Búkolla 19. - 25. ágúst · 30. árg. 32. tbl. 2026
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 OPIÐ mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15
Sveitabúðin Una býður þér á einstaka tónleika! Ítalsk-íslenska tríóið Delizie Italiane kemur fram í Sveitabúðinni Unu 29. ágúst kl. 15:45 og býður gestum upp á einstaka tónlistarveislu með ítölskum blæ. Á efnisskránni eru ítalskar perlur sem margir Íslendingar þekkja vel – jafnvel með íslenskum textum – ásamt íslenskum lögum sem sett hafa verið í ítalskan búning.
Með tónlistinni fylgja skemmtilegar frásagnir af lögunum, tilurð þeirra og textum og hljómsveitin leggur áherslu á notalega, líflega og sannkallaða ítalska stemningu. Ekki láta þessa einstöku tónlistarveislu fram hjá þér fara!