Skip to main content

Búkolla 2.–8. apríl 2025

Page 1

Búkolla 2. - 8. apríl · 29. árg. 13. tbl. 2025

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 OPIÐ mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15

IÐNAÐARHÚSNÆÐI við Dynskála 32 á Hellu til sölu

Húsnæðið er 248 fm. Neðri hæðin telur anddyri, vinnusal, tvö minni starfsrými og salerni. Af neðri hæðinni liggur timburstigi upp á milliloft, þar er kaffistofa, skrif­ stofu­herbergi og lagerrými. Á hús­inu eru stórar iðnaðardyr og gönguhurð. Húsnæðið býður upp á marga möguleika. Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf, sími 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is

AÐALFUNDARBOÐ

Aðalfundur Skógræktarfélags Rangæinga verður haldinn fimmtudaginn 10. apríl n.k í Safnaðarheimilinu á Hellu Dynskálum 8. Fundurinn hefst kl. 19.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál. Fræðsluerindi: Bötun birkis Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur er gestur fundarins hann hefur lengi unnið að kynbótum plantna m.a á íslensku birki og náð undraverðum árangri. Kaffiveitingar í boði félagsins. Hvetjum ykkur öll til að mæta, tökum vel á móti nýjum félögum.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Búkolla 2.–8. apríl 2025 by Rangárthing ytra - Issuu