Skip to main content

Búkolla 4. - 10. maí 2023

Page 1

Búkolla 4. - 10. maí · 27. árg. 17. tbl. 2023

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. auglýsir sumarhreinsun fyrir íbúa í dreifbýli Rangárvallasýslu Frá 24. maí til 23. júní 2023 mun Sorpstöð Rangárvallasýslu bjóða uppá að sækja járn og timbur heim á bæi í Rangárvallasýslu líkt og verið hefur undanfarin ár. Til að fá heimsókn gámabíls þurfa íbúar með lögheimili í dreifbýli Rangárvallasýslu að senda tölvupóst á strond@rang.is og tilgreina kennitölu, heimilisfang, símanúmer þess sem tekur á móti gámabílnum og áætlað magn timburs eða járns. Mikilvægt er að úrgangi sé safnað á stað þar sem gámabíllinn getur auðveldlega athafnað sig þegar úrgangur er sóttur. Íbúar sjá um að setja úrganginn á gámabílinn. Pantanir þurfa að berast fyrir 24. maí 2023 og í kjölfarið verða íbúar upplýstir nánar hvaða daga gámabíllinn verður á hverju svæði. Ekki verður tekið við pöntunum vegna hreinsunarinnar eftir 24. maí 2023 en hægt verður að fá heimsenda gáma, eftir sumarhreinsunina, samkvæmt gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu sem finna má á heimasíðum sveitarfélaga í Rangárvallasýslu. Nánari upplýsingar veitir Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Sorpstöðvarinnar í síma 487 5157 eða á strond@rang.is.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook