Búkolla
22. - 28. apríl · 30. árg. 16 tbl. 2026

Ormsvelli 7, Hvolsvelli
487-8688

Rangárþing ytra
SkipulagS- og byggingarfulltrúi rangárþingi ytra
Fyrir okkur öll!
![]()
22. - 28. apríl · 30. árg. 16 tbl. 2026

Ormsvelli 7, Hvolsvelli
487-8688

Rangárþing ytra
SkipulagS- og byggingarfulltrúi rangárþingi ytra
Fyrir okkur öll!
Samkvæmt 4. mgr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 4. mgr. 13. gr. laga um umhverfismat nr. 106/2000, sbr. einnig 4. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, er hér auglýst útgáfa framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við Búrfellslínu 1 og 3:
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum þann 15. apríl 2026 útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við uppbyggingu tilfærslu á Búrfellslínu 1, tímabundna hækkun á Búrfellslínu 3 vegna tengingar flutningskerfisins við Hvammsvirkjun og færslu Búrfellslínu 1 frá stíflumannvirkjum ásamt nýju tengivirki.
Framkvæmdin tekur til eftirfarandi þátta:
- Niðurrif núverandi mastra: Fjarlægja þarf 6 möstur í núverandi línu, þ.e. möstur 3843, bæði möstur meðtalin. Við niðurrif verða möstrin felld í heilu lagi, bútuð niður, flutt í burtu og málmurinn sendur í endurvinnslu. Til verksins verða notaðar sömu vinnuvélar og þarf við reisingu nýrra mastra sem sett verða upp í kjölfarið. Á framkvæmdatíma verða reist 6 timburmöstur sem standa tímabundið og flytja raforku fram hjá framkvæmdasvæðinu og tryggja virkni flutningskerfisins á meðan á framkvæmdum stendur. Timburmöstrin verða fjarlægð að framkvæmdum loknum.
- Uppsetning á nýjum möstrum: Reist verða 7 ný möstur auk tveggja ramma sem taka á móti línunni og tengja við tengivirkið. Fjögur mastranna verða M- burðarmöstur úr stálgrind, 23,6–25,8 m á hæð, og þrjú þeirra fjórfótungsmöstur, 16 – 44 m á hæð. Þverslá eða brú í burðarmöstrum er 20 m löng.
- Slóðagerð: Línuvegir fylgja núverandi línum og munu aðkomu- og vinnuvegir vegna Hvammsvirkjunar nýtast við framkvæmdirnar. Út frá þessum vegum þarf að gera nýja aðkomuslóða að nokkrum nýjum möstrum. Alls eru nýir slóðar að möstrum um 450 m innan Rangárþings Ytra.
Fætur burðarmastra munu standa á forsteyptum undirstöðum og stög halda möstrunum í skorðum. Við jörð tengjast stög við stagfestur, ýmist steyptar staghellur eða bergbolta. Til að koma undirstöðum og stagfestum fyrir þarf að grafa, fleyga, sprengja eða bora. Fyrir undirstöður mastra er gert ráð fyrir að grafnar verði 2 m djúpar holur að stærð 2,5 x 3,0 m. Þar sem klöpp er við yfirborð er fleygað 1,0 – 1,5 m niður í klöppina og forsteyptri undirstöðu komið fyrir eða bergboltar festir ofan í klöppina og undirstaða steypt utan um
þá. Þegar undirstöðum mastra og stagfestum hefur verið komið fyrir þarf að fylla að þeim með burðarhæfu efni. Uppgrafið efni verður nýtt að eins miklu leyti og mögulegt er.
Áætluð efnisþörf framkvæmdanna er um 6.500 m3 og er það einkum efni í línuslóða að möstrum, mastraplön og undirstöður mastra. Ekki verða opnaðar nýjar námur fyrir þessa framkvæmd heldur verður efnið fengið úr námum í nágrenninu sem hafa tilskilin leyfi.
Framkvæmdaleyfið tekur til þeirra framkvæmda við Búrfellslínu 1 og 3 sem fyrirhugaðar eru innan sveitarfélagamarka Rangárþings ytra á vegum Landsnets skv. framangreindu. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir byggingarleyfisskyldum mannvirkjum innan framkvæmdarsvæðisins í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Framkvæmdaleyfið nær til framkvæmda sem er nánar lýst í umsókn framkvæmdaaðila, greinargerð framkvæmdaaðila og öðrum fylgiskjölum umsóknar sem nálgast má hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/466. Á meðal fylgigagna umsóknarinnar er álit
Skipulagsstofnunar frá 12. mars 2018 um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að fyrirliggjandi matsskýrsla uppfylli skilyrði laga og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum og umhverfisáhrifum hafi verið lýst á fullnægjandi hátt. Leyfið er bundið við þau skilyrði og mótvægisaðgerðir sem fram koma í greinargerð sveitarstjórnar skv. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sem er aðgengileg hér: https://www.ry.is/is/ skipulag-og-framkvaemdir-1/skipulags-og-byggingamal/skipulagsmal-tilkynningar Nánari umfjöllun og upplýsingar um framkvæmdina má nálgast á vefsíðunum www.skipulagsgatt.is og https://www.landsvirkjun.is/hvammsvirkjun. Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðar nefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í Lögbirtingablaði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.uua.is.
Fh. Rangárþings ytra, Haraldur Birgir Haraldsson, skipulagsfulltrúi

Samkvæmt 4. mgr. 13. gr. laga um umhverfismat nr. 106/2000, sbr. einnig 3. mgr. 26. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, er hér auglýst útgáfa framkvæmdaleyfis vegna lagningar Búðafossvegar:
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum þann 15. apríl 2026 útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við lagningu nýs vegar og brúar á milli Þjórsárdalsvegar í Skeiða og Gnúpverjahreppi og Landvegar í Rangárþingi ytra, sem mun bera nafnið Búðafossvegur.
Í framkvæmdinni felst lagning um 7,4 km nýs vegar á milli Þjórsárdalsvegar í Skeiðaog Gnúpverjahreppi og Landvegar í Rangárþingi ytra. Vegurinn mun heita Búðafossvegur og kemur til með að liggja frá nýju hringtorgi á Þjórsárdalsvegi um land Réttarholts og Minnahofs, um nýja brú yfir Þjórsá og þaðan um land Vindáss og MinniValla að Landvegi. Búðafossvegur verður útfærður samkvæmt viðmiðum vegflokks C8 með tveimur 3,5 m breiðum akreinum og 0,5 m breiðum öxlum beggja megin. Heildarbreidd vegar er því 8,0 m og verður hámarkshraði vegarins 90 km/klst með áætlaðri umferð um 500 bifreiða daglega. Vegsvæði vegarins verður 40 m breitt, 20 m frá miðlínu í hvora átt. Um er að ræða nokkuð umfangsmikinn veg og brú yfir Þjórsá sem liggur um svæði sem er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélaganna beggja vegna árinnar. Rúmir 2 km munu liggja í Skeiða og Gnúpverjahreppi og um 5 km í Rangárþing ytra. Fyrirhugað hringtorg verður malbikað en annað yfirborð vegarins klætt. Yfir Þjórsá verður byggð 204 m löng tvíbreið stálbitabrú með steyptu gólfi í 5 m hæð yfir vatnsyfirborði árinnar og í fimm höfum; tveimur 36 m löngum og þremur 44 m löngum. Heildarbreidd brúar verður 11 m og frá nyrðri bakka Þjósár að sjálfri brúnni verður Búðafossvegur á um 140 m langri grjótvarðri fyllingu út í ána. Áætluð efnisþörf í framkvæmdina er tæplega 350.000 m3 sem verður fengið frá fjórum efnistökusvæðum og úr skeringum. Eina nýja náman sem opnuð verður vegna framkvæmdanna er Búðanáma sem verður staðsett rétt vestan fyrirhugaðs Búðafossvegar á norðurbakka Þjórsár.
Framkvæmdaleyfið tekur til þeirra framkvæmda við Búðafossveg sem fyrirhugaðar eru innan sveitarfélagamarka Rangárþings ytra á vegum Vegagerðarinnar skv. framangreindu. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir byggingarleyfisskyldum mannvirkjum innan framkvæmdarsvæðisins í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Framkvæmdaleyfið nær til framkvæmda sem er nánar lýst í umsókn framkvæmdaaðila, greinargerð framkvæmdaaðila og öðrum fylgiskjölum umsóknar sem nálgast má hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/463. Á meðal fylgigagna umsóknarinnar eru matsskylduákvarðanir Skipulagsstofnunar frá 28. ágúst
2009, 2. febrúar 2026 og frá 3. apríl 2025 (sú síðastnefnda vegna stækkunar Búðanámu vegna verkefnisins), þar sem fram komist er að þeirri niðurstöðu að framkvæmdirnar séu ekki líklegar til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Leyfið er bundið við þau skilyrði og mótvægisaðgerðir sem fram koma í greinargerð sem sveitarstjórn lét taka saman í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, 5. mgr. 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, og 26. gr. laga nr. 111/2021, með hliðsjón af þeim kröfum sem gerðar eru til greinargerða leyfisveitanda vegna matsskyldra framkvæmda skv. 27. gr. laga nr. 111/2021 og 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sem er aðgengileg hér: https://www.ry.is/is/skipulag-ogframkvaemdir-1/skipulags-og-byggingamal/skipulagsmal-til-kynningar. Nánari umfjöllun og upplýsingar um framkvæmdina má nálgast á vefsíðunum www.skipulagsgatt.is og https://www.landsvirkjun.is/hvammsvirkjun.
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í Lögbirtingablaði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.uua.is.
Nú opnum við matarvagninn eftir vetrarfrí.
Erum staðsett á Rangárbakka 2 - Hellu
Opið þriðjud. - sunnud.
frá kl. 17:30 - 20:00.
Lokað á mánud.



08:00 Barnaefni
10:00 Haförninn: Hinn helgi örn
10:50 Steina í Santa Fe
11:10 Skáldið á Gljúfrasteini
12:30 Veislan - 13:00 Fréttir (m. táknmálst.)
13:30 Heimaleikfimi - 13:40 Kastljós
14:05 X26: Oddvitaumræður
15:00 Gósenlandið - 16:40 Kiljan
17:31 Tinna táknmálsálfur
17:37 Ævintýrajóga
17:42 Frábær hugmynd! - 17:45 Eldhugar
17:48 Ofurdýr í náttúrunni
17:51 Einu sinni var... Lífið 18:17 Úti í umferðinni
18:25 Leiðin að ástinni
19:00 Fréttir
19:25 Íþróttir
19:30 Veður
19:40 Miðstöðin
20:10 Krýsuvíkurleiðin - leið til betra lífs
20:50 Laufey í Hollywood Bowl
22:25 Að baki hvers manns II 22:55 Lögregluvaktin - 23:35 Ludwig
10:00 Billi kúrekahamstur (50:50)
10:20 Dóra (12:13)
10:40 Taina og verndarar Amazon (14:18)
10:55 Lína langsokkur (12:26)
11:20 Ronja Ræningjadóttir (2:26)
11:40 Ruddalegar rímur (1:2)
12:10 100% Úlfur (16:26)
12:35 Ratchet og Clank
14:05 Married At First Sight Australia (23:40)
15:05 Einkalífið (2:6)
16:00 1 stjarna (6:6)
16:30 Glaumbær (8:8)
17:15 The Office (18:19)
18:05 The Big Bang Theory (12:24)
18:50 America’s Got Talent (8:23)
20:25 Animal Control (8:10)
21:00 Alheimsdraumurinn (2:8)
Í Alheimsdraumnum fylgjumst við með ævintýralegu ferðalagi Audda, Steinda, Sveppa og Péturs Jóhanns. Í þessari seríu er allur heimurinn undir.
21:40 Hysteria! (7:8)
22:35 Married At First Sight Australia 23:40 The Big Bang Theory (14:24) Níunda þáttaröðin um félagana Leonard og Sheldon sem eru afburðasnjallir eðlisfræðingar sem vita nákvæmlega hvernig alheimurinn virkar. Hæfileikar þeirra nýtast þeim þó ekki í samskiptum við annað fólk og allra síst við hitt kynið. 00:00 The Big Bang Theory (15:24) 00:20 Shameless (3:12)
01:15 Shameless (4:12)
06:00 Tónlist
15:25 Love Island: All Stars
16:25 Handboltahöllin
17:15 The Neighborhood
17:40 The King of Queens
18:05 Beverly Hills, 90210
19:00 Love Island: All Stars
20:05 The Fabulous Four Fjórar vinkonur sem þekkst hafa allt sitt líf fara til Key West í Flórída til að vera brúðarmeyjar í óvæntu brúðkaupi Marilyn, vinkonu þeirra úr menntaskóla.
21:50 Flight Risk - 23:25 Heimaey
00:40 Dexter: Original Sin 01:35 The Rookie
02:25 Watson
03:15 Law & Order: Organized Crime
04:00 Zoo
04:45 Tónlist
13:00 Fréttir (með táknmálstúlkun)
13:30 Heimaleikfimi
13:40 Útsvar 2017
14:50 Spaugstofan 2008-2009
15:20 List á rófinu - 15:50 Andraland
16:25 Líkamstjáning
17:05 Miðstöðin
17:31 Prófum aftur
17:41 Skólalíf í Grænlandi
17:48 Risaeðlu-Dana IV
18:09 Tvöföld vandræði
18:20 Matarmenning
18:50 Lag dagsins
19:00 Fréttir
19:30 Íþróttir
19:35 Veður
19:45 20 og eitthvað
20:15 Vikan með Gísla Marteini
21:30 Kvikmyndaklúbburinn
22:05 Karen Pirie: Gamlar syndir - Önnur þáttaröð breskra glæpaþátta um skosku rannsóknarlögreglukonuna Karen Pirie
23:35 Undraveröldin Alphaville
06:45 Bítið (60:200)
10:00 Bold and the Beautiful (9328:750)
10:20 Married At First Sight Australia
11:25 Heimsókn (16:16)
11:45 Dýraspítalinn (4:8)
12:10 The Traitors (8:12)
13:10 The Traitors (9:12)
14:15 America’s Got Talent (4:23)
15:35 Fólk eins og við (4:4)
16:15 Bold and the Beautiful (9329:750)
16:35 Charming
18:25 Veður (77:365)
18:30 Kvöldfréttir (77:365)
18:50 Sportpakkinn (77:365)
18:55 The Graham Norton Show (16:22)
19:55 Batman Forever
22:00 Prizefighter: The Life of Jem Belcher Sannsöguleg mynd með Russel Crowe frá 2022 um ævi hnefaleikakappans Jem Belcher. Í upphafi nítjándu aldarinnar voru hnefaleikar íþrótt kónga. Belcher barðist alla leið á toppinn og varð Englandsmeistari í sportinu. Í myndinni er sögð hin ósagða saga af upphafi hnefaleikaíþ
23:50 Safe house Hörku spennumynd með Denzel Washington og Ryan Reynolds í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um ungan leyniþjónustumann sem fær það verkefni að gæta alræms fanga og koma honum í öruggt skjól, en það reynist honum þrautinni þyngri að ráða við.
01:50 Hacks (8:10)
02:20 Based on a True Story (5:8)
06:00 Tónlist
15:40 Love Island: All Stars
16:30 The Neighborhood
16:55 The King of Queens
17:20 Love Island: All Stars
18:10 Handboltahöllin
19:15 Olís deild karla: Valur - FH BEINT
21:05 The Ride
22:50 Shorta - Nákvæmar upplýsingar um hvað gerðist þegar Talib Ben Hassi (19) var í haldi lögreglu er óljóst. Lögreglumennirnir Jens og Mike eru að sinna hefðbundnu eftirliti í Svalegården gettóinu þegar fréttir berast af dauða Talib
00:15 FBI: International
01:00 Dexter: Original Sin
02:00 The Rookie
02:45 Tulsa King
03:30 Godfather of Harlem - 04:15 Tónlist
07:01 Barnaefni
10:00 Ævar vísindamaður IV
10:25 Landinn
10:55 Vikan með Gísla Marteini
12:05 Norrænir rafstraumar
12:35 Könnuðir líkamans
13:05 Fréttir (með táknmálstúlkun)
13:35 X26: Oddvitaumræður
14:00 X26: Oddvitaumræður
14:30 Fiskur á disk - 15:15 Sofðu vel
16:05 Bayern Munchen - Barcelona
18:15 Landakort
18:21 Ormhildarsaga
18:42 Ofurdýr í náttúrunni
18:45 Lag dagsins
18:52 Lottó
19:00 Fréttir
19:25 Íþróttir
19:35 Veður
19:45 Góðir Íslendingar
20:55 Lífið eftir Yang - Vísindaskáldsaga
22:30 The Doors Bandarísk kvikmynd frá 1991
07:00 Söguhúsið (8:26)
07:05 Sögur af svöngum björnum (3:13)
07:10 Sæfarar (17:22)
07:25 Danspartý með Skoppu og Skrítlu
07:40 Momonsters - 07:50 Hvolpasveitin
08:10 Taina og verndarar Amazon (11:18)
08:25 Ronja Ræningjadóttir (26:26)
08:45 Danni tígur - 09:00 Halló heimur
09:05 Blíða og Blær (13:20)
09:30 Geimvinir (16:52) - 09:40 100% Úlfur
10:05 Svampur Sveinsson (4:20)
10:25 Ratchet og Clank
11:55 Bold and the Beautiful (9326:750)
13:25 Who Do You Think You Are? (4:7) 14:25 Einkalífið (3:6)
15:10 The Great British Bake Off (4:10) 16:10 Blindur bakstur (8:8)
16:50 Kvöldstund með Eyþóri Inga (2:2)
17:50 Blóðbönd (6:6)
18:25 Pallborðið 2026 - Vísir (3:5)
19:50 BlackBerry - Stórskemmtileg gamanmynd frá 2023 sem byggð er á sönnum atburðum. Myndin fjallar um gríðarlega hratt vaxandi vinsældir fyrsta snjallsímans, BlackBerry, og hins hraða falls nokkru síðar.
22:00 The Jackal - Rússneski mafíósinn Terek Murad hefur lýst yfir stríði við rússneska þjóðvarðliðið og alríkislögreglu Bandaríkjamanna, vegna morðsins á bróður hans í næturklúbbi í Moskvu, höfuðborg Rússlands.
00:05 Joy Ride - 01:40 Silent Witness (7:10) 02:40 Silent Witness (8:10)
06:00 Tónlist
14:55 Love Island: All Stars
15:45 Olís deild kvenna: Haukar - ÍBV BEINT
17:35 The King of Queens
18:05 Beverly Hills, 90210
19:00 Love Island: All Stars
20:00 Margin Call - Fylgst er með lykilfólki í stórum fjárfestingabanka á Wall Street í einn sólarhring síðsumars 2008. Einn starfsmanna uppgötvar nánast fyrir tilviljun að tölurnar ganga ekki upp og bankinn stendur frammi fyrir stórkostlegu hruni. 21:55 Maggie Moore(s) - Lögreglustjóri í litlum bæ í Arizona þarf skyndilega að leysa tvö morðmál samtímis
23:40 Murder at Yellowstone City
00:45 Mississippi Grind
02:40 X 04:25 Tónlist
SUNNUDAGUR 26. APRÍL
07:01 Barnaefni - 10:00 Ísalönd
10:50 Vegur að heiman
11:25 Venjulegt brjálæði
12:05 Goðsagnir í tennisheiminum
13:00 Fréttir (með táknmálstúlkun)
13:20 Færeyskar krásir
13:50 Innlit til arkitekta - 14:20 Kiljan
15:05 Sauðaþjóðin
16:00 Góðir Íslendingar - 17:10 Örlæti
17:31 Stundin okkar - Tökum á loft I
17:51 Björgunarhundurinn Bessí
18:00 Íþróttatími
18:13 Heimilisfræði II
18:20 Hljómskálinn
18:50 Lag dagsins
19:00 Fréttir
19:25 Íþróttir
19:35 Veður
19:45 Landinn
20:15 Asía
21:10 Carmenrúllur III
22:05 Vandræði í Paradís Frönsk verðlaunamynd frá 2022
07:00 Rita og krókódíll (12:20)
07:05 Hvítatá (2:6)
07:08 Pínkuponsurnar (17:21)
07:10 Billi kúrekahamstur (13:50)
07:20 Sæfarar (8:22)
07:30 Pipp og Pósý (45:52)
07:40 Tappi mús (15:52)
07:45 Skoppa og Skrítla
08:00 Dagur Diðrik (4:26)
08:20 Taina og verndarar Amazon (12:18)
08:35 Strumparnir (13:52)
08:45 Mia og ég (12:26)
09:10 Dóra (10:13)
09:30 100% Úlfur (10:26)
09:55 Náttúruöfl (4:25)
10:00 Hetjudáðir múmínpabba
11:15 Charming
12:35 America’s Got Talent (8:23)
14:00 Billion Dollar Playground 1 (1:8)
14:55 Shark Tank (9:18)
15:35 Grand Designs (7:7)
16:25 Sambúðin (2:6)
16:55 Animal Control (8:10)
17:20 The Graham Norton Show (16:22)
18:30 Af vængjum fram (2:4)
18:55 This Is Joan Collins
20:45 Best Medicine (2:13)
21:35 Bergerac (2:6)
22:30 Grantchester (2:8)
23:25 Grey’s Anatomy (9:18)

00:10 Signora Volpe (3:3)
01:40 Prizefighter: The Life of Jem Belcher
Sannsöguleg mynd með Russel Crowe frá 2022 um ævi hnefaleikakappans Jem Belcher.
06:00 Tónlist
15:45 Love Island: All Stars
16:35 Tough As Nails
17:20 The Neighborhood
17:45 The King of Queens
18:10 Beverly Hills, 90210
19:05 Love Island: All Stars
20:10 Tough As Nails
Phil Keoghan úr Amazing Race stýrir spennandi keppni þar sem hversdagslegar hetjur keppa í raunverulegum aðstæðum.
21:00 Heimaey
21:55 Tulsa King
22:45 Godfather of Harlem
23:35 FBI: International
01:50 Bombshell
03:35 Tónlist
Jón Pálsson 6 manna bíll

Okkur vantar allar tegundir eigna á söluskrá. Sanngjörn söluþóknun
Gjaldfrjáls
þjónusta fyrir kaupendur engin umsýslugjöld.
Nánari upplýsingar og myndir er að finna á heimasíðu okkar www.fannberg.is

Sími: 487-5028
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali Ágúst Kristjánsson, lögg. fasteignasali

Sími: 861 1919 stifla.selfoss@gmail.com
Stíflulosun úr lögnum Myndun lagna Rótarskurður o.fl.
Yfir 20 ára reynsla
Búkolla auglýsingaskrá kemur út einu sinni í viku og liggur frammi í verslunum í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Útgefandi: Prentsmiðjan Svartlist
Auglýsingasími 487 5551 / 893 3045 - svartlist@simnet.is
Rangárþing ytra Fyrir okkur öll!
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Rangárþingi ytra
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing skipulagsáforma að deiliskipulagi
Sigöldugljúfur. Deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 15.4.2026 að kynnt yrði lýsing skipulagsáforma að deiliskipulagi fyrir Sigöldugljúfur. Með fjölgun ferðamanna við Sigöldugljúfur hefur myndast þörf fyrir skipulagða stíga, útsýnispalla, bílastæði og salerni. Gert verði ráð fyrir endurbættri aðkomu að svæðinu, auk uppbyggingar á útsýnisstöðum á gljúfurbarmi. Jafnfram verði gert ráð fyrir salernisaðstöðu við bílastæði. Aðkoma að svæðinu er af Fjallabaksleið nyrðri.
Frestur til að skila inn athugasemdum við lýsinguna er til 6. maí 2026 Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 4887000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun
Aldamótaskógur við Hellu, deiliskipulag
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 15.4.2026 að auglýsa tillögu að diliskipulagi fyrir Aldamótaskóg með tengingu við Melaskóg. Svæðið er hugsað til almennrar útivistar og snýst deiliskipulagið um að skipuleggja fjölbreyttar útivistarleiðir og áningarstaði með áherslu á útsýni, gróður og náttúrutengsl. En einnig tryggja íbúum og almenningi góðu aðgengi að útivistarsvæði sem er aðgengilegt fyrir ólíka notendahópa allt árið um kring. Núverandi aðkoma er af Suðurlandsvegi rétt vestan við vegamót Rangárvallavegar en með nýju deiliskipulagi er gert ráð fyrir að aðkoma verði af fyrirhuguðu hringtorgi á Suðurlandsvegi í austurmörkum þéttbýlisins á Hellu auk aðkomu gegnum íbúðabyggðina að Gaddstöðum.
Tillagan og lýsingin liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Frestur til að skila inn athugasemdum við tillöguna er til 3. júní 2026 Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 4887000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra