ÁRSSKÝRSLA RANNÍS
2019
Hรถnn un og umb rot: Hnotskรณg ur / Pr entu n: Svanspr ent
2
2019 EFNISYFIRLIT ÁVARP FORSTÖÐUMANNS . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4 TÍMAÁS . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6 STARFSEMI OG SKIPULAG . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
13
SVIÐSSTJÓRAR HORFA FRAM Á VEGINN . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 19 SJÓÐIR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
23
ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 30 VIÐBURÐIR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
38
MANNAUÐUR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
44
ÚTGÁFU- OG KYNNINGARMÁL . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
47
UMSÓKNA-, FAGRÁÐS- OG UPPLÝSINGAKERFI . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
50
REKSTUR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
51
ÁRSREIKNINGUR RANNÍS 2019 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 56
3
ÁVARP FORSTÖÐUMANNS Við útgáfu ársskýrslu Rannís að þessu sinni erum við að fást við krefjandi verkefni vegna heimsfaraldursins COVID-19. Við Íslendingar og heimsbyggðin öll stöndum frammi fyrir nýjum áskorunum, kreppu sem virðist dýpri en við þekkjum úr nútímasögunni. Vonandi verður hún skammvinn. Enn á ný erum við minnt á mikilvægi þess að byggja atvinnulíf á sem flestum stoðum til að leitast við að dreifa áhættu sem felst í einsleitni atvinnulífsins. Ferðaþjónustan sem verið hefur drifkrafturinn í hagvexti undanfarin ár, hefur á örskotsstundu misst flugið, en gera má ráð fyrir að afl hennar nái fyrri styrkleika á komandi árum.
á nú á þessum fordæmalausu tímum. Áhersla á fjölbreytni, þróunar- og nýsköpunarstarf auk mikils skilnings á þýðingu og mikilvægi listastarfsemi er augljós. Á miðju ári 2019 var kynnt ný stefna fyrir Rannís þar sem leitast er við að horfa fram til ársins 2025. Framtíðarsýn Rannís er að örva rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Þessir þættir gegna lykilhlutverki í að skapa hér á landi fjölbreyttara atvinnulíf sem byggir á sjálfbærni og ekki síst á hugviti og skapandi umhverfi. Stefnumarkandi áherslur í stefnu Rannís eru; að hafa samfélagsleg áhrif, bæta starfshætti, styrkja mannauðinn, styrkja alþjóðastarf og ímynd Rannís og verkefna sem stofnunin stendur fyrir. Í stefnunni eru sett fram rúmlega 20 markmið og þeim tengjast um 40 aðgerðir sem þegar er hafin vinna við og gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir á næstu þremur árum.
Það er traustvekjandi að fylgjast með viðbrögðum stjórnvalda við aðstæðunum. Fjárfestingarátakið sem kynnt hefur verið, er okkur starfsfólki Rannís hvatning og eykur trúna á að batinn verði skjótur. Bætt verður verulega í sjóði og verkefni sem Rannís hefur umsýslu með um töluverðar upphæðir svo sem Rannsóknasjóð, Tækniþróunarsjóð og Innviðasjóð auk þess sem til dæmis Nýsköpunarsjóður námsmanna er stórefldur. Sjóðir sem veita stuðning til menningarmála svo sem Listamannalaun, styrkir til atvinnuleikhópa og Tónlistarsjóður fá jafnframt aukið fé til ráðstöfunar. Það er ánægjulegt að hafa tæki og tól til að geta brugðist við með skjótum hætti á þeim mikilvægu sviðum sem stjórnvöld leggja áherslu
Stuðningur hins opinbera til þeirra greina sem Rannís styður við skiptist í meginatriðum í þrjá þætti: Innlenda samkeppnissjóði, réttindasjóði (skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna og fyrir erlenda sérfræðinga) og framlög til sjóða, það er alþjóðlegra samkeppnissjóða (evrópskra og norrænna) sem íslenskir aðilar geta sótt í. Allar eru þessar aðgerðir til að takast á við ákveðinn markaðsbrest. Mikilvægt er að litið sé á þessa þætti í samhengi. Skattendurgreiðsla nýtist best þeim sem hafa byggt upp þróunarumhverfi innanhúss eða í samstarfi við aðra, samkeppnissjóðir styðja við
4
rannsóknir, þróun og nýsköpun, annars vegar til að efla þann grunn sem er nauðsynleg viðspyrna fyrir framtíðina og jafnframt fyrir sprota- og nýsköpunarfyrirtæki sem eru að byggja upp þekkingu og viðskipti þar sem verulega er gengið á eigið fé við uppbyggingu framtíðarviðskipta. Gæta þarf að því að allir þessir þættir fái þá athygli sem þörf er á.
Það er ánægjulegt að líta til baka yfir árið og sjá hversu umfangsmikið og fjölbreytt starf Rannís er. Starfið er mikilvægt og fjármunir sem sýslað er með fara vaxandi með hverju árinu. Það sem skiptir mestu er að verkefnin og áhrif þeirra lúta að framtíðinni og styrkja getu okkar Íslendinga til að takast á við verkefni sem skipta miklu til framtíðar.
Alþjóðleg tengsl í öllu þessu starfi eru mikilvæg þegar litið er til þess að meta árangur af starfinu. Hér á landi er til staðar öflugt rannsókna- og þróunarstarf, hvort sem litið er til grunnrannsókna eða nýsköpunar og frumkvöðlastarfs. Mennta- og menningarstarf er ekki síður öflugt og er einstaklega ánægjulegt að sjá framúrskarandi fulltrúa landsins hljóta alþjóðlegar viðurkenningar. Það segir að hér er frjótt umhverfi sem elur af sér yfirburða fólk.
Hjá Rannís starfar öflugur samhentur hópur starfsmanna, sem lítur á það sem sitt verkefni að vera bakhjarl þeirra markhópa sem stofnunin þjónar og sýna lipurð og þjónustulund við framkvæmdina. Vilji og jákvæð viðbrögð starfsmanna nú á tímum heimsfaraldurs til að takast á við aukin verkefni er lofsverð. Að lokum vil ég þakka starfsmönnum, samstarfsfólki og öðrum sem Rannís á í samskiptum við fyrir gott samstarf á árinu.
Í þessari ársskýrslu kemur fram hversu vel okkur gengur í Evrópusamstarfi, rannsóknar- og nýsköpunarstarfi, mennta- og menningarstarfi og sókn í skiptinám bæði til og frá landinu. Öflugt alþjóðlegt samstarf á öllum starfssviðum Rannís er mikilvægt, hvort sem er til að læra af og sækja þekkingu og reynslu, deila reynslu og þekkingu, komast á markað eða auðga og gera líf okkar innihaldsríkara.
Áhugavert er að líta til þess að framleiðni starfsfólks hefur aukist á undanförnum árum, umfang sjóða og aðgerða hefur stóraukist, en umfang vinnunnar hefur ekki vaxið í sama mæli. Framleiðni hefur því aukist mikið með aukinni upplýsingatækni og bættu skipulagi.
5
Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
2019
Viðburðir og kynningar skipa stóran sess í starfsemi Rannís. Til að styðja við kynningarstarf á rannsóknum, nýsköpun, menntun og menningu og gera áhrif þekkingarsköpunar sýnileg, stendur Rannís fyrir ýmsum viðburðum eins og Rannsóknaþingi, Vorfundi Tækniþróunarsjóðs, Vísindavöku, Erasmusdögum og Nýsköpunarþingi. Þá eru haldnir kynningarfundir víða um land, námskeið, vinnustofur og tengslaráðstefnur. Rannís á einnig þátt í að hvetja vísinda- og fræðafólk til dáða með viðurkenningum á borð við Hvatningaverðlaun Vísinda- og tækniráðs í samvinnu við ráðið, Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands í samvinnu við Nýsköpunarsjóð námsmanna og Nýsköpunarverðlaun Íslands í samvinnu við Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins. Hér gefur að líta brot af því helsta sem bar til tíðinda í starfsemi Rannís á árinu.
JANÚAR 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Ísland tekur við stjórn Nordplus mennta1 áætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar næstu þrjú til fimm árin og sér Rannís um rekstur aðalskrifstofunnar fyrir Nordplus áætlunina á tímabilinu
Verkefnastjórar sem fengu styrk úr æskulýðshluta Erasmus+
Rannís úthlutar um 92 milljónum króna 9 til 19 verkefna tengdum æskulýðsstarfi úr æskulýðshluta Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlunar ESB
Ráðherra fræddist um starfsemi Rannís ásamt starfsfólki sínu
10
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningar9 málaráðherra heimsótti Rannís og fræddist um fjölbreytta starfsemi stofnunarinnar og stefnu Rannís til ársins 2025
Rannsóknasjóður úthlutar um 850 milljónum til 61 nýs verkefnis
Leiklistarráð úthlutar 99 milljónum til 11 19 atvinnuleikhópa 11
6
Launasjóður listamanna úthlutar 359 listamönnum 1600 mánaðarlaunum
31
JANÚAR Kynningarfundur um tækifæri í nýjum 17 áætlunum Uppbyggingarsjóðs EES haldinn af Rannís í samstarfi við utanríkisráðuneytið
Stjórn Tækniþróunarsjóðs úthlutar tveimur 25 fyrirtækjum Sprett styrk Hvor styrkur getur numið allt að 70 milljónum yfir tveggja ára tímabil. Sprettur er veittur fyrirtækjum sem hafa mikla möguleika á hröðum vexti á markaði.
Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð 21 á vegum Rannís og Samtaka iðnaðarins í Húsi atvinnulífsins
Starfsemi Rannís var kynnt á Framadögum
Rannís tekur þátt í Framadögum 24 í Háskólanum í Reykjavík
FEBRÚAR 1
2
3
1
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Tónlistarsjóður úthlutar rúmum 22 milljónum til 57 verkefna, fyrri úthlutun
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
Hanna Ragnarsdóttir, nemi við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, Heiðar Már Þráinsson, nemi á verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands og Róbert Ingi Huldarsson, nemi á verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands hlutu verðlaunin fyrir verkefnið Þróun á algrími til að finna örvökur í sofandi einstaklingum með því að skoða önnur lífmerki en heilarit og sannpróun á aðferð til að greina orsakir kæfisvefns með stóru gagnasafni, sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin. Stjórn Markáætlunar í tungu og tækni 19 úthlutar 77 milljónum til sex verkefna á sviði tungu og tækni
Verðlaunahafar ásamt forseta Íslands á Bessastöðum
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands afhent 6 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum Eysteinn Gunnlaugsson, meistaranemi í tölvunarfræði við Kunglige Tekniska Högskolan í Svíþjóð,
MARS 1
2
7
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Nýsköpunarsjóður námsmanna úthlutar um 80 milljónum til 90 nemenda og til 59 verkefna
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Mín framtíð 2019 - framhaldsskólakynning 14 í Laugardalshöll samhliða Íslandsmóti iðnog verkgreina, 14.-16. mars Rannís kynnti þar starfsemi sína, meðal annars Erasmus+, Farabara, Eurodesk og Europass.
Íþróttasjóður úthlutar rúmlega 11 20 milljónum til 74 verkefna
27 Æskulýðssjóður úthlutar tæpum fjórum milljónum til sex verkefna, fyrri úthlutun
7
31
APRÍL 1
2
3
1
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Rannís býður starfsfólki upp á heilsudaga, 1.- 5. apríl
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Vinnustofa um tækifæri og styrki 15 fyrir fyrirtæki á sviði nýsköpunar og viðskiptaþróunar í bláa og græna hagkerfinu Haldin á vegum Uppbyggingarsjóðs EES í samstarfi við Rannís, Matís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Íslandsstofu og Háskóla Íslands.
Horizon 2020 námskeið um fjármál 3 og uppgjör í samstarfi við Félag rannsóknastjóra Nýliðafræðsla 10 Nýir starfsmenn fengu kynningu á starfsemi Rannís
T. Armstrong Changsan, sendiherra 23 Indlands á Íslandi heimsækir Rannís
MAÍ 1
2
3
2
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Þróunarsjóður námsgagna úthlutar tæpum 52 milljónum til 27 verkefna
Starfsmenn Rannís fengu kynningu á starfsemi framkvæmdastjórnar ESB
Náms- og kynnisferð starfsfólks til Brussel 16 þar sem samstarfsaðilar Rannís voru heimsóttir, svo sem EFTA skrifstofan og framkvæmdastjórn ESB
Verkefnastjórar sem fengu styrk úr æskulýðshluta Erasmus+
Rannís úthlutar um 60 milljónum 3 króna til 17 verkefna æskulýðshluta Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlunar ESB Stjórn Starfslaunasjóðs sjálfstætt starfandi 10 fræðimanna úthlutar tæplega 44 milljónum í styrki til 23 sjálfstætt starfandi fræðimanna Hljóðritasjóður úthlutar tæpum 14 22 milljónum til 64 hljóðritunarverkefna, fyrri úthlutun Tilkynnt um úthlutun á 10 styrkjum að 16 upphæð 15 milljónir króna úr Tækniþróunarsjóði í styrktarflokknum Fræ
Glatt starfsfólk í anda Great Gasby
Árshátíð starfsfólks haldin á Le Plaza 18 í Brussel Hin árlega Vísindavika norðurslóða 22 (Arctic Science Summit Week 2019) haldin í Arkhangelsk í Rússlandi til að leggja línur og móta stefnu í starfi IASC fyrir árið 2020
8
31
starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Tilkynnt um úthlutun úr Nordplus áætluninni 29 til verkefna sem hefjast á árinu 2019 Rannís hefur umsjón með Nordplus á Íslandi og taka íslenskir aðilar þátt í 164 af þeim 374 verkefnum sem styrkt voru. Tækniþróunarsjóður úthlutar um 29 550 milljónum til 44 nýrra verkefna nýsköpunarfyrirtækja og frumkvöðla
OKið, upplifunar- og þátttökurými styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands
Barnamenningarsjóður Íslands úthlutar 26 97,5 milljónum til 36 verkefna Barnamenningarsjóður Íslands er átaksverkefni til fimm ára og er hlutverk hans að styðja fjölbreytta
JÚNÍ 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Farið var yfir vorúthlutun Tækniþróunarsjóðs, nýjum styrkþegum fagnað og flutt voru áhugaverð erindi úr heimi nýsköpunar og tækniþróunar. 7
Opnað fyrir þátttöku í 40 nýjum COST verkefnum
Rannís úthlutar um 550 milljónum króna 14 í náms- og þjálfunarstyrki úr menntahluta Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlunar ESB Úthlutað var til 48 verkefna og nutu ríflega eitt þúsund einstaklingar frá skólastofnunum, fræðsluaðilum og fyrirtækjum góðs af styrkjunum að þessu sinni.
Fulltrúar portúgölsku sendinefndarinnar
Rannís tók á móti fulltrúum portúgölsku 3 áætlunar Uppbyggingarsjóðs EES, 3.-4. júní Portúgalska sendinefndin kynnti áætlanir sínar á málefnasviðum Rannís. Auk þess að eiga góðan fund í Rannís, heimsóttu gestirnir nokkra hagaðila. Rannsóknarsjóður Sigrúnar Ástrósar 4 Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar úthlutar tæpum 2 milljónum til 12 styrkþega
Styrkjum var úthlutað við hátíðlega athöfn á kvenréttindadaginn
Stjórn Jafnréttissjóðs Íslands úthlutar 19 tæplega 91 milljón króna til 17 verkefna
21
Stefna Rannís til 2025 kemur út á íslensku og ensku
Rannís tók á móti fulltrúum tékknesku rann21 sóknaráætlunar Uppbyggingarsjóðs EES Átti nefndin fund með fulltrúum Rannís auk þess sem gestirnir heimsóttu nokkrar áhugaverðar stofnanir.
Fjölmennt var á vorfundi Tækniþróunarsjóðs í Iðnó
6 Vorfundur Tækniþróunarsjóðs Hrund Gunnsteinsdóttir, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs, stýrði fundinum sem var helgaður hringrásarhagkerfinu - sjálfbærri nýsköpun. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðarog nýsköpunarráðherra, ávarpaði gesti og Mikko Kosonen frá Sitra í Finnlandi flutti aðalerindi fundarins.
Tónlistarsjóður úthlutar 24 milljónum til 28 63 verkefna, seinni úthlutun
9
JÚLÍ 1
2
3
2
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Síðustu vinnuáætlanir Horizon 2020 birtar
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
Tilkynnt um nýja stjórn Tækniþróunarsjóðs 12 til næstu tveggja ára, til 1. júní 2021
Opnað fyrir umsóknir um stuðning við 11 útgáfu bóka. Lög um stuðning við útgáfu bóka á íslensku tóku gildi 1. janúar 2019 Markmiðið er að efla útgáfu bóka á íslensku með því að veita bókaútgefendum tímabundinn stuðning í formi endurgreiðslu á hluta kostnaðar sem fellur til við útgáfu bóka á íslensku.
ÁGÚST 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
ESB efnir til opins samráðs um 8 stefnumótun fyrir næstu rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB, Horizon Europe 28
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
29
30
Fjölmennt námskeið haldið þar sem 30 Sean McCarthy, frá Hyperion á Írlandi, kenndi hvernig á að skrifa samkeppnishæfa umsókn í Horizon 2020
Kynning á styrktarmöguleikum Evrópuáætlana á Norðurlandi, 28.-29. ágúst
SEPTEMBER 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
Dagana 23.-28. september, í aðdraganda 23 Vísindavöku, voru haldin sjö vísindakaffi víða um land, þar sem vísindafólk sagði frá rannsóknum í kaffihúsaspjalli
Frá upphafsfundi verkefnastjóra samstarfverkefna skóla
Rannís úthlutar um 650 milljónum króna 4 úr menntahluta Erasmus+ áætlunarinnar til 18 evrópskra samstarfsverkefna og þátttöku íslenskra skóla í 39 skólaverkefnum
Mikil stemning var á Vísindavöku
Vísindavaka Rannís haldin í Laugardalshöll 28 Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís, flutti ávarp og afhenti viðurkenningu Rannís fyrir vísindamiðlun. Sprengju-Kata sprengdi Vísindavökuna í gang. Á vökunni var opið sýningarsvæði með lifandi vísindamiðlun og boðið var upp á stutta fyrirlestra.
Rannís úthlutar um 104 milljónum 6 króna til 15 verkefna tengdum æskulýðsstarfi úr æskulýðshluta Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlunar ESB Evrópskur fundur starfsfólks landskrifstofa 12 Erasmus+ sem sinna fullorðinfræðslu haldinn í Hveragerði með 36 þátttakendum frá 32 löndum
Viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun 28 Vísindasmiðja Háskóla Íslands hlaut viðurkenninguna sem afhent var á Vísindavöku. Í Vísindasmiðjunni er vísindum miðlað til grunnskólanema og kennara þeirra með gagnvirkum og lifandi hætti.
Stofnfundur Grænvangs, samstarfs19 vettvangs um loftslagsmál en Rannís er meðal stofnfélaga 10
31
OKTÓBER 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Samspil vísinda við stefnumótun 8 stjórnvalda Dagana 8.-9. október var haldin vinnusmiðja fyrir unga vísindamenn um samspil vísinda við stefnumótun stjórnvalda en þátttakendur voru 30 vísindamenn, meðal annars frá Þýskalandi, Bretlandi, Íslandi og svæðum frumbyggja á norðurslóðum. Niðurstöðurnar voru síðan kynntar á Arctic Circle og gefnar út í skýrsluformi.
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Fundur framkvæmdanefndar IASC haldinn 14 í Reykjavík Framkvæmdanefndin bauð fulltrúum CAFF, PAME og Rannís til fundarins.
Arctic Circle, hringborð norðursins 10 Rannís og IASC tóku þátt í eða skipulögðu sex viðburði og kynntu norðurslóðastarf á Akureyri ásamt öðrum stofnunum undir yfirskriftinni Arctic Akureyri.
Curio hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2019
Nýsköpunarþing og afhending 21 Nýsköpunarverðlauna Íslands Fyrirtækið Curio hlaut verðlaunin í ár og veitti Elliði Hreinsson, framkvæmdastjóri Curio, þeim viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Yfirskrift þingsins var Sjálfbærni til framtíðar. Innviðasjóður úthlutar tæpum 292 milljónum 25 til 26 verkefna
Erasmusdagar voru haldnir í október
Ráðstefna um jöfn tækifæri í Erasmus+ 11 Fjallað var um þann stuðning sem er fyrir hendi til að tryggja jöfn tækifæri til þátttöku í Erasmus+. Í lok ráðstefnunnar voru veittar viðurkenningar til þeirra verkefna sem hafa unnið sérlega gott starf í þágu jafnra tækifæra. Viðburðurinn var hluti af Erasmusdögum.
NÓVEMBER 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
Rannís býður starfsfólki upp á heilsudaga, 11 11.- 15. nóvember
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2019 Vísindamálaráðherra ásamt öðrum fyrirlesurum á EIC fundi
Rannsóknaþing og afhending 5 Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs Finnur Dellsén, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, hlaut viðurkenninguna að þessu sinni. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vísindaog tækniráðs, afhenti verðlaunin. Yfirskrift þingsins var Alþjóðlegt samstarf, áherslur og tækifæri í rannsóknum.
Kynningarfundur á tækifærum innan 12 Evrópska nýsköpunarráðsins (European Innovation Council) Kynningarfundur um Eurostars áætlunina 12 haldinn á vegum Rannís og atvinnuvegaog nýsköpunarráðuneytisins 11
30
31
2019
NÓVEMBER
Kynningarfundur Loftslagssjóðs 28 í Norræna húsinu Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Sjóðurinn heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra en er í umsjón Rannís. IASC opnar fyrir skráningar á Vísindaviku 29 norðurslóða (ASSW) sem haldin verður á Akureyri vorið 2020 Í lok ráðstefnunnar afthentu ungmennin ráðherra niðurstöður sínar
Norræna tungumálaráðstefnan Trans28 Atlantic Language Congress (T.A.L.C.) Norræn tungumálaráðstefna ungmenna var haldin dagana 28.-30. nóvember í Borgarfirði þar sem mættust hátt í 80 ungmenni, frá Norðurlöndum og sjálfstjórnarsvæðunum, Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi, að ræða stöðu norrænna tungumála.
DESEMBER 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
Fjölþjóðleg Erasmus+ ráðstefna um 4 alþjóðavæðingu kennaramenntunar Um 70 þáttakendur frá yfir 20 Evrópuríkjum tóku þátt. Kynningarfundur um mennta- og 5 æskulýðsáætlun Erasmus+ og Nordplus á Icelandair hótel Reykjavík Natura
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
6
Æskulýðssjóður úthlutar rúmum fimm milljónum til átta verkefna, seinni úthlutun
Jólagleði starfsfólks
6
30
Hljóðritasjóður úthlutar rúmum 16 milljónum 11 til 63 verkefna, seinni úthlutun Tilkynnt um haustúthlutun Tækniþróunarsjóðs 17 Stjórn Tækniþróunarsjóðs samþykkti að bjóða fulltrúum 33 verkefna að ganga til samninga um nýja verkefnastyrki fyrir allt að 520 milljónir króna.
Ný áætlun um sjálfboðaliðastörf var kynnt á opnum fundi
5
European Solidarity Corps áætluninni ýtt úr vör í Bíó Paradís
12
19
Jólakaffi starfsfólks
31
STARFSEMI OG SKIPULAG Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Rannís styður þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum, ásamt því að greina og kynna áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.
menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar. Á meðal sjóðanna eru Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður, sem eru tveir stærstu samkeppnissjóðir hér á landi, Erasmus+, Horizon 2020, Barnamenningarsjóður Íslands, Jafnréttissjóður Íslands, Loftslagssjóður og Listamannalaun. Samskiptanetið er stórt, en skólar, stofnanir, einstaklingar og fyrirtæki auk stjórnsýslunnar tilheyra viðskiptavinahópi Rannís.
Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og
Hér má sjá yfirlit yfir helstu samkeppnissjóði og sérverkefni sem Rannís hefur umsjón með
Innlendir sjóðir ● Atvinnuleikhópar ● Barnamenningarsjóður Íslands ● Hljóðritasjóður ● Innviðasjóður ● Íslenskukennsla fyrir útlendinga ● Íþróttasjóður ● Jafnréttissjóður Íslands ● Listamannalaun ● Loftslagssjóður ● Markáætlun í tungu og tækni ● Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla ● Nýsköpunarsjóður námsmanna ● Rannsóknarsjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar ● Rannsóknasjóður ● Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara – SEF ● Skattfrádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga
Alþjóðastarf ● Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna ● Sóknarstyrkir ● Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna ● Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku ● Tónlistarsjóður ● Tækniþróunarsjóður ● Vinnustaðanámssjóður ● Þróunarsjóður námsgagna ● Æskulýðssjóður
● Arctic Research and Studies ● COST ● Creative Europe ● Erasmus+ ● Sérverkefni Erasmus+ EAAL ECVET EPALE eTwinning Eurodesk Euroguidance Higher Education Reform Kynningar á möguleikum fyrir ungt fólk ● European Solidarity Corps ● Eurostars NPC ● Euraxess ● Evrópska tungumálamerkið ● Horizon 2020 ● Landstenglaverkefni Horizon 2020 BioHorizon C-Energy
13
COSMOS Ideal-ist NCP CaRE NET4MOBILITY Net4Society RICH SEREN SiS.net ● ERA-net BlueBioeconomy ERA-Net GEOTHERMICA ERA-Net M-ERA.NET 2 HERA ● Norrænt samstarf Nordplus NordForsk NOS-HS NOS-M NOS-N ● Jules Verne ● Tungumálamiðstöðin í Graz ● Uppbyggingarsjóður EES
VÍSINDA- OG TÆKNIRÁÐ Rannís er náinn samstarfsaðili Vísinda- og tækniráðs og veitir stofnunin faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd stefnu ráðsins. Vísinda- og tækniráð hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækniþróun í landinu í því skyni að treysta stoðir íslenskrar menningar og auka samkeppni atvinnulífsins. Forsætisráðherra er formaður ráðsins en þar sitja einnig mennta- og menningarmálaráðherra, fjármálaog efnahagsráðherra og ferðamála-, iðnaðarog nýsköpunarráðherra. Ráðið markar stefnu stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum til þriggja ára í senn. Umfjöllun ráðsins á hvoru sviði um sig er undirbúin af starfsnefndum ráðsins, vísindanefnd og tækninefnd.
Vísinda- og tækniráð skipaði stjórn Markáætlunar í árslok og hefur hún það hlutverk að útfæra umsóknarferli fyrir Samfélagslegar áskoranir. FJÖGUR SVIÐ RANNÍS Starfsemi Rannís skiptist í þrjú fagsvið: rannsóknaog nýsköpunarsvið, alþjóðasvið og mennta- og menningarsvið. Rekstrarsvið gengur þvert á fagsviðin og styður við starfsemi þeirra. Sameiginlegt markmið sviðanna er að efla samstarf stjórnvalda og hagsmunaaðila við undirbúning og framkvæmd opinberrar vísinda- og tæknistefnu og styðja við rannsóknir og nýsköpun, menntun, menningu og þróun mannauðs. REKSTRARSVIÐ Hlutverk sviðsins er umsjón með fjármálum, bókhaldi og rekstri skrifstofu Rannís ásamt mannauðsmálum, skjala- og gagnastjórnun, samskipta- og kynningarmálum, móttöku viðskiptavina og rekstur mötuneytis.
Nýtt ráð tók til starfa á árinu og er skipunartími þess 2019-2021. Vísinda- og tækninefndir hittust fjórum sinnum á sameiginlegum fundum, vísindanefnd fundaði fimm sinnum og tækninefnd fjórum sinnum á árinu. Vísinda- og tækniráð fundaði fjórum sinnum á árinu í mars, júní, október og desember. Meginverkefni ársins var að móta nýja stefnu Vísinda- og tækniráðs en þeirri vinnu var ekki lokið í árslok.
Stefna Rannís til 2025 var samþykkt á árinu og vinnuhópar myndaðir til að útfæra aðgerðaáætlun fyrir hvern málaflokk stefnunnar. Vinna í starfshópum hófst á haustmánuðum og byrjað var á því að samþykkja forgangsröðun verkefna innan hvers málaflokks. Aðgerðaáætlun hvers hóps varir frá nokkrum mánuðum í allt að þrjú ár eftir málefnum. Helstu breytingar á rekstrarsviði á árinu fólust í undirbúningi fyrir innleiðingu Office 365 og endurskoðun þarfa fyrir nýtt bókhaldskerfi. Auk þess sem að Gæðaráð háskóla varð sjálfstæð rekstrareining og stjórnun NordPlus færðist undir rekstur Rannís. Á vormánuðum 2019 hófst formlegur undirbúningur að innleiðingu Office 365 með stofnun hóps fyrirliða innan Rannís. Rannís deilir einum skýjageira með 70 öðrum stofnunum en sú uppsetning er flóknari en almennt gerist og tafði það innleiðinguna. Samið var við Þekkingu um færsluna upp í skýið en fyrirtækið vinnur samhliða þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins – Umbru. Ekki var hægt að klára gagnaflutning Rannís upp í skýið fyrir áramótin en stefnt er á flutning á fyrstu mánuðum ársins 2020. Í lok nóvember ákvað Rannís að færa sig úr bókhaldskerfinu Navision yfir í Orrann frá og með 1. janúar 2020. Í náinni framtíð mun starfsumhverfi bókhalds taka örum breytingum með auknum kröfum um rafræna ferla og þá er mikið öryggi í að geta nýtt þekkingu sérfræðinga Orrans og fylgt rafrænni þróun kerfisins. Eftir að ákvörðunin lá fyrir hófst undirbúningsvinna innan Rannís í samstarfi við starfsfólk Advania og Fjársýslu ríkisins.
Kynningar á möguleikum fyrir ungt fólk – Umhverfis landið á 80 dögum Í byrjun árs setti Rannís sér það metnaðarfulla markmið að heimsækja meirihluta framhaldsskóla landsins og kynna ungu fólki þá möguleika sem bjóðast í námi, sjálfboðaliðastörfum og rafrænni samvinnu við annað ungt fólk í Evrópu. Á árinu heimsótti starfsfólk Rannís um það bil 1100 nemendur í nær helmingi allra framhaldsskóla á landinu, þar sem sérstök áhersla var lögð á skóla á landsbyggðinni. Rannís tók einnig þátt í Alþjóðadögum HÍ og HR, Framadögum í HR og Mín framtíð: Íslandsmóti iðnog verkgreina og framhaldsskólakynningum. 14
SKIPURIT RANNÍS 2019 Vísinda- og tækniráð
Mennta- og menningarmálaráðuneyti
Sérverkefni
Forstöðumaður
- Ritari Vísinda- og tækniráðs - Sjóðir og alþjóðastarf - IASC
Alþjóðasvið Rekstrarsvið
Fjármál, mannauðsmál, samskipta- og kynningarmál, gagnastjórnun, gæðamál, tölvukerfi og rekstur mötuneytis
Rannsókna- og nýsköpunarsvið
- Horizon 2020 - COST - Uppbyggingarsjóður EES - Euraxess - NordForsk - Arctic Research and Studies - Jules Verne - Norðurslóðasamstarf - Annað alþjóðasamstarf í rannsóknum
- Rannsóknasjóður - Tækniþróunarsjóður - Innviðasjóður - Nýsköpunarsjóður námsmanna - Markáætlun - Jafnréttissjóður Íslands - Loftslagssjóður - Aðrir innlendir sjóðir í rannsóknum og nýsköpun - Gæðaráð háskóla - Umsókna- og upplýsingakerfi
Mennta- og menningarsvið - Erasmus+
- European Solidarity Corps - Creative Europe - Nordplus - Europass - Euroguidance - Eurodesk - EPALE - eTwinning - Innlendir sjóðir mennta og menningarmála ráðuneytis - Upplýsingastofa um nám
Rannís heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneytið og starfar á grundvelli laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3/2003.
Gæðaráð háskóla varð sjálfstæð rekstrareining frá og með 1. janúar 2019 en heyrði áður undir rekstur Rannís. Gæðaráðið hélt þó aðstöðu sinni hjá Rannís út árið. Rannís tók við stjórn Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar frá 1. janúar 2019 til þriggja til fimm ára og hélt utan um rekstur þess.
í undiráætlun sem snýr að nýsköpun í litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Skipulögð voru tvö námskeið á alþjóðasviði, annað þeirra sneri að því hvernig skrifa á samkeppnishæfa umsókn í Horizon 2020 og hitt var um fjármál og uppgjör í áætluninni. Um miðbik ársins voru síðustu vinnuáætlanir Horizon 2020 birtar þar sem áætlunin mun renna sitt skeið á næsta ári.
ALÞJÓÐASVIÐ Alþjóðasamstarf á sviði rannsókna og nýsköpunar var sem fyrr fyrirferðarmikið í starfsemi Rannís, en helsta markmið alþjóðasviðs er að styðja við þátttöku íslenskra aðila í erlendum samstarfsverkefnum á þeim sviðum.
Starfsmenn alþjóðasviðs hafa með höndum hlutverk landstengla undiráætlana Horizon 2020 og samræma það við starf stjórnarnefndarfulltrúa, sem í flestum tilfellum koma úr vísinda- og nýsköpunarsamfélaginu. Til að styrkja starf landstengla, læra af öðrum og deila starfinu á alþjóðavettvangi, taka starfsmenn sviðsins þátt í tíu samstarfsverkefnum landstengla, en Rannís leiðir eitt slíkt samstarfsverkefni, á sviði Vísinda í þágu samfélagins með þátttöku 16 systurstofnana um alla Evrópu.
Árið 2019 var Rannsóknaþing tileinkað alþjóðasamstarfi þar sem farið var yfir stöðuna en fyrst og fremst horft til næstu rannsókna- og nýsköpunaráætlunar ESB sem tekur við í ársbyrjun 2021. Mikil og góð þátttaka er í Horizon 2020 og öðru Evrópusamstarfi, bæði þegar kemur að þátttöku íslensks vísinda- og nýsköpunarsamfélags en einnig tekur alþjóðasvið Rannís virkan þátt í samstarfi sem miðar að því að bæta færni starfsmanna til að styðja við umsækjendur í áætluninni. Í lok árs 2019 höfðu hvorki meira né minna en 105,5 milljónir evra borist í formi styrkja til 236 verkefna íslenskra aðila úr Horizon 2020 og var árangurshlutfall íslenskra umsækjenda ríflega 20%. Eins og nokkur síðastliðin ár stendur Ísland best í orkuáætluninni og fæðu-, landbúnaðar- og sjávarrannsóknum, auk þess sem íslenskum fyrirtækjum gengur einstaklega vel
Á árinu hófst virk þátttaka Íslands í stefnumótunarvinnu í tengslum við undirbúning næstu rannsókna- og nýsköpunaráætlunar ESB, Horizon Europe, þar sem EES ríkjunum var boðið að vera með í svokallaðri skugganefnd sem leggur línurnar í stefnumótun áætlunarinnar. Hefur það verið einkar áhugavert og lærdómsríkt ferli, en sviðsstjóri alþjóðasviðs Rannís tekur þátt í stefnumótunarstarfinu í góðu samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og vísinda-, menntaog menningarfulltrúa í sendiráði Íslands í Brussel.
15
Fyrsta kynningarátak nýrrar áætlunar fór af stað á árinu með kynningum á nýsköpunarráði ESB sem verður ein af aðalstoðum Horizon Europe. Fulltrúar ESB komu hingað til lands í nóvember og héldu kynningarfund, European Innovation Council Roadshow, og mættu vel yfir 100 manns til að hlýða á fyrstu hugmyndir að stórauknum stuðningi við fyrirtæki í nýsköpun.
og meta verkefni sem tengjast skattendurgreiðslu rannsókna og þróunar og loks umsýsla við stuðning útgáfu bóka á íslensku. Að auki heyrir hugbúnaðarþróun undir verksvið sviðsins. Stóru samkeppnissjóðirnir eru Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður en á árinu úthlutuðu þeir styrkjum að upphæð 4,7 milljarðar króna, til nýrra verkefna og framhaldsverkefna. Þetta eru langstærstu sjóðirnir til stuðnings vísinda- og nýsköpunarsamfélaginu hér á landi. Rannsóknasjóður styður fyrst og fremst við grunnrannsóknir í háskólum og á rannsóknastofnunum, en þær stofnanir njóta ennfremur beins stuðnings hins opinbera. Tækniþróunarsjóður styður frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtæki til uppbyggingar íslensks atvinnulífs. Þessi stuðningur ásamt skattendurgreiðslu rannsókna og þróunar er uppistaðan í opinberum stuðningi við þennan þátt atvinnulífsins. Samtals nam þessi stuðningur til nýsköpunar um 6 milljörðum króna á árinu.
Vísindavaka 2019 var haldin 28. september í Laugardalshöllinni, en vakan er síðari viðburður í tveggja ára verkefni sem alþjóðasvið hefur umsjón með og styrkt er af Horizon 2020. Vísindavaka var að þessu sinni haldin sömu dagana í 340 borgum og bæjum um alla Evrópu og er hún stærsti einstaki viðburður Rannís þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindafólk og fræðast um rannsóknir og nýsköpun. Stuðningur við Uppbyggingarsjóð EES jókst nokkuð á árinu eftir langan undirbúningstíma, en Rannís hefur umsjón með áætlunum í fjórum löndum á málefnasviðum stofnunarinnar í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Segja má að starfið hafi farið á fulla ferð í þeim löndum sem Rannís hefur umsjón með, en einnig voru skipulagðir fundir samstarfsnefnda, vinnustofur, heimsóknir og fleira.
Aðrir sjóðir eru minni í sniðum. Framlög til Innviðasjóðs voru aukin og úthlutaði hann tæpum 300 milljónum króna. Þá má nefna sjóði sem eru við 100 milljón króna markið, Nýsköpunarsjóð námsmanna, Starfslaunasjóð sjálfstætt starfandi fræðimanna, Jafnréttissjóð Íslands og Loftslagssjóð, en sá síðastnefndi tók til starfa á árinu en mun ekki úthluta fyrr en árið 2020 þar sem ákveðið var að sameina fyrstu tvö árin í eitt kall.
Undirbúningur hófst að Euraxess ráðstefnu sem alþjóðasvið skipuleggur í samstarfi við norræna tengiliði Euraxess, evrópska rannsóknastarfatorgsins, en fyrirhugað er að ráðstefnan verði haldin hér á landi árið 2020.
Úthlutað var úr Markáætlun í tungu og tækni til eins árs og er undirbúningur hafinn að næsta kalli í tengslum við máltækniáætlun fyrir íslensku 20182022. Markáætlun um samfélagslegar áskoranir var undirbúin af Vísinda- og tækniráði með þátttöku hagsmunaaðila og er stefnt að fyrsta kalli 2020.
Af öðru Evrópusamstarfi sem alþjóðasvið hefur umsjón með má nefna COST, sem Ísland hefur tekið þátt í allt frá árinu 1991, en á árinu var opnað fyrir þátttöku í 40 nýjum COST verkefnum. Þar er um að ræða stuðning fyrir vinnustofur og tengslamyndun sem oft hefur reynst stökkpallur inn í frekara rannsóknasamstarf. Lýst var eftir umsóknum um tvíhliða samstarf Íslands og Frakklands undir merkjum Jules Verne í samstarfi við franska sendiráðið, en úthlutað er annað hvert ár. Málefni norðurslóða hafa vaxið nokkuð að umfangi og sér alþjóðasvið um hlutverk Íslands í rannsóknasamstarfi á því sviði. Undirbúningur Vísindaviku norðurslóða sem haldin verður á Akureyri árið 2020 fór á fullt. Einnig var norrænt samstarf nokkuð umfangsmikið en það fólst aðallega í því að kynna tækifæri á vegum NordForsk, norræna rannsóknaráðsins. Loks sá alþjóðasvið um úthlutun sóknarstyrkja Rannís, enda tengjast þeir gjarnan þátttöku íslenskra aðila í alþjóðasamstarfi sem sviðið hefur umsjón með.
Í hugbúnaðardeild starfa forritarar sem hafa það meginhlutverk að byggja upp umsýslu-, fagráðsog upplýsingakerfi Rannís sem eru undirstaðan að umsóknakerfum, gagnaöflun, úrvinnslu á umsóknagögnum og upplýsingakerfum Rannís til framtíðar. Ofan á þennan grunn hefur verið þróað fagráðskerfi fyrir matsmenn og stjórnir og er nýtt umsýslukerfi fyrir sjóðsstjóra í þróun. Alls koma að mati verkefna vel á fjórða hundrað fagráðsmanna, jafnt innlendir sem erlendir, og er allt utanumhald rafrænt og í raun grundvöllur þess að geta ráðið við það umfang sem er á sviðinu. Tveir nýir starfsmenn bættust í starfsmannahópinn á sviðinu og telur hann 14 manns í lok árs. Auk verkefna við umsýslu ofangreindra sjóða taka starfsmenn rannsókna- og nýsköpunarsviðs virkan þátt í öðrum verkefnum stofnunarinnar sem tengjast sérfræðisviðum hvers um sig. Þar skiptir þátttaka
RANNSÓKNA- OG NÝSKÖPUNARSVIÐ Á ábyrgð sviðsins er rekstur stóru samkeppnissjóðanna ásamt rekstri minni sjóða er tengjast rannsóknum og nýsköpun, að taka við umsóknum
16
í umsýslu við Horizon 2020 miklu máli. Tengsl á milli innlendra samkeppnissjóða og alþjóðasviðs eru mikilvæg, enda um sömu hagsmunaaðila að ræða. MENNTA- OG MENNINGARSVIÐ Mennta- og menningarsvið annast umsýslu með fimm alþjóðlegum áætlunum og 12 innlendum sjóðum sem veita styrki til íslensks menntaog menningarsamfélags, auk þess að sinna upplýsingaþjónustu og stuðningi við stefnumótun í mennta- og menningarmálum.
Þátttakendur á Erasmus+ ráðstefnunni
Alþjóðlegt samstarf er umfangsmest í starfsemi sviðsins sem rekur landskrifstofur fyrir Erasmus+, mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun Evrópusambandsins, European Solidarity Corps, sjálfboðaliðaáætlun Evrópusambandsins, Nordplus, menntaáætlun Norðurlanda og Creative Europe, menningar- og kvikmyndaáætlun Evrópusambandsins.
Alþjóðavæðing kennaramenntunar rædd á fjölþjóðlegri Erasmus+ ráðstefnu í Reykjavík Kennarar framtíðarinnar hafa lykilhlutverki að gegna við að veita menntun sem eflir sjálfbæran lífsstíl, alheimsvitund og virðingu fyrir menningarlegri fjölbreytni – mikilvæga þætti í Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Því er afar mikilvægt að þeim gefist tækifæri til að læra og fá þjálfun í umhverfi sem styður þá í að víkka sjóndeildarhring sinn og efla fjölmenningarlega færni. Samt sem áður vill kennaramenntun oft verða bundin við landsteinana og kennaranemar fara ekki í skiptinám eða starfsþjálfun erlendis í sama mæli og aðrir.
Árið 2019 gekk vel á mennta- og menningarsviði Rannís og einkenndist bæði af stöðugleika og nýjum verkefnum og áframhaldandi vexti í umfangi sviðsins. Í ársbyrjun tók Rannís við rekstri aðalskrifstofu Nordplus til næstu þriggja til fimm ára. Í rekstri aðalskrifstofunnar felst samræming á starfi landskrifstofa á Norðurlöndunum fimm, sem skipta með sér verkum við undirbúning úthlutana, auk starfs sem unnið er af tengiliðum í Eystrasaltsríkjunum, Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum. Aðalskrifstofan sér einnig um samskipti við Norrænu ráðherranefndina og formennskuríkið á hverjum tíma. Framkvæmd Nordplus á þessu fyrsta ári undir stjórn Rannís gekk mjög vel og var ánægjulegt að geta tekið við þessu verkefni með skömmum fyrirvara og sinnt því með sóma. Það var mikilvægt að vel tækist til í ljósi þess að Ísland fór með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2019. Því var vorfundur stjórnarnefndarinnar haldinn á Íslandi. Að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar skipulagði Rannís, í mjög góðu samstarfi við Samfés, ráðstefnu ungs fólks á Norðurlöndunum þar sem rætt var um ungt fólk og tungumál. Ráðstefnan var hluti af formennskuáætlun Íslands og tókst í alla staði mjög vel.
Þetta var viðfangsefni ráðstefnu sem Rannís skipulagði í samstarfi við EDUFI, finnsku Erasmus+ landskrifstofuna, í Reykjavík 3.-5. desember 2019. Þarna komu saman um það bil 70 þátttakendur, alþjóðafulltrúar, nemendur og kennarar, frá ólíkum Evrópulöndum með það að markmiði að finna sameiginlegar leiðir til að styðja við alþjóðlega reynslu í kennaranámi. Fyrirlesarar á ráðstefnunni komu úr hópi rannsakenda á sviði alþjóðavæðingar, alheimsmenntunar og félagslegs réttlætis sem og nemenda. Ræddar voru leiðir til að efla þátttöku kennaranema í skiptinámi og starfsþjálfun í útlöndum. Áhersla var lögð á mikilvægi þess að bjóða upp á kennaranám sem er alþjóðlegt í eðli sínu, til dæmis með þátttöku erlendra nemenda og kennara og samvinnu við kennaranema í öðrum löndum með hjálp verkfæra eins og eTwinning. Þannig getur alþjóðavæðing heima fyrir stutt kennara framtíðarinnar við að veita sjálfbæra menntun fyrir alla.
Erasmus+ áætlunin er stærsta og mannaflafrekasta verkefni sviðsins, en þær breytingar urðu helstar á árinu 2019 að sjálfboðaliðaverkefni sem voru áður hluti af Erasmus+ færðust yfir í nýja áætlun – European Solidarity Corps. Var henni ýtt formlega úr vör á síðari hluta ársins og tekið við fyrstu umsóknum. Árið 2019 reyndist vera metár hvað varðar úthlutun úr Erasmus+ og var í heildina litið úthlutað vel yfir 10 milljónum evra í styrki. Er það í takt við væntingar, því fjárveitingar til áætlunarinnar aukast talsvert á tímabilinu 20182020. Undirbúningur að næstu Erasmus+ áætlun fór
á fullan skrið á árinu og tók starfsfólk Landskrifstofu Erasmus+ virkan þátt í honum, meðal annars með þátttöku í sértækum vinnuhópum á vegum framkvæmdastjórnar ESB. Er ánægjulegt að framkvæmdastjórn ESB vilji nýta þann mannauð sem Rannís hefur á þessu sviði. Það var jafnframt gott að fá staðfestingu á því frá framkvæmdastjórn ESB, að lokinni eftirlitsheimsókn í júní, að hún ber mikið traust til Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi og telur að rekstur hennar sé til fyrirmyndar.
17
2019
Umfang sérverkefna sem tengjast Erasmus+ áætluninni óx einnig á árinu, því fjárveiting til reksturs eTwinning var aukin svo unnt var að sinna því betur. eTwinning er farvegur fyrir rafrænt samstarf skóla og hafa íslenskir leik-, grunn- og framhaldsskólar verið mjög áhugasamir um að nýta tækifæri sem þarna bjóðast. Rannís hefur stutt mennta- og menningarmálaráðuneytið við þátttöku í evrópsku samráði um fullorðinsfræðslu undir yfirskriftinni European Agenda for Adult Learning. Á síðari hluta ársins ákvað ráðuneytið að fela Rannís að vera landstengiliður vegna þessa verkefnis og kemur það í hlut starfsmanna á mennta- og menningarsviði að sinna því næstu tvö árin.
Heildarfjöldi umsókna sem starfsfólk sviðsins tók á móti var yfir 2.500 sem er nokkur aukning og einnig var sótt um nokkuð hærri upphæðir. Mikil skilvirkni hefur náðst í starfinu og hefur framkvæmdin gengið vel.
Kynningarteymi sviðsins var á árinu með 23 kynningar og heimsótti yfir helming allra framhaldsskóla landsins þar sem þau hittu um 1.100 nemendur. Unga fólkið fær þar kynningu á tækifærum til náms, sjálfboðaliðastarfa eða styttri dvala erlendis, um leið og það er hvatt til að nýta þá fjölmörgu möguleika sem ungum Íslendingum standa til boða.
Einn nýr sjóður bættist í hóp innlendra sjóða en það er Barnamenningarsjóður Íslands. Var til hans stofnað af Alþingi á árinu 2018, en fyrsta úthlutun var á degi barnsins 26. maí 2019 og var athöfn af því tilefni í Alþingishúsinu.
Rannís í hnotskurn árið 2019
25
innlendir sjóðir
>10.000
einstaklingar sem njóta góðs af starfinu
6
5.000
erlendar samstarfsáætlanir
16
milljarða króna stuðningur
18
2.400
umsóknir
verkefnastyrkir
Öflug upplýsingamiðlun og stuðningur við stefnumótun
starfsmenn á fjórum sviðum
53
SVIÐSSTJÓRAR HORFA FRAM Á VEGINN streyma stórum fundum í gegnum vefsíður og/eða tengla sem sendir eru á afmarkaðri hóp. Fjarfundir geta verið mjög tímasparandi þáttur þar sem ferðir til og frá fundum sparast auk ferða- og dvalarkostnaðar sé um langan veg að fara. Veðrið hér á landi getur einnig verið farartálmi einkum fyrir fólk sem þarf að sækja fundi utan eigin byggðarlags. Á tímum hraðrar þróunar í rafrænu umhverfi þá er mikilvægt að vera með kerfi sem styðja við breytingar í starfsumhverfinu. Samvinna innan og á milli ríkisstofnana ætti að verða einfaldari í framtíðinni með innleiðingu Office 365 hjá ríkinu. Hægt verður að vinna með sameiginleg skjöl þvert á stofnanir og auðvelt verður að setja upp svokallaða Teams fundi. Þessi lausn mun líklega draga úr notkun tölvupósts og símtala. Við innleiðingu kerfisins er mikilvægt að huga að skipulagi þess og tengja það við málalykil stofnunar meðal annars til að skapa betri yfirsýn.
Herdís Þorgrímsdóttir, sviðsstjóri rekstrarsviðs Störfin eru að breytast, vinnutíminn að styttast, en stofnanir eiga að sinna sömu verkefnum og halda uppi sama þjónustustigi og áður. Einnig hafa komið fram óskir um aukinn sveigjanleika varðandi viðveru á vinnustaðnum og stofnanir þurfa að öðlast og viðhalda jafnlaunavottun. Hvar liggja tækifærin sem geta stutt við þessar breytingar?
Útfærsla á styttingu vinnutímans bíður úrlausnar okkar. Styttingin á ekki að kosta aukinn mannafla og jafnframt á þjónustan og verkefnin sem stofnanir sinna að haldast óbreytt. Breytingin gerir kröfur til okkar allra um hagræðingu og endurskoðun verkferla án þess að þjónustan skerðist. Þetta verk er samvinna á milli stjórnenda og starfsmanna enda þekkja starfsmenn best störfin sín. Hér þarf að huga að verðmæti starfa og kynbundnum launamun. Við viljum viðhalda launajafnrétti kynjanna.
Við erum þegar farin að sjá vísi að breytingum starfa og enn frekari breytingar munu eiga sér stað eftir því sem tækninni fleygir fram. Í dag er ekki óalgengt að viðskiptavinurinn forskrái upplýsingar í ákveðna gagnagrunna, upplýsingar sem áður voru slegnar inn af starfsfólki eða voru jafnvel afgreiddar útfrá eyðublöðum á pappír. Bókhaldskerfi geta lært á innsenda reikninga og gert tillögur að skráningum. Kerfin eru uppbyggð til að geta lært á gerðar breytingar og verða æ nákvæmari með tímanum. Þannig getur rafræn skönnun orðið að rafrænni færslu eða skráningu. Ákveðin fyrirfram skilgreind sjálfvirkni er til staðar og hún á enn eftir að aukast. Í stað handavinnu sem fólst í skönnun, skráningu og bókfærslu þá breytist hlutverk starfsmannsins æ meira í átt að umsjón og eftirliti með réttmæti gagna og vinnslu.
Einnig hafa verið lagðar fram óskir um sveigjanlegan vinnutíma og möguleikann á að vinna í fjarvinnu að hluta. Í mörgum tilvikum snýst þetta um að geta mætt betur þörfum fjölskyldunnar en einnig til að geta forðast mesta umferðarálagið og mætt til vinnu annaðhvort áður en mesti umferðarþunginn hefst eða eftir að honum lýkur. Hingað til hefur starfsfólk Rannís búið við ákveðinn sveigjanleika í vinnutilhögun sem rétt er að endurskoða reglulega útfrá þörfum starfsseminnar og breytingum í umhverfinu.
Á undanförnum árum hefur fjarfundabúnaður batnað til muna, auðveldara er að stýra stórum fundum nú en með eldri búnaði. Einnig er auðveldara að
19
Á tímum hraðra breytinga í starfsumhverfi er mikilvægt að starfsfólk fái tækifæri til að laga sig að nýjum kröfum með því að tileinka sér nýja þekkingu og færni. Kröfur um aukna sjálfvirkni og rafrænar lausnir munu líklega kalla á aukna tölvuog tæknikunnáttu almennra starfsmanna. Einnig er líklegt að hagaðilar geri kröfur um aukna og tíðari upplýsingagjöf sem starfsfólk þarf að mæta.
kynningu á helstu nýjungum og tækifærum innan Horizon Europe. Áætlunin verður jafnvel enn umfangsmeiri en Horizon 2020 og er mikilvægt að hvetja íslenska aðila til áframhaldandi öflugrar þátttöku á öllum sviðum, jafnframt því sem horfa þarf til ákveðinnar nýliðunar. Fyrirhugað er að hleypa nýjum samstarfsáætlunum „þrefalt“ af stokkunum með opnunarviðburði í lok árs 2020, sem vísar til þriggja stærstu samstarfsáætlana ESB sem Rannís hefur umsjón með á Íslandi, Horizon Europe, Erasmus+ og Creative Europe. Í tengslum við opnunarviðburðinn verður haldin uppskeruhátíð þar sem kynnt verða verkefni úr öllum Evrópuáætlunum sem Ísland tekur þátt í, enda mikilvægt að vekja athygli á öflugu samstarfi og þekkingaryfirfærslu sem skilar sér til íslenskra aðila. Uppskeruhátíðin verður skipulögð af Rannís í góðu samstarfi við Evrópuhópinn, sem í eiga sæti umsýsluaðilar Evrópusamstarfs á Íslandi á ýmsum sviðum.
Tækifærin til að takast á við þessar stóru samfélagslegu breytingar felast í samvinnu um hagræðingu verkferla, rafrænum og grænum lausnum ásamt fræðslu og þjálfun starfsmanna til að takast á við breytt starfsumhverfi. Hægt er að sjá fyrir sér aukinn sveigjanleika í vinnutilhögun starfa en sú sveigja verður alltaf að tryggja aðgengi viðskiptavina að starfsfólki og að starfsemin að öðru leyti líði ekki fyrir breytt vinnufyrirkomulag. Við erum hér fyrir viðskiptavini okkar.
Innan alþjóðasviðs Rannís, sem hefur umsjón með landstenglastarfi Horizon 2020, verða einnig nokkur vatnaskil á næstunni þar sem samstarfsverkefni landstengla sem Rannís tekur þátt í munu renna sitt skeið á árinu 2020. Íslenskir landstenglar hafa tekið virkan og öflugan þátt í tíu slíkum samstarfsnetum og leitt eitt samstarfsnet 16 landa á sviði Vísinda í þágu samfélagsins allt frá sjöundu rannsóknaráætluninni. Munu starfsmenn alþjóðasviðs hefja undirbúning á áframhaldandi samstarfi til að tryggja færni og þekkingaröflun til góða fyrir stuðning við íslenskt vísinda- og nýsköpunarsamfélag. Aðalheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri alþjóðasviðs Spennandi tækifæri eru framundan í alþjóðasamstarfi, en undirbúningur að næstu kynslóð áætlana Evrópusambandsins sem gilda munu 2021-2027 er nú í fullum gangi. Samhliða því munu síðustu vinnuáætlanir Horizon 2020 verða kynntar, en Horizon 2020 áætlunin hefur nú þegar skilað ríflega 100 milljónum evra í formi styrkja til íslenskra háskóla, stofnana og fyrirtækja. Ísland hefur, ásamt hinum EES löndunum, tekið virkan þátt í undirbúningi og stefnumótun næstu rannsóknaog nýsköpunaráætlunar ESB, Horizon Europe. Sviðsstjóri alþjóðasviðs Rannís hefur þar tekið þátt í starfi svokallaðrar skugganefndar þar sem víðtækt samstarf og samræður um stefnumótunina fer fram. Í framhaldi af því munu skugganefndir taka til starfa fyrir undiráætlanir og er markmiðið fyrst og fremst að tryggja að fyrstu vinnuáætlanir geti farið af stað snemma á árinu 2021 þegar Horizon Europe verður hleypt af stokkunum og formlegar stjórnarnefndir taka til starfa. Hefur það verið einkar lærdómsríkt að fylgjast svo náið með stefnumótunarferlinu og mun án efa skila sér í öflugra starfi innanlands.
Þótt undirbúningur Horizon Europe muni verða fyrirferðarmikill í starfi sviðsins á komandi mánuðum, sjáum við einnig fram á aukinn stuðning við Uppbyggingarsjóð EES sem Rannís hefur umsjón með í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Þar er einnig fyrirhugað að skipuleggja ýmsa viðburði, bæði nefndarfundi og tengslamyndunarviðburði. Einnig mun alþjóðasvið Rannís skipuleggja norræna Euraxess ráðstefnu á árinu 2020 þar sem búist er við allt að 100 gestum til að ræða sameiginlegt evrópskt rannsóknastarfasvæði og hvernig norrænir háskólar og rannsóknarráð styðja við vísindafólk á faraldsfæti. Vísindavaka Rannís er eitt af stóru verkefnum alþjóðasviðs og standa vonir til að viðburðurinn verði áfram haldinn með myndarlegum hætti, en það veltur á að fjármagn fáist úr Horizon 2020, en verkefnið er styrkt af Marie Skłodowska-Curie mannauðsáætluninni, enda er áherslan fyrst og fremst á vísindafólkið sjálft og að almenningur fái tækifæri til að hitta rannsakendur og frumkvöðla frá stofnunum og fyrirtækjum og fræðast um viðfangsefni þeirra á lifandi og skemmtilegan hátt. Starfsmenn alþjóðasviðs eru mjög stoltir af verkefninu og því frábæra samstarfi sem það felur í sér, bæði innan Rannís en ekki síður við íslenskt vísinda- og nýsköpunarsamfélag.
Mikill áhugi er á alþjóðasamstarfi innan íslensks vísindasamfélags eins og glöggt mátti sjá þegar litið var til framtíðar á Rannsóknaþingi 2019 með 20
með því að þökin þrefölduðust og þau voru síðan tvöfölduð fyrir 2019 þannig að endurgreiðsla árið 2020 stefnir í fimm milljarða. Það má eflaust færa fyrir því rök að ríkissjóður eigi að gera enn betur, þetta er fjárfesting sem skilar góðum arði. Samt sem áður þarf á sama tíma að tryggja eðlilega nýliðun með öflugum Tækniþróunarsjóði. Alþjóðlegt samstarf á sviðinu er mikilvægur þáttur nýsköpunar. Tækniþróunarsjóður hefur tekið virkan þátt í bæði norrænu og evrópsku samstarfi á sviði jarðvarma, bláa hagkerfisins og heilsu svo eitthvað sé nefnt. Rannsóknasjóður hefur aftur á móti ekki haft lagalega heimild til slíkrar þátttöku en það hefur verið ráðin bót á því með lagabreytingu sem samþykkt var í maí. Við sjáum augljós merki um að innlendur stuðningur leiði til árangurs í erlendu samstarfi. Þannig hafa nýsköpunarfyrirtæki náð frábærum árangri í SME-hluta rammaáætlunar Evrópusambandsins, Horizon 2020, en þau hafa áður nánast undantekningarlaust notið stuðnings Tækniþróunarsjóðs. Stuðningur Markáætlunar við jarðvarmaklasa 2009 til 2015 hafði lykiláhrif í árangri okkar í orkuáætlun Horizon 2020. Almennt séð verðum við að halda vel á spöðunum varðandi alþjóðlegt samstarf og stóru sjóðirnir þurfa að marka sér stefnu með því að taka frá tiltekið hlutfall í alþjóðleg verkefni. Tækniþróunarsjóður hefur sett 10-15% fjármagns síns í alþjóðleg verkefni og Rannsóknasjóður þarf að gera slíkt hið sama. Markáætlun getur hér einnig spilað stórt hlutverk. Við höfum verið það lánsöm að hafa tekist að sækja mun meira fé til rammaáætlana Evrópusambandsins en við höfum lagt af hendi, en slíkt gerist ekki af sjálfu sér og við verðum að halda vöku okkar.
Sigurður Björnsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Meginhlutverk rannsókna- og nýsköpunarsviðs er þjónusta við vísindamenn og frumkvöðla og stofnanir sem tengjast þessum málaflokkum, annars vegar við grunnrannsóknir og hins vegar við frumkvöðla við uppbyggingu öflugs atvinnulífs, sem byggir á sterkum grunni nýsköpunar. Til viðbótar við þessi meginstef hefur sviðið einnig umsýslu með mikilvægum stuðningi við jafnréttismál, loftslagsmál og niðurgreiðslu kostnaðar við bókaútgáfu, en þessir síðastnefndu þættir eru nýir á okkar borði. Samkeppnissjóðir hafa vaxið verulega á síðustu árum, bæði hvað varðar umfang í krónum talið sem og í fjölda umsókna. Þrátt fyrir aukið fjármagn hefur ásókn í þessi gæði aukist talsvert meira og er nú svo komið að hlutfall úthlutunar miðað við sókn er um 15% í stóru sjóðunum. Það má velta því fyrir sér hvað þetta lága hlutfall segir okkur; annars vegar má benda á að það sé komið undir sársaukamörk sem ætti í raun að leiða til færri umsókna, en svo er ekki raunin, og hins vegar bendir þetta hlutfall til ákveðinnar grósku í vísinda- og nýsköpunarsamfélagi okkar – tvímælalaust jákvæð teikn. Þarna eru mörkin hárfín, en sennilega erum við að „missa af“ nýjum tækifærum með því að láta sjóðina ekki fylgja a.m.k. almennri verðlagsþróun. Þeir hafa frekar lækkað í krónutölu frá 2016, en þá kom stefna Vísinda- og tækniráðs 2014-2016 um stækkun stóru samkeppnissjóðanna til framkvæmda að fullu. Síðan þá hafa þeir verið skornir lítilsháttar niður í krónutölu og ennfremur fallið að verðgildi og má gera því skóna að til að halda verðgildi 2016 þurfi að auka framlög upp á 600 til 800 milljónir króna í hvorn sjóð miðað við núverandi fjárlagaáætlun. Þetta er fjárfesting sem tvímælalaust skilar sér í nýsköpun í atvinnulífi, býr til verðmæt störf og er ekki eins háð utanaðkomandi sveiflum og til dæmis ferðaiðnaðurinn. Hér þarf að móta framtíðarstefnu.
Auknum umsvifum hefur verið mætt með aukinni áherslu á upplýsingatækni. Allar umsóknir eru rafrænar, öll fagráðsvinna rafræn svo og umsýsla sjóðsstjóra og stjórna. Þess má geta að á þessu ári er Rannís í samskiptum við yfir 800 fagráðsmenn alls staðar að úr heiminum og um 50 stjórnarmenn sjóðanna. Án öflugs gagna- og umsýslukerfis ráðum við ekki við þessi verkefni án fjölgunar starfsmanna í umsýslu. Þarna hefur hugbúnaðarteymi sviðsins unnið óhemju gott starf. En betur má ef duga skal. Nú þarf að leggja áherslu á að allar upplýsingar fari fram gegnum „Mínar síður“ og allir samningar verði með rafrænum undirskriftum. Þetta eru verkefni sem við viljum hrinda í framkvæmd 2020. Þá er verið að samræma öll gögn frá því umsóknir urðu rafrænar árið 2009 þannig að til verði vöruhús gagna þar sem bein tenging er við úthlutunarsíður og öll almenn tölfræði verði aðgengilegri notendum en nú er. Vonandi sjáum við þennan hluta verða að veruleika árið 2020. Stefna Rannís til 2025 kveður á um að efla upplýsingakerfið og vera í fremstu röð og gerum við ráð fyrir að meginmarkmiðum þess verði náð innan tveggja til þriggja ára, en í raun lýkur því starfi aldrei.
Skattendurgreiðsla rannsókna- og þróunarkostnaðar hefur vaxið verulega mikið sem er jákvæð þróun. Hún hvetur fyrirtæki til enn meiri nýsköpunar og má halda því fram að ríkissjóður fái þessa fjármuni tiltölulega fljótt til baka og eftir situr sterkari hátækniiðnaður. Endurgreiðslan hækkaði verulega 2017 21
2019 Umsvif sviðsins í heild í beinum og óbeinum styrkjum til vísinda og nýsköpunar er um 10 milljarðar króna, sem er langmesti stuðningur til þessa málaflokks sem boðið er upp á hér á landi. Alls störfuðu fjórtán einstaklingar á sviðinu í lok árs, átta við beina umsýslu sjóða og fimm við hugbúnaðargerð auk sviðsstjóra. Miðað við umfang og þær kröfur sem eru gerðar til faglegra vinnubragða er þetta vel af sér vikið og sýnir hversu öflugur og samstilltur hópur þetta er. Vonandi ber okkur gæfu til að halda þessum öfluga hópi saman og að létta á álagi með frekari þróun gagna- og upplýsingakerfis.
fyrsta ársfjórðungi 2020. Í slíku umhverfi verður norrænt samstarf ennþá mikilvægara en áður, en reynslan hefur sýnt að Norðurlöndin standa þétt saman þegar ytri aðstæður eru erfiðar. Það verður því mikið metnaðarmál hjá Rannís að stýra farsællega norræna menntasamstarfinu sem verður mikil áskorun í ljósi þess að von er á samdrætti í fjárveitingum til Nordplus frá og með 2021. Sé horft til lengri tíma en ársins 2020 er ljóst að þrátt fyrir miklar áskoranir eru einnig tækifæri framundan. Miklar breytingar eru að eiga sér stað í menntun og miðlun menningar sem tengjast bæði tæknibreytingum og viðbrögðum samfélagsins við nýjum ógnum. Þar hafa sjóðir og alþjóðlegar áætlanir sem mennta- og menningarsvið annast mikilvægu hlutverki að gegna við að styðja nýsköpun og þróunarstarf. Almenningur hefur tiltrú á þátttöku í alþjóðlegu samstarfi og mikil eftirspurn er eftir innlendum styrkjum. Stjórnvöld bera traust til Rannís og vonir standa til að sá stuðningur sem Rannís býður á mennta- og menningarsviðinu muni aukast á næstu árum. Til lengri tíma litið er því bjart framundan og tilhlökkun í teyminu að takast á við nýja tíma.
Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs Góður árangur ársins 2019 er til marks um að á mennta- og menningarsviði starfar öflugur hópur með mjög breiða og fjölþætta reynslu til að takast á við krefjandi verkefni. Teymið er vel í stakk búið til að nýta þau tækifæri og takast á við þær áskoranir sem árið 2020 ber í skauti sér. Hæst mun bera undirbúning fyrir næstu áætlanir ESB, sem hefjast eiga árið 2021. Gert er ráð fyrir að Erasmus+ og Creative Europe áætlanirnar haldi áfram með tiltölulega óbreyttu heildarskipulagi sem er jákvætt fyrir styrkþega og auðveldar umskipti yfir í nýjar áætlanir. Boðuð er mikil aukning í fjárveitingum til Erasmus+ og stendur metnaður Evrópusambandsins til þess að enn fleiri fái tækifæri til þátttöku. Það felur í sér bæði að fjölga þátttakendum mikið og að ná til hópa sem búa við færri tækifæri og eiga erfiðara um vik að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi. Árið 2020 mun Rannís því leggja mikla áherslu á að áætlunin feli í sér tækifæri fyrir alla og verður farið í mikið kynningarátak á árinu í því skyni.
OKið í Gerðubergi
OKið, upplifunar- og þátttökurými styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands Verkefnið felst í því að skapa aðstöðu fyrir ungt fólk í Gerðubergi þar sem lögð er áhersla á upplifun, sköpun, þátttöku og samveru, og tækifæri til upplifa, skapa, fikta, lesa og miðla. Markmið verkefnisins eru að færa ungmennum skipulagsvaldið, bjóða þeim upp á opið aðgengi að menningu og sköpun, og kynna stafrænar bókmenntir og gagnvirka tækni. Lögð er áhersla á mismunandi þemu: umhverfismál, norræna goðafræði, tækni og tungumál. Rýmið er unnið með innblæstri frá stafrænu skáldsögunni Norður eftir Camillu Hübbe og Rasmus Meisler. Verkefnið fékk hæsta styrk úr fyrstu úthlutun Barnamenningarsjóðs, rúmar 18 milljónir króna.
Rannís mun jafnframt leggja áherslu á að koma betur á framfæri þeim ávinningi sem hefur fylgt þátttöku Íslands í evrópsku og norrænu samstarfi. Sá ávinningur er mikill og nær til allra skólastiga og menningargeira og tugþúsunda Íslendinga. Það er mikilvægt að halda jákvæðum reynslusögum á lofti á tímum þegar utanaðkomandi aðstæður torvelda alþjóðlegt samstarf eins og gerðist á
22
SJÓÐIR Yfirlitsmynd yfir umfang sjóða sem Rannís hefur umsjón með SJÓÐIR OG ÁÆTLANIR Í UMSÝSLU RANNÍS
Fjárveiting í m.kr.
Sótt um í m.kr.
Úthlutað í m.kr.
Árangurshlutfall í upphæðum
Fjöldi umsókna
Fjöldi samþykktra umsókna
Árangurshlutfall umsókna
Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna
3.640
**
3.640
**
486
400
*
Rannsóknasjóður - nýjar umsóknir
2.470
5.417
851
16%
359
61
17%
115
115
2.333
9.096
13%
650
78
87
87
Rannsóknasjóður - framhaldsumsóknir Tækniþróunarsjóður - nýjar umsóknir
1.775
Tækniþróunarsjóður - framhaldsumsóknir Erasmus+
1.146 1.119
12%
1.453
2.193
1.389
63%
159
118
74%
Listamannalaun***
680
4.553
650
14%
1.043
253
24%
Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku
400
78
78
*
266
266
*
Innviðasjóður
290
740
292
39%
66
26
39%
Vinnustaðanámssjóður
265
292
292
*
155
155
*
Íslenskukennsla fyrir útlendinga
143
300
140
47%
23
23
*
Barnamenningarsjóður Íslands
100
430
98
23%
108
36
33%
Jafnréttissjóður Íslands
100
396
91
23%
76
17
22%
Styrkir til atvinnuleikhópa***
99
625
94
15%
105
20
19%
Nordplus Nordens Sprog
90
262
90
34%
35
22
63%
Nýsköpunarsjóður námsmanna
85
199
79
40%
154
59
38%
Markáætlun í tungu og tækni
75
183
77
42%
15
6
40%
Tónlistarsjóður
72
253
69
27%
256
120
47%
European Solidarity Corps
58
34
30
88%
5
5
100%
Þróunarsjóður námsgagna
55
175
51
29%
87
27
31%
Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna
48
259
44
17%
76
23
30%
Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara - SEF
42
40
35
88%
83
81
*
Hljóðritasjóður
41
186
38
20%
218
127
58%
Íþróttasjóður***
19
149
19
13%
124
79
64%
Æskulýðssjóður***
9
59
9
15%
48
14
29%
Jules Verne
4
4
4
100%
10
6
60%
Rannsóknasjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar
2
18
2
11%
12
4
33%
**
119
40
34%
113
87
77%
5.053
2.355
Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla***
**
Skattfrádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga Samtals
12.573
25.941
12.202
Horizon 2020
**
3.924
**
272
54
20%
Creative Europe
**
156
**
39
21
54%
Áætlanir sem úthluta beint til íslenskra aðila án milligöngu Rannís
Samtals
4.080
311
75
Heildarumfang sjóða og áætlana sem Rannís þjónustar
16.282
5.364
2.430
Miðað var við gengi evru 137,3. * Árangurshlutfall umsókna á ekki við þar sem aðeins fyrirfram skilgreindir aðilar geta sótt um og fá úthlutað uppfylli þeir öll skilyrði. ** Upphæð sem sótt er um er ekki þekkt og því ekki hægt að reikna árangurshlutfall í upphæðum. *** Í þessum sjóðum er miðað við fjárlög 2020. Tölurnar í töflunni eru námundaðar að heilli tölu. Fjöldi umsókna miðast við innsendar umsóknir.
23
SKATTFRÁDRÁTTUR RANNSÓKNA- OG ÞRÓUNARVERKEFNA Á árinu bárust 225 umsóknir um skattfrádrátt vegna nýrra rannsókna- og þróunarverkefna og 261 vegna framhaldsverkefna, en staðfest voru 163 ný verkefni og 237 framhaldsverkefni. Árið 2019 var heildarendurgreiðsla skattfrádráttar 3.640 m.kr. vegna verkefna sem unnin voru á árinu 2018. Heildarendurgreiðslan skiptist þannig að 3.033 m.kr. voru greiddar út og 607 m.kr. gengu upp í tekjuskatt fyrirtækja. Skattfrádráttur er réttindasjóður fyrir fyrirtæki sem eru eigendur rannsókna- og þróunarverkefna. Þeir aðilar sem uppfylla skilyrði laga um skattfrádrátt vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar eiga rétt á allt að 20% endurgreiðslu á þeim kostnaði í formi lægri tekjuskatts eða beinni endurgreiðslu.
Alls bárust 28 umsóknir um öndvegisstyrki og voru 3 verkefni styrkt. Í flokkinn verkefnisstyrkir bárust 198 umsóknir og var 31 verkefni styrkt. Innsendar umsóknir fyrir nýdoktorsstyrki voru 70 og voru veittir 12 styrkir. Innsendar umsóknir fyrir doktorsnemastyrki voru 63 og hlutu 15 doktorsnemar styrk. Af 429 skráðum verkefnisstjórum í umsóknum voru 236 karlar (55%) og 193 konur (45%). Fleiri en einn verkefnisstjóri getur verið skráður á sama verkefni. Alls eru 38 karlar verkefnisstjórar í styrktum verkefnum (55%) og 31 kona (45%). Árangurshlutfall karla er 16% og árangurshlutfall kvenna 16%. Af 616 skráðum meðumsækjendum voru 365 karlar (59%) og 251 kona (41%). Alls eru 60 karlar (64%) og 34 konur (36%) meðumsækjendur í styrktum verkefnum. Árangurshlutfall karla er 16% en árangurshlutfall kvenna 14%.
Hámark viðmiðunar var hækkað fyrir rekstrarárið 2019 úr 300/450 milljónum í 600/900 milljónir (hærra viðmið er ef fyrirtæki uppfylla skilyrði um kostnað vegna aðkeyptrar þjónustu/samstarfs). Þessi aukning hefur fyrst og fremst áhrif á skattfrádrátt til stærri aðila og hefur áhrif á álagningu og útgreiðslu úr ríkissjóði fjárlagaárið 2020.
Rannsóknasjóður – miðað við fjölda umsókna FAGRÁÐ
Hér má sjá hvernig stuðningur gegnum skattfrádráttinn hefur þróast undanfarin ár: Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna - greiðslur til fyrirtækja M.kr. 4.000
Veitt
71
12
17%
Verkfræði og tæknivísindi
48
9
19%
Náttúruvísindi og umhverfisvísindi
46
9
20%
Lífvísindi
42
6
14%
Klínískar rannsóknir og lýðheilsa
33
6
18%
Félagsvísindi og menntavísindi
51
7
14%
Hugvísindi og listir
68
12
18%
359
61
17%
Samtals
3.500 3.000
Árangurshlutfall
Rannsóknasjóður – miðað við upphæðir í m.kr.
2.500 2.000
FAGRÁÐ
1.500
Sótt
Veitt
Árangurshlutfall.
1.208
143
12%
Verkfræði og tæknivísindi
825
156
19%
Náttúruvísindi og umhverfisvísindi
775
164
21%
Lífvísindi
609
94
15%
Klínískar rannsóknir og lýðheilsa
537
69
13%
Félagsvísindi og menntavísindi
629
72
12%
Hugvísindi og listir
834
153
18%
5.417
851
16%
Raunvísindi og stærðfræði
1.000 500 0
Sótt
Raunvísindi og stærðfræði
2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Lítið
Meðalstórt
Stórt
RANNSÓKNASJÓÐUR Rannsóknasjóður bauð upp á fjórar styrktegundir; verkefnisstyrki, öndvegisstyrki, nýdoktorsstyrki og doktorsnemastyrki og höfðu umsækjendur val á milli sjö fagráða.
Samtals Tölur eru námundaðar að heilli tölu.
TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐUR Tækniþróunarsjóður bauð upp á sjö styrktarflokka á árinu; styrki til hagnýtra rannsóknaverkefna, einkaleyfisstyrki, Fræ, Sprota, Vöxt, Sprett og markaðsstyrki. Sjóðurinn hafði 2.333 m.kr. til umráða skv. fjárlögum. Í töflunni hér á eftir eru upplýsingar um fjölda umsókna og styrkja. Alls bárust sjóðnum 650 umsóknir í alla styrktarflokka sem er aukning frá fyrra ári þegar 631 umsókn barst.
Framlag ríkisins til Rannsóknasjóðs var 2.470 m.kr. og hefur verið óbreytt síðan 2016. Alls bárust 359 umsóknir í Rannsóknasjóð að þessu sinni, heldur fleiri en undangengið ár og hlaut 61 verkefni styrk eða 17% umsókna. Sótt var um 5.417 m.kr. og voru 851 m.kr. veittar eða 16% umbeðinnar upphæðar. Þessar tölur endurspegla styrkupphæð fyrsta árs styrktra verkefna.
24
þriggja rannsókna- og þróunarverkefna í samstarfi við önnur Norðurlönd.Alls er stuðningur sjóðsins við íslenska þátttakendur í alþjóðlegum verkefnum á árinu um 300 m.kr.
Tækniþróunarsjóður – miðað við fjölda umsókna FLOKKAR
Sótt
Veitt
Árangurshlutfall
Einkaleyfisstyrkir*
19
18
95%
Hagnýt rannsóknaverkefni
51
4
8%
Fræ
97
10
10%
Sproti
190
21
11%
Vöxtur/Sprettur**
178
25
14%
Markaðsstyrkir
115
17
15%
Samtals
650
78***
12%
ERASMUS+ OG EUROPEAN SOLIDARITY CORPS Starfsemi Landskrifstofu Erasmus+ og European Solidarity Corps gekk vel á árinu. Fjöldi umsókna var nær óbreyttur milli ára og jafnframt var sótt um svipaða upphæð í styrki. Fjármagn til ráðstöfunar hefur vaxið á hverju ári í núverandi Erasmus+ áætlun og var 2019 engin undantekning frá því. Á heildina litið úthlutaði landskrifstofa samtals styrkjum að upphæð um 10,3 milljónum evra á árinu eða ríflega 1.400 m.kr. til 123 verkefna í báðum áætlunum. Að auki voru gerðir samningar við 35 skólaverkefni sem stýrt er í öðrum löndum. Samtals voru því gerðir 158 samningar sem er 10% aukning frá árinu áður. Heildarupphæð samninga var um 10,7 milljónir evra eða rúmlega 1.460 m.kr. Það er um 13% aukning í evrum talið, en talsvert meiri í íslenskum krónum. Að auki voru gerðir samningar við 35 skólaverkefni sem stýrt er í öðrum löndum.
*Ekki liggur fyrir hversu margar umsóknir um einkaleyfisstyrk munu að lokum skila sér í innlögn á einkaleyfisumsókn til viðurkenndra einkaleyfisstofa og fá greiðslu úr sjóðnum. **Af 25 verkefnum í Vexti fengu þrjú öndvegisstyrk. ***Til viðbótar veitti sjóðurinn jafnframt einu Eurostars verkefni og þremur PerMed verkefnum stuðning á árinu.
Mesta aukning umsókna var í markaðsstyrkjum eða 20% milli ára. Í heildina var úthlutað tæplega 2,3 milljörðum króna og skiptist úthlutunin nokkuð jafnt milli nýrra styrkja og framhaldsstyrkja. Samkeppni um styrki er mikil og er hlutfall úthlutunar 12% á árinu. Þrátt fyrir þessa miklu samkeppni hefur umsóknum fjölgað jafnt og þétt sem er til marks um þá grósku sem er í nýsköpun og jafnframt um þörf fyrir aukinn stuðning. Sókn og styrkveitingar má sjá á meðfylgjandi mynd sem sýnir umfang nýrra umsókna, en styrkir Tækniþróunarsjóðs eru til tveggja ára, nema Hagnýt rannsóknaverkefni eru til þriggja ára. Af 25 Vaxtarverkefnum fengu þrjú fyrirtæki öndvegisstyrk, DT Equipment ehf., Genki Instruments ehf. og Intenta ehf.
Árangurshlutfall umsókna var áfram hátt sem skýrist meðal annars af því að allir íslensku háskólarnir taka þátt í nemenda- og starfsmannaskiptum og fá allir úthlutun og það sama gildir um helstu starfsmenntaskóla landsins. Árangurshlutfall veittra styrkja er einnig hátt þótt talsverð samkeppni sé um það fjármagn sem er til ráðstöfunar. Úthlutun nemur tæplega tveimur þriðju af því fjármagni sem sótt er um og er það með því hæsta sem gerist í þeim sjóðum sem Rannís hefur umsjón með.
Almennir verkefnisstyrkir Sótt
200
Veitt
Árangurshlutfall
100% 80%
150
60%
100
Erasmus+ og ESC miðað við fjölda umsókna
40%
50
FLOKKAR
20%
0 Ein
t.
fiss
ey kal
a
ýt r
gn Ha
. nav
ók nns
Fræ
roti
Sp
r
xtu
Vö
ttur
re /Sp
rka
Ma
r
rku
ty ðss
0%
Tækniþróunarsjóður tekur þátt í Eurostars áætlun Evrópusambandsins og fékk eitt verkefni stuðning í þeirri áætlun á árinu, sem er ígildi eins 50 m.kr. verkefnastyrks. Sjóðurinn lagði jafnframt til eina milljón evra í Blue Bioeconomy ERA-Net, sem fjallar um lífhagkerfi sjávar og ferskvatns, þar sem auglýst var eftir umsóknum um rannsókna- og þróunarverkefni undir lok árs 2018. Þrjú samstarfsverkefni með íslenskri aðild hlutu styrk og í tveimur þeirra leiðir íslenskur aðili verkefnið. Þessi verkefni munu öll hefjast 2020. Sjóðurinn tekur jafnframt þátt í ERA-Net Geothermica (fjögur rannsóknaverkefni í jarðhita eru með stuðning frá sjóðnum) og norrænu samstarfsverkefni, Innovations in Personalised Medicine (PerMed), en sjóðurinn veitir stuðning til
Sótt
Veitt
Skólar*
36
27**
75%
Starfsnám
21
20
95%
Háskólar
19
17
89%
Fullorðinsfræðsla
15
11
73%
Æskulýðsstarf
68
43
63%
5
5
100%
164
123
75%
ESC Samtals
Árangurshlutfall
*Leik-, grunn-, og framhaldsskólar. **Að auki 35 verkefni sem stýrt var af öðrum löndum.
Erasmus+ og ESC miðað við upphæðir í m.kr. FLOKKAR
Sótt
Veitt
Skólar*
326
273
84%
Starfsnám
264
237
90%
Háskólar
954
545
57%
Fullorðinsfræðsla
204
124
61%
Æskulýðsstarf
445
210
47%
34
30
88%
2.227
1.419
64%
ESC Samtals
Árangurshlutfall
*Gerðir voru samningar upp á 316 m.kr. sem er 44 m.kr. hærra en það sem veitt var í flokknum.
25
LISTAMANNALAUN Fjárveiting til starfslauna listamanna er um 680 m.kr. Úthlutað er einu sinni á ári, en auglýst er að hausti vegna starfslauna sem greidd eru af fjárlögum næsta árs á eftir. Umsóknarfrestur var 1. október 2019. Störfum úthlutunarnefnda sex listgreina lauk í desember 2019. Á hverju ári eru til úthlutunar samtals 1.600 mánaðarlaun úr sex launasjóðum. Um verktakagreiðslur er að ræða og aðeins er greitt til einstaklinga. Fyrir árið 2020 var sótt um 11.176 mánuði eða um 4.553 m.kr. Fjöldi umsækjenda var 1.544 sem tilheyrðu 1.043 umsóknum og fengu 325 listamenn laun. Einstaklingsumsóknir voru 942 og umsóknir frá sviðslistahópum voru 101, alls 1.043 umsóknir. Samþykktar umsóknir voru 253, þ.e. 233 frá einstaklingum og 20 frá sviðslistahópum. Starfslaun listamanna eru 407.413 kr. á mánuði. Skipting umsókna milli sjóða og árangurshlutfall var eftirfarandi:
INNVIÐASJÓÐUR Framlag ríkisins til Innviðasjóðs lækkaði um 5 m.kr. á milli ára og var framlag til sjóðsins 290 m.kr. árið 2019. Sjóðurinn hefur tekjur af 150 m.kr. leyfisgjaldi Happdrættis Háskóla Íslands en afgangurinn af rekstrarfé sjóðsins kemur úr ríkissjóði. Á árinu bárust alls 66 umsóknir í Innviðasjóð og voru 26 þeirra styrktar eða um 39% umsókna. Sótt var um rúmlega 739 m.kr. en rúmlega 292 m.kr. voru veittar eða um 40% umbeðinnar upphæðar. Í boði voru fjórar styrktegundir: Tækjakaupastyrkur, uppbyggingarstyrkur, uppfærslu-/rekstrarstyrkur og aðgengisstyrkur. Flestar umsóknir bárust um styrk til tækjakaupa eða um 59% umsókna, en umsóknum um uppbyggingarstyrki fer fjölgandi og þá fyrst og fremst til uppbyggingar gagnagrunna. Á árinu voru samþykktar á Alþingi breytingar á lögum um stuðning við vísindarannsóknir sem meðal annars fólu í sér að Innviðasjóður fékk eigin stjórn í stað þess að heyra undir stjórn Rannsóknasjóðs. Í kjölfarið var skipuð ný stjórn Innviðasjóðs sem vinnur að gerð vegvísis um rannsóknainnviði í samræmi við stefnu og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2017-2019.
Listamannalaun – miðað við fjölda einstaklinga Sótt
Veitt
Árangurshlutfall
Launasjóður tónskálda
155
41
26%
Launasjóður tónlistarflytjenda
154
35
23%
Launasjóður rithöfunda
232
82
35%
Launasjóður myndlistarmanna
263
65
25%
Launasjóður hönnuða
87
7
8%
Launasjóður sviðslista
653
95
15%
1.544*
325**
21%
Samtals
Innviðasjóður – miðað við fjölda umsókna
*1.544 einstaklingar í 1.043 umsóknum. **325 einstaklingar í 253 umsóknum.
Listamannalaun – miðað við fjölda mánaða Sótt
Veitt
Árangurshlutfall
Launasjóður tónskálda
1.457
190
13%
Launasjóður tónlistarflytjenda
1.295
180
14%
Launasjóður rithöfunda
2.848
555
19%
Launasjóður myndlistarmanna
3.233
435
13%
697
50
7%
1.646
190
12%
11.176
1.600
14%
Launasjóður hönnuða Launasjóður sviðslista Samtals
Sótt
Veitt
Árangurshlutfall
Tækjakaup
39
19
49%
Uppbygging
33%
15
5
Uppfærsla/Rekstur
9
1
11%
Aðgengi
3
1
33%
Samtals
66
26
39%
Innviðasjóður – miðað við upphæðir í m.kr.
STUÐNINGUR VIÐ ÚTGÁFU BÓKA Á ÍSLENSKU Í lok árs 2018 voru samþykkt lög með það að markmiði að efla útgáfu bóka á íslensku með því að veita bókaútgefendum tímabundinn stuðning í formi endurgreiðslu. Lögin öðluðust gildi 1. janúar 2019 og verða endurskoðuð í lok árs 2023. Framlag ríkisins til stuðnings við útgáfu bóka á íslensku er 400 m.kr. á ári. Með þessu er ríkissjóður að taka að sér að endurgreiða 25% af endurgreiðsluhæfum kostnaði sem fellur til vegna útgáfu á bókum á íslensku. Bókaútgefendur hafa níu mánuði frá útgáfu bókar til að senda inn umsókn til að sækjast eftir endurgreiðslu. Alls bárust 266 umsóknir á árinu og nam endurgreiðslan um 78 m.kr. á fyrsta ári þessa átaks.
Sótt
Veitt
Árangurshlutfall
Tækjakaup
484
222
46%
Uppbygging
32%
208
66
Uppfærsla/Rekstur
46
4
9%
Aðgengi
1,6
0,3
19%
Samtals
740
292
40%
VINNUSTAÐANÁMSSJÓÐUR Fjárveiting til Vinnustaðanámssjóðs var 245 m.kr. á fjárlögum 2019 og var það óbreytt fjárhæð frá árinu áður en 20 m.kr. afgangur frá árinu áður bættist við þá upphæð, svo til úthlutunar voru samtals 265 m.kr. Rannís hélt áfram samstarfi við Iðuna fræðslusetur og Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins um tiltekna þætti í framkvæmd styrkveitinganna. Samtals var sótt um styrki fyrir 779 nema í 20.791 viku á árinu 2019. Stjórn Vinnustaðanámssjóðs ákvað styrkupphæðina 14.000 kr. fyrir hverja viku í vinnustaðanámi. Nam því heildarúthlutun vilyrða á árinu 291,7 m.kr.
26
ÍSLENSKUKENNSLA FYRIR ÚTLENDINGA Styrkir til íslenskukennslu fyrir útlendinga eru veittir einu sinni á ári skv. reglugerð og fer sú úthlutun fram í upphafi árs. Alls bárust 23 umsóknir fyrir um 299,9 m.kr. og fengu allar styrk upp á samtals 139,9 m.kr. Viðurkenndar fræðslustofnanir héldu samtals 480 námskeið á árinu fyrir 5.389 nemendur með aðstoð þessara styrkja.
til tæplega 2.800 skóla, stofnana, samtaka og fyrirtækja á öllum Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og sjálfstjórnarsvæðunum Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Íslenskar stofnanir stýrðu 29 af þeim verkefnum sem fengu styrki. Því til viðbótar voru 135 verkefni sem stýrt var af öðrum löndum þar sem íslenskar stofnanir tóku þátt. Umsóknir í Nordplus Sprog tungumálaverkefnið voru 35 og er það mesti fjöldi sem hefur sótt um í þennan hluta Nordplus.
BARNAMENNINGARSJÓÐUR ÍSLANDS Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldis Íslands með ályktun Alþingis á hátíðarfundi 18. júlí 2018. Sjóðurinn nýtur 100 m.kr. framlags á ári fram til 2023. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er meðal annars horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Í maí 2019 samþykkti forsætisráðherra fyrstu úthlutanir sjóðsins. Alls bárust 108 umsóknir að upphæð 429 m.kr. Veittar voru 97,5 m.kr. til 36 verkefna. Tilkynnt var um úthlutun við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu á degi barnsins, 26. maí 2019.
NÝSKÖPUNARSJÓÐUR NÁMSMANNA Nýsköpunarsjóður námsmanna er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar. Alls bárust 154 umsóknir fyrir 228 háskólanema. Sótt var um laun í 662 mannmánuði eða rúmlega 199 m.kr. Fækkar umsóknum heldur á milli ára. Að þessu sinni úthlutaði sjóðurinn tæpum 79 m.kr. sem samsvarar 262 mannmánuðum til 90 nemenda í 59 verkefnum og er árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna og veitta styrki um 38%. Nýsköpunarsjóður námsmanna
JAFNRÉTTISSJÓÐUR ÍSLANDS Markmið Jafnréttissjóðs Íslands er að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu, en sjóðurinn var stofnaður í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna árið 2015. Alls bárust 76 umsóknir í sjóðinn og úthlutað var tæplega 91 m.kr. í styrki til 17 verkefna. Úthlutun fór fram 19. júní 2019.
Sótt
Veitt
Árangurshlutfall
Fjöldi umsókna
154
59
38%
Upphæðir í m.kr.
199
79
40%
Fjöldi nemenda
228
90
39%
Mannmánuðir
662
262
40%
MARKÁÆTLUN Í TUNGU OG TÆKNI Hlutverk Markáætlunar í tungu og tækni er annars vegar að vernda og efla íslenska tungu, og hins vegar að auðvelda nýtingu nýrrar samskiptatækni í íslensku samfélagi, til hagsbóta almenningi, stofnunum og fyrirtækjum. Markáætlun í tungu og tækni var sameinuð Máltæknisjóði 2018 og bárust 15 umsóknir á því hausti. Úthlutun fyrir styrkárið 2018 fór fram í febrúar 2019 en úthlutað var 77 milljónum til sex verkefna á sviði tungu og tækni.
STYRKIR TIL ATVINNULEIKHÓPA Styrkir til atvinnuleikhópa haldast í hendur við úthlutun listamannalauna og umsóknarfrestir miðast við sömu dagsetningu. Félag íslenskra leikara tilnefndi sömu þrjá einstaklinga í leiklistarráð og í úthlutunarnefnd starfslaunasjóðs sviðslistafólks. Til hagræðingar fylla leikhópar aðeins út eina umsókn þegar sótt er um atvinnuleikhópastyrk og listamannalaun. Fjárveiting til atvinnuleikhópa er 99 m.kr. á fjárlögum 2020. Alls bárust 105 umsóknir frá 97 leikhópum, með 761 þátttakanda. Sótt var um ríflega 625 m.kr. og 20 verkefni fengu úthlutað tæpum 94 m.kr. Árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna var 19%, en ef miðað er við upphæðir var hlutfallið 15%.
TÓNLISTARSJÓÐUR Fjárveiting til tónlistarsjóðs á fjárlögum 2019 var 72 m.kr. Sjóðnum bárust 256 umsóknir að heildarupphæð 253 m.kr. í tveimur umsóknarlotum. Umsóknarfrestir voru 15. nóvember 2018 og 15. maí 2019. Heildarupphæð styrkja á árinu var samtals um 69 m.kr. Styrkt voru 120 verkefni, þar af átta með árlegum samningum til þriggja ára. ÞRÓUNARSJÓÐUR NÁMSGAGNA Fjárveiting til Þróunarsjóðs námsgagna nam tæplega 55 m.kr. á árinu 2019 og var óbreytt frá árinu áður. Stjórn sjóðsins ákvað að skipta styrkumsóknunum í tvennt frá og með þessari úthlutunarlotu. Áfram var hægt að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 2 m.kr. en nú var einnig hægt að sækja um þróunar- og útgáfustyrk fyrir allt að 4 m.kr. Ákveðið var
NORDPLUS Árið 2019 bárust 503 umsóknir um Nordplus styrki og hlutu 374 brautargengi. Úthlutunarhlutfall umsókna var 74% sem er aðeins yfir meðaltali. Úthlutunarhlutfall fjármagns var 47%. Alls var úthlutað 10,1 milljón evra
27
ÍÞRÓTTASJÓÐUR Á fjárlögum 2020 voru 19 m.kr. til ráðstöfunar í Íþróttasjóð. Auk þess gat sjóðurinn úthlutað fjármunum vegna eldri styrkja sem höfðu ekki verið nýttir. Einn umsóknarfrestur var og bárust 124 umsóknir að upphæð 149,2 m.kr. Að tillögu íþróttanefndar ákvað ráðherra að úthluta styrkjum til 79 verkefna að upphæð 19,02 m.kr. Þar af fengu styrk 42 verkefni til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana, 34 fræðslu- og útbreiðsluverkefni og 3 verkefni vegna rannsókna í íþróttafræðum. Meðalstyrkur var þannig tæplega 241.000 kr. Það er lægra meðaltal en var á síðasta ári.
að veita að hámarki tveimur umsóknum þennan hámarksstyrk, að uppfylltum skilyrðum. Sjóðnum bárust 87 umsóknir og námu samanlagðar fjárbeiðnir um 174,7 m.kr. Þar af voru 79 umsóknir sem féllu undir forgangsatriði ársins sem voru þrjú: Námsefni fyrir framhaldsskóla og leikskóla, námsefni fyrir íslensku, íslensku sem annað tungumál og íslenskt táknmál, og svo þýðingar og aðlögun á námsefni á öllum skólastigum. 7 umsóknir féllu undir önnur áhersluatriði. Styrkir voru veittir til 27 verkefna á árinu 2019 fyrir alls 51,1 m.kr. Meðalstyrkupphæð nam 1,89 m.kr. STARFSLAUNASJÓÐUR SJÁLFSTÆTT STARFANDI FRÆÐIMANNA Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna styrkir eingöngu ritun fræðarita á íslensku, einn opinberra sjóða á Íslandi. Styrkárið 2019 bárust 76 umsóknir í sjóðinn, nokkuð fleiri en undangengið ár. Alls hlutu 23 sjálfstætt starfandi fræðimenn styrk úr sjóðnum eða um 30% umsækjenda. Úthlutað var tæplega 44 m.kr. í launastyrki eða tæplega 17% umbeðinnar upphæðar. Engir ferðastyrkir voru veittir að þessu sinni. Þetta var fyrsta úthlutun nýrrar stjórnar sjóðsins, sem var skipuð á árinu.
ÆSKULÝÐSSJÓÐUR Fjárveiting til Æskulýðssjóðs var um 9 m.kr. á fjárlögum ársins. Auk þess gat sjóðurinn úthlutað fjármunum vegna eldri styrkja sem höfðu ekki verið nýttir. Umsóknarfrestir voru tveir, 15. febrúar og 15. október. Alls bárust 48 umsóknir sem er 16 umsóknum færra en á síðasta ári, en upphæðin sem sótt var um, 59,4 m.kr., er hækkun frá árinu 2018. Styrkt voru 14 verkefni að upphæð um 9,2 m.kr. sem er rúmlega 6% lækkun frá fyrra ári. Meðalstyrkur var um 657.000 á verkefni sem er hækkun frá fyrra ári.
SAMSTARFSNEFND UM ENDURMENNTUN FRAMHALDSSKÓLAKENNARA - SEF Venju samkvæmt var boðið upp á tvær tegundir umsókna til Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara á árinu, annars vegar fyrir sumarnámskeið og hins vegar fyrir gestafyrirlesara og ráðstefnustyrki. Sótt var um styrki fyrir 22 sumarnámskeið á árinu og fengu þau öll úthlutun. Sótt var um námskeið fyrir alls 521 kennara en þegar upp var staðið sóttu 486 kennarar sumarnámskeiðin. Fjögur námskeið voru haldin erlendis og 18 voru haldin á Íslandi, þar af 11 hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og 7 sem dreifðust á átta aðrar stofnanir. Heildarupphæð styrkja til sumarnámskeiða að loknum uppgjörum nam 18,7 m.kr. á árinu. 64 umsóknir bárust um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki á árinu frá samtals 39 stofnunum, 22 faggreinafélögum og 17 skólum. Var sótt um styrki fyrir hönd 95 einstaklinga, 29 gestafyrirlesara og 66 ráðstefnuþátttakenda fyrir alls 18,3 m.kr. Hlutu alls 39 stofnanir styrk fyrir samtals 29 gestafyrirlesara og 66 ráðstefnufara. Samtals nam úthlutun vegna gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrkja 16,1 m.kr.
JULES VERNE Jules Verne er samstarfsverkefni Frakklands og Íslands á sviði vísinda- og tæknirannsókna. Mennta- og menningarmálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en Rannís sér um framkvæmdina. Tilgangurinn með samstarfinu er að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknarhópa í báðum löndunum og að auðvelda samstarf við önnur slík samstarfsverkefni í Evrópu. Styrkir eru veittir til ferða- og dvalarkostnaðar fyrir vísindamenn. Fjármögnunin er samþykkt til tveggja ára í senn og að þessu sinni var úthlutað sex styrkjum. RANNSÓKNARSJÓÐUR SIGRÚNAR ÁSTRÓSAR SIGURÐARDÓTTUR OG HARALDS SIGURÐSSONAR Tekið er við umsóknum í Rannsóknarsjóð Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar annað hvert ár. Veitt er sem svarar vaxtatekjum af höfuðstól sjóðsins. Alls bárust 12 styrkumsóknir til sjóðsins. Sótt var um tæplega 18 m.kr. Úthlutað var til fjögurra verkefna, eða 33% umsókna. Samtals var úthlutað 1,98 m.kr, eða um 11% umbeðinnar upphæðar.
HLJÓÐRITASJÓÐUR Á árinu bárust samtals 218 umsóknir um hljóðritun tónlistar að heildarupphæð 186 m.kr. Umsóknarfrestir voru tvisvar á árinu, 15. mars og 16. september. Fjárveiting til sjóðsins á árinu var 41 m.kr. Heildarupphæð styrkja var um 38 m.kr. og hlutu 127 verkefni styrk.
NÁMSORLOF KENNARA OG STJÓRNENDA FRAMHALDSSKÓLA Alls bárust 119 umsóknir um Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla á árinu en umsóknirnar gilda fyrir veturinn 2020-2021. 110 framhaldsskólakennarar sóttu um orlof í eigin nafni en 8 umsóknir
28
2019
bárust frá skólum fyrir hönd kennara. Nefndin úthlutaði alls 39 stöðugildum til 40 einstaklinga, 38 heilum orlofum og tveimur hálfum; 33 stöðugildi fóru til kennara með einstaklingsumsóknir og 7 stöðugildum var úthlutað til kennara í gegnum skólaumsóknir. 29 konur fengu námsorlof að þessu sinni og 11 karlar. Meðalaldur orlofsþega var rúmlega 57 ár og meðalstarfsaldur þeirra var rúm 25 ár.
niðurstöðuna. Af 111 afgreiddum umsóknum á árinu voru 78% samþykktar og 22% hafnað. Flestar umsóknir koma frá fyrirtækjum eða 66%, frá háskólum 26% og 8% umsókna komu frá stofnunum, sjúkrahúsum eða sjálfseignarstofnunum. LOFTSLAGSSJÓÐUR Loftslagssjóður heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherrra og var Rannís falin umsjón með sjóðnum á árinu. Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagssmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga.
SKATTFRÁDRÁTTUR FRÁ TEKJUM ERLENDRA SÉRFRÆÐINGA Á árinu 2016 var lögfest breyting á ýmsum lögum til að styðja við fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja, þar á meðal frádráttarheimild fyrir erlenda sérfræðinga sem eru ráðnir til starfa hér á landi vegna sérþekkingar sinnar og reynslu. Markmið laganna er að gera fyrirtækjum auðveldara að fá til sín sérfræðinga til að ekki þurfi að fara með viðkomandi starfsemi úr landi. Skilyrði er meðal annars að viðkomandi búi yfir þekkingu eða reynslu sem ekki er fyrir hendi hér á landi eða einungis í litlum mæli. Rannís rekur umsóknakerfi fyrir nefnd sem afgreiðir umsóknirnar og tilkynnir ríkisskattstjóra
Auglýst var eftir umsóknum í lok árs og er umsóknarfrestur í byrjun árs 2020. Boðið var upp á tvær styrktegundir og verða styrkir veittir til eins árs. Annars vegar eru það styrkir til kynningar og fræðslu um loftslagsmál og hins vegar styrkir til nýsköpunarverkefna sem hugsaðir eru meðal annars til að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við innleiðingu á tæknilausnum og hönnun.
FJÖLDI UMSÓKNA OG SAMÞYKKTRA UMSÓKNA Listamannalaun
1.043
253
Tækniþróunarsjóður – nýjar umsóknir
650
78
Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna
400
Rannsóknasjóður – nýjar umsóknir
359
61
Horizon 2020
486
272
54
266 266
Stuðningur við útgáfu bóka á Íslandi Tónlistarsjóður
256
120
Hljóðritasjóður
218
127
Erasmus+
118
159
155 155
Vinnustaðanámssjóður Nýsköpunarsjóður námsmanna Íþróttasjóður
119
40
Skattfrádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga
87
Barnamenningarsjóður Íslands
105
20
Þróunarsjóður námsgagna
113
108
36
Styrkir til atvinnuleikhópa
Fjöldi samþykktra umsókna
124
79
Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla
Fjöldi umsókna
154
59
87
27
83 81
Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara – SEF Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna
76
23
Jafnréttissjóður Íslands
76
17
Innviðasjóður
26
Æskulýðssjóður
14
66
48
Creative Europe
39 21
Nordplus Nordens Sprog
35 22 23 23
Íslenskukennsla fyrir útlendinga Markáætlun í tungu og tækni
15 6
Rannsóknasjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar
12 4
Jules Verne
10 6 5 5
European Solidarity Corps 0
100
29
200
300
400
500
600
700
800
900
1.000
ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF Alþjóðlegt samstarf á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar er umfangsmikið í starfsemi Rannís og mikilvægur þáttur í daglegu starfi. Evrópskt og norrænt samstarf eru stærstur hluti af þessu alþjóðlega samstarfi og hefur hlutverk stofnunarinnar þróast í þá átt að verða helsti þjónustuaðilinn á Íslandi við formlegt alþjóðlegt samstarf. Stofnunin sinnir nú umsýslu með fimm helstu áætlunum sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samningsins:
vísindasamfélags í formi beinna styrkja til 236 verkefna úr hinum ýmsu undiráætlunum Horizon 2020. Árið 2019 reyndist vera metár í áætluninni til þessa, en á árinu hlutu 54 verkefni styrk að upphæð alls 28,5 milljónir evra, eða um 3,9 milljarða króna. Þetta þýðir að árangurshlutfall Íslands stóð í 20,18% í árslok, en meðaltalsárangurshlutfall heilt yfir áætlunina er um 12%. Sérstaklega er eftirtektarvert að fylgjast með velgengni íslenskra nýsköpunarfyrirtækja innan undiráætlunar sem ætluð er litlum og meðalstórum fyrirtækjum, 19 slík verkefni voru styrkt á árinu. Einnig reyndist árið árangursríkt á sviði orkurannsókna, auk þess sem jöfn og góð þátttaka var í áætlunum um umhverfismál annars vegar og hins vegar í áætlun um fæðuöryggi, landbúnað og sjávarútveg. Mikilvægt er að hafa í huga, að þrátt fyrir gott gengi íslenskra aðila þegar kemur að styrkveitingum úr alþjóðlegum samkeppnissjóðum eins og Horizon 2020 og fleiri, þá er það ekki síst aðgangur að öflugu samstarfi í rannsóknum og nýsköpun sem skiptir máli fyrir íslenskt samfélag og hefur jákvæð áhrif til lengri tíma.
Helstu áætlanir sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samningsins Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins Erasmus+ mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun Evrópusambandsins European Solidarity Corps áætlun Evrópusambandsins um sjálfboðaliða- og samfélagsverkefni Creative Europe menningar- og kvikmyndaáætlun Evrópusambandsins Uppbyggingarsjóður EES rannsóknir og nýsköpun, menntun og menning
Erasmus+ Árið 2019 var metár hvað varðar fjármagn sem úthlutað var og um að ræða töluverða aukningu frá árinu áður. Framkvæmd áætlunarinnar gekk mjög vel og var góð eftirspurn í flestum verkefnaflokkum. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kom í eftirlitsheimsókn um mitt árið, en þetta er í fyrsta sinn á yfirstandandi tímabili sem slík heimsókn á sér stað. Farið var mjög ítarlega yfir starfsemi Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi og hvernig
EVRÓPSKAR SAMSTARFSÁÆTLANIR Horizon 2020 Íslenskt vísinda- og nýsköpunarsamfélag tekur virkan þátt í Horizon 2020 og hefur þátttaka heldur farið vaxandi. Frá því að áætlunin tók gildi árið 2014 og til loka ársins 2019 höfðu ríflega 105 milljónir evra, eða um 14,4 milljarðar íslenskra króna á meðaltalsgengi ársins, fengist til íslensks
30
Rannís sinnir því verkefni. Gafst eftirlitsmönnum ESB gott tækifæri til að ræða við starfsfólk um verklag og helstu viðfangsefni. Í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar að heimsókn lokinni kemur skýrt fram að rekstur landskrifstofunnar er í mjög góðum farvegi og í samræmi við þær viðamiklu kröfur sem ESB gerir til starfseminnar.
Flæði Erasmus+ styrkþega til og frá Íslandi 2014-2019 Til Íslands hafa komið 16.577 frá 71 landi og frá Íslandi hafa farið 9.485 til 69 landa.
European Solidarity Corps Ísland gerðist formlega aðili að European Solidarity Corps áætluninni um mitt ár. Áætlunin styrkir sjálfboðaliða- og samfélagsverkefni og er fyrst og fremst hugsuð fyrir ungt fólk á aldrinum 18-30 ára. Sjálfboðaliðaverkefnin voru áður hluti af Erasmus+ áætluninni, en frá og með 2018 varð til ný áætlun sem styrkir sjálfboðaliðastörf og verkefni sem hafa beina samfélagslega skírskotun. Var áætlunin hluti af viðbrögðum Evrópusambandsins við auknum flóttamannastraumi til Evrópu. Markmið áætlunarinnar eru að efla þátttöku ungs fólks og samtaka í samfélaginu, að efla samheldni, samstöðu, lýðræði og borgaralega þátttöku í Evrópu auk þess að bregðast við sérstökum samfélagslegum þörfum til að stuðla að félagslegri aðlögun.
2.625 frá Þýskalandi
1.105 til Danmerkur
1.361 frá Frakklandi
984 til Bretlands
1.340 frá Danmörku
899 til Þýskalands
Creative Europe Creative Europe styrkir skapandi greinar og eflir menningarlega fjölbreytni á sviði kvikmynda, lista og menningar.
679 frá Póllandi
1.154 frá Bretlandi
744 til Spánar
956 frá Spáni
728 til Svíþjóðar
883 frá Svíþjóð
579 til ítalíu
828 frá Finnlandi
506 til Noregs 448 til Finnlands
Myndin sýnir annars vegar frá hvaða löndum flestir erlendir styrkþegar koma til Íslands og hins vegar til hvaða landa flestir íslenskir styrkþegar fara.
Kvikmyndahluti Creative Europe, MEDIA, hefur verið mikilvægur fyrir framleiðslu og dreifingu á íslenskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Velgengni íslenskra kvikmynda í MEDIA áætluninni var umtalsverð árið 2019.
31
Samtals bárust 35 umsóknir frá Íslandi á árinu og fengu 16 íslenskir aðilar brautargengi sem er frábær árangur eða um um 46% árangurshlutfall. Meðal þeirra 20 evrópsku kvikmynda sem fengu stóra dreifingarstyrki voru tvær íslenskar, sem er mjög góður árangur á Evrópuvísu. Í menningarhluta Creative Europe er mikil samkeppni og árangurshlutfall umsókna fremur lágt en íslenskir aðilar hafa þó verið virkir og tekið þátt í áhugaverðum og fjölbreyttum verkefnum. Á árinu var um 30 m.kr. úthlutað til íslenskra þátttakenda í fimm samstarfsverkefnum á sviði barnamenningar, tónlistar, danslistar og safnamenningar. Þar á meðal eru eftirfarandi verkefni:
Úr kvikmyndinni Héraðið
Dreifingarstyrkir til íslenskra kvikmynda í MEDIA Af árangri íslenskra kvikmynda ber hæst dreifingarstyrk til kvikmyndar Gríms Hákonarsonar og Netop films, Héraðið. Myndin fékk úthlutað 518.000 evrum til dreifingar í 28 löndum. Þetta er frábær árangur en styrkurinn er meðal þeirra hærri sem íslenskar kvikmyndir hafa fengið til dreifingar erlendis frá því að Íslendingar hófu þátttöku í MEDIA. Þá fékk kvikmynd Hlyns Pálmasonar og Join Motion Pictures, Hvítur, hvítur dagur, einnig myndarlegan styrk upp á 280.000 evrur til dreifingar í fimmtán Evrópulöndum.
• List fyrir alla og Barnamenningarhátíð í Reykjavík komu inn í samstarfsverkefnið Big Bang sem ellefu evrópskar borgir taka þátt í. Framlag Reykjavíkurborgar er tónlistarhátíð fyrir börn sem haldin verður á næstu þremur árum. Styrkupphæðin sem fellur í hlut Reykjavíkurborgar er 80.000 evrur. • Iceland Airwaves hátíðin tekur þátt í verkefninu Keychange sem stýrt er af Reeperbahn í Þýskalandi. Aðrir þátttakendur koma frá Eistlandi, Noregi, Ítalíu, Írlandi, Frakklandi, Englandi, Svíþjóð, Spáni og Þýskalandi. Verkefnið miðar að því að valdefla tónlistarmenn og áheyrendur, og þrýsta á tónleikahaldara að jafna hlut kynjanna í tónlistargeiranum. Hlutur Iceland Airwaves er 33.900 evrur. • Safnaráð er þátttakandi í samstarfsverkefninu MOI! Museums of Impact. Markmið verkefnisins er að þróa líkan fyrir sjálfsmat safna og gæðaþróun, sem nýtist bæði söfnum og eftirlitsaðilum eins og safnaráði. Auk Íslands koma þátttakendur frá Ítalíu, Grikklandi, Þýskalandi, Eistlandi, Finnlandi, Hollandi og Austurríki. Hlutur safnaráðs er 10.450 evrur.
Partner) gagnvart fjórum samstarfsáætlunum á fjórum mismunandi sviðum, það er á sviði rannsókna í Rúmeníu, nýsköpunar í Portúgal, menntunar í Póllandi og á sviði menningar í Tékklandi. Þátttaka íslenskra aðila í verkefnum styrktum af sjóðnum hefur verið töluverð og ýmsir nýir möguleikar hafa opnast fyrir íslenska aðila. Rannís veitir íslenskum aðilum stuðning og ráðgjöf gagnvart áætlunum Uppbyggingarsjóðs EES í öllum viðtökuríkjunum fimmtán á fagsviðum Rannís. Á árinu skipulagði Rannís Íslandsheimsóknir landsfulltrúa Uppbyggingarsjóðs EES í Portúgal og fulltrúa rannsóknaráætlunar Tékklands, auk þess sem Rannís var meðskipuleggjandi að Jafnréttisþingi sem utanríkisráðuneytið stóð fyrir undir merkjum sjóðsins. Einnig stóð Rannís fyrir, og tók þátt í, fjölda kynninga-, tengslamyndunarog samstarfsnefndarfunda á fagsviði rannsókna, nýsköpunar, mennta- og menningarmála á vegum Uppbyggingarsjóðs EES en margar áætlanir eru nú komnar í farveg hjá viðtökuríkjunum fimmtán.
Uppbyggingarsjóður EES Rannís fer með hlutverk þjónustuskrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES á málefnasviðum stofnunarinnar. Sjóðnum er ætlað að styðja við samfélagslega innviði þeirra fimmtán ESB-ríkja sem lakar standa í efnahagslegu tilliti. Ísland greiðir til sjóðsins vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið ásamt hinum EES-ríkjunum, Noregi og Liechtenstein. Undirbúningur núverandi tímabils sjóðsins 2014-2021 tók nokkuð lengri tíma en áætlað var, en nú hefur samstarfsáætlunum við einstök styrkþegalönd verið hleypt af stokkunum. Heildarfjármagn Uppbyggingarsjóðsins 2014-2021 er alls 1,5 milljarðar evra, en verkefnin geta varað til ársins 2024 og er meginhluta fjármagnsins, eða um 98% sjóðsins, úthlutað með opnum köllum sem auglýst eru á heimasíðu Uppbyggingarsjóðsins. Rannís er landstengill (DPP – Donor Programme
Samstarf landstengla Horizon 2020 Starfsfólk Rannís, sem starfar sem landstenglar fyrir hinar ýmsu undiráætlanir Horizon 2020, tekur virkan þátt í evrópskum samstarfsnetum landstengla, en verkefnin miða að því að styrkja samstarf þeirra, fræða þá um áætlunina og bæta færni þeirra svo þeir geti veitt umsækjendum, hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum betri þjónustu. Samstarfsaðilarnir eru systurstofnanir í öllum þátttökulöndum Horizon 2020, en stofnanirnar skiptast á að leiða samstarfið.
32
Auk þess að taka virkan þátt í tíu slíkum samstarfsnetum helstu undiráætlana Horizon 2020, þá stýrir Rannís einu slíku samstarfsneti landstengla innan Vísinda í þágu samfélagsins og hefur leitt það samstarf allt frá árinu 2010. Þátttakendur í samstarfsnetinu, SiS.net, koma frá fimmtán öðrum löndum, allt frá Íslandi til Kýpur og frá Eistlandi til Egyptalands. Á árinu 2019 hófst síðasti fasi verkefnisins sem mun vara til loka Horizon 2020 áætlunarinnar. COST Þátttaka í COST (European Cooperation in the Field of Scientific and Technical Research) hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár, en COST er eitt elsta samstarf á sviði vísinda- og tæknirannsókna sem Ísland tekur þátt í, eða frá 1991. Nú taka 38 þjóðríki þátt í gegnum beina samninga. Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum og greiða verkefnin fyrir kostnað vegna funda og ráðstefnuhalds en ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf. Um miðbik ársins 2019 var opnað fyrir þátttöku í 40 nýjum COST verkefnum, en þau hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda, svo sem í stærri rannsóknaverkefni innan Horizon 2020. Mögulegt er að gerast aðili að verkefnum á umsóknarstigi en einnig eftir að verkefni er farið í gang.
Erasmus fyrir nýja frumkvöðla Á árunum 2018 og 2019 tók Rannís þátt í verkefninu Erasmus fyrir nýja frumkvöðla (Erasmus for Young Entrepreneurs) með einum starfsmanni í hlutastarfi. Verkefnið, sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins setti á laggirnar árið 2009 og fjármagnar að stærstum hluta, felst í því að tengja saman frumkvöðla í Evrópu og gera þeim kleift að starfa saman í 1–6 mánuði. Markmiðið er að gefa nýjum frumkvöðlum tækifæri til að dvelja hjá og læra af reyndari frumkvöðli frá öðru Evrópulandi. Um er að ræða samstarf tveggja einstaklinga sem vinna saman á jafningjagrundvelli og er verkefnið þannig tækifæri fyrir báða aðila til að stækka tengslanetið og fá innsýn í nýja markaði fyrir vörur sínar eða þjónustu. Frá upphafi hafa yfir 7000 frumkvöðlar hlotið styrk en árið 2019 styrkti Rannís tvo frumkvöðla til að fara út og vinna með reyndari frumkvöðlum. Þar sem verkefnið gengur í báðar áttir hefur Rannís einnig haft milligöngu um samstarf reyndari frumkvöðla hér á landi og nýrra frumkvöðla sem fengu styrk frá sinni skrifstofu til að dvelja á Íslandi, en alls komu þrír frumkvöðlar hingað til lands. Öll samstarfsverkefnin gengu vel og voru frumkvöðlarnir, nýir sem reyndir, sammála um að samstarf af þessum toga væri gott fyrir frumkvöðlana sjálfa sem og þróun lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Euraxess Rannís hefur umsjón með þátttöku Íslands í evrópska rannsóknastarfatorginu, Euraxess, en hlutverk þess er að miðla gagnlegum upplýsingum fyrir íslenskt og erlent vísindafólk sem hyggst starfa í öðru landi en sínu heimalandi. Miðstöð upplýsingamiðlunarinnar fer fram í gegnum heimasíðuna euraxess.is, þar sem hægt er að finna upplýsingar og aðstoð við vistaskipti og búferlaflutninga til Íslands, en sambærilegar vefsíður eru reknar í öllum aðildarlöndum Euraxess. Á árinu var haldið áfram að virkja íslenska háskóla til þátttöku í Euraxess samstarfsnetinu, þar sem þeir eru gjarna í nánari samskiptum við erlent vísindafólk, til að mynda skiptikennara og fólk sem hingað kemur til að stunda rannsóknir.
Tækniþróunarsjóður sér um að fjármagna íslenska þátttöku í samþykktum verkefnum, en á árinu fékk eitt verkefni með íslenskri aðild stuðning auk þess sem sjö framhaldsverkefni voru í gangi með íslenskum þátttakendum.
Eurostars Eurostars er fjármögnunaráætlun innan EUREKA sem er sérstaklega ætluð til að auka rannsóknaog þróunarsamstarf lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en Ísland hefur verið aðili að EUREKA samstarfinu frá árinu 1986. Í dag standa 36 lönd að áætluninni ásamt Evrópusambandinu. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári og er lögð áhersla á að verkefnin séu tiltölulega nálægt markaði, eða komin frekar langt í nýsköpunarferlinu. Í byrjun árs 2019 fluttist umsjón með Eurostars aftur til Rannís frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og hefur Rannís tekið við hlutverki landstengiliðs Eurostars.
AORA Rannís tekur þátt í umfangsmiklu samstarfsverkefni Evrópusambandsins, Bandaríkjanna og Kanada um málefni N-Atlantshafsins undir heitinu AORA (Atlantic Ocean Research Alliance). Verkefnið skiptist í nokkra hluta og hefur Rannís umsjón með hluta þess sem fjallar um líftækni. Á árinu skipulagði Rannís tvær vinnustofur sem lutu að stefnumótun að verkefnum um örverur í hafinu. Einnig kom verkefnið á fót samstarfi ungra vísindamanna á þessu sviði og
33
tilnefndi Rannís Lilju Gunnarsdóttur doktorsnema í líffræði sem fulltrúa Íslands. Niðurstöður og skýrslan Marine Microbiome Roadmap verða kynntar á ráðstefnunni All-Atlantic Forum í Brussel í febrúar 2020. Sóknarstyrkir Markmiðið með sóknarstyrkjum er að auðvelda íslenskum aðilum að taka þátt í alþjóðlegum rannsóknasjóðum með því að styrkja undirbúning umsókna. Fjármagnið kemur úr Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði, en á árinu ákváðu stjórnir þessara sjóða að leggja til allt að 20 milljónir til að styrkja undirbúning alþjóðlegs vísinda- og þróunarsamstarfs með íslenskri þátttöku. Forgangur var veittur umsóknum vegna undirbúnings umsókna í Horizon 2020 rannsóknaráætlun ESB, en mögulegt er að styrkja annað samstarf samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.
Dóra Stefánsdóttir, verkefnisstjóri Euroguidance reynir við sjálfutöku
Euroguidance Á árlegum degi náms- og starfsráðgjafar var haldin stór ráðstefna með þemanu Gagnleg verkfæri við náms- og starfsráðgjöf. Þar var verkefnisstjóri Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar með vinnustofu um ýmis verkfæri sem nýtast vel þegar verið er að leiðbeina fólki sem hyggur á nám og störf erlendis.
ERA-NET Samstarf íslenskra rannsóknasjóða í ERA-netum gerir íslenskum fyrirtækjum og stofnunum kleift að taka þátt í fjölþjóðlegum rannsóknaverkefnum á völdum sviðum. Rannís tekur þátt í nokkrum slíkum verkefnum sem styrkja rannsóknir og þróun. Hvert ERA-net hefur eigin áherslusvið, þátttökureglur og umsóknarfresti. ERA-netin sem Rannís tók þátt í á árinu eru:
Europass Mikil vinna hefur verið lögð í að búa til nýja vefgátt fyrir Europass sem opnuð verður vorið 2020. Framkvæmdastjórn ESB stjórnar verkinu en öll lönd Evrópu hafa verið kölluð til samráðs. Helstu nýjungar verða þær að notendur búa sér til eigið svæði þar sem þeir safna saman upplýsingum um hæfni sína og færni. Þeir nota svo það sem við á til að búa til ferilskrá og styðja hana gögnum.
BlueBioeconomy ERA-Net er fimm ára evrópsk samstarfsáætlun sem snýr að lífhagkerfi sjávar og stýrir Rannís einum vinnupakka í áætluninni sem kemur að samskipta- og kynningamálum. Sá vinnupakki er unninn í samstarfi við Matís og þátttökulönd í áætluninni. Á árinu var auglýst eftir umsóknum vegna rannsóknaog þróunarverkefna á tilteknum sviðum sem snúa að lífhagkerfi sjávar, eða bláa hagkerfinu. Alls voru 19 verkefni styrkt og voru íslenskir þátttakendur í þremur þeirra. Tækniþróunarsjóður styrkti íslensku aðilana og var skuldbinding hans ein milljón evra. Stefnt er að öðru kalli á næsta ári. Verkefnið er samstarf 27 fjármögnunaraðila frá 16 löndum.
Áhugi á Europass ferilskránni vex stöðugt og á árinu 2019 voru tæplega sjö þúsund ferilskrár fylltar út hér á landi, sem var um þúsund ferilskrám fleiri en árið 2018. Athygli vekur að nærri því helmingi fleiri ferilskrár eru á ensku en íslensku og að fjöldi þeirra sem gefur upp erlent ríkisfang hefur aukist mjög. Fæstir gefa þó upp ríkisfang þannig að þær upplýsingar eru ekki tæmandi.
GEOTHERMICA ERA-Net verkefnið er samstarfsverkefni 14 stofnana frá 13 löndum á sviði jarðvarma. Var úthlutað styrkjum í fyrsta sinn í apríl. Það bárust 15 umsóknir í annarri umferð umsóknarferlisins, þar af fóru 12 í lokamat, en Rannís hafði sem fyrr umsjón með umsókna- og fagráðskerfinu. Alls eru 8 verkefni styrkt í þessari lotu, þar af 4 með íslenskri þátttöku. Ákveðið var að bjóða út annað kall á árinu og var umsóknum í fyrra þrepi skilað í september og að loknu mati var 12 verkefnum boðið að taka þátt í seinna þrepi kallsins. Íslenskir þátttakendur eru í tveimur þeirra. Úthlutun fer fram á árinu 2020. Tækniþróunarsjóður styrkir íslenska þátttöku.
ásamt Rússlandi, Japan og Taívan. Tækniþróunarsjóður stendur að baki styrkjum til íslenskra aðila, en ekkert verkefni hlaut styrk á þessu ári. HERA er samstarfsnet á sviði hugvísinda með þátttöku 21 fjármögnunaraðila í Evrópu og hefur Rannís tekið þátt í að stýra samstarfinu undanfarin ár. Árið 2019 var hleypt af stokkunum samstarfsáætlun undir merkjum HERA sem nefnist Public Spaces: Culture and Integration in Europe og hlutu 20 samstarfsverkefni brautargengi.
M-ERA.NET 2 er samstarfsnet á sviði efnistækni og er framhald samskonar verkefnis sem Rannís hefur áður tekið þátt í. Um er að ræða samstarf 32 fjármögnunaraðila frá 23 löndum innan Evrópusambandsins og EFTA,
34
NORRÆNT SAMSTARF Samstarf milli Norðurlandanna á starfssviði Rannís á sér langa sögu og tekur stofnunin þátt í nefndum á vegum Norræna ráðherraráðsins auk þess að eiga gott samstarf við NordForsk og Nordic Innovation. Forstöðumenn stofnana sem styrkja rannsóknir eiga gott samstarf. Rannís fjármagnar nokkur verkefni á vegum Nordforsk sem hafa skilað góðum ávinningi fyrir íslenskt rannsóknarsamfélag. Rannís rekur landskrifstofu fyrir norrænu menntaáætlunina Nordplus þar sem Norðurlöndin skipta með sér verkum. Þar er nú rekin aðalskrifstofa áætlunarinnar en auk þess ber Rannís ábyrgð á tungumálahlutanum.
Landskrifstofa eTwinning á Íslandi hélt vel heppnaða norræna vinnustofu sem um 30 kennarar og starfsmenn norrænna eTwinning landskrifstofa tóku þátt í
Rannís sér jafnframt um styrkveitingar úr tvíhliða samstarfi milli Íslands og Noregs sem fjármagnað er af utanríkisráðuneytum ríkjanna og er ætlað að styðja við samstarf þjóðanna í rannsóknum á norðurslóðum.
eTwinning - Markverðast á árinu: - Fjöldi gæðamerkja - Fjöldi eTwinning skóla - Aukning í nýskráningum eTwinning er stærsta starfssamfélag kennara og skólafólks í Evrópu með um 790 þúsund þátttakendur frá 200 þúsund skólum sem hafa unnið, ásamt nemendum sínum, að rúmlega 100 þúsund samstarfsverkefnum. Samfélaginu er ætlað að efla rafrænt samstarf milli skóla, kennara og nemenda í Evrópu, auka notkun upplýsingatækni og styðja við skólaþróun. eTwinning býður upp á aðgengilegan samfélagsvef á netinu fyrir leik-, grunnog framhaldsskólakennara þar sem hægt er að komast í samband við kennara, taka þátt í einföldum samstarfsverkefnum sem unnin eru á öruggu netsvæði og sækja sér endurmenntun, bæði á netnámskeiðum og vinnustofum erlendis.
Nordplus Nordplus er norræn menntaáætlun sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og skiptist í fimm undiráætlanir. Áætlunin veitir styrki á sviði menntamála til aðila á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Rannís tók við yfirstjórn Nordplus árið 2019 af Dönum og mun gegna því hlutverki næstu þrjú árin hið minnsta. Ráðnir voru tveir starfsmenn í 1½ stöðugildi til að sinna þessu nýja verkefni. Í rekstri aðalskrifstofunnar felst samræming á starfi landskrifstofa á Norðurlöndunum fimm, sem skipta með sér verkum við undirbúning úthlutana, auk starfs sem unnið er af tengiliðum í Eystrasaltsríkjunum, Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum. Aðalskrifstofan sér einnig um samskipti við Norrænu ráðherranefndina og það ríki sem fer með formennsku á hverjum tíma.
Þó að eTwinning samstarfsverkefni séu unnin í gegnum netið geta kennarar reglulega sótt um að taka þátt í eTwinning vinnustofum og ráðstefnum erlendis. Árið 2019 bauð landskrifstofa eTwinning 16 kennurum að sækja sjö viðburði í jafnmörgum löndum. Á þessum viðburðum hittu kennararnir aðra starfsfélaga sína frá yfir 40 löndum Evrópu og stofnuðu með þeim og skipulögðu eTwinning samstarfsverkefni sem nemendur unnu að þegar heim var komið.
Rannís er einnig umsýsluaðili fyrir tungumálahluta Nordplus. Þar er árlega úthlutað styrkjum til ýmissa verkefna sem felast í gerð kennsluefnis, ráðstefnuhaldi og starfi sérfræðinganeta í norrænum tungumálum. Einnig sér Rannís um íslenska þátttöku í öðrum hlutum Nordplus, þar sem bæði nemendur og kennarar geta fengið styrki til heimsókna eða námsdvalar á öðrum Norðurlöndum eða í Eystrasaltsríkjunum, samvinnuverkefna eða þátttöku í samstarfsnetum sem öll miða að því að auka samskipti þjóðanna á sviði menntunar.
Á árinu voru nýskráningar í eTwinning samtals 181 sem er fjölgun frá árinu á undan þegar 161 kennari skráði sig í verkefnið. Einnig var aukning í fjölda verkefna sem kennarar tóku þátt í á árinu, sem voru 135 en 102 árið 2018. Fjöldi verkefna segir þó ekki alla söguna því gæði eTwinning verkefna skipta höfuðmáli. Á hverju ári eru veitt gæðamerki fyrir vel unnin verkefni þar sem mat er lagt á skipulag verkefnisins, samstarf þátttakenda, aðkomu nemenda og lokaútkomu eða -niðurstöðu. Árið 2019 var metár, bæði hvað varðar fjölda umsókna og verkefna sem fengu viðurkenningu, en á árinu hlutu 24 verkefni gæðamerki eTwinning sem er aukning frá árinu áður þegar 17 verkefni fengu sömu viðurkenningu.
Nordplus felur í sér umtalsverðan fjölda náms- og þjálfunarferða nemenda og kennara þar sem 600800 Íslendingar fara árlega til annarra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna og svipaður fjöldi kemur hingað til lands með stuðningi Nordplus. Þá er veittur stuðningur til þróunarverkefna í menntun á öllum stigum og til samstarfsneta sem vinna saman að brýnum verkefnum innan menntageirans.
Árið 2016 gátu skólar sem voru virkir í eTwinning sótt um nafnbótina, „eTwinning skóli“ sem veitt er til tveggja ára. Síðan þá hafa sjö íslenskir skólar hlotið þessa viðurkenningu en í lok árs 2019 höfðu alls níu skólar sótt um að gerast eTwinning skólar næstu tvö árin. Skólarnir uppfylla allir þau skilyrði sem þarf og munu því hljóta nafnbótina í upphafi árs 2020.
35
NordForsk Hlutverk NordForsk er að styðja við norrænt rannsóknasamstarf í gegnum samstarf stærstu fjármögnunaraðila rannsókna allra Norðurlandanna. Á vettvangi NordForsk eru skilgreindar samstarfsáætlanir á ákveðnum sviðum sem hafa það að markmiði að veita fé til sameiginlegra forgangsmála á sviði rannsókna. Rannís tók þátt í þremur samstarfsáætlunum NordForsk á árinu, á sviði samfélagslegs öryggis, heilbrigðisvísinda og fólksflutninga:
NOS nefndir Rannís tekur þátt í þremur norrænum samstarfsnefndum á vegum rannsóknaráða Norðurlandanna, NOS-HS á sviði hug- og félagsvísinda, NOS-N í raunvísindum og náttúruvísindum og NOS-M sem er samstarfsnefnd í heilbrigðisvísindum. NOS-N er samstarfsnefnd á vegum fjármögnunaraðila rannsókna í raunvísindum og náttúruvísindum á Norðurlöndum. Haldnir voru tveir fundir á árinu, sá fyrri í Stokkhólmi 13.-14. maí en sá seinni í Reykjavík 30. október-1. nóvember. Þema fundarins í Stokkhólmi var Open Science Policy in the Nordic countries and PlanS, og á fundinum í Reykjavík var haldið áfram að fjalla um opið aðgengi undir yfirskriftinni Open Science themes continue, operational international cooperation (NOS-N relevant calls and networks).
NordForsk – Societal Security Norræna rannsóknaáætlunin á sviði samfélagslegs öryggis er þverfagleg áætlun með það að markmiði að fjármagna rannsóknir sem taka á veikleikum og viðnámsþrótti samfélaga og getu þeirra til að takast á við áföll með vísan til forvarna, viðbragðsgetu, aðgerða og endurreisnar. En ný þekking á þessu sviði er talin nauðsynleg svo bregðast megi við margvíslegum öryggisáskorunum samtímans, svo sem umhverfisvá, netárásum o.s.frv. með viðeigandi hætti. Áætlunin er unnin í samstarfi NordForsk, Rannís, Finnsku akademíunnar, Almannavarnastofnunar Svíþjóðar, Norska rannsóknaráðsins og Almannavarnastofnunar Noregs. Þriðji fasi rannsóknaáætlunarinnar er nú farinn af stað og rann umsóknarfrestur út þann 20. nóvember 2019. Stendur til að úthluta 44 milljónum norskra króna til fjögurra verkefna vorið 2020 undir þemanu „Samfélagslegt öryggi á Norðurlöndum í ljósi rísandi hnattrænna og svæðisbundinna meginstrauma“, en alls bárust 28 umsóknir og þar af 7 með íslenskum þátttakendum.
NOS-M er samstarfsnefnd í heilbrigðisvísindum á vegum fjármögnunaraðila rannsókna á Norðurlöndunum. Haldnir voru tveir fundir á árinu, í Stokkhólmi og í Osló. Fyrir fundinn í Osló, sem haldinn var 16.-17. desember, var Kristín Ingólfsdóttir, líffræðingur og fyrrverandi rektor HÍ, fengin inn sem fulltrúi Íslands af hálfu Rannís. NOS-HS er samstarfsnefnd í hug- og félagsvísindum á vegum fjármögnunaraðila rannsókna á Norðurlöndunum og veitir hún styrki til að halda norrænar vinnusmiðjur. Haldnir voru tveir fundir á árinu, í Reykjavík og Osló. Fulltrúum frá Færeyjum og Grænlandi var boðið að sitja fundinn í Reykjavík sem haldinn var í maí, og verður skoðað að bjóða þeim að taka þátt í samstarfinu. Tillaga kom fram á árinu að NOS-HS feli NordForsk rekstur og umsýslu nefndarinnar og var vinnuhópur skipaður til að skoða það. Á árinu bárust 72 umsóknir um vinnusmiðjur sem fyrirhugað er að halda 2020-2021 og hlutu 34 verkefni styrk, þar af tvö sem leidd eru af íslenskum aðilum.
NordForsk – NordicPerMed Tækniþróunarsjóður tekur þátt í samnorræna verkefninu Innovations in Personalised Medicine (NordicPerMed) sem er leitt af Nordforsk og fjallar um meðferð sniðna að sjúklingi út frá þverfaglegu samstarfi á heilbrigðissviði. Samstarf er milli norrænu sjóðanna Business Finland, Innovation - Nýsköpunarsjóðs Danmerkur, Rannsóknarráðs Noregs, Rannís, VINNOVA í Svíþjóð ásamt NordForsk sem leggja sameiginlega um 15 milljónir evra í verkefnið. Af 7 verkefnum eru 3 með íslenskri aðild, þremur íslenskum rannsóknarhópum og tveimur fyrirtækjum.
Arctic Research and Studies Áætlunin byggir á tvíhliða samstarfi milli Íslands og Noregs á sviði norðurslóðafræða sem hófst árið 2011 og hefur veitt styrki annars vegar til stúdentaskipta í háskólum á öllum námsstigum og hins vegar til samstarfs á milli stofnana, einkum í formi ferðastyrkja. Að auki er styrkt Nansen prófessorsstaða við Háskólann á Akureyri en sú fjármögnun fer ekki í gegnum Rannís. Samstarfssamningur um umsjón Rannís með sjóðnum var endurnýjaður haustið 2019 og fyrir tímabilið 2019-2020 er megináhersla á sóknarstyrki sem auglýstir voru 20. nóvember, en þeir eru veittir vegna undirbúningsvinnu við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði.
NordForsk – Migration and Integration Á vegum NordForsk er rekin þverfagleg rannsóknaráætlun sem fjármagnar rannsóknir er snúa að fólksflutningum og aðlögun innflytjenda að norrænum samfélögum. Áætluninni var komið á fót í kjölfar komu stóraukins fjölda flóttamanna til Norðurlanda síðustu ár með tilheyrandi efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum. Auk Norðurlandanna tekur Bretland þátt í áætluninni. Árið 2019 var úthlutað um 75 milljónum norskra króna til 7 samstarfsverkefna. Ekkert þeirra var með íslenskri þátttöku.
36
2019
ALÞJÓÐLEGA NORÐURSKAUTSVÍSINDANEFNDIN (IASC) Skrifstofa Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC) hóf þriðja starfsár sitt í rannsóknarhúsinu að Borgum á Akureyri, samkvæmt samkomulagi á milli nefndarinnar og Rannís. Auk vísindastofnana í norðurskautsríkjunum átta eiga aðild að IASC vísinda- og rannsóknarstofnanir í Austurríki, Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Japan, Hollandi, Indlandi, Póllandi, Portúgal, Kína, Kóreu, Spáni, Sviss, Tékklandi og Þýskalandi. IASC stuðlar að samstarfi um vöktun og rannsóknir á norðurslóðum. Sem áheyrnaraðili að Norðurskautsráðinu gegnir nefndin mikilvægu hlutverki við miðlun upplýsinga frá vísindasamfélaginu til ráðsins um niðurstöður rannsókna á breytingum í náttúrufari norðurslóða. Eitt helsta samstarfsverkefni Norðurskautsráðsins og IASC er Sustaining Arctic Observing Networks (SAON) en tilgangur samstarfsins er að efla og styðja uppbyggingu á samræmdum og alþjóðlegum vöktunar- og upplýsingakerfum sem ná til alls norðurskautssvæðisins.
Verkefni sem hljóta bæði innlenda og erlenda styrki Áhugavert er að skoða dæmi um íslensk verkefni sem hafa hlotið styrki bæði úr innlendum sjóðum og erlendum styrktaráætlunum, og gera að auki ráð fyrir þátttöku almennings og verða þannig sýnileg í samfélaginu. Dæmi um slík verkefni er annars vegar Áfallasaga kvenna og hins vegar Blóðskimun til bjargar, en þau hafa bæði hlotið öndvegisstyrki Rannsóknasjóðs og ERC styrki Evrópska rannsóknaráðsins undir Horizon 2020.
Starfsemi IASC fer að miklu leyti fram í fimm vinnuhópum; um landræn kerfi, gufuhvolf, hafvísindi, mann- og félagsvísindi og freðhvolf. Þátttökuríkin útnefna að jafnaði tvo meðlimi í hvern vinnuhóp. Þeir eru í senn fulltrúar innlendra vísinda- og rannsóknarstofnana gagnvart hinu alþjóðlega vísindasamfélagi, sem og talsmenn IASC og helstu tengiliðir við starfsemi vinnuhópanna. Hóparnir funda, ásamt vísindaráði IASC, að vori ár hvert á vikulangri vísindaráðstefnu (Arctic Science Summit Week) til að leggja línurnar og móta stefnuna í starfi IASC. Árið 2020 verður ASSW haldið á Akureyri og er von á mikilli þátttöku. Rannís heldur utan um skipulag ASSW 2020, með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og fleiri aðilum. Á skrifstofu IASC starfa þrír sérfræðingar í málefnum norðurslóða, ýmist í fullu starfi eða hlutastarfi.
Norræna síðan á EPALE með nýja viðmótinu
EPALE er evrópskt vefsvæði í fullorðinsfræðslu fyrir kennara, leiðbeinendur, þá sem sinna stefnumótun, fræðimenn og annað áhugafólk um formlega eða óformlega fræðslu fullorðinna nemenda (18 ára og eldri) Viðmót EPALE var endurbætt verulega árið 2019 og er vefurinn nú miklu hraðvirkari og framsetning betri. Á EPALE eru ákveðin þemu tekin fyrir í 2-3 mánuði í senn og árið 2019 var deilt fjölbreyttu efni varðandi fullorðinsfræðslu um tölvufærni, lýðræðislega þátttöku í samfélaginu, óformlegt og formlegt nám, félagslega inngildingu jaðarhópa (social inclusion) og nám á vinnustöðum, svo nokkuð sé nefnt.
Skrifstofan styður við og nýtur góðs af þeirri sérfræðiþekkingu sem byggst hefur upp á Akureyri og liggur til grundvallar öflugu norðurslóðasamfélagi á svæðinu. Til marks um samstarf IASC og annarra stofnana og skrifstofa sem reka starf sitt á Akureyri má nefna sameiginlega vísindastyrki sem IASC og CAFF, vinnuhópur Norðurskautsráðsins um verndun lífríkis, veita til tveggja ungra vísindamanna, til að taka þátt í starfi stofnananna.
Hægt er að fylgjast með þróun kennsluhátta í fullorðinsfræðslu á EPALE, finna samstarfsaðila í Evrópuverkefni og finna tækifæri til starfsþróunar, svo sem námskeið og ráðstefnur. Með EPALE er hægt að fylgjast með fréttum, taka þátt í umræðum og deila reynslu sem nýtist fagfólki í fullorðinsfræðslu um alla Evrópu. EPALE fréttabréf kemur út mánaðarlega og fréttir eru birtar á Facebook á síðunni EPALE Ísland Norrænt samstarf hefur verið vaxandi á EPALE og þar er sérstök norræn undirsíða (Nordic Portal) með efni frá öllum Norðurlöndum á norrænu tungumálunum.
37
VIÐBURÐIR Formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs, Hrund Gunnsteinsdóttir og Sigurður Björnsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís stýrðu fundinum og buðu nýja styrkþega velkomna til samstarfs. Að dagskrá lokinni var boðið upp á lifandi tónlist og fundargestir áttu gott spjall saman um ýmsar hliðar nýsköpunar.
VORFUNDUR TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐS Vorfundir Tækniþróunarsjóðs eru einskonar uppskeruhátíð, þar sem fagnað er árangri allra sem koma að nýsköpun og tækniþróun. Vorfundur Tækniþróunarsjóðs 2019 var haldinn fimmtudaginn 6. júní í Iðnó, undir yfirskriftinni Hringrásarhagkerfið – sjálfbær nýsköpun. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðarog nýsköpunarráðherra, ávarpaði fundinn og Mikko Kosonen, forseti Sitra flutti erindið Finland as a Forerunner in the Circular Economy. Í kjölfarið var boðið upp á pallborðsumræður en þátttakendur í þeim voru Mikko Kosenen, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur og umsjónarmaður sjónvarpsþáttarins Hvað höfum við gert?, Sigrún Hildur Jónsdóttir, einn af stofnendum Klappa og Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs.
ERASMUSDAGAR 2019 Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi hélt ráðstefnu um jöfn tækifæri föstudaginn 11. október í Menntaskólanum í Kópavogi. Ráðstefnan var hluti af Erasmusdögum sem haldnir voru víða um Evrópu til að vekja athygli á öllum þeim góðu verkefnum og starfi sem er styrkt af Erasmus+.
38
Á ráðstefnunni var fjallað sérstaklega um þann stuðning sem er fyrir hendi til að tryggja að allir hafi jöfn tækifæri til þátttöku í Erasmus+. Íslenskir og erlendir sérfræðingar deildu þar reynslu sinni af málaflokknum og ræddu við ráðstefnugesti um leiðir til að nýta áætlunina sem best. Í lokin voru veittar viðurkenningar til sjö ólíkra verkefna sem höfðu unnið sérlega gott starf í þágu jafnra tækifæra:
1. Viðurkenning fyrir æskulýðsverkefni Samtökin Stelpur rokka fyrir verkefnið „Music Empowerment Mobility and Exchange“. Verkefnið snerist um að efla ungar stelpur, kynsegin og intersex ungmenni í gegnum tónlistarsköpun og jafnréttisstarf.
Fyrsti fundurinn í verkefninu RPL in Practice fór fram í Stokkhólmi í júní 2019
Nýtt Bologna-verkefni um raunfærnimat á háskólastigi Í apríl 2019 hóf göngu sína verkefnið Recognition of Prior Learning (RPL) in Practice, sem snýst um raunfærnimat til inngöngu í háskóla og til styttingar háskólanáms.Verkefnið er styrkt af Erasmus+ í sérstökum undirflokki sem ætlaður er stjórnvöldum til stuðnings við að innleiða Bologna-ferlið í löndum samevrópska háskólasvæðisins (EHEA) og er til tveggja ára. Stjórn verkefnisins er í höndum Swedish Council for Higher Education (UHR) og eru bæði menntaog menningarmálaráðuneytið og Rannís aðilar að því ásamt stofnunum og samtökum í Austurríki, Króatíu, Írlandi og Belgíu.
2. Viðurkenning fyrir verkefni á leik-, grunn- eða framhaldsskólastigi Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir tvö Erasmus+ verkefni: „Stuðningur til að efla læsi og aðlögun fjöl-/tvítyngdra í grunnskólum“ og „Starfsspeglun í kennslu og aðlögun fjöl-/tvítyngdra í grunnskólum“. 3. Viðurkenning fyrir verkefni í starfsnámi Landbúnaðarháskóli Íslands fyrir verkefnið „Safe Climbing“. Verkefnið snýst um að búa til aðgengilegt rafrænt námsefni fyrir kennslu og verklega þjálfun í trjáklifri (Arborist) sem til dæmis nýtist þeim sem kenna eða eru að læra trjáklifur.
Markmið RPL in Practice er að hjálpa þátttökulöndunum sex við að þróa leiðir við innleiðingu raunfærnimats á háskólastigi, sem er leið til að viðurkenna og staðfesta færni sem einstaklingur hefur aflað sér á ýmsan hátt og bera hana saman við hæfniviðmið tiltekins formlegs náms. Þannig sé aðgengi fólks að háskólum aukið og reynsla þess metin að verðleikum. Á Íslandi er ekki til staðar formleg aðferðafræði á háskólastiginu í þessum málaflokki ennþá og því til mikils að vinna að taka þátt í þessu nýja verkefni og læra af reynslu þeirra landa sem eru lengra komin í ferlinu.
4. Viðurkenning fyrir verkefni á háskólastigi Háskóli Íslands fyrir stuðning við nemendur með fötlun sem hafa farið utan í skiptinám og starfsþjálfun. 5. Viðurkenning fyrir verkefni í fullorðinsfræðslu Intercultural Iceland fyrir Erasmus+ samstarfsverkefnið „I´m not a racist, but...“. Þetta sérstaka heiti á verkefninu vísar til þess að margir þekkja ekki hinar ólíku birtingarmyndir fordóma og rasisma og telja sig jafnvel fordómalausa þótt sú sé ekki raunin.
Á árinu 2019 hefur vinnan að mestu leyti snúist um að kortleggja verkferla, aðstæður og þarfir í þátttökulöndunum. Byrjað er að prófa aðferðir við raunfærnimat innan afmarkaðs fjölda deilda í löndunum sex, sem síðar er hægt að víkka út til annarra. Tengiliðir Íslands í verkefninu eru fulltrúi frá Rannís og fulltrúi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu en auk þeirra eiga sæti í vinnuhópi um verkefnið fulltrúar frá öllum sjö háskólunum á Íslandi. Samhliða verkefninu er verið að vinna að endurskoðun viðmiða um æðri menntun og prófgráður og uppfærslu á skírteinisviðauka (Diploma Supplement), nú á stafrænu formi.
6. Viðurkenning fyrir eTwinning verkefni – rafrænt skólasamstarf Heilsuleikskólinn Skógarás fyrir Erasmus+ verkefnið „Eco Tweet: Little Ecologist“. 7. Evrópumerkið Þjónustumiðstöð Breiðholts fyrir verkefnið „Stígum saman í áttina að öflugra samfélagi“. Evrópumerkið er viðurkenning fyrir nýbreytni í tungumálanámi og tungumálakennslu sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og mennta- og menningarmálaráðuneytið veita.
39
of Disruptive Design, Disrupt Design og CO Project Farm, Jón Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Klappa, Guðrún Anna Finnbogadóttir, verkefnastjóri Vestfjarðastofu og Rakel Garðarsdóttir, frumkvöðull, framkvæmdastjóri og stofnandi Verandi og Vakandi. Einnig voru sýnd viðtöl við Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur, aðgerðasinna og nemanda, Margréti Ormslev Ásgeirsdóttur, aðstoðarforstjóra Carbon Recycling International, Kristin Jón Ólafsson, verkefnastjóra Snjallborgar hjá Reykjavík og Hrefnu Ösp Sigfinnsdóttur, framkvæmdastjóra Markaða Landsbankans. Fundarstjóri þingsins var Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
NÝSKÖPUNARÞING Nýsköpunarþing er haldið ár hvert í samstarfi Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Umfjöllunarefni Nýsköpunarþings hverju sinni tengist rannsóknum, þróun og markaðsmálum. Umræðuefni Nýsköpunarþinganna hefur því ávallt verið valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og framleiðslu og markaðsstarfs hins vegar. Nýsköpunarþing 2019 var haldið, fyrir fullu húsi, mánudaginn 21. október á Grand Hótel Reykjavík og var umræðuefnið: Sjálfbærni til framtíðar.
NÝSKÖPUNARVERÐLAUN ÍSLANDS Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt á Nýsköpunarþingi, en þau hlýtur fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsókna- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði. Fyrirtækið Curio hlaut verðlaunin í ár. Elliði Hreinsson, framkvæmdastjóri Curio, veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.
Rauði þráðurinn í erindum þingsins var sjálfbærni út frá sjónarhorni nýsköpunar og hönnunar. Ræðumenn á þinginu voru dr. Leyla Acaroglu, frumkvöðull, hönnuður og stofnandi UnSchool
Sean McCarthy leiðbeindi á námskeiði um umsóknarskrif í Horizon 2020
Horizon 2020 námskeið Rannís skipulagði tvö námskeið á árinu fyrir umsækjendur og verkefnastjóra Horizon 2020. Í apríl var haldið námskeið um fjármál og uppgjör í samstarfi við Félag rannsóknastjóra, en nauðsynlegt er fyrir verkefnastjóra að halda vel utan um fjármál í verkefnum innan Horizon 2020.Leiðbeinendur komu frá framkvæmdastjórn ESB og Kaupmannahafnarháskóla. Síðara námskeiðið var haldið í ágúst og efni þess var hvernig best er að bera sig að við að skrifa samkeppnishæfa umsókn í Horizon 2020, þar sem samkeppnin er mikil og mikilvægt að umsóknir séu vel út garði gerðar. Leiðbeinandi var Sean McCarthy frá Hyperion á Írlandi, en hann hefur haldið fjölda námskeiða fyrir alþjóðasvið Rannís.
RANNSÓKNAÞING Rannís skipuleggur árlega Rannsóknaþing í samstarfi við Vísinda- og tækniráð þar sem tekin eru fyrir stefnumál á sviði rannsókna og nýsköpunar.
40
Rannsóknaþing var haldið að þessu sinni þriðjudaginn 5. nóvember á Grand Hótel Reykjavík og var yfirskriftin í ár: Alþjóðlegt samstarf, áherslur og tækifæri í rannsóknum.
viðurkenninguna að þessu sinni. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs, afhenti verðlaunin.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setti þingið. Fluttir voru fjórir fyrirlestrar þar sem umfjöllunarefnið var meðal annars hvað væri framundan í alþjóðasamstarfi í rannsóknum, áskoranir og tækifæri fyrir ungt vísindafólk á Íslandi í alþjóðasamstarfi, sóknarfæri sérhæfingar og samstarfs og árangur og tækifæri í orkurannsóknum. Erindin fluttu Aðalheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rannís, Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent á heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands, Erla Björk Örnólfsdóttir, rektor Háskólans á Hólum og Sigurður H. Markússon, verkefnastjóri hjá Landsvirkjun. Í kjölfarið voru svo pallborðsumræður um áherslur í alþjóðaáætlunum, sem Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís stýrði. Þátttakendur í umræðunum voru Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, deildarforseti sálfræðideildar Háskólans í Reykjavík, Bryndís H. Snæbjörnsdóttir, prófessor í myndlist við Listaháskóla Íslands, Eiríkur Smári Sigurðarson, rannsóknastjóri hugvísindasviðs Háskóla Íslands, Eiríkur Steingrímsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og Hannes Högni Vilhjálmsson, dósent í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík.
T.A.L.C - NORRÆN TUNGUMÁLARÁÐSTEFNA Á árinu 2019 gegndi Ísland formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Á meðal þeirra málefnasviða sem Ísland setti í forgang var ungt fólk. Einnig var það haft að markmiði að endurskoða norrænu tungumálastefnuna frá árinu 2006, sem er í raun átak til að efla norræna málvitund. Áhugi var fyrir að fá ungt fólk með í þá vinnu. Mennta- og menningarmálaráðuneytið, í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina, leitaði til Rannís og Samfés til að útfæra þessa hugmynd og úr varð ráðstefnan T.A.L.C. T.A.L.C. var haldin að Varmalandi í Borgarbyggð í lok nóvember og hana sóttu hátt í 80 ungmenni frá fimm Norðurlöndum og frá sjálfstjórnarsvæðunum þremur. Þótti ráðstefnan afar vel heppnuð og í lok hennar var efnt til athafnar í Norræna húsinu. Þar afhentu ungmennin Lilju Alfreðsdóttur, menntaog menningarmálaráðherra samantekt af helstu niðurstöðum ráðstefnunnar. Það vakti athygli að unga fólkið þótti jákvæðara í garð norrænu tungumálanna en áður var talið. Þau lögðu þó áherslu á að ungt fólk á Norðurlöndum þyrfti fleiri tækifæri til að hittast og eins þyrftu kennsluhættir að vera fjölbreyttari.
HVATNINGARVERÐLAUN VÍSINDA- OG TÆKNIRÁÐS Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs voru afhent á Rannsóknaþingi við hátíðlega athöfn, en verðlaunin eru veitt vísindamanni sem þykir hafa skarað framúr snemma á ferlinum og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Finnur Dellsén, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, hlaut
41
Fjöldi gesta tók þátt í Vísindavöku 2019
VÍSINDAVAKA Vísindavaka Rannís var haldin laugardaginn 28. september í Laugardalshöllinni og var það í fyrsta sinn sem prófað var að halda viðburðinn á laugardegi. Einnig var hellt upp á nokkur vísindakaffi í aðdraganda vökunnar.
Rannís stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi, en hún er haldin samtímis í 340 borgum og bæjum Evrópu undir heitinu Researchers' Night. Verkefnið er styrkt af Marie Skłodowska-Curie undiráætlun Horizon 2020 auk þess sem mennta- og menningarmálaráðuneytið styrkti líka vökuna að þessu sinni.
Vísindavaka er stærsti og vinsælasti viðburður sem Rannís stendur fyrir og helsti snertiflötur almennings við vísindafólk á Íslandi. Á Vísindavöku er gestum boðið upp á sannkallaða vísindaveislu, en þar mætir okkar fremsta vísindafólk til að sýna og segja frá rannsóknum og nýsköpun á lifandi og gagnvirkan hátt. Markmiðið með Vísindavökunni er að færa vísindin nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Allar vísindagreinar eru kynntar á Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi.
Vísindakaffi Í aðdraganda Vísindavöku var hellt upp á sjö vísindakaffi, en markmiðið með þeim er að vísindafólk segi frá rannsóknum á óformlegan hátt. Gestir fá tækifæri til að taka þátt í kaffihúsaspjalli um rannsóknir og spyrja vísindafólk spjörunum úr.
Á Vísindavöku mættu að þessu sinni rúmlega 5.000 forvitnir gestir. Miðpunktur Vísindavöku var sýningarsvæðið, en þar kynnti vísindafólk frá nærri 50 stofnunum, háskólum og fyrirtækjum rúmlega 100 rannsóknaverkefni sín fyrir almenningi á lifandi og skemmtilegan hátt. Gestir fengu að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem notuð eru við rannsóknir, skoða afurðir verkefna og spjalla við vísindafólkið sjálft.
Yfirskrift fyrsta vísindakaffisins í Reykjavík var Á ég annað sjálf í hliðstæðum veruleika? en þar kynnti Sigurður Ingi Erlingsson prófessor við HR grunnhugmyndir skammtafræðinnar á aðgengilegan hátt. Á öðru vísindakaffinu, Hafa ekki allir gott af Rítalíni? fjölluðu Guðrún Dóra Bjarnadóttir geðlæknir og Gyða Guðmundsdóttir sálfræðingur um misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja
Fjögur vísindakaffi voru haldin á Kaffi Læk í Reykjavík, eitt hjá Rannsóknasetri HÍ á Vestfjörðum í Bolungarvík og eitt á Kaffi Kind, Sauðfjársetrinu á Ströndum, auk þess sem Háskólinn á Akureyri stóð fyrir vísindakaffi á Amtsbókasafninu.
42
2019
og á þriðja vísindakaffinu gerðu Halldór Björnsson og Hrafnhildur Hannesdóttir hlýnun jarðar að umfjöllunarefni undir yfirskriftinni Hvað á Ísland að heita þegar allur ís er farinn? ...land? Á fjórða vísindakaffinu, Opið samfélag – hvernig getur almenningur hamið vald? sagði Jón Ólafsson prófessor við HÍ frá aðferðafræði rökræðukönnunar sem fyrirhugað er að beita við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Á Ströndum kynntu þjóðfræðingarnir Jón Jónsson og Eiríkur Valdimarsson rannsókna- og miðlunarverkefnið Menningararfur í myndum og í Bolungarvík sögðu Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir forstöðumaður og Anja Nickel doktorsnemi frá rannsóknum á ferðum þorskseiða um Vestfirði undir yfirskriftinni Hvaða áhrif hafa umhverfisbreytingar í sjó á ferðir þorskseiða? Á vísindakaffi á Akureyri var umfjöllunarefnið Saga til næsta bæjar? þar sem Gréta Bergrún Jóhannesdóttir kynjafræðingur fjallaði um samfélagsleg áhrif slúðurs.
Frá afhendingu Viðurkenningar fyrir vísindamiðlun 2019
Í Vísindasmiðjunni er vísindum miðlað til grunnskólanema og kennara þeirra með gagnvirkum og lifandi hætti. Þar eiga nemendur kost á að kynnast náttúruvísindum með uppgötvunum og virkri þátttöku, sem glæðir áhuga þeirra og skilning. Auk þess tekur Vísindasmiðjan á móti gestum á öllum aldri í margvíslegum viðburðum um allt land.
Viðurkenning fyrir vísindamiðlun Vísindasmiðjan hlaut Viðurkenningu fyrir vísindamiðlun 2019 sem veitt var við opnun Vísindavöku, en markmið Vísindasmiðjunnar er að vekja áhuga ungs fólks og almennings á vísindum og þekkingu, styðja við kennslu á öllum skólastigum í náttúru- og raunvísindum og að örva gagnrýna og skapandi hugsun. 43
MANNAUÐUR Í árslok 2019 voru starfsmenn Rannís alls 53 í 49,65 stöðugildum. Starfsmönnum fjölgaði um 4 frá fyrra ári og stöðugildum um 2,4. Þar af voru 2 starfsmenn ráðnir til starfa í tengslum við Nordplus menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar sem bættist við umsýslu Rannís í upphafi ársins og 2 aðrir starfsmenn bættust við vegna aukins umfangs verkefna á rannsókna- og nýsköpunarsviði, annars vegar vegna hugbúnaðarþróunar og hins vegar vegna aukins umfangs skattfrádráttar rannsóknarog þróunarverkefna tengdum nýsköpun. Alls hættu 2 starfsmenn á árinu og var ráðið í störf þeirra.
og menningarsviði fjölgaði starfsfólki um tvo vegna ráðninga í störf í tengslum við Nordplus áætlunina. Stöðugildum fjölgaði aftur á móti einungis um 0,9 en það helgast af því að hluti starfsmanna sviðsins óskaði eftir að minnka starfshlutfallið á árinu. Í árslok 2019 voru starfsmenn alþjóðasviðs 5 talsins í 4,25 stöðugildum eða óbreyttur fjöldi á milli ára. Á rannsókna- og nýsköpunarsviði voru starfsmenn 14 í 13,8 stöðugildum í lok árs 2019 en tveir starfsmenn í 1,8 stöðugildum bættust við hópinn frá fyrra ári annars vegar vegna aukinna hugbúnaðarverkefna og hins vegar vegna aukins umfangs skattfrádráttar til rannsókna og þróunarvinnu vegna nýsköpunar. Frá og með 1. janúar 2019 varð Gæðaráð háskóla sjálfstæð rekstrareining og hætti að heyra undir Rannís ásamt eina starfsmanni ráðsins sem hafði á undanförnum árum tilheyrt rannsókna- og nýsköpunarsviði.
Dreifing mannauðs á milli sviða SVIÐ Rekstrarsvið IASC skrifstofa Mennta- og menningarsvið Alþjóðasvið Rannsókna- og nýsköpunarsvið
Fj. starfsm.
Stg.
KVK Stg.
KK Stg.
10
9,15
7,4
1,75
2
1,75
0
1,75
22
20,7
12,7
8
5
4,25
2,6
1,45
14
13,8
8,2
5,8
53
49,65
30,9
18,75
Starfsmannavelta á árinu 2019 var 3,7%. Af 49,65 stöðugildum í árslok 2019 voru sérfræðingar í 40,65 stöðugildum sem var fjölgun um 5,2 frá fyrra ári, almennir starfsmenn í 4 stöðugildum en þeim fækkaði um 2,8 frá fyrra ári, sviðsstjórar í 4 stöðugildum eins og undanfarin ár og forstöðumaður í einu stöðugildi.
Í árslok 2019 voru 10 starfsmenn á rekstrarsviði í 9,15 stöðugildum að forstöðumanni meðtöldum. Er það aukning um 0,7 stöðugildi vegna ráðningar skjalastjóra en starfið var ómannað í lok árs 2018. Fjöldi starfsmanna á skrifstofu IASC hélst óbreyttur á milli ára, 2 starfsmenn og 1,75 stöðugildi. Á mennta-
44
LÍFALDUR STARFSMANNA OG ALDURSDREIFING Meðalaldur starfsmanna í árslok 2019 var 50,5 ár. Meðalaldur kvenna var 50,8 ár og karla 49,9 ár. Flestir starfsmenn eða 32,1% eru á aldursbilinu 51-60 ára, 22,6% er á aldrinum 61-70 ára, 20,8% er á aldrinum 31-40 ára og sama hlutfall eða 20,8% er á aldrinum 41-50 ára og 3,8% eru 30 ára og yngri. Heildarfjöldi starfsm.
Fjöldi 30 ára og yngri
Fjöldi 31-40 ára
Fjöldi 41-50 ára
Fjöldi 51-60 ára
Fjöldi 61-70 ára
53
2
11
11
17
12
100,0%
3,8%
20,8%
20,8%
32,1%
22,6%
Heilsudagar voru haldnir tvisvar á árinu en Rannís leggur áherslu á að skapa góðan vinnustað þar sem starfsfólki líður vel og eru heilsudagar liður í því.
Á heilsudögum í apríl hélt Jóhanna Ella Jónsdóttir, sálfræðingur og ráðgjafi fyrirlestur sem bar yfirskriftina Streita og kulnun - ráð til varnar og Auður Harpa Andrésdóttir kennari í dansfitness leiddi líflegan danstíma í Rannís, Boðið var upp á nærandi Gong slökun í Ljósheimum - Jógastúdíói og í lok vikunnar efndi starfsmannafélag Rannís til keiluferðar. Á heilsudögum í nóvember hélt Ebba Guðný Guðmundsdóttir heilsukokkur og fyrirlesari erindið Heilsa og næring fyrir alla, Þórdís Filipsdóttir frá Tveimur heimum, miðstöð heildrænnar hreyfingar og heilsu, mætti og leiddi nærandi Qi-gong tíma og boðið var upp á badmintonferð í TBR – Tennis og badmintonfélag Reykjavíkur.
FRÆÐSLA INNAN RANNÍS Rannís leggur áherslu á að bjóða starfsfólki sínu fjölbreytta fræðslu með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði, ásamt því að bæta í senn árangur og starfsánægju. Fræðsluáætlun var unnin fyrir árið og í boði voru fjölbreytt námskeið og fyrirlestrar. Þar má nefna:
Í báðum heilsuvikunum var starfsfólki auk þess boðið að taka þátt í hlaupahópi, gönguferðum og morgunleikfimi. Til að toppa stemninguna voru töfraðir fram heilsudrykkir á morgnana og einnig var heilsuþema í mötuneytinu í hádeginu.
Að hafa áhrif á fólk með góðum kynningum, leiðbeinandi Fjalar Sigurðsson, markaðsstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
NÁMSLEYFI Alls var varið 1552 klst. í námsleyfi starfsmanna. Tveir starfsmenn fengu þriggja mánaða námsleyfi til að leggja stund á formlegt nám og vörðu þeir rúmlega 1000 klst. í það. Fjöldi skráðra tíma í námsleyfi jókst um rúmlega helming frá 2018 og skýrist það af náms- og kynnisferð starfsmanna Rannís til Brussel.
Excel Pivottöflur og -gröf, leiðbeinendur Halldór Kristjánsson verkfræðingur og Valgerður Halldórsdóttir, Ph.D., verkfræðingur Excel grunnkennsla - Excel I almenn töflureiknisnotkun eftir þörf, leiðbeinendur Halldór Kristjánsson verkfræðingur og Valgerður Halldórsdóttir, Ph.D., verkfræðingur Regluleg GoPro námskeið allt árið, leiðbeinandi Kristín Ósk Hlynsdóttir, skjalastjóri
STARFSAUGLÝSINGAR Í árslok 2018 voru tvö ný störf auglýst laus til umsóknar á mennta- og menningarsviði, annað þeirra í tengslum við Nordplus skrifstofuna. Gengið var frá ráðningum fyrir áramótin en starfsmennirnir hófu störf á árinu 2019. Í lok árs 2018 var einnig auglýst eftir sérfræðingi á alþjóðasviði en gengið var frá þeirri ráðningu á vormánuðum.
Örnámskeið í símkerfi Rannís og dagbók Outlook, leiðbeinandi Fanney Reynisdóttir Öryggiskerfið, leiðbeinandi Álfrún G. Guðrúnardóttir Uppfærsla ársáætlunar í NAV, leiðbeinendur Herdís Þorgrímsdóttir og Árni Sigurðsson
Alls voru 4 störf auglýst laus til umsóknar á árinu 2019. Í upphafi árs var auglýst eftir skrifstofustjóra IASC. Tvö störf voru auglýst á rannsókna- og nýsköpunarsviði á árinu; auglýst var eftir hugbúnaðarsérfræðingi í maí og í október eftir sérfræðingi á sviðið. Í desember var auglýst eftir framkvæmdastjóra IASC en ekki var búið að ganga frá ráðningu í árslok 2019.
Nýliðafræðsla var haldin í apríl fyrir nýja starfsmenn Rannís þar sem farið var yfir lykilatriði í starfseminni. Auk þess var farið í náms- og kynnisferð til Brussel í maí þar sem samstarfsaðilar Rannís voru heimsóttir, svo sem EFTA skrifstofan og framkvæmdastjórn ESB. Alls tóku 37 starfsmenn þátt í ferðinni. Alls voru haldnir fimm starfsmannafundir og sjö fréttafundir á árinu. Fréttafundirnir eru óformlegir morgunverðarfundir, en þar getur hver sem er hvatt sér hljóðs og sagt frá því sem er á döfinni og á erindi til annarra starfsmanna.
45
2019 STARFSMENN Í ÁRSLOK 2019 Aðalheiður Jónsdóttir Andrés Pétursson Anna R. Möller Ágúst Hjörtur Ingþórsson Álfrún G. Guðrúnardóttir Árni Sigurðsson Ása Guðrún Kristjánsdóttir Ásta Vigdís Jónsdóttir (í leyfi) Berglind Fanndal Káradóttir Birna Vala Eyjólfsdóttir Bylgja Valtýsdóttir Davíð Lúðvíksson Dóra Stefánsdóttir Egill Þór Níelsson Elísabet M. Andrésdóttir (í leyfi) Elvar Helgason Eva Einarsdóttir Eyrún Helgadóttir Eyrún Sigurðardóttir Fanney Reynisdóttir
Guðmundur Ingi Markússon Hallgrímur Jónasson Helga Dagný Árnadóttir Herdís Þorgrímsdóttir Hulda Hrafnkelsdóttir Jón Svanur Jóhannsson Júlíana Grigorova Tzankova Kolbrún Bjargmundsdóttir Kristín Ósk Hlynsdóttir Lára Aðalsteinsdóttir Lísa Kristín Gunnarsdóttir Lýður Skúli Erlendsson Margrét Jóhannsdóttir Margrét K. Sverrisdóttir Óli Örn Atlason Óskar Eggert Óskarsson Ragnhildur Zoëga Rúna Vigdís Guðmarsdóttir Sigríður Grétarsdóttir Sigríður M. Vigfúsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir Sigurður Björnsson Skúli Leifsson Sólveig Sigurðardóttir Steinunn S. Jakobsdóttir Svandís Sigvaldadóttir Svandís Unnur Sigurðardóttir Vigfús Eyjólfsson Þorgerður Eva Björnsdóttir Þorsteinn Gunnarsson Þorsteinn Surmeli Ægir Þór Þórsson Starfsmenn Rannís hjá IASC Allen J. Pope Hjalti Ómar Ágústsson Federica Scarpa, samkvæmt samkomulagi við Norðurslóðanet
Breytingaferli Rannís
2011
2014
2018
Rannís falin umsýsla með Skattfrádrætti rannsókna- og þróunarverkefna.
Rannís tekur að sér eigið bókhald vegna niðurlagningar SRA (skrifstofa rannsóknastofnana atvinnuveganna).
Vinnu við stefnu Rannís til 2025 lokið.
Rannís falin umsýsla með rekstri Gæðaráðs háskóla og ráðgjafarnefndar Gæðaráðs háskóla.
Rannís falin umsjón með Menningaráætlun ESB.
Rannís falið að annast umsjón með fundarsókn í rammaáætlun Evrópusambandsins á sviði vísinda og rannsókna.
2015
Rannís falið að annast umsýslu með málefnum Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC).
Rannís tekur að sér ritarastarf fyrir Vísinda- og tækniráð og Vísindanefnd.
2013
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB og fleiri verkefni flytjast frá Háskóla Íslands til Rannís, ásamt norrænu menntaáætluninni og upplýsingastofu um nám erlendis. Umsýsla 12 sjóða á sviði menntamála, menningar- og æskulýðsmála flyst frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu til Rannís.
Rannís flytur í nýtt húsnæði.
2016 2017
Breytingar á reikningshaldi vegna nýrra laga um opinber fjármál sem tóku gildi 1. janúar. Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndin (IASC) opnar skrifstofu að Borgum á Akureyri. Rannís falin umsjón með rekstri skrifstofunnar. Rannís tekur við rekstri æskulýðshluta Erasmus+ af Ungmennafélagi Íslands. Umsýsla með Skattfrádrætti frá tekjum erlendra sérfræðinga.
46
Barnamenningarsjóður í umsýslu Rannís.
2019
Ísland tekur við stjórn Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar. Rannís falin umsjón með rekstri aðalskrifstofunnar. Loftslagssjóður í umsýslu Rannís. Jafnréttissjóður Íslands í umsýslu Rannís. Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku í umsýslu Rannís. Gæðaráð háskóla varð sjálfstæð rekstrareining í byrjun árs og hætti að heyra beint undir Rannís en hafði þó aðstöðu þar áfram.
ÚTGÁFU- OG KYNNINGARMÁL RANNÍS VEFURINN Mikil og stöðug umferð mælist jafnan ár hvert á vefsíðu Rannís, www.rannis.is. Gestir voru rúmlega 73.000 árið 2019 og heimsóknir töldust um 180.000. Enski hluti Rannís vefsins, en.rannis.is, fær einnig töluverðar heimsóknir. Árið 2019 voru gestir enska hlutans um 20.000 og heimsóknir rétt tæplega 28.000. Á vefsíðu Rannís geta notendur nálgast allar upplýsingar um starfsemi og þjónustu stofnunarinnar. Vefurinn er uppfærður daglega og á forsíðu eru reglulega settar inn nýjar fréttir, auglýsingar um umsóknarfresti og úthlutanir og upplýsingar um ýmsa viðburði á vegum Rannís. Áhersla er lögð á að leit sé skilvirk og aðgengileg fyrir notandann. Hægt er að kalla fram upplýsingar á einfaldan og öruggan hátt um alla sjóði og verkefni í umsýslu Rannís, næstu umsóknarfresti og þá viðburði sem eru á döfinni. Vefurinn er því öflug gátt inn í starfsemi stofnunarinnar. Nokkrir sérvefir tengjast ákveðnum verkefnum í umsýslu Rannís. Sem dæmi má nefna vef Vísindavöku (visindavaka.is) og vef Erasmus+ áætlunarinnar (erasmusplus.is). Erasmus+ vefurinn er systurvefur Rannís vefsins og deilir með honum leitarvél, fréttum og viðburðum. Gestir Erasmus+ síðunnar voru rúmlega 21.000 á árinu og heimsóknir á vefinn voru um 37.000.
Mikil og stöðug umferð mælist jafnan ár hvert á vefsíðu Rannís, en þar geta notendur vefsins nálgast allar upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar og þá þjónustu sem hún veitir.
47
Á árinu var gerður fjöldi myndbanda sem voru ætluð til deilingar á samfélagsmiðlum. Í tengslum við Vísindavöku voru gerð myndbönd til kynningar á samfélagsmiðlum, auk þess sem viðburðarmyndband og stutt viðtöl voru tekin á Vísindavökunni sjálfri. Í tengslum við Erasmusdaga 2019 voru valin verkefni sem þóttu skara fram úr við að tryggja þátttöku þeirra sem hafa færri tækifæri í alþjóðasamstarfi og í samfélaginu í heild og myndbönd gerð fyrir hvert þeirra.Verkefnin komu úr fimm undirflokkum Erasmus+ áætlunarinnar og auk þess voru gerð myndbönd fyrir eTwinning og Evrópumerkið (Europan Language Label). Myndböndin voru frumsýnd við hátíðlega athöfn á Erasmusdögum og þau er einnig að finna á Erasmus+ Íslandi rásinni á youtube.com. Einnig voru gerð myndbönd í tengslum við Nýsköpunarþing þar sem frumkvöðlar sögðu frá reynslu sinni og hugmyndum um sjálfbærni, hönnun og nýsköpun.
Á Facebook-síðu Rannís eru birtar ýmsar fréttir úr starfsemi Rannís, svo sem upplýsingar um viðburði, umsóknarfresti, námskeið, kynningar og verkefni sem framundan eru.
Fjögur myndbönd voru sýnd á Nýsköpunarþingi
MIÐLUN UPPLÝSINGA OG NÝSKÖPUN Rafræn kynning og notkun samfélagsmiðla spila stórt hlutverk í samskipta- og kynningarstarfi Rannís. Samfélagsmiðlarnir Facebook og Instagram voru nýttir til að auka sýnileika, koma skilaboðum á framfæri, opna fyrir samskipti og styðja við virkni heimasíðunnar. Mest áhersla er þar lögð á Facebook en má þar helst nefna Facebooksíðu Rannís, en einnig aðrar Facebook-síður á vegum Rannís svo sem síður Tækniþróunarsjóðs, Nýsköpunarsjóðs námsmanna og Vísindavökunnar og einnig Erasmus+ Menntaáætlun ESB, Erasmus+ Evrópu unga fólksins, eTwinning Ísland, EPALE Ísland, Creative Europe Desk á Íslandi og Europass Ísland. Einnig voru beinar útsendingar á Facebook og tíst frá nokkrum viðburðum Rannís til dæmis Vísindavöku og Framadögum. Streymt var frá Vorfundi Tækniþróunarsjóðs, Nýsköpunarþingi, Rannsóknaþingi og kynningarfundi um Loftslagssjóð.
Sjö myndbönd voru gerð fyrir Erasmusdaga
Talsvert var gefið út af prentuðu kynningarefni fyrir viðburði og til að kynna sjóði og áætlanir. Stefna Rannís til 2025 var gefin út á prenti bæði á íslensku og ensku. Einnig kom Ársskýrsla Rannís fyrir árið 2018 út. Að auki voru reglulega birtar auglýsingar í blöðum og á vefmiðlum þar sem vakin var athygli á viðburðum og auglýst eftir umsóknum um styrki.
Reglulega eru sendar út tilkynningar á póstlista Rannís en hann telur um 3.000 manns sem skipt er niður í sjö ólíka markhópa eftir áhugasviðum áskrifenda. Hægt er að skrá sig á póstlistann á vefsíðu Rannís. Alls voru sendar út 50 tilkynningar á póstlistann árið 2019 eða rétt rúmlega ein á viku.
48
2019
SÝNILEIKI Í FJÖLMIÐLUM Starfsemi Rannís var vel sýnileg í fjölmiðlum árið 2019. Alls var fjallað um Rannís í yfir 1000 fréttum/greinum. Þar af voru 694 á netmiðlum, 283 í prentmiðlum og 26 í sjónvarpi/útvarpi. Þetta er töluverð aukning á umfjöllun í fjölmiðlum frá árinu áður, einkum á netmiðlum. Einnig fengu fréttir af Rannís talsverða útbreiðslu á Facebook. Vísað var í nafn Rannís tæplega 16.110 sinnum á árinu og er það um 44% aukning frá fyrra ári. Það sem helst vekur athygli fjölmiðla eru stórar úthlutanir til ákveðinna verkefna, svo sem úr Tækniþróunarsjóði, Rannsóknasjóði, Erasmus+, Barnamenningarsjóði Íslands, Jafnréttissjóði Íslands og úthlutun Listamannalauna. Í tengslum við það beinast þá sjónir fjölmiðla að framúrskarandi verkefnum sem unnið hafa styrki úr sjóðum sem heyra undir Rannís. Einnig vekja athygli viðburðir á vegum Rannís svo sem Vísindavaka, Rannsóknaþing, Nýsköpunarþing, Vorfundur Tækniþróunarsjóðs, Erasmusdagar og veiting viðurkenninga eins og Hvatningaverðlauna Vísinda- og tækniráðs, Viðurkenninga fyrir vísindamiðlun, Nýsköpunarverðlauna Íslands og Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Áhugavert er að fréttir sem sneru að Loftslagssjóði, sem er nýr sjóður í umsýslu Rannís, og loftslagsmálum fengu sérstaka athygli á árinu.
Árið 2019 vou nærri 27.000 heimsóknir á vefinn FaraBara.is
Upplýsingastofa um nám erlendis rekur vefsíðuna FaraBara.is ásamt Sambandi íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE). FaraBara veitir upplýsingar um námsmöguleika erlendis. Nærri 27.000 gestir heimsóttu síðuna á árinu sem er sami fjöldi og heimsótti síðuna árið áður en þá var metfjöldi heimsókna frá því vefsíðan var stofnuð. Einnig kynnti Rannís Upplýsingastofuna 27 sinnum í menntaskólum, háskólum og fleiri stofnunum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Upplýsingastofan veitir upplýsingar og aðstoðar viðskiptavini í gegnum síma, tölvupóst og með því að taka á móti fólki í viðtöl. Samskiptin fara aðallega fram í gegnum tölvupóst. Algengustu spurningarnar sem bárust Upplýsingastofunni á árinu sneru að námi í Danmörku og Bretlandi og svo um TOEFL enskuprófið, en Upplýsingastofa um nám erlendis er ein af örfáum aðilum sem lánar æfingagögn fyrir prófið.
Viltu víkka sjóndeildarhringinn, auka færni þína og reynslu? Kynntu þér allt það sem Erasmus+ og Nordplus styrktaráætlanirnar hafa upp á að bjóða. Nánari upplýsingar má finna á: www.erasmusplus.is og www.nordplusonline.org
49
UMSÓKNA-, FAGRÁÐS- OG UPPLÝSINGAKERFI Umsókna-, fagráðs- og upplýsingakerfi Rannís gegna margþættu hlutverki og má að mörgu leyti líta á þau sem kjarna Rannís. Umsóknakerfin taka við öllum innlendum umsóknum og öðrum rafrænum gögnum sem tengjast framgangi umsókna, fagráðskerfin halda utan um vinnu matsmanna, sem allir eru utan Rannís, og loks er upplýsingum veitt þaðan til stjórnvalda og almennings um styrki og starfsemi sjóða í vörslu Rannís eftir því sem við á.
Haldið var áfram við endurnýjun umsýslukerfa auk úthlutunarsíðu Rannís. Á árinu bættist við umsýsla vegna Jafnréttissjóðs Íslands og Loftslagssjóðs. Auk þess var opnaður réttindasjóðurinn Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku. Í lok árs voru fimm starfsmenn að vinnu í hugbúnaðarteymi, auk tæknilegs ráðgjafa eftir þörfum. YFIRLIT YFIR INNSENDAR UMSÓKNIR Í INNLENDA SJÓÐI
Notendur kerfanna skipta þúsundum. Umsóknum fjölgaði nokkuð frá árinu áður, en heildarfjöldi umsókna um styrki á árinu 2019 var rúmlega 5000. Matsmenn sjóða og meðlimir stjórna eru bæði innlendir og erlendir aðilar, en þeir eru hátt í 1100 talsins. Á árinu var haldið áfram með þróun fagráðskerfis fyrir sjóði Rannís og var það tekið í notkun hjá fagráðum fyrir styrki til atvinnuleikhópa, Tónlistarsjóð, Hljóðritasjóð, Jafnréttissjóð Íslands og Markáætlun í tungu og tækni. Þetta kerfi hefur fengið mjög góðar undirtektir hjá bæði starfsmönnum Rannís sem og fagráðum sjóða og stjórnum, það eykur öryggi gagna og rétt aðgengi að upplýsingum. Kerfið mun verða tekið í notkun hjá öllum innlendum sjóðum í vörslu Rannís árið 2020.
1200 1000 800 600 400 200 0
Um mitt ár voru settar upp „Mínar síður“ hjá Rannís, þaðan sem innskráðir notendur hafa aðgang til að stofna nýjar umsóknir í opna sjóði og skoða afrit af sínum eigin innsendu umsóknum. Einnig hafa matsmenn sjóða og stjórnarmenn aðgang að umsýslu- og fagráðskerfum fyrir sína sjóði þar sem þeir geta farið yfir og metið umsóknir á öruggan og hlutlausan máta. Aðgangur notenda, hvort sem er innan Rannís eða utan, er í gegnum rafræna stjórnsýslugátt á island.is.
50
J
F
M
A
M
J
J
Á
S
O
N
D
REKSTUR Heildartekjur Rannís voru 933,2 milljónir kr á árinu. Þar af var ríkisframlagið 338,2 m.kr eða 36,2% af heildartekjum en framlagið lækkaði um 23,9 m.kr. frá fyrra ári.
Gjöld í m.kr. Laun og launatengd gjöld
Heildarsértekjur Rannís voru 586,5 m.kr. eða 62,8% af heildartekjum. Stærsti hluti sérteknanna komu frá erlendum opinberum aðilum 326,7 m.kr. eða 35% af heildarsértekjum Rannís. Þessi liður hækkaði um 102 m.kr. á milli ára, skýringin felst m.a. í að Rannís tók við stjórnun NordPlus á árinu. Innbyrðis framlög á milli A hluta stofnana námu 153,7 m.kr eða 16,5%. Kostnaðarhlutdeild í sameiginlegri þjónustu var 79,1 m.kr eða 8,5% af heildarsértekjum. Sjá nánar hlutfall skiptingu tekna sem hlutfall af heildartekjum hér á eftir. Tekjur í m.kr. 338,2
36,2%
Erlendir opinberir aðilar
326,7
35,0%
Innbyrðis framlög milli A-hluta stofnana
153,7
16,5%
Kostnaðarhlutdeild í sameiginlegri þjónustu
79,1
8,5%
Aðrar tekjufærslur
18,8
2,0%
8,2
0,9%
Tekjufærsla frestaðra tekna fyrri ára Tekjur alls
58,7%
Húsaleiga og tengdur kostnaður
57,8
6,3%
Ferðakostnaður og uppihald erlendis
55,0
6,0%
Ferðakostnaður og uppihald innanlands
11,8
1,3%
Tölvumál
62,6
6,8%
Sérfræðiþjónusta
50,1
5,5%
Aðilda- og félagsgjöld
42,1
4,6%
Funda- og ráðstefnukostnaður
21,6
2,4%
Auglýsingar, myndbandagerð og birtingar
14,4
1,6%
Tilfærslur
18,3
2,0%
Annar kostnaður ótilgreindur
37
4,0%
Afskriftir
8,5
0,9%
918,9
100,0%
Gjöld alls
Ríkisframlag
Endurgreiddur ferðakostnaður
539,7
8,5
0,9%
933,2
100,0%
Rekstrarniðurstaða ársins var afgangur upp á 13,7 m.kr að frádreginni neikvæðri afkomu fjármagnsliða upp á 531 þúsund króna. Gæðaráð háskóla varð sjálfstæð rekstrareining frá 1.1. 2019 en hafði áður heyrt undir Rannís. Breytingin lækkaði ríkisframlag Rannís en þar sem rekstur Gæðaráðsins var hjá Rannís á árinu þá fengust sértekjur á móti útgjöldum ráðsins sem leiddi til hækkunar á tekjum og gjöldum stofnunarinnar um 38,1 m.kr.
Heildargjöld Rannís voru 918,9 milljónir króna, þar af er stærsti gjaldaliðurinn laun, launatengd gjöld og orlofsskuldbinding í árslok alls 539,7 m.kr eða 58,7% af heildargjöldum. Meðal stærstu einstakra gjaldaliða fyrir utan launaliðinn er húsaleiga og tengdur kostnaður 57,8 m.kr eða 6,3%, ferðakostnaður og uppihald erlendis 55 m.kr eða 6%, tölvumál 62,6% eða 6,8% og sérfræðiþjónusta 50,1 m.kr eða 5,5%. Sjá nánari skiptingu gjalda sem hlutfall af heildargjöldum Rannís í töflu hér á eftir.
Á árinu 2019 voru farnar alls 284 millilandaferðir á fundi á vegum Rannís, sem er 29 ferðum fleiri en á árinu 2018. Þar af voru 207 ferðir vegna starfsemi Rannís eða 7 fleiri en árið á undan. Flestar ferðirnar voru á vegum mennta- og menningarsviðs eða alls 109 þar af 3 af utanaðkomandi sérfræðingum, 78 á vegum alþjóðasviðs þar af 18 af utanaðkomandi sérfræðingum, 8 á vegum rannsókna- og nýsköpunarsviðs. 51
Farnar voru 34 ferðir á vegum rekstrarsviðs vegna náms- og kynnisferða fyrir starfsmenn Rannís til Brussel. 12 ferðir voru farnar á vegum skrifstofu IASC, 3 færri en árið 2018.
Á árinu voru 4.792 mál stofnuð í GoPro, þar af var búið að loka 906 málum í árslok og 3.886 voru opin. Staða stofnaðra mála 2016-2019
Á árinu voru farnar 37 ferðir á vegum Rannsóknasjóðs vegna erlendra fagráðsmanna, 2 ferðir vegna Markáætlunar, 1 ferð vegna Tækniþróunarsjóðs fyrir erlendan fyrirlesara sem hélt erindi hér á landi á vorfundi sjóðsins. Frá 1. janúar 2019 er Gæðaráð íslenskra háskóla rekið sem sjálfstæð eining en Rannís sá um rekstur þess á árinu 2019. 37 ferðir voru farnar á vegum Gæðaráðsins og flestar þeirra voru vegna erlendra fagráðsmanna sem komu til Íslands vegna starfa sinna.
Alþjóðasvið Rannsókna- og nýsköpunarsvið Rekstrarsvið IASC Samtals
2019
2.869
3.886
Lokuð mál (hafnað, dregin til baka, lokið)
1.175
3.925
3.183
906
Fjöldi stofnaðra mála
3.437
7.621
6.052
4.792
Fjöldi
Fjöldi bókaðra fundarherbergja pr. mán.
109 78 8 0 12 207 37
Markáætlun
2
Tækniþróunarsjóður
1
Gæðaráð íslenskra háskóla
37
Samtals
77
Ferðir alls
2018
3.696
Að meðaltali var bókaður um 5,1 fundur á dag á árinu 2019 eða 110 fundir á mánuði. Töluvert er um að fundarherbergi séu notuð án þess að þau séu bókuð fyrirfram, ekki er gert ráð fyrir þeirri notkun í meðfylgjandi yfirliti. Einnig hefur tíðni fjarfunda aukist mjög á árinu og sá fjöldi kemur ekki fram í yfirlitinu.
Millilandaferðir á vegum sjóða Rannís og Gæðaráðs Íslands Rannsóknasjóður
2017
2.262
NÝTING FUNDARHERBERGJA HJÁ RANNÍS Á árinu voru bókaðir 1.325 fundir í fundarherbergjum Rannís eða 18 færri en árið á undan. Flestir fundir voru bókaðir í nóvember eða 194 fundir, í janúar 181 fundur, í mars 152 fundir og í febrúar 137 fundir. Fæstir fundir voru bókaðir yfir hásumarið eða í júlí, 24 fundir.
Flestar ferðir á vegum Rannís eru farnar til að sækja fundi eða ráðstefnur vegna evrópskra og norrænna samstarfsáætlana. Stærsti hluti ferðanna er endurgreiddur af ESB, annaðhvort með beinu framlagi sem bæði er fyrir vinnu og/eða kostnaði í viðkomandi verkefni eða í gegnum beina endurgreiðslu á ferðakostnaði fyrir utan vinnulaun.
Mennta- og menningarsvið
2016
Opin mál (samþykkt, í bið, í vinnslu)
Skjalasafnið rúmar um 400 hillumetra af gögnum eða um það bil 6.000 skjalaöskjur. Í dag nýtir Rannís um 37% af þeim eða 2.258 öskjur. Gengið er frá skjölum í sýrufríar arkir og skjalaöskjur samkvæmt reglum Þjóðskjalasafns.
Ferðadagar starfsmanna og utanaðkomandi sérfræðinga Rannís voru alls 699 og hver ferð var 3,3 dagar að meðaltali. Stystu ferðirnar tóku einn dag en sú lengsta 10 daga.
Millilandaferðir á vegum Rannís
Ár
Janúar
181
14%
Febrúar
137
10%
Mars
152
11%
Apríl
103
8%
Maí
66
5%
Júní
105
8%
Júlí
24
2%
Ágúst
69
5%
September
117
9%
98
7%
Nóvember
194
15%
Desember
79
6%
1.325
100%
Október
284
Samtals árið
SKJALA- OG GAGNASAFN RANNÍS Á árinu hófst formlegur undirbúningur að innleiðingu Office 365 með stofnun hóps fyrirliða innan Rannís. Fyrirliðarnir fá meiri innsýn fyrst í stað inn í kerfið og geta verið öðrum starfsmönnum til aðstoðar. Skjalastjóri stýrir innleiðingunni af hálfu Rannís enda á skipulag gagna í Office 365 að taka mið af skipulagi í skjalakerfi Rannís. Sviðsstjóri rekstrarsviðs og hópstjóri tölvuteymis vinna með skjalastjóra að innleiðingunni. Reglulega voru haldnir fundir með fyrirliðum og þeir upplýstir um stöðu mála hverju sinni. Rannís deilir einum „ríkistenanti“ eða skýjageira með 70 öðrum stofnunum en sú uppsetning er flóknari en almennt gerist og tafði það innleiðinguna.
Hlutfall notkunar pr. mán.
FUNDARVEITINGAR Á árinu voru framreiddar 2.969 veitingar fyrir fundargesti á vegum Rannís, allt frá te eða kaffi með eða án meðlætis og upp í hádegisverði. Fundarveitingum pr. gest fjölgaði um 77 frá 2018. Sjá nánari skiptingu í meðfylgjandi töflu. Svið Rannsókna- og nýsköpunarsvið
1.204
Mennta- og menningarsvið
758
Rekstrarsvið
615
Alþjóðasvið
350
IASC Alls
52
Fjöldi fundarveitinga
42 2.969
Svipmyndir frá Nýsköpunarþingi
53
Svipmyndir frá Vorfundi Tækniþróunarsjóðs
54
2019
Svipmyndir frá Rannsóknaþingi
55
ÁRSREIKNINGUR RANNÍS 2019
56
ÁRSREIKNINGUR
Yfirlit um afkomu ársins 2019
2019
2018
Framlög ríkissjóðs
338.200.000
362.100.000
Aðrar tekjur
574.600.419
433.932.199
933.188.786
814.555.963
Laun og tengd gjöld
539.669.568
518.378.429
Annar rekstrarkostnaður
352.476.941
297.652.267
918.922.101
835.718.728
Tekjur
Seld þjónusta
11.921.884
Tekjufærsla frestaðra tekna fyrri ára
8.466.483
Gjöld
Tilfærslur
18.309.109
Afskriftir
8.466.483
Afkoma fyrir fjármagnsliði
10.539.377 7.984.387
11.703.645 7.984.387
14.266.685 (21.162.765)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)
Vaxtatekjur, verðbætur og gengishagnaður
768.802
14.590.485
Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur
(1.299.444)
Afkoma ársins
13.736.043 (7.710.474)
(1.138.194)
(530.642) 13.452.291
57
ÁRSREIKNINGUR
Efnahagsreikningur 31. desember 2019 Eignir
Fastafjármunir
Varanlegir rekstrarfjármunir: Innréttingar, áhöld og tæki
2019
2018
18.260.837
20.666.714
18.260.837 20.666.714
Veltufjármunir
Skammtímakröfur:
Viðskiptakröfur
11.588.674 68.822.106
Tengdir aðilar
165.336.651
Viðskiptareikningar vegna ferðakostnaðar
1.125.976
Handbært fé:
97.700.916
343.273
Bankainnstæður
210.330.449 101.672.762
Eignir samtals
406.642.587 289.205.771
Veltufjármunir
388.381.750 268.539.057
58
2019
ÁRSREIKNINGUR
Eigið fé og skuldir
Eigið fé
Hrein eign
Eigið fé samtals
2019
2018
7.588.463
(6.147.580)
290.243.935
196.862.724
39.675.933
43.566.742
7.588.463 (6.147.580)
Skuldir
Skammtímaskuldir: Tengdir aðilar
Viðskiptaskuldir
55.074.739
Ýmsar skammtímaskuldir
Frestun tekjufærslu fjárfestingaheimilda
14.059.517
35.497.885 19.426.000
Skammtímaskuldir
399.054.124 295.353.351
Skuldir samtals
399.054.124 295.353.351
Eigið fé og skuldir samtals
406.642.587 289.205.771
59