Búkolla 3. - 9. september · 29. árg. 34 tbl. 2025
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 OPIÐ mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15
UMSJÓN
félagsmiðstöðvarinnar OZ í Vík í Mýrdal Mýrdalshreppur auglýsir eftir jákvæðum og hugmyndaríkum starfs mönnum í hlutastarf til að sjá um félagsmiðstöðina Oz. Vinnutími getur verið útfærsluatriði en er bundinn við opnunartíma félagsmiðstöðvar auk viðveru í ferðir á viðburði eins og SamFestinginn og SamSuð til dæmis. Starfslýsing: • Skipulagning og þátttaka á fjölbreyttri starfsemi félagsmiðstöðvarinnar. • Umsjón með aðstöðu félagsmiðstöðvarinnar, þ.e. almenn tiltekt og eftirfylgni með umgengni. Hæfniskröfur: • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi. • Áhugi á að vinna með börnum og unglingum. • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. • Færni í samskiptum, almenn jákvæðni og sveigjanleiki. • Hreint sakavottorð. • Íslenskukunnátta. Allar frekari upplýsingar veitir Sunna Wiium íþrótta- og tómstunda fulltrúi í síma 845 8640 á opnunartíma skrifstofu Mýrdalshrepps. Skriflegum umsóknum skal skila á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða með tölvupósti á netfangið tomstund@vik.is Frestur til að skila inn umsókn er til 5. september 2025.