Búkolla
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688
27. maí - 2. júní · 30. árg. 21 tbl. 2026
OPIÐ mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15
Rangárþing eystra
ÚTBOÐ Rangárþing eystra óskar eftir tilboðum í :
„Hamragarðar – bílastæði - 2026“ Verkið felur í sér gerð á bílastæðum við Hamragarða með niðurföllum. Helstu magntölur eru: • Styrktarlag • Gröftur • Niðurfallalögn
8.000 m3 2.000 m3 337 m
Verkinu skal að fullu lokið 15. september 2026. Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 26. maí 2026. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Þóru Björg Ragnarsdóttur, hjá Rangárþingi eystra með tölvupósti í netfangið thorabjorg@hvolsvollur.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur fyrir kl. 13.00 miðvikudaginn 10. júní 2026 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra