfræðiþekkingu sem byggst hefur upp á Akureyri og liggur til grundvallar öflugu norðurslóðasamfélagi á svæðinu. Til marks um samstarf IASC og annarra stofnana og skrifstofa sem reka starf sitt á Akureyri; má nefna sameiginlega vísindastyrki sem IASC og CAFF, vinnuhópur Norðurskautsráðsins um verndun lífríkis, veita til tveggja ungra vísindamanna til að taka þátt í starfi stofnananna. Einnig hefur hið góða samstarf á milli IASC og Norðurslóðanets Íslands, meðal annars vegna sameiginlegra lykilstarfsmanna, verið mikilvægur stuðningur og þáttur í starfseminni. 35
VIÐBURÐIR Verkefnin sem tilnefnd voru sem öndvegisverkefni eiga það sameiginlegt að vera vel unnin og frumleg en eru afar ólík innbyrðis og sýna vel þá fjölbreytni sem einkennir verkefni sem sjóðurinn veitir styrki til. Verkefnin fjögur sem voru einnig tilnefnd til verðlaunanna og hlutu sérstaka viðurkenningu: • Litun sjávarleðurs úr íslenskum plöntum • Möguleikar melgresis (Leymus arenarius) • Notendahugbúnaður Wave • Nýjar afurðir þörunga.
NÝSKÖPUNARVERÐLAUN FORSETA ÍSLANDS Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum miðvikudaginn 29. janúar 2020. Halldór Bjarki Ólafsson, nemi í læknisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, hlaut verðlaunin fyrir verkefnið Tengsl óeðlilegs blóðhags við bráða fylgikvilla og langtíma útkomu eftir skurðaðgerðir, sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Leiðbeinandi var Martin Ingi Sigurðsson, sérfræðingur í svæfingaog gjörgæslulækningum á Landspítala, og kennari við Háskóla Íslands. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin. Verðlaunin voru stóll hannaður af Gústav Jóhannssyni og Ágústu Magnúsdóttur hjá AGUSTAV sem ber heitið Kollur.
NÝSKÖPUNARVERÐLAUN ÍSLANDS Fyrirtækið Controlant hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2020. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Hörpu, miðvikudaginn 18. nóvember 2020, en athöfnin fór fram í beinni útsendingu á netinu í ljósi aðstæðna. Gísli Herjólfsson, framkvæmdastjóri Controlant, veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Fundarstjóri var Karl Guðmundsson, formaður dómnefndar en hann gerði einnig grein fyrir vinnu nefndarinnar þetta árið.
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996 og voru nú veitt í tuttugasta og fimmta sinn. Stjórn sjóðsins valdi fimm öndvegisverkefni en aðeins eitt þeirra hlaut svo viðurkenninguna.
Nýsköpunarverðlaun Íslands hafa verið veitt framsæknum nýsköpunarfyrirtækjum árlega frá 1994. Þau eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, 36
2020
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og þróunarstarfi og náð hefur árangri á markaði. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara. Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars: „Hug- og vélbúnaður Controlant tryggir gæði viðkvæmra vara í flutningi og dregur úr sóun á lyfjum og matvælum. Controlant gefur framleiðendum lyfja og matvæla mikilvægar rauntímaupplýsingar um hitastig og raka sem fást með nettengdum gagnaritum. Áralöng fjárfesting í tækniþróunarstarfi er að skila sér um þessar mundir í hröðum vexti tekna og er starfsemin komin til rúmlega 100 landa.
Uppbyggingarsjóður EES: Áskoranir og tækifæri íslenskra aðila á sviði nýsköpunar, rannsókna, menntunar, menningar, félagslegra málefna og endurnýjanlegrar orku Rannís og utanríkisráðuneytið komu að úttekt og greiningu á íslenskri þátttöku í Uppbyggingarsjóði EES sem unnin var af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, með stuðningi Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Skýrslan felur í sér greiningu á þátttöku, áskorunum og tækifærum íslenskra aðila innan samstarfs á vegum Uppbyggingarsjóðs EES sjóðstímabilin 2009–2014 og 2014–2021 á sviðum nýsköpunar, rannsókna, menntunar, menningar, félagslegra málefna og endurnýjanlegrar orku.
Á meðal viðskiptavina félagsins eru mörg af stærstu lyfjafyrirtækjum heims. Lausnir félagsins verða mikilvægur hlekkur í dreifingu bóluefna við Covid-19 sem er eitt erfiðasta heilbrigðisvandamál sem heimsbyggðin er að fást við. Það er mat dómnefndar að Controlant sé verðugur handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands árið 2020 og framundan séu spennandi tímar vaxtar og sóknar á mörkuðum.”
Meginmarkmið úttektarinnar var að varpa ljósi á reynslu íslenskra stofnana, félagasamtaka og fyrirtækja af þátttöku í samstarfsverkefnum Uppbyggingarsjóðsins ásamt því að greina möguleg tækifæri fyrir íslenska aðila í því samhengi. Niðurstöðurnar sýna að íslensk þátttaka í sjóðnum er að langstærstum hluta milli félagasamtaka og ríkis- og menntastofnana á sviðum endurnýjanlegrar orku, félagslegrar þátttöku og umbóta, menningar og menntunar. Jafnframt kom fram að æskilegt væri að hvetja fyrirtæki til þátttöku á fleiri sviðum en menningu og menntun, sér í lagi á sviði nýsköpunar og rannsókna. Skýrsluna má nálgast á vefsvæði Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
FRAMADAGAR Rannís tók þátt í Framadögum sem haldnir voru í Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 30. janúar. Þar kynntu starfsmenn Rannís fjölbreytt tækifæri meðal annars Erasmus+, Europass, Farabara upplýsingavef um nám erlendis, Nordplus, Tækniþróunarsjóð og Nýsköpunarsjóð námsmanna. Einnig var kynning á starfsemi Rannís í heild sinni. Framadagar eru haldnir árlega og skipulagðir af AIESEC. Megintilgangur Framadaga er að gefa ungu fólki á Íslandi tækifæri til þess að komast í kynni við íslenskt atvinnulíf og önnur fjölbreytt tækifæri víðs vegar um heiminn.
37
MANNAUÐUR Í árslok 2020 voru starfsmenn Rannís alls 54 í 52,24 stöðugildum með forstöðumanni. Starfsmönnum fjölgaði um einn frá fyrra ári og stöðugildum fjölgaði um 2,59. Nokkrar breytingar áttu sér þó stað á árinu einkum í tengslum við breytt skipulag sviða. Alþjóðasvið rann saman við rannsókna- og nýsköpunarsvið og greiningarog hugbúnaðarsvið var stofnað en starfsfólk þess kom frá hugbúnaðarhluta rannsókna- og nýsköpunarsviðs. Alls hættu fimm starfsmenn á árinu, tveir vegna aldurs, en ráðið var í störf hinna þriggja.
Í árslok 2020 voru starfsmenn á rannsókna- og nýsköpunarsviði 15 í 13,85 stöðugildum. Var það fjölgun frá því árið 2019 um 1 starfsmann sem tengist skipulagsbreytingum, en alþjóðasvið var sameinað rannsókna- og nýsköpunarsviði frá og með 1. september. Á greiningar- og hugbúnaðarsviði voru 6 starfsmenn í 5,49 stöðugildum í lok árs. Af 52,24 stöðugildum í árslok 2020 voru sérfræðingar í 41,75 stöðugildum sem var fjölgun um 1,1 frá fyrra ári, almennir starfsmenn í 4 stöðugildum, starfsmaður í tímavinnu í 0,49 stöðugildi, sviðsstjórar í 4 stöðugildum eins og undanfarin ár og forstöðumaður í einu stöðugildi.
Dreifing mannauðs á milli sviða SVIÐ Rekstrarsvið IASC skrifstofa
Fj. starfsm.
Stg.
10
9,45
KVK Stg.
KK Stg.
7,7
1,75
2
1,75
1,5
0,25
21
20,2
15,2
5
Greiningar- og hugbúnaðarsvið
6
5,49
3
2
Rannsókna- og nýsköpunarsvið
15
13,85
8,05
5,8
54
50,74
35,45
14,8
Mennta- og menningarsvið
LÍFALDUR STARFSMANNA OG ALDURSDREIFING Meðalaldur starfsfólks í árslok 2020 var 50,5 ár. Meðalaldur kvenna var 50,4 ár og karla 50,6 ár. Flestir starfsmenn eða 32,1% eru á aldursbilinu 51–60 ára, 26,4% eru á aldrinum 41–50 ára, 22,6% er á aldrinum 61–70 ára, 13,2% er á aldrinum 31–40 ára og 5,7% eru 30 ára og yngri.
Í árslok 2020 voru 10 starfsmenn á rekstrarsviði í 9,45 stöðugildum að forstöðumanni meðtöldum eða aukning um 0,3 stöðugildi vegna hækkunar á starfshlutfalli gæða- og gagnastjóra. Störf á skrifstofu IASC héldust óbreytt á milli ára eða 2 starfsmenn í 1,75% stöðugildi. Á mennta- og menningarsviði var 21 starfsmaður í 20,2 stöðugildum en þar fækkaði starfsfólki vegna skipulagsbreytinga um 1 en stöðugildum um 0,5. 38
Heildarfjöldi starfsm.
Fjöldi 30 ára og yngri
Fjöldi 31-40 ára
Fjöldi 41-50 ára
Fjöldi 51-60 ára
Fjöldi 61-70 ára
54
3
7
14
17
13
100,0%
3,8%
20,8%
20,8%
32,1%
22,6%
FRÆÐSLA INNAN RANNÍS Rannís leggur áherslu á að bjóða starfsfólki sínu fjölbreytta fræðslu með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði starfsins, ásamt því að bæta í senn árangur og starfsánægju. Fræðsluáætlun var unnin fyrir árið, en í boði voru um 50 fjölbreytt námskeið. Á árinu var einkum lögð áhersla á rafræn námskeið. Meðal námskeiða má nefna:
Heilsudagar voru haldnir á vordögum en Rannís leggur áherslu á að skapa góðan vinnustað þar sem starfsfólki líður vel og eru reglulegir heilsudagar liður í því. Heilsudagar voru með óhefðbundnu sniði árið 2020 en flestir viðburðir voru haldnir utandyra og boðið upp á rafrænan fyrirlestur. Elísabet Margeirsdóttir næringarfræðingur og ofurhlaupari hélt fyrirlestur sem bar yfirskriftina „Hvað er heilbrigður lífsstíll? – Næring, hreyfing og markmið”. Þar fjallaði hún um áhrif næringar á heilsu og árangur, hreyfingu og markmið. Arnbjörg Kristín jógakennari leiddi endurnærandi jógagöngu um Grasagarðinn, þar sem gerðar voru teygjur, öndun og jógastöður og endað með hljóðslökun á fallegum stað í garðinum. Starfsfólki var boðið að taka þátt í hlaupahópi, gönguferðum og morgunleikfimi. Til að toppa stemninguna voru töfraðir fram heilsudrykkir á morgnana og einnig var heilsuþema í mötuneytinu í hádeginu. Heilsuvikunni lauk svo á að starfsfólk gerði sér glaðan dag í Kubbaspili á Klambratúni.
Lean-aðferðarfræði, leiðbeinandi Pétur Arason hjá Manino Lean-vinnustofur, leiðbeinandi Maríanna Magnúsdóttir, Sunneva Pétursdóttir og Pétur Arason hjá Manino Kynning á Office 365 – grunnnámskeið, leiðbeinandi Ingvar Ágúst Ingvarsson, sviðsstjóri hjá Þekkingu Námskeið í Microsoft 365 yfir allt árið, svo sem í Teams, SharePoint og OneDrive (33 í allt), leiðbeinandi Kristín Ósk Hlynsdóttir gagna- og gæðastjóri Rannís Meðferð persónuupplýsinga í stjórnsýslunni – nokkur álitaefni, leiðbeinandi Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur
NÁMSLEYFI Alls var varið 181,8 klst í námsleyfi starfsmanna. Tveir starfsmenn fengu formlegt námsleyfi til að leggja stund á nám, annarsvegar fjögurra vikna námsleyfi og hinsvegar sex vikna, en hluti af því leyfi frestast til ársins 2021 vegna Covid-19. Fjölda skráðra tíma í námsleyfi fækkaði verulega í samanburði við 2019 og skýrist það einnig af aðstæðum vegna Covid-19.
Excel grunnkennsla - Excel I almenn töflureiknisnotkun eftir þörf, leiðbeinandi Valgerður Halldórsdóttir, verkfræðingur og Ph.D. Kynning Þjóðskrár Íslands á undirbúningi fyrir betri vinnutíma, fyrirlesari Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár Íslands Regluleg námskeið um verklag í skjalamálum og GoPro allt árið, leiðbeinandi Kristín Ósk Hlynsdóttir gagna- og gæðastjóri Rannís
STARFSAUGLÝSINGAR Í árslok 2019 var starf framkvæmdastjóra Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (International Arctic Science Committee-IASC) auglýst laust til umsóknar, en gengið var frá ráðningu í mars 2020.
Oracle bóhaldskerfi, leiðbeinandi sérfræðingur frá Advania Oracle bókhaldskerfi – Orri skýrslugerð, leiðbeinandi Herdís Þorgeirsdóttir og Árni Sigurðsson
Alls voru þrjú störf auglýst laus til umsóknar á árinu 2020. Í júlí var auglýst eftir sérfræðingi í kynningarteymi mennta- og menningarsviðs. Á haustmánuðum var auglýst eftir og gengið frá ráðningu skrifstofustjóra IASC og auk þess ráðið í þrjú störf á rannsókna- og nýsköpunarsviði. Þar var auglýst eftir sérfræðingi í rannsóknateymi og í tengslum við flutning Enterprise Europe Network (EEN) frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands yfir til Rannís voru tveir sérfræðingar sem stýrt hafa EEN hjá NMÍ ráðnir á sviðið. Þessir starfsmenn hefja allir störf í byrjun árs 2021.
Örnámskeið í símkerfi Rannís og dagbók Outlook, leiðbeinandi Fanney Reynisdóttir Aðgangsstýringarkerfið, leiðbeinandi Álfrún G. Guðrúnardóttir
Nýliðafræðsla var haldin jöfnum höndum fyrir nýja starfsmenn Rannís þar sem farið var yfir lykilatriði í starfseminni. Alls voru haldnir fjórir starfsmannafundir og sjö fréttafundir á árinu. Fréttafundir eru óformlegir morgunverðarfundir en þar getur hver sem er hvatt sér hljóðs og sagt frá því sem er á döfinni og á erindi til annarra starfsmanna.
Einnig voru ráðnir inn fimm sumarstarfmenn á vegum átaks varðandi sumarstörf námsmanna, sem Vinnumálastofnun stýrði, en efnt var til í samvinnu við stofnanir ríkis og sveitarfélaga.
39
2020 STARFSFÓLK Í ÁRSLOK 2020 Aðalheiður Jónsdóttir Andrés Pétursson Anna R. Möller Ágúst Hjörtur Ingþórsson Álfrún G. Guðrúnardóttir Árni Sigurðsson Ása Guðrún Kristjánsdóttir Ásta Vigdís Jónsdóttir Berglind Fanndal Káradóttir Birna Vala Eyjólfsdóttir Bylgja Valtýsdóttir Davíð Lúðvíksson Dóra Stefánsdóttir Egill Þór Níelsson Elísabet M. Andrésdóttir Elvar Helgason Eva Einarsdóttir Eyrún Helgadóttir Eyrún Sigurðardóttir Fanney Reynisdóttir
Gróa María Svandís Sigvaldadóttir Guðmundur Ingi Markússon Hallgrímur Jónasson Helga Dagný Árnadóttir Herdís Þorgrímsdóttir Hulda Hrafnkelsdóttir Jón Svanur Jóhannsson Júlíana Grigorova Tzankova Kolbrún Bjargmundsdóttir Kristín Ósk Hlynsdóttir Lára Aðalsteinsdóttir Lísa Kristín Gunnarsdóttir Lýður Skúli Erlendsson Margrét Jóhannsdóttir Margrét K. Sverrisdóttir Miriam Petra Ómarsdóttir Awad Óli Örn Atlason Óskar Eggert Óskarsson Ragnhildur Zoëga Rúna Vigdís Guðmarsdóttir
Sigríður Grétarsdóttir Sigríður M. Vigfúsdóttir Sigrún Ólafsdóttir Sigurður Björnsson Skúli Leifsson Sóley Ólafsdóttir Sólveig Sigurðardóttir Steinunn S. Jakobsdóttir Svandís Unnur Sigurðardóttir Vigfús Eyjólfsson Þorgerður Eva Björnsdóttir Ægir Þór Þórsson Starfsfólk Rannís hjá IASC Gerlis Fugmann Kolbrún Reynisdóttir Federica Scarpa, samkvæmt samkomulagi við Norðurslóðanet
Breytingaferli Rannís
2011
Rannís falin umsýsla með rekstri Gæðaráðs háskóla og ráðgjafarnefndar Gæðaráðs háskóla. Rannís falin umsýsla með Skattfrádrætti rannsókna- og þróunarverkefna. Rannís falið að annast umsjón með fundarsókn í rammaáætlun Evrópusambandsins á sviði vísinda og rannsókna. Rannís falið að annast umsýslu með málefnum Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC).
2013
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB og fleiri verkefni flytjast frá Háskóla Íslands til Rannís, ásamt norrænu menntaáætluninni og upplýsingastofu um nám erlendis. Umsýsla 12 sjóða á sviði menntamála, menningar- og æskulýðsmála flyst frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu til Rannís.
2014
2019
Rannís tekur að sér eigið bókhald vegna niðurlagningar SRA (skrifstofa rannsóknastofnana atvinnuveganna).
Loftslagssjóður í umsýslu Rannís.
Rannís falin umsjón með Menningaráætlun ESB.
2015
Rannís flytur í nýtt húsnæði.
Ísland tekur við stjórn Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar. Rannís falin umsjón með rekstri aðalskrifstofunnar. Jafnréttissjóður Íslands í umsýslu Rannís.
2016
Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku í umsýslu Rannís.
2017
Gæðaráð háskóla varð sjálfstæð rekstrareining í byrjun árs og hætti að heyra beint undir Rannís en hafði þó aðstöðu þar áfram.
Rannís tekur að sér ritarastarf fyrir Vísinda- og tækniráð og Vísindanefnd.
Breytingar á reikningshaldi vegna nýrra laga um opinber fjármál sem tóku gildi 1. janúar. Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndin (IASC) opnar skrifstofu að Borgum á Akureyri. Rannís falin umsjón með rekstri skrifstofunnar. Rannís tekur við rekstri æskulýðshluta Erasmus+ af Ungmennafélagi Íslands. Umsýsla með Skattfrádrætti frá tekjum erlendra sérfræðinga.
2020
Alþjóðasvið sameinast rannsóknaog nýsköpunarsviði. Greiningar- og hugbúnaðarsvið stofnað. Rannsóknasetur Margrétar II Danadrottningar og frú Vigdísar Finnbogadóttur um haf, loftslag og samfélag í umsýslu Rannís. Rannís tekur upp fjárhagskerfið Orra.
2018
Barnamenningarsjóður í umsýslu Rannís. Vinnu við stefnu Rannís til 2025 lokið.
40
Office 365 innleitt. Straumlínustjórnun innleidd.
ÚTGÁFU- OG KYNNINGARMÁL RANNÍS VEFURINN Á vefsíðu Rannís, rannis.is, geta notendur vefsins nálgast allar upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar og þá þjónustu sem hún veitir. Áhersla er lögð á að leit sé skilvirk og styðji hratt og örugglega við notandann. Hægt er að kalla fram upplýsingar á einfaldan og öruggan hátt um alla sjóði og verkefni í umsýslu Rannís, næstu umsóknarfresti og þá viðburði sem eru á döfinni. Mikil og stöðug umferð mælist um vefsíðuna. Árið 2020 mældust 715.692 heimsóknir á vefinn og notendur vefsins voru 116.814. Vefurinn er uppfærður daglega og á forsíðu eru reglulega settar inn nýjar fréttir og upplýsingar um verkefni, sjóði og umsóknarfresti. Vefurinn hentar til skoðunar í öllum tækjum, hvort sem um er að ræða tölvuskjá, spjaldtölvu eða snjallsíma. Vefurinn er því öflug gátt inn í starfsemi stofnunarinnar. Rannís heldur einnig utan um nokkur vefsvæði er tengjast sérverkefnum í umsjón stofnunarinnar. Farabara.is er vefur sem veitir upplýsingar um námsmöguleika erlendis. Landskrifstofa Erasmus+ heldur úti vefsíðunni erasmusplus. is sem veitir upplýsingar um margvísleg tækifæri í Evrópusamvinnu. Euraxess er alþjóðlegt samstarfsnet fyrir erlenda rannsakendur og íslenska síðan euraxess.is hefur að geyma hagnýtar upplýsingar sem ætlað er að auðvelda erlendum rannsakendum að koma sér og fjölskyldum sínum fyrir hér á landi. Ennfremur heldur Rannís utan um Eurodesk-síðuna, eurodesk.is, sem veitir ungu fólki upplýsingar um ýmis tækifæri sem því býðst á
Mikil og stöðug umferð mælist jafnan ár hvert á vefsíðu Rannís, en þar geta notendur vefsins nálgast allar upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar og þá þjónustu sem hún veitir.
41
erlendri grundu. Landskrifstofa Nordplus á Íslandi fór í mikla vinnu við að gera nýjan miðlægan vef fyrir áætlunina, nordplusonline.org, og var hann opnaður á haustmánuðum 2020. Ýmis önnur verkefni eiga sitt eigið veffang sem vísar inn á heimasíðu þess á vef Rannís. Má þar nefna Tækniþróunarsjóð, tths.is, Creative Europe, creative-europe.is og Listamannalaun, listamannalaun.is. MIÐLUN UPPLÝSINGA Rafræn kynning og notkun samfélagsmiðla spila stórt hlutverk í samskipta- og kynningarstarfi Rannís og jókst það enn frekar á árinu. Í ljósi ástandsins var lögð áhersla á rafræna kynningarfundi á sjóðum en með því náðist um leið til breiðari hóps frá öllum landshlutum. Kynningar á tækifærum fyrir ungt fólk á aldrinum 13–30 ára fóru einnig flestar fram á veffundum.
Nýjar leiðir í kynningarmálum Erasmus+ og European Solidarity Corps. Á árinu þurfti að hverfa frá ýmsu sem fyrirhugað hafði verið í kynningum fyrir Erasmus+ og European Solidarity Corps, eins og hjá svo mörgum.Engu að síður var framleitt eitt myndband fyrir doktorsnema á vegum Erasmus+ og myndband með sjálfboðaliðum. Eins var framleitt glæsilegt myndband fyrir Europass. Um sumarið var farið í póstkortaherferð til að vekja athygli á starfseminni. Þar fékk Rannís til liðs við sig fyrrum Erasmus+ skiptinema sem almenningur þekkir til, meðal annars Berg Ebba Benediktsson, uppistandara og rithöfund og Bergrúnu Sævarsdóttur handhafa íslensku barnabókarverðlaunanna. Sögukeppni Erasmus+ var skipulögð í samstarfi við tvo fyrrum þátttakendur í Erasmus+ til að deila reynslu sinni með mynd og texta. Keppnin fór í loftið í desember 2020 og lauk í byrjun árs 2021.
Facebook var nýtt í auknum mæli til þess að auka sýnileika, koma skilaboðum á framfæri, opna fyrir samskipti og styðja við virkni heimasíðunnar. Má þar helst nefna Facebook-síðu Rannís, en einnig aðrar Facebook-síður á vegum Rannís svo sem síður Tækniþróunarsjóðs og Nýsköpunarsjóðs námsmanna og einnig síður eins og Erasmus+ menntaáætlunar ESB, Erasmus+ Evrópu unga fólksins, eTwinning Ísland, EPALE Ísland, Creative Europe Desk á Íslandi, Eurodesk og Europass Ísland. Á árinu stóð Rannís að skipulagningu Vísindaviku norðurslóða (ASSW) ásamt Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndinni og Háskólanum á Akureyri, en viðburðurinn var jafnframt hluti af formennskuáætlun Íslands í Norðurskautsráðinu. Vegna heimsfaraldursins Covid-19 þurfti að færa ráðstefnuna sem halda átti á Akureyri á rafrænt form með skömmum fyrirvara. Gekk það vonum framar og tóku yfir 650 þátttakendur frá 28 löndum þátt í yfir 75 rafrænum málstofum. Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands 2020 var einnig streymt í ár bæði á mbl.is, visi.is og fleiri stöðum en í heildina horfðu um 2.000 manns á viðburðinn.
Hefur þitt sveitarfélag áhuga á að kynna sér möguleika á að fá sjálfboðaliða frá Evrópu? Ungir sjálfboðaliðar koma oftar en ekki með nýja sýn, auðga starfið og öðlast sjálfir nýja reynslu og fá möguleika á að fræðast um menningu annarra Evrópulanda. Erasmus+ og European Solidarity Corps veita styrki til verkefna tengdu ungu fólki og starfsmönnum í æskulýðsstarfi. Kynnið ykkur möguleikana á www.erasmusplus.is
Reglulega eru sendar út tilkynningar á póstlista Rannís en hann telur um 3.000 manns sem skipt er niður í sjö ólíka markhópa eftir áhugasviðum áskrifenda. Hægt er að skrá sig á póstlistann á vefsíðu Rannís. Alls voru sendar út 45 tilkynningar á póstlistann árið 2020 eða rétt rúmlega ein á viku, sem er sambærilegur fjöldi og árið áður. Eitthvað var gefið út af prentuðu kynningarefni til að kynna sjóði og áætlanir. Áherslan var þó frekar á að birta reglulega auglýsingar í blöðum og á vefmiðlum þar sem auglýst var eftir umsóknum um styrki og viðburðir kynntir.
42
SÝNILEIKI Í FJÖLMIÐLUM Starfsemi Rannís var vel sýnileg í fjölmiðlum árið 2020. Alls var fjallað um Rannís í rúmlega 900 fréttum/greinum. Þar af voru 641 í netmiðlum, 245 í prentmiðlum og 22 í sjónvarpi/útvarpi. Þetta er örlítið minni umfjöllun í fjölmiðlum en árið áður, sem skýrist líklega af því að um færri viðburði var að ræða hjá Rannís á árinu. Fréttir af Rannís fengu hinsvegar umtalsvert meiri útbreiðslu á Facebook en árið á undan. Vísað var í nafn Rannís um 99.850 sinnum á árinu í stað 16.110 sinnum 2019, sem er 520% aukning. Það sem helst vekur athygli fjölmiðla eru stórar úthlutanir til ákveðinna verkefna, svo sem úr Tækniþróunarsjóði, Rannsóknasjóði, Erasmus+, Barnamenningarsjóði Íslands, Jafnréttissjóði Íslands og til Listamannalauna. Í tengslum við það beinast þá sjónir fjölmiðla að framúrskarandi verkefnum sem unnið hafa styrki úr sjóðum sem heyra undir Rannís. Einnig vöktu athygli veiting viðurkenninga eins og Nýsköpunarverðlauna Íslands og Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Áhugavert er að fréttir sem sneru að Listamannalaunum fengu mesta athygli á árinu og svo aukaúthlutanir sjóða vegna aðgerða stjórnvalda gegn áhrifum af Covid-19.
Sviðslistasjóður
Styrkir til atvinnusviðslistahópa Umsóknarfrestur er til 1. október 2020
Kortlagning norðurslóðarannsókna á Íslandi Rannís stóð fyrir útgáfu skýrslunnar Kortlagning norðurslóðarannsókna á Íslandi, í samstarfi við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Norðurslóðanet Íslands, en verkefnið naut góðs af sérstöku átaki ríkisstjórnarinnar um sumarstöf fyrir námsmenn á tímum heimsfaraldurs. Skýrslan inniheldur meðal annars greinargott yfirlit um norðurslóðastefnu íslenskra stjórnvalda og lýsingu á íslenskum aðilum sem stunda norðurslóðarannsóknir. Meginefni skýrslurnar er greining á norðurslóðaverkefnum sem byggð er á úthlutunum innlendra og erlendra samkeppnissjóða undanfarinn áratug. Þar kemur fram að yfir milljarði íslenskra króna hafi verið úthlutað hérlendis til norðurslóðaverkefna úr Rannsóknasjóði síðastliðinn áratug; en háskólar, stofnanir og fyrirtæki á Íslandi hafa jafnframt fengið verkefnastyrki fyrir um milljarð íslenskra króna úr Horizon 2020, rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB á sjö ára tímabili áætlunarinnar. Niðurstöður skýrslunnar leiða í ljós að á Íslandi kemur öflugur hópur aðila að norðurslóðarannsóknum og að íslenskir háskólar, stofnanir og fyrirtæki eru eftirsóttir samstarfsaðilar í alþjóðlegu samstarfi. Höfundar skýrslunnar eru þau Emil Ísleifur Sumarliðason, Santiago Villalobos og Sóley Ólafsdóttir, en Egill Þór Níelsson og Þorsteinn Gunnarsson ritstýrðu verkinu.
Rannís veitir opinberan stuðning við rannsóknir, nýsköpun, menntun, menningu og kynnir alþjóðleg sóknarfæri og samstarfsmöguleika. Fjöldi einstaklinga, stofnana, fyrirtækja og skóla hafa notið góðs af styrkjum úr samkeppnissjóðum Rannís og komist skrefinu lengra.
Sviðslistaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til atvinnusviðslistahópa á árinu 2021. Umsóknarfrestur er til 1. október 2020 (kl. 23.59). Umsóknum skal skilað rafrænt á www.rannis.is. Í umsókn er beðið um lýsingu á verki, gildi, ferli listamanna og tímaáætlun. Einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn. Svör til umsækjenda berast í janúar 2021. Athugið að umsókn um styrki til starfsemi atvinnusviðslistahópa getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna. Sviðslistasjóður starfar samkvæmt nýjum lögum um sviðslistir 2019 nr. 165. Umsjón: Óskar Eggert Óskarsson og Ragnhildur Zoëga, sími: 515 5838, svidslistasjodur@rannis.is, www.rannis.is.
43
REKSTUR Heildartekjur Rannís að undanskildum fjármagnsliðum voru 906,3 m.kr. Ríkisframlagið nam 354,2 m.kr. eða 39% af heildartekjum, þar af voru greiddar 13,4 m.kr. vegna aukins rekstrarkostnaðar vegna Covid-19 en launaliður Rannís var endurmetinn til lækkunar um 1,6 m.kr. Heildarsértekjur Rannís voru 552 m.kr. eða 61% af heildartekjum. Stærsti hluti sérteknanna kom frá erlendum opinberum aðilum, 355,2 m.kr. eða 39% sem er 1 m.kr. meira en ríkisframlag ársins. Innbyrðis framlög A-hluta stofnana námu 168,8 m.kr. eða 18,6%. Sértekjur lækkuðu um 46 m.kr. frá fyrra ári. Sjá nánar hlutfall skiptingu tekna sem hlutfall af heildartekjum í töflunni hér á eftir.
Heildargjöld Rannís að undanskildum fjármagnsliðum voru 893 m.kr. þar af er stærsti gjaldaliðurinn laun, launatengd gjöld og orlofsskuldbinding alls 606,1 m.kr. eða 67,9% af heildargjöldum. Meðal stærstu einstakra gjaldaliða fyrir utan launaliðinn er húsaleiga og tengdur kostnaður 54,5 m.kr. eða 6,1%, tölvurekstur 44,9 m.kr. eða 5% sérfræðiþjónusta 41,6 m.kr. eða 4,7% og hugbúnaðargerð 29,3 m.kr. eða 3,3%. Sjá nánari skiptingu gjalda sem hlutfall af heildargjöldum Rannís í töflu hér á undan. Rekstur ársins 2020 var óvenjulegur líkt og hjá flestum öðrum vegna heimsfaraldursins. Gjöld lækkuðu í heildina um 26 m.kr. frá fyrra ári þar af lækkaði ferðakostnaður um 54 m.kr. eða um 80,7%. Húsaleiga og tengdur kostnaður lækkaði um tæplega 5 m.kr. frá fyrra ári en undir þennan lið fellur leiga á fundarsölum fyrir viðburði og stóra fundi sem féllu niður. Launakostnaður hækkaði um 66,4 m.kr. eða 12,3%, vegna áhrifa kjara- og stofnanasamninga. Starfsmenn voru 54 í árslok í 52,24 stöðugildum. Tölvurekstur og hugbúnaður hækkaði um 12,5 m.kr. eða 20%. Hækkun skýrist að mestu af kostnaði vegna innleiðingar nýs bókhaldskerfis Orra, Office 365, kaupum á fjarfundahugbúnaði og uppsetningu á nýjum búnaði í fundarherbergjum fyrir fjarfundi vegna heimsfaraldurs. Aðkeypt sérfræðiþjónusta lækkaði um 8,8 m.kr. eða 17,5%. Fundar- og námskeiðskostnaður lækkaði um tæpar 13 m.kr. eða 60,0%, auglýsingakostnaður hækkaði hins vegar um 4,6 m.kr. eða 31,8%, tilfærslur lækkuðu um 11,7 m.kr. eða 63,8%, sem skýrist af áhrifum heimsfaraldurs.
Tekjur í m.kr. Ríkisframlag
354,2
39,1%
Erlendir opinberir aðilar
355,2
39,2%
Innbyrðis framlög milli A-hluta stofnana
168,8
18,6%
0,8
0,1%
17,3
1,9%
Endurgreiddur ferðakostnaður
2,1
0,2%
Tekjufærsla frestaðra tekna fyrri ára
7,9
0,9%
906,3
100%
Kostnaðarhlutdeild í sameiginlegri þjónustu Aðrar tekjufærslur
Tekjur alls
Gjöld í m.kr. Laun og launatengd gjöld
606,1
67,9%
Húsaleiga og tengdur kostnaður
54,5
6,1%
Ferðakostnaður og uppihald erlendis
11,4
1,3%
1,5
0,2%
Tölvurekstur
44,9
5,0%
Hugbúnaðargerð
29,3
3,3%
Sérfræðiþjónusta
41,6
4,7%
Aðilda- og félagsgjöld
26,1
2,9%
8,6
1,0%
18,9
2,1%
6,6
0,7%
35,6
4,0%
7,9
0,9%
893,0
100%
Ferðakostnaður og uppihald innanlands
Funda- og ráðstefnukostnaður Auglýsingar, myndbandagerð og birtingar Tilfærslur Annar kostnaður ótilgreindur Afskriftir Gjöld alls
Rekstrarniðurstaða ársins 2020 er afgangur fyrir fjármagnsliði upp á 13,3 m.kr. en afgangur að teknu tilliti til fjármagnstekna er 31,7 m.kr. Hækkun fjármunatekna stafar eingöngu af gengishagnaði.
44
Ljósm yndir BI G
Svipmyndir frá afhendingu Nýsköpunarverðlauna Íslands og frá úthlutun úr Jafnréttissjóði Íslands.
45
Nýsköpunarumhverfið á Íslandis 2020
46
2020
Svipmyndir frá ýmsum viðburðum á vegum Rannís 2020
47
ÁRSREIKNINGUR RANNÍS 2020
48
ÁRSREIKNINGUR
Yfirlit um afkomu ársins 2020
2020 2019
Tekjur
Framlög ríkissjóðs
354.200.000
338.200.000
Aðrar tekjur
539.345.088
574.600.419
906.250.843
933.188.786
Laun og tengd gjöld
606.063.927
539.669.568
Annar rekstrarkostnaður
272.406.541
352.476.941
892.974.693
918.922.101
13.276.150
14.266.685
Vaxtatekjur, verðbætur og gengishagnaður
18.837.573
768.802
Seld þjónusta
4.827.108
Tekjufærsla frestaðra tekna fyrri ára
7.878.647
Gjöld
Tilfærslur
6.625.578
Afskriftir
7.878.647
Afkoma fyrir fjármagnsliði Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)
Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur
11.921.884 8.466.483
18.309.109 8.466.483
( 417.147)
18.420.426
(1.299.444)
Afkoma ársins
31.696.576
13.736.043
(530.642)
49
ÁRSREIKNINGUR
Efnahagsreikningur 31. desember 2020 Eignir
2020 2019
Fastafjármunir
Varanlegir rekstrarfjármunir: Innréttingar, áhöld og tæki
18.412.365
18.260.837
2.577.899
11.588.674
18.412.365
18.260.837
Veltufjármunir
Skammtímakröfur: Viðskiptakröfur Tengdir aðilar
108.225.535
165.336.651
Bankainnstæður
194.531.891
210.330.449
Eignir samtals
323.747.690
406.642.587
Viðskiptareikningar vegna ferðakostnaðar Handbært fé:
Veltufjármunir
305.335.325
50
1.125.976
388.381.750
2020
ÁRSREIKNINGUR
Eigið fé og skuldir
2020 2019
Eigið fé
Hrein eign
Eigið fé samtals
34.426.576
7.588.463
174.344.875
290.243.935
55.182.224
39.675.933
34.426.576
7.588.463
Skuldir
Skammtímaskuldir: Tengdir aðilar
Viðskiptaskuldir
50.413.145
Ýmsar skammtímaskuldir
Frestun tekjufærslu fjárfestingaheimilda
9.380.870
55.074.739 14.059.517
Skammtímaskuldir
289.321.114
399.054.124
Skuldir samtals
289.321.114
399.054.124
Eigið fé og skuldir samtals
323.747.690
406.642.587
51