Skip to main content

Töðugjöld 2022

Page 1

HITTUMST Á HELLU 10.-13. ÁGÚST

ALLT UM TÖÐUGJÖLDIN G E Y MIÐ B Æ K L IN G INN!


KÆRU ÍBÚAR OG GESTIR Töðugjöld hafa verið haldin frá árinu 1994 að undanskildum covid árunum og er því um að ræða eina elstu og virðulegustu bæjarhátíð sem haldin er. Tilvera Töðugjaldanna hefur fyrir löngu sannað gildi sitt og í dag líta íbúar og gestir á Töðugjöldin sem ómissandi viðburð sem engin má missa af, þar sem fjölskyldan gerir sér glaðan dag. Bæjarhátíðir er árlegur viðburður víða um land. Hús, garðar og götur eru sett í hátíðarbúning og skemmtileg stemmning myndast . Íbúarnir leggja sig fram um sýna gestum það áhugaverðasta og besta sem sveitarfélagið hefur uppá að bjóða og markmiðið að gera hátíðina skemmtilegri en árið áður. Brottfluttir Rangæingar flykkjast heim aftur þessa helgi til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá með heimafólki og hitta gamla félaga og vini. Aðaláherslan í gegnum tíðina hefur verið að bjóða uppá fjölskylduvæna og heimatilbúna dagskrá og viðburði. Ein aðalástæðan fyrir Töðugjöldunum í Rangárþingi ytra er að sem flestir taki þátt með sínum hætti og á sínum eigin forsendum. Það að fá íbúana til þess að taka virkan þátt í svona hátíð hefur góð samfélagsleg áhrif og eflir samkennd og gleði. Nú gerum við okkur dagamun sem samfélag á jákvæðan hátt og vekjum í leiðinni athygli á byggðinni í fallegustu sveit landsins. Það er óskandi að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir og að allir finni eitthvað við sitt hæfi og njóti samverunnar og skemmti sér á heilbrigðan hátt í frábæru og öruggu umhverfi. Góða skemmtun um helgina.

Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Rangárþings ytra


GRÆN / APPELSÍNUGULA HVERFIÐ BÝÐUR VELKOMIÐ HEIM Sú hefð hefur skapast að hverfin skiptast á að bjóða heim á föstudagskvöldi Töðugjalda. Í ár er það græn / appelsínugula hverfið sem býður heim. Gula hverfið kemur að skipulagningu Töðugjalda 2022 ásamt markaðs- og kynningarfulltrúa sveitarfélagsins. Allir íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til þess að skreyta hjá sér hús og garða í litum hverfisins. Íbúar í dreifbýli eru einnig hvattir til þess að vera með, gulir fyrir austan Hellu, græn/ appelsínugulir fyrir vestan Hellu og rauðir í Þykkvabæ.

Grill frá Húsasmiðjunni í verðlaun fyrir best skreytta húsið!


LITASKIPTING HVERFANNA


FRISBÍGOLFMÓT Í NESI Frisbígolfmót verður haldið á frisbígolfvellinum á Hellu í Nesi föstudaginn 12. ágúst. Skráning fer fram á staðnum og hefst hún klukkan 16:45 og lýkur klukkan 17:20. Mótið hefst klukkan 17:30. Keppt verður í eftirfarandi flokkum: Barnaflokki (1-12 ára), opnum flokki, kvennaflokki og heiðursborgaraflokki (60+ ára). Spilaðir verða tveir hringir og verða veitt verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í öllum flokkum auk þess sem dregið verður úr skorkortum. Erlingur Snær Loftsson verður mótsstjóri og tryggir að allt fari vel fram. Frisbígolfvöllurinn á Hellu hefur fest sig í sessi undanfarin ár og eru frisbígolfarar hvattir til þess að mæta og njóta þess að spila á einum skemmtilegasta velli landsins!


OPNUNARTÍMI VERSLUNAR OG JÓNUSTU VEITINGAR

Laugardaginn 13. ágúst

Stracta Hótel Hella ������������������������������������������������ 11:30 - 22:00 Kanslarinn �������������������������������������������������������������� 11:00 - 21:30 Árhús ��������������������������������������������������������������������� 18:00 - 22:00 Almar bakari ������������������������������������������������������������ 8:00 - 17:00 Hekla street food ��������������������������������������������������� 11:30 - 21:00 Lava 47 �������������������������������������� 11:30 - 16:00 og 18:00 - 21:00 Auðkúla ����������������������������������������������������������������� 10:00 - 17:00

VERSLUN Olís �������������������������������������������������������������������������� 8:00 - 22:00 Kjörbúðin ����������������������������������������������������������������� 9:00 - 18:00 Litla Lopasjoppan �������������������������������������������������� 10:00 - 16:00 Klukkublóm ������������������������������������������������������������ 11:00 - 17:00 Villt og alið ������������������������������������������������������������ 11:00 - 14:00 Fiskás �������������������������������������������������������������������������������� Lokað

