Skip to main content

Búkolla 1. - 7. júní 2023

Page 1

Búkolla 1. - 7. júní · 27. árg. 21. tbl. 2023

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16

Frá Héraðsbókasafni Rangæinga Sumarlestrarhvatning Eins og undanfarin ár verður sumarlestrarhvatning á Héraðsbókasafninu. Skráning verður á bókasafninu 1. – 8. júní fyrir öll börn fædd á árunum 2013-2016. Lestrarhestarnir fá þá kynningu á verkefninu en að þessu sinni ætlum við að safna fallegum fuglum í glugga safnsins, þátttakendur fá einnig ævintýrakortið Leitin að ævintýraheimum (sjá https://borgarbokasafn.is/sumarlestur-leitin-ad-aevintyraheimum). Bókaormarnir fá svo sína uppskeruhátíð föstudaginn 25.ágúst. Sumarbókamarkaður: Okkar árlegi sumarbókamarkaður verður á safninu frá 5.júní – 10.ágúst á afgreiðslutíma safnsins. Eins og áður eru allar bækur seldar á 200kr. en einnig er boðið upp á að fylla kassa fyrir 2.000 kr. Verkstæði HBR Verkstæðið er líka opið í sumar á afgreiðslutíma safnsins, þar geta gestir notað þrívíddarprentara, beltagatara, smellutöng, ljósmyndaskanna, Cricut skurðarvél og ýmislegt til kortagerðar. Sumarafgreiðslutími: Mánudaga 15 – 20 Þriðjudaga 15 – 18 Miðvikudaga 15 – 18 Fimmtudaga 15 – 18 Föstudaga – Lokað

Verið velkomin á Bókasafnið okkar allra

Héraðsbókasafn Rangæinga

Vallarbraut 16, 860 Hvolsvöllur - Sími: 488-4235 - www.bokrang.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Búkolla 1. - 7. júní 2023 by Rangárthing ytra - Issuu