Skip to main content

Búkolla 20.–26. ágúst 2025

Page 1

Búkolla 20. - 26. ágúst · 29. árg. 32 tbl. 2025

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 OPIÐ mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15

Heilsuefling 60+ í Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra

Hér er á ferðinni frábær þjálfun fyrir einstaklinga 60 ára og eldri búsetta hér í Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra og er þátttaka án endurgjalds. Við leggjum áherslu á góðar og skemmtilegar þol- og styrktaræfingar og það eru í boði æfingar sem henta öllum. Það eru stólar til að sitja á fyrir alla og þeir sem treysta sér ekki til að standa gera æfingar á stól. Það skiptir okkur miklu máli að rækta líkama okkar. Með hækkandi aldri þá þurfum við að leggja meiri áherslu á að halda vöðvamassanum hjá okkur og eru styrktaræfingarnar frábærar fyrir það. Við erum öll í mismunandi formi og með mismunandi kraft, en látum það ekki stoppa okkur. Það er alveg magnað hvað þessar æfingar gera okkur gott. Umsjónarmaður er Drífa Nikulásdóttir s: 6903433

Komdu og vertu með okkur í vetur Æfingar hefjast: Hellu mánudaginn 25. ágúst Hvolsvelli þriðjudaginn 26. ágúst

Æfingarnar eru á eftirfarandi tímum: Mánudögum og fimmtudögum kl: 11:00 í stóra salnum í íþróttahúsinu á Hellu Þriðjudögum og föstudögum

kl: 10:00 í Hvolnum á Hvolsvelli


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Búkolla 20.–26. ágúst 2025 by Rangárthing ytra - Issuu