Skip to main content

Búkolla 4.–10. mars 2026

Page 1

Búkolla 4. - 10. mars · 30. árg. 9 tbl. 2026

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 OPIÐ mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15

Hlutastarf hjá NPA Setri Suðurlands á Hellu. Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru helstu verkefni að aðstoða unga einstaklinga við athafnir daglegs lífs. Starfið er að mestu unnið inn á heimili notandans auk þess að fylgja viðkomandi í ferðum sínum utan heimilis. Vinnutími er 08:00-11:00 þriðjudaga og fimmtudaga auk tilfallandi afleysinga seinnipartinn. Umsækjendur þurfa að framvísa sakavottorði og hafi gild ökuréttindi og er góð íslenskukunnátta skilyrði. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um störfin gefa Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir s: 510 0922, inga@npasetur.is og Hafdís Bjarnadóttir s: 510 0921, hafdis@npasetur.is.

Félagsfundur Boðað er til félagsfundar í Sjálfstæðisfélaginu Fróða fimmtudaginn 5. mars klukkan 20:00 á Stracta hótel (efri hæð). Dagskrá: 1. Tillaga stjórnar að fullskipuðum framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 2. Önnur mál Á fundinum verður boðið upp á kaffiveitingar. Stjórnin


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Búkolla 4.–10. mars 2026 by Rangárthing ytra - Issuu