Skip to main content

Búkolla 24.- 30. júní 2026

Page 1

Búkolla 24. - 30. júní · 30. árg. 25 tbl. 2026

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 OPIÐ mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15

RANGÁRÞINGI YTRA SKIPULAGS- OG BYGGINGARFULLTRÚI

Rangárþing ytra

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra Fyrir okkur öll!

Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028. Gaddstaðaeyja. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 10.6.2026 tillögu til auglýsingar að breytingum á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 fyrir Gadd­staða­ eyju. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á landnotkun þar sem núverandi óbyggt svæði verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði. Gert er ráð fyrir uppbyggingu ferða­þjónustu í eyjunni. Deiliskipulagið er hér auglýst samhliða. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum Gaddstaðaeyja, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 10.6. 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Gaddstaðaeyju. Gert er ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í eyjunni, í formi allt að 160 herbergja hótels með afþreyingu s.s. baðlóni, á suðurtanga eyjunnar, auk byggingu allt að 30 smáhýsa til útleigu inn af árbökkum norðurhluta eyjunnar. Smá­ hýsin munu tengjast rekstri hótelsins. Breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins verður hér auglýst samhliða þar sem landnotkun verður breytt úr óbyggðu svæði í landnotkun verslunar- og þjónustu. Aðkoma að svæðinu er af Rangárflötum. Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. ágúst 2026. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is Haraldur Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Búkolla 24.- 30. júní 2026 by Rangárthing ytra - Issuu