Búkolla 18. - 24. júní · 29. árg. 23 tbl. 2025
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og TMtryggingar Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 OPIÐ mánud.- fimmtud. frá kl. 9 -12 og 13 -16 Föstud. frá kl. 9 -12 og 13 -15
Skólaakstur við Hvolsskóla Rangárþing eystra auglýsir lausan til umsóknar skólaakstur við Hvolsskóla. Skv. núverandi fyrirkomulagi er um að ræða akstursleið í Austur- Landeyjum. Akstursleiðir geta þó verið breytilegar eftir notkun og þörf hverju sinni. Skólabílstjóri þarf að hafa öll tilskilin réttindi til aksturs farþega og bifreið sem notuð verður skal vera í fullkomnu ástandi. Viðkomandi þarf að vera reglusamur, stundvís og þjónustulipur og hann þarf að hafa hreint sakavottorð. Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu Rangárþings eystra í síðasta lagi 1. júlí 2025. Nánari upplýsingar veitir Margrét Jóna Ísólfsdóttir, fjármálastjóri í síma 488-4200, margret@hvolsvollur.is eða Birna Sigurðardóttir, skólastjóri í síma 488-4240, birna@hvolsskoli.is
Skoðaðu BÚKOLLU
á ry.is - hvolsvollur.is vik.is klaustur.is á ÞRIÐJUDÖGUM