SUNDLAUGAR Í RANGÁR INGI YTRA

SUNDLAUGIN HELLU

Opnunartími - sumaropnun: Frá 25. maí - 25. ágúst. Mán. - fös.: 6:30 - 21 Lau. og sun.: 10 - 19

SUNDLAUGIN LAUGALANDI

Opnunartími - sumaropnun: Frá 3. júní - 14. ágúst. Mán. - fös.: Sjá www.ry.is Lau.: 10 - 19 / Sun.: 10-17


DAGSKRÁ TÖÐUGJALDA MIÐVIKUDAGUR KL. 17:00

Vígsla brettagarðs á Hellu BMX brós halda sýningu og verða með námskeið

FIMMTUDAGUR KL. 21:00

Raddir úr Rangárþingi á Stracta Hótel Hellu

FÖSTUDAGUR KL. 16:45

Frisbígolfmót í Nesi KL. 20:00

Þorpararölt (græn/ appelsínugulahverfi)

LAUGARDAGUR KL. 09:00

Morgunganga / lagt af stað frá styttunni af Ingólfi KL. 10:00-12:00

Morgunmatur í íþróttahúsi - Harmonikkusveit Suðurlands KL. 10:00-13:00

Bílasýning Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu við árbakkann


KL. 11:30-16:00

Dagskrá á útisvæði við íþróttahús - Hestvagn á ferðinni - Hoppukastalar - Fegurðar - og hæfileikakeppni dýra - Legobyggingakeppni - Leikhópurinn Lotta - Leiksvæði - Loftboltar / Vatnsbolti - Kassaklifur - Markaðstjald - Matarvagnar - Sjoppa - Söngkeppni barna KL. 20:30-23:00

Kvöldvaka við íþróttavöll -

Jakob Birgis Hátíðarræða Raddir úr Rangárþingi Töðugjaldahappadrætti Fríða Hansen Friðrik Dór Brekkusöngur Flugeldasýning Þjótanda

KL. 00:00

Dansleikur í Íþróttahúsinu - SUNNAN 6


A D L A J G U Ð TÖ IÐ

HAPPDRÆTT

Töðugjaldahappdrættið er ein af fjáröflunum fyrir Töðugjöld. Vinningarnir eru framúrskarandi og eftir miklu að slægjast. Gengið verður í hús á Hellu vikuna áður og miðar seldir ásamt því að miðar verða seldir á föstudagskvöldi á þorpararöltinu, í morgunmatnum og svo á markaðnum um daginn.

VINNINGAR FRÁ Hellarnir við Hellu Klukkublóm Hótel Rangá Krisp Litlu lopasjoppunni Saumakompan Villt og alið Adrenalíngarðinum Stracta Hótel Hellu Tryggvaskáli Kajakferðir Stokkseyri Þykkvabæjar Konungskaffi Lava Centre Smiðjan brugghús Icelandair Hotels

Á kvöldskemmtuninni á laugardagskvöldi verður dregið úr seldum miðum. Miðaverð 1.500 kr.


HNALL ÓRUKEPPNI! BÝR BAKARI Í ÉR? Um leið og markaðurinn fer fram á hátíðarsvæði Töðugjalda verður efnt til Hnallþórukeppni! Allir mega taka þátt og verður fyrirkomulagið með þeim hætti að viðkomandi kemur með kökuna í markaðstjaldið við opnun þess kl. 12, skráir upplýsingar á þar til gert blað og kakan verður merkt með númeri. Sérstök dómnefnd úr gula hverfinu mun meta hnallþórurnar eftir útliti og bragðgæðum, og velja Hnallþóru Töðugjalda 2022. Ef eitthvað verður eftir þegar dómnefndin hefur lokið störfum fá gestir á hátíðarsvæði að sjálfsögðu að bragða á tertunum. Glæsilegir vinningar í boði fyrir þrjú efstu sætin!

LEGOSNILLINGAR ATHUGIÐ! Legobyggingakeppni. Keppendur hanna og byggja módel heima. Móttaka módela er í markaðstjaldinu kl. 13:00 - 13:30 og þau höfð til sýnis þar á meðan á markaði stendur. Gæta þarf þess að nafn og aldur á legosnillingi fylgi þegar módeli er skilað. Dómnefnd velur flottasta módelið, keppt er í tveimur flokkum 6 ára og yngri og 7 ára og eldri. Verðlaun verða veitt á meðan barnaskemmtun stendur.

Bílaþjónustan Hellu


Litla lopasjoppan


DÝRAEIGENDUR ATHUGIÐ! FEGURÐAR- OG HÆFILEIKAKEPPNI DÝRANNA Fegurðar- og hæfileikakeppni dýranna verður á sviði barnaskemmtunarinnar. ÖLL dýr velkomin og engin aldurstakmörk á keppendum! Skráning á staðnum. Dýraeigendur eru hvattir til þess að skreyta dýrin sín og sýna hvað í þeim býr.

SUÐURLANDSMÓT YNGRI FLOKKA Suðurlandsmót yngri flokka er hestamannamót sem hestamannafélagið Geysir hefur haldið í mörg ár. Á Suðurlandsmóti yngri flokka keppir aldurshópurinn 10-21 árs. Keppt er í hefðbundnum greinum. Mótið fer fram 12. og 13. ágúst. Dagskrá mótsins má nálgast á www.hmfgeysir.is Hvetjum alla sem áhuga hafa á hestum að líta við á Rangárbökkum!


RADDI R ÚR RA NGÁR ÞINGI FRAM KOMA LISTAMENN ÚR RANGÁRÞINGI OG FLYTJA BÆÐI ÁBREIÐUR OG FRUMSAMIN LÖG

HVAR: Stracta Hótel Hella, 2. hæð. HVENÆR: Fimmtudaginn 11. ágúst kl. 21:00 MIÐAVERÐ: 2.900 kr. Miðar verða seldir við inngang.

Rangárþing ytra Fyrir okkur öll!


MORGUNVERÐUR Í Í RÓTTAHÚSINU Öllum íbúum og gestum er boðið til morgunverðar kl. 10:00 þar sem fyrirtæki á svæðinu sameinast um að gefa vörur. Þau fyrirtæki sem koma að morgunverðinum eru Almar bakari, Reykjagarður, Sláturfélag Suðurlands, Kjörbúðin og Fiskás. Kvennakórinn Ljósbrá sér um að bera morgunverðinn á borð. Harmonikkusveit Suðurlands mun spila fyrir gesti. Njótum þess að vera saman og sjáumst í morgunverðinum!


Raffoss Fannberg

Fasteignasala


ÁHUGAVERÐIR STAÐIR NÁLÆGT HELLU ÆGISÍÐUFOSS (3 km) Virkilega falleg gönguleið liggur með Ytri-Rangá frá Hellu að Ægisíðufossi. Gróður- og fuglalíf er virkilega fjölbreytt við YtriRangá. Einnig er hægt að keyra að fossinum og er þá farið niður Þykkvabæjarveg. ODDI Á RANGÁRVÖLLUM (10 km) Oddi er bær og kirkjustaður. Þar hefur verið kirkja síðan í öndverðri kristni. Þar bjó Sæmundur fróði Sigfússon og afkomendur hans eftir hann í tvær aldir og nefndust þeir Oddaverjar. Útsýni af láglendi Rangárvalla er hvergi tignarlegra en af Gammabrekku í Odda. LAUGALAND (14 km) Á Laugalandi er frábær sundlaug. ÞYKKVIBÆR (17 km) Þykkvibær er elsta sveitaþorp á Íslandi. Þykkvibær er nú þekktur fyrir kartöflurækt og er ferðaþjónusta að byggjast þar upp. Sjósókn var í aldaraðir mikilvægur þáttur í sögu Þykkvabæjar og má rekja þéttbýlismyndunina til sjósóknar. KELDUR (20 km) Á Keldum á Rangárvöllum er einstök heild bæjar- og útihúsa frá fyrri tíð. Bæjarhúsin eru af elstu varðveittu gerð torfhúsa, þar sem framhús beggja vegna bæjardyra snúa langhlið að hlaði. Þetta svipmót hefur haldist allt frá miðöldum. ÞJÓFAFOSS (50 km) Þjófafoss er staðsettur í Þjórsá austan megin við Merkurhraun í suður­ hluta landsins, fyrir ofan hann stendur fjallið Búrfell. Til að nálgast fossinn þarf að keyra eftir malarvegi og er hann fær öllum bílum að sumarlagi. FOSSABREKKUR (50 km) Upptök Ytri-Rangár. Aðgengileg náttúruperla rétt fyrir ofan Rjúpnavelli. *Vegalendir innan sviga eru fjarlægðir frá Hellu.


Kæru grannar Við óskum ykkur öllum góðrar skemmtunar á Töðugjöldum 2022


© Töðugjaldabæklingurinn 2022 Útgefandi: Menningarfélagið Kári í Jötunmóð Ábyrgð: Markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra Prentun: Svartlist www.ry.is | facebook.com/todugjold

Rangárþing ytra Fyrir okkur öll!


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Töðugjöld 2022 by Rangárthing ytra - Issuu