Búkolla 26. feb. - 4. mars · 29. árg. 7. tbl. 2025
Rangárþing eystra
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 OPIÐ mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15
ÚTBOÐ
Rangárþing eystra óskar eftir tilboðum í : „Stóragerði 2025“ Verkið felur í sér að jarðvegsskipta götu, endurnýja fráveitu, hitaveitu, ídráttarör, ljósastaura lagnir og ljósastaura og mögulega heimæðar vatnsveitu. Einnig skal endurnýja lagnir Mílu og RARIK. Verktaki skal malbika götu, steypa kantsteina og malbika gangstéttar. Einnig skal helluleggja hraðahindranir, gera niðurtektir með doppuhellum og leiðarlínuhellum fyrir gangandi umferð. Að lokum skal setja upp umferðamerki. Helstu magntölur eru: Gröftur Fylling Malbik Fráveita Hitaveita
9000 8300 5700 1415 1410
m³ m³ m² m m
Verkinu er skipt upp í 2 áfanga. • Áfangi 1 er frá Vallarbraut fram yfir Litlagerði og felur í sér endurnýjun allra lagna og malbikun götu, allt nema kantstein og gangstétt. Áfanga 1. skal lokið fyrir 25. ágúst 2025. • Áfangi 2 felur í sér endurnýjun allra lagna frá Litlagerði að Nýbýlavegi og malbikun götu, allt nema kantstein og gangstétt. Áfanga 2. skal lokið 15. nóvember 2025. • Áfangi 3 felur í sér lokafrágang á allri götunni. Verktaki skal ljúka við lagningu fráveitu og vatnsveitu frá Vallarbraut fram yfir Litlagerði, ásamt öllum malarfyllingum (áfangi 1) áður en heimilt er að byrja á fráveitu og vatnsveitu frá Litlagerði að Nýbýlavegi (áfangi 2). Verkinu skal að fullu lokið 1. júní 2026. Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 24. febrúar 2025. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Bárð Árnason hjá Eflu Sel fossi, með tölvupósti á netfangið bardur.arnason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur fyrir kl. 11.00 miðvikudaginn 12. mars 2025 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóð endum sem þess óska. Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